BÆJARSTJÓRN Kópavogs afgreiddi í gærkvöldi fjárhagsáætlun sína sem gerir ráð fyrir 200 milljóna króna rekstrarafgangi árið 2009. Tekst bænum, að sögn Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra Kópavogs, að vera réttum megin við núllið með miklu aðhaldi í rekstri.
Meira
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is SJÖ innstæðueigendur í Landsbankanum í Lúxemborg hittu fulltrúa Fjármálaeftirlitsins þar ytra og Seðlabanka Lúxemborgar í fyrradag.
Meira
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ birti í gær ákvörðun sína um að sekta Haga, sem reka verslanir Bónuss, Hagkaupa og 10-11, um 315 milljónir króna fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
Meira
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is ATHUGUNARVERT er hvort rétt sé að vísa ásökunum hagsmunahópsins Réttlæti, fólks sem átti í peningamarkaðssjóðum Landsbankans, til annarra yfirvalda auk Fjármálaeftirlitsins, sem nú hefur málið til skoðunar.
Meira
Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is UMSVIF Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði verða ekki takmörkuð sem stendur og lög um það munu haldast í hendur við lög um eignarhald á fjölmiðlum.
Meira
ÞAÐ er líklega skynsamlegt á krepputímum að eyða ekki peningum í óþarfa eða íburð. Sumir vilja hins vegar fjárfesta í góðum tækjum, t.d. nýjum farsíma.
Meira
FÉLAG kráareigenda mótmælir harðlega „aðför stjórnvalda að veitingastöðum“ með hækkun áfengisgjalda, eins og komist er að orði í fréttatilkynningu.
Meira
BARNASPÍTALA Hringsins berst nú fjöldi góðra gjafa. Meðal þeirra sem komið hafa færandi hendi er fyrirtækið Avant. Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri afhenti forsvarsmönnum spítalans 750 þúsund króna styrk, sem rennur til starfsþróunarsjóðs Hringsins.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is STJÓRNVÖLD í Washington ákváðu í gær að veita tveim illa stöddum bílafyrirtækjum, General Motors og Chrysler, alls 17,4 milljarða dollara lán með ákveðnum skilyrðum.
Meira
HÁTÍÐLEIKINN réð ríkjum í Landakotskirkju í gær þar sem nemendur annars og þriðja bekkjar Landakotsskóla settu upp helgileik fyrir samnemendur sína og fjölskyldur.
Meira
LAUFÁSPRESTAKALL hefur verið auglýst laust til umsóknar frá 1. mars 2009. Ákveðið hefur verið „að undanskilja tiltekin réttindi til búskaparafnota á jörðinni ótímabundið“ eins og segir í auglýsingu.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt erlendan karlmann í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ráðist með ofbeldi á lögreglumenn hjá fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þar sem þeir voru við skyldustörf á Laugavegi í janúar sl.
Meira
Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is Grundvallarhugmyndin er að taka af þeim sem hafa meira, útskýrði Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna, þegar hún og Steingrímur J.
Meira
Rif | Í fyrradag var verið að afferma flutningaskipið Wilson Cadiz í Rifshöfn. Skipið er 4.000 sml. að stærð og 100 metra langt og kom það með efnivið í væntanlega vatnsverksmiðju á Rifi. Sú bygging verður um 10 þús.
Meira
Nýlega sendi skátahreyfingin öllum 6 ára börnum í landinu endurskinsborða til að bera í skammdeginu, ásamt sérstöku fræðsluriti um öryggi barna í umferðinni. Fræðsluritinu fylgja einnig 2 límmiðar - Ávallt viðbúinn... og Á réttum hraða.
Meira
Eftir Þorbjörn Þórðarson og Þórð Snæ Júlíusson RÍKISSAKSÓKNARI vildi að ákvörðun um ákæru í skattahluta Baugsmálsins lægi fyrir hinn 15. desember ella yrði málið látið niður falla.
Meira
ERLEND félög frá Bandaríkjunum og Evrópu hafa sýnt áhuga á 16,58% eignarhlut Orkuveitu Reykjavíkur í Hitaveitu Suðurnesja. Þetta segir Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar. Stjórn hennar ákvað formlega í gær að selja hlutinn.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karlmann í fimm mánaða fangelsi fyrir líkamsárás. Hann réðst á fyrrverandi unnustu sína á heimili hennar þar sem börn hennar voru heima. Héraðsdómur Vesturlands hafði áður dæmt manninn í fjögurra mánaða fangelsi.
Meira
EVRÓPUNEFND Sjálfstæðisflokksins er heimilt að leggja fleiri en eina tillögu fyrir landsfund flokksins ef ekki næst samstaða í nefndinni. Þetta segir Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, m.a.
Meira
Á ÞORLÁKSMESSU standa Samtök hernaðarandstæðinga fyrir blysför á Akureyri. Gengið verður frá samkomuhúsinu í Hafnarstræti kl. 20 og út á Ráðhústorg.
Meira
SKIPULAGSSTOFNUN hefur úrskurðað að mat á umhverfisáhrifum borunar rannsóknarholna á Þeistareykjum, við Kröflu og í Gjástykki skuli ekki meta sameiginlega með mati á umhverfisáhrifum virkjana á Þeistareykjum og við Kröflu, línulagna frá virkjununum að...
Meira
ÁTJÁN ára piltur hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir aðrir voru úrskurðaðir í farbann.
Meira
MENNTA- og menningarmálaráðherra grænlensku landstjórnarinnar, Tommy Marø, hefur verið á Íslandi síðustu daga og er heimsóknin liður í mikilli endurskoðun á grænlenska menntakerfinu.
Meira
Eftir nokkurra ára hlé gefst Borgnesingum kostur á að upplifa alvöru jólaball. Stjórnarkonur í foreldrafélagi leikskólans Klettaborgar áttu frumkvæðið.
Meira
Á MORGUN KL. 20 verða haldnir tónleikarnir Jólafriður í Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar á Eskifirði. Á tónleikunum koma fram einsöngvarar, kór og hljómsveit, ásamt strengja- og blásarasveit.
Meira
TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur sitt árlega Jólapakkaskákmót í dag milli kl. 13 og 15. Mótið er haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur en um er að ræða fjölmennasta unglingamót hvers árs og hafa þátttakendur verið á bilinu 120-200 síðustu ár.
Meira
SKÓGRÆKTARFÉLAG Mosfellsbæjar er með sína árlegu jólatréssölu í Hamrahlíðarskógi við Vesturlandsveg. Í dag kl. 14:00 ætlar jólasveinninn svo að mæta í skóginn eftir að hafa gefið Mosfellingum í skóinn.
Meira
JÓLALEIKRITIÐ vinsæla Jólasveinar Grýlusynir verður sýnt kl. 14 í dag í Tjöruhúsinu á Ísafirði. Hér er á ferðinni sannkallað jólaævintýri um gömlu íslensku jólasveinana. Fullt af söng og ekta jólasveinasprelli. Miðasla á heimasíðu Kómedíuleikhússins...
Meira
Eftir Birki Fanndal Haraldsson Krafla | Nú standa yfir flutningar á bornum Jötni úr Kröflu til Húsavíkur þar sem hann fer í skip á milli jóla og nýárs og verður fluttur til Asoreyja í fjórða sinn á nokkrum árum.
Meira
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is LÍFEYRISSJÓÐIR hafa lagt fram tilboð til skilanefnda bankanna um að gera upp skuldir vegna afleiðu- og gjaldmiðlaskiptasamninga við gengisvísitöluna 175, sem var uppi þegar bankarnir féllu í byrjun október.
Meira
JÓLALJÓSIN hanga víða enda aðeins fjórir dagar til jóla. Ljósaseríur eru ekki aðeins festar upp í glugga heimila og verslana heldur hafa skipverjar sumir hverjir tekið upp á því að skreyta fleyin sín og færa hlýja birtu yfir myrka höfnina.
Meira
STJÓRN Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur samþykkt að lækka laun framkvæmdastjóra og sjóðsstjórnar um 10% frá 1. janúar. Er þessi ákvörðun til samræmis við marga aðra lífeyrissjóði sem lækkað hafa laun framkvæmdastjóra og stjórna á síðustu vikum.
Meira
ÁRSRIT Lögreglufélags Reykjavíkur er komið út og að sögn Gísla Jökuls Gíslasonar, lögregluþjóns og ritstjóra blaðsins, er forsíða þess jafnt sem innihald tileinkað breyttum tímum á Íslandi.
Meira
Eftir Magnús Halldórsson og Silju Björk Huldudóttur SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ birti í gær ákvörðun sína um að sekta Haga um 315 milljónir króna fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
Meira
Rekstrarniðurstaða framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar er neikvæð um 6.745 milljónir króna. Búist var við því að tekjur sviðsins næmu 7.648 milljónum og nemur munurinn því rúmum 14,3 milljörðum króna.
Meira
NÓG verður um að vera í Jólaþorpinu í Hafnarfirði nú síðustu helgina fyrir jól. Í dag syngur kór Öldutúnsskóla kl. 14 og í kjölfarið spila börn úr skólahljómsveit Víðistaðaskóla. Hljómsveitin Buff mun spila fyrir gesti kl.
Meira
BARACK Obama hefur beðið Rick Warren, landsþekktan prest safnaðar er nefnist Saddleback Church, að fara með hefðbundna bæn þegar Obama tekur við embætti í Washington 20. janúar.
Meira
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is FYRRVERANDI ritstjóri tímaritsins Hér og nú hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu sektar fyrir birtingu áfengisauglýsingar í tímaritinu í mars árið 2006.
Meira
EINN efnilegasti körfuknattleiksmaður landsins, Haukur Pálsson, fékk boð á dögunum frá ítalska félaginu Stella Azzurra þess efnis að leika með liðinu á Evrópumóti unglingaliða milli jóla og nýárs.
Meira
Eftir Randi Mohr Þórshöfn | FRAGTSKIPIÐ Blikur, sem er á vegum Eimskips, strandaði í gær þegar það var á leið inn í höfnina í Þórshöfn með jólavörur til Færeyinga. Minnstu munaði að skipið rækist á sögustaðinn gamla, Þinganes.
Meira
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is BIRNA Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis, var í krabbameinsmeðferð á sama tíma og hlutabréfakaup hennar í gamla bankanum áttu að ganga í gegn.
Meira
STURLUNGA saga er uppseld hjá útgefanda í kjölfar útkomu og vinsælda Ofsa eftir Einar Kárason. Skáldsagan Ofsi er að hluta byggð á Sturlungu og hefur því áhugi á sögunni aukist það mikið að hún seldist upp.
Meira
Á ÞORLÁKSMESSU verða haldnir jólatónleikar á Thorsplani í Hafnarfirði frá kl. 18-22 til styrktar ABC-barnahjálp. Fram koma m.a. Lay Low, Frostrósir, Regína Ósk, Herbert Guðmundsson, The revelation, Unnar Gísli og fleiri.
Meira
ÖRN Clausen, hæstaréttarlögmaður og einn mesti afreksmaður Íslendinga í frjálsum íþróttum á fyrstu árum lýðveldisins, var borinn til grafar í gær. Útför Arnar fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Báru þeir Helgi I.
Meira
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðssonar. Sjóðurinn var stofnaður samkvæmt erfðaskrá Ingibjargar Einarsdóttur, ekkju Jóns Sigurðssonar, í þeim tilgangi að styrkja útgáfu íslenskra fræðirita.
Meira
Á fundi samstarfsnefndar Rússlands og Íslands um sjávarútvegsmál var fjallað um framkvæmd Smugusamningsins, en á grundvelli hans verður íslenskum skipum heimilt að veiða á næsta ári í rússneskri lögsögu í Barentshafi, 2.937 tonn af þorski auk meðafla.
Meira
FERÐAMÁLASAMTÖK Vestfjarða mótmæla þeim tillögum sem koma fram í fjárlagafrumvarpi um að skerða atvinnuuppbyggingu fjórðungsins með því að leggja niður Hornstrandarstofu og Látrabjargsstofu.
Meira
Fundað fram á nótt Umræður stóðu fram eftir á Alþingi í gær og mest púður fór í bandormsfrumvarpið sem kveður á um ýmsar lagabreytingar er lúta að auknum tekjum ríkissjóðs og niðurskurði.
Meira
RADDIR fólksins boða til mótmælafundar á Austurvelli í dag kl. 15. Verða mótmælin þögul og eiga að standa í 11 mínútur. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þetta sé gert vegna óska fólks um að geta gefið börnum sínum gleðileg og friðsæl jól.
Meira
Í fyrsta sinn láta samkeppnisyfirvöld finna rækilega fyrir sér á matvörumarkaðnum. Samkeppniseftirlitið sektaði í gær Haga, sem reka þrjár matvöruverzlanakeðjur, um 315 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum.
Meira
Þar sem raunveruleg verðmæti eiga að vaxa verða menn að stunda raunverulega atvinnuvegi sem skila raunverulegum vexti – grasvexti,“ sagði bóndi, sem var nýbúinn að dreifa hrossataði á lóð Landsbankans á Selfossi, í fréttum Ríkissjónvarpsins...
Meira
Það er kunnara en frá þurfi að segja hversu sterklega margir íslenskir tónlistarmenn, einatt í yngri kantinum, hafa leitað innblásturs til hins alræmda níunda áratugar síðustu misserin.
Meira
ÞRÍR myndlistarmenn fengu úthlutað úr Listasjóði Dungals síðdegis í gær. Hæsta styrkinn, að upphæð 500 þúsund krónur, hlaut Bjarki Bragason. Listamennirnir Ragnar Jónasson og Sirra Sigrún Sigurðardóttir fengu síðan 300 þúsund króna styrk hvort.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is FYRIR stuttu opnaði spánýr tónleikastaður í rokkbænum Hafnarfirði, Dillon Sportbar. Staðurinn hét áður Áttan en nýi staðurinn er systurstaður Dillon Rock Bar í Reykjavík.
Meira
OFURPARIÐ David og Victoria Beckham ætla að dvelja í Bretlandi yfir jólin og lentu þau á Heathrow-flugvelli á fimmtudaginn með syni sína þrjá. Fyrr í vikunni heyrðist af því að þau væru ekki sammála um hvar ætti að eyða jólunum þetta árið.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „SÖGUSVIÐIÐ er Reykjavík og fara tökur fram í miðbænum, Breiðholti og víðar,“ segir Hilmar Oddsson kvikmyndagerðarmaður, en tökur á jólamynd hans, Hátíð í bæ , hefjast um helgina.
Meira
JÓLASÝNING Árbæjarsafnsins, sem hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár, fer fram á morgun, sunnudag, milli kl. 13 og 17. Þá geta gestir rölt á milli húsa og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Ýmislegt verður til sýnis, m.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is INTRO sem hér kallar sig Introbeats á nokkuð langan feril að baki í íslenskum rappheimi. Hann var t.a.m.
Meira
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „BÓKIN fjallar um mann sem er að farast úr skuldum sem komu vegna spákaupmennsku, almennrar heimsku og vanþekkingar á peningum. Hann er einn af þeim sem þurfa núna að borga sín neyslufyllirí.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG er að fara að setja upp einleik með Ingvari E. Hann verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu með vorinu,“ segir leikskáldið Jón Atli Jónasson.
Meira
BORGARLEIKHÚSIÐ hefur verið beðið að taka á sig 50 milljóna króna niðurskurð á samningsbundnum fjárveitingum sínum frá Reykjavíkurborg á næsta ári.
Meira
Það er nú svo að oft verða bækur frægar fyrir eitthvað allt annað en gæði og sumar svo frægar að gæðin hætta að skipta máli. Þannig er því til að mynda farið með skáldsöguna miklu Lord of the Rings , eftir J.R.R.
Meira
AUMINGJA Balthazar Getty, hann á enga vini í vinnunni. Leikarinn fer með hlutverk í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Brothers and Sisters og á í ástarsambandi við leikkonuna Siennu Miller og hefur það samband m.a. aflað honum óvinsælda.
Meira
KASTLJÓS hefur undanfarin ár tekið þátt í skemmtilegum leik bóksala þar sem afgreiðslufólk í bókabúðum velur bestu bækur ársins í nokkrum flokkum.
Meira
Jóhann H. Hafstein skrifar um réttarstöðu smærri hluthafa gagnvart meirihluta: "Hitt er síðan annað mál að líklega eru hluthafar sér almennt ekki nægilega meðvitandi um réttarstöðu sína."
Meira
Þórólfur Matthíasson fjallar um fjárlagafrumvarpið, skatta og niðurskurð: "Með því að leggja ekki á hátekjuskatt og hækka ekki fjármagnstekjuskatt og tekjuskatt fyrirtækja er verið að hlífa mörgum sem sök eiga á hruninu."
Meira
Sigurjón Þórðarson skrifar um kvótann og Samfylkinguna: "Afstaða Samfylkingarinnar er óskiljanleg í ljósi þess að þjóðin getur ekki samþykkt inngöngu í Evrópusambandið að óbreyttu fiskveiðistjórnunarkerfi."
Meira
DANSKAR, frosnar gráandarbringur, villt dönsk stokkönd, frönsk aliönd, kengúrufillet, krónhjartarfillet, andabringa labeyrie og erlend nautalund. Allt þetta erlenda góðgæti býður Nóatún viðskiptavinum sínum að kaupa fyrir jólin.
Meira
Æ, eigum við ekki að leyfa sérréttindunum að lifa aðeins lengur í kreppunni – bara pínupons“ hafa þau kannski sagt á litlu jólum ríkisstjórnarinnar. Á ekki einmitt að gefa heimatilbúna jólagjöf í ár? „Dekraðu við sjálfa þig!
Meira
Eftir Guðfinnu S. Bjarnadóttur: "Við erum rétt að hefja enduruppbygginguna í kjölfar bankahrunsins og ég tel mikilvægt að við drögum eftirfarandi lærdóm af reynslu þeirra Norðurlandaþjóða sem fóru í gegnum bankakreppur á 10. áratugnum."
Meira
Jenný Anna Baldursdóttir | 19. des. Og hana nú Það er sorglegt að þjóðfélagið skuli vera þannig að fólk skuli þurfa að sækja sér lífsnauðsynjar með því að standa í röð hjá góðgerðarstofnunum.
Meira
Katrín Anna Guðmundsdóttir | 19. des. Peningurinn er atkvæðisréttur Í fréttum RÚV í gær var sagt frá því hvar hægt væri að kaupa bækur á lægsta verðinu. Líka í neytendahorni Dr. Gunna í Fréttablaðinu í dag.
Meira
HVERT stefnir þetta „Nýja Ísland“ sem mikið hefur verið rætt um síðastliðnar vikur? Ég hef velt þessu fyrir mér þegar ég hef séð grímuklætt fólk ráðast inn í Alþingi okkar Íslendinga í fréttum.
Meira
UNDANFARNAR vikur og mánuðir hafa sýnt með enn skýrari hætti en áður að sitt hvað er áfátt í stjórnskipulagi landsins. Raddir verða æ háværari um að breytinga sé þörf. Kallað er eftir ábyrgð stjórnmálamanna og embættismanna.
Meira
ÞEIR hagfræðingar gerast stöðugt háværari, sem halda því fram að seðlabankar séu óþarfir, eða jafnvel skaðlegir efnahag þjóða. Jafnframt er því haldið fram, að svonefnd myntráð séu mun gagnlegri og þjóðhagslega hagkvæmari stofnanir.
Meira
Týnd kisa í Vogahverfi SÍÐASTLIÐNA 10 daga hefur verið hjá mér kisa sem ekki ratar heim til sín. Hún er vön að vera í kringum fólk því hún vill vera í fanginu á manni. Hún fannst úti þegar veður var vont og er afar falleg og blíð.
Meira
ÞAÐ er þung undiralda í þjóðfélaginu. Almenningur er óánægður, margir eru reiðir. Menn hafa tapað miklu í bönkunum við fall þeirra og lífskjörin versna dag frá degi. Kaupmáttur hefur minnkað um rúm 6% og heldur áfram að minnka.
Meira
Þorgrímur Gestsson | 19. des. Bónus er bara harður bissniss! Árum saman var fullyrt að Bónus beitti birgja valdi til þess að þeir verðlegðu vörurnar eins og Bónusi þóknaðist.
Meira
Ásta Hansdóttir fæddist í Keflavík 9. apríl 1934. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 13. desember síðastliðinn. Hún var elsta barn Aðalbjargar Valentínusdóttur frá Hellissandi á Snæfellsnesi, f. 8. febrúar 1918, d. 4. mars 2005.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Andersen fæddist í Vestmannaeyjum 22. ágúst 1933. Hún andaðist mánudaginn 15. desember síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Willum Jörgen Andersen, f. 30. september 1910, d. 17. júlí 1988 og Guðrúnar Ágústu Ágústsdóttur, f. 2. nóvember 1909, d.
MeiraKaupa minningabók
Hallgrímur Kjartansson fæddist á Glúmsstöðum 2 í Fljótsdal 9. mars 1949. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu aðfaranótt föstudagsins 12. desember síðastliðins. Foreldrar hans voru Kjartan Hallgrímsson frá Glúmsstöðum í Fljótsdal, f. 30.5. 1919, d. 1.4.
MeiraKaupa minningabók
Högni Guðjónsson fæddist á Skallabúðum í Eyrarsveit 1. september 1928. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 10. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Víðistaðakirkju 17. október.
MeiraKaupa minningabók
Sigurbjörg Guðmundsdóttir fæddist á Urriðafossi í Villingaholtshreppi 18. febrúar 1922. Hún lést á heimili sínu laugardaginn 13. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Kristinn Gíslason, f. 9. desember 1890, d. 20.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Sigurðsson fæddist í Efstadal í Laugardalshreppi í Árnessýslu 20. september 1915. Hann lést á Kumbaravogi 2. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jórunn Ásmundsdóttir húsfreyja í Efstadal, f. þar 5. okt. 1880, d. 11.
MeiraKaupa minningabók
Sigurlína Hólmfríður Sigfúsdóttir fæddist á Draflastöðum í Sölvadal í Saurbæjarhreppi 24. maí 1920. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 4. desember síðastliðinn. Foreldrar Hólmfríðar voru hjónin Guðrún Kristjánsdóttir, f. 12. júní 1888, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is BYR gerði þeim einstaklingum sem áttu í peningamarkaðssjóði Íslenskra verðbréfa tilboð á fimmtudag um að kaupa hlutdeildarskírteini þeirra út úr sjóðnum á 71 prósent af virði þeirra eins og það var 3.
Meira
GENGI krónunnar veiktist um 6,54% í vikunni. Við upphaf viðskipta á mánudag var gengisvísitalan í 204,3 stigum, en við lok viðskipta í gær var hún í 217,7 stigum.
Meira
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is Lánveitendur Milestone fá að meðaltali 53% krafna sinna breytt í lán en ekki 30% eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær.
Meira
EVRÓPSKAR hlutabréfavísitölur lækkuðu almennt í viðskiptum gærdagsins og leiddu hrávörufyrirtæki eins og Anglo American og BHP Billiton lækkunarhrinuna.
Meira
VELTA með skuldabréf í Kauphöllinni nam 9,7 milljörðum, en velta með hlutabréf nam um 238 milljónum króna. Úrvalsvísitala kauphallarinnar lækkaði um 1,90% í viðskiptum gærdagsins og var lokagildi hennar 355,25 stig.
Meira
ALLS voru seldir ríkisvíxlar fyrir 73,6 milljarða króna í útboði Lánasýslu ríkisins í gær. Um er að ræða tvo víxlaflokka, annan til eins mánaðar og hinn til þriggja mánaða.
Meira
TIL greinar kemur að sameina Flugstoðir og Keflavíkurflugvöll, sem bæði eru opinber hlutafélög. Samgönguráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að kanna hagkvæmni þess. Verði sameiningin talin fýsileg gætu þau sameinast eigi síðar en 1.
Meira
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd sendi ljóðabréf til vinar með þessum niðurlagsvísum: Fjöregg þjóðar frelsis hefur fengið meðferð þá, sem um gjöldin synda krefur, síst því neita má.
Meira
Ekki þarf mikið til að lífga upp á jólaborðið eins og María Másdóttir hjá Blómahönnun sýnir. Hún leggur áherslu á að nota það sem til er á heimilinu svo kostnaðinum við skreytingarnar sé haldið í lágmarki.
Meira
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Gunnar Smári Egilsson vinnur að gerð heimildarmyndar um ris og fall íslenska efnahagsundursins ásamt Mikael Torfasyni og fleirum. Gerð myndarinnar hófst í sumar áður en íslenska bankakerfið hrundi.
Meira
Misjafnt er hvað fólk er iðið við að skreyta umhverfi sitt fyrir jólin. Flestir á Hellu setja upp einhverjar skreytingar við hús sín og lýsa upp glugga hjá sér með aðventuljósum og annari birtu. En sumir gefa sig meira að þess háttar iðju en aðrir.
Meira
Eftir Kristínu Sigurrós Einarsdóttur stina@holmavik.is Strandir | Strandasýsla er annálað sauðfjárræktarhérað og svo rammt kveður orðið að þeirri sérstöðu að jólasveinarnir í sýslunni eru farnir að taka hrúta í misgripum fyrir hreindýr.
Meira
Einar Kristján Enoksson, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli er áttræður í dag, 20. desember. Hann tekur á móti gestum á heimili dóttur sinnar að Hjarðarbrekku II, Hellu, milli kl. 14 og 17 á...
Meira
Sigurður Sigurðsson skipstjóri, Sólbrekku 11 á Húsavík, er áttræður í dag, 20. desember. Hann verður ásamt eiginkonunni, Hlín Einarsdóttur, að heiman á...
Meira
Sigþrúður Guðbjartsdóttir er níutíu og fimm ára í dag, 20. desember. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í samkomusal dvalarheimilis Sóltúns í dag kl....
Meira
Skúli og Rúnar jólasveinar BR Skúli Skúlason og Rúnar Einarsson sigruðu örugglega í jólasveinatvímenningi Bridsfélags Reykjavíkur. Í verðlaun fengu þeir veglega matarkörfu. Mörg önnur pör fengu ýmsa vinninga samkvæmt geðþóttaákvörðunum keppnisstjóra.
Meira
„EFTIR að ég varð fimmtugur þá hætti ég að telja árin, svo ég er ekki nema liðlega fimmtugur – í anda. Meðan heilsan er góð held ég að aldurinn skipti ekki svo miklu máli,“ sagði Ástvaldur Eiríksson sem fagnar 70 ára afmæli í dag.
Meira
Reykjavík Lóa Margrét fæddist 6. maí kl. 2.10. Hún vó 3.670 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Sunna Dögg Ásgeirsdóttir og Haukur Hrafn...
Meira
Reykjavík Matthías Dagur fæddist 11. maí kl. 9. Hann vó 3.750 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Íris Kristína Óttarsdóttir og Þorsteinn...
Meira
Víkverji er farinn að hlakka verulega til jólanna. Jólin eru himneskur tími, svo ekki sé meira sagt. Hvort það er almennt ástand þjóðmála eða eitthvað annað sem veldur, þá telur Víkverji sig skynja óvenjumikla eftirvæntingu þetta árið, vegna jólanna.
Meira
20. desember 1930 Landspítalinn var tekinn í notkun, án viðhafnar. Fyrsta daginn komu þrír sjúklingar á handlækningadeildina. Í spítalanum voru 120 sjúkrarúm og í upphafi voru læknarnir átta. Dagar Íslands | Jónas...
Meira
DREGIÐ var í 32 og 16 liða úrslit í UEFA-bikarnum í í knattspyrnu Nyon í Sviss í gær. Meðal helstu leikja má nefna að ítölsku risarnir í AC Milan mæta þýska liðinu Werder Bremen, en Milanliðið verður að teljast ansi sigurstranglegt í keppninni.
Meira
TINDASTÓLL tapaði óvænt á heimavelli í gærkvöldi fyrir Breiðabliki, 83:79, í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik karla. Þar með situr Tindastóll áfram í 4.-5. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 11 leiki ásamt Njarðvík.
Meira
FIFA hefur staðfest dómaralista dómaranefndar KSÍ. Á listanum eru tveir nýir aðstoðardómarar, þau Frosti Viðar Gunnarsson og Bryndís Sigurðardóttir, en Bryndís er fyrsta íslenska konan sem kemst á listann.
Meira
BORGNESINGAR töpuðu sínum 11. leik í röð í gærkvöld þegar Íslandsmeistarar Keflavíkur komu í heimsókn. Keflvíkingar fóru með auðveldan sigur af hólmi 52:97 og hafa þar með 14 stig þegar deildin er hálfnuð.
Meira
Sundsamband Íslands hefur útnefnt Örn Arnarson úr Sundfélagi Hafnarfjarðar og Ragnheiði Ragnarsdóttur úr KR sundmann og sundkonu ársins 2008. Örn setti tvö Norðurlandamet á árinu, í 50 metra baksundi, og auk þess eitt Íslandsmet.
Meira
Werner Heel frá Ítalíu sigraði í risasvigi á heimsbikarmóti karla sem fram fór í Val Gardena á Ítalíu í gær. Þetta er besti árangur Heel frá upphafi í greininni en hann kom í mark á 1.35,04 mín.
Meira
ÞAÐ var nokkuð skemmtilegt að síðasti deildarleikur ársins í N1-deild karla í handknattleik skyldi vera viðureign Víkings og Fram, sem fagna bæði 100 ára afmæli á þessu ári.
Meira
EFTIR sigur Fram á Víkingi í N1 deild karla í handknattleik í gærkvöldi er ljóst að lærisveinar Viggós Sigurðssonar hjá Fram mæta HK í deildabikarkeppni N1 og HSÍ sem fram fer 27. og 28. desember í Laugardalshöll.
Meira
GRINDVÍKINGAR sigruðu lið ÍR nokkuð auðveldlega í gærkvöldi með 92 stigum gegn 78 stigum gestanna í úrvalsdeild karla. Grindvíkingar halda því áfram að þjarma að liði KR sem er með einum sigri fyrir ofan þá í deildinni með fullt hús stiga að loknum ellefu umferðum.
Meira
HANDKNATTLEIKUR N1-deild karla Víkingur – Fram 25:26 Staðan: Fram 11722307:29216 Valur 11632307:26315 Haukar 11704319:28714 HK 11524292:29912 Akureyri 11605288:29912 FH 11524322:32212 Stjarnan 11227274:2956 Víkingur R.
Meira
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu byrjar stærsta ár sitt í sögunni sem lægst skrifaða liðið af þeim tólf sem leika til úrslita um Evrópumeistaratitilinn í Finnlandi síðsumars. Ísland er í 19.
Meira
„ÞETTA er svona jólamót sem þeir halda og liðið sem sér um mótið bauð mér að koma og spila með því,“ sagði Haukur Pálsson, körfuknattleiksmaður úr Fjölni, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Meira
VEIGAR Páll Gunnarsson skrifaði í gær undir samning við franska knattspyrnuliðið Nancy. Samningurinn er til þriggja og hálfs árs en frá honum var formlega gengið eftir að Veigar Páll stóðst læknisskoðun hjá félaginu. Samningur Veigars tekur gildi hinn...
Meira
VONBRIGÐI ríkja hjá Handknattleikssambandi Evrópu (EHF) með aðsókn á leiki í nýafstaðinni Evrópukeppni í handknattleik kvenna í Makedóníu. Leikið var í höfuðborginni, Skopje, og í bænum Ohrid þar sem talið var að mikill áhugi væri fyrir hendi.
Meira
Í Borgarleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar er hægt að fá að sjá bráðskemmtilega sýningu með prökkurunum Lápi og Skrápi. Barnablaðið skellti sér á sýningu og fylgdist með ævintýrum hrekkjalómanna.
Meira
Ólafur Örn, 9 ára, teiknaði þessa sætu mynd af litla bláa jólahundinum sem fer í kaupstaðarferð fyrir jólin. Sjáið hvað hann er búinn að kaupa fallega jólapakka. Hver skyldi eiga að fá þessar...
Meira
Barnablaðið heyrði af leikskóla einum í Reykjavík sem heitir því skemmtilega nafni Geislabaugur. Það þótti því tilvalið í tilefni hátíðar ljóss og friðar að heimsækja þennan leikskóla og spjalla við nokkur börn.
Meira
Einu sinni var jólasveinn sem var á jólaballi og hitti börn. Svo gaf hann börnunum nammi. Svo urðu þau vinir. Endir. Höf.: Eva Rut Ásþórsdóttir, 6...
Meira
Við kveikjum fjórum kertum á; brátt kemur gesturinn og allar þjóðir þurfa að sjá að það er frelsarinn. (S. Muri/Lilja Kristjánsdóttir) Á morgun kveikjum við á fjórða og síðasta kerti aðventukransins, englakertinu.
Meira
Ég heiti Edda Ósk og ég er 6 ára. Ég er ein af mörgum sem hlakka til jólanna. Eina nóttina vaknaði ég upp við skell. Ég læddist fram í stofu og vitið þið hvað, þar stóð jólasveinninn sjálfur fastur með skeggið í deiginu hennar mömmu.
Meira
Barnablaðið óskar öllum börnum landsins gleðilegra jóla með von um góðar og ljúfar stundir á nýju ári. Njótið þess nú að vera með fjölskyldunni og verið dugleg að borða allan góða jólamatinn.
Meira
Halló! Ég heiti Hafdís Katrín og mig langar að eignast pennavin. Mig langar bæði að skrifast á við stelpu og strák. Ég óska eftir pennavinum á aldrinum 6-11 ára. Ég er sjálf 9 ára. Áhugamál mín eru hestar, dans, körfubolti og pennavinir.
Meira
Þriðji ísbjörninn eftir Þorgrím Þráinsson er bók sem hentar fyrir alla aldurshópa. Bókin fjallar um fjögur systkini sem fara á ættarmót með foreldrum sínum. Bjössi, eldri bróðirinn, fær að grilla.
Meira
Ég las bókina Jólasveinarnir í Dimmuborgum eftir Yngva Ragnar Kristjánsson og Brynhildi Þórarinsdóttur. Mér fannst bókin skemmtileg. Hún er um alla jólasveinana.
Meira
Bókin sem ég las heitir Nonni og Selma, fjör í fríinu og er eftir Brynhildi Þórarinsdóttur. Bókin er mjög skemmtileg. Aðalpersónurnar í sögunni heita Nonni og Selma. Þau eru 6 ára þegar sagan byrjar en verða 7 ára í bókinni. Þau eiga afmæli á 17.
Meira
Bert og Heman Hunters eftir Söru Olsson og Anders Jacobsson, Jón Daníelsson þýddi. Þessi bók er um Bert og félaga hans. Þeir eru búnir að stofna rokkhljómsveit sem heitir Heman Hunters.
Meira
Einu sinni uppi í Englaborg fæddist lítill engill. Það var jólanótt og allir englarnir voru í hátíðarskapi. En þegar litli engillinn fæddist skein skærasta stjarnan svo skært að englarnir höfðu aldrei séð eins fallegt ljós.
Meira
Einn dag í desember þegar jólin voru handan við hornið voru bjöllur hengdar upp og hljómuðu þær fallega. Krakkar léku sér saman í snjónum á leikvellinum.
Meira
Rjúpan góða. Rjúpan góða. Flýgur fyrir vestan. Skotin á jólunum. Jólamatur er hún. Allir segja „mmm“. Góð rjúpa. Höf.: Daníel James Róbertsson Abby, 9...
Meira
Þetta einfalda jólaföndur er á færi flestra krakka. Náið í hvítan pappír og leggið yfir sniðið sem er hér til hliðar. Dragið sniðið í gegn og klippið það út. Því næst leggið þið úrklippurnar á karton og notið þær sem skapalón.
Meira
Vindurinn gnauðaði fyrir utan gluggann.Veðrið var voðalegt og lítið sást út um gluggann. Það var aðfangadagur og Dísa og Krissi biðu spent eftir því að klukkan slægi 6 svo þau gætu borðað jólamatinn og opnað gjafirnar. BOMMBAMM. Þau hrukku upp.
Meira
Það getur verið gott að föndra til að stytta biðina eftir jólunum. Hér er sniðugt jólaskraut sem allir geta gert. *Þú nærð í pappír í fallegum litum. *Síðan klippir þú nokkur blöð eins og mynd nr. 1 sýnir. *Síðan brýtur þú þau saman eins og myndir nr.
Meira
Jólasveinn B á skuggann. Jólaálfur númer þrjú bjargar jólaálfinum sem datt niður um ísinn. Stjarnan kemur aðeins fyrir tvisvar. Jólaálfurinn með röndóttu húfuna fer styttri leið. Jólaálfarnir eru 60. Jólaálfur númer 2 missti...
Meira
Jónína jólatré er óskaplega sorgmædd í dag því hún finnur hvergi pakkana sína. Getur þú hjálpað Jónínu jólatré að finna 16 jólapakka á síðum Barnablaðsins svo hún geti byrjað jólin...
Meira
Lausnargjaldið – Fjóli Fífils eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur fjallar um Fjóla Fífils sem er klaufskur einkaspæjari. Verkefni hans í þessari bók er að finna skólastjóra Einkaspæjaraskólans sem hefur verið rænt.
Meira
Þessi þraut er svolítið snúin og getur verið gaman að leysa hana með allri fjölskyldunni. Þrautinni fylgir tafla sem þú fyllir í (með fjölskyldunni) eftir að hafa lesið eftirfarandi vísbendingar.
Meira
Tvíburasysturnar Elísabet og Margrét Friðriksson og vinkona þeirra Tara Jónsdóttir koma fram í nýrri Söngvaborgarmynd Siggu Beinteins og Maríu Bjarkar.
Meira
Trausti Már Eyjólfsson, níu ára blaðamaður úr Kópavoginum, lagði leið sína upp í Efstaleiti og hitti þar fyrir hann Björgvin Franz Gíslason sem flestir krakkar ættu að þekkja úr Stundinni okkar.
Meira
Ótrúlegt hvað jólin geta gengið vel. Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir og Pottaskefill voru búnir að fara til byggða. Nú var komið að Askasleiki. En það var eitthvað að. Hann vildi ekki fara.
Meira
Í þessari viku eigið þið að gerast leynilöggur. Einn jólasveinn skilaði sér ekki í kvöldmat til Grýlu og er það ykkar að finna hann. Grýla sendi þessa lýsingu á honum: Garmurinn minn klæddist stígvélum og vettlingum svo honum ætti nú ekki að verða kalt.
Meira
Einu sinni var strákur sem var bara lítill. Stóru strákarnir voru alltaf að stríða honum og hrinda honum í snjóinn. Þegar jólaballið var sögðu þeir jólasveininum að gefa litla stráknum enga jólagjöf.
Meira
Harðsoðnar glæpabókmenntir hafa ekki verið fyrirferðarmiklar í íslenskri skáldsagnagerð síðustu ár þrátt fyrir að ýmsar ágætis tilraunir hafi verið gerðar um miðja síðustu öld.
Meira
Leikarinn Horst Tappert lést á sjúkrahúsi í München síðastliðinn laugardag en hann varð þekktastur fyrir að leika titilhlutverkið í lögregluþáttunum Derrick sem sýndir voru um árabil í Ríkissjónvarpinu.
Meira
Þessi plata Einars Braga Bragasonar er nostursamlega unnin og spilamennska öll fyrsta flokks. Músíkin er nýaldarlegur djass, lítið um átök og spennu nema á mjög kurteislegan hátt, og fyrir vikið verður hún daufleg á köflum.
Meira
Mikið hefur verið skrifað og skrafað um mikilfengleika íslenskrar tónlistar og miðað við þá fáu hausa sem hér stinga upp kollinum er árangur íslenskra tónlistarmanna sannarlega verðugt rannsóknarefni.
Meira
Naglbítarnir fylgja hér öðrum íslenskum rokk/poppsveitum eftir er reyna að endurlífga ferilinn með því að stækka hljóðheim sinn með aðstoð utanaðkomandi stórsveitar, og það svínvirkar!
Meira
Á dagskrá Ríkissjónvarpsins í kvöld er kvikmyndin Flugstöðin ( The Terminal , 2004) sem segir frá Victor Navorski, austurevrópskum innflytjanda sem verður strandaglópur á Kennedy-flugvelli þegar stríð brýst út í heimalandi hans og það þurrkast út af...
Meira
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirh@mbl.is Til: Luis López Nieves <cs@ciudadseva.com> Frá: Ásgeir H Ingólfsson <asgeirhi@mbl.is> Efni: Viðtal fyrir Morgunblaðið Dagsetning: 18.
Meira
Það lýsir fágætri útsjónarsemi að hnoða saman eins og einum vel útfærðum jólaslagara; margur hefur beinlínis tryggt sér og sínum uppihald og framtíðarafkomu á þann hátt þar sem lagið er spilað á gat í u.þ.b.
Meira
Kvikmyndir sem byggjast á þematengdum framlögum ólíkra leikstjóra eru vinsæl undirgrein í listamyndabransanum, og oft er útkoman áhugaverð þar sem samspil ólíkra frásagnarbrota skapar óvanalega heild. Tokyo!
Meira
Margir tónlistarmenn hafa veitt mér ánægju á árinu, ekki síst þeir sem ég hef séð á tónleikum, s.s. eins og Rufus Wainwright, Eric Clapton og nú síðast Emilíana Torrini.
Meira
Refur er önnur ljóðabók Emils Hjörvars Petersen en sú fyrsta hét Gárungagap og kom út í fyrra. Refur inniheldur þrjá prósa og svo ljóð sem ort eru í fremur knöppu formi, hröðum en yfirveguðum takti.
Meira
LEIKLIST Hart í bak Þjóðleikhúsið „Uppfærsla Þjóðleikhússins er hefðbundin, þá er átt við að aðstandendur sýningarinnar eru trúir höfundarverkinu.“ Ingibjörg Þórisdóttir. Vestrið eina Borgarleikhúsið „Heimur verksins er nöturlegur.
Meira
Veglegar yfirlitsbækur um sögu mannkyns hafa verið fáséðar á íslenskum bókamarkaði. Nú hefur bókaútgáfan Skuggi bætt allrækilega úr því. Saga mannsins frá örófi alda fram á þennan dag er gefin út í samvinnu við National Geographic.
Meira
Árið 1967 kom Dagbók frá Diafani eftir Jökul Jakobsson út hjá Almenna bókafélaginu og eftir að hafa verið ófáanleg í áratugi er hún nú endurútgefin.
Meira
Það eru erfiðir tímar, það er atvinnuþref orti nafni minn forðum og er hverju orði sannara, en þetta eru líka spennandi tímar og gott að losna undan forsjá Péturs þríhross og félaga um sinn.
Meira
Útgáfufélagið Dimma hefur staðið að útgáfu diska með ljóðaupplestri og tónlist á undanförnum árum. Mikið hefur verið vandað til útgáfunnar, sum okkar bestu skálda hafa þar lesið upp ljóð sín við undirleik þekktra tónlistarmanna.
Meira
Margt hefur verið skrifað um viðbrögð Reynis Traustasonar við yfirlýsingum Jóns Bjarka. Helgi Vífill Júlíusson segir Reyni hafa fallið á eigin bragði þegar Jón Bjarki, „tók upp trúnaðarsamtal þeirra tveggja – án vitundar ritstjórans“.
Meira
Sjónvarpsfréttamanni, sem aldrei hefur átt pening frekar en aðrir í hans stétt, hefur tekist að koma sér í svo miklar skuldir eftir fjármálaævintýri með hálfvitlausum hálfbróður sínum að hann sér engin betri ráð en að drepa mann.
Meira
Á meðan plata Elvisar fellur kirfilega í flokk hefðbundinnar jólaplötuútgáfu og plata Kosters mjög svo kirfilega í þann óhefðbundna er slatti sem dettur nokkurn veginn á milli þilja. Það er t.a.m.
Meira
Hér er hún komin, fyrsta plata Sindra Eldons og félaga hans í hljómsveitinni Slugs. Í viðtali í Morgunblaðinu fyrir skömmu sagði Sindri að hljómsveitin hefði verið stofnuð út frá leiða á því að vera í „alvarlegum“ og útpældum hljómsveitum.
Meira
Rökkurbýsnir eru í stuttu máli heillandi bók. Sviðið sem hún varpar ljósi sínu á tilheyrir 17. öldinni með öllum sínum undrum, harmleikjum, hamförum, ofsóknum og bábiljum. En líka mennsku og vísdómi. Sjón er því enn að glíma við sögulegu skáldsöguna.
Meira
Kvikmynd sem „fjallar um afstæði stærðar hluta í alheiminum – og áhrifin af því að bæta við einu núlli“, eins og segir í upphafssenu hennar, gengur nú í endurnýjun lífdaga á YouTube.
Meira
Bandaríska kapalsjónvarpsstöðin HBO hefur verið að færa út kvíarnar jafnt og þétt á liðnum áratug, og margt besta kvikmyndaefni Bandaríkjanna á nú rætur að rekja þangað.
Meira
Nú í vikubyrjun voru ritstjórar DV , feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, staðnir að því að segja almenningi ósatt. Þeir reyndu jafnframt að sverta mannorð blaðamannsins Jóns Bjarka Magnússonar sem starfað hafði undir þeim.
Meira
Nýjasta mynd bandarísku leikstýrunnar Kelly Reichardt, Wendy and Lucy , er ljómandi dæmi um það besta sem er að gerast í óháðu senunni í Bandaríkjunum í dag, þessari frægu „indie“-kvikmyndaveröld sem jafnan er álitin dauðvona, slæm heilsan...
Meira
Ættjarðarljóð birtist í ljóðasafni Þorgeirs Rúnars Kjartanssonar (1955-1998), Óður eilífðar , sem kom út nýlega með listaverkum eftir höfundinn og níu aðra listamenn.
Meira
Þeir sem eru að leita að rammíslenskri ævisögu sem lýsir landi og þjóð og minnisverðum atburðum um leið og rakin er ævi sérstaks einstaklings ættu að staðnæmast við þessa stórmerkilegu bók um Grím Jónsson amtmann á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.