Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÞEIR sem flytja inn kjötvörur á grundvelli samnings milli Íslands og Evrópusambandsins borga í ár 320 milljónir fyrir að fá að flytja inn kjöt frá ESB. Niðurstaða útboðs á tollkvótum er sú að Sláturhúsið á Hellu hf.
Meira
HANDAGANGUR var í öskjunni í Samkomuhúsinu á Akureyri í gær þegar skráning fór fram í áheyrnarprufur fyrir leiksýninguna Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur sem frumsýnd verður hjá Leikfélagi Akureyrar í haust.
Meira
ÞAÐ er ekki ný tíðindi, að mikil saltneysla sé óholl en nú hafa vísindamenn sýnt fram á það með umfangsmiklum rannsóknum. Það sýnir sig, að þeir, sem reyna að sneiða hjá saltinu, draga um leið mikið úr líkum á...
Meira
WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, skilgreinir afleiðingar umferðarslysa sem eitt stærsta heilbrigðisvandamál sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag.
Meira
ARNA Sól Sævarsdóttir, sjö ára Akureyrarmær, var ræst fyrst í göngukeppni sjö ára og yngri á Andrésar andar-leikunum í Hlíðarfjalli við Akureyri í gær og var einbeitt á svip, eins og sjá má, þegar henni var hleypt af stað í blíðskaparveðri um...
Meira
FIMM stjórnmálaflokkar greiddu ríflega 11 milljónir króna í auglýsingar í blöðum, útvarpi og sjónvarpi dagana 27. til og með 18. apríl sl., samkvæmt samantekt Capacent Gallup fyrir flokkana.
Meira
MAÐUR á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum á aldrinum fimm til 12 ára, vörslu á barnaklámi og umferðarlagabrot. Búið er að birta manninum ákæruna og verður hún þingfest eftir helgi.
Meira
ÁSTRÁÐUR, forvarnarstarf læknanema við Háskóla Íslands, hlaut síðasta vetrardag íslensku forvarnarverðlaunin árið 2007. Þau eru veitt af forvarnarhúsi Sjóvár.
Meira
Konur í úthverfi borgarinnar Srinagar í indverska hluta Kasmír harma hlutskipti sitt eftir átök milli lögreglumanna og herskárra uppreisnarmanna í gær. Tveir féllu á átökum sem urðu í Pulwama-sýslu, efnt var til fjöldamótmæla vegna atburðarins.
Meira
BENSÍNVERÐ hækkaði í vikunni að meðaltali um 2,50 krónur. Olís reið á vaðið sl. miðvikudag, hækkaði um 2,70 krónur og N1 fylgdi í kjölfarið, hækkaði um 2,50, og loks Skeljungur 2,50.
Meira
BJÖRG Þórhallsdóttir, söngkona, og Kristján Ingimarsson, leikari, hljóta starfslaun listasmanna frá Akureyrarbæ á þessu ári, til sex mánaða hvort. Þetta var tilkynnt á Vorkomu Akureyrarstofu sem haldin var í Ketilhúsinu sumardaginn fyrsta.
Meira
NIÐURSTÖÐUR liggja fyrir í Blaðberakapphlaupi Morgunblaðsins í mars. Að þessu sinni varð Arnar Birkir Hálfdánsson hlutskarpastur og hlaut hann ipod sem viðurkenningu fyrir framúrskarandi blaðburð í mars. Arnar Birkir ber út í Brúnalandi og Búlandi.
Meira
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is BÆTUR sem matsnefnd eignarnámsbóta ákvarðaði að Landsvirkjun skyldi greiða landeigendum Brúar á Efri-Jökuldal greiðast ekki út fyrr en niðurstaða liggur fyrir í þjóðlendukröfum ríkisins um svæðið.
Meira
Bangkok. AFP. | Stjórnvöld í Taílandi styðja búddista sem hafa vopnast til að verja fjölskyldur sínar fyrir ofstækisfullum vígamönnum úr röðum múslíma, að sögn Surayud Chulanont forsætisráðherra í gær.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is BLÖNDUÐ byggð um 330 íbúða fyrir námsmenn og eldri borgara, auk sérbýla neðan Sléttuvegar í Reykjavík, hefur verið samþykkt í skipulagsráði.
Meira
LEIKFÉLAG Menntaskólans á Akureyri frumsýnir á morgun, sunnudag, leikritið Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare. Draumur á Jónsmessunótt er dramatískur gamanleikur, saminn einhvern tímann rétt fyrir lok 16.
Meira
Sydney. AFP. | Tólf metra löng seglskúta af tvíbytnugerð með vélar í gangi og mat á borðum en mannlaus fannst um 80 sjómílur úti fyrir strönd Ástralíu í gær.
Meira
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær, að ekki væri lengur þörf á að efna til almennrar atkvæðagreiðslu í landinu um nýjan Evrópusáttmála en hann á að koma í stað stjórnarskrárinnar, sem var hafnað í Hollandi og Frakklandi.
Meira
CARL Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, situr enn í stjórnum tíu félaga, fyrirtækja og hugveitna, þótt hann hafi lofað að láta af öllu slíku þegar hann tók við ráðherraembætti.
Meira
DR. Frederik J. Simons, lektor við jarðvísindadeild Princetonháskóla, heldur fyrirlestur í röðinni Undur veraldar á vegum raunvísindadeildar Háskóla Íslands í dag, laugardaginn 21. apríl.
Meira
CHO Sun-Kyung, systir námsmannsins Cho Seung-Hui, sem myrti 32 manns og tók síðan eigið líf í tækniháskóla í Blacksburg í Virginíu í Bandaríkjunum á mánudag, sendi í gær frá sér yfirlýsingu fyrir hönd fjölskyldunnar vegna harmleiksins.
Meira
BORGARYFIRVÖLD munu í dag funda með eigendum Lækjargötu 2 og Austurstrætis 22, auk forsvarsmanna Vátryggingafélags Íslands, um hvaða skref verði tekin til uppbyggingar eftir stórbrunann á miðvikudag.
Meira
FRANSKI brúðuleikhópurinn Turak sem hér er á ferðinni í tilefni af menningarhátíðinni Frönsku vori heimsækir Landnámssetrið í Borgarnesi kl. 20 á mánudagskvöld.
Meira
VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð á Suðurnesjum, efnir í dag, laugardaginn 21. apríl, til dagskrár um það sem nú tekur við eftir að Bandaríkjaher hefur að mestu yfirgefið landið. Dagskráin hefst kl.
Meira
ASÍUVER Íslands – ASÍS, samstarfsstofnun Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands um Asíufræði síðan 2005, hefur hlotið rausnarlegan styrk frá Glitni, eina milljón króna á ári í þrjú ár, til að standa straum af framkvæmdum sínum, viðburðum og...
Meira
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á þrítugsaldri vegna aksturs undir áhrifum lyfja síðdegis á fimmtudag. Það væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að maðurinn var stöðvaður í porti lögreglunnar við Hverfisgötu.
Meira
GRÆNN dagur var í nokkrum grunnskólum Reykjavíkur í gær. Nemendur í Víkurskóla, sem er "grænfána"-skóli, tóku m.a. til hendinni og hreinsuðu rusl úr móanum neðan við skólahúsið og af skólalóðinni.
Meira
RÚSSAR hafa áhuga á að gera jarðgöng undir Beringssund milli Síberíu og Alaska. Yrðu göngin þau lengstu í heimi, 103 km, og er áætlaður kostnaður við þau 3.600 milljarðar ísl. kr. Gert er ráð fyrir, að vinna megi verkið á 10...
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is MEIRA en 30 manns hafa fallið og um 200 særst í hörðum bardögum milli eþíópískra hermanna í höfuðborg Sómalíu, Mogadishu, síðustu sólarhringa, að sögn ættbálkahöfðingja á svæðinu.
Meira
VERKEFNIÐ Hálkuvarinn, frá nemendum Iðnskólans í Reykjavík, bar sigur úr býtum í landskeppni Ungra vísindamanna sem var haldin í 19. sinn í Háskóla Íslands síðasta vetrardag. Sjö lið voru skráð til keppni í ár og kepptu tvö verkefni til úrslita.
Meira
STREITAN og álagið, sem fylgja daglegu lífi nú á dögum, eru mjög hættuleg heilsunni og munu hugsanlega valda sannkallaðri sprengingu í hjarta- og æðasjúkdómum. Kemur það fram í skýrslu, sem kynnt var á Evrópuþinginu í Brussel.
Meira
"ÉG TÓK upp þráðinn fyrir alvöru þegar ég datt niður af pöllum í minni vinnu," segir byggingaverktakinn Halldór Bergmann Þorvaldsson um aðdraganda þess, að hann fór að kenna Müllersæfingar á bökkum Vesturbæjarlaugar 20. apríl 1982.
Meira
HLJÓMSVEITIN Hjónabandið leikur í bás Kaffi Langbrókar um helgina í Fífunni þar sem verða "Þrjár sýningar undir sama þaki". Hjónabandið skipa Jón Ólafsson, Auður Friðgerður Halldórsdóttir, Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir og Jens Sigurðsson.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt karlmann á sextugsaldri til að greiða 160 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs vegna umferðarbrots auk þess sem hann var sviptur ökuréttindum til tveggja ára. Maðurinn var stöðvaður við akstur í ágúst á sl.
Meira
Malatya. AFP. | Fjölmiðlar í Tyrklandi segja að þrír starfsmenn kristilegrar bókaútgáfu í borginni Malatya hafi verið pyntaðir í þrjár stundir áður en þeir voru skornir á háls.
Meira
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ heldur kynningarfund um áætlun og umhverfismat vegna hugsanlegrar olíuleitar á Drekasvæði við Jan Mayen hrygginn, mánudaginn 23. apríl, kl. 13.00–16.00, í fundarsal Orkustofnunar, Grensásvegi 9.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is "ÞAÐ er ekki ætlunin að stofna þarna risasafn með veitingaaðstöðu og tilheyrandi kostnaði, heldur að þetta verði sem mest í þeim stíl sem það var.
Meira
ORKUVEITA Reykjavíkur fékk á dögunum afhenta fjóra nýja metangasbíla og hefur þá keypt fimm gasbíla frá áramótum. Nýju bílarnir eru frá Heklu af gerðinni Volkswagen Caddy og eru bæði útfærðir sem sendibílar og fólksbílar.
Meira
Á VEF Framkvæmdasviðs borgarinnar hefur verið sett upp kynningarsíða með nýjum kortum og öðrum upplýsingum um hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
VARMÁRSAMTÖKIN efna til íbúaþings þar sem kynntar verða tillögur að nýrri leið til og frá Helgafellshverfi að Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Yfirskrift þingsins, sem haldið verður í Þrúðvangi í Álafosskvos í dag, laugardaginn 21. apríl, kl.
Meira
Dalir | Hluti "Gamla kaupfélagshússins" við höfnina í Búðardal var opnaður formlega á sumardaginn fyrsta eftir endurbyggingu. Opnunin var liður í Jörfagleði, menningarhátíð Dalamanna. Húsið mun síðar hýsa Leifssafn.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Ölfus | Haft er á orði að sumarið komi alltaf með árlegri hátíð garðyrkjunema við Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi á sumardaginn fyrsta.
Meira
REYNIR Jónsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Strætó bs. í stað Ásgeirs Eiríkssonar. Stjórn félagsins ákvað þetta á fundi sínum í gær og hefur Reynir þegar hafið störf.
Meira
VEGAGERÐIN hefur skrifað undir samning um gerð Tröllatunguvegar. Tekið var tilboði lægstbjóðanda, Ingileifs Jónssonar ehf. í Reykjavík. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var viðstaddur undirritunina.
Meira
Eftir Ómar Garðarsson Vestmannaeyjar | Hvar er myndin? er yfirskrift sýningar Sigurgeirs Jónassonar ljósmyndara í vélasal Listaskóla Vestmannaeyja.
Meira
STÚDENTARÁÐ hefur opnað heimasíðuna loford.is þar sem stefnuskrá stúdentaráðs er borin saman við stefnuskrár þeirra stjórmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis.
Meira
RUPIAH Banda, varaforseti Zambíu, sagði í gær, að Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, væri einn af mestu stjórnvitringum þessa heims. Vekja ummælin furðu, m.a. vegna þess, að forseti Zambíu líkti nýlega Zimbabwe við sökkvandi...
Meira
Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is STJÓRNVÖLD í Ástralíu hafa tilkynnt, að taki ekki að rigna og það mikið á næstu vikum, muni þau neyðast til að loka fyrir allt áveituvatn úr tveimur stærstu fljótunum.
Meira
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu var kölluð í austurborgina vegna manns sem reist hafði tjald á einkalóð og lét fara vel um sig. Maðurinn, sem reyndist vera ferðamaður frá Nýja-Sjálandi, var að elda sér morgunverð.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is STÆRSTI vinnustaðurinn af þeim fyrirtækjum sem illa fóru í stórbrunanum í miðborg Reykjavíkur á miðvikudag er skemmtistaðurinn Pravda. Þar störfuðu yfir fimmtíu manns og að sögn forsvarsmanna eru allir án atvinnu í dag.
Meira
ERFITT er að koma í veg fyrir atvik lík því sem kom upp á Vitastíg á miðvikudagskvöld, þegar heitavatnslögn gaf sig og um 80°C heitt vatn flæddi niður á Laugaveg, segir Helgi Pétursson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, og bendir á að leiðslukerfi heita...
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is UMSÓKNUM útlendinga um dvalarleyfi hér á landi fjölgar enn og eru þau flest tengd atvinnuþátttöku. Fyrstu þrjá mánuði ársins höfðu þegar verið gefin út 3.797 leyfi en á sama tíma í fyrra voru gefin út 3.509 leyfi.
Meira
Ég verð að játa eitt og það er að ég er svolítið viðkvæm fyrir hópstemmningu og geng kannski stundum full langt í að aðlaga mig þeim hópum sem ég villist inn í hverju sinni.
Meira
Nafn Guðbjartur Hannesson. Starf Skólastjóri í Grundaskóla á Akranesi. Fjölskylduhagir Giftur Sigrúnu Ásmundsdóttur iðjuþjálfa og á tvær dætur, Birnu og Hönnu Maríu. Kjördæmi Norðvestur, 1. sæti fyrir Samfylkinguna. Helstu áhugamál?
Meira
Margt er óvenjulegt við þá kosningabaráttu, sem fer í hönd um embætti Bandaríkjaforseta, ekki síst frambjóðendurnir sjálfir. Allir forsetar Bandaríkjanna hingað til hafa verið hvítir karlmenn og aðeins einn var ekki mótmælendatrúar.
Meira
Hveragerði | Ólafur Steinsson, fyrrverandi garðyrkjubóndi, tók við umhverfisverðlaunum Hveragerðisbæjar 2007 úr hendi Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra við athöfn sem fram fór á sumardaginn fyrsta.
Meira
Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur mesta áherslu á að styrkja innviði samfélagsins og vill fjárfesta í bættum samgöngum og aðferðum til að jafna búsetuskilyrði.
Meira
FULLTRÚAR frá Vátryggingafélagi Íslands hafa verið á brunavettvangi í miðborginni frá því um miðjan dag á miðvikudag þegar eldurinn kviknaði. VÍS brunatryggir bæði Lækjargötu 2 og Austurstræti 22 og ljóst er að tjónið fer umfram þeirra eigin áhættu.
Meira
Það er dálítið flókið mál fyrir Framsóknarflokkinn að átta sig á, hvernig flokkurinn á að bregðast við fylgistapi sínu ef miðað er við síðustu þingkosningar.
Meira
Það er augljóst, að smátt og smátt er að skapast samstaða um að Reykjavíkurflugvöllur hljóti að hverfa og það land, sem hann er nú á, verði tekið til annarra nota.
Meira
Það er fátt sem kemur á óvart þegar rýnt er í niðurstöður nýrrar símakönnunar Capacent Gallup um afstöðu svarenda til tekjuskatts einstaklinga, fyrirtækja og fjármagnstekjuskatts.
Meira
Margir tengja nafn Sigfúsar Eymundssonar einkum við bókaverslunina sem hann stofnaði og enn ber nafn hans, 98 árum eftir að hann lést. Aðrir vita þó að hann var einn frumherjanna í ljósmyndun hér á landi – einn sá allra besti sem hér hefur...
Meira
FULLTRÚAR elstu barnabókaverðlauna Breta, Carnegie Medal, hafa valið bækur eftir tíu fyrrverandi verðlaunahafa til að marka sjötíu ára afmæli verðlaunanna í ár.
Meira
LÚÐRASVEITIN Svanur hefur átt annasaman vetur og lýkur honum nú og fagnar komu sumars með vortónleikum í dag, 21. apríl, kl. 16 í Neskirkju. "Okkur í lúðrasveitinni Svan hefur alltaf fundist töff að spila í lúðrasveit.
Meira
"EARTH Intruders", fyrsta smáskífan af Volta, væntanlegri breiðskífu Bjarkar Guðmundsdóttur, er nú fáanleg á Netinu hér á landi. Lagið er hægt að kaupa á vefslóðinni Smekkleysa.
Meira
HINIR árlegu vortónleikar Breiðfirðingakórsins fara fram í Grafarvogskirkju í dag, 21. apríl, kl. 17. Óperudúettinn, sem samanstendur af Davíð Ólafssyni bassa og Stefáni Stefánssyni tenór, mun einnig syngja nokkur lög.
Meira
Í KÚLUNNI í Þjóðleikhúsinu hefjast í dag sýningar á brúðuleikritinu um Mjallhvít í uppfærslu brúðuleikhússins 10 fingra sem Helga Arnalds stjórnar.
Meira
ÞÆR fundust í auka svefnherbergi hjá eftirlaunaþega, tvær litlar aflangar myndir með tveimur heilögum persónum. Þær þekktust strax sem tíndur partur af altaristöflu í San Marco á Ítalíu sem endurreisnarmálarinn Fra Angelico málaði.
Meira
Í DAG er þátturinn Orð skulu standa sendur út frá Egilsstöðum, gestir eru Sigurður Ingólfssson menntaskólakennari og Þorsteinn Bergsson bóndi á Unaósi.
Meira
Dr. Gunni er með skemmtilegri bloggurum og á síðu sinni veltir hann því fyrir sér hvernig morðhótunarbréfið sem ísbjarnarhúninum Knúti barst, hafi hljómað. "Helvítis Knútur! Ég ætla að drepa þig auminginn þinn. Skera þig á háls eins og óður Ínúíti.
Meira
Eftir Karl Tryggvason ktryggvason@gmail.com SAUÐKINDIN, leikfélag Nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi, stendur um þessar mundir fyrir uppfærslu á leikritinu Með fullri reisn í Tjarnarbíói.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is NÖFN eru tekin að tínast inn á næstu G! tónlistarhátíð, sem er haldin ár hvert í bænum Götu í Færeyjum. Hátíðin í ár fer fram dagana 19. og 21. júlí og fagnar fimm ára afmæli í ár.
Meira
Þórarinn Eldjárn, Ólafur Haukur Símonarson og Egill Ólafsson sömdu söngleikinn Gretti fyrir hátt í 30 árum en hann verður settur upp á ný um helgina. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar það um heljarmennið Gretti Ásmundsson sem trúlega hefði verið settur á rítalín hefði hann verið uppi í dag.
Meira
UPPSELT var á Forever útgáfutónleika GusGus á NASA í síðasta mánuði og komust færri að en vildu. Því var ákveðið að blása til annarra tónleika á NASA í kvöld. Húsið verður opnað kl. 23 en Gus Gus fer á svið stundvíslega klukkan 1.
Meira
KARÓKÍKEPPNI fyrir krakka verður haldin í Smáralind á morgun. Skráning í keppnina hefst kl. 13 og hefst keppnin kl. 14. Dómarar eru engir aðrir en X-Factorstjörnurnar Jógvan og Hara-systurnar Hildur og Rakel og Guðbjörg.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is EINS og greint var frá á fréttavef Morgunblaðsins í fyrradag varð töluverð töf á flugi Icelandair frá Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta.
Meira
DR. GUNNI benti einhverju sinni á það á heimasíðu sinni, og kvað fast að, að hér byggju 300.000 manns. Rekstrargrundvöllur fjölmiðla væri þar af leiðandi ótryggur, þar eð lítið sem ekkert væri að gerast árið um kring.
Meira
SÖNGKONAN Madonna hefur hitt hina þriggja ára Grace sem hún ætlar að ættleiða frá Malavíu en hún er stödd þar núna ásamt ættleiddum syni sínum David og dótturinni Lourdes. Tríóið heimsótti munaðarleysingjaheimilið þar sem Grace dvelur í vikunni.
Meira
RÚMLEGA 450 börn skráðu sig í áheyrnarprufur fyrir leiksýninguna Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur hjá Leikfélagi Akureyrar í gær, en til stendur að leikritið verði frumsýnt hjá leikfélaginu í haust.
Meira
TÓNLISTIN skipar stóran sess í Gretti eins og jafnan vill vera með söngleiki. Hallur Ingólfsson er tónlistarstjóri sýningarinnar og hefur hann sér til fulltingis þrjá hljóðfæraleikara.
Meira
ÍSFIRÐINGURINN Ásta Dóra Egilsdóttir fór með sigur af hólmi í óhefðbundnu fegurðarsamkeppninni Óbeisluð fegurð, sem fram fór í félagsheimilinu í Hnífsdal á miðvikudagskvöldið.
Meira
Fiðlukonsert í g eftir Bruch og Corolian-forleikurinn ásamt Sinfóníu nr. 5 í c-moll eftir Beethoven. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Ari Þór Vilhjálmsson einleikari á fiðlu. Konsertmeistari: Greta Guðnadóttir. Stjórnandi: Guðmundur Óli Guðmundsson. Fimmtudaginn 5. apríl kl. 16.
Meira
RÁS 2 er lögð af stað í tónleikaferðalag um Ísland ásamt Lay Low, Pétri Ben og Ólöfu Arnalds, undir nafninu Rás 2 plokkar hringinn. Í kvöld verða tónleikarnir haldnir í Brekku í Hrísey, og hefjast þeir kl. 21, en á morgun verður haldið til Stokkseyrar.
Meira
TVÆR stærstu Bollywood-stjörnurnar, Aishwarya Rai og Abhishek Bachchan, giftu sig í gær í indversku borginni Mumbai. Um 100 gestum var boðið til athafnarinnar sem var haldin á heimili fjölskyldu brúðgumans.
Meira
Jón Kjartansson telur áhrifameira að vera flokknum sínum trúr: "Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið og verður alltaf stærsti stjórnmálaflokkur landsins vegna þess að í honum rúmast ólíkt fólk með ólíkar skoðanir á ólíkum málum."
Meira
Sverrir Ólafsson skrifar um orku- og umhverfismál: "Umhverfisráðherrann var einn þeirra þingmanna, sem samþykktu Kárahnjúkavirkjun, mestu umhverfisspjöll Íslandssögunnar til þessa."
Meira
Ásgeir R. Helgason | 20. apríl 2007 Ofdrykkjutal Kenningin um að allir sem eru að missa stjórn á drykkju eða eru búnir að því, séu í "afneitun" samræmist ekki minni klínísku reynslu.
Meira
Einar Oddur Kristjánsson skrifar um Byggðastofnun: "Ljóst er að mikil þörf er á því að Byggðastofnun geti starfað eðlilega; fái til þess fjármuni og frið."
Meira
Guðríður Haraldsdóttir | 20. apríl 2007 Vondar myndir... Einu sinni kom mynd af mér í Mogganum og ég leit út á henni eins og afspyrnuljótt... ummm... svín. Rosalega stórar kinnar og pínulítil augu.
Meira
Eftir Guðjón Ólaf Jónsson: "Síðastliðinn þriðjudag stóð Stúdentaráð Háskóla Íslands fyrir fundi með frambjóðendum til að kynna stefnuskrá ráðsins fyrir komandi alþingiskosningar og kanna afstöðu flokkanna til hennar."
Meira
Rannveig Guicharnaud og Bergur Sigfússon skrifa um nýja tegund jarðstrengja: "...þurfum við að vanda okkur því ekki viljum við bæta við jarðvegsmenguðum svæðum þvers og kruss um landið."
Meira
Jens Guð | 20. apríl 2007 "Pick up"-línurnar Á skemmtistöðum slá menn stundum um sig með svokölluðum "pick up"-línum. Karlar reyna við fagrar konur sem þeir rekast á og reyna að stytta sér leið með sniðugum "pick up"-línum.
Meira
Eftir Vilborgu Auði Ísleifsdóttur: "ÞAÐ var ekki fyrr en Angela Merkel komst til valda sem kanslari í Þýskalandi, að Þjóðverjar áttuðu sig á því, að þeir væru á góðri leið að deyja út – þrátt fyrir ríkidæmi sitt; þeir öðluðust skilning á þeirri staðreynd, að börn eru merkilegir og..."
Meira
Eftir Ellert B. Schram: "MEGINUPPSLÁTTUR Morgunblaðsins við upphaf landsfundar Sjálfstæðisflokksins hljóðaði svo: "Skerðingar á bótum lækki úr 40% í 35%". Hér var verið að vísa til tillögu formanns flokksins um hagsbætur til handa eldri borgurum."
Meira
Eftir Ómar Ragnarsson: "Í Staksteinum Morgunblaðsins 30. mars er spurt hvort ég ætli að halda uppi stöðugri skemmtun fyrir kjósendur og talað um það í hneykslunartóni að forráðamenn Íslandshreyfingarinnar syngi á kynningarfundum sínum."
Meira
Hulda Guðmundsdóttir skrifar um þjóðkirkjuna og samkynhneigð: "Þjóðkirkjan ætti að sýna frumkvæði og óska eftir heimild til þess að vígðir þjónar hennar fái að lögfesta staðfesta samvist."
Meira
Albert Jensen skrifar um Tryggingastofnun: "Í viðtölum mínum við forstjórann og aðra ráðamenn stofnunarinnar hafa þeir skýlt sér á bak við úreltar reglugerðir sem varla standast lög."
Meira
Eftir Jónínu Bjartmarz: "Virkjun fallvatna og jarðhita getur verið neikvæð frá náttúruverndarsjónarmiðum en nýting endurnýjanlegrar orku er jákvæð frá loftslagssjónarmiðum..."
Meira
Eftir Össur Skarphéðinsson: "Oft eru textar merkilegastir fyrir það sem ekki stendur í þeim. Þannig er um stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins. Þótt leitað sé með logandi ljósi finnst orðið stöðugleiki þar hvergi. Öðruvísi mér áður brá."
Meira
Fyrir hönd Toyota á Íslandi óska ég forráðamönnum Reykjavíkurborgar hjartanlega til hamingju með áræðnar og metnaðarfullar aðgerðir í átt að vistvænni og hreinni borg.
Meira
Margrét Margeirsdóttir vill stofna embætti umboðsmanns aldraðra: "Eldri borgarar standa berskjaldaðir gagnvart stofnunum og yfirvöldum sem beita valdi sínu á óréttlátan hátt eins og því miður fjölmörg dæmi eru um."
Meira
Ófreskja á Vestfjörðum? ÉG ER ein þeirra sem þótti náttúruverndarsinnar við Kárahnjúka ganga of langt með því að hlekkja sig við vinnutæki í mótmælaskyni. En nú er komið upp mál sem ég væri tilbúin að taka þátt í að mótmæla með slíkum aðgerðum.
Meira
Ágúst Kristjánsson fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1933. Hann lést á görgæsludeild Landspítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut 10. apríl síðastliðinn. Útför Ágústar var gerð frá Digraneskirkju 20. apríl sl.
MeiraKaupa minningabók
Árni Guðmundur Kristinsson fæddist í Reykjavík 8. desember 1965. Hann lést föstudaginn 9. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Árbæjarkirkju 19. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Ásta Kristinsdóttir fæddist í Reykjavík 2. október 1944. Hún lést á heimili sínu 11. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 21. mars.
MeiraKaupa minningabók
Einar J. Sigurðsson fæddist í Reykjavík 1. desember 1947. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Magnús Sólonsson múrarameistari, f. í Keflavík 16. nóvember 1907, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Eiríkur Morten Þórðarson fæddist í Reykjavík 3. nóvember 1959. Hann lést af slysförum 13. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Ísafjarðarkirkju 23. mars.
MeiraKaupa minningabók
Guðbjörg Kristín Guðjónsdóttir fæddist í Heydal í Mjóafirði í Norður-Ísafjarðarsýslu 29. ágúst 1922. Hún andaðist 3. apríl síðastliðinn. Útför Guðbjargar var gerð frá Neskirkju 12. apríl sl.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Móeses Jónsson fæddist í Hnífsdal 30. júní 1917. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 12. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 19. mars.
MeiraKaupa minningabók
Guðný Sólveig Sigurðardóttir fæddist á Vötnum í Ölfusi 27. mars 1952. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 6. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurður Kristján Árnason, f. 20.9. 1925 og Ragnheiður Björnsdóttir, f. 25.6. 1933, d. 2.3. 2004.
MeiraKaupa minningabók
Jóhannes Ingimar Hannesson fæddist í Glaumbæ í Skagafirði 21. ágúst 1913. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 30. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Sauðárkrókskirkju 13. apríl.
MeiraKaupa minningabók
Lárus Hafsteinn Lárusson fæddist á Ísafirði 15. desember 1940. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 11. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Lárus Ingvar Sigurðsson skipstjóri, f. 10.4. 1911, d. 9.9.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Lárusson fæddist á Gilsá í Breiðdal 23. mars 1921. Hann lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 23. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Heydalakirkju 3. mars.
MeiraKaupa minningabók
Hertar reglur um eftirlit með frosnum fiskafurðum í höfnum í Norður-Atlantshafi ganga í gildi 1. maí næstkomandi. Reglurnar voru samþykktar af NEAFC í nóvember síðastliðnum með það að meginmarkmiði að hindra að ólöglegar afurðir komist á markað.
Meira
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 5,7 milljörðum króna í janúar 2007 samanborið við 3,6 milljarða í janúar 2006. Aflaverðmæti hefur aukist um 2,1 milljarð eða 58,8% milli ára samkvæmt samantekt Hagstofunnar.
Meira
Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Ós ehf. hafa undirritað samning um kaup Ísfélagsins á togskipinu Þórunni Sveinsdóttur VE. Engin aflahlutdeild eða aflamark fylgir með í kaupunum. Afhending skipsins verður 1.
Meira
ALLT að 92 starfsmenn Wyndeham Press Group, sem er í meirihlutaeigu FL Group , munu missa vinnuna ef fyrirhuguð lokun dótturfyrirtækjanna Westway og Blacketts í Luton gengur eftir og er erfiðum markaðsaðstæðum kennt um.
Meira
GREININGARDEILD Landsbankans hefur sent frá nýja afkomuspá fyrir fyrsta ársfjórðung hjá félögunum í kauphöllinni. Um er að ræða afkomuspá fyrir 14 félög og vogunarráðgjöf fyrir 17 félög.
Meira
Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is KAUPÞING banki í Færeyjum hyggst greinilega ná til sín umtalsverðum hluta af sparnaði Færeyinga og hefur um leið snarbreytt innlánsvaxtalandslaginu í eyjunum.
Meira
LANDSTEINAR Strengur (LS) stóð á dögunum fyrir ráðstefnu í Portúgal fyrir fulltrúa þeirra fyrirtækja sem mynda alþjóðlegt net samstarfsaðila undir merkjum LS Retail, sem er verslunarkerfi er LS hefur þróað.
Meira
SÆNSKA ferðaskrifstofan Ticket jók sölu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs um 48% og EBITDA-hagnað um 40% borið saman við fyrsta ársfjórðung 2006, sem þó var besti ársfjórðungur í 17 ára sögu félagsins, að því er segir í fréttatilkynningu.
Meira
ÞRÍR bjórframleiðendur í Hollandi; Heineken, Grolsch og Bavaria, hafa verið sektaðir um 274 milljónir evra, jafnvirði um 24 milljarða króna, fyrir verðsamráð í Hollandi á árunum 1996 til 1999.
Meira
Á FYRSTA degi viðskipta á nýju sumri hækkaði úrvalsvísitala aðallista í kauphöll OMX á Íslandi um 0,24% í gær og endaði í 7.850 stigum. Hlutabréfaviðskiptin námu 10,3 milljörðum króna.
Meira
BERLINGSKE Officin gefur ekki upp hvert heildartapið af útgáfu Dato var þá átta mánuði sem blaðið var gefið út en segir það þó nema að minnsta kosti meira en einum milljarði króna.
Meira
Hólmfríður Bjartmarsdóttir á Sandi í Aðaldal las vangaveltur Sigrúnar Haraldsdóttur um að hún væri sjálf andskotinn og yrkir: Þetta trúi ég ekki á engum fjanda er Sigrún lík, en marga féndur, sjálf ég sá samankomna í Reykjavík.
Meira
Félagið Landsbyggðarvinir hefur hrundið af stað verkefni sem nefnist "Unglingar í sveit og bæ" meðal nokkurra skóla um allt land. Það eru 8. bekkingar í þessum skólum sem taka þátt.
Meira
Eftir Steingrím Sigurgeirsson sts@mbl.is Franska matarmenningin er líklega sá angi franskrar menningar sem hvað flestir komast einhvern tímann í snertingu við.
Meira
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Tilviljun eða ekki? Það geisar stríð í heiminum, opinberlega gegn hryðjuverkum og kápur, upprunalega úr heimstyrjöldinni fyrri, þeirri sem engilsaxneskir kalla reyndar heimstyrjöldina fyrstu, eru komnar í hátísku.
Meira
Á Íslandi keppast margir við að byggja sér hallir og búa í sem flestum fermetrum. En ekki gera allir kröfur um slíka mannabústaði. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti unga konu sem unir hag sínum ágætlega þar sem hún býr í 30 fermetra bílskúr.
Meira
Titanic DNA er heitið á nýstárlegum úrum sem svissneski úraframleiðandinn Romain Jerome kynnti á stórri úra- og skartgripasýningu sem nýlega var haldin í Basel Sviss.
Meira
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Meðlimir Karlakórs Reykjavíkur ætla að skrýðast kjólfötum á vortóneikum sínum þetta árið en kórinn hefur ákveðið að taka upp þann kórbúning eftir rúmlega 30 ára hlé frá slíkum klæðnaði.
Meira
Kærustuparið Anna Björg Sigurðardóttir og Haraldur Gísli Sigfússon og vinur þeirra Jón Brynjar Ólafsson ákváðu að skoða heiminn að loknu stúdentsprófi. Jóhanna Ingvarsdóttir hlustaði á ferðasöguna.
Meira
LISTAMAÐURINN Birgir Breiðdal opnar í dag myndlistarsýningu í nýju húsnæði Gallerís List Skipholti 50 A kl. 13. Þetta er fimmta sýning Birgis en hann býr á Ítalíu og kom sérstaklega til Íslands til að opna sýninguna.
Meira
Gullbrúðkaup | Í dag, laugardaginn 21. apríl, eiga hjónin Magnea Hjálmarsdóttir og Ólafur Ágústsson, Tjarnarstíg 11, 170 Seltjarnarnesi, 50 ára brúðkaupsafmæli. Þau voru gefin saman í Útskálakirkju í Garði og eiga fimm börn.
Meira
Steinunn Haraldsdóttir fæddist í Hafnarfirði 1970. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskólanum 1990, B.A. prófi í íslensku frá HÍ 1993 og M.A. í íslenskum bókmenntum frá sama skóla 1996 þar sem hún leggur nú stund á nám í þýðingarfræðum.
Meira
1 Hvað hefði steypan sem fór í grunn tónlistarhússins dugað í mörg einbýlishús? 2 40 Vildarbörn fengu ferðastyrki að þessu sinni. Hvað eru Vildarbörn? 3 Hvað er fjölgun kjósenda mikil frá því í síðustu kosningum?
Meira
Sennilega er auglýsingaherferð N1 bezt heppnaða auglýsingaherferð, sem hér hefur verið lagt út í í langan tíma. Auglýsingar N1 hafa vakið mikla athygli. Þær eru óvenjulegar og eru til marks um mikla hugmyndaauðgi og sköpunarkraft.
Meira
Æðruleysimessa Æðruleysismessa verður í Dómkirkjunni sunnudaginn 22. apríl kl. 20. Reynslusaga. Anna Sigríður Helgadóttir, Hörður Bragason, Birgir Bragason og Hjörleifur Valsson sjá um tónlistina. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson prédikar, sr.
Meira
ALLIR fjórir leikirnir í átta liða úrslitum deildabikarkeppni karla í knattspyrnu, Lengjubikarsins, verða leiknir á mánudaginn. Þrír þeirra verða spilaðir utanhúss og einn í Egilshöllinni. FH og Fram leika á gervigrasvelli Framara í Safamýri klukkan 19.
Meira
ELSA Sæný Valgeirsdóttir, blakkona frá Neskaupstað, var í fyrrakvöld valinn besti kantsmassari í dönsku úrvalsdeildinni. Elsa Sæný leikur með Holte í dönsku deildinni og hefur verið í byrjunarliðinu í vetur en liðið lenti í þriðja sæti deildarinnar.
Meira
Ole Gunnar Solskjær , framherji Manchester United , segir sennilegt að hann leggi skóna á hilluna í lok næsta keppnistímabils, vorið 2008. Þá rennur samningur hins 34 ára gamla Norðmanns við Manchester United út.
Meira
Nígerískur knattspyrnumaður, Ohma Davids , er kominn til reynslu hjá úrvalsdeildarliði Víkings . Hann er tvítugur sóknarmaður og hefur aðeins leikið með liðum í heimalandi sínu til þessa.
Meira
Dario Gradi , sem hefur verið lengst allra enskra knattspyrnustjóra við stjórnvölinn, hefur ákveðið að hætta störfum að þessu keppnistímabili loknu.
Meira
HEIÐAR Helguson og félagar í Fulham taka á móti Fulham í dag og þurfa á stigum að halda í síharðnandi fallbaráttu. Fulham hefur ekki unnið í síðustu átta deildaleikjum sínum, og aðeins einu sinni í síðustu 16 leikjunum.
Meira
SEGJA má að Valsmenn standi með pálmann í höndunum, hafi aðra hönd á Íslandsmeistarabikarnum þegar flautað verður til leikjanna í lokaumferð úrvalsdeildar karla, DHL-deildarinnar, í handknattleik kl. 16 á morgun.
Meira
HEIÐAR Davíð Bragason, atvinnukylfingur úr Kili í Mosfellsbæ, náði sér ekki á strik í gær á síðasta degi Danfoss mótsins í Danmörku. Hann lék á sex höggum yfir pari vallarins, 78 högg, og endaði í 12. til 13. sæti á 225 höggum, níu höggum undir pari.
Meira
leikirnir Laugardagur: Tottenham – Arsenal 11.45 Bolton – Reading 14 Charlton – Sheff. United 14 Fulham – Blackburn 14 Liverpool – Wigan 14 Watford – Man. City 14 West Ham – Everton 14 Man. Utd.
Meira
ÞAÐ kemur ekkert í veg fyrir að Valdimar Fannar Þórsson, leikmaður HK, verði krýndur markakóngur Íslandsmótsins í handknattleik eftir síðustu umferð úrvalsdeildar karla, DHL-deildarinnar, á morgun.
Meira
PETER Kenyon stjórnarformaður Chelsea hefur staðfest að José Mourinho knattspyrnustjóri félagsins verði ekki sagt upp störfum hjá félaginu í vor.
Meira
OLIVER Kahn, markvörður þýska meistaraliðsins Bayern München, skráði nafn sitt í sögubækur þýskrar knattspyrnu um sl. helgi. Kahn tók þátt í 292. sigurleiknum á ferlinum í fyrstudeildarkeppninni þegar Bayern lagði Leverkusen. Það er met.
Meira
SPÆNSKI miðjumaðurinn Cesc Fabregas gæti misst af leik Arsenal gegn Tottenham á White Hart Lane í dag en erkifjendurnir eigast við í fyrsta leik helgarinnar þar sem flautað verður til leiks klukkan 11.45 að íslenskum tíma.
Meira
"VIÐ ætlum sjá til þess að Arsenal verði áfram enskt félag, enda þótt við teflum fram mörgum erlendum leikmönnum," segir Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, sem virðist hafa náð undirtökunum í togstreitu innan stjórnarinnar um hvort...
Meira
KVENNALIÐ Þróttar í Reykjavík varð mjög sigursælt í blakinu í vetur og varð liðið þrefaldur meistari, varð Íslandsmeistari í vikunni með því að leggja Þrótt í Neskaupstað í síðari úrslitaleiknum, 3-0, hafði einnig betur gegn Þrótti í úrslitum...
Meira
SIGFÚS Sigurðsson og samherjar hans í spænska handknattleiksliðinu Ademar León leika á morgun fyrri úrslitaleikinn í Evrópukeppni bikarhafa við þýska liðið HSV Hamburg.
Meira
STJÓRN ensku úrvalsdeildarinnar hefur tekið undir kröfur Newcastle á hendur enska knattspyrnusambandinu varðandi bætur vegna meiðsla Michaels Owens.
Meira
TUTTUGU Íslendingar verða á meðal þátttakenda á Norðurlandamótinu í júdó sem fer fram í Landskrona í Svíþjóð í dag. Átta keppa í karlaflokki, sjö í kvennaflokki og fimm í flokki pilta 15–19 ára.
Meira
Elísabet Sóldís, 8 ára, teiknaði þessa skemmtilegu mynd af bangsanum sínum henni Rósu. Rósa er skreytt gulli og gimsteinum og er með fallega slaufu á...
Meira
Arnar Pétur er að fara að keppa í júdói á eftir og er nú í stökustu vandræðum. Hann er með svarta beltið í júdói en getur ekki með nokkru móti fundið beltið sitt. Til allrar hamingju leynast 5 svört belti á síðum Barnablaðsins.
Meira
Halló krakkar! Mikið er búið að vera gaman að fá öll skemmtilegu bréfin frá ykkur. Það skemmtilegasta sem ég veit er að fyllast af bréfum frá sniðugum og klárum krökkum.
Meira
Ég heiti Sunna Björk og er 7 ára. Ég vil senda Patta póstkassa mynd af Heklu sem er eitt þekktasta fjall á Íslandi. Ég er búin að vera að fræðast um eldgos og eldfjöll í skólanum undanfarna daga. Ég verð að kveðja. Bless, bless, Sunna...
Meira
Karítas Ýr, 7 ára, teiknaði þessa sniðugu mynd af brosstelpunni Bertu. Berta er sætasta brosstelpan sem veit ekkert skemmtilegra en að skreyta sig með rauðum...
Meira
Kristín Lilja Erlingsdóttir, 9 ára, og Gunnar Sundby Gunnarsson, 8 ára, eru bæði búin að æfa júdó hjá Ármanni síðan í haust. Þau kynntust í gegnum júdóið og eru góðir vinir.
Meira
Dagur er í mestu vandræðum. Honum gengur hálfilla að keppa í svona óteiknuðum búningi. Getur þú hjálpað honum að snúa vörn í sókn og teiknað búninginn hans. Dragðu línu frá 1–24 og þá kannski gengur Degi betur.
Meira
Í júdói er borin mikil virðing fyrir andstæðingnum og íþróttinni sjálfri. Hver æfing hefst á íhugun og fyrir hverja glímu hneigja andstæðingar sig hvor fyrir öðrum. Það krefst mikils aga að ná góðum árangri í júdói.
Meira
Elín Ósk, 6 ára, teiknaði þessa fallegu mynd af hjartatré. Þegar rignir vaxa á trénu litrík hjörtu. Sólin fylgist athugul með og er meira að segja búin að setja upp...
Meira
Enginn veit hvenær sumarið kemur. Það veit heldur enginn hvenær veturinn kemur. En stelpan veit það. Þá kastar hún kuðungum og einu blómi upp í loftið. Höfundur: Margrét Sól Sveinsdóttir, 5...
Meira
Hér sérðu mynd af nokkrum Hollywood-stjörnum þegar þær voru börn og eins og þær eru í dag. Lausnin er aftast en reyndu að finna út hver er hvað án þess að...
Meira
Ísbjörninn er stærsta rándýrið sem lifir á landi. Ísbirnir eru sólgnir í seli og eru duglegir að veiða þá. Þeir synda mjög vel og geta synt langar vegalengdir í sjó. Ísbirnir hafa nokkrum sinnum sést á Íslandi. Úr bókinni Stafróf dýranna eftir Halldór...
Meira
Stóri ferningurinn er búinn til úr fjórum minni ferningum. Í hvern lítinn ferning eiga tölurnar frá 1–4 að koma fyrir. Eins eiga tölurnar frá 1–4 að koma fyrir í hverri línu, lárétt og lóðrétt. Þetta getur verið svolítið snúið. Lausn...
Meira
Myndir 3, 4 og 9 eru eins. 1-d = Christina Aguilera, 2-f = Julia Roberts, 3-e = Leonardo DiCaprio, 4-c Ricky Martin, 5-b Sarah Jessica Parker, 6-a =...
Meira
Sumarljóð Sumar og sól, ég á nýjum kjól. Pabbi er í réttum, mamma á hvítum stéttum. Bræður á bíl, ekki á hvítum fíl. Amma að prjóna, afi á Skjóna. Nú er ég lúin og ég er líka búin. Höf.: Anna Margrét Sverrisdóttir, 9 ára. Rímljóð Þessi bíll er ekki...
Meira
Hæ, hæ! Ég heiti Morgan og óska innilega eftir pennavinum/vinkonum á aldrinum 10–12 ára. Ég er sjálf 11 ára og verð 12 ára 25. júlí. Áhugamál mín eru fótbolti, handbolti, skautar, ballett, höfrungar og margt fleira.
Meira
Mína mús er búin að eiga sömu pennavinkonuna í mörg ár. Það birtir yfir deginum hjá henni þegar hún fær bréf frá vinkonu sinni. Nú þarf Mína að svara bréfinu sem fyrst en getur ekki póstlagt það nema hún hafi frímerki.
Meira
Flestar villtar plöntur eiga á hættu að enda ævi sína sem fæða dýranna. Þó eru nokkrar plöntur sem verja sig gegn hungruðum dýrunum, að vísu ekki með því að beita júdói eða öðrum sjálfsvarnaríþróttum.
Meira
Í þessari viku eigið þið að leysa myndagátuna hér að ofan. Þið byrjið á því að skrifa heiti hlutar eða dýrs fyrir ofan hverja mynd. Til dæmis ef það væri mynd af ketti mynduð þið skrifa orðið köttur fyrir ofan myndina.
Meira
Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu Ýmislegt getur hlaupið í skarðið sem trúarbrögð fyrir fólk, svo lengi sem það hefur goð til að dýrka og kannski ákveðið samfélag til að tilheyra.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 9592 orð
| 1 mynd
Eftir Matthías Johannessen matthias.is (Umhverfi fjölnismanna) Jónas fann ekkert gott í ljóðum Sigurðar Breiðfjörðs, eins og fjölnisritdómur hans sýnir. Hann var í krossferð gegn rímum og Fjölnir var einskonar rímnafjandi.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 1906 orð
| 1 mynd
Dag einn neyðast líka Íslendingar til að skipuleggja umhverfið á öðrum forsendum en bílsins, segir í þessari grein en höfundur telur Íslendinga á villigötum í skipulagsmálum.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 176 orð
| 1 mynd
Eftir Þröst Helgason vitinn.blog.is Þeir sem vilja lesa bækur um hugmyndafræði og láta sannfærast ættu að verða sér úti um eintak af nýrri bók Einars Más Jónssonar, Bréf til Maríu . Einar Már er sagnfræðingur og hefur búið í París síðustu fjörutíu ár.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 153 orð
| 1 mynd
Hlustarinn Undanfarið hefur lagið Barso Re, úr Bollywood-myndinni Guru , ratað æði oft í spilarann. Lagið er sungið af aðalleikkonu myndarinnar, Aishwarya Rai, sem er fyrrverandi ungfrú heimur og ein skærasta stjarnan í Bollywood í dag.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 789 orð
| 1 mynd
Slóvenski heimspekingurinn Slavoj Žižek vakti mikla athygli er hann kom hingað til lands fyrir skömmu. Kvikmyndahandbók öfuguggans er ný heimildarmynd sem hverfist um kenningar Žižeks um kvikmyndamiðilinn.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 393 orð
| 3 myndir
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Þrátt fyrir þátttöku ellefu handritshöfunda, sautján leikara og fjölmargra teiknara hvílir mikil leynd yfir söguþræði væntanlegrar kvikmyndar um Simpson-fjölskylduna.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 151 orð
| 1 mynd
Lesarinn Mrs Dalloway eftir Virginu Woolf er margslungið meistaraverk. Sagan, sem kom út árið 1925, gerist á heitum sumardegi í London. Clarissa Dalloway er að undirbúa veislu, hún kaupir blóm og umsnýr öllu heima hjá sér.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 647 orð
| 1 mynd
Eftir Gunnar Hersvein gunnars@hi.is !Nýlega kom ég á heimili og dvaldi þar kvöldstund. Daginn eftir heimsóknina áttaði ég mig á því að eitthvað var bogið við íbúðina. Hugurinn leitaði logandi ljósi í húsinu og nam staðar við hillur heimilisins.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 1182 orð
| 1 mynd
"Það sætir hins vegar furðu, að þeir Hörður og Jón Baldvin leggja ekki á sig að kynna sér einfaldar staðreyndir um skattamál, sem öllum eru aðgengilegar á Netinu, á sama tíma og þeir segjast draga upp gunnfána gagnrýninnar hugsunar," segir...
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 702 orð
| 1 mynd
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur bab@mbl.is Afsakið fröken, en hefurðu einhvern tímann unnið í Las Vegas?" Ég lít til hliðar og sé lágvaxinn mann góna á mig spurnaraugum þar sem ég stend við afgreiðsluborðið í bakaríinu í götunni minni á Manhattan.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 1308 orð
| 7 myndir
Félagar í Bandalagi þýðenda og túlka hafa tilnefnt fimm bækur til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir framúrskarandi þýðingar fagurbókmennta á árinu 2006. Hér er fjallað um hverja þeirra en verðlaunin verða afhent á degi bókarinnar 23. apríl nk.
Meira
21. apríl 2007
| Menningarblað/Lesbók
| 455 orð
| 3 myndir
Lengst upp í heiði er lítið barð, lútandi, hallfleytt torfa. Ekki er á að horfa. Hún er þó allt sem eftir varð. Þar var til forna fagurt land fjalldraparunnum vafið, bylgjað og breitt sem hafið. Nú er því skipt fyrir svartan sand.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.