Um 295.000 manns biðu bana í náttúruhamförum í heiminum á árinu sem var að líða og er það mesta manntjón af völdum náttúruhamfara frá árinu 1983, að sögn endurtryggingafyrirtækisins Münchener Rück (e. Munich Re).
Meira
Rúmlega 90 milljóna króna hagnaður verður af rekstri Bolungarvíkurkaupstaðar á árinu 2011 samkvæmt fjárhagsáætlun sem var samþykkt einróma 30. desember. 15,9 milljóna króna hagnaður verður af rekstri A-hluta bæjarsjóðs en 1,2 milljónir af B-hluta.
Meira
Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalandsmeistara Kílar í handknattleik og einn fremsti handboltaþjálfari heims, heldur erindi á hádegisverðarfundi Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins á Hilton-hóteli föstudaginn 7. janúar nk.
Meira
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu krafðist í gær – og fékk samþykkt – gæsluvarðhalds yfir karlmanni sem handtekinn var vegna líkamsárásar í miðborg Reykjavíkur á nýársnótt. Maðurinn verður í haldi lögreglu til föstudagsins næstkomandi.
Meira
Læknir kannar líkamshita Kínverjans Chen Kecai sem keppti við annan kaldan Kínverja, Jin Songhao, í kuldaþolkeppni á Tianmen-fjalli nálægt kínversku borginni Zhangjiajie í Hubei-héraði. Tvímenningarnir voru á kafi í ís, í nærbuxum einum fata.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Allt bendir til þess að hart verði tekist á um ýmis mál á þingflokksfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á morgun.
Meira
Fréttaskýring Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á hverjum degi aukast skuldir bandaríska ríkisins um fjóra milljarða dala, um 460 milljarða króna, og þarf því þrjá daga og sex og hálfri klukkustund betur til jafna þjóðarframleiðsluna á Íslandi.
Meira
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is „Sá sem vaknaði fyrstur segist hafa rumskað í rúminu við hljóðið frá reykskynjaranum en hann vaknaði ekki almennilega fyrr en hann áttaði sig á því að verið var að lemja húsið að utan.
Meira
Spánn hefur verið eitt af síðustu vígjum reykingamanna í Evrópu en það hefur nú breyst vegna tóbaksvarnalaga sem eru á meðal þeirra ströngustu í álfunni.
Meira
Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf. hefur verið gert að greiða arkitektastofunni Arkitektur.is 121 milljón króna vegna hönnunar á nýju ráðhúsi Reykjanesbæjar og höfuðstöðva HS Orku.
Meira
Frumvarp um breytingu á vörugjöldum sem lögð eru á bíla breyttist nokkuð í meðförum Alþingis. Við lokaafgreiðslu málsins var ákveðið að fara hægar í gjaldtöku en ráðgert var í upphafi.
Meira
Umhverfisráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Mannvirkjastofnunar. Um er að ræða nýja stofnun sem tók til starfa þann 1. janúar s.l. Mannvirkjastofnun tekur við hlutverki Brunamálastofnunar auk verkefna er varða byggingarmál.
Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók Ástþór Magnússon í gær fyrir utan verslun Byko í Kópavogi. Hann hafði ekki sinnt boðum um að mæta í skýrslutöku.
Meira
Á jóladag bauð Síminn viðskiptavinum sínum að hringja án endurgjalds úr heimasíma í vini og vandamenn sem búa eða dvelja erlendis. Símtölum til útlanda í kerfum Símans fjölgaði úr rúmlega 5000 á jóladag 2009 í tæplega 12.000 núna.
Meira
Flórídabúinn James Jablon ætlar að dvelja í einn mánuð á afgirtu svæði með tveimur ljónum í fjáröflunarskyni í þágu athvarfs fyrir dýr sem þurfa læknisaðhlynningu. Jablon hefur verið í ljónagryfjunni frá því á nýársdag.
Meira
Undir lok síðasta árs átti Seðlabankinn stór gjaldeyrisviðskipti sem stuðla eiga að því markmiði að draga úr gjaldeyrismisvægi í bókum fjármálastofnana, einkum stóru viðskiptabankanna þriggja.
Meira
Alls komu 44.120 viðskiptavinir í vínbúðir ÁTVR föstudaginn 30. desember. Það eru fleiri en árin á undan, en 2009 voru þeir 43.659 þennan dag og 2008 voru þeir 41.998. Áfengissalan í vínbúðum dagana 30. og 31.
Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Birgittu Ýri Ingólfsdóttur, 15 ára. Talið er að hún sé klædd í svarta hettupeysu, þröngar gallabuxur, sé með svartan klút og í svörtum körfuboltaskóm, að því er segir í tilkynningu lögreglu.
Meira
Enn hefur ekkert spurst til Elísu Auðar Aðalmundardóttur sem fór af heimili sínu um miðnætti 26.12. 2010. Elísa Auður er um 165 cm á hæð með ljóst axlasítt hár, blá augu og lokk í vinstri augabrún.
Meira
Tími hins hagsýna neytanda er runninn upp í verslunum landsins því eins og jafnan eftir áramót eru útsölur nú hafnar af fullum krafti. Í Kringlunni var opið til kl.
Meira
Í dag, þriðjudag, efnir Lífeðlisfræðistofnun Háskóla Íslands til málþings. Á þinginu munu 10 íslenskir fræðimenn halda erindi um rannsóknir í lífeðlisfræði. Málþingið fer fram í Öskju, stofu 132, og stendur frá kl. 10-18.
Meira
Fréttaskýring Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Gengið er út frá því sem gefnu að þingflokksfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á morgun verði mikill átakafundur.
Meira
Golf Öll hreyfing skiptir miklu máli og fátt er betra en að ganga úti í náttúrunni nema ef vera skyldi að spila golf í leiðinni eins og þessi kylfingur gerði á Nesvellinum í...
Meira
Gámaþjónustan í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur mun sjá um söfnun jólatrjáa á höfuðborgarsvæðinu. Verðið á þjónustunni er 800 kr. og er gróðursetning á einu tré í Jólaskóginum innifalin.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fimm veiðiskip munu aðstoða skip Hafrannsóknastofnunar við leit að loðnu næstu daga. Fyrsta skipið hélt til leitar í fyrrinótt og í dag er ráðgert að fleiri bætist við.
Meira
Skilanefnd Glitnis keypti um 3,3% af nýju hlutafé Icelandair sem selt var milli jóla og nýárs. Þetta staðfestir Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar, í samtali við Morgunblaðið.
Meira
Margfaldur ræðukóngur Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, talaði mest allra á haustþinginu sem hófst 1. október síðastliðinn. Steingrímur hefur talað alls 180 sinnum í ræðum og andsvörum það sem af er 139.
Meira
Óttalegir jólasveinar er stuttmynd eftir Munda vonda (Guðmund Hallgrímsson) og Snorra Ásmundsson sem er nú í tökum. Mundi leikstýrir en með aðalhlutverk fara Snorri Ásmundsson og Atli Óskar Fjalarsson (Órói).
Meira
Samband íslenskra kristniboðsfélaga safnar notuðum frímerkjum í samstarfi við Póstinn fram til loka janúar, en ágóðanum af söfnuninni, sem hefur yfirskriftina „Hendum ekki verðmætum!
Meira
Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Undirbúningur okkar verður styttri og snarpari en áður þar sem heimsmeistaramótið hefst fyrr en áður,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, í gær.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tillaga utanríkisráðherra um að samninganefnd Íslands sæki um styrki til ESB vegna samninga og aðlögunar Íslands að Evrópusambandinu er óafgreidd í ríkisstjórn.
Meira
Aðdáendur Klovn eða trúðsins þurfa ekki að örvænta því að mynd byggð á þessum óborganlegu þáttum stenst væntingar og vel það. Helgi Snær Sigurðsson gagnrýnir og gefur fjórar stjörnur.
Meira
Úr bæjarlífinu Sigurður Ægisson Siglufjörður Grunnskóli Fjallabyggðar tók til starfa 1. ágúst 2010 og leysti af hólmi Grunnskóla Ólafsfjarðar og Grunnskóla Siglufjarðar. Við skólann eru þrjár starfsstöðvar: Yngri deild í Ólafsfirði, þar sem eru u.þ.b.
Meira
Guðni Einarsson og Sigurður Bogi Sævarsson Verð á flestum gerðum bíla breyttist um áramótin, ýmist til lækkunar eða hækkunar. Frumvarp um breytingu á vörugjöldum sem lögð eru á bíla breyttist talsvert í meðförum Alþingis.
Meira
Viðvörunarljós kviknaði í flugstjórnarklefa vélar frá Flugfélagi Íslands á leið til Bergen í Noregi vegna reyks í farangursklefa. Um falska viðvörun reyndist vera að ræða en hæsta viðbúnaðarstig var þó á flugvellinum í Bergen við lendingu.
Meira
Vinnueftirlitinu bárust 15.686 tilkynningar um vinnuslys frá 1. janúar 2001 til 31. desember 2010, segir í pistli Kristins Tómassonar yfirlæknis á heimasíðu eftirlitsins.
Meira
Æfinganámskeiðið „Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum fjallaleiðsögumönnum“ verður nú haldið fjórða árið í röð. Námskeiðið býr fólk undir göngu á Hvannadalshnjúk, hæsta fjall Íslands. Þjálfunin hefst núna í janúar.
Meira
Um áramót er ákveðið hvað standi upp úr á liðnu ári. Þetta var m.a. mat eins vefmiðilsins: Stjórnmálaskólastjóri ársins: Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, var ráðin skólastjóri stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar.
Meira
Stjórn Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, hefur ákveðið að ráða Aino Freyju Jarvela sem forstöðumann Salarins. Hún hefur störf nú í janúar. Starfið var auglýst laust til umsóknar 3. september 2010.
Meira
Guðjón Sveinsson rithöfundur á Breiðdalsvík hefur sent frá sér bókina Litir & ljóð III . Eins og felst í titlinum er þetta þriðja bókin í röð þar sem hann fléttar saman ljóðum og ljósmyndum.
Meira
Loksins! Loksins er þessi hátíð „ljóss og friðar“ búin, nýja árið gengið í garð og hægt að horfa aftur á sjónvarpið. Allt aftur komið í röð og reglu eftir óhóf ömurlegra amerískra kvikmynda, ballettsýninga og sinfóníutónleika.
Meira
Núna í byrjun janúar eru þrjú ár síðan hinn verðlaunaði einleikur Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur var frumsýndur. Af því tilefni verður efnt til nokkurra sýninga í Landnámssetri Íslands í Borgarnesi í janúar. Þær fyrstu verða á laugardaginn kemur, 8.
Meira
Arrnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Fyrsta breiðskífa ársins hefur litið dagsins ljós, en um er að ræða aðra breiðskífu hafnfirsku rokksveitarinnar We Made God. Platan kallast It's Getting Colder og hefur verið nær þrjú ár í vinnslu.
Meira
Taka þarf annan fót leikkonunnar Zsa Zsa Gabor af fyrir neðan hné en Gabor hefur glímt við mikil veikindi undanfarið. Hún liggur nú á spítala í Los Angeles.
Meira
Hvít jakkaföt, sem John Lennon klæddist þegar mynd var tekin af Bítlunum fyrir plötuna Abbey Road, voru seld á uppboði í Connecticut í Bandaríkjunum um helgina fyrir 46 þúsund dali, jafnvirði 5,3 milljóna króna.
Meira
Yfirvöld í Ungverjalandi eru nú að rannsaka mál útvarpsstöðvar þar í landi vegna gruns um að stöðin hafi spilað lög með rapparanum Ice-T sem innihalda gróft málfar.
Meira
1 Gunnar í Krossinum og Jónína Ben. Giftu sig á árinu og Jónína sendi frá sér ævisögu. 2 Nilli og Vala Grand Slógu bæði í gegn á árinu með forvitnilegum og einkar hugmyndaríkum þáttum sínum á mbl.is. Já, svona er Ísland í dag.
Meira
* Söngvarinn Sigurður Guðmundsson og unnusta hans Tinna Ingvarsdóttir eignuðust dóttur á nýársdag. Foreldrum og barni heilsast vel. Kannski að magnað lag hans af plötunni Nú stendur mikið til, „Nýársmorgunn“ hafi hljómað undir í...
Meira
Ég er búin að undirbúa mig vel en þetta er vissulega nokkuð ströng dagskrá, fjögur kvöld í röð,“ segir Hanna Dóra Sturludóttir sópransöngkona þegar hún er spurð að því hvort ekki sé erfitt að syngja fjóra daga í röð einsöng á tónleikum með...
Meira
* Víkingarokksveitin Skálmöld , sem er m.a. skipuð þeim bræðrum Snæbirni og Baldri Ragnarssyni úr Ljótu hálfvitunum, hefur fengið sérdeilis góða gagnrýni undanfarið fyrir plötu sína Baldur.
Meira
Það vex eitt blóm fyrir vestan er heiti myndlistarsýningar Svövu Sigríðar Gestsdóttur sem stendur yfir í Gerðubergi, í Boganum. Eins og titill sýningarinnar vísar til, eru ljóð uppspretta nokkura verka listakonunnar á sýningunni.
Meira
Dönsku trúðarnir Frank Hvam og Casper Christensen eru á toppi íslenska bíólistans. Þeir hafa greinilega gert rétt í því að koma Klovn á hvíta tjaldið en myndin þykir stórskemmtileg og vinsældirnar eftir því.
Meira
Sigurður Sævarsson: Hallgrímspassía. Jóhann Smári Sævarsson B, Hafsteinn Þórólfsson Bar., Benedikt Ingólfsson B, Guðmundur Vignir Karlsson T, Örn Arnarson T, Guðrún Edda Gunnarsdóttir A, Schola Cantorum og Caput. Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Meira
Eftir Loft Altice Þorsteinsson: "Forseti lýðveldisins lítur á sig sem umboðsmann almennings, en forsætisráðherra er fulltrúi erlends valds og framandi hugmyndafræði."
Meira
Eftir Björn Ármann Ólafsson, Ruth Magnúsdóttur, Magnhildi Björnsdóttur, Skúla Björn Gunnarsson, Skarphéðin G. Þórisson og Þórhall Þorsteinsson: "Veiðar eru og verða leyfðar innan þjóðgarðsins en aðeins bannaðar í litlum hluta hans. Þjóðgarðurinn hefur því ekki úthýst neinum."
Meira
Eftir Ragnar Önundarson: "Það væri manndómsmerki ef stjórnmálamenn færu að kannast við þetta og snúa ofan af þeim öfgum og vitleysu sem þeir bjuggu til sjálfir."
Meira
Eftir Jónas Bjarnason: "Þriðjungur stóru bankanna var bara loft. Siðferði var metið á efstu hæð hjá þeim og endurskoðendum. Þetta var bara spurning um fjölda af flatskjám."
Meira
Pennavinur óskast Mig langar að eignast pennavin sem getur kennt mér íslensku, ég er tvítugur nemi og stefni að því að koma til Íslands einhvern tíma í framtíðinni: Haley Ressl 1237 Westfullerton Ave.
Meira
Eftir Erling Garðar Jónasson: "En eins og sagan sýnir jókst afneitun á framleiðsluiðnaði hrikalega, ál til álna var og er landráð í huga menningarelítunnar."
Meira
Baldvin Aðils Björgvinsson múrari fæddist á Bólstað í Austur-Landeyjum í Rangárvallasýslu 18. apríl 1930. Hann lést á Landspítalanum 15. desember 2010. Útför Baldvins fór fram í kyrrþey.
MeiraKaupa minningabók
Elín Jónsdóttir frá Gemlufalli, húsfreyja á Neðra-Hálsi í Kjós, til heimilis í Fellsmúla 8, Reykjavík, fæddist 29. júní 1921. Hún lést 26. desember 2010. Elín fæddist á Gemlufalli í Dýrafirði. Foreldrar hennar voru Jón Ólafsson, f. 29.3. 1891, d. 26.2.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Jónatan Kristjánsson fæddist í Nýjabæ á Eyrarbakka 2. ágúst 1929. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 17. desember 2010. Útför Guðmundar fór fram frá Grensáskirkju 29. desember 2010.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Álfsdóttir fæddist í Reykjavík 6. mars 1926. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu DAS í Boðaþingi, Kópavogi, 11. desember 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Magnúsdóttir, f. 5. júní 1894, d. 5. mars 1969, og Álfur Arason, f. 9. október 1897, d.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Ingibjörg Oddsdóttir fæddist á Siglufirði 8. ágúst 1928. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 7. desember 2010. Foreldrar hennar voru Oddur Oddsson smiður á Siglufirði, bóndi og vitavörður á Siglunesi, f. 22. júlí 1894 á Engidal í Úlfsdölum, d.
MeiraKaupa minningabók
María Bergmann Hreggviðsdóttir fæddist í Keflavík 10. nóvember 1933. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 14. desember 2010. Foreldrar hennar voru Hreggviður Bergmann, útgerðarmaður og framkvæmdastjóri, og Karítas S.
MeiraKaupa minningabók
Steinunn Kristín Guðmundsdóttir fæddist að Hrollaugsstöðum á Langanesi 14. mars 1923. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 22. desember 2010. Steinunn var dóttir hjónanna Hólmfríðar Guðbrandsdóttur, f. 1888, d. 1980, og Guðmundar Jósefssonar, f.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Pétursdóttir fæddist í Brautarholti á Ísafirði 8. febrúar 1935. Hún lést á Landspítalanum, Fossvogi, 21. desember 2010. Unnur var jarðsungin frá Háteigskirkju 3. janúar 2011.
MeiraKaupa minningabók
Jón Helgi Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri HugarAx frá og með áramótum. Jón Helgi hefur gegnt starfi forstöðumanns sérlausnasviðs hjá félaginu undanfarin ár.
Meira
Kínversk stjórnvöld hyggjast kaupa spænsk skuldabréf , að því er fram kom í aðsendri grein Li Keqiang, aðstoðarforsætisráðherra Kína, í spænska dagblaðinu El Pais.
Meira
Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Birgðir af hefðbundnum glóperum eru að renna út í Evrópu og árið 2012 verða þær með öllu bannaðar í Evrópusambandinu.
Meira
Þann 20. desember síðastliðinn ákvað Fjármálaeftirlitið að sekta Exista fyrir brot á lögum um verðbréfaviðskipti og nemur sektin 15 milljónum króna.
Meira
Viðskiptin á skuldabréfamarkaðnum fóru af stað á nýju ári með litlum krafti. Skuldabréfavísitala Gamma stóð í stað í viðskiptum gærdagsins og nam heildarvelt a viðskiptanna á markaðnum um 5,4 milljörðum króna.
Meira
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Skilanefnd Glitnis nýtti sér forkaupsrétt sinn að fullu í hlutafjárútboði flugfélagsins Icelandair, sem fór fram milli jóla og nýars. Talsverð umframeftirspurn var í útboðinu.
Meira
Þegar tekið er til við að færa mataræðið til betri vegar er gott að hafa ýmislegt við hendina sem talið er bæta heilsuna. Ýmist meltingu, brennslu eða almenna heilsu.
Meira
Eftir allt konfektið, eftirréttina og súkkulaðið yfir jólin er kannski kominn tími til að draga dálítið úr sykurneyslunni. Þetta getur tekið dálítinn tíma þar sem sykurpúkinn getur verið ótrúlega harður húsbóndi sem minnir á sig reglulega.
Meira
Gamlárshlaupi ÍR fór fram í miðborg Reykjavíkur á gamlársdag. 1167 manns tóku þátt í hlaupinu. Kári Steinn Karlsson úr Breiðablik sigraði í hlaupinu á 30:46 mínútum sem er nýtt brautarmet. Stefán Guðmundsson. Breiðabliki varð í 2.
Meira
Það er ekki sérstaklega ánægjulegt að vera með kvef en gamanið kárnar verulega þegar kvefið leiðir af sér kinnholubólgu. Ár hvert fá fjölmargir kinnholubólgu sem lýsir sér þannig að frárennslisgöng frá kinnholum til nefsins bólgna og stíflast.
Meira
Bar Method nefnist líkamsræktaraðferð sem mótar líkamann og liðkar hann. Haldið er úti bloggsíðu fyrir Bar Method á slóðinni Blog.barmethod.com þar sem margt gagnlegt má lesa um líkamsrækt.
Meira
Það þýðir ekkert að tala digurbarkalega á gamlárskvöld, vera með stórar yfirlýsingar um að nú eigi að skafa af sér kílóin, borða hollar, stunda meiri útivist og vera betri manneskja og gleyma svo öllum þessum stóru orðum í þynnkunni á nýársdag.
Meira
Ljósmynd vikunnar í ljósmyndasamkeppni mbl.is og Canon tók Júlía Ósk Bjarnadóttir og nefnir hún myndina „Áramótabrenna“ og er það vel við hæfi nú þegar áramótin eru nýyfirstaðin og búið að brenna og sprengja gamla árið burt.
Meira
Minningarmót BR um Gylfa Baldursson Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni H. Einarsson unnu minningarmót Bridsfélags Reykjavíkur um Gylfa heitinn Baldursson á síðasta spili í síðustu setu. Lokastaðan: Aðalst. Jörgensen – Bjarni Einarss.
Meira
Á nýársdag áttu heiðurshjónin Ásgeir Halldórsson og Rósamunda Kristín Káradóttir í Hrísey fimmtíu ára brúðkaupsafmæli. Þau voru gefin saman af séra Birgi Snæbjörnssyni í Akureyrarkirkju 1. janúar...
Meira
Kristján Karlsson skáld hefur sagt mér, að hann hafi strax í æsku haft gaman af vísum Jóns Þorsteinssonar á Arnarvatni, þótt þær skrýtnar og skemmtilegar.
Meira
Sem kunnugt er hækkaði gjaldskrá Strætó bs. í gær. Víkverji notar ekki strætó nema til hátíðabrigða en málið kemur honum eigi að síður við, þar sem hann á tvo unglinga sem nýta sér þjónustu vagnanna töluvert.
Meira
4. janúar 1917 Ríkisstjórn Jóns Magnússonar tók við völdum, en þetta var fyrsta íslenska ráðuneytið. Aðrir ráðherrar voru Sigurður Jónsson og Björn Kristjánsson. Sigurður Eggerz kom í stað Björns í ágúst 1917. Stjórnin sat til 25.
Meira
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, kom talsvert við sögu í gær þegar hann lék á ný með Coventry í ensku 1. deildinni eftir að hafa tekið út þriggja leikja bann um jólin.
Meira
Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmeistarar KR í körfuknattleik kvenna mæta með mun sterkara lið til leiks í Iceland Express-deildinni á nýju ári heldur en fyrir áramót.
Meira
Viðtal Kristján Jónsson kris@mbl.is Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Levanger í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik, segir spennandi tíma framundan hjá félaginu. Aðsetur félagsins er í samnefndum bæ þar sem 18 þúsund manns búa.
Meira
Nokkur ensk knattspyrnufélög, með Tottenham fremst í flokki, bíða þess hvort þau eigi möguleika á að fá David Beckham lánaðan frá bandaríska félaginu LA Galaxy.
Meira
KFÍ er enn að bæta við sig erlendum leikmönnum en liðið situr á botni Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik með fjögur stig. Bretinn Richard McNutt hefur nú bæst í hópinn samkvæmt heimasíðu félagsins.
Meira
England B-DEILD: Barnsley – Coventry 2:1 • Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Coventry og lagði upp markið. Portsmouth – Hull 2:3 • Hermann Hreiðarsson kom inn á sem varamaður hjá Portsmouth á 25. mínútu.
Meira
Helena Sverrisdóttir, körfuboltakonan snjalla úr Hafnarfirði, átti mjög góðan leik með TCU þegar lið hennar lagði Oklahoma, 76:69, í bandarísku háskóladeildinni í körfuknattleik í fyrrinótt.
Meira
Þjóðverjar hófu lokaundirbúning sinn fyrir heimsmeistarakeppnina í handknattleik með því að sigra Svía, 28:23, í vináttulandsleik sem fram fór í Hamborg í gær.
Meira
Norska knattspyrnufélagið Viking frá Stavanger er búið að gefast upp á að reyna að fá Stefán Gíslason til liðs við sig frá danska liðinu Bröndby.
Meira
Guðjón Valur Sigurðsson er rétthentur hornamaður í íslenska landsliðinu í handknattleik sem leikur í úrslitakeppni HM í Svíþjóð 13.-30. janúar. Guðjón er 31 árs, fæddur 8. ágúst 1979.
Meira
Nærmynd Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Hann er ekki hár í loftinu, sagður sléttir 170 sentimetrar á hæð. En bestu knattspyrnumenn heims hafa einmitt verið í þessum stærðarflokki. Pelé örlítið hærri, Diego Maradona og Lionel Messi nokkrum sentimetrum lægri.
Meira
KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin: DHL-höllin: KR – Hamar 19.15 TENNIS Meistaramót Tennissambands Íslands heldur áfram í Tennishöllinni í Kópavogi og er spilað frá 14.30 til 18.30.
Meira
NBA-deildin LA Lakers – Memphis 85:104 Toronto – Boston 79:93 Dallas – Cleveland 105:94 New York – Indiana 98:92 Portland – Houston 100:85 Atlanta – LA Clippers 107:98 Sacramento – Phoenix...
Meira
Lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ hefur valið níu íþróttamenn, fimm konur og fjórir karla, sem verða í skráðum lyfjaprófunarhópi fyrir árið 2011 að því er fram kemur á vef ÍSÍ.
Meira
Handboltalandsliðið hóf lokaundirbúninginn fyrir HM karla í Svíþjóð í gær með því að æfa í Framhúsinu um morguninn og á Seltjarnarnesi síðdegis. Fótbolti er í miklu uppáhaldi hjá landsliðsmönnunum þegar þeir hita upp.
Meira
Kjetil Strand, maðurinn sem skoraði 19 mörk gegn Íslandi í Evrópukeppninni í Sviss fyrir fimm árum, slasaðist á hendi um jólin og óvíst er að hann leiki með Norðmönnum í heimsmeistarakeppninni í Svíþjóð.
Meira
Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna hafa náð samkomulagi við dönsku handknattleikskonuna Camillu Transel um að leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil.
Meira
„Ég er afar spenntur fyrir að taka þátt í undirbúningum fyrir heimsmeistaramótið og vonast að sjálfsögðu eftir að vera í hópnum sem fer á mótið,“ sagði Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í handknattleik, í gær áður en önnur æfing íslenska...
Meira
Hjá Opna háskólanum er boðið upp á um 500 námskeið sem um 300 kennarar sjá um. Heljarinnar slagkraftur, segir Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans.
Meira
Skólabörn víða um heim fögnuðu nýju ári líkt og aðrir. Þessir spræku skólakrakkar í borginni Jiujiang í Kína útbjuggu klippimynd með hinu nýja ártali í tilefni áramótanna og voru afar ánægð með árangurinn eins og sjá...
Meira
Með myndlestri er hægt að fara yfir umfangsmikinn texta eða lesefni á mjög stuttum tíma og öðlast skilning á aðalatriðum efnisins. Jóna Björg Sætran kennir myndlestur hér á landi.
Meira
Allir geta tamið sér að lesa hraðar og hraðlestrartæknin er í eðli sínu gríðarlega auðveld, segir Jón Vigfús Bjarnason, skólastjóri Hraðlestrarskólans.
Meira
Dansinn getur verið góð undirstaða í lífinu og suðræn sveifla virðist blunda í landsmönnum. Allir geta lært að dansa og öllum fer fram með tímanum, lofar Kara Arngrímsdóttir.
Meira
Í hinu fjölþætta skólastarfi nútímans er starf náms- og starfsráðgjafa sífellt þrungið meira mikilvægi enda að mörgu að huga þegar farsæl framvinda náms hjá grunnskólanemendum er annars vegar. Kristín Helgadóttir starfar við Álftanesskóla.
Meira
Eitt af hlutverkum forseta Bandaríkjanna er að heimsækja grunnskóla og rabba við börnin þar. Það gerði Barack Obama á dögunum í Arlington í Virginíuríki.
Meira
Nám við Landbúnaðarháskóla Íslands opnar fjölbreytta möguleika. Skólanum hefur vaxið ásmegin og er nú alhliða vísindastofnun á sviði landbúnaðar og umhverfismála.
Meira
Skólabörn á Indlandi eru hér í jógatíma í skólabúðum í borginni Ahmedabad. Rúmlega sex þúsund börn tóku þátt í þessari afar vel sóttu kennslustund.
Meira
Á meðan Íslensk börn læra ef til vill skyndihjálp í skólum þurfa börn í Mexíkó að kunna að bregðast við árásum glæpamanna. Hér sýna lögreglumenn í Acapulco í Mexíkó skólabörnum hvernig best sé að verja sig ef vopnaðir menn ráðist á skólann.
Meira
Umfangsmikil útgáfa hjá Námsgagnastofnun. Bækur og stafrænt efni á vef, þar á meðal hljóðbækur sem eru öllum aðgengilegar á Netinu. Fræðslumyndir í skólana.
Meira
Grunn- og gagnfræðaskólanemendur í Suður-Kóreu sækja margir hverjir herbúðir á einhverjum tímapunkti í námi sínu. Hér má sjá nema í búðum sem fyrrverandi kóreskir sjóliðar sjá um taka þátt í námi sem meðal annars miðast við að styrkja bæði líkama og...
Meira
Börnin sem skara fram úr þurfa ekki síður athygli en hin sem eiga erfiðara með námið. Námsaðstoðin Snillingarnir mætir þörfum allra þessara barna.
Meira
Gerum betur ehf. sér um framleiðslu á kynningarefni um bætta þjónustu fyrir fyrirtæki. Bækur, námskeið og myndbönd. Starfsmenntun í þjónustu styrkir hæfni fyrirtækja og skapar þeim forskot.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.