FRANSKI skurðlæknirinn og prófessorinn Jean-Michel Dubernard kom í gær til Íslands en heimsókn hans tengist franska menningarvorinu á Íslandi, "Pourquoi pas?
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gegn þáverandi sambýliskonu sinni í Reykjahverfi og jafnframt dæmt hann til að greiða henni 133 þúsund kr. í bætur.
Meira
4. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 88 orð
| 1 mynd
MIKIL umræða hefur undanfarið átt sér stað um stærð fyrirsætna eða öllu heldur um litla stærð þeirra. Fyrirsæturnar eru hávaxnar en þær eru afar grannar. Nýtt viðmið hjá mörgum fyrirsætum og leikkonum er "size zero" eða stærð núll.
Meira
GRÉTAR Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, vekur athygli á því vegna fréttar um uppsagnir 12 öryggisvarða sem ráðnir voru til að gæta varnarsvæðisins, að rekstur lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum heyri ekki undir...
Meira
4. mars 2007
| Innlent - greinar
| 1489 orð
| 1 mynd
TÆPLEGA fimmtugur karlmaður fannst liggjandi í blóði sínu undir berum himni við Bæjarlind í Kópavogi í gærmorgun og var lögregla kölluð til. Manninum var komið undir læknishendur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.
Meira
LÖGREGLAN á Selfossi gerði síðdegis á föstudag húsleit í íbúðarhúsi í Hveragerði og voru tveir menn handteknir þar. Fannst á annan tug gramma af meintu amfetamíni í fórum þeirra. Mönnunum var sleppt um kvöldið að loknum yfirheyrslum.
Meira
ÁSMUNDUR Gunnlaugsson jógakennari verður með fyrirlestur í Gerðubergi 8. mars nk. kl. 20 þar sem hann mun fjalla um streitu, kvíða og fælni frá ýmsum sjónarhornum.
Meira
4. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 605 orð
| 1 mynd
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Heimdalli um kynjakvóta: Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hafnar öllum hugmyndum um að binda í lög eða stjórnarskrá kynjakvóta, hvort sem um er að ræða Alþingi,...
Meira
4. mars 2007
| Innlent - greinar
| 1535 orð
| 1 mynd
Annar og þriðji stærsti sparisjóður landsins, Sparisjóður Hafnarfjarðar og Sparisjóður vélstjóra, sameinuðust formlega í gær undir heitinu BYR – sparisjóður. Ástæðan er fyrst og fremst breytt umhverfi á fjármálamarkaði.
Meira
4. mars 2007
| Innlent - greinar
| 1046 orð
| 1 mynd
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur var vígð fyrir 50 árum og breytti miklu í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Bergljót Líndal fjallar um sögu Heilsuverndarstöðvarinnar og þýðingu hennar.
Meira
NÝR sparisjóður sem orðinn er til við samruna Sparisjóðs Hafnarfjarðar og Sparisjóðs vélstjóra hefur hlotið nafnið BYR – sparisjóður. Mun hið nýja fyrirtæki starfa undir þessu nafni frá og með þessari helgi.
Meira
4. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 302 orð
| 1 mynd
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is "VIÐ vorum bara í rólegheitunum í vinnunni og á leiðinni í sumarbústað. En svo breyttist allt, okkur var sagt að eitthvað mikið væri að barninu okkar.
Meira
4. mars 2007
| Innlent - greinar
| 1111 orð
| 3 myndir
Jelena Bonner var eiginkona hins heimsþekkta andófsmanns Andrei Sakharovs í Sovétríkjunum. Hún er ekki hrifin af stjórnarfarinu í Rússlandi og segir málaferlin gegn auðkýfingnum Khodorkovski vera pólitískar ofsóknir. Kristján Jónsson ræddi við Bonner.
Meira
4. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 337 orð
| 1 mynd
HRÓÐNÝ Valdimarsdóttir á Húsavík, dóttir Valdimars Hólm Hallstað sem er höfundur textans Við gengum tvö , segir að faðir sinn hafi samið textann við lag Friðriks Jónssonar að ósk Friðriks.
Meira
Í TILEFNI af Evrópudegi talmeinafræðinnar gengst Félag talkennara og talmeinafræðinga fyrir málstofu í fyrirlestrasalnum Bratta í KHÍ nk. þriðjudag 6. mars kl. 16–17.
Meira
4. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 321 orð
| 1 mynd
Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is UMFERÐARLJÓS á 40 gatnamótum í Reykjavík verða tengd sameiginlegri stjórntölvu í næsta mánuði og stefnt er að því að árið 2010 verði sameiginleg stýring á öllum umferðarljósum í borginni.
Meira
4. mars 2007
| Innlent - greinar
| 2774 orð
| 5 myndir
Samfélag breskra múslíma er í uppnámi. Tortryggni í þeirra garð fer vaxandi á Bretlandi og þeim finnst þeir búa við umsátursástand. Bretar eru margir uggandi yfir því að hryðjuverkamenn skuli hafa komið úr þeirra eigin röðum.
Meira
4. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 241 orð
| 1 mynd
ÞESSA dagana halda 35 unglingar til ársdvalar og hálfsársdvalar á vegum AFS á Íslandi til ýmissa landa. Svipaður fjöldi hefur nýverið snúið heim að utan. AFS tekur nú á móti umsóknum um skiptinemadvöl í yfir 30 löndum í fimm heimsálfum nk.
Meira
4. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 281 orð
| 1 mynd
Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is VÍSBENDINGAR eru um að skráning slysa- og bráðadeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi (SBD) á ölvunarástandi unglinga sem þangað leita sé ekki með fullnægjandi hætti.
Meira
SKYNDINÁMSKEIÐ í leiklist fyrir fólk á öllum aldri hefst í Iðnó annað kvöld, mánudagskvöld. Námskeiðinu stýrir Kristín G. Magnús, leikkona, leikstjóri og leikritahöfundur.
Meira
SÓLIN hækkar á lofti dag frá degi og veturinn lætur undan síga hægt og bítandi. Vorið lætur á sér kræla fyrr en seinna og því fylgir að fuglarnir fara að hyggja að hreiðurgerð.
Meira
Pera vikunnar Á GSM símum er klukkan sýnd með tölustöfum sem eru settir saman úr mismörgum ljósastrikum eins og sýnt er á myndinni. Klukkan sýnir klukkustundir, mínútur og sekúndur og þá lýsa sex tölustafir, t.d. 01:23:45.
Meira
4. mars 2007
| Innlent - greinar
| 363 orð
| 1 mynd
» Skilaboðin eru þau að það er hægt að lifa þetta af. Thelma Ásdísardóttir eftir undirritun samnings við ELF Films, kvikmyndafyrirtæki í eigu þriggja íslenskra systra í Los Angeles.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi áskorun: "Aðalfundur Félags fasteignasala skorar á stjórnvöld og alþingismenn að leggja fram frumvarp varðandi framtíð Íbúðalánasjóðs og afgreiða það fyrir þinglok með þeim hætti að rennt verði styrkum stoðum...
Meira
4. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 69 orð
| 1 mynd
ÁRLEG þingmannaveisla var haldin á Hótel Sögu á föstudagskvöld þar sem iðkaður var sá siður að tala einungis í bundnu máli við gesti og var gerður góður rómur að mörgum kviðlingnum sem látinn var fjúka.
Meira
Ummæli yfirmanns danska heraflans, Hans Jesper Helsø hershöfðingja, benda til að stefna ríkisstjórnarinnar í varnarmálum eftir brotthvarf varnarliðs Bandaríkjamanna héðan sé farin að bera árangur.
Meira
4. mars 2007
| Reykjavíkurbréf
| 2098 orð
| 1 mynd
Reykjavík og útbæir hennar hafa á undanförnum árum orðið einhver mesta bíla- og umferðarborg í Evrópu, ef miðað er við íbúafjölda. Ýmsir, þar á meðal Morgunblaðið, hafa orðið til að vekja athygli á því að þetta væri ekki jákvæð þróun.
Meira
Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, rifjaði það upp í ræðu sinni á flokksþingi í fyrradag að framsóknarmenn hefðu haft forgöngu um nýja löggjöf um fjármál stjórnmálaflokkanna.
Meira
ÓHÆTT er að fullyrða að miðasala á fyrirhugaða tónleikaferð hljómsveitarinnar Take That hafi farið vel af stað en 370 þúsund miðar seldust á innan við þremur tímum þegar miðasala var opnuð síðastliðinn föstudag.
Meira
Breski leikarinn Daniel Radcliffe hefur skrifað undir samning um að leika í síðustu tveimur Harry Potter-myndunum. Hann hefur nýverið fengið mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína í hinu umdeilda leikriti Peters Schaffers , Equus, á sviði í London.
Meira
Beethoven: Egmontforleikur Op. 84; Sinfónía nr. 3 í Es Op. 55. Wagner: Wesendonck Lieder. Lilli Paasikivi mezzosópran ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj. Lawrence Renes. Fimmtudaginn 1. marz kl. 19.30.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HÚN heldur upp á 50 ára dægurlagasöngafmæli sitt um þessar mundir, hún Helena Eyjólfsdóttir. "Hvað er hún eiginlega gömul?
Meira
Arndís H. Björnsdóttir skrifar um óheillaþróun í tíð stjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks: "Makalaus spilling hefur ríkt í stjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks."
Meira
Árni Helgason | 2. mars Alvöru sápuópera Sápuóperan sem er verið að taka upp í sölum Héraðsdóms Reykjavíkur hélt áfram í dag. [...] Þetta minnir mig stundum á þátt sem Fóstbræður voru með í gamla daga um Bílastæðaverðina. Er Jón í raun frænka Sigurðar?
Meira
Björk Vilhelmsdóttir | 2. mars Pottur mínus pólitík Ég fer reglulega í sund og ræði þá oft um pólitík í heita pottinum eftir góðan 1000 metra sundsprett. Nú ætla ég hins vegar með karlinum mínum í sumarbústað með heitum potti og njóta helgarinnar.
Meira
Eygló Harðardóttir | 2. mars 2007 Svik og prettir Í janúar skrifaði ég pistil sem hét Svik sjálfstæðismanna þar sem ég fjallaði um ágreining stjórnarflokkanna um hvort setja eigi inn í stjórnarskrá að sjávarauðlindir eru þjóðareign.
Meira
Frá Þorsteini Baldurssyni: "ÉG játa að ég er einn af þessum tillitslausu, freku Reykjavíkurbílstjórum, sem alltaf eru að flýta sér á milli óteljandi umferðarljósa."
Meira
Vilhjálmur Ari Arason fjallar um lyfjanotkun og heilsufar barna: "Það er óásættanlegt að íslensk börn búi við áskapaða vanheilsu vegna vítahringsáhrifa sem tengjast ótímabærum lyfjaávísunum og skyndilausnum."
Meira
Jón Sæmundur Sigurjónsson skrifar um álver og atkvæðagreiðslu Hafnfirðinga: "Það er því verið að spyrja Hafnfirðinga í þessari atkvæðagreiðslu hvort þeir vilji kippa einni grundvallarstoð undan íslensku efnahagslífi eða hvort þeir vilji framfarir til framtíðar..."
Meira
Frá Páli Steingrímssyni: "FYRIR hundrað árum voru opin skólpræsi algeng í þéttbýli á Íslandi, en þau þóttu strax til lýta og menn leituðust við að koma skólpleiðslum í jörð. Í dag eru lagnamál eitt það fyrsta sem ráðist er í þegar búsvæði eru skipulögð."
Meira
SOS tæknimenn RUV Undirrituð er sérstakur aðdáandi ríkisútvarpsins og þá sérstaklega Rásar I. Eftir að ég flutti í sveit hlusta ég allan daginn á Rás I, bæði í heyrnartóli við útiverk eða í góðu útvarpi við innistörf.
Meira
Minningargreinar
4. mars 2007
| Minningargreinar
| 1252 orð
| 1 mynd
Bettý Júlíanna Pálmadóttir Hansen, húsmóðir og verslunarmaður í Reykjavík, fæddist á Blönduósi 17. júlí 1919. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík 23. febrúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
4. mars 2007
| Minningargreinar
| 1028 orð
| 1 mynd
Ebba Thorarensen fæddist á Flateyri 10. ágúst 1923. Hún andaðist á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 26. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Ingibjörg Markúsdóttir, f. á Reyðarfirði 1899, og Ragnar D. Thorarensen, f.
MeiraKaupa minningabók
4. mars 2007
| Minningargreinar
| 575 orð
| 2 myndir
Guðmundur Magnússon "Balli" fæddist 27. júlí 1923. Hann lést 13. janúar síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Sigríðar Guðmundsdóttur og Magnúsar Finnssonar, bónda að Stapaseli í Borgarfirði. Guðmundur var fjórði í röð tíu systkina.
MeiraKaupa minningabók
4. mars 2007
| Minningargreinar
| 584 orð
| 1 mynd
Ólafur Andrés Andrésson fæddist á Felli í Arnarhreppi á Ströndum 4. mars 1927. Hann andaðist 5. júlí 2006. Foreldrar hans voru Andrés Guðmundsson, f. 1882, d. 1974, og Sigurlína Valgeirsdóttir, f. 1900, d 1992. Systkini Ólafs eru Bernharð, f. 1919, d.
MeiraKaupa minningabók
Viðskipti
4. mars 2007
| Viðskiptafréttir
| 501 orð
| 3 myndir
Jurtaolía sem eldsneyti * Fjögur af stærstu útgerðarfélögum landsins og Landsamband íslenskra útvegsmanna eru meðal stofnenda fyrirtækisins ORKEY sem hefur að markmiði að skoða leiðir og hagkvæmni þess að framleiða jurtaolíu úr kanadísku repjufræi,...
Meira
4. mars 2007
| Viðskiptafréttir
| 311 orð
| 1 mynd
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Umræðan um stærð fyrirsætna hefur verið hávær að undanförnu eða réttara sagt umræðan um litla stærð þeirra. Þær eru reyndar háar en mittið er mjótt.
Meira
Nú styttist óðum í að ég verði léttari. Það eru orð að sönnu því ég minni helst á ofalda kind um þessar mundir. Það er í raun hreint furðulegt að ég skuli halda jafnvægi. Næturnar eru að mestu svefnlausar.
Meira
...að hinum fullkomna tóni heldur áfram hjá GusGus, sem nú er orðin að tríói. Fimmta breiðskífa GusGus, Forever, er nýkomin út og ræddi Arnar Eggert Thoroddsen við þá President Bongo (Stephan Stephensen) og Bigga veiru (Birgi Þórarinsson) af því tilefni.
Meira
Lítill snáði vaknaði síðsumars með kúlu á gagnauganu sem var fyrsta vísbending þess að hann væri með alvarlegt krabbamein. Í kjölfarið fylgdi löng og ströng meðferð á Barnaspítala Hringsins og á sjúkrahúsum í Svíþjóð.
Meira
Nýlega kom fram á sjónarsviðið afrakstur sjö vikna samstarf annars árs nema vöruhönnunardeildar Listaháskóla Íslands við nokkra bændur. Verkefnið heitir Borðið; stefnumót hönnuða við bændasamfélagið.
Meira
París er samnefnari smekklegheita og á tískuviku í borginni eru saman komnar margar af stællegustu konum heims. Inga Rún Sigurðardóttir kannaði nýjustu tískustraumana.
Meira
"Við fengum jörðina ekki í arf frá forfeðrum okkar, við höfum hana að láni frá börnunum okkar," segir máltæki frá Keníu. Sigurður Ægisson gerir umhverfisvernd að umtalsefni að þessu sinni, enda við hæfi á sjálfum Æskulýðsdeginum.
Meira
Útvarpið mitt talar óskaplega mikið. Eins og kannski reyndar öll útvörp. Hins vegar finnst mér voðalega leiðinlegt hvað útvarpið mitt talar oft vitlaust. Ætli það sé raunin líka með öll önnur útvörp?
Meira
FJÓRÐA sinfó-nía Atla Heimis Sveins-sonar verður heims-frum-flutt í tón-listar-höllinni Rudolf-inum í Prag þann 30. mars. Tékk-neska fíl-harmóníu-sveitin flytur verkið en það er hluti af ár-legri tón-listar-hátíð í Prag.
Meira
Hlutavelta | Þessar ungu dömur, Gígja Björnsdóttir, Agnes Ögmundsdóttir og Fanney Ísaksdóttir, komu í heimsókn á öskudag og færðu Rauða krossinum pening sem þær höfðu...
Meira
Sitt sýnist hverjum um þá ákvörðun félagsmálaráðherra að hækka lánshlutfall Íbúðalánasjóðs úr 80% upp í 90% , - en þetta var tilkynnt til Kauphallarinnar þann 28. febrúar sl. Þá hækkaði einnig hámarkslán sjóðsins úr 17 milljónum í 18 milljónir króna.
Meira
Virðisaukaskattur á matvælum lækkaði 1. mars úr 24,5% eða 14% í 7%. Ýmsir telja sig hafa fundið fyrir hækkunum á matvælum að undanförnum og óttast að virðisaukaskattslækkunin skili sér ekki sem skyldi í vasa neytenda.
Meira
Guðbjörg Sigurðardóttir fæddist á Akureyri 1956. Hún lauk stúdentsprófi frá MA 1976, kennaraprófi frá KHÍ 1980 og BS-prófi í tölvunarfræði frá HÍ 1983.
Meira
ÓSKARS-VERÐLAUNIN voru veitt við hátíð-lega athöfn í Hollywood aðfara-nótt mánu-dags. Margir höfðu velt vöngum yfir því hvort leik-stjórinn Martin Scorsese hlyti verð-launin í fyrsta sinn, en hann hefur verið tilnefndur fimm sinnum áður.
Meira
Lög-reglan í Kaup-mannahöfn réðst á fimmtu-dags-morgun inn í gamla félags-mið-stöð og fjar-lægði þar hústöku-fólk. Dóm-stóll hafði skipað hústöku-fólkinu að fara úr húsinu en borgin var búin að selja það kristi-legum söfnuði fyrir nokkrum árum.
Meira
1 MS-félagið tók í vikulokin við 20 milljóna króna styrk úr minningarsjóði sem nýta á í viðbyggingu við aðalstöðvar félagsins. Við hvern er minningarsjóðurinn kenndur?
Meira
LANDSLIÐSMENNIRNIR í handknattleik, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Snorri Steinn Guðjónsson, hafa skrifað undir samning við danska úrvalsdeildarliðið GOG frá Svendborg.
Meira
Víkverji fer að heita má daglega um Sæbrautina, þar sem miklum gatnaframkvæmdum er nú lokið. En í hvert sinn sem leiðin liggur austur frá Laugarnesveginum furðar Víkverji sig á því hversu óslétt hægri akreinin er.
Meira
Skólahljómsveit Kópavogs heldur veglega afmælistónleika í Háskólabíói í dag kl. 14. Hinn 22. febrúar síðastliðinn varð hin síunga og fjöruga hljómsveit 40 ára.
Meira
Retroþema er upplagt í fermingum og býður upp á endalausa möguleika þegar kemur að skreytingum. Fimmti, sjötti og sjöundi áratugurinn hafa svo sannarlega sinn sjarma og endalaust úrval af sterkum litum, hressum mynstrum og taumlausri gleði.
Meira
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Ég var ekkert að gera mál úr því þó að ég fengi ekki að fermast. Ég fékk berkla og var á spítala fermingarárið mitt og þess vegna gat ég ekki fermst. Ég tók þessu eins og hverju öðru sem að höndum bar.
Meira
Fermingarkakan er ómissandi fyrir flesta í fermingarveisluna. Guðni Hólm, bakari og eigandi Kökuhornsins í Bæjarlind í Kópavogi, hefur ekki farið varhluta af því að fermingarnar nálgast.
Meira
Það var um tíu ára aldur sem ég fékk áhuga á ljósmyndun, átján ára fór ég að vinna í Hans Petersen og var þar í tvö ár og fékk betra innsæi í ljósmyndarastarfið og eftir það varð ekki aftur snúið," segir Kristín Þorgeirsdóttir sem rekur Krissý...
Meira
Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
Meira
"Línan í dag hjá stelpunum er nokkuð slegin, með liðum eða krullum, það er mjög lítið um að hárið sé sett upp en nokkuð um að það sé greitt til hliðar," segir Lilja Sveinbjörnsdóttir, eigandi Hár gallerís á Laugavegi, spurð hver...
Meira
Það er alltaf gaman en líka ákveðinn höfuðverkur að finna hin fullkomnu fermingarföt. Ingveldur Geirsdóttir leit í búðir til að sjá hvað er á boðstólum í ár.
Meira
Lát þennan dag, vor Drottinn, nú oss dýran ávöxt færa. Ó, bezti faðir, blessa þú vorn barnahópinn kæra. Nú frammi fyrir þér, vor faðir, stöndum vér, þín eldri' og yngri börn, þín elska líknargjörn vor hjörtu virðist hræra.
Meira
Það eru ekki einungis fermingarbörnin í Oddaprestakalli sem eru spennt fyrir fermingardeginum því þetta verður líka stór dagur hjá prestinum í sókninni sem fermir nú í fyrsta sinn. Guðbjörg Arnardóttir var sett í embætti prests í Odda í sumar og segist hlakka til að ferma krakkana.
Meira
Fermingarathöfnin á sér langa sögu og í bók Árna Björnssonar, Merkisdagar á mannsævinni , sem kom út hjá Máli og menningu árið 1996, má finna skemmtilega fróðleiksmola um ferminguna á Íslandi.
Meira
Það hefur löngum verið til siðs í fermingarveislum að hafa gestabók við útganginn svo gestir muni eftir að kvitta fyrir sig að góðri veislu lokinni.
Meira
Þegar leitað er að gjöfum handa fermingarbarninu er um margt að velja. Skartgripir eru alltaf klassískir fyrir bæði stelpur og stráka. Silfurgripir eru vinsælli hjá unglingum en gull.
Meira
Jökull Helgi Sigurðsson er fermingarstrákur sem býr í Hong Kong. Hann ætlar að láta ferma sig borgaralega á Íslandi í sumar og stundar nú fermingarfræðslu í fjarnámi frá Siðmennt.
Meira
Í Ásatrúarfélaginu fer fram athöfn hliðstæð hinni kristilegu fermingu sem nefnist siðfesta. "Á öllum tímum og í öllum samfélögum hafa farið fram manndómsvígslur þar sem unglingar eru teknir í fullorðinna manna tölu.
Meira
Það getur oft verið höfuðverkur að ákveða hvar á að halda fermingarveisluna. Hvort það eigi að hafa hana heima sem þýðir tilheyrandi umstang og stúss eða að leigja sal sem þýðir kannski meiri útgjöld.
Meira
Nokkuð er um það að foreldrar eða aðrir nákomnir ættingjar gefi fermingarbarninu lifandi dýr í fermingargjöf. Hestar eru líklega algengastir í þeim efnum sérstaklega ef aðrir í fjölskyldunni eru í hestamennsku.
Meira
Harpa Hrund Njálsdóttir hefur rekið Ljósmyndaver Hörpu Hrundar í Fákafeni síðustu tvö ár. Harpa lærði ljósmyndum í Svíþjóð og Iðnskólanum og var svo í verklegu námi hjá Barböru Birgis í Skugganum.
Meira
Frá árinu 1989 hefur Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, staðið fyrir borgaralegum fermingum, þær verða sífellt vinsælli og standa öllum unglingum til boða.
Meira
Hvers vegna ekki að bjóða upp á fullkomlega gamaldags kökuhlaðborð með öllum gömlu sortunum sem enginn hefur prófað lengi? Rjómaterta, peruterta, marensterta, smurbrauð með rækjum, flatkökur með hangikjöti, kleinur, pönnukökur o.s.frv.
Meira
Systurnar Guðbjörg Anna og Auður Ögn Árnadætur reka saman fyrirtækið og heimasíðuna Tilefni.is, sem meðal annars tekur að sér uppsetningu og skreytingar fyrir fermingarveislur. Árni Grétar Jóhannsson tók hús á þeim systrum og fékk þær til að koma með skemmtilegar og öðruvísi tillögur að skreytingum og uppsetningum á fermingarveislum. Það var svo sannarlega ekki komið að tómum kofunum hjá þeim, hugmyndirnar virtust óþrjótandi og höfum við valið nokkrar af þeim. Settu þær upp fermingarborð fyrir okkur sem gefið geta innblástur við undirbúninginn auk þess að gefa lesendum góð ráð.
Meira
Oft friðlaust var hjartað ei fundið þig gat ég. Í fangelsi hugans í myrkrinu sat ég. Á lítinn glugga féll ljósgeislinn þinn, og leiðina fann hann, til mín inn. Þá ástúð og hlýju mér andi hans veitir, að ósigrum mínum í sigur hann breytir.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.