Vinnumálastofnun bárust tilkynningar um hópuppsagnir frá tveimur fyrirtækjum í nóvember sem tóku gildi um mánaðamótin þar sem alls er sagt upp 50 manns.
Meira
Tyggigúmmi hefur frá upphafi verið bannað í kennslustofum um allan heim. Nú hefur tyggjóið fengið uppreisn í grunnskóla í Suður-Þýskalandi. Í Volkenscwhand-skólanum í Bæjaralandi verður tyggigúmmi hér eftir leyft.
Meira
Fréttaskýring Egill Ólafsson egol@mbl.is Allgóð sátt virðist vera um að setja ákvæði um auðlindir og nýtingu náttúruauðlinda í stjórnarskrá og einnig að skýra og auka rétt kjósenda til að greiða atkvæði um mál í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Meira
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Þorvarði Davíð Ólafssyni sem játað hefur stórfellda líkamsárás á föður sinn, Ólaf Þórðarson, 14. nóvember sl. Þorvarður verður því í gæsluvarðhaldi til 27. desember nk.
Meira
Bíll valt á Grindavíkurvegi gærkvöldi, en að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum var töluverð hálka á veginum og ástæða til að vara sig. Farþegar í bílnum meiddust óverulega. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eru hálkublettir á vegum víða um land.
Meira
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Útför fór fram í Reykjanesbæ í gær. Það þykir ekki í frásögur færandi, nema fyrir þær sakir að maðurinn lést fyrir 1100 árum og útförin fór fram í safninu Víkingaheimum í Reykjanesbæ.
Meira
Áskriftarverð Morgunblaðsins hækkaði 1. desember og kostar nú mánaðaráskrift 3.990 kr. Helgaráskrift að Morgunblaðinu kostar nú 2.500. Lausasala virka daga helst óbreytt 350 kr. Lausasala um helgar helst óbreytt 590 kr. Netáskrift kostar 2318...
Meira
Fréttaskýring Guðni Einarsson gudni@mbl.is Desemberuppbótin er árviss glaðningur sem flestum launþegum berst í jólamánuðinum. Atvinnuleitendur sem eru tryggðir í atvinnuleysistryggingakerfinu fá einnig desemberuppbót.
Meira
Loka þurfti nokkrum af fjölförnustu flugvöllum Evrópu vegna fannfergis og á vegum myndaðist víða ringulreið vegna snjóþyngsla og hálku. Í Bretlandi hefur ekki snjóað svo mikið svona snemma vetrar síðan 1993 og þurfti að loka tveimur stórum flugvöllum.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson Sigurður Sigmundsson „Hérna er búinn að vera þvílíkur fjöldi fólks og mikil hátíð,“ sagði Ragnhildur Þórarinsdóttir, ein átta Tungnakvenna sem buðu upp á kaffi og kleinur í gær í tilefni opnunar nýrrar brúar yfir Hvítá.
Meira
Ekið var á gangandi vegfaranda við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar á áttunda tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu barst maðurinn sem ekið var á með bílnum yfir gatnamótin.
Meira
Ríkisstjórnin sækir heldur á samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups og mælist nú með 36% prósenta fylgi í stað 30% í síðustu könnun. Aðeins 16% eru ánægð með stjórnarandstöðuna og 60% eru óánægð.
Meira
Úthlutað var úr Þjóðhátíðarsjóði í gær en alls bárust 273 umsóknir um styrki að fjárhæð samtals um 418 milljónir króna. Úthlutað var að þessu sinni 59 styrkjum að fjárhæð samtals kr. 35 millj. kr.
Meira
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Hátíð var í Háskólanum á Akureyri í gær eins og venja er á Fullveldisdaginn. Því var og fagnað að tíu ár eru síðan útilistaverkið Íslandsklukkan eftir Kristin E. Hrafnsson var vígt á skólalóðinni.
Meira
Jólakortasala Lionsklúbbsins Kaldár í Hafnarfirði er hafin. Ingibjörg Eldon Logadóttir listakona hannaði kortið í ár. Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála. Kortin verða seld 7 í pakka, ýmist með eða án texta og kostar 1.000 krónur pakkinn.
Meira
Lalli töframaður gefur út aðra kennslumynd sína í töfrabrögðum og kemur hún út í þessari viku. Fyrri mynd hans, Á bak við tjöldin, kom út fyrir síðustu jól og hlaut mikið lof.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Þessi samskipti lækna og lyfjafyrirtækja eru mjög viðkvæm og læknar þurfa stöðugt að vera á varðbergi vegna hugsanlegra hagsmunaárekstra,“ segir Geir Gunnlaugsson, landlæknir.
Meira
Sölu- og markaðsstemming verður í Tryggvagarði í Árborg fram að jólum. Verður hægt að skoða og kaupa íslenskt handverk sem og að fá sér heitt kakó og með því. Garðurinn verður opinn fram að jólum alla fimmtudaga frá 18-21 og um helgar frá 13-18.
Meira
Fréttaskýring Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Árið 2009 var heildarvelta skapandi greina 191 milljarður, sem voru rúm 6% af heildarveltu þjóðarbúsins það árið. Það er mun meiri velta en í landbúnaði og fiskveiðum samanlagt.
Meira
Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Fólkið býr þarna ennþá við ömurlegar aðstæður, þeir heppnu eru í tjöldum,“ segir Þórir Guðmundsson hjá alþjóðasviði Rauða kross Íslands.
Meira
Lífeyrissjóðirnir eru að skoða að afskrifa húsnæðislán til sjóðfélaga umfram 100-110% af núvirði fasteigna. Horft er til greiðslugetu viðkomandi og er skilyrði afskriftanna að eiginfé sé neikvætt. Hrafn Magnússon, frkvstj.
Meira
Sendiráðsgögnin, sem samtökin Wikileaks komu í hendur valinna fjölmiðla, sýna djúpan ágreining milli Bandaríkjanna og Pakistans vegna öryggis kjarnorkuvopna.
Meira
Rangt var farið með tölur í blaðinu í gær í frétt um útreikninga Sjálfstæðismanna á auknum kostnaði dæmigerðrar barnafjölskyldu vegna hækkana hjá Reykjavíkurborg. Alls vantaði hækkanir upp á kr. 19.
Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi í gær húsleit á níu stöðum, sjö á Akureyri og nágrenni og tveimur á höfuðborgarsvæðinu, í þágu rannsóknar á stórfelldu ólöglegu niðurhali, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.
Meira
„Ef jafnvægi í heiminum byggist á blekkingum og lygum gæti þurft að hrista upp í því,“ sagði Kristinn Hrafnsson blaðamaður og einn talsmanna WikiLeaks, í samtali við Reuters-fréttastofuna í gær.
Meira
Meirihlutanum í borgarstjórn og sjálfstæðismönnum ber ekki saman um það hversu mikil áhrif fyrirhugaðra hækkana álagningar í Reykjavík verði á hag fjölskyldna í borginni.
Meira
Skemmtanahald er að venju takmarkað um jólin, eins og lögreglan minnti á með tilkynningu sem hún sendi frá sér í gær. Þar kemur fram að allt skemmtanahald á aðfangadag er bannað frá kl. 18.00.
Meira
Sögulegur gripur var afhentur við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær þegar afkomendur Ragnars Ásgeirssonar afhentu skrifpúlt Sveinbjarnar Egilssonar skálds og eins helsta áhrifamanns um endurreisn íslenskrar tungu.
Meira
Þrír íslenskir rithöfundar, þau Álfrún Gunnlaugsdóttir, Matthías Johannessen og Thor Vilhjálmsson, voru á fullveldisdaginn í gær sæmdir heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands.
Meira
Sveitamarkaður Hlöðunnar í Vogum á Vatnsleysuströnd verður laugardaginn 4. desember frá kl. 12-17. Á boðstólum er ýmislegt matarkyns og einnig fatnaður og margskonar handverk. Markaðurinn er haldinn í hlöðu við bæinn Minni-Voga, Egilsgötu...
Meira
The Game, einn vinsælasti rappari heims í dag, verður með tónleika á Broadway 18. desember næstkomandi. Miðasala er hafin í Mohawks, Kringlunni, og næsta víst að færri munu komast að en...
Meira
Tillögu Reykjaneshafnar um samkomulag við kröfuhafa um endurskipulagningu skulda hefur verið hafnað öðru sinni. Lánasjóður sveitarfélaga hafnaði tillögu frá 3. nóvember, og því var lögð fram tillaga sem tók tillit til þess.
Meira
Það er óhætt að lofa magnaðri upplifun á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í kvöld. Einn eftirtektarverðasti hljómsveitarstjóri nútímans, Vasily Petrenko, fer höndum um hina stórbrotnu 5. sinfóníu Mahlers.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við höfum alltaf litið svo á að aðalatriðið í þessari stöðu væri að við mættum ekki gefa eftir kröfur sem væru innheimtanlegar. Það er aðalatriðið í stöðunni.
Meira
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Árið hefur gengið mjög vel en aðalþunginn í útgáfunni er náttúrlega á haustin, þá koma flestar nýju bækurnar út.
Meira
Leikstjóri: Paul Haggis Handrit: Paul Haggis og Fred Cavayé Leikarar: Russell Crowe, Elizabeth Banks og Liam Neeson. Bandaríkin, 2010, 122 mínútur.
Meira
Umsjónarmaður með vali á leikurum í kvikmyndina The Hobbit hefur verið rekinn. Ástæðan er sögð sú að hann hafði sett auglýsingu í dagblað á Nýja-Sjálandi þar sem óskað var eftir aukaleikurum í myndina sem ljósir væru á hörund.
Meira
Í októberhefti hins alþjóðlega listtímarits Art in America er ítarleg umfjöllun um Listahátíð í Reykjavík í sumar sem leið. Er umfjöllun á fimm blaðsíðum tímaritsins, undir yfirskriftinni „Reykjavíkurskýrsla: Undir eldfjallinu.
Meira
Leikarinn Johnny Depp hefur sagt frá því að forstjóri Disney-samsteypunnar hafi ekki þolað hvernig hann túlkaði Jack Sparrow í sínum frægu sjóræningjamyndum.
Meira
Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar hélt í fyrrakvöld herrafatasýningu í Þjóðleikhúskjallaranum, sýndi fatnað úr versluninni sem og nýja fatalínu verslunarinnar sem nefnist Kormákur & Skjöldur og er framleidd bæði á saumastofu verslunarinnar og hjá...
Meira
Andvari, rit Hins íslenska þjóðvinafélags, er kominn út. Þetta er 135. árgangur, fimmtugasti og annar í nýjum flokki. Aðalgreinin í ár er æviágrip Björns Ólafssonar, ráðherra, stórkaupmanns og iðnrekanda, eftir Hannes Hólmstein Gissurarson.
Meira
Frostrósa-hópurinn lagði af stað í mikla tónleikaferð um landið í gær en framundan eru hvorki meira né minna en 29 tónleikar víða um land. Hópurinn stillti sér upp fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins í gær og veifaði í kveðjuskyni.
Meira
Það hlýtur að vera dálítið snúið að vera Josh Groban. Holtaþokuvælandi blöðruselur en um leið listamaður sem þráir að láta taka sig alvarlega. Eins og berlega kemur í ljós á þessari nýjustu plötu hans, sem er unnin með sjálfum töfralækninum, Rick Rubin.
Meira
Óskarsverðlaunaleikarinn Tom Hanks mun vinna með kvikmyndaleikstjóranum Kathryn Bigelow, sem hlaut Óskarsverðlaunin sem besti leikstjórinn í ár, að kvikmyndinni Triple Frontier .
Meira
Í dag byrjaði hin þekkta útvarpskona Margrét Maack jóladagatalið sitt á netinu sem hún kallar Jólamokk. Á hverjum degi mun hún vera með „mokk“ á vídeóinu sínu þar sem hún jólagrínast. Fyrsta „mokkið“ birtist í gær.
Meira
Bandaríska tímaritið People segir frá því að leikarinn Jake Gyllenhaal og söngkonan Taylor Swift hafi verið iðin við að sækja kaffihús saman um nokkurra vikna skeið.
Meira
Árni Bjarnason Bartels opnar sýningu á málverkum sínum í Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu 30 í dag klukkan 17. Árni er hefur vakið athygli fyrir kraftmikil abstraktverk; nú sýnir hann 11 ný verk.
Meira
Laugardaginn næstkomandi, 4. desember, verður myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson með óformlega leiðsögn um sýningu sína FAUNALITIR sem stendur yfir í Gallerí Ágúst. Hin óformlega leiðsögn mun standa yfir milli kl.
Meira
* Mörg einkennileg uppátæki má finna á samskiptavefnum Facebook. Í gær var blásið til Hug a swimmer day, eða Faðmaðu sundmann-dagsins. Gera má ráð fyrir því að margir sundmenn hafi verið faðmaðir í gær og það jafnvel ofan í laugum víða um heim.
Meira
Á sunnudaginn kemur lýkur sýningunni TÓMT í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Ransu en á þessari sýningu vinnur hann áfram með hugmynd sem hann hefur hugað að á liðnum árum, „að ramma inn tómt“.
Meira
Rosalega var Bretinn að bíða mikið eftir þessari plötu, sem seldist von úr viti er hún kom út. Take That á meðal-Bretann með húð og hári, líkt og Oasis, og úr því að Robbie Williams er kominn aftur í hópinn liggur gervöll þjóðin kylliflöt.
Meira
* Hljómsveitin heldur sannkallaða stórtónleika þar sem fram koma m.a. Kristófer Jensson , Scott Mclemore, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Börkur Hrafn Birgisson, Daði Birgisson, Andrés Þór Gunnlaugsson, Ari Bragi, Matti Kallio, Markús Leifsson...og...
Meira
Suðurnesjaútgáfan Geimsteinn, elsta hljómplötuútgáfa ársins, mun fagna farsælu útgáfuári með tveimur útgáfuhófum. Hið fyrra fer fram á Ránni, Keflavík, í kvöld en hið síðara á NASA nú á laugardaginn.
Meira
* Jólamyndin Niko og leiðin til stjarnanna er sýnd um þessar mundir í kvikmyndahúsum. Myndin kom út í Finnlandi árið 2008 og hefur síðan þá hlotið ófá verðlaun.
Meira
Tilkynnt var í gær að verk rithöfundanna og ljóðskáldanna Gyrðis Elíassonar og Ísaks Harðarsonar væru tilnefnd fyrir Íslands hönd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Meira
Eftir Hjörleif Hallgríms: "Það er auðvelt að gera Leikfélag Akureyrar að áhugamannaleikhúsi aftur, eða eins og mikið tíðkast annars staðar á Norðurlöndum, að gera LA að hálfatvinnumannaleikhúsi."
Meira
Bið Sumir bíða daglega eftir því að klukkan hringi og þeir sömu bíða væntanlega eftir því að kirkjuklukkur hringi inn jólin en á Hlemmi bíður fólk yfirleitt bara eftir næsta...
Meira
Eftir Ársæl Þórðarson: "Allar tilraunir til að kveikja líf af „stórahvelli“ hafa orðið vísindunum til háðungar og sá óskaplegi kostnaður sem varið er til þeirra tilrauna m.a. úr trúboðssjóði ESB er óráðsía."
Meira
Eftir Aðalstein Á. Baldursson: "Ef stjórnvöld ætla að halda sig við niðurskurðartillögurnar verða þau að stórauka niðurgreiðslur vegna ferðakostnaðar sjúklinga svo ekki fari illa..."
Meira
Eftir Þorkel Á. Jóhannsson: "Hefði ekki verið nær að bera möguleika okkar í þessum efnum saman við þau ríki, sem eins og við, voru áður í EFTA/EES en hafa síðan innlimast í ESB?"
Meira
Ríkisstjórn Íslands hefur á stuttum valdatíma sínum – sem virðist þó svo ógnarlangur – skipað 252 nefndir. Þannig fær hópur fólks atvinnu við að dunda sér í nefndum og ráðum við að skoða og spekúlera.
Meira
Eftir Gunnar Kristin Þórðarson: "Á meðan femínískar hreyfingar og konur innan stjórnkerfisins berjast á móti foreldrajafnrétti, hljóta feður að sniðganga konur í kosningum."
Meira
Eftir Loft Altice Þorsteinsson: "Verðbólga hefur þá sérstöðu að vera mikilvirkasta tæki hinna fáu ríku til að verða ríkari og hinna mörgu fátæku til að verða fátækari."
Meira
Eftir Hjálmtý V. Heiðdal: "Það var ekki fyrr en að við fórum að vinna að heimildarmyndinni að það komst á samband á milli Akureyrar og Coventry."
Meira
Úrskurður Hæstaréttar Ég geri ráð fyrir að margir hafi beðið eftir úrskurði Hæstaréttar um niðurstöðu kæru vegna peningabréfa, sem allmargir voru sviknir um þ.e.a.s. fengu borgaða 2/3 af inneignum sínum.
Meira
Frá Guðjóni Jónssyni: "Markaðssetning er grunnur að rekstri fyrirtækis, sem þarf að byggjast á heiðarleika. Þar eiga hlut að máli seljandi og kaupandi vöru og þjónustu."
Meira
Anna S. Karlsdóttir fæddist á Siglufirði 11. desember 1936. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 14. nóvember 2010. Anna var dóttir hjónanna Karls Vilhelms Stefánssonar, f. 10. apríl 1910, d. 26. mars 1955, og Heidvigar Huldu Andersen, f. 9.
MeiraKaupa minningabók
Edel fæddist í Slagelse í Danmörku 13. júní 1907. Hún lést í Skælskør í Danmörku 18. nóvember 2010. Útför Edelar fór fram frá Skælskør kirke í Danmörku 27. nóvember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Eyjólfur Karlsson fæddist á Akureyri 3. nóvember 1952. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 14. nóvember 2010. Útför Eyjólfs fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 25. nóvember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Guðjón Guðmundsson fæddist að Bæ á Selströnd 18. mars 1916. Hann lést á Hrafnistu 21. nóvember 2010. Foreldrar hans voru Ragnheiður Halldórsdóttir, f. 2. feb. 1876, d. 4. des. 1962, og Guðmundur Guðmundsson, f. 27. júlí 1872, d. 5. ág. 1942.
MeiraKaupa minningabók
Hallfríður Guðmundsdóttir (Día) fæddist í Reykjavík 3. mars 1925. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 22. nóvember 2010. Hallfríður var jarðsungin frá Grafarvogskirkju 26. nóvember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Jón E. Aspar fæddist á Akureyri 24. janúar 1925. Hann lést 18. nóvember 2010. Útför Jóns fór fram frá Akureyrarkirkju 26. nóvember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Jónína Guðrún Andrésdóttir fæddist í Hafnarfirði 27. nóvember 1932. Hún lést 10. nóvember 2010. Útför Jónínu Guðrúnar fór fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði 18. nóvember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Margrét J. Hallsdóttir fæddist í Reykjavík 16. júlí 1935. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 23. nóvember 2010. Foreldrar hennar voru Hallfríður Hansína Guðmundsdóttir, f. 10. apríl 1917, d. 18. september 1993, og Hallur Guðmundur Jónsson, f.
MeiraKaupa minningabók
Ragnar Guðmundsson fæddist á Leiðólfsstöðum í Laxárdal, Dalasýslu, 18. ágúst 1929. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 23. nóvember 2010. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Guðbrandsson, bóndi og silfursmiður á Leiðólfsstöðum, f.
MeiraKaupa minningabók
Víglundur Guðmundsson fæddist á Grímsstöðum í Landeyjum 16. febrúar 1922. Hann lést á heimili sínu 18. nóvember 2010. Útför Víglundar fór fram í Keflavíkurkirkju 26. nóvember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Þórður Eiríksson fæddist í Reykjavík 16. október 1940. Hann lést á Landspítalanum 9. nóvember sl. Foreldrar hans voru Margrét Ólafsdóttir Hjartar, húsmóðir, f. 2. júlí 1918 á Þingeyri, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Önd í appelsínusósu eða Canard à l'Orange er einhver besta og þekktasta uppskrift franska eldhússins. Það er hægt að fara margar leiðir, mismunandi flóknar, þegar appelsínuöndin er annars vegar. Hér er ein gömul og klassísk uppskrift.
Meira
Bökunarilm leggur úr nánast hverju húsi um þessar mundir. Rætt er um fátt annað manna á milli en smákökubakstur og smakk gefið. Þótt uppskriftirnar hennar mömmu séu alltaf vinsælar er ekkert að því að prófa að baka nýjar tegundir.
Meira
Bónus Gildir 2.-5. desember verð nú áður mælie. verð Búrfells hamborgarhryggur 898 998 898 kr. kg Kf léttreyktur lambahryggur 1.498 1.798 1.498 kr. kg SS úrbeinað hangilæri 2.159 2.398 2.159 kr. kg Nv ferskt nautahakk 898 998 898 kr. kg Nv nautaborg.
Meira
Krakkarnir eru alsælir á heimavistinni og með námið, enda fá einstaklingarnir að njóta sín og þroskast í Handverks- og hússtjórnarskólanum á Hallormsstað. Skólinn hefur starfað í 80 ár, lengst allra skóla af þessari gerð hér á landi.
Meira
Pétur Stefánsson hafði hægt um sig á Leirnum, póstlista hagyrðinga, um nokkurt skeið. En gaf út kröftuga yfirlýsingu er hann mætti aftur til leiks: Lífið mitt svo indælt er, eintóm gleðivíma. Fyrir viku fékk ég mér; flatskjá, græjur, síma.
Meira
Gullsmárinn Önnur umferðin í Minningarmótinu um Guðmund Pálsson var spiluð í Gullsmára mánudaginn 29. nóvember. Spilað var á 15 borðum. Úrslit í N/S: Dóra Friðleifsd. - Jón Stefánsson 332 Ernst Backman - Hermann Guðmss. 312 Kristin Óskarsd.
Meira
Bjarni Stefánsson, sýslumaður á Blönduósi, fagnar sextíu ára afmæli í dag, fimmtudag. Bjarni hefur verið sýslumaður á Blönduósi frá 2002, en var þar áður sýslumaður á Hólmavík og Neskaupstað.
Meira
Það er undarlegt að þurfa að fara til Íslands til að komast í hlýrra loftslag,“ sagði sænskur gestur Víkverja þar sem þeir stóðu úti í úðanum í Reykjavík í gærmorgun.
Meira
2. desember 1929 Minnsti loftþrýstingur hér á landi, 920 millibör, mældist á Stórhöfða í Vestmannaeyjum þegar óveður gekk yfir landið. Alþýðublaðið sagði að „afspyrnu-austanrok“ hefði verið í Eyjum. 2.
Meira
Arna Sif Pálsdóttir er 22 ára gömul og er ein sextán handboltakvenna sem skipa íslenska landsliðið í handknattleik þegar það tekur í fyrsta sinn þátt í lokakeppni Evrópumeistaramótsins. Arna Sif er línumaður og einnig afar sterkur varnarmaður.
Meira
Viðtal Kristján Jónsson kris@mbl.is Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, er kominn til Katalóníu þar sem hans bíður lokastigið á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Birgir Leifur var ekki í vandræðum með að komast í gegnum 2.
Meira
Það er óhætt að segja að Eiður Smári Guðjohnsen sé úti í kuldanum hjá enska úrvalsdeildarliðinu Stoke en hann hefur ekkert komið við sögu í deildinni síðan hann lék síðustu 12 mínúturnar á móti Manchester United 24. október.
Meira
England Deildabikarinn, 8-liða úrslit: Birmingham – Aston Villa 2:1 Sebastian Larsson 12. (víti), Nikola Zigic 84. – Gabriel Agbonlahor 30. Ipswich – WBA 1:0 G. Leadbitter 69. (víti).
Meira
Alfreð Gíslason, þjálfari Evrópu- og Þýskalandsmeistara Kiel, hefur fengið til liðs við sig sænska línumanninn Robert Arrhenius. Hann á að leysa landa sinn, Marcus Ahlm af hólmi en hann varð fyrir því óláni að handarbrotna á dögunum.
Meira
Roland Eradze , þjálfari fyrstudeildarliðs Stjörnunnar í handknattleik karla, var í gær úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ vegna grófrar, óíþróttamannslegrar framkomu í leik Stjörnunnar og ÍBV í meistaraflokki karla síðasta laugardag.
Meira
Framarar komust í gærkvöldi tveimur stigum frá HK og sitja einir í 2. sæti N1-deildar karla í handknattleik eftir að þeir unnu 10 marka sigur á HK-ingum, 36:26.
Meira
Íslensk ungmenni stóðu sig vel á alþjóðlegu júdómóti sem haldið var í Hilleröd í Danmörku um síðustu helgi. Íslendingar sendu um 20 keppendur til leiks og komu þeir frá fimm félögum, Júdófélagi Reykjavíkur, ÍR, Ármanni, Grindavík og KA.
Meira
Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Það var mikið fjör í Tennishöllinni í Kópavogi á dögunum þegar Tennissamband Íslands hélt mót fyrir 10 ára og yngri, svokallað mini tennismót. Á þriðja tug krakka tók þátt í mótinu og sýndi þar góð tilþrif.
Meira
Rhein-Neckar Löwen hristi af sér slenið í þýska handboltanum í gærkvöldi og sigraði Þýskalandsmeistara Kiel á heimavelli í Mannheim 28:24. Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson kom inn á þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af leiknum.
Meira
Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðjón Valur Sigurðsson snéri aftur á handboltavöllinn í gærkvöldi eftir hnémeiðsli þegar lið hans, Rhein-Neckar Löwen hristi af sér slenið og sigraði Þýskalandsmeistara Kiel á heimavelli í Mannheim 29:26.
Meira
Aðeins einn leikmaður þýska liðsins Hoffenheim hefur skorað fleiri mörk fyrir liðið en Gylfi Þór Sigurðsson á yfirstandandi tímabili í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Meira
Kristján Jónsson kris@mbl.is Júlíus Jónasson hefur látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik. Miklar breytingar urðu hjá Val í sumar og liðið hefur ekki fundið taktinn í N1 deildinni en aðeins einn sigur er kominn í hús á leiktíðinni.
Meira
Logi Gunnarsson átti stórleik í sænska körfuboltanum í gærkvöldi og skoraði 23 stig fyrir Solna í sigri á 08 Stokkhólmi. Solna sigraði 92:76 en leikið var í Stokkhólmi. Solna færðist upp um eitt sæti með þessum sigri og er í 6. sæti deildarinnar.
Meira
Á VELLINUM Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Sennilega felur fátt í sér meira skemmtanagildi og nautn en að gerast hetja síns liðs í mikilvægum og spennandi leik.
Meira
Atvinnukylfingurinn Stefán Már Stefánsson verður kylfusveinn hjá vini sínum Birgi Leifi Hafþórssyni í lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem hefst á laugardaginn.
Meira
Næstum öll fyrirtæki með 10 starfsmenn eða fleiri nota tölvur og net við starfsemi sína og 82% einstaklingsfyrirtækja. Aðeins 38% íslenskra fyrirtækja eru með vefsíðu og þá einkum hin stærri.
Meira
Spurt: Bíllinn er Volvo XC70 af ár gerð 2004 ekinn einungis 65 þús. km. Fyrir skömmu tók bilunarljósið að lýsa í tíma og ótíma án þess að hægt væri að merkja gangtruflun eða bilun í bílnum. Kóðalestur á verkstæði gaf til kynna sogleka.
Meira
Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga hefur ráðið Auði Finnbogadóttur sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Auður er viðskiptafræðingur frá University of Colorado at Boulder í Bandaríkjunum (1992), og MBA frá Háskólanum í Reykjavík (2005).
Meira
Aðdáendur Friends-þáttanna kannast eflaust við brandarann um að maður verði að sofa jafnt á báðum hliðum yfir nóttina til að eyrun standi ekki mislangt út.
Meira
Gríðarleg sala á bílum undanfarna mánuði í Kína gæti komið heildarsölunni yfir átján milljón bíla. Það er 30% aukning frá fyrra ári. Það toppar þó ekki vöxtinn milli áranna 2008 og 2009 sem var 50%.
Meira
Börnum fjölgar áfram í yngsta aldurshópnum í Reykjavík, þó einna minnst í Grafarvogi og Árbæjarhverfi, þar sem fjölgunin er 2-7%. Í öðrum hverfum er fjölgun allt að 30%. Þetta kemur fram í greinargerð með fjárhagsáætlun næsta árs.
Meira
„Svo þegar mýktin er komin er spurning hvort ekki megi fara að gera meira af því að konur og karlar dansi saman, taki nokkrar dýfur og snúninga frekar en skoppa sitt í hvoru lagi og fara svo beint á barinn.“
Meira
Ráðamenn í Lundúnaborg hafa ákveðið að setja upp með vorinu kerfi rafhleðslustaura vítt og breitt um borgina. Þegar kerfið verður að fullu komið upp verða hleðslustöðvarnar 1.300, tvöfalt fleiri en bensínstöðvarnar.
Meira
Sóknarfæri enda talsverð umsvif í byggingariðnaðinum. Margir eru að dytta að heima hjá sér og telja að besti tíminn sé til þess einmitt nú. Sú sókn sem við blésum til var í raun atvinnuskapandi verkefni
Meira
Askja kynnir á föstudag og laugardag nýjan KIA Sportage í höfuðstöðvum sínum við Krókháls í Reykjavík og hjá umboðsfyrirtækjum á Akranesi, Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ.
Meira
Ó, hve löngum stundum varði maður ekki fyrir framan sjónvarpsskjáinn, spilandi á Nintendo-tölvuna. Bræðurnir Mario og Luigi hoppandi um skjáinn, rauðir og grænir, uns þumlar voru orðnir rauðir og aumir af öllu hnappapotinu.
Meira
Lækjargata 4 er fyrsta tvílyfta íbúðarhúsið í Reykjavík, byggt að stofni til árið 1852 en var seinna stækkað. Verslunarmannafélag Reykjavíkur var stofnað í húsinu og þar var seinna verslun Hagkaupa. Húsið var flutt á Árbæjarsafn árið...
Meira
Nú er allra veðra von og eins gott að hafa rúðuþurrkurnar í lagi. Mörgum hefur blöskrað hátt verð á venjulegum rúðuþurrkum á fólksbíla og jeppa. Verð er misjafnt eftir bílum en algengt verð á setti (2 stk.) er um og yfir 5 þús. kr. á bensínstöð.
Meira
Sparneytinn lúxusbíll, vélin merkilega afkastamikil. Vélin ekki stór en skilar miklu togi. Aksturseiginleikar góðir, fjöðrun til stakrar prýði, stýri nákvæmt og langkeyrsla ánægjuleg.
Meira
Óvíst er hvert sænsku bílsmiðjurnar Volvo stefna í framtíðinni. Ágreiningur er sagður ríkja um það milli stjórnenda fyrirtækisins og yfirmanna kínverska bílaframleiðandans Geely, sem keypti Volvo fyrr á árinu.
Meira
Jóna Svava Sigurðardóttir lærði sennilega að prjóna áður en hún lærði starófið. Frá fimm ára aldri hefur hún varla lagt frá sér prjónana, og er alls ekki ein um að vera með mikla prjónadellu ef marka má vinsældir prjónaáhugahóps hennar á Facebook.
Meira
Virðisaukaskattur vegna vinnu við endurbætur húsnæðis fæst endurgreiddur til loka næsta árs, skv. frumvarpi fjármálaráðherra sem nú liggur fyrir á Alþingi. Upphaflega gilti heimildin til nk. áramóta.
Meira
Bresk yfirvöld deila nú við Evrópusambandið um rétt sinn til þess að hafa eftirlit með lausafjárstöðu útibúa erlendra bankastofnana sem starfa í landinu, líkt og útibúi Landsbankans, sem hélt Icesave innlánsreikningunum úti.
Meira
Guðmundur S. Pétursson, gæðastjóri og stjórnarmaður í Stjórnvísi ISO 9001 stjórnunarstaðalinn er markvisst settur fram til að uppfylla væntingar viðskiptavina.
Meira
Fréttaskýring Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Áætlanir um endurheimtur í greinargerð með nauðasamningum Exista eru of háar, að mati umsjónarmanns með nauðasamningunum.
Meira
Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Verulega dró úr söluþrýstingi á ríkisskuldabréf verst stöddu evruríkjanna á mörkuðum í gær. Að sama skapi styrktist evran á gjaldeyrismörkuðum.
Meira
Steingrímur J. Sigfússon sagði á þingi í fyrradag að enginn hefði talað um Parísarklúbbinn, sem gjaldþrota þjóðir leita til um nauðasamninga, í eitt ár. Menn óttuðust ekki lengur greiðslufall íslenska ríkisins. Hvers vegna ætli það sé?
Meira
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað í dag og rekja sérfræðingar það til aukinnar eftirspurnar kínverskra framleiðslufyrirtækja og kuldakasts í Evrópu. Verð á Brent Norðursjávarolíu hefur hækkað um 2,4 dali tunnan og er 88,3 dalir á markaði í Lundúnum.
Meira
Það er ekki fyrir hvern sem er að skrifa kennslubók í því hvernig lifa eigi af átök við uppvakninga, en sem betur fer er Max Brooks slíkur maður.
Meira
Þegar teknar eru ákvarðanir í stjórnmálum gleymist oft, viljandi eða óviljandi, að skoða hvaða áhrif þær geta haft á samfélagið í heild sinni. Það á einkum við um ákvarðanir sem ætlað er að hjálpa tilteknum hópi einstaklinga eða fyrirtækja.
Meira
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Skilanefnd Landsbankans rannsakar nú málefni einkahlutafélagsins Styttu, en bankinn hefur leyst til sín hlutabréf félagsins í verslanakeðjunni Iceland Foods.
Meira
• Íslandsbanki skilaði ríflega 13 milljarða hagnaði fyrstu níu mánuði ársins • Arðsemi eigin fjár var 17,6% og eigið fé við lok tímabilsins ríflega 100 milljarðar • Vaxtamunur bankans 5,7% á meðan hann var 2,7% hjá Landsbankanum og 3% hjá...
Meira
Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,72 prósent í viðskiptum gærdagsins og var lokagildi vísitölunnar 200,69 stig. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,9 prósent og sá óverðtryggði um 0,32 prósent.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Tilkynnt var í gær um gerð samstarfssamnings milli Eignastýringar Íslandsbanka og DnB NOR Asset Management, sem er dótturfyrirtæki norska bankans DnB NOR.
Meira
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Samtök fjárfesta segja tillögur um breytingar á auðlegðarskatti, sem nú eru til meðferðar hjá efnahags- og skattanefnd Alþingis, fremur í ætt við eignarnám en eignaskatt.
Meira
Hagræn áhrif skapandi greina hafa nú verið rannsökuð. Niðurstaðan er sú að virðisaukaskattskyld velta slíkra greina nemur nærri 200 milljörðum króna á hverju ári.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í heimi flutninganna þarf meira en bara bíla, skip og flugvélar. Þegar þarf að koma hlutunum á milli punkta A og B er flutningsmiðlunin oftar en ekki í aðalhlutverki.
Meira
Prentsmiðjan Svansprent í Kópavogi hlaut nýlega norræna umhverfismerkið Svaninn. Umhverfismerkið Svanurinn var tekið í notkun 1989 og frá þeim tíma hafa um 6.000 vörur og þjónusta hlotið vottun Svansins.
Meira
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Þau tilboð sem Arion banka bárust í kjölfestuhlut í smávöruverslanakeðjunni Högum voru umtalsvert lægri en bankinn hafði vænst, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Meira
Formlega hefur verið gengið frá kaupum Framtakssjóðs Íslands á eignarhaldsfélaginu Vestia af Landsbankanum, en fyrirvari er þó gerður varðandi samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Meira
Verslun og viðskipti eru hverju samfélagi lífsnauðsynleg og skiptir þá engu máli hvort um er að ræða stóra alþjóðlega viðskiptasamninga eða smásölu heimavið.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.