Mánudaginn 12. janúar kl. 20 verður haldinn opinn borgarafundur í Háskólabíói. Efni fundarins er íslenskt atvinnulíf í aðdraganda kreppunnar, spurt er hvað fór úrskeiðis.
Meira
10. janúar 2009
| Evrópusambandið (orkumál)
| 77 orð
| 1 mynd
VANDSÉÐ er að breytingar yrðu á möguleikum erlendra aðila til að fjárfesta í íslenskum auðlindum, að sjávarútveginum undanskildum, við inngöngu landsins í Evrópusambandið, þ.m.t.
Meira
AVANT hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum áfram frystingu gengistryggðra bílalána. Nú er hægt að sækja um frystingu eða framlengja hana um fjóra mánuði til viðbótar þeim 2-4 mánuðum sem þegar hafa verið veittir.
Meira
MAGNÚS Skúlason, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU), segir starfsfólk hafa lýst miklum áhyggjum af áhrifum breytinganna á skurðlæknis- og fæðingarþjónustu.
Meira
„ÞETTA er stórt skref í tollgæslu á Íslandi í dag,“ segir Snorri Ólsen tollstjóri en í gær fór fram formleg afhending á gámagegnumlýsingarbifreið sem keypt var til að efla aðgerðir gegn fíkniefnasmygli og auka öryggi vöruflutninga.
Meira
SIGURÐUR Bessason, formaður Eflingar, segir þá ákvörðun Landspítalans að segja upp öllum starfsmönnum í ræstingu sem starfa í Fossvogi, vekja ugg meðal starfsmanna sjúkrahússins í ræstingu. Uppsagnirnar taka gildi frá 1. maí nk.
Meira
„EINU skuldirnar sem færðar voru yfir í nýja bankann við skiptingu í gamla og Nýja Glitni voru innlán,“ svarar Fjármálaeftirlitið fyrirspurn Morgunblaðsins um ástæðu þess að bakábyrgð á eftirlaunasjóði 100 núverandi og 500 fyrrverandi...
Meira
Skagafjörður | Í fjölmennu hófi sem Sveitarfélagið Skagafjörður og UMSS stóðu fyrir var lýst kjöri Bjarka Más Árnasonar sem íþróttamanns ársins í Skagafirði.
Meira
ÚKRAÍNUMENN ætla að undirrita samning við Rússa um óháð eftirlit með gasleiðslum í Úkraínu „eins fljótt og mögulegt er“, að sögn Júlíu Tymoshenko, forsætisráðherra landsins, í gær.
Meira
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is DOKTOR Arnfríður Guðmundsdóttir var fyrir skömmu skipuð prófessor í trúfræði við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands (HÍ).
Meira
„MARKAÐSSTOFAN er hugsuð sem tæki til að samræma markaðssetningu svæðisins. Fá ferðaþjóna til að koma sameinaða að borðinu, ekki sundraða,“ segir Kristján Pálsson sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurnesja.
Meira
GUÐMUNDUR Árnason, ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, hefur fengið 6 mánaða leyfi frá störfum til að sinna verkefnum fyrir ríkisstjórnina. Verkefni Guðmundar er að fylgja eftir ákvörðunum og aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna fjármálahrunsins sl.
Meira
FJÖGURRA bíla árekstur varð á Kringlumýrarbraut á tíunda tímanum í gærkvöldi. Ekki er talið að neinn hafi slasast alvarlega en einhverjir þurftu að leita aðhlynningar á slysadeild. Áreksturinn varð við gatnamótin við Borgartún.
Meira
RAGNAR G. Kristjánsson, varafastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf, flutti ræðu fyrir hönd landsins á fundi Mannréttindaráðs SÞ í gær og sagði að ástandið á Gaza-svæðinu væri óviðunandi.
Meira
Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „ÞAÐ er í raun samkvæmt okkar björtustu vonum að fá málið formlega tekið fyrir, það er það besta sem við getum gert á þessum vettvangi, held ég og við getum ekki farið fram á meira,“ segir Steingrímur J.
Meira
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is SNARA er um hálsinn á fyrirtækjum í landinu sem blæðir smátt og smátt út, segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Snaran sé hátt vaxtastig.
Meira
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is ÍSRAELAR og Hamas-samtökin virtu kröfu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé að vettugi í gær og ekkert benti til þess að lát yrði á blóðsúthellingunum á Gaza-svæðinu á næstunni.
Meira
ÖGMUNDUR Þór Jóhannesson gítarleikari er handhafi tónlistarverðlauna íslensku Rótarýhreyfingarinnar í ár, en verðlaunin, hálf milljón króna, voru veitt á stórtónleikum Rótarý í Salnum í gærkvöldi.
Meira
BORGARBÚAR hafa farið rólega í að taka niður jólaskrautið ef marka má hve fá jólatré hafa verið sett út við lóðarmörk. Starfsmenn framkvæmda- og eignasviðs verða á ferðinni um hverfi borgarinnar og sækja jólatrén fram í miðja næstu viku.
Meira
Eftir Björn Björnsson FULLT var út úr dyrum á almennum borgarafundi sem haldinn var í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í gær þar sem fjallað var um fyrirhugaðar breytingar í heilbrigðismálum á Norðurlandi.
Meira
SKRÁNING í Laugavegshlaupið, ofurmaraþonið milli Landmannalauga og Þórsmerkur, hófst í fyrradag með miklum látum. Um klukkan 14 í gær höfðu um 70 manns skráð sig og má gera ráð fyrir að a.m.k 100 skráningar hafi borist áður en dagur var að kveldi...
Meira
10. janúar 2009
| Evrópusambandið (orkumál)
| 2706 orð
| 13 myndir
Hvaða myndi breytast í auðlindamálum þjóðarinnar ef sjávarútvegurinn er undanskilinn, við inngöngu í ESB? Ætti þjóðin á hættu að missa eignarhald og þar með yfirráð yfir auðlindum sínum?
Meira
JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur verið sæmd Rósinni, sem Landssamtökin Þroskahjálp og fjölskylda Ástu B. Þorsteinsdóttur veita árlega í minningu hennar einhverjum einstaklingi, félagasamtökum eða stofnun.
Meira
MIÐSTJÓRN ASÍ mótmælir þeim miklu hækkunum sem urðu á greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni nú um áramót bæði í formi mikilla hækkana á gjaldskrám og með nýju gjaldi sem sjúklingum er nú gert að greiða við innlagnir á sjúkrahús.
Meira
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is EIRÍKUR Tómasson, eigandi útgerðarfyrirtækisins Þorbjarnar í Grindavík, segir sjávarútvegsfyrirtæki hafa verið blekkt til þess að gera gjaldmiðlaskiptasamninga sem miðuðu að því að hagnast á styrkingu krónunnar.
Meira
Jöklabréf ekki ríkisbréf Í frétt í Morgunblaðinu í gær voru jöklabréf, sem eru á gjalddaga á næstu vikum, nefnd ríkisbréf. Það var rangt. Beðist er velvirðingar á því. Þorkell Ingimarsson Þau leiðu mistök voru gerð í frétt um uppfærslu krakkanna í 10.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „VIÐ gefum ekki upp vonina fyrr en á síðasta degi, það hefur sýnt sig varðandi loðnuna,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, LÍÚ.
Meira
LEIKSKÓLABÖRN á Sólhlíð héldu ljósahátíð í gær og lýstu upp skammdegismyrkrið með vasaljósum. Myrkrið hefur verið sérstaklega svart í þeim hlýindum og rigningum sem einkennt hafa fyrstu daga ársins 2009, enda enginn snjór til að lýsa upp skammdegið.
Meira
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is MATTHÍAS Halldórsson landlæknir segir mikinn hraða vera á sumum þeim breytingum sem boðaðar hafa verið á heilbrigðisþjónustunni, þótt aðrar hafi átt sér lengri aðdraganda.
Meira
FJÓRTÁNDI mótmælafundur Radda fólksins verður haldinn á Austurvelli í dag, laugardag, kl. 15. Yfirskrift fundarins er sem fyrr Breiðfylking gegn ástandinu.
Meira
Í dag verða mótmælafundir í Hafnarfirði og Akureyri vegna áforma heilbrigðisráðherra um breytingar á skipulagi heilbrigðismála. Mótmælaganga verður frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg á Akureyri kl.
Meira
INNVIGTUN mjólkur til samlaga innan Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var rúmar 126 milljónir lítra árið 2008 en svo mikil hefur innvigtunin ekki orðið áður í sögunni. Þar með var metið frá 2007 slegið, en þá var innvigtunin 124,8 milljónir lítra.
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ÖSSUR Skarphéðinsson iðnaðarráðherra kynnti í gær þrjá nýja styrkjaflokka hjá Tækniþróunarsjóði, frumherja-, brúar- og öndvegisstyrki.
Meira
SÁDI-arabíska olíuflutningaskipinu The Sirius Star hefur verið sleppt úr haldi sjóræningja úti fyrir strönd Sómalíu, að sögn vefsíðu Guardian sem vitnaði í samtök er nefnast Hjálparsamtök sjómanna við Austur-Afríku.
Meira
HUGSANLEGT er að nýráðningar lögreglumanna til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, alls á þriðja tug, frestist um einhvern tíma vegna þess niðurskurðar sem boðaður var í nýjum fjárlögum.
Meira
LÆKNIRINN Richard Batista í New York stendur nú í skilnaði og beitir óvenjulegu ráði í baráttunni um peninga hjónanna: Hann vill fá aftur nýra sem hann gaf konu sinni, Dawnell, fyrir átta árum þegar hún veiktist og þurfti nýtt.
Meira
Eftir Magnús Halldórsson og Andra Karl „ÉG TEL að það sé nauðsynlegt að rannsaka þetta, því ef satt reynist er það mjög alvarlegt mál,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, um orð Eiríks Tómassonar,...
Meira
BLÖÐRUM með málningu var kastað á hús utanríkisráðuneytisins við Rauðarárstíg í gær en þar kom nokkur hópur saman til að krefjast þess, að ríkisstjórnin sliti stjórnmálasambandi við Ísrael.
Meira
FJÖLMARGAR ályktanir hafa borist þar sem breytingum í heilbrigðiskerfinu er mótmælt. Á því varð ein undantekning í gær þegar ályktun barst frá starfsfólki heilsugæslustöðvarinnar í Ólafsvík.
Meira
LANDLÆKNisembættið var ekki með í ráðum um þá ákvörðun að leggja niður St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og segist Matthías Halldórsson eiga erfitt með að sjá hvaða sparnaður felist í þeirri ákvörðun.
Meira
NÝGERÐUR kjarasamningur Sjómannasambands Íslands og LÍÚ var samþykktur með afgerandi meirihluta atkvæða innan SSÍ. Talningu atkvæða lauk í vikunni. Já sögðu 329 eða 84,8% þeirra sem kusu. Nei sögðu 11,6% og auðir og ógildir seðlar voru 3,6%.
Meira
ÍBÚAR í höfuðborg Haítí, Port-au-Prince, horfa á sjónvarp við eina af götum borgarinnar. Innan við 6% Haítímanna hafa rafmagn allan sólarhringinn og það fer oft af í höfuðborginni.
Meira
Menntamálaráðherra hefur að fenginni umsögn stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna skipað Guðrúnu Ragnarsdóttur í embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna til fimm ára frá 1. febrúar nk. að telja. 34 umsóknir bárust um starfið.
Meira
MIKLAR umferðartafir urðu á hraðbrautinni M-40 við Madríd á Spáni í gær vegna snjókomu. Kuldarnir í Evrópu halda áfram að þjaka fólk, samgöngur hafa farið úr skorðum og sama er að segja um skólahald.
Meira
FERÐALANGAR sem voru á ferð við Vatnajökul um síðustu helgi höfðu samband við Landsbjörgu og vildu koma á framfæri upplýsingum um stóran svelg sem myndast hefur í jaðri jökulsins.
Meira
FÉLAGIÐ Ísland-Palestína hefur ákveðið að verða við neyðarbeiðni frá ísraelsku samtökunum Physicians for Human Rights þar sem beðið er um aðstoð við kaup á þeim nauðsynjum sem spítalar á Gaza-svæðinu hafa óskað eftir, svo sem lyfjum, rúmum, súrefni og...
Meira
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is HELGI Magnússon, skiptastjóri þrotabús BT, kveðst ekkert geta fullyrt um eðli afskipta Tryggva Jónssonar, þáverandi starfsmanns Landsbankans og fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, af kaupum Haga á búinu.
Meira
STJÓRN Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna varar við hugmyndum sem heilbrigðisráðherra hefur kynnt um að spara rekstrarkostnað með því „að skerða þjónustu við sjúkraflutninga á landsbyggðinni.
Meira
REYKJANESBÆR hefur óskað eftir viðræðum við heilbrigðisráðuneytið um að sveitarfélagið taki yfir starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS).
Meira
FRANSKI kvikmyndagerðarmaðurinn og Óskarsverðlaunahafinn Luc Jacquet, er gerði heimildarmyndina March of the Penguins, kemur hingað til lands í næstu viku.
Meira
SAMKVÆMT upplýsingum frá embætti landlæknis hafa ekki fleiri tilkynningar borist um nóróveirusýkingar á sjúkrastofnunum en greinst hafa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Sjúkrahúsinu á Akureyri og ónefndu sjúkrahúsi á Austurlandi að undanförnu.
Meira
Skiptastjórar við uppgjör Landsbankans í Lúxemborg hafa tekið þá ákvörðun að gjaldfella lán á starfsmenn bankans. Skiptastjórarnir frá alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte leggja kalt mat á verkið. Mannleg hlið málsins víkur.
Meira
Áhugaverð uppákoma varð á borgarafundi í Iðnó í fyrrakvöld. Þar var einn frummælenda „NN, anarkisti“ eins og hann var kynntur í fundarboði. Hann talaði með grímu fyrir andlitinu. NN talaði m.a.
Meira
ANDVARI, rit Hins íslenska þjóðvinafélags, kom út skömmu fyrir áramótin. Aðalgreinin að þessu sinni er æviágrip Bjarna Bjarnasonar skólastjóra á Laugarvatni (1889-1970) eftir Kristin Kristmundsson, fyrrverandi skólameistara.
Meira
ÁSDÍS Kalman opnar sýninguna Lúmen í Listasal Mosfellsbæjar kl. 14 í dag. Ásdís hefur verið starfandi myndlistarmaður frá útskrift úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1988.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is GONE Postal er ein frískasta nústarfandi nýdauðarokkssveitin og er búinn að negla út tíu laga plötu, I n The Depths of Despair .
Meira
Fjögur lög keppa í fyrsta undanþætti Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fer í kvöld. Sjónvarpsáhorfendur sjálfir skera úr um hvaða tvö lög komast áfram með símakosningu en alls keppa átta lög í úrslitaþættinum sem fram fer laugardaginn 14. febrúar.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Á STÓRTÓNLEIKUM íslensku Rótarýhreyfingarinnar í Salnum í gærkvöldi var Rótarý-styrkurinn afhentur með viðhöfn. Það var Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari sem hlaut styrkinn, hálfa milljón króna.
Meira
Framsóknarflokkurinn er fyndnastur stjórnmálaflokka. Þar er alltaf eitthvað undurfurðulegt að gerast. Yfirleitt er friðsamlegra á litlum vinnustöðum en stórum og samheldnin meiri. Þetta á ekki við um Framsóknarflokkinn.
Meira
*Gamanmyndin Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur hefur verið tilnefnd til norrænu kvikmyndaverðlaunanna sem afhent verða á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg sem stendur frá 23. janúar til 2. febrúar nk.
Meira
* Fyrsta tölublað Reykjavík Grapevine undir ritstjórn Hauks S. Magnússonar er komið út. Athygli vekur hversu mikill texti er í blaðinu en á nokkrum stöðum hafa ljósmyndir verið minnkaðar niður í frímerkjastærð.
Meira
Fræg er sagan af því er söngkonan Janis Ian, sem eitt sinn var stjarna, varð vör við mjög aukna umferð á vefsetur sitt og eins að sífellt bárust fleiri fyrirspurnir um plötur hennar og hugsanlega tónleika.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is TRÍÓ Reykjavíkur heldur sína árlegu nýárstónleika í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, á sunnudagskvöld kl. 20.
Meira
GESTIR þáttarins Orð skulu standa í dag eru Þórlindur Kjartansson viðskiptafræðingur og Þórunn Erla Valdimarsdóttir rithöfundur. Þau fást m.a. við „hálfref“ og „hyski“.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is FRANSKI kvikmyndagerðarmaðurinn Luc Jacquet kemur hingað til lands í næstu viku, en hann verður heiðursgestur á franskri kvikmyndahátíð sem hefst 16. janúar.
Meira
MAÐUR síðasta árs í plötuútgáfu var hikstalaust Baldvin Esra Einarsson hjá norðlensku ofurútgáfunni Kimi records. Hver gæðagripurinn á fætur öðrum streymdi suður yfir heiðar og stóð útgáfan t.a.m. að fjórum titlum af tíu í ársuppgjöri þessa blaðs.
Meira
KVIKMYNDASÝNINGAR sem MÍR hefur boðið upp á reglulega á sunnudögum hefjast að nýju á morgun í sal félagsins á Hverfisgötu 105. Að þessu sinni verður boðið upp á sovésku gamanmyndina Ivan Ivanovitsj skiptir um hlutverk frá árinu 1973.
Meira
„MANN langar alltaf í endurnýjun og prófa eitthvað nýtt,“ segir Björg Þorsteinsdóttir myndlistarmaður, en sýning á verkum sem hún hefur unnið á síðustu tveimur árum verður opnuð í Hafnarborg í dag kl. 15.
Meira
ROBERT von Bahr, eiganda BIS-hljómplötufyrirtækisins sænska, voru fyrir skömmu veitt heiðursverðlaun sænsku tónlistarverðlaunanna fyrir ævistarf sitt og ástríðu í útgáfu og þekkingu. Verðlaunin eru opinber ríkisverðlaun.
Meira
Guðfinna S. Bjarnadóttir skrifar um það að sú ákvörðun að frysta eigur Landsbankans í Bretlandi verði tekin til meðferðar í nefndum Evrópuráðsþingsins: "Óumdeilanlegt að bresku hryðjuverkalögin veita einstökum ráðamönnum mjög víðtæka valdheimild sem býður upp á misnotkun og í versta falli valdníðslu."
Meira
María Sigríður Gunnarsdóttir fjallar um ástandið á Gasaströndinni: "Það er auðvelt fyrir Íslendinga að tala sem þjóð friðar og leika friðar-eitthvað á rólegheitatímum en það kallar á dug þegar á reynir."
Meira
ÞJÓÐIN stendur á tímamótum; það gerir Framsóknarflokkurinn einnig. Flokkurinn var í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum þegar íslensku ríkisbankarnir voru seldir til einkaaðila.
Meira
Björgvin Ingi Ólafsson fjallar um hugmyndir um breytingu myntkörfulána: "Fyrirhugaður flutningur myntkörfulána heimilanna á svipuðu gengi og við upphaflega lántöku frá bönkum til Íbúðalánasjóðs, eins og kemur fram í Morgunblaðinu í fyrradag, er stórkostlega vanhugsuð aðgerð."
Meira
SNEMMA árs 2007 tók undirritaður þátt í stofnun Íslandshreyfingarinnar. Að henni stóð hópur fólks sem misst hafði trú á „gömlu“ flokkunum og fann sig knúið til að koma á fót hreyfingu án sérhagsmunatengsla.
Meira
Kristján Pétursson | 9. janúar Birtar verði strax niðurstöður úr rannsóknarskýrslum v/hruns banka og fyrirtækja Forsætisráðherra sagði að öllum steinum yrði velt og niðurstöður frá endurskoðunarfyrirtækjum á aðdraganda bankahrunsins birtar.
Meira
Takið af skarið ÉG vil að ríkisstjórnin beiti sér í að reyna að stöðva fjöldamorðin á Palestínumönnum. Eruð þið virkilega svona miklar gungur að þora ekki að taka af skarið? Mér finnst að það ætti að setja viðskiptabann á Ísrael.
Meira
ÁRIÐ 2001 kom til Íslands einn virtasti hagfræðingur heimsins, nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz, og veitti íslenskum yfirvöldum ráðgjöf um hvernig minnka mætti líkur á og tjón vegna fjármálakreppna.
Meira
Eftir Árna Johnsen: "Með aðild að EBS yrðu áhrif Íslands ótrúlega lítil með 4 þingmenn af 800 á Evrópuþinginu. Að halda því fram að við fáum fullan aðgang að þróun mála eru falsvonir..."
Meira
Árni Veigar Steingrímsson fæddist á Akureyri 20. nóvember 1943. Hann andaðist 1. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Rósant Steingrímur Eiðsson, f. 2. ágúst 1915, d. 2. júlí 1976, og Sigrún Árnadóttir, f. 28. júlí 1912, d. 28 febr. 1952.
MeiraKaupa minningabók
Ásgerður Emma Kristjánsdóttir fæddist 10. mars 1936. Hún lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar að morgni aðfangadags, 24. desember síðastliðins.
MeiraKaupa minningabók
Baldvin Jóhannsson fæddist á Tjörnum í Sléttuhlíð í Skagafirði 21. júní 1921. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 30. desember síðastliðinn. Hann var sonur Sigríðar Konráðsdóttur, f. 16. nóvember 1900, d. 22.
MeiraKaupa minningabók
Eggert Konráð Konráðsson fæddist á Blönduósi 10. janúar 1949. Hann andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 12. desember 2003 og var útför hans gerð frá Hjallakirkju í Kópavogi 19. desember 2003.
MeiraKaupa minningabók
Egill Guðmundsson, bóndi í Króki í Grafningi í Árnessýslu, fæddist í Eyvík í Grímsnesi 13. maí 1921. Hann lést á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík 21. desember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Guðmunda Ragnarsdóttir fæddist á Hólmavík 2. apríl 1952. Hún lést á heimili sonar síns í Reykjavík 21. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ragnar Hafsteinn Valdimarsson bifreiðastjóri, f. 20.6. 1918, d. 15.7.
MeiraKaupa minningabók
Klara Friðriksdóttir fæddist á Látrum (Vestmannabraut 44) í Vestmannaeyjum 26. september 1916. Hún lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum 30. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Friðrik Jónsson útvegsbóndi, f. 1868, d.
MeiraKaupa minningabók
Málhildur Sigurbjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 24. júlí 1935. Hún lést 29. nóvember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 9. desember.
MeiraKaupa minningabók
Mildrid Sigurðsson fæddist í Noregi 30. ágúst árið 1925. Hún andaðist á sjúkrahúsinu á Ísafirði sunnudaginn 4. janúar síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Randi Kristiansen og Oskar Kristiansen, bæði norsk.
MeiraKaupa minningabók
Skúli Axelsson fæddist á Valdarási í Víðidal 14. apríl 1926. Hann lést á sjúkrahúsi Akraness 1. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir frá Hvarfi í Víðidal, f. 28. janúar 1892, d. 2.
MeiraKaupa minningabók
RÚMRI viku eftir að Úrvalsvísitala Kauphallarinnar var núllstillt í 1.000 stigum er hún komin undir 900 stig. Lækkaði vísitalan um 5,51% í viðskiptum gærdagsins og stendur nú í 884,67 stigum.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is AF hverju hafa stýrivextir Seðlabanka Íslands ekki verið lækkaðir eins og stýrivextir í löndunum í kringum okkur? Nærtækasta skýringin er sú að verðbólga mælist enn há og fer enn hækkandi.
Meira
EKKI er hægt að segja til um það á þessu stigi hve vel reglur Seðlabankans um skilaskyldu á gjaldeyri virka, sem settar voru um miðjan desembermánuð. Of skammur tími er liðinn, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum.
Meira
SPARISJÓÐIRNIR lækka flestir verðtryggða inn- og útlánsvexti frá og með morgundeginum. Útlánsvextir lækka um 0,05 prósentustig og verðtryggðir innlánsvextir um allt að 0,10 prósentustig , samkvæmt tilkynningu.
Meira
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is Bakkabræður, Lýður og Ágúst Guðmundssynir, ætla ekki að láta Exista svo auðveldlega í hendur stjórnar Nýja Kaupþings.
Meira
Snorri Hrafnkelsson lét smíða á sig miðaldabrynju enda eru miðaldaverkfæri og miðaldamenning mikið áhugamál hjá honum. En hann er líka listasmiður og hefur undanfarin sjö ár dundað sér við að smíða lestarþorp í kjallaranum heima hjá sér.
Meira
Ýmislegt bardúsa menn á Fésbókinni. Guðmundur Andri Thorsson finnur til vísur dagsins og á afmælisdegi sínum á gamlársdag fékk hann vísu frá Snorra Birni Arnarsyni: Er hér úlfur einn og sér út í tómið gólar, Andri minn eg árna þér endurkomu sólar...
Meira
Svanlaug Einarsdóttir, Birkimörk 8 í Hveragerði, áður Fannborg 1 í Kópavogi, varð hundrað ára 25. desember síðastliðinn. Af því tilefni býður hún til kaffiveislu á Hótel Örk í Hveragerði á morgun, 11. janúar, milli kl. 15 og 17.
Meira
Bridsfélögin á Suðurnesjum Mánudaginn 22. desember var spilaður eins kvölds tvímenningur með þátttöku 13 para og var það síðasta spilakvöldið á árinu. Efstu pör: Þorgeir Halldss. – Garðar Þ. Garðarss. 60,8% Eyþór Jónss. – Garðar Garðarss.
Meira
ÞRÍR íslenskir skákmenn sátu að tafli milli jóla og nýárs og fram yfir áramót. Jón Viktor Gunnarsson og Björn Þorfinnsson tóku þátt í B-flokki hins sögufræga móts í Reggio Emilia á Ítalíu og Guðmundur Kjartansson tefldi á Hastings-mótsins.
Meira
Staðan kom upp á öflugu skákmóti sem lauk fyrir skömmu í Pamploma á Spáni. Búlgarski stórmeistarinn Aleksander Delchev (2.632) hafði svart gegn rússneskum kollega sínum Ian Nepomniachtchi (2616) . 30.... d3! 31. Dc3? hvítur hefði tapað eftir 31.
Meira
10. janúar 1884 Ísafold, fyrsta stúka góðtemplara, var stofnuð í Friðbjarnarhúsi á Akureyri. Stofnendur voru tólf. Góðtemplarareglan breiddist hratt út um landið og á þriðja áratug tuttugustu aldar voru félagsmenn á tólfta þúsund.
Meira
BJÖRGVIN Björgvinsson verður á meðal keppenda í Adelboden í Sviss á morgun þegar fremstu svigkappar heims verða þar á ferðinni í heimsbikarnum. Björgvin kom skemmtilega á óvart í Zagreb í vikunni þegar hann hafnaði í 24.
Meira
EGILL Þormóðsson tryggði Skautafélagi Reykjavíkur sætan sigur á Skautafélagi Akureyrar, 7:6, þegar liðin mættust á Íslandsmóti karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöld. Sigurmarkið kom um klukkan hálftólf, fjórum mínútum fyrir leikslok.
Meira
SVO kann að fara að Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, geti aðeins stillt upp einum markverði gegn Dönum þegar liðin mætast í úrslitaleik alþjóðlega mótsins í Silkeborg í dag.
Meira
Eftir Skúla Sigurðsson sport@mbl.is ÞAÐ heyrðust gamalkunnug hvatningarorð í „Ljónagryfjunni“ í Njarðvík í gærkvöld þegar heimamenn tóku á móti FSu í úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Meira
Guðjón Þórðarson , knattspyrnustjóri Crewe , fær enn ekki tækifæri til að stjórna liði sínu í deildaleik í Englandi . Leik Crewe við Southend í 2. deildinni sem fram átti að fara í dag hefur verið frestað vegna veðurs og vallarskilyrða.
Meira
Birgir Leifur Hafþórsson , atvinnukylfingur úr GKG , komst ekki áfram eftir tvo hringi á Opna Joburg mótinu í Suður-Afríku. Hann lék annan hringinn á 72 höggum, einu höggi yfir pari líkt og hann gerði á fyrsta hring.
Meira
HAUKAR unnu Val í hörkuleik á Ásvöllum í gær, 29:26, þar sem Ramune Pekarskyte fór hamförum og skoraði 11 mörk fyrir Hauka, langflest úr langskotum. Leikurinn var æsispennandi allan tímann og ætluðu bæði lið sér sigur í leiknum.
Meira
EF einhver hefði fyrir ári sagt að lið FSu myndi eftir ár verða í úrvalsdeild og vinna báða sína leiki gegn UMFN á tímabilinu hefði líkast til verið hlegið að þeim einstaklingi.
Meira
SNÆFELL fór góða ferð til Sauðárkróks í gærkvöldi og sótti tvö stig er liðið lagði Tindastól 95:88. Þar með er Snæfell komið í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum á undan Tindastóli og tveimur á eftir Keflavík.
Meira
KR-INGAR sýndu mátt sinn og megin í gærkvöldi þegar þeir lögðu ÍR 98:80 í Seljaskóla. Þar með varð KR fyrst liða til að sigra í fyrsta leik eftir áramótin eftir að hafa sigrað í öllum deildarleikjum sínum fyrir áramót.
Meira
KNATTSPYRNUSAMBAND Íslands hefur komst að samkomulagi við frændur sína og kollega hjá Knattspyrnusambandi Færeyja, um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttuleik í Kórnum í Kópavogi þann 22. mars næstkomandi.
Meira
ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknattleik hóf fjögurra landa mótið í Danmörku í gær á góðum sigri gegn Rúmenum, 34:28, í Skjern. Danir sigruðu Bosníu örugglega, 38:29, og það verður því nánast um úrslitaleik mótsins að ræða í dag þegar Íslendingar mæta Dönum í Silkeborg.
Meira
Á Íslandi er starfrækt Bréfdúfnasamband Íslands. Þar getur áhugafólk um bréfdúfur, á öllum aldri, fengið allar nauðsynlegar upplýsingar um áhugamál sitt.
Meira
Natan Máni, 7 ára, teiknaði þennan glæsilega dreka. Blómum og trjám stafar ekki hætta af drekanum en ekki væri nú eftirsóknarvert að mæta þessari...
Meira
Helsta aðdráttarafl Húsdýragarðsins er vissulega selirnir og klaufdýrin. Í húsdýragarðinum eru þó töluvert fleiri íbúar sem vert er að gefa gaum. Barnablaðið fór á stúfana og kynnti sér fuglalífið í garðinum.
Meira
Dúfurnar í Húsdýragarðinum eru afar fallegar. Núna eru þrjár tegundir dúfna í garðinum, Parrukkar, Meffikanar og Hojarar. Unnur Sigurþórsdóttir hjá Húsdýragarðinum segir dúfurnar afar geðgóð dýr.
Meira
„Það er harðbannað að pissa í laugina,“ kallaði sundlaugarvörðurinn til lítils strákpjakks. „Já en ég er ekki einn um það,“ æpti strákurinn á móti. „Flestir pissa í laugina.
Meira
Allar lífverur þurfa á súrefni að halda til að lifa. Eflaust gera margir ráð fyrir að til þess noti öll dýr sömu líffæri og við en ekki hafa öll dýr lungu. Til dæmis anda ánamaðkar með húðinni því þeir eru ekki með sérstakt öndunarlíffæri.
Meira
Hæ, hæ! Ég heiti Sunna Þórey og ég óska eftir pennavini á aldrinum 10 til 12 ára. Sjálf er ég 10 ára. Áhugamál mitt er fótbolti og útivera og ég held með Liverpool. Uppáhaldsliturinn minn er blár.
Meira
Tumi tígur smíðaði þetta glæsilega fuglahús fyrir fuglavini sína í Hundraðekruskógi. Nú þarf hann að láta vini sína vita að húsið er tilbúið. Getið þið hjálpað honum að finna 7 sæta fugla á síðum...
Meira
Reyndu að koma ferningi, hjarta, hring og þríhyrningi fyrir í hverri röð bæði lárétt og lóðrétt. Þú sérð að stóri kassinn samanstendur af fjórum minni kössum. Reyndu líka að koma ferningi, hjarta, hring og þríhyrningi fyrir í öllum litlu kössunum.
Meira
Harpa, 9 ára, teiknaði þessa fallegu og sumarlegu mynd. Við þurfum nú enn að bíða í nokkra mánuði þar til við fáum svo grænt gras kórónað með skælbrosandi...
Meira
Þessir þrír óheppnu geimfarar lentu í því leiðinlega atviki að týna geimflaugum sínum. Getur þú fundið út hvaða geimflaugar geimfararnir eiga? Lausn...
Meira
Ég las bókina Engin venjuleg prinsessa eftir Meg Cabot. Þessi bók er um stelpu sem heitir Mía, og hún er prinsessa. Hún þurfti að eyða jólafríinu sínu í rökræður og stöðumælagjöld í Genóvaníu, sem henni fannst alls ekki gaman.
Meira
Í þessari viku eigið þið að finna rétt nöfn á fuglunum og leysa úr stafaruglinu. 1. lilPa 2. aBtri 3. laGul 4. Urnna 5. ittaP 6. aFí 7. fíarD 8. llLii 9. nUa 10. sLaí 11.
Meira
Awaydays eftir Pat Holden gæti orðið ein af sterkari myndum ársins og mun sennilega tróna á toppnum þegar litið verður yfir breska kvikmyndaflóru ársins 2009, en hér er veitt fágæt innsýn í heim karlmennsku á villigötum auk þess sem myndin vekur upp...
Meira
Eftir Helga Þorgils Friðjónsson Í kvalarlosti enga kosti kyssir Bauni í spé augu úr frosti í dönskum osti afsakið það er hlé Himnesku í harpsíkordi heyri ég frá Magasín de Nordi Ég var í Danmörku í byrjun september og nú aftur í byrjun október.
Meira
10. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 1957 orð
| 3 myndir
Á morgun verður haldið upp á sjötugsafmæli Böðvars Guðmundssonar rithöfundar í Íslensku óperunni með leik, söng og upplestri. Hér er rýnt í skáldskap þessa vinsæla höfundar.
Meira
Einar Sigurðsson í Eydölum (1539-1626) var höfuðskáld á síðari hluta sextándu aldar og byrjun þeirrar sautjándu. Ljóðmæli hans komu út hjá Stofnun Árna Magnússonar árið 2007. Hér er birt brot úr kvæði.
Meira
10. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 1724 orð
| 3 myndir
Menn líta nú í eigin barm. Fyrrverandi bankastjórar, forsetinn, forsætisráðherrann. En er það nóg? Flestir eru sammála um að róttækt endurmat á gildum samfélagsins verði að fara fram. Hvernig á það að fara fram? Með kosningum? Byltingu?
Meira
Bandaríski nóbelshöfundurinn Kurt Vonnegut hafði tvær kenningar um manninn. Hann væri í fyrsta lagi ekki hannaður til þess að verða eldri en fertugur.
Meira
Söngvakeppni Sjónvarpsins hefst í kvöld. Sé um svipaða dagskrárgerð að ræða og á síðasta ári verður ekki mælt með þættinum hér. En það má hins vegar minna á að Spaugstofan tekur upp þráðinn í kvöld þar sem frá var horfið fyrir jól.
Meira
10. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 2650 orð
| 2 myndir
Það verkefni að fyrirbyggja að heiðursglæpir verði framdir á Íslandi er ekki barátta eins menningarheims gegn öðrum heldur hrein og klár mannréttindabarátta sem upplýst réttarríki þarf að vera vel í stakk búið til að takast á við, segir greinarhöfundur.
Meira
Haustið 2007 stigu fram nánast í sama sporinu þeir Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður, varaformaður Samfylkingar og formaður viðskiptanefndar, og Sigurjón Árnason, þá bankastjóri Landsbankans, og sögðu landsbúum að þeir teldu rétt að huga að...
Meira
Handritshöfundurinn Charlie Kaufman er tvímælalaust með sérkennilegri kvikmyndaskáldum Bandaríkjanna og nægir þar að benda á röð sjálfhverfra, sjálfsmeðvitaðra og afbyggjandi handrita sem í meðförum ólíkra leikstjóra hafa reynst bráðskemmtilegar...
Meira
LEIKLIST Sumarljós Þjóðleikhúsið „Glíma leiklistar við frásögnina, epíska leikhúsið, er víðsfjarri, sögumaður skipar veigalítinn sess, áherslan er á dramatískustu þætti skáldsögunnar.“ María Kristjánsdóttir.
Meira
Listfræðiprófessorinn minn í París, Marc Le Bot, hafði þann háttinn á að lesa ljóð til að setja sig í réttar stellingar fyrir ritun fræðilegs texta og byrjaði hann gjarnan daginn á því.
Meira
Hverjir hafa áhuga á að læra íslensku? Hverjir hafa áhuga á að kynna sér íslenska menningu? Hefur bankahrunið einhver áhrif á það? Að mati greinarhöfundar þarf að rækta áhuga útlendinga á íslenskri tungu og menningu.
Meira
Á einum sólarhring getur líf manns tekið afgerandi stefnu til hins verra, eins og berlega sést í þessari áhugaverðu og vel skrifuðu fyrstu skáldsögu höfundarins.
Meira
Nokkrar ljóðabækur urðu undir í jólabókaflóðinu. Ljóðleg eftir Berglindi Gunnarsdóttur er ein af þeim. Í bókinni eru bæði frumort ljóð og þýdd, aðallega úr spænsku. Hér er ýmislegt ágætlega ort.
Meira
10. janúar 2009
| Menningarblað/Lesbók
| 2034 orð
| 3 myndir
Ef boðskapur myndarinnar kemst til skila þá er hann sá að maður skyldi taka hverjum manni eins og hann er og umgangast hann af virðingu, segir Friðrik Þór Friðriksson um heimildamynd sína Sólskinsdrenginn sem var frumsýnd í gær.
Meira
Hlý septembersól Kul Var sagt frá þér músarrindill Langaði augum líta Trítlandi á palli bláleitt hratið fljúgandi skuggi áttum hér athvarf um stund nærðumst á gómsætum berjum Æi Birstu! músarrindill litli birstu mér!
Meira
Þegar LA-sveitin Black Rebel Motorcycle Club kom fyrst fram úr skugganum fyrir réttum tíu árum hljómaði hún eins og... ja... skugginn af Jesus and Mary Chain.
Meira
Getur það verið? Nú þegar? Málið afgreitt og dautt? Nú í blábyrjun ársins kom út ný plata bandarísku sveitarinnar Animal Collective, líklega nafntoguðustu neðanjarðarsveitar samtímans.
Meira
Á nýársdag sýndi ríkissjónvarpið heimildarmynd Hilmars Oddssonar, Dieter Roth puzzle, sem frumsýnd var á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík síðastliðið sumar og fjallar um ævi myndlistarmannsins Dieters Roths.
Meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands lék tónlist eftir
Strauss-feðga, Lehár, Bernstein og fleiri. Einsöngvari: Dísella Lárusdóttir. Stjórnandi: Markus Poschner.Meira
Opinská ævisaga gleðikonu í London er bók byggð á vefdagbók hinnar umdeildu Belle de Jour. Bókin kom út hjá JPV-útgáfu í þýðingu Sigurðar Hróarssonar fyrir jól.
Meira
Allir þekkja ævintýrið um Hans og Grétu – systkinin sem foreldrarnir yfirgefa í skóginum og rata svo ekki heim því dýrin hafa nartað í brauðmolaslóðina.
Meira
Þetta er falleg og góð plata frá Mótettukórnum. Mikill fengur er í því að hér syngur kórinn nokkra nýja sálma sem ekki hafa áður komist á plötur eftir tónskáld sem sum hver hafa ekki oft komið verkum sínum í það form.
Meira
Þér ég vildi gjafir gefa: Dalalæðu, dúnmjúkt regn og dögg á mosa. Angan moldar, óm úr suðri, yl af sólu. Bjarta morgna, blæ á vanga, bláma himins. Ljósar strendur, léttan hlátur, langa daga. Silfurflugu á sumarblómi, sólvermd engi.
Meira
Árið 1949 fluttust á fjórða hundrað Þjóðverjar til Íslands þegar reynt var að leysa vinnuaflsþörf landbúnaðarins með því að ráða verkafólk frá Þýskalandi á íslenska sveitabæi.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.