Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að 17 ára piltur sæti gæsluvarðhaldi og einangrun til dagsins í dag vegna innbrots í íbúðarhús í Mosfellsbæ sl. föstudagskvöld.
Meira
Landspítalinn var rekinn með 52 milljóna króna tekjuafgangi á árinu 2010 að því er kemur fram í bráðabirgðauppgjöri spítalans sem nú liggur fyrir.
Meira
Einn starfsmanna dýragarðs í Dúshanbe, höfuðborg Mið-Asíuríkisins Tadsjikistan, er hér á göngu um dýragarðinn með Vadík, átján mánaða gömlu ljóni sem tekið er úr búri sínu tvisvar sinnum á hverri viku.
Meira
Banaslys varð um klukkan 17.10 í gær rétt sunnan við bæinn Litla-Hvamm við Eyjafjarðarbraut vestri í Eyjafjarðarsveit skammt sunnan Akureyrar. Karlmaður sem var að skokka á veginum varð fyrir fólksbifreið og lést.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Hu Jintao, forseti Kína, sagði á blaðamannafundi með Barack Obama Bandaríkjaforseta í Washington að Kínverjar ættu enn „margt ógert“ í mannréttindamálum.
Meira
Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir of snemmt að tjá sig um það hvort rannsókn á meintum njósnum á störfum Alþingis hafi verið ábótavant.
Meira
Jóhanna Sigurðardóttir var meðal þeirra forsætisráðherra sem sóttu leiðtogafund Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Bretlands í London í gær og fyrradag. Markmið fundarins var að styrkja efnahagsleg- og félagsleg tengsl Breta við þessi ríki.
Meira
Lögreglan getur ekki stuðst við myndbandsupptökur við rannsókn á hinni grunsamlegu tölvu sem fannst á skrifstofu Alþingis fyrir tæpu ári. Eftirlitsmyndavélar á svæðinu voru bilaðar á þeim tíma sem tölvunni var komið fyrir.
Meira
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Síðastliðinn þriðjudag náði hinn 18 ára gamli Alex Freyr Gunnarsson þeim merkilega árangri að lenda í 6. sæti á UK Open-mótinu í samkvæmisdönsum.
Meira
Elvar Örn Friðriksson er best þekktur sem söngvari hinnar stórgóðu sveitar Perla og óhætt að segja að þar fari sannkallaður látúnsbarki. Hann heldur tónleika á Rósenberg í kvöld ásamt hljómsveit sem er m.a. skipuð félögum hans úr nefndri sveit.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lögfræðingar Evrópusambandsins kanna nú svigrúm sambandsins til aðgerða gegn íslenskum stjórnvöldum í makríldeilunni og er niðurstöðu að vænta á næstunni.
Meira
Fréttaskýring Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Starfsmenn embættis sérstaks saksóknara gerðu í gær húsleit á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu og fjórir voru handteknir í tengslum við þær.
Meira
Um miðjan þennan mánuð höfðu þrettán skip landað rækju á fiskveiðiárinu. Á sama tíma í fyrravetur, þ.e. frá 1. september til 15. janúar, höfðu sjö skip landað rækjuafla og voru þau ýmist með rækjukvóta eða höfðu leigt til sín.
Meira
Baksvið Andri Karl andri@mbl.is Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur níu einstaklingum sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi 8. desember 2008 lauk fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis í gær.
Meira
Stefnir, dótturfélag Arion banka, hefur ekki lokið fjármögnun á kaupum eins sjóða sinna á tryggingafélaginu Sjóvá. Greint var frá kaupum sjóðsins SF1 á tryggingafélaginu í fyrradag.
Meira
Í dag, föstudag, kl. 12-13:30 standa Fræðasetur þriðja geirans og Almannaheill fyrir málstofu undir heitinu „Matarúthlutanir: Núverandi staða og framtíðarsýn“.
Meira
Eftir glæsilegan sigur á Norðmönnum, 29:22, hefja Ólafur Stefánsson og félagar í íslenska landsliðinu í handknattleik milliriðilinn á HM í Svíþjóð í efsta sætinu.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Verkfræðingafélagið Íslands (VFÍ) og Tæknifræðingafélag Íslands (TFÍ) hafa ákveðið að fresta ráðstefnu sem átti að halda í næsta mánuði um samfélagsleg áhrif álvers- og virkjunarframkvæmda á Austurlandi.
Meira
FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Viðsnúningur varð í meðferð makrílafla á síðustu vertíð miðað við árin á undan. Í fyrra veiddust 122 þúsund tonn af makríl, meira en nokkru sinni í íslenskri lögsögu.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hugsanlega hefði verið hægt að komast inn í tölvupósta þingmanna og „hlera“ netsamskipti þeirra í gegnum fartölvuna sem komið var fyrir við skrifstofur þingmanna á Austurstræti í Reykjavík.
Meira
MARK er ný miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna á félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Í dag kl. 15.30 verður haldið opnunarmálþing í stofu 101 í Odda. Flutt verða sjö erindi. Málstofustjóri er Hanna Björg Sigurjónsdóttir. Málþingið er öllum...
Meira
Í fyrradag var haldinn stofnfundur Samtaka heilbrigðisiðnaðarins. Samtökin munu starfa sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins. Stofnfélagar eru á annan tug fyrirtækja, bæði öflug tæknifyrirtæki sem og smærri fyrirtæki.
Meira
Óli G. Jóhannsson, listmálari á Akureyri, er látinn. Hann veiktist alvarlega á mánudaginn og lést á Landspítalanum í gær, 65 ára að aldri. Óli fæddist á Akureyri 13. desember 1945, sonur hjónanna Hjördísar Óladóttur og Jóhanns Guðmundssonar...
Meira
Þeir fjármunir sem slitastjórn þrotabús Sparisjóðsins í Keflavík fékk til ráðstöfunar við færslu eigna og skulda í nýjan sparisjóð eru nánast uppurnir.
Meira
Fréttaskýring Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Forsvarsmenn Ísafjarðarbæjar, þingmenn kjördæmisins og ráðherrar eru að undirbúa aðgerðir vegna atvinnubrests á Flateyri og styrkingu byggðar á svæðinu.
Meira
Þótt ríki heims hafi gripið til umfangsmikilla aðgerða til að koma í veg fyrir sjórán á heimshöfunum gerðu sjóræningjar fleiri árásir á liðnu ári en nokkru sinni fyrr. Árásunum fjölgaði fjórða árið í röð.
Meira
Karli og konu, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar fyrir utan skemmtistaðinn Players í Kópavogi aðfaranótt 16. janúar, hefur verið sleppt úr haldi.
Meira
Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Lögreglan í Reykjavík hefur hvorki stuðst við myndbandsupptökur né vitnisburði þingmanna við rannsókn á fartölvunni sem grunur leikur á að hafi átt að nota til njósna á Alþingi.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Samkvæmt ársreikningi sem Samfylkingin hefur skilað til Ríkisendurskoðunar varð tap á rekstri flokksins árið 2009 upp á rúmar 27 milljónir króna. Árið þar áður var hagnaður upp á 58,5 milljónir króna.
Meira
Heitar umræður voru um grunsemdir um njósnir á Alþingi á þingfundi í gær í kjölfarið á frétt Morgunblaðsins. Þingfundur hófst á umræðum um málið.
Meira
Bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið yfir 100 meinta mafíumenn í tengslum við rannsókn á sjö mafíufjölskyldum í New York, New Jersey og Rhode Island, að sögn bandarískra fjölmiðla í gær.
Meira
Grunur leikur á að brotið hafi verið gegn auðgunarbrotakafla hegningarlaganna með millifærslum af reikningi Landsbankans hjá Seðlabanka Íslands þann 6. október 2008, sama dag og svokölluð neyðarlög tóku gildi.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Julian Assange og aðrir fulltrúar WikiLeaks voru þar ásamt fjölda annarra gesta. Ef það á gera mál úr því vil ég benda á að Sjálfstæðisflokkurinn er með miklu fleiri skrifstofur á þessari hæð en við.
Meira
Segja má að vel hafi farið á því að upplýst hafi verið um lokaða leynisölu eins ríkisbanka á Sjóvá á sama tíma og umræður stóðu yfir á Alþingi um lokaða leynisölu annars ríkisbanka í Vestia-málinu í fyrradag.
Meira
Nokkrar kvikmyndir verða teknar til sýningar um helgina í Bíó Paradís. Habitacion en Roma segir af tveimur ungum konum sem hittast í Róm, eyða nótt saman og deila hvor með annarri sínum innstu leyndarmálum. Kvikmyndin er spænsk, frá árinu 2010.
Meira
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Það var fyrir fimm árum eða svo að Ásdís Thoroddsen var að starfa vestur á Hnjóti, í minjasafni Egils Ólafssonar. Þar kom upp sú hugmynd að kalla saman nokkra bátasmiði sem myndu setja saman eitt slíkt stykki.
Meira
Tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson kemur fram með hljómsveit sinni Bergrisunum á tónleikastaðnum Sódóma Reykjavík annað kvöld og hefjast tónleikarnir kl. 23.
Meira
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Enn bara janúar og plöturnar trítla þó út. Hafnfirðingarnir í We Made God riðu á vaðið hinn 7. og nú er það blúsrokksveitin Ferlegheit, sem stendur ein og sjálf að útgáfu á sinni fyrstu plötu.
Meira
Bob Dylan hefur gert samning við bókaútgáfuna Simon & Schuster um að skrifa sex bækur. Dylan mun skrifa tvær bækur, sem verða framhald af æviminningum hans, Chronicles: Volume One, sem komu út 2004.
Meira
* Keflavíkurflugvöllur stendur fyrir leik tengdum HM í handbolta þessa dagana og mun vinningshafinn komast til Svíþjóðar á mótið ásamt vini, hinn 28. janúar. Tveir þátttakendur í leiknum verða dregnir út 27. janúar og þurfa þeir að mæta á flugvöllinn...
Meira
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari verða með tónleika í Skjálftasetrinu á Kópaskeri á morgun kl. 16. Á dagskránni verða verk eftir m.a. Ludwig van Beethoven, César Franck og Árna Björnsson frá Lóni, Kelduhverfi.
Meira
Eftirtaldar kvikmyndir verða frumsýndar í dag í íslenskum kvikmyndahúsum auk þess sem frönsk kvikmyndahátíð hefst. Frumsýningar í Bíó Paradís má sjá hér til hliðar.
Meira
* Í tilefni af komu Egils-þorrabjórs mun Ölgerðin standa fyrir vali á „Þorra landsmanna“ í dag, bóndadag, en allir karlmenn sem bera nafnið Þorri (má vera millinafn) geta heimsótt Ölgerðina í dag, á Grjóthálsi 7 -11, og þegið kippu af...
Meira
Datt í Jay Leno í fyrrakvöld. Þátturinn var á dagskrá kl. 22.50 á Skjá einum, á svipuðum tíma og hann var á mektarárum sínum hérlendis fyrir þetta fimm árum.
Meira
BÍL – Bandalag íslenskra listamanna, býður á morgun, laugardag, til málþings um menningarstefnu. Málþingið er haldið í tengslum við aðalfund BÍL og verður í Iðnó kl. 15-17. Það er öllum opið.
Meira
„Þetta verður sprenging,“ segir listamaðurinn Mundi um sýningu hans, Morra og Ragnars Fjalars, sem kalla sig MoMS, en sýningin verður opnuð í Kling & Bang galleríi á Hverfisgötu 42 á morgun, laugardag, klukkan 17.
Meira
Eva Gabrielsson, sambýliskona sænska metsölurithöfundarins Stiegs Larssons til 32 ára, segist vera reiðubúin til að ljúka við hálfskrifað handrit hans að fjórðu bókinni í Millennium-seríunni svokölluðu.
Meira
„Það blæðir úr morgunsárinu“ er yfirskrift sýningar á teikningum og ljóðabókum Jónasar E. Svafár sem verður opnuð í Listasafni Íslands á morgun kl. 14.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarkonan Hulda Rós Guðnadóttir opnaði í gær sýninguna Hops Hopsi í D-sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Í salnum sýnir Hulda tíu rása myndbandsinnsetningu sem hún gerði í fyrra.
Meira
Eftir Hjörleif Guttormsson: "Hækkað sjávarborð vegna hlýnunar hafsins og bráðnunar jökla boðar skuggalega framtíð. Fjöldi stórborga mun kenna á afleiðingunum þegar á þessari öld."
Meira
Eftir Ingrid Kuhlman: "Þeir sem hafa náð miklum árangri, hvort heldur er í viðskiptum, íþróttum eða á öðrum sviðum lífsins, hafa þurft að takast á við mótlæti."
Meira
Eftir Ingibjörgu Pálmadóttur: "Það læðist að mér sá grunur, og reyndar fleirum en mér, að verið sé að reyna að ná íslenskum sjúklingum inn á þessa nýju spítala og farnar þessar krókaleiðir til þess."
Meira
Frá Jónasi Garðarssyni: "Í vikunni verða opnuð tilboð í sjóflutninga fyrir Rio Tinto Alcan á Íslandi. Mikið er í húfi fyrir íslenska sjómenn, 32 dýrmæt störf."
Meira
Við lifum á tímum þar sem vísindi og rökhugsun eiga að hafa unnið fullnaðarsigur á hjátrú og hleypidómum. Afar fáir trúa núna á kraftaverk í hefðbundnum biblíuskilningi þess orðs.
Meira
Mig hefur lengi langað til að koma á framfæri nokkrum athugasemdum við lestur veðurfregna í útvarpi. Þær athugasemdir snerta fyrst og fremst veðurfregnir sem lesnar eru eftir kl. 10 að morgni.
Meira
Anna Sigríður Gunnarsdóttir fæddist á Bangastöðum í Þing. 11. september 1930. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 11. janúar 2011. Foreldrar hennar voru Gunnar Jónatansson, f. 5. maí 1877, d. 25. júní 1958, og Vilfríður Guðrún Davíðsdóttir, f. 20.
MeiraKaupa minningabók
Árni Baldvin fæddist á Dalvík 3. janúar 1930. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 11. janúar 2011. Foreldrar hans voru Jónína Anna Magnúsdóttir, f. 20. apríl 1895, d. 5. október 1980, og Hermann Árnason, f. 15. september 1901, d. 4. september...
MeiraKaupa minningabók
Fannar Ingi Kárason fæddist í Reykjavík 2. október 2008. Fannar Ingi lést á bráðamóttöku Barnaspítalans 13. janúar eftir skyndileg alvarleg veikindi. Foreldrar hans eru Inga Hrund Gunnarsdóttir, f. 18. mars 1975, og Kári Halldórsson, f. 30. júní 1979.
MeiraKaupa minningabók
Haukur Már Sigurðsson fæddist 29. júní 1968. Hann lést 12. janúar 2011. Foreldrar hans eru Sigurður Birgir Magnússon, fæddur 14.9. 1935 í Hafnarfirði, og Hjördís Hentze, fædd 7.9. 1932 í Færeyjum. Systkini Hauks eru Ólafur Sigurðsson, fæddur 15.4.
MeiraKaupa minningabók
Hörður Björnsson fæddist í Sólheimum á Borgarfirði eystra 18. desember 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. janúar 2011. Foreldrar hans voru Björn Jónsson söðlasmiður, f. 8. mars 1890, d. 19. janúar 1941, og Þórína Þórðardóttir ljósmóðir, f....
MeiraKaupa minningabók
Ingveldur Magnúsdóttir húsfreyja frá Ólafsvík fæddist 21. desember 1930. Ingveldur lést á Sankti Franciskusspítalanum í Stykkishólmi 13. janúar 2011. Foreldrar Ingveldar voru Magnús Kristjánsson smiður, f.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Henriksdóttir fæddist á Höfn í Hornafirði 16. desember 1920. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík 9. janúar 2011. Foreldrar hennar voru hjónin Henrik Stefán Erlendsson, héraðslæknir á Hornafirði, f. í Reykjavík 27. febrúar 1879, d.
MeiraKaupa minningabók
21. janúar 2011
| Minningargrein á mbl.is
| 1009 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Páll Arason ferðafrömuður fæddist á Akureyri 2. júní 1915. Hann lést á Akureyri 7. janúar 2011. Foreldrar hans voru Dýrleif Pálsdóttir saumakona og Ari Guðmundsson skrifstofustjóri. Systir Páls er Guðný, húsmóðir í Reykjavík.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Lárusson var fæddur í Neskaupstað 11. apríl 1918. Hann lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn 12. janúar 2011. Hann var sonur hjónanna Lárusar Ásmundssonar, f. 1885, d. 1971, og Dagbjartar Sigurðardóttur, f. 1885, d. 1977.
MeiraKaupa minningabók
Steindór Hjörleifsson fæddist í Hraungerði, Hraungerðishreppi, Árnessýslu, 25. apríl 1938. Hann lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi 6. janúar 2011. Foreldrar Steindórs voru Hjörleifur Sigurbergsson, f. 5.9. 1897, d. 10.5.
MeiraKaupa minningabók
Vigdís Valgerður Eiríksdóttir fæddist í Gunnarshólma, Eyrarbakka 1. janúar 1926. Hún lést á Landspítala í Fossvogi 11. janúar 2011. Foreldrar hennar voru Guðrún Ásmundsdóttir, húsmóðir, frá Efra-Apavatni, f. 11.8. 1883, d. 10.6.
MeiraKaupa minningabók
Þorsteinn Björn Guðmundsson var fæddur í Efri-Hlíð í Helgafellssveit á Snæfellsnesi 13. nóvember 1921. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 12. janúar 2011. Foreldrar hans voru Guðmundur Ari Gíslason, f. 1880, d. 1956, og Sigríður Helga Gísladóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Þorvaldur G. Blöndal húsasmíðameistari var fæddur í Reykjavík 18. nóvember 1947. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Hraunbæ 14 í Reykjavík 12. janúar 2011.
MeiraKaupa minningabók
Þórir Örn Jónsson fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1983. Hann lést 9. janúar 2011. Foreldrar hans eru Jón Magnús Sigurðsson verkstjóri, f. 29. júlí 1951, og Erna Harðardóttir sjúkraliði, f. 24. ágúst 1959. Systkini Þóris Arnar eru Hörður Ingi, f. 19.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri PrimaCare , segir erlenda fjárfesta, sem séu að skoða fjárfestingarmöguleika á Íslandi, hafa miklar áhyggjur af pólitískri áhættu hér á landi. Hún leiði til þess að fjárfestar haldi að sér höndum . Í samtali við mbl.
Meira
Ívar Páll Jónsson Örn Arnarson Alls er lýst kröfum fyrir rúma 36 milljarða króna í þrotabú Sparisjóðsins í Keflavík, en slitastjórn hélt fund með kröfuhöfum í gær.
Meira
Gulleggið, frumkvöðlakeppni Innovit , hefur hafið göngu sína í fjórða sinn. Í gær höfðu yfir 100 umsóknir borist inn í keppnina, en frestur til að senda inn viðskiptahugmynd rann út á miðnætti.
Meira
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Fjármögnun á kaupum eins sjóða Stefnis, dótturfélags Arion banka, á meirihluta í tryggingafélaginu Sjóvá, er ekki lokið.
Meira
Arion banki hafði ekki frumkvæði að því að Vífilfell yrði selt til spænska drykkjarvöruframleiðandans Cobega að sögn Iðu Brár Benediktsdóttur, forstöðumanns samskiptasviðs Arion banka. Hins vegar hafi salan verið háð samþykki bankans.
Meira
Talsverðar hækkanir hafa átt sér stað á innlendum hlutabréfamarkaði það sem af er ári. Í Morgunpósti IFS Greiningar segir að hlutabréf Icelandair hafi hækkað um þriðjung á rétt rúmlega viku .
Meira
Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í gær, í 10,7 milljarða króna veltu . Verðtryggð bréf hækkuðu um 0,3% í tæplega fjögurra milljarða króna viðskiptum og gengi óverðtryggðra bréfa lækkaði um 0,2% í 6,7 milljarða króna viðskiptum.
Meira
Frönsk kvikmyndahátíð verður sett í dag í ellefta skipti og stendur til 3. febrúar næstkomandi. Hátíðin fer fram í Háskólabíói í Reykjavík og þar verða sýndar tíu gæðamyndir.
Meira
Ég flýg til dæmis ekki í vöku, ég er ekki einn af aðalleikurunum í Neighbours, ég get ekki hitt afa og ömmur mínar sem ég sakna, ég get ekki breytt mér í dýr, ég á ekki í ástarsambandi við stórstjörnu og svo mætti lengi telja.
Meira
Finnska verslunin The Secret Shop eða Salakauppa verður opnuð í dag í Spark design Space, Klapparstíg 33 í miðbæ Reykjavíkur og verður opin fram til 15. mars. Vöruhönnuðurnir Aamu Song og Johan Olin reka fyrirtækið Company í Helsinki.
Meira
Það má búast við því að íslenskt kvenfólk komi vel undan vetri. Það verður fleira en blómin sem eiga eftir að gleðja sjón og hjarta í vor þegar fólk fer að láta sjá sig úti á götu aftur.
Meira
Þeir sem hafa unun af hárstílnum „síðu að aftan“ ættu að skoða vefsíðuna Ratemymullet.com. Um er að ræða snilldarsíðu sem hægt er að hlæja mikið yfir.
Meira
Golden Globe-verðlaunahátíðinni er ekki lokið þegar rauði dregillinn hefur verið genginn og styttum úthlutað. Eftir öll formlegheitin byrjar nefnilega partíið fyrir alvöru, þá er nóg af rauðum dreglum til að ganga í öll eftirpartíin.
Meira
Ég rakst á karlinn á Laugaveginum og hann var stórstígur, þegar hann stikaði upp Frakkastíginn: Heldur vænkast hagur minn, hýrnar geð og kætist maginn ef kerling býður karli inn í kofann sinn á bóndadaginn.
Meira
Tilkynnt var í gær að Anne Hathaway muni leika Selinu Kyle, sem er betur þekkt sem kattarkonan, í næstu mynd um Leðurblökumanninn. Christian Bale mun sem fyrr leika auðjöfurinn Bruce Wayne og þar með Leðurblökumanninn.
Meira
Enn einu sinni heillar íslenska landsliðið í handbolta landsmenn og enn einu sinni fá strákarnir okkar þjóðina til þess að gleyma baslinu og brauðstritinu um stund.
Meira
21. janúar 1918 Mesta frost hér á landi, –38° C, mældist á Grímsstöðum og Möðrudal á Fjöllum. Þessi vetur hefur verið nefndur frostaveturinn mikli. 21.
Meira
HM í Svíþjóð Kristján Jónsson í Linköping kris@mbl.is Íslenska landsliðið undirstrikaði í gærkvöldi að það er betra en það norska, alla vega í augnablikinu.
Meira
Kristján Jónsson í Linköping kris@mbl.is „Ég vissi alltaf að þetta yrði stríð. Norðmennirnir höfðu tjáð sig á ýmsan hátt í fjölmiðlum um að við spiluðum kjánalega vörn, við værum bara grófir og dómararnir hafi hjálpað okkur í leikjunum.
Meira
Kristján Jónsson í Linköping kris@mbl.is „Þetta var stóri leikurinn í riðlinum og ég held að við höfum sýnt að við séum betri en Norðmenn. Við erum einfaldlega komnir á það góðan stall en nú taka við þrír alvöru leikir í milliriðlinum.
Meira
Kristján Jónsson í Linköping kris@mbl.is „Ef ég á að segja alveg eins og er þá leiddi ég ekki hugann að því,“ sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Þ.
Meira
Gunnar Harðarson handknattleiksmaður, sem árum saman hefur leikið með Val, hefur fengið félagsskipti yfir til danska liðsins Holte IF. Hann leikur því ekki meira með Val á þessari leiktíð, en keppni í N1-deildinni hefst á nýjan leik í febrúar.
Meira
Frakkar fóru illa að ráði sínu þegar þeir misstu unna stöðu niður í jafntefli í viðureign sinn við Spánverja á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gærkvöldi, lokatölur, 28:28. Franska liðið var yfir allan leikinn og virtist hafa leikinn í hendi sér.
Meira
Grindvíkingar tóku í gærkvöld forystuna í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Iceland Express-deildinni, þegar þeir fengu Tindastól í heimsókn og sigruðu, 77:66. Grindavík er með 24 stig en Snæfell er með 22 stig og fær Njarðvík í heimsókn annað kvöld.
Meira
Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þjóðverjar eru næstu andstæðingar Íslendinga í heimsmeistarakeppninni í handknattleik. Í dag flytur íslenska liðið sig um set, frá Linköping til Jönköping þar sem milliriðill númer eitt verður spilaður næstu fjóra daga.
Meira
Á vellinum Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Ég kann ljómandi vel við mig hérna og það er eins og ég hafi aldrei farið,“ sagði Keflvíkingurinn Magnús Þór Gunnarsson, sem nýgenginn er til liðs við sitt gamla félag.
Meira
Fyrsti landsleikur Íslands í innifótbolta fer fram í íþróttahúsinu á Ásvöllum í kvöld klukkan 19. Þá eigast við Ísland og Lettland en leikurinn er í fyrstu umferð forkeppni Evrópumótsins, þar sem Ísland er á meðal þátttökuþjóða í fyrsta skipti.
Meira
Reykjavíkurmót karla A-RIÐILL: KR – Fylkir 6:4 Kjartan Henry Finnbogason 2 (1 víti), Guðjón Baldvinsson, Viktor Bjarki Arnarsson, Baldur Sigurðsson, Bjarni Guðjónsson (víti) – Davíð Þór Ásbjörnsson, Albert Ingason, Jóhann A.
Meira
Vonir Svía um að komast í undanúrslit á heimsmeistaramótinu í handknattleik á eigin heimavelli vöknuðu á nýjan leik í gærkvöldi þegar þeir lögðu Pólverja, 24:21, í Scandinavium-íþróttahöllinni í Gautaborg.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.