Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð í þyngstu málunum sem koma munu frá sérstökum saksóknara til dómstóla taki fjórar til sex vikur. Eftir að mál eru lögð í dóm er talið að dómasamning muni taka tvo til þrjá mánuði.
Meira
Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Nú styttist óðfluga í gamlárskvöld með tilheyrandi flugeldakveðjum landsmanna. Veitt var leyfi fyrir innflutningi á um 510 tonnum af flugeldum fyrir þessi áramót; það er hátt í 60 tonna aukning frá því í fyrra.
Meira
VIÐTAL Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Auðun Svavar Sigurðsson, yfirlæknir á stórri skurðdeild í Shropshire á Englandi undanfarinn áratug, gerir flestar magabandsskurðaðgerðir (e.
Meira
Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Vanda Cristina, portúgölsk kona sem býr í Súðavík, velti bíl sínum í Súðavíkurhlíð í fyrrakvöld. Grjót hafði hrunið úr hlíðinni en þegar hún sveigði bíl sínum í átt frá grjótinu missti hún stjórn á honum.
Meira
fréttaskýring Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Eldsneytisverð hefur lítið gert annað en að hækka á árinu sem er að líða. Ekki var liðinn nema mánuður af árinu þegar 200 króna múrinn var rofinn.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Egill Már Markússon hefur starfað við flugumferðarstjórn í ríflega aldarfjórðung og lengi átt sér þann draum að búa og starfa erlendis með fjölskyldunni.
Meira
Fréttaskýring Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Fasteignamarkaðurinn virðist óðum vera að þiðna og líf tekið að glæðast að nýju eftir sífrera allt frá bankahruni.
Meira
Algengt er að Indverjar, búsettir erlendis, snúi aftur til Indlands til að ganga í hjónaband en yfirgefi síðan eiginkonur sínar skömmu eftir brúðkaupið og flýi land með heimanmundinn.
Meira
Helga Sigríður Sigurðardóttir er smám saman að braggast eftir að hafa hnigið niður í nóvemberlok. Hún var í kjölfarið flutt með sjúkraflugi til Svíþjóðar og vöktu skyndileg veikindi þessarar 12 ára fimleikastúlku frá Akureyri mikla athygli.
Meira
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag, 29. desember, og falla ferðir ferjunnar til hafnarinnar því ekki niður eins og ráð hafði verið fyrir gert.
Meira
Í frétt sem birtist í blaðinu hinn 23. desember síðastliðinn var ranglega sagt frá því að verslunin Rangá hefði verið fyrsta verslunin í Langholtshverfi í Reykjavík. Hið rétta er hins vegar að Holtskjör var sú fyrsta.
Meira
Fljótlega eftir áramót má búast við 5-6 króna hækkun á eldsneyti sem rekja má til hækkunar á vörugjaldi. Þá hefur vetrarríkið í Evrópu og Bandaríkjunum undanfarið ekki dregið úr hækkunarþörf.
Meira
Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Fasteignamarkaðurinn sem botnfraus við bankahrunið virðist nú vera að þiðna og umsvifin jafnt og þétt að færast í aukana. Seinni hluti ársins 2010 er umtalsvert líflegri en fyrstu misseri kreppunnar.
Meira
Dómsmálaráðherra Simbabve, Johannes Tomana, hyggst fela fimm lögfræðingum að rannsaka hvort Morgan Tsvangirai, forsætisráðherra hafi gerst brotlegur við stjórnarskrá landsins, í kjölfar birtingar WikiLeaks-vefjarins á skjölum um samskipti ráðherrans og...
Meira
Slökkvilið Akureyrar var kallað út í gær til að dæla vatni úr kjallara Hótels Akureyrar, en um eins metra djúpt vatn var í kjallaranum. Hótel Akureyri hefur staðið autt að undanförnu.
Meira
Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, kveðst hafa orðið var við viðræður á milli stjórnarflokkanna og Framsóknarflokksins um ríkisstjórnarsamstarf fimmtudag og föstudag fyrir þinglok.
Meira
„Er búinn að vera dálítið Lé-legur undanfarið,“ gantast Pálmi Gestsson á fésbókarsvæði sínu og vísar þar í hlutverk sitt í Lé konungi sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.
Meira
FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson Jónas Margeir Ingólfsson Lilja Mósesdóttir hefur varpað fram þeirri hugmynd að segja sig úr þingflokki Vinstri grænna en hvorki Atli Gíslason né Ásmundur Einar Daðason hafa viljað tjá sig um hvort þeir hugleiði slíkt hið...
Meira
Hljómsveitirnar Náttfari og Hudson Wayne munu kveðja árið með tónleikum á skemmtistaðnum Sódómu á næstsíðasta kvöldi ársins. Hljómsveitin Náttfari ætlar að leggjast í dvala á ný eftir smáviðveru á yfirborðinu.
Meira
Lögreglan í Fjallabyggð stöðvaði för ungs ökumanns eftir hádegið í gær eftir að hafa fylgt bifreið unga ökumannsins eftir í gegnum Héðinsfjarðargöngin.
Meira
Goðsagnirnar í POPS halda sinn árlega nýársdansleik á Kringlukránni. Helstu merkisberar sjöunda áratugarins, innlendir sem erlendir, verða teknir fyrir. Forsala er hafin á miði.is og á...
Meira
Óvenjumargir hafa greinst með berkla hér á landi miðað við undanfarin ár, 21 sjúklingur. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum embættis landlæknis. Af þeim sem greindust voru 16 af erlendu bergi brotnir eða 71% og flestir þeirra frá Asíu.
Meira
Óvissan sem ríkt hefur um starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) hefur valdið því að ekki var hægt að ljúka gerð rekstraráætlunar fyrir áramót. Þetta kemur fram í pistli sem Magnús Skúlason, forstjóri HSu, skrifar á vef stofnunarinnar.
Meira
Bráðabirgðasamningur um rekstur Sólheima í Grímsnesi var undirritaður á fundi framkvæmdastjóra Sólheima og sveitarstjórnar Árborgar í gær. Samkvæmt samningnum fá Sólheimar 23 milljónir núna um áramótin frá Árborg, sem tryggja reksturinn út janúar.
Meira
Vottunarstofan Tún hefur staðfest að fyrirtækin Sjóvík ehf. og Fram Foods Ísland hf. uppfylli kröfur Marine Stewardship Council (MSC) um rekjanleika sjávarafurða sem upprunnar eru úr MSC-vottuðum sjálfbærum fiskveiðum.
Meira
Hlutafélög með lögheimili að Túngötu 6 í Reykjavík skiptu tugum þegar Baugur Group var tekinn til gjaldþrotaskipta í mars á síðasta ári. Í öllum tilfellum voru þessi félög að öllu eða mestu leyti í beinni eigu Baugs Group.
Meira
Næsta sumar verður boðið upp á beint flug frá Akureyri til höfuðborgar Slóveníu, Ljubljana. Lagt verður af stað hinn 24. júní nk. og komið heim aftur 8 dögum síðar, 2. júlí. Flogið verður með 136 sæta Airbus frá slóvenska flugfélaginu Adria Airways.
Meira
Leyfi voru veitt fyrir innflutningi á um 510 tonnum af flugeldum fyrir þessi áramót, en það er hátt í 60 tonna aukning frá því í fyrra. Hér sýnir Jónas Guðmundsson, sölustjóri hjá Flugbjörgunarsveitinni, nokkra öfluga flugelda á Grjóthálsi.
Meira
Þeir hjálpuðust að við að bera farangurinn þessir ferðalúnu ferðamenn á leið sinni í leigubílaröðina á 7th Avenue í New York. Djúpur snjór þakti götur borgarinnar, sem stundum er kölluð Stóra eplið, eftir að blindbylur skall á á öðrum degi jóla.
Meira
Svínainflúensa (H1N1) hefur greinst í sýni úr konu sem tekið var á aðfangadag og eru svínaflensu-tilfellin í desembermánuði þar með orðin tvö hér á landi. Maður greindist með flensuna nú rétt fyrir jól, en sá var nýkominn frá Bretlandi.
Meira
Gunnar Thoroddsen var kallaður „silkitunga íhaldsins.“ Það hljómar ekki eins og hrós, en var það. Gunnar var fremstur pólitískra ræðumanna á sinni tíð. Og sú tíð var ekkert blíðalogn í baráttunni.
Meira
Ýmsir minni spámenn í stjórnarflokkunum láta sig dreyma um að kippa Framsóknarflokknum upp í vanbúið stjórnarfleyið til að reyna að halda því á réttum kili.
Meira
Breski tónlistarmaðurinn Elton John og David Furnish, eiginmaður hans, hafa eignast son. Drengurinn fæddist á jóladag og var 15 merkur þegar hann kom í heiminn í Kaliforníu. Hann fékk nafnið Zachary Jackson Levon Furnish-John.
Meira
Í tengslum við sýninguna Modern British Sculpture sem verður opnuð í Royal Academy í London í lok janúarmánaðar, verður endurbyggð hlaða með verkum eftir þýska myndlistarmanninn Kurt Schwitters (1887-1946).
Meira
Horfði á Með hangandi hendi með öðru auganu um jólin. Eiginlega með hangandi auga. Var í fullri vinnu við að borða konfekt og dytta að en myndin var það góð að hún dró athygli mína ítrekað að sér.
Meira
Í ársuppgjöri bókmenntagagnrýnenda norska Dagblaðsins, velur einn gagnrýnandinn, Cathrine Krøger, skáldsögu Jóns Kalmans Stefánssonar Himnaríki og helvíti , sem nýverið kom út á norsku, eina af þremur bestu bókum ársins.
Meira
Íslenska dauðarokkssveitin Severed Crotch hefur gert samning við útgáfufyrirtækið Amputated Vein Records í Japan og verður fyrsta breiðskífa sveitarinnar, The Nature of Entropy, gefin þar út í febrúar á næsta ári. Platan, sem kom út á Íslandi sl.
Meira
Frostrósir – Klassík í Háskólabíói, sunnudaginn 19. desember. Fram komu Kristinn Sigmundsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Garðar Thór Cortes, Dísella Lárusdóttir og Gréta Hergils.
Meira
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Jónsi mun halda sína 99. tónleika á árinu í langri tónleikaferð sinni í Laugardalshöllinni í kvöld klukkan 20:00.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þetta eru klassísk jólalög og sum þeirra voru á þessari hljómplötu sem við tókum upp, að segja má síðasta lífi,“ segir Kristinn Sigmundsson söngvari og hlær.
Meira
Poppgyðjan Lady Gaga á mest seldu plötu ársins árið 2010 en um er að ræða The Fame Monster; sem var nokkurs konar endurútgáfa á plötu hennar The Fame frá 2008. Seldust sex milljónir eintaka af plötunni þetta árið.
Meira
Austan um land nefnist ljóðabók eftir Sigurð Óskar Pálsson sem út er komin á vegum Félags ljóðaunnenda á Austurlandi. Bókin kom fyrst út árið 2001 en birtist nú í aukinni útgáfu.
Meira
Út er komin bókin Einnar mínútu þögn eftir þýska verðlaunarithöfundinn Siegfried Lenz, í þýðingu Ásdísar Guðnadóttur. Sagan kom fyrst út í Þýskalandi fyrir tveimur árum og hlaut afar góða dóma.
Meira
Út er kominn hljómdiskurinn Úr hörpu hugans , með söngvaranum Baldvin Kr. Baldvinssyni. Ásamt honum kemur fram Kammerkór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar, organista og kórstjóra.
Meira
1 Ástþór Magnússon býður sig fram til stjórnlagaþings. 2 Ástþór Magnússon komst ekki á stjórnlagaþing. 3 Framliðnir lýsa upplifun sinni af dauðanum í bók sem kom út fyrir jólin. Aðrir sáu um að skrifa upplifanirnar niður, eðlilega.
Meira
Retro Stefson, Polipe frá Kanada, Orphic Oxtra og plötusnúðar frá múm munu skemmta á Nasa á morgun. Retro Stefson gaf út hljómplötuna Kimbabwe fyrir nokkrum vikum og er skemmst frá því að segja að platan hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.
Meira
Gripla 21 er komin út. Gripla er alþjóðlegt fræðitímarit Árnastofnunar á sviði íslenskra og norrænna fræða. Hún hefur komið út frá því skömmu eftir að fyrstu handritin komu heim frá Danmörku árið 1971.
Meira
Það hnykkti eflaust einhverjum við þegar borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, lýsti þeirri skoðun sinni á fundi borgarstjórnar að það mætti líkja þjóðinni við fjölskyldu alkóhólista sem búinn væri að vera fullur samfleytt í mörg ár: „Allt veldi...
Meira
Frá Einari Bárðarsyni: "Á Íslandi greinast 10-12 börn undir 18 ára aldri með krabbamein árlega og er það svipað hlutfall og annars staðar á Vesturlöndum. Ef frá eru talin slys þá er krabbamein algengasta dánarorsök barna á Vesturlöndum."
Meira
Frá Ómari Sigurðssyni: "Í áramótakveðju Steingríms J. Sigfússonar til félagsmanna í Vinstri grænum segir Steingrímur: „Því fylgir mikil ábyrgð að velta steinum í götu."
Meira
Kannast einhver við ljóðið? Mig langar að vita hvort einhver kannast við þetta ljóð og veit hvar er hægt að finna það? Ljóðið er svona, það sem ég kann af því og gaman væri að fá að vita hver samdi: Um þilfar næstum loginn lék þar litli sveinninn stóð.
Meira
Áslaug Árnadóttir fæddist í Reykjavík 6. júní 1917. Hún andaðist á elli- og dvalarheimilinu Grund 13. desember 2010. Útför Áslaugar fór fram frá Fossvogskirkju 21. desember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Ástríður Oddbergsdóttir (Ásta) fæddist á Vesturgötu 18 í Reykjavík 21. janúar 1915. Hún lést á Hjúkrunarheimili HSSA á Hornafirði 22. desember 2010. Ásta var dóttir hjónanna Oddbergs Oddssonar, sem var fæddur í Hvammi í Kjós 10.6. 1858, d. 12.7.
MeiraKaupa minningabók
Brynjar Þór var fæddur í Reykjavík 4. júlí 1989. Hann lést í Kópavogi 19. desember 2010. Foreldrar hans eru Ingi Þorgrímur Guðmundsson, f. 31.5. 1970, og Ingibjörg Brynjólfsdóttir, f. 12.4. 1966. Bræður Brynjars eru Almar Þór, f. 2.12.
MeiraKaupa minningabók
Elín Jónsdóttir Dungal fæddist 20. ágúst 1928. Hún andaðist á Landspítalanum Fossvogi 15. desember 2010. Elín var dóttir hjónanna Jóns Pálssonar Dungal garðyrkjubónda og Elísabetar Ágústu Jónsdóttur húsfreyju. Elín var elst þriggja systkina.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Jónatan Kristjánsson fæddist í Nýjabæ á Eyrarbakka 2. ágúst 1929. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 17. desember 2010. Foreldrar hans voru hjónin í Merkisteini á Eyrarbakka, Margrét Þóra Þórðardóttir, f. 15. des. 1887, d. 10.
MeiraKaupa minningabók
Gyða Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 27. september 1920. Hún andaðist á líknardeild Landakotsspítala 20. desember sl. Foreldrar hennar voru Jón Halldórsson, f. 1886, d. 1973, og Gíslína Magnúsdóttir, f. 1889, d. 1986. Systkini Gyðu voru: Ólafur Hólm, f.
MeiraKaupa minningabók
Halldór Bjarnason fæddist á Völlum í Skagafirði 20. febrúar 1922. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 18. desember 2010. Foreldrar hans voru hjónin Sigurlaug Jónasdóttir, f. 8. júlí 1892, d. 13. október 1982, og Bjarni Halldórsson, f. 25.
MeiraKaupa minningabók
Herdís Antoníusardóttir fæddist í Núpshjáleigu á Berufjarðarströnd 21. mars 1923. Hún lést á öldrunardeild Landspítalans 17. desember 2010. Útför Herdísar fór fram frá Grafarvogskirkju 28. desember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Jónas Helgason fæddist á Stórólfshvoli, Hvolhreppi, 5. október 1924. Hann lést á Landspítala, Fossvogi, 19. desember síðastliðinn. Foreldrar Jónasar voru Helgi Jónasson, læknir og alþingismaður, f. 19. apríl 1894, d. 20.
MeiraKaupa minningabók
Jón Haukur Sigurbjörnsson fæddist á Akureyri 28. desember 1934. Hann lést á heimili sínu 12. desember 2010. Útför Jóns Hauks fór fram frá Akureyrarkirkju 28. desember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Jón Smári Friðriksson fæddist á Akureyri 16. desember 1943. Hann lést 15. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Friðrik Baldvinsson múrarameistari, f. 4. júní 1920, d. 31. des. 1992, og Dýrleif Jónsdóttir húsfreyja, f. 8. des 1924.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Gunnarsson fæddist á Eyrarbakka 16. ágúst 1923. Hann lést á heimili sínu 14. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Björg Björgólfsdóttir, f. 12. maí 1899, d. 9. mars 1964, og Gunnar Ingibergur Hjörleifsson,, f. 7. ágúst 1892.
MeiraKaupa minningabók
Ragnar Valdimarsson fæddist í Reykjavík 8. júlí 1945. Hann lést á heimili sínu, Nýhöfn 5 í Garðabæ, 14. desember 2010. Útför Ragnars fór fram frá Bústaðakirkju 21. desember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Sigrid fæddist í Kaupmannahöfn 4. febrúar 1918. Hún andaðist á Landspítalanum 14. desember 2010. Foreldrar hennar voru Fridrikka K. Nilsson, f. 13.8. 1896, d. 10.10. 1919, og Karl Bjarnason bakarameistari, f. 6.8. 1890, d. 23.2. 1970.
MeiraKaupa minningabók
Valgerður Jóna Andrésdóttir fæddist á Búðarhamri, Eyrarbakka, 26. október 1919. Hún lést á Hrafnistu í Hafnafirði 20. desember 2010. Foreldrar hennar voru Katrín Magnúsdóttir, f. 3. júní 1900, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Þórhildur Sigurðardóttir hárgreiðslumeistari fæddist á Litla-Melstað í Reykjavík 10. júlí 1927. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 23. desember 2010. Foreldrar hennar voru Sigurður Benediktsson, f. 23.2. 1898 á Mjóafirði, d. 3.12.
MeiraKaupa minningabók
Svíþjóð ætti að leggja evruaðild á hilluna um fyrirsjáanlega framtíð, segir sænska blaðið SvD Näringsliv að séu skilaboð frá þeim leiðtogum í sænsku atvinnulífi sem blaðið hafi talað við.
Meira
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Uppsafnaðar skuldir einkahlutafélaga sem hafa haft skráð lögheimili að Túngötu 6 í Reykjavík hlaupa á mörghundruð milljörðum króna.
Meira
Margir eiga einstakar minningar tengdar Skólaljóðunum, bláu bókinni sem geymir mörg ljóðin sem hafa límst við heila landsmanna frá því í bernsku.
Meira
Þeim fellur sjaldan verk úr hendi sveitakonunum og þannig er það með hana Kristínu Erlu sem kennir krökkunum í grunnskólanum á Flúðum að smíða á daginn en smíðar svo sína eigin hluti heima á kvöldin.
Meira
„Uppáhaldsáramótin sem ég hef lifað voru áramótin 2008-2009, en þá var ég stödd á Taílandi, það voru einstök áramót og eftirminnileg,“ segir Halla Frímannsdóttir kennd við Himintungl.
Meira
Önnur hver bók sem gefin er út um þessar mundir fjallar um einhvers konar morðgátu og má því ætla að landsmenn séu sérlega sólgnir í að fá innsýn í hvernig þesslags gátur eru leystar.
Meira
Verð á lúxusmatvælum hefur nú hrint af stað glæpaöldu í Frakklandi en síðastliðin ár hefur verð á trufflu-sveppum, öðru nafni hallsveppum, rokið upp. Kílóverðið á sveppunum hefur hækkað um allt að 150.
Meira
Áramót eru tímamót í mörgum skilningi og þá byrja margir upp á nýtt, gera breytingar í lífi sínu og lofa sjálfum sér að laga sitthvað sem betur mætti fara.
Meira
Hallmundur Kristinsson er öðrum fróðari um mannanöfn og limrur. Nú bregður hann á leik með Gunnu: Þeir mátu og mærðu Gunnu, mennirnir sem henni unnu og gáfu henni gull. Þótt gerðist hún full líktist hún tómri tunnu.
Meira
Bæring Jóhann Björgvinsson, rafvirki, er þrítugur í dag en hann segist ekki hafa skipulagt neitt sérstakt í tilefni dagsins enda hafi hann varla áttað sig á tímamótunum ennþá.
Meira
Reykjavík Bjarki Hrafn fæddist 27. október kl. 22.10. Hann vó 3.915 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Ragnhildur Jóhannesdóttir og Sveinn Orri...
Meira
Merking orðasambandsins að vera myrkur eða ómyrkur í máli virðist vera á fleygiferð um þessar mundir. Víkverji hefur skilið þetta orðasamband svo að sá, sem er ómyrkur í máli, tali tæpitungulaust. Að vera myrkur í máli hljóti þá að þýða hið gagnstæða.
Meira
Alexander Petersson er örvhentur hornamaður, eða skytta, í íslenska landsliðinu í handknattleik sem leikur í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Svíþjóð 13.-30. janúar. Alexander er 30 ára gamall, fæddur í Lettlandi 2. júlí 1980.
Meira
Deildabikar karla Úrslitaleikur: FH – Akureyri 29:26 Deildabikar kvenna Úrslitaleikur: Fram – Valur 23:22 Þýskaland A-DEILD: Ahlen-Hamm – Hamburg 28:30 • Einar Hólmgeirsson var ekki með Ahlen-Hamm vegna veikinda.
Meira
Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen hefur komist að samkomulagi við enska úrvalsdeildarfélagið Stoke City um að hann fái að fara frá félaginu í janúar þegar félagaskiptaglugginn opnar að nýju, samkvæmt frétt RÚV í gær.
Meira
England A-DEILD: Manch.City – Aston Villa 4:0 Mario Balotelli 8. (víti), 27. 55. (víti), Joleon Lescott 13. Stoke – Fulham 0:2 Chris Baird 4., 10. • Eiður Smári Guðjohnsen sat á bekknum hjá Stoke allan tímann.
Meira
Á vellinum Kristján Jónsson kris@mbl.is Góður lokakafli í úrslitaleiknum gegn Akureyri tryggði FH sigur í deildabikarkeppni HSÍ og Flugfélags Íslands.
Meira
Skautafélag Reykjavíkur og Björninn mættust í gærkvöldi á Íslandsmótinu í íshokkí karla. Leiknum lauk með sigri SR-inga sem gerðu 5 mörk gegn 4 mörkum Bjarnarmanna. Liðin léku síðasta þriðjudag og þá unnu SR-ingar öruggan sigur með sjö mörkum gegn einu.
Meira
Landsliðskonan Rut Jónsdóttir fékk silfurmedalíu um hálsinn í gær þegar lið hennar Team Tvis Holstebro tapaði fyrir Viborg í úrslitum dönsku bikarkeppninnar í handknattleik, 36:28.
Meira
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í þýska knattspyrnuliðinu Hoffenheim ætla að undirbúa sig undir átökin á nýju ári með æfinga- og keppnisferð til La Manga á Spáni. Hoffenheim mun spila þar tvo æfingaleiki, þar á meðal gegn hollenska liðinu Twente.
Meira
viðtal Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik valdi í gær 19 menn til æfinga fyrir heimsmeistaramótið sem hefst 13. janúar.
Meira
Á vellinum Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna bættu deildabikar HSÍ og Flugfélags Íslands í safnið hjá sér í gærkvöldi.
Meira
Hlynur Bæringsson, einn af 10 efstu í kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins, er með hæsta meðalframlag af öllum leikmönnum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik.
Meira
„Það er nánast frágengið að Fúsi komi aftur til okkar eftir áramótin og verði með okkur út tímabilið,“ sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari þýska 2. deildar liðsins Emsdetten, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Meira
Manchester-liðin, United og City, eru jöfn að stigum í toppsætum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en United tapaði tveimur dýrmætum stigum þegar liðið fékk á sig mark á lokamínútunum gegn Birmingham á St.Andrews í gærkvöld.
Meira
Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason skoruðu þrjú mörk hvor þegar AG Köbenhavn tryggði sér sinn fyrsta titil með því að leggja Århus Håndbold að velli í úrslitaleik í danska bikarnum í handknattleik, 26:20, í gær.
Meira
Sænska ríkissjónvarpið og Aftonbladet stóðu fyrir könnun nú í lok árs þar sem vinsældir sænskra íþróttaliða voru meðal annars skoðaðar. Niðurstaða hennar var sú að knattspyrnuliðið IFK Göteborg væri það allra vinsælasta en 5% aðspurðra nefndu liðið.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.