ÁRNI Stefánsson, forstjóri Vífilfells, segir að nýhafin kynningarherferð á Coke Zero hafi skilað góðum árangri. "Við erum mjög ánægð með árangurinn," segir hann.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 382 orð
| 1 mynd
Eftir Hafþór Hreiðarsson Húsavík | Bátar hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants á Húsavík standa nú uppi á landi þar sem verið er að skvera þá fyrir hvalaskoðunina á komandi sumri. "Við ætlum að byrja fyrr í ár en áður, eða 1. maí nk.
Meira
BOGI Nilsson ríkissaksóknari segir íslensk hegningarlög ekki geyma ákvæði sem leggur refsingu við heimildarlausri myndatöku af manni sem t.d. fer fram þegar maðurinn er utan almannafæris.
Meira
EKKI er gert ráð fyrir því, í starfsáætlun íþróttaráðs til þriggja ára, sem samþykkt hefur verið í bæjarráði, að nýtt keppnisgólf verði sett í Íþróttahöllina eða íþróttahús KA. Jóhannes G.
Meira
FRAMKVÆMDARÁÐ Reykjavíkurborgar hefur samþykkt aðgerðaáætlun vegna endurbóta á svonefndum vástöðum í borginni, í samræmi við umferðaröryggisáætlun borgarinnar fyrir árin 2002–2007.
Meira
Jerúsalem. AFP. | Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að umbylting hafi orðið í afstöðu arabaríkjanna gagnvart friðarumleitunum og segir raunhæft að samningar takist innan fimm ára.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 152 orð
| 1 mynd
FJÖLSKYLDUHJÁLPIN gengst fyrir fatamarkaði í Kolaportinu nú um helgina, sem er fyrsta helgin í apríl, og einnig fyrstu helgina í maí. Seldur verður nýr og lítt notaður fatnaður á spottprís – engin flík mun kosta meira en 500 krónur.
Meira
HULDA Gústafsdóttir kom, sá og sigraði í fimmgangi í Meistaradeild VÍS í fyrrakvöld. Hún skaut þar með sigurvegurum í fimmgangi í fyrra ref fyrir rass.
Meira
SKÁLHOLTSSTAÐUR býður upp á fjölbreytta dagskrá í dymbilviku og á páskum. Í Skálholtsskóla eru sérstakir kyrrðardagar í dymbilviku frá miðvikudagskvöldi fram á laugardag. Umsjón með þeim hafa sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og Kristinn Ólason.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 134 orð
| 1 mynd
FRUMSÝNING Ford Edge hjá Brimborg í Reykjavík og á Akureyri verður í dag, laugardaginn 31. mars, milli klukkan 12 og 16 og verða reynsluakstursbílar á staðnum. Ford Edge er nýr sportjeppi frá Ford, sem Brimborg Evrópufrumsýnir um helgina.
Meira
Um 63% fólks telja að frumvarp ríkisstjórnarinnar um náttúruauðlindir í þjóðareign hafi dregið mikið eða nokkuð úr trausti fólks á ríkisstjórninni.
Meira
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is TALSMENN gagnageymslufyrirtækisins Data Íslandia ráðgera að reisa tíu gagnageymslur hér á landi fyrir ársbyrjun 2010 og er ætlunin að bygging tveggja hefjist þegar á þessu ári.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 485 orð
| 1 mynd
"ÞESSI dómur er lögfræðileg steypa," segir Sif Konráðsdóttir hrl. um sýknudóm sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra sl. miðvikudag.
Meira
UNGIR jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar á landsvísu, vilja að hér á landi verði skapaðar aðstæður fyrir fjölbreytt atvinnulíf þar sem hátækniiðnaður og sprotafyrirtæki fái að blómstra.
Meira
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ÞÓ AÐ gengisbreytingar hafi vissulega áhrif á vöruverð er gengið aðeins einn af mörgum samspilandi þáttum sem hafa áhrif á verðbreytingar birgja.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 696 orð
| 2 myndir
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is ALLT að 600 manns tóku þátt í umfangsmikilli ráðstefnu um stefnu og strauma í félagslegri þjónustu sem lauk í gær á Nordica hóteli. Að ráðstefnunni stóðu félagsmálaráðuneytið og fleiri aðilar.
Meira
BÁRA Agnes Ketilsdóttir hefur verið ráðinn hjúkrunarfræðingur World Class heilsuræktar, deildarstjóri útivistartíma og tengiliður stöðvarinnar við heilbrigðisstéttir.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 225 orð
| 2 myndir
"ÞAÐ er ekki ósennilegt að um helgina fari hitinn í 13–15 stig fyrir norðan og austan," segir Theodór Hervarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, en spáð er suðlægum áttum á landinu fram á þriðjudag eða miðvikudag.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 172 orð
| 1 mynd
Á ALÞJÓÐLEGA veðurdeginum 23. mars 2007 var formlega opnaður í El Escorial á Spáni sameiginlegur vefur 21 Evrópulands um veðurviðvaranir. Vefurinn er unninn undir merkjum Eumetnet sem er formlegur samstarfsvettvangur ríkisveðurstofa þessara landa.
Meira
Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að Icelandair hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína á flugleiðum til Lundúna og Kaupmannahafnar og bjóða net-smelli á 16.900 kr.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 135 orð
| 2 myndir
I-listi með 5,3% fylgi *I-listi Íslandshreyfingarinnar – lifandi lands fengi 5,2% kjörfylgi ef kosið yrði nú samkvæmt niðurstöðum könnunar Gallups. Fylgi annarra flokka er svipað og í síðustu könnun nema VG sem tapar 3,6 prósentustigum.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 295 orð
| 1 mynd
Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is I-listi Íslandshreyfingarinnar – lifandi lands fengi 5,2% kjörfylgi ef kosið yrði nú samkvæmt niðurstöðum könnunar Gallups sem gerð var vikuna 21.–27. mars.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 110 orð
| 1 mynd
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Í DAG fagnar Alcoa Fjarðaál því að starfsemi álversins er nú formlega að fara af stað og býður starfsmenn fyrirtækisins velkomna til starfa við hið nýja álver á Reyðarfirði.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir hættulegar líkamsárásir. Annar mannanna, Steindór Hreinn Veigarsson, hlaut 4 ára fangelsi og meðákærði, Kristján Halldór Jensson, 2 ára fangelsi.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 149 orð
| 1 mynd
KOLBEINN Sigþórsson, knattspyrnumaðurinn ungi úr HK, fer á morgun til hollenska stórliðsins Ajax til æfinga. Hann fer síðan með unglingaliði félagsins til Spánar þar sem það tekur þátt í sterku móti um páskana.
Meira
KOMUM við í sjónvarpinu? spurðu þau hvert í kapp við annað, börnin í 3. bekk Glerárskóla þegar Sigurður Hlöðversson frá akureyrsku sjónvarpsstöðinni N4 mætti á Glerártorg í hádeginu í gær með græjur sínar.
Meira
HAFNFIRÐINGAR ganga til atkvæðagreiðslu í dag um tillögu að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Á annað þúsund manns hafði kosið utan kjörstaðar í gær og verða heildarúrslit atkvæðagreiðslunnar kunngjörð í kvöld.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 327 orð
| 1 mynd
KOSTNAÐUR stjórnvalda af hvalveiðum og tengdum verkefnum á tímabilinu 1990–2006 nemur samtals tæplega 749 milljónum króna á verðlagi dagsins í dag.
Meira
NÝI færanlegi hafnarkrani Eimskips, Jötunn, sýndi í fyrradag kraft sinn þegar hann lyfti 115 tonna rafli og 93 tonna túrbínu. Rafallinn og túrbínan voru flutt til landsins með Goðafossi en verða nú send til Hellisheiðarvirkjunar Orkuveitu...
Meira
Rangt eftirnafn Í viðtali, sem Daglegt líf átti við þrjá tíundu bekkinga úr Kópavogsskóla sem jafnframt eru við nám í Menntaskólanum í Kópavogi, misritaðist eftirnafn Guðmundar Más Gunnarssonar.
Meira
NOKKUÐ ljóst virðist vera, að sá vinsæli bíll Volkswagen Caddy er ekki alveg gallalaus. Hann lyktar nefnilega að innan eins og margir kettir hafi migið í hann.
Meira
UMFERÐARÓHAPP varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar í Reykjavík miðvikudaginn 28. mars milli klukkan 8 og 9. Umferð þar er stjórnað með umferðarljósum.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 137 orð
| 1 mynd
LÍÐAN Dorritar Moussaieff, eiginkonu forseta Íslands, er eftir atvikum góð, en hún lærbrotnaði þegar hún var á skíðum í Aspen í Colorado-ríki í Bandaríkjunum.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 777 orð
| 4 myndir
VIÐBRÖGÐ stjórnmálamanna eru nokkuð misjöfn við þeim hugmyndum sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra greindi frá í ræðu á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs í fyrradag. Þar lagði hann m.a.
Meira
Andstæðingar herforingjanna sem rændu völdum í Taílandi efndu í gær til mótmæla við ráðhúsið í höfuðborginni Bangkok og sjást hér veifa þjóðfánanum. Nýjar þingkosningar verða í...
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 175 orð
| 1 mynd
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is ÞAÐ VAR vitneskjan um hver málaði Fæðingu Venusar sem tryggði liði Menntaskólans í Reykjavík sigur í Gettu betur í gærkvöldi en liðið atti kappi við lið Menntaskólans í Kópavogi.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 247 orð
| 1 mynd
YFIRVÖLDUM borga og bæja á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki gengið sem skyldi að tengja saman skipulagsmál einstakra bæjarfélaga og sameiginlega vatnsverndarhagsmuni.
Meira
Í TILEFNI af eins árs rekstrarafmæli sínu þann 1. apríl ætlar SKO að bjóða viðskiptavinum sínum upp á ókeypis farsímaþjónustu á afmælisdaginn. Ókeypis verður fyrir alla viðskiptavini SKO að hringja og senda SMS*.
Meira
ÞRJÚ leikverk verða í boði á Akureyri um páskana á vegum Leikfélags Akureyrar. "Það má segja að þetta sé lítil leiklistarhátíð," segir Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri.
Meira
MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands munu 2. apríl nk. standa fyrir ráðstefnunni "Mannréttindasamningar Sameinuðu þjóðanna. Áhrif þeirra, framkvæmd og tengsl við mannréttindasáttmála Evrópu.
Meira
Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is STJÓRN Vladímírs V. Pútíns Rússlandsforseta treysti enn yfirráð sín yfir orkuauðlindum þjóðarinnar þegar útibú ríkisfyrirtækisins Rosnefnt keypti á þriðjudag 9,44% hlut í Júkos-olíufyrirtækinu.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BRESKIR ráðamenn segjast ætla að þrýsta eftir mætti á stjórnvöld í Teheran á alþjóðavettvangi vegna deilunnar um sjóliðana 15 sem Íranar handtóku á umdeildu svæði á landamærum Írans og Íraks fyrir viku.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 531 orð
| 1 mynd
Nú er aðeins hálfur annar mánuður til Alþingiskosninga og á tíu dögum fjölgaði framboðum um tvö. Þjóðin mun því velja milli sjö listabókstafa þegar hún gengur að kjörborðinu í vor.
Meira
HUGMYNDASAMKEPPNI um skipulag Vatnsmýrar hófst á vegum Reykjavíkurborgar í gær. Samkeppnin er alþjóðleg og fer fram í tveimur þrepum. Afrakstur keppninnar verður kynntur í nóvember eftir að dómnefnd hefur metið tillögur í báðum þrepum.
Meira
SAMKOMULAG náðist í gær í sérfræðinganefnd allra aðildarríkja Evrópuráðsins um tillögu að bindandi samningi um vernd barna gegn kynferðisofbeldi og kynferðislegri misneytingu.
Meira
23 BÆNDUR við Þjórsá sendu Hafnfirðingum bréf á fimmtudag vegna atkvæðagreiðslunnar um stækkun álversins í Straumsvík þar sem vakin er athygli á því að þau áform eru "stóralvarleg" fyrir fleiri en Hafnfirðinga.
Meira
1. apríl er á morgun og rétt að rifja upp, að 1957 tilkynnti BBC , að búið væri að útrýma spaghettí-bjöllunni og nú blómstruðu spaghettí-trén sem aldrei fyrr. Linnti þá ekki látunum í fólki, sem vildi vita hvar hægt væri að kaupa...
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 125 orð
| 1 mynd
STANGVEIÐITÍMABILIÐ hefst á morgun. Veiðimenn taka þá að egna fyrir sjóbirting í ýmsum ám, einkum sunnanlands og vestan. Þá hefst einnig veiði í nokkrum silungavötnum.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 513 orð
| 1 mynd
"Mér finnst ríkissaksóknara bera skylda til að áfrýja dómnum, því það er ekki hægt að búa við það að svona athæfi sé refsilaust," segir Atli Gíslason hrl. og vísar þar til sýknudóms sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra sl.
Meira
ATVINNULÍFSHÓPUR Framtíðarlandsins hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun: "Til umhugsunar fyrir Hafnfirðinga. Með því að samþykkja stækkun álvers hefur eðlileg langtímaþróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu verið takmörkuð verulega.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 959 orð
| 5 myndir
Hátíðamessa verður í Neskirkju á pálmasunnudag í tilefni af 50 ára afmæli hennar. Guðrún Guðlaugsdóttir kynnti sér lauslega byggingarsögu Neskirkju og starfsemi hennar.
Meira
MIKIL svifryksmengun hefur verið í Stokkhólmi í mánuðinum og oft yfir því hámarki, sem ESB-reglur kveða á um. Er óvanalega milt veður sagt eiga sinn þátt í því en þó einkum mikil nagladekkjanotkun. Hefur hún aukist um 10% frá fyrra ári.
Meira
HÓPUR hafnfirskra ungmenna kom saman á Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar upp úr hádegi í gær til þess að mótmæla fyrirhugaðri stækkun álvers Alcan í Straumsvík. Kosningar um stækkunina fara fram í dag og er lágmarks kosningaaldur 18 ár skv....
Meira
KJÓSENDUR í Hafnarfirði kjósa í dag um tillögu að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Á kjörskrá eru 16.648 manns. Kjörfundur hefst kl. 10.00 og stendur til kl. 19.00.
Meira
Hrafn Jökulsson, forseti skákfélagsins Hróksins, fylgdi þremur erindrekum Hróksins úr hlaði er þeir héldu til Grænlands fyrir helgi til að kynna skáklistina fyrir íbúum Ittoqqortoormiit á austurhluta Grænlands.
Meira
VERÐ á skólamáltíðum í leik- og grunnskólum á Akureyri hefur verið lækkað. Verð á hverri máltíð er nú 229 kr. ef miðað er við annarkort, 274 kr. ef keypt er mánaðarkort og 309 kr. fyrir stakar máltíðir.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 632 orð
| 1 mynd
Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | "Við erum á kafi í verkefnum í kringum vaxtarsamninginn fyrir Suðurland. Ég tel að sóknarfærin á Suðurlandi séu sterkust í gegnum samstarf og samvinnu.
Meira
FIMM lögregluþjóna þurfti til að yfirbuga trylltan mann í annarlegu ástandi sem gekk í skrokk á rosknum manni við hús á Miklubrautinni í gær. Auk árásarinnar braut maðurinn útidyrahurð að sögn lögreglu.
Meira
31. mars 2007
| Innlendar fréttir
| 1284 orð
| 2 myndir
Annar og léttari tónn var yfir ársfundi Seðlabanka Íslands í gær en á sama tíma í fyrra, þegar banka- og hagkerfið íslenska lá undir harðri gagnrýni erlendra greiningaraðila. Forsætisráðherra segir allt útlit fyrir að hagkerfið muni ná mjúkri lendingu og standa sveifluna af sér.
Meira
ÞORSTEINN Hjartarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts. Þorsteinn hefur gegnt starfi skólastjóra Fellaskóla í Breiðholti frá árinu 2000. Þjónustumiðstöð Breiðholts er ein af sex þjónustumiðstöðvum...
Meira
Það var djörf ákvörðun hjá útgefendum Króníkunnar að hefja útgáfu á því blaði og blaðið var ágætlega útgefið. Hins vegar kemur engum á óvart sem á annað borð fylgist með sviptingum á þessum markaði að útgáfu blaðsins hafi verið hætt.
Meira
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra flutti merka ræðu á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs í fyrradag. Þetta var stefnumarkandi ræða af því tagi, sem ráðherrar eiga að flytja en gera sjaldan.
Meira
GÓÐIR gestir, Hyperion-tríóið frá Þýskalandi heldur tónleika í Salnum annað kvöld kl. 20. Tríóið var stofnað árið 1999 og tveimur árum síðar vann það til fyrstu verðlauna í Brahms-keppninni í Pörtschach.
Meira
Benedikt Hermann Hermannsson, eða bara Benni Hemm Hemm stendur í ströngu þessa dagana, nýkominn úr tónleikaferð um Evrópu, en skammt er síðan Kajak, plata hans og hljómsveitarinnar, kom út í Evrópu hjá þýska fyrirtækinu Morr Music.
Meira
SAMKVÆMT þýska vefritinu Welt Online, hefur útgáfufyrirtæki J. K. Rowling tilkynnt um mögulega lengingu lífdaga Harry Potters. Útgáfu sjöundu og síðustu bókarinnar er nú beðið í ofvæni út um allan heim en bókarkápan var afhjúpuð á dögunum.
Meira
ÞÁ hefur Gettu betur runnið sitt skeið á enda þetta árið. Þetta hefur verið skemmtileg keppni og er ég sammála þeirri skoðun sem ýmsir hafa orðið til að viðra, að það hafi orðið léttara yfir þáttunum með árunum.
Meira
Mælikvarðar á listhneigð þjóða geta verið margs konar. Hvað lagt er mikið fé til lista, hversu mörg eða heimsþekkt afrekin eru, á hve gömlum merg er staðið o.s.frv. Sennilega verða þó seint allir sáttir um hvað vegur þyngst.
Meira
KVIKSÖGUKVÖLD verður í Tjarnarbíói á morgun kl. 17. Kviksaga er miðstöð kvikmynda og fræða; vettvangur þar sem fræði og kvikmyndir mætast, eins og við gerð heimildarmynda.
Meira
Fregnir hafa borist af því að Volta, ný plata Bjarkar Guðmundsdóttur, sem koma á út í byrjun maí, hafi lekið á Netið. Því til sannindamerkis vísa menn á stutta búta úr lögunum sem finna má á netinu, bæði sem myndbönd á YouTube og eins á MySpace-síðum.
Meira
* Fyrsta plata Silvíu Nætur, Goldmine, kemur út á mánudaginn. The Silvía Night Show hefur farið misjafnlega ofan í fólk enda svolítið skrítið að fylgjast með endursýndri atburðarás sem þjóðin varð vitni að í beinni á síðasta ári.
Meira
ÍSLENSK-færeyska tríóið Trisfo heldur útgáfutónleika í Norræna húsinu annað kvöld kl. 20. Hvatamaður að stofnun tríósins er færeyski kontrabassaleikarinn Edvard Nyholm Debess, en auk hans skipa tríóið Kjartan Valdemarsson og Sigurður Flosason.
Meira
Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is "ÞAÐ SEM sameinar okkur fyrst og fremst er ákveðin miðlun á orku. Við erum báðar að reyna að skoða einhvers konar heim að handan." Þannig lýsir myndlistarkonan Guðrún Benónýsdóttir, Gurra, m.a.
Meira
VERKIÐ Stúlka er eftir ástralska myndhöggvarann Ron Mueck. Það er nú til sýnis á Contemporary Art Center á Malaga og virtust margir vera áhugasamir um að skoða þetta risavaxna...
Meira
ÆTTAR- og fjölskyldusaga, sem tengist stöðum á sunnanverðu landinu, náttúru og húsum, er uppistaða sýningar Borghildar Óskarsdóttur sem opnuð verður kl. 14 í dag í Listasafni ASÍ; – en ívafið, skálar og stjörnumerki.
Meira
Til 29. apríl 2007 Opið alla daga kl. 10–17. Aðgangur kr. 500. Eldri borgarar og öryrkjar kr. 250. Hópar (10+) kr. 250. Yngri en 18 ára: ókeypis. Ókeypis á fimmtudögum.
Meira
TÓLF kórar frá öllum Norðurlöndunum keppa um Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í ár, en verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Ósló í lok október. Verðlaunin nema 350 þúsundum danskra króna, eða um 4 milljónum íslenskra króna.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Í ÓÐINSVÉUM í Danaveldi er verið að endurskipuleggja hafnarsvæðið og fyrirhugað er að reisa þar nýjan miðbæjarkjarna.
Meira
VORTÓNLEIKAR Söngsveitarinnar Fílharmóníu verða í Langholtskirkju annað kvöld og þriðjudagskvöld kl. 20 báða dagana. Flutt verða þrjú kórverk frá 19. öld eftir meistarana Brahms, Mendelssohn og Schubert.
Meira
Haukur Brynjólfsson skrifar um þjóðlendur: "Öll þessi mikla og vandaða vinna þjóðlendunefndar, óbyggðanefndar og dómskerfisins stefnir að réttum og sanngjörnum niðurstöðum."
Meira
Börkur Gunnarsson | 30. mars Kúnni slátrað Mér er slétt sama hvort Hafnfirðingar kjósa að leyfa þessu magnaða fyrirtæki að blómstra eða hvort þeir ákveða að drepa lífæðina sína, slátra kúnni sem gefur þeim mjólkina. Það er þeirra mál.
Meira
Eftir Jóhönnu Sigurðardóttur: "Markmið stefnumótunarinnar var að tryggja hag og velferð barna og unglinga á öllum sviðum þjóðlífsins og búa þeim sem best og jöfnust skilyrði til uppvaxtar og þroska."
Meira
Kæri bílstjóri HVAÐ hef ég gert, kæri bílstjóri, sem olli því að þú þurftir að flauta á mig? Þú varst greinilega reiður og í uppnámi þennan morgun. Ert þú ef til vill oft svona æstur í umferðinni? Það er ekki gott!
Meira
Sturla Böðvarsson svarar grein Guðbjarts Hannessonar: "Í aðdraganda að gerð Hvalfjarðarganga var öll umræða á Vesturlandi mjög á þann veg að herða ætti á framkvæmdum við vegagerð ekki síður en er í dag."
Meira
Helena Stefánsdóttir | 30. mars Kosið í Hafnarfirði ÉG HEF fylgst áhugasöm með umræðunni um stækkun álvers í Straumsvík. Þykir mér merkilegt að bæjarstjóri Hafnarfjarðar skuli leggja málið undir íbúa bæjarins.
Meira
Guðrún Guðlaugsdóttir fjallar um jafnrétti, umhverfismál, konur og stjórnmál: "Konur vilja gjarnan gott mannlíf þar sem jöfnuður ríkir, traust og vinátta. Er "hreint land" kannski ómeðvituð löngun eftir "hreinu samfélagi", þar sem viðskiptastríð og spilling eru víðsfjarri?"
Meira
Jón Magnússon | 30. mars Pólitísk öndunarvél Allt var það gert til að fá Margréti til að koma deilum af stað innan Frjálslynda flokksins [...]. Það tókst, en nú hefur flokkurinn náð vopnum sínum.
Meira
Óli Björn Kárason | 30. mars Merkileg kaup Kaupin á Króníkunni eru annars nokkuð merkileg. Erfitt er að sjá hvaða skynsamleg rök hafa legið að baki því að útgáfufélag DV ákvað að kaupa útgáfuna, en DV hlýtur a.m.k. að hafa yfirtekið Björgólfs-lánið.
Meira
AÐ undanförnu hefur sú síbylja verið kyrjuð að raforka til stóriðju sé niðurgreidd. Yfirleitt er engin tilraun gerð til að rökstyðja þessa fráleitu fullyrðingu.
Meira
Sigríður Dögg Auðunsdóttir | 30. mars Krónikan seld Eins og fram hefur komið í fréttum hefur útgáfufélag Krónikunnar verið selt til útgáfufélags DV.
Meira
Frá Leifi S. Garðarssyni: "GLAÐHLAKKALEGUR mæti ég til starfa, laust fyrir klukkan átta að morgni, tilbúinn að takast á við fjölbreytileg verkefni dagsins."
Meira
Reynir Ingibjartsson svarar Jóni Sæmundi Sigurjónssyni: "Áratugum saman hef ég reynt að leggja því lið að jafnaðarmenn úr ýmsum áttum sameinist í öflugan flokk. Það hefur nú tekist."
Meira
HINN 16. janúar 2006 skipaði þáverandi forsætisráðherra nefnd sem fjalla átti um lífeyris-, búsetu- og þjónustumál aldraðra. Nefndin skilaði niðurstöðum 19.
Meira
Frá Sigurði Sigurðssyni: "MJÖG áberandi umræða um símahleranir og kalda stríðið hefur verið undanfarið í fjölmiðlum. Nokkrir helstu spekingar okkar í orðfimi hafa farið um völlinn og frætt okkur hin sem erum minni spámenn. Á yfirborðinu virðist sem þessu kalda stríði sé að mestu lokið nema í íslenskum blaðagreinum."
Meira
Minningargreinar
31. mars 2007
| Minningargreinar
| 3705 orð
| 1 mynd
Bergþóra Árnadóttir fæddist í Reykjavík 15. febrúar 1948. Hún lést á sjúkrahúsinu í Álaborg, Danmörku 8. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Árni Jónsson, trésmiður, fæddur á Ísafirði 20.6. 1923, lést 26.8.
MeiraKaupa minningabók
Einar Ingi Theódór Ólafsson fæddist í Reykjavík 23. október 1936. Hann lést á Kanaríeyjum 11. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Digraneskirkju 23. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Erlingur Jóhannesson fæddist á Hallkelsstöðum í Hvítársíðu 11. desember 1915. Hann lést eftir stutta sjúkralegu á Sjúkrahúsinu á Akranesi 23. mars síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Jón Sigurðsson fæddist í Núpskötlu á Melrakkasléttu 17. júlí 1946. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 23. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Álfhildur Gunnarsdóttir húsfreyja, f. 9.6. 1924, d. 5.8.
MeiraKaupa minningabók
31. mars 2007
| Minningargreinar
| 2317 orð
| 1 mynd
Skúli Magnússon Öfjörð fæddist í Skógsnesi Gaulverjabæjarhreppi 9. maí 1928. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 20. mars sl. Foreldrar hans voru Þórdís Ragnheiður Þorkelsdóttir, fædd í Reykjavík 10. mars 1892, látin 15.
MeiraKaupa minningabók
31. mars 2007
| Minningargreinar
| 3176 orð
| 1 mynd
Stefán Guðmundsson fæddist 8. júlí 1933. Hann lést 22. mars síðastliðinn. Stefán ólst upp hjá foreldrum sínum í Húsatúni í Haukadal við Dýrafjörð. Foreldrar hans voru Guðmundur Jón Jónsson, f. 2. júní 1888, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Unnar Rafn Jóhannsson fæddist á Ísafirði 20. apríl 1974. Hann lést í sjóslysi 13. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Ísafjarðarkirkju 24. mars.
MeiraKaupa minningabók
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is NORÐURÁL hefur falið Landsbankanum og Kaupþingi í sameiningu að skoða hagkvæmustu leiðir til fjármögnunar á fyrirhuguðu álveri Norðuráls í Helguvík, ásamt endurfjármögnun vegna Grundartanga.
Meira
HALLI á vöruskiptum við útlönd fyrstu tvo mánuði þessa árs nam 11,2 milljörðum króna, samanborið við 18,7 milljarða króna á sama gengi miðað við sama tíma í fyrra, eða 7,5 milljörðum skárri vöruskiptajöfnuður. Í janúar og febrúar sl.
Meira
HANS Petersen og Strax Holdings hafa sameinað verslunarrekstur sinn undir merkjum HP Farsímalagersins frá og með morgundeginum, 1. apríl. Strax hefur rekið Farsímalagerinn og sérhæft sig í sölu og dreifingu á farsímabúnaði.
Meira
Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is MIKLAR vangaveltur eru nú á markaði í Bretlandi um framtíðareignarhald á breska flugfélaginu British Midland, BMI.
Meira
FL Group hefur selt hlut sinn í Kynnisferðum. Kaupandi er eignarhaldsfélagið Reynimelur, sem er í eigu fjárfesta undir forystu SBA-Norðurleiðar og Hópbíla. Kynnisferðir halda m.a.
Meira
MEST hefur keypt fyrirtækið Timbur og stál og mun það verða rekið áfram í svipaðri mynd og áður á Smiðjuvegi í Kópavogi. Kaupverðið er ekki gefið upp. Timbur og stál er um 30 ára fyrirtæki sem hefur þjónustað byggingariðnaðinn.
Meira
Sr. Bragi Friðriksson, heiðursborgari Garðabæjar, fagnaði nýverið 80 ára afmæli sínu. Af því tilefni ákváðu bæjarstjórn Garðabæjar og Garðasókn að styrkja útgáfu ritverks sr.
Meira
Einn af öðrum gægjast þeir upp úr húsþökum og steyptum grunnum, byggingakranarnir í Akralandi í Garðabæ. Þrátt fyrir að enn séu lóðir ófrágengnar og malarvegir upp að húsum leynast raunveruleg heimili inn á milli þar sem fjölskyldur hafa hreiðrað um...
Meira
Á fjórðu hæð tískuhúss Elie Saab í Beirút er á risaskjá hægt að fylgjast með nýjustu tískusýningu hönnuðarins í París. Elie Saab var bara átján ára þegar hann kynnti til sögunnar sína fyrstu tískulínu.
Meira
Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum yrkir um Steingrím J. Sigfússon sem forsætisráðherra og áhrif stoppstefnunnar á þjóðarbúið: Illa verður eflaust liðinn elsku kallinn. Efnahagur allur sviðinn eins og skallinn.
Meira
Álversmál hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu. Í allri umfjöllun um stækkun álversins í Straumsvík hefur gjarnan verið rætt um aðrar álversframkvæmdir á landinu, m.a. í Helguvík.
Meira
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Svart/hvíti draumurinn er eins og þráhyggja í tískuheiminum. Hann er vitaskuld klassískur en öðru hverju blossar hann upp, blómstrar í ótrúlegustu formum og flottheitum. Svoleiðis er það árið 2007.
Meira
jonf@rhi.hi.is: "Merking orða Ragnar Ingimarsson gerir athugasemd við eftirfarandi dæmi: Því svarar Guðni eins og væri hann nautheimskur eða kýrskýr og fær fjölda atkvæða út á ruglið ( 2 3 . 2 . 0 7 ) . Eins og sjá má er lo."
Meira
Fermingarbarnalistar eru nú aðgengilegir á mbl.is Listarnir eru vistaðir undir liðnum "NÝTT á mbl.is", í vinstra dálki á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina mbl.
Meira
Jón Friðrik Sigurðsson fæddist í Reykjavík 1951. Hann lauk stúdentsprófi frá MH 1971, BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 1976, meistaraprófi frá Háskólanum í Stirling 1988 og doktorsprófi frá Institute of Psychiatry, Kings College 1998.
Meira
Páskar í Garðaprestakalli Skírdagur: Á skírdagskvöld verður helgistund í Bessastaðakirkju kl. 20. Bjartur Logi Guðnason organisti mun leiða logjörðina ásamt söngkvartett, en sr. Friðrik J. Hjartar þjónar fyrir altari. Helgistund í Vídalínskirkju kl. 22.
Meira
1 Helstu eigendur Glitnis takast á um yfirráðin í bankanum. Hver er stjórnarformaður Glitnis núna? 2 Íbúasamtök í kringum Laugardalinn eru ekki sátt við borgina. Af hverju ekki?
Meira
Á hvaða leið er lögfræðingastéttin? Á baksíðu Morgunblaðsins í gær var fjallað um dóm, sem nýlega er fallinn í undirrétti. Maður tók mynd af sofandi stúlku án fata í rúmi hans með farsíma sínum og sýndi öðru fólki.
Meira
ALLIR bestu badmintonspilarar landsins verða á ferðinni í TBR-húsinu um helgina – á Meistaramóti Íslands. Úrslitaleikirnir hefjast kl. 13 á morgun, sunnudag.
Meira
DIDIER Drogba, framherji Chelsea, hefur staðið sig best allra leikmanna í ensku úrvalsdeildinni það sem af er keppnistímabilinu samkvæmt útreikningum Actim, sem heldur utan um frammistöðu allra leikmanna í deildinni og reiknar út einkunnir þeirra fyrir...
Meira
EGGERT Magnússon stjórnarformaður West Ham hnikar ekkert frá þeim áformum sínum að koma félaginu í Meistaradeild Evrópu á næstu fimm árum þrátt fyrir að liðið sé í næst neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og skorti átta stig til að vera í öruggu sæti í deildinni.
Meira
Neil Warnock , knattspyrnustjóri Sheffield United , hefur átt í viðræðum við félagið um nýjan samning en núverandi starfssamningur er senn á enda.
Meira
Landsliðsmennirnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru báðir í leikmannahópi Reading sem sækir Tottenham heim á White Hart Lane á morgun.
Meira
LIVERPOOL og Arsenal mætast í fjórða skipti á leiktíðinni á Anfield í hádeginu í dag en liðin eru í hörðum slag um þriðja sætið í deildinni. Arsenal er stigi á undan Liverpool og á auk þess leik til góða og með sigri nær Lundúnaliðið góðri stöðu í slagnum um þriðja sætið.
Meira
KÁRI Kristján Kristjánsson, leikmaður Hauka, er sterkasti leikmaðurinn á línunni í úrvalsdeildinni í handknattleik. Hann hefur skorað 51 mark af línu, sem er 69% af mörkum Hauka, sem skoruð eru af línu, alls 74.
Meira
ÚRSLITALEIKIRNIR um sæti í ensku úrvalsdeildinni, 1. deildinni og 2. deildinni fara fram á hinum nýja Wembley-leikvangi í vor, eftir því sem talsmaður enska knattspyrnusambandsins greindi frá í gær. Leikirnir fara fram í loka maí.
Meira
MANCHESTER United er verðmætasta knattspyrnulið í heimi samkvæmt úttekt sem viðskiptatímaritið Forbes hefur gert. Manchester United er metið á 740 milljónir punda, 96 milljarða íslenskra króna.
Meira
ÞAÐ var notalegt að sitja í tómum útsendingarklefa útvarpsstöðvar á Mallorca á ONO Estadi-leikvanginum á miðvikudag tveimur tímum áður en að viðureign Spánverja og Íslendinga hófst í F-riðli Evrópumótsins.
Meira
BARÁTTAN um markakóngstitilinn í úrvalsdeildinni í handknattleik karla heldur áfram um helgina. Þá verða skytturnar fimm, sem hafa skorað yfir 100 mörk, á ferðinni og það er næsta víst að sjötti leikmaðurinn, Akureyringurinn Goran Gusic, rjúfi 100 marka múrinn. Gusic hefur skorað 96 mörk.
Meira
DAVID James markvörður Portsmouth setur nýtt met takist honum að halda marki sínu hreinu gegn Heiðari Helgusyni og félögum hans í Fulham í leik liðanna á Craven Cottage í dag.
Meira
HOLLENSKI landsliðsmaðurinn Robin van Persie, miðherji Arsenal, mun ekki leika meira með liðinu í vetur. Hann fótbrotnaði er hann skoraði sigurmarkið gegn Manchester United í janúar, 2:1.
Meira
TOPPLIÐIN Manchester United og Chelsea verða bæði í eldlínunni í dag. United, sem hefur sex stiga forskot á Englandsmeistarana þegar átta umferðir eru eftir, taka á móti Blackburn klukkan 14 að íslenskum tíma og klukkan 16.
Meira
HERMANN Hreiðarsson og félagar hans í Charlton eiga mikilvægan leik fyrir höndum í dag en þá taka þeir á móti Wigan í sannkölluðuðum botnslag. Charlton er í fallsæti, er með 27 stig í þriðja neðsta sæti, en Wigan er tveimur sætum ofar með 33 stig.
Meira
ÖRN Arnarsson hafnaði í 24. sæti í undanrásum í 100 metra flugsundi á heimsmeistaramótinu í sundi í Melbourne í gær. Alls tóku 118 keppendur þátt í sundinu.
Meira
Svona falleg egg geta börn alveg niður í tveggja ára búið til. Þetta er samt svolítið subbulegt föndur og því þurfið þið að fá leyfi hjá fullorðnum áður en þið hefjist handa.
Meira
Snædís Guðrún, 10 ára, teiknaði þessa fallegu hestamynd. Það er eins og hesturinn sé að horfa á okkur og biðja okkur um að fara með sér í útreiðartúr. Það væri nú gaman ef við gætum galdrað hestinn út úr blaðinu og skellt okkur svo á...
Meira
Gíraffinn er hæsta dýr á jörðinni. Hann er svo stór að hann gæti kíkt inn um glugga á annarri hæð á húsi. Gíraffar hafa líka rosalega langa tungu sem þeir nota þegar þeir bíta lauf af efstu trjátoppunum. Úr bókinni Stafróf dýranna eftir Halldór Á.
Meira
Tommi er orðinn leiður á að elta Jenna sem hleypur í sífellu frá honum. Getur þú hjálpað honum að finna litlu sætu brúnu músina? Vonandi ætlar Tommi samt ekki að éta...
Meira
Hægt er að finna út aldur trés með því að telja árhringina í stofni þess. Stofninn gildnar á vorin og sumrin þegar trén vaxa best og þá er viðurinn ljósari. Á haustin myndast svo þykkar frumur og dekkri viður.
Meira
Þau Marinó Ingi Adolfsson, Halldór Stefán Jónsson, Thelma Björg Björnsdóttir og Emil Steinar Björnsson stóðu sig með stakri prýði um síðustu helgi þegar þau kepptu á sínu fyrsta stórmóti í sundi.
Meira
Aurora Erika, 6 ára, teiknaði þessa skemmtilegu mynd af fjölskyldu í sveitinni. Aurora hugar vel að öllum smáatriðum. Sjáið hvað sólin fylgist kát...
Meira
Geturðu hjálpað Jóni Smára sundkappa að finna sundgleraugu sín áður en hann stingur sér til sunds? Jón Smári á 10 sundgleraugu sem eru falin á síðum...
Meira
Stóri ferningurinn er búinn til úr fjórum minni ferningum. Í hvern lítinn ferning eiga tölurnar frá 1–4 að koma fyrir. Eins eiga tölurnar frá 1–4 að koma fyrir í hverri línu, lárétt og lóðrétt. Þetta getur verið svolítið snúið. Lausn...
Meira
Víkingar merktir E og H eru eins. Það eru 17 mánar og 14 sólir á myndinni. Börnin heita Atli, Lára, Gísli, Stefán, Birna, Sólveig, Guðrún, Ari og...
Meira
Besta vinkona mín Það er ein stelpa sem ég veit um hún er falleg, sterk og góð þó leitað sé í öllum borgum og sveitum þá finnst ei betra fljóð. Ég treysti henni best fyrir leyndarmálum mínum og oftast hún líka treystir mér fyrir sínum.
Meira
Hæ, hæ! Ég heiti Kamilla og ég óska eftir pennavini á aldrinum 11–12 ára, sjálf verð ég 12 ára 25. ágúst. Ég er í Snælandsskóla og áhugamál mín eru píanó, söngur, lestur og margt fleira. Ég vona að ég fái mörg bréf.
Meira
Klipptu eggið eftir línunum í níu hluta. Athugaðu svo hvort þú getir búið til einhvern af svörtu fuglunum sem þú sérð hér. Það þarf alltaf að nota alla níu bútana við gerð á hverjum fugli.
Meira
Marinó Ingi Adolfsson, 10 ára, Halldór Stefán Jónsson, 9 ára og systkinin Thelma Björg Björnsdóttir og Emil Steinar Björnsson kepptu í sundi um síðustu helgi á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra.
Meira
Í þessari viku eigið þið að para saman fram- og afturenda dýranna á myndunum. Lausnina skrifið þið svo á blað og sendið okkur fyrir 7. apríl. Munið að láta fylgja með upplýsingar um nafn, heimilisfang og aldur.
Meira
Hafsteinn, 6 ára, teiknaði þessa ógurlegu hermannamynd. Það er eins gott að verða ekki á vegi þeirra. Vélmennin heita Stálkrákan og Skjöldurinn...
Meira
Þorgeir, 5 ára, er mikill listamaður en hann teiknaði þessa glæsilegu mynd af víkingaskipi. Takið eftir útskorna drekahöfðinu í stafni skipsins. Ætli maður yrði ekki sjóveikur að sigla um á svona...
Meira
Lesbók
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 877 orð
| 1 mynd
Skáldsagan Frá gósenlandinu eftir Kirsten Hammann, sem er komin út í Neon-klúbbi Bjarts, segir frá Mettu sem í byrjun bókar er í fyrirmyndarhjónabandi með fyrirmyndareiginmanni og býr í fyrirmyndarhúsnæði á besta stað í...
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 2837 orð
| 14 myndir
Í seinustu Lesbók skrifaði greinarhöfundur um það hvers vegna frjálshyggjumenn gætu með góðri samvisku barist fyrir jöfnuði en nú snýr hann sér að náttúruvernd. Náttúruvernd er ekki einkamál vinstrimanna, segir hann.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 414 orð
| 3 myndir
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Dauðsfall og uppgötvanir í kjölfar þess eru upphafspunktur annarrar skáldsögu Vendela Vida, Let the Northern Lights Erase Your Name .
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 251 orð
| 2 myndir
Eftir Þröst Helgason vitinn.blog.is Bryan Ferry er miklu betri Dylan en Bob sjálfur. Þetta segi ég ekki bara til þess að fara í taugarnar á lesendum: Ég hef aldrei getað hlustað á Bob Dylan flytja tónlist sína!
Meira
Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu Kvikmyndatímarit eru margskonar og í gegnum tíðina hafa þau mörg komið og farið án þess að skilja mikið eftir sig.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 533 orð
| 1 mynd
Hvaða skoðun höfðu Vestur-Íslendingar á indjánum? Voru þeir fordómafullir? Kveðskapur Vestur-Íslendinga sem og sjálf þátttaka þeirra í aðför að indjánum ásamt dekri við hernað er dapurlegur vitnisburður um hlut Vestur-Íslendinga í yfirganginum gegn frumbyggjum Ameríku, segir í þessari grein.
Meira
Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is Jæja, nú er Jónasarárið – eða fárið – gengið í garð, sagði maður við mig um daginn og það er alveg rétt.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 628 orð
| 1 mynd
Eftir Sigtrygg Magnason naiv@internet.is Ég hef aldrei átt gæludýr. Ekki beint. Þó átti ég samleið með þó nokkrum köttum í uppvexti mínum, hundar voru ætíð nærri og ég átti kind. Hún hét Metallica. Kölluð Meta.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 1013 orð
| 1 mynd
Eftir Þorstein I. Sigfússon this@simnet.is Orkueyjan Ísland hefur mikla sérstöðu á heimsvísu. Ísland er ungt land í jarðfræðilegum skilningi, stutt niður á heita kviku, eyjan rís nokkuð hátt og liggur jafnframt í braut regnvotra Atlantshafslægðanna.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 398 orð
| 3 myndir
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Nýverið kom út ævisaga Ingrid Bergman. Sagan var rituð af Charlotte Chandler, sem einnig hefur ritað ævisögur fólks á borð við Bette Davis, Alfred Hitchcock og Billy Wilder.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 178 orð
| 1 mynd
Lesarinn Hvers sá sem hyggst lesa mig ætti að vita að ég er ekki íþróttablaðamaður. Ég kenni hugmyndasögu í bókmenntadeild Háskólans í Rúðuborg. Ég er sagnfræðingur og heimspekingur, ef svo má segja." Með þessum orðum varar A.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 728 orð
| 1 mynd
Skipperinn í brúnni á Modest Mouse, Isaac Brock, er frægur fyrir sína sérkennilegu söngrödd, lykluðu texta og fjölskrúðugu lög. Hann er svo alræmdur fyrir það hversu mikill hrakfallabálkur hann er, þótt ágjöfin hafi minnkað eftir að hann kom sér á snúruna.
Meira
Portrett úr orðum eftir Stéphanie Cohen Limmósína nemur staðar. Bílstjórinn opnar fyrir mér dyrnar og tilkynnir mér: "Ég veit alveg hver þú ert." "Seiðkona í New York í leit að konu frá Íslandi, það vekur óhjákvæmilega athygli!
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 210 orð
| 1 mynd
Frystir vetur fölar sytrur fennir yfir dal og enni. Blundandi hjá Baulutindi blakkir hanga skýjaklakkar. Undan roki upp að ströndum úfnir geysast bárukúfar, brotna loks við bergsins rætur byltast um í dansi trylltum.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 1589 orð
| 7 myndir
Hjalti Geir Kristjánsson er einn af frumkvöðlum íslenskrar húsgagnahönnunar. Sýning á verkum hans verður opnuð í 101 galleríi á fimmtudaginn kemur en þar verða stólar Hjalta Geirs í forgrunni. Hann ræðir hér við blaðamann um feril sinn og hönnun.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 1648 orð
| 1 mynd
Hörður Bergmann hefur sent frá sér bókina Að vera eða sýnast: Gagnrýnin hugsun á tímum sjónarspilsins en í henni ræðir hann um einkenni á markaðnum og á vettvangi stjórnmálanna.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 498 orð
| 1 mynd
Eftir Gunnar Hersvein gunnars@hi.is ! Herlist, hertækni, hernaðarbandalag, herfræði, heróp, heróín ... Stríð er vanabindandi aðferð líkt og heróín er vanabindandi efni.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 459 orð
| 3 myndir
Byrgismálið er dæmi um mál sem hefur vakið umræðu um aðkomu kirkna og trúfélaga að samfélagsþjónustu. Í þessari grein er aðkoma þessara aðila að slíkri þjónustu, opinberri umræðu og ákvarðanatöku rædd.
Meira
31. mars 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 856 orð
| 1 mynd
Kvikmyndirnar Kyrrt líf og Dong eftir kínverska leikstjórann Jia Zhangke hafa vakið gríðarlega athygli undanfarna mánuði en sú fyrrnefnda hlaut meðal annars Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sl. haust.
Meira
Þegar ég var lítil stelpa, þá bjó ég nú á mjög góðum stað hvað veður snerti. Í vondum veðrum var alveg svakalegt, hristist allt og nötraði og maður lá vakandi á nóttunni og hugsaði hvað yrði ef húsið fyki út í sjó.
Meira
Eftir Konráð Þórisson: "FRAM yfir miðja síðustu öld var bágt ástand á ýmsum sviðum íslensks þjóðlífs. Margir voru án vinnu og þeir sem höfðu einhverja vinnu náðu ekki alltaf að fæða sig og klæða. Á þeim tíma tilheyrðum við þriðja heiminum."
Meira
Eftir Eyjólf Árna Rafnsson: "Í OPINBERRI umræðu og umfjöllun fjölmiðla má oft skilja það sem svo að uppbygging orkufreks iðnaðar á Íslandi undanfarin ár sé mistök, byggist á gamaldags hugsun, þetta sé iðnaður gærdagsins og nær væri að "gera eitthvað annað"."
Meira
Eftir Þorstein Siglaugsson: "Árið 1998 gaf Landsvirkjun út skýrsluna "Mat á þjóðhagslegum áhrifum stóriðju á Íslandi 1966–1997", eftir dr. Pál Harðarson. Þar kemur fram að arður Landsvirkjunar af virkjunum fyrir stóriðju nemi ríflega 4% á ári á tímabilinu."
Meira
Í HUGUM margra er álver einsleitur og einhæfur vinnustaður. Það er öðru nær. Í einu álveri er heilt samfélag margvíslegrar starfsemi og þar kennir margra grasa. Þar er flóra iðngreina og tæknigreina í sinni fjölbreyttustu mynd.
Meira
Eftir Svavar Jónatansson: "Orkumál og orkunýting Virkjanir og álver Svavar Jónatansson | 30. mars Á síðustu vikum hafa stjórnmálamenn og áhugamenn um náttúruvernd og umhverfismál lagt eindregið til að Íslendingar hætti a.m.k."
Meira
Eftir Sigurð Oddsson: "HAGFRÆÐISTOFNUN Háskóla Íslands (HHÍ) hefur reiknað út að árlegar tekjur Hafnarfjarðar aukast um 200 milljónir verði af stækkun í Straumsvík. Samtök iðnaðarins (SI) reikna sama dæmi og fá út 5 sinnum hærri upphæð."
Meira
Eftir Andreu Ólafsdóttur: "ÉG TREYSTI því að Hafnfirðingar muni kjósa samviskunni samkvæmt og hafa það í huga að möguleikar byggðar í Hafnarfirði skerðast verulega við stækkun álvers. Þarna yrði fórnað dýrmætu byggingarlandi auk þess sem atvinnulíf yrði einhæft á svæðinu."
Meira
Eftir Hjörleif Guttormsson: "ÍSLENDINGAR fá nú á færibandi sýnishorn af vinnuaðferðum fjölþjóðafyrirtækja sem leitast við að kaupa sér umhverfisvæna ímynd til að breiða yfir náttúruspjöll og mengun."
Meira
Eftir Benjamín Julian Plaggenborg: "BRÁTT verður kosið um stækkun álvers í Hafnarfirði. Hér ætla ég að fá lesendur til að hugsa um nokkur atriði áður en gengið verður til kosninga. Við upphaf kosningabaráttu Alcan var mengunaraukningu haldið frá umræðunni um álverið."
Meira
Eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur: "MIG langar að deila með ykkur sögu af alveg stórkostlegri konu sem heitir Hazel Henderson og var heimavinnandi húsmóðir í New York."
Meira
Eftir Unni Stellu Guðmundsdóttur: "ÉG ER 27 ára íslensk kona, borin og barnfæddur Hafnfirðingur og hef síðustu ár lagt stund á mastersnám í raforkuverkfræði í stórum háskóla erlendis og stefni á doktorsnám í raforkuverkfræði með haustinu."
Meira
Eftir Helenu Stefánsdóttur: "ÉG HEF fylgst áhugasöm með umræðunni um stækkun álvers í Straumsvík. Þykir merkilegt að bæjarstjóri Hafnarfjarðar skuli leggja málið undir íbúa bæjarins. Ekki mjög títt á Íslandi og þykir mér að fleiri mættu fylgja fordæminu."
Meira
Eftir Ólaf Skúla Indriðason: "Á ÍSLANDI hefur verið mikil þensla í hagkerfinu undanfarin ár. Stórframkvæmdir á Austurlandi ráða þar miklu um en þær hafa verið umdeildar bæði út frá vistrænum og hagrænum sjónarmiðum."
Meira
Ævar Rafn Kjartansson.: "ÁFORM Landsvirkjunar (LV) um virkjanir í neðri Þjórsá hafa farið leynt meðan styrrinn stóð um Kárahnjúkavirkjun. Meðan athyglin beindist þangað faldi LV allt efni um áform sín í Þjórsá undir liðnum "Umhverfismál"."
Meira
Eftir Hrafnkel Birgisson: "MIKILVÆGT er að viðhalda þekkingu í íslensku samfélagi sem lýtur að sem mestu efnahagslegu sjálfstæði og fjölbreyttu atvinnulífi."
Meira
Eftir Kristínu Guðmundsdóttur: "EF STÆKKA á álver á höfuðborgarsvæðinu, hvers vegna ekki að gera það í Kópavogi? Svo mætti leggja háspennulínur gegnum Garðabæ. Myndu Garðbæingar ekki vilja svoleiðis hjá sér?"
Meira
Eftir Rögnvald J. Sæmundsson: "UNDANFARIN ár hefur komið í ljós að álvinnslufyrirtæki hafa mikinn áhuga á að reisa verksmiðjur á Íslandi til þess að nýta sér hreina orku á lágu verði Áhuginn er það mikill að ekki er til næg orka á Íslandi fyrir allar þær verksmiðjur sem nú eru á..."
Meira
Sigurður Sigurðsson: "Sigurður Sigurðsson | 29. mars Öryggi kalda stríðsins og óöryggi umræðunnar MJÖG áberandi umræða um símahleranir og kalda stríðið hefur verið undanfarið í fjölmiðlum."
Meira
Eftir Guðmund Ármannsson: "SENN líður að kosningum í Hafnarfirði þann 31. mars næstkomandi. Í orði kveðnu fjalla þær um skipulagsmál en eins og öllum er ljóst snúast þær um stækkun á álverinu í Straumsvík eður ei."
Meira
Eftir Bjarna Óskarsson: "ÞAÐ er ekki einkamál Hafnfirðinga hvort stækka á álverið í Straumsvík eða ekki. Það er ekki einu sinni einkamál Íslendinga."
Meira
Guðbjörn Sigvaldason skrifar um stefnu VG í umhverfismálum: "Í minnihluta krefjast þeir að fyrirhugaðar framkvæmdir fari í umhverfismat en í meirihluta dugar huglægt mat fulltrúa þeirra."
Meira
Eftir Jón Ásgeirsson: "FYRIR u.þ.b. tíu árum var haldinn blaðamannafundur í tengslum við nýlokna gangsetningu á stækkun álversins í Straumsvík. Þar var saman kominn hópur blaðamanna frá ýmsum löndum."
Meira
Frá Jens Arnljótssyni: "NOKKUÐ hefur borið á misvísandi upplýsingum í fjölmiðlum og víðar um að hvergi sé neitt í boði fyrir iðnlært fólk sem vill halda áfram námi og að það vanti sárlega fagháskóla."
Meira
Eftir Elías Kristjánsson: "ÞEGAR mál álvers Alcan í Straumsvík er skoðað og hvernig á því stendur að Samfylkingin er að gefa það fordæmi að hægt sé að kjósa fyrirtæki út úr sveitarfélagi er gott að fara aftur í tímann og skoða afstöðu manna eins og Össurar Skarphéðinssonar til..."
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.