„Stjórnendur [LSH] hafa sumir að mínum dómi verið með afar óábyrgar yfirlýsingar og reyndar furðulega ósvífnar í garð læknaritara, svo sem á þá lund að þeir læknaritarar sem komi til með að missa vinnuna við einkavæðingu á störfum þeirra geti sótt...
Meira
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir, afrekskona í sundi, leggur stund á myndlist og málar af miklu kappi. Í gær sýndi hún verk sín á afmælissýningu í Listasmiðjunni, Hringbraut 119 í Reykjavík. Tilefnið var tíu ára myndlistarnám og afmæli Sigrúnar í dag.
Meira
GENGIÐ hefur verið frá kaupum ALP bílaleigunnar á 431 bíl frá Ingvari Helgasyni (IH). Nemur andvirði kaupanna rúmum milljarði króna og er með stærri sölusamningum sem bílaumboðið hefur gert í einu lagi.
Meira
ALÞJÓÐLEG samkirkjuleg bænavika verður haldin hér á landi 13.- 20. janúar næstkomandi. Slík bænavika er haldin í janúar ár hvert um allan heim og er beðið fyrir einingu kristins fólks. Dagskrá vikunnar má finna á vef Þjóðkirkjunnar, www.kirkjan.is.
Meira
ATVINNULEYSI meðal félagsmanna VR minnkaði verulega í fyrra samanborið við árið á undan. Dróst það saman um 29%. Á árinu 2006 fengu rúmlega 1.200 félagsmenn greiddar atvinnuleysisbætur en í fyrra fækkaði þeim í 866.
Meira
FÁHEYRÐ árás var gerð á lögreglumenn í miðbænum í gærmorgun þegar þeir voru að störfum og þurftu þeir að fara á slysadeild vegna áverka sem þeir hlutu en árásarmennirnir fimm voru færðir fyrir dómara sem féllst á kröfu lögreglunnar um að hneppa þá í...
Meira
Eftir Alfons Finnsson Rif | Frá því að jarðvegsframkvæmdir við væntanlega vatnsverksmiðju sem Icelandic Glacer Product hófust síðastliðið sumar hefur sandfok verið íbúum Rifs til vandræða og valdið skemmdum á húsnæði og bifreiðum.
Meira
MARGIR fyllast iðrun eftir að hafa hámað í sig stórkostlegar krásir um jólahátíðina og byrja strax í janúar að gera yfirbót með megrun og líkamsþjálfun. Hér sjást nokkrir hamast á hlaupabrettinu í einni líkamsræktarstöðinni.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson og Örlyg Stein Sigurjónsson SIGURSTEINN Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), tilkynnti afsögn sína á blaðamannafundi á Grand hótel í gær.
Meira
Ranglega var hermt í frétt í Morgunblaðinu að Birkir Kristinsson væri hluthafi í Gnúpi fjárfestingarfélagi. Vegna misskilnings var vitnað til leiðréttingar á eldri flöggun í kauphöll en síðan hefur Birkir selt hlut sinn. Beðist er velvirðingar á...
Meira
Þeim áfanga hefur nú verið náð í byggingu Turnsins við Smáratorg í Kópavogi að efstu hæðir hússins eru fokheldar, en bygging hússins hófst seinni hluta ársins 2006. Þessum áfanga var fagnað með reisugilli í Turninum í gær.
Meira
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÁLIT Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um íslenska kvótakerfið er ekki þjóðréttarlega bindandi eins og um dóm sé að ræða.
Meira
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÞETTA eru mikil vonbrigði og sýnir mikið andvaraleysi gagnvart komandi kjarasamningum, svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB í samtali við Morgunblaðið.
Meira
SKIPULAGS- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar hefur verið falið að kanna raunhæfni og hugsanlega staðsetningu fjölnota kvikmyndavers – kvikmyndaþorps – í Reykjavík.
Meira
Reykjanesbær | Í Duushúsin, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar, komu liðlega 37 þúsund gestir á nýliðnu ár. Er það 25% fleiri gestir en árið á undan.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is FIMM karlmenn á aldrinum 19-25 ára voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 15. janúar nk. vegna fólskulegrar líkamsárásar á fjóra óeinkennisklædda fíkniefnalögreglumenn á Laugavegi á öðrum tímanum aðfaranótt föstudags.
Meira
DR. MIRJA Juntunen, forstöðukona Nordic Centre in India og sérfræðingur við Suður- og Mið-Asíufræðadeild Stokkhólmsháskóla, heldur opinn fyrirlestur á ensku við Háskóla Íslands mánudaginn 14. janúar, kl. 12-13, í Aðalbyggingu HÍ, stofu 111.
Meira
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÞAÐ er mat Samkeppniseftirlitsins að brot greiðslukortafyrirtækjanna Greiðslumiðlunar og Kreditkorta á samkeppnislögum hafi verið „mjög alvarleg“ og til þess fallin að valda verulegri röskun á samkeppni.
Meira
Þrjú fyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar hafa verið sektuð um 735 milljónir króna. Þau höfðu með sér ólögmætt samráð í þeim tilgangi að ýta keppinauti sínum út af markaðinum.
Meira
BÆJARRÁÐ samþykkti í gær að Akureyrarbær gerðist aðili að Grímunni, íslensku leiklistarverðlaununum frá og með 2009. Lögð er áhersla á, af hálfu bæjaryfirvalda, að aðild bæjarins geri það að verkum að Grímuhátíðin fari reglulega fram á Akureyri.
Meira
NORSKA lögreglan hefur handtekið mann, sem hún telur vera „Lommemannen“, „Vasamanninn“, sem svo hefur verið kallaður, en hann er sagður hafa framið mörg hundruð kynferðisglæpi gegn ungum drengjum sl. 30 ár.
Meira
FYRSTU styrkir úr menningarsjóði Hlaðvarpans – miðstöðvar kvenna í Reykjavík – voru afhentir í gær. Alls voru veittir 19 styrkir að andvirði samtals tíu milljónir króna til menningarmála kvenna. Afhendingin fór fram í Iðnó.
Meira
STJÓRNARFORMAÐUR Starfsendurhæfingar Norðurlands segir rekstrinum hugsanlega verða hætt í vor vegna fjárskorts. SN er sjálfseignarstofnun sem aðstoðar fólk aftur út á vinnumarkaðinn eða í skóla eftir að það missir starfsorkuna, einhverra hluta vegna.
Meira
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is BANDARÍKJAÞING afgreiddi skömmu fyrir áramót lagabálk um auknar rannsóknir og þróun á sviði náttúrulegra orkuauðlinda, orkusparnað og m.a. áætlanir um minnkandi notkun á olíu þar í landi.
Meira
HÓPUR sænskra vísindamanna vonast til, að jarðneskar leifar Karls XII. Svíakonungs verði grafnar upp í þeirri von, að það geti varpað ljósi á það hver myrti hann árið 1718.
Meira
Ísafjörður | Kennsla er hafin í frumgreinanámi Háskólaseturs Vestfjarða. Þetta er í fyrsta sinn sem full kennsla fer fram við stofnunina. Nemendurnir munu útskrifast frá Háskólasetrinu.
Meira
Á FUNDI borgarráðs 10. janúar síðastliðinn, var lagt fram bréf Gunnars Eydal, skrifstofustjóra borgarstjórnar. Í bréfinu óskaði Gunnar eftir lausn frá starfi og var beiðnin samþykkt á fundinum.
Meira
ÓTTAST er að til blóðugra átaka kunni að koma á ný í Kenýa en stjórnarandstaðan hefur ákveðið að efna aftur til mótmæla gegn ríkisstjórn Mwai Kibakis forseta.
Meira
STJÓRNMÁLAFRÆÐISKOR Háskóla Íslands býður á vormisseri almenningi, fagfólki og stjórnmálamönnum að sækja nýtt námskeið skorarinnar um öryggismál; „Non-State Actors and Non-Military Security“. Námskeiðið verður haldið frá og með 16.
Meira
Menning er að gera hlutina vel. Tökum soðna ýsu. Í menningarlegu byggðarlagi er ýsa ný. Kannski sækir maður hana glænýja niður á bryggju fyrir hádegið. Svo er hún soðin í vatni eða bökuð í ofni vatnslaus. Það má ekki votta fyrir blóði inni við beinið.
Meira
SVANDÍS Svavarsdóttir, formaður skipulagsráðs, segir að of lítið sé um opin svæði handa börnum í Vesturbæ og það sé svo sannarlega ekki sitt hjartans mál að byggt verði á „bláa róló“ á Blómsturvöllum eins og íbúar í nágrenninu hafa áhyggjur...
Meira
UM HELGINA fer fram annar hluti af þremur í verkefninu Saga íslenskrar tónlistar og nú er sönglistin tekin fyrir. Í dag kl. 15 verður fyrirlestur um efnið í Tónlistarskólanum á Akureyri og á morgun kl.
Meira
Selfoss | Félagsmálaráðuneytið og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Suðurlandi hafa gert samning um búsetu og stoðþjónustu fyrir geðfatlaða á Suðurlandi.
Meira
SEÐLABANKINN lýsir sig mótfallinn því, í umsögn til Ársreikningaskrár um umsókn Kaupþings um að fá að gera upp í evrum, að innlend fjármálafyrirtæki taki alfarið upp erlendan gjaldmiðil í reikningshaldi sínu.
Meira
ALLS hafa 250.000 eintök af plötunni Hvarf/Heim með Sigur Rós selst á heimsvísu, sem verður að teljast ansi góður árangur þegar tekið er mið af því að ekki er um eiginlega breiðskífu að ræða.
Meira
UNG vinstri-græn boða til fundar um skipulag miðbæjar Reykjavíkur í dag, laugardaginn 12. janúar. Fundurinn er haldinn á Suðurgötu 3 og hefst klukkan 11.
Meira
FRÁBÆRT skíðafæri er í Bláfjöllum og verður opið í fjallinu í dag, laugardag, frá 10-18. Í Hlíðarfjalli og Tindastóli er líka skíðafæri og sömuleiðis er opið í Oddsskarði.
Meira
Reykjanesbær | Hópur myndlistarmanna í Reykjanesbæ safnaði í desember fjármunum til þróunarstarfa í Afríku, í samvinnu við Kaffitár, með uppboði á myndverkum. Söfnuðust um 300 þúsund kr.
Meira
ÚLFUR Ragnarsson læknir andaðist 10. janúar síðastliðinn á Landspítalanum í Fossvogi, 84 ára að aldri. Úlfur fæddist 29. september 1923 í Reykjavík, sonur Ragnars Ásgeirssonar ráðunautar og Grethe Harne Ásgeirsson húsfreyju.
Meira
BORGARYFIRVÖLD og lögreglan hafa lagst á eitt um að framfylgja útivistartíma barna undir yfirskriftinni „Foreldrar verum samtaka!“ Því hafa foreldrar barna í 1. og 6.
Meira
BRESKIR læknar hafa varað fólk við mikilli notkun sykurlauss tyggjós. Ástæðan er sú, að það inniheldur sorbitol, sem virkar sem hægðalyf og getur valdið áköfum niðurgangi og...
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Framkvæmdastjórn LEB: „Framkvæmdastjórn Landssambands eldri borgara fagnar þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra að fella niður komugjöld heilbrigðisstofnana fyrir börn og unglinga frá og með...
Meira
VOPNAÐ rán var framið í verslun 11-11 við Grensásveg í Reykjavík laust fyrir klukkan tíu í gærkvöld, að sögn lögreglunnar. Talið er að ræninginn hafi verið vopnaður hnífi og mun hann hafa ógnað fólki í versluninni.
Meira
Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur gudrung@mbl.is Mikill kappi er fallinn í valinn. Sir Edmund Hillary, sem fyrstur manna kleif tind Everest ásamt Sherpanum Tenzing Norgay, lést hinn 10. janúar sl.
Meira
Þrjú ár eru síðan sögulegir friðarsamningar, sem bundu enda á lengstu borgarastyrjöld í Afríku, voru undirritaðir í Súdan. Sigríður Víðis Jónsdóttir velti stöðunni fyrir sér en á tímabili leit út fyrir að friðurinn væri mögulega úti.
Meira
Í NÝRRI rannsókn á notuðum bílum kom í ljós, að minnst var um bilanir í þýskum bílum og var BMW þar fremstur í flokki. Í öðru sæti var Skoda Octavia. Tekið var tillit til hve mikið bílarnir voru...
Meira
FREYJA Haraldsdóttir þroskaþjálfanemi er handhafi Rósarinnar 2008. Ásdís Jenna Ástráðsdóttir afhenti hvatningarverðlaunin en þau eru veitt árlega í minningu móður hennar, Ástu B. Þorsteinsdóttur alþingismanns og formanns Þroskahjálpar á árum áður.
Meira
Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið sett forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni frá næstu mánaðamótum og til ársloka.
Meira
Það var léttir að heyra ráðherra ríkisstjórnarinnar segja frá því í Silfri Egils um áramótin að þeir töluðu saman við stjórn landsmálanna. Annað eins nýmæli þekkist varla í pólitík, enda voru þeir hróðugir yfir þessu, ráðherrarnir.
Meira
Kirkjur landsins eru vinsælar hjá þorra manna; hvort heldur ómur klukkna þeirra hljómar í eyrum eða þær stíga fram í eigin krafti; guðshús með glæstar minjar.
Meira
KVIKMYNDIN The Bucket List var frumsýnd í Bandaríkjunum í gær og segir þar af tveimur körlum (Jack Nicholson og Morgan Freeman) sem eru dauðvona (sbr. orðtakið „To kick the bucket“) og ákveða að láta drauma sína rætast og fara í...
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA heitir Lost Horse af því að þarna voru týndir hestar alltaf geymdir hér áður fyrr,“ segir Una Stígsdóttir, sem opnar sýningu ásamt Anik Todd í Lost Horse galleríinu við Skólastræti 1 í dag.
Meira
SÝNING Birgis Snæbjörns Birgissonar á Kjarvalsstöðum á fegurstu fljóðum heims hefur vakið verðskuldaða athygli. Þar eru andlitsmyndir sem hann hefur málað af öllum vinningshöfum í keppninni Ungfrú heimur frá því hún hóf göngu sína árið1951.
Meira
GESTIR í spurningaleiknum Orð skulu standa í dag eru Kristján Jónsson myndlistarmaður og Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri. Á milli þess sem þau velta fyrir sér m.a.
Meira
GUÐNI Tómasson, listfræðingur og útvarpsmaður, verður með leiðsögn á morgun kl. 14 um sýningu á verkum Kristjáns Davíðssonar, sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands.
Meira
Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is HJÓNIN og lyfjafræðingarnir Sverrir Magnússon og Ingibjörg Sigurjónsdóttir ráku Hafnarfjarðarapótek í tæp 40 ár, frá árinu 1947 til ársins 1983.
Meira
ÞEGAR leikarinn Denzel Washington og kvikmyndaforstjórinn Harvey Weinstein gátu ekki komist að samkomulagi um gerð myndarinnar The Great Debaters gripu mæður þeirra í taumana og sömdu sín á milli.
Meira
ELÍN Halldórsdóttir tónlistarkona heldur útgáfutónleika í Listasafni Íslands í kvöld kl. 20 í tilefni af útgáfu geisladisksins Tunglið, Fljótið og Regnboginn .
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „HANN datt í gólfið,“ segir Mr. Silla, eða Sigurlaug Gísladóttir, sem ásamt Magnúsi B. Skarphéðinssyni myndar dúettinn Mr. Silla og Mongoose.
Meira
* Tónlistarkonan Ólöf Arnalds átti heldur betur góðu gengi að fagna á síðasta ári. Fyrsta hljómplata hennar, Við og við , fékk hvarvetna lofsamlega dóma hér á landi þegar hún kom út og í kjölfarið var Ólöfu boðið að leika víðsvegar um Evrópu.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA eru mjög góðar sölutölur,“ segir Kári Sturluson, einn samstarfsaðila Sigur Rósar, en bæði hljómplatan Hvarf / Heim og DVD-diskurinn Heima hafa selst gríðarlega vel á heimsvísu.
Meira
STÚLKURNAR í Sugababes hafa lengi haft það orð á sér að vera viðskotaillar og oftar en ekki taka þær upp á að rífast heiftarlega áður en þær ganga hundfúlar upp á svið.
Meira
ÍSLENSKA svartþungarokkssveitin Sólstafir lauk fyrir stuttu upptökum á nýrri plötu sem hefur fengið nafnið Köld . Útgáfa er áætluð í apríl. Platan var tekin upp í Gautaborg í Svíþjóð, höfuðborg skandinavíska þungarokksins.
Meira
* Kvikmynda- og sjónvarpsvefurinn logs.is segir frá því að Veðramót eftir Guðnýju Halldórsdóttur keppi um Kvikmyndadrekann, aðalverðlaun Gautaborgarhátíðarinnar sem hefst þann 25. janúar næstkomandi.
Meira
LEIKKONAN Sharon Stone er búin að fá sig fullsadda af karlmönnum sem láta eins og konur og segist hafa meiri áhuga á að eiga rómantískt samband við karlmannlega konu.
Meira
Á HÁDEGI í dag verður opnuð sýning á myndum Friðþjófs Helgasonar í ljósmyndagalleríinu Fótógrafí, Skólavörðustíg 4. Sýningin nefnist Tríólógía og sýnir Friðþjófur samsettar landslags- og umhverfismyndir sem hver og ein myndar þrenningu.
Meira
Ólafur Stefánsson skrifar um lífsreynslu sína í flugi frá Kanarí 3. janúar sl.: "Hvers vegna í ósköpunum eru gerðar lendingartilraunir í Keflavík þegar áhöfnin og flugturninn hefur allar upplýsingar um veður og vinda fyrir lendingu?"
Meira
Frá Einari Guðjónssyni: "BORGARSTJÓRN leyfir rif á Laugavegi 4-6 og leggur mikið á sig til að tryggja það til að stuðla að „uppbyggingu í miðbænum“, þétta byggðina, losna við íbúana og búðirnar."
Meira
Magnús Ólafsson svarar skrifum Odds Benediktssonar um mjólkurneyslu og krabbamein: "Ekki er orsakasamhengi milli mjólkurneyslu og krabbameins í blöðruhálskirtli. Mjólkurvörur eru taldar hafa verndandi áhrif gegn ristilkrabbameini."
Meira
Birgir Dýrfjörð skrifar um umhverfismál: "Er þá rétt pólitík að Framtíðarlandið, Fagra Ísland, verði Draumalandið sem milljón ferðamenn sækja árlega heim?"
Meira
Kristinn H. Gunnarsson skrifar um skatta og skattleysismörk: "Það er verulega ómaklegt og jafnvel óheiðarlegt að láta að því liggja að staða þeirra sem fá aukinn persónuafslátt muni versna"
Meira
Valgerður Þóra Benediktsson fjallar um nýársræður forseta og forsætisráðherra: "Forsetinn sest á bekk með Pétri Blöndal og Árna Mathiesen sem brosa út í annað munnvikið og segja að ekki þýði að hafa skattinn á laun fólks lægri."
Meira
Óli Björn Kárason | 11. janúar Fjárfestar að missa stjórn á sér Fjárfestar hafa verið á taugum undanfarnar vikur og raunar mánuði. Skiptir litlu hvort um er að ræða hér heima eða annars staðar. Bankamenn eru einnig sveittir og taugarnar eru þandar.
Meira
Athugasemd við sagnfræðirit Endurbirt vegna leiðra mistaka 9. janúar sl. í Mbl. ÚT kom nú í haust rit eitt mikið og merkilegt; Síldarsaga Íslands. Er hún í þrem bindum, samtals tæpar 1.100 blaðsíður.
Meira
Adda Sigurlína Hartmannsdóttir fæddist í Lyngholti á Ólafsfirði 13. janúar 1937. Hún lést á heimili sínu að morgni 2. janúar síðastliðins og fór útför hennar fram frá Kópavogskirkju 10. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Ásta Margrét Hartmannsdóttir fæddist á Ólafsfirði 23. apríl 1933. Hún lést 24. desember 2007. Útför Ástu fór fram frá Garðakirkju 4. janúar sl.
MeiraKaupa minningabók
Birna Björnsdóttir fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 5. apríl 1941. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 27. desember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 7. janúar. Birnu verður minnst í Eiðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
MeiraKaupa minningabók
Björn Eiríksson fæddist í Meðalheimi á Ásum í Austur- Húnavatnssýslu 24. maí 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi föstudaginn 4. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Blönduóskirkju 11. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Elfa Vilborg Björnsdóttir fæddist í Reykjavík 20. ágúst 1949. Hún lést á líknardeildinni í Kópavogi að morgni 5. janúar síðastliðins og var jarðsungin frá Lágafellskirkju 11. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Leonhard Friðþjófur Leopold Ásgeirsson Hraundal fæddist í Baldurshaga í Kirkjuhvammshreppi í Vestur-Húnavatnssýslu 15. september 1918. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 1. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 10. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Þór Agnarsson frá Hjalteyri fæddist á Akureyri 26. ágúst 1955. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 2. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Möðruvallakirkju í Hörgárdal 11. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Gíslason fæddist á Seyðisfirði 17. desember 1926. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 2. janúar síðastliðinn og var jarðsunginn frá Hjallakirkju í Kópavogi í 10. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Flosadóttir (Dúna) fæddist í Reykjavík 14. maí 1934. Hún lést á Landspítalanum á jóladag, 25. desember síðastliðinn, og fór útför hennar fram frá Grafavogskirkju 11. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Helgi S. Jóhannsson skipstjóri fæddist í Neskaupstað 6. júní 1948. Hann lést af slysförum við störf sín í Marokkó að kvöldi jóladags síðastliðins og var jarðsunginn frá Víðistaðakirkju 10. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Hilmar Kristjánsson fæddist í Borgarnesi 16. maí 1948. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 1. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kristján Gunnarsson húsasmíðameistari, f. 13.2. 1903, d. 30.6.
MeiraKaupa minningabók
Jón Gíslason fæddist á Skálafelli í Suðursveit 25. mars 1963. Hann lést á heimili sínu í Hraunbæ 42 1. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hjallakirkju í Kópavogi 11. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Jón Gunnar Stefánsson fæddist 11. júlí 1975. Hann lést á heimili sínu, í Gullsmára 1, 3. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Kópavogskirkju 10. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Jónína Margrét Sveinsdóttir fæddist í Reykjavík 8. maí 1925. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 3. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 11. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Sigurjón Sigurðsson fæddist á Ljótsstöðum í Vopnafirði 4. mars 1925. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 6. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Gunnarsson, bóndi og oddviti á Ljótsstöðum, f. 5.11. 1895, d. 24.5. 1974, og Jóhanna...
MeiraKaupa minningabók
Svava Guðrún Eiríksdóttir fæddist á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd 25. júlí 1928. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 2. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 11. janúar.
MeiraKaupa minningabók
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKIN Merril Lynch, Citigroup og Bank of America munu þurfa að bóka varúðarfærslur vegna fjórða ársfjórðungs og mun afkoma þeirra versna um sem nemur um 33 milljörðum dala, andvirði um 2.200 milljarða íslenskra króna.
Meira
HOLTASEL, móðurfélag byggingafélagsins Eyktar, hefur með milligöngu VBS fjárfestingarbanka keypt alla eignarhluti Blikastaða ehf. og Íslenskra aðalverktaka í landi Blikastaða í Mosfellsbæ.
Meira
BANDARÍSKI bankinn Bank of America hefur keypt hiðheillum horfna fasteignalánafyrirtæki Countrywide, fimm mánuðum eftir að hafa fjárfest í félaginu fyrir um tvo milljarða dala, andvirði um 125 milljarða króna.
Meira
DRAGA mun úr hagvexti og efnahagslegri virkni á næstunni í öllum helstu aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, samkvæmt samsettum leiðandi hagvísum sem stofnunin reiknar mánaðarlega.
Meira
SAMNINGAR hafa náðst á milli breska íbúðalánabankans Northern Rock og bandaríska bankarisans JP Morgan um að sá síðarnefndi kaupi veðlánaeignir af Northern Rock að andvirði um 2,2 milljarða punda .
Meira
BANDARÍSKIR markaðir tóku dýfu í gær sem endurspeglaðist í yfir 2% lækkun Dow Jones- og Nasdaq-vísitalnanna. Viðvörun American Express um aukin vanskil á greiðslukortareikningum og áhyggjur af minnkandi neyslu landsmanna eru taldar helstu áhrifavaldar.
Meira
ÚRVALSVÍSITALA aðallista Kauphallarinnar hækkaði lítillega í gær, um 0,65%, lokatala var5.569 stig. Skuldabréfavelta nam 65 milljörðum króna, eða tæpum 90% af heildarveltunni, sem var 74 milljarðar króna.
Meira
Eftir Halldóru Þórsdóttur og Guðmund Sverri Þór SKULDATRYGGINGARÁLAG íslensku bankanna heldur áfram að hækka ört og í gær fór álagið á bréf Kaupþings í fyrsta skipti upp fyrir 400 punkta.
Meira
Íbúar á Seyðisfirði komu í veg fyrir að fyrirtæki léti rífa niður verslunarinnréttingar í friðuðu húsi í Hafnargötu 11, þar sem Imslandsverslun stóð áður, en fyrirtækið bar því við að það hefði verið í varðveisluskyni.
Meira
Þó hann sé ekki lærður smiður hefur hann byggt mikið um ævina. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti fyrrum lögreglumann og brúarsmið sem byggði sér nýlega hús.
Meira
FASTEIGNAVERÐ hefur farið í stökkum upp á við hér heima á Fróni undanfarin ár. Ekki hefur þó enn heyrst af einbýlishúsum sem fara fyrir rúma fjóra milljarða króna líkt og þetta hús sem selt var í Bretlandi gerði nú í upphafi árs.
Meira
Matreiðslumeistarinn Sigurður Gíslason bjó til hundrað lítra af humarsúpu og bauð til tvö hundruð manna reisugillis í hæstu byggingu landsins í hádeginu í gær. Jóhanna Ingvarsdóttir rann á lyktina.
Meira
Jólin eru liðin og komið nýtt ár, árið 2008. Nýárskveðjur má sjá í ljósaskreytingum á Hvammstanga. Nýársdagur er í huga fréttaritara einstakur dagur, gamla árið með sínum viðburðum að baki og engu verður þar um breytt.
Meira
70 ára afmæli. Pétur Jónsson , framkvæmdastjóri og fyrrverandi borgarfulltrúi, er sjötugur í dag, 12. janúar. Hann er á ferðalagi erlendis með hressu fólki á...
Meira
Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 8. janúar hófst spilamennskan á nýja árinu. Spilað var á 13 borðum. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi í N/S: Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 384 Alfreð Kristjánss. – Valdimar Elíass.
Meira
Brúðkaup | Gefin voru saman í Lágafellskirkju 27. október síðastliðinn af sr. Vigfúsi Þór Árnasyni þau Dagbjört Víglundsdóttir og Ágúst Jensson...
Meira
Fjölskylduhátíð Hafnarfjarðarkirkju Fyrsta fjölskylduhátíð Hafnarfjarðarkirkju á árinu verður í Hásölum Strandbergs og hefst kl 11. Leiðtogar sunnudagaskólanna munu sérstaklega fjalla um áramót og tímamót. Rebbi refur og Fróði frændi koma í heimsókn.
Meira
LÉTT vélhjól eins og þetta þjappa óneitanlega fjölskyldunni saman, eins og til dæmis þessari indversku fjölskyldu í borginni Siliguri í norðausturhluta...
Meira
Ati Kristjánsson fæddist í Reykjavík 1978. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla 1998, BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri 2007 og leggur hann nú stund á meistaranám við sama skóla.
Meira
Nefndin færir mjög sterk og einföld rök fyrir niðurstöðunni, nefnilega þau, að samkvæmt íslenskum lögum séu fiskiauðlindirnar sameign þjóðarinnar, og því fái ekki staðist að í raun og veru sé farið með kvótann eins og hann sé einkaeign þeirra sem hafa fengið hann úthlutaðan
Meira
1 Ný-Sjálendingar syrgja þjóðhetjuna sir. Edmund Hillary. Fyrir hvað er hann frægastur? 2 Hver er lögmaður sjómannanna sem mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna úrskurðaði í vil? 3 Deilu vinnuveitenda og ASÍ félaga hefur verið vísað til sáttasemjara.
Meira
Þegar umtalsvert verðfall varð á hlutabréfum um síðustu aldamót í kjölfar þess, að svonefnd netbóla sprakk, komu upp mörg dæmi um það, að sparifjáreigendur, sem leitað höfðu ráðgjafar banka um ráðstöfun á sparifé sínu sátu uppi með sárt ennið vegna...
Meira
FRANSKI landsliðsmaðurinn Nicolas Anelka gekk til liðs við Chelsea í gær, er Roman Abramovich, eigandi Lundúnaliðsins, snaraði 15 millj. punda, rúmlega 1,8 milljörðum ísl. kr., á borðið á borðið til að greiða Bolton fyrir leikmanninn.
Meira
EFTIR talsvert japl, jaml, fum og fuður hefur náðst samkomulag á milli Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, og Handknattleikssambands Asíu, AHF, um að forkeppni Ólympíuleikanna fari fram í Japan um næstu mánaðamót.
Meira
Birgir Leifur Hafþórsson lék á einu höggi yfir pari í gær á öðrum keppnisdegi á Joburg- meistaramótinu í golfi, sem fram fer í Suður-Afríku. Hann lék á 72 höggum og var samtals á fimm höggum yfir pari eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 75 höggum.
Meira
Emil Hall freðsson , landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur ekki jafnað sig af meiðslunum sem hann varð fyrir í leik með Reggina í ítölsku A-deildinni í byrjun desember. Hann er ekki í leikmannahópi Reggina fyrir leik liðsins gegn Empoli í deildinni á...
Meira
TINDASTÓLL komst að hlið ÍR og Stjörnunnar í gærkvöldi með því að leggja ÍR 98:94. Í hinum leik Iceland Express deildar karla í gær lagði Keflavik lið Snæfells einnig naumlega, 98:95, og er með tveggja stiga forystu í efsta sæti deildarinnar.
Meira
HANDKNATTLEIKUR Posten Cup í Noregi Ísland – Ungverjaland 27:28 Mörk Íslands : Einar Hólmgeirsson 7, Hannes Jón Jónsson 5, Sturla Ásgeirsson 3, Arnór Þór Gunnarsson 3, Heimir Örn Arnarson 2, Andri Stefan 2, Baldvin Þorsteinsson 2, Kári...
Meira
ÞRÁTT fyrir að Chelsea leikur án John Terry, Frank Lampard, John Mikel Obi, Michael Essien, Didier Drogba, Andrei Shevchenko og Salomon Kalou eru ekki miklar líkur á að leikmenn Tottenham fagni sigri á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Meira
BANDARÍSKA frjálsíþróttakonan Marion Jones var í gær dæmd í hálfs árs fangelsi fyrir að afvegaleiða rannsóknarmenn bandarísku alríkislögreglunnar og segja ósatt um lyfjaneyslu sína í tengslum við íþróttaiðkun.
Meira
ÞÝSKIR knattspyrnuáhugamenn stóðu á öndinni í gær þegar sú óvænta frétt birtist á vef stórveldisins Bayern München að Jürgen Klinsmann hefði verið ráðinn þjálfari liðsins frá og með 1. júlí 2008. Hann tekur þá við af Ottmar Hitzfeld sem hættir með liðið að loknu þessu keppnistímabili.
Meira
RAGNA Ingólfsdóttir er fjórði sterkasti keppandinn sem skráður er til leiks í einliðaleik kvenna á opna sænska meistaramótinu í badminton sem fram fer í Stokkhólmi 24.-27. janúar.
Meira
RAGNA Ingólfsdóttir badmintonkona fer væntanlega annaðhvort til Írans eða Brasilíu í byrjun febrúar, til að keppa á alþjóðlegu móti. Iran Fajr 2008 fer fram í Teheran í Íran 2. til 5. febrúar og dagana 6. til 10.
Meira
Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is SÆNSKA knattspyrnufélagið Sundsvall, sem er nýliði í úrvalsdeildinni, hefur mikinn áhuga á að fá Sverri Garðarsson, varnarmanninn öfluga úr FH, í sínar raðir.
Meira
PAVEL Pauza, landsliðsþjálfari Tékklands í handknattleik, teflir fram mörgum mjög öflugum leikmönnum gegn Íslendingum í Laugardalshöllinni á morgun og mánudag.
Meira
ÍÞRÓTTA- og ólympíusamband Íslands gat aðeins komið til móts við um 10% óska sérsambanda sinna þegar það úthlutaði í gær um 60 milljónum króna úr þremur sjóðum; Afrekssjóði, Ólympíufjölskyldu ÍSÍ og Sjóði ungra og efnilegra íþróttamanna.
Meira
UNGVERJAR lögðu íslenska B-landsliðið í handknattleik í fyrsta leik Posten-mótsins sem hófst í Noregi í gær. Lokatölur urðu 27:28 fyrir Ungverja eftir að staðan í leikhléi hafði verið 11:13.
Meira
GUNNAR Pettersen, landsliðsþjálfari Norðmanna í handknattleik, er ævareiður út í Íslendinga fyrir að koma ekki með sitt sterkasta lið á alþjóðlega mótið sem hófst í Noregi í gær.
Meira
Stígheiður Sól, 8 ára, teiknaði þessa fínu mynd af bangsanum sínum. Það getur verið ósköp gott að láta bangsa kúra hjá sér þegar maður fer að sofa á...
Meira
Bókin Teljum dýr, 1, 2 og 3 eftir Halldór Á. Elvarsson er um íslensk dýr og tölurnar. Sum dýrin eru í sjónum, sum í loftinu og önnur á jörðinni og meira að segja ofan í jörðinni.
Meira
Pétur sá son nágrannans vera að moka í holu um daginn og spurði drenginn hvers konar framkvæmdum hann stæði í. Drengurinn svaraði með ekka og tárin í augunum: „Ég er að jarða hamsturinn minn.
Meira
Hallormsstaðarskógur er víðáttumesti skógur landsins. Hann er að finna í 27 kílómetra fjarlægð frá Egilsstöðum og væri vissulega gaman ef allir Íslendingar gætu borið þennan mikla skóg augum og notið fegurðar hans.
Meira
Snjókornin, sem eru eins og stórir bómullarhnoðrar, svífa niður af himnum þegar okkur ber að garði. Það taka allir vel á móti okkur; veðrið, umhverfið, kennararnir og börnin.
Meira
Tómas Arnar, 8 ára, teiknaði þessa frábæru mynd af Kafteini ofurbrók og öllum hans vinum og óvinum. Sjáið hvað hann Tómas Arnar hefur vandað sig mikið. Gaman er að skoða líka öll litlu smáatriðin á...
Meira
Sigtryggur Þeyr, 5 ára, teiknaði þessa sætu mynd af mús sem er úti að leika sér í snjónum um jólin. Það hefur nú samt örugglega verið svolítið kalt hjá litlu músinni yfir hátíðarnar en kannski á hún litla holu til að skríða...
Meira
Einu sinni voru hjón sem áttu þrjár fallegar dætur. Þau voru fátæk og áttu varla neinn mat. Ein dóttirin fór út að ganga og gekk fram hjá lind. Hún rakst allt í einu á eitthvað hart og fann hvernig hún stífnaði inni í sér.
Meira
Krakkarnir í Hallormstaðarskóla eru þeirrar gæfu aðnjótandi að skóli þeirra er í miðri náttúruparadís á Austurlandi. Starfsfólk skólans nýtir sér það og hefur útbúið skólastofu inni í Hallormsstaðarskógi.
Meira
Snákurinn Snúður er oft einmana mjög. Getur þú hjálpað honum að finna besta vin sinn, snigillinn Sneril. Þá geta þeir leikið sér saman í allan dag.
Meira
Hildur Margrét, 5 ára, teiknaði þessa flottu mynd af sjálfri sér. Það er alltaf gaman að sjá sjálfsmyndir barna og væri gaman ef þið mynduð á hálfs árs fresti teikna mynd af ykkur. Myndirnar gætuð þið geymt og safnað í möppu.
Meira
Í þessari viku eigið þið að leysa krossgátu. Lausnarorðið skrifið þið svo á blað og sendið okkur fyrir 19. janúar næstkomandi. Munið að láta fylgja upplýsingar um nafn, heimilisfang og aldur.
Meira
Þegar landslag dægurtónlistarinnar í dag er skoðað, þ.e. poppið, rokkið eða hvað menn vilja kalla það, er að finna þar dágóðan slatta af ungu tónlistarfólki sem á að baki hefðbundið tónlistarnám, stundum langt og strangt.
Meira
Eftir Sigtrygg Magnason naiv@internet.is Heyr himna smiður, hvers skáldið biður. Komi mjúk til mín miskunnin þín. Þannig byrjar sálmur Kolbeins Tumasonar og er hann eitt fegursta ákall til guðs sem ritað hefur verið, í það minnsta á íslenskri tungu.
Meira
Eftir Pál Valsson pall@forlagid.is Steinunn Jóhannesdóttir ritar ágæta grein í Lesbók 8. desember síðastliðinn um Þóru Gunnarsdóttur, ást hennar á Jónasi Hallgrímssyni og kvæðið Ferðalok.
Meira
12. janúar 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 2809 orð
| 2 myndir
Greinarhöfundur vonar hið besta en óttast hið versta. Hann segir framfarir ekki hafa orðið jafn miklar í heiminum og sumir halda. Hann gagnrýnir framfaradýrkunina harðlega og styður mál sitt afgerandi og að mörgu leyti sláandi dæmum.
Meira
Hlustarinn Í desemberstressinu hlustaði ég á Þórunni Hjartardóttur lesa bókina Þúsund bjartar sólir . Ég nýtti mér tæknina og „las“ um leið og ég vann á tölvunni minni á kvöldin. Sjaldan hef ég notið nokkurs skáldverks jafn innilega.
Meira
12. janúar 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 1840 orð
| 3 myndir
Hvar á eiginlega að byrja að byggja upp samfélag sem er svo gersamlega fallið saman? spyr greinarhöfundur sem dvaldi í fjóra mánuði í Kongó á síðasta ári. Þetta er önnur greinin í ferðasögu hennar.
Meira
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Fyrir áratug var Terry Gilliam einn virtasti leikstjóri heimsbyggðarinnar. En svo tók hann að berjast við vindmyllur – og tapaði.
Meira
Lesarinn Mestu hamingju- og sælustundir lífs míns eru þegar ég get orðið eitt með skáldsögu. Horfið inn í söguna ef svo má segja. Ég upplifði þessa tilfinningu mjög oft sem stelpa en hún verður sjaldgæfari eftir því sem árin líða.
Meira
Bandaríski leikstjórinn Wes Anderson er ekki þekktur fyrir að fara hefðbundnar leiðir í sinni kvikmyndagerð. Nýjasta mynd hans, Darjeeling Limited, er enn eitt dásamlega furðuverkið á hans skemmtilega leikstjórnarferli.
Meira
Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Harðskafi Arnaldar Indriðasonar var mest selda bók árins 2007 á Íslandi samkvæmt samantekt Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem birt var í Morgunblaðinu í gær. Það kemur ekki mjög á óvart.
Meira
Doktorsrit Láru Magnúsardóttur, Bannfæring og kirkjuvald á Íslandi 1275-1550, sætir verulegum tíðindum í íslenskum fræðaheimi þar sem um er að ræða eina ákveðnustu tilraun fram að þessu til að endurskoða hugmyndagrundvöll íslenskrar miðaldasagnfræði.
Meira
Eftir Jón Ólafsson jonolafs@bifrost.is !Fyrir rúmum mánuði sagði ég þá lygasögu hér í þessum dálki að ég hefði komist að raun um að genasamsetning mín setti mig í vissan áhættuhóp.
Meira
Eftir Gunnar Theódór Eggertsson gunnaregg@gmail.com Það kannast allir við eftirhermuleiki stóru kvikmyndaveranna – ölduganginn sem fer af stað þegar ein formúlumynd slær í gegn.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Síðasta plata nýrokksveitarinnar geðþekku Death Cab For Cutie var Plans (2005) en þá var Washingtonsveitin (fylkið þ.e.a.s.) búin að færa sig frá óháðu útgáfunni Barsuk yfir til risans Atlantic Records.
Meira
Eftir Þröst Helgason vitinn.blog.is Ekki verða of góður í öllu. Þú mátt alveg þykjast heyra hvað mamma þín segir, en gerðu þveröfugt. Ef þú gerir alltaf þveröfugt gengur þér vel. Lofaðu mér því. Gerðu það sem þér sýnist, en forðastu að vera of góður.
Meira
Soultónlistin lifir góðu lífi eins og sannaðist á velgengni Amy Winehouse á síðasta ári. Ekki síðri er söngkonan Sharon Jones sem syngur með stórsveitinni The Dap-Tones og sendi frá sér frábæra plötu seint á síðasta ári.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.