Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is BÁTUR sem gerður er út á sæbjúgu hefur fengið góðan afla við Austfirði að undanförnu. „Hann hefur verið að koma með upp í sex tonn eftir daginn.
Meira
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „VIÐ erum byrjaðir að vinna úr umsóknum sem þegar hafa borist og líta í kringum okkur. Núna er allt komið á fleygiferð,“ segir Ágúst Einarsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands.
Meira
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is SVEITARFÉLAGINU Álftanesi hefur verið skipuð fjárhaldsstjórn sem fara mun með fjármál þess. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum mun sveitarstjórnin þó starfa áfram.
Meira
Hönnuðurinn Bryndís Þorsteinsdóttir mun, ásamt vinkonu sinni Rosu Winther Denison, taka þátt í tískuviku í Kaupmannahöfn í ár. Sýningarnar hefjast á morgun og standa til fjórtánda febrúar og hefur verið ákaflega annasamt hjá stúlkunum undanfarið.
Meira
LÖGREGLU höfuðborgarsvæðisins voru tilkynntar átta líkamsárásir um liðna helgi, allar minniháttar. Sem fyrr áttu flestar þeirra sér stað í miðborg Reykjavíkur eða sjö talsins, ýmist á eða við skemmtistaði.
Meira
„LANDHELGISGÆSLAN gegnir lögbundnu hlutverki við björgun og því vaknar sú spurning, hvenær kemur að þeim tímapunkti að við þurfum að horfast í augu við að Gæslan geti ekki sinnt því hlutverki.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is STJÓRN og stjórnarandstaða náðu í gærmorgun saman um þann grunn sem notaður verður í viðræðum við Breta og Hollendinga um að taka upp Icesave-samningana. Fjármálaráðherra er vongóður um að málið leysist að endingu.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is „KASÍNÓ er alþjóðlegt orð og spilavíti svo hrikalega neikvætt að maður veltir fyrir sér hvaða áróðursmeistari fann það upp,“ segir Arnar Gunnlaugsson hjá Ábyrgri spilamennsku ehf.
Meira
„HANN brást alveg hárrétt við,“ segir Eysteinn Sigurðsson, eigandi Sunnubúðarinnar við Lönguhlíð um viðbrögð þrítugs sonar síns sem var einn að störfum í búðinni þegar ungur maður vopnaður hnífi réðst inn í Sunnubúðina sl. sunnudagskvöld.
Meira
HAUKAR lögðu granna sína í FH, 25:24, í æsispennandi leik í úrvalsdeild karla í handbolta í gærkvöld, og það í vígi þeirra svarthvítu í Kaplakrikanum.
Meira
Forsvarsmenn heilbrigðisstofnana í landinu standa frammi fyrir erfiðum ákvörðunum. Skera þarf niður um tugi eða hundruð milljóna króna á hverjum stað, skerða þjónustu og segja upp fólki.
Meira
FRAMFÖR, krabbameinsfélag, hefur gefið öllum 40 almenningsbókasöfnum á landinu eintak af bókinni „Bragð í baráttunni: Matur sem vinnur gegn krabbameini“, auk dvd-disks.
Meira
Ólafur Ingi Stefánsson stekkur með tilþrifum yfir Ingvar Hauk Jóhannsson. Þeir félagarnir eru báðir í Brettafélagi Reykjavíkur en nýttu sér blítt febrúarveðrið til æfinga í Kópavogi.
Meira
UPPFÆRT verðmæti afleiðusamninga vegna orkusölusamninga fram í tímann skilar HS Orku sjö milljarða viðsnúningi í fjármagnsjöfnuði félagsins. Samningarnir sem um ræðir eru gerðir í dollurum og tengjast álverði.
Meira
ADOLF Guðmundsson, formaður LÍÚ, segir að fundur sem haldinn var á Eskifirði síðdegis í gær undir yfirskriftinni Sjávarútvegur í óvissu hafi verið góður og málefnalegur. Þetta kemur fram á vef LÍÚ.
Meira
ÁSTRALSKUR götulistamaður komst í Heimsmetabók Guinness í gær með því að gleypa átján sverð í einu. Hvert sverð var 72 sentimetra langt. Ástralinn, sem heitir Chayne Hultgren, sló eigið met sem hann setti árið 2008 þegar hann gleypti seytján sverð.
Meira
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is HAGAR eru á meðal þeirra fjárfestingarkosta sem Framtakssjóður Íslands, fjárfestingarsjóður 16 lífeyrissjóða, mun vafalítið skoða, skv. upplýsingum Ágústs Einarssonar, formanns stjórnar Framtakssjóðsins.
Meira
Hreggviður Magnússon , fyrirliði ÍR, fór meiddur af velli eftir örfáar sekúndur í undanúrslitaleiknum gegn Grindavík. „Ég hef verið aumur í ökklanum í þrjá daga og fann í upphitun að ég var aumur en samt leikfær, að ég hélt.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is „ÉG VEIT að fólk flutti út á Álftanes – sérstaklega fjölskyldufólk – vegna þess að það vissi af mjög góðum skóla og leikskólum og að þar væri öryggi að finna.
Meira
Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynurorri@mbl.is ÞÆR breytingar hafa verið gerðar hjá Akureyrarbæ að niðurgreiðsla daggæslugjalda hefst nú þegar barn er orðið árs gamalt í stað níu mánaða.
Meira
ÚTÞRÁ 2010, sem veitir ungu fólki kost á að skoða á einum stað öll þau fjölmörgu tækifæri sem í boði eru fyrir Íslendinga erlendis, verður haldin í dag.
Meira
Rangt föðurnafn RANGT var farið með föðurnafn Haraldar Sverrissonar, bæjarstjóra Mosfellsbæjar, í frétt um prófkjör Sjálfstæðisflokksins í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á þessum...
Meira
Stjórnendur heilbrigðisstofnana víða um land standa frammi fyrir erfiðum ákvörðunum. Skera þarf niður í starfseminni um tugi eða hundruð milljóna króna á hverjum stað, skerða þjónustu og segja upp fólki.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „OKKUR vantar norðanáttina til að klára hausana upp úr sjó. Við fengum hana um jólin en þá voru allir í fríi,“ segir Helgi B. Gunnarsson, yfirverkstjóri hjá Suðurverki við gerð Landeyjahafnar.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „TAL um stuðning ESB við svokallaðan norðlægan landbúnað er sjónhverfing. Við teljum að ekkert sé þar á bak við,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Meira
ALÞJÓÐLEGI netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í sjöunda sinn í dag, 9. febrúar. Þemað í ár er „Hugsaðu áður en þú sendir!“ og munu yfir 60 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.
Meira
REIKNINGUR bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya var um það bil tífalt hærri en Alþingi hafði reiknað með, að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis. Reikningurinn sem er upp á um 25 milljónir er á eindaga eftir um það bil viku.
Meira
Ólafur Þór Eiríksson , eigandi og ritstjóri veftímaritsins Netsögu, auglýsir um þessar mundir eftir efni frá rithöfundum og skáldum til birtingar á vefsíðunni.
Meira
Sauðárkrókur | „Við erum að safna undirskriftum gegn þeirri gríðarlegu aðför sem gerð er að einni veigamestu grunnstoð samfélagsins hér, heilbrigðisstofnuninni, og boðuð hefur verið af heilbrigðisráðherra.
Meira
RUT Magnússon söngkona lést í Reykjavík 7. febrúar sl., 74 ára að aldri. Rut (f. Ruth Little) fæddist í Carlisle í Englandi 31. júlí 1935 og ólst þar upp. Hún fluttist til London árið 1954 og hóf nám í læknisfræði en sótti söngtíma jafnframt.
Meira
Sigur Janúkovítsj er m.a. rakinn til ósættis leiðtoga rauðgulu byltingarinnar og þess að hann hélt stuðningi úkraínskra auðkýfinga og rússneskumælandi kjósenda í austurhluta Úkraínu.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SÓKNARBÖRN á nærri því öllum heimilum í Stafholtsprestakalli í Borgarfirði hafa skorað á biskup Íslands að huga sem fyrst að uppbyggingu prestssetursins í Stafholti.
Meira
SORPHIRÐUGJALD hækkar hjá öllum sveitarfélögum landsins nema Fljótsdalshéraði, þar sem það lækkar um 3%, og hjá Reykjavíkurborg, þar sem það stendur í stað.
Meira
„ÞESSU miðar ágætlega áfram,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, um kjaraviðræðurnar sem standa yfir um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Norðuráls.
Meira
Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að setja á laggirnar starfshóp sem á að kanna möguleika á því að stuðla að eflingu og fjölgun smærri verslana í íbúðahverfum borgarinnar.
Meira
ÞEGAR harðnar á dalnum er gjarnan rætt um mikilvægi aðhalds og sparnaðar. Bent er á að þröngt mega sáttir sitja og gjarnan vísað til þess að ekki fyrir svo löngu bjuggu kynslóðir saman í litlu húsnæði og kvörtuðu ekki.
Meira
ÍSAFOLD, félag ungs fólks gegn ESB-aðild, er heiti á samtökum sem stofnuð voru í sal Þjóðminjasafns Íslands á laugardag sl. Um 40-50 manns sátu fundinn. Formaður Ísafoldar var kjörin Brynja Björg Halldórsdóttir.
Meira
HÁTT settir embættismenn frá ríkjum sem liggja að Eystrasalti koma saman í Helsinki á morgun til að ræða aðgerðir til að bjarga lífríkinu í innhafinu.
Meira
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is BORGARRÁÐ hefur samhljóða samþykkt umsóknir Greenstone um lóðir undir möguleg gagnaver fyrirtækisins í Reykjavík.
Meira
VÆNGJAMESSA er nýjung í starfi kirkjunnar og verða þær í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Fyrsta messan verður á morgun, miðvikudaginn 10. febrúar næstkomandi kl. 20.
Meira
Í lok síðustu viku var sterkur orðrómur á sveimi um tilraunir forystumanna úr Samfylkingu til að fá Framsóknarflokkinn inn í ríkisstjórnina. Allmargir fjölmiðlar greindu frá því að slíkar óformlegar og leynilegar þreifingar ættu sér stað.
Meira
KVIKMYNDIN Boðberi verður frumsýnd í vor en maðurinn á bak við þessa dularfullu mynd, leikstjórinn Hjálmar Einarsson, lærði handritagerð og leikstjórn í Prag.
Meira
LEIKSTJÓRINN Kevin Smith, höfundur kvikmynda á borð við Clerks, Chasing Amy og Zack and Miri make a Porno, ætlar að freista þess að fjármagna næstu mynd sína með framlögum frá aðdáendum.
Meira
KANADÍSKI söngfuglinn Leonard Cohen hefur verið duglegur við tónleikahald á undanförnum árum þótt hann sé hálfáttræður. Fyrir stuttu neyddist Cohen þó til að slá á frest fyrirhugaðri tónleikaför sinni um Evrópu vegna bakmeiðsla.
Meira
Í gagnrýni um leiksýninguna Skoppa og Skrítla á tímaflakki sem birtist í blaðinu í gær kemur fram að höfundur leikmyndar sé Þórdís Jóhannsdóttir, það rétta er að Þórdís er Jóhannesdóttir. Beðist er velvirðingar á þessum...
Meira
ÞAÐ virðist ekkert lát vera á gerð framhaldsmynda þessa dagana. Þegar nýjustu fréttir af kvikmyndabransanum eru skoðaðar virðist að minnsta kosti önnur hver mynd í framleiðslu vera framhaldsmynd eða forsaga. Af þeim sem nú eru í framleiðslu má t.d.
Meira
Birna Hallgrímsdóttir píanóleikari heldur einleikstónleika í Selinu á Stokkalæk næstkomandi sunnudag kl. 15. Á efniskránni eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Joseph Haydn, Claude Debussy og Frédéric Chopin. Að tónleikum loknum verða kaffiveitingar.
Meira
Leikstjóri: Rob Marshall. Handrit: Michael Tolkin og Anthony Minghella. Aðalleikarar: Daniel Day-Lewis, Marion Cotillard, Penélope Cruz, Nicole Kidman, Judi Dench, Kate Hudson, Fergie. Bandaríkin. 2009.
Meira
ÉG leita þín vor nefnist ný ljóðabók eftir Bjarna Valtý Guðjónsson frá Svarfhóli á Mýrum. Ljóð og kvæði eftir Bjarna Valtý hafa birst víða í blöðum og tímaritum í áranna rás. Í Ég leita þín vor eru 30 ljóð.
Meira
* TÓNLISTARMENNIRNIR Hörður Torfason og Franz Gunnarsson eru ekki sammála um þá fullyrðingu Emilíönu Torrini , sem finna má í viðtali við hana á vefnum Miðjan, að það sé „nýtt að Íslendingar sæki tónleika og hlusti á lagasmíðar tónlistarmannanna...
Meira
LEIKKONAN Cameron Diaz sást daðra við hafnaboltaleikmanninn Alex Rodriguez í CAA-partíi á laugardaginn í Miami. Diaz og Rodiguez sátu nálægt hvort öðru og virtist koma vel saman.
Meira
ÞAÐ er Avatar , enn og aftur, sem situr í efsta sæti yfir tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar og nema heildartekjur af henni, frá fyrstu sýningum, tæpum 130 milljónum króna.
Meira
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ÞAÐ ER ekki gróðabisness að gefa út plötur en samt lagði plötufyrirtækið Kölski í það á síðasta ári. Kölski er í eigu eigu Senu, en þeir Barði og Þorkell Máni hafa fulla umsjón með sínum listamönnum.
Meira
ÓLÖF Sverrisdóttir leikkona og leiklistarkennari heldur nú sjötta leiklistarnámskeiðið sem hún kallar „Leiklist fyrir lífið“, fyrir fullorðna, 16 ára og eldri. Kennt er í Bolholti 4, 4.
Meira
OFURPARIÐ Brad Pitt og Angelina Jolie, eða Brangelina eins og þau eru oft kölluð, hefur ákveðið að sækja mál á hendur breska slúðurblaðinu News of the World eftir að blaðið sagði frá því í síðasta mánuði að parið undirbyggi nú skilnað.
Meira
Karókísöngur fellur mönnum misjafnlega í geð og mörg dæmi um handalögmál og leiðindi. Á Filippseyjum er karaókísöngur í hávegum hafður en eitt lag óttast menn að syngja – Sinatra-slagarann My Way .
Meira
* LISTAMENNIRNIR Ragnar Kjartansson og Davíð Þór Jónsson taka sig vel út á mynd í tímaritinu V með galleritanum Lawrence Luhring sem tekin var í teiti til styrktar Dignitas International, samtökum sem berjast gegn útbreiðslu alnæmis í heiminum.
Meira
ÞAÐ vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum þegar Jamie Lynn Spears, litla systir Britney Spears, varð ólétt aðeins sextán ára gömul. Hún fæddi dóttur sína Maddie árið 2007 og hefur átt í stormasömu sambandi við barnsföður sinn, Casey Aldridge, síðan.
Meira
TÓNLISTARKONAN Elíza Newman heldur útgáfutónleika í kvöld vegna plötunnar Pie in the Sky sem kom úr fyrir jól. „Já, loksins er ég með útgáfutónleika,“ segir Elíza.
Meira
Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Nýjasta lína hönnunarverkefnisins Vík Prjónsdóttir verður frumsýnd á hönnunarvikunni í Stokkhólmi í dag, teppalína nánar tiltekið. Brynhildur Pálsdóttir er einn fimm hönnuða sem standa að Vík Prjónsdóttur.
Meira
Eftir Guðbjörgu Ágústu Sigurðardóttur: "Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur til margra ára verið lögð í einelti af hálfu heilbrigðisráðuneytisins."
Meira
Drepið á dyr Fram hefur komið að Samfylkingin hafi gert hosur sínar grænar fyrir Framsókn og vilji fá flokkinn inn í ríkisstjórnina en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ekki hafa gefið færi á sér.
Meira
Eftir Guðrúnu Nordal: "Samkeppni um rannsóknarfé harðnar vitaskuld eftir því sem styrkur íslenskra vísindamanna eykst – og samkeppnin verður meiri eftir því sem harðnar í ári."
Meira
Eftir Ívar Pálsson: "Núverandi ríkisstjórn verður að víkja og draga verður ESB-aðildarumsóknina til baka, svo að fríverslunarsamningur Íslands við Kína verði frekar að veruleika."
Meira
Peningakerfi heimsins byggist á svokölluðum „fiat“-peningum – pappírsseðlum og rafrænum innistæðum sem ríkisvaldið segir að séu ígildi peninga og þannig ávísun á ákveðin verðmæti.
Meira
Hálmen fannst HÁLSMEN fannst á bílastæði við Þjóðminjasafnið 30. janúar sl. Upplýsingar veitir Ása Guðjónsdóttir, s. 552-4713 eða 845-4648. Féð í Tálknanum ÉG er sammála Ólafi H. Gunnbjörnssyni sem skrifar í Velvakanda um féð í Tálknanum mánudaginn 8.
Meira
Einar Ingvarsson fæddist 19. september 1921 að Litla-Fljóti í Biskupstungum, en ólst upp á Hvítárbakka í sömu sveit. Hann lést á dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði 31. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ingvar Jóhannsson bóndi á Hvítárbakka...
MeiraKaupa minningabók
Orri Ómarsson fæddist á Landspítalanum 3. júní 1993. Hann lést 30. janúar 2010. Útför Orra fór fram frá Víðistaðakirkju 8. febrúar 2010.
MeiraKaupa minningabók
Steingrímur Hermannsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1928. Hann lést að heimili sínu í Mávanesi í Garðabæ 1. febrúar 2010. Foreldrar Steingríms voru Hermann Jónasson forsætisráðherra, f. 25.12. 1896, d. 22.1. 1976, og Vigdís Oddný Steingrímsdóttir, f....
MeiraKaupa minningabók
ACTAVIS hefur ákveðið að stækka lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði. Í kjölfarið verða til meira en 50 ný störf hjá fyrirtækinu og framleiðslugetan á Íslandi eykst um 50%.
Meira
HS Orka hagnaðist um 6,8 milljarða króna á síðasta ári samkvæmt uppgjöri sem félagið gerði opinbert í gær. Metið framtíðarvirði orkusölu bætir afkomu um sjö milljarða króna.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is STJÓRN Teymis mun ekki skjóta til dómstóla ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að sekta félagið um 7,5 milljónir króna.
Meira
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is HILDUR Eiríksdóttir, kennari í Álftamýrarskóla, hefur tekið þátt í Lífshlaupinu frá upphafi og ekki misst dag úr er kemur að því að skrá hreyfingu.
Meira
Laugardaginn 30. janúar, var haldið „Stefnumót 2010“ um atvinnu- og byggðamál í Borgarbyggð og nágrenni. Þingið var haldið í Menntaskóla Borgarfjarðar undir stjórn Þórólfs Árnasonar.
Meira
Esjan verður mörgum yrkisefni. Jón Ingvar Jónsson fer fyrir hagyrðingum í þeim yrkingum: Akrafjall af öllu ber, Íslands mesta prýði, meðan gamla Esjan er algjör hrákasmíði.
Meira
AÐSTOÐARLEIKSKÓLASTJÓRINN á Akraseli, Margrét Þóra Jónsdóttir, verður með bekkjarafmæli á fertugsafmælisdaginn, en hún deilir deginum með syni sínum Jóni Inga Einarssyni sem er níu ára í dag.
Meira
Víkverji var á menningarlegum nótum um helgina og fór í leikhús og á tónleika. Lyftir ætíð andanum í skammdeginu að sjá og heyra listamenn tjá túlkun sína í hinu fjölbreyttasta formi, hvort sem það eru atvinnu- eða áhugamenn.
Meira
9. febrúar 1827 Kambsránið. Brotist var inn og peningum rænt á Kambi í Flóa. Ránsmennirnir voru síðar handteknir og dæmdir að loknum umfangsmiklum réttarhöldum. 9. febrúar 1946 Maður hrapaði í djúpa gjá í Aðaldalshrauni í Þingeyjarsýslu.
Meira
KR-ingar tóku á móti Njarðvík í 16. umferð Iceland Express-deildarinnar í körfuknattleik í DHL-höllinni í gærkvöldi. Það var mikið í húfi þar sem liðin keppast nú við að koma sér í sem þægilegasta stöðu fyrir úrslitakeppnina sem framundan er.
Meira
FRIÐRIK Ragnarsson þjálfari Grindvíkinga stýrði liði sínu til sigurs gegn ÍR-ingum í undanúrslitum Subway-bikarsins í körfuknattleik karla í gær. Þeirra bíður það verkefni að mæta Snæfelli í bikarúrslitaleik í Laugardalshöllinni.
Meira
Arnór Atlason og félagar í FCK í Kaupmannahöfn unnu Danmerkurmeistara Kolding , 40:34, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik um helgina. Arnór átti fínan leik og skoraði fjögur mörk.
Meira
Mikil gleði braust út í New Orleans í Bandaríkjunum í fyrrinótt þegar ruðningslið borgarinnar, New Orleans Saints , bar sigurorð af Indianapolis Colts í leiknum um Ofurskálina, úrslitaleik bandarísku ruðningsdeildarinnar, 31:17.
Meira
Páll Axel Vilbergsson dró vagninn þegar Grindvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitum bikarkeppni KKÍ, Subway-bikarnum í gærkvöldi. Grindvíkingar slógu þá ÍR-ingar út úr keppninni í undanúrslitum 91:78 og mæta Snæfelli í úrslitaleik í Laugardalshöllinni um aðra helgi.
Meira
Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is HK-INGAR gerðu hjartveikum óþarfa óleik þegar þeir lögðu Framara að velli með minnsta mögulega mun, 28:27, í N1-deild karla í handknattleik í gærkvöldi.
Meira
Valsmenn komust upp í annað sæti N1-deildar karla í handknattleik í gærkvöldi þegar þeir unnu öruggan sigur á Stjörnunni. 24:19, á heimavelli sínum.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.