ATVINNULAUSUM fjölgaði verulega í janúar og búast má við að sá hópur stækki lítillega í febrúar. Skráð atvinnuleysi var 9% í seinasta mánuði og voru að meðaltali 14.705 manns á atvinnuleysisskrá. Í lok janúar voru 16.382 atvinnulausir.
Meira
ACTAVIS hefur ákveðið að styrkja hjálparstarf í kjölfar jarðskjálftans á Haítí um meira en 270 milljónir króna, í formi fjárstyrkja og lyfja. Hluti framlagsins er þegar kominn til viðtakenda. Þar á meðal er 10.
Meira
MIÐSTJÓRN ASÍ sendi frá sér harðorðar ályktanir í gær þar sem krafist er verklegra framkvæmda til að mæta miklum samdrætti í byggingariðnaði og mannvirkjagerð. Einnig er krafist aðgerða stjórnvalda til að bregðast við greiðsluvanda heimila.
Meira
Í DAG, fimmtudag, verður 112-dagurinn haldinn víða um land eins og undanfarin ár. Þema dagsins er aðkoma venjulegs fólks að vettvangi slysa, veikinda og áfalla. Dagskrá dagsins er fjölbreytt.
Meira
Eftir Sigmund Sigurgeirsson „ÉG er alsæll með þessa niðurstöðu og þykir vænt um að nefndin skyldi verða einróma,“ segir séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur á Selfossi.
Meira
Dubai. AFP. | Arabískur sendiherra í Dubai hætti við að giftast heitmey sinni eftir að hann komst að því þegar hún tók af sér andlitsblæjuna að hún var skeggjuð og rangeygð.
Meira
Eiður Smári Guðjohnsen lék í gærkvöldi sinn fyrsta leik með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu frá því hann gekk í raðir félagsins frá Mónakó í síðasta mánuði.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is HJÁ endurvinnslufyrirtæki á Gufunesi er nú verið að farga um 20 gámum af sígarettum. Kassar með tóbakinu eru tættir niður undir ströngu eftirliti tollvarða og úrgangurinn er síðan urðaður.
Meira
FÉLAG heyrnarlausra fagnar í dag 50 ára afmæli sínu. Í tilefni afmælisins verður boðið til afmælisfagnaðar í Víkingasal Hótels Loftleiða kl. 16-17 en þar munu heiðursgestir m.a.
Meira
Lítil breyting hefur orðið á hlutfalli fyrirtækja með konur í stjórnum. Einungis 15% fyrirtækja eru með bæði kyn í stjórnum, en um 75% stjórna eru eingöngu skipuð körlum.
Meira
HALLDÓR Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, hefur verið ráðinn hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Hann tekur við nýju starfi 1. apríl næstkomandi. „Ég er búinn að vera hér í sjö ár.
Meira
Hátíðin Kærleikar verður haldin á Austurvelli á morgun kl. 18 en hugmyndasmiður og skipuleggjandi Kærleika er Bergljót Arnalds . Hátíðin er nú haldin í annað sinn og er henni ætlað að skapa samkennd, veita hvatningu og styrk.
Meira
Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent í gær. Guðmundur Óskarsson hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Bankster og Helgi Björnsson í flokki fræðirita og bóka almenns efnis fyrir bókina Jöklar á Íslandi .
Meira
Jóhannesarborg. AFP. | Forseti Suður-Afríku, fjölkvænismaðurinn Jacob Zuma, á nú undir högg að sækja vegna barns sem hann eignaðist utan hjónabands.
Meira
Sá hluti Búðarhálsvirkjunar sem ákveðið hefur verið að bjóða út er sá hluti verksins sem unninn hefði verið í sumar hefði verkið verið boðið út í heilu lagi. Gert til að tryggja að verkið sé ekki háð árstíðabundnum hindrunum.
Meira
„HILSA Alexöndru er sæmileg eins og er. Þetta hefur eiginlega gengið eins vel og hægt var að vona,“ segir Ólafur Páll Birgisson, faðir hinnar ellefu ára Alexöndru Lífar, sem í ágúst sl. gekkst undir mergskiptaaðgerð vegna MDS-krabbameins.
Meira
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt ályktun þar sem niðurskurði á framlögum til Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki er harðlega mótmælt. Niðurskurður sé langt umfram flestar aðrar heilbrigðisstofnanir í landinu.
Meira
„VERIÐ er að skoða möguleikana á því í samvinnu við skilanefnd, þar sem þetta er hennar málefni, hvort það séu einhverjar leiðir færar til að koma þessu betur fyrir,“ segir Indriði H.
Meira
Fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson frumsýnir nýja heimildarmynd á vef sínum, thorsteinnj.is, hinn 25. febrúar næstkomandi. Myndina gerði hann í samstarfi við Veru Sölvadóttur og kallast hún Burkina Faso 8.600 km .
Meira
Í DAG, fimmtudag, kl. 18-20 verður haldið opið skólaþing í Sjálandsskóla í Garðabæ þar sem öllum Garðbæingum gefst tækifæri til þess að hafa áhrif á skólastefnu bæjarins.
Meira
DEYFINGIN virkaði ekki þegar Hannafia Spånberg gekkst nýlega undir keisaraskurð á háskólasjúkrasjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð. Hún lýsir því þegar skorið var í gegnum hvert lagið á fætur öðru til að ná barninu.
Meira
Í BRUSSELVIÐMIÐUNUM og ályktun Alþingis frá því í byrjun desember 2008 lá fyrir að íslensk stjórnvöld væru tilbúin að ganga til samninga og ná einhvers konar lendingu varðandi Icesave, að því gefnu að tekið yrði tillit til hinna erfiðu og fordæmalausu...
Meira
Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is Konur hafa verið fámennar í forustusveit íslensks atvinnulífs. Einn mælikvarðinn á það er hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja.
Meira
Þrotabú Íslenskrar afþreyingar, áður 365 hf., hefur rift greiðslu skuldar við Íslandsbanka. Glitnir veitti 365 lánið upphaflega í júlí 2008 og var það notað til að greiða hluthöfum 365 fyrir hluti sína þegar félagið var tekið af markaði.
Meira
„VIÐ erum að leita leiða til þess að lækka reikninginn,“ segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, um reikning lögmannsstofunnar Mishcon de Reya. Segist hann hafa átt í viðræðum m.a.
Meira
ÞÆR teljast víst seint góðar aðstæðurnar sem bíða þeirra farþega sem taka strætisvagninn til móts við Shell-bensínstöðina við Vesturlandsveg. Bílar þjóta þar framhjá á miklum hraða og ekkert er skjólið fyrir veðrum og vindum.
Meira
EVA Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins og þingmaður á Evrópuþinginu, segir að Icesave-samningurinn snúist þegar öllu er á botninn hvolft um að gera einkaskuld að opinberri skuld.
Meira
TÓLF hafa fengið bréf frá rannsóknarnefnd Alþingis þar sem þeim er boðið að koma sínum sjónarmiðum á framfæri vegna umfjöllunar um þá í væntanlegri skýrslu nefndarinnar. Þetta kemur fram á heimasíðu nefndarinnar.
Meira
HÓPUR mótmælenda truflaði uppboð hjá sýslumanninum í Hafnarfirði í gær. Lögregla var kölluð á staðinn, en uppboðið fór fram þrátt fyrir þessa truflun.
Meira
KR vann Grindavík 68:44 í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og tryggði sér þar með deildarmeistaratitilinn og heimaleikjarétt í úrslitakeppninni.
Meira
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is FJÁRMÁLARÁÐHERRA Portúgals, Fernando Teixeira dos Santos, segir að Portúgalar ætli ekki að segja sig úr Efnahags- og myntbandalagi Evrópu, EMU, vegna efnahagsvanda landsins.
Meira
OPINN félagsfundur Vinstri grænna í Hafnarfirði hefur samþykkt nýjan lista fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi leiðir listann áfram og Jón Páll Hallgrímsson varabæjarfulltrúi er í öðru sæti.
Meira
Á sama tíma og stjórnarandstaðan situr fundi með Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra, fulltrúa Samfylkingarinnar og erlendum ráðgjöfum situr aðstoðarmaður fjármálaráðherra við tölvu sína og skrifar langa blaðagrein.
Meira
Hvernig stendur á því að þeir sem tala fyrir ESB-aðild hér á landi gera það jafnan á annan hátt en Brussel-mennirnir sjálfir? ESB-innfæddir segja þannig jafnan að þeir sem ganga í þann félagsskap lagi sig að félagsskapnum en ekki öfugt.
Meira
Evrópusambandið hefur í fyrsta sinn ákveðið að skipta sér af frjálsum kjarasamningum í einstökum aðildarríkjum þess. Og það eru engin vettlingatök. Ríkið sem í hlut á, Grikkland, fær bein fyrirmæli um að ógilda kjarasamninga og lækka laun.
Meira
ÉG missi aldrei af veðurfréttum í sjónvarpi enda kominn af bændum og búaliði sem áttu allt sitt undir veðri. Þar að auki bý ég í landsfrægu veðravíti. Sá hængur er samt á að upplýsingarnar sem þar koma fram fara iðulega fyrir ofan garð og neðan.
Meira
SPOON er ein af þessum sveitum sem gefa reglubundið út stórgóðar plötur sem fara svo beinustu leið undir radarinn. Sem er mikil synd því að hér er á ferðinni ein hugmyndaríkasta rokksveit samtímans.
Meira
*Hin svofelldu pöbbakviss njóta mikilla vinsælda og nú hefur hinsegin barinn Barbara hoppað um borð í þá lest með spurningakeppni sem kallast „Queer Quiz“ nema hvað.
Meira
*Hollenska svartmálmshljómsveitin Urfaust er á leiðinni til landsins og mun hún spila á tvennum tónleikum í Reykjavík í mars. Er þetta í fyrsta skipti sem erlend sveit af slíkum toga heimsækir landið.
Meira
FRANSKI rithöfundurinn Alexandre Dumas eldri er þekktastur fyrir bækur sínar um skytturnar þrjár og greifann af Monte Christo, en nú velta menn því fyrir sér í heimalandi hans hve mikið af umræddum bókum hann hafi skrifað á annað borð.
Meira
Frétt sem birtist í blaðinu Degi á Akureyri árið 1977 undir fyrirsögninni „Negri í Þistilfirði“ vakti að vonum þjóðarathygli. Þegar ísbjörninn var skotinn í Þistilfirði á dögunum var þessi gamla frétt dregin fram í nokkrum vefmiðlum...
Meira
GÆÐASVEITIN Tindersticks sneri aftur í hittiðfyrra með plötunni The Hungry Saw , ágætisplata sem á þó lítið í fyrri afrek sveitarinnar sem unnin voru í upphafi ferils.
Meira
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is TÓNLISTARHÁTÍÐIN Icelandic Music Days hefst í Amsterdam, höfuðborg Hollands, í kvöld og verður fram haldið næstu daga.
Meira
Eftir Hólmfríði Gísladóttur holmfridur@mbl.is Rithöfundarnir Helgi Björnsson og Guðmundur Óskarsson sem hlutu í gær Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Meira
Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ný heimildarmynd Þorsteins J. og Veru Sölvadóttur, Burkina Faso 8.600 km , verður frumsýnd 25. febrúar nk, á vefsíðu Þorsteins, thorsteinnj.is.
Meira
*Velgengni Bjarnfreðarsonar á kostnað Avatar hefur vakið heimsathygli og nýjasti miðillinn til að stíga fram í því tilliti er hinn háttvirti Guardian. Fyrirsögnin er „Alvörumúrbrjótur...
Meira
*...eða svo segir á heimasíðu sveitarinnar í nýjasta fréttamolanum. Sveitin hefur verið upptekin í hljóðveri að undanförnu og platan verður klár á næstu vikum samkvæmt fréttinni.
Meira
LJÓSMYNDARINN og myndlistarmaðurinn Oddvar Örn Hjartarson opnar á morgun kl. 19 sýninguna IKAE & Da Boyz í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Oddvar er einkum þekktur fyrir sviðsettar ljósmyndir sínar og er myndheimi hans lýst sem litríkum og gáskafullum.
Meira
TILKYNNT var í gær að finnska tónskáldið Kaija Saariaho muni hljóta dönsku Léonie Sonning tónlistarverðlaunin að þessu sinni. Verðlaunaféð nemur tæplega 14 milljónum króna.
Meira
ÍSLENSK alþýðulög um ástir og tilhugalíf verða sungin og kveðin í kaffihúsi Gerðubergs frá kl. 14:00-16:00 næstkomandi sunnudag, Valentínusar-daginn.
Meira
ÞAÐ þarf ekki að koma á óvart að plata með lögum úr Söngvakeppni Sjónvarpsins toppi Tónlistann enda fóru úrslitin fram um síðustu helgi. Þetta er eina nýja platan á listanum, aðrar plötur þokast aðeins neðar eða koma aftur inn á lista.
Meira
SENN líður að því að mynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart , verði sýnd hér á landi en 4. mars er dagsetningin sem sett hefur verið. Myndin keppti um síðustu helgi um Norrænu kvikmyndaverðlaunin ásamt sjö öðrum myndum.
Meira
Í DAG: Kl. 21 Tríó Reynis Sigurðssonar leikur tónlist úr ýmsum áttum á Kaffi Kúltúra. Reynir leikur á víbrafón, Gunnar Hrafnsson á bassa og Jón Páll Bjarnason á gítar. Kl.
Meira
UNGMENNI úr Réttarholtskóla, Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla standa að sýningu á því sem þau kalla þéttbýlislist og eru þá að snara úr ensku heiti hugtaksins „Urban culture“.
Meira
ÁSTRALSKA leikkonan Emily Browning mun fara með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Sleeping Beauty , eða Þyrnirós , sem er á teikniborðinu. Þyrnirós þessi mun þó ekki vera sú sama og í ævintýrinu góðkunna og langt því frá.
Meira
SVANDÍS Svavarsdóttir lét orð falla í þá veru, í framhaldi af ákvörðun sinni um að spilla fyrir virkjunum í neðri Þjórsá, að núverandi kynslóð Íslendinga hefði ekki leyfi til að ganga á rétt síðari kynslóða til virkjanakosta þjóðarinnar.
Meira
Eftir Gunnar I. Birgisson: "EFNAHAGSÁSTAND á Íslandi er í mikilli lægð um þessar mundir, en ef rétt er á málum haldið mun efnahagslífið rísa úr öskustónni á næstu árum."
Meira
Eftir Brynjar Níelsson: "Sálfræðingar vita sjaldnast með vissu hvort áfallastreituröskunin er afleiðing þess atviks sem kært er út af eða tilkomin af öðrum ástæðum, a.m.k. er það sjaldnast að sjá í matsgerðum þeirra."
Meira
Eftir Ólínu Þorvarðardóttur: "Deloitte-skýrslan gefur ekki á nokkurn hátt mynd af áhrifum svonefndrar fyrningarleiðar á íslenskan sjávarútveg. Hún er einfaldlega áróðursrit."
Meira
Eftir Karen Elísabetu Halldórsdóttur: "ÞAÐ HEFUR verið eftirsótt að eiga heima í Kópavogi. Núna eru fjárhagslega erfiðir tímar. Það verður skylda allra bæjarfulltrúa að leita leiða til að viðhalda tekjustofnum um leið og þarf að draga útgjöld saman."
Meira
Eftir Evu Joly: "Prófessor Þórólfur Matthíasson hefur um langt skeið stutt kröfur Breta og Hollendinga. Í grein hans er ýmsu sleppt og rangt farið með staðreyndir."
Meira
Eftir Tryggva P. Friðriksson: "Allar umbætur í efnahagslífinu stranda á því að Íslendingar eru ekki nægilega auðmjúkir í garð Breta og Hollendinga."
Meira
Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð hafa komist að samkomulagi um þá stefnu að jafna hlut kynjanna í stjórnum fyrirtækja fyrir árið 2013, þannig að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%.
Meira
Eftir Jón Gunnarsson: "Alvarlegasta meinsemdin í íslensku samfélagi í dag er slæm staða atvinnuveganna og það mikla atvinnuleysi sem af henni skapast."
Meira
Góð þjónusta ÞANNIG er mál með vexti að skuldabréfin mín voru komin í mikil vanskil hjá Frjálsa fjárfestingabankanum og þau átti að senda í lögfræðing, ég hringdi í bankann og ég fékk að geyma afborgun í mánuð til viðbótar. Þessi banki fær tíu hjá mér.
Meira
Benedikt Egilsson fæddist á Lýtingsstöðum, Lýtingsstaðahreppi, 12. febrúar 1922. Hann lést á heimili sínu, Brekkubyggð 51, Garðabæ, hinn 17. janúar 2010. Útför Benedikts fór fram frá Reykholtskirkju 30. janúar 2010.
MeiraKaupa minningabók
Birgir Elís Birgisson fæddist í Reykjavík 7. júní 1981. Hann lést 29. janúar 2010. Útför Birgis Elíss fór fram frá Grafarvogskirkju 5. febrúar 2010.
MeiraKaupa minningabók
Birna Björnsdóttir fæddist á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði 22. maí 1922. Hún lést á dvalarheimilinu Hlíð 31. janúar 2010. Foreldrar hennar voru hjónin: Björn Guðmundsson frá Krossavík, f. 2. september 1885, d. 30. janúar 1922, og Elísabet S.
MeiraKaupa minningabók
Elín Svava Sigurðardóttir húsmóðir fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1920 og lést hún á Landsspítala í Fossvogi 31. janúar 2010. Útför Elínar Svövu fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 8. febrúar 2010.
MeiraKaupa minningabók
Erla Stefánsdóttir fæddist 4.4. 1930 á Uppsölum í Ólafsvík, yngst 6 barna þeirra Stefáns Sumarliða Kristjánssonar, f. 24.4 1884, d. 14.11. 1968, og Svanborgar Maríu Jónsdóttur, f. 14.6. 1891, d. 4.10. 1978. Systkini Erlu: Sigríður Hulda, f. 13.3 1912,...
MeiraKaupa minningabók
Guðný Guðbjartsdóttir var fædd í Hafnarfirði 15. október 1923. Hún lést 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðbjartur Ásgeirsson, matsveinn og ljósmyndari, f. 22. des. 1891, d. 18. okt. 1965, og Herdís Guðmundsdóttir ljósmyndari, f. 30.
MeiraKaupa minningabók
Ingigerður Steinþórsdóttir var fædd í Reykjavík þann 11. mars 1922. Hún lést á Droplaugarstöðum 3. febrúar 2010. Foreldrar Ingigerðar voru Steinþór Oddsson frá Miðhúsum í Reykhólasveit og Laugheiður Jónsdóttir úr Reykjavík.
MeiraKaupa minningabók
John Stanley Martin var fæddur 9. júlí 1933 í Melbourne. Hann lést 17. janúar 2010. Foreldrar hans voru John Herbert Martin og Eileen Gladys Martin. Jim, bróðir John, sem er sex árum eldri, býr í Melbourne.
MeiraKaupa minningabók
Dr. Karl-Ulrich Müller fæddist í Lindau í Suður-Þýzkalandi 12. maí 1945. Hann lést í Skagafirði á Íslandi laugardaginn 23. janúar 2010. Eftirlifandi eiginkona hans er Augusta Opfermann-Müller.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Hauksdóttir fæddist á Selfossi 8. maí 1963. Hún lést á dvalarheimilinu Kumbaravogi 2. febrúar 2010. Margrét var dóttir hjónanna Júlíu Guðmundsdóttur, f. 3.7. 1921, og Hauks Þorsteinssonar, f. 14.12. 1921, d. 11.9.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Kristinn Magnússon fæddist á Völlum á Kjalarnesi 6. desember 1911. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 24. janúar 2010. Útför Ólafs var gerð frá Fossvogskirkju 8. febrúar sl.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Haukur Eiríksson fæddist á Sauðárkróki 14. desember 1922. Hann lést í Reykjavík 1. febrúar 2010. Foreldrar hans voru hjónin Eiríkur Kristjánsson, kaupmaður á Akureyri, f. 1893 á Sauðárkróki, d. 1965 og María Þorvarðardóttir, húsfreyja, f.
MeiraKaupa minningabók
Sigurlaug Kristinsdóttir fæddist á Akureyri 5.9. 1930. Hún lést á Landspítala við Hringbraut 2.2. 2010. Foreldrar hennar voru Unnur Guðmundsdóttir, húsmóðir, frá Dæli í Fnjóskadal, f. 8.4. 1896, d. 3.1. 1967.
MeiraKaupa minningabók
Þriðja starfsár hófst í RES Orkuskólanum á Akureyri um síðustu helgi þegar 45 nýnemar frá 10 löndum mættu til leiks og dvelja í eitt ár. Seinna í mánuðinum útskrifast 37 meistaranemar frá RES.
Meira
HÁTÍÐIN „Kærleikar“ verður haldin á morgun, föstudag, og hefst hún kl. 18 á Austurvelli. Hátíðin hefst á því að nokkrir þekktir einstaklingar fjalla um kærleikann og minna á það sem tengir fólk saman.
Meira
Hún hefur sinnt starfi sínu af mikilli fórnfýsi og samviskusemi þau fjórtán ár sem hún hefur unnið hjá Hjálpræðishernum á Íslandi. En nú er komið að heimferð til Noregs.
Meira
Bónus Gildir 11.-14. febrúar verð nú áður mælie. verð Bónus vatnsdeigsbollur, 14 stk. 398 28 kr. stk. Bónus bolluglassúr, 280 g 198 707 kr. kg Bónus rjómi, 400 ml 259 279 648 kr. ltr Kjarna sulta, 400 g 259 279 648 kr. kg E.s.
Meira
Það er alltaf gaman að komast í tæri við góða sögumenn. Umsjónarmanni Vísnahornsins gafst fágætt tækifæri til þess á dögunum er hann innsiglaði vináttu við Herbert Friðrik Stefánsson á Fésbókinni.
Meira
Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 4. febrúar hófst Barometer-keppni félagsins með þátttöku 18 para. Staðan er þessi eftir þetta fyrsta kvöld. Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 299 Halldór Þorvaldss.– Magnús Sverriss. 288 Guðm. Grétarss.
Meira
„ÉG hef verið lélegur í að halda upp á stórafmæli, hef frekar flúið á skíði í Ölpunum, en núna ætla ég að vera heima eins og sannur Íslendingur. Vel má vera að einhverjir líti inn til mín seinni part dagsins.
Meira
Ingigerður Anna Bergvinsdóttir, Ólöf Dagmar Guðmundsdóttir og Natalia Kaja Fjölnisdóttir færðu Rauða krossinum peninga til hjálpar fólkinu á Haítí sem þær söfnuðu með því að ganga í hús á...
Meira
Ásta Katrín Ágústsdóttir, Freyja Aradóttir og Sandra Mjöll Torfadóttir söfnuðu 3.857 kr. með því að teikna myndir og safna dóti sem þær seldu á tombólu. Þær færðu Rauða krossinum peningana til að hjálpa börnunum á...
Meira
Bókin Enn er morgunn eftir Böðvar Guðmundsson er grípandi lesning. Víkverji tók sér hana í hönd um helgina og sleppti ekki fyrr en á síðustu blaðsíðu. Þetta er fjölskyldusaga og sögusviðið er fyrri hluti 20. aldarinnar.
Meira
11. febrúar 1973 Sjöstjarnan fórst milli Færeyja og Íslands og með henni tíu manns, fimm Íslendingar og fimm Færeyingar. 11. febrúar 1973 Kvikmyndin Brekkukotsannáll, eftir skáldsögu Halldórs Laxness, var frumsýnd í Sjónvarpinu.
Meira
MEISTARAR Kiel komust í gærkvöld í toppsæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik þegar liðið sigraði Rhein-Neckar Löwen, 23:22, í spennandi leik sem háður var á heimavelli Rhein-Neckar Löwen.
Meira
KR-konum tókst með stöðugum öflugum varnarleik að brjóta baráttu Grindvíkinga á bak aftur með 68:44-sigri þegar liðin mættust í Frostaskjólinu í gærkvöldi og það gerði útslagið að Signý Hermannsdóttir varði fimm af sjö skotum sínum eftir hlé.
Meira
„Ég er ánægður með samninginn og vonast til að fá að spila meira í Berlín en ég hef fengið í vetur í Flensburg,“ sagði Alexander Petersson, landsliðsmaður í handknattleik og einn úr bronsliði Íslands frá nýafstöðnu Evrópumeistaramóti í...
Meira
Serbneski knattspyrnumaðurinn Nenad Zivanovic , sem lék með Breiðabliki frá 2006 til 2008, hefur samið við Þór á Akureyri um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili. Zivanovic er fjölhæfur sóknar- eða miðjumaður, 33 ára gamall.
Meira
Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason var í banastuði með liði sínu FCK í gærkvöldi þegar liðið vann útisigur á AaB , 30:27, í danska handboltanum. Arnór var markahæstur á vellinum með níu mörk og heldur greinilega uppteknum hætti frá EM í Austurríki .
Meira
Framkonur komust fram hjá síðustu hindruninni á leið sinni í Laugardalshöllina í gærkvöldi þegar þær sigruðu FH 29:20 í Kaplakrika. Fram er því komið í úrslit Eimskipsbikarkeppninnar í handknattleik kvenna í fyrsta skipti síðan 1999.
Meira
BERGLIND Íris Hansdóttir, landsliðsmarkvörður í handknattleik og leikmaður Vals, hefur til skoðunar að leika með norska úrvalsdeildarliðinu Stabæk á næstu leiktíð, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Meira
KNATTSPYRNA England Úrvalsdeild: Arsenal – Liverpool 1:0 Abou Diaby 72. Aston Villa – Manch.United 1:1 Carlos Cuellar 19. – James Collins 23. (sjálfsm.) Rautt spjald: Nani (Man.Utd) 29.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is STEFÁN Jón Sigurgeirsson er aðeins tvítugur að aldri en er hvergi banginn við að reyna sig í brekkunum í Vancouver í Kanada þar sem Vetrarólympíuleikarnir verða settir annað kvöld.
Meira
ÞAÐ er ekki beint hægt að segja að íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu spili í stórborg þegar það sækir Serba heim í undankeppni heimsmeistaramótsins í lok mars.
Meira
Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is „ÉG tel vel mögulegt að ég hafi spilað minn síðasta leik fyrir Bröndby. Ég er ekki inni í myndinni nú frekar en síðustu mánuði og það er nú bara einfaldlega þannig að félagið vill losna við mig.
Meira
SKRÁÐ atvinnuleysi í janúar var 9%, eða að meðaltali 14.705 manns og eykst atvinnuleysi um 6,7% að meðaltali frá desember, eða um 929 manns. Þetta kemur fram í frétt Vinnumálastofnunar. Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 6,6%, eða 10.
Meira
Fram kom í Peningamálum Seðlabanka Íslands sem birt voru í janúar að veruleg óvissa ríkti um stóriðjufjárfestingu á Íslandi. Uppfærð spá bankans tók mið af því og spátölur um fjármunamyndun breyttust úr 4,4% aukningu í 6% samdrátt.
Meira
*Bankar og innlánastofnanir hafa lítinn hvata til þess að auka lánveitingar til einkageirans meðan Seðlabankinn tryggir þeim afar hagstæðan vaxtamun *Munur á innlánsvöxtum á almennum sparisjóðsbókum í bankakerfinu og reikningum bankanna í Seðlabankanum er 720 punktarMeira
Eftir Örn Arnarson ornarnar@mbl.is FRAMKVÆMD laga um nauðungarsölu er verulega ábótavant og gengur gegn markmiðum laganna sem er að uppboðsverð sé sem næst markaðsverðmæti fasteignar.
Meira
ÁLAG á skuldatryggingar ríkissjóðs Íslands hefur minnkað nokkuð síðustu daga. Seinni partinn í gær var álagið 612 stig, samkvæmt vef CMA-lánshæfisupplýsingafyrirtækisins. Álagið var 675 punktar í byrjun síðustu viku.
Meira
MOLTA ehf. í Eyjafirði hefur lokið endurfjármögnun á byggingu jarðgerðarstöðvar, í samvinnu við Íslandsbanka og finnskt fyrirtæki sem selur vélbúnað í stöðina. Sveitarfélögin í Eyjafirði eru meirihlutaeigendur í Moltu.
Meira
NORÐMENN eru sem kunnugt er í fararbroddi þegar kemur að pappír og notkun hans. Nú hefur norskur prófessor við NTNU-vísindaháskólann fundið upp pappír sem hann segir að sé nógu sterkur til að nota sem efnivið í húsasmíði.
Meira
Norðurljós greiddu 5,1 milljarð fyrir stóran hlut í almenningshlutafélaginu Og Vodafone. Stuttu síðar borgaði Og Vodafone 5,8 milljarða fyrir tvö dótturfélög Norðurljósa.
Meira
GAMMA: GBI-skuldabréfavísitalan hækkaði um 0,3% í gær, í 13,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggð bréf hækkuðu í verði um 0,4% í 7,9 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 5,3 milljarða króna...
Meira
Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is Listamaðurinn Jón Gnarr hefur kunngjört framboð sitt til borgarstjórnar Reykjavíkur. Jón segir í samtali við Morgunblaðið að veigamikið sé að efla tengsl stjórnmálanna við viðskiptalífið.
Meira
FORSETI Túrkmenistan, Gurbanguly Berdimuhamedov, hefur skrifað undir tilskipun þar sem upplýsingamálaráðherra landsins, Ovlyaguly Dzhumagulyev, er harðlega áminntur.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is „INNAN við ári eftir að BizSpark fór í loftið eru þátttakendur nú um 80.000 talsins,“ segir James Senior, starfsmaður Microsoft.
Meira
Verðmætasköpun fólgin í kvikmyndagerð hefur verið Útherja talsvert hugleikin á síðastliðnum vikum, enda hafa íslenskir kvikmyndagerðarmenn lýst henni sem einni mestu gjaldeyrisskapandi peningakú íslenska hagkerfisins.
Meira
Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is Þrotabú Íslenskrar afþreyingar hefur rift þeirri ráðstöfun að 305 milljónir skuli fara til greiðslu kröfu Íslandsbanka á hendur 365. Skuldin var greidd þann 17. júlí 2009, en Glitnir veitti upphaflega lánið.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.