Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Frystitogarinn Venus HF kom til hafnar í Reykjavík í gær eftir 40 daga veiðitúr í rússnesku lögsöguna í Barentshafi. Afli upp úr sjó var tæplega 700 tonn og frystar afurðir námu tæplega 290 tonnum.
Meira
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson hsb@mbl.is Kópasker | Aðalfundur samtakanna Landsbyggðin lifi verður haldinn í dag á Kópaskeri. Í kringum aðalfundinn verður margvísleg dagskrá, t.d.
Meira
Prins Póló hefur komist inn í íslenskar þjóðarbókmenntir og um tíma fengu ferðamenn það til baka í Póllandi í stað skiptimyntar. Þegar verðið á Prins Póló er athugað virðist það einna lægst í Bónus. Þar kostar pakki með 32 stykkjum 1.
Meira
ÁGÚSTA Þorsteinsdóttir sundkona er látin 66 ára. Ágústa fæddist í Reykjavík 17. apríl 1942. Hún hóf að æfa sund 1955, 13 ára gömul. Ári síðar setti hún 11 Íslandsmet og vann með því gullmerki ÍSÍ.
Meira
Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is „ÉG vil fá gullið og íslenska þjóðsönginn á sunnudaginn,“ sagði Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, við Morgunblaðið í gær.
Meira
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „GLÆNÝTT malarlag er á veginum og það eru engin viðvörunarskilti þarna,“ segir Anna María Björnsdóttir, 17 ára gömul stúlka sem velti bíl sínum við Engidalsbrú í Skutulsfirði í fyrrakvöld.
Meira
Lahore. AP. | Pakistanska konan Saira Liaqat pírir góða augað og burstar hár viðskiptavinar í vinsælli snyrtistofu í borginni Lahore í Pakistan. Andlit hennar leystist að mestu upp af völdum sýru.
Meira
Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Á FUNDI nefndar um þróun Evrópumála, sem skipuð var fyrr á árinu, var í gær rætt um hugmyndir Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um upptöku evru án aðildar að Evrópusambandinu (ESB).
Meira
FIMMTÁN mínútna fegrunarblundur kostar fimmtán evrur, um 1.800 krónur, og níu tíma næturleiga til sjö að morgni 60 evrur, rétt rúmlega 7.000 krónur.
Meira
Í HVERJUM mánuði í vetur mun Ríkissjónvarpið endursýna eitt gamalt áramótaskaup. Áhorfendur fá að kjósa hvaða skaup verður sýnt hverju sinni, líklega í netkosningu.
Meira
BANDARÍKJASTJÓRN undirbýr að kalla hersveitir sínar úr íröskum borgum þegar í júnímánuði á næsta ári og síðan í kjölfarið allt herlið sitt frá Írak fyrir árslok 2011, að því gefnu að takast muni að tryggja stöðugleika í landinu.
Meira
Fljótsdalshérað | Ormsteiti á Fljótsdalshéraði lýkur á morgun, sunnudag, með svokölluðum Fljótsdalsdegi. Skyndilega er kominn á dagskrána úrslitaleikur í handknattleik á Ólympíuleikunum. Í dag verður bæjarhátíð Egilsstaða.
Meira
KÍNVERSK stjórnvöld hafa ákveðið að leita eftir samstarfi við Íslendinga um að koma upp viðvörunarkerfi í Kína vegna jarðskjálfta. Það yrði byggt á kerfi sem notað er hér á landi og var þróað af íslenskum vísindamönnum og sérfræðingum.
Meira
NÁMSMÖNNUM og fólki undir 25 ára aldri býðst nú að kaupa áskriftarkort í Borgarleikhúsið á hálfvirði. SPRON og Borgarleikhúsið undirrituðu í gær samstarfssamning þess efnis.
Meira
Fimmtudaginn 21. ágúst sl. um kl. 9.24 var umferðarslys á Skeiðarvogi við Gnoðavog í Reykjavík. Vegfarandi var á leið yfir Skeiðarvog í átt að Vogaskóla þegar fólksbifreið, svört að lit, var ekið frá Gnoðavogi og norðaustur Skeiðarvog.
Meira
AÐ öðrum degi Alþjóðarallsins loknum hafa Jón B. Hrólfsson og Borgar Ólafsson forystu. Taka þeir við henni af systkinunum Ástu og Daníel Sigurðarbörnum en dekk sprakk á bifreið þeirra skammt frá Heklu í gær. Urðu þau að hætta keppni af þessum sökum.
Meira
NÝLIÐUN rækju er enn mjög slök, samkvæmt bráðabirgðaútreikningum Hafrannsóknastofnunar að lokinni árlegri stofnmælingu stofnunarinnar á úthafsrækju fyrir norðan og austan land.
Meira
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÞAÐ var í kjölfar fyrri olíukreppunnar árin 1973 til 1974 þegar samþykkt voru lög á Bandaríkjaþingi um stofnun olíubirgðastöðva, einskonar olíubanka sem grípa mætti til þegar sveiflur yrðu á framboðinu.
Meira
N1 býður um helgina 6 kr. afslátt af eldsneyti á öllum þjónustustöðvum sínum, en fyrirtækið segir þetta gert í tilefni af frábærri frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í handbolta á Ólympíuleikunum í Peking.
Meira
ÓSKAR V. Friðriksson lést á Landspítala 21. ágúst sl. Hann var fæddur í Borgarnesi 14. ágúst 1931. Foreldrar hans voru Friðrik Þórðarson, verslunarrekandi, og Stefanía Þorbjarnardóttir, organisti.
Meira
REYKJANESBRAUT verður lokuð í dag, laugardag, vegna framkvæmda á milli Hagasmára og Arnarnesvegar milli kl. 5 og 11.30. Hagasmári er í brekkunni fyrir ofan Smáralind. Þar er Ego-bensínstöð og Lyfjaval-bílaapótek.
Meira
BARÁTTUMENN á vegum umhverfisverndarsamtakanna World Wildlife Fund taka þátt í herferð í Jakarta í Indónesíu fyrir því að gerðar verði frekari ráðstafanir til að vernda Súmötru-tígra, þá undirtegund tígrisdýra sem er í mestri útrýmingarhættu.
Meira
RÚSSAR lýstu því yfir í gær að þeir hefðu lokið brottflutningi hermanna frá Georgíu í samræmi við vopnahléssamkomulag sem náðist fyrir milligöngu Evrópusambandsins. Rússneska varnarmálaráðuneytið sagði þó að um 2.
Meira
EITT fræknasta íþróttaafrek Íslandssögunar, silfursleginn sigur Íslendinga á Spánverjum í handbolta á ÓL í gær, gat varla borið upp á betri dag, 22. ágúst, því þá átti amma Guðjóns Vals Sigurðssonar stórafmæli.
Meira
HANNA Birna Kristjánsdóttir, nýr borgarstjóri Reykjavíkur, segist ekki taka afstöðu til þess hvort fara eigi í prófkjör eða uppstillingu, enda sé sú ákvörðun í höndum flokksmanna í Reykjavík, þegar hún er spurð spurð hvernig eigi að móta lista...
Meira
Sandgerði | Sandgerðingar fögnuðu í gær nýrri sundlaug ásamt sundlaugargarði og viðbót við íþróttamiðstöð bæjarins. Framkvæmdin kostaði um 300 milljónir kr., að sögn Sigurðar Vals Ásbjarnarsonar bæjarstjóra.
Meira
STJÓRN Kvenréttindafélags Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við kröfur ljósmæðra um leiðréttingu á launum þeirra. Þau eru með því sem lægst gerist innan BHM þótt nám þeirra sé eitt það lengsta sem krafist er af ríkisstarfsmönnum.
Meira
Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is ÞEIR fjórir nemendur sem sóttu um að hefja nám við tölvunarfræðideild Háskólans á Akureyri á komandi skólaári verða ekki innritaðir í skólann. Samþykkti háskólaráð skólans þetta í fyrradag.
Meira
ÝMSIR aðilar undirbúa handboltaveislu vegna úrslitaleiks Íslendinga og Frakka á ÓL á morgun, sunnudag. M.a. býður Hafnarfjarðarbær bæjarbúum og öðrum handboltaáhugamönnum að fylgjast með leiknum á risaskjá í íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „ÉG er mjög ánægður. Þegar ég fékk tíðindin hoppaði ég um og æpti af gleði,“ segir keníski hælisleitandinn Paul Ramses Odour sem verið hefur í flóttamannabúðum í Róm síðan í júlímánuði.
Meira
Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is Í FYRRA voru 37% þeirra sem lentu í vinnuslysum útlendingar og allir þrír sem látist hafa í vinnuslysum á árinu eru útlendingar.
Meira
Áhugavert var að fylgjast með viðbrögðum fulltrúa minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur við þeim fregnum að framsóknarmaðurinn Guðlaugur G. Sverrisson hefði verið kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.
Meira
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „ÞEGAR ég var í MR labbaði ég með ljóð inn á skrifstofu til Friðriks Rafnssonar, sem þá var ritstjóri Tímarits Máls og menningar.
Meira
Á AUSTURVELLI verður boðið upp á lifandi bókasafn milli 13 og 17 í dag. Það er rétt eins og önnur bókasöfn, nema bækurnar eru lifandi fólk að þessu sinni. Bækurnar eru fulltrúar ólíkra hópa í samfélaginu. Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 6.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is BJÖRK Guðmundsdóttir, hljómsveitin Wonderbrass og Jónas Sen halda tónleika í Langholtskirkju næstkomandi þriðjudag. Um er að ræða síðustu tónleikana í Volta tónleikaferð Bjarkar.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „FYRST og fremst veitir styrkurinn mér hugarró,“ segir Jóhann Nardeau trompetleikari, en hann er handhafi styrks Minningarsjóðs Jean Pierre Jaquillat í ár.
Meira
FULLT hús var á útgáfutónleikum hljómsveitarinnar Esju á Nasa á fimmtudagskvöldið, og var stemningin góð. Sveitin lék blús-skotið rokk með sínu lagi og fóru hljómsveitarmeðlimir á kostum á köflum.
Meira
SAMBLAND af uppistandi og hryllingsmynd, Hellisbúanum og The Exorcist , gjörningafyrirlestur. Þannig lýsa nýútskrifaðir leiklistarnemar, Árni Kristjánsson og Snæbjörn Brynjarsson, einleiknum Uppljómunin .
Meira
Í HVERJUM mánuði í vetur verður eitt gamalt áramótaskaup endursýnt. „Almenningur fær að velja hvaða áramótaskaup verður sýnt hverju sinni, hugsanlega með netkosningu,“ segir Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri.
Meira
„ÞETTA er margrætt verk sem tengist innri og ytri veruleika,“ segir Pjetur Stefánsson um verk sitt, seríu af sjö ljósmyndum, sem hann á á sýningu þeirra Þórs Sigmundssonar í Grafíksafni Íslands, sal Íslenskrar grafíkur, sem opnuð verður...
Meira
MADDID Theatre Company sýnir í kvöld kl. 19 einleikinn Maddid, en með hlutverk Maddidar fer leikkonan Vala Ómarsdóttir. Sýningin er hluti af Artfart-listahátíðinni. Sýningin fer fram í Smiðjunni, sýningarsal Listaháskóla Íslands, á Sölvhólsgötu 13.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is VILHELM Anton Jónsson eða Villi naglbítur eins og hann er einatt kallaður segist hafa fengið hugmyndina um að lúðravæða hljómsveit sína fyrir fullu ári.
Meira
Menningarnótt hefur vaxið hratt frá því hún var fyrst haldin árið 1996. Sumum finnst hún jafnvel vera orðin úr sér vaxin og ofhlaðin og maður heyrir fólk gjarnan fussa og segja: Iss, þetta er bara orðið eins og 17.
Meira
* Það verður án efa spenna í lofti þegar Sálin hans Jóns míns stígur á svið á Nasa í kvöld. Nasa-gigg Sálarinnar eru þekkt fyrir læti, hita og svita og víst er að menningu og ómenningu ýmiskonar verður miðlað þar fram á rauða nátt.
Meira
SKY sjónvarpsstöðin ætlar að gera vel við menninguna með nýrri menningarrás, Sky Arts 2. Ráðgert er að útsendingar hefjist 20. október. Sky stöðin rekur þegar eina menningarrás, Sky Arts, og því er um tvöföldun á menningarefni að ræða.
Meira
TÓNLISTARHJÓNUNUM Gwen Stefani og Gavin Rossdale fæddist sonur fimmtudaginn sl. á sjúkrahúsi í Los Angeles. Hefur stúfur verið nefndur Zuma Nesta Rock. Móður og barni heilsast vel. Stefani og Rossdale eiga fyrir soninn Kinston sem fæddist árið 2006.
Meira
FOSSILS, eða Steingervingar, er heiti myndlistarsýningar sem Elín Edda Árnadóttir opnar í dag í Studio Stafni í Ingólfsstræti 6. Opnun sýningarinnar er hluti af dagskrá Menningarnætur en opnunin er klukkan 15. Á sýningunni eru ný verk eftir Elínu Eddu.
Meira
POPPDROTTNINGIN Madonna mun hefja tónleikaferðina Sticky & Sweet, þ.e. Klístrað og sætt, í Cardiff í kvöld. Madonna fagnaði fimmtugsafmæli í síðustu viku og tónleikaferðin er sögð hennar síðasta.
Meira
Eftir Árna M. Mathiesen: "Þessi upptalning mín ætti að slá á þær gagnrýnisraddir sem uppi hafa verið um aðgerðaleysi stjórnvalda og hafa verið að mínu mati ósanngjarnar."
Meira
Elín G. Ólafsdóttir skrifar um fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá: "Þetta virkjanabrambolt er ekki hugsað nema að litlum hluta til hagsbóta fyrir okkur Íslendinga, útlend fyrirtæki sitja að stærstum hluta kökunnar"
Meira
Bryndís Gunnlaugsdóttir | 22. ágúst Hærri húsaleigubætur eða lægri leigu Ég hef verið á leigumarkaðnum síðustu 5 til 7 árin og staðreyndin er bara sú að leiguverð er einfaldlega of hátt í dag.
Meira
Magnús Vignir Árnason gerir athugasemdir við grein Ragnars Halldórssonar: "Geir er góður pabbi og það er bannað að skamma góða pabba þegar gottveðurskipið þeirra liggur við bryggju í vonda veðrinu sem vondi kallinn bjó til."
Meira
Steinunn heitin Sveinsdóttir var ein dyggasta stuðningskona íslenska handboltaliðsins sem ég hef kynnst. Fyrir leiki signdi hún hvern og einn leikmann með hátíðlegri viðhöfn, bað fyrir þeim og klappaði svo glumdi í.
Meira
Snorri Sigurjónsson skrifar um umhverfismál og Íslandshreyfinguna: "Stóriðjublindan þrífst þó sem aldrei fyrr og ryki er slegið í augu fólks með vísan til samdráttar í byggðum landsins..."
Meira
Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson: "Gæti þá ekki verið að fossarnir kalli fram eftirlíkingu af óræðum tilfinningum; óræðum aðgengilegum og neysluvænum tilfinningum?"
Meira
Hermann Þórðarson fjallar um ástandið í heiminum almennt: "Ástþór Magnússon telur að þriðja heimsstyrjöldin muni hefjast í Palestínu og biðlar til Dorrit Moussaieff forsetafrúar um að koma í veg fyrir það."
Meira
Björn Jónsson fæddist í Reykjavík 23. ágúst 1958, hann lést 26. júní síðastliðinn. Foreldrar hans eru Katrín S. Karlsdóttir, fædd 1.7. 1932, og Jón Ólafsson málmiðnaðarmaður, f. 20.9. 1927, d. 30.11. 1992. Systkini hans eru Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 21.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Bergrós Tryggvadóttir fæddist á Rútsstöðum í Eyjafirði 28. febrúar 1917. Hún lést á dvalarheimilinu Hlíð hinn 1. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ágústína Gunnarsdóttir ljósmóðir á Svertingsstöðum, f. 1878, d.
MeiraKaupa minningabók
Hafdís K. Ólafsson fæddist í Reykjavík 13. mars 1942. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni Siglufirði 17. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Guðmunda Júlíusdóttir, f. 12.3. 1922, d. 7.9. 1995, og Kai Ólafsson, f. 25.8. 1921, d. 28.9. 1968.
MeiraKaupa minningabók
Helga Þórsdóttir fæddist á Bakka í Svarfaðardal 27. apríl 1927. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 13. ágúst síðastliðinn. Hún var dóttir Þórs Vilhjálmssonar, f. 13.3. 1893, d. 6.12. 1975 og Engilráðar Sigurðardóttur, f. 1.6. 1896, d....
MeiraKaupa minningabók
Kristín Sigþrúður Sigurjónsdóttir fæddist á Gili í Svartárdal í Húnavatnssýslu 13. ágúst 1915. Hún lést á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki 16. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Kristínar voru Sigrún Tobíasdóttir, f. 26. ágúst 1877, d. 23.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Kristjánsdóttir var fædd á Þingvöllum í Helgafellssveit 9. júlí 1923. Hún lést í St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi 11. ágúst síðastliðinn. Hún var þriðja barn hjónanna Maríu Kristjánsdóttur frá Litla–Langadal á Skógarströnd, f. 10.8.
MeiraKaupa minningabók
Þorvaldur Ársæll Pálsson fæddist í Stykkishólmi 12. júlí 1963. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Ránargötu 4 á Flateyri, sunnudaginn 10. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sæmunda Þorvaldsdóttir húsmóðir og verkakona í Stykkishólmi, f. 16.7.
MeiraKaupa minningabók
Breska námufyrirtækið London Mining tilkynnti í fyrradag að félagið hefði selt námustarfsemi sína í Brasilíu til stærsta stálframleiðanda heims, ArcelorMittal, fyrir tæpa 67 milljarða króna eða 810 milljónir dollara.
Meira
ICEBANK hagnaðist um 560 milljónir króna á öðrum fjórðungi ársins. Á fyrsta fjórðungi var 3,4 milljarða króna tap, samanlagt var því 2,8 milljarða tap á fyrri árshelmingi. Á fyrri helmingi ársins var hins vegar 4,2 milljarða króna hagnaður.
Meira
KONUR í Evrópu eru að jafnaði með um 16% lægri laun en karlar fyrir sambærilega vinnu , samkvæmt nýrri skýrslu stofnunar á vegum Evrópusambandsins.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is EINUNGIS eitt af þeim fjórum færeysku félögum sem skráð eru í kauphöllinni á Íslandi skilaði betri afkomu á fyrri helmingi þessa árs en á sama tímabili í fyrra.
Meira
BEN Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði í ræðu á fundi bankans í gær, að verðbólgan ætti að hægja á sér fyrir lok þessa árs . Stjórnvöld verði þó að vera reiðubúin til að grípa til aðgerða ef þetta gerist ekki, samkvæmt frétt Bloomberg .
Meira
STJÓRNENDUR Seðlabankans hafa kynnt nýjar reglur um veðlánaviðskipti við bankann. Eftir að þær taka gildi geta fjármálafyrirtæki ekki eingöngu lagt verðbréf, sem eru útgefin af viðskiptabönkunum, inn í Seðlabankann sem tryggingu.
Meira
SPARISJÓÐUR Mýrasýslu tapaði 4,6 milljörðum á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra hagnaðist sjóðurinn um 2,4 milljarða króna. Gjöld af fjáreignum og fjárskuldum námu 3,6 milljörðum króna, en í fyrra voru tekjur vegna þessa 2,7 milljarðar.
Meira
Margt er ritað og sagt um málefni Sparisjóðs Mýrasýslu þessa dagana. Í viðskiptablaði Morgunblaðsins var fjallað um málið í tengslum við stöðu annarra sparisjóða.
Meira
Það er einstaklega gott fyrir sálina að fara í berjamó, sitja í kyrrð og ró einn með sjálfum sér að tína ber. Það er líka, segir Heiða Björk Hilmisdóttir, á „krepputímum“ afar hagkvæmur kostur að geta farið út í náttúruna og náð sér í ókeypis mat.
Meira
Karl af Laugaveginum yrkir: Við sólarupprás á mig leit og ekki duldist mér; drjúgt er það sem Dagur veit og Dagur veit af sér. Bragi Sveinsson ættfræðingur orti hringhendu á sínum tíma: Dagur bjartur gekk um garð, glataði skarti sínu.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | Grjót og lyngmói eru grunnurinn í fallegum garði sem hjónin Hjalti Örn Ólason byggingarmeistari og Ólöf Sigurrós Gestsdóttir, starfsmaður leikskóla, hafa komið sér upp í Reykjanesbæ.
Meira
Hjónin Kristján Sveinbjörnsson, forseti bæjarstjórnar Álftaness, og Kristín S. Sigurleifsdóttir kennari halda upp á sameiginlega 50+50 ára afmælið í dag, laugardaginn 23. ágúst, kl. 17-20, í söngskólanum Domus Vox, Laugavegi 116.
Meira
Áslaug Sólbjört Jensdóttir, húsfreyja á Núpi í Dýrafirði, til heimilis á Bústaðavegi 73 í Reykjavík, er níræð í dag, 23. ágúst. Áslaug verður í faðmi fjölskyldunnar á...
Meira
Danmörk Rúnar Karl fæddist í Gentofte 9. maí. Hann vó 14 merkur og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Þorvaldur Óskar Karlsson og Branddís Jóna...
Meira
ÁSDÍS María Ægisdóttir býr á Ólafsfirði ásamt foreldrum sínum Guðnýju Ágústsdóttur og Ægi Ólafssyni. Hún ætlar að halda upp á þennan langþráða áfanga á sportbarnum Dátanum á Akureyri og mun skemmta sér þar í faðmi nánustu vina.
Meira
Víkverji botnar ekkert í orðunum lágvöruverð, lágvöruverðsverslun og lágvöruverðskjarni. Orðið lágvöruverð er ekki orð heldur orðskrípi, nýtt af nálinni, sem einhver sem rekur verslun þar sem áhersla er lögð á lágt verð á vörum hefur búið til.
Meira
23. ágúst 1932 Víkingaskipið Roald Amundsen kom til Reykjavíkur eftir þriggja vikna siglingu frá Nýfundnalandi. Skipið var á leið til Noregs, en þar hófst ferðin þremur árum áður. 23.
Meira
„VISSULEGA snerti þetta við strákunum enda ekki annað hægt,“ sagði Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari í körfuknattleik, en lið hans sigraði í gær lið Íra 73:70 í öðrum leik á sterku æfingamóti en fyrir leikinn fylgdust...
Meira
„HLUTKESTI mun ráða því hvort við leikum í bláu eða rauðu búningunum í úrslitaleiknum,“ sagði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, spurður hvort íslenska landsliðið mundi leika í rauðum búningum í úrslitaleiknum við Frakka á morgun.
Meira
SENN fer keppni í frjálsíþróttum að ljúka á Ólympíuleikunum í Peking. Í gær varð ljóst hver færi heim með gullið í tugþraut karla því þá var síðari keppnisdagur þrautarinnar. Kom gullið í hlut Bandaríkjamannsins Bryans Clay sem lauk keppni með 8791...
Meira
ÓLAFUR Stefánsson er einn mesti handboltasnillingur sögunnar, að því er fram kemur á vef danska handknattleikssambandsins en þar var fjallað í gær um árangur Íslands á Ólympíuleikunum í Peking.
Meira
„Ég er eiginlega að setja mig í gírinn fyrir næsta leik,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, rétt um hálftíma eftir að hann hafði lokið við að fagna sigri gegn Spánverjum í undanúrslitum á Ólympíuleikunum í...
Meira
Karen Björg Gísladóttir setti nýtt Íslandsmet í 200 metra flugsundi kvenna í flokki fatlaðra þegar hún synti á tímanum 3:05,86 á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Póllandi . Dugði sá tími Karen einnig til silfurverðlauna á mótinu.
Meira
„ÞETTA er eitthvað sem alla dreymir um, að vera í úrslitum á Ólympíuleikunum. Það verður erfitt að toppa þetta og ég er eiginlega orðlaus. Það er einn leikur eftir og mér líður bara vel.
Meira
EIN stærsta stundin í íslenskri íþróttasögu rann upp í gær þegar Íslendingar unnu afar sannfærandi sigur á Spánverjum, 36:30, í undanúrslitum handknattleikskeppninnar á Ólympíuleikunum í Peking.
Meira
„NÆSTU 48 tímar lífs okkar hafa aðeins gildi ef við hugsum um gullmedalíuna. Hungur lykilorð, hungur í gullmedalíu og þjóðsönginn sem við fáum ef við vinnum.
Meira
„ÉG var of spenntur í þessum leik og nýtti ekki færin mín nógu vel. Það hringsnerist allt og mér gekk illa að einbeita mér,“ sagði Alexander Petersson sem skoraði 2 mörk úr 5 skottilraunum í 36:30-sigri Íslands gegn Spánverjum.
Meira
Þeir eru fáir sem ekki er í fersku minni stórkostleg opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking þann áttunda ágúst síðastliðinn enda gríðarlega í hana lagt.
Meira
„MÉR leið vel strax í leikslok en ég var ekki alveg tilbúinn að fagna sigrinum gríðarlega mikið. Þetta er bara að gerast og við erum komnir í úrslit á Ólympíuleikum. Núna er þetta fyrst að verða gaman, að komast í úrslitaleikinn.
Meira
SPÁNVERJAR komust kannski ekki í úrslit í karlaflokki handboltans á Ólympíuleikunum en þeir komust í úrslit körfuboltans hinsvegar þegar karlalið Spánar lagði Litháen að velli í undanúrslitum í gær, 91.86.
Meira
BANDARÍKJAMAÐURINN Steve Stricker var á góðri leið með að verja titil sinn á Barcley mótinu á PGA mótaröðinni bandarísku en kappinn var efstur á tíu höggum undir pari þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Meira
GLÆSILEG tilþrif Dóru Maríu Lárusdóttur innsigluðu sigur Vals á Stjörnunni, þegar liðin áttust við í undanúrslitum bikarkeppni KSÍ í Garðabæ í gærkvöldi. Eftir bragðdaufan fyrri hálfleik færðist fjör í leikinn í þeim síðari og þá sáust sex mörk.
Meira
ÓHÆTT er að taka upp gamla frasa úr íþróttalýsingum fyrri tíma þegar rætt er um franska landsliðið í handknattleik karla. Þar er valinn maður í hverju rúmi og vart veikan blett að finna.
Meira
„ÞETTA er frábær tilfinning sem ég upplifi núna, þeir segja að það sé ekkert stærra en að leika til úrslita á Ólympíuleikum en hvað veit ég um það. Ég hef ekkert vit á því, enda aldrei upplifað slíkt áður.
Meira
DANIEL Narcisse innsiglaði sæti Frakka í úrslitaleik handknattleikskeppni karla þegar hann skoraði ævintýralegt mark 1,15 mínútum fyrir lok undanúrslitaviðureignarinnar við Króata í gærmorgun.
Meira
Snati er sannfærður um að hann komist hjálparlaust í gegnum völundarhúsið til að ná í frisbídiskinn sinn. Honum þætti samt ekki slæmt að fá örlitla aðstoð við verkefnið. Náðu þér í blýant og strokleður og hjálpaðu Snata...
Meira
Blaðamennirnir Eva Lind Gunnarsdóttir og Gunnar Snær Þórðarson fóru á fund Birgis Þórs Ómarssonar til þess að fræðast um íþróttina folf. Hvað er folf? Folf er frisbígolf, það er að segja frisbíleikur sem er spilaður með golfreglum.
Meira
Þessa fallegu mynd teiknaði Aron Daníel, 7 ára. Það væri nú aldeilis gott að hafa eplatré í garðinum. Þá gæti maður trítlað út þegar maður vaknar og nælt sér í gómsætan ávöxt í morgunmat.
Meira
1. Hvaða farartæki hefur bæði hjól og fætur? 2. Hve lengi sefur asninn á næturnar? 3. Hvað er það sem hefur 21 auga en hvorki nef né munn? 4. Hvað á maður að gera þegar maður vill ekki láta trufla hjá sér nætursvefninn? 5.
Meira
Bryndís, 10 ára, teiknaði þessa sniðugu mynd af hvítabirni sem heimsótti Ísland. Það var vel tekið á móti þessum birni og honum boðið í dýrindis...
Meira
Eva Lind Gunnarsdóttir, 8 ára, og Gunnar Snær Þórðarson, 9 ára, lögðu leið sína á svæði ÍTR við Gufunesbæ í Grafarvogi til að kynnast íþróttinni folf.
Meira
Þessi litla sæta skjaldbaka vill endilega láta lita sig. Henni leiðist svo óskaplega að vera svona litlaus og hvað þá þegar hún er í frisbí með vinum...
Meira
Klipptu út sex pappírsmiða úr ljósritunarpappír. Hafðu hvern miða á stærð við spil úr spilastokki. Finndu litla öskju og settu hana á gólfið og reyndu svo að láta útklipptu miðana falla ofan í öskjuna.
Meira
Settu rétt orð í reitina. Þótt gefin séu upp fimm orð áttu aðeins að nota fjögur. Ef þú lendir í vandræðum getur þú athugað hvaða orð er afgangs í lausnunum aftast í blaðinu.
Meira
Glæsilegu skipin hans Daða Snæs, 8 ára, sigla frá eyjunni og keppa nú um fyrsta sætið í siglingakeppninni. Áður fyrr voru seglskip og bátar mikilvæg samgöngutæki en nú eru siglingar að mestu skemmtun og íþrótt.
Meira
Sumarið er komið og fuglarnir syngja. Skólabjöllur hætta að klingja. Krakkar á tásum úti að leika. Nú eru allir hættir að teika. Svo kemur haustið og laufblöðin falla. Skólinn kallar á krakkana alla. Sumarið er búið og haustið er komið.
Meira
Skákborð músarinnar brotnaði og nú þarf litla músin að reyna að púsla því saman. Getur þú hjálpað henni? Klipptu brotin út og reyndu að raða þeim rétt saman.
Meira
Pétur Már, 8 ára, teiknaði þessa ótrúlega flottu mynd af töffaranum Tedda. Sjáið hvað hárið er vel teiknað hjá honum Pétri. Það er örugglega margt hárgreiðslufólk sem tekur sér þessa glæsigreiðslu til...
Meira
Í þessari viku þurfið þið að skoða myndirnar vel. Þið þurfið að skrifa fyrsta staf hverrar teikningar í viðeigandi reit. Þegar þið hafið gert það eruð þið komin með lausnarorðið sem þið skrifið á blað og sendið fyrir 30. ágúst næstkomandi.
Meira
Vinirnir Auður Anna og Kári Steinn hafa verið dugleg að spila golf í sumar. Þegar þau voru svo að fara út í morgun fundu þau hvergi neinn frisbídisk. Getið þið hjálpað þeim að finna 10 frisbídiska á síðum...
Meira
Alfinnur álfakóngur Alfinnur álfakóngur er sorgleg og skemmtileg, skrítin og fyndin. Hún er mjög spennandi, það er alltaf eitthvað að gerast og hún er aldrei leiðinleg.
Meira
Lesbók
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 3290 orð
| 11 myndir
Oscar Peterson sagði um Ed Thigpen að hann væri svo miklu meira en trommuleikari og hefði yfir að ráða hljóðheimi sem væri á við heila hljómsveit. Thigpen er einn af 30 gestum Jazzhátíðar Reykjavíkur sem hefst á þriðjudaginn.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 364 orð
| 3 myndir
Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Tími kennslubókaútgáfunnar er runninn upp. Hjá JPV er komin út bókin Inngangur að sálfræði eftir Kristján Guðmundsson og Lilju Ósk Úlfarsdóttur.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 769 orð
| 1 mynd
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Það er varla að nokkur Íslendingur hafi varið varhluta af ABBA-æðinu sem nú gengur yfir landið, allt fyrir tilstuðlan „láta sér líða vel“-myndarinnar Mamma Mia !
Meira
Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is ! Fyrir fáeinum vikum sá ég Simpson -þáttinn þar sem tónlistarhús er byggt í Springfield. Þátturinn er ansi skemmtilegur. Í honum kemur við sögu stjörnuarkitektinn Frank Gehry – sá er hannaði m.a.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 1031 orð
| 1 mynd
Franski leikstjórinn Olivier Assayas er þekktastur fyrir kvikmyndir sem nota ákveðin spennumyndaform til að takast á við eftirköst og afleiðingar hnattvæðingarinnar. Nýjasta mynd hans, Sumarstundir , er þó af allt öðru tagi.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 2393 orð
| 1 mynd
Hlustarinn Ég er svo heppinn að vera umvafinn tónlist frá morgni til kvölds. Oft hlusta ég mér til ánægju en svo koma ákveðin tímabil í tónlistarsögunni, tónskáld eða form sem ég tek fyrir af alvöru. Í hlustaranum er einmitt slíkt safn.
Meira
Frívæðing efnahagslífsins, viðnám gegn verðbólgu og einkavæðing voru útfærð á þann veg, að bönkunum og skuldum þeirra var leyft að vaxa hagkerfinu yfir höfuð, á meðan Seðlabankinn vanrækti að hækka bindiskyldu bankanna til að halda aftur af þeim eins og...
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 486 orð
| 3 myndir
Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Hinn ungi Michael Cera vakti fyrst verulega athygli með Juno og Superbad , en ef sú síðarnefnda er undanskilin hefur hann aðallega verið að leika stór aukahlutverk hingað til.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 201 orð
| 2 myndir
Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Ljóðahátíð Nýhils hófst í gærkvöldi. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin. Hún hefur kannski ekki farið mjög hátt meðal almennings enda fyrst og fremst verið lögð áhersla á að kynna ung skáld og framsækin.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 621 orð
| 1 mynd
Eftir Sigtrygg Magnason sigtryggur@naiv.is Þegar þetta er skrifað um miðjan dag á fimmtudegi, 21. ágúst 2008, þá er Hanna Birna Kristjánsdóttir orðin borgarstjóri.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 910 orð
| 1 mynd
Hvað getur rithöfundur lært á hlaupum? Spurningin virðist fráleit en japanski rithöfundurinn Haruki Murakami segist hafa lært flest af því sem hann viti um bókmenntaskrif á því að hlaupa á hverjum degi.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 2981 orð
| 8 myndir
Mikla athygli vakti þegar listamaðurinn Snorri Ásmundsson lýsti á dögunum eftir líkum til afnota í myndlistarverk. Afnot af líkamanum dauðum sem lifandi hafa þekkst í myndlistarsögunni en vekja engu að síður iðulega athygli og eru umdeild.
Meira
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri hefur haldið úti harðri gagnrýni á leiklistargagnrýni fjölmiðla hér í Lesbók í sumar. Tveir gagnrýnendur hafa orðið til svara. Nú svarar gagnrýnandi Fréttablaðsins öðru sinni. Hann telur skrif Tinnu illa ígrunduð.
Meira
23. ágúst 2008
| Menningarblað/Lesbók
| 470 orð
| 2 myndir
Steve Mason, fyrrverandi leiðtogi tilraunapoppsveitarinnar The Beta Band, hljóðritar nú undir nafninu Black Affair. Tónlistin er hrátt elektró og okkar maður virðist vera farinn að braggast en langvinnt þunglyndi fór með Mason út á ystu nöf á tímabili.
Meira
1. Síðustu helgi var fjölfarin gata í Reykjavík opnuð fyrir bílaumferð á ný eftir miklar viðgerðir. Hvaða gata var það? 2. Hvaða nýbreytni ætlar breskt kvikmyndahús að grípa til á næstunni að ósk kröfuharðra, listunnandi viðskiptavina sinna? 3.
Meira
Allt hefur verið frábært hjá strákunum á þessum Ólympíuleikum en mér sýnist muna mest um það að leikmennirnir hafa allir verið í sínu besta formi og breiddin nægilega mikil til að hægt hefur verið að hvíla þá nægilega hvern um sig til að halda þeim í...
Meira
Með orðinu fastastjörnur er átt við stjörnur sem virðast vera fastar hver miðað við aðra á himinkúlunni. Hins vegar snýst himinkúlan með fastastjörnunum einn hring yfir höfðum okkar á um það bil 24 klukkustundum eða einum sólarhring.
Meira
Spron niðurgreiðir hér eftir áskriftarkort til námsmanna í Borgarleikhúsi um 50%. Skrifað var undir samning um þetta í gær og fer þá leikhúsmiði námsmanna niður í bíóverð.
Meira
Liðsmenn Sign sneru heim í gær eftir heljarinnar rokkferð til Bretlands er m.a. skilaði þeim þeirra fyrstu gullplötu og auknum vinsældum á meðal samkynhneigðra rokkara í bænum Doncaster.
Meira
Þrátt fyrir að mun betra ástand sé á mönnunarmálum á leikskólum Reykjavíkurborgar en síðastliðið haust vantar enn starfsfólk í um 80 stöðugildi. Að sögn Ragnhildar Erlu Bjarnadóttur, sviðsstjóra leikskólasviðs er um helmingur leikskólanna fullmannaður.
Meira
„Mér skilst að guð hafi gert Cain svartan sem hefnd eftir að Cain hafði drepið Abel. Þetta var notað sem réttlæting fyrir því að gera blökkumenn að þrælum lengi vel. En ok hvað með gula og alla hina kynþættina?“ DoctorE doctore.blog.
Meira
„Það er þjóðhátíð. Eina sem Hr. Ólafur Ragnar þurfti að segja var að það væri frí fram á miðvikudag [...] og að það væri frjáls opnunartími skemmistaða á aðfaranótt mánudags. Ég meina við verðum að fagna um alla borg ef hið ótrúlega gerist.
Meira
Dönskum fagurkerum þykir mest upphefð í því að sitja við stýri Mercedes-Benz-bifreiðar. Leiddi könnun fpn.dk í ljós að 42% aðspurðra þótti mest varið í Benz. Um 30% sögðu flottast að sitja í Audi, en aðeins 14% leist best á BMW.
Meira
Björk Guðmundsdóttir heldur tónleika í Langholtskirkju á þriðjudagskvöld. Aðeins 300 miðar fara í sölu og verða þeir einungis seldir á netinu á mánudagsmorgun.
Meira
Allir of feitir ríkisstarfsmenn í Alabama í Bandaríkjunum, sem ekki reyna að léttast, verða að greiða 25 dollara á mánuði fyrir sjúkratryggingar sem annars eru ókeypis.
Meira
Hvernig er hausttískan í ár? Litirnir dempast auðvitað með haustinu en þó verður eitthvað um sterka liti, eins og fjólubláan og dökkbláan. Svartur og hvítur eru alltaf klassískir og svo er kremaður hvítur með.
Meira
Menntamálaráðherra breytti upphaflegri afstöðu sinni til framkvæmda í friðlandinu við Surtsey sem hún segir að hafi ekki áhrif á stöðuna á heimsminjaskrá...
Meira
Jóhann Bjarnason skrifar: Ég verð að segja að ég varð dálítið undrandi að lesa um álit Jórunnar Frímannsdóttur á sorphirðunni hjá Reykjavíkurborg í 24 stundum þann 21. ágúst.
Meira
Bókabúðin Skuld var stofnuð í sumar. Hún hefur selt mikið af viðskiptabókum í fjármálakreppunni. Eigandinn segir að fólk þyrsti í fróðleik um fjármál ekki síst...
Meira
Dagbækur Matthíasar eru um margt mikil skemmtilesning þó það hafi eflaust ekki verið ætlun hans, enda fv. ritstjóri Moggans. Ein fyndnasta færslan er þegar framsóknarmaðurinn Helgi S. Guðmundsson, fv.
Meira
Undanfarin ár hefur fjöldi ófreskra Dana snarhækkað. Nú eru starfandi 25 dulskyggniskólar í landinu, en aðeins einn slíkur var þar fyrir áratug. Steen Landsy, forstöðumaður Kosmos Center í Kaupmannahöfn, óttast að réttindalausir stundi skyggnilýsingar.
Meira
Dádýralæri með gulrófupressu, aspas, kantarellu og klettasalati. Fyrir fjóra. Hráefni í gulrófupressu: 4 meðalstórar gulrófur 2 bökunarkartöflur 200 g smjör 100 g rifinn parmesan salt og pipar Aðferð: Skerið rófurnar og kartöflurnar í ca.
Meira
Þeir sem hafa komið niður að Tjörninni í Reykjavík ættu að kannast við stokköndina en hún er stundum kölluð grænhöfðaönd. Það er af því að karlöndin, eða blikinn eins og hann er kallaður, er með grænt höfuð.
Meira
Söngkonan Gwen Stefani og maður hennar, Gavin Rossdale, eignuðust sitt annað barn á fimmtudaginn. Parið eignaðist strák og hefur hann verið skírður hinu hljómfagra nafni Zuma Nesta Rock.
Meira
Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins hefur skýrt mér og formönnum kjördæmafélaga Frjálslyndra í Reykjavík frá því, að hann hafi aldrei gefið Ólafi F.
Meira
Ekki bara ástarbréf „Ég er aðallega í öðru en ástarbréfum en ég fagna þeim ef þau koma,“ segir Davíð Stefánsson en hann opnaði Yddarann nýlega, fyrirtæki sem sérhæfir sig í að lesa yfir allan texta, hvort sem um er að ræða heimasíðutexta,...
Meira
Minnimáttarkennd hefur alla tíð verið aðalsmerki íslensku þjóðarinnar. Við höfum fram til þessa verið of meðvituð um okkar eigin smæð og notað hana sem afsökun fyrir öllum okkar mistökum.
Meira
Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Meðalaldur Evrópubúa hækkar stöðugt og þeir eignast ekki nógu mörg börn til að viðhalda íbúafjölda álfunnar.
Meira
Íslenska landsliðið í handknattleik skrifað nafn sitt í sögubækur íslenskrar íþróttasögu í gær með því að tryggja sér sigur í undanúrslitaleiknum gegn Spánverjum, 36:30, og leikur liðið til úrslita um gullverðlaunin gegn Frökkum á morgun, sunnudag.
Meira
Í hittiðfyrradag hringdi Óskar Bergsson í Guðlaug G. Sverrisson. „Sæll Gulli...“. „Já, blessaður Óskar. Hvernig gengur að koma saman nýja meirihlutanum?“ „Mjög vel, mjög vel.
Meira
Demókratinn Barack Obama hefur tilkynnt að hann hafi ákveðið hver verði varaforsetaefni hans í bandarísku forsetakosningunum. Nafnið vill Obama þó ekki gefa upp.
Meira
Ofurhetjumyndin Justice League hefur opinberlega verið slegin af hjá Warner Bros. kvikmyndaverinu en í hennar stað hyggst fyrirtækið gera aðrar ofurhetjumyndir og munu fjórar nýjar myndir koma í kvikmyndahús á næstu þremur árum.
Meira
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@24stundir.is „I'm on Facebook er vinælasta bókin í ágúst,“ segir Dögg Hjaltalín sem stofnaði Skuld bókabúð snemma í sumar. Sú bók er leiðarvísir um samfélagsvefinn Facebook sem margir hafa skráð sig á.
Meira
Eftir Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur heiddis@24stundir.is Freyja Haraldsdóttir er nýkomin af ráðstefnu fólks sem á það sameiginlegt að vera með beinstökkvann OI. „Þetta er í þriðja skiptið sem ég fer en þessi ráðstefna er haldin annað hvert ár.
Meira
Snilldar fyrirlestur. Frábært framtak. Tek húfu mína ofan fyrir [Freyju]. Endilega farið ef þið getið komist á fyrirlestur hjá henni! Ég komst að því eftir fyrirlesturinn að ég, 37 ára maðurinn, hef verið í holu. Andlegri holu. [...
Meira
*Vanillusíróp *Eplasíróp *Karamellusíróp *Ananassafi *Raspaður engifer *Vodki Berið drykkinn fram í háu glasi með ísmolum. Fallegt er að nota litríkt blóm til skreytingar. Uppskrift vikunnar er frá veitingastaðnum Fiskmarkaðnum í...
Meira
Ef marka má kosningu í ráð og nefndir á vegum borgarinnar er greinilegt að varaformaður Íslandshreyfingarinnar situr í borgarráði fyrir atbeina Samfylkingarinnar en að vísu á kostnað atkvæða sem greidd voru Frjálslynda flokknum.
Meira
[Freyja] fær mann til að velta fyrir sér hlutunum og lífinu yfirleitt. Við erum alltaf að væla og skæla yfir einhverju smotteríi og það er alltof oft sem við tökum hlutunum sem sjálfsögðum.
Meira
Rokkaði barnaníðingurinn Gary Glitter, sem slapp nýlega úr víetnömsku fangelsi eftir þriggja ára vist, sneri heim til Bretlands í gær eftir að tilraunir hans til að fá hæli í Asíu mistókust.
Meira
Fréttin um að Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, væri of gamall til að taka lán í sínum eigin banka, Ikano-bankanum, sætti mikilli gagnrýni í Svíþjóð, einkum landssamtaka eldri borgara þar í landi.
Meira
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í tólfta sinn í dag. Skúli Gautason, viðburðafulltrúi á Höfuðborgarstofu, hefur varið undanförnum vikum og mánuðum í undirbúning og hlakkar mikið til hátíðarinnar.
Meira
Leikkonan Scarlett Johansson hefur tilkynnt unnusta sínum, Ryan Reynolds, að ekkert verði af brúðkaupi þeirra fyrr en tvíburabróður hennar hefur tíma til þess að mæta. Hann er að vinna fyrir Barack Obama og því...
Meira
Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur heitir á starfsfólk bæjarins til stuðnings Barnaspítala Hringsins. Áheitið nemur 500 krónum á hvern hlaupinn kílómetra á hvern starfsmann.
Meira
Vegna þess að þak þingsals Evrópuþingsins í Strasbourg hrundi 7. ágúst mun þingið funda í Brussel í næsta mánuði. Lög Evrópusambandsins kveða á um að þingið þurfi að funda tólf sinnum á ári í Strasbourg.
Meira
Iðnaðarnefnd Alþingis hélt sérstakan fund um málefni sparisjóðanna að beiðni Höskuldar Þórhallssonar, alþingismanns og fulltrúa Framsóknarflokksins, í gær Höskuldur segir að miklar áhyggjur af framtíð sparisjóðanna hafi komið fram á fundinum og að einn...
Meira
Ísland spilar um gullið á Ólympíuleikunum í handbolta. . Langþráður draumur er orðinn að veruleika og íslenska þjóðin er að springa úr stolti yfir „strákunum sínum“.
Meira
Hanna Birna og harmóníkan „Ætli maður tæki ekki frekar með trommuheila og synthesizer til að „hanna“ viðeigandi undirleik fyrir hana,“ segir Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri.
Meira
Flókin angan í grunninum með áberandi sólberja-, bláberja- og brómberjasultu. Vottur af pipar, lakkrís og kakó ásamt vægum ilmi af vindlakassa sem læðist á bak við. Rúnnað og mjúkt. Í munni finnast sömu þroskuðu ávextir og í nefi.
Meira
Summit Entertainment hyggst endurgera hina klassísku bardagamynd Highlander. Hin upprunalega Highlander-mynd kom út árið 1986 en síðan þá hafa verið gefnar út nokkrar arfaslakar framhaldsmyndir og enn verri sjónvarpsþættir.
Meira
Heilarviðskipti í Kauphöllinni á Íslandi námu liðlega 29 milljörðum króna í gær. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir um 2 milljarða og með skuldabréf fyrir rúmlega 27 milljarða.
Meira
Gorée-eyja, undan ströndum Senegals, var sett á heimsminjaskrá UNESCO 1978, en á eyjunni er safn til minningar um þá þræla sem voru fluttir hlekkjaðir í þrælaskipum, vestur um haf til að vinna á plantekrum hvítra landnema.
Meira
„Ég geng alltaf í háhæluðum skóm, sama hvað á dynur,“ segir Björk Viggósdóttir listamaður um skótauið og tískuna í vetur. Sara María Skúladóttir segist hins vegar ekki geta hugsað sér að pína sig í háu hælana í slabbinu.
Meira
„Ég er í Kaupmannahöfn og ætla að skella mér í leikhús á maraþonleiksýningu með Signe Sörensen.“ Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona. „Ég verð veislustjóri í afmæli á Nasa og fer líklega á Sálarballið þar.
Meira
Kópavogsbær tilkynnti í gær um að meirihluti leikskólabarna á Hvarfi fái fulla strax fulla vistun á ný. Liðlega 70% barna hafa því fulla vistun frá mánudegi, en 35 börn þurfa að bíða eftir fullri vistun.
Meira
Forréttur Georgs er hörpuskel en hann ber hana fram með paprikukexi og paprikumauki sem sósu. Hráefni í paprikumauk: 270 g grilluð paprika í dós 1\2 tsk. reykt paprikuduft 20 g smjör 2 tsk.
Meira
Kátt í höllinni „Þegar forsetinn skorar á þjóðina þá verður stærsta útvarpsstöð landsins að bregðast við,“ segir Jóhann Örn Ólafsson , kynningarstjóri útvarpssviðs hjá 365 miðlum, en Bylgjan og Vodafone hyggjast bjóða landsmönnum í Vodafone...
Meira
Á vefsíðunni www.JobInterviewQuestions.org má finna allar nauðsynlegar upplýsingar um það hvernig mestum árangri má ná í atvinnuviðtali. Hvort sem þú ert atvinnurekandi eða umsækjandi.
Meira
Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á Kellogg's Bran Flakes, 500 g pakka. Lægsta verðið reyndist vera í Nettó en það hæsta í 10-11 og Hagkaupum og var verðmunur 63,5%.
Meira
Mikil handboltaáhrif urðu á gjaldeyrismarkaðinn í gær, meðan á landsleik Íslendinga og Spánverja stóð. Nánast engin viðskipti voru með krónuna í leiknum. Gengisvísitalan tók aðeins við sér í hálfleik en hélst óbreytt í síðari hálfleik.
Meira
Vegir eru óskiljanlegir og langt síðan við mannanna börn sættum okkur við það. Hitt er nýtt að hafa yfir okkur veraldlega landsfeður sem ganga óskiljanlega vegi.
Meira
Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@24stundir.is Þær voru allar metsölumyndir á sínum tíma og fólk þyrptist á þær. Sumar fengu slæma dóma en aðrar þóttu tímamótamyndir og voru jafnvel tilnefndar til Óskarsverðlauna.
Meira
Hvernig er hausttískan í ár? Hausttískan er mjög flott og efnin falleg; ull, silki, bómull, ísaumuð og „art print“ í bland við skinn. Brúni og grái liturinn eru að detta inn aftur en svart er þó alltaf áberandi.
Meira
Leikfélag Akureyrar reiknar með því að nýtt met verði slegið í kortasölu þar í vetur. Eins og sunnan heiða fór salan hratt af stað og streymdi fólk í miðasöluna til að kaupa sér áskrift.
Meira
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur hafa lagt fram nýjan málefnasamning. Hann byggir að hluta til á þeim samningi sem flokkarnir gerðu að loknum kosningum sumarið 2006. Í millitíðinni gerðu sjálfstæðismenn málefnasamning við F-lista.
Meira
Málefni sem voru í málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og F-lista en eru ekki í málefnasamningum sjálfstæðismanna og Framsóknarflokks: Málefnasamningur F-lista og Sjálfstæðisflokks 21.
Meira
Freyja Haraldsdóttir er meiriháttar fyrirlesari! [...] Mér finnst köllun hennar í lífinu alveg yndisleg og hún er brautryðjandi á sviði þjónustu fyrir fatlaða. En að þetta séu ekki almenn mannréttindi, það skil ég ekki.
Meira
Umrótið í stjórn Reykjavíkurborgar á kjörtímabilinu hefur valdið því að ekki hefur verið hægt að ganga frá samningum borgarfyrirtækja og einkaaðila.
Meira
Til stóð að Orkuveitan keypti lóð Osta- og smjörsölunnar í tíð 100 daga meirihlutans. Ganga átti frá því á þriðjudegi en meirihlutinn sprakk á mánudegi og ekki varð af...
Meira
Kryddpían Mel C, er fékk viðurnefnið Sporty Spice þegar stúlknasveitin var í efstu sætum vinsældalista heims, er ófrísk að sínu fyrsta barni. Hún og kærasti hennar, Thomas Starr, tilkynntu gleðitíðindin á heimasíðu söngkonunnar.
Meira
„Það er kannski ekki eðlilegt að 22 ára manneskja hafi þurft að fara að sofa klukkan hálfellefu,“ segir Freyja Haraldsdóttir en hún var gúgluð af 24...
Meira
„Milljónir einstaklinga búa enn við aðstæður sem minna á þrælahald, segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty. „Þetta er staðreynd þó að það sé algjörlega viðurkennt að þrælahald eigi ekki að líðast.
Meira
Hvernig er hausttískan í ár? Ég kaupi mér ekki flíkur út frá tískunni hverju sinni, heldur er haustið ávallt tilfinning fyrir mér. Það byrjar að kólna, laufin falla og umhverfið verður mjúkt og rómantískt.
Meira
Þegar Najat Hadi kom heim til Ítalíu úr fríi í Egyptalandi, þangað sem hún fór með börnin sín fjögur til að heimsækja tengdafjölskylduna, var kona sem var 10 árum yngri en hún komin í íbúð fjölskyldunnar í Róm.
Meira
Og enn og aftur að handbolta. Aðstandendur tónleika Rásar 2 á Miklatúni íhuga nú að sýna úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum á risatjaldinu er verður staðsett við hlið sviðsins í kvöld.
Meira
Og meira um handboltann, því Adolf Ingi Erlingsson íþróttafréttamaður hjá RÚV skemmti áhorfendum sjónvarpsins mikið með lýsingu sinni, sérstaklega þegar hann var ekki að reyna það.
Meira
Orð Dorrit Moussaieff: „Ísland er stórasta land í heimi,“ er hún lét falla fyrir aftan eiginmann sinn sem var í viðtali eftir handboltaleikinn í gær urðu strax að klassík á meðal bloggara landsins.
Meira
Ólafía Hrönn Jónsdóttir er án efa ein fyndnasta leikkonan sem hreppt hefur Grímuverðlaunin. Ólafía segir okkur hvað hún les, hlustar á og horfir á þessa dagana. Hvaða bók er á náttborðinu? Hefurðu séð huldufólk? eftir Unni Jökulsdóttur.
Meira
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur ákveðið að taka mál Pauls Ramses til efnislegrar meðferðar hér á landi. Byggir sú ákvörðun á nýjum upplýsingum um mál Ramses.
Meira
Foreldrar barnanna í leikskólanum Hvarfi í Kópavogi fengu að vita með viku fyrirvara að börnin þeirra fengju ekki fulla dagvistun. Foreldrarnir sögðu fyrirvarann á þjónustuskerðingunni of lítinn.
Meira
„Það er alveg ljóst að við Íslendingar áttum okkur ekki á hvað þetta tímabil ristir djúpt í sál margra Afríkumanna,“ segir Stefán Jón Hafstein, umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví.
Meira
27. mars 2007 Reykjavik Energy Invest stofnað. Guðlaugur Þór Þórðarson er stjórnarformaður OR. Júní Haukur Leósson tekur við sem stjórnarformaður OR. 11-14. ágúst Haukur, Guðlaugur, Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Þ.
Meira
Georg notar sorbet-ís með grænu tei, mangó- og hindberjabragði sem hann fær í Sandholtsbakaríi. Kampavíns- og brómberjafroða 100 g fersk brómber 2 tsk.
Meira
Ábyrgð á leikskóla með hundrað smábörnum er trúlega ein sú mesta sem hægt er að taka á sig í íslensku atvinnulífi. Flestir þekkja hvernig hún er metin til launa; ekki vel, en að því er sumum finnst, þolanlega miðað við önnur umönnunarstörf.
Meira
Hvernig er hausttískan í ár? Svartur kemur sterkur inn; alls konar svört efni með mismunandi áferð, ásamt leðri og leðuráferð. Grátt verður áberandi, auk blárra og fjólublárra tóna og pastellita. Köflótt verður heitt.
Meira
„Þetta var alveg meiriháttar og stórkostleg stund í íslenskri íþróttasögu,“ segir fjölmiðlamaðurinn Hemmi Gunn, sem ásamt félögum sínum, horfði á leikinn í gær.
Meira
Arnar Grétarsson, gítarleikari Sign, gerði sér lítið fyrir og berháttaði á tónleikum sveitarinnar á Gay pride- hátíð breska bæjarins Doncaster. Hann fór þó ekki úr...
Meira
stutt Leiðrétt Í skýringarmynd um skiptingu embætta og skipan í helstu ráð og nefndir Reykjavíkurborgar á blaðsíðu 8 í 24 stundum í gær urðu þau leiðu mistök að nöfn fráfarandi fulltrúa í menntaráði voru birt.
Meira
STUTT Létust Rúmenarnir tveir, sem létust í vinnuslysi við Hellisheiðarvirkjun á miðvikudagskvöld, hétu Ion Neculai, fæddur 5. október 1962, og Costel Suicu, fæddur 3. ágúst 1975. Ion lætur eftir sig eiginkonu og 14 ára dóttur.
Meira
Stutt SMS bannað Þing Kaliforníufylkis hefur samþykkt reglur sem banna ökumönnum að senda smáskilaboð í farsímum sínum undir stýri. Bannið bíður þess nú að ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger fullgildi það.
Meira
Lögmaður Alþjóðahúss segir það alvarlegt þegar sýslumenn útvegi ekki túlkaþjónustu þegar á þarf að halda. „Allir aðilar máls verða að skilja það sem skrifað er undir,“ segir...
Meira
Jamie Lynn Spears segist vilja yfirgefa smábæinn Liberty í Mississippi, flytja inn til stóru systur, Britney Spears, í Los Angeles, og reyna að endurvekja sjónvarpsferilinn.
Meira
Hægt vaxandi sunnanátt 8-13 metrar og talsverð rigning, fyrst en síðan rigning með köflum á Suður- og Vesturlandi. Á morgun birtir til á Norðausturlandi, hiti verður allt að 18 stigum, hlýjast...
Meira
Átökin í Kákasus hafa skelft helming Þjóðverja samkvæmt könnun sem gerð var fyrir morgunþátt sjónvarpsstöðvarinnar ARD. Helmingur aðspurðra sagðist hafa nokkrar eða talsverðar áhyggjur af því að stefndi í kalt stríð á milli Rússlands og Vesturlanda.
Meira
Hvernig er hausttískan í ár? Jakkaföt eru með þrengra sniði en áður og mikið um aðskorna jakka í 60's-stíl. Buxur eru styttri og mjórri og úr svolítið gamaldags efnum. Það verður ekki mikil litadýrð í haust, heldur verða dempaðri litir áberandi.
Meira
Jarðarbúar minnast í dag þrælasölu fyrri alda og afnáms hennar. Þrælasalan og þrælahaldið er svartur blettur í sögu hvíta mannsins og verður seint afmáður. Margir Afríkumenn telja hann hafa sýnt slíkt eðli og slíkan yfirgang að það sé vart fyrirgefanlegt.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.