Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is HÚN ER girnileg grænmetissúpan í pottinum hjá Kristbjörgu Ásmundsdóttur, sem nú mætir í Hlutverkasetur tvisvar í viku og eldar hádegismat fyrir þá sem þangað koma.
Meira
ÞEGAR fólk horfir á auglýsingu á skjá í verslunarmiðstöð, líkamsræktarstöð eða matvöruverslun í Bandaríkjunum er hugsanlegt að auglýsingamiðillinn fylgist líka með áhorfandanum. Líkurnar á því eru að vísu ekki miklar en fara vaxandi.
Meira
Staðfastur Einn mótmælandi tók sér hógvær stöðu þegar Alþingi kom saman í gær. Þótt stjórnin sé frá er ekki þar með sagt að öll baráttumál séu í höfn.
Meira
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is Árásir með brennisteinssýru, morð og nauðganir eru meðal þess sem aftrar sífellt fleiri námfúsum stúlkum frá skólagöngu í Afganistan.
Meira
KRÓNAN styrktist talsvert í síðustu viku án þess að sú styrking skilaði sér í lækkandi eldsneytisverði hér á landi. Ástæðan er hækkandi heimsmarkaðsverð á bensíni á undanförnum vikum, að sögn Magnúsar Ásgeirssonar, innkaupastjóra hjá N1.
Meira
KOSTNAÐUR við biðlaun þriggja bankastjóra Seðlabankans verður 44 milljónir, að mati fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Þetta kemur fram í umsögn með Seðlabankafrumvarpi forsætisráðherra.
Meira
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is FÓLKSBÍLAR og ýmiss konar flutningatæki til atvinnurekstrar á landi voru á síðasta ári flutt út fyrir tæplega 6,5 milljarða króna. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir árið 2008.
Meira
VÍSINDAMENN við Cambridge-háskóla hafa þróað nýja aðferð við framleiðslu ljósdíóða sem eiga að geta enst í 60 ár. Boða þeir byltingu sem muni ekki aðeins útrýma glóðarperunni, heldur einnig sparperunni.
Meira
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Á ÖFLUGUM og fjölmennum félagsfundi með öryggisvörðum var samþykkt að leggja það til við Keflavíkurflugvöll ohf.
Meira
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is ÖLL innlán vegna Kaupþing Edge-reikninga í Noregi, Finnlandi og Austurríki hafa verið greidd upp og verið er að vinna úr málum sem tengjast slíkum reikningum þýskra innstæðueigenda.
Meira
STJÓRN Kvenréttindafélags Íslands fagnar því að í nýrri ríkisstjórn skuli hlutfall kynjanna vera jafnt auk þess sem kona gegnir nú stöðu forsætisráðherra í fyrsta sinn.
Meira
FIMM fjárfestar uppfylltu skilyrði opins söluferlis Fyrirtækjaráðgjafar Nýja Glitnis á hlutafé í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Frestur til að skila óskuldbindandi tilboði rann út í gær.
Meira
FIMMTÁN sóttu um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskólann í Breiðholti en umsóknarfrestur rann út 30. janúar sl. Núverandi skólameistari er Kristín Arnalds sem lætur af störfum vegna aldurs.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur sýknað karlmann af ákæru um kynferðisbrot gegn 12 ára dóttur sambýliskonu sinnar. Dómurinn leit m.a. til þess að engir aðrir væru til frásagnar um meint atvik en stúlkan og maðurinn, sem neitaði staðfastlega sök.
Meira
ÞÆR eru ungar, fallegar og því vanastar að fá meira en lítið fyrir sinn snúð þegar þær auglýsa tískufatnað, hvort sem það er á tískusýningum eða í auglýsingum. Nú eru þær komnar á útsölu og búið að lækka verðið um helming.
Meira
Eftir Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður | Í Grundarfirði eins og á svo mörgum stöðum á Íslandi þar sem há fjöll skyggja á sólina þann tíma sem hún er lægst á lofti, er það jafnan gleðiefni þegar sólin sést á ný eftir rúmlega tveggja mánaða hlé.
Meira
Haukur Gunnarsson fyrrverandi verslunarstjóri í Rammagerðinni, lést á heimili sínu, Sóltúni 13, þriðjudaginn 3. febrúar, 87 ára að aldri. Haukur fæddist 18. júlí 1921 á Reynimel við Bræðraborgarstíg í Reykjavík.
Meira
Hugmyndaráðuneytið kallast verkefni sem Guðjón Már Guðjónsson kom á laggirnar í janúar til að styrkja frumkvöðlastarfsemi í landinu. Ráðuneytið er öllum opið og rekið algjörlega í sjálfboðastarfi.
Meira
HEIMDALLUR, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, lýsir yfir vonbrigðum með nýja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Félagið hefur miklar áhyggjur af því að ný stjórn freistist til þess að auka útgjöld og hækka skatta.
Meira
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is HUGMYNDIR nokkurra framhaldsskóla um inntökupróf vegna afnáms samræmdra prófa í 10. bekk grunnskólanna nú í vor voru slegnar af í menntamálaráðuneytinu. „Ráðuneytið lagðist gegn þeim.
Meira
Ríkisstjórnin ætlar í næstu viku að gera grein fyrir fyrirætlunum sínum um endurreisn fjármálakerfisins. Nefnd undir forystu Mats Josepsson mun gera grein fyrir fyrstu tillögum sínum í lok þessarar viku.
Meira
„ÞAÐ er ljóst að það er talsvert miklu dýrara að stoppa byggingu Tónlistarhússins og klára það seinna en klára það núna,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, og tekur fram að hún sjái því engan annan kost í stöðunni en að klára...
Meira
Samfylking og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa komið sér saman um að Alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast framboðum, prófkjörum, kosningafundum...
Meira
„Við fengum aldrei viðbrögð við áætlun okkar um endurskipulagningu Baugs sem hafði það að markmiði að tryggja verðmæti félagsins og greiða allar skuldir.
Meira
Í JANÚAR bárust Vinnumálastofnun 10 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 167 einstaklingum. Fjórar tilkynningar voru úr mannvirkjagerð með samtals 50% þeirra sem sagt var upp.
Meira
SAMTÖK verslunar og þjónustu mótmæla gjaldskrárhækkun Faxaflóahafna. Ekki verði séð á ársreikningi Faxaflóahafna síðustu ár að hækkunin sé nauðsynleg.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Ekki var talið að maðurinn ætti sér aðrar málsbætur en játa brot sitt, engu að síður batt dómurinn refsingu sjö mánaða skilorði.
Meira
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, kveðst vilja koma í veg fyrir lög um efnahagsaðgerðir sem gefi til kynna að bandarísk stjórnvöld taki upp verndarstefnu og geti leitt til viðskiptastríðs.
Meira
SÁTT hefur náðst í áratuga löngu deilumáli á milli Félags tónskálda og textahöfunda (FTT) og Tónskáldafélags Íslands (TÍ) er snýr að greiðslu höfundarlauna. Sátt hefur náðst um að svokallað punktakerfi verði lagt niður þegar kemur að útvarpsspilun.
Meira
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is KATRÍN Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hyggst fyrir vikulok skipa nýja fulltrúa ráðuneytisins í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Jafnframt hyggst fjármálaráðherra skipa nýjan fulltrúa í stjórninni.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn til að greiða 1,2 milljónir króna í sekt fyrir brot gegn lögum um nytjastofna sjávar. Annar mannanna var skipstjóri fiskiskipsins Kambarastar RE sem hélt í 23 veiðiferðir án lögboðinna aflaheimilda.
Meira
HANN leit upp frá vinnu sinni, netagerðarmaðurinn þar sem hann vann að flutningi síldarnótar Hákonar EA, aflahæsta skips landsins í fyrra, frá verkstæði og til geymslu, í Grindavík gær.
Meira
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is VINNA við breytingar á heilbrigðiskerfinu var vel á veg komin þegar upp úr ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar slitnaði.
Meira
PÁFAGARÐUR hefur skipað svo fyrir að biskupinn Richard Williamson, sem neitaði því að helförin hefði átt sér stað, verði að taka þau orð sín aftur vilji hann vera í þjónustu kirkjunnar.
Meira
SÚ var tíðin, að fólk gat fengið kreditkort í hvaða banka sem var og sums staðar, til dæmis í Bandaríkjunum, þurfti alls ekki að biðja um þau. Þau komu óumbeðin inn um bréfalúguna og ekki var óalgengt, að fólk væri með 10 eða 20 og jafnvel fleiri kort.
Meira
VALNEFND í Laufásprestakalli, Þingeyjarprófastsdæmi, hefur ákveðið að sr. Bolli Pétur Bollason verði skipaður sóknarprestur í Laufásprestakalli. Sex umsækjendur voru um embættið. Bolli Pétur Bollason lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 2000.
Meira
HRUKKUR eru ekki bara arfbundin ættarfylgja, heldur á mikil streita líka sína sök á þeim. Ýmsar ástæður geta verið fyrir þeim, til dæmis skilnaður, skyndilegt þyngdartap eða notkun þunglyndislyfja. Kemur þetta fram í nýrri rannsókn.
Meira
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is STURLA Böðvarsson tilkynnir á fundi með kjördæmaráði á laugardaginn hvort hann hyggst gefa kost á sér áfram til næstu alþingiskosninga. Hann var ekki tilbúinn að láta það uppi nú.
Meira
Hljóðið í smábátasjómönnum er þungt vegna lækkandi fiskverðs og segjast sumir trillukarlar vera farnir að borga með sér í vinnu. Menn héldu í þá von að gengishrun á krónunni myndi halda uppi verðinu á markaðnum en sú virðist ekki vera raunin.
Meira
Í JANÚAR fóru 125.359 ökutæki um Hvalfjarðargöng eða 1.200 fleiri en í sama mánuði 2008. Þetta er aukning um 0,9% og kemur nokkuð á óvart í efnahagsárferðinu sem þjóðin býr við.
Meira
ÓLAFUR Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, hefur fengið að láni fjóra starfsmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og embættis ríkislögreglustjóra. Er um að ræða þaulvana menn í rannsóknum efnahags- og auðgunarbrota.
Meira
ÍSLENSK getspá leitar að heppnum manni sem keypti sér 10 raða sjálfvalsmiða í Lottó með Jóker í Fjarðarkaupum sl. föstudag. Kaupandinn sem vann tæpar 16 skattfrjálsar milljónir er beðinn að hafa samband til að vitja...
Meira
SAMTÖK iðnaðarins segja í ályktun að löngu tímabært sé að horfa fram á veginn og lækka vexti. „Háir vextir eiga alls ekki við í efnahagskreppu eins og þeirri sem Íslendingar ganga í gegnum um þessar mundir.
Meira
HORFUR voru á því í gær að skyndiverkföllum breskra verkamanna færi að ljúka en þeir hafa verið að mótmæla því að erlendir verktakar og erlent vinnuaafl skuli víða vera að störfum í Bretlandi þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi.
Meira
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is KRÖFUHAFAR á gamla Kaupþing, sem heitir eins og áður Kaupþing banki hf., hafa lýst því yfir að þeir kæri sig ekki um brunaútsölur á eignum bankans.
Meira
Strassborg. AP. | Evrópuþingið samþykkti í gær með miklum meirihluta ályktun um að hvetja aðildarríki Evrópusambandsins til að taka við föngum úr Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu.
Meira
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is VERÐ á fiskmörkuðum hér á landi hefur lækkað töluvert síðustu vikurnar. Nú er svo komið að verðið er orðið mjög sambærilegt og leigukvótinn fæst á, ef mið er tekið af þorskinum.
Meira
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is DÆMI eru um það að útlendingar, sem starfað hafa hér á landi og þiggja atvinnuleysisbætur, séu fluttir úr landi en reyni samt sem áður að fá atvinnuleysisbætur greiddar áfram.
Meira
Ríkisstjórnin vill skattahækkanir. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir „augljóst að við þurfum að fara í verulegan niðurskurð og einhverjar skattahækkanir“. Þegar nánar er spurt verður fátt um svör.
Meira
Þrátt fyrir átök um ýmis grundvallarmál má segja að góður tónn hafi að mörgu leyti verið í ræðum leiðtoga helztu flokkanna á Alþingi í umræðunum um stefnuræðu forsætisráðherra í gærkvöldi.
Meira
Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is STÚLKNASVEITIN Elektra, er komst áfram í undankeppni Evróvisjón um síðustu helgi, er skýrt dæmi um að ekki sé alltaf hægt að festa einn og sama merkimiðann á þá er framleiða sykursætt popp.
Meira
FRANSKI listamaðurinn Degas sýndi einungis einu sinni skúlptúr eftir sig, það var frumgerð úr vaxi af Litla dansaranum frá um 1880. Degas er frægur fyrir málverk og teikningar sem oftar en ekki eru af dönsurum.
Meira
ÞRÁTT fyrir að Hitchcock hafi sannað að tónlist sé ekki nauðsynleg fyrir dramatíska uppbyggingu eru flestir sammála um að „rétt“ tónsmíð fleyti kvikmyndum upp á annað og ljóðrænna plan.
Meira
RÍKISSJÓNVARPIÐ hefur verið iðið við að sýna ýmiskonar heimildamyndir á mánudags- og þriðjudagskvöldum. Í seinustu viku var sýnd heimildamynd um sánubaðið í Finnlandi.
Meira
* Á meðan fyrirtækin og fjölskyldurnar í landinu heyja varnarbaráttu í stríðinu gegn kreppunni og öðrum fylgifiskum bankahrunsins eru enn margir sem sjá möguleika í þrengingunum.
Meira
KENNEDY Center listamiðstöðin í Washington í Bandaríkjunum ætlar að leggja þeim listastofnunum lið sem harðast hafa orðið úti í efnahagskreppunni þar í landi.
Meira
Madonna er sögð fara á stefnumót með brasilískri fyrirsætu, Jesus Luz, í þeim tilgangi að gera körfuknattleiksmanninn Alex Rodriguez, sem oft er kallaður A-Rod, afbrýðisaman.
Meira
BRESKA söngkonan og Kryddpían Mel B býr víst yfir meiri kynorku en nokkur sem hún hefur kynnst um ævina. Mel segir að eiginmaður hennar, Stephen Belafonte, sé eini maðurinn sem hún hafi nokkru sinni verið með sem nái að halda í við hana í rúminu.
Meira
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Á síðasta áratug 18. aldar var nýklassíska tímabilið í evrópskri málaralist að líða undir lok. Árið 1793 málar David eitt af meistaverkum þeirrar aldar, myndina af Marat myrtum í baðinu.
Meira
ÞRÁTT fyrir þær gríðarlegu breytingar sem hafa orðið í þjóðfélaginu á undanförnum vikum virðist tónlistarsmekkur Íslendinga haldast eins, hvað sem tautar og raular.
Meira
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞAÐ er nú sagt að Paul McCartney sé í hljóðveri þrjá til fjóra daga í hverri viku. Það er nú kannski ekki eins gott hjá mér, en maður reynir að halda sig við efnið eftir föngum.
Meira
ODDNÝ Eir Ævarsdóttir, heimspekingur og rithöfundur, og Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri og myndlistarmaður, ræða á morgun, föstudag klukkan 17.
Meira
BRESKA söngkonan Victoria Beckham sendir eiginmanni sínum, knattspyrnukappanum David Beckham, mörg kynþokkafull SMS skilaboð á hverjum degi um þessar mundir.
Meira
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR felldi í gær úrskurð í máli STEFs gegn skráarskiptisíðunni Istorrent og aðstandenda hennar, en rekja má upphaf málsins til þess að lögbann var sett á síðuna torrent.is, í nóvember 2007.
Meira
BRESKA söngkonan Lily Allen vakti verðskuldaða athygli fyrir sína fyrstu plötu, Alright, Still , sem kom út árið 2006. Þar mátti finna hin fínustu lög, til dæmis hið gríðarlega vinsæla „Smile“ og hið skemmtilega „LND“.
Meira
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is ÞAÐ er líf í Háskóla Íslands þessa dagana enda standa þar yfir kosningar hjá nemendum til Stúdentaráðs og Háskólaþings. Það er síðari kjördagurinn í dag og í kvöld verða úrslitin kunngjörð.
Meira
Sturla Friðriksson skrifar um Evrópumál: "...að slík ráðstöfun myndi veita öðrum Evrópubúum fullan aðgang að auðæfum Íslendinga, svo sem fiskimiðum og orkubúum þjóðarinnar."
Meira
Árni Sigfússon segir frá afstöðu sinni til framboðsmála: "Í þessari hörðu atlögu er brýnast að halda sjó, standa fárviðrið af okkur. Við treystum okkur til að gera það."
Meira
Gunnar Axel Axelsson | 4. febrúar Hvað gerir Steingrímur í málefnum sparisjóðanna? Lítið hefur borið á fréttum af fyrirhugaðri sameiningu BYRS, SPRON og SPKef síðan fyrir jól, þegar fréttir bárust af sameiningarviðræðum þessara aðila.
Meira
Frá Gunnari Kristni Þórðarsyni: "ÉG VIL benda á mjög alvarlegan hlut í auglýsingum um úrræði fyrir skuldara að undanförnu. Auglýst hefur verið m.a. hjá Íbúðalánasjóði úrræði sem tengir afborganir íbúðaveðlána við launavísitölu og atvinnustig."
Meira
ÞAÐ er þungt í þjóðinni. Torg og salir fyllast af fólki, sem mótmælir. Fólki finnst nóg um hvernig þeir búa sér í haginn, sem bera ábyrgð á ástandinu og halda enn áfram í skjóli þrásætinna stjórnmálamanna.
Meira
Sigríður Laufey Einarsdóttir | 4. febrúar „Ísland ekki á útsölu til ESB“ Nú geta ESB-sinnar slakað á fyrst um sinn ekkert í sjónmáli að Ísland geti gengið í ESB, eflaust mikil vonbrigði.
Meira
Sigurbjörn Sveinsson | 4. febrúar Sjúkraliða úr prísund hjúkrunarfræðinga Nú á dögum vill ungt fólk ekki leggja fyrir sig fag, sem er öðrum stéttum háð um atvinnuréttindi og ekki hægt að nýta á eigin ábyrgð nema að breitt sé yfir starfsheitið.
Meira
TVÆR fréttir um helgina glöddu mig og veitti ekki af. Önnur sagði frá mikilli uppsveiflu í fylgi Sjálfstæðisflokksins eftir að ríkisstjórnin féll. Hin var tilvitnun í orð Björns Bjarnasonar á fundinum á Grand Hótel þ. 30. janúar.
Meira
Til að vera lífsglöð, hamingjusöm og andlega heil þurfum við reglulega að uppfylla meðfæddar þarfir okkar fyrir ást og umhyggju, áhrifavald og stjórn, frelsi og sjálfstæði, gleði og ánægju, öryggi og lífsafkomu.
Meira
Hundagistiheimilið að Leirum MIG langar að taka undir með Sigríði Einarsdóttur sem kvartaði undan þjónustu hundagistiheimilisins að Leirum í Mosfellsbæ. Ég setti lítinn kjölturakka þangað í viku sl. júní og fékk hann vægast sagt illa haldinn til baka.
Meira
Karl Garðarsson gerir athugasemd við ummæli Vilhjálms Bjarnasonar í Kastljóssþætti: "Annaðhvort hefur mikill kostnaður sem tilheyrði Morgunblaðinu verið settur á 24 stundir, eða Vilhjálmur Bjarnason fer með hreint bull. Ég hallast að hinu síðarnefnda."
Meira
Aðalsteinn P. Maack, húsasmíðameistari og fyrrverandi forstöðumaður byggingareftirlits ríkisins, fæddist í Reykjavík 17. nóvember 1919. Hann andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 24. janúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Elísabet Kristjánsdóttir fæddist í Nýjabæ í Flatey á Skjálfanda 20. nóvember 1934. Hún lést á Landspítalanum, Hringbraut, 27. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru þau Sigríður Sigtryggsdóttir frá Flatey á Skjálfanda, f. 9. janúar 1894, d. 28.
MeiraKaupa minningabók
Guðríður Sveinsdóttir fæddist í Landakoti á Vatnsleysuströnd 15. september 1922. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 27. janúar sl. Foreldrar Guðríðar voru Sveinn Pálsson, bóndi og kaupmaður, f. 11.10. 1885, d. 28.7.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Magnússon fæddist í Vestmannaeyjum 10. febrúar 1930. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 3. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Landakirkju 17. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Eiður Ólafsson fæddist í Reykjavík 5. apríl 1966. Hann lést á heimili sínu 26. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Ólafur Þorgrímsson, f. 10.09.1926 og Valgerður Eiðsdóttir, f. 7.3.1929. Systkini hans eru Hulda Ósk Ólafsdóttir, f. 12.12.
MeiraKaupa minningabók
Óskar Guðmundur Guðjónsson fæddist á Búðareyri við Reyðarfjörð 5. október 1920. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 28. janúar 2009. Hann var sonur hjónanna Margrétar Guðmundsdóttur húsmóður, f. 25.7. 1894, d. 6.7.
MeiraKaupa minningabók
Sigurveig Þorleifsdóttir fæddist í Naustahvammi í Norðfirði 14. febrúar 1933. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 13. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Keflavíkurkirkju 20. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Hraðbanka var stolið í Hveragerði og það vakti Friðrik Steingrímsson í Mývatnssveit til umhugsunar: Við afbrota fréttirnar ansi grófar oftlega maður hrekkur við. Þessir bíræfnu banka þjófar bera með sóma réttnefnið.
Meira
Hinn 4. febrúar 1964 fór íslenskur maður frá Vestur-Berlín yfir til austurhluta borgarinnar með eftirfarandi í farangrinum: 2 nælonskyrtur, 2 pör af dömunælonsokkum, 20 smávindla, 250 grömm af kaffi og 1 kg af banönum. Hvernig veit ég þetta?
Meira
Bónus Gildir 5. - 8. febrúar verð nú verð áður mælie. verð KF nýtt ferskt kjötfars 399 499 399 kr. kg KF kofareykt folaldakjöt 399 599 399 kr. kg Ali ferskur svínabógur 399 499 399 kr. kg GV ferskt grísahakk 498 698 498 kr.
Meira
Bæjarstjórinn í Þorlákshöfn hreinsar hugann og fær nýjar hugmyndir þegar hann gengur um fjöll og firnindi. Helgi Bjarnason ræddi við Ólaf Áka Ragnarsson um gönguáráttuna.
Meira
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „FISKVEIÐAR hafa alltaf verið undirstaða lífsins á Íslandi og það sama má segja um fiskveiðarnar á Winnipeg-vatni í Kanada.
Meira
Keflavík Sólrún Glóð fæddist 31. desember kl. 24. Hún vó 4.165 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Jana María Guðmundsdóttir og Jón Þorsteins...
Meira
Reykjavík Þorsteinn Snæland fæddist 11. ágúst kl. 5.40. Hann vó 3.125 g og var 48 cm langur. Foreldrar hans eru Þórdís Steinsdóttir og Halldór Þór...
Meira
Fyrir stuttu uppgötvaði Víkverji sér til hrellingar, og reyndar þó nokkurrar undrunar, að fyrir tuttugu árum var hann nákvæmlega tuttugu kílóum léttari en nú. Þannig er útlit fyrir að Víkverji hafi að meðaltali þyngst um eitt kíló á ári í tuttugu ár!
Meira
5. febrúar 1967 Silfurhesturinn, bókmenntaverðlaun dagblaðanna, voru veitt í fyrsta sinn. Snorri Hjartarson hlaut þau. Verðlaunin voru síðast veitt árið 1974. 5.
Meira
Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „ÞETTA var mjög bratt og bara klaki í mesta brattanum, sem var neðst í brautinni,“ sagði Stefán Jón Sigurgeirsson, skíðamaður frá Húsavík, eftir að hann kom í mark í 38.
Meira
Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is GUÐMUNDUR Viðar Mete, varnarmaðurinn sterki sem hefur leikið með Keflvíkingum undanfarin ár, er genginn til liðs við Val og hefur gert samning við Hlíðarendaliðið sem gildir út komandi leiktíð.
Meira
MIKILL taugatitringur hefur verið ríkjandi í Hafnarfirði fyrir leik Hauka og FH sem eigast við í N1-deild karla í handknattleik að Ásvöllum klukkan 19.30 í kvöld.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen leikur sinn 100. leik með Barcelona komi hann við sögu hjá Katalóníuliðinu í kvöld þegar það mætir Mallorca í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Meira
EVERTON sigraði erkifjendur sína og nágranna, Liverpool, í 4. umferð ensku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöld, 1:0. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og þurfti Steven Gerrard að fara af velli snemma leiks.
Meira
Ísland er í riðli með Þýskalandi , Tékklandi , Norður-Írlandi og San Marínó í undankeppni EM en dregið var í riðla í gær. Úrslitakeppnin fer fram í Danmörku á næsta ári.
Meira
KNATTSPYRNA England Bikarkeppnin, 4. umferð: Aston Villa – Doncaster 3:1 Steve Sidwell 15., John Carew 19., Nathan Delfouneso 61. – Jason Orice 45. *Aston Villa mætir Everton. Nottingham Forest – Derby 2:3 Chris Cohen 2.
Meira
„VIÐ ætlum að skoða hann og ræða málin og athuga hvort hann hefur áhuga á að ganga í okkar raðir,“ sagði Rúnar Kristinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KR, í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær.
Meira
LEIKUR KR og Keflavíkur í A-riðli Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi lofar virkilega góðu fyrir bikarúrslitaleik liðanna um aðra helgi.
Meira
NORÐUR-ÍRINN Rory McIlroy er í 16. sæti á nýjum heimslista í golfi sem uppfærður var á mánudaginn. McIlroy sigraði á Dubai meistaramótinu s.l. sunnudag og var það fyrsti sigur hans á Evrópumótaröðinni.
Meira
„ÞAÐ er alveg ljóst að Nikola Karabatic fer ekki frá okkur nema forráðamenn Rhein-Neckar Löwen séu tilbúnir til að greiða algjöra metupphæð fyrir hann.
Meira
ÞAÐ var látið sverfa til stáls á ísnum í gær þegar Skautafélag Reykjavíkur vann Björninn, 7:5, á Íslandsmóti karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal. Björninn byrjaði betur og komst í 2:0 með mörkum Sergei Zak og Brynjars Þórðarsonar.
Meira
„FÓLK er farið að líta á matvæli sem mikið meira en bara næringu og er orðið meðvitað um matarmenningu og hið ljúfa matarlíf. Um allt land leynist svo fólk með spennandi hugmyndir að matvælum sem gætu slegið í gegn.
Meira
BALDUR Guðnason, fyrrverandi forstjóri Eimskips, krefst rúmlega1,1 milljónar evra í vangoldin laun frá félaginu, en það eru 163 milljónir íslenskra króna á gengi gærdagsins.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is ALISTAIR Darling, fjármálaráðherra Bretlands, segir að vel komi til greina að breska ríkið hjálpi bönkum landsins við að losna við svokallaðar „eitraðar eignir.
Meira
ÞAÐ var árið 1971 að Össur Kristinsson setti á laggirnar stoðtækjaverkstæði. Kjölfestan í starfseminni var sú uppfinning Össurar að nota sílíkonhulsur þar sem gervifótur og ganglimur mætast.
Meira
FJÁRFESTAR á erlendum mörkuðum önduðu nokkru léttar í gær en þeir hafa gert að undanförnu. Þannig hækkuðu hlutabréfavísitölur í Asíu og Evrópu í kjölfar mikillar hækkunar í Bandaríkjunum í fyrradag.
Meira
HANN hafði lært til verka í sælgætisverksmiðju, en ákvað svo í samstarfi við félaga sinn Karl Ágústsson að spreyta sig á eigin framleiðslu og festi kaup á karamelluvél árið 1968.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is EKKERT lát virðist ætla að verða á óförum stærstu bílaframleiðenda heims. Þetta á að minnsta kosti við um stóru bandarísku fyrirtækin en ekki síður um þau japönsku.
Meira
BANDARÍSKI bílaframleiðandinn Chrysler leitar nú allra leiða til að draga úr kostnaði, m.a. með fækkun starfsfólks. Vill fyrirtækið lokka starfsmenn til að segja sjálfir störfum sínum lausum með aðlaðandi starfslokasamningum.
Meira
ÁRIÐ 2006 stofnaði lítill hópur íslenskra og erlendra vísindamanna og fjárfesta fyrirtækið Carbon Recycling International utan um spennandi nýja tækni: – tækni sem gerir kleift að breyta koltvísýringsútblæstri í eldsneyti eins og metanól, bensín...
Meira
HUGMYNDIN að Hugmyndaráðuneytinu varð að sögn Guðjóns Más Guðjónssonar til sem áramótaheit í alltof löngu jólafríi: „Eftir hrun bankanna var mikið talað og skrifað um mikilvægi nýsköpunar, en mér þótti vanta að fólk væri í raun að hittast og koma...
Meira
„ÞETTA er hugsjónastarf sem miðar að því að styðja fólk sem ætti annars erfitt uppdráttar. Hér fær þetta fólk tækifæri til að vinna, öðlast nýja færni.
Meira
„ÞEGAR maður opnar harðfiskpoka þá virðast kettir alls staðar frá dragast að manni,“ segir Halldór Halldórsson, aðspurður hvernig sú hugmynd hafi fæðst á Fisksöluskrifstofunni að fara að framleiða gæludýranammi fyrir hunda og ketti.
Meira
„ÞAÐ er augljóst að íslenska ullin er eitthvað alveg sérstakt sem við eigum og er hráefni sem við verðum að vinna úr og þróa,“ segir Brynhildur Pálsdóttir, einn fimm hönnuða sem standa að hönnunarverkefninu Vík Prjónsdóttir.
Meira
„HJÓNIN Sigmundur Dýrfjörð og Berglind Guðbrandsdóttir stofnuðu fyrirtækið fyrir 25 árum með það að markmiði að kynna Íslendingum gæðakaffi,“ segir Halldór Guðmundsson, aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækisins Te og Kaffi.
Meira
„Á þeim tíma var ég bara með skrifstofu heima hjá mér og lifði á konunni,“ segir Friðrik Skúlason af því hvernig hann fyrir 20 árum lagði grunninn að því sem í dag er umsvifamikið fyrirtæki á sviði vírusvarna og öryggishugbúnaðar.
Meira
„ÉG myndi aldrei nenna að standa í þessu ef ég héldi að þetta virkaði ekki,“ segir Gígja Kjartansdóttir Kvam þegar blaðamaður spyr hana af stakri stríðni hvort íslensku jurtirnar í heilsu- og húðvörum hennar geri eitthvert gagn.
Meira
GENGI krónunnar veiktist um 0,01% í gær og hefur krónan veikst um 1,3% frá mánaðamótum. Var lokagildi gengisvísitölunnar 198 stig í lok viðskiptadagsins. Hins vegar hefur krónan styrkst um 8,4% það sem af er árs.
Meira
„VIÐ höfum gert víðtækar rannsóknir á vörum okkar sem byggjast á náttúrulegum efnum úr Bláa lóninu í samráði við þýska sérfræðinga og niðurstöðurnar hafa verið vægast sagt frábærar.
Meira
SAMDRÁTTUR í Asíu á þessu ári verður mestur í Taívan. Landsframleiðslan þar í landi mun dragast saman um 11% á árinu, sem er mun verri útkoma en taívönsk stjórnvöld höfðu reiknað með.
Meira
STÆRSTA fjölmiðla- og afþreyingarsamsteypa í heimi, Time Warner, var rekin með um 16 milljarða dollara tapi á fjórða fjórðungi síðasta árs. Þetta svarar til um 1.850 milljarða íslenskra króna.
Meira
Nýtt met í tapi fyrirtækja var slegið í gær þegar fjárfestingarbankinn Straumur greindi frá því að tap ársins 2008 hefði numið 105 milljörðum króna. Sló Straumur þar með fyrra met Eimskipafélagsins, sem tapaði um 97 milljörðum króna á einu ári.
Meira
FRAMLEIÐSLA á gulli dróst saman um 4% í fyrra, að því er segir í breska tímaritinu Economist. Gullnámur heimsins skiluðu alls um 2.110 tonnum af gulli úr jörðu á síðasta ári og dróst framleiðslan saman um tæp 90 tonn.
Meira
„ÞETTA byrjaði sem lokaverkefni hjá mér við listaháskóla í Hollandi árið 1999. Ég hafði kynnt mér þæfingu í Finnlandi og ákvað að vinna meira með þæfða ull í náminu í Hollandi og þróa efnið frekar.
Meira
„TÖLVUR eru ómissandi tæki í nútímasamfélagi en það er ljóst að þeim börnum fjölgar með ógnarhraða sem eru ánetjuð internetinu og tölvuleikjum,“ segir Tryggvi Freyr Elínarson, markaðsstjóri Responsible Surfing ehf.
Meira
„Það hlýtur að standa upp úr í vikunni að það fæddist ný ríkisstjórn vinstrimanna,“ segir Agnar Tr. Le'macks, framkvæmdastjóri Jónsson & Le'macks auglýsingastofu. „Þetta var erfið fæðing eftir nokkurra mánaða meðgöngu.
Meira
VONAST er til að allt að sex milljarðar evra (um 900 milljarðar króna) fáist fyrir samheitalyfjafyrirtækið Actavis, en áhugasamir kaupendur geta í þessum mánuði gert tilboð í fyrirtækið.
Meira
„ÞAÐ hefur verið mikil gróska í íslenskri hönnun síðustu ár og mikið af mjög vönduðum og áhugaverðum vörum sem kemur frá innlendum hönnuðum,“ segir Finnur Thorlacius, framkvæmdastjóri verslunarinnar Reykjavik Bags neðst á Skólavörðustígnum.
Meira
MAGNÚS Þorsteinsson, fyrrverandi viðskiptafélagi Björgólfsfeðga í eignarhaldsfélaginu Samson, er nú búsettur í Rússlandi þar sem hann rekur prentsmiðjuna Typo-graphia MDM. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gengur reksturinn ágætlega.
Meira
Í BRÉFI, sem sent var frá viðskiptaráðuneytinu til breska fjármálaráðuneytisins segir að ríkisstjórn Íslands muni gera allt, sem ábyrg ríkisstjórn myndi gera, til að aðstoða tryggingasjóð innstæðueigenda kæmi til gjaldþrots íslenskra banka.
Meira
BAUGI Group hefur verið veitt heimild til greiðslustöðvunar og er ekki óvarlegt að áætla að gjaldþrot fylgi í kjölfarið. Virðist þetta hafa komið stjórnarformanni félagsins í opna skjöldu, en hann lýsti áfallinu sem neðanbeltishöggi...
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is Ríkisskattstjóri (RSK) hefur frá því í október í fyrra skoðað notkun á erlendum greiðslukortum hérlendis. Er markmiðið að athuga hvort að með notkun kortanna hafi verið farið á svig við íslenskar skattareglur.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is TAP Straums fjárfestingarbanka nam 699,3 milljónum evra á síðasta ári. Á gengi dagsins í dag nemur tapið 105 milljörðum króna og hefur íslenskt fyrirtæki aldrei tapað jafnmiklu fé á einu ári.
Meira
„Í KÍNA er sagt að kreppa samanstandi af tveimur hugtökum: hættu og tækifærum,“ segir Hermann Ottósson forstöðumaður fræðslu- og ráðgjafarsviðs hjá Útflutningsráði, spurður hvernig horfi fyrir íslenskri framleiðslu nú þegar efnahagslægð...
Meira
FÁIR gera sér grein fyrir því hlutverki sem þarinn hefur leikið í sögu þjóðarinnar. Það var einkum í harðindum að þarinn var nýttur og var þá m.a. notaður til að drýgja korn í bakstur.
Meira
„Reynsla af fjármála- og gjaldeyriskreppum frá öðrum löndum hefur sýnt að mikilvægasti einstaki þáttur endurreisnar í kjölfar efnahagshruns eru skjót viðbrögð stjórnvalda.
Meira
EFNAHAGSKREPPAN hefur margvísleg og neikvæð áhrif á afkomu einstaklinga, hvar sem er í heiminum. Margir þurfa því að skera niður útgjöld heimilisins. Gera má ráð fyrir að ákveðnir þættir, eins og t.d.
Meira
SAMKVÆMT bráðabirgðatölum Hagstofunnar voru vöruskipti við útlönd jákvæð um rúmar 300 milljónir króna í janúar. Nam útflutningur 33,6 milljörðum króna og innflutningur 33,3 milljörðum króna.
Meira
„Upphaflega var fyrirtækið stofnað af heimamönnum til að búa til atvinnu á staðnum,“ segir Ragnar Pálsson, framkvæmdastjóri Glerverksmiðjunnar Samverks á Hellu.
Meira
Birgir Arnar er framkvæmdastjóri Otto B. Arnar ehf. og sinnir formennsku í sóknarnefnd Áskirkju í sjálfboðavinnu samhliða því. Þorbjörn Þórðarson ræddi við Birgi um áhugamálin og viðskiptin.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.