KARLAKÓR Selfoss mun næstkomandi sunnudag halda sína árlegu jólatónleika í Úthlíðarkirkju kl. 20 auk nokkura tónlistaratriða frá Tónlistarskóla Árnessýslu. Einnig mun Kristinn Ólafsson, rektor Skálholtsskóla, flytja jólahugvekju. Hinn 27. desember kl.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is UMFJÖLLUN um Evrópusambandið (ESB) tók mikinn kipp þegar Sjálfstæðisflokkurinn tilkynnti að skipuð yrði Evrópunefnd innan flokksins og að landsfundi yrði flýtt.
Meira
AFSTAÐA Íslendinga til innflytjenda hefur orðið neikvæðari á síðustu árum á sama tíma og innflytjendum hefur fjölgað á Íslandi. Í öðru lagi hafa Íslendingar almennt jákvæða afstöðu til innflytjenda samanborið við aðrar þjóðir.
Meira
RÚMLEGA sextugur karlmaður lést í umferðarslysi skammt frá bænum Gautavík í norðanverðum Berufirði í fyrrinótt. Bíll hans fór út af veginum og hafnaði ofan í farvegi Búðaár. Hálka mun hafa verið á veginum.
Meira
HANN er vel birgur af böngsum þessi kaupmaður í Manila á Filippseyjum en óhætt er að segja, að þar séu jólin mesta hátíð ársins. Er hún hvergi meiri og lengri í allri samanlagðri kristni og strax í september má heyra jólasálmana sungna.
Meira
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is TVEIR fulltrúar atvinnubílstjóra áttu í gær fund með forstjóra Lýsingar vegna óánægju bílstjóra með innheimtuaðgerðir fyrirtækisins. Er Lýsing m.a.
Meira
FYRRVERANDI sveitarstjóri í Grímsey var í gær dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir umboðssvik og fjárdrátt í opinberu starfi.
Meira
STJÓRN Samtaka fiskvinnslustöðva hefur samþykkt áskorun á stjórnvöld að kanna nú þegar kosti þess að taka einhliða upp annan gjaldmiðil í stað krónunnar.
Meira
KOMIÐ hefur í ljós, að elsta hús í Noregi að kirkjum undanskildum er 840 ára, reist um 1170. Er um að ræða svokallað loft, sem notað var til að geyma lín.
Meira
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is FRESTA hefur þurft endurþjálfun fjögurra flugmanna hjá Landhelgisgæslunni fram yfir áramót vegna niðurskurðar þar.
Meira
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is FJÓRAR af fimm séreignaleiðum Stafa lífeyrissjóðs báru neikvæða ávöxtun frá áramótum og út október.
Meira
GÖMLU ljósaperurnar verða bannaðar í öllum Evrópusambandsríkjunum í áföngum og var jafnvel búist við tilkynningu um það í gær. Í þeirra stað koma sparperur, sem nota aðeins lítið brot af þeirri orku, sem gömlu perurnar gleypa.
Meira
SÆNSKIR jafnaðarmenn hafa í fyrsta sinn samþykkt að eiga formlegt samstarf við hina stjónarandstöðuflokkana, Vinstriflokkinn og Græningja, og stefna að samstjórn þeirra eftir kosningarnar 2010.
Meira
MYNDIR frá flugdögum, umdeildri loftrýmisgæslu Frakka og loftvarnaæfingunni Norður-Víkingur eru meðal þess sem er að finna í nýútkominni flugvélamyndabók Baldurs Sveinssonar.
Meira
„VERÐI farið í viðræður um aðild að ESB gerir 26. þing Sjómannasambands Íslands þá kröfu að skilyrt verði að Ísland hafi fullt forræði yfir auðlindunum og fullt samningsumboð varðandi deilistofna.
Meira
OLLI Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála í Evrópusambandinu, flytur fyrirlestur í gegnum fjarfundabúnað í Háskólanum í Reykjavík á morgun, miðvikudag. Fyrirlesturinn er á vegum fastanefndar ESB og verður varpað beint stofu 201 HR. Hefst hann kl.
Meira
ÍSLAND kemur nú sökum gengisþróunar yfirleitt mjög vel út í verðsamanburði við önnur lönd, líkt og dæmi mátti sjá um nýlega frá Samorku sem athugaði verð á rafmagni á Norðurlöndunum.
Meira
EKKI varð fjármagnsflótti frá Ekvador þegar landið tók einhliða upp dollarann árið 2000. Þvert á móti tók fólk fljótt við sér og lagði tvo og hálfan milljarð dollara inn í bankana innan tveggja ára. Það sem mestu skipti var að gengisáhættu var eytt.
Meira
RANGLEGA sagði í frétt í blaðinu sl. föstudag um nýjan tónlistardisk sem miðar að því að kenna lestur að öll leikskólabörn fengju diskinn að gjöf. Hið rétta er að allir leikskólar landsins fá þessa tónlistargjöf. Beðist er velvirðingar á þessu.
Meira
GRUNUR leikur á að salmonellusmit hafi komið upp í ferskum kjúklingi frá Matfugli ehf. Samkvæmt tilkynningu frá Matfugli er um að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu (Rlnr.) 011-08-44-5-33. Dreifing á vörunni hefur verið stöðvuð.
Meira
SJÖ voru handteknir eftir að um þrjátíu manns ruddust inn í Alþingishúsið í gær og vildu á þingpalla. Hópurinn kallar sig Aðgerð Aðgerð og tilgangurinn var að stöðva starfsemi þingsins en mótmælendurnir vilja ríkisstjórnina burt.
Meira
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is LANDSSJÚKRAHÚSIÐ í Færeyjum kannar nú möguleika á að senda færeyska sjúklinga í auknum mæli í meðferð til Íslands.
Meira
FENGUR hf., eignarhaldsfélag í eigu Pálma Haraldssonar, hefur ekki skilað ársreikningi til ársreikningaskrár frá árinu 2004 og hið sama á við um Ísland Express ehf. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein Páls Ásgrímssonar í dag.
Meira
Fámennt Forystumönnum verkalýðs og lífeyrissjóða var boðið í Háskólabíó í gærkvöld, auk ráðherra viðskipta og félagsmála. Aðrir ráðherrar og þingmenn voru jafnframt hvattir til að mæta.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson og Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur KRÓNAN heldur enn áfram að styrkjast eins og hún hefur gert frá því millibankamarkaður með gjaldeyri hófst síðastliðinn fimmtudag.
Meira
TEIKNING að löngu týndum leikfangatraktor dúkkaði upp við vinnslu bókar um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur vinnur ásamt öðrum að bókinni, en traktorinn fékk Vilhjálmur Már, sonur Manfreðs, í afmælisgjöf 1962.
Meira
SÍFELLT fleiri nýta sér frétta- og efnisstrauma mbl.is (RSS) eftir gagngerar endurbætur á þjónustunni. Í síðustu viku bættust við 18.690 skráningar. Þeir fréttastraumar sem flestir skrá sig fyrir eru innlendar fréttir með 6.
Meira
RÚMUR helmingur svarenda í nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna ehf. (MMR) telur að mótmæla- og borgarafundir endurspegli viðhorf þjóðarinnar. Könnunin var gerð 2.-5. desember. Alls svöruðu 2.464 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára könnuninni.
Meira
FÓLK hefur minnkað það umtalsvert að horfa á fréttir sjónvarpsstöðvanna ef marka má vikulegar mælingar Capacent Gallup. Þannig horfðu 23,7% á fréttir Sjónvarpsins í vikunni 24. til 30. nóvember en 29% í vikunni á undan og 32,3% í vikunni 27. okt. til 2.
Meira
SEBASTIAN Homuth, meistaranemi í vistvænni orkunýtingu frá RES-Orkuskólanum hlaut á dögunum fyrstu verðlaun ungra vísindamanna á alþjóðlegri ráðstefnu þýska jarðhitasambandsins. Við RES stunda nú rúmlega þrjátíu nemendur meistaranám frá tíu löndum.
Meira
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is HJÓNIN Sverrir Berg Steinarsson og Ragnhildur Anna Jónsdóttir eru aftur orðin eigendur að verslununum Next og Noa Noa í Kringlunni.
Meira
Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is BARACK Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur greint frá því að nokkru leyti hvernig hann hyggst fjölga störfum um 2,5 milljónir til 2011.
Meira
LJÓST er, að eitrunin í írsku svínakjöti stafar af því, að olía komst í fóðrið, sem svínin voru alin á. Hugsanlega verður að slátra og eyða 100.000 grísum af þessum sökum.
Meira
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is MIKILL hiti var í fundargestum og augljós reiði í garð stjórnvalda sem og verkalýðsforystunnar á borgarafundi sem haldinn var í Háskólabíói í gærkvöldi. Um 700 manns sóttu fundinn, skv.
Meira
SAMVERA á aðventu fyrir syrgjendur verður í Grensáskirkju 11. desember kl. 20. Þegar ástvinur hefur nýlega fallið frá getur verið erfitt að horfa fram til jóla og undirbúa þau og vita að einn mun vanta í hópinn.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME) hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekkert bendi til annars en að Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis, og félag hennar Melkorka ehf.
Meira
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is MIKLAR annir hafa verið hjá ríkissáttasemjara undanfarnar vikur og stórir hópar hafa gengið frá samningum.
Meira
JÓLALJÓSUNUM fjölgar dag frá degi. Þau eru kærkomin í svartasta skammdeginu og minna á að jólin eru hátíð ljóssins. Skömmu fyrir jól eru vetrarsólstöður. Þá nær skammdegið hámarki áður en daginn tekur aftur að lengja.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is ATVINNULEYSI hefur þrefaldast á Suðurnesjum á þremur mánuðum. Er það sem fyrr hlutafallslega mest á landinu, nú tvöfalt meira en á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
TALSVERT hefur snjóað á skíðasvæðunum í Bláfjöllum og Skálafelli, allra síðustu daga og var byrjað að troða skíðabrekkur í gær. Spáð er úrkomu í þessari viku og binda menn vonir við að hægt verði að opna um næstu helgi.
Meira
BSRB varar við einhliða launalækkunum og vill að vísitölugrunnur lána verði endurskoðaður. Þetta kemur fram í tveimur ályktunum frá framhaldsaðalfundi BSRB sem haldinn var í gærmorgun.
Meira
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is HOLLENSK yfirvöld vildu samkvæmt heimildum Morgunblaðsins að Landsbankinn hætti að safna innlánum í gegnum Icesave-reikninga sína þar í landi í ágúst. Þá nam heildarupphæð innlánanna um 1.150 milljónum evra.
Meira
SKATTAYFIRVÖLD á Íslandi leita nú leiða til þess að fá upplýsingar um viðskipti dótturfélaga íslensku bankanna í Lúxemborg í kjölfar eigendaskipta á bönkunum. „Vegna bankaleyndar í Lúxemborg höfum við ekki getað fengið aðgang að þessum...
Meira
ÝSA sem fékkst í ferð skólaskipsins Drafnar skammt frá Reykjavík í síðustu viku reyndist sýkt af sama sníkjudýri og lagst hefur á síld víða við land.
Meira
Launin lækkuð Stjórnarflokkarnir afgreiddu á fundum sínum í gær frumvarp um breytingar á kjörum alþingismanna og ráðherra . Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður veitt svigrúm til að lækka umrædd laun um 5-15%.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is KAUPMÁTTUR launa hefur minnkað verulega á árinu og er nú svipaður og fyrir þremur árum, eða undir lok árs 2005.
Meira
Alþingi er friðheilagt. Enginn má raska friði þess né frelsi. Þannig hljóðar 36. grein stjórnarskrárinnar, ef einhver skyldi hafa gleymt því. Fólkið, sem í gær hafði uppi ólæti og ofbeldi í Alþingishúsinu, braut bæði stjórnarskrána og lög um fundarfrið.
Meira
Stundum er haft á orði að það sé með miklum ólíkindum hversu víða Íslendingar rata og þá sé að finna í nánast öllum heimshornum. Íslendingar hafa löngum leitað í nám og störf erlendis og ekkert sem bendir til að þar verði breyting á.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG hef sjaldan fengið eins mikið af tölvupósti, sms-um, símtölum og öðrum viðbrögðum eftir eina tónleika.
Meira
BANDARÍSKI stjörnuleikarinn Robert De Niro hefur hótað 13 ára sonum sínum, tvíburunum Aaron og Julian, og hinum tíu ára Elliott, að ef þeir hagi sér illa og hlýði sér ekki, þá sýni hann þeim þrillerinn Cape Fear sem hann lék í árið 1991.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is FLAKKARAR tveir eru lagðir af stað í langferð. Þeir bönkuðu upp á í Grandaskóla í gærmorgun, og sitja þar, uns flakkið togar í þá á ný á vit nýrri staða og annarra barna.
Meira
BRESKI leikarinn og fyrrverandi knattspyrnuhetjan Vinnie Jones gæti átt yfir höfði sér eins árs fangelsi verði hann fundinn sekur um líkamsárás vegna slagsmála sem hann tók þátt í á bar í Sioux Falls í Suður-Dakóta í síðustu viku.
Meira
* Fjöldi fólks úr listageiranum sótti veislu austurrísku barónessunnar Francescu von Habsburg sem hún hélt í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi á laugardag.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „MÉR fannst bara kominn tími til að gera þetta. Verða ekki allir söngvarar landsins að fara í gegnum þetta?
Meira
BANDARÍKJAMENN virðast komnir í meira jólaskap en Íslendingar, að minnsta kosti ef miða má við tekjuhæstu myndirnar í kvikmyndahúsum landanna um helgina.
Meira
Á forsíðu vefjar Ríkisútvarpsins, ruv.is, hefur undanfarnar vikur blasað við vefförum flennistór fyrirsögn: KREPPAN. Sé smellt á tengilinn má lesa umfjöllun Ríkisútvarpsins um íslenska efnhagshrunið.
Meira
KVIKMYNDIR Little Buddha í leikstjórn Bernardo Bertolucci er sýnd í Kvikmyndasafni Íslands í kvöld, þriðjudag, klukkan 20.00 og á laugardaginn 13. desember klukkan 16.00. Little Buddha er jólamynd safnsins og er sýnd með íslenskum texta.
Meira
AÐVENTUTÓNLEIKAR Söngsveitarinnar Fílharmóníu sem bera yfirskriftina Með gleðiraust og helgum hljóm verða haldnir í Langholtskirkju annað kvöld og föstudagskvöld kl. 20.
Meira
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Nú þegar þjóðin á að taka á sig stórauknar byrðar, er fróðlegt að sjá að menn hafa áður rogast með þunga bagga hér á landi – og jafnvel staðið stóískir á svip undir þeim.
Meira
Pistill síðastliðinn föstudag um það hvort ekki væri kominn tími til að efna til íslenskra tónlistar- og bókmenntaverðlauna sem væru óháð markaðsöflunum varð Jakobi Frímanni Magnússyni tilefni til greinarskrifa sem birtust hér í Morgunblaðinu sl.
Meira
KRISTÍN Loftsdóttir mannfræðingur flytur í hádeginu í dag, þriðjudag, fyrirlesturinn Framandi trú og kristnar rætur Íslands: Óttinn við að glata íslenskri menningu í fjölmenningarlegu samfélagi .
Meira
Í UMFJÖLLUN breska blaðsins Sunday Times um helgina um loðfeldi, kosti þeirra og áróðurinn gegn þeim, lýsir blaðamaðurinn yfir hrifningu á framleiðslu Eggerts feldskera við Skólavörðustíg.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „ÞETTA er einhvers konar árás, já,“ segir pollrólegur Haukur S. Magnússon, gítarleikari Reykjavík!. „Það er engu eirt...“ Haukur er að tala um nýja plötu Reykjavík!
Meira
* Í aðdraganda Íslensku tónlistarverðlaunanna finna menn fyrir auknum titringi innan tónlistargeirans og þá sérstaklega undan átökum sem eiga sér stað milli minni útgáfufyrirtækja og þeirra stærri sem virðast ekki vera sammála um nokkur veigamikil...
Meira
Heiðar M. Guðjónsson og Ársæll Valfells svara leiðara Morgunblaðsins: "Á að taka áhættu með heila þjóðarframleiðslu til þess eins að lengja lífdaga krónunnar?"
Meira
Baldur Kristjánsson | 8. des. Sama gamla heystæðan! Það skelfilegasta sem maður heyrði í Silfrinu í gær var frá Jóni Steinssyni að gamla eignakompaníið væri að vinna að því leynt og ljóst innan banka sem utan að eignast þetta allt saman aftur.
Meira
Dofri Hermannsson | 8. des. Hver er ábyrgð lánastofnana? Getur einhver lögfróður aðili upplýst mig um hvaða skilyrði eru að baki almennum bílalánum. Segjum að lánafyrirtækin hafi veitt fólki 80-100% lán í erlendri mynt til bílakaupa.
Meira
Einar Sveinbjörnsson | 8. des. Svifrykið: Athyglisverð niðurstaða þýskrar rannsóknar Niðurstöður rannsóknar sem náði til fjögurra borga í suðvesturhluta Þýskalands er athyglisverð.
Meira
Páll Ásgrímsson vekur athygli á vanskilum á ársreikningum til Ársreikningaskrár: "Hann á nefnilega einnig eignarhaldsfélagið Feng hf. Það félag hefur ekki skilað ársreikningi til Ársreikningaskrár síðan fyrir reikningsárið 2004. Sama gildir um Ísland Express ehf."
Meira
Ari Kr. Sæmundsen skrifar um alþingismenn og forystumenn þjóðarinnar: "Hégómi og vegtyllur víkja fyrir heilbrigðri skynsemi og menn taka að sér verkefni sem þeir ráða ekki við."
Meira
Gylfi Blöndal gerir athugasemdir við skrif Jakobs Frímanns Magnússonar um Kimi Records: "Ekki er annað að sjá en að Jakob hafi reynt að blekkja lesendur...eitt símtal eða heimsókn á veraldarvefinn hefði hæglega leiðrétt þennan misskilning..."
Meira
Svavar Pétur Eysteinsson svarar grein Jakobs Frímanns Magnússonar: "Þessi lítillækkun hefur aðeins orðið til að styrkja afstöðu mína til Íslensku tónlistarverðlaunanna."
Meira
Eftir Sigurð Ingólfsson og Guðrúnu Johnsen: "Ríkir almannahagsmunir lúta að því að draga eins og hægt er úr þeirri vá sem samfélaginu stafar af gjaldþrotum og húsnæðismissi fjölskyldna."
Meira
Ósanngirnin sem felst í stórauknum ríkisstyrkjum og verulegum takmörkunum á frjálsum framlögum til stjórnmálasamtaka er augljós við núverandi aðstæður. Pólitískar grasrótarhreyfingar spretta upp og fólk krefst kosninga sem fyrst.
Meira
Frá Bolla Héðinssyni: "GÖRAN Persson, sem var lengi forsætisráðherra og þar áður fjármálaráðherra í Svíþjóð er sannur Íslandsvinur eins og þeir gerast bestir."
Meira
ÞAÐ var átakanlegt að frétta af því á dögunum að breskur námsmaður hefði harðneitað að leigja með íslenskum kollega sínum vegna atburða síðustu daga. Þýsk móðir Íslendingsins hafði einmitt orðið fyrir svipuðum viðhorfum á eftirstríðsárunum.
Meira
ÞEGAR horft er um öxl má flestum vera það ljóst að hagstjórn á Íslandi hefur verið arfavitlaus. Forsætisráðherra Geir Haarde virðist hafa aðhyllst hagstjórnarstefnu í líkingu við „laissez-faire“ eða aðgerðaleysi.
Meira
Björn Björnsson fæddist í Hamborg í Þýskalandi 9. mars 1933. Hann lést á líknardeild Landspítalans 29. nóvember síðastliðinn. Björn var sonur hjónanna Hermínu Sigurgeirsdóttur Kristjánsson, píanókennara, f. 16.3. 1904, d. 26.12.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Þórir Kristjánsson fæddist í Hafnarfirði 9. desember 1963. Hann lést í Reykjavík 9. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Garðakirkju 16. júní.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Matthíasson fæddist í Reykjavík 28. október 1925. Hann lést á heimili sínu 30. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Matthías Lýðsson, f. á Hjallanesi í Landssveit 23. apríl 1891, d. 11. mars 1974 og Kristín Hólmfríður Stefánsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Óskarsson fæddist á Hyrningsstöðum í Reykhólasveit 30. júlí 1918. Hann andaðist á Landspítalanum 30. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sumarliði Óskar Arinbjörnsson, f. 1889, d. 1954 og Guðrún Guðmundsdóttir, f. 1888, d. 1981.
MeiraKaupa minningabók
Málhildur Sigurbjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 24. júlí 1935. Hún lést 29. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Jóhann Guðjónsson, f. í Reykjavík 14.7. 1914, d. 6.7. 1964, og Unnur Dagmar Katrín Rafnsdóttir, f. í Reykjavík 16.9.
MeiraKaupa minningabók
Oddur Gunnarsson fæddist á Dagverðareyri við Eyjafjörð 4. janúar 1943. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 30. nóvember síðastliðinn. Oddur ólst upp á Dagverðareyri og bjó þar alla tíð. Foreldrar hans voru Gunnar Kristjánsson, f. 20.7. 1912, d. 17.11.
MeiraKaupa minningabók
Tómas Þorvaldsson, Gnúpi í Grindavík, fæddist að Eiði í Grindavík 26. desember 1919. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorvaldur Klemensson, bóndi á Járngerðarstöðum í Grindavík, f. 9.12. 1891, d. 9.
MeiraKaupa minningabók
ACTAVIS hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á einni lyfjaverksmiðju fyrirtækisins í Búlgaríu. Um er að ræða minnstu verksmiðju Actavis af þremur í landinu.
Meira
UMBOÐSMAÐUR viðskiptavina Nýja Kaupþings banka hefur það hlutverk að gæta þess að bankinn mismuni ekki viðskiptavinum með óeðlilegum hætti, að ferli við endurskipulagningu fyrirtækja og aðrar mikilvægar ráðstafanir sé gagnsætt og skráð , og að bankinn...
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is EYRIR Invest skilaði 942 milljóna króna hagnaði á fyrstu 10 mánuðum þessa árs. Eigið fé félagsins er rúmlega 30 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall er 40,3%. Frá þessu er greint í tilkynnigu frá félaginu.
Meira
STJÓRN Nýja Kaupþings banka hefur ákveðið að stofna fjárfestingarfélag og fasteignarfélag til að halda utan um eignarhald Kaupþings á eignum sem bankinn kann að eignast á næstu mánuðum vegna erfiðleika í rekstri stærri fyrirtækja sem eru í viðskiptum...
Meira
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is FORSVARSMENN Landsbankans og íslenska fjármálaeftirlitsins (FME) funduðu tvívegis með hollenskum yfirvöldum í ágúst síðastliðnum vegna áhyggna af stærð Icesave-reikninganna í Hollandi.
Meira
Svo virðist sem íbúar Bretlands reiði sigmeira en áður á kynlíf sem ódýra dægradvöl eftir að kreppan hóf innreið sína. Sigrún Haraldsdóttir orti: Það má spara þetta og hitt, þrautum nauðar gleyma, iðki karl og kerling sitt kynlíf saman...
Meira
FULLORÐNUM sem skrifa jólasveininum bréf fjölgar stöðugt, samkvæmt upplýsingum frá póstþjónustunni í Frakklandi. Að vísu skrifa sumir hinna fullorðnu sveinka í gríni og biðja til dæmis um nýja kærustu.
Meira
Saga Hvammstanga , 2. bindi var kynnt í Bókasafni Húnaþings vestra í liðinni viku. Í ritinu er rakin saga Hvammstanga í fimmtíu ár, frá 1938 til 1998, en þá sameinuðust öll sveitarfélög í héraðinu undir heitinu Húnaþing vestra.
Meira
Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is Í hræringunum á liðnum vikum hefur fjölmörgum sérfróðum starfskröftum verið sagt upp störfum hjá fyrirtækjum sem standa höllum fæti.
Meira
„Það verður ekki blásið í neina lúðra í dag, en á föstudag hef ég ákveðið að bjóða fjölskyldunni og nánasta vinahóp heim,“ segir Björn Eysteinsson, bankamaður og bridgespilari með meiru, en hann fagnar sextugsafmæli sínu í dag.
Meira
Lengi von á einum. Norður &spade;4 &heart;Á9743 ⋄KD87 &klubs;Á102 Vestur Austur &spade;D9 &spade;KG8765 &heart;DG52 &heart;K108 ⋄942 ⋄G &klubs;DG73 &klubs;K84 Suður &spade;Á1032 &heart;6 ⋄Á10653 &klubs;965 Suður spilar 3G.
Meira
Hlynur Angantýsson og Hermann Friðriksson unnu Íslandsmótið í Butlertvímenningi Íslandsmeistarar síðasta árs, stórmeistararnir Jón og Þorlákur, náðu ekki að verja titil sinn en Hlynur og Hermann gulltryggðu sig í lokaumferð með risaskori, 24 impum.
Meira
Keflavík Brynjar Björn fæddist 12. febrúar kl. 12.28. Hann vó 3.385 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Elísabet Lovísa Björnsdóttir og Einar...
Meira
Reykjavík Embla Sól fæddist 25. júlí kl. 13.18. Hún vó 3.810 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Ellen Heiður Hreinsdóttir og Ingvar Örn...
Meira
Reykjavík Vigdís Rán fæddist 6. janúar kl. 0.00. Hún vó 4.000 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Elfur Erna Harðardóttir og Jón Trausti...
Meira
Knattspyrnan, sú göfuga íþrótt, er kúffull af óvæntum uppákomum. Enda þótt Víkverji hafi fylgst grannt með henni í um þrjá áratugi er hann alltaf að upplifa eitthvað nýtt.
Meira
9. desember 1749 Skúli Magnússon var skipaður landfógeti, fyrstur Íslendinga. Hann gegndi embættinu í 44 ár. 9. desember 1956 Hamrafell, stærsta skip sem Íslendingar höfðu þá eignast, kom til landsins.
Meira
MIKIL óánægja er á meðal HK-fólks vegna þeirra ákvörðunar mótanefndar HSÍ að fresta þremur leikjum Stjörnunnar í N1 deild kvenna sem fram áttu að fara í þessu mánuði vegna þess að Florentina Staciu, markvörður Stjörnunnar, er um þessar mundir í...
Meira
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson trausti@mbl.is LANDSLIÐSKONAN Ásta Árnadóttir, sem leikið hefur með Val frá árinu 2004, skrifar í dag undir samning við sænska fyrstudeildarliðið Tyresö, til eins árs. En hvað kemur til að hún fer í sænsku 1. deildina?
Meira
MARKÚS Máni Michaelsson náði aðeins að svitna í leik Fram og Vals í gær, en hann hefur ekki leikið með liðinu í um eitt og hálft ár sökum anna í vinnu. Hann komst þó ekki á blað í leiknum, þrátt fyrir nokkrar tilraunir.
Meira
BJÖRNINN vann seinni viðureign sína við Skautafélag Akureyrar (SA) á skautasvellinu í Egilshöll á laugardaginn, 2:1, á Íslandsmótinu í íshokkíi kvenna. Sigurinn var nokkur sárabót fyrir tapið í fyrri leik liðanna á sama stað á föstudag, 3:4.
Meira
„JÁ, hún fer heim til Austurríkis um helgina og það er mikil eftirsjá í henni því hún er góður alhliða leikmaður sem hægt var að nota í flestar stöður,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, spurður um hvort Birgit Engl...
Meira
Hreiðar Levý Guðmundsson landsliðsmarkvörður og félagar hans í sænska liðinu Sävehof tryggðu stöðu sína enn frekar á toppi sænsku deildarinnar í gærkvöldi. Þá tók liðið á móti Lindesberg og vann nokkuð öruggan sigur, 37:27.
Meira
Einar Logi Friðjónsson skoraði 9 mörk og var valinn besti leikmaður Skövde þegar liðið tapaði naumlega fyrir Alingsås í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik, 31:30. Skövde er í 4. sæti deildarinnar með 16 stig eftir 13 leiki.
Meira
BIKARMEISTURUM Vals tókst í gærkvöldi að endurtaka leikinn frá því í mars og valta yfir Framara í Eimskipsbikarkeppninni í handknattleik karla. Þá léku þessi lið til úrslita en nú tryggðu Valsmenn sér sæti í undanúrslitum með 30:21 sigri á heimavelli Fram í Safamýri.
Meira
SYSTURNAR Guðný Petrína Þórðardóttir og Björg Ásta Þórðardóttir gengu í gær til liðs við Val frá Keflavík og sömdu til tveggja ára við Íslandsmeistarana.
Meira
KNATTSPYRNA England Úrvalsdeild: West Ham – Tottenham 0:2 – Ledley King 68., Jamio O'Hara 89. Staðan: Liverpool 16114124:937 Chelsea 16113235:636 Man.
Meira
ÅGE Hareide sagði í gær upp sem landsliðsþjálfari Noregs, en hann tók við starfinu af Nils Johan Semb árið 2004 og hefur ekki gengið sem best hjá norska liðinu síðan.
Meira
SELFOSS, sem leikur í 1. deild í handboltanum, er komið í undanúrslit bikarkeppninnar eftir frækilegan sigur á úrvalsdeildarliði Stjörnunnar á Selfossi í gærkvöldi, 32:31, eftir framlengdan leik.
Meira
FÁIR hefðu trúað því fyrir tveimur árum að Boston Celtics og Los Angeles Lakers myndu enn á ný verða yfirburðalið í deildunum tveimur, en eftir fyrsta fjórðunginn í NBA-deildakeppninni í körfuknattleik er ljóst að þessi lið hafa byrjað nýjan kafla í...
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.