Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is TÆPLEGA 3.500 fyrirtæki stefna í þrot innan tólf mánaða sé miðað við núverandi stöðu. Það sýna útreikningar fyrirtækisins Creditinfo á Íslandi.
Meira
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is UM 70 umsóknir hafa borist um aðstöðu á Torginu við Austurvöll, viðskiptasetri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, frá því að það var opnað fyrir um það bil mánuði.
Meira
„MÉR þykir mjög vænt um að svo margir skuli kíkja á bloggið mitt, og þá sérstaklega hversu margir skrifa athugasemdir við færslurnar,“ segir Áslaug Ósk Hinriksdóttir sem óhætt er að kalla „bloggara Íslands“. Áslaug fékk 833.
Meira
ALLT kapp hefur verið lagt á að ná fram ásættanlegri tillögu sem hefur það að markmiði að tryggja byggingu Tónlistarhússins og ráðstefnumiðstöðvarinnar, segir meðal annars í yfirlýsingu frá Austurhöfn, NBI og Landsbanka Íslands.
Meira
ÞAÐ verða eingöngu Skagfirðingar í liði Tindastóls þegar það tekur á móti Snæfelli í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Slíkt hefur ekki gerst í heila tvo áratugi, eða síðan Tindastóll lék fyrst í efstu deild.
Meira
ÞEIR voru vel búnir starfsmenn Orkuveitunnar þegar þeir unnu að því að rétta ljósastaur uppi við Elliðavatn en hann hafði skekkst nokkuð er ekið var á hann. Til þess notuðu þeir vökvaknúinn kraftakarl, sem virðist vera sérútbúinn til slíkra verka.
Meira
9. janúar 2009
| Evrópusambandið (stjórnkerfi)
| 3509 orð
| 14 myndir
Evrópusambandið hefur margvísleg völd en það er samt ekki svo að sambandið geti sett reglur um hvað sem embættismönnum dettur í hug. Vald sambandsins er bundið við þær heimildir sem er að finna í sáttmálum sambandsins.
Meira
ÁLFHEIÐUR Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, gerði flestar athugasemdir við ræður annarra þingmanna á nýliðnu haustþingi. Samkvæmt yfirliti Alþingis gerði Álfheiður 76 athugasemdir og talaði í 120 mínútur.
Meira
REYKJAVÍKURBORG hefur hlotið tilnefningu ATCM-samtakanna til verðlauna í flokknum Miðborgarreynsla fyrir góðan árangur í að draga úr veggjakroti og tilheyrandi eignaspjöllum á árinu 2008, segir í tilkynningu frá borginni.
Meira
Upp í loft Þessar stelpur í Hlíðaskóla, þær Salome Bjarnadóttir og Jónína Sigurðardóttir, brugðu á leik og kynntu sér heiminn út frá nýju sjónarhorni.
Meira
KÍNVERSKI bóndinn og sjálfmenntaði uppfinningamaðurinn Wu Yulu lætur heimatilbúið vélmenni draga sig um heimahagana í nágrenni Peking. Vélmennið er nýjasta og viðamesta uppfinning Yulu sem hefur haft brennandi áhuga á slíkri smíði allt frá æsku.
Meira
MEÐ fullri sanngirni má halda því fram að greiðslur landsmanna vegna Icesave-málsins muni nema andvirði a.m.k. 40 framhaldsskóla á ári – næsta áratuginn.
Meira
HJÓLHÝSI og tjaldvagnar hafa nú bæst við þau ökutæki sem skyld eru til skoðunar, samkvæmt nýrri reglugerð sem tekur gildi í dag. Þar má finna umtalsverðar breytingar frá eldri reglum, m.a. þegar kemur að tíðni skoðana.
Meira
FORSÆTISRÁÐHERRA Líbanons, Fuad Saniora, hefur fordæmt eldflaugaárásir sem gerðar voru frá Líbanon á norðurhluta Ísraels í gær auk þess sem hann fordæmdi hefndaraðgerðir Ísraela sem fylgdu í kjölfarið. Enginn særðist alvarlega í árásunum.
Meira
ÁTVR hefur fengið nokkur erindi frá viðskiptavinum sínum í kjölfar fréttar um fyrirhugaða lokun vínbúðarinnar í Spönginni í Grafarvogi. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að þetta séu viðbrögð sem búast hafi mátt við.
Meira
NÝJASTA viðbótin við fjölnotendatölvuleikinn EVE Online, sem framleiddur er og rekinn af íslenska tölvuleikjaframleiðandanum CCP, fer í loftið þann 10. mars næstkomandi.
Meira
FULLT var út úr dyrum á opnum borgarafundi í Iðnó í gær, þeim sjöunda í röðinni en jafnframt fyrsta á þessu ári. Umræðuefnið að þessu sinni var mótmæli og borgaraleg óhlýðni og var talsmönnum lögreglu boðið til fundarins.
Meira
FRANSKI dómsmálaráðherrann, Rachida Dati, mætti galvösk til vinnu sinnar á miðvikudag, fimm dögum eftir að hún eignaðist fyrsta barn sitt með keisaraskurði.
Meira
STJÓRN Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fordæmir innrás Ísraelshers á Gaza. Loftárásir og innrás hersins bitnar helst á íbúum svæðisins sem þegar búa við kröpp kjör. Ekkert réttlætir ofbeldi gegn saklausum borgurum; konum, börnum og öldruðum.
Meira
SÝNINGIN Ferðalög og frístundir verður haldin í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal dagana 8.-10. maí nk. Þar mun sameinast á einum stað allt sem viðkemur ferðalögum, frístundum og afþreyingu, innanlands og utan.
Meira
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is STARFSMENN Landsbankans í Lúxemborg fréttu eftir óformlegum leiðum í gær að gjaldfella ætti öll lán starfsmanna.
Meira
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is SAMNINGUR Vegagerðarinnar og Samskipa um rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara hefur verið framlengdur til næstu tveggja ára. Landflutningar-Samskip hafa annast rekstur ferjunnar óslitið í rúm 12 ár eða frá 1.
Meira
HJÓLREIÐAR hafa aukist jafnt og þétt undanfarin misseri og ekki síst eftir að hin margumrædda kreppa skall á landanum í haust, að sögn Alberts Jakobssonar, formanns Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Hann segir flesta tiltölulega vel búna.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is HLÝINDIN að undanförnu og snjóleysið hefur þau áhrif að fuglarnir dreifast meira og öðruvísi en áður á þessum árstíma.
Meira
Eftir Gunnlaug Árnason Stykkishólmur | Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi sýnir um þessar mundir söngleikinn „Jesús Guð dýrlingur“ og hefur fengið góða aðsókn. Nú um helgina verður haldið í leikferð til höfuðborgarsvæðisins.
Meira
TEYMI frá Alþjóða Rauða krossinum og palestínska Rauða hálfmánanum fékk í fyrsta sinn í fyrradag leyfi ísraelska hersins til að senda sjúkrabíla til að vitja fólks í Zaytun-hverfi Gazaborgar en beðið var um aðstoð þar 3. janúar vegna sprengjuárásanna.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is VANSKIL á fasteignasköttum eru að margfaldast hjá reykvískum skattgreiðendum, svo mikið að grípa á til aðgerða með lagasetningu.
Meira
EIGENDUR gjafabréfa eru aftarlega í röð kröfuhafa verði verslun gjaldþrota, að sögn Hildigunnar Hafsteinsdóttur, lögfræðings hjá Neytendasamtökunum. „Um er að ræða almenna kröfu og það er vonlítið að ná í slíkar kröfur.
Meira
HVORKI sveitarfélög né opinberar stofnanir ríkisins þurfa að greiða nýtt útvarpsgjald Ríkisútvarpsins. Taka má sem dæmi að Landspítalinn greiddi árlega 3,7 milljónir króna í afnotagjöld.
Meira
MARGT bendir til þess að inflúensa sé að stinga sér niður á landinu. Eitt tilfelli inflúensu af A-stofni var staðfest í desember og annað eftir áramótin. Að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis hefur komum á Læknavaktina fjölgað að undanförnu.
Meira
FLESTIR læknar, þrír skurðlæknar og einn lyflæknir, á Sjúkrahúsi Suðurnesja eru með iðrasýkingu af völdum nóróveiru. Af þeim sökum er sjúkrahúsið nú að mestu lokað og í sóttkví.
Meira
9. janúar 2009
| Evrópusambandið (stjórnkerfi)
| 74 orð
| 1 mynd
KRISTJÁNI Vigfússyni, sem hefur um tíu ára reynslu af vinnu í sérfræðinefndum og vinnuhópum Evrópusambandsins, kom á óvart hve framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er í raun lítil.
Meira
SÉRA Þórhallur Heimisson hefur í samstarfi við Kjalarnesprófastsdæmi ákveðið að bjóða upp á námskeið í öllum sóknum prófastsdæmisins á næstu vikum undir yfirskriftinni „10 leiðir til lífshamingju“. Námskeiðin eru ókeypis og öllum opin.
Meira
HÁTT í 770 Palestínumenn, þ. á m. að minnsta kosti 257 börn, hafa beðið bana í hernaði Ísraela á Gaza-svæðinu frá 27. desember, að sögn lækna í gær. Yfir 3.100 manns hafa særst.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Grasrót, kall þjóðarinnar eftir breytingum, endurnýjun og endurreisn. Þetta eru slagorð framsóknarmanna, sem nú leita að nýjum farvegi fyrir flokk, sem er aðframkominn vegna innanbúðarátaka og fylgistaps.
Meira
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ATVINNULEYSI í landinu eykst hröðum skrefum. Samkvæmt vef Vinnumálastofnunar í gær voru 10.056 skráðir atvinnulausir, 6.329 karlar og 3.727 konur.
Meira
SAMSKIPTAVEFURINN Facebook hefur heldur betur slegið í gegn hjá Íslendingum og er ekki ósennilegt að þar stefni í enn eitt heimsmetið miðað við höfðatölu eins og Íslendingum einum er lagið.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BANDARÍSKIR leyniþjónustumenn hafa lengi varið miklu af tíma sínum í að berjast innbyrðis en öflun upplýsinga til að tryggja öryggi ríkisins er á hendi margra stofnana sem halda fast utan um eigin hagsmuni.
Meira
PRESTSETRIÐ á þeim forna kirkjustað Stafholti í Borgarfirði fellur úr ábúð frá og með næstu mánaðamótum þar sem það telst vart lengur íbúðarhæft.
Meira
RANNSÓKN banaslyssins á Suðurlandsvegi, austan við Selfoss, miðar vel að sögn Elísar Kjartanssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á Selfossi. „Það er mikið lagt í rannsóknir þegar banaslys verða,“ segir Elís en lögreglan nýtur...
Meira
FUNDUR Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra með starfsfólki St. Jósefsspítala stóð fram undir miðnætti í gærkvöldi, en hann hófst klukkan 21.
Meira
LJÓST er að ríkissjóður mun tapa tugum milljarða króna, jafnvel yfir hundrað milljörðum, vegna veðlána Seðlabanka Íslands til fjármálafyrirtækja á síðasta ári.
Meira
Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is MUNNLEGUR málflutningur fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þar sem tekist var á um þá kröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar að rannsókn á skattahluta Baugsmálsins yrði dæmd ólögmæt.
Meira
GERA má ráð fyrir að tekjumissir bæjarsjóðs Hafnarfjarðar verði um einn milljarður á þessu ári vegna minni atvinnuþátttöku og atvinnutekna bæjarbúa og tekið er mið af þessu í fjárhagsáætlun bæjarins.
Meira
GUÐMUNDUR Steingrímsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, sem genginn er í Framsóknarflokkinn, hyggst tilkynna Alþingi að hann taki ekki oftar sæti á þingi á kjörtímabilinu.
Meira
ROBERT Kane, 34 ára gamall Bandaríkjamaður í borginni Scranton í Pennsylvaníu, á nú yfir höfði sér allt að 37 ára fangelsi. Kane reiddist mjög granna sínum, Jamie Zaleski, eftir að gestur hins síðarnefnda lagði bíl beint fyrir framan hús Kanes.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is 365 miðlar hf., sem reka Stöð 2 og Stöð 2 Sport, standa nú í samningaviðræðum vegna sýningarréttarins á enska boltanum við erlenda birgja sína, eigendur sýningarréttarins.
Meira
SKESSUHORN stóð fyrir vali á Vestlendingi ársins og var það Erla Björk Örnólfsdóttir, forstöðumaður Varar – sjávarrannsóknaseturs við Breiðafjörð, sem hlaut þann titil.
Meira
Kostnaður almennings af bankahruninu hrannast upp. Nú hefur verið ákveðið að ríkissjóður taki yfir lán, sem Seðlabanki Íslands veitti smærri fjármálafyrirtækjum.
Meira
Þrír unglingspiltar voru dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands í fyrradag fyrir að hafa fyrir um ári ráðizt að tólf ára dreng í íþróttahúsi. Tveir héldu honum, sá þriðji sló getnaðarlim sínum framan í hann. Piltarnir voru dæmdir sekir um kynferðislega áreitni.
Meira
Þær aðgerðir, sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið til að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum sparnaði í heilbrigðiskerfinu, eru í grundvallaratriðum skynsamlegar og rétt hugsaðar.
Meira
Það er margt stórfurðulegt í menningarlegri vitund okkar Íslendinga. Auðvitað er hér sem annars staðar marglitt menningarlíf en sé heildin skoðuð úr fjarlægð virðumst við nokkuð grunnhyggin.
Meira
Leikstjóri: Oliver Megaton. Aðalleikarar: Jason Statham, Natalya Rudakova, François Berléand, Robert Knepper, Jeroen Krabbé. 100 mín. Frakkland. 2008.
Meira
Aðalsmaður vikunnar kveður á næstu dögum íþróttafréttastofu Sjónvarpsins þar sem hann hefur vakið verðskuldaða athygli en tekur við starfi stigavarðar í Gettu betur.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is HLJÓMSVEITIN Hjaltalín hóf tónleikaferðalag um Evrópu í Kaupmannahöfn í gær. Framundan eru 17 aðrir tónleikar þar sem hvergi er slegið slöku við.
Meira
FJÓRAR kvikmyndir verða frumsýndar í dag og þar af ein íslensk kvikmynd: Sólskinsdrengur Heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Sólskinsdrengurinn, segir sögu Margrétar og sonar hennar Kela sem er ellefu ára og með hæsta stig einhverfu.
Meira
RONNIE Wood, gítarleikari Rolling Stones, gaf tæplega tvítugri kærustu sinni gítar sem var eitt sinn í eigu Jimi Hendrix. Talið er að gítarinn sé um 13 þúsund punda virði.
Meira
Á ÁTTUNDA áratugnum gerðust tveir hollenskir gæðaleikarar áberandi í bandarískum myndum, þeir Rutger Hauer og Jeroen Krabbé. Sá síðarnefndi er nú sem sé fallinn niður í aukahlutverk í þriðju mynd B-myndabálks og tæpast hægt að sökkva dýpra.
Meira
EINN skelfilegasti tryllir síðustu aldar er án efa Shining eftir Stanley Kubrick eftir sögu Stephens Kings, um rithöfundinn Jack Torrance leikinn af Jack Nicholson, sem sest að á yfirgefnu hóteli um hávetur með fjölskyldu sinni í þeim tilgangi að skrifa...
Meira
BÓKIN Konur eftir Steinar Braga seldist upp nokkrum dögum fyrir jól og ekki vannst tími til þess að endurprenta hana. Nú hafa náðst samningar um að bókin verði endurprentuð í kilju undir merkjum Máls og menningar, en fyrri útgefandi var Nýhil.
Meira
*Nýjasta plata tónlistarkonunnar Lay Low , Farewell Good Night's Sleep, kemur út í Bretlandi og Evrópu mánudaginn 9. mars næstkomandi, og í Bandaríkjunum mánuði síðar.
Meira
RÚV sýndi á miðvikudagskvöld heimildarmynd um byggingu nýja óperuhússins í Ósló en húsið var tekið í notkun á síðasta ári. Ekki leyndi sér hve mikill metnaður lá að baki þessu verkefni.
Meira
VERK Kjarvals munu þekja alla veggi, frá gólfi til lofts, í austursal Kjarvalsstaða á sérstæðri sýningu sem opnuð verður á morgun kl. 14. Sýningin er í anda svokallaðra salon-sýninga, sem tíðkuðust á árum áður.
Meira
*Áheyrnarprufur fyrir Idol-stjörnuleit hefjast á laugardaginn og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa aldrei verið fleiri skráðir. Prufurnar fara fram á Hilton-Nordica en eina skilyrðið fyrir þátttöku er að þátttakendur séu orðnir 16 ára.
Meira
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is SÝNINGIN sem Halldór Ásgeirsson opnar í nýjum salarkynnum Gallery Turpentine í dag, á Skólavörðustíg 14, nefnist Sálarskipið og er tilvísun í ljóð Bólu-Hjálmars.
Meira
VERÐLAUNAÁRIÐ byrjar vel fyrir Batman-myndina The Dark Knight en hún var verðlaunuð sem besta mynd síðasta árs á People Choice Awards í Los Angeles í fyrradag.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er nú svolítið mikið og er eiginlega bara pínulítið óhugnanlegt,“ segir Áslaug Ósk Hinriksdóttir sem óhætt er að kalla vinsælasta bloggara Íslands um þessar mundir.
Meira
Almar Grímsson skrifar um málefni St. Jósefsspítala: "Vissulega eru nú erfiðir tíma en vinnubrögð ráðuneytisins eru engu að síður í ósamræmi við lýðræðislegar hefðir Sjálfstæðisflokksins."
Meira
PÓLITÍSKAR áherslur Staksteina eru aldeilis á sínum stað í gær þegar látið er eins og útsvar sé ósanngjörn og óréttlát leið, nánast vond, til að fjármagna útgjöld sveitarfélagsins Reykjavíkur.
Meira
ÞAÐ er smám saman að renna upp fyrir þjóðinni hvað hefur hent hana á undanförnum árum. Allar eignir hennar hafa annaðhvort verið teknar af henni með einkavæðingu eða þær hafa verið veðsettar að fullu og hún svipt þeim með þeim hætti.
Meira
ÉG á ekki krónu sögðu konurnar í síldinni á Dalvík þegar við strákarnir reyndum að klæmast við þær. Mér kemur þetta í hug þegar ég fylgist með umræðunni um landsmálin þessa vetrardaga.
Meira
Friðrik Hansen Guðmundsson | 8. jan. Fer Geir að fordæmi Guðna? Það er orðið daglegur viðburður að hrópað er á afsagnir ráðherra. Skipulögð fjöldamótmæli af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð áður eru það einnig. Mikið hefur breyst á örskömmum...
Meira
Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar um skipulagsbreytingar í heilbrigðiskerfinu: "Heilbrigðisstéttir þurfa að sýna ábyrgð gagnvart þeirri stöðu sem við erum í, taka skipulagsbreytingum opnum huga og leggja framkvæmdinni lið."
Meira
Þó að framtíð sé falin...“ segir í kvæðinu. Sumt er með öllu ofvaxið manns skilningi, til dæmis að alheimurinn eigi eftir að líða undir lok í allsherjarhruni eftir 5 milljarða ára!
Meira
Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar bréf til fyrrverandi þingmanns Framsóknarflokksins: "Ég er stoltur félagi í Framsóknarflokknum og í mínum huga er flokkurinn mér félagsskapur þar sem ég rækta sjálfan mig."
Meira
Ólafur Ingólfsson | 8. janúar Voðaskot og púðurkerlingar Ef byssueign væri almenn væru morð og voðaskot algeng. Í Bandaríkjunum, þar sem allt að fjórðungur almennings í mörgum ríkjum á skotvopn, eru morð og voðaskot mun tíðari en í Evrópuríkjum.
Meira
ÞAÐ er allt orðið öðruvísi en áður var fyrir kosningar og/eða strax eftir stjórnarmyndun, en nú er komið upp vandamál gagnvart stjórnarsamstarfinu, þ.e.a.s. þessar umræður um að fara í aðildarviðræður við ESB.
Meira
Sigurjón Vilbergsson segir frá starfsemi St. Jósefsspítala: "Heilbrigðisráðherra ætlar að leggja niður eina best reknu heilbrigðisstofnun landsins, St. Jósefsspítala, án röksemda um sparnað."
Meira
Frá Erni Helgasyni: "ÞANNIG hljóðuðu tvær meginfyrirsagnir á forsíðu Morgunblaðsins á næstsíðasta degi ársins. Í talnaflóði eftir bankahrunið þarf stundum að draga djúpt andann til að fá tilfinningu fyrir þeim hildarleik sem þar er á ferðinni."
Meira
Tómas Guðmundsson MÉR finnst ekki spurning að reisa eigi styttu af Tómasi Guðmundssyni, einu ástsælasta skáldi okkar Reykvíkinga. Það er bara hvenær og hvar hún á að standa. Mér finnst t.d.
Meira
NÚ hefur hrunið og skelfingar liðins árs gerbreytt öllum forsendum fjármögnunar og afkomu fjölskyldnanna til skemmri og lengri tíma og allsherjar endurmat því óhjákvæmilegt. Forsendur verðtryggingar hafa til skemmri tíma fallið.
Meira
Birkir Árnason fæddist í Keflavík 15. maí 1957. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 2. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru hjónin Árni Guðgeirsson húsasmiður í Keflavík, f. 27. janúar 1923, og Olga Guðmundsdóttir, f. 17. desember 1924.
MeiraKaupa minningabók
Frank Arthur Cassata fæddist í New York 3. nóvember 1911. Hann lést á Landakotsspítala 2. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Samuel Cassata útvarpsvirki, f. á Sikiley 1891, d. í Bandaríkjunum 1968, og Sarah Cassata húsmóðir, f. á Sikiley 1892, d.
MeiraKaupa minningabók
Freyja Sigurðardóttir fæddist á Sauðárkróki 31. maí 1948. Hún lést af slysförum 27. desember síðastliðinn. Faðir hennar var Sigurður Magnússon frá Bíldudal, f. 26. október 1918, d. 26. apríl 1979.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Helgason fæddist í Ólafsvík 23. mars 1939. Hann lést á deild 11E á Landspítalanum við Hringbraut 3. janúar síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Helga Kristins Helgasonar, f. 1911, d. 2004, og Fannýjar Guðmundsdóttur, f. 1913, d. 2000.
MeiraKaupa minningabók
Hannes Björgvinsson fæddist í Reykjavík 11. mars 1945. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut annan dag jóla, 26. desember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Katrín Ragnhildur Magnúsdóttir, f. á Hellissandi 4.
MeiraKaupa minningabók
Jónas Jónsson fæddist í Pétursborg í Glæsibæjarhreppi 24. janúar 1922 . Hann andaðist á Vífilsstöðum í Garðabæ 19. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Baldvinsson bóndi og sjómaður, f. 14. desember 1878, d. 27.
MeiraKaupa minningabók
Lúðvík Friðriksson fæddist í Reykjavík 26. september 1952. Hann lést hinn 29. desember síðastliðinn. Foreldrar hans eru hjónin Kristín Lúðvíksdóttir, fv. verslunarmaður, f. í Reykjavík 6. október 1928, og Friðrik Ólafsson rennismiður, f.
MeiraKaupa minningabók
Matthildur Þórðardóttir fæddist á Hörðuvöllum í Hafnarfirði 13. apríl 1914. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 6. janúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Benediktsdóttir, menntaskólakennari, fæddist í Reykjavík 10. október 1919. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 30. desember síðastliðinn. Foreldrar Ólafar voru Guðrún Pétursdóttir, húsfreyja og kennari, f. 1878, d.
MeiraKaupa minningabók
Páll Þórðarson fæddist á Löngumýri á Skeiðum, Árnessýslu 9. desember 1913. Hann lést á Dvalarheimilinu Grund 27. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þórður Pálsson bóndi frá Löngumýri, f. 2.10. 1884, d. 3.1.
MeiraKaupa minningabók
Ragnhildur Hulda Ólafsdóttir fæddist á Látrum í Aðalvík 3. október 1918. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Keflavík mánudaginn 22. desember síðastliðinn og var jarðsungin frá Keflavíkurkirkju 30. desember.
MeiraKaupa minningabók
Sigurlaug Ingunn Sveinsdóttir fæddist í Vinaminni á Blönduósi 18. jan. 1919. Hún lést í Kjarnalundi á Akureyri 21. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sveinn Benjamínsson, f. á Stóru-Giljá í Húnavatnssýslu 14. okt. 1874, d. á Akureyri...
MeiraKaupa minningabók
Unnur Eiríksdóttir fæddist á Nýlendugötu í Reykjavík 3. júní 1920. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 30. desember síðastliðinn. Móðir hennar var Valgerður Kristín Hjartarson Ármann húsmóðir, f. að Görðum í Norður-Dakóta 10. desember 1891, d. 2.
MeiraKaupa minningabók
BRESKA fjármálaeftirlitið hefur hleypt af stokkunum vinnuferli sem gæti orðið til þess að reglur um tryggðar sparifjárinnistæður myndu taka miklum breytingum .
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is YFIRLÝST markmið og metnaður Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, er að efla eftirlitsstofnanir samfélagsins. Þar á meðal er Fjármálaeftirlitið (FME).
Meira
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is ÚTLIT er fyrir að ríkissjóður tapi tugum ef ekki yfir hundrað milljörðum króna vegna veðlána sem Seðlabanki Íslands veitti fjármálafyrirtækjum á síðasta ári.
Meira
„ÉG hef ekki stórar áhyggjur af vangaveltum Reuters um að virði eigna eigenda í Actavis sé lítið sem ekkert,“ segir Sigurgeir Guðlaugsson hjá Novator , stærsta eiganda lyfjarisans Actavis.
Meira
MEGINÁSTÆÐA hárra stýrivaxta hér á landi er veik staða krónunnar og brýn þörf á að forða henni frá frekara hruni. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.
Meira
INNHEIMTAR tekjur ríkissjóðs námu 393 milljörðum króna fyrstu ellefu mánuði ársins sem er aukning um rúma 3 milljarða frá sama tíma fyrra árs. Tekjuáætlun ársins gerði ráð fyrir að innheimtar tekjur yrðu 398 ma.kr.
Meira
Í FEBRÚAR og mars næstkomandi þarf að greiða háar fjárhæðir í vexti af ríkisbréfum sem eru að mestu í eigu erlendra aðila, að því er fram kemur í fréttabréfi Landsbankans, Daily Economic Briefing.
Meira
Eftir Kristín Ágústsdóttir Neskaupstaður | Árið 2008 var metár á fæðingardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað (FSN). Sjötíu börn fæddust á árinu og þar með var met árins 2006 jafnað.
Meira
Taylor Crowe virtist eins og hver annar krakki þar til hann var þriggja ára, þá hvarf hann á sex mánuðum inn í heim einhverfunnar. Hann er nú 27 ára gamall og útskrifaður úr CalArts-listaháskólanum sem teiknimyndahöfundur.
Meira
Jónína Magnúsdóttir, húsmóðir og saumakona, er níræð í dag, 9. janúar. Jónína býður ættingjum og vinum til kaffisamsætis í safnaðarheimili Laugarneskirkju laugardaginn 10. janúar frá kl. 15 til...
Meira
Nikulás Tumi og bræðurir Hlynur og Páll Bjarnasynir voru með tombólu við Hamraborg í Kópavogi í desember og söfnuðu 6.010 kr. og einni evru. Þeir færðu Rauða krossinum...
Meira
ÓTTAR ætlar að fagna afmælinu með því að halda frekar fjölmenna veislu heima hjá sér. Aðspurður segir hann eftirminnilegasta afmælisdaginn vera þegar hann varð 21 árs.
Meira
Alveg getur það ært Víkverja þegar hann fer í netbankann sinn að sjá þar alls kyns fjárkröfur frá hinum og þessum sem Víkverji hefur aldrei undirgengizt.
Meira
9. janúar 1964 Tunnuverksmiðjan á Siglufirði brann til ösku og fjörutíu manns misstu atvinnu sína. Tjónið nam milljónum króna. 9. janúar 1986 Tilkynnt var að Hafliði Hallgrímsson hlyti tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir verkið Poemi. 9.
Meira
BALDUR Sigurðsson, knattspyrnumaður, fyrrv. leikmaður Keflavíkur, vill frekar berjast fyrir sæti sínu hjá norska 1. deildarliðinu Bryne en koma heim.
Meira
ÍSLENSKA B-landsliðið í handbolta tapaði fyrir fullmönnuðu lið Serba, 31:28, í fyrsta leik sínum á alþjóðlegu móti í Frakklandi í gær. Staðan í hálfleik var 15:13 fyrir Serbana.
Meira
ALLT útlit er fyrir að Tindastólsmenn stilli upp eintómum Skagfirðingum þegar liðið tekur á móti Snæfelli í 12. umferð Iceland Express deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Það hefur ekki gerst, eftir því sem næst verður komist, síðustu tvo áratugina.
Meira
Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Burnley , verður ekki með sínum mönnum þegar þeir mæta Swansea í ensku 1. deildinni á morgun vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum gegn Tottenham í deildabikarnum í fyrrakvöld.
Meira
Birgir Leifur Hafþórsson lék á 72 höggum eða einu höggi yfir pari á fyrsta keppnisdegi á Joburg-meistaramótinu í golfi á Evrópumótaröðinni í gær. Mótið fer fram í Suður-Afríku .
Meira
TEITUR Örlygsson, sem gerði garðinn frægan í Njarðvík á árum áður, þreytti frumraun sína með Stjörnuliðinu í gær, er hann stýrði þeim í fyrsta skipti í Iceland Express deildinni.
Meira
LIÐ Breiðabliks sótti ekki gull í greipar Skallagríms er liðin áttust við í Borgarnesi í gærkvöld. Borgnesingar spiluðu sinn langbesta leik í vetur og uppskáru fyrsta sigurinn 73:58.
Meira
HAUKAR áttu ekki í neinum vandræðum þegar þeir heimsóttu lið Fjölnis í Dalhúsin í Grafarvogi í gærkvöldi í síðasta leik 12. umferðar Iceland Express deildar kvenna í körfuknattleik.
Meira
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson trausti@mbl.is ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik mætir í dag liði Rúmeníu í fyrsta leiknum á alþjóðlegu æfingamóti í Danmörku.
Meira
KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu hefur hafnað beiðni Real Madrid að endingu, um að skrá bæði Klaas Jan Huntelaar og Lassana Diarra til leiks í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.
Meira
Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is FRAMHERJINN Viktor Unnar Illugason hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals og er hann sjöundi leikmaðurinn sem gengur í raðir Hlíðarendaliðsins frá því keppnistímabilinu lauk í október.
Meira
KEFLVÍKINGAR nálgast nú Grindavík í toppslagnum í Iceland Express-deildinni í karlakörfu eftir góðan útisigur á Þór í gærkvöldi, 93:76. Þórsarar eru hinsvegar búnir að tapa fimm af síðustu sex leikjum sínum og eru komnir niður í níunda sætið.
Meira
Sala nýrra bíla í Japan var minni á nýliðnu ári en nokkru sinni eftir 1974, eða í 34 ár. Þá hrundi sala vegna olíukreppunnar en nú af völdum fjármálakreppunnar alþjóðlegu.
Meira
Eftir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Boris Johnson, borgarstjóri í London, hefur ákveðið að ganga á undan með góðu fordæmi og fá sér rafbíl. Segist hann munu selja fjölskyldubíl sinn, sem er af gerðinni Toyota, um leið og hentugur rafbíll er fáanlegur.
Meira
Í baráttunni við breska glæpamenn getur verið nauðsynlegt að vera vel tækjum búinn og það veit lögreglan í Suður-Yorkshire sem nýlega hefur fengið nýjustu kynslóð Mitsubishi Lancer EVO í sína þjónustu.
Meira
Sú óvenjulega staða kom upp hjá vörubíladeild Volvo, næststærsta vörubílasmið heims, að mun fleiri bílar voru afpantaðir hjá fyrirtækinu í október og nóvember en seldir.
Meira
HIÐ ævintýralega Dakar-rall hófst hinn 3. janúar síðastliðinn en það er núna í fyrsta sinn haldið í Suður-Ameríku, nánar tiltekið í Argentínu og Chile.
Meira
Bílasala dróst minna saman á nýliðnu ári í Frakklandi en öðrum vestrænum ríkjum, eða um aðeins 0,6%. Það er þakkað hvatakerfi sem fól í sér niðurgreiðslur af hálfu ríkisins vegna kaupa á bílum með hlutfallslega litla losun gróðurhúsalofts.
Meira
* Leó M. Jónsson vélatæknifræðingur svarar fyrirspurnum á leoemm@simnet.is (Ath. Bréf geta verið stytt). Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com. Smurolíuskipti: Skoda Octavia 1.
Meira
Heimsmeistaramótið í ralli hefur beðið hnekki, eftir að japönsku bílafyrirtækin Subaru og Suzuki hafa ákveðið að hætta þegar í stað þátttöku. Alþjóðlega efnahags- og fjármálakreppan er ástæðan.
Meira
Eftir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Bílasala tók dýfu í Bandaríkjunum í desember og ekkert lát þar á hörmungum sem hrella bílaframleiðendur. Voru nýskráningar 36% færri en í jólamánuðinum 2007.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.