"Umferðarþunginn hefur verið mikill lengi og nær frá Reykjavík alla leið á Selfoss, en þar losnar tappinn," segir Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri sveitarfélagsins Árborgar.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 146 orð
| 1 mynd
AÐ sögn Gísla Kr. Lórenzsonar, forstöðumanns Sundlaugar Akureyrar, eru 24 vaktaðar myndavélar á svæðinu, m.a. undir yfirborði lauganna. Í lauginni þar sem slysið varð eru t.d. sex myndavélar.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt karlmann í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að bíta lögreglukonu í lærið þegar verið var að flytja hann í lögreglubíl utan við skemmtistað í Hafnarfirði í október sl. Lögreglukonan fékk marblett á lærið.
Meira
Í DAG er ráðgert að Tony Blair víki úr embætti forsætisráðherra Bretlands. Hann virðist þó ekki þurfa að kvíða aðgerðaleysinu, því þegar hafa heyrst sögusagnir þess efnis að hann haldi til Mið-Austurlanda í hlutverki sáttasemjara áður en langt um líður.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 330 orð
| 1 mynd
SIGURÐUR Helgi Guðjónsson, hrl. og formaður Húseigendafélagsins, segir að félagið fái oft fyrirspurnir frá forsvarsmönnum húsfélaga vegna alvarlegra brota eigenda eða íbúa.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 223 orð
| 1 mynd
Eftir Andra Karl andri@mbl.is NÝLEGIR dómar sem fallið hafa í kynferðisbrotamálum hér á landi hafa vakið upp þá spurningu hvort ekki sé rétt að halda skrá yfir dæmda kynferðisbrotamenn. Vissulega eru skrár fyrir hendi, þ.e.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 297 orð
| 3 myndir
FORMÚLU 1-kappinn Nico Rosberg var staddur hér á landi í gær og sýndi hann listir sínar við Smáralind en þetta er í fyrsta sinn sem vél alvöru formúlubíls er þanin hér á landi.
Meira
SAMTÖKIN Sól á Suðurlandi, Sól í Straumi og Sól á Suðurnesjum lögðu fram ályktun á fundi íbúa Flóahrepps í fyrrakvöld, þar sem fagnað er samþykkt hreppsnefndar Flóahrepps frá þrettánda júní um að hafa Urriðafossvirkjun ekki inni á aðalskipulagi...
Meira
BOLTINN er hjá Vegagerðinni, segir Guðmundur Petersen, rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eimskipi, en Vestmannaeyingar bíða nú eftir að efnt verði loforð ríkisstjórnarinnar um aukaferðir á milli Heimaeyjar og Þorlákshafnar.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 360 orð
| 1 mynd
AÐALSTEINN Sveinsson, oddviti Þ-lista í Flóahreppi, segir sveitarstjórnarfund í næstu viku næsta skref varðandi Urriðafossvirkjun, en á nýlegum íbúafundi í hreppnum kom fram eindregin andstaða við virkjunina.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 491 orð
| 1 mynd
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is "ÞAÐ hafa orðið ótrúlega mörg slys á sundstöðum á þessu ári og nú fer sá tími í hönd að fólk ferðast til nýrra staða sem það þekkir ekki vel.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 304 orð
| 2 myndir
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is SÉRA Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík, telst ekki hafa brotið siðareglur Prestafélags Íslands að mati siðanefndar félagsins.
Meira
SENDINEFND frá Norsk Hydro er væntanleg til Þorlákshafnar í vikunni til að kanna staðhætti vegna hugsanlegra stóriðjuframkvæmda. Norsk Hydro var síðast í alvarlegum viðræðum um stóriðju hér á landi árið 2002.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 204 orð
| 1 mynd
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is FYRSTA september næstkomandi munu bandarískir háskólanemar koma til Sólheima í Grímsnesi í þeim tilgangi að sækja nám í umhverfisfræðum undir yfirskriftinni "Sjálfbær þróun í sjálfbæru samfélagi".
Meira
Eftir Sigurð Sigmundsson Hrunamannahreppur | Verið er að innleiða nýja heyverkunaraðferð sem leysir rúllubaggaheyskapinn að einhverju leyti af hólmi. Heyið er saxað smátt úr múga og hlaðið í sérstakar stæður heima við bæ.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 246 orð
| 1 mynd
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is ÞÁTTTAKA í fjöldagöngu gegn umferðarslysum fór langt fram úr björtustu vonum aðstandenda, en á milli 4.000 og 5.
Meira
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir niðurstöður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands ekki koma sér á óvart. Hún sé í fullu samræmi við mat Hafrannsóknastofnunar.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 120 orð
| 1 mynd
GÖNGUFERÐ á Helgafell í Mosfellsbæ verður laugardaginn 30. júní og verður lagt af stað frá Ásum norðan við fjallið kl. 10. Meðal annars verða skoðuð stríðsmannvirki og gömul gullnáma. Gangan tekur um tvær til þrjár klukkustundir.
Meira
EINAR K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að ríkisvaldið verði að bregðast við samdrætti í veiðum á þorski með því að aðstoða þær sjávarbyggðir sem háðastar eru þorskveiðum.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 105 orð
| 1 mynd
HÖFUÐBORGARBÚAR notuðu margir góða veðrið í gær til að slaka á, væru þeir ekki svo óheppnir að þurfa að vinna. Við Austurbæjarskóla var ekki slegið slöku við og leikjanámskeið var í fullum gangi úti í guðsgrænni náttúrunni.
Meira
PORTÚGALSKI starfsmaðurinn sem lést eftir fall í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal síðastliðinn mánudag hét Fernando Teixera de Oliveira. Hann fæddist 28. september 1956.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 201 orð
| 1 mynd
Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Mývatnsmaraþon, hið 13. í röðinni, var hlaupið á laugardaginn í kalsa norðanvindi og 6 gráða hita. Keppendur létu veðrið þó ekki á sig fá en héldu ótrauðir sína leið. Alls tóku 184 þátt í hlaupinu.
Meira
ÍSMÓT 2007, Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara innan Samtaka iðnaðarins, fer fram í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal helgina 1. og 2. september.
Meira
LEIKJANÁMSKEIÐIN í Hafnarfirði standa fyrir dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju í dag, miðvikudaginn 27. júní. Keppnin er ætluð börnum á aldrinum 6 til 12 ára og er keppnin opin öllum á þessum aldri.
Meira
KENNARI í bókmenntafræði í Afríkuríkinu Malí hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi. Ástæðan er að maðurinn er talinn hafa móðgað forseta landsins, Amadou Toumani Touré.
Meira
Árnes | Gert hefur verið nýtt byggðamerki fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Gunnar Örn Marteinsson oddviti afhenti Guðmundi Vali Viðarssyni frá Ásum verðlaun fyrir sigur í samkeppni. Í hugmyndasamkeppni um nýtt merki bárust 36 tillögur frá 14 höfundum.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 432 orð
| 1 mynd
FARIN verður pílagrímaganga frá Þingvöllum að Skálholti dagana 21.-22. júlí nk. Gangan hefst á laugardegi kl. 10 með fararblessun staðarprests í Þingvallakirkju. Gengið er með hléum þar sem hvíld er tekin og hlustað á lestra eða frásagnir.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 592 orð
| 1 mynd
Litli drengurinn sem var nærri drukknaður í fyrradag fékk að fara heim af sjúkrahúsi í gær. Skapti Hallgrímsson og Hjálmar S. Brynjólfsson kynntu sér málið.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 363 orð
| 1 mynd
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra um að hefja sérstakar aðgerðir til að vinna á biðlistum hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 208 orð
| 1 mynd
Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is MAGNI Hjaltason, litli drengurinn sem naumlega var bjargað frá drukknun í Sundlaug Akureyrar í fyrradag, var við hestaheilsu og fékk að fara heim af Fjórðungssjúkrahúsinu í gær.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 210 orð
| 1 mynd
ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráðherra og Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, hafa undirritað samning við Vörusjá ehf. um rekstur og þróun rafræns markaðstorgs fyrir stofnanir og fyrirtæki ríkisins.
Meira
LANDVERND hefur skotið til umhverfisráðherra ákvörðun Skipulagsstofnunar um að 2,5 MW virkjun í Hverfisfljóti við Hnútu í Skaftárhreppi þurfi ekki að fara í mat á umhverfisáhrifum. Krefst Landvernd þess að ákvörðun Skipulagsstofnunar verði ógilt.
Meira
SÉRSVEITARMENN á vakt hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins þurftu í gærkvöldi að grípa til táragass til að yfirbuga 16 ára ungling sem ógnaði fólki í heimahúsi með hnífi.
Meira
LANGBRÝNASTA verkefnið fyrir framtíð Íslands er stofnun sjóðs til að standa straum af átaki gegn eiturlyfjasölu, segir í minningargrein Einars S. Hálfdánarsonar um dóttur sína, Susie Rut, sem birtist á miðopnu Morgunblaðsins í gær.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 928 orð
| 4 myndir
Kona sem beitt var grófu ofbeldi af hálfu sambýlismanns síns gagnrýndi lögregluna, dómskerfið og reglur um atvinnuréttindi útlendinga. Elva Björk Sverrisdóttir komst m.a. að því að dómarar hafa rætt þyngd kynferðisbrotadóma sín á milli.
Meira
EFTIRLITSMENN á vegum Sameinuðu þjóðanna komu í gær til Pyongyang í Norður-Kóreu til að ræða við stjórnvöld um lokun Yongbyon-kjarnorkuversins umdeilda í landinu. Fimm ár eru síðan slíkir eftirlitsmenn fengu síðast að heimsækja landið.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 734 orð
| 2 myndir
Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Fulltrúar Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, Skipulagsstofnunar og Línuhönnunar kynntu drög að tillögu að matsáætlun fyrsta áfanga Sundabrautar á fjölmennum fundi í Rimaskóla í gær.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 163 orð
| 1 mynd
ALÞJÓÐAHÚSIÐ í Reykjavík hélt sinn fyrsta ársfund í gær og var þar m.a. fjallað um verkefni og atburði ársins 2006. Markmiðið með Alþjóðahúsinu er að þar sé miðstöð þekkingar og rannsókna á sviði fjölmenningar og mannréttinda.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 208 orð
| 1 mynd
EINAR K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands gefa mjög athyglisverða mynd af stöðu sjávarútvegsins. Hann segir það gefa augaleið að samdráttur verði í þorskveiðum.
Meira
Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is SÍÐUSTU árin hefur hún verið talin í hópi valdamestu kvenna í heimi hér; í fyrra mun hún hafa verið í 30. sæti Forbes -tímaritsins, sem birtir slíkan lista á ári hverju.
Meira
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur staðfest að Íslendingur hafi verið handtekinn í Brasilíu vegna fíkniefnamáls, en Pétur Ásgeirsson skrifstofustjóri tjáir sig ekki frekar. Þetta er þriðji Íslendingurinn sem handtekinn er þar vegna fíkniefnamáls. Sl.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 201 orð
| 1 mynd
Hornafjörður | Humarhöfnin er heiti nýs veitingastaðar sem opnaður verður við höfnina á Höfn í Hornafirði á morgun, fimmtudag, við upphaf árlegrar Humarhátíðar Hornfirðinga.
Meira
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@mbl.is MIKILL vatnselgur hefur ætt yfir Mið- og Norður-England síðan um helgina og þúsundir hafa neyðst til þess að yfirgefa heimili sín. Talið er að um 900 manns hafist við í björgunarskýlum. Þrír eru látnir.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 648 orð
| 3 myndir
"Fyrst vorum við bara að hugsa um að manna blöðrurnar, sem voru 184," segir Anna Arnarsdóttir, ein þeirra þriggja hjúkrunarfræðinga sem áttu frumkvæðið að fjöldagöngu gegn slysum í gær.
Meira
27. júní 2007
| Innlendar fréttir
| 428 orð
| 1 mynd
Íslendingar eru þjóð einkabílsins eins og sannaðist á bílalestunum sem mynduðust um síðustu helgi er fólk streymdi utan af landi og til höfuðborgarsvæðisins. Þar fer ástandið einnig versnandi; umferðarþunginn, streitan og slysahættan eykst.
Meira
Það er athyglisvert að fylgjast með þeim breytingum, sem eru að verða á Blaðinu, öðru tveggja fríblaða, sem hér eru gefin út, en Blaðið er nú í fullri eigu Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins og útgefanda netútgáfu Morgunblaðsins, mbl.is.
Meira
Skýrsla sú um þorskveiðarnar, sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands kynnti í gær, er sterkur stuðningur við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar til sjávarútvegsráðherra um afla næsta fiskveiðiárs.
Meira
ÁRIÐ 1988 kom Die Hard í bíó og við sáum framtíðina. Við höfðum ekki tíma til að ná söguþræðinum almennilega, reikna út plottið og spá fyrir um endalokin eins og í flestum hasarmyndum fram að því – til þess gerðist þetta alltof hratt.
Meira
Leikfélagið Leikhús Frú Norma frumsýnir á morgun barnaleikritið Bara í draumi í sláturhúsinu á Egilsstöðum. Verkið fjallar um ungan dreng sem verður eina nóttina vitni að því að leikföngin hans lifna við. "Er hann að dreyma?
Meira
Í TILEFNI af því að 60 ár eru liðin frá því að Dagbók Önnu Frank kom út, hefur frændi Önnu gefið safninu um hana í Amsterdam þúsundir sendibréfa, ljósmynda og annarra gagna.
Meira
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is ÁRIÐ 1945 horfir skakki turninn í Písa niður á fallna Evrópu en í útjaðri borgarinnar er bandaríska ljóðskáldið Ezra Pound í fangabúðum bandamanna, sakaður um föðurlandssvik.
Meira
NÆSTA laugardag, 30. júní, verður opnuð sýning Páls Stefánssonar ljósmyndara í ljósmyndagalleríinu Fótógrafí, á ljósmyndum sem hann tók í Afríku.
Meira
FRÁ því að Metrópólitan-óperan í New York tók upp á því að vera með beinar útsendingar frá óperusýningum í kvikmyndahús um öll Bandaríkin, hafa fleiri óperuhús og óperuhátíðir tekið við sér og viljað reyna slíkt hið sama.
Meira
EINN af þeim rúmlega áttatíu hönnuðum sem eiga verk á sýningunni Magma/Kvika á Kjarvalsstöðum er Ámundi Sigurðsson, en á morgun verður Hádegisstefnumót við hann á Kjarvalsstöðum kl. 12 og stendur í um 20 mínútur.
Meira
Haldið verður upp á nýtt útlit vefsíðu Jafningjafræðslu Hins hússins, www.jafningjafraedslan.is, frá kl. 17 til 22 á morgun í kjallara Hins hússins.
Meira
Íslenska R&B söngkonan Kenya heldur kynningartónleika á Gauki á Stöng annað kvöld. Þar flytur hún frumsamin lög. Lag Kenya, "Hot Dancing", hefur fleytt nokkuð öldur ljósvakans í sumar og má benda áhugasömum um Kenyu á vefsíðu hennar, myspace.
Meira
Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is PARA-DÍS heitir einn af skapandi sumarhópum Hins hússins, skipaður þeim Hafdísi Vigfúsdóttur flautuleikara og Kristjáni Karli Bragasyni píanóleikara.
Meira
HÓPUR myndlistarmanna og hönnuða sem kalla sig KorpArt opnaði í fyrradag vinnustofur sínar á Korpúlfsstöðum. Sumir mála málverk, aðrir hanna föt, sumir eru í leirlist, aðrir í grafískri hönnun, myndskreytingum og þannig mætti áfram telja.
Meira
A t hafnasemi á myndlistarsviðinu á Akureyri takmarkast ekki við viðburði á Listasumri, heldur ríkir þar í bæ mikill myndlistaráhugi og gróska í sýningarhaldi allan ársins hring.
Meira
MJÖG heitt er nú í veðri víða um heim og ýmis góð ráð má nota til að kæla sig niður. Þessi palestínski drengur stingur sér til sunds í hitabylgjunni sem nú er í borginni Hebron á...
Meira
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is REYFARAR eru arfleið frá gamalli tíð, tíð þegar allt var svart og hvítt, ekkert grátt; hetjurnar sterkar og göfugar, stúlkurnar fagrar, saklausar og hjálparvana og illmennin sannkölluð illmenni, ófrýnileg og alvond.
Meira
1. A Thousand Splendid suns – Khaled Hosseini 2. Blaze – Richard Bachman 3. Double Take – Catherine Coulter 4. The Children of Húrin – J.R.R. Tolkien 5. The Harlequin – Laurell K. Hamilton 6.
Meira
GOLFMEISTARINN Tiger Woods og eiginkona hans Elin hafa nú birt fyrstu opinberu ljósmyndir af nýfæddri dóttur sinni. Litla stúlkan sem fæddist hinn 18. júní síðastliðinn hefur fengið nafnið Sam Alexis og dafnar vel.
Meira
VITINN á Malarrifi á Snæfellsnesi er vettvangur ljósmyndasýningar sem opnuð verður á laugardaginn. Sýningin er um Þórð Halldórsson frá Dagverðará en myndirnar birtust á heimsalmanaki Kodak 1973.
Meira
AUMINGJA Tom Cruise! Ýmislegt hefur verið skrifað og skrafað um hann undanfarin ár og mörgum þótt hegðun hans undarleg og þá sérstaklega ást hans á Vísindakirkjunni svokölluðu sem hann er sóknarbarn í.
Meira
Aðalheiður Ámundadóttir | 26. júní Loksins boðið í bíó Ég var í senn hissa og hrærð [og] átti því í nokkrum erfiðleikum með að leyna vonbrigðum mínum þegar herramaðurinn ungi klykkti út með "eða áttu ekki annars pening?
Meira
Guðmundur Steingrímsson | 26. júní Flaksandi hörföt og Le Monde Ég hef komist að því að blogg er ekki sumariðja. Á sumrin ætti maður frekar að grípa sér baguette, rauðvínsflösku, setja Le Monde undir höndina og ganga niður í bæ í flaksandi...
Meira
Guðríður Haraldsdóttir | 26. júní Kuldaleg meðferð Mikið ofboðslega er gaman hjá einhverjum Orkuveitustarfsmanni núna. Þeir hljóta eiginlega að vera tveir, annar með kíki og hinn sem stjórnar heita og kalda vatninu.
Meira
Frá Gesti Gunnarssyni: "NÚ er í umræðu hugsanleg landfylling fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Nú hefur það komið fram í fréttum og verið haft eftir iðnaðarráðherra að fyllingin sé bæði dýr og tæknilega erfið."
Meira
Steingrímur J. Sigfússon skrifar um varnir gegn barnaklámi: "Það er einlæg von undirritaðs að sem fyrst verði farið að uppfræða nemendur í íslenskum skólum um viðbrögð af þessum toga."
Meira
Minningargreinar
27. júní 2007
| Minningargreinar
| 1327 orð
| 1 mynd
Anna Sigurbjörg Jónsdóttir fæddist á Nesi í Flókadal í Fljótum í Skagafirði 12. janúar 1921. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði að morgni 20. júní síðastliðins og var útför hennar gerð frá Hveragerðiskirkju 25. júní.
MeiraKaupa minningabók
27. júní 2007
| Minningargreinar
| 2085 orð
| 1 mynd
Áslaug Árnadóttir fæddist 20. janúar 1928 í Hvammi í Vestmannaeyjum. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 18. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðbjörg Aðalheiður Sigurðardóttir, f. 15. feb. 1896, d. 30. jan.
MeiraKaupa minningabók
27. júní 2007
| Minningargreinar
| 1121 orð
| 1 mynd
Benóný Arnórsson fæddist á Húsavík 25. sepember 1927. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 15. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Einarsstaðakirkju 25. júní.
MeiraKaupa minningabók
Hallveig Þorláksdóttir fæddist í Reykjavík 29. september 1934. Hún lést á Landspítalanum 30. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskapellu 1. júní.
MeiraKaupa minningabók
Jóhanna Kristjánsdóttir fæddist í Ytra-Skógarnesi í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi 25. ágúst 1932. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eiri 19. júní síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni 25. júní,
MeiraKaupa minningabók
27. júní 2007
| Minningargreinar
| 3405 orð
| 1 mynd
Stefán Guðmundsson fæddist á Starmýri í Álftafirði í Suður-Múlasýslu 16. júní 1922. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 16. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Eyjólfsson, f. 20.9. 1889, d. 2.9.
MeiraKaupa minningabók
27. júní 2007
| Minningargreinar
| 1338 orð
| 1 mynd
Þórdís Einarsdóttir fæddist á Akureyri 24. júní 1944. Hún lést á Líknardeild LSH 17. júní síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Digraneskirkju 25. júní.
MeiraKaupa minningabók
Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÞAÐ er mat Hagfræðistofnunar HÍ að til langs tíma litið sé það hagkvæmt fyrir þjóðarbúið að draga verulega úr sókn í þorskstofninn miðað við núverandi aðstæður. Sú niðurstaða byggist á mörgum forsendum.
Meira
"VIÐ erum að tala um að það er óskynsamlegt, miðað við þá þekkingu sem við höfum, bæði fiskifræðilega og hagfræðilega, að veiða þorsk á næsta ári í samræmi við gildandi aflareglu. Það þýðir að veiða megi 178.000 tonn af þorski.
Meira
Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is DEILUM um samruna sparisjóða Skagafjarðar og Siglufjarðar er hvergi nærri lokið. Fjármálaeftirlitinu hafa borist athugasemdir frá nokkrum stofnfjáreigendum í Sparisjóði Skagafjarðar.
Meira
GLITNIR hf. hefur tilkynnt kauphöll Íslands að bankinn hyggist sækja um leyfi til að samræma starfsemi Glitnis í Noregi. Þar undir falla Bolig- og Næringsbanken ASA og Glitnir Bank ASA.
Meira
GREININGARDEILD Landsbankans spáir 3,4% verðbólgu í júlí í stað 4,0% nú, gangi spá þeirra eftir um 0,1% lækkun vísitölu neysluverðs. Svipaðar verðbólguvæntingar eru hjá Greiningu Glitnis, eða 3,3%, sem er lægsta gildi í tvö ár.
Meira
STJÓRN Eimskipafélagsins hyggst gefa út ríflega 83 milljónir hluta í félaginu á genginu 45 krónur á hlut. Allt hlutaféð, að markaðsvirði um 3,7 milljarðar króna , verður greitt fyrrum eigendum 45% hlutar í Innovate.
Meira
Evrópska fjárfestingafélagið Candover hyggst innan tíðar gera formlegt yfirtökutilboð í hollenska félagið Stork á genginu 47 evrur á hlut. Er það 19% yfir meðaldagslokagengi síðust 3 mánaða.
Meira
GALLUP birti í gær nýja mælingu á væntingavísitölunni. Fyrir júnímánuð er talan 144,9 stig og hefur hún aðeins tvisvar áður verið hærri frá því að mælingar hófust fyrir sex árum.
Meira
FRASINN að fá sér fegurðarblund er vel þekktur – en nú getur maður víst einnig fengið sér megrunarblund, samkvæmt nýrri rannsókn sem greint er frá í Berlingske Tidende .
Meira
Þeir sem eru fæddir blindir muna langar runur af orðum yfir tvöfalt betur en þeir sem sjá. Vísindamenn telja að m.a. sé hægt að rekja þetta til þess að blindir notist við eins konar minnislista til að rata um.
Meira
Krakkarnir á leikjanámskeiðinu sem komu í Kveikju, opnu listasmiðjuna á Kjarvalsstöðum, höfðu aldrei séð breikpinna áður. Unnur H. Jóhannsdóttir sannfærðist samstundis um að það skipti engu máli, svo eldfljótir voru þeir að ná byggingatækninni.
Meira
Síminn sem "getur allt" kemur á markað á föstudag. Ef ekki allt þá flest. Með honum er nefnilega hægt að hlusta á tónlist, horfa á myndskeið, hringja, skoða Netið og margt fleira með því einu að ýta á skjáinn.
Meira
NÝJAR rannsóknir sýna að ef konur gangast undir hormónameðferð rétt eftir tíðahvörf getur hún verndað þær gegn elliglöpum, þrátt fyrir að slíkt auki áhættuna hjá eldri konum. Frá þessu er sagt á vef MSNBC.com .
Meira
Sigrún Baldursdóttir þekkir veruleika þeirra sem þjást af vefjagigt vel enda hefur hún starfað við endurhæfingu og sjúkraþjálfun þeirra í 16 ár. Unnur H. Jóhannsdóttir ræddi við hana um fræðsluvef sem hún opnaði í vor um sjúkdóminn.
Meira
Skyndilega skall sumarið á eftir nokkurra vikna hik og fum. Í fjóra daga hefur ekki aðeins verið sólríkt sunnan lands, heldur hlýtt í veðri, meira að segja strekkingurinn í Vesturbænum hefur verið ylvolgur.
Meira
Úr frekari orðum hans mátti lesa að hann gerði ráð fyrir því að fengju Íslendingar sæti í ráðinu yrðu þeir þar þægir og góðir, og hlýðnir við Bandaríkjamenn. Það er að segja, sæti Íslands í öryggisráðinu myndi í rauninni ekki vera annað en aukaatkvæði fyrir Bandaríkin þar.
Meira
1 Hvað heitir sveitarstjóri Flóahrepps? 2 Hvað heitir hvalskoðunarbáturinn sem kviknaði í? 3 Hver er nýi borgarlögmaðurinn? 4 Þýskur kvikmyndajöfur verður í öndvegi á næstu kvikmyndahátíð RIFF. Hver er það? Svör við spurningum gærdagsins: 1.
Meira
Bjarni Finnsson fæddist í Reykjavík 1948. Hann útskrifaðist sem garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins 1968 og stundaði framhaldsnám í Danmörku. Hann rak fjölskyldufyrirtækið Blómaval í þrjá áratugi.
Meira
SAMKVÆMT skoðanakönnum sem sænska blaðið Expressen gerði hjá 80 leikmönnum í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu reikna 3,6% með því að Sigurður Jónsson verði fyrstur þjálfara til að reisupassann en Sigurður tók við þjálfun Djurgården fyrir leiktíðina.
Meira
SAM Allardyce, knattspyrnustjóri Newcastle, fær 50 milljónir punda, rúmlega 6 milljarða króna, til að kaupa nýja leikmenn til félagsins í sumar frá nýjum eiganda félagsins, Michael Ashby. Sá er 25.
Meira
"ÉG var að ganga frá nýjum samningi við FCK sem gildir fram á mitt ár 2010 og er mjög ánægður með það enda líkar mér vel hjá félaginu og forsvarsmenn félagsins eru ánægðir með mig," sagði Arnór Atlason, landsliðsmaður í handknattleik, í gær...
Meira
SVÍINN Staffan Holmqvist, fyrrverandi forseti evrópska handknattleikssambandsins, EHF, og formaður sænska handknattleikssambandsins í mörg ár er látinn, 64 ára gamall. Holmqvist, sem var mörgum Íslendingum að góðu kunnur.
Meira
Magnús Þórisson dæmir seinni leik Llanelli frá Wales og Vetra Vilnius frá Litháen í Intertoto-keppninni í knattspyrnu sem fram fer í Wales um næstu helgi. Honum til aðstoðar verða Gunnar Sverrir Gunnarsson og Oddbergur Eiríksson .
Meira
LANDSLIÐSMANNINUM Loga Gunnarssyni hefur verið boðið að leika með spænska körfuknattleiksliðinu Gijon Farho á næstu leiktíð, en Logi lék sjö leiki með liðinu undir lok síðasta tímabils.
Meira
ÞEIR verða grænir dagarnir í Kópavogi, alla vega fram að helgi, eftir sigur Breiðbliks á nýliðum HK, 3:0, í fyrstu viðureign Kópavogsliðanna í efstu deild að viðstöddum á þriðja þúsund áhorfenda. Blikarnir voru vel að sigrinum komnir.
Meira
"ÞETTA var lélegt hjá okkur, alveg tvímælalaust, en ég get samt einhvern veginn ekki sagt að þeir hafi verið betri, ég ætla ekki að fara í þá afsökun, en þeir bara nýttu færin sín og það er það sem dugar í fótbolta," sagði Grétar Sigfinnur...
Meira
GUÐJÓN Þórðarson, þjálfari Skagamanna, var að vonum ánægður með framgöngu sinna manna í sigrinum á Víkingum. "Þetta var svolítið basl á köflum en við vissum hvað við vorum að fara út í.
Meira
ÚKRAÍNSKI handknattleiksmaðurinn Sergiy Serenko verður ekki í herbúðum Framara á næsta tímabili en stjórn handknattleikdeildarinnar ákvað að nýta uppsagnarákvæði í samningi hans við félagið í samráði við ungverska þjálfarann Ferenc Buday sem í vor var...
Meira
ÍSLANDSMEISTARAR FH-inga geta í kvöld náð átta stiga forskoti á toppi Landsbankadeildarinnar í knattspyrnu takist þeim að leggja Val á Laugardalsvelli og Fylkir vinni sigur á Keflvíkingum.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.