VEGNA hörmungarástandsins á Gaza hefur utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ákveðið að veita rúmar 12 milljónir íslenskra króna til mannúðaraðstoðar á svæðinu, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Meira
TEKJUSKATTUR einstaklinga hækkaði úr 22,75% í 24,1% nú um áramót. Á sama tíma hækkaði persónuafsláttur úr 34.034 kr. á mánuði í 42.205 kr. og nemur sú hækkun 24% milli ára.
Meira
STAÐA mála í efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er betri nú en hún hefur nokkru sinni verið. Þetta segir í fréttatilkynningu sem embætti ríkislögreglustjóra sendi frá sér í gær í kjölfar fréttar sem birtist í Morgunblaðinu á gamlársdag.
Meira
ALÞINGI hefur óskað eftir því að lögreglan rannsaki atvik sem varð þegar 30 mótmælendur ruddust inn í Alþingishúsið 8. desember sl. Sjö mótmælendur voru þá handteknir.
Meira
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ og embætti sýslumanns Snæfellinga hafa undirritað samning til tveggja ára um að sýslumaður Snæfellinga annist tiltekin verkefni við umsýslu þjóðlendumála og vatns- og jarðhitaréttinda í eigu ríkisins.
Meira
Ísraelar hleyptu nokkrum hundruðum Palestínumanna yfir landamærin til Ísraels frá Gaza-svæðinu í gær. Þá var miðum dreift úr lofti þar sem íbúar voru hvattir til að yfirgefa heimili sín.
Meira
Margir strengja þess heit um áramótin að hætta að reykja. Slæm áhrif reykinga á heilsufar nægja mörgum til að taka þá ákvörðun, en aðrir láta budduna ráða. Og þeir hafa heldur betur fengið aukna ástæðu til að leggja sígarettunum.
Meira
„ÞETTA var ótrúlegt ár hjá mér, jafnt líkamlega sem andlega. Ég er afar þakklátur fyrir það,“ sagði Ólafur Stefánsson sem Samtök íþróttafréttamanna kusu í gær íþróttamann ársins 2008.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is „ÞETTA er bara mjög sorglegt,“ segir Hilmar Hilmarsson, skólastjóri Réttarholtsskóla, en þegar hann var kallaður að skólanum á nýársdagsmorgun höfðu 96 rúður verið brotnar.
Meira
RAUL Castro, forseti Kúbu, sagði í fyrradag á 50 ára afmæli kúbönsku byltingarinnar, að hún myndi lifa í önnur 50 ár en spáði því, að „óvinurinn“, Bandaríkin, myndi áfram reyna allt til að leggja hana að velli.
Meira
UNGUR maður vopnaður byssu sem leitað hafði verið í allt gærkvöld fannst laust fyrir miðnætti. Þá bárust vísbendingar sem leiddu til handtöku mannsins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fannst maðurinn í Breiðholti.
Meira
Eftir Magnús Halldórsson magush@mbl.is Vaxtagjöld ríkisins á árinu verða 86,9 milljarðar króna eða sem nemur um 22 prósentum af heildartekjum samkvæmt fjárlögum ársins.
Meira
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag.
Meira
ENN eru 3-4 hross veik úr stóðinu sem sýktist af salmonellu undir Esjurótum í lok desember. Engin hross hafa drepist síðan aðfaranótt 29. desember, þegar aflífa þurfti eitt til viðbótar.
Meira
3. janúar 2009
| Evrópusambandið (sjávarútvegur)
| 462 orð
| 1 mynd
RÍKISSTJÓRNIN naut fjögurra prósentustiga meira fylgis í desember síðastliðnum en mánuði fyrr og mældist stuðningur við stjórnina 36%, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.
Meira
KARAKAS, höfuðborg Venesúela á þann vafasama heiður að vera höfuðborg morðanna, en þar er mest tíðni morða í heiminum. Í desembermánuði einum voru að minnsta kosti 510 morð framin í borginni.
Meira
KARLMAÐUR á sjötugsaldri lést í umferðarslysi á Ólafsfjarðarvegi við bæinn Krossa um miðjan nýársdag. Kona á svipuðum aldri slasaðist en ekki alvarlega.
Meira
HÚN lyftist heldur en ekki brúnin á erfingjum aldraðs læknis í Gosforth á Englandi þegar þeir ákváðu að líta inn í bílskúrinn hans. Þar blasti við þeim rykfallinn fjársjóður, bifreið af gerðinni Bugatti 57S Atalante.
Meira
Tvennir tímar Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar í milli. Amen. Náð sé með yður og friður frá honum sem er og var og kemur, hinum alvalda.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is KOMUGJALD hefur nú verið tekið upp vegna innlagnar á sjúkrahús. Það verður þó ekki innheimt nema einu sinni í hverjum almanaksmánuði. Sjúkratryggðir greiða almennt 6.000 kr.
Meira
ÁRSHITINN var vel yfir meðallagi á Íslandi á liðnu ári, skv. bráðabirgðayfirliti Veðurstofu Íslands. Þrettánda árið í röð var hiti yfir meðallagi í Reykjavík og það tíunda á Akureyri.
Meira
STJÓRNARHERINN á Srí Lanka náði í gær á sitt vald bænum Kilinochchi í norðurhluta landsins en í áratug hefur hann verið stjórnmálaleg og hernaðarleg miðstöð Tamíl-tígra í aldarfjórðungslangri baráttu þeirra fyrir sérstöku ríki Tamíla á eynni.
Meira
Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is ÍSRAELSKAR orrustuvélar héldu áfram árásum á skotmörk á Gaza í gær en margt bendir til, að Ísraelar muni einnig ráðast inn á svæðið með landher og skriðdrekum.
Meira
KARLMAÐUR um tvítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. janúar nk. en hann er grunaður um að hafa stungið mann í verslun 10-11 á nýársmorgun.
Meira
ÍSLENSK kona, Ísól Lind Cotto, var myrt á gamlárskvöld af eiginmanni sínum. Hún bjó í bænum Marbletown í New York-ríki í Bandaríkjunum. Eiginmaðurinn, William Cotto, skaut Ísól til bana og framdi sjálfsvíg í kjölfarið. Ísól var 49 ára gömul.
Meira
„Jú, ætli jólaruslið sé ekki að berast þarna upp eftir núna,“ segir Björn H. Halldórsson, forstjóri Sorpu. Þrjár jarðýtur unnu að því að dreifa úr og þjappa rusli þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði.
Meira
RAFMAGNSLEYSI setti svip sinn á áramótagleði Skagfirðinga á gamlársdag. Rafmagnslaust varð á Sauðárkróki rétt fyrir klukkan sex þegar verið var að leggja lokahönd á áramótasteikina á flestum heimilum í bænum.
Meira
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir sterk rök hníga að því að kjósa til Alþingis um leið og efnt yrði til þjóðaratkvæðis um aðildarviðræður að Evrópusambandinu, yrði slík kosning ofan á.
Meira
Kristján Arason, eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, tilkynnti samstarfsmönnum sínum í Nýja Kaupþingi í gær að hann væri hættur störfum. Kristján starfaði sem framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs bankans.
Meira
KVEIKT var í ónýtum flugeldatertum í bakgarði hússins Bergstaðastræti 20 skömmu eftir hádegið í gær. Húsið er úr timbri og stendur autt. Það hefur verið í fréttum vegna óánægju íbúa með slæma umgengni við húsið.
Meira
Róbert tekur þátt í leikritinu Í fréttatilkynningu frá Útvarpsleikhúsinu um upptökur á nýjum útvarpsleikritum eftir Hrafnhildi Hagalín, sem sagt var frá á baksíðu Morgunblaðsins á gamlársdag, féll niður nafn Róberts Arnfinnssonar.
Meira
FLUGELDALEIFAR eru til margra hluta nýtar ef hugmyndaflugið fær að njóta sín. Það sýndu félagarnir Bjarni Jorge Gramata, 9 ára, Davíð Manuel Gramata, 5 ára, og Gestur Daníelsson, 10 ára, fram á með því að skapa glæsilegan kastala úr slíkum leifum.
Meira
FULLORÐINN karlmaður lést í eldsvoða í fjölbýlishúsi í Fannborg 1 í Kópavogi aðfaranótt 31. desember sl. Eldurinn mun hafa komið upp í stofu íbúðar mannsins en eldsupptök eru ókunn.
Meira
Góðir Íslendingar. Við Dorrit óskum ykkur öllum gleðilegs árs og vonum að nýir tímar verði hverjum og einum og þjóðinni allri farsælli en liðið ár.
Meira
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÉG prédika ekki yfir fólki sem gengur í pelsum og sjálf nota ég leður en ég dreg mörkin við dýrafeldi framleidda í Kína,“ segir Hanna María Arnórsdóttir dýralæknir.
Meira
Samkvæmt skoðanakönnun sem unnin var fyrir Samtök iðnaðarins í desember vilja 65,5 prósent svarenda taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið en tæp 20 prósent eru því andvíg.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is MIKILL meirihluti landsmanna er hlynntur því að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið, samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins í síðasta mánuði.
Meira
Gott kvöld, góðir Íslendingar. Gleðilega hátíð! Í kvöld rennur árið 2008 skeið sitt á enda. Við kveðjum það með blendnum huga. Í efnahagslegum skilningi má tala um hörmungarár.
Meira
Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is ÁRIÐ sem nú er að líða verður Anítu Briem eflaust minnissstætt fyrir flest annað en efnahagshrunið á Íslandi.
Meira
Sjö fílar í dýragarðinum í San Diego í Bandaríkjunum hafa samtals misst yfir fimm tonn frá því að þeir voru settir í megrunarkúr fyrir átta árum.
Meira
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að forsætisráðherra hafi verið skylt að auglýsa embætti skrifstofustjóra nýrrar efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu hjá ráðuneytinu.
Meira
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is „EKKI mjög frumlegar“ og bera vott um „óðagot eða taugaveiklun í herbúðum sjálfstæðismanna“ er meðal þess sem forystumenn stjórnarandstöðunnar segja um hugmyndir Geirs H.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður, pólskur ríkisborgari, sæti farbanni allt til 27. janúar nk. Maðurinn er grunaður um stórfellda líkamsárás í október sl.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is RAFMAGNSVERÐ til viðskiptavina RARIK hækkar á bilinu 7 til 14% um áramót vegna hækkunar á taxta fyrir orkuflutning og dreifingu.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is „BYRJAÐ var að beita úðanum þegar fólkið braut niður hurð sem veit inn í gamla framanddyrið. Það hefði getað komist um allt hús ef við hefðum misst það inn.
Meira
BANN við reykingum á öllum opinberum stöðum, til dæmis í húsnæði í eigu hins opinbera, veitingastöðum og öðrum samkomustöðum, í borginni Pueblo í Colorado í Bandaríkjunum hefur leitt til þess, að sjúkrahússinnlögnum vegna hjartaáfalls hefur stórfækkað.
Meira
SKIPULAGSSTOFNUN hefur fallist á matsáætlun Landsnets fyrir Blöndulínu 3, frá Blöndustöð um Skagafjörð til Akureyrar. Stofnunin gerir hins vegar margvíslegar athugasemdir sem hún fer fram á að teknar verði inn í frummatsskýrslu.
Meira
„HELDUR þykir okkur súrt í brotið að ferðakostnaður okkar með Strætó til og frá vinnu muni frá og með áramótum tvöfaldast, á sama tíma og þjónustan skerðist verulega,“ segja hjónin Sigríður Indriðadóttir og Hjörtur Hróðmarsson, íbúar á...
Meira
„ÉG er til dæmis að vinna að „trailer“ fyrir næstu mynd Renée Zellweger sem heitir Case 39, og lítur reyndar ekkert alltof vel út,“ segir tónskáldið Veigar Margeirsson sem semur tónlist fyrir bandarískar kvikmyndaauglýsingar,...
Meira
SÉRA Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur í Akureyrarkirkju, mun þjóna Selfosskirkju á næstunni, en sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir gegndi því starfi til áramóta. Segir Eysteinn Ó. Jónasson, formaður sóknarnefndar kirkjunnar, sr.
Meira
TÓLF manns létust í jafnmörgum umferðarslysum á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Frá því að formleg skráning umferðarslysa hófst hafa aðeins tvisvar færri látið lífið í umferðinni á ári, árin 1968 og 1996. Skráning hófst árið 1967.
Meira
NÖKKVI Bragason hefur verið skipaður skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins. Nökkvi hefur próf í hagfræði frá The University of Texas í Bandaríkjunum.
Meira
TVEIR selir kúrðu á skeri við Seltjarnarnes í gær. Þeir voru þó ekki sofandi, eins og segir í gömlu þulunni, heldur fylgdust gaumgæfilega með brölti ljósmyndarans í fjörunni.
Meira
AÐ MATI Vinnumálastofnunar mun atvinnuleysi aukast hratt á næstu mánuðum og verða mest í sumar samhliða því að námsmenn koma út á vinnumarkaðinn eftir að skólahaldi lýkur á þessari önn.
Meira
APAR af tegundinni macaque baða sig í heitri laug á hverasvæði í borginni Yamanouchi í Heljardal í fjallahéruðum Honshu-eyjar í Japan. Apar af þessari tegund eru um 60 cm á hæð, að jafnaði um 15 kg fullvaxnir og oft nefndir snæapar.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og heiðursfélagi Friðarráðs palestínskra og ísraelskra kvenna, hvetur almenning, ríkisstjórnir, alþjóðastofnanir, fjölmiðla, alþjóðlega verkalýðshreyfingu og aðra til að gefa gaum yfirlýsingu Friðarráðsins...
Meira
LJÓSIN frá flugeldunum gleðja marga meðan þau loga á himninum. Þegar birtir kemur hins vegar í ljós allur sá mikill óþrifnaður sem fylgir flugeldunum.
Meira
MIKIL aukning hefur orðið á útköllum björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Um er að ræða 60% heildaraukningu á þessu svæði síðan í fyrra.
Meira
BÚIST er við, að 60.000 eftirlitsmyndavélar verði settar upp í Danmörku á þessu ári og munu þá bætast við þær rúmlega 300.000 vélar, sem nú fylgjast með Dönum á degi sem nóttu.
Meira
„Ég er alveg í sjöunda himni með þetta,“ sagði Björn Þorfinnsson, forseti Skáksambands Íslands og forseti Skákakademíu Reykjavíkur, skömmu eftir að hann varð alþjóðlegur meistari í skák með því að sigra í B-flokki á Reggia Emila-mótinu á...
Meira
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Gert er ráð fyrir 870 milljóna kr. hagræðingu hjá menntasviði Reykjavíkur í fjárhagsáætlun borgarinnar. Hækka útgjöld til þessa málaflokks úr 16,8 milljörðum kr. í 17,6 milljarða.
Meira
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is NÆSTUM fjórða hver króna af skattpeningum Íslendinga fer í vaxtagjöld samkvæmt fjárlögum fyrir árið í ár.
Meira
„FÆÐINGIN var eiginlega akkúrat á miðnætti, ég var í kollhríðinni þegar flugeldasýningin stóð sem hæst,“ segir Margrét Rósa Jochumsdóttir sem ásamt Baldri Steini Helgasyni eignaðist fyrsta barn ársins 2009.
Meira
SKÁLDSAGAN Afleggjarinn eftir Auði A. Ólafsdóttur, sem fengið hefur mjög góðar undirtektir hérlendis frá því hún kom út í fyrra, var eins og kunnugt er nýlega tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Meira
SÝNINGU Braga Ásgeirssonar myndlistarmanns á Kjarvalsstöðum lýkur á sunnudag. Sýningin ber yfirskriftina: Augnasinfónía - Myndlist Braga Ásgeirssonar í 60 ár. List Braga er víðfeðm; teikningar, upphleypt poppverk, abstrakt málverk og fígúratíf grafík.
Meira
*Leikritið Dubbeldusch eftir Björn Hlyn Haraldsson verður aftur tekið til sýninga en nú í Hafnarfjarðarleikhúsinu og verður fyrsta sýningin leikin eftir nákvæmlega viku.
Meira
SAMKVÆMISLJÓNIÐ Paris Hilton er nú sögð vera að slá sér upp með kvikmyndaleikaranum George Clooney. Greint er frá því í bandaríska tímaritinu Life and Style Weekly að til þeirra hafi sést á Whiskey bar Sunset Marquis-hótelsins í Hollywood.
Meira
Kvikmyndin Yes Man er í sýningum um þessar mundir. Gauti Sigþórsson sótti blaðamannafund með aðalleikaranum Jim Carrey og fyrirmyndinni að persónu hans, Danny Wallace.
Meira
1 Darling og Brown – vinur er sá er til vamms segir. 2 Bob Dylan – kom til dyranna eins og hann var klæddur. Aftur! 3 Brasse Brännström – ha! hver?
Meira
*Í nýlegri bók eftir John Niven, sem starfaði sem A&R maður hjá London Records (A&R er sá sem leitar uppi tónlist fyrir útgáfufyrirtæki), fer hann hörðum orðum um útgáfuheiminn breska, svo hörðum orðum að mörgum finnst nóg um.
Meira
GESTIR þáttarins Orð skulu standa í dag eru nokkrir af þekktustu tónlistarmönnum, rithöfundum og stjórnmálamönnum landsins, of margir til að telja upp hér. Þau botna þennan fyrripart þar sem fyrir kemur nýyrði: Hér er mannval mikið, margir gáfusnúðar.
Meira
Skattgreiðandi“ sem virðist telja að raunverulegt nafn hans þoli ekki birtingu, fór mikinn í Velvakanda rétt fyrir jól með töfralausnir í opinberum sparnaði. Undir fyrirsögninni: Hvar á hið opinbera að spara?
Meira
Í NÝRRI kvikmynd eftir Tony Palmer er dregin upp fremur ótótleg mynd af þýska tónskáldinu Carl Orff, sem þekktur er fyrir verk sitt Carmina burana .
Meira
ÞAÐ er ekki bara á Íslandi sem þjóðhöfðingjar borðaleggja listamenn og aðra um áramót. Elísabet Englandsdrotting sendi á nýársdag frá sér lista yfir þá sem hljóta þarlendan fálka, Commander of the Order of the British Empire.
Meira
„ÞETTA er áramótaþátturinn okkar og frábrugðinn að því leyti að þar verða hátt í 20 gestir og ekki af lakara taginu. Ég nefni doktorarna tvo, Kára Stefánsson og Ármann Jakobsson, svo rak inn nefið landslið íslenskra tónlistarmanna og rithöfunda.
Meira
TÓNLEIKAFERÐALAG Madonnu, sem bar heitið Sticky and Sweet, var það tekjuhæsta árið 2008, en það þénaði 281,6 milljónir dala á heimsvísu. Frá þessu er greint í tónlistartímaritinu Pollstar.
Meira
SÍÐDEGISDJASS verður leikinn í kaffistofu Hafnarborgar í Hafnarfirði á morgun kl. 16. Það er Tríó Björns Thoroddsens sem þar á í hlut, en auk Björns skipa tríóið Jón Rafnsson bassaleikari og Guðmundur Steingrímsson trommuleikari.
Meira
FREYJA Dana heldur myndlistarsýningu í Ólafsfirði um helgina í Listhúsinu, Ægisgötu kl. 14-17. Yfirskrift sýningarinnar er: Æskuminningar. Þegar alltaf var sólskin, öryggi og ást.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞAÐ er búið að framleiða 7.388 eintök af plötunni á fimmtán árum, og þegar ég var búin að taka saman hve mörg eintök hefðu verið gefin í kynningarskyni, þá var ljóst, að búið er að selja meira en þau 5.
Meira
Árni Þór Sigurðsson | 2. janúar Er of flókið að kjósa? Margir hafa lýst þeirri skoðun, í umræðunni um Evrópumálin, að eðlilegt sé að viðhafa tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu.
Meira
Egill Jóhannsson | 2. janúar Iðrun forsenda fyrirgefningar, forsendu trausts Traust í íslensku samfélagi er í lágmarki í dag og margir spyrja hvernig það verði uppreist. Það verður ekki fyrr en lykilstofnanir samfélagsins sýna iðrun, einlæga iðrun.
Meira
Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni: "YFIR hátíðisdagana voru fréttir af því að á meðan kirkjusókn dvíni hröðum skrefum í langflestum Erópulöndum þá aukist kirkjusókn hér á landi. Þökkuðu innlendir prestar og aðrir kirkjunnar menn sér og stofnunum sínum þessa aukningu þegar að var spurt."
Meira
KRAFAN um að Ísland verði innlimað í Evrópusambandið er í raun krafa um að lýðræðislega kjörnum fulltrúum íslenzku þjóðarinnar verði skipt út fyrir embættismenn sambandsins sem enginn hefur nokkurn tímann kosið og sem hafa fyrir vikið hvorki...
Meira
Í FINANCIAL Times fjallar John Thornhill nýverið um þjóðernishyggju í Evrópu. Hann fjallar um Evrópusamstarfið og þá þróun sem stærstu hagkerfin hafa kosið sér að undanförnu.
Meira
Gunnar I. Birgisson segir að allar efnislegar forsendur til að hefja hvalveiðar liggi fyrir: "Ég skora á sjávarútvegsráðherra að taka á sig rögg og gefa út hvalveiðikvóta fyrir árið 2009."
Meira
Frá Andra Arinbjarnarsyni: "NÝLEGA auglýsti bankaráð Landsbankans eftir innri endurskoðanda. Þessi auglýsing segir margt um nýju vinnubrögðin innan ríkisbankanna og er því miður ekki til að auka á traust eða trúverðugleika hins flokksskipaða bankaráðs."
Meira
Eftir Bjarna Harðarson: "Eitt skrefið í átt til nýrra tíma er vitaskuld breyting á kosningafyrirkomulagi þar sem tryggður er í meira mæli en nú réttur kjósenda til að velja einstaklinga fremur en flokka."
Meira
Það byrjaði með flís, stórri flís og eitraðri. Svo fór það yfir í glerbrot. Fyrir jól rak ég fótinn í rauf í gömlu gólfinu heima hjá mér og særði fram brot sem stóð upp úr fjölinni. „Þetta þarf að laga strax“ hugsaði ég.
Meira
„ACCIDENTS don't happen. They are caused!“ Þessi setning situr í mér frá fyrstu sjónvarpsreynslu minni, en hún er úr gamla kanasjónvarpinu á 7. áratugnum úr auglýsingum um bætt umferðaröryggi.
Meira
Stefán Jóhann Hreiðarsson | 2. janúar Fylgi við hvað? Ríkisstjórnin virðist eitthvað vera að hressast og uppskera fyrir þrásetu sín. Sjálfstæðisflokkurinn eilítið stærri en síðast og Samfylkingin eilítið minni. Vinstri grænir tróna áfram á toppnum.
Meira
Kór Fjarðabyggðar biður að heilsa VIÐ hjónakornin fengum kærkomna og gleðiríka sendingu heiman að um jólin þar sem var fallegur hljómdiskur og vel gjörður með ljúfum og hreimþýðum söng Kórs Fjarðabyggðar á lögum hins ástsæla tónskálds og Austfirðings,...
Meira
Ari Arason, stýrimaður og viðskiptafræðingur, fæddist á Blönduósi 13. desember 1954. Hann andaðist 22. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðlaug Nikódemusdóttir, f. 30. október 1914, d. 12. júlí 2001 og Ari Jónsson, f. 10. júní 1901, d. 6.
MeiraKaupa minningabók
Böðvar Magnús Guðmundsson fæddist á Efri-Brú í Grímsnesi 8. nóvember 1935. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 4. desember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Selfosskirkju 13. desember.
MeiraKaupa minningabók
Helgi Sigurðsson fæddist í Torfgarði á Langholti í Skagafirði 19. september árið 1913. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 19. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Helgason bóndi í Torfgarði á Langholti, f. 22.7.
MeiraKaupa minningabók
Sjöfn Magnúsdóttir fæddist í Ási í Vestmannaeyjum 3. desember 1929. Hún andaðist á Sjúkrahúsinu á Ísafirði þriðjudaginn 23. desember síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Hannesínu Þorgerðar Bjarnadóttur, f. á Stokkseyri 1.12. 1907, d. 21.2.
MeiraKaupa minningabók
Tryggvi Marteinsson Tausen fæddist í Vogi á Suðurey í Færeyjum 19. ágúst 1933. Hann lést á Líknardeild Landspítalans 21. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Anna Dórothea Tausen húsmóðir, f. í Færeyjum 1905, d.
MeiraKaupa minningabók
Þorsteinn Oddsson fæddist á Heiði á Rangárvöllum 23. október 1920. Hann lést á dvalarheimilinu Lundi á Hellu 19. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Helga Þorsteinsdóttir frá Berustöðum í Ásahreppi, f. 23. ágúst 1890, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
ICELANDAIR varð fyrir valinu til að sjá um flug með danska ríkisstarfsmenn á milli Kaupmannahafnar og New York. Félagið bauð hagstæðasta verðið á þessari flugleið í útboði á vegum danska fjármálaráðuneytisins.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ÓHÆTT er að segja að hlutabréfamarkaðir hafi byrjað nýja árið á bjartsýnni nótum en margir bjuggust við miðað við horfur í efnahagsmálum í heiminum.
Meira
ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX á Íslandi veiktist um 0,04% í viðskiptum gærdagsins, en um er að ræða nýja hlutabréfavísitölu. Gamla vísitalan, OMXI15 , var í 352,16 stigum við lokun markaða 30. desember síðastliðinn.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is MIKIL verðbólga og samdráttur í einkaneyslu mun þjaka bandaríska hagkerfið á næstu árum, rætist spár nokkurra hagfræðinga og fjármálamanna, sem spáðu fyrir um hrunið, sem orðið hefur á fjármálamörkuðum heimsins.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is SÍMINN lítur svo á að samningur sem fyrirtækið gerði í desember síðastliðnum við þáverandi forstjóra Tals, Hermann Jónsson, sé í gildi, að sögn Sævars Freys Þráinssonar, forstjóra Símans.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is SLÓVAKÍA tók upp evru sem gjaldmiðil um áramótin. Slóvakía varð þar með sextánda Evrópulandið til að taka upp evru.
Meira
EFNAHAGSKREPPAN á Íslandi hefur kostað breska athafnamanninn um 125 milljarða króna. Í grein breska blaðsins Times segir að Kaupþing hafi lánað Tchenguiz háar fjárhæðir, m.a.
Meira
VELTA á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu 26. desember 2008 til og með 1. janúar 2009 nam 272 milljónum króna, en alls var 13 kaupsamningum þinglýst á tímabilinu.
Meira
Skilnaður styttir lífið um tæp tíu ár, reykingar kosta helmingi meira. Lífsval og -aðstæður fólks hafa greinileg áhrif á dauðann og nú hafa þýskir vísindamenn reiknað út hvað hver áhrifaþáttur kostar í árum.
Meira
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd yrkir um áramót: Þjóðin mín – í þraut og kvíða þarftu kannski margt að líða. Vittu að eftir veisluhöldin vilja koma syndagjöldin! Lífið oft þó liggi um hæðir, lægðir stórar einnig þræðir.
Meira
Halldór Nguyen fór í nám í tölvufræði með það í huga að búa til forrit til að geta gert rafræna orðabók fyrir Víetnama sem búa á Íslandi. Hann er hamhleypa til verka og það tók hann ekki nema eitt og hálft ár að klára bókina.
Meira
ÞAU ERU ófá nýársloforðin þar sem því er heitið að taka nú mataræðið í gegn og fækka aukakílóunum. Megrun á þessum tíma árs kann hins vegar að vera varhugaverð hugmynd þar sem að hún dregur úr hæfni líkamans til að sigrast á flensuveirunni.
Meira
Árið er liðið í aldanna skaut. Árið verður lengi í minnum haft vegna þeirrar miklu fjármálakreppu, sem reið yfir þjóðina og reyndar alla heimsbyggðina.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SPURNINGASPILIÐ Ísland sem kom út í haust og hefur töluvert verið auglýst nú fyrir jólin er hið ágætasta spil þótt það sé ekki með öllu gallalaust.
Meira
Akranes Viktor Logi fæddist 24. ágúst kl. 7.46. Hann vó 2.825 g og var 49 sm langur. Foreldrar hans eru Lilja Ósk Kristbjarnardóttir og Sigurður Jón...
Meira
Danmörk Markus Máni Leó fæddist 27. júlí kl. 6.05. Hann vó 3.650 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Rakel Guðbjörg Magnúsdóttir og Davíð...
Meira
Húsavík Eydís Lára fæddist 2. september á Akureyri, kl. 13.45. Hún vó 2.575 g og var 49 sm löng. Foreldrar hennar eru Hjördís Þórey og Samuel James...
Meira
AFMÆLISDAGUR Kristínar Á. Ólafsdóttur, kennara og söngkonu, hefst í Reykholtskirkju þar sem hún fylgir ásamt Reykholtskirkjukór gömlum vini, Tryggva Tausen, til grafar.
Meira
JÓLASKÁKÞRAUTIR birtust á aðfangadag þann 24. desember. Hér koma lausnir dæmanna sem voru átta talsins. Hefðbundið er að lausnin snýst um fyrsta leikinn. Dæmi nr. 1. – HERLIN Mát í 2. leik Lausn: 1. Dh1! Dæmi nr. 2. – Aurelio Abela Mát í 2.
Meira
Þegar kreppuárið mikla 2009 rann upp fyrir Víkverja var hann nývaknaður, eldhress og úthvíldur, eftir hófleg veisluhöld gamlárskvölds, vel fyrir hádegi 2. janúar. Víkverji var hress og vildi gera eitthvað uppbyggilegt, fara út að hlaupa jafnvel.
Meira
3. janúar 1597 Heklugos hófst „með stórum eldgangi og jarðskjálftum svo þar sáust í einu loga átján eldar í fjallinu,“ eins og segir í Skarðsárannál. Í tólf daga heyrðust „dunur með miklum brestum, álíkt sem fallbyssnahljóð“. 3.
Meira
Körfuknattleiksfólkið Páll Axel Vilbergsson og Jovana Lilja Stefánsdóttir voru kjörin íþróttamenn ársins í Grindavík 2008 í samkvæmi á vegum UMFG í Salthúsinu á gamlársdag.
Meira
Fjölmargir leikir fara fram í dag í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Án efa verður fylgst vel með því hvernig Steven Gerrard , fyrirliði Liverpool , mun leika gegn Preston. Gerrard var handtekinn aðfaranótt 29.
Meira
GUÐJÓN Þórðarson stígur fram á sviðið í ensku knattspyrnunni á nýjan leik í dag þegar hann stýrir liði Crewe gegn Millwall á The New Den-vellinum í Millwall í 3. umferð ensku bikarkeppninnar en Guðjón var ráðinn nýr knattspyrnustjóri Crewe um jólin.
Meira
HEIÐAR Helguson hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við enska 1. deildarliðið QPR en eins og Heiðar greindi frá í Morgunblaðinu á gamlársdag stefndi allt í að samningar tækjust á milli Bolton og QPR um kaupin.
Meira
HERMANN Hreiðarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er orðaður við skoska úrvalsdeildarliðið Rangers sem og ensku 1. deildar liðin Reading og Ipswich.
Meira
KNATTSPYRNA England Bikarkeppnin, 3. umferð. Tottenham – Wigan 3:1 Roman Pavlyuchenko (víti) 52., 90., Luka Modric 76. – Henri Camara 88. um helgina Laugardagur ÍSHOKKÍ Konur: Akureyri: SA – Björninn 18.
Meira
ALÞJÓÐASAMBAND íþróttafréttamanna, AIPS, hefur valið Usain Bolt, spretthlaupara frá Jamaíku, íþróttakarl ársins 2008 og rússneska stangarstökkvarann Jelenu Isinbayevu íþróttakonu ársins 2008. Þá var lið Spánverja, sem varð Evrópumeistari í knattspyrnu í sumar, útnefnt lið ársins.
Meira
ÓLAFUR Stefánsson hlaut fullt hús stiga í kjörinu um íþróttamann ársins og lék þar með sama leik og Eiður Smári Guðjohnen þegar hann var kjörinn íþróttamaður ársins 2005. Alls fengu 25 íþróttamenn úr 9 íþróttagreinum atkvæði í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna.
Meira
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti í gær íslensku landsliðsmönnunum í handknattleik viðurkenningar Alþjóða ólympíunefndarinnar, IOC. IOC veitir öllum verðlaunahöfum á Ólympíuleikum sérstaka viðurkenningu vegna árangurs þeirra.
Meira
Fyrir nokkrum vikum sendu krakkar okkur pennavinaauglýsingu frá Bandaríkjunum. Nú hafa tvær í viðbót bæst við og ef þið hafið áhuga á að æfa ykkur í ensku getið þið skrifað þeim bréf.
Meira
Þau Ísak Styr, Marteinn, Vífill, Arna og Katrín hafa eytt jólunum í faðmi fjölskyldna og vina. Hafa þau ýmist spilað, farið í fótbolta, barbí eða verið í tölvuleikjum yfir hátíðarnar og gert margt fleira skemmtilegt.
Meira
Þeir Marteinn Guðmundsson, Ísak Styr Stefánsson og Vífill Harðarson, 10 ára, voru í afar spennandi tölvuleik þegar okkur bar að garði og höfðu þeir vart tíma fyrir viðtal.
Meira
Þær Arna Guðjónsdóttir og Katrín Guðmundsdóttir eru 6 ára hnátur úr Garðabæ og eru þær bestu vinkonur. Hvernig kynntust þið? Arna: „Mamma mín og mamma hennar Katrínar voru saman í bekk þegar þær voru litlar.
Meira
Lítill drengur spurði mömmu sína hvort hann mætti verða prestur þegar hann yrði stór. Mamman spurði af hverju hann vildi það. „Jú, ég þarf hvort sem er að fara svo oft í kirkju og þá er miklu skemmtilegra að mega standa og tala.
Meira
Bókin Doktor Proktor og prumpuduftið er skemmtileg, fyndin og spennandi bók eftir Jo Nesbø. Í bókinni eru Búi, Lísa og Doktor Proktor kynnt og eru þau aðalpersónurnar. Sagan gerist um vor í Noregi á Fallbyssustíg sem er gatan sem Lísa og Búi búa á.
Meira
Helena Ýr sat heima og var að skrifa á blað það sem hún vildi í jólagjöf. Hún skrifaði: Tölvuleikir fyrir átta ára krakka eins og ég er, dvd-myndir, Barbídót, sleða, föt, tvær kisur, þrjá hunda, fjórar kanínur og fullt af nammi.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Það sem helst stendur upp úr á liðnu dægurtónlistarári er þetta: Það stendur ekkert upp úr. Hægan hægan, þessi setning er alls ekki eins þreytt og dómadagsleg og hún virðist í fyrstu.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 782 orð
| 2 myndir
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Það var afskaplega þungt yfir í byrjun árs. Hingað streymdu kolsvartar heimsósómamyndir sem báru með sér andrúm Ameríku undir lok valdatíma Bush, heimsveldis á heljarþröm.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 253 orð
| 1 mynd
Callers er dúett söngkonunnar Söru Lucas og gítarleikarans Ryans Seaton. Honum var komið á legg í músíkborginni merku New Orleans en síðar átti dúettinn eftir að flytja til annarrar músíkmekku, Brooklyn í New York.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 820 orð
| 3 myndir
Balram Halwai, sögumaður bresku skáldsögunnar The White Tiger , er „athafnamaðurª í hinu „Nýja Indlandi“ – Indlandi sem hefur að mörgu leyti tekið algjörum stakkaskiptum á liðnum árum og er orðið heimsþekkt efnahagsundur.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 1199 orð
| 2 myndir
Eftir Jónas Sen senjonas@gmail.com Fyrir þremur árum sagði ég í pistli um tónlistarlífið hér í Lesbókinni að árið 2005 hefði verið ár vonarinnar.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 449 orð
| 2 myndir
Borgin Bristol í Bretlandseyjum er hvað þekktust fyrir að hafa getið af sér hið svonefnda tripp-hopp, alltént í augum og eyrum tónlistarunnandans.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 267 orð
| 6 myndir
Gauti Kristmannsson Með fyrirvara um að ég hef ekki komist yfir nærri allt þá eru 5 athyglisverðustu (þessi listi hefði þurft að vera upp á 10 í ár, óvenju gott bókmenntaár) bækurnar í ár að mínum dómi: 1 Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur Bók sem skoðar...
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 563 orð
| 2 myndir
Hver er munurinn á frétt og söguburði? Eflaust er til fræðileg skilgreining á muninum á þessu tvennu en í mínum huga felst hann helst í því að án traustra heimilda getur kjaftasaga ekki orðið að frétt í ábyrgum fjölmiðlum. Af hverju minnist ég á þetta?
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 199 orð
| 1 mynd
Bandaríski fræðimaðurinn Noam Chomsky er löngu heimsþekktur fyrir skrif sín um stjórnmál og nýjasta greinasafnið, Interventions , sýnir svo ekki verður um villst að hér fer afburða greinandi.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 124 orð
| 2 myndir
Ég hef því miður lítið náð að glugga í jólabækurnar og ekki lesið mikið síðustu mánuði. Einna helst að ég vilji nefna hér tvo geisladiska sem standa vel upp úr meðalmennskunni.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 562 orð
| 2 myndir
Einn af þeim fjölmörgu listamönnum sem sprungu út á því herrans ári 1972 var Stevie Wonder, þá tuttugu og tveggja ára gamall. Börn sjöunda áratugarins, ef svo má kalla, tóku mikil þroskastökk á þessum árum.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 154 orð
| 1 mynd
Að lokum verð ég að nefna eina uppáhaldsjólamynd sem ekki þarf að veiða upp úr ruslinu. Það er nútímauppfærsla Richards Donners á Jóladraumi Charles Dickens, Scrooged (1988), með Bill Murray í aðalhlutverki. Murray leikur Francis X.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 495 orð
| 2 myndir
Hinn alræmdi Star Wars-jólaþáttur ( The Star Wars Holiday Special ) frá 1978 er löngu orðinn goðsagnakenndur, jafnt meðal aðdáenda kvikmyndaseríunnar sem allra unnenda lélegs sjónvarpsefnis.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 132 orð
| 1 mynd
Annar hornsteinn slæmrar kvikmyndagerðar á jólum er hin sígilda Santa Claus Conquers the Martians (1964), vísindaskáldsöguleg fjölskyldumynd um Marsbúa sem ræna jólasveininum svo hann geti framleitt leikföng og vakið gleði marsneskra barna.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 750 orð
| 2 myndir
Eftir Önnu Jóa annajoa@simnet.is Af þeim sýningum sem ber hæst á árinu 2008 er að minni hyggju fyrst að nefna Of the North eftir Steinu Vasulka í Listasafni Íslands.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 150 orð
| 6 myndir
Árni Þórarinsson Arfaslakt kvikmyndaár sem fór langleiðina með að gera bíófíkil að bindindismanni. Þær fimm skástu: 1 Before The Devil Knows You're Dead . Leikstjóri: Sidney Lumet. Bandaríkin.
Meira
Kvöldverðurinn í nefinu, ásamt ærunni, gubbinu og slefinu. Inga varð eftir ein. Það kostaði 3000 að komast heim. Svo ég vakni á morgun þarf ég að sofna í nótt; margt er fagurt, þótt þyki ljótt.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 199 orð
| 6 myndir
Stefán Jónsson Þar sem Ísland verður innan tíðar hluti af Evrópu læt ég fylgja með nokkrar góðar sem ég sá þar 2008. London: Heimkoman e. H. Pinter, leikstj. M. Attenborough, Trójudætur e. Evrípídes, leikstj. K.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 268 orð
| 1 mynd
Það versta við bækur er að þær klárast. Rithöfundar eru að þessu leyti stórlega varasamt lið sem beinlínis starfar að því að hryggja lesandann. Sem betur fer er þó til fólk sem áttar sig á mikilvægi endalausra sagna: myndasöguhöfundar.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 186 orð
| 1 mynd
Hulda Stefánsdóttir 1 Tilraunamaraþon Hafnarhússins á Listahátíð var skemmtilega kaótísk opnun á núningsfleti lista, vísinda og fræða og hefði sennilega ekki getað verið öðruvísi.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 791 orð
| 2 myndir
Eftir Maríu Kristjánsdóttur majak@simnet.is Að horfa til baka yfir árið 2008 er undarlegt. Óvissa stundarinnar gerir flest merkingarlaust. Allsráðandi er efinn um hvort það sem horft var á, skynjað, eða skilið hafi raunverulega átt sér stað.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 1169 orð
| 4 myndir
Níunda bindi Sögu Íslands kom út skömmu fyrir jól. Þar segja Anna Agnarsdóttir, Gunnar Karlsson og Þórir Óskarsson sögu nítjándu aldar eða tímabilsins 1795 til 1874. Við grípum hér niður í texta Önnu um ástandið í landinu í byrjun nítjándu aldar.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 663 orð
| 2 myndir
Áramót eru tími uppgjöra, tími til að horfa yfir farinn veg, greina hismið frá kjarnanum. Þá skal skilgreina tíðarandann, pakka honum inn og eiga hann, svo það sé auðveldara að skilja tímann og muna hann. Eða þannig.
Meira
3. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 269 orð
| 6 myndir
Guðni Tómasson 1 Apocrypha - Hugi Guðmundsson. Þetta dularfulla tónverk Huga býður upp á nýjan spennandi tónheim í íslenskri tónlist sem er engu líkur.
Meira
Við upphafið á nýju ári líta margir til baka, sjá hvað miður fór og lofa að gera betur á komandi mánuðum. Oftar en ekki snúa þessi loforð að bættri heilsu og betri líðan.
Meira
Það er sífellt meiri aðsókn að offitumeðferð á Reykjalundi þó ekki kjósi allir að fara í hjáveituaðgerð. Það voru yfir 300 beiðnir um meðferð sem bárust Reykjalundi árið 2008 og ekkert lát virðist á.
Meira
Fyrir um tveimur árum var dóttir Jóhönnu Mjallar Þórmarsdóttur, sem nú er 11 ára, greind með athyglisbrest og á einhverfurófi. Var Jóhönnu Mjöll sagt að lítið væri hægt að gera fyrir dótturina nema bíða og sjá en hún var fremur ósátt við þau svör og leitaði eigin ráða.
Meira
Bryndísi Baldursdóttur hefði ekki getað órað fyrir því að sjö árum eftir að hún gafst upp eftir aðeins 200 metra hlaup myndi hún taka þátt í Ironman. Hún segist líka kunna vel að meta það í dag að vera í góðu formi þótt það hafi komið henni á óvart þegar hún var kölluð íþróttamaður í fyrsta sinn.
Meira
Til að komast í gegnum daginn er mikilvægt að vera með nóg elds-neyti í líkamanum. Því er heillaráð að sleppa aldrei morgunmatnum og afar gott ef hann er hollur og orkuríkur drykkur.
Meira
Það er beint samband á milli fjölda rekkjunauta og HPV-smits en HPV er veira sem getur valdið leghálskrabbameini. Það eru einungis um 75 prósent kvenna sem fara reglulega í krabbameinsskoðun en þar er leitað eftir forstigsbreytingum sem geta leitt til leghálskrabbameins.
Meira
Það er aldrei skemmtilegt að verða veikur og sumir kvarta undan því að hafa einfaldlega ekki tíma til að leggjast í rúmið. Ýmislegt má gera til þess að reyna að bæta ónæmiskerfið og sporna við veikindum.
Meira
Talað er um að 90 prósent þess sem við höfum áhyggjur af verði aldrei að veruleika. Hvort sem það er tölfræðilega nákvæmt eða ekki er það veruleiki sem margir kannast við. Hve miklum tíma sóum við í að þjást yfir einhverju sem gæti mögulega gerst?
Meira
Börnin sem dvelja hjá Bjarneyju S. Grímsdóttur og Þorgerði Pétursdóttur, Tobbu, dagmæðrum í Reykjanesbæ, hafa á þeim matarást enda leggja þær sig fram um að gefa þeim hollan og lífrænan mat eins og kostur er.
Meira
Það getur tekið sinn tíma að venja börn á aðra fæðu en brjóstamjólk. Mikilvægt er að gefa sér nógan tíma til að venja barnið á matinn og vera viðbúinn því að hann gæti endað víðar en uppi í munni barnsins, til dæmis á veggjum og gólfi!
Meira
Góð heilsa byrjar með einum göngutúr enda margar ástæður fyrir því að göngutúrar eru frábær hreyfing. Það þarf engin sérstök áhöld til að ganga, það má ganga nánast hvar sem er og flestir geta farið í göngutúr. Þar að auki er það frábært fyrir heilsuna.
Meira
Upp úr tvítugu fann Ebba Guðný Guðmundsdóttir að hún var ekki jafnheilsuhraust og hún hafði verið, varð oftar illt í maganum og lasin. Í framhaldi af því fór hún að skoða mataræði sitt betur og komst að því að hún þoldi illa ýmsa fæðu.
Meira
Þekkt er að nota trönuber og trönuberjasafa til að vinna bug á blöðrubólgu en sumir segja að bláber virki alveg jafnvel. Bláber innihalda sömu efnasamsetninguna og þá í trönuberjum sem ræðst að sýkingunni.
Meira
Lög um tóbaksvarnir tóku gildi hér á landi í byrjun árs árið 1985 og hafa breyst nokkuð í gegnum tíðina en þar segir meðal annars að virða beri rétt hvers manns til að þurfa ekki að anda að sér lofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum annarra.
Meira
Stress gerir engum gott en margir þjást af því þegar vinna og einkalíf taka sinn toll í amstri dagsins. Mikilvægt er að reyna að draga sem mest úr stressi og er það hægt með ýmsum ráðum.
Meira
Matseðill Maður lifandi er orðinn fjölbreyttari og þar er boðið upp á fisk og kjúkling í meira mæli. Steinn Óskar Sigurðsson tók nýverið við stöðu forstöðumanns veitingasviðs á Maður lifandi og hann viðurkennir að mataræði hans hafi breyst töluvert síðan þá.
Meira
Halldóra Björnsdóttir sá um morgunleikfimi Ríkisútvarpsins í 21 ár, frá haustinu 1987. Leikfimin hófst árið 1957 og sá Valdimar Örnólfsson um hana fyrstu 25 árin, en þá tók Jónína Benediktsdóttir við í fimm ár og loks Halldóra.
Meira
Íslensku vigtarráðgjafarnir eru hluti af Dönsku vigtarráðgjöfunum sem er alþjóðleg keðja. Innan hennar kenna ráðgjafar með mikla faglega reynslu fólki hvernig megi grenna sig án þess að sleppa úr einni einustu máltíð.
Meira
Það getur verið ansi erfitt að púsla án þess að vita hvernig púsluspilið á að líta út eða að miða ör án þess að vita hvert er verið að skjóta. Að sama skapi eru markmið mjög mikilvæg þegar kemur að heilsurækt.
Meira
Í eðli sínu er hugurinn ólga og það er því mikilvægt að hvíla hann daglega, jafnvel tvisvar á dag. Slökun er því mjög mikilvæg fyrir heilsuna en það þarf ekki endilega ró og næði til að slaka á.
Meira
Best er að borða hollan mat allt árið um kring en leyfa sér eitthvað óhollara einstaka sinnum. Margir kjósa þó að borða heilmikla óhollustu um jól og áramót en lofa sjálfum sér því að taka sig á þegar árið er liðið. Þetta er þó ekki endilega góð lausn.
Meira
Það þarf ekki að mæta í glænýjum galla í ræktina frekar en maður vill en sumt er nauðsynlegt að hafa með sér. Til dæmis stór og góð íþróttataska sem rúmar vel skó, föt, handklæði og snyrtidót. Best og hreinlegast er að hafa skóna í poka á botninum.
Meira
Líkt og nafnið ætihvönn bendir til hefur hvönn lengi verið notuð sem matjurt. Hér á landi voru hvannagarðar við flesta bæi á öldum áður og þess getið í Íslendingasögunum að fólk hafi skorið hvönn. Hvönn og aðrar jurtir úr íslenskri náttúru hafa löngum verið notaðar í lækningatilgangi og reynst vel.
Meira
Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari „Ég held best heilsu ef ég sef vel og borða hollan og góðan mat. Einnig ræktar maður heilsuna á vissan hátt með því að hlæja og njóta þess að gera það sem maður aðhefst hverju sinni.
Meira
Það getur bætt sambandið að fara reglulega saman í ræktina og ekki verra ef keppnisandinn fylgir með. Í Sporthúsinu í Kópavogi geta pör farið saman í einkaþjálfun og keppt sín á milli hvort stendur sig betur.
Meira
Líkamsrækt með ketilbjöllum verður sífellt vinsælli en kostur bjallanna er helst sá að þær reyna á alla vöðvahópa. Æfingin þarf ekki að taka meira en 40 mínútur enda talsverð átök.
Meira
Fjölbreytt og næringarríkt mataræði er líkamanum nauðsynlegt. Hér skoðar næringarfræðingurinn Ólafur Gunnar Sæmundsson matseðil Þorfinns Ómarssonar á hefðbundnum degi og segir hvernig honum líst á.
Meira
Íþróttir spila ákveðið hlutverk í samfélaginu og geta aukið samheldni meðal fólks. Viðar Halldórsson, lektor í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík, telur að nýta megi ástandið í þjóðfélaginu til að breyta áherslum í íþróttastarfi.
Meira
Yesmine Olsson hefur lengi verið viðloðandi líkamsrækt, bæði sem einkaþjálfari, danshöfundur og nú sem höfundur bóka þar sem finna má hollar og framandi uppskriftir.
Meira
Hausinn þarf að vera í lagi þegar erfiðar áskoranir banka upp á. Ef hugurinn er ekki upp á sitt besta eru meiri líkur á að teknar séu rangar ákvarðanir og brugðist of hratt við. Til að halda huganum ferskum er ekkert sem jafnast á við góðan svefn.
Meira
Margir vilja byrja nýtt ár með heilbrigðum lífsstíl og ákveða jafnvel að fasta í nokkra daga til að hreinsa líkamann eftir ofgnótt matar og drykkja yfir hátíðirnar.
Meira
Guðjón Davíð Karlsson leikari segist ekki heilaþveginn af hollustu þó vissulega hugsi hann um hvað hann láti ofan í sig. Hann reynir líka að vera duglegur að hreyfa sig en viðurkennir að stundum sé erfitt að koma sér í ræktina.
Meira
Sumum konum finnst þægilegra að stunda líkamsrækt eingöngu með kynsystrum sínum. Víða um heim eru reknar svokallaðar Curves-líkamsræktarstöðvar að bandarískri fyrirmynd þar sem þjálfað er eftir sérstöku æfingakerfi.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.