FISKVERÐ á mörkuðum hefur hækkað mikið að undanförnu. Það eru bæði hátíðahöld og rysjótt veðurfar sem valda, en margir frídagar eru samliggjandi um þessi jól og fá skip og bátar á miðunum.
Meira
Afli íslenskra skipa á árinu 2007 er áætlaður 1.401 þúsund lest. Það er 78 þúsund lesta aukning frá fyrra ári sem var það slakasta frá 1991. Mestur var aflinn 1997, eða 2.199 þúsund lestir, samkvæmt bráðbirgðatölum Fiskistofu.
Meira
Eftir Jón Sigurðsson Blönduós | Nemendur 10. bekkjar Húnavallaskóla sýndu söngleikinn „Footloose“ í Félagsheimilinu á Blönduósi á fimmtudagskvöldið að viðstöddu fjölmenni.
Meira
GUNNAR Karlsson sagnfræðingur hlýtur heiðursverðlaun Verðlaunasjóðs Ásu Guðmundsdóttur Wright í ár, en verðlaunin voru í gær veitt í þrítugasta og níunda skipti.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is „ÉG er að hætta og loka um hádegið á gamlársdag,“ sagði Frímann Frímannsson, umboðsmaður Happdrættis Háskóla Íslands til 52 ára.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is BETUR fór en á horfðist þegar Markús Benjamínsson, 67 ára gamall staðarhaldari í Miklaholti í Borgarbyggð, fór niður um ís á Másvatni á Mýrum á vélsleða sínum í gær.
Meira
ÆTLA má að allt að 700 manns komi árlega til beinþéttnimælingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar til gerður mælir, sem notaður hefur verið í áratug, er óstarfhæfur vegna bilunar og því hefur þurft að senda fjölmarga til Reykjavíkur til rannsóknar.
Meira
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tvær líkamsárásir í miðborginni í fyrrinótt. Í öðru tilvikinu var notaður hnífur. Í hinu málinu hlaut fórnarlambið nef- og kinnbeinsbrot.
Meira
VEIÐIMÁLASTOFNUN, í samvinnu við Veiðifélag Borgarfjarðar, hóf í haust rannsóknir á bleikju í Hvítá í Borgarfirði. Bleikja í Hvítá hefur verið verðmæt auðlind og veidd bæði í net og á stöng. Veiðiskýrslur sýna að veiði á bleikju hefur snarminnkað.
Meira
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist og Ferðafélag Íslands standa fyrir sameiginlegri blysför í Öskjuhlíð í dag, laugardaginn 29. desember. Lagt verður af stað úr Nauthólsvík kl. 17.
Meira
BRASILÍA hefur allt í áratugi framleitt mikið magn etanóls úr sykurreyr og sjá framleiðendur nú fram á aukna eftirspurn eftir að ríkisstjórnin setti í lög að frá og með nýársdegi skuli magn lífræns eldsneytis í dísil vera 2 af hundraði.
Meira
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is NAWAZ Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, skoraði í gær á stjórn landsins að fresta þingkosningum sem ráðgerðar eru 8. janúar. Flokkur hans ákvað að taka ekki þátt í kosningunum.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „ÞAÐ er ekki búið að spá neitt formlega um þróunina á næsta ári, en okkur sýnist að það muni draga mikið úr innflutningi fólks í almennan byggingaiðnað, ekki bara í stórframkvæmdir heldur almennt.
Meira
Grindavík | Sölusýning á ljósmyndum Ellerts Grétarssonar, ljósmyndara Víkurfrétta, verður opnuð í Saltfisksetrinu í Grindavík 5. janúar. Þar verður sýnt það helsta sem hann hefur verið að ljósmynda síðustu árin í íslenskri náttúru og landslagi.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is FERNIR þríburar fæddust á fæðingardeild Landspítala við Hringbraut á þessu ári. Er það töluverð aukning frá fyrra ári en þá fæddust einir þríburar á spítalanum.
Meira
LAGT var hald á um fimm og hálft kíló af fíkniefnum sem komu hingað til lands með hraðsendingu frá Þýskalandi um miðjan nóvembermánuð. Engin hefur verið handtekinn vegna málsins sem er í rannsókn hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Að sögn Jóhanns R.
Meira
KONA í indverskum fjölleikaflokki fóðrar flóðhest á sýningu í Bangalore á Indlandi í gær. Hefðbundin indversk fjölleikahús eiga nú í miklum erfiðleikum vegna hertra reglna um dýravernd og...
Meira
UM 8% aukning erlendra ferðamanna er á hótelum og gistiheimilum í Reykjavík um áramótin sem verða nær öll opin, alls um 3.600 ferðamenn. Um jólin voru 1.000-1.200 ferðamenn á hótelum í Reykjavík og er það svipað og það var á síðasta ári.
Meira
AÐ VANDA er Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík með árlega flugeldasölu sína í B&L-húsinu við Grjótháls 1. Flugeldasalan stendur dagana 28. til 31. desember og er opin frá kl. 10 til 22 alla daga og til kl. 16 á gamlársdag.
Meira
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu óskar þess að landsmenn eigi ánægjuleg áramót. Með það í huga er ágætt að minna á þá góðu reglu að ganga hægt um gleðinnar dyr, segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Meira
FIMMTA Friðriksmótið í hraðskák fer fram í dag, laugardag, og hefst klukkan 13. Að venju er teflt í Landsbankanum í Austurstræti. Mótið er kennt við Friðrik Ólafsson, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Margir þekktir skákmenn eru skráðir til leiks.
Meira
Fljót | Kvenfélagið Framtíðin í Fljótum hefur undanfarið verið að afhenda íbúum sveitarinnar ullarteppi. Tilgangurinn er að teppin verði höfð í bílum og verði til taks ef fólk kemur að slösuðu fólki t.d. eftir umferðarslys.
Meira
KNATTSPYRNUFÉLAG Akureyrar (KA) verður 80 ára hinn 8. janúar næstkomandi og verður tímamótunum fagnað með ýmsum hætti. Blaði, sem gefið er út í tilefni afmælisins, verður dreift í hús á Akureyri fyrstu helgina í janúar. Á sjálfan afmælisdaginn, 8.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „Við viljum minna þig á að skuld þín hjá Og Vodafone er komin í vanskil,“ segir í upphafi innheimtubréfs sem karlmanni barst frá Intrum Justitia nú rétt fyrir jólin.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 8 mánaða fangelsi fyrir ýmis brot. Maðurinn stal m.a. bíl í Reykjavík í nóvember sl. og fór á honum í innbrotaleiðangur til Árnes- og Rangárvallasýslna.
Meira
NEFND innan Háskólans á Akureyri hefur skilað tillögum að málstefnu fyrir skólann. Þær eru byggðar á ýtarlegum undirbúningi, m.a. spurningakönnun sem öllum kennurum og nemendum bauðst að taka þátt í.
Meira
OPIÐ hús verður í Hamri, félagsheimili Þórs, í dag frá kl. 14. Þar verða m.a. afhent gull- og silfurmerki félagsins, afreksskóli knattspyrnudeildar kynntur og landsliðsfólk Þórs 2007 heiðrað.
Meira
Í HUGUM margra er það órjúfanlegur hluti af því að kveðja gamla árið að fara og horfa á áramótabrennu í kuldanum. Þetta árið verða ellefu áramótabrennur í Reykjavík.
Meira
ÆFINGAR standa nú yfir hjá Leikfélagi Akureyrar á Fló á skinni en verkið verður frumsýnt 8. febrúar. Farsinn var fyrst sýndur fyrir 100 árum en nú verður boðið á nýja leikgerð sem Gísli Rúnar Jónsson gerði fyrir LA.
Meira
FLUGELDASORP mun liggja eins og hráviði um borgina að morgni nýs árs, segir í frétt frá Sorphirðunni í Reykjavík. Þar er fólk varað við að henda leifum af flugeldum í ruslatunnur.
Meira
Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að lækka leikskólagjöld í sveitarfélaginu um 20% um áramót. Miðað við níu tíma vistun í dag lækkar mánaðargjaldið á nýju ári úr 23.490 kr. í 19.152 kr., sem þýðir 4.
Meira
MINNST 14 biðu bana og 64 særðust þegar bílsprengja sprakk á útimarkaði í miðhluta Bagdads í gær. Mikið af fólki var samankomið á Bab al-Sharji markaðnum í gær en sjúkrahús staðfestu tölu...
Meira
ENGAN sakaði þegar eins hreyfils flugvél af gerðinni TF-RLR hlekktist á á Úlfsvatni á Arnarvatnsheiði um miðjan dag í gær. Flugmaðurinn, sem var einn í flugvélinni, hafði lent vélinni á ísilögðu vatninu.
Meira
ÞYKKUR sígarettureykur hefur löngum verið eitt af einkennum kaffihúsanna í París. Nú mun reykurinn brátt heyra sögunni til því frá og með næsta miðvikudegi verður reykingabann á börum, kaffihúsum, veitingastöðum og á diskótekum í Frakklandi.
Meira
NÝR kjarasamningur Landssambands smábátaeigenda og Sjómannasambands Íslands var tekinn til afgreiðslu á aðalfundi Sjómannadeildar Verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis í fyrrakvöld og samþykktur samhljóða.
Meira
SAMSTAÐA, samtök um slysalaust Ísland, stóð fyrir stuttri athöfn við Kögunarhól við Suðurlandsveginn í gær þar sem settir voru upp sex nýir krossar til minningar um þá sem látist hafa í umferðarslysum á vegakaflanum milli Reykjavíkur og Selfoss frá því...
Meira
HAUSTÖNN Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var slitið með athöfn hinn 21. desember sl. og voru 35 nemendur brautskráðir að þessu sinni. Af þeim voru 30 með stúdentspróf frá ýmsum námsbrautum og auk þess 2 trésmiðir, 2 rafvirkjar og einn vélvirki.
Meira
SPÁÐ er hlýindum, hvassviðri og mikilli rigningu um mestallt landið á sunnudag. Því má búast við asahláku víða um landið. Sjóvá hefur varað fólk við veðrinu og hvetur það til að gæta að því að niðurföll stíflist ekki.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BENAZIR Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, var jarðsett í grafhýsi ættar sinnar nokkra kílómetra frá heimabænum Naudero í sveitahéraði í sunnanverðu landinu í gær.
Meira
Þetta var metár í íslenskri kvikmyndasögu, í klassískri tónlist mátti finna vísbendingar um stóra hluti, djassinn blómstrar, dansinn var mannbætandi með Helga Tómasson í fararbroddi, myndlistin var til marks um að sigurför mannsandans sé hvergi nærri...
Meira
Grindavík | Þrettán ungir sundmenn úr Ungmennafélagi Grindavíkur syntu samtals vel yfir eitt hundrað kílómetra á einum og hálfum sólarhring í maraþonsundi til stuðnings fjölskyldu veiks drengs í bænum. Söfnunin gekk vel.
Meira
„ÞETTA er góð viðurkenning og hvatning til dáða,“ segir Eyja Þóra Einarsdóttir, sem á og rekur Country Hótel Önnu á Moldnúpi undir Eyjafjöllum, ásamt eiginmanni sínum Jóhanni Frímannssyni, en hótelið fékk í gær umhverfisverðlaun...
Meira
Reykjanesbær | Íþróttamaður Reykjanesbæjar 2007 og íþróttamenn í hverri íþróttagrein verða útnefndir í hófi sem fram fer í Íþróttahúsinu í Njarðvík á gamlársdag, kl. 13.
Meira
Úrvinnslugjald á rúlluplasti lækkar úr 25 kr./kg í 3 kr./kg frá og með 1. janúar. Verð á rúlluplasti á því að lækka sem því nemur, að öðru óbreyttu.
Meira
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „EF EITT fyrirtæki beinir vöruviðskiptum sínum til Múlalundar, getur það skilað einum einstaklingi vinnu í heilt ár,“ segir Helgi Kristófersson, framkvæmdastjóri Múlalundar.
Meira
Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is VELTA á fasteignamarkaði hefur aldrei verið meiri hérlendis en á árinu sem senn líður í aldanna skaut. Um 14.500 kaupsamningum var þinglýst og námu heildarviðskipti með fasteignir um 360 milljörðum króna, skv.
Meira
FLUTNINGASKIPIÐ Wilson Muuga, sem nú heitir Karim, hefur nú verið í ferðum fyrir líbanskan eiganda skipsins, í innanverðu Miðjarðarhafi og Svartahafi. Um tveir mánuðir eru síðan skipið var tekið í notkun eftir vægast sagt viðburðaríka mánuði á undan.
Meira
JACOB Zuma, fyrrverandi varaforseti Suður-Afríku og nýkjörinn leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC), hefur verið ákærður formlega fyrir spillingu, að sögn lögfræðings hans í gær. Réttarhöldin í máli hans eiga að hefjast 14. ágúst.
Meira
Haft er eftir Pétri Tyrfingssyni, formanni Sálfræðingafélags Íslands í Morgunblaðinu í fyrradag að heilbrigðisyfirvöld hafi „áttað sig á því að það er ekki hægt að ganga framhjá þjónustu sálfræðinga“.
Meira
Hvað eftir annað gera íslensk yfirvöld upptækt gríðarlegt magn af eiturlyfjum. Í sumar fannst duft, sem dugað hefði í 140 þúsund e-töflur, og 1.800 töflur að auki um borð í skútu á Fáskrúðsfirði og aðfaranótt 22.
Meira
Algengt er að aldraðir búi einir og þeirra sé ekki vitjað dögum saman. Í flestum tilfellum kemur það vitaskuld ekki að sök og fólk fer ferða sinna eins og það á að sér.
Meira
FRÉTTIR af ástarmálum fræga fólksins fara um eins og eldur í sinu um þessar mundir. Greint var frá því í gær að hin verðandi móðir Jessica Alba er trúlofuð. Sást til leikkonunnar með risastóran hring á fingri um jólahátíðina.
Meira
HIN unga leikkona Mischa Barton var tekin höndum í Hollywood síðastliðinn fimmtudagsmorgun. O.C.-stjarnan fyrrverandi, aðeins 21 árs, var stoppuð af lögreglumönnum sem þótti hún aka heldur undarlega.
Meira
GESTIR í spurningaleiknum Orð skulu standa í dag eru séra Pétur Þorsteinsson prestur í Óháða söfnuðinum og Ragnar Helgi Ólafsson myndlistarmaður. Á milli þess sem þeir velta fyrir sér m.a.
Meira
ÞRJÚ efstu sætin eru þau sömu á Tónlistanum eftir 51. viku ársins og þá fimmtugustu. Það er Páll Óskar með Allt fyrir ástina sem situr á toppnum sína sjöundu viku á lista.
Meira
SKOSKI leikarinn Sean Connery segist vera hættur að leika, enda orðinn 77 ára. Hann býr nú með konu sinni Micheline í New York og segir ekkert geti fengið hann til að snúa aftur á hvíta tjaldið.
Meira
VÍSINDAMENN hafa nú lagt fram þá kenningu að hluti af myndmáli málara endurreisnarinnar sé fengið úr vísindum – úr líkamsgerð sjálfs mannsins. Þessu til sönnunar telja þeir m.a.
Meira
* Á morgun verður fluttur þáttur á Rás 1 um fyrstu íslensku barnastjörnuna, Gunnar Óskarsson . Gunnar kom fyrst fram árið 1939 og með einhverja fallegustu drengjasópranrödd sem heyrst hefur á landinu fyrr og síðar.
Meira
ÞAÐ er orðinn fastur liður að síðustu tónleikar ársins hér á Íslandi fari fram í Hallgrímskirkju á gamlársdag, 31. desember, kl. 17. Rík hefð hefur skapast fyrir því að þeir félagar Ásgeir H.
Meira
KAMMERSVEITIN Ísafold og Íslenska óperan standa fyrir Öðruvísi Vínartónleikum þriðja árið í röð á morgun, sunnudag. Að þessu sinni verður leikið eitt af meistaraverkum 20.
Meira
FORVERÐIR í bókasafninu Biblioteca Ambrosiana í Mílanó hafa greint frá því að mygla hafi fundist í frægasta safni teikninga eftir meistara endurreisnarinnar Leonardo da Vinci.
Meira
1. Anna Nicole Smith gekk á vit feðra sinna. 2. Owen Wilson reyndi að fyrirfara sér. 3. Randver var rekinn úr Spaugstofunni. 4. Britney Spears gaf út plötu. 5. Daníel Ágúst gekk aftur til liðs við Nýdönsk. 6.
Meira
NÝSTOFNAÐ leikfélag, Silfurtunglið, frumsýnir í kvöld leiksýninguna Fool 4 Love , í Austurbæ. Fool 4 Love eftir Sam Shepard trónir að margra mati á toppnum sem besta nútímaleikrit Bandaríkjamanna.
Meira
ÞAÐ er alltaf mikið um að vera í einkalífinu hjá stjörnunum í Hollywood. Vefsíðan People greinir frá því í gær að leikarinn Sean Penn og kona hans Robin Wright Penn séu að skilja. Upplýsingafulltrúi þeirra hjóna staðfestir það.
Meira
ÞAÐ er orðinn árviss viðburður að framvarðasveit íslenskrar popptónlistar komi saman um áramót í Háskólabíói við Hagatorg og stilli saman strengi sína fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Meira
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞETTA er búið að vera viðburðaríkt og skemmtilegt ár,“ segir Dóra Jóhannsdóttir leikkona þegar hún er spurð út í hvernig árið 2007 hafi farið með hana.
Meira
Dagur B. Eggertsson segir að borgarbúar fái nú enn betri tækifæri til þess að njóta myndlistar. Dagur með þeim Hafþóri Yngvasyni og Svanhildi Konráðsdóttur, sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs...
Meira
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is „Þetta er hugsað sem félag í myndlistarlegu samhengi,“ segir ljósmyndarinn Spessi, en hann er nýkjörinn formaður nýstofnaðs Félags íslenskra samtímaljósmyndara eða FÍSL.
Meira
Pétur Ragnar Sveinsson skrifar um veru sína hjá góðu fólki á Kumbaravogi: "Ég kýs að líta svo á að sumt í þessari skrýtnu umræðu sé einfaldlega byggt á misminni eða misskilningi."
Meira
Gunnar Svavarsson fjallar um flugeldasölu og björgunarsveitirnar: "Það er okkur öllum mikilvægt að hafa öfluga liðsmenn í björgunarsveitum okkar og stuðningur um áramótin skiptir þá miklu."
Meira
Björn Bjarnason | 27. desember 2007 Fimmtud., 27.12.07. Benazir Bhutto var myrt í Rawalpindi í Pakistan í dag, þegar hún var á leið af kosningafundi. Hún var skotin í hálsinn af launmorðinga, sem síðan sprengdi sig í loft upp.
Meira
Frá Pétri Rasmussen: "EINU sinni enn talar Íslendingur jafnvel Íslendingur sem er búsettur í Danmörku um „ligeglade danskere“. Nú má vera að þessir Danir séu í raun „ligeglade“ sem merkir að þeim sé sama um hann."
Meira
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar um feður í fangelsum og börn þeirra: "Er hægt að útilokað feður frá uppeldisskyldum sínum þó þeir hafi misstigið sig á lífsins göngu?"
Meira
Guðjón E. Jónsson fjallar um fordóma á ýmsum sviðum í þjóðfélaginu: "Sérhver maður með sæmilega vitsmuni hlýtur að leggja það á sig að íhuga aðkallandi vandamál samtímans til dæmis tilflutning þjóða og þjóðabrota um heiminn."
Meira
Guðríður Haraldsdóttir | 28. desember Æsilegt næturlíf himnaríkis Daginn sem ég flutti í himnaríki, 10. febrúar 2006, ríkti mikil hræðsla og ógurlegt óöryggi hjá Kubbi og Tomma.
Meira
Heimir L. Fjeldsted | 28. desember Kolbrún er sætust Núna kl. 10.38 las ég á mbl.is að Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður m.m. væri neðst í kjörinu um sætasta femínistann.
Meira
Kristín Snorradóttir | 28. desember Manngæska og Götusmiðjan Ég er hamingjusöm vegna þess að það er mikla manngæsku að finna og málefni Foreldrahúsa er í öruggri höfn.
Meira
Kári Stefánsson svarar grein Vilhjálms Árnasonar og Stefáns Hjörleifssonar: "Nútímaaðferðir erfðafræðinnar bjóða upp á spennandi og raunhæfar aðferðir til þess að meta áhættu einstaklinga á því að fá algenga sjúkdóma og því líklegt að hún muni leggja grundvöllinn að fyrirbyggjandi læknisfræði í náinni framtíð."
Meira
Helgi K. Hjálmsson skrifar um kjör eldri borgara.: "Hversvegna í ósköpunum er ekki hægt að laga kjör eldriborgara í þessu ágæta landi fyrst við höfum efni á því að gera svona vel við ákveðna hópa."
Meira
Tryggvi V. Líndal skrifar um Pakistan: "Megin yfirlýsti tilgangur Pakistanstjórnarinnar með þróun kjarnorkuvopna sinna, var að skapa mótvægi við ógnunina frá kjarnorkuflaugaflota grannríkisins Indlands."
Meira
Frá Þórði Magnússyni: "ÉG get eiginlega ekki fært það í orð hvað mér finnst afskræmingin á Skólavörðustíg 46, sem þú berð ábyrgð á, vera ósmekkleg."
Meira
Einar Eiríksson skrifar um þær hömlur sem settar eru á borgarsamfélagið: "Drjúgur meirihluti nefndarmanna í samgöngunefnd og fjárlaganefnd Alþingis er landsbyggðarþingmenn."
Meira
Pétur Guðmundur Ingimarsson viðrar hugmyndir um íslenskan her: "Oft gætir þess leiða misskilnings að Ísland sé ófært um að verja sig komi til átaka. En eins og um annan misskilning gildir þá er það ekki rétt."
Meira
Frábær útvarpsþáttur ÞAÐ er margt gott sem ratar í dagskrá Rásar 1, talað mál og tónlist. Einn er sá þáttur sem vakið hefur sérstaka athygli mína fyrir vönduð tök á efni sem á brýnt erindi við samtímann en fer e.t.v. fram hjá mörgum.
Meira
Óskar Albert Sigurðsson fæddist á Litlahóli við Dalvík hinn 20. maí 1918. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar hinn 15. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Jón Guðjónsson, sjómaður og formaður í Mói, Dalvík, f. 9.
MeiraKaupa minningabók
Ármann Guðmundsson fæddist í Reykjavík 28. desember 1931. Hann lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 5. ágúst 2007 og var jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju 10. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Friðjón Guðmundsson fæddist á Sandi í Aðaldal 10. september 1920. Hann lést á dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík 16. desember síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Guðmundar Friðjónssonar bónda og skálds á Sandi, f.
MeiraKaupa minningabók
Gerður Ingibjörg Stefánsdóttir fæddist á Ekru í Hjaltastaðaþinghá 8. júlí 1927. Hún lést 14. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Stefán Jónsson frá Heyskálum í Hjaltastaðahreppi, bóndi á Ekru, f. 12. febrúar 1893, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Jóhann Ragnarsson fæddist á Grund í Hveragerði 10. júlí 1942. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 17. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 27. desember.
MeiraKaupa minningabók
Kári Hermannsson fæddist í Keldudal í Skagafirði 24. janúar 1923. Hann lést á heimili sínu, Smáragrund 14 á Sauðárkróki, 24. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Hermann Sigurjónsson, f. 8.1. 1901, og Rósa Júlíusdóttir, f. 15.5. 1897.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Veigar Sigurðsson fæddist í Keflavík 30. september 2003. Hann andaðist af slysförum 1. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Keflavíkurkirkju 11. desember.
MeiraKaupa minningabók
Lárus Gunnólfsson skipstjóri fæddist á Þórshöfn á Langanesi 9. október 1937. Hann lést á heimili sínu í Mosfellsbæ 8. desember síðastliðinn og var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 20. desember.
MeiraKaupa minningabók
Sigþór Sigurðsson fæddist í Baldurshaga í Vestmannaeyjum 8. nóvember 1924. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 19. desember síðastliðinn. Hann var sonur Sigurðar Jónssonar, f. 18.11. 1901, d. 25.4. 1924, og Sveinbjargar Sveinsdóttur, f. 11.10.
MeiraKaupa minningabók
Sölvey Friðrika Jósefsdóttir (Eyja) fæddist á Atlastöðum í Fljótavík 5. júlí 1918. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 17. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jósef Hermannsson, bóndi á Atlastöðum, f. 27.3. 1877, d. 25.10.
MeiraKaupa minningabók
Þráinn Valdimarsson fæddist á Ásólfsstöðum í Gnúpverjahreppi 9. janúar 1923. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 18. desember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 28. desember.
MeiraKaupa minningabók
ANDRI Már Ingólfsson, forstjóri og eigandi Heimsferða og Primera Travel Group, fékk í gær afhent verðlaun tímaritsins Frjálsrar verslunar sem maður ársins 2007 í íslensku viðskiptalífi.
Meira
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR áætlar að umsvif sjóðsins á árinu 2008 verði nokkru minni en á árinu sem er að líða. Samkvæmt nýbirtri áætlun sjóðsins fyrir árið 2008 áætlar sjóðurinn að lána 57-65 milljarða króna til húsnæðiskaupa.
Meira
VERKEFNI Enex Kína í Xianyang borg í Shaanxi-héraði gengur bæði betur og hraðar en áætlað hafði verið, samkvæmt tilkynningu frá Enex sem er í eigu Geysir Green Energy og Reykjavík Energy Invest, REI.
Meira
Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is Í DAG eru aðeins þrír dagar eftir til að ljúka síðustu verkefnum ársins 2008. Í Noregi snýst eitt þessara verkefna um hlutfall kynja í stjórnum hlutafélaga, en frá og með 1.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX á Íslandi lækkaði um 1,4% á árinu og er þetta í fyrsta skipti síðan 2001 sem vísitalan lækkar milli ára.
Meira
Menningin blómstrar á Djúpavogi sem fyrr og er desember engin undantekning frá því. Fyrir utan hinar hefðbundnu kirkjulegu athafnir, aðventudagskrá o.fl. hafa verið söngskemmtanir, upplestur úr nýjum bókum og ýmislegt annað á dagskrá í kringum hátíðina.
Meira
ÞEIR sem telja sig með góðri samvisku geta innbyrt dökkt súkkulaði í miklu magni yfir hátíðirnar ættu að hugsa sig um tvisvar. Í leiðara breska læknatímaritsins The Lancet segir að fullyrðingar um að dökkt súkkulaði sé hollt kunni að vera misvísandi.
Meira
Fyrir margt löngu las Sverrir Norland vísu eftir Davíð Hjálmar Haraldsson í Vísnahorninu sem var svohljóðandi: Halla gaf Hans undir fót, í húminu áttu sér mót tvö ástfangin hjörtu en aldrei í björtu því hún var svo helvíti ljót.
Meira
Eftir Sigurbjörgu Arnarsdóttur sibba@mbl.is Nú þegar áramótin eru rétt handan við hornið er ekki úr vegi að kíkja aðeins á hvernig förðun fyrir áramóta- eða nýársveisluna gæti litið út.
Meira
Monika E. Kowalewska, sem er með Blómastofuna Eiðistorgi, vill hafa nóg af kertum í kringum sig um áramótin. „Við fjölskyldan njótum þess að vera heima saman á gamlársdag, elda góðan mat og undirbúa áramótin,“ segir Monika.
Meira
Blómasysturnar þær Rúna Björg Magnúsdóttir og Anges Lind Heiðarsdóttir í Ráðhúsblómum eyða báðar áramótunum í faðmi stórfjölskyldunnar. Rúna Björg er með fjölskyldu sinni í Garðabænum, en Agnes Lind er í vesturbæ Reykjavíkur.
Meira
Nú líður að áramótum og flugeldasölustaðir hafa verið opnaðir. Margir eru farnir að huga að flugeldunum og skiptir litlu á hvaða aldri þeir eru. En þessi tími er ekki hættulaus. Um hver áramót verða slys af völdum flugelda og eru brunar þar algengastir.
Meira
Í huga margra er það órjúfanlegur hluti af heimsóknum í erlendar stórborgir að leita uppi góða matsölustaði segir Steingrímur Sigurgeirsson, sem kynnti sér nokkra áhugaverða staði á árinu.
Meira
Eftir Fríðu Björnsdóttur fridavob@islandia.is Því miður eru ekki allir jafnglaðir um áramótin, né heldur hafa allir jafngaman af rakettum, kínverjum og risatertum sem gerast nú æ algengari.
Meira
80 ára afmæli. Daníel Emilsson verður áttræður 31. desember. Hann tekur á móti vinum og ættingjum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar í Súlunesi 16, Garðabæ, milli kl. 13 og 16 á...
Meira
Breiðholtskirkja FJÓRÐA Tómasarmessan á þessu hausti verður sunnudagskvöldið 30. desember kl. 20. Er þetta í fyrsta sinn sem slík messa er haldin í desember og má því segja að hér sé um fyrstu „jóla“ Tómasarmessuna að ræða.
Meira
Jón Sigurbjörnsson og Guðlaug Márusdóttir unnu minningarmótið í Siglufirði Árlegt minningarmót um Benedikt Sigurjónsson bridsspilara var haldið á veitingastaðnum Bíó Café í Siglufirði á þriðja í jólum. Sautján pör mættu til leiks og spiluðu barómeter.
Meira
Ása Kolbrún Hauksdóttir fæddist í Reykjavík 1977. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund og leggur nú stund á B.A.-nám í mannfræði við Háskóla Íslands.
Meira
Dagpabbarnir (Daddy Day Care) (Sjónvarpið kl. 20.15) Eddie Murphy opnar dagheimili þegar hann er rekinn úr vinnunni og lendir í óvæntri samkeppni við grunnskóla í sama hverfi. Svona er víst einkavæddur menntageirinn, og myndin er ekki mikið betri.
Meira
ÚRSPILSÞRAUTIRNAR sem lesendur fengu til umhugsunar á aðfangadag jóla voru tvíþættar. Annars vegar var spurt um bestu spilamennsku á blaði, hins vegar á borði. Munurinn felst í þeim upplýsingum sem úr er að moða.
Meira
1 Rannsóknir íslenskra lækna í augnvísindum hafa vakið athygli í Bretlandi. Hver leiðir starfsemina? 2 Val íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins árið 2007 var tilkynnt í gærkvöldi, en hver var valinn íþróttamaður ársins er fyrst var kjörið?
Meira
„Mundu að fúkyrði og kjaftshögg eru ekki í sjálfu sér hneykslanleg heldur er það þín eigin ákvörðun að svo sé. Þegar einhver reitir þig til reiði skaltu gera þeir grein fyrir því, að það er þín eigin hugsun sem hefur vakið reiði þína.“
Meira
Víkverji hefur orðið var við það þessi jól hvernig matarsmekkur fólks breytist í gegnum tíðina. Í fyrsta sinn síðan Víkverji var barn var ákveðið að hafa kaffiboð í fjölskyldu hans um jólin í stað hangikjötsveislu.
Meira
MARGRÉT Lára Viðarsdóttir vann allafgerandi sigur í kjörinu um íþróttamann ársins en hún fékk 177 stigum meira en Ólafur Stefánsson sem hafnaði í öðru sæti. Alls fengu 26 íþróttamenn úr 14 íþróttagreinum atkvæði í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna.
Meira
Eftir Björn Björnsson „ÞESSI sigur léttir vissulega af okkur heilmikilli pressu,“ sagði Kristinn Friðriksson þjálfari Tindastóls eftir sigur á Stjörnunni, 88:82, í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á Sauðárkróki í gærkvöld.
Meira
Real Madrid er tilbúið með tilboð í frönsku landsliðsmennina hjá Lyon – Hatem Ben Arfa og Karim Benzema , sem eru báðir 20 ára – þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar. Liðið keypti Mahamadou Diarra frá Lyon fyrir hálfu ári.
Meira
LÍTIÐ fór fyrir jólaandanum þegar Haukar og Valur mættust í undanúrslitum deildarbikarsins í Laugardalshöll í gærkvöldi. Hressilega var tekist á en þegar upp var staðið dugði Val ekki að skora tvö síðustu mörk leiksins því Hafnfirðingar unnu 27:26.
Meira
MARGRÉT Lára Viðarsdóttir úr Val var í gærkvöld útnefnd íþróttamaður ársins 2007 af Samtökum íþróttafréttamanna. Hún er fjórða konan sem hlýtur þessa vegsemd í 52 ára sögu kjörsins og sjötti knattspyrnumaðurinn sem hreppir þennan eftirsóttasta titil í íslensku íþróttalífi.
Meira
NORSKA úrvalsdeildarliðið Tromsø hefur ekki gefist upp í tilraun sinni að fá til liðs við sig framherjann Hannes Þ. Sigurðsson frá Viking Stavanger.
Meira
Leyndarmálið hans pabba eftir Þórarin Leifsson er um tvo krakka sem eiga pabba sem er frekar mikið öðruvísi en aðrir menn. Hann er mannæta og á það til að éta fólk alveg óvart. En hvað sem því líður er uppáhalds persónan mín pabbi kakkanna.
Meira
Smáauglýsing: Bolabítur til sölu. Étur hvað sem er. Hefur mjög gaman af börnum. Lögreglan stoppaði Guðjón sem ók á móti umferðinni á einstefnugötu. Lögregluþjónninn: „Sástu ekki örvarnar?“ Guðjón: „Ég sá ekki einu sinni indjánana.
Meira
Ég þekki skemmtilegan strák. Eitt gamlárskvöld, þegar hann var 4 ára, fékk hann að fara út í garð með foreldrum sínum og halda á stjörnuljósi. Hann mátti ekki skjóta upp rakettum en honum fannst stjörnuljósið mjög fallegt.
Meira
Bára og Þorbjörn misstu af flugeldasýningu björgunarsveitanna í morgun og eru þau alveg afskaplega leið yfir því. Þau geta samt sem áður notið þess að sjá himininn ljóma því 10 flugeldar leynast á síðum Barnablaðsins.
Meira
Nýlega fór fram val á jólaálfi ársins 2007. Níu álfar voru tilnefndir en aðeins einn sem fékk titilinn. Sá sem sigraði er í tréskóm, hann er ekki í röndóttri peysu og hann er með klút um hálsinn. Getur þú fundið sigurvegarann? Lausn...
Meira
Guðmundur Björn, 8 ára, teiknaði þessa skemmtilegu mynd af jólasveininum að lauma jólagjöfum undir jólatréð. Hver veit nema þessi jólasveinn hafi einmitt verið hjá Guðmundi Birni og gefið honum eitthvað...
Meira
Ingunn Birna, 4 ára, teiknaði þessa skemmtilegu mynd af sér og fjölskyldu sinni að kíkja út um gluggann. Hvað ætli sé svona spennandi að sjá út í garði? Kannski er hundur þar að leika listir...
Meira
Viktoría Diljá, 10 ára, teiknaði þessa glæsilegu mynd af Skellibjöllu. Hún er nú ósköp sæt hún Skellibjalla þó hún geti verið heldur stríðin þegar hún verður...
Meira
Sagan byrjar snemma um morguninn þegar Jón er að vakna. Hann er 10 ára, í fimmta bekk. Klukkan er 7 um morguninn og skólinn er alveg að fara að byrja. Það er vont veður en Jón fer fram og fær sér morgunmat. Síðan treður Jón banana í töskuna og fer út.
Meira
Dragðu línu frá punkti 1 í punkt 2, úr punkti 2 í punkt 3 og þannig koll af koll þar til þú hefur náð punkti 78. Þá hefur þú lokið við að teikna fallegt snjókorn. Það er svolítið merkilegt við snjókorn að þau eru eins og fingraför okkar.
Meira
Þetta föndur er frábært fjölskylduverkefni sem þú gætir gert að hefð heima hjá þér. Þú býrð til árbox og í það safnar þú minningum þínum og fjölskyldu þinnar, eins og t.d.
Meira
Vofir yfir vetur þungur, víða er kalt í desember. Grátin kona og gumi ungur geta hvergi yljað sér. Lýsir tunglsins ljósið skært lítil börn í hlýju dreyma. Sumir aldrei sofa vært, sumir eiga hvergi heima.
Meira
Franski rithöfundurinn Benoit Duteurtre hefur sent frá sér skáldsöguna Borgin hamingjusama en þar er fjallað á fremur óvenjulegan hátt, í nokkurs konar fabúluformi, um eina heldur sérstaka hlið nútímans, örlög þess sem Halldór Laxness...
Meira
Eftir Sigríði Pétursdóttur sigridp@ruv.is Árið 2007 var gott kvikmyndaár. Það byrjaði með stofnun Græna ljóssins sem frumsýndi gleðigjafann Litlu ungfrú sólskin um meingallaða en sjarmerandi fjölskyldu sem fylgir dóttur sinni í barnafegurðarsamkeppni.
Meira
Eftir Vernharð Linnet Djassinn blómstraði á Íslandi árið 2007. Flaggskipið, Stórsveit Reykjavíkur, hélt tónleika jafnt með erlendum sem innlendum stjórnendum og reis hæst þegar Kjartan Valdimarsson píanisti stjórnaði eigin tónverkum.
Meira
Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands hefur sent frá sér bókina Íslandskvikmyndir 1916-1966 . Ímyndir, sjálfsmynd og vald eftir Írisi Ellenberger sagnfræðing.
Meira
Eftir Guðna Tómasson gudnit@ruv.is Minnið er svikult þegar kemur að því að spóla aftur myndlistarárið 2007 en þó eru einhverjar myndir sem sitja eftir í huganum. Listasafn Reykjavíkur átti gott ár eins og reyndar Listasafn Íslands líka.
Meira
Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Á gagnrýnendaþingi Morgunblaðsins um miðjan desember komu fram miklar efasemdir um blogg og þátt þess í menningarumræðunni.
Meira
„Það er kannski ekki kominn tími til að fyrirgefa Bandaríkjunum enn, en það líður að því að maður geti farið að sakna þeirra,“ segir greinarhöfundur sem veltir fyrir sér stöðu Bandaríkjanna í samfélagi þjóðanna og bendir á nýtt hlutverk New York-borgar.
Meira
Eftir Önnu Kristínu Jónsdóttur anna.kristin.jonsdottir@gmail.com Mig minnir að í jólaboðum bernsku minnar hafi ég á hverju ári spurt frændsystkin mín um hvað þau væru búin að lesa margar jólabækur. Þetta var kannski frekar ósanngjörn spurning á jóladag.
Meira
Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is !Hvernig stendur á því að Eiríkur Fjalar er með kombakk núna? Árið 2007? Hvernig atvikast það að Gísli á Uppsölum er mættur í sjónvarpsauglýsingar einmitt núna?
Meira
Íslensk menning á árinu 2007 er til umfjöllunar í átta greinum í Lesbók í dag um bókmenntir, kvikmyndir, myndlist, klassíska tónlist, danslist, djass og dægurtónlist sem blaðamenn og gagnrýnendur Morgunblaðsins skrifa.
Meira
Eftir Ingólf Arnarsson ingolfur@lhi.is Í upplýsingasamfélagi samtímans hefur á síðustu árum sprottið upp mikill áhugi á flóknum kerfum, óreiðu og skörun margbreytilegra merkingarsviða.
Meira
Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Christopher McCandless fæddist með eina af þessum margfrægu silfurskeiðum í munninum í úthverfi Washington og kláraði lögfræðipróf 24 ára að aldri.
Meira
Eftir Ingibjörgu Björnsdóttur Danslegur hápunktur ársins var vafalaust koma San Francisco ballettsins á Listahátíðina í vor með sýninguna Helgi. Öll verkin voru samin af stjórnanda flokksins Helga Tómassyni. Klassískur listdans í hæsta gæðaflokki.
Meira
Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Hvorki fleiri né færri en sjö íslenskar kvikmyndir voru frumsýndar á árinu sem er að líða og er þá átt við bíómyndir í fullri lengd, leiknar og heimildarmyndir.
Meira
Við áramót skyggnast menn vonglaðir fram í tímann um leið og þeir horfa meyrir um öxl og reifa társtokknum augum það sem hæst bar. Eftirfarandi dægurtónlistarverk, erlendis frá, tosuðu af meiri krafti en önnur í strengi míns litla hjarta.
Meira
Eftir Þröst Helgason vitinn.blog.is Anton Tsjekov taldi að tilvistarkreppan sem hrjáir sögupersónu hans, Ívanov í samnefndu leikriti, væri sérrússnesk og „óþekkt í Evrópu“. Tsjekov skrifaði verkið á níunda áratug nítjándu aldar.
Meira
Eftir Jón B. K. Ransu ransu@mbl.is Hún var þörf áminning Hjálmars Sveinssonar í inngangsorðum fyrir gagnrýnendaþing Morgunblaðsins þegar hann nefndi að listir væru mælikvarði á stöðu mannsandans.
Meira
Eftir Helga Hafliðason helgiha@simnet.is Sigrún Eðvaldsdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir fluttu af einstakri snilld Seven Epigrams (Sjö spökur) Hafliða Hallgrímssonar á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í október.
Meira
Eftir Maríu Kristjánsdóttur majak@simnet.is Leikhúsið er spegill samtímans segja menn á hátíðarstundum. Og eru þá að tala um innihald og form sýninga.
Meira
Eftir Frank Hall frank@ske.is Það var engin stóra bomba í tónlistinni á árinu 2007, nema ef vera skyldi sprengjan sem varpað var úr höllinni (eða var það úr glerhúsi, ég man það ekki) þegar tilkynnt var um kynslóðaskipti.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Venjulega rekur maður sig í gegnum viðburði poppáranna með því að styðjast við útkomu platna og tónleikahald, skýrar vörður sem þægilegt er að reiða sig á.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Saxafónleikarinn Kenny G þykir ekki góður pappír hjá pælurunum sem vilja meina að hæfileikar hans og smekkvísi sé í þveröfugu hlutfalli við plötusölu.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Sú skoðun virðist almenn að tónlistarlífið á Íslandi standi með miklum blóma. Hún á líka við rök að styðjast, og í stærstu dráttum er hún rétt.
Meira
Nýjasta bók þýska rithöfundarins Wladimirs Kaminer, Mein Leben im Schrebergarten, fjallar um garða í Berlín þar sem borgarbúar geta, í orðsins fyllstu, ræktað sinn garð með blómum, eplum, kirsuberjum og fleiru.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.