NORÐANGARRI heilsaði mönnum snemma í gærmorgun þegar veiði hófst í Elliðavatni þetta sumarið og var á annan tug veiðimanna mættur í morgunsárið. Veiðin var þó heldur treg fyrsta veiðidaginn en þó tókst sumum að tína upp nokkrar bleikjur og urriða.
Meira
29. ÞING Landsambands lögreglumanna sem haldið var í Munaðarnesi um helgina krefst þess að öllum lögreglumönnum verði útvegað Taser-valdbeitingartæki sem allra fyrst. Um er að ræða rafstuðbyssur.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 233 orð
| 1 mynd
RÚM 500 manns voru handtekin þegar til átaka kom á milli mótmælenda og óeirðalögreglumanna í Istanbúl í Tyrklandi í gær, á baráttudegi verkalýðsins.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 111 orð
| 7 myndir
FJÖLDI fólks tók þátt í baráttudegi verkalýðsins í gær, bæði í kröfugöngum og hátíðarsamkomum sem haldnar voru víða um land. Á Húsavík voru mikil hátíðahöld vegna sameiningar Verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis og Verslunarmannafélags Húsavíkur.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 269 orð
| 1 mynd
Sunnudaginn 4. maí klukkan 15 verður í þriðja sinn boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Ferðalagið hefst í skipi landnámsmanna á 9. öld en útlínur þess má sjá á gólfinu þegar gengið er inn á grunnsýningu safnsins.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 354 orð
| 1 mynd
HAFIN er rannsókn á tildrögum þess að bifhjólamaður lenti út af vegi eftir árekstur við bifreið við Vesturvör í Kópavogi um klukkan 20 í gærkvöldi.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 264 orð
| 1 mynd
ÓÐAVERÐBÓLGA, efnahagsörðugleikar og aukin misskipting í samfélaginu voru ræðumönnum 1. maí hátíðarhalda ofarlega í huga. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, talaði á fjölmennum fundi á Húsavík.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 408 orð
| 2 myndir
HEILDARTEKJUR af sölu hreindýraveiðileyfa árið 2007 voru tæpar 87 milljónir króna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar um helstu niðurstöður hreindýraveiðitímabilsins 2007.
Meira
ÖKUMENN hafa lengi vitað að þeir geta sparað bensín með því að aka hægar á þjóðvegunum. Hækkandi eldsneytisverð hefur nú orðið til þess að bandarísk flugfélög láta farþegaþotur sínar fljúga hægar í sparnaðarskyni.
Meira
FJÖLDI manns tók þátt í kröfugöngum sem verkalýðsfélög efndu til í gær á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Hátíðarhöld voru víðast með hefðbundnu sniði og sums staðar var metþátttaka.
Meira
MIKIL hátíðahöld fóru fram í gær, annars vegar í Víkinni og hins vegar á Framsvæðinu, í tilefni stórafmælis Víkings og Fram en bæði félögin héldu upp á 100 ára afmæli sitt. Víkingar, sem áttu formlega 100 ára afmæli 21. apríl sl.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 293 orð
| 1 mynd
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til „að virða hvíldartímaákvæði vinnutímatilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins, 2003/88/EB og taka ekki yfirvinnu eða aukavaktir sem brjóti í bága við hana, en njóta þess í stað frítímans í faðmi fjölskyldu...
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 135 orð
| 1 mynd
UNGIR jafnaðarmenn afhentu í gær á Hótel Borg félagshyggjuverðlaunin og runnu þau að þessu sinni til starfsmanna BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landspítalans, og Rannveigar Traustadóttur, dósents við uppeldis- og menntunarfræðiskor Háskóla Íslands.
Meira
JOSEF Fritzl, 73 ára Austurríkismaður sem hélt dóttur sinni og þremur börnum þeirra í kjallaraprísund, hótaði að myrða þau með því að dæla gasi inn í kjallarann ef þau reyndu að flýja.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 366 orð
| 1 mynd
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is FYRIR tæpum 16 árum var Pétur Frantzson kyrrsetu- og stórreykingamaður, reykti um þrjá pakka á dag og vaknaði meira að segja á nóttunni til að reykja.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 113 orð
| 1 mynd
Skagi | Sendistöð var komið fyrir uppi á Steinnýjarstaðarfjalli á Skaga í vetur. Það er Vodafone sem á sendinn en hann bætir mjög símasamband á Skaganum og á Húnaflóa fyrir viðskiptavini þess fyrirtækis.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 353 orð
| 1 mynd
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is TVÖ tilboð og eitt erindi bárust vegna útboðs fornleifagraftar á Alþingisreitnum. Voru þau opnuð hjá Ríkiskaupum á þriðjudan var og er Framkvæmdasýsla ríkisins að fara yfir þau. Fornleifastofnun Íslands bauð 252.332.
Meira
LÝST er eftir sleðakerru í eigu Hjálparsveitar skáta Kópavogi sem stolið var fyrir utan húsnæði sveitarinnar við Kópavogshöfn. Um er að ræða hvíta kerru frá Vögnum og þjónustu og er númerið LY-300.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 114 orð
| 1 mynd
UM helgina verður haldið námskeið í kundalini jóga og karam kriya (andleg vakning í verki) í Lótus jógasetri, Borgartúni 20 og verður haldið opið kynningarkvöld í kvöld, föstudagskvöldið 2. maí, frá 19-21.
Meira
FÉLAG Fasteignasala heldur opinn fund fyrir almenning föstudaginn 2. maí nk. á Grand hóteli frá kl. 15-17. Á fundinum mun verða varpað ljósi á stöðu fasteignamarkaðarins nú á vordögum og líklega þróun næstu mánaða, að því er segir í tilkynningu.
Meira
UNDANFARIN ár hefur eftirlit með heilbrigði keppnishesta verið aukið á öllum stærri mótum bæði hér heima og á vettvangi FEIF. Skoðun á særindum í munni er hluti af þessu eftirliti.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 313 orð
| 1 mynd
FISKVEIÐISTJÓRNUN sem beinir sókninni í stóran, þroskaðan fisk og kveður á um lágmarksstærðir á möskva og lönduðum fiski til að láta minni fiskinn sleppa er á villigötum, samkvæmt nýrri vísindaskýrslu bandarískra vísindamanna.
Meira
ÞAÐ er röng fiskveiðistefna að beina sókninni í stóra fiskinn en vernda smáfiskinn um leið. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu vísindamanna við Kaliforníuháskóla í San Diego. Skýrslan birtist nýlega í vísindatímaritinu Nature .
Meira
INGIBJÖRG Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, verður ræðumaður á súpufundi Landssambands kvenna í Frjálslynda flokknum laugardaginn 3. maí nk. kl. 12.00. Fundurinn verður haldinn að Skúlatúni 4, 2. hæð.
Meira
SÉRSVEIT ríkislögreglustjóra var kölluð út í gær vegna ölvaðs manns sem talinn var vopnaður í námunda við bæinn Austurhlíð í Gnúpverjahreppi. Lögreglunni á Selfossi barst upphaflega tilkynning um kl.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 230 orð
| 2 myndir
VONAST er til að stjórnklefi Gullfaxa, fyrstu þotu Íslendinga, sem notuð var frá 1967 til 1985, verði færður á Flugsafn Íslands í júní næstkomandi.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 291 orð
| 1 mynd
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu framlengt gæsluvarðhald yfir karlmanni á sextugsaldri sem sætir rannsókn vegna meintra kynferðisbrota. Var gæslan framlengd til 14. maí.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 715 orð
| 2 myndir
Eftir Gunnlaug Árnason Stykkishólmur | Ferðaþjónustuaðilar á Snæfellsnesi, í Dölum og báðum Barðastrandarsýslum tóku höndum saman í desember á síðasta ári og stofnuðu félagsskap sem heitir Breiðafjarðarfléttan.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 357 orð
| 1 mynd
ÚTIKENNSLUSTOFA í lundi við Húshöfða, athafnasvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, verður tekin í notkun laugardaginn 3. maí kl. 14 við Selið í Höfðaskógi.
Meira
2. maí 2008
| Innlendar fréttir
| 521 orð
| 2 myndir
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LÍKLEGT er að vinnuhópur um útfærslu á vaktavinnuskipulagi skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga á Landspítala (LSH) taki til starfa í næstu viku, að sögn Björns Zoëga, annars tveggja starfandi forstjóra Landspítalans.
Meira
HUGSANLEGT er að risastórar vindrafstöðvar verði jafnalgengar í Norðursjó og olíuborpallar verði áform Norðmanna að veruleika. Norðmenn ætla að nýta þekkingu sína á smíði og rekstri olíuborpalla í Norðursjó með því að þróa fljótandi vindorkuver.
Meira
SÖNGLEIKURINN Ástin er diskó, lífið er pönk var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í gær. Í verkinu, sem er eftir Hallgrím Helgason, er fjallað um árin í kringum 1980 sem voru um margt merkileg í tónlistarsögu Íslands.
Meira
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti Alþýðusambands Íslands, flutti athyglisverða 1. maí ræðu á Húsavík í gær fyrir troðfullu húsi og fjallaði m.a. um umræður um Evrópusambandið frá sínu sjónarhorni.
Meira
Ögmundur Jónasson, alþingismaður Vinstri grænna og formaður BSRB, flutti ræðu á 1. maí hátíðahöldum í Vestmannaeyjum sem ástæða er til að staldra við. Hann sagði m.a.: „Við höfum lagt til að samið verði til skamms tíma. Samfélagið þarf að ná...
Meira
Þór Whitehead prófessor flutti stórmerkilegan fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu í fyrradag um ákveðna þætti á stjórnmálaferli Bjarna heitins Benediktssonar, þegar afhentir voru rannsóknarstyrkir, sem kenndir eru við hans nafn.
Meira
* Bjarkartúrinn fór í gegnum höfuðstað Norður-Írlands á dögunum og lék á tónleikastaðnum Waterfront. Hópurinn dvaldi þar í nokkra daga þar til hann hélt aftur yfir sundið til Blackpool og nýtti tímann vel til að kynnast landi og þjóð.
Meira
BANDARÍSKA sjónvarpskonan vinsæla Barbara Walters átti í leynilegu ástarsambandi við þingmanninn Edward Brooke á 8. áratugnum. Þetta kemur fram í spjallþætti Oprah Winfrey sem sýna á vestanhafs næstkomandi þriðjudag.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „VIÐ erum að fjármagna myndina núna og stefnum að því að hefja tökur í ágúst,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Marteinn Þórsson sem er með kvikmynd eftir sögu Hallgríms Helgasonar, Roklandi , í...
Meira
ETHAN Coen, sem fyrr á árinu deildi óskarsverðlaunum fyrir bestu leikstjórn með bróður sínum Joel, fyrir myndina No Country for Old men , ætlar að spreyta sig sem leikskáld.
Meira
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is SAMÚEL Jón Samúelsson er á leiðinni til Belgíu og Þýskalands með stórsveitina sem við hann er kennd.
Meira
Uma Thurman bar vitni fyrir dómstólum í New York í gær þar sem réttað er yfir manni sem sakaður er um að ofsækja leikkonuna hæfileikaríku. Maðurinn, sem heitir Jack Jordan, á að hafa elt Umu á röndum frá árinu 2005 og allt fram á seinni hluta árs 2007.
Meira
Aðalsmaður vikunnar gengur í daglegu tali undir nafninu Gazman eða Gasmaðurinn. Hann er einn vöðvastæltasti maður landsins og meðlimur hljómsveitarinnar Merzedes Club.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is FÉLAGSKAPURINN Baggalútur byrjaði eins og margir góðir hlutir sem saklaust sprell en er í dag orðinn að þó nokkru veldi með nokkuð fjölþætta starfsemi sem tekur m.a.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is HIÐ GÓÐA safn Jóns er algjört skyldustopp er fólk keyrir Vestfirðina og áir í hinum sællega Bíldudal.
Meira
Áritaðar titilsíður bóka er efni sýningar sem Jónína Óskarsdóttir opnar í Borgarbókasafninu í Grófarhúsi í dag. Á sýningunni er meðal annars bók sem Grímur Thomsen fékk áritaða frá H.C.
Meira
DÖNSKU gamanþættirnir Klovn eru að mínu mati langbesta sjónvarpsefnið sem er í boði þessa dagana á íslenskum sjónvarpsstöðvum. Uppátæki Franks eru hreint dásamleg og það er ekki oft sem maður tárast af hlátri yfir gamanþætti.
Meira
SÝNING Hildar Ásgeirsdóttur Jónsson verður opnuð í Gallery Turpentine í dag. Sýningin ber yfirskriftina „Í öllum regnbogans litum“ og gefur þar að líta myndaröð frá 2007 og 2008. Í verkunum vinnur Hildur með íslenskt landslag.
Meira
STAN Lee, skapari teiknimyndasöguhetjunnar Járnmannsins, var ekki óhress á forsýningu samnefndrar kvikmyndar í Hollywood á miðvikudag en myndin var tekin til sýninga í íslenskum kvikmyndahúsum í gær.
Meira
FYRIR um 8 árum kvaðst Tina Turner hætt að fara í tónleikaferðir. Virðist henni hafa snúist hugur því nú hefur Tina ljóstrað því upp að hún hyggist hefja tónleikaferð í október og verða fyrstu tónleikarnir haldnir í Kansasborg.
Meira
Þórunn Sigurðardóttir var kosin í stjórn EFA – European Festivals Associations í síðustu viku. Þórun hefur verið listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík frá 2000 en lét af því starfi á árinu.
Meira
Anna Kristinsdóttir | 1. maí 2008 Við erum vöknuð Almenningur virðist vera vaknaður af þyrnirósarsvefninum þótt stjórnvöld sofi enn. Mótmæli bílstjóra sýndu og sönnuðu að almenningur getur látið í sér heyra. Ekki bara ein stétt heldur fleiri.
Meira
Baldur Kristjánsson | 1. maí 2008 1. maí uppstiginn, farinn, horfinn, kemur hann aftur? Í dag renna saman uppstigningardagur og baráttudagur verkalýðsins, 1. maí.
Meira
Davíð Örn Jónsson skrifar um háar álögur ríkisins á eldsneyti og mótmæli atvinnubílstjóra: "Aðferð atvinnubílstjóra við mótmæli sín er hins vegar ekki endilega til þess fallin að stuðla að framgangi málefna þeirra."
Meira
Félagsráðgjafar hafa oft betri vitneskju en aðrir um hvar skórinn kreppir í kerfinu segir Helga S. Ragnarsdóttir: "Vegna starfa síns hafa félagsráðgjafar oft betri vitneskju en aðrir um hvar skórinn kreppir í kerfinu."
Meira
Eftir Sturlu Böðvarsson: "Við getum ekki og eigum ekki að koma á hnjánum til forystumanna Evrópusambandsins og óska inngöngu vegna efnahagslegra vandræða."
Meira
Kristján Pétursson | 1. maí 2008 Niðurstöðunni fagnað Þjóðin fagnar niðurstöðu málsins. Uppsagnir hjúkrunarfræðinga dregnar til baka og nefnd verður skipuð til að gera tillögur um nýja samninga fyrir 1. maí 2009.
Meira
Jóhann Rúnar Björgvinsson skrifar um efnahagsmál: "Vandi okkar er ekki skortur á fjármagni eða digrum gjaldeyrissjóðum heldur trúverðugleikabrestur."
Meira
Gylfi Skaphéðinsson skrifar um áhrif gæða þjónustunnar á afkomu fyrirtækja.: "Með því að fara fram úr væntingum viðskiptavina þá vænkast hagur okkar svo um munar."
Meira
Gísli H. Halldórsson fjallar um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum: "Góðar hugmyndir koma ekki að gagni fyrr en þær eru framkvæmdar. Enginn ávinningur þó án einhverra fórna."
Meira
Ragnhildur Sverrisdóttir | 1. maí 2008 Læknirinn með vatnið Margrét átti málshátt dagsins, sem hún viðurkenndi að hún ætti erfitt með að skilja: „Maður þarf ekki alltaf að fara til læknis til að ná í vatn.
Meira
Bjarkey Gunnarsdóttir og Þuríður Lilja Rósenbergsdóttir spyrja hvort skólinn hafi nægan tíma til að mennta barnið í því sem honum er ætlað?: "Hver er réttur barna og fjölskyldna til að njóta samvista á þann hátt sem þau vilja og til að sinna annarri menntun en þeirri sem skólinn einn ákveður?"
Meira
Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson: "Mikilvægt er að samgönguráðherra svari áskorun borgarstjórnar. Hver er vilji hans til að hraða lagningu Sundabrautar eins og kostur er?"
Meira
Freyr Ófeigsson skrifar í tilefni greinar Gísla Freys Valdórssonar í Mbl.: "Ekki er ætlan mín að reyna að andmæla staðhæfingum blaðamannsins, sem hann byggir væntanlega á haldgóðum gögnum."
Meira
Þórunn Halldórsdóttir segir trúnaðarbrest milli TR og talmeinafræðinga: "Eftirlit TR gekk fram með slíku offorsi og sleggjudómum að gróflega var brotið á meðalhófsreglu, jafnræðisreglu og andmælarétti."
Meira
Helene H. Pedersern segir frá námskeiðum í MK: "Helene H. Pedersen segir frá stuttum, hagnýtum námsleiðum sem gefa fjölbreytta starfsmöguleika í vaxandi atvinnugrein."
Meira
Minningargreinar
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 3143 orð
| 1 mynd
Ársæll Karl Gunnarsson fæddist í Reykjavík 12. júlí 1953. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 26. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru Gunnar Yngvason, f. 31.1. 1931, og Geirþrúður E. Ársælsdóttir, f. 21.6. 1933, d. 17.11. 1987.
MeiraKaupa minningabók
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 2420 orð
| 1 mynd
Bryndís Ingibjörg Einarsdóttir fæddist á Ísafirði 27. febrúar 1934. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli hinn 25. apríl 2008. Foreldrar hennar voru Einar Kristján Þorbergsson, f. 18. júlí 1891, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 1018 orð
| 1 mynd
Friðrik Ben Þorbjörnsson var fæddur að Kirkjubóli í Höfnum þann 30. október 1931. Hann lést þann 24. apríl sl. Foreldrar Þorbjörn Benediktsson, f. 21.3. 1902, d. 26.12. 1985, og Magnea Friðrikdóttir, f. 27.1. 1907, d.10.11. 1993.
MeiraKaupa minningabók
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 3059 orð
| 1 mynd
Gissur Jóel Gissurarson, fv. rakari og skrifstofumaður, fæddist í Reykjavík 7. júní 1931. Hann andaðist í Reykjavík 23. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Gissur Baldursson, fæddur í Reykjavík 14. maí 1901, látinn í Reykjavík 1.
MeiraKaupa minningabók
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 3231 orð
| 1 mynd
Guðbjörg Magna Björnsdóttir fæddist á Seyðisfirði 9. apríl 1949. Hún andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. apríl síðastliðinn. Foreldrar Guðbjargar voru Björn Sveinlaugsson, bifreiðastjóri á Seyðisfirði, f. 12.8. 1917, d. 16.5.
MeiraKaupa minningabók
Hólmar Finnbogason fæddist í Vestmannaeyjum 21. febrúar 1932. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 6. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 14. apríl.
MeiraKaupa minningabók
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 1751 orð
| 1 mynd
Inga Björnsdóttir, læknir á Akureyri, var fædd 24. júní 1922 á Eiríksstöðum á Jökuldal. Hún lést 23. apríl sl. á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
MeiraKaupa minningabók
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 1526 orð
| 1 mynd
Steinunn Jósefsdóttir fæddist á Eystra-Miðfelli á Hvalfjarðarströnd 27. mars 1915. Hún lést 22. apríl sl. Foreldrar hennar voru Jósef Jósefsson, f. 7.10. 1873, d. 14.11. 1935, bóndi á Eystra-Miðfelli og Jóreiður Jóhannesdóttir, f. 6.11. 1872, d. 24.1.
MeiraKaupa minningabók
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 1639 orð
| 1 mynd
Sveinn Þórir Þorsteinsson fæddist í Reykjavík 20. desember 1929. Hann varð bráðkvaddur mánudaginn 14. apríl síðastliðinn á Tenerife. Foreldrar hans voru hjónin Þorsteinn Loftsson bifreiðarstjóri, f. 17.10. 1904, d. 05.07.
MeiraKaupa minningabók
2. maí 2008
| Minningargreinar
| 1235 orð
| 1 mynd
Þorkell Páll Pálsson fæddist í Reykjavík hinn 19. júlí 1932. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Eir hinn 19. apríl sl. Foreldrar hans voru hjónin Páll Bjarni Sigfússon skipstjóri, f. á Ísafirði 29. júní 1900, d. 1970, og Þórhildur Lilja Ólafsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
MIKILL samdráttur varð á sölu nýrra bíla hér á landi í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. Brimborg var eina bílaumboðið sem jók sölu sína á milli ára.
Meira
RÆTT var við William Fall , forstjóra Straums, á viðskiptasjónvarpsstöðinni CNBC á miðvikudag, í tilefni af uppgjöri félagsins, en það sýndi 2,6 milljarða króna hagnað á fyrsta ársfjórðungi.
Meira
STARFSMÖNNUM fjármálafyrirtækja heldur áfram að fækka en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins munu margir þeirra hafa fengið uppsagnarbréf í hendur þessi mánaðamótin.
Meira
HALLI á vöruskiptum við útlönd fyrstu þrjá mánuði ársins nam 24,7 milljörðum króna, borið saman við halla upp á 12,3 milljarða eftir sama tíma í fyrra.
Meira
KAUPHALLIR heims voru víðast lokaðar í gær vegna alþjóðlegs baráttudags verkalýðsins, 1. maí, en þó var opið í Bandaríkjunum . Þar hækkaði Dow Jones-vísitalan um 1,5%, endaði í 13.
Meira
Vísnahornið fær kveðju frá Rúnari Kristjánssyni á Skagaströnd: Sumarkveðja send er enn, sólin við þér skíni. Sagt er mér að sannir menn sjaldan áttum týni. Þú munt ná þeim sigri senn, (segi ég í gríni), hljóta vaxtarverðlaun tvenn, valið sverð og brýni!
Meira
„Við höfum afsannað þá kenningu að karlmenn geti bara gert eitt í einu,“ sögðu nýgræðingarnir, sem brugðu sér á námskeið í þeim tilgangi að læra að elda almennilegan mat. Jóhanna Ingvarsdóttir rann á lyktina.
Meira
Það var eintóm tilviljun sem réð því er hún kom fyrst til Íslands fyrir sjö árum til að hugsa um hænsn í Svarfaðardal. Núna vill Kerstin Langenberger þó hvergi annars staðar vera. Fríða Björnsdóttir hitti þýska kjarnakonu.
Meira
Pétur Pétursson fæddist á Akureyri 1950. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1970, doktorsprófi í félagsfræði frá Háskólann í Lundi 1983 og öðru doktorsprófi í guðfræði frá sama skóla 1990.
Meira
HERO IN THE FAMILY (Sjónvarpið kl. 21.40) Geimfari fær vegna misskilnings apaheila í stað síns eigin. Lagast ekkert að gagni og sonur hans grípur til sinna ráða. ** EMPLOYEE OF THE MONTH (Stöð 2 kl. 21.
Meira
1 Einn þekktasti leikari landsins hefur söðlað um, yfirgefið Þjóðleikhúsið og skrifað undir samning hjá Borgarleikhúsinu. Hver er hann? 2 Verið er að gera heimildarmynd um myndlistarmanninn Dieter Roth. Hver er kvikmyndagerðarmaðurinn?
Meira
Finnst þér ekki svolítið eins og allt sé að fara til fjandans?“ spurði vinur Víkverja hann um daginn og jú, víkverji gat ekki annað en samsinnt. Það er nefnilega svolítið eins og allt sé að fara til fjandans.
Meira
ÞAÐ eru hreyfingar á leikmönnum í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik þessa dagana. Hamar úr Hveragerði, sem féll reyndar úr efstu deild í vetur, missir einn besta leikmann liðsins, Láru Jónsson, í nám til Danmerkur.
Meira
RAFAEL Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, er ekki af baki dottinn þó svo að hann og leikmenn hans yrðu að sætta sig við tap fyrir Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu – og þar með missa af farseðlinum til Moskvu, þar sem...
Meira
BIRGIR Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék á pari á fyrsta keppnisdegi á Opna spænska meistaramótinu í golfi, 72 höggum, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur er í 48.-70.
Meira
Arjen Robben, leikmaður spænska meistaraliðsins Real og fyrrverandi leikmaður Chelsea, hvetur Didier Drogba til að ganga til liðs við Madrídliðið sumar. ,,Ég yrði afar glaður að fá Drogba til Real Madrid.
Meira
Steve Coppell, knattspyrnustjóri Reading, hefur sett tvo leikmenn sína í tveggja vikna bann fyrir að brjóta agareglur félagsins. Þetta eru þeir Emerse Fae og Ibrahima Sonko en þeir neituðu að spila með varaliði félagsins á mánudaginn.
Meira
STEFÁN Gíslason varð í gær danskur bikarmeistari í knattspyrnu þegar Bröndby bar sigurorð af Esbjerg, 3:2, í afar spennandi og fjörugum leik sem háður var í Parken í Kaupmannahöfn.
Meira
GÍSLI Kristjánsson, handknattleiksmaður, sem leikið hefur síðastliðin fimm ár í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik með FCK, Frederica og Ajax Heroes hefur gengið til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Nordsjælland Håndbold.
Meira
MANCHESTER United er verðmætasta knattspyrnuliðið í veröldinni samkvæmt úttekt viðskiptatímaritsins Forbes. Englandsmeistararnir eru metnir á 905 milljónir punda eða sem svarar 133 milljörðum íslenskra króna.
Meira
NEIL Alexander, markvörður Glasgow Rangers, var hetja liðsins í gærkvöldi er hann stóð vaktina á milli stanganna gegn Fiorentina í Flórens með glæsibrag.
Meira
ÓLÖF María Jónsdóttir byrjaði vel á fyrsta keppnisdegi á Opna skoska meistaramótinu á Evrópumótaröðinni í golfi í gær. Ólöf María, sem leikur fyrir Keili úr Hafnarfirði, lék á 2 höggum yfir pari vallar eða 73 höggum og er hún í 15.-23.
Meira
RAGNA Ingólfsdóttir, Íslandsmeistari í badminton, hefur tryggt sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Peking í sumar. Alþjóða badmintonsambandið gaf út heimlistann í gær og er Ragna í 56. sæti í einliðaleik á honum sem þýðir að hún er örugg inn á leikana.
Meira
CRISTIANO Ronaldo eða Didier Drogba verður markakóngur Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í ár en lið þeirra, Manchester United og Chelsea, etja kappi um Evrópumeistaratitilinn á Luzhniki-vellinum í Moskvu hinn 21. þessa mánaðar.
Meira
SKJÓTT skipast veður í lofti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Í fyrstu unferðinni er slatti af liðunum, sem slegin hafa verið út, farin að hugsa til framtíðarinnar.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen er einn margra leikmanna sem Barcelona er talið ætla að selja í sumar en í ljósi þeirra staðreynda að Börsungar vinna engan titil á tímabilinu annað árið í röð er reiknað með að miklar breytingar verði hjá Katalóníuliðinu.
Meira
BLÓM var eina afmælisgjöfin sem Fram fékk hjá Val þegar úrslitaleikur Lengjubikars karla fór fram í Kórnum í gærkvöldi. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik hrukku Valsmenn í gang og unnu, 4:1.
Meira
Hálf þriðja milljón bílstjóra í Bretlandi hefur fengið bakverki undir stýri síðasta árið. Flestir þeirra hafa tilhneigingu til að skella skuldinni á bílsætin en verkstæðiskeðjan Kwik-Fit segir þar bakara hengdan fyrir smið.
Meira
Eftir Ágúst Ásgeirsson Franski bílsmiðurinn Citroën fékk Kínverja sem búsettir eru á Spáni upp á móti sér. Ástæðan var að fyrirtækið notaði í auglýsingum þar í landi mynd af Maó formanni sem breytt hafði verið með tölvutækninni.
Meira
Eftir Ágúst Ásgeirsson Sjötugur fyrrverandi mótorhjólamaður hefur uppgötvað hvers vegna hann hefur haft þrautir í fæti í hálfa öld. Leggjarbein reyndist brotið og hafði fótbrotið ekki verið greint á sínum tíma og beinið aldrei gróið fyllilega saman.
Meira
Eftir Ágúst Ásgeirsson Franski pósturinn, La Poste, hefur ákveðið að fjölga stórum rafbílum til póstdreifingar. Á næstu fimm árum er útlit fyrir að vistvænir bílar af þessu tagi í þjónustu póstsins verði rúmlega 10.000 talsins.
Meira
Gærdagurinn markaði tímamót í breskri bílasögu. Þá var fyrsti Land Roverinn var kynntur til sögunnar á bílasýningunni í Amsterdam. Land Rover er nú með fimm bíla vörulínu með Range Rover í forsæti. Salan hefur aldrei verið meiri, en alls seldust 226.
Meira
LOFTSLAGSMÁL hafa verið framarlega í umræðunni undanfarið á Íslandi sem annarsstaðar en það virðist vera hætt við því að stundum sé unnið af meira kappi en forsjá þegar markmiðið er að draga úr loftmengun.
Meira
London. AFP | Gangbrautaverðir fyrir utan skóla á Bretlandi hafa nú bæst í hóp þeirra, sem leggja baráttunni gegn ágengum ökumönnum lið. Settar verða myndavélar framan og aftan á skiltin, sem þeir halda á lofti og á er letrað „Stöðvið. Börn.
Meira
Land Rover er sextugur um þessar mundir. Þessi harðgeri bíll hefur nánast frá upphafi verið áberandi á íslenskum þjóðvegum og um tíma hefur sennilega verið Land Rover-jeppi á hlaðinu á nánast hverjum bóndabæ á landinu.
Meira
ÞAÐ verða líklegast ekki bara tryggingafélögin sem fagna núna þegar Volvo hyggst bjóða upp á alvöru árekstravörn því staðreyndin er sú, í það minnsta á meginlandinu, að um sjötíu prósent allra tjóna eiga sér stað innanbæjar, í mikilli umferð og á...
Meira
Eftir Ágúst Ásgeirsson Þrjár konur verða meðal 32 keppenda í hinum sögufræga Indianapolis 500 kappakstri sem fram fer 92. árið í samnefndri borg í Bandaríkjunum 25. maí nk. Danica Patrick og Sarah Fisher eru bandarískar en Milka Duno frá Venezuela.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.