FISKISTOFA og Landhelgisgæslan fóru í sameiginlegan leiðangur í eftirliti á grunnslóð í júlímánuði. Farið var um borð í 23 báta; 20 handfærabáta, togbát, línubát og netabát.
Meira
Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „RÍKISSTJÓRNIN stendur sig illa í að kynna málstað okkar í Icesave-málinu, enda er hún með allt kerfi gömlu stjórnarinnar í vinnu. Og hvar er forsetinn með öll sín sambönd?
Meira
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is „ÞAÐ eru svo margar spurningar sem vakna; viljum við til dæmis að elsta hús Reykjavíkur hverfi milli hárra bygginga í miðborginni? Viljum við að það verði stöðug rúturöð fyrir framan Alþingishúsið?
Meira
Samstaða á Alþingi um frumvarp vegna ríkisábyrgðar fyrir Tryggingasjóð innstæðueigenda virðist ekki fyrir hendi. Stjórnarandstaðan enn hörð á móti. Vill skýrari efnahagsfyrirvara.
Meira
„ÍSLENDINGAR eru reiðir en munu færa fórnir,“ er fyrirsögn greinar eftir Jóhönnu Sigurðardóttur sem birt var á vef Financial Times laust fyrir klukkan 19 í gær.
Meira
STJÓRN Samfylkingarinnar hefur ráðið Sigrúnu Jónsdóttur stjórnmálafræðing sem framkvæmdastjóra flokksins frá og með septembermánuði. Starfið var auglýst í júní sl. og voru umsækjendur tæplega þrjátíu.
Meira
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur sigrunerna@mbl.is GSM-farsíminn á Íslandi fagnar 15 ára afmæli á sunnudaginn. Í upphafi var Síminn með ellefu sendistaði en nú eru þeir orðnir rúmlega átta hundruð, bæði frá Símanum og Vodafone.
Meira
París. AFP. | Fólk, sem hefur lifað af hjartaáfall og borðar súkkulaði tvisvar eða oftar á viku, er í þrisvar sinnum minni hættu á að deyja af völdum hjartasjúkdóma en þeir sem aldrei borða súkkulaði, samkvæmt nýrri rannsókn.
Meira
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is HLUTI vatnsins í indversku grunnvatnsbólunum er jafnvel þúsunda milljóna ára gamalt. Hinn hlutinn er nýlegri uppsöfnun grunnvatns með vatnshringrásinni, þar sem úrkoman og yfirborðsvatnið seytla til jarðar.
Meira
ÞRETTÁN félagar úr CrossFit Iceland hlupu í gær 100 km til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Hópurinn var að hlaupa framhjá bænum Lambhaga, skammt frá Akranesi, þegar hundurinn Depill slóst óvænt í hópinn.
Meira
TÖLUVERÐ hætta skapaðist þegar umferðarljós á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar og mótum Lönguhlíðar og Miklubrautar urðu óvirk í a.m.k. fjórar mínútur um klukkan fjögur í gær.
Meira
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is HÖRÐUR Arnarson, fyrrverandi forstjóri Marels og núverandi forstjóri Sjóvár, tekur við stöðu forstjóra Landsvirkjunar eigi síðar en 1. janúar.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN Íslands opnar nýjan vef um smádýr klukkan níu í dag. Þar verða í byrjun birtar 80 greinar með myndum eftir Erling Ólafsson skordýrafræðing. Hann ætlar síðar að bæta við fleiri pistlum.
Meira
LÖGREGLUMENN og slökkviliðsmenn hafa fellt kjarasamninga þá sem gerðir voru í sumar. Í tilfelli lögreglumanna var um að ræða kjarasamning sem gerður var í sumar við ríkið. Hann var felldur með miklum mun.
Meira
Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og Halldór Armand Ásgeirsson RAUÐU lakki var í fyrrinótt skvett á hús Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings. Húsið stendur við Hlyngerði.
Meira
Allt kapp var lagt á að afgreiða breytingar á fyrirvörum við Icesave úr fjárlaganefnd í gær. Óskað var eftir breiðri samstöðu um málið sem virtist ekki ætla að nást seint í gærkvöldi.
Meira
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is OFBELDISGLÆPUM hefur stórfækkað í mörgum bandarískum borgum, m.a. í New York, Los Angeles og höfuðborginni Washington.
Meira
Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir nauðsynlegt að auka öryggi ferðafólks á hálendinu. Hann telur ekki óeðlilegt að komið verði á tilkynningaskyldu fyrir ferðamenn í lengri hálendisferðum.
Meira
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld fjóra menn í kjölfar tilkynningar um að þeir hefðu ógnað vegfarendum á Bíldshöfða með riffli út um bílglugga. Bifreið mannanna var stöðvuð á Sæbraut rétt fyrir klukkan tíu.
Meira
Hálendi Íslands er heillandi, hrikalegt og víða hættulegt. Þar hefur fólk bjargast naumlega en aðrir týnst og aldrei fundist. Öflug tilkynningaþjónusta ferðamanna gæti bætt þar úr.
Meira
„ÞAÐ er alrangt að við þingmenn Borgarahreyfingarinnar viljum Þráin [Bertelsson] úr hreyfingunni, eins og gefið hefur verið í skyn á vefnum í dag (í gær),“ sagði Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Meira
FJÓRIR hluthafar, sem fara saman með 11,57% hlutafjár í matvælafyrirtækinu Alfesca, telja að yfirtökutilboð franska fyrirtækisins Lur Berri í félagið á 4,5 krónur á hlut endurspegli ekki raunvirði þess.
Meira
KJARASAMNINGAR Starfsgreinasambandsins við ríki og sveitarfélög voru samþykktir með miklum meirihluta greiddra atkvæða. 83% samþykktu samning við ríkið og 88% samþykktu samning við sveitarfélögin.
Meira
LÉTT var yfir þessum stúlkum í unglingavinnunni á Laugarvatni í gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um. Svæðið er grasi gróið, enda góður ylur í jörð, og eins gott að blettirnir séu slegnir...
Meira
„VIÐ ætlum að standa við skuldbindingar okkar og ætlum að halda því alveg til streitu,“ sagði Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, spurður hversu almennir fyrirvararnir sem fyrirhugað er að setja við Icesave-samninginnn væru og...
Meira
St. Franciskusreglan, sem hefur sett mikinn svip á Stykkishólm undanfarin 80 ár, er að hætta starfsemi í bænum. Fjöldi bæjarbúa mætti í kveðjuhóf í St. Franciskusspítalanum og þakkaði nunnunum vel unnin störf.
Meira
Hinn 8. júní hélt Jóhannes Kristjánsson að hann hefði orðið fyrir byssuskoti. Hjartað hafði hætt að slá. Til að bjarga lífi eins skemmtilegasta manns landsins var ekki um annað að ræða en að setja í hann hjartapumpu og undirbúa hjartaígræðslu.
Meira
Eftir Gunnlaug Árnason Stykkishólmur | St. Franciskusreglan hefur sett sterkan svip á bæjarlífið í Stykkishólmi í tæp 80 ár og verið skapandi afl í heilbrigðisþjónustu og atvinnusögu Hólmara. Þeim kafla er nú að ljúka. St.
Meira
NÝR upplýsingavefur um smádýr verður opnaður í dag. Náttúrufræðistofnun Íslands stendur fyrir síðunni en á henni verða birtar 80 greinar með myndum eftir Erling Ólafsson skordýrafræðing.
Meira
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í Hollandi hafa gripið til óvenjulegs vopns í baráttunni gegn útbreiðslu svínaflensunnar – tölvuleiks sem sérfræðingar við Erasmus-lækningamiðstöðina í Rotterdam hönnuðu.
Meira
NÚ hafa um 10% fleiri skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni en á sama tíma í fyrra og stefnir því enn í að nýtt þátttökumet verði sett. Yfir 3.000 manns höfðu skráð sig síðdegis í gær, um 1.300 í 10 km hlaup, 876 í hálft maraþon og 567 í maraþon.
Meira
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is „ÉG keypti land í Grímsnesi fyrir 32,5 milljónir króna, borgaði 10 milljónir út og fékk þá erlent lán hjá Landsbankanum fyrir mismuninum upp á 22,5 milljónir.
Meira
Andrúmsloftið á Alþingi var þrungið spennu í gærkvöldi og mátti heyra þingmenn rífast á göngum þinghússins. Fundað var um Icesave-málið í fjárlaganefnd og þegar Morgunblaðið fór í prentun stóðu fundahöld enn yfir.
Meira
InDefence-hópurinn boðaði til samstöðufundar á Austurvelli í gær. Í auglýsingu í Morgunblaðinu um fundinn sagði: „Sýnum þingmönnum, fulltrúum erlendra fjölmiðla og öðrum ríkum í alþjóðasamfélaginu að Íslendingar standa saman.
Meira
Alla 20. öldina var sjávarútvegur mikilvægasta atvinnugrein okkar Íslendinga og stóran hluta þeirrar aldar byggðist hagvöxtur landsins á þeirri atvinnugrein fyrst og fremst, þótt dregið hafi úr vægi greinarinnar þegar líða tók á liðna öld.
Meira
RÓMANTÍSKIR tónar munu óma í stofu Nóbelskáldsins á sunnudag kl. 16, þegar Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari flytja Dichterliebe (Ástir skáldsins), op.
Meira
Aðalsmaður vikunnar gerði heimildarmyndina Stelpurnar okkar, um íslenska kvennalandsliðið í fótbolta, sem er frumsýnd í dag. Þóra Tómasdóttir æfði fótbolta með norsku strákaliði en fór aldrei inná í leik.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is FEÐGARNIR Pan og Óskar Thorarensen, sem skipa rafdúettinn Stereo Hypnosis, halda sérstæða útgáfutónleika á morgun á Snæfellsnesi vegna nýrrar plötu sinnar, HYPNOGOGIA .
Meira
GÍTARLEIKARINN og frumkvöðullinn Lester William Polsfuss, betur þekkur sem Les Paul, lést í New York í gær, 94 ára að aldri. Gibson Les Paul-rafgítarinn, einn þekktasti gítar veraldar, er nefndur eftir Paul.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SAGNFRÆÐINGURINN geðþekki Guðjón Friðriksson vinnur nú hörðum höndum að bók um Kaupmannahöfn sem höfuðstað Íslendinga ásamt Jóni Þ. Þór.
Meira
LEIKSTJÓRINN Guy Ritchie er í vandræðum. Hann á krá í Mayfair-hverfinu í London, The Punch Bowl, og nú lítur allt út fyrir að hún muni missa leyfið vegna hávaða.
Meira
Þess var minnst um liðna helgi að fjörutíu ár eru liðin síðan ljósmyndin fræga sem prýðir síðustu plötu Bítlanna, Abbey Road , var tekin ( Let it Be kom út á eftir, en var tekin upp á undan).
Meira
SAFNARARNIR Bragi Guðlaugsson og Sverrir Kristinsson verða með leiðsögn um sýninguna Safn(arar) í Hafnarborg á sunnudag kl. 15 ásamt sýningarstjóranum Ólöfu K. Sigurðardóttur.
Meira
Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is DAGSKRÁ Þjóðleikhússins fyrir næsta leikár liggur fyrir. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri segir hrun íslensks efnahagslífs í fyrra hafa minnt menn á mikilvægi listarinnar og leikhússins á ólgutímum.
Meira
ÞAÐ er alkunna að lélegar bíómyndir geta verið heillandi rannsóknarefni og ekki síður áleitnar en þær vel heppnuðu. Sá er þetta ritar hefur hins vegar tiltölulega nýlega uppgötvað sérlega áhugaverðan og fágætan flokk kvikmynda.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is LOGI Pedro Stefánsson, hinn knái bassaleikari Retro Stefson, gaf nýlega út fjögurra laga netskífu undir listamannsnafninu Pedro Pilatus.
Meira
BANDARÍSKI þjóðlagasöngvarinn Mike Seeger er látinn. Ásamt Pete bróður sínum var hann einn áhrifamesti tónlistarmaður bandarískrar þjóðlagatónlistar og hafði gríðarmikil áhrif á stjörnur þjóðlagabylgjunnar á 7. áratugnum, eins og Bob Dylan og Joan...
Meira
NÝ plata þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur Sinfóníu nr. 2 eftir franska tónskáldið Vincent d'Indy hlýtur afar lofsamlega dóma í heimspressunni um þessar mundir.
Meira
EINN fremsti konsertorganisti heims, Susan Landale, leikur á lokatónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju á sunnudag kl. 17. Landale er skosk að uppruna en er búsett í Frakklandi. Eftir hana liggur fjöldi upptaka sem hlotið hafa mikið lof.
Meira
STRAX í kjölfar bankahrunsins, og raunar í aðdraganda þess einnig, var ljóst að mikilvægi þess að halda góðu sambandi við Breta yrði seint ofmetið.
Meira
Eftir Karen Elísabet Halldórsdóttur: "Svona er farið með litlar þjóðir. Í krafti stærðar og valda munu þær stóru kúga þær litlu til að borga meira en það sem þeim ber."
Meira
Eftir Guðmund Magnús Daðason: "Innköllun alls kvótans á 20 árum óframkvæmanleg. Tæknilega hægt að rýra kvóta. Ef skerða á kvóta verður rýrnunin að vera mjög hófleg."
Meira
Eftir Hödd Vilhjálmsdóttur: "Reiði fólks er skiljanleg, en einhvern tímann verður að láta af henni og einnig þeirri hefndarhugsun sem er ríkjandi um þessar mundir."
Meira
Friðrik Pétursson fæddist í Skjaldarbjarnarvík á Ströndum 9. apríl 1924. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 30. júlí sl. Hann var sonur hjónanna Sigríðar Elínar Jónsdóttur húsmóður, f. 10 nóvember 1893, d. 30.
MeiraKaupa minningabók
14. ágúst 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 1767 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Friðrik Pétursson fæddist í Skjaldarbjarnarvík á Ströndum 9. apríl 1924. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 30. júlí sl. Hann var sonur hjónanna Sigríðar Elínar Jónsdóttur, húsmóður, f. 10 nóvember 1893, d. 30.
MeiraKaupa minningabók
14. ágúst 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 1538 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Guðmundur Magnússon byggingameistari fæddist í Reykjavík 3. mars 1927. Hann lést á Akranesi 31. júlí 2009. Foreldrar hans voru hjónin Magnús Ásbjörnsson bifvélavirki í Reykjavík, f. á Akranesi 1901, d.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Magnússon byggingameistari fæddist í Reykjavík 3. mars 1927. Hann lést á Akranesi 31. júlí 2009. Foreldrar hans voru hjónin Magnús Ásbjörnsson bifvélavirki í Reykjavík, f. á Akranesi 1901, d.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Svavar Jónsson, fyrrum hafrannsóknarmaður, fæddist í Reykjavík 11. október 1931. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Laufási að Laugarvatni, í morgunsárið 7. ágúst síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
14. ágúst 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 2083 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Guðmundur Svavar Jónsson, fyrrum hafrannsóknarmaður, fæddist í Reykjavík 11. október 1931. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Laufási að Laugarvatni, í morgunsárið 7. ágúst síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
14. ágúst 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 2076 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Karl Bóasson fæddist í Njarðvík í Borgarfirði eystra, 9. júlí 1925. Hann lést á líknardeild Landakotsspítala laugardaginn 25. júlí sl. Foreldrar hans voru Bóas Eydal Sigurðsson, bóndi í Njarðvík og síðar í Reykjavík, f. á Eyvindará í Eiðahreppi í S.-Múl.
MeiraKaupa minningabók
Karl Bóasson fæddist í Njarðvík í Borgarfirði eystra, 9. júlí 1925. Hann lést á líknardeild Landakotsspítala laugardaginn 25. júlí sl. Foreldrar hans voru Bóas Eydal Sigurðsson, bóndi í Njarðvík og síðar í Reykjavík, f. á Eyvindará í Eiðahreppi í...
MeiraKaupa minningabók
Kristín Þórsdóttir var fædd á Hnjúki í Skíðadal 30. maí 1919. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Þór Vilhjálmsson, f. 13.3. 1893, d. 6.12. 1975, frá Bakka í Svarfaðardal og Engilráð Sigurðardóttir, f. 1.6.
MeiraKaupa minningabók
14. ágúst 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 333 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Rósa Aðalheiður Georgsdóttir fæddist á Patreksfirði 26. febrúar 1919. Hún lést á sjúkradeild Hrafnistu í Reykjavík, fimmtudaginn 6. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Georg Grundfjörð Jónasson frá Hömrum í Grundarfirði, f. 7. ágúst 1884, d.
MeiraKaupa minningabók
Rósa Aðalheiður Georgsdóttir fæddist á Patreksfirði 26. febrúar 1919. Hún lést á sjúkradeild Hrafnistu í Reykjavík, fimmtudaginn 6. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Georg Grundfjörð Jónasson frá Hömrum í Grundarfirði, f. 7. ágúst 1884,...
MeiraKaupa minningabók
14. ágúst 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 506 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Sigurlaug Sigurðardóttir fæddist á Vigdísarstöðum í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu 4. febrúar 1919. Hún lést á Vífilsstöðum 8. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Sigurður Bjarnason, f. 1. janúar 1880, d. 29. desember 1940, og Ingibjörg Daníelsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Sigurlaug Sigurðardóttir fæddist á Vigdísarstöðum í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu 4. febrúar 1919. Hún lést á Vífilsstöðum 8. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Sigurður Bjarnason, f. 1. janúar 1880, d. 29. desember 1940, og Ingibjörg Daníelsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Þórarinn Ingibergur Ólafsson fæddist í Grindavík 24. ágúst 1926. Hann lést á dvalarheimilinu Víðihlíð 4. ágúst sl. Hann var sonur hjónanna Helgu Þórarinsdóttur húsmóður, f. 6.7. 1903, d. 27.5.
MeiraKaupa minningabók
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is LANGSTÆRSTUR hluti tekna Exista er hagnaður af rekstri dótturfélaganna, Símans, VÍS, Lífís og Lýsingar.
Meira
FASTEIGNAFÉLAGIÐ Landic Property hf. hefur selt sex fasteignir félagsins í Danmörku. Fimm þeirra hýsa verslanir Magasin du Nord og Illum, sem margir Íslendingar þekkja.
Meira
Samdráttarskeiðið í Evrópu, sem staðið hefur yfir í heilt á, er liðið hjá. Þessu var haldið fram í ýmsum fjölmiðlum í gær, þar á meðal á fréttavef BBC-fréttastofunnar.
Meira
VELTA á hlutabréfamarkaði var með meira móti í gær, en hún nam rúmum 140 milljónum króna. Langmest velta var með bréf Össurar og Marels. Hækkuðu bréf Marels um 3,03% og Össurar um 1,72%.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is SEÐLABANKINN gerir ráð fyrir minni samdrætti landsframleiðslu á þessu ári en hann gerði í maí. Aftur á móti spáir hann því að þróunin verði neikvæðari á næstu tveimur árum en hann gerði áður.
Meira
Risastórt 90's partí með DJ Kiki-Ow og DJ Curver verður haldið á Nasa við Austurvöll annað kvöld. Síðastliðin fjögur ár hafa plötusnúðarnir Kiki-Ow og Curver haldið sín vinsælu 90's partí og kvöldin þeirra hafa verið gríðarlega vel sótt.
Meira
Slekkurðu á útvarpinu þegar ástarlögin hljóma? Sendirðu fyrrverandi stanslaust sms og tölvupóst? Ertu að því komin/kominn að njósna um ferðir hans/hennar? Æfirðu stöðugt í huganum hvað þú myndir segja ef þú rækist á hann/hana af tilviljun?
Meira
Stutt, sítt, djarft, eða sportlegt. Allt þetta gengur upp í hártísku vetrarins. Strákar með liðað hár fá uppreisn æru og stelpur ganga lengra í klippingum.
Meira
ORÐATILTÆKIÐ að vera mjúkur maður hefur öðlast nýja merkingu undanfarin misseri því nú er vinsælt að vera mjúkur jafnt að innan sem utan. Karlmenn á öllum aldri flykkjast bókstaflega á snyrtistofur til að láta fjarlægja líkamshár.
Meira
„ÞAÐ stendur ekkert sérstakt til í tilefni dagsins, enda er ég ekkert mikið fyrir afmælishald,“ segir Edda Geirsdóttir, grafíklistakona og spákona í hjáverkum, sem í dag verður 55 ára.
Meira
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á Stöð 2 eða Siggi stormur eins og hann er kallaður á hrós skilið fyrir að vekja athygli á dæmalausri þjónustu tannlækna á höfuðborgarsvæðinu á frídegi verslunarmanna.
Meira
14. ágúst 1784 Suðurlandsskjálftar. Miklir landskjálftar urðu þennan dag og tveimur dögum síðar í Árnessýslu og Rangárvallasýslu. Hundrað bæir hrundu til grunna, margt fólk var grafið upp úr rústunum og þrír týndu lífi.
Meira
„Það er rosalega mikið áreiti á kvennalandsliðið þessa dagana og því nóg að gera,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, við Morgunblaðið í gær.
Meira
ENSKA 2. deildar liðið Hartlepool hefur mikinn áhuga á að fá Ármann Smára Björnsson til liðs við sig frá Brann í Noregi. Samningur Ármanns við Brann rennur út í haust en hann hefur ekki fengið ýkja mörg tækifæri með liðinu á þessari leiktíð.
Meira
DAVID Beckham, einn frægasti knattspyrnumaður veraldar, segist nokkuð viss um að hann snúi aftur til Evrópu þegar samningur hans hjá LA Galaxy í Bandaríkjunum rennur út um áramótin.
Meira
Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is LANDSLIÐSMAÐURINN Emil Hallfreðsson heldur í dag til Barnsley og að öllu óbreyttu mun hann skrifa undir samning við enska 1. deildarliðið.
Meira
Ján Mucha , markvörður Slóvaka í knattspyrnu, stóð í markinu í fyrri hálfleik í fyrrakvöld þegar Ísland og Slóvakía gerðu 1:1 jafntefli í vináttulandsleik. Markvörðurinn á bróður sem leikur hér á landi, en sá heitir Matús Mucha og leikur með Árborg í...
Meira
Ásta Árnadóttir , landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Tyresö í Svíþjóð , er meðal annars þekkt fyrir löng innköst sem hún tekur með því að fara í kraftstökk.
Meira
Tiger Woods er með forystu eftir fyrsta keppnisdag á 91. PGA-meistaramótinu í golfi sem hófst í Minnesota í gær. Woods, sem stefnir á að vinna sitt 71. risamót, lék fyrsta hringinn á 67 höggum eða fimm höggum undir pari vallarins.
Meira
HAUKAR eru á góðri siglingu í 1. deildinni en Hafnarfjarðarliðið vann mikinn baráttusigur á Skagamönnum á Akranesvelli í gærkvöldi. 1:0 urðu lokatölurnar og Haukarnir eru í góðum málum í 2. sæti deildarinnar, fimm stigum á undan KA-mönnum, en Selfyssingar tróna á toppi deildarinnar.
Meira
HANDKNATTLEIKSMAÐURINN Hjalti Pálmason er á leið til nýliða Gróttu samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Hjalti hefur undanfarin ár leikið með Val og er einn leikreyndasti leikmaður liðsins en þar áður lék hann með Víkingum.
Meira
FIMM íslenskir kylfingar hófu leik á opna finnska áhugamannamótinu í golfi í gær og léku flestir með miklum ágætum. Hlynur Geir Hjartarson úr GK lék manna best, en hann lauk leik á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari vallarins og er í 4. til 11.
Meira
JÓHANN Birnir Guðmundsson knattspyrnumaður úr Keflavík er tvíkinnbeinsbrotinn og hann leikur því ekki með Suðurnesjaliðinu næstu vikurnar. Jóhann fékk þungt högg á andlitið í leiknum gegn Breiðabliki um síðustu helgi með fyrrgreindum afleiðingum.
Meira
Knattspyrna 1. deild karla: KA – Afturelding 2:1 David Disztl 41., 55. (víti) - Albert Ásvaldsson 37. Víkingur R. – Leiknir R. 1:2 Marteinn Briem 78. - Ólafur Hrannar Kristjánsson 74., 89. Víkingur Ó.
Meira
HEIMIR Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara FH í knattspyrnu, hefur gert nýjan samning við Hafnarfjarðarliðið og er nú samningsbundinn því út tímabilið 2011.
Meira
MÓTENEFND KSÍ mun í dag eða í síðasta lagi á morgun ákveða hvort hún verður við beiðni Grindvíkinga um að fá leik liðsins gegn ÍBV sem fram á að fara á sunnudagskvöldið frestað um óákveðinn tíma.
Meira
BJARNI Ólafur Eiríksson landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Vals hélt til Noregs í gær þar sem hann verður til skoðunar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Vålerenga, sem er í 9. sæti í norsku úrvalsdeildinni.
Meira
SVO virðist sem rafbíllinn hafi hreint ekki verið drepinn eftir allt eins og heimildarmyndin frá 2006 heldur fram. Þvert á móti hefur aldeilis hlaupið á snærið hjá þeim sem vilja bíla sem aka á einhverju öðru en gömlum dýraleifum.
Meira
Eftir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is PEUGEOT og Citroën hafa birt upplýsingar um nýja „smárisa“ (supermini) sem losa munu innan við 100 g/km gróðurhúsalofts.
Meira
UMFERÐARMENNINGIN hefur batnað ár frá ári í Frakklandi samkvæmt ýmsum mælikvörðum. Mest um verð þykir fækkun banaslysa á vegum landsins en í júlí innan við 400 manns bana og hefur talan ekki verið lægri fyrir júlímánuð frá því mælingar hófust.
Meira
BANDARÍSKI bílrisinn General Motors (GM) hefur tekið nýjustu sölutæknina í sínar hendur við markaðssetningu á bílum. Þar er um að ræða netbílasölu í samstarfi við uppboðsvefinn eBay. Bílasala þessi er á slóðinni gm.ebay.com.
Meira
SÍÐASTLIÐIN tvö ár hafa verið viðburðarík hjá Porsche. Fyrirtækið hefur reynt yfirtöku á VW og mistekist og endurnýjað alla vörulínu sína og tekist það afar vel ef marka má nýja viðhorfskönnun á meðal bandarískra bíleigenda.
Meira
Spurningar og svör Leó M. Jónsson leoemm@simnet.is Högg í sjálfskiptingu Spurt: Ég á 2008 árgerð af SsangYong Kyron-jeppa. Högg koma í sjálfskiptinguna þegar valstöngin er færð í lausagangi úr P í D og öfugt.
Meira
Ljáðu mér orð heitir myndræn orðabók sem hugsuð er sem hjálpartæki til að auðvelda barni með annað móðurmál en íslensku að eiga samskipti við börn og fullorðna þegar það byrjar í leikskóla. Bókin er lokaverkefni þeirra Elísabetar V.
Meira
Það er um að gera að umbuna barninu fyrir vel unnin verk með litlum glaðningi. Hægt er að nota stimplakerfi heima fyrir þannig að barnið fái stjörnu merkta inn á hverjum degi þegar heimanámi er lokið á tilteknum tíma.
Meira
Í fyrsta sinn á Íslandi er nú boðið upp á söngleikjanám í Söngskólanum í Reykjavík. Ívar Helgason söngleikari mun kenna við skólann en sjálfur er hann með menntun af söngleikjabraut í háskólanum í Vínarborg. Ívar býst við mikilli aðsókn þar sem Íslendingar hafi mikinn áhuga á söngleikjum.
Meira
Um svipað leyti og seiðandi fallegt haustið umlykur okkur má sjá lítil glaðleg börn skottast í skólann, með bakpoka á bakinu og bros á vör. Þau eru uppfull þeirrar vonar og spennu sem fylgir því að hefja nýtt líf, lenda í ævintýrum og verða fullorðin.
Meira
Í Tónheimum er ekki farin hefðbundin leið í tónlistarkennslu. Þar er nemendum kennt að spila rytmíska tónlist svo sem popp og djass eftir eyranu en nemendur skólans eru á öllum aldri.
Meira
Það getur verið vandmeðfarið að aðstoða börnin við heimanámið. Foreldrar eru vitanlega allir af vilja gerðir að hjálpa afkvæminu að öðlast skilning á efni sem getur oft virst ansi flókið.
Meira
Áður en nám hefst þarf fólk að kaupa sér ýmislegt eins og góða blýanta, penna og í sumum tilfellum stílabækur. Það er um að gera að kaupa sér ekki of mikið til að byrja með heldur byrja á litlu magni og sjá síðan hvað mann vantar.
Meira
Sjálfstraust og sterk sjálfsmynd barna er ein besta forvörnin og á námskeiði hjá Foreldrahúsi læra börn að byggja upp félagslega færni og sjálfsmynd sína. Þar er unnið með tilfinningar og börnunum til að mynda kennt að þekkja tilfinningar sínar og nefna þær.
Meira
Iðnskólinn í Hafnarfirði var stofnaður árið 1928 og er því rúmlega áttatíu ára gamall. Iðnskólinn er framsækinn skóli í stöðugum vexti og fjöldi nemenda er um sexhundruð og fimmtíu og starfsmenn eru um sextíu talsins.
Meira
Þegar barnið er orðið nógu gamalt til að ganga eða hjóla eitt í skólann er gott að rifja upp með því umferðarreglurnar og vera viss um að það þekki bestu leiðina.
Meira
Hversu hratt maður les fer mikið eftir því hversu vant fólk er almennt að lesa. Þegar námsefni er lesið er mikilvægt að geta skimað yfir textann og skrifað niður aðalatriði.
Meira
Það er ýmislegt sem getur truflað þegar nauðsynlegt er að einbeita sér að náminu, óreiða er þar á meðal. Best er að halda skrifborðinu hreinu því óþarfa dót getur truflað augað og hugurinn því farið að reika frá náminu.
Meira
Grunn að góðum náms- og samskiptavenjum má leggja með því að kenna ungum börnum viðeigandi boðskipti eins og að sitja kyrr, hlusta og taka tillit. Ásthildur B.J. Snorradóttir, talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Reykjavíkur, hefur þróað ákveðnar aðferðir við slíka kennslu.
Meira
Stefán Gunnar Sigurðsson mun hefja nám við Kvennaskólann í Reykjavík nú í haust. Hann segir ákvörðunina um skólann ekki hafa verið svo erfiða fyrir utan að flestir vinir hans fara í aðra skóla en hann ákvað að fara í þann skóla sem sig langaði mest í.
Meira
Diplómanám í ferðamálafræði er kennt við Hólaskóla – Háskólann á Hólum og veitir námið diplómagráðu í ferðamálafræði, landvarðar- og staðarvarðarréttindi.
Meira
Þegar haustið skellur á koma yfirleitt með því alls konar flensur og pestir. Yngstu börnin verða gjarnan veik trekk í trekk og margir leggjast í rúmið í einhvern tíma.
Meira
Tískan er stór hluti af lífi framhaldsskólanema, hvort sem þeir fylgi eðlilegum tískustraumum eða bara sínum eigin straumum. Hvort heldur sem er þá vilja þeir flestir líta vel út enda er jafnan mikið pælt í hvað öðrum finnst á þessum árum.
Meira
Í samstarfi BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu eru haldin námskeið í trúnaðarmannafræðslu og verða nokkur slík námskeið haldin nú í september. Námskeiðin eru metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi og er námskeiðinu skipt í nokkra hluta.
Meira
Það getur verið erfitt að byrja í nýjum skóla, hvort sem er fyrir unga nemendur eða jafnvel fullorðinn nemanda. Góð leið til að kynnast samnemendum sínum er að taka þátt í félagslífinu, þó vissulega megi það aldrei hafa áhrif á námið.
Meira
Börn þurfa oft að bera ansi þungar byrðar fram og til baka í skólann. Fjöldann allan af bókum og möppum auk þess sem þau eru með pennaveski og annað dót. Það er því grundvallaratriði að velja rétta skólatösku sem styður vel við bakið og meiðir hvergi.
Meira
Framhaldsskólar á landinu eru fjölmargir og hefur hver og einn skapað sína sérstöðu. Einn þeirra er Borgarholtsskóli sem er staðsettur í Grafarvogi.
Meira
Eftir menntaskólann er ansi margt að breytast í lífi ungs fólks. Því finnst það fyrst nú orðið fullorðið, að nú beri að taka lífið alvarlegar, finna sér starfsferil og svo framvegis.
Meira
Myndlistarskólinn í Reykjavík býður upp á námskeið í arkitektúr fyrir 3-5 ára og Hildigunnur Birgisdóttir segir gaman að sjá hvað börn á þessum aldri upplifi umhverfi sitt á frumlegan hátt.
Meira
Nemendur leita margir hverjir eftir stoðkennslu þar sem farið er ítarlega yfir ákveðin efnistök í litlum hóp eða einkakennslu. Fyrirtækið Menntamenn hefur sett á stofn vefsíðuna study.
Meira
Aukin meðvitund um ímyndir, fordóma og staðalímyndir og skilningur á uppsprettu þeirra og afleiðingum eru meginefnistök námskeiðsins Gagnrýnin hugsun: ímyndir og fordómar. Námskeiðið er haldið á vegum Reykjavíkur Akademíunnar og Opna háskólans í Reykjavík.
Meira
Svokallaðar smarttöflur verða sífellt algengari í íslenskum skólastofum en það eru töflur sem eru tengdar tölvum. Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Varmáss sem selur töflurnar, segir það vera mikinn mun að vera með smarttöflu.
Meira
Það verður sífellt algengara að börnum sé skutlað í skólann enda er þægilegt að gera það um leið og foreldrarnir fara í vinnu. Skólinn er oft á leiðinni og fæsta munar um það.
Meira
Gott nesti sér til þess að halda námsmönnum vel vakandi í gegnum daginn. Ýmislegt má taka með sér að heiman til að narta í gegnum langan dag. Heima fyrir er hægt að baka hollar og góðar múffur, skonsur eða annað góðgæti og smyrja með hollu áleggi.
Meira
Eftir mikinn lærdóm getur fólki fundist að heilinn sé orðinn svo stútfullur af fróðleik að ekki komist meira fyrir og það fer að missa einbeitinguna.
Meira
Námskeið um stafræna ljósmyndun og myndvinnslu sem haldið verður í Tækniskólanum er ekki einungis fyrir þá sem taka mikið af myndum heldur líka fyrir þá sem taka einungis myndir af börnum sínum og fjölskyldu. Með réttri stillingu myndavélarinnar og vinnslu í Photoshop má gera góða mynd enn betri.
Meira
Það geta allir vottað um það að góð þjónusta er lykilatriði og hún fréttist bæjarfélaga á milli. Í nýju kennslumyndbandi má fræðast á sjónrænan hátt um hvað má betur fara í þjónustu en það er ekki til mikið af slíku efni á íslensku.
Meira
Það eru einungis um 20 starfandi skipulagsfræðingar á landinu í dag og því mikil þörf á fleirum. Landbúnaðarháskóli Íslands býður nú upp á MS-nám í skipulagsfræði og nemendur með bæði BA- og BS-próf geta sótt um námið.
Meira
Innan Háskóla Íslands eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Í skólanum geta nemendur valið úr fjölbreyttu námi á öllum stigum bæði í grunn- og framhaldsnámi svo og endurmenntun. Sameining þriggja skóla Háskóli Íslands var stofnaður 17.
Meira
Örnámskeið á vegum Stúdentaþjónustu Háskólans í Reykjavík eru ný af nálinni. Þar er lögð áhersla á ýmsa þverfaglega færni sem styrkir nemendur sem einstaklinga og námsmenn, býr þá undir atvinnulífið og veitir samkeppnisforskot.
Meira
Það verður að viðurkennast að það getur stundum virst örlítið ógnvænlegt að fara skólann, sérstaklega ef maður er lítill og feiminn og sér stærri krakka hvert sem litið er.
Meira
Norræn ráðstefna um jafnréttisfræðslu verður haldin nú í september á vegum norrænu ráðherranefndarinnar. Þar verða kynnt fyrirmyndarverkefni Norðurlandanna á sviði jafnréttisstarfs í skólum en ráðstefnan fer fram á skandinavísku og verður túlkuð.
Meira
Drengjakór Reykjavíkur fagnar 20 ára starfsafmæli á næsta ári en kórinn var stofnaður í Laugarneskirkju árið 1990. Til að fá inngöngu í kórinn þurfa drengirnir að þreyta inntökupróf en algengt er að kórfélagar stundi söng- eða tónlistarnám.
Meira
Nýstárlegt námskeið þar sem hestar verða notaðir við samskipta- og leiðtogaþjálfun mun hefjast í haust en uppruna námskeiðsins má að nokkru leyti rekja til aðferðar sem kennd hefur verið við bandaríska hestahvíslara.
Meira
Börn í Hraunvallaskóla eru 18 mánaða til 16 ára gömul, enda samanstendur skólinn af leikskóla og grunnskóla. Skólastjórar Hraunvallaskóla segja samstarfið ganga mjög vel og að samgangur á milli eldri og yngri nemenda sé mikill.
Meira
Áhuga barna og unglinga á bóklestri má auka með samfélagslegu átaki þar sem skólar og heimili leggjast á eitt. Brynhildur Þórarinsdóttir, lektor í barnabókmenntum við Háskólann á Akureyri, heldur námskeið fyrir kennara þar sem hún leiðbeinir þeim hvernig efla megi lestraráhuga barna.
Meira
Það vill oft gerast að það slettist upp á vinskapinn hjá ungum krökkum. Það gerist vissulega hjá bæði stelpum og strákum en á það kannski til að vara aðeins lengur hjá stelpunum.
Meira
Til að gera stærðfræði skapandi og skemmtilega er mikilvægt að leggja fyrir nemendur verkefni sem vekja áhuga þeirra. Birna Hugrún Bjarnardóttir leggur áherslu á hlutbundna stærðfræðikennslu.
Meira
Til að hafa góða yfirsýn yfir námsefni er gott að skrifa það helsta niður hjá sér í stuttum punktum og búa sér þannig til glósur til að fletta upp í fyrir próf eða verkefni.
Meira
Þegar mikið er að gera í skólanum getur verið mikilvægt að skipuleggja sig vel því það getur verið ansi tímafrekt að þurfa að leita að réttu glósunum eða réttu ritgerðinni.
Meira
Breytt námsfyrirkomulag verður tekið upp við öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð nú í haust. Þá verður tekið upp lotukerfi þar sem önninni er skipt upp í tvennt og nemendur geta þannig lokið helmingi fleiri áföngum en ella.
Meira
Föstudaginn 21. ágúst næstkomandi fer fram ráðstefna til heiðurs dr. Wolfgang Edelstein í tilefni af áttræðisafmæli hans þann 15. júní síðastliðinn. Dr. Wolfgang Edelstein er einn áhrifamesti skólamaður hér á landi á ofanverðri tuttugustu öld.
Meira
Alexander Örn Arnarsson hefur farið þrisvar sinnum á námskeiðið Börnin okkar hjá Foreldrahúsi og hann segist aldrei ætla að hætta þar. Móðir hans segist sjá mikinn mun á honum, hann sé með meira sjálfstraust og kunni að tjá tilfinningar sínar.
Meira
Ný barnabók ætluð til jafnréttisfræðslu var nýlega gefin út en bókina þýddi Þórlaug Baldvinsdóttir leikskólakennari ásamt Helgu Maríu Þórarinsdóttur og fleiri samstarfsfélögum.
Meira
Flugnám er tvinnað saman af bók- og verklegum fögum þar sem nemendur eru þjálfaðir í að fljúga með farþega um loftin blá. Námið hefur ætíð verið vinsælt hér á landi og hefur ekki orðið breyting þar á þrátt fyrir efnahagsþrengingar.
Meira
Á áhugaverðu námskeiði í Endurmenntun Háskóla Íslands verður fjallað um líf og list Fridu Kahlo en saga hennar er mjög merkileg. Í lok námskeiðsins verður farið á sýninguna Fridu Kahlo og í kjölfarið verða umræður við leikara sýningarinnar.
Meira
Í námi er mikilvægt að vera skipulagður svo ekki sé talað um þegar fólk er bæði í vinnu og skóla. Þá kemur skipulagsdagbók að góðum notum þar sem hægt er að skrifa niður skil á verkefnum, próf og aðrar mikilvægar dagsetningar.
Meira
Oft eru yngstu börnin í svipuðum yfirhöfnum eða hlífðarfatnaði og ekki óalgengt að litlar hendur og fætur rati óvart í rangar skálmar og ermar. Því er gott að merkja fötin vel svo hvert barn þekki sína flík.
Meira
Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins, varð til við sameiningu Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskólans fyrir einu ári. Réttindanám er sérgrein skólans, en undir hann heyra margir sérskólar.
Meira
Jóhanna Ásgeirsdóttir mun hefja nám í Menntaskólanum í Reykjavík nú í haust en hún segir ákvörðunina hafa verið frekar erfiða þar sem hún var mitt á milli þess að velja Menntaskólann við Reykjavík eða Menntaskólann við Hamrahlíð.
Meira
Mennt er máttur og aldrei er of seint að drífa sig af stað og setjast á skólabekk eða sækja námskeið á sínu áhugasviði. Ef stórafmæli í fjölskyldunni nálgast getur verið góð hugmynd að slá saman og gefa viðkomandi gjafabréf á skemmtilegt námskeið.
Meira
Skólavefurinn hefur um árabil framleitt námsefni bæði fyrir skóla og einstaklinga. Efnið er sett fram á fjölbreyttan hátt og áhersla lögð á að nýta alla miðla, stafræna og hefðbundna.
Meira
Rauði kross Íslands heldur ýmiss konar námskeið yfir árið sem bæði eru ætluð ungu fólki svo og foreldrum og starfsfólki skóla. Námskeiðin eru fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Meira
Garðlistasaga er áhugavert námskeið fyrir fólk með græna fingur þar sem nemendur fá yfirlit yfir þróun garðlistar með áherslu á íslenska garðlist.
Meira
Það er mikilvægt að láta veltuna borga frekari vöxt fyrirtækisins frekar en að taka lán að sögn Önnu Lindu Bjarnadóttur sem heldur námskeið í stofnun fyrirtækja í haust. Hún segir námskeiðið nauðsynlegt fyrir þá sem ætla sér í rekstur enda að mörgu að huga.
Meira
Haf- og strandsvæðastjórnun (coastal and marine management) er metnaðarfullt meistaranám í umhverfis- og auðlindastjórnun sem Háskólasetur Vestfjarða býður upp á í samvinnu við Háskólann á Akureyri.
Meira
Nú fer senn að líða að því að nemendur setjist aftur á skólabekk og sumir þeirra hefja nám í nýjum skóla í haust eða byrja í fyrsta sinn í skóla.
Meira
Á Suðurnesjum er að finna Fjölbrautaskóla Suðurnesja en stefna hans er að vera einn af bestu framhaldsskólum landsins og bjóða menntun í hæsta gæðaflokki auk þess bjóða Suðurnesjamönnum upp á fjölbreytt nám í heimabyggð í samræmi við áhuga og getu.
Meira
Að bregða sér í líki einhvers annars getur verið góð leið til að hvíla hugann og gleyma stað og stund. Á leiklistarnámskeiði fyrir fullorðna er spunnið af list og reynt að losa um hömlur.
Meira
Fróðleiksfúsir matreiðslumenn ættu að kætast nú á haustdögum en í október verður haldið námskeið sem kallast Dagur norræna eldhússins, fyrirlestur og námskeið. Um er að ræða dags námskeið í samvinnu Hótel- og matvælaskólans og Iðunnar fræðsluseturs.
Meira
Í gegnum Lingo-Málamiðlun er nú hægt að sækja um fjölbreytt hönnunarnám ytra. Þar er einnig lögð áhersla á að þjónusta fólk á vinnumarkaði sem vill sækja sérhæfð tungumálanámskeið erlendis.
Meira
Íslenska stærðfræðafélagið var stofnað árið 1947 en tilgangur þess er sá að stuðla að samstarfi og kynnum þeirra manna hér á landi sem lokið hafa háskólaprófi í stærðfræðilegum greinum.
Meira
Nemendur gera kröfur um langan endingartíma rafhlaðna, gott vinnsluminni og vinnsluhraða þegar þeir leita sér að fartölvu fyrir skólann. Stelpurnar eru hrifnar af fartölvum í litum en strákarnir einblína frekar á dýrari vélar sem eru aflmiklar.
Meira
Á meðal þess sem í boði verður í símenntun Háskólans á Akureyri í haust er hálfs dags námskeið sem kallast Að takast á við breytingar. Þar verður farið yfir lykilatriði breytinga eins og innleiðingu og algeng viðbrögð fólks við breytingum.
Meira
Á vef Námsgagnastofnunar, www.nams.is, má finna hátt í 400 rafræna titla, en vefurinn er opinn öllum án endurgjalds. Það er mjög gott að nota efni vefjarins sem ítarefni með almennu námsefni barna til heimanáms og tengja þannig saman nám og skemmtun.
Meira
Á dansnámskeiði hjá Dansskóla Ragnars Sverrissonar dansa börn og foreldrar þeirra saman enda eru börnin bara 2-3 ára. Þrátt fyrir ungan aldur læra börnin einfalda dansa og hafa mjög gaman af, að sögn danskennara í skólanum.
Meira
Unglingar geta verið dyntóttir en oft þarf einfaldlega að nálgast þá á réttan hátt. Foreldrar vilja fylgjast með námsárangri barna sinna og þetta breytist ekki eftir því sem þau eldast.
Meira
Námskeið fyrir kennara þar sem þeir læra undirstöðuatriðin í útikennslu njóta sívaxandi vinsælda. Með kennslu utandyra má njóta náttúrunnar og efla tengslin á milli kennara og nemenda.
Meira
Diplóma á meistarastigi í kennslufræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands er ætlað þeim sem lokið hafa grunnnámi, BA-, BS-, B.Mus.-gráðu eða hærri prófgráðu frá viðurkenndum háskóla og hafa áhuga á að kenna sitt fag í grunn- eða framhaldsskólum.
Meira
Það er hægt að sitja dægrin löng og dunda sér við saumaskap eða hannyrðir og því hefur aðsókn að alls kyns námskeiðum þeim tengdum jafnan verið mikil.
Meira
Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir heillaðist af kennarastarfinu þegar dóttir hennar hóf nám í grunnskóla. Í dag er hún skólastjóri Hagaskóla og segir samskiptin við starfsfólk og nemendur það skemmtilegasta við starfið.
Meira
Það er engin þörf á að vera sérstaklega laghentur til að læra að leira að sögn Olgu Olgeirsdóttur en hún kennir á leirlistanámskeiði. Miklu skiptir að hafa gaman af leirnum og gera ekki of miklar væntingar því leirinn getur sprungið.
Meira
Það er brýnt að kennarar og forvígisfólk menntamála bregðist við þeim upplýsingum sem fást af myndum sem teknar eru af heila með stafrænni segulómun, en þær upplýsingar sýna að þétt og rækileg lestrarkennsla sem byggist á markvissri hljóðrænni þjálfun,...
Meira
Í Listaháskóla Íslands, sem stofnaður var árið 1998, má finna alls kyns áhugaverðar námsleiðir fyrir þá sem vilja reyna fyrir sér í sköpun, myndlist, fatahönnun og fleira.
Meira
Ekki er sérstaklega þægilegt að sitja spariklæddur við lærdóminn enda klæða sig flestir frekar í eitthvað þægilegt. Þetta er sérlega auðvelt þegar lært er heima við og auðveldlega hægt að vera með úfið hár og í jogginggallanum allan daginn.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.