Matvælastofnun telur ekki viðunandi að markaðssetja afurðir búfjár frá bæjum í Engidal í Skutulsfirði við Ísafjörð vegna díoxínmengunar í dýrunum. Stofnunin telur að það sé ekki sitt hlutverk að ákveða hvort eða hvenær skepnunum verður fargað.
Meira
Árið 2010 voru skráðar 864 komur í Kvennaathvarfið sem er mun meira en nokkru sinni áður í 29 ára sögu athvarfsins. Verði nýtt frumvarp að lögum geta fórnarlömb kynferðisofbeldis krafist þess að ofbeldismaðurinn verði látinn víkja af heimilinu.
Meira
Minnst fjórir týndu lífi og tugir slösuðust þegar mótmælendum og öryggissveitum lenti saman á götum Damaskus, höfuðborgar Sýrlands, eftir kvöldbænir í gær.
Meira
Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Forystumenn Landssamtaka lífeyrissjóða áttu í gær fund með forstjóra og stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur þar sem farið var yfir áhuga lífeyrissjóðanna á kaupum eða fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar.
Meira
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, hafa undirritað samning um atvinnuátaksverkefni Skógræktarfélags Íslands fyrir árið 2011.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 452 orð
| 3 myndir
Stangveiði Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hér hefur veiðst vel og þar af einn átján punda,“ sagði Þórarinn Kristinsson við Tungulæk í Landbroti.
Meira
2. apríl 2011
| Erlendar fréttir
| 516 orð
| 4 myndir
Baksvið Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ófáir ráðamenn í heiminum hafa þverskallast við að láta af völdum uns öll sund eru lokuð og eitt versta dæmið um þessa þrjósku er Laurent Gbagbo, fráfarandi forseti Fílabeinsstrandarinnar.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nokkrir af nánustu samstarfsmönnum einræðisherrans Muammars Gaddafis áttu í gær í viðræðum við fulltrúa franskra, breskra og bandarískra stjórnvalda um leiðir að vopnahléssamkomulagi til að binda enda á átökin í Líbíu.
Meira
„Ég hef verið í þessu í nærri hálfa öld og alltaf er jafn gaman að koma í vinnuna,“ segir Sigurður G. Steinþórsson gullsmiður en verslun hans og gullsmíðaverkstæði, Gull & Silfur, fagnar 40 ára afmæli í dag.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 389 orð
| 4 myndir
Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Tíu manna hópur fjallgöngumanna kleif Tindaborg í Öræfajökli um síðustu helgi – nokkuð sem fáir hafa gert á undan þeim.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 250 orð
| 1 mynd
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Bensínverð hefur aldrei verið hærra á Íslandi en þessa dagana. Talið er að verðið hafi náð hámarki og muni lækka á næstunni. Þetta segir Hermann Guðmundsson, forstjóri olíufélagsins N1.
Meira
Áskriftarverð Morgunblaðsins hækkaði 1. apríl og kostar nú mánaðaráskrift 4.390 kr. Helgaráskrift að Morgunblaðinu kostar nú 2.750 kr. Lausasöluverð virka daga verður 399 kr. Lausasöluverð um helgar verður 649 kr. Netáskrift Morgunblaðsins kostar 2.
Meira
Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Karlakór Reykjavíkur söng síðasta lagið fyrir hádegisfréttir í Ríkisútvarpinu í gær í beinni útsendingu.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 202 orð
| 1 mynd
„Það duttu nokkrar fyrirspurnir út síðast vegna þess að dagskráin raskaðist. Ég var tilbúinn, en hefði að vísu ekki getað veitt nema almenn svör þá. En ég hefði getað veitt þær upplýsingar sem við höfðum í höndum,“ segir Steingrímur J.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 132 orð
| 1 mynd
„Það var töluvert mikið spurt um þessa muni, og fólk hafði bara gaman af þessu. Þeir sem komu og spurðu fengu frítt inn á safnið eða frímiða til að koma síðar.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 135 orð
| 1 mynd
Í fyrradag gáfu 15 veitingastaðir alls 3.759.913 krónur til verkefna Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, sem lúta að verndun barna gegn ofbeldi. Barnaheill eru frjáls félagasamtök sem vinna að mannréttindum barna um allan heim.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 131 orð
| 1 mynd
Floridana Virkni frá Ölgerðinni var tilnefnt til drykkjarverðlauna í árlegri samkeppni drykkjarvöruframleiðenda, Beverage innovation functional drink awards .
Meira
Geirnaglinn ehf. á Ísafirði átti lægst tilboð í snjóflóðavarnir ofan Holtahverfis í Ísafjarðarbæ. Sex tilboð bárust í verkið og voru öll nema eitt undir kostnaðaráætlun.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 129 orð
| 1 mynd
Ritfangaverslunin Griffill, sem er í eigu Pennans, hefur flutt sig um set í Skeifunni. Verslunin fór þó ekki langt heldur er áfram starfandi í sama húsnúmeri, Skeifunni 11.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 517 orð
| 2 myndir
Dæmi eru um að verð á notuðum bílum í Bandaríkjunum hafi hækkað um allt að 11% á síðustu tveimur vikum og er skýringin fyrst og fremst rakin til hamfaranna í Japan.
Meira
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga efnir til hádegisverðarfundar á Grand hóteli þriðjudaginn 5. apríl, kl. 12-13.30. Á fundinum verður leitast við að svara þeirri spurningu hvers vegna stór fyrirtæki íhuga að flýja land og koma sér í stærra skjól.
Meira
„Er í Stúdíó Sýrlandi að fara að taka upp meistaraverk með góðum drengjum,“ segir S. Björn Blöndal, bassaleikari Ham, á Fésbókarsíðu sinni. Margumrædd breiðskífa Ham er greinilega komin í myljandi...
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 438 orð
| 1 mynd
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hiti í nýliðnum marsmánuði var nærri meðallagi áranna 1961 til 1990. Lengi leit út fyrir að mánuðurinn yrði vel undir meðallagi en hlýindakaflinn í lok mánaðarins bjargaði málunum.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 313 orð
| 1 mynd
Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Sigríður Hjaltested, saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að sífellt algengara sé að fórnarlömbum og vitnum í sakamálum sé hótað, m.a.
Meira
Pokar með blönduðum ávöxtum merktir Hagveri frá Nathan & Olsen hf. voru í gær innkallaðir af markaði í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eftir að lifandi mítlar fundust í einum poka.
Meira
Á miðvikudag nk. kl. 20:00 verður opinn íbúafundur Hverfisráðs Vesturbæjar haldinn í Stanfordsalnum á 2. hæð á Hótel Sögu (Radison Blu). Á fundinum mun Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri fjalla um skipulag í Vesturbæ.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 337 orð
| 2 myndir
„Kostar verk og smávinnu, en ekki einn einasta þúsundkall,“ segir í lagi hins fimmtán ára gamla Ólafs Gunnars Daníelssonar, sem hann samdi fyrir átak GRÆNS APRÍL á Íslandi sem hófst formlega í ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
Meira
Í sumar, 26. júlí til 8. ágúst, mun hinn heimsþekkti ljósmyndari Mary Ellen Mark, ásamt Einari Fal Ingólfssyni, halda alþjóðlegt námskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Einnig heldur Martin Bell námskeið í heimildarmyndagerð.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 113 orð
| 1 mynd
Í dag, laugardag, kl. 9.00-16.00 stendur félagið Lifðu lífinu fyrir málþingi um ADHD. Málþingið fer fram í JL húsinu, Hringbraut 121 í Reykjavík. Markmiðið með málþinginu er að efla fólk til vitundar um lausnir við ADHD.
Meira
Liðlega 55% þeirra sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Capacent fyrir Áfram-hópinn segjast örugglega eða líklega ætla að kjósa með lögunum um ríkisábyrgð vegna Icesave í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu en tæplega 45% segjast munu örugglega eða líklega kjósa...
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 639 orð
| 2 myndir
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Framsóknarmenn telja mögulegt að mótframboð komi fram á flokksþingi Framsóknar eftir viku, gegn Birki Jóni Jónssyni, varaformanni flokksins. Helst er rætt um Vigdísi Hauksdóttur í þeim efnum.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Samtök atvinnulífsins kynntu sjávarútvegsráðherra í gær tillögur að útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi. Eru tillögurnar hugsaðar sem málamiðlun SA í deilu útvegsmanna og stjórnvalda um breytingar á kvótakerfinu.
Meira
Lið Norðurþings sigraði í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins í ár, vann Akureyringa í ótrúlegri rimmu í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gærkvöldi, 75:73.
Meira
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar stendur fyrir opnum fundi um menningarmál í Garðabæ. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 4. apríl nk. í samkomuhúsinu á Garðaholti í Garðabæ og stendur frá kl. 20.00 til 21.30.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 607 orð
| 2 myndir
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Óleystur ágreiningur vinnuveitenda og stjórnvalda í sjávarútvegsmálum hangir yfir höfðum samningamanna Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem þó eru að undirbúa lokaatlögu að gerð nýrra kjarasamninga.
Meira
Vorboðinn ljúfi Lóur þessar flugu fagurlega saman á Álftanesinu í gær en lóan er sá fugl sem landsmenn taka hvað mest fagnandi enda syngur hún inn sjálft vorið...
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 292 orð
| 2 myndir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 36 ára gamlan karlmann, Ingvar Árna Ingvarsson, í tveggja ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á fyrrverandi sambýliskonu sína auk hótana og fjárkúgunar.
Meira
2. apríl 2011
| Innlendar fréttir
| 517 orð
| 3 myndir
Baksvið Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hreindýraveiðimenn, líkt og leiðsögumenn með hreindýraveiðum, þurfa hér eftir að gangast undir skotpróf verði nýtt frumvarp umhverfisráðherra að lögum.
Meira
Svo virðist sem líf sé að færast í fasteignamarkaðinn eftir mögur ár undanfarið. Alls var 125 kaupsamningum um fasteignir þinglýst hjá sýslumannsembættum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni.
Meira
Oft telja menn að þeirra eigin orð hafi nokkurt vægi og vænta þess að aðrir taki þá alvarlega. Sumir eru jafnvel það viðkvæmir fyrir sjálfum sér að þeir eiga það til að móðgast ef enginn gerir neitt með skoðanir þeirra.
Meira
Möguleikhúsið frumsýnir barnaleikritið Gýpugarnagaul í Gerðubergi á morgun, sunnudag, klukkan 14. Sýningin byggist á gömlum íslenskum munnmælum og kveðskap.
Meira
Eins og flestar konur vita krefst það of oft nokkurrar þolinmæði að umgangast karlmenn í miklum mæli. Aldrei er þetta þó erfiðara en í mars þegar þeir verða áberandi loðnir og ófrýnilegir.
Meira
Höfundur Mad Men sjónvarpsþáttanna, Matthew Weiner, hefur samið við fyrirtækið Lionsgate og kapalstöðina AMC um gerð fleiri þáttaraða um auglýsingamennina. Weiner fær fyrir þetta 30 milljónir dollara.
Meira
Já, frétt þess efnis að ódýrir miðar væru fáanlegir á Eagles-tónleikana í sumar í blaði gærdagsins voru aprílgabb. Sagt var frá því að Framkvæmdaaðilar Eagles ætluðu að selja 50 miða á tónleikana á 5.000 kr.
Meira
Verk eftir Schubert, Schönberg, Messiaen, Janacek og Brahms. Sigurbjörn Bernharðsson fiðla, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó. Miðvikudaginn 30. marz kl. 20.
Meira
Í kvöld fer fram úrslitakeppnin í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, og mætast þar miðbæjarskólarnir Menntaskólinn í Reykjavík og Kvennaskólinn í Reykjavík.
Meira
Stjórnendur kvikmyndahúsafyrirtækja í Bandaríkjunum hafa lýst yfir óánægju sinni yfir því að fjögur stór kvikmyndaframleiðslufyrirtæki í Hollywood, þ.e. Warner Bros.
Meira
Bandaríska leikkonan Kim Cattrall var heldur ósátt við spurningu blaðakonu The New York Post á dögunum og sagði hana kjánalega. Blaðamaðurinn spurði hvort hún færi í bikinívax eins og Samantha, persónan sem hún lék í þáttunum Beðmál í borginni.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hér eru trjágreinar, rafmagnssnúrur og æðakerfi, ýmsar vísanir í náttúruna, í flæði sem er óútskýranlegt og endalaust,“ segir Harpa Dögg Kjartansdóttir.
Meira
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Today is the Day er goðsögn í heimi öfgarokksins en hún var stofnuð snemma á tíunda áratugnum af Steve Austin, sem er eini meðlimurinn sem enn er í sveitinni.
Meira
Rapparinn Snoop Dogg fékk leikarann Charlie Sheen til að koma fram í lagi sem gítarleikari Korn, Rob Patterson, framleiðir. Stendur til að gefa lagið út á smáskífu en ekki ljóst hvenær það verður.
Meira
Johannes Brahms: Tilbrigði við stef eftir Haydn op. 56b, Frederic Chopin: Rondo op. 73, W.A. Mozart: Sónata fyrir tvö píanó í D-dúr KV 448, Maurice Ravel: La Valse. Aladár Rácz og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó. Sunnudagur 27. mars kl. 20:00.
Meira
Leikstjóri: Neil Burger Handrit: Leslie Dixon & Alan Glynn Aðalleikarar: Bradley Cooper, Anna Friel, Abbie Cornish og Robert De Niro. 105 mínútur. Bandaríkin, 2011.
Meira
Sýning á verkum eftir Rut Rebekku verður opnuð í sal Íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17 í Hafnarhúsinu, hafnarmegin, í dag laugardag klukkan 14. Yfirskrift sýningarinnar er Umbreyting .
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Útvarpsþátturinn Kallinn var fluttur í gær kl. 13 á samtengdum rásum ríkisútvarpsins, Rás 1 og 2, hlustendum mörgum til nokkurrar furðu.
Meira
Vanilla Ice, bandaríski rapparinn sem einkum er þekktur fyrir smellinn „Ice Ice Baby“ frá árinu 1989, mun bregða sér í hlutverk Króks kafteins í látbragðsuppsetningu á Pétri Pan næsta vetur, í Central Theatre í Chatham í Kent á Englandi.
Meira
Harry Bretaprins verður svaramaður bróður síns Vilhjálms en hann gengur að eiga Kate Middleton 29. apríl nk. En þrátt fyrir að um konunglegt brúðkaup sé að ræða ætlar Harry ekkert að skafa utan af því í ræðu sem hann mun halda í brúðkaupsveislunni.
Meira
Eftir Hafstein Karlsson: "Forseti bæjarstjórnar beitti ekki fyrir sig bæjarmálasamþykkt, né hafnaði ósk bæjarfulltrúans, eins og Ármann fullyrðir í grein sinni."
Meira
Eftir Helgu Margréti Guðmundsdóttur: "Átakið ber yfirskriftina „Verum vakandi“ og er markmiðið að fræða foreldra um kannabis (marijúana eða „gras“) sem virðist nú í mikilli uppsveiflu."
Meira
Eftir Sigurð Hannesson: "Hefði greiðslumiðlun ekki verið tryggð hefðu eignir gamla Landsbankans rýrnað enn frekar þar sem verulegur hluti þeirra voru innlendar eignir."
Meira
Eftir Gunnar Skúla Ármannsson: "Hvað er það sem heillar íslenska vinstri stjórn til að leggja ríkustu bönkum Evrópu lið við innheimtu á misheppnaðri lánastarfsemi þeirra?"
Meira
Eftir Sigurð Oddsson: "Nú er bara að vona, að samningurinn verði kynntur fyrir þjóðinni, þannig að hún geti í kosningum tekið vel upplýsta ákvörðun."
Meira
Eftir Rúnar Má Bragason: "Það er vond hagfræði að líta ekki til lengri eða skemmri tíma. Með Icesave-samningnum virðist hvorugt vera gert. Nei við Icesave er það besta."
Meira
Eftir Hall Hallsson: "Báðir þessir annars ágætu menn eru með óbragð í munni. Þeir biðja þjóðina að kyngja ógeðsdrykknum með sér. Við því er einfalt svar: Nei."
Meira
Gjör rétt þol ei órétt Látum ei fornar nýlenduþjóðir beygja okkur vegna óráðsíu og siðleysis í einkafyrirtækjum, en rök eru öll okkar megin þar sem þetta er helst; 1.
Meira
Tímarnir breytast og tæknin með – og mennirnir pínulítið. Mér flaug það í hug í vikunni þegar ég setti saman grein um íshokkí á Akureyri, sem birt er í Sunnudagsmogganum í dag.
Meira
Frá Toshiki Toma: "Hamfarir velja ekki fórnarlömb, hvort sem þær stafa af krafti náttúrunnar eða af mannavöldum. Hamfarirnar hitta hins vegar alla jafnt fyrir, hvort sem það eru karlmenn, konur, börn, gott fólk eða trúaðir."
Meira
Minningargreinar
2. apríl 2011
| Minningargreinar
| 2461 orð
| 1 mynd
Alfreð Jónsson fæddist að Stóru-Reykjum í Fljótum 5. ágúst 1921. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 22. mars 2011. Foreldrar hans voru Jón Guðmundsson, f. 3.9. 1900, d. 30.1. 1988, og Helga Guðrún Jósefsdóttir, f. 12.7. 1901, d. 22.5. 1971.
MeiraKaupa minningabók
Bergþór Friðriksson frá Fáskrúðsfirði fæddist 21. maí 1970. Hann lést 24. mars 2011. Foreldrar hans eru Friðrik Stefánsson, látinn, og Elín Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Bergþór var yngstur tíu systkina.
MeiraKaupa minningabók
2. apríl 2011
| Minningargreinar
| 1556 orð
| 1 mynd
Borghildur Sjöfn Karlsdóttir fæddist í Bjálmholti í Holtum 12. júní 1937. Hún lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 27. mars 2011. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Ólafía Sigurðardóttir frá Bjálmholti, f. 26.4. 1896, d. 1.9.
MeiraKaupa minningabók
2. apríl 2011
| Minningargreinar
| 4981 orð
| 1 mynd
Eyþór Ágústsson fæddist á efri hæð hússins Strýtu í Flatey á Breiðafirði 9. nóvember 1943. Hann lést 24. mars 2011. Eyþór var annað barn hjónanna Ágústs Péturssonar skipstjóra og Ingveldar Stefánsdóttur en þau voru bæði úr Bjarneyjum.
MeiraKaupa minningabók
2. apríl 2011
| Minningargrein á mbl.is
| 927 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Guðmundur Sveinsson fæddist á Hofsstöðum í Þorskafirði í Reykhólasveit 11. ágúst 1920. Hann lést á Reykhólum 24. mars 2011. Faðir hans var Sveinn Sæmundsson, ættaður úr Dölum, og móðir hans Sesselja Oddmundsdóttir úr Bolungarvík.
MeiraKaupa minningabók
2. apríl 2011
| Minningargreinar
| 2284 orð
| 1 mynd
Sigrún Jónsdóttir frá Brautarholti fæddist á Gunnlaugsstöðum í Stafholtstungum 10. sept. 1915. Hún lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 26. mars 2011. Sigrún var dóttir hjónanna Jóns Þórólfs Jónssonar bónda á Gunnlaugsstöðum, f. 25. júní 1870, d.
MeiraKaupa minningabók
Þórdís Fjeldsted fæddist í Borgarnesi 5. desember 1917. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 14. mars 2011. Útför Þórdísar fór fram frá Borgarneskirkju 26. mars 2011, og hefst athöfnin kl. 13.
MeiraKaupa minningabók
Þórdís Ingibjörg Sverrisdóttir fæddist í Klettakoti á Skógarströnd, Dalasýslu, 7. september 1946. Hún lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 21. mars 2011. Útför Þórdísar fór fram frá Sauðárkrókskirkju 31. mars 2011. Jarðsett var í Reynistaðarkirkjugarði.
MeiraKaupa minningabók
2. apríl 2011
| Minningargreinar
| 1026 orð
| 1 mynd
Þórður Stefánsson fæddist á Hnappavöllum í Öræfasveit 17. desember 1923. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands 18. mars 2011. Foreldrar hans voru Stefán Þorláksson, bóndi á Hnappavöllum, f. 1878, d.
MeiraKaupa minningabók
Örn Jóhannesson var fæddur í Reykjavík 23. ágúst 1942. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 25. febrúar 2011. Útför Arnar fór fram frá Dómkirkjunni 10. mars 2011.
MeiraKaupa minningabók
Viðskipti
2. apríl 2011
| Viðskiptafréttir
| 637 orð
| 3 myndir
Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,56 prósent í gær og endaði í 207,77 stigum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,70 prósent og sá óverðtryggði um 0,21 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði í gær nam 8,32 milljörðum króna. bjarni@mbl.
Meira
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Innistæður Nýja Landsbankans (NBI) drógust saman um 81 milljarð króna, tæplega 18%, milli ára. Þetta kemur fram í nýbirtu uppgjöri bankans fyrir síðasta ár.
Meira
Nasdaq OMX Group, sem rekur meðal annars norrænar kauphallir, mun ásamt afleiðumarkaðnum IntercontinentalExchange gera kauptilboð í NYSE Euronext, móðurfélag kauphallarinnar á Wall Street. Tilboðið hljóðar upp á 11,3 milljarða dala.
Meira
Nýir hluthafar MP Banka munu gera það að tillögu sinni á hluthafafundi að Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, verði kjörinn formaður nýrrar stjórnar bankans. Hluthafafundurinn fer fram næstkomandi föstudag.
Meira
Laugardagur er hinn fullkomni dagur fyrir brunch. Sumir eru kannski smá ryðgaðir eftir föstudagskvöldið og þá er fátt gómsætara en fullur diskur af beikoni, eggjum og öllu tilheyrandi.
Meira
Vefsíðan listverse.com er tilvalin fyrir þá sem finnst skemmtilegt að sjá lífið í listum. Síðan er nefnilega stútfull af listum af ýmsum gerðum. Þarna má t.d.
Meira
Í samstarfi við Reykjavík Fashion Festival verður haldinn PopUp / RFF Markaður Íslenskra Fatahönnuða nú um helgina. En opið verður bæði í dag og sunnudag á milli klukkan 11:00 og 18:00.
Meira
Blaðamaður ákvað að prófa að gerast páskahéri um stund og búa til páskaegg. Það er alveg á hreinu að þetta ljúffenga súkkulaðiegg verður búið löngu fyrir páska. Enda erfitt að standast flest það sem gert er úr súkkulaði!
Meira
Góð mæting á Suðurnesjum Meistaramót bridsfélaganna á Suðurnesjum hófst sl. miðvikudag og var þátttakan mjög góð en spilað var á 9 borðum. Garðar Garðarsson og Arnór Ragnarsson byrjuðu best og eru með 61,3% skor.
Meira
Rogers Waters hyggst flytja Pink Floyd-lag á tónleikum á þessu ári ásamt fyrrv. sveitarfélaga sínum, David Gilmour. Waters ætlar að spila The Wall á nokkrum tónleikum í London í maí.
Meira
Alda Ármanna Sveinsdóttir myndlistarkona er 75 ára í dag og heldur upp á afmælið með stíl því í dag verður opnuð sýning með verkum hennar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Meira
Ég hitti karlinn á Laugaveginum, þar sem hann hálf-hljóp niður Frakkastíginn og varð hugsað til kerlingarinnar á Holtinu, – hvort hún væri komin heim. Að minnsta kosti var hljóðið í karlinum þannig.
Meira
Anna Eva Steindórsdóttir, Gerður Sif Heiðberg, Nína Lovísa Ragnarsdóttir, Embla Nanna Þórsdóttir, Sigríður María Eggertsdóttir, Ólavía Rún Grímsdóttir og Helena Marína Salvador sömdu lag um ástandið í Japan og sungu til stuðnings fólki í Japan.
Meira
Ásgeir Ásgeirsson var aðeins 29 ára að aldri, þegar hann var í framboði í Vestur-Ísafjarðarsýslu 1923 gegn íhaldsmanninum Guðjóni Guðlaugssyni á Ljúfustöðum. Þá mælti hann hin fleygu orð: „Mér er borið á brýn, að ég sé of ungur.
Meira
2. apríl 1725 Eldgos hófst í nágrenni Heklu og fylgdu því „skelfilegir jarðskjálftar,“ eins og sagði í Hítardalsannál. 2. apríl 1928 Jóhanna Magnúsdóttir fékk lyfsöluleyfi, fyrst íslenskra kvenna.
Meira
1. deild karla Grótta – Selfoss U 38:25 ÍR – Stjarnan 32:29 ÍBV – Víkingur 32:22 FH U – Fjölnir 29:26 Staðan: Grótta 201622607:47634 ÍR 201514600:50431 Stjarnan 201217556:47825 ÍBV 201037522:52323 Víkingur R.
Meira
Golf Kristján Jónsson kris@mbl.is Kristján Þór Einarsson, kylfingur úr Kili í Mosfellsbæ, hefur átt velgengni að fagna í háskólagolfinu í Bandaríkjunum í vetur.
Meira
Í fjallinu Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Fyrsta Skíðamót Íslands í 11 ár í Reykjavík fer fram um helgina. Keppni hófst á fimmtudaginn í sprettgöngu en keppt var í göngu í gær.
Meira
Keflavík og Njarðvík mætast í dag í fyrsta leiknum í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna. Leikurinn fer fram í „Sláturhúsinu“ í Keflavík þar sem bikarmeistarar Keflavíkur eiga heimaleikjaréttinn.
Meira
Arnar Jón Agnarsson skoraði átta mörk og var markahæstur hjá EHV Aue þegar liðið vann Rheinhausen, 35:26, í suðurriðli þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í gærkvöldi. Arnari Jóni var auk þess tvisvar vísað af leikvelli í tvær mínútur.
Meira
Fylkismenn eru áfram með í baráttunni um sæti í undanúrslitum deildabikars karla í fótbolta, Lengjubikarsins, eftir sigur á Grindvíkingum, 2:1, á gervigrasvelli sínum í Árbænum í gærkvöld.
Meira
Ísland hafnaði í 3. sæti í 4. deild kvenna á heimsmeistaramótinu í íshokkí sem lauk í Laugardalnum í gærkvöldi. Síðasti leikur Íslands í deildinni reyndist hreinn úrslitaleikur um 2. sætið við Suður-Kóreu og tapaði honum 1:4.
Meira
Leikmenn Gróttu stigu taktfastan sigurdans á fjölum íþróttahússins á Seltjarnarnesi eftir að þeir lögðu ungmennalið Selfoss, 38:25, í næstsíðustu umferð 1.
Meira
Á vellinum Kristján Jónsson kris@mbl.is Keflvíkingar og KR-ingar buðu upp á einhvern magnaðasta leik sem undirritaður hefur orðið vitni að í úrslitakeppni Íslandsmótsins í körfuknattleik í gærkvöldi.
Meira
Undirritaður var í vikunni samstarfssamningur milli forsvarsmanna Vísindavefs Háskóla Íslands og Landsvirkjunar um samstarf á sviði vísindamiðlunar. Með samstarfinu tekur fólk höndum saman um nútímalega fræðslu um vísindi handa almenningi.
Meira
Nýtt skipulag hjá Nýherja og dótturfélögum á Íslandi tók gildi í gær. Helstu breytingarnar felast í sameiningu félaga í tengdri starfsemi og uppbyggingu stærri eininga sem veita þjónustu á sviði upplýsingatækni.
Meira
Aprílmánuður verður helgaður verkfræði og raun- og náttúruvísindum í Háskóla Íslands í tilefni af aldarafmæli skólans. Dagskráin hefst í dag, 2. apríl, þegar raunvísindadeild og Raunvísindastofnun bjóða almenningi að skoða húsakynni sín og rannsóknir.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.