Greinar laugardaginn 6. febrúar 2010

Fréttir

6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 241 orð

150 milljónir í nýtt átaksverkefni

BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögur atvinnumálahóps Reykjavíkur um úthlutun á 150 milljónum króna til sérstakra atvinnuátaksverkefna. Um síðustu áramót voru 6.435 manns á atvinnuleysisskrá í Reykjavík, 3.926 karlar og 2. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 154 orð | 1 mynd

Aldrei hafa fleiri notið jólaaðstoðar

ALLS bárust 3.946 umsóknir um jólaaðstoðina sem Hjálparstarf kirkjunnar, mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Reykjavíkurdeild Rauða krossins stóðu fyrir í sameiningu fyrir þessi jól. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 458 orð | 2 myndir

Ágætar líkur á góðri stangveiði í sumar

Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÁGÆTAR líkur eru á að laxveiði á næsta ári verði góð. Þetta segir Guðni Guðbergsson fiskifræðingur á Veiðimálastofnun sem í gærkvöldi flutti erindi á fundi hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 293 orð | 1 mynd

Áhorfsmet slegið hjá RÚV í seinni vikunni á EM

FRÁ því að rafrænar mælingar hófust í ársbyrjun 2008 hefur áhorf á Sjónvarpið ekki mælst meira en í síðustu viku janúar sl. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 49 orð

Ályktun fundar starfsmanna RÚV

STARFSMENN Ríkisútvarpsins harma þá ákvörðun Alþingis og ríkisstjórnarinnar að skera framlög til RÚV niður um einn tíunda. Þessi ákvörðun hafi leitt til þess að um fimmtíu starfsmenn Ríkisútvarpsins hafi misst vinnuna. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 24 orð | 1 mynd

Árni Bragason stefnir á 2. sæti

Dr. Árni Bragason, jurtaerfðafræðingur og fyrrverandi forstjóri Náttúruverndar ríkisins, gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þann 20.... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 93 orð | 1 mynd

Áskorun um þyrluþjónustu LHG

Landssamband íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa samþykkt áskorun til stjórnvalda um að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar þannig að hún fái sinnt... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 50 orð

Bankastjórar vaktir

Í DAG, laugardag kl. 15:00 standa samtökin Nýtt Ísland fyrir tíunda kröfu- og mótmælafundi vetrarins á Austurvelli, þar sem mótmælt verður áframhaldandi okurlánastarfsemi bankanna og krafist leiðréttingar á höfuðstól lána. Meira
6. febrúar 2010 | Erlendar fréttir | 145 orð | 1 mynd

Banni erlend tungumál í grunnskólum

DANSKI þjóðarflokkurinn hyggst leggja fram frumvarp til laga um að bannað verði að tala önnur tungumál en dönsku í tímum og frímínútum í grunnskólum í Danmörku. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 219 orð | 2 myndir

„Jólabarnið“ hlýjar ekki Íslendingum

MEÐALHITI lofthjúps jarðar hefur hækkað ört undanfarna mánuði og í janúar nálgaðist hann tölur sem sáust árið 1998 þegar áhrifa El Niño gætti sem mest í austanverðu Kyrrahafi. Veðurfræðingur segir aðra þætti hafa meiri áhrif á veðrið hér á landi. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 65 orð | 1 mynd

Bikardraumar Skapta voru gefnir í skóla landsins

KSÍ hefur gefið 80 eintök af bókinni „Bikardraumar“ í grunn- og framhaldskóla á Íslandi. Bókin kom út í desember á síðasta ári í tilefni af því að árið 2009 var leikið í 50. skiptið í Bikarkeppni KSÍ. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 28 orð | 1 mynd

Birna Magnúsdóttir vill 3.-6. sæti

BIRNA Magnúsdóttir, vagnstjóri og lærður leikskólakennari, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-6. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík, sem fram fer í dag,... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 78 orð | 1 mynd

Bókaður út þetta ár, ekki skilja eftir skilaboð

„Ég er hættur að taka við bókunum út árið 2010. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 64 orð | 1 mynd

Clash tekur á íslenskum kvikmyndaiðnaði

Tímaritið Clash er eitt virtasta tónlistarblað Bretlands en það tekur og á öðrum dægurmenningargeirum. Þannig fjallar nýjasta heftið um íslenskan kvikmyndaiðnað í opnugrein. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 672 orð | 6 myndir

Efnahagshrun eykur áhuga

Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „Í LANDKYNNINGU gildir að umfjöllun, jafnvel þótt neikvæð kunni að vera, sé betri en engin. Meira
6. febrúar 2010 | Erlendar fréttir | 85 orð | 1 mynd

Ekki verið hlýrra á Grænlandi í hálfa öld

Á SAMA tíma og íbúar norðvesturhluta Evrópu skjálfa úr kulda hefur ekki verið hlýrra á Grænlandi í hálfa öld. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 93 orð | 1 mynd

England á óskalista þjálfarans

ÓLAFUR Jóhannesson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, vonast til þess að Íslendingar verði með Englendingum í riðli í undankeppni Evrópumeistaramótsins 2012. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 27 orð | 1 mynd

Eva Magnúsdóttir vill 2.-4. sæti

EVA Magnúsdóttir, viðskiptafræðingur og forstöðumaður MBA, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, sem fram fer í dag,... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 322 orð | 3 myndir

Fallegasta frímerki ársins 2009 er með lundanum

Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is FÉLAGAR í Félagi frímerkjasafnara völdu nýverið fallegasta frímerki ársins 2009 með kosningu á félagsfundi. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 76 orð

Fleiri brot til rannsóknar

HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður, grunaður um kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum, sætti áfram gæsluvarðhaldi til 3. mars nk. Ný kæra á hendur manninum vegna kynferðisbrots barst lögreglu í vikunni. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 934 orð | 5 myndir

Fleiri með allt í kaldakoli

Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is EFTIRSPURN eftir þjónustu geðsviðs Landspítalans hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 164 orð | 1 mynd

Frímerki frá Líberíu með forseta Íslands

Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is MAGNI R. Magnússon safnari rakst nýverið á fágæta frímerkjaörk frá Afríkuríkinu Líberíu sem hefur að geyma teikningu af Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 98 orð | 1 mynd

Ganga frá járnabindingum fyrir íbúðir Hrafnistu

ÞAÐ var líf og fjör í nýbyggingu við Boðaþing 22-24 í Kópavogi í gær. Þar byggir Hrafnista þjónustu- og öryggisíbúðir fyrir aldraða og áður en plata yfir þriðju hæð hússins var steypt þurfti eðlilega að ganga frá járnabindingunum. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 79 orð | 1 mynd

Gestir færðir til Íslands

ÍSLENSKI skálinn á Heimssýningunni 2010 í Sjanghæ var í gær kynntur fulltrúum utanríkisráðuneytis og nefndarinnar sem undirbýr þátttöku Íslands í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Um leið var um að ræða lokadag tækniprófana. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 26 orð | 1 mynd

Guðmundur vill 1. sæti í Grindavík

GUÐMUNDUR Pálsson, tannlæknir og bæjarfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Grindavík, sem fram fer í dag,... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 53 orð | 1 mynd

Haítí-búar sameinist ættingjum hér

ÁRNI Páll Árnason félagsmálaráðherra á von á því að það liggi fyrir strax í næstu viku hve margir íbúar Haítí geti átt rétt á að sameinast ættingjum sínum hér á landi í samræmi við þær reglur sem gilda um komu flóttamanna hjá flóttamannaaðstoð Sameinuðu... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 156 orð | 1 mynd

Halda áfram þótt útvegsmenn mæti ekki

STARFSHÓPUR sem sjávarútvegsráðherra skipaði til að endurskoða fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar ákvað á fundi sínum í gær að halda áfram störfum þótt fulltrúar útvegsmanna taki ekki þátt í störfum hans eins og er. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 27 orð | 1 mynd

Haraldur býður sig fram í 4. sætið

HARALDUR Haraldsson, stórkaupmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, sem fram fer í dag,... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 86 orð | 1 mynd

Harmar uppsagnir fjölmiðlakvenna

FUNDUR Félags fjölmiðlakvenna samþykkti ályktun á miðvikudag sl. þar sem m.a. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 24 orð | 1 mynd

Ingólfur Þorleifsson sækist eftir 2. sæti

INGÓLFUR Þorleifsson, varabæjarfulltrúi og formaður KFÍ, sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ í prófkjöri sem fram fer þann 13. febrúar... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 64 orð

Íslensk lyf fyrir 20 milljónir til Haítí

ACTAVIS á Íslandi hefur afhent SOS Barnaþorpunum lyf til notkunar á hamfarasvæðinu á Haítí. Um er að ræða 700 kíló af verkjalyfjum sem m.a. verður dreift frá um 40 starfsstöðvum SOS Barnaþorpanna. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 27 orð | 1 mynd

Jóna Sæmundsdóttir vill 3.-4. sæti

JÓNA Sæmundsdóttir, lífeindafræðingur, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í prófkjöri flokksins, sem fram fer í dag,... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 280 orð

Kannar hvort vilji er til að biðja um aðstoð

Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÖSKULDUR Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, hyggst leggja fram þingsályktunartillögu um að formleg beiðni komi frá Íslendingum um aðstoð frá Norðmönnum, eftir að kjördæmaviku lýkur. Steingrímur J. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 23 orð | 1 mynd

Karen sækist eftir fjórða sætinu

KAREN E. Halldórsdóttir, viðskiptafræðingur, gefur kost á sér í fjórða sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Prófkjörið fer fram þann 20. febrúar... Meira
6. febrúar 2010 | Erlendar fréttir | 53 orð | 1 mynd

Kjötkveðjuhátíðin undirbúin

ÓÐUM styttist nú í að kjötkveðjuhátíðir hefjist í aðdraganda föstu, víða um hinn kaþólska heim. Kjötkveðjuhátíðin í Ríó og litadýrðin henni samferða er efalítið sú þekktasta. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 348 orð | 1 mynd

Koltrefjaverksmiðjur undirbúnar á tveimur stöðum norðanlands

Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is KOLTREFJAVERKSMIÐJUR eru nú í undirbúningi á tveimur stöðum hér á landi. Skagfirðingar hafa undanfarin sex ár verið ásamt fleiri aðilum með slík áform en nýverið bættust Eyfirðingar við. Meira
6. febrúar 2010 | Erlendar fréttir | 365 orð | 1 mynd

Krefst skýringa á kjarnorkuúrgangi

Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl. Meira
6. febrúar 2010 | Erlendar fréttir | 83 orð

Kreppir að kampavínsframleiðendum

FRANSKI kampavínsframleiðandinn Piper Heidsieck ætlar að segja upp fjórðungi starfsfólks síns. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 501 orð | 2 myndir

Krökkum sem ekki eru í skóla líður verr

Könnun á líðan ungs fólks á aldreinum 16-20 ára sýnir að þeim sem ekki eru í námi líður mun verr en þeim sem eru atvinnulaus eða eru að vinna. Atvinnuleysi ungs fólks er vaxandi vandamál. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 108 orð | 1 mynd

Listi Vöku sigraði í stúdentakosningum

ÚRSLIT liggja fyrir í kosningum til stúdentaráðs og háskólaráðs í Háskóla Íslands, en kosið var á miðvikudag og fimmtudag síðastliðinn. Úrslitin í kosningum til stúdentaráðs voru þau að A-listi Vöku fékk 2. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 67 orð

Lítrinn á 199,20 kr. í sjálfsafgreiðslu

VERÐ á bensíni hækkaði í gær og er nú 199,20 krónur í sjálfsafgreiðslu hjá þremur olíufélögum, N1, Olís og Skeljungi. Bensínverð með þjónustu hjá Olís er 204,2 krónur. Verð á dísilolíu er 197,90 krónur hjá Olís og N1 en 196,9 hjá Skeljungi. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 412 orð

Lungnavélar björguðu mörgum

Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is FÁ tilvik inflúensulíkra einkenna hafa greinst hér á landi síðustu vikur. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 30 orð | 1 mynd

Magnús Már sækist eftir 1. sætinu

MAGNÚS Már Jakobsson, öryggis- og gæðastjóri hjá Bláa lóninu, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Grindavík sem fram fer í dag,... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 79 orð

Minni niðurskurður á heilbrigðisstofnun

STJÓRNENDUR Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja lýstu því yfir í gær að á fundi með heilbrigðisráðherra hefði komið fram, að áhrif skertra framlaga á rekstur stofnunarinnar hefðu verið ofmetin og niðurskurður yrði því ekki jafn mikill og forsvarsmenn HSS... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 218 orð | 2 myndir

Neita að hafa veitt ósannar upplýsingar

FYRRVERANDI forstjóri og stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins (FME) neita að hafa veitt hollenska seðlabankanum ósannar upplýsingar um stöðu íslensku bankanna rétt fyrir hrun. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 240 orð

Nóg af loðnu en brælan tefur

Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is FJÖGUR skip voru í gær á loðnumiðunum við Skarðsfjöru, Bjarni Ólafsson AK, Súlan EA, Jóna Eðvalds SF og grænlenska skipið Erika. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 84 orð

Opið prófkjör hjá B-lista í Fjarðabyggð

FRAMSÓKNARFÉLAG Fjarðabyggðar ákvað á almennum félagsfundi, sem haldinn var í Valhöll á Eskifirði, fimmtudaginn 28. janúar sl. Meira
6. febrúar 2010 | Erlendar fréttir | 59 orð | 1 mynd

Plútó virðist hafa roðnað

MYNDIR frá geimsjónaukanum Hubble benda til þess að dvergplánetan Plútó hafi roðnað. Að sögn NASA er Plútó um 20% rauðari en vanalega. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 194 orð

Prófkjör flokka víða um helgina

VINSTRI-grænir standa í dag fyrir forvali í Reykjavík og á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í Reykjavík gefa átján félagar kost á sér í 1. til 6. sæti og á Akureyri eru frambjóðendur allt níu talsins. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 154 orð

Ramos verður áfram í varðhaldi

HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Brasilíumaðurinn Hosmany Ramos, sem hingað kom ólöglega, sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan framsalsmál hans er til meðferðar, þó ekki lengur en til 16. febrúar nk. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 231 orð | 1 mynd

Ríkið vill eignast Byr og kaupa kröfuhafana út

Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is SAMKVÆMT tillögum sem fjármálaráðuneytið lagði fyrir kröfuhafa Byrs var áætlað að ríkið eignaðist sparisjóðinn og kröfuhafarnir fengju 40% upp í sínar kröfur. Kröfuhöfum yrði greitt með skuldabréfum útgefnum af ríkinu. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 98 orð

Samið um aðgerðir fyrir ungt fólk

VINNUMÁLASTOFNUN og Rauði kross Íslands hafa gert með sér samning um viðamikið verkefni til að tryggja sjálfboðastörf fyrir allt að 180 unga atvinnuleitendur á aldrinum 18-24 ára. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 28 orð | 1 mynd

Sigurjón Sigurðsson vill 3. sætið

SIGURJÓN Sigurðsson, framkvæmdastjóri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi í prófkjöri flokksins sem fram fer þann 20. febrúar... Meira
6. febrúar 2010 | Erlendar fréttir | 180 orð | 1 mynd

Sjá ekki barnabörnin nema...

ÞAÐ hefur löngum þótt tilheyra forréttindum afa og ömmu að mega dekra við barnabörnin og láta foreldrunum eftir að sjá um uppeldið. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 571 orð | 2 myndir

Starfsmönnum settar ítarlegar reglur

Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÍTARLEGAR reglur tóku gildi um áramótin um viðbrögð starfsfólks meðferðarheimila á vegum Barnaverndarstofu vegna grunsemda um kynferðislegt ofbeldi. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 109 orð | 1 mynd

Stóðhesturinn Þorri frá Þúfu í vetrarfríi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

STÓÐHESTURINN Þorri frá Þúfu er kominn til vetrardvalar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Þorri sem er brúnn að lit er undan Orra frá Þúfu og Hviðu frá Þúfu. Þorri er á 21. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 68 orð | 1 mynd

Sýna myndir af feðrum sínum

BÖRNIN í leikskólanum Undralandi teiknuðu myndir af feðrum sínum eða öðrum karlmönnum úr fjölskyldunni í tilefni af karladegi í skólanum í janúar og létu ýmsar athugasemdir flakka. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 62 orð | 1 mynd

Tannviðgerðir verða útundan í kreppunni

SIGURÐUR Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands, telur að komum barna til tannlæknis hafi fækkað um á að giska 15% á nýliðnu ári. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 58 orð

Tíu gefa kost á sér á Akranesi

TÍU frambjóðendur hafa gefið kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi sem fram fer laugardaginn 27. febrúar næstkomandi. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 56 orð

Toyota innkallar 5.011 bíla á Íslandi

TOYOTA á Íslandi þarf að innkalla 5.011 bifreiðar, framleiddar á árunum 2005-2010. Sú hætta kann að skapast við ákveðnar kringumstæður að bensíngjöf festist í inngjafarstöðu. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 32 orð | 1 mynd

Útförin frá Dómkirkjunni

ÚTFÖR Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, fer fram á vegum ríkisins næstkomandi þriðjudag, 9. febrúar, kl. 14 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Steingrímur lést 1. febrúar sl. Hann var 81... Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 73 orð | 1 mynd

Vetrargolf flesta daga vikunnar

HÖFÐINGJARNIR Zophonías Áskelsson, Karl Jóhannsson og Jakob Kjartansson, sem stunda íþrótt sína á golfvellinum við Korpu, misstu varla dag úr í janúar enda var veður einstaklega milt. Meira
6. febrúar 2010 | Innlendar fréttir | 49 orð | 1 mynd

Þeim sem hætta í skóla og fá ekki vinnu líður verr

STÓR hluti ungs fólks sem hefur hætt í skóla og er atvinnulaust er með brotna sjálfsmynd og líður illa. Meira
6. febrúar 2010 | Erlendar fréttir | 245 orð | 1 mynd

Þingmenn ákærðir fyrir bókhaldsbrot

FJÓRIR breskir þingmenn verða ákærðir í tengslum við fríðindahneyksli sem valdið hefur breska þinginu miklum álitshnekki. Tilkynnti ríkissaksóknari Bretlands í gær að þingmennirnir yrðu ákærðir fyrir bókhaldsbrot. Meira

Ritstjórnargreinar

6. febrúar 2010 | Leiðarar | 379 orð

Hlutleysið er hindrun

Það er ekki heiglum hent að átta sig á afstöðu Samfylkingarinnar til raforkuframleiðslu og nýtingar hennar hér á landi. Þetta er skaðlegt því að flokkurinn er ekki aðeins af þeirri stærð að æskilegt er að afstaða hans í helstu málum liggi fyrir. Meira
6. febrúar 2010 | Leiðarar | 254 orð

Hættur atvinnuleysis

Atvinnuástandið á Íslandi er betra en margir bjuggust við eftir hrunið. Atvinnuleysi er minna en nemur meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins. Það eru góðar fréttir, en skipta þá, sem eru atvinnulausir, engu máli. Meira
6. febrúar 2010 | Staksteinar | 241 orð | 2 myndir

Rétt' upp hönd sem trúir þessu

Jóakim frændi sagði að það væri hægt að græða á öllu. Það endar með því að menn fara að trúa honum. Sjálfsagt hafði þessi gullönd einkum venjulegt fjármálabrask í huga. Kaupa ódýrt, selja dýrt. Svo eru það hinir sérstöku snillingar. Meira

Menning

6. febrúar 2010 | Tónlist | 83 orð | 1 mynd

60 ára afmælistónleikar lúðrasveitar

SEXTÍU ár eru liðin frá stofnun Lúðrasveitar Hafnarfjarðar. Af því tilefni blása félagar í sveitinni til afmælistónleika í dag, hinn 6. febrúar í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði og hefjast þeir kl. 16. Meira
6. febrúar 2010 | Fólk í fréttum | 155 orð | 1 mynd

Björk og Gondry í samstarf?

Í VIÐTALI við Entertainment Weekly í vikunni sagði leikstjórinn Michel Gondry ( Eternal Sunshine of the Spotless Mind , Be Kind Rewind o.fl.) að hann væri að leggja í samstarfsverkefni með Björk. Meira
6. febrúar 2010 | Bókmenntir | 208 orð | 1 mynd

Gæludýraævisögur

ÆVISÖGUR gæludýra, fyrir fullorðna lesendur, ryðja sér nú til rúms í Bretlandi og segja bókaútgefendur þar í landi að þær séu að bjarga ævisögumarkaðinum. Meira
6. febrúar 2010 | Fólk í fréttum | 75 orð | 1 mynd

Hlakkar til afplánunar

RAPPARINN Lil' Wayne, eða Wayne litli, segist hlakka til fangelsisdvalar. Rapparinn þarf að afplána heilt ár í fangelsi fyrir að bera á sér skotvopn án þess að hafa tilskilin leyfi til þess. Afplánun hefst seinni hluta þessa mánaðar. Meira
6. febrúar 2010 | Tónlist | 277 orð | 7 myndir

Hver fer út til Osló?

The One Eftir: Birgi Jóhann Birgisson og Ingva Þór Kormáksson Flytjandi: Íris Hólm Plús : Góð stígandi í laginu og falleg laglína. Mínus : Vantar uppá raddstyrkinn. Meira
6. febrúar 2010 | Fólk í fréttum | 60 orð | 1 mynd

Hönnunarvörur í Hemma og Valda

* PopUp-verslun verður haldin á efri hæðinni í Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda á Laugavegi 21 í dag milli kl. 13 og 19. PopUp-verslun er markaður nokkurra hönnuða sem taka sig saman og selja vöru sína á hinum ýmsu stöðum. Meira
6. febrúar 2010 | Myndlist | 311 orð | 1 mynd

Janúar bara góður en febrúar frekar ljótur

Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is FRETBÚAR urð, hvað er nú það? Jú, myndlistarsýning sem verður opnuð í versluninni og galleríinu Havaríi í Austurstræti í dag. Meira
6. febrúar 2010 | Tónlist | 76 orð | 1 mynd

Kórar og lúðrasveit sameina krafta sína

KÓR Fella- og Hólakirkju, Lúðrasveit verkalýðsins og Söngsveitin Fílharmónía sameina krafta sína og flytja saman tónverkið Magnificat eftir breska tónskáldið John Rutter á tvennum tónleikum í Fella- og Hólakirkju, í dag og á morgun. Meira
6. febrúar 2010 | Hugvísindi | 84 orð | 1 mynd

Leiðsögn fyrir börn um Þjóðminjasafnið

Á MORGUN, sunnudaginn 7. febrúar, verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Leiðsögnin er að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 5-8 ára. Meira
6. febrúar 2010 | Kvikmyndir | 507 orð | 2 myndir

Mel á mörkunum

Leikstjóri: Martin Campbell. Aðalleikarar: Mel Gibson, Ray Winstone, Danny Huston, Bojana Novakovic. 117 mín. Bandaríkin, Bretland. Meira
6. febrúar 2010 | Fólk í fréttum | 57 orð | 1 mynd

Metþátttaka í umsóknarferli Kraums

*Alls bárust 193 umsóknir í umsóknarferli Kraums tónlistarsjóðs sem lauk í vikunni og skrifstofuborðin svignuðu eins og myndin ber með sér. Meira
6. febrúar 2010 | Fólk í fréttum | 58 orð | 1 mynd

MIRI gefur út endurhljóðblöndunarskífu

*Hljómsveitin MIRI frá Seyðisfirði/Egilsstöðum hefur starfað í allnokkur ár og troðið reglubundið upp á stærri tónlistarhátíðum. Meira
6. febrúar 2010 | Myndlist | 476 orð | 2 myndir

Notar fífilinn sem tákn

Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is SÝNINGUNA sem Guðrún Gunnarsdóttir opnar í dag í Listasafni ASÍ, í Ásmundarsal og Gryfju, kallar hún „Að muna fífil sinn fegurri“. Meira
6. febrúar 2010 | Fjölmiðlar | 160 orð

Orð skulu standa

GESTIR þáttarins Orð skulu standa í dag eru Gestur Guðmundsson prófessor og Salka Guðmundsdóttir þýðandi. Þau fást m.a. við „lek“ og „eitilharður“. Fyrriparturinn er svona: Blessað kaffið kætir mig, kemur mér úr bóli. Meira
6. febrúar 2010 | Kvikmyndir | 190 orð | 1 mynd

Ragnar og félagar með flestar tilnefningar

TILNEFNINGAR til Edduverðlaunanna, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna, voru kynntar í gær. Sjónvarpsþáttaröðin Fangavaktin fær 13 tilnefningar og kvikmyndin Bjarnfreðarson 11. Meira
6. febrúar 2010 | Tónlist | 99 orð | 1 mynd

Sala jókst um 120%

FRAMKVÆMDASTJÓRI vefsíðunnar Tónlist.is, Engilbert Hafsteinsson, segir söluna aldrei hafa verið meiri á þeim vef en nú í ársbyrjun. Meira
6. febrúar 2010 | Leiklist | 431 orð | 1 mynd

Sannir vinir standa saman

Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞESSI sýning fjallar um vináttuna, hugrekkið og að læra að standa saman en Skoppa og Skrítla standa frammi fyrir hættum þegar þær eru að bjarga vini sínum, honum Bakara Svakara. Meira
6. febrúar 2010 | Tónlist | 367 orð | 1 mynd

Snýst allt um flutninginn

Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is STUÐBOLTINN Páll Óskar Hjálmtýsson, eða Palli, heldur Evróvisjónpartí á Nasa í kvöld með lifandi flutningi sem og skífuþeytingi. Meira
6. febrúar 2010 | Fólk í fréttum | 66 orð | 1 mynd

STEF úrskurðar „Je Ne Sais Quoi“ ekki stolið

* Hera Björk Þórhallsdóttir hefur sent f´rá sér fréttatilkynningu þar sem segir að í kjölfar þess að hún og Örlygur Smári hafi verið sökuð um lagastuld hafi þau farið fram á að STEF úrskurðaði í málinu. Meira
6. febrúar 2010 | Fjölmiðlar | 196 orð | 1 mynd

Stóri dagurinn

OFT er því haldið fram að Íslendingar séu í eðli sínu tilfinningalega lokaðir og heftir eins og fólk á víst að vera ef það býr á lítilli eyju fjarri öðrum þjóðum. En þessi lýsing á Íslendingum er ekki rétt. Meira
6. febrúar 2010 | Fólk í fréttum | 562 orð | 2 myndir

Stórmerkilegar ranghugmyndir

Eins gaman og það getur verið að rökræða við fólk sem er manni ósammála þá er alltaf meira afslappandi að ræða við þá sem hafa svipuð áhugamál og skoðanir og maður sjálfur. Meira
6. febrúar 2010 | Tónlist | 311 orð | 1 mynd

Stórsveitin og D'Angelo

BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn Andrew D'Angelo, sem er í hópi fremstu manna á sviði framsækinnar tónlistar í New York um þessar mundir, er tíður gestur hér á landi og hefur starfað talsvert með íslenskum tónlistarmönnum. Meira

Umræðan

6. febrúar 2010 | Bréf til blaðsins | 290 orð | 1 mynd

Andlegar hreingerningar

Frá Þorgeiri Arasyni: "KONAN mín er afskaplega hreinlát manneskja og leggur mikið upp úr því að íbúð okkar sé snyrtileg og vel þrifin. Þetta segi ég henni til hróss, enda mikill kostur. Sjálfur er ég á hinn bóginn einkar latur til margra verka, þar á meðal þrifa." Meira
6. febrúar 2010 | Bréf til blaðsins | 583 orð | 1 mynd

Annars flokks borgarar?

Frá Jakobi Snævari Ólafssyni: "MEIRIHLUTA ævi minnar hef ég búið á Suðurnesjum. Aldrei hefur mér dottið í hug að yfirvöld og fjölmiðlar álitu Suðurnesjamenn vera annars flokks borgara. Undanfarna daga hafa hins vegar farið að renna á mig tvær grímur." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 356 orð | 1 mynd

Áfram traust forysta í Garðabæ

Eftir Erling Ásgeirsson: "ÞAÐ má teljast eðlilegt að umræða manna á Íslandi hafi á síðustu misserum að mestu snúist um það sem miður hefur farið í fjármálum landsmanna. Þar er af nógu að taka." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 757 orð | 1 mynd

Er Ísland gjaldþrota?

Eftir Ólaf Margeirsson: "Hætta er á greiðslufalli ríkissjóðs hvort heldur sem Icesave er samþykkt eður ei." Meira
6. febrúar 2010 | Bréf til blaðsins | 710 orð | 1 mynd

Flækjufætur og þrælmenni

Frá Hrólfi Hraundal: "TVISVAR hafa íslensk stjórnvöld klúðrað þessu Icesave-máli." Meira
6. febrúar 2010 | Pistlar | 358 orð | 1 mynd

Forfallinn á Fésbókinni – II

Kjarngóður morgunverður er mikilvægur alla daga, en sjaldan eins og nú. Í dag verður hann breskur; egg, beikon, steiktar pylsur og bakaðar baunir í tilefni þess að í hádeginu verður flautað til leiks Liverpool og Everton í úrvalsdeildinni. Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 385 orð | 1 mynd

Frestun þjóðaratkvæðagreiðslu?

Eftir Auðberg Gíslason: "Væntanlega vegna þess að þegar þjóðin synjar lögunum, verður það pólitískt óþægilegt fyrir ríkisstjórnina." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 328 orð | 1 mynd

Kjósum kraft nýrrar kynslóðar til forystu í Garðabæ

Eftir Pál Hilmarsson: "KOSNINGABARÁTTAN fyrir prófkjör okkar sjálfstæðismanna hér í Garðabæ er nú á enda en hún hefur verið stutt og snörp. Ég hef lagt mig fram um að hitta eða heyra í sem flestum bæjarbúum í kosningabaráttunni." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 297 orð | 1 mynd

Kópavogur stendur vörð um barnafjölskyldur

Eftir Ármann Kr. Ólafsson: "ÞEIR efnahagserfiðleikar sem ganga yfir íslenskt þjóðfélag rista æ dýpra og nú er að koma í ljós að viðkvæmustu einstaklingarnir í þjóðfélaginu, börnin okkar, eru ekki undaskilin. Barnafjölskyldur hafa margar farið sérstaklega illa út úr..." Meira
6. febrúar 2010 | Bréf til blaðsins | 525 orð | 1 mynd

Látið almenning skipta máli

Frá Maríu Haraldsdóttur: "LJÓST er að þeir milljarðar sem stolið var frá Bretum og Hollendingum komu aldrei til Íslands, heldur hafa þeir sennilega farið í skattaparadísareyjurnar." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 721 orð | 1 mynd

Millistéttin látin greiða niður skuldir hátekjufólks og fjármagnseigenda

Eftir Sigurð K. Pálsson: "Annar aðilinn fær leiðréttingu langt niður fyrir gengisvísitölu á lántökudegi en hinn aðilinn tapar öllu eigin fé sem lagt var í húsnæðið." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 316 orð | 1 mynd

Prófkjör Sjálfstæðismanna í Kópavogi

Eftir Gunnar I. Birgisson: "PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna í Kópavogi fer fram 20. febrúar næstkomandi. Ég gef kost á mér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi við bæjarstjórnarkosningarnar í vor." Meira
6. febrúar 2010 | Bréf til blaðsins | 429 orð | 1 mynd

Rangt að hringvegurinn fari út úr landi Blönduósbæjar

Frá Ómari Ragnarssyni: "Í UMRÆÐU að undanförnu um 14 kílómetra styttingu hringvegarins með því að leggja svonefnda Húnavallaleið frá Stóru-Giljá yfir í miðjan Langadal er hamrað á því að með þessu verði hringvegurinn færður út fyrir mörk Blönduósbæjar og að tekjur af þjónustu..." Meira
6. febrúar 2010 | Pistlar | 30 orð | 1 mynd

RAX

Gangandi listaverk Ekki er óalgengt að færa þurfi listaverk til og raða þeim upp á nýtt. Laufey Johansen myndlistarkona þekkir þessa iðju vel og sinnir henni gjarnan á vinnustofu... Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 564 orð | 1 mynd

Reykjavíkurflugvöllur í eigu þjóðarinnar

Eftir Jóhann Pál Símonarson: "Væri óskandi að þremenningarnir gerðu sér grein fyrir að þeir komast ekki upp með órökstuddar dylgjur ..." Meira
6. febrúar 2010 | Bréf til blaðsins | 843 orð | 1 mynd

Sama innihaldslausa skrumið endalaust

Frá Halldóri Úlfarssyni: "HVER skyldi nú vera skúrkur ársins 2009? Það er þó ekki félagsmálaráðherrann okkar, já eða ríkisstjórnin öll?" Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 511 orð | 3 myndir

Sannleikurinn um gjafakvótann

Eftir Matthías Óskarsson: "Undirritaður hóf rekstur eigin útgerðar fyrir réttum 40 árum. Allan þann tíma hef ég einungis verið í útgerðarrekstri og aldrei verið í hlutabréfaviðskiptum eða neinu því um líku..." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 393 orð | 1 mynd

Sjálfstæðismenn: Erum við eymingjar?

Eftir Sigurjón Benediktsson: "Styðjum hann og verjum. Veitum honum vinnufrið. Ekki í blindni eða af ótta, heldur vegna þess að hann er þess verður." Meira
6. febrúar 2010 | Bréf til blaðsins | 332 orð | 1 mynd

Skýrar reglur um bestu kjörin

Frá Hrannari Péturssyni: "FORELDRI skrifaði í Morgunblaðið á dögunum og taldi það mismunun gagnvart sínu barni, að svokallað Krakkafrelsi – gjöf frá Vodafone í formi 1.500 kr." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 708 orð | 1 mynd

Tilræðið gegn Íslandi sem tókst

Eftir Ragnar Halldórsson: "Skuld Íslendinga bliknar ef til vill í samanburði við miskabæturnar sem íslenska þjóðin getur krafist fyrir hermdarverkin." Meira
6. febrúar 2010 | Aðsent efni | 985 orð | 1 mynd

Vandamál leysast ekki með hugarfarinu sem skapaði þau

Eftir Gunnlaug Jónsson: "Ef þorri fólks dregur þá ályktun af bankahruninu að það þurfi meiri ríkisafskipti en ekki minni er öllu snúið á hvolf." Meira
6. febrúar 2010 | Velvakandi | 360 orð | 1 mynd

Velvakandi

Sefur áhyggjulaus SEFUR áhyggjulaus á nóttunni segir Pálmi Haraldsson, þrátt fyrir margbreytilegar ásakanir um fjárlagabrot og svindl ýmiss konar. Meira

Minningargreinar

6. febrúar 2010 | Minningargreinar | 4017 orð | 1 mynd

Aðalbjörg Jónsdóttir

Aðalbjörg Jónsdóttir (Bogga) fæddist á Mýri í Bárðardal 3. nóvember 1939. Hún lést á sjúkradeild Hornbrekku í Ólafsfirði 31. janúar sl. Hún var dóttir hjónanna Jóns Jónssonar frá Mýri og Friðriku Kristjánsdóttur frá Fremstafelli í Ljósavatnshreppi. Meira  Kaupa minningabók
6. febrúar 2010 | Minningargreinar | 938 orð | 1 mynd

Finnbogi Gunnarsson

Finnbogi Gunnarsson var fæddur í Reynisdal 17. ágúst 1947. Hann lést í Vík í Mýrdal 26. janúar. Faðir: Gunnar Kristinn Magnússon fæddur í Reynisdal í Mýrdal 20. janúar 1912. Látinn 4. júlí 1976. Móðir: Sigríður Finnbogadóttir fædd á Reyni í Mýrdal 4. Meira  Kaupa minningabók
6. febrúar 2010 | Minningargreinar | 586 orð | 1 mynd

Guðfinna Magnúsdóttir

Guðfinna Magnúsdóttir, Árdal, Strandasýslu, var fædd í Hvítarhlíð 20. janúar 1925. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur 29. janúar 2010. Foreldrar hennar voru Magnús Einarsson, f. 4. mars 1896, d. 11. janúar 1975, og Sigríður Gísladóttir, f. 4. Meira  Kaupa minningabók
6. febrúar 2010 | Minningargreinar | 2587 orð | 1 mynd

Gunnlaugur Nielsen

Gunnlaugur Nielsen fæddist á Seyðisfirði 19. júní 1953. Hann lést 22. janúar 2010. Útför Gunnlaugs fór fram frá Vídalínskirkju 4. febrúar 2010. Meira  Kaupa minningabók
6. febrúar 2010 | Minningargreinar | 1817 orð | 2 myndir

Ingibjörg Johannesen

Ingibjørg Johannesen fæddist á Skála í Færeyjum 4. október 1930. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 22. janúar 2010. Foreldrar hennar voru Johan Johannesen skólastjóri, f. 1898, d. 1978, og kona hans Ingeborg, f. Djurhuus, f. 1901, d. 1988. Meira  Kaupa minningabók
6. febrúar 2010 | Minningargreinar | 490 orð | 1 mynd

Sigurlaug Kristjánsdóttir

Sigurlaug Kristjánsdóttir (Lullý) fæddist á Akranesi 27. mars 1935. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 27. janúar 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Ragnheiður Þ. Guðmundsdóttir og Kristján Ásmundsson, sem bæði létust í hárri elli. Meira  Kaupa minningabók
6. febrúar 2010 | Minningargreinar | 812 orð | 1 mynd

Sonja S. Wiium

Sonja S. Wiium fæddist 12. september 1933. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 31. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurður Magnússon Wiium, fæddur á Eintúnahálsi í V-Skaftafellssýslu 2. apríl 1903, d. 21. Meira  Kaupa minningabók
6. febrúar 2010 | Minningargreinar | 532 orð | 1 mynd

Örn Norðdahl Magnússon

Örn Norðdahl Magnússon var fæddur í Reykjavík 3. október 1986. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 22. janúar 2010. Foreldrar hans eru Elín Norðdahl Arnardóttir, f. 2. október 1963, og Magnús Hauksson, f. 5. október 1959. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 457 orð | 1 mynd

Að velja réttu skjalatöskuna

ÞAÐ FYLGIR mörgum störfum að þurfa að vera á ferðinni. Hitta þarf viðskiptavini, halda erindi og kynningar. Taka þarf samninga og skjöl með á milli staða, og helst fartölvuna líka. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 164 orð | 1 mynd

Allt söluverð notað til greiðslu krafna

ALLT reiðufé, sem fékkst fyrir sölu fjölmiðlahluta 365 hf. til Rauðsólar, var nýtt til að greiða upp í óveðtryggð skuldabréf félagsins. Jafnframt voru skuldabréf félagsins tryggð með ábyrgð Teymis hf. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 146 orð | 1 mynd

Ágætar horfur framundan

VÖRUSKIPTI voru hagstæð um ríflega tíu milljarða í janúar samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur nam 22 milljörðum í mánuðinum, á meðan innflutningur var 32 milljarðar. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 326 orð | 1 mynd

Greiddi skuldir fyrir 11 milljarða

Eftir Örn Arnarson ornarnar@mbl.is HAGNAÐUR af rekstri Icelandic í fyrra nam 1,4 milljörðum króna samkvæmt óendurskoðuðum ársreikningi. Í krafti sterks sjóðstreymis greiddi félagið vaxtaberandi skuldir niður um 11 milljarða króna. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 202 orð | 1 mynd

Marel tapaði 2,1 milljarði árið 2009

Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is MAREL skilaði 11,8 milljóna evra tapi á síðasta ári, eða andvirði um 2.077 milljarða íslenskra króna. Árið 2008 var 8,4 milljóna evra tap á rekstri fyrirtækisins. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 471 orð | 1 mynd

Ríkið vill eignast Byr og borga kröfuhafana út

Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is Innlendir kröfuhafar Byrs, sem eru að langmestu leyti lífeyrissjóðir, lögðust gegn tillögu þess efnis að kröfuhafar tækju 90% stofnfjár bankans yfir. Tillagan var rædd á fundi innlendra kröfuhafa Byrs í fyrradag. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 72 orð

Rólegt í skuldabréfum

SKULDABRÉFAVÍSITALA GAMMA breyttist lítið í viðskiptum gærdagsins, en velta á skuldabréfamarkaði nam alls 7,8 milljörðum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,07 prósent, en sá óverðtryggði hækkaði um 0,19 prósent. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 88 orð | 1 mynd

Toyota í kreppu

AKIO Toyoda, stjórnarformaður Toyota Motor, sagði á blaðamannafundi í gær að fyrirtækið væri í kreppu vegna þess að innkalla þarf milljónir bíla í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum vegna vandamála í bensíngjöf. Baðst forstjórinn afsökunar á málinu. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 82 orð

Veltan dróst saman

KREDITKORTAVELTA heimilanna dróst saman um 8,6% í fyrra frá árinu 2008, samkvæmt tölum Hagstofunnar . Debetkortavelta jókst hins vegar um 6,4% á sama tíma. Samtals dróst innlend greiðslukortavelta heimila saman um 1,3%. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 515 orð | 2 myndir

Ýmsar leiðir færar við að tryggja dreifða eignaraðild

Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is TIL að tryggja dreift eignarhald á Högum eru tvær leiðir færar, að sögn Finns Sveinbjörnssonar, bankastjóra Arion banka. Meira
6. febrúar 2010 | Viðskiptafréttir | 75 orð

Þýska ríkið vill komast yfir fé í Sviss

UPPLÝSINGAR um meint skattsvik þýskra borgara gætu þýtt að ríkissjóður landsins endurheimti um 400 milljónir evra, andvirði um 71 milljarðs króna, af skattfé. Meira

Daglegt líf

6. febrúar 2010 | Afmælisgreinar | 331 orð | 1 mynd

Margrét Pálína Guðmundsdóttir

Margrét Pálína Guðmundsdóttir, fædd í Reykjavík 6. febrúar 1940, er sjötug í dag. Meira
6. febrúar 2010 | Daglegt líf | 1204 orð | 4 myndir

Tannviðgerðir verða útundan

Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is Það hefur greinilega sigið á ógæfuhliðina og vandinn vaxið,“ segir Sigurður Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands. Meira

Fastir þættir

6. febrúar 2010 | Í dag | 179 orð

Af fegurð og Esjunni

Jón Gissurarson segist alls ekki sammála þeim, sem halda því fram að Esjan sé sviplaus, „öllu heldur finnst mér hún hið virðulegasta fjall. Meira
6. febrúar 2010 | Árnað heilla | 183 orð | 1 mynd

„Orðinn andskoti gamall“

„ÉG held bara mínu striki,“ segir Bragi Jósepsson, prófessor emerítus, spurður hvað hann ætli að gera í tilefni þess að í dag verður hann áttræður. Ritstörf eiga hug hans allan, og segist hann lítinn tíma hafa til að halda veislur þetta... Meira
6. febrúar 2010 | Í dag | 130 orð | 1 mynd

Bridget þrjú á leiðinni?

LEIKARINN Colin Firth, sem lék Mr. Darcy í mynd eitt og tvö um Bridget Jones, þykir hafa gefið það sterklega í skyn í viðtali á BBC Radio 4 að þriðja myndin sé í undirbúningi. Meira
6. febrúar 2010 | Fastir þættir | 153 orð

Brids - Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is

Hið banvæna útspil. Norður &spade;D &heart;G54 ⋄ÁKD105 &klubs;ÁD87 Vestur Austur &spade;ÁKG106 &spade;972 &heart;109 &heart;762 ⋄43 ⋄8762 &klubs;G543 &klubs;K62 Suður &spade;8543 &heart;ÁKD83 ⋄G9 &klubs;109 Suður spilar 6&heart;. Meira
6. febrúar 2010 | Fastir þættir | 242 orð

BRIDS - Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Stangarhyl, fimmtud. 4. febrúar. Spilað var á 12 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S Ingibjörg Stefánsd. – Elín Guðmannsd. 271 Oddur Halldórss. – Ásgr. Aðalsteinss. Meira
6. febrúar 2010 | Í dag | 30 orð | 1 mynd

Fermingar

Blaðaukinn Fermingar kemur út föstudaginn 5. mars nk. Að venju verða nöfn fermingarbarna í blaðinu og aðgengileg á vefnum. Skilafrestur til að skila inn nafnalista rennur út 1. mars... Meira
6. febrúar 2010 | Í dag | 32 orð | 1 mynd

Hlutavelta

Svanhildur Reynisdóttir, Guðbjörg Reynisdóttir, Hákon Darri Egilsson og María Sól Sigurðardóttir héldu tombólu fyrir utan Krónuna í Jafnaseli til styrktar börnum á Haiti. Þau söfnuðu 1.344 kr. sem þau færðu Rauða... Meira
6. febrúar 2010 | Í dag | 1940 orð | 1 mynd

(Lúk. 8)

ORÐ DAGSINS: Ferns konar sáðjörð. Meira
6. febrúar 2010 | Í dag | 21 orð

Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að...

Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. (1Pt. 1, 6. Meira
6. febrúar 2010 | Fastir þættir | 162 orð | 1 mynd

Skák - Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is

1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Be7 4. Bd3 c5 5. dxc5 Rf6 6. De2 0-0 7. Rgf3 a5 8. 0-0 Ra6 9. e5 Rd7 10. c4 Rdxc5 11. Bb1 Rb4 12. Hd1 Db6 13. Rb3 dxc4 14. Dxc4 Rxb3 15. axb3 Hd8 16. Bd2 Bd7 17. Bg5 Bxg5 18. Bxh7+ Kxh7 19. Rxg5+ Kg8 20. Hd6 Db5 21. De4 f5 22. Meira
6. febrúar 2010 | Fastir þættir | 311 orð

Víkverjiskrifar

Víkverji hefur fylgst með Evróvisjón-forkeppni Sjónvarpsins með öðru auganu síðustu laugardaga. Í kvöld er komið að úrslitakvöldinu og fagnar Víkverji því og tregar um leið. Meira
6. febrúar 2010 | Í dag | 96 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

6. febrúar 1958 Naustið bauð þorramat, fyrst íslenskra veitingahúsa, reiddan fram í trogum. Í frétt Morgunblaðsins var tekið fram að með þorramat væri átt við „íslenskan mat, verkaðan að fornum hætti, reyktan, súrsaðan og morkinn“. 6. Meira

Íþróttir

6. febrúar 2010 | Íþróttir | 75 orð

50 milljóna hagnaður

HAGNAÐUR af rekstri Knattspyrnusambands Íslands á árinu 2009 var 50 milljónir króna. Er þetta umfram áætlanir sambandsins. Engar vaxtaberandi skuldir hvíla á sambandinu í fyrsta skipti í rúman áratug. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 637 orð | 1 mynd

„Drögumst aftur úr“

„Menn verða að hugsa dæmið til enda þegar þeir koma fram með tillögur um að stytta keppnistímabilið í handknattleiknum hér heima,“ segir Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, um þá gagnrýni sem fram hefur komið... Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 371 orð | 3 myndir

„England er draumaliðið“

Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 252 orð | 1 mynd

„Það var bara lok, lok og læs“

Eftir Guðmund Karl sport@mbl.is SELFYSSINGAR eru komnir með annan fótinn í efstu deild karla í handbolta eftir uppgjör toppliða 1. deildarinnar á Selfossi í gærkvöldi. Þar lögðu Selfyssingar Aftureldingu vægast sagt sannfærandi, 32:23. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 283 orð | 1 mynd

Dýrkeypt að vera værukær

Fyrirfram hafa líkast til flestir búist við stórsigri heimamanna í Njarðvík á Fjölnismönnum þegar liðin mættust í Iceland Express-deild karla í gærkvöldi. Raunin varð heldur betur önnur. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 357 orð | 2 myndir

England og Ítalía eru „stóru bitarnir“

Undankeppni Evrópumeistaramóts karlalandsliða í fótbolta hefst á þessu ári en dregið verður í riðla á sunnudaginn í Varsjá í Póllandi en lokakeppnin fer fram í Póllandi og Úkraínu sumarið 2012. Ísland er í fimmta styrkleikaflokki af alls sex. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 375 orð | 3 myndir

Fólk sport@mbl.is

Rut Jónsdóttir , landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið Team Tvis Holstebro . Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 369 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Vefur breska ríkisútvarpsins, BBC, greindi frá því í gær að efsti kylfingur heimslistans, Tiger Woods , hefði sett stefnuna á að snúa aftur á golfvöllinn hinn 17. febrúar næstkomandi. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 289 orð | 1 mynd

Isom er maðurinn sem vantaði á Krókinn

Eftir Björn Björnsson sport@mbl.is KARL Jónsson, þjálfari Tindastóls, sagðist vera himinsæll með sína menn í leikslok, eftir að hafa loks landað sigri á heimavelli gegn frískum Hamarsmönnum í gærkvöldi. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 382 orð

KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Hrunamenn – Þór Ak. 89:92 Ármann...

KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Hrunamenn – Þór Ak. 89:92 Ármann – Skallagr. 78:90 Staðan: KFÍ 131121111:94722 Valur 131031040:94420 Haukar 1293989:80518 Skallagrímur 13941035:96218 Þór Þ. 12841016:95616 Þór A. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 62 orð | 1 mynd

Logi maður mánaðarins

LOGI Gunnarsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, er búinn að finna fjölina sína í Frakklandi þar sem hann leikur með gamla stórveldinu St. Etienne í C-deildinni. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 117 orð | 1 mynd

Snæfell fær leikmann frá Lettlandi

SNÆFELL bætti í gærkvöldi við sig leikmanni fyrir lokasprettinn í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik en sá heitir Martins Berkis og er tveggja metra leikmaður sem leikið hefur undanfarið í Lettlandi. Frá þessu er greint á vefsíðunni karfan.is. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 24 orð

Staðan

KR 151231406:121824 Snæfell 151141416:121622 Stjarnan 151141316:123422 Keflavík 151141363:118422 Njarðvík 151141330:114422 Grindavík 151051415:122720 Hamar 15691265:129312 ÍR 155101244:136310 Tindastóll 155101238:136410 Fjölnir 154111189:13588... Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 115 orð | 1 mynd

Stjarnan fær liðsstyrk

TÖLUVERÐAR hræringar hafa verið á leikmannamarkaðnum í körfuboltanum hér á Íslandi en lokað var fyrir félagaskipti í gærkvöld. Stjarnan fékk tvo leikmenn í sínar raðir. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 206 orð | 1 mynd

Sunnlendingar stóðu í Stjörnunni

BOTNLIÐ FSu stóð í bikarmeisturum Stjörnunnar í fyrri hálfleik þegar liðin mættust á Selfossi í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. FSu var yfir eftir fyrsta leikhlutann og í hálfleik hafði Stjarnan þriggja stiga forskot. Meira
6. febrúar 2010 | Íþróttir | 116 orð | 1 mynd

Terry virðir ákvörðunina

ENSKA knattspyrnusambandið staðfesti í gær að Rio Ferdinand, leikmaður Englandsmeistara Manchester United, hefði verið skipaður nýr fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu. Tekur hann við bandinu af John Terry sem í gær var sviptur fyrirliðastöðunni. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.