Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ÞAÐ VÆRI góð nýársgjöf til þjóðarinnar að tilkynna að leyfðar yrðu veiðar á 20-30 þúsund tonnum af þorski og að kvótann ætti að bjóða upp á markaði. Þetta segir Karl V.
Meira
MIKILL munur er á því eftir sölustöðum hvað kartöfluflögurnar og gosið kostar. Poki af Doritos American-flögum kostar 203 kr. í Bónusversluninni í Árbæ en sama tegund kostar 400 kr. á bensínstöð Skeljungs á Vesturlandsvegi.
Meira
LIÐSMENN óeirðalögreglu gengu hart fram í gær og beittu kylfum og spörkum gegn um 100 manna hópi sem kom saman í Vladivostok á Kyrrahafsströnd Rússlands til að mótmæla tollum á innflutta bíla. „Fasistar“ var hrópað að lögreglumönnunum.
Meira
TYRKNESKI skósmiðurinn Ramazan Baydan fullyrðir að skórnir sem reynt var að fleygja í höfuðið á George W. Bush Bandaríkjaforseta hafi verið hans framleiðsla, af gerðinni Ducati Model 271.
Meira
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is RÚMUR fimmtungur íslenskra unglinga þekkir einhvern sem orðið hefur fyrir ofbeldi heima hjá sér og 14,6% barna.
Meira
FASTEIGNASALI hefur verið dæmdur til að bæta kaupendum að fullu þann skaða sem þeir urðu fyrir við íbúðarkaup sem hann sá um í Kólguvaði í Reykjavík.
Meira
Alþingi mun að öllum líkindum samþykkja í dag breytingar á eftirlaunalögum frá árinu 2003 en þau hafa valdið miklum deilum í samfélaginu. 30 af þeim þingmönnum sem tóku þátt í atkvæðagreiðslum um málið árið 2003 sitja enn á þingi.
Meira
SJÓÐI 1 hjá Glitni verður skipt í tvennt og verður sjóðsfélögum boðið að velja hvorn flokkinn, flokk 1A eða flokk 1B þeir velja. Eignir sjóðsins munu skiptast milli flokkanna tveggja í samræmi við hlutfallslega skiptingu sjóðfélaga á milli þeirra.
Meira
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is „Þetta verður þakklætisvottur minn til SÁÁ, en þau samtök hafa ekki aðeins hjálpað mér heldur ótal mörgum öðrum.
Meira
ÞAÐ var mikið stuð hjá krökkunum sem mættu á forsýningu á kvikmyndinni Skoppa og Skrítla í bíó í gær. Að sjálfsögðu voru Skoppa og Skrítla á staðnum og tóku þær á móti bíógestum með dansi og söng.
Meira
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur beðið fjármálaráðherra um að laun sín verði lækkuð á sama hátt og hjá öðrum handhöfum forsetavaldsins. Í bréfi forseta til ráðherra segir: „Í samræmi við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr.
Meira
Vegna frétta af FS13 ehf. Vegna fréttaflutnings af ákærum, sem gefnar hafa verið út á hendur tveimur starfsmönnum KPMG, sem sakaðir eru um að hafa reynt að hafa félagið FS13 af eiganda þess, hafa Morgunblaðinu borist yfirlýsingar frá málsaðilum.
Meira
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur og Unu Sighvatsdóttur „MAÐUR verður bara að nota Pollýönnu á þetta. Ástandið gæti verið miklu verra,“ segir 24 ára kona sem greindist með HIV aðeins 17 ára.
Meira
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is ÞÓ umræða um efnahagskreppuna hafi yfirgnæft flest annað lengst framan af hausti er landinn nú engu að síður kominn á fullt í jólaundirbúning – það eru enda ekki nema tveir dagar til jóla.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is Á FUNDI fjárlaganefndar á laugardag óskaði ríkisstjórnin eftir því að fjármálaráðherra yrði veitt heimild til að ábyrgjast lán að fjárhæð 5 milljarðar króna vegna lagningar sæstrengs.
Meira
Þegar Jóhann Úlfarsson veiktist alvarlega, aðeins nokkurra mánaða gamall, kom í ljós að systir hans, tæplega fjögurra ára gömul, hafði glímt við sama sjúkdóm frá fæðingu án þess að læknar á Íslandi og í Danmörku hefðu uppgötvað hvað amaði að henni.
Meira
TVÖ fulltrúaráð sjálfstæðismanna á landsbyggðinni, á Ísafirði og í Árborg, sendu frá sér ályktanir um helgina þar sem fjallað var um Evrópumálin í tilefni komandi landsfundar Sjálfstæðisflokksins.
Meira
UM tvö hundruð börn á aldrinum 4-16 ára mættu á árlegt jólapakkaskákmót skákfélagsins Hellis í Ráðhúsi Reykjavíkur síðastliðinn laugardag. Mótið er fjölmennasta unglingaskákmót landsins og hefur verið haldið frá 1996.
Meira
DREGIÐ hefur úr kortanotkun landsmanna og er meira um það fyrir þessi jól en áður að fólk greiði með reiðufé. Enda jukust peningaseðlar í umferð um tæpa 13 milljarða í kjölfar bankahrunsins.
Meira
LIÐSMAÐUR kaþólsku kirkjunnar heldur á talnabandi sínu við messu í úthverfi borgarinnar Changzhi í Shanxi-héraði í Kína í gær. Ekki er vitað hve margir Kínverjar eru kristnir en vitað er að um tugmilljónir manna er að ræða.
Meira
FJÁRFESTINGAR- og umbreytingarfyrirtækin Blackstone og Lion Capital eru sögð hafa áhuga á drykkjarvörufyrirtækinu hollenska Refresco, sem er að stórum hluta í eigu Stoða, áður FL Group.
Meira
MEÐ jólin á næsta leiti leggur margur Íslendingurinn land undir fót svo fjölskyldan geti verið saman um hátíðirnar. Mikið er að gera í innanlandsflugi og hefur álagið dreifst nokkuð jafnt þar sem aðfangadag ber upp á virkan dag.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BARACK Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur lengi sagt að hann muni draga herinn frá Írak eins fljótt og unnt er og nota þá tækifærið til að styrkja viðbúnaðinn í Afganistan.
Meira
JÓHANNA Barðdal, dósent í málfræði og verkefnisstjóri við háskólann í Bergen í Noregi, hefur samið við hollenskt forlag, John Benjamins í Amsterdam, um útgáfu tveggja bóka sem koma út á næstunni.
Meira
„GAGNRÝNANDINN hefur fattað að ég er bara Gísli, nördið sem ólst upp í Noregi og í Hlíðunum og komst fyrir rælni inn í Leiklistarskóla Íslands,“ segir leikarinn Gísli Örn Garðarsson um slæman dóm sem birtist um frammistöðu hans sem Don John...
Meira
25 ár eru nú liðin síðan HIV-veiran greindist fyrst á Íslandi. Síðan hafa miklar framfarir orðið í lyfjameðferð og mun færri látið lífið en búist var við í upphafi.
Meira
LÖGREGLAN í Bergen í Noregi varð um helgina að losa 18 ára gamla konu við handjárn sem höfðu verið notuð í ástarleikjum hennar og 22 ára karlmanns. Hálftíma tók að opna lásinn, að sögn Aftenposten .
Meira
Eftir Jón Sigurðsson Húnavatnshreppur | Leikskóli fyrir börn í Húnavatnshreppi í A-Húnavatnssýslu, sem nýlega hefur verið byggður á skólalóð Húnavallaskóla, var formlega tekinn í notkun fyrir helgi.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is LOKIÐ er í Bólivíu í Suður-Ameríku þriggja ára herferð gegn ólæsi og lýsti forseti landsins, Evo Morales, því yfir um helgina að ólæsi hefði verið útrýmt í landinu.
Meira
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is REYKJAVÍKURBORG getur ekki komið til móts við alla og getur ekki endurgreitt þeim fjölskyldum sem keyptu byggingarrétt á lóðum á markaðsvirði í útboði borgarinnar árið 2006.
Meira
NAUÐSYNLEGT er að auka opinber útgjöld til þess að efla hagvöxt í heiminum, að sögn Dominique Strauss-Kahn, yfirmanns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF.
Meira
FORSÆTISNEFND Alþingis hefur farið þess á leit við Róbert Spanó, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, að hann gegni embætti Umboðsmanns Alþingis á meðan Tryggvi Gunnarsson starfar í rannsóknarnefnd um bankahrunið.
Meira
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur ökutækja við að skilja verðmæti eftir í bílum sínum, en innbrot í bíla hafa verið tíð á aðventunni. Eru m.a. dæmi um að verðmætum jólagjöfum hafi verið stolið úr ólæstum bílum á fjölförnum stæðum.
Meira
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ganga má út frá því að fjölga muni verulega í hópi þeirra sem leita eftir fjárhagsaðstoð og félagsþjónustu sveitarfélaga á komandi mánuðum. Á sama tíma þrengir mjög að hag flestra sveitarfélaga.
Meira
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is ÞAÐ er sóknarhugur í Strandamönnum þrátt fyrir allt, að sögn Ásdísar Leifsdóttur, sveitarstjóra Strandabyggðar.
Meira
FASTIR starfsmenn í beinum störfum í álverunum þremur sem starfa hér á landi eru um 1.385 talsins en afleidd störf eru um 2.800. Alls styðja því um 4.185 ársverk álframleiðslu hér á landi.
Meira
NEFND sem Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði á síðasta ári til að gera tillögur um uppbyggingu alhliða löggæslu- og öryggismálaskóla hefur skilað skýrslu til ráðherra.
Meira
Alþingi samþykkti um helgina lög, sem heimila ríkissjóði að styrkja málsókn á hendur erlendum ríkjum, sem beitt hafa ólögmætum íþyngjandi stjórnvaldsákvörðunum gagnvart íslenzkum hagsmunum.
Meira
Stjórnvöld þurfa að grípa til frekari, samræmdra aðgerða til að blása nýju lífi í fjármálamarkaði heimsins og koma lánastarfsemi af stað á ný. Þetta var inntakið í ræðu Dominique Strauss-Kahn, yfirmanns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í ræðu á Spáni í gær.
Meira
Í DAG er þess minnst að 150 ár eru liðin frá fæðingu Giacoma Puccini með tónleikum í Neskirkju. Þar koma fram söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jóhann Friðgeir Valdimarsson ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleika.
Meira
AÐDÁENDUR Paul McCartney flykktust í HMV tónlistarverslunina á Oxfordstræti í London í gær til að berja goðið sitt augum. En McCartney kom við í búðinni í gærmorgun á milli kl.
Meira
EINHVERJIR myndu segja að með þessu uppátæki væri verið að sparka í liggjandi mann. En ef svoleiðis fantabrögð eiga nokkurn tímann við væri það líklega nú, í aðdraganda mestu kreppu Íslandssögunnar, eða hvað? „Ja, hvaða mann áttu við?
Meira
REKTOR Listaháskóla Íslands hefur ráðið Kristínu Valsdóttur tónmenntakennara í stöðu deildarforseta listkennsludeildar en deildin verður stofnuð formlega 1. ágúst á næsta ári.
Meira
Ríkissjónvarpið sýndi síðastliðið miðvikudagskvöld heimildarmynd um hlut Maríu meyjar í myndlistarsögunni en á engri konu hafa myndlistarmenn haft jafn mikið dálæti og henni.
Meira
LEIKARINN Robert Downey Jr. er víst ansi kröfuharður á tökustað á myndinni Sherlock Holmes sem hann leikur aðalhlutverkið í. Hann biður víst reglulega um alls konar lúxushluti sem erfitt er að nálgast.
Meira
TÓNLISTARMAÐURINN Ricky Martin segir að hann hafi grátið er synir hans fæddust. Martin varð faðir í ágúst þegar ónefnd staðgöngumóðir fæddi honum tvíburadrengi. Þeir hafa hlotið nöfnin Matteo og Valentino.
Meira
Sýningin stendur til 1. febrúar 2009 Salurinn er opinn fimmtudag-sunnudags kl. 14-18. Sýningarstjóri: Harpa Þórsdóttir Hönnun sýningar: Arndís S. Árnadóttir
Meira
1. Sultardropi í krukku – táknrænt fyrir kreppuástandið. 2. Kerti og spil – eins og í gamla daga, það er svo móðins núna. 3. Óútfyllt, heimasmíðað mótmælaskilti og eggjabakki – gæti komið sér mjög vel. 4.
Meira
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „FRUMSÝNINGIN gekk ljómandi vel, það var almenn ánægja með þetta,“ segir leikarinn Gísli Örn Garðarsson spurður hvernig frumsýning á Don John á fimmtudagskvöldið hafi gengið.
Meira
ÓÞEKKTAR teikningar hafa fundist á baki málverks eftir Leonardo da Vinci í París, jafnvel er talið að þær séu eftir hann. Teikningarnar, sem uppgötvuðust fyrir slysni, eru af hestshaus, hluta af hauskúpu og Jesúbarninu ásamt lambi.
Meira
JACK White úr The White Stripes segir að það að fara á tónleika sé eins og að fara í kirkju. Hann segist elska að spila á tónleikum og líkir því við trúarlega athöfn.
Meira
HEIMSPEKISTOFNUN hefur sent frá sér tvær bækur í ritröðinni Rit Heimspekistofnunar Háskóla Íslands. Það eru Forspjall að frumspeki eftir Immanuel Kant og Fyrirbærafræði eftir Dan Zahavi.
Meira
Tónlist eftir Karólínu Eiríksdóttur, Finn Torfa Stefánsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Mist Þorkelsdóttur og Hilmar Þórðarson. Flytjendur: Guðrún S. Birgisdóttir, Martial Nardeau og Snorri S. Birgisson.
Meira
LEIKKONAN Anne Hathaway hefur valið tónlistina fyrir brúðkaupið sitt jafnvel þótt hún sé ekki að fara að gifta sig. Hathaway segist ekki vera sú týpa af stúlku sem sé með brúðkaup á heilanum en hún hafi þó nýlega farið að velja lög fyrir stóra daginn.
Meira
Víðir Reynisson skrifar um þjónustu við heyrnarlausa í jarðskjálftum: "Hluti af þessum bráðnauðsynlegu símtölum felst í rétti heyrnarlausra, blindra og annarra hópa sem þurfa sérstaka aðstoð í hamförum til að nota símann..."
Meira
Frá Sigurði Gunnsteinssyni: "ÁRIÐ 1977 var gott ár fyrir áfengissjúka og fjölskyldur þeirra. SÁÁ varð til og kaflaskil urðu í meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga. Þjóðarvakning og viðhorfsbreyting til fíklanna kom í kjölfarið."
Meira
Þjóðin á ættir sínar að rekja annars vegar til bænda og hins vegar til sjómanna. Þessir tveir atvinnuvegir voru svo ráðandi hér á landi um langan aldur að nánast allir höfðu lífsviðurværi sitt af öðru hvoru eða jafnvel hvorutveggja, eins og t.d.
Meira
Hafsteinn Sigurbjörnsson fjallar um það hvernig hægt er að minnka brottkast á fiski: "Þessi aðferð gæti stöðvað brottkast á fiski og um leið náð betri nýtingu á þeim afla, sem taka má úr auðlindinni."
Meira
Eva Hauksdóttir | 21. desember 2008 Ég styð allar aðgerðir gegn Baugsveldinu Mér finnst með ólíkindum hve margir láta eins og Baugsfeðgar séu fórnarlömb eineltis. Skilur fólk ekkert hvað er að gerast hérna?
Meira
Frá Hjörleifi Hallgríms: "MIKIÐ er búið að ganga á út af uppákomunni hjá DV þar sem ritstjórinn, Reynir Traustason, virðist hafa sagt mjög ósatt í sambandi við að vilja ekki birta frétt, sem ungur blaðamaður á DV tók saman og skrifaði um Sigurjón Þ. Árnason, fyrrv."
Meira
Frá kristnum leiðtogum: "„GÓÐAR fréttir! Land, land, land, heyr orð Drottins... (Jeremía 22.29)“ Við undirrituð erum úr ýmsum kristnum hópum sem Guð hefur leitt saman á sérstakan hátt til að biðja fyrir íslensku þjóðinni."
Meira
LIGGUR það ekki býsna ljóst fyrir að Geir H. Haarde, forsætisráðherra vor, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðska vor, tóku einhvern þátt í umsvifum ofurkappanna okkar (ekki strákanna okkar) á vettvangi alþjóðafjármála?
Meira
Eftir Þórlind Kjartansson og Teit Björn Einarsson: "Ungir sjálfstæðismenn telja að opnir markaðir og frjálsir séu besta leiðin að almennum lífsgæðum. Þess vegna teljum við að það eigi að vera leiðarljós í framtíðarstefnu Sjálfstæðisflokksins að umhverfi verslunar og viðskipta sé eins og best verður á kosið."
Meira
Jón Ingi Cæsarsson | 21. desember 2008 Lystigarðurinn á vetrarsólhvörfum Gekk um Lystigarðinn í dag. Mjöllin var algjörlega óhreyfð. Það var við það að ég fengi samviskubit að marka för í drifhvítan snjóinn.
Meira
UM miðjan október, nánar tiltekið hinn 21., sótti undirritaður fyrirlestur við Kaupmannahafnarháskóla á vegum Society of Social Economics. Yfirskriftin var: Fjármálakreppan, orsakir og afleiðingar.
Meira
VIÐ sem þjóð megum vera afar stolt af þeirri kröftugu umræðu sem farið hefur fram í þjóðfélaginu síðustu vikurnar, ekki síst um hvernig þjóðarskútunni verði komið á flot aftur og henni siglt hægt og bítandi í rétta átt.
Meira
Frá Einari Tjörva Elíassyni: "Æ ERFIÐARA virðist að fá fjölmiðla til þess að flytja ánægjulegar fréttir á síðum sínum á þessum síðustu og verstu tímum. Helst fá þeir sem mest og hæst mögla mál sitt birt á síðum blaða og „blogg“-síðna."
Meira
Frá Jóni Sævari Jónssyni: "ER óhugsandi að RÚV geti aðlagað sig aðstæðum í þjóðfélaginu og rekið sína starfsemi innan ramma fjárlaga? Eru þetta svo lélegir rekstrarmenn sem stjórna stofnuninni í dag að það sé óhugsandi?"
Meira
Lúðvík Bergvinsson skrifar um slúður og flökkusögur: "EINFÖLD árétting á mikilvægri réttarreglu var víða túlkuð sem vörn fyrir spillingu, misnotkun almannafjár og jafnvel glæpi."
Meira
Sigurður Svavarsson skrifar um íslenska tungu og bókaútgáfu: "Brátt hefst endurreisn atvinnulífs hér á landi og þá er bráðnauðsynlegt að stjórnvöld líti til annarra þátta en mannvirkjagerðar og málmbræðslu."
Meira
Stefán Friðrik Stefánsson | 21. desember 2008 Trúverðugleiki Ég fagna því að yfirmaður alþjóðasviðs Landsbankans, sá sem stjórnaði Icesave í Englandi og Hollandi, hafi sagt sig frá innri endurskoðun bankans...
Meira
Frá Eysteini Jónssyni: "Í NÝSAMÞYKKTRI fjárhagsáætlun sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ er gert ráð fyrir miklum niðurskurði í rekstri sveitarfélagsins og er grunnþjónustu sveitarfélagsins hvergi hlíft. M.a. á að spara 34 m. kr. í rekstri Frístundaskólans."
Meira
Guðjón Friðriksson skrifar í tilefni af dómi Jóns Ólafssonar um bók hans: "Viðtöl við Ólaf Ragnar eru meginþema bókarinnar. Það má því segja að í henni komi fram sjálfsmynd forsetans fyrst og fremst."
Meira
Hvar á hið opinbera að spara? Á venjulegu heimili er forgangsröðin hjá flestum: húsnæði, fæði, heilbrigðisþjónusta, klæði og ef það er afgangur er bíómiðinn/skemmtunin síðust. Þannig ættu landsfeður einnig að hugsa og forgangsraða í samræmi við það.
Meira
FYRIR rúmum þremur árum var ég staddur í London, þetta var kosninganóttin í Bretlandi þegar Verkamannaflokkurinn vann aftur og Ljúflingur og Brúni (Darling og Brown) voru endurkjörnir.
Meira
Ólafur Karvel Pálsson skrifar um rýrnandi fjármagn til þróunarsamvinnu: "Það má ekki gerast að framlög okkar til Þróunarsamvinnustofnunar – aðstoð okkar við fátækustu þjóðir Afríku – verði skorin niður með þessum hætti."
Meira
Erla Björg Sigurðardóttir skrifar fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um málefni vímuefnasjúklinga: "Vímuefnasýki eins fjölskyldumeðlims hefur gífurleg áhrif á alla í fjölskyldunni, veldur áhyggjum, kvíða, sorg og oft er um algjört niðurbrot að ræða."
Meira
Ágústína Guðrún Ágústsdóttir fæddist á Látrum í Aðalvík í Sléttuhreppi í N-Ísafjarðasýslu 16. maí 1919. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 8. desember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Páll Þorvaldsson fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði 30. september 1960. Hann lést á heimili sínu, Furuvöllum 14 í Hafnarfirði, 13. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóna Júlía Valsteinsdóttir frá Ytra-Krossanesi við Akureyri, f. 28.7.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Grímsson fæddist í Vestmannaeyjum 10. sept. 1921. Hann lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja aðfaranótt 16. des. sl. Foreldrar hans voru hjónin Grímur Gíslason skipstjóri, fæddur á Stokkseyri, og Guðbjörg Magnúsdóttir frá Felli í Vestmannaeyjum.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Septína Kristjánsdóttir fæddist á Siglufirði 21. júlí 1921. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 17. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Anna Sigfríður Sigurðardóttir, húsmóðir, f. á Ólafsfirði 28.7. 1897, d. 8.3.
MeiraKaupa minningabók
Wolfgang Stross fæddist í München 13. nóvember 1938. Foreldrar hans voru Prof. Wilhelm Stross, fiðluleikari, f. 1907, d. 1966, og Ruth Brandi-Stross, f. 19.5. 1913, hún býr í Kreuth við Tegernsee.
MeiraKaupa minningabók
Þór Rúnar Baker fæddist í Reykjavík 11. mars 1945. Hann lést af slysförum í Berufirði 7. desember síðastliðinn. Móðir hans er Elín Sigríður Markúsdóttir, f. 22.2. 1922, og fósturfaðir Gunnþór Bender, f. 28.2. 1926. Systkin Þórs Rúnars eru Karl M.
MeiraKaupa minningabók
Þuríður Signý Jónasdóttir fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 16.12. 1917. Hún lést á hjúkrúnarheimilinu Droplaugarstöðum 14. desember sl. Foreldrar hennar voru María Þorbjarnardóttir húsfreyja, f. á Brekku á Ingjaldssandi 1897, d.
MeiraKaupa minningabók
Örn Clausen fæddist í Reykjavík 8. nóvember 1928. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 11. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 19. desember.
MeiraKaupa minningabók
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is Möguleikar á nýsköpun eru miklir hér á landi að mati Kolbeins Björnssonar, forstjóra verkfræðifyrirtækisins HRV Engineering.
Meira
Stykkishólmur | Starfsemi Norska hússins í Stykkishólmi setur alltaf skemmtilegan svip á undirbúning jólanna. Húsið er fagurlega skreytt og sýningar í gangi sem tengjast jólunum.
Meira
Konur hafa notað rauðan varalit sér til fegrunar í gegnum tíðina og liturinn er í dag að sjálfsögðu orðinn alveg klassískur þegar konur vilja hafa sig til og vera fínar. Sumir varalitir hafa jafnvel öðlast frægð eins og Russian Red-varaliturinn frá MAC.
Meira
Helga Sigríður Árnadóttir og Jón Bjarnason eiga fimmtíu ára hjúskaparafmæli 28. desember. Í tilefni dagsins bjóða þau vinum og vandamönnum að gleðjast með sér á gullbrúðkaupsdaginn á veitingastaðnum Skútunni í Hafnarfirði milli kl. 14 og...
Meira
ÞAÐ STENDUR mest lítið til á sjálfan afmælisdaginn hjá Yngva Daníel Óttarssyni verkfræðingi hjá Íslensku útflutningsmiðstöðinni, enda einungis tveir dagar til jóla.
Meira
Víkverji mun nú vonandi taka gleði sína eftir langt þunglyndiskast: daginn er farið að lengja á ný. Hann sér fleira gott, bjarta framtíð þjóðarinnar, samstöðu.
Meira
22. desember 2000 Halldór Laxness rithöfundur var valinn maður aldarinnar, samkvæmt aldamótakönnun Gallup sem kynnt var í Kastljósinu í Sjónvarpinu.
Meira
RICHARD Sterne frá Suður-Afríku sigraði á Opna suðurafríska meistaramótinu í golfi í gær en hann hafi betur gegn Gareth Maybin frá Norður-Írlandi á fyrstu holu í bráðabana um sigurinn. Sterne fékk rúmlega 170 milljónir kr.
Meira
Alþjóðlegt FIS-mót í Hlíðarfjalli: Föstudagur: Svig karla: Jón Viðar Þorvaldsson, Íslandi 1.25,70 Gunnar Þórir Halldórsson, Íslandi 1.25,74 Ágúst Freyr Dansson, Íslandi 1.27,03 Svig kvenna: Ida Troennhagen, Svíþjóð 1.
Meira
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is ÞAÐ er ekki algengt að þeir sem keppa í knattspyrnu fagni tveimur bikarmeistaratitlum í tveimur heimsálfum á sama árinu.
Meira
ENSKI landsliðsmaðurinn David Beckham var kynntur til sögunnar sem nýr liðsmaður AC Milan á laugardagskvöld en Beckham verður í láni hjá Mílanóliðinu frá LA Galaxay til 9. mars á næsta ári.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen sat á varamannabekk Barcelona frá upphafi til enda leiks þegar Barcelona vann Villarreal, 2:1, á útivelli í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær.
Meira
England Úrvalsdeild: Arsenal – Liverpool 1:1 Robin van Persie 24. – Robbie Keane 42. Rautt spjald : Emmanuel Adebayor (Arsenal) 62. Newcastle – Tottenham 2:1 Charles N'Zogbia 12., Damien Duff 90. – Luka Modric 29. W.B.A.
Meira
„ÆTLI það sé ekki bara rétt að kalla þetta dellu!“ sagði Margrét Sturlaugsdóttir, flugfreyja, þriggja barna móðir og körfuboltaþjálfari, sem nýverið tók við sem þjálfari 18 ára landsliðs kvenna í körfuknattleik.
Meira
SKÍÐASAMBAND Íslands (SKÍ) hefur valið fimm stúlkur í landslið Íslands í alpagreinum skíðaíþrótta sem hefur það markmið að ná lágmörkum fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í Vancouver í Kanada árið 2010.
Meira
Cesc Fabregas meiddist undir lok fyrri hálfleiks í viðureign Arsenal og Liverpool í gær. Af þeim sökum verður hann frá keppni a.m.k. í viku og missir líklega af leik Arsenal gegn Aston Villa .
Meira
Skíðasamband Íslands hefur valið Dagnýju Lindu Kristjánsdóttur frá Akureyri og Björgvin Björgvinsson frá Dalvík skíðamann og -konu ársins 2008. Bæði voru þau afar sigursæl á mótum ársins og kepptu jafnt utan lands sem innan.
Meira
Einar Hólmgeirsson átti fínan leik og skoraði sex mörk þegar Grosswallstadt sótti tvö stig í heimsókn sinni til nágrannaliðsins Wetzlar , 34:32. Grosswallstadt er í 11. sæti með 14 stig í þýsku 1. deildinni í handknattleik.
Meira
ÁTJÁN ára gamall Austurríkismaður, Gregor Schlierenzauer, sigraði um helgina í skíðastökki á heimsbikamóti á skíðum sem fram fór í Engelberg í Sviss. Schlierenzauer stökk 133,5 metra og fékk fyrir það 264,1 stig í heimsbikarmótaröðinni.
Meira
HREIÐAR Levy Guðmundsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, var hetja sænska liðsins Sävehof í gær og tryggði liðinu jafntefli gegn meistaraliðinu Hammarby í viðureign liðanna í Stokkhólmi.
Meira
CEDRIC Isom, körfuknattleiksmaður hjá úrvalsdeildarliði Þórs á Akureyri, verður frá keppni næstu fjórar til sex vikur. Bandaríkjamaðurinn er með brotið bein í handarbaki en hann brotnaði í leik gegn KR á fimmtudag.
Meira
„ÉG var óánægður með fyrri hálfleikinn hjá okkur en í síðari hálfleik fórum við að spila okkar leik og þá skildi leiðir,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, í samtali við Morgunblaðið, eftir öruggan sigur á Flensburg, 37:29, á laugardag.
Meira
BLAKARAR hér á landi telja flestir að íþrótt þeirra sé vanmetin og fái of litla umfjöllun í fjölmiðlum. Það sama á líklegast við allar íþróttir því hverjum þykir sinn fugl fagur og vilja sýna hann sem flestum.
Meira
ARSENAL hélt út síðasta hálftímann gegn Liverpool í gær, einum færri og krækti í stig þegar liðin gerðu með sér jafntefli, 1:1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Robin van Persie kom heimamönnum í Arsenal yfir á 24.
Meira
LANDSLIÐSMAÐURINN í knattspyrnu Heiðar Helguson hefur fengið sannkallaða draumabyrjun hjá Q.P.R. en hann hefur skorað þrjú mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir liðið.
Meira
NBA Aðfaranótt sunnudags: Charlotte – Golden State 103:110 Orlando – LA Lakers 106:103 Philadelphia 76'ers – Indiana 94:95 Minnesota – Houston 102:109 New Orleans – Sacramento 99:90 New Jersey – Miami 103:103 San...
Meira
ENSKU meistararnir í knattspyrnu, Manchester United, sem jafnframt hömpuðu bikarnum í meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð, bættu enn einum titlinum í safn sitt í gær.
Meira
KIM Magnús Nielsen stóð uppi sem stigameistari ársins í skvassi þegar hann bar sigurorð af Sævari Péturssyni í úrslitaleik í keppni sem fram fór í Veggsporti á laugardag, 3:1.
Meira
LARA Gut frá Noregi sem aðeins er 17 ára gömul kom sá og sigraði í keppni í risasvigi í St. Moritz í Sviss. Keppnin er hluti af heimsbikarmótinu á skíðum og var þetta fyrsti sigur hinnar ungu Gut á heimsbikarmóti.
Meira
GUÐJÓN Valur Sigurðsson og samherjar í Rhein Neckar Löwen unnu eins marks sigur á Magdeburg í háspennuleik í SAP-íþróttahöllinni í Mannheim að viðstöddum 13.600 áhorfendum, lokatölur 26:25. Tapið gerði vonir leikmanna Magdeburg um að komast upp í 2.
Meira
ÓLAFUR Stefánsson og félagar í spænska meistaraliðinu Ciudad Real léku sér að liði Reale Ademar eins og köttur að mús þegar liðin mættust á heimavelli Ciudad Real í spænsku 1. deildinni í handknattleik á laugardag.
Meira
Tilþrifin á jólamóti Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur voru með ýmsum hætti á laugardag. Um 100 keppendur frá fjórum félögum tóku þátt í jólamóti TBR og var keppt í þremur aldursflokkum, U13 ára, U15 ára og U17 ára.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.