UNNIÐ er að krafti að stofnun nýs fjárfestingarfélags lífeyrissjóðanna og miðar starfinu vel, að sögn Hrafns Magnússonar framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða.
Meira
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir fráskilda verður haldið í Grafarvogskirkju 22. október kl. 20. Sjálfstyrkingarnámskeiðið verður byggt upp á svipaðan hátt og sorgarhópar. Það hefst á opnum fyrirlestri og kynningu og þar getur fólk skráð sig á námskeiðið.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is RÍKISSAKSÓKNARI hefur höfðað mál á hendur lögreglumanni embættis lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Hann er ákærður fyrir minniháttar líkamsárás og að hafa ekki gætt lögmætra aðferða við handtöku. Málið verður þingfest 22.
Meira
Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Eftir að djúpborunarverkefni lauk í Kröflu á miðju sumri var ákveðið að ljúka borun einnar holu til viðbótar skammt austan Vítis. Þessi hola er númer 40 og lauk borun hennar síðsumars.
Meira
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, var í gær kjörinn 5. varaforseti Alþingis í stað Álfheiðar Ingadóttur, sem tók nýlega við embætti heilbrigðisráðherra.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest fimmtán mánaða dóm yfir karlmanni á fertugsaldri sem sakfelldur var fyrir kynferðisbrot. Maðurinn var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi en þar af eru tólf mánuðir bundnir skilorði.
Meira
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞAÐ var á milli þrjú og fjögur sem ég varð eldsins vör. Ég veit ekki nákvæmlega hvenær það var. Mér brá svo mikið að ég leit ekki á klukkuna. Ég var að horfa á sjónvarpið þegar mér sýndist vera farið að snjóa.
Meira
Vísindamenn telja nú að NorðurÍshafið verði nánast laust við hafís á sumrin eftir áratug. Við það opnast nýjar siglingaleiðir en þessi þróun getur einnig haft mjög alvarlegar afleiðingar.
Meira
„Ég var eiginlega búinn að ákveða að hætta en eftir að Andri Marteinsson ræddi við mig fannst mér þetta spennandi kostur. Andri kveikti neistann í mér aftur.
Meira
Bólusetning gegn svínaflensu hófst í gær. Í fyrstu lotu beinist áherslan að heilbrigðisstarfsfólki og í framhaldinu þeim sem gegna lykilstörfum. Þá verður farið að bólusetja fólk með undirliggjandi sjúkdóma en almenn bólusetning hefst seint í nóvember.
Meira
ÚT ER komin bókin Bragð í baráttunni – matur sem vinnur gegn krabbameini. Bókin heitir á frummálinu Cooking with Food that fights Cancer og hefur vakið athygli víða um heim.
Meira
PILTUR leikur sér að tómri körfu á hrúgu af rauðum chilipipar sem fjölskylda hans þurrkar á akri í hinum indverska hluta Kasmír. Chilipipar er ómissandi í mataræði íbúanna þar eins og í mörgum löndum þessa heimshluta.
Meira
Vegna aukinna álagna íhuga margir grænmetisbændur nú að hætta vetrarræktun. Fyrirhugaður umhverfisskattur vekur þeim hroll en ekki er útséð með hvort hann verður lagður á þá.
Meira
FRANSKT bókaforlag ætlar að gefa út allar fjórar bækur Yrsu Sigurðardóttur á næstunni og var samningur þess efnis undirritaður á bókakaupstefnunni í Frankfurt í gær.
Meira
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is „ÞAÐ er ekkert sem réttlætir brottkast á fiski, svo einfalt er það, og ég fullyrði að það geta allir stundað veiðar á heiðarlegan hátt innan ramma laganna,“ segir Friðrik J.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað íslenska ríkið af kröfum karlmanns um 767 þúsund krónur í bætur vegna ökuleyfissviptingar sem hann var síðar sýknaður af.
Meira
SEX AF hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 14% áforma fjölgun starfsmanna en 26% hyggjast fækka þeim.
Meira
Eftir Silju Björk Huldudóttur og Baldur Arnarson MUN fleiri námsmenn fengu fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg í sumar en árið áður; 274 í ár en 181 í fyrra.
Meira
FRAM til 14.október var búið að flytja út 1.069 hross á árinu. Á sama tíma í fyrra voru útflutt hross samtals 935, en alls voru á síðasta ári flutt út 1776 hross. Flest hrossanna fara til Þýskalands, Noregs og Svíþjóðar.
Meira
Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „ÍSLAND og allt það sem íslenskt er, er undirliggjandi þema í þessum breytingum,“ segir Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri Icelandair. Allar flugvélar félagsins hafa nú fengið ný nöfn.
Meira
Icelandair er þessa dagana að breyta nöfnunum á flugflota sínum. Nýjar vélar félagsins síðustu ár hafa verið nefndar eftir landkönnuðum en framvegis munu vélarnar bera þekkt íslensk fjallanöfn.
Meira
Aðgangur að 1.000 milljarða kr. lánalínu frá Noregi, afnám gjaldeyrishafta strax á næstu mánuðum og lækkun stýrivaxta. Þetta er meðal tillagna í nýrri efnahagsáætlun Framsóknarflokksins, sem gengur undir nafninu Plan B.
Meira
PER Westerberg, forseti sænska þingsins, segir að Icesave-deilan sé fyrst og fremst deila Íslendinga við Breta og Hollendinga. Hann voni að hún leysist fljótt vegna þess að það skipti svo miklu máli fyrir framtíð Íslands og hann sé bjartsýnn í því efni.
Meira
Hækkandi verðmat á eignum gamla Landsbankans skýrist af betra gengi á mörkuðum og lækkandi gengi krónunnar að sögn upplýsingafulltrúa skilanefndarinnar.
Meira
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að orkufyrirtæki yrðu ekki skattlögð um eina krónu á kílóvattstund eins og nefnt var í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Jóhanna sagði að orkufyrirtækjum hefði verið gerð grein fyrir þessu.
Meira
Komið hefur berlega í ljós í starfshópi í Karphúsinu að orkuskattshugmyndin í fjárlagafrumvarpinu hefur sett öll áform um verklegar stórframkvæmdir í orkugeiranum í mikla flækju.
Meira
UM helgina fer Landsmót Æskulýðsfélaga kirkjunnar fram í Vestmannaeyjum. Þetta er fjölmenn samkoma en í ár skráðu 590 unglingar og leiðtogar sig til leiks, en 150 þurftu frá að hverfa vegna svínaflensufaraldurs.
Meira
ÓVENJU mikil grisjun hefur verið í Haukadals- og Þjórsárdalsskógum síðustu vikur og mánuði. Þar eru á ferð bæði starfsmenn Skógræktar ríkisins og verktakar sem ráðnir hafa verið í grisjun ákveðinna reita.
Meira
LÍK af karlmanni fannst á Langasandi á Akranesi, fyrir neðan elliheimilið Höfða, síðdegis í gær. Lögregla rannnsakar málið. Vegfarandi sem gekk fram á líkið gerði lögreglu viðvart.
Meira
FJÓRIR menn hafa verið handteknir vegna rannsóknar á hvarfi konu frá Litháen og þrír þeirra, samlandar hennar, voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Meira
Þó stefnt hafi verið að því að boða til stofnfundar nýs fjárfestingarfélags lífeyrissjóðanna í október, er nú orðið ljóst að ekki verður af stofnun sjóðsins fyrr en í nóvember. FME setur þann skilmála að bréf sjóðsins verði framseljanleg.
Meira
ORKUSETUR hefur nú sett í loftið reiknivél sem hjálpar fólki að bera saman stofn- og rekstrarkostnað metanbíla og hefðbundinna bíla með afar einföldum hætti.
Meira
Á morgun, laugardag, kl. 21:00 verður haldið afmælis- og styrktarteiti á Kringlukránni fyrir Minningarsjóð Jóhanns Péturs Sveinssonar. Ekki verður innheimtur aðgangseyrir í gleðskapinn en gestum verður gefinn kostur á að styrkja sjóðinn að vild.
Meira
FÓLK býr sig undir veturinn með ýmsu móti. Trillukarlar taka báta sína á land og koma þeim í naust. Áður er þó mikilvægt að spúla dekkið og þrífa seltuna af bátnum, eins og þessi sjómaður gerði vestur á...
Meira
ÞRÍR af fimm nefndarmönnum í norsku Nóbelsverðlaunanefndinni voru andvígir því í fyrstu að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fengi friðarverðlaun Nóbels, að sögn norskra fjölmiðla.
Meira
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „VIÐ leggjum þetta fyrst og fremst upp sem beinagrind að því sem við ræddum um við Norðmenn, ásamt sérfræðingum okkar.
Meira
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is REKSTUR Reykjavíkurborgar fyrstu sex mánuði ársins er betri en áætlað var eða sem nemur 227 milljónum króna.
Meira
FÖSTUDAGINN 23. október nk. kl. 20 verður haldin rokkhátíð í Reiðhöllinni í Búðardal í tengslum við „Haustfagnað í Dölum“. Hljómsveitirnar sem koma fram eru Dr. Gunni, Retro Stefson, FM Belfast, Rass, Agent Fresco, Reykjavík!
Meira
Sveitarstjórinn hrynheiti Grímur Atlason situr ekki auðum höndum í Dölunum frekar en fyrri daginn en föstudaginn næstkomandi, hinn 23., blæs hann til rokkhátíðarinnar Sláturs í nýju Reiðhöllinni í Búðardal. Fram koma m.a. Dr.
Meira
HEILDARAFLI strandveiðibáta sl. sumar var 4.107 tonn, að stærstu leyti þorskur. Nánast allur strandafli var seldur á fiskmörkuðum og var útflutningsverðmæti hans 1,8 milljarðar kr.
Meira
Suðurafríska hlaupakonan Caster Semenya hefur orðið fyrir svo miklu sálrænu áfalli vegna deilunnar um kynferði hennar að hún getur ekki tekið háskólapróf sem áttu að hefjast í byrjun næsta mánaðar, að sögn þjálfara hennar.
Meira
Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is FJÓRIR hælisleitendur voru sendir af landi brott áleiðis til Grikklands í gærmorgun, en þeir eru allir frá Mið-Austurlöndum og hafa þrír þeirra dvalið á Íslandi í rúmt ár.
Meira
BÓKIN Samtöl Matthíasar Johannessen með inngangi eftir Þröst Helgason er komin út og var útgáfunni fagnað í Eymundsson í gær þar sem skáldið las upp úr bók sinni.
Meira
SÚ var tíðin að jólasveinarnir í Rammagerðinni í Hafnarstræti birtust í gluggum verslunarinnar í byrjun desember. Í huga barna í Reykjavík voru það fyrstu merki þess að jólin væru í nánd.
Meira
FARSÍMAR, sem eru knúnir sólarorku, eru að ryðja sér til rúms í Afríku og vonast er til að þeir leiði til farsímabyltingar og efnahagsframfara á svæðum þar sem margir íbúanna hafa verið án rafmagns.
Meira
„ÉG ER staðráðinn í því að hafa boðskap biskupsins að engu,“ segir séra Gunnar Björnsson. Karl Sigurbjörnsson biskup hefur ákveðið að flytja Gunnar úr embætti sóknarprests á Selfossi í embætti sérþjónustuprests við Biskupsstofu.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 31 árs gamlan karlmann, Ólaf Pétur Pétursson, til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir ítrekaða þjófnaði og innbrot.
Meira
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is RIO Tinto Alcan samþykkti í lok september að fjármagna fyrsta áfanga stækkunarinnar í Straumsvík, eða um einn þriðja hluta verkefnisins, upp á alls 13 milljarða kr.
Meira
VINNUMÁLASTOFNUN og EURES standa fyrir evrópskri starfskynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, föstudag, frá kl. 17-20, og á morgun, laugardag, frá kl. 12-18.
Meira
FYRSTU níu mánuði ársins hafa 6.762 manns flutt af landi brott. Ríflega helmingur þeirra er með íslenskt ríkisfang eða 3.475. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Creditinfo.
Meira
FYRSTA skóflustunga var tekin í vikunni að nýbyggingu við verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, FNV. Um er að ræða nærri 600 fermetra viðbyggingu við þá aðstöðu sem skólinn hefur haft til verknáms.
Meira
LÖGREGLA var kölluð til vegna gruns um innbrot í kjallara íbúðarhúss eftir hádegið í fyrradag. Þegar að var komið lá innbrotsþjófurinn steinsofandi í íbúðinni og gekk erfiðlega að vekja manninn.
Meira
HALDIÐ verður áfram með rekstur Prentstofunnar Arkar ehf. á Húsavík. Ritin sem prentuð hafa verið þar, Skráin og Skarpur, koma þess vegna út í næstu viku.
Meira
Það er ekki algengt að stjórnarandstöðuflokkar leggi mikla vinnu í tillögugerð um flókin viðfangsefni, enda aðstaða þeirra til slíks auðvitað erfiðari en stjórnarflokka.
Meira
Ísland er víðfeðmt og fámennt. Það er eitt af því sem gerir þetta land svo unaðslegt. En þegar kemur að verklegum framkvæmdum, svo sem eins og vegagerð, horfa þessir þættir nokkuð öðruvísi við.
Meira
Samkeppni fjölmiðla er æði ójöfn. Einn þeirra býr við þá þægilegu stöðu að þiggja sérstakar skatttekjur. Þetta veitir miðlinum forskot en á bak við sérstöðuna er ákvörðun Alþingis.
Meira
NORSKA hljómsveitin A-ha lýsti því yfir í gær að hún ætlaði að hætta störfum eftir 25 ára samstarf. „Við höfum í raun upplifað hið endanlega drengjasveitaævintýri,“ segir í yfirlýsingu frá A-ha.
Meira
NÝJASTA smáskífa poppstjörnunnar Britney Spears, „3“, skaust beint á topp bandaríska Billboard-listans yfir 100 heitustu lögin. Er hún fyrsti listamaðurinn í rúm þrjú ár sem nær þeim árangri.
Meira
LEIKARINN George Clooney, einhver umslúðraðasta kvikmyndastjarna allra tíma, var spurður á blaðamannafundi vegna kvikmyndahátíðarinnar í London í gær hvað honum þætti um dýrkun fjölmiðla nútímans á fræga fólkinu.
Meira
Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „SVARTUR svanur er myndlíking sem búin hefur verið til fyrir atburði sem gerast óvænt, koma líkt og þruma úr heiðskíru lofti.
Meira
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „Í DAG er fullkomlega eðlilegt að setja upp sýningu í fokheldu húsnæði. Það endurspeglar samtímann,“ segir sýningarstjórinn og myndlistarmaðurinn Þóroddur Bjarnason.
Meira
GALLERÍ Grjót er opin vinnustofa í Arnarbakka 2 í Breiðholti. Í dag kl. 16 verður opnað þar sölugallerí. Þar verða til sölu myndverk stór og smá og aðrir munir.
Meira
*Nú er hinn ágæti sjónvarpsmaður Egill Helgason byrjaður að keyra hina ágætu þætti sína Kiljuna í Sjónvarpinu. Þættirnir eru listavel uppbyggðir, skipt upp í hæfilega stutt og fjölbreytileg innslög þannig að athyglin helst út allan þáttinn.
Meira
FRUMLEG nálgun tónlistarkonunnar Micachu við það sem jafnan er kallað popp hefur hrært duglega í heimi dægurtónlistarinnar það sem af er þessu ári. Frumlegheit er þó fremur veikt orð til að lýsa því sem í gangi er.
Meira
*Ein allra öflugasta dauðarokkssveit landsins í dag er Beneath en þar heldur um hljóðnemann enginn annar en Gísli Sigmundsson sem leiddi í eina tíð hina goðsagnakenndu Sororicide.
Meira
Íslenskt í öndvegi var yfirskrift þessa fyrsta kvölds Airwaves líkt og svo oft áður; eiginlega er miðvikudagskvöldið orðið besta kvöld hátíðarinnar því þá gefst oft færi á að sjá það sem ferskast er og frumlegast í íslenskri músík. Sl.
Meira
GRÉTAR Magnús Guðmundsson, sem kallar sig Tarnús, opnar sýningu á málverkum í íþróttamiðstöðinni í Kaplakrika á morgun laugardag. Sýningin er liður í hátíðarhöldum í íþróttamiðsöðinni í tilefni þess að FH fagnar 80 ára afmæli um helgina.
Meira
Aðalsmaður vikunnar, Sverrir Þór Sverrisson eða Sveppi, er stjarna Algjör Sveppi og leitin að Villa sem gerir það gott nú um stundir í íslenskum kvikmyndahúsum
Meira
GRÆNA ljósið frumsýnir nýjustu mynd Pedro Almodóvar í Regnboganum í dag, en þar er Penélope Cruz í aðalhlutverki. Blindur handritshöfundur, Mateo var áður leikstjóri. Hvernig missti hann sjón? Hverfum aftur um 14 ár.
Meira
BANDARÍSKI leikarinn Matthew Perry hefur samið við sjónvarpsstöðina ABC um að leika í gamanþáttum fyrir hana. Í þáttunum segir af fertugum umsjónarmanni íþróttaleikvangs sem leggst í endurmat á lífi sínu. Sony framleiðir þættina.
Meira
JENNIFER Aniston, leikkonan viðkunnanlega, er nú sögð hafa tekið saman aftur við tónlistarmanninn John Mayer. Í það minnsta heldur tímaritið US Weekly því fram. Heimildarmaður ritsins segir Mayer hafa heillað hana gjörsamlega.
Meira
ÞEIR eru góðir vinir og senda frá sér diskinn Vinalög á morgun. Söngfuglarnir Jógvan Hansen og Friðrik Ómar leiddu saman krafta sína á nýjum geisladiski þar sem þjóðerni þeirra réð lagavalinu.
Meira
„ÞAÐ er eitt olíumálverk á sýningunni, hitt eru myndir á pappír með saumi,“ segir Valgarður Gunnarsson, en hann opnar sýningu á verkum sínum í Stúdíó Stafni í Ingólfsstræti á morgun kl. 16.
Meira
Slúður er ær og kýr fjölmiðla, stundum satt og oft logið. Á árum áður var það aðallega í blöðum sem þóttu ekki vönd að virðingu sinni (hin blöðin birtu líka slúður, en pökkuðu því öðruvísi inn).
Meira
Eftir Jón Bjarnason, Eva Kjer Hansen, Sirkka-Liisa Anttila, Lars Peder Brekk og Eskil Erlandsson: "Matvæla- og efnahagskreppa síðustu ára hefur aukið skilning manna á að matvælaöryggi er alþjóðlegt viðfangsefni sem taka þarf föstum tökum."
Meira
Frá Erni Ólafssyni: "UM SÍÐUSTU áramót var ég skamma hríð í Reykjavík. Auðvitað fór ég niður á Austurvöll á laugardag, og þar heyrði ég m.a. unga reiða konu halda ræðu um hrunið. Hún fullyrti að það væri öllum stjórnmálamönnum að kenna."
Meira
Eftir Svandísi Svavarsdóttur: "Sú árátta að afflytja málflutning og fara rangt með staðreyndir hlýtur að vekja spurningar um málstað þess sem slíku beitir."
Meira
Eftir Bjarna Harðarson: "Stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að standa skil á Icesave...Hókus pókus pólitík, að láta eins og ekkert slíkt hafi átt sér stað, þjónar ekki íslenskum hagsmunum"
Meira
HAGFRÆÐINGURINN Joseph Stiglitz hefur að undanförnu í fyrirlestrum, viðtölum og skrifum látið málefni Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til sín taka. Nú síðast greindi Morgunblaðið þann 14. þ.m. frá ummælum hans á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn.
Meira
Arinbjörn Sigurðsson fæddist í Reykjavík 11. júní 1928. Hann lést á heimili sínu 10. október 2009. Foreldrar hans voru Sigurður Eyleifsson skipstjóri, f. í Gestshúsum á Seltjarnarnesi 6. júlí 1891, d. 1975, og Ólafía Steinunn Ingimundardóttir, f. 21.
MeiraKaupa minningabók
Einar Sigvaldi Bjarnason fæddist í Stykkishólmi 1. október 1927. Hann lést á heimili sínu, Höfðagötu 4 í Stykkishólmi, laugardaginn 10. október s.l. Foreldrar hanns voru Kristín Brynhildur Davíðsdóttir f. 1908, d. 2007 og Bjarni Jakobsson f. 1899, d.
MeiraKaupa minningabók
Gríma Thoroddsen húsmóðir fæddist í Reykjavík 9. júlí 1930. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 8. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Tómasdóttir, f. 1905, d. 1962, og Bolli Thoroddsen þá bæjarverkfræðingur, f. 1901, d. 1974.
MeiraKaupa minningabók
16. október 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 1026 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Gríma Thoroddsen húsmóðir fæddist í Reykjavík 9. júlí 1930. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 8. október síðastliðinn. oreldrar hennar voru Ingibjörg Tómasdóttir, f. 1905, d. 1962, og Bolli Thoroddsen þá bæjarverkfræðingur, f. 1901, d. 1974.
MeiraKaupa minningabók
Guðbjörg K. Arndal fæddist í Reykjavík 28. apríl 1930. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 3. október 2009. Foreldrar hennar voru hjónin Kristínus Finnbogason Arndal og Oktavía Jóhannesdóttir Arndal.
MeiraKaupa minningabók
Guðlaugur Einarsson skipasmiður fæddist í Odda í Fáskrúðsfirði 4. júní 1935. Hann lést á Landspítalanum föstudaginn 9. október 2009. Foreldrar hans voru Einar Sigurðsson, f. 8. apríl 1897, d. 3. febrúar 1984 og Þórhildur Þorsteinsdóttir, f. 25.
MeiraKaupa minningabók
16. október 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 392 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Guðrún Lára Kjartansdóttir fæddist á Akureyri 28. júlí 1952. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, 8. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kjartan Steingrímsson, útgerðarmaður, f. 16.7. 1918 á Flateyri, d. 16.6.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Lára Kjartansdóttir fæddist á Akureyri 28. júlí 1952. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, 8. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kjartan Steingrímsson, útgerðarmaður, f. 16.7. 1918 á Flateyri, d. 16.6.
MeiraKaupa minningabók
Jóhannes Eggertsson Jóhannes Eggertsson, bóndi á Þorkelshóli I, fæddist í Stórhól í Víðidal í V-Húnavatnssýslu 21. september 1933. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 3. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Eggert Þórarinn Teitsson, f. 10.
MeiraKaupa minningabók
Jón Gíslason, trésmíðameistari á Akureyri, fæddist á Bessastöðum í Sæmundarhlíð í Skagafirði 14. september 1915. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 4. október 2009. Útför Jóns var gerð frá Akureyrarkirkju 13. október sl.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur á Heygum Magnússon fæddist í Reykjavík þann 1. september árið 1936. Hann lést 9. október sl. Foreldrar hans voru Magnús Sigurðsson lögregluvarðstjóri, f. í Borgarfirði 1895, d. 1972, og Herborg á Heygum Sigurðsson, f. í Færeyjum 1905, d. 1990.
MeiraKaupa minningabók
Ragnheiður Karlsdóttir fæddist á Akureyri 18. mars 1920. Hún lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 29. september 2009. Foreldrar Ragnheiðar voru Dagný Guðmundsdóttir, f. 1896, d. 1976, og Karl Haraldur Guðnason, f. 1888, d. 1921.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Guðbjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 7. nóvember 1927. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 10. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristbjörg Jónsdóttir matráðskona, f. 11. janúar 1898, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Sigrún Helgadóttir fæddist að Núpum í Ölfusi 19. nóvember 1940. Hún lést á líknardeild Landsspítalans í Kópavogi 8. október 2009. Foreldrar hennar voru hjónin Helgi Árnason, f. að Hurðarbaki í Flóa 6. apríl 1905, d. 6.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Magnússon fæddist hinn 13.3. 1934 á Brjánslæk á Barðaströnd. Hann lést 3.10. sl. á Landspítalanum í Fossvogi. Sigurður var sonur hjónanna Magnúsar Sigurðssonar kennara, síðar skólastjóra, og Sigríðar B. Einarsdóttur frá Hreggstöðum,...
MeiraKaupa minningabók
Sveinn Kr. Pétursson fæddist 22. janúar 1944, hann lést miðvikudaginn 7. október síðastliðinn á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför Sveins fór fram frá Fella- og Hólakirkju 15. október sl.
MeiraKaupa minningabók
Ævarr Hjartarson fæddist að Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal 26. júní 1940. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 7. október síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Exista staðfesti með tilkynningu til Kauphallar í gær að félagið myndi ekki greiða vaxtagreiðslu af skuldabréfaflokki sem var á gjalddaga á miðvikudag, 14. október. Exista vísar í tilkynningu frá félaginu til Kauphallar frá 1. mars síðastliðnum.
Meira
Daniel Gros, hagfræðingur og framkvæmdastjóri hugveitunnar Centre for European Policy Studies (CEPS), var í gær kosinn í bankaráð Seðlabanka Íslands eftir tilnefningu Framsóknarflokks.
Meira
PAUL C. Lohrey, fjárfestingastjóri Vanguard sjóðanna í Evrópu, segir að það sé ekki æskilegt fyrir endurreisn bankakerfisins á Íslandi að skilja að fjárfestingar- og viðskiptabankastarfsemi. Reynslan hafi ekki sýnt að slíkt sé farsæl lausn.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is MIKIÐ hefur verið gert úr því í fréttum að í gær fór Dow Jones-hlutabréfavísitalan í fyrsta sinn á árinu yfir 10.000 stig.
Meira
VELTA í kauphöll var með hóflegra móti í gær, bæði í viðskiptum með hlutabréf og skuldabréf. Nam velta á skuldabréfamarkaði 8,5 milljörðum króna, en 138 milljónum króna á hlutabréfamarkaði.
Meira
ÞRJÁTÍU og sjö milljarðar króna, sem ríkið hafði lagt Íslandsbanka til sem hlutafé, mun ganga til baka til ríkisins eftir að skilanefnd Glitnis ákvað í gær að eignast 95% hlut í Íslandsbanka.
Meira
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is Skuldir og skuldbindingar Reykjavíkurborgar og fyrirtækja í meirihlutaeigu hennar hafa aukist um 27,5 milljarða króna frá áramótum.
Meira
SAXHÓLL ehf., sem er í eigu Jóns Þorsteins Jónssonar og systkina hans, barna Jóns Júlíussonar í Nóatúni, hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Eignir félagsins voru umtalsverðar fyrir eignabóluna, en endalok hennar reyndust félaginu þungbær.
Meira
Þeir sem nota gleraugu þekkja að dýrt getur verið að endurnýja þau en verð á umgjörðum og glerjum hleypur oft á tugum þúsunda króna. Hrafnkell Freyr Magnússon tölvunarfræðingur hefur ráð við þessu en hann opnaði í sumar síðuna kreppugler.
Meira
Tómas Hermannsson fer með laga- og textasmiðinn Magnús Eiríksson í bíltúr sem tekur alls 7000 kílómetra meðan Magnús rekur ævi sína. Reyndu aftur er nokkuð hrá ævisaga og ekki gallalaus því víða hefði mátt kafa dýpra.
Meira
Það fær ekki hver sem er að vaska upp heima hjá mér enda skiptir miklu máli hvernig að uppvaskinu er staðið. Vatnið verður að vera mátulega heitt og næstum brennandi inn á milli en kólni vatnið of mikið fer uppvaskið fyrir lítið.
Meira
Hollywood-stjörnurnar hafa að undanförnu sést æ oftar í grófum, lágum skóm sem minna sumir hverjir helst á þægilega inniskó eða skó sem voru vinsælir um miðbik síðustu aldar. Svo virðist sem karlmannlegri kvennatíska sé í uppsiglingu, a.m.k.
Meira
Tónlistarhátíðin Sláturtíð hófst í gær á vegum samtakanna S.L.Á.T.U.R. (Samtökum listrænt ágengra tónsmíða umhverfis Reykjavík). Hátíðin er haldin samhliða Airwaves en gestir Airwaves fá frítt á Sláturtíð. Í kvöld kl.
Meira
Nafngiftir Félagsmiðstöðva í Grafarvogi eru í óhefðbundnari kantinum, svo ekki sé meira sagt. Fyrstu félagsmiðstöðvarnar sem voru opnaðar þar fengu nöfn úr goðafræðinni; Fjörgyn og Sigyn.
Meira
Bryndís Þorsteinsdóttir og María Haraldsdóttir Íslandsmeistarar kvenna Keppnin um Íslandsmeistaratitil kvenna var æsispennandi til síðasta spils og er upp var staðið skildu 1,8 stig að fyrsta og annað sæti. 2.-4.
Meira
Fátt var um svör hjá Theodór J. Sólonssyni í gær, þegar hann var spurður hvað ætti að gera í tilefni afmælisins í dag, en hann er nú 55 ára gamall.
Meira
Reykjavík Elín Anna og Ásdís Sunna fæddust 28. júní 2008. Þær vógu hvor um sig 13 merkur og voru 49 cm langar. Foreldrar þeirra eru Anna Sigrún Ólafsdóttir og Benedikt...
Meira
Að mati Víkverja er Björn Thoroddsen besti gítarleikari landsins og Richard Gillis besti trompetleikarinn í hópi Kanadamanna af íslenskum ættum. Þegar þessir tveir tónlistarsnillingar leggast á eitt getur útkoman ekki orðið annað en góð.
Meira
16. október 1890 Landshöfðingi tók formlega í notkun síma sem lagður hafði verið milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. „Heyrist nokkurn veginn jafnglöggt, þegar talað er í hann, sem viðtalendur væru í sama herbergi,“ sagði Fjallkonan.
Meira
FH-ingar héldu upp á 80 ára afmæli Fimleikafélagsins í gær með mikilli veislu í íþróttahúsinu í Kaplakrika. Hápunktur hátíðarinnar var flugeldasýningin sem leikmenn handknattleiksliðsins buðu upp á þegar þeir kjöldrógu lasna Valsmenn, lokatölur 33:26.
Meira
„ÉG var eiginlega búinn að ákveða að hætta en eftir að Andri Marteinsson ræddi við mig fannst mér þetta spennandi kostur. Andri kveikti neistann í mér aftur.
Meira
„ÞAÐ liggja nokkur atriði því til grundvallar að úrslitaleikurinn í bikarkeppni karla er spilaður í lok tímabilsins,“ sagði Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ við Morgunblaðið.
Meira
„HEATHER Ezell er frábær leikmaður og ég er ánægður að hafa hana í mínu liði,“ sagði Henning Henningsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Hauka í körfuknattleik kvenna þegar hann var inntur eftir því hvort bandaríski leikmaðurinn Heather Ezell...
Meira
Knattspyrnumennirnir Andrew Mwesigwa og Augustine Nsumba sem báðir koma frá Úganda hafa verið leystir undan samning við ÍBV Mwesigwa hefur leikið með Eyjamönnum síðustu fjögur tímabilin en Nsumba þrjú og hafa þeir reynst Eyjaliðinu afar drjúgir.
Meira
Óvíst er hvort Steven Gerrard og Fernando Torres , lykilmennirnir í sóknarleik Liverpool , verði leikfærir fyrir leik liðsins gegn Sunderland á útivelli í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Meira
Valdís Þóra Jónsdóttir lék á 12 höggum yfir pari á fyrsta keppnisdegi á opna ítalska meistaramótinu í golfi. Valdís er í næst neðsta sæti af alls 108 kylfingum. Helgi Bogason verður áfram við stjórnvölinn sem þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í...
Meira
Þrátt fyrir gífurlega miklar breytingar á leikmannahópi HK þá fer liðið ágætlega af stað í N1 deildinni í handknattleik karla. Í gærkvöldi sótti HK tvö stig út á Seltjarnarnes með því að leggja nýliða Gróttu að velli 27:22. Í fyrstu umferð gerði HK jafntefli gegn FH en Grótta skellti þá Fram.
Meira
HLYNUR Bæringsson var atkvæðamikill í liði Snæfells sem gjörsigraði nýliða Hamars úr Hveragerði 90:58 í úrvalsdeild karla í körfubolta í gær. Hlynur skoraði 21 stig og tók þar að auki 17 fráköst.
Meira
TVEIR af leikmönnum íslenska 21-árs liðsins í knattspyrnu eru í herbúðum hollensku meistaranna AZ Alkmaar. Þetta eru Jóhann Berg Guðmundsson og Kolbeinn Sigþórsson, sem báðir eru 19 ára gamlir, og fóru báðir til AZ á síðasta ári.
Meira
Eftir Guðmund Karl sport@mbl.is Það var aldrei spurning hverjir myndu hirða stigin tvö sem í boði voru þegar Íslandsmeistarar KR heimsóttu ungmennalið FSu á Selfoss í gærkvöldi.
Meira
„VIÐ fórum að væla þegar Njarðvíkingar tóku á okkur og misstum einbeitinguna, sem gengur ekki upp,“ sagði Jón Arnar Ingvarsson þjálfari ÍR eftir 88:70 tap fyrir Njarðvík þegar liðin mættust á heimavelli Breiðhyltinga í íþróttahúsi...
Meira
Stafrænt útvarp verður staðalbúnaður í öllum bifreiðum smíðuðum í Bretlandi frá upphafi ársins 2014, að því er bílaframleiðendur hafa samþykkt. Samkomulagið er liður í aðgerðum sem miða að því að hætta að útvarpa á FM-bylgju.
Meira
Þýski bílsmiðurinn Mercedes-Benz seldi fleiri bíla í nýliðnum september en nokkrum öðrum mánuði ársins. Alls voru seldir 114.300 bílar af gerðunum Mercedes Benz, AMG, Smart og Maybach.
Meira
ÞAÐ hafa áður verið fluttar fréttir af öflugum lögreglubílum sem breska lögreglan notar en þar hafa bílar eins og Lamborghini Gallardo, Lotus Esprit og Subaru WRX ásamt fleirum komið við sögu.
Meira
Spurningar og svör Eftir Leó M. Jónsson leoemm@simnet.is Eldsneytisþrot ber að forðast Spurt: Ég á Mercedes-Benz ML270 diesel árg. 2002, ekinn 98 þúsund. Fyrir nokkru varð bíllinn eldsneytislaus rétt áður en ég náði að áfyllingarstöð.
Meira
Þegar fólk er á höttunum eftir sparneytnum bílum þá virðast flestir telja að skynsamlegast sé að kaupa lítinn bíl með lítilli vél og af þessum sökum seljast smábílar oftast best þegar eldsneytisverð rýkur upp úr öllu valdi.
Meira
Stærsti bílaframleiðandi Rússlands, Avtovaz, sem meðal annars smíðar Lödur, á í miklum erfiðleikum og rambar á barmi gjaldþrots. Í Rússlandi eru bundnar vonir við að franski bílsmiðurinn, Renault, komi því til bjargar.
Meira
Stjórnmálamenn freista þess jafnan að finna upp nýjar tekjulindir fyrir ríki og bæ. Borgarstjórnin í Nottingham á Englandi, vettvangi hetjudáða Hróa hattar í þágu snauðra, hefur dottið niður á nýja skattheimtuleið.
Meira
Það þykir yfirleitt ekki sérlega fréttnæmt að hundur bíti mann. En öðru máli gegnir þegar hundur bítur dekk á lögreglubíl og með þeim afleiðingum að úr þeim fer allt loft.
Meira
SÚ ákvörðun Land Rover fyrirtækisins að auka framleiðslu í sumarbyrjun virðist ætla að bera árangur. Altjent hefur sala aukist og nam aukningin í nýliðnum september til að mynda 34 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.