Eftir Soffíu Haraldsdóttur og Agnesi Bragadóttur HLUTAFÉ í FL Group verður á næstunni aukið um 49% eða um rúma 4,5 milljarða hluta. Nýtt hlutafé verður selt á genginu 14,7 sem þýðir að um allt að 67 milljarða króna aukningu er að ræða að markaðsvirði.
Meira
Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Jónas Ingimundarson býður gestum að hlýða á Beethoven í Salnum í Kópavogi í kvöld. Það er ókeypis en það eru þó gamlar fréttir því miðarnir voru allir farnir í gær.
Meira
GÓÐIR hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, og stuðningshópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka, verða með sameiginlegan aðventufund í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 5.
Meira
AÐVENTUHÁTÍÐ verður haldin í Hásölum Hafnarfjarðarkirkju á vegum Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarkirkju á fimmtudag. Hefst hátíðin kl. 20.00 með því að gestum verður boðið upp á kakó og piparkökur í Ljósbroti safnaðarheimilisins. Kl. 20.
Meira
Mýrdalur | Aðventuhátíð fyrir alla íbúa Mýrdalshrepps verður í félagsheimilinu Leikskálum í Vík, í kvöld, miðvikudagskvöldið 5. desember, og hefst klukkan 20. Á aðventukvöldinu verður helgileikur, söngur og tónlist sem tengist aðventu og jólum.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is Á TOSSALISTA sem ég á í fórum mínum frá því við stofnuðum Listaháskóla Íslands árið 1998 tel ég upp ýmis atriði sem okkur þótti brýnt að kæmu til framkvæmda.
Meira
Hlutafjáraukning, forstjóraskipti, hagræðing, endurfjármögnun og kaup á fasteignafélögum eru meðal breytinga hjá FL Group sem kynntar voru á fundi með blaðamönnum í gær.
Meira
GUNNAR Svavarsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir að samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti frá því í byrjun október renni þjónustusamningur við SÁÁ út í árslok og „vel fyrir þann tíma þurfi að hefja viðræður um hvort og með hvaða...
Meira
BHUMIPOL, konungur Taílands, er áttræður í dag en hann hefur setið lengur á valdastóli en nokkur annar þjóðhöfðingi. Bhumipol er dáður af taílensku þjóðinni og hátíðahöld hófust því strax á miðnætti í...
Meira
FÉLAG um billjarð á Íslandi hefur áhuga á að byggja íþróttina upp að danskri fyrirmynd. Félagið hefur óskað eftir samstarfi við félags- og íþróttayfirvöld í Reykjavík um stofnun klúbba sem gætu orðið miðstöðvar fyrir skipulagt íþróttastarf á þessu...
Meira
Washington. AFP, AP. | Spenna hefur færst í baráttu þeirra sem sækjast eftir því að verða forsetaefni demókrata og repúblikana í forsetakosningunum í Bandaríkjunum á næsta ári.
Meira
FREYDÍS Vigfúsdóttir, líffræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, flytur erindi um sjófugla í breytilegu umhverfi, á Hrafnaþingi á Hlemmi í dag, miðvikudag, klukkan 12.15.
Meira
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is FRJÓSEMISGOÐ frá Dóminíska lýðveldinu er grunað um að vera valt að einstakri frjósemi tveggja ungra íslenskra para.
Meira
Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ÓTAKMARKAÐUR ræðutími er almennt fáheyrður á þjóðþingum landa sem Ísland ber sig saman við, ef frá er talin öldungadeild bandaríska þingsins.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is „NIÐURSTÖÐUR þessara spurninga gleðja eflaust ekki foreldra en renna einnig stoðum undir hvimleiða staðalímynd sem loðir við MH-inga,“ segir m.a.
Meira
KARLMAÐUR á þrítugsaldri og kona voru flutt með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir harðan árekstur í Straumi í Ártúnsholti, til móts við Bröndukvísl, aðfaranótt miðvikudags.
Meira
SÍÐASTA rannsóknarkvöld haustmisseris verður haldið nk. fimmtudag, 6. desember, eins og áður í húsi Sögufélagsins, Fischersundi 3, kl. 20. Þá flytur Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur (benedihj@hi.
Meira
EINN af kunnustu ljósmyndurum eftirstríðsáranna, Werner Bischof, meðlimur í Magnum-ljósmyndarahópnum, myndaði hér á landi í ágústmánuði árið 1950. Vann hann fyrir ECA-stofnunina, sem skipulagði Marshall-aðstoðina.
Meira
Eftir Jón H. Sigurmundsson Þorlákshöfn | Félagar úr Kiwanisklúbbnum Ölver í Þorlákshöfn komu færandi hendi í heilsugæslu í Þorlákshafnar á dögunum. Þeir færðu stöðinni nýjan skoðunarbekk ásamt ýmsum fylgihlutum eins og borði og stólum.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildi gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri, Tomasi Malakauskas, sem stöðvaður var hér á landi þrátt fyrir endurkomubann vegna aðildar sinnar í líkfundarmálinu svonefnda.
Meira
NORRÆNA félagið og Hjálpræðisherinn í samstarfi við verslanir í miðborg Reykjavíkur, MS, Nóa-Síríus og Kötlu bjóða alla borgarbúa og gesti höfuðborgarinnar velkomna niður í miðbæ laugardagana 8., 15. og 22. desember milli kl.
Meira
STJÓRN Sómalíu hefur komið í veg fyrir flutning hjálpargagna til nauðstaddra flóttamanna, að sögn embættismanna Sameinuðu þjóðanna í gær. Ekki hefur verið hægt að afferma tvö skip sem fluttu hjálpargögn til Sómalíu í fylgd franskra herskipa.
Meira
Bagdad. AP, AFP. | Mannræningjar í Írak sendu í gær frá sér myndband af fimm Bretum sem rænt var í maí en í myndbandinu óska mennirnir eftir því að breski herinn verði kallaður frá Írak.
Meira
Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is „HRÁKASMÍГ og „ljótasti bandormur sögunnar“ er meðal lýsinga þingmanna Vinstri grænna og Framsóknarflokksins á efni frumvarps til laga um tilfærslu á verkefnum innan stjórnarráðsins.
Meira
Á NÆSTU dögum liggur fyrir hvort lögreglurannsókn fari fram á bókhaldi Grímseyjarhrepps, en undanfarna daga hafa sveitarstjórnarmenn ásamt sérfræðingum farið í gegnum gögnin.
Meira
ALLIR eru velkomnir á árlegan jólafund Kvenréttindafélags Íslands, sem haldinn verður í kvöld, miðvikudaginn 5. desember, kl. 20 í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu.
Meira
Selfoss | Viss, vinnu- og hæfingarstöð á Selfossi, hefur opnað sinn árlega jólamarkað. Þar er til sölu fjölbreytt úrval af jólavörum, listmunum og öðrum nytjavörum sem starfsmenn hafa unnið í vetur.
Meira
IÐJUÞJÁLFUN geðdeildar við Hringbraut hefur verið lokuð síðan 1. maí 2007. Frá nóvember síðastliðnum hefur starfsemi deildarinnar verið að hluta til virk vegna aukinna starfskrafta. Árleg jólasala verður haldin fimmtudaginn 6. desember á 1.
Meira
Selfoss | Kveikt verður á jólatrénu á Tryggvatorgi á Selfossi næstkomandi laugardag. Þá koma jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og nærsveitunga. Dagskráin hefst kl.15.
Meira
Stokkhólmi. AP. | Jólasveinninn ætti að setjast að í Mið-Asíuríkinu Kirgistan til að geta flutt jólagjafir til allra þægu barnanna í heiminum á sem skemmstum tíma.
Meira
Hæsti styrkur Hæsti styrkurinn til menningarverkefna sem menningarráð Suðurlands úthlutaði um helgina var 2 milljónir kr., ekki 3 milljónir eins og misritaðist í frétt í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Meira
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÞRÁTT fyrir stíf fundahöld í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði eru viðræður um launalið samninga enn ekki komnar á skrið.
Meira
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur og Silju Björk Huldudóttur UM 800 lítrar af klór láku í Varmá þegar tappi í klórgeymi við Sundlaugina í Laugaskarði gaf sig aðfaranótt föstudagsins 30. nóvember. Óttast er að slysið verði lífríki árinnar áfall.
Meira
ALÞJÓÐADAGUR sjálfboðaliðans er í dag, 5. desember. Kópavogsdeild Rauða kross Íslands fagnar deginum með opnu húsi fyrir sjálfboðaliða deildarinnar kl. 20.-22 í Hamraborg 11, 2. hæð. Boðið verður upp á ljúffengar veitingar með jólalegu ívafi.
Meira
ÓLAFUR F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, var í gær formlega kosinn í embætti forseta borgarstjórnar með átta atkvæðum meirihlutans. Ólafur tók til máls að kosningu lokinni og þakkaði það traust sem honum væri sýnt.
Meira
ÓLAFUR Ólafsson hefur verið skipaður dómstjóri Héraðsdóms Norðurlands eystra á Akureyri til fimm ára, frá og með næstu áramótum. Ásgeir Pétur Ásgeirsson lætur af starfi dómstjóra 31. desember fyrir aldurs sakir.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í SAMNORRÆNNI könnun sem gerð var í sumar mældist Reykjavík hreinasta borgin af alls 14 borgum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum sem kannaðar voru.
Meira
ÞAÐ hefði borgað sig fyrir ríkið að selja einkaaðilum öll sín háhitasvæði í upphafi sjöunda áratugarins og þeir sem hefðu eignast svæðin hefðu í krafti öruggs eignarréttar nýtt réttindi sín á svæðunum betur en síðan hefur komið í ljós að gert hefur...
Meira
FÁ ÞYRFTI utanaðkomandi aðila til að setjast niður með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga til að leysa deilur milli þeirra og finna farsæla niðurstöðu sem tryggir gott samstarf stjórnsýslustiganna.
Meira
New York. AFP. | Ofdekruð tík, sem erfði tólf milljónir dollara, sem svarar rúmum 740 milljónum króna, hefur flúið til Flórída og dvelst þar undir nýju nafni eftir að hafa fengið líflátshótanir.
Meira
SKÓLAÞRÓUNARSVIÐ kennaradeildar Háskólans á Akureyri stendur fyrir fræðslufundi undir yfirskriftinni „Hugmyndir, reynsla og viðmið tengd kennslu barna með dyslexíu“ fimmtudaginn 6. desember kl. 16.30.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur skipað þverfaglegan starfshóp til að gera vandað og faglegt hættumat fyrir Ísland. Verklok eru áætluð fyrir næsta haust. Formaður verður Valur Ingimundarson prófessor.
Meira
STOFNAÐUR hefur verið styrktarreikningur fyrir fjölskyldu Kristins Veigars Sigurðssonar, fjögurra ára drengs sem lést eftir umferðarslys við Vesturgötu í Reykjanesbæ sl. föstudag.
Meira
ÍSLENSK stjórnvöld vilja að tekið verði mið af tilmælum vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar í þeim samningaviðræðum sem nú standa yfir á Balí en ferlinu lýkur í Kaupmannahöfn árið 2009.
Meira
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Frammistöðu íslenskra grunnskólanema í lestri hefur hrakað frá árinu 2000, samkvæmt niðurstöðu nýrrar PISA könnunar.
Meira
FIMM ungmenni sluppu við alvarleg meiðsl eftir að bifreið sem þau voru í fór út af Grafningsvegi rétt við Hagavík á níunda tímanum í gærkvöldi og valt um 20-30 metra niður gil.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LEYFT verður að veiða allt að 1.333 hreindýr árið 2008 og hefur kvótinn meira en þrefaldast frá árinu 2000. Til 2003 var fjöldi umsókna um veiðileyfi í samræmi við kvótann en síðan hefur umsóknum fjölgað margfalt.
Meira
ÍRÖNSK stjórnvöld hafa vísað sendiherra Kanada úr landi en ástæðan er sögð sú að kanadísk stjórnvöld hafa ekki viljað leggja blessun sína yfir þann stjórnarerindreka sem Íranar vildu senda til starfa í Kanada. Samskipti ríkjanna hafa verið...
Meira
Stutt til jóla ÞINGFUNDARSTÖRF bera þess glöggt vitni að jólafrí er í nánd og fundir hafa staðið fram á kvöld sl. tvo daga. Gera má ráð fyrir að svo verði áfram enda ákveðin mál sem þarf að klára til að lög geti tekið gildi 1. janúar , s.s.
Meira
Bjarni Harðarson 4. desember Ýsa og fyrirboði ÞAÐ var fiðringur í matsal Alþingis í dag og ástæðan að nú var búist við byltingu í afstöðu ríkisstjórnarinnar í svokölluðum loftslagsmálum.
Meira
Mikið er í húfi á loftslagsráðstefnunni, sem nú stendur yfir á Balí. Í gær setti ríkisstjórnin fram minnisblað um markmið Íslands í þessum efnum.
Meira
Sameinað Rússland, flokkur Pútíns forseta, vann stórsigur í þingkosningunum um helgina. Það kann að verða afdrifaríkt fyrir lýðræðisþróun í Rússlandi, enda hefur flokkurinn þingstyrk til að hrinda í gegn stjórnarskrárbreytingum.
Meira
Matthías Árni Ingimarsson mai@centrum.is Á MÁNUDAGINN var, hitti ofanritaður fyrir íslensku hjómsveitirnar múm, Seabear, og Mr Silla & Mongoose á sushi-staðnum Sticks & Sushi í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn.
Meira
REYKJAVÍKURBORG hefur samþykkt að hefja endurbætur á húsnæði Tjarnarbíós á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að 50 milljónir króna verði veittar til endurbóta á húsnæðinu árið 2008 og 100-120 milljónir ári síðar.
Meira
* Æfingar á Jesus Christ Superstar standa nú yfir í Borgarleikhúsinu en eins og margoft hefur komið fram áður er það Krummi í Mínus sem fer með hlutverk frelsarans sem efast.
Meira
KARLAKÓR Reykjavíkur gagntók Færeyinga með söng sínum, en kórinn hélt þrenna tónleika í Færeyjum um helgina, eina í Klakksvík og tvenna í Þórshöfn, auk þess sem kórinn söng við messu í Þórshafnarkirkju.
Meira
Í KVÖLD munu Grafarvogsskáldin lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum við kertaljós. Upplesturinn fer fram í Grafarvogskirkju, hefst kl. 20 og munu nemendur úr Tónskóla Grafarvogs leika jólatónlist eftir Corelli.
Meira
Listahátíðin Les Grandes Traversées í Bordeaux var haldin í sjöunda sinn frá 11.-18. nóvember. Les Grandes Traversées vísar í hinar miklu krossgötur listamanns þar sem allir hans þræðir, tengsl, innblástur og áhrif mætast.
Meira
Það þykir víst ekki tíðindum sæta lengur að bróðurpartur þess efnis sem sýnt er í íslensku sjónvarpsefni skuli koma frá Bandaríkjunum. Athyglisvert er, að þessi dagskrárstefna er varla gagnrýnd svo nokkru nemi.
Meira
STÓRSVEIT Reykjavíkur heldur sína árlegu jólatónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld 5. des. kl. 20.30. Þetta er í fimmta sinn sem Stórsveitin stendur fyrir jólatónleikum, en þeir hafa notið mikilla vinsælda og hlotið frábæra aðsókn.
Meira
BANDARÍSKI leikarinn Ethan Hawke hefur átt í leynilegu ástarsambandi við fyrrverandi fóstru barna sinna í um það bil tvö ár. Hawke á tvö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Umu Thurman.
Meira
New York Times 1. Double Cross – James Patterson. 2. The Choice – Nicholas Sparks 3. Playing for Pizza – John Gris ham. 4. Stone Cold – David Baldacci.
Meira
Kalt er annars blóð er skáldsaga um glæp sem er tileinkuð höfundi Brennu-Njáls sögu. Hvort er hún þá Njála færð til nútímans eða nútíminn settur inn í Njálu? Freysteinn Jóhannsson gekk á fund Þórunnar Erlu-Valdimarsdóttur, höfundar bókarinnar.
Meira
Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is TVEIR helstu poppfræðingar landsins, þeir Arnar Eggert Thoroddsen og Dr. Gunni, senda báðir frá sér bók fyrir þessi jól.
Meira
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is FYRIR stuttu kom út á íslensku ein merkasta bók bandarískrar bókmenntasögu, The Red Badge of Courage eftir Stephen Crane, eða Hið rauða tákn hugprýðinnar, eins og hún heitir í íslenskum búningi.
Meira
MIÐAR á átta tónleika áströlsku söngkonunnar Kylie Minogue í Bretlandi seldust upp á aðeins hálftíma á mánudaginn og hafa skipuleggjendur nú þegar bætt sjö tónleikum við þar í landi, en tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi sem ber heitið...
Meira
MARÍULÖG frá ýmsum tímum, eftir íslensk og erlend tónskáld, verða á efnisskrá Selkórsins á tónleikum í Seltjarnarneskirkju í kvöld og á morgun. „Ég vil lofa eina þá“ er yfirskrift tónleikanna. Kórinn mun m.a.
Meira
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÆSA Sigurjónsdóttir listfræðingur hefur grafið upp mörg hundruð ljósmyndir eftir hinn kunna svissneska ljósmyndara Werner Bischof sem hann tók á Íslandi í ágúst 1950.
Meira
Anna Ólafsdóttir Björnsson | 4. des. Gleðipopp Það er svo gaman að gramsa á YouTube. Eftir að ég gróf upp eitt af mínum gömlu uppáhaldslögum, Lazy Sunday Afternoon með Small Faces varð ég auðvitað að sækja gleðipopp-stuðlag allra tíma.
Meira
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir skrifar í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi: "Með verkefninu er leitast við að opna íslenskt samfélag fyrir erlenda félaganum með samtölum og samskiptum"
Meira
Inga Lilý Gunnarsdóttir | 4. desember Eru femínistar búnir að missa vitið? Ég hélt að ruglið hefði náð hámarki með umræðunum á Alþingi um bleiku og bláu fötin en, nei.... Ég trúi ekki að manneskjunni sé alvara: femínistablogg.
Meira
Jón Magnússon skrifar um stefnumörkun stjórnmálaflokka í málefnum innflytjenda: "Ríkisstjórnin hefur vanrækt að móta langtímastefnu í málefnum innflytjenda."
Meira
Ásmundur Brekkan fjallar um uppbyggingu Landspítala: "Ég fer ekkert í felur með það, að mér persónulega hugnaðist betur að byggður yrði nýr háskólaspítali frá grunni..."
Meira
Sverrir Leósson skrifar um málefni líðandi stundar: "Ef við ætlum ekki að safna þjóðinni allri saman við Faxaflóa þá þarf sterka vítamínsprautu inn í atvinnulífið á landsbyggðinni og það strax."
Meira
Árni Tómas Ragnarsson skrifar um mikilvægi listrænnar stjórnunar nýs tónlistarhúss: "Undirbúningur við listræna stjórn og stefnumótun Tónlistarhússins þarf að hefjast ekki seinna en nú þegar."
Meira
Sigurður Sigurðsson skrifar um rétt fatlaðra til að hafa möguleika á að afla sér lífsviðurværis með vinnu: "Í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðra hinn 3. des. sl. vill Styrktarfélag vangefinna kynna nýtt atvinnuúrræði fyrir fatlaða"
Meira
Garðar H. Guðjónsson og Linda Ósk Sigurðardóttir fjalla um fjölbreytt sjálfboðið starf í þágu samfélagsins: "„Stærsti hópurinn vinnur að því að draga úr einsemd og félagslegri einangrun. Hundruð manna njóta góðs af því starfi."
Meira
Frá Árna Gunnarssyni: "BISKUP Íslands skoraði á áheyrendur sína í viðtali í sjónvarpi að standa vörð um kristin lífsgildi og boðskap kirkjunnar í nútímanum."
Meira
Frá Svend-Aage Malmberg: "REYKJANESSKAGINN í heild er merkilegur og einstakur á heimsmælikvarða. Hann er hluti af neðansjávarhrygg, sem spannar öll heimshöfin, og er hvergi jafn sýnilegur ofansjávar og á Íslandi."
Meira
Drífa Kristjánsdóttir býður fram reynslu sína til að útbúa meðferðarumhverfi fyrir afbrotabörn: "Ég fæ bara hroll niður bakið. Hvar eru fögur orð um velferðarmál fjölskyldna?"
Meira
Ásgeir Sigurjónsson fæddist í Reykjavík 16. febrúar 1923. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 25. nóvember síðastliðinn. Ásgeir var sonur hjónanna Sigurjóns Jónssonar, verkamanns í Reykjavík, frá Suðurkoti í Krísuvík, f. 29.10. 1875, d. 28.11.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Steinunn Gísladóttir fæddist á Sólbakka í Garði í Gerðahreppi 25. febrúar 1916. Hún lést á dvalarheimilinu Hlévangi í Keflavík 21. nóvember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Keflavíkurkirkju 30. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Hildigunnur Kristinsdóttir fæddist að Höfn á Dalvík 18. júlí 1930 og lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 29. október síðastliðinn og var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 3. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Jóhann Eymundsson fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 3. september 1927. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 12. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 20. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Karólína Pétursdóttir fæddist á Akureyri 17. nóvember 1919. Hún lést á heimili sínu, í Hjallaseli 55 (Seljahlíð), 17. nóvember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 28. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Rafn Einarsson fæddist í Reykjavík í 11. janúar 1956. Hann lést í vinnuslysi í Svíþjóð 5. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Unnur D.K. Rafnsdóttir, f. 16. september 1916, d. 27. desember 1993, og Einar Oddberg Sigurðsson, f. 3. október 1914, d.
MeiraKaupa minningabók
Rögnvaldur Gíslason, fyrrverandi deildarstjóri hjá KEA, fæddist í Ólafsfirði 10. mars 1926. Hann andaðist á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri hinn 14. nóvember síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Kristínar Friðfinnsdóttur, Gíslason, hjúkrunarkonu, f.
MeiraKaupa minningabók
Tómas Ingi Ingvarsson fæddist í Reykjavík 14. september 1997. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands 16. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnarkirkju 28. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reynt er að skapa gömlu hafnarstemninguna með sýningu í nýjum Bryggjusal Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Þar er í gangi uppskipun og Gullfoss frá 1915 við bryggju.
Meira
ÞING Farmanna- og fiskimannasambands Íslands sem haldið var á Grand Hótel í lok síðustu viku lýsti í ályktun áhyggjum af vaxandi afskiptaleysi fjölmiðla af sjómönnum og umfjöllun um sjávarútvegsmál.
Meira
ÞING Farmanna- og fiskimannasambands Íslands sem nýlega var haldið telur að lög um íslenska alþjóðlega skipaskrá gagnist ekki. Skorar þingið á stjórnvöld að lagfæra þau.
Meira
MORGUNBLAÐIÐ birtir í heild sinni tilkynningu þá er FL Group sendi frá sér síðdegis í gær: „FL Group hefur fjárfest í öflugum fasteignafélögum fyrir 53,8 milljarða króna en allar eignirnar eru keyptar af Baugi Group.
Meira
MÁR Másson hefur verið ráðinn forstöðumaður kynningarmála Glitnis á Íslandi frá og með 10. janúar nk. en hann hefur undanfarið ár starfað sem upplýsingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins, FME. Már stundaði B.Sc-nám í alþjóðaviðskiptum og M.Sc.
Meira
QATAR Holding, eignarhaldsfélag kvatarska ríkisins , tilkynnti sænska fjármálaeftirlitinu í gær að það drægi umsókn sína um heimild til þess að fara með virkan eignarhlut í OMX til baka.
Meira
MIKIL lækkun varð á gengi hlutabréfa í kauphöll OMX á Íslandi í gær en við lok viðskipta hafði úrvalsvísitalan lækkað um 3,1% og var gildi hennar 6.640,22 stig.
Meira
ÖSSUR hf. hefur selt kauprétt að húsnæði stoðtækjafyrirtækisins á Grjóthálsi 5 í Reykjavík fyrir 7,9 milljónir dollara, jafnvirði nærri 500 milljóna króna.
Meira
Kvæðamannafélagið Iðunn heldur jólafundinn 7. desember næstkomandi, en þá munu nokkrir félagar kynna nýútkomnar bækur sínar, auk þess sem fluttar verða rímur og spiluð jólalög.
Meira
Rauð og falleg epli sem ilma af eplalykt minna á jólin og það má kveikja á þeim líka. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir lærði hjá Helgu Björgu Jónasardóttur hvernig búa á til ilmandi jólakerti.
Meira
Matarsalt nefnist á máli efnafræðinnar natríumklórið. Mikil neysla þess getur átt þátt í að hækka blóðþrýsting. Háþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma en hann tvöfaldar t.d.
Meira
Jólin 1992 eru um margt eftirminnileg í mínum huga,“ segir Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar. „Ég var þá í námi við Háskólann í Árósum í Danmörku og bjó á stúdentagarði í útjaðri bæjarins.
Meira
Það þykir ekki lengur manndómsmerki að bera harm sinn í hljóði þegar sjálfsvígshugsanir eru farnar að banka upp á. Hrefna Ólafsdóttir, yfirfélagsráðgjafi á BUGL, sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að sjálfsskaðandi hegðun barna og ungmenna bæri alltaf að taka alvarlega.
Meira
50 ára afmæli. Í dag, miðvikudaginn 5. desember, er Stefán S. Guðjónsson framkvæmdastjóri fimmtíu ára. Eiginkona Stefáns er Helga R. Ottósdóttir hjúkrunarfræðingur. Þau hjónin fagna tímamótunum í dag í faðmi fjölskyldu og...
Meira
Íslandsmót í Butler-tvímenningi Íslandsmót í Butler-tvímenningi fer fram í húsnæði Bridssambands Íslands laugardaginn 8. desember. Spilamennska hefst klukkan 11. Spilamennskan fer fram eins og verið sé að spila í sveitakeppni, þ.e.
Meira
Guðný Björk Eydal fæddist á Akureyri 1962. Hún lauk stúdentsprófi frá MA 1982, BA-gráðu og starfsréttindanámi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands 1986, meistaranámi frá Gautaborgarháskóla 1993 og doktorsnámi frá sama skóla 2005.
Meira
1 Hver hlaut hvatningaverðlaun Öryrkjabandalagsins í flokki einstaklinga? 2 Ráðist var á íslenska stúlku í höfuðborg Mósambík. Hvað heitir höfuðborgin? 3 Viðskiptatímaritið Fortune hefur útnefnt voldugasta mann viðskiptalífs heimsins. Hver er hann?
Meira
Bókin er dauð, lengi lifi bókin. Þetta gæti verið kjörorð nýrrar uppfinningar, sem nú er seld í vefbókabúðinni Amazon. Fyrirbærið nefnist Kindle og í gegnum það er hægt að nálgast 90 þúsund bókatitla og kaupa dagblöð frá nokkrum löndum.
Meira
NÚ ER loks komið mynstur á stöðu liðanna í NBA-deildinni eftir fyrsta keppnismánuðinn og flest rúllar eftir áætlun – nema hraðlest Boston Celtics.
Meira
SAMKVÆMT frétt enska dagblaðsins The Guardian ætlar enska knattspyrnusambandið að ræða við þrjá aðila vegna ráðningar í stöðu þjálfara enska landsliðsins.
Meira
Frank Lickliter tryggði sér sigur á úrtökumótinu fyrir PGA-mótaröðina í golfi en keppni lauk á mánudag. Alls fengu 26 kylfingar keppnisrétt á sterkustu mótaröð heims en Lickliter hefur leikið á mótaröðinni frá árinu 1996.
Meira
Arnar Sigurðsson er kominn í átta liða úrslit í tvíliðaleik á atvinnumannamóti í tennis í Dóminíska lýðveldinu ásamt félaga sínum, Matthew Roberts frá Bandaríkjunum .
Meira
Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is GUÐMUNDUR Viðar Mete, varnarmaðurinn sterki í liði Keflvíkinga, er þessa dagana til skoðunar hjá tyrkneska knattspyrnuliðinu Kasimpasa Istanbul.
Meira
FILIPPO Inzaghi á nú markametið í Evrópu þegar öll mót á vegum UEFA eru talin með. Ítalski landsliðsframherjinn skoraði eina markið í 1:0-sigri AC Milan gegn Celtic frá Skotlandi í gærkvöld.
Meira
HVORKI fleiri né færri en 78 af 96 sérfræðingum franska knattspyrnutímaritsins France Football greiddu Kaká atkvæði í efsta sæti í kjörinu á knattspyrnumanni ársins í Evrópu.
Meira
LEIKUR Helsingborg frá Svíþjóð og Trans Narva frá Eistlandi í UEFA-bikarnum í knattspyrnu sem fram fór í júlí er einn af 15 leikjum sem er til sérstakrar rannsóknar vegna mögulegs getraunasvindls.
Meira
STJÓRN Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, ætlar að taka fyrir á fundi á fundi sínum í París 17. og 18. desmber meint spillingarmál í tengslum við úrslitaleikinn í Asíukeppninni í handknattleik karla í haust.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.