Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt Birki Árnason í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu aðfaranótt 31. júlí sl. á útisalerni á þjóðhátíðarsvæði í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Þá er Birki gert að greiða konunni 1,2 milljónir kr. í miskabætur.
Meira
Laugardagur Kl. 11-12 Kosning formanns Samfylkingarinnar fer fram á landsfundinum. Jóhanna Sigurðardóttir gefur kost á sér til endurkjörs og hafa engin mótframboð borist. Kl. 12-12:50 Umræður fara fram í málstofum um ýmis mál, m.a.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Raunávöxtun lífeyrissjóðanna var almennt 1-2% á fyrri helmingi ársins sem er undir markmiðum. Erlendar eignir hafa síðan minnkað.
Meira
Stjórnmálamenn á Spáni fögnuðu í gær yfirlýsingu aðskilnaðarhreyfingar Baska, ETA, um að hún hefði hætt vopnaðri baráttu sinni fyrir sjálfstæðu ríki. Þrír fulltrúar ETA lýstu þessu yfir á myndbandsupptöku sem birt var í fyrradag.
Meira
Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Ungur maður reyndi síðdegis í gær að ræna veski af gamalli konu, fæddri 1935, á innkeyrslu að blokkum eldri borgara við Kirkjusand í Reykjavík. Við ránstilraunina féll konan í götuna en hún sleppti ekki takinu af veskinu.
Meira
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Hæstu einkunnirnar í samræmdum könnunarprófum í 10. bekk eru í skólum í nágrenni Reykjavíkur. Þær lægstu eru í grunnskólum í Suðurkjördæmi. Best gekk nemendum í ensku, þar sem meðaleinkunnin er 7,3.
Meira
Fréttaskýring Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nú þegar Muammar Gaddafi er fallinn fá Líbíumenn loksins tækifæri til að byggja upp lýðræðislegt og réttlátt stjórnkerfi eftir 42 ára einræði og kúgun.
Meira
Minnst fjórar konur sem starfa hjá Arion banka segjast hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu yfirmanns innan bankans. Bankinn staðfestir að málefni starfsmannsins hafi verið til athugunar innan bankans að undanförnu.
Meira
Voðaverkin voru afleiðingar haturs. Hann er ekki einn um slíka hugmyndafræði, sögðu ungir jafnaðarmenn meðal annars við minningarathöfn um þá sem létust á árásunum í Útey og Osló, við setningu landsfundar Samfylkingarinnar.
Meira
Fimm tillögur fengu viðurkenningu frá dómnefnd Þingvallanefndar vegna hugmyndaleitar um uppbyggingu á Þingvallasvæðinu. Alls bárust dómnefndinni 102 tillögur.
Meira
Samtök atvinnulífsins, UNDP í Kaupmannahöfn, Íslandsstofa og Þekkingarsetur um samfélagsábyrgð fyrirtækja efna til morgunverðarfundar og námskeiðs um samfélagsábyrgð þriðjudaginn 25. október kl. 8.30 á Grand Hótel Reykjavík.
Meira
Fréttaskýring Kristján Jónsson kjon@mbl.is Gjaldþrot hefur ekki verið talin auðveld eða þægileg lausn á vanda þeirra sem ekki sjá fram úr skuldunum, fremur algert neyðarúrræði. En í desember í fyrra var gerð lagabreyting sem gæti orðið afdrifarík.
Meira
Róber B. Róbertsson robert@mbl.is Þorbjörn Jónsson, nýkjörinn formaður Læknafélags Íslands, segir yfirvofandi skort á sérfræðilæknum vera mikið áhyggjuefni.
Meira
Í gær lauk samningafundi um makrílveiðar í London sem hófst á miðvikudaginn. Í fundinum tóku þátt fulltrúar Íslands, ESB, Noregs, Færeyja og Rússlands.
Meira
Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Dómur Hæstaréttar frá því á fimmtudaginn um gengistryggingu fjármögnunarleigusamninga getur haft töluverðar afleiðingar í för með sér hafi hann fordæmisgildi gagnvart öðrum sambærilegum samningum.
Meira
Krabbameinsfélag Íslands heldur Bleika boðið í Hörpu fimmtudaginn, 27. október nk. Þar mæta 1000 konur í fjölbreytta skemmtun, en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar leggja sitt af mörkum til að gleðja gesti. Miðasala fer fram á vefnum...
Meira
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Helga Sigríður Sigurðardóttir á Akureyri er óvenju lífsreynd eftir að hafa fengið hjartaáfall fyrir ellefu mánuðum, aðeins 12 ára að aldri.
Meira
Nú þegar við komum saman á ný og kjörtímabil ríkisstjórnarinnar er vel hálfnað er björgunarstarfinu að mestu lokið og raunveruleg sókn til betri lífskjara og manneskjulegra samfélags er komin vel á veg.
Meira
Óháð rannsókn hefur leitt í ljós að yfirborð jarðar hefur hlýnað á síðustu áratugum. Hún staðfestir því niðurstöður fyrri rannsókna sem efasemdamenn höfðu dregið í efa.
Meira
Dæmi eru um að fólk hafi orðið fyrir varanlegum augnskaða eftir geisla frá leysibendi. Framvegis er óheimilt að nota slíka benda án leyfis frá Geislavörnum ríkisins og einnig ber að tilkynna Geislavörnum innflutning þeirra.
Meira
Ríkissaksóknari hefur sent frá sér tilkynningu um að hann hafi sett á heimasíðu sína dóm Hæstaréttar í máli nr. 214/1978. Um er að ræða svonefnd Guðmundar- og Geirfinnsmál þar sem lesa má bæði dóm Sakadóms Reykjavíkur og Hæstaréttar í sakamálinu.
Meira
Fyrir utan óvissuna sem getur skapast vegna dóms Hæstaréttar um fjármögnunarleigusamninga telur Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, að dómurinn geti haft kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð vegna ofgreidds virðisaukaskatts.
Meira
ÚR BÆJARLíFINU Jón Sigurðsson Blönduós Dr. Þór Jakobsson veðurfræðingur hefur í gegnum tíðina reynst Blönduósingum vinur í raun. Á sunnudaginn var opnuð Þórsstofa sem er vinnustofa og fundarsalur á annarri hæð Kvennaskólans á Blönduósi.
Meira
Starfsmenn Sorpu vissu af þeirri vinnureglu bílstjóra að aka gegn einstefnumerki að endurvinnslustöðinni við Dalbraut á morgnana þegar stöðin er lokuð almenningi. Sorpa setti sjálf upp skiltin.
Meira
Félagar í veðurklúbbunum á Dalvík og Hellu eru sammála um að veturinn verði snjóléttur, að minnsta kosti fram undir jól. Sumarið kvaddi með ágætisveðri og útlit er fyrir þokkalegt veður í dag, fyrsta vetrardag.
Meira
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fyrsti vetrardagur er í dag. Sumarið var kvatt í gær með ágætis veðri víðast um land. Eftir kalt vor og rysjótt sumar eru eflaust margir farnir að velta fyrir sér hvernig komandi vetur á eftir að fara með...
Meira
Systurnar sem létust í bílslysinu á Alicante á Spáni á fimmtudag hétu Erla og Svana Tryggvadætur. Erla var 82 ára gömul, fædd 9. júlí 1929 og bjó í Suðurhlíð 38 D í Reykjavík. Erla var fráskilin og lætur eftir sig fjögur börn. Svana var áttræð, fædd 11.
Meira
Birkir Fanndal Mývatnssveit Þegar ekin er fremur torfær leið í Bláhvamm sem er skjólsæll ævintýraheimur norðan undir Bláfjalli við Mývatn, vekja stórir kúlulaga hnyklar úr gaddavír athygli bæði vegna stærðarinnar sem er um 70 cm og einnig vegna þess...
Meira
Tveggja ára kínversk stúlka, sem ekið var yfir í borginni Foshan í Kína fyrir viku, lést í fyrrinótt eftir mikla umræðu í landinu um viðbrögð vegfarenda við slysinu. Bílstjóri, sem olli slysinu, ók á brott og a.m.k.
Meira
Svipmynd Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Ég fór bara að velta því fyrir mér hvað ég gæti gert til þess að vekja athygli á þessum kynbundna launamun og þá á jákvæðan hátt.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Héraðsskólarnir voru ekki bundnir skólahéruðum og nemendur úr öllum landsfjórðungum og á mismunandi aldri komu í Reykholt.
Meira
Viðtal Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Miklu máli skiptir fyrir fæðandi konur að geta höndlað aðstæður. Þær líta öðrum augum á þann sársauka sem fylgir fæðingum en annan sársauka og mörgum konum finnst það styrkja sjálfsmynd sína að fæða barn.
Meira
Nú styttist í það að varðskipið Þór komi til Íslands í fyrsta sinn. Skipið siglir nú frá Halifax í Kanada til Íslands. Vestmannaeyjar verða fyrsti viðkomustaður varðskipsins sem mun leggja að bryggju þar miðvikudaginn 26. október nk.
Meira
Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu vill hvetja til þess að áfram verði gert ráð fyrir dráttarbraut á Slippsvæðinu í Reykjavík. Ályktun þess efnis var samþykkt á á stjórnarfundi nýlega.
Meira
Samkvæmt tillögu fulltrúa meirihlutans í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur á að bjóða út hirðu á pappírsefnum sem á að safna frá heimilum í borginni frá og með næstu áramótum, í áföngum þó.
Meira
Fyrir nokkrum dögum flutti fréttastofa Ríkisútvarpsins frétt af forstjóramálum Bankasýslunnar með fyrirsögninni: „Verður ekki forstjóri Bankasýslu“.
Meira
Kvikmyndaleikstjórinn George Romero virðist ætla að snúa sér aftur að uppvakningamyndum, ef marka má vefinn Cinemablend. Romero er höfundur þeirrar kvikmyndar sem líklega er hvað þekktust uppvakningamynda, The Night of the Living Dead.
Meira
Ágúst Ingi Ágústsson leikur á tónleikum Listafélags Langholtskirkju á sunnudag kl. 20.00. Ágúst leikur á Noack-orgel kirkjunnar sem byggt er í barokkstíl. Á efnisskránni eru barokkverk eftir Nicolaus Bruhns, Georg Böhm, J.S.
Meira
Í dag og á morgun verða haldnar sérstakar barnasýningar í Sambíóunum Álfabakka á teiknimyndunum Konungi ljónanna og Bangsímon. Bangsímon verður sýnd kl. 11 og Konungur ljónanna kl. 11.30.
Meira
Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Egill Sæbjörnsson mun opna sýningu á verkum sínum í Noga Gallery of Contemporary Art í Tel Aviv í Ísrael, 28. október næstkomandi.
Meira
Karlakór Eldri Þrasta fagnar 20 ára afmæli sínu með tónleikum í Fríkirkjunni, Hafnarfirði, í dag kl. 17. Söngstjóri er Guðjón Halldór Óskarsson og við píanóið Bjarni Jónatansson. Aðgangur er...
Meira
Unnendur Toms Waits hafa mátt bíða lengi eftir nýrri hljóðversplötu frá honum, því sjö ár eru liðin síðan hin kröftuga Real Gone leit dagsins ljós.
Meira
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Aðrir tónleikar Kammermúsíkklúbbsins á þessu starfsári verða haldnir í Bústaðakirkju næstkomandi sunnudagskvöld. Þá flytur Tríó Nordica þrjú píanótríó; númer 1 í c-moll op.
Meira
Ég sá brot úr 60 mínútum um daginn. Þar var Andy Rooney að kveðja eftir áratuga þátttöku í þættinum. Hann sagðist vera orðinn 92 ára. Ég átti bágt með að trúa því. Hann leit vel út og var dásamlega greindarlegur.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta eru á þriðja hundrað verk sem ég er að setja hér upp. Þú ert ekki að tala við einstakling heldur fyrirtæki sem heitir Dagur og nótt!“ sagði Bjarni H.
Meira
Á sunnudag kl. 14.00 veitir Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, leiðsögn um sýninguna Þá og nú, fjallar um inntak sýningarinnar og beinir sjónum að verkum sem endurspegla sjötta og sjöunda áratug 20. aldar.
Meira
Málþing um rithöfundinn Kristmann Guðmundsson verður haldið í Norræna húsinu á sunnudag en þann dag eru liðin 110 ár frá fæðingu hans. Málþingið, sem stendur frá kl. 13.30 til 17.
Meira
Stöð 2, N1 og Sena blésu til söngkeppni fyrir börn 16 ára og yngri á dögunum og sigurvegarinn mun koma fram á tónleikunum Jólagestir Björgvins, 3. desember. Um 400 börn hafa sent inn myndbönd í keppnina og á að velja 10 úr þeim hópi.
Meira
Tveir heimar er yfirskrift sýningar í minningu Óla G. Jóhannssonar listmálara sem opnuð verður í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í dag kl. 15. Á sýningunni verða verk eftir Óla sem sum hver hafa verið sýnd opinberlega áður, önnur ekki. Óli G. lést 20.
Meira
Drengirnir í írsku drengjasveitinni Westlife hafa ákveðið að leggja niður störf, sáttir við 14 ára starf enda hafa þeir náð 26 lögum í efstu tíu sæti breska lagalistans og þar af 14 í fyrsta sæti.
Meira
Eftir Sigurð Magnússon: "Enginn á Álftanesi sá fyrir hrunið 2008 sem ritstjóri Morgunblaðsins og félagar hans efndu til með einkavæðingu í boði frjálshyggjustefnunnar."
Meira
Viðtal Þórhalls Gunnarssonar við Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur í sjónvarpi á dögunum vakti þá athygli sem verðskulduð var. Pöddur spruttu undan hverjum steini sem spyrill velti úr vegi og svör viðmælanda voru í senn skýr og greinargóð.
Meira
Frá Ómari Sigurðssyni: "Við Íslendingar erum að ala fólk upp í auðnuleysi. Atvinnulausir Íslendingar eru yfir tuttugu þúsund. Þeir sem hafa mestan metnaðinn hafa farið til útlanda til að sækja sér vinnu."
Meira
Frá Kristjáni Snæfells Kjartanssyni: "Sóun fjármuna hefur verið hvað varðar hóp sem var kosinn með almennri kosningu sem átti að koma með tillögu um breytingu á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Mjög vönduð stjórnarskrá var gerð árið 1944 við stofnun lýðveldisins 17. júní það ár."
Meira
Eftir Hjörleif Guttormsson: "Fjarlægð Íslands frá meginlandinu og valdastofnunum ESB takmarkar enn frekar möguleika almennings til áhrifa, svo ekki sé talað um búsáhaldabyltingu."
Meira
Eftir Jón Bjarnason: "Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru bundnir af því að standa vörð um meginhagsmuni og ef og þegar farið er út fyrir þá, að vísa málinu til Alþingis."
Meira
Eftir Skúla Skúlason: "Össur vill endilega að við verðum fyrsta Evrópuríkið til að viðurkenna goðsagnaríkið Palestínu. Ég segi nei takk – aldrei."
Meira
Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins.
Meira
Kannast einhver við fólkið? Þessi mynd fannst á víðavangi í Reykjavík fyrir stuttu. Upplýsingar í síma 581-2308 eða 866-5050. Leiðinlegir þættir Legg ég til að laugardagsþátturinn Kexvexsmiðjan verði tekinn af dagskrá.
Meira
Eftir Helgu Sif Friðjónsdóttur og Þór Gíslason: "Þessi hópur er ekki eign ákveðinna meðferðarstofnana heldur er honum frjálst að leita aðstoðar þar sem hann sjálfur kýs þegar hann er tilbúinn til þess."
Meira
Anna Þóra Pálsdóttir fæddist í Reykjavík 16. júní 1939. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 31. ágúst 2011. Útför Önnu fór fram 9. september 2011.
MeiraKaupa minningabók
Bergur Jónsson fæddist í Reykjavík 16. apríl 1934. Hann lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, 28. september 2011. Útför hans fór fram frá Bústaðakirkju 11. október 2011.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Bryndís Sveinsdóttir fæddist í Reykjavík 13. desember 1921. Hún lést á Selfossi 10. október 2011. Útför Bryndísar fór fram frá Selfosskirkju 15. október 2011.
MeiraKaupa minningabók
Geirmundur Þorsteinsson fæddist á Sandbrekku í Hjaltastaðarþinghá 23.4. 1932. Geirmundur lést eftir stutta sjúkdómslegu á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 17. október 2011. Foreldrar hans voru Ingibjörg Geirmundsdóttir, f. 26.10. 1899, d. 15.2.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Rebekka Kristinsdóttir fæddist í Ólafsvík 16. október 1944. Hún lést á líknardeild Landspítalans 12.október 2011. Foreldrar hennar voru Guðrún Þorsteinsdóttir frá Fögruvöllum, Hellissandi, f. 23. mars 1912, d. 24.
MeiraKaupa minningabók
22. október 2011
| Minningargrein á mbl.is
| 1172 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Guðrún S. Björnsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 6. febrúar 1920. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 8. október sl. Foreldrar hennar voru Steinunn Jónsdóttir, f. 28. júní 1885, d. 22. mars 1968, og Björn Jakobsson, f. 29. ágúst 1893, d. 2.
MeiraKaupa minningabók
Gyða Jónsdóttir fæddist á Skálanesi í Gufudalssveit, Austur-Barðastrandarsýslu, 7. mars 1933. Hún lést 9. september 2011. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Jónsdóttir, f. 1902, d. 1989 og Jón Jónsson, f. 1900, d. 1997, bændur á Skálanesi.
MeiraKaupa minningabók
Herdís Ólafsdóttir fæddist í Presthvammi 9. des. 1923. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 13. október 2011. Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Gíslason og Bergljót Jónsdóttir.
MeiraKaupa minningabók
Ingþór Hallberg Guðnason fæddist 18. september 1942 í Reykjavík. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. október 2011. Útför Ingþórs fór fram frá Fossvogskirkju 17. október 2011.
MeiraKaupa minningabók
22. október 2011
| Minningargrein á mbl.is
| 1275 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Jón Ólafsson fæddist í Ólafsfirði 25. desember 1925. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku 12. október 2011. Foreldrar hans voru Ólafur Guðmundssson sjómaður, f. 30. maí 1891, d. 1. mars 1977, og kona hans Sóley Stefánsdóttir, f. 8. maí 1897, d. 8.
MeiraKaupa minningabók
Jón Ólafsson fæddist í Ólafsfirði 25. desember 1925. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku 12. október 2011. Foreldrar hans voru Ólafur Guðmundssson sjómaður, f. 30. maí 1891, d. 1. mars 1977, og kona hans Sóley Stefánsdóttir, f. 8. maí 1897, d. 8.
MeiraKaupa minningabók
Jón Ægir Ingimundarson fæddist á Akureyri 19. nóvember 1969. Hann fórst af slysförum á Djúpavogi 12. október 2011. Foreldrar Ægis eru Unnur Jónsdóttir, f. 16.11. 1947 og Ingimundur Steingrímsson, f. 16.11. 1948.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Björnsdóttir Blöndal fæddist á Siglufirði 6. janúar 1924. Hún andaðist 28. september á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi. Útför Margrétar fór fram frá Grafarvogskirkju 7. október 2011.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Jakobsdóttir Líndal var fædd á Lækjamóti í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu 29. maí 1920. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 8. október 2011. Útför Margrétar fór fram frá Áskirkju 21. október 2011.
MeiraKaupa minningabók
Páll Hersteinsson fæddist í Reykjavík 22. mars 1951. Hann lést á Landspítala við Hringbraut 13. október 2011. Útför Páls fór fram frá Grafarvogskirkju 21. október 2011.
MeiraKaupa minningabók
Svanborg Rósamunda Kjartansdóttir fæddist 23. janúar 1916 á Þórdísarstöðum í Eyrarsveit. Hún lést á dvalarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði, 18. október 2011. Foreldrar hennar voru Kjartan Ólafsson f. 15. nóvember 1877 á Bolavöllum í Staðarsveit,...
MeiraKaupa minningabók
Þorbjörg Henný Eiríksdóttir fæddist í Reykjavík 3.3. 1994 Hún lést í bílslysi á Fagradal 12.10. 2011. Foreldrar hennar eru Kristrún Antonsdóttir f. 16.5. 1969 frá Vopnafirði og Eiríkur Bjarnason f. 28.10. 1969 frá Egilsstöðum.
MeiraKaupa minningabók
Þóra Jónsdóttir fæddist í Hruna á Húsavík 25. apríl 1948. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 14. október 2011. Foreldrar hennar eru Helga Þráinsdóttir, f. 7. mars 1926, og Jón Jónsson, f. 7. janúar 1922, d. 9. júlí 1982.
MeiraKaupa minningabók
Eftir að framkvæmdum lýkur við stækkun álvers í Straumsvík mun framleiðslugeta álversins aukast um 20% á ári, úr 190 þúsund tonnum í 230 þúsund tonn, segir Ólafur Teitur Guðnason, framkvæmdastóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi.
Meira
Hörður Ægisson hordur@mbl.is Það er verið að herja á lífeyrissparnað almennings í landinu með áformuðum lagabreytingum á skattaafslætti vegna viðbótarlífeyrissparnaðar – og lífeyrissjóðakerfið mun bregðast hart við öllum slíkum breytingum.
Meira
Christian Brothers Investment Services, fjárfestingasjóður sem sérhæfir sig í eignastýringu fyrir stofnanir kaþólsku kirkjunnar, lagði fram tillögu um að störf aðalframkvæmdastjóra og stjórnarformanns yrðu aðskilin í News Corporation,...
Meira
Tap finnska farsímaframleiðandans Nokia nam 68 milljónum evra, tæpum 11 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi. Þrátt fyrir að tap hafi verið á rekstrinum var niðurstaðan mun skárri en greinendur höfðu búist við.
Meira
Væntingavísitala stjórnenda í þýskum fyrirtækjum heldur áfram að falla og hefur hún ekki verið lægri frá því að gríska ríkið rambaði á barmi gjaldþrots í fyrravor.
Meira
Höskuldur Steinarsson, framkvæmdastjóri Fjarðalax, segir mikilvægt að stjórnvöld fáist til þess að vinna með fyrirtækinu að ramma utan um laxeldi.
Meira
Þær voru hálffríkaðar múnderingarnar sem sáust á tískusýningapöllum í Russian Silhouette-fatahönnunarsamkeppninni í Moskvu í vikunni. Í hönnuninni gætti rússneskra áhrifa í bland við hermannaliti og ýmiss konar óvenjulega fylgihluti og skraut.
Meira
Það verður nóg við að vera í Dölunum þessa helgina þegar Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda verður haldinn. Samkvæmt vefsíðu Dalabyggðar verður dagskráin með nokkuð hefðbundnu sniði en fagnaðurinn hófst í gær og stendur áfram í dag.
Meira
Þá er komin helgi og rétti tíminn til að dekra svolítið við sig. Það þarf ekki endilega að kosta svo mikið og þú getur breytt baðherginu þínu í eigin heilsulind.
Meira
Fræg eru vísuorð Hallgríms Péturssonar í Passíusálmunum: Þetta, sem helst nú varast vann, varð þó að koma yfir hann. Mér duttu þau í hug, þegar ég rakst í grúski mínu á tvö mál, sem eru að öðru leyti óskyld.
Meira
Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn 20. október. Spilað var á 13 borðum. Meðalskor: 312 stig. Árangur N - S: Helgi Hallgrímss. Ægir Ferdinandss. 366 Ingibj. Stefánsd.
Meira
Margrét Snorradóttir er fimmtug í dag. Hún ætlar að halda upp á afmælið með vinum og ættingjum í félagsheimili rétt fyrir utan Akranes þar sem hún er búsett.
Meira
Kristjana Marín Magnúsdóttir, Sóley Rán Unadóttir, Bergur Guðjónsson, Sveinn Brimar Jónsson og Víðir Guðjónsson héldu tombólu við Samkaup í Hrísalundi á Akureyri. Þau söfnuðu 4.007 kr. sem þau færðu Rauða krossi...
Meira
Karlinn á Laugaveginum hefur alltaf haldið upp á Jóhannes úr Kötlum, kann hann meira og minna utan að og raular stundum Rauðsendingadans: Skepnan öll er getin í synd og skapað er henni að þjást: að fellur og út fellur hatur og ást.
Meira
Þeim sem sáu myndskeiðið af síðustu mínútum Gaddafis, fyrrverandi leiðtoga Líbíu, hefur ekki verið skemmt. Þetta var villimannsleg meðferð á fyrrverandi einræðisherra þessa lands.
Meira
22. október 1253 Flugumýrarbrenna. Sturlungar brenndu bæinn að Flugumýri í Skagafirði, en þar stóð brúðkaup. Í brennunni fórust 25 manns. Gissur Þorvaldsson leyndist í sýrukeri, komst undan og hefndi fyrir verknaðinn. 22.
Meira
1. deild karla Víkingur – ÍR 20:22 Víkingur : Jóhann Reynir Gunnlaugsson 5, Gestur Jónsson 4, Óttar Filipp Pétursson 4. ÍR : Guðni Már Kristinsson 7, Hreiðar Haraldsson 5, Brynjar V. Steinarsson 4, Ólafur Sigurgeirsson 3.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Maður hefur oft tekið þátt í jöfnum leikjum og með árunum lærist manni að engin ástæða er til að fara á taugum þótt ein sókn bregðist.
Meira
UNDANKEPPNI EM Ívar Benediktsson iben@mbl.is Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna tekur á morgun kl. 16 á móti landsliði Úkraínu í Laugardalshöllinni. Um er ræða annan leik beggja liða í 7.
Meira
Emil Hallfreðsson skoraði mark Verona í gærkvöld þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Nocerina á heimavelli í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu. Emil jafnaði á 77. mínútu og skoraði þar sitt þriðja mark á tímabilinu.
Meira
Jakob Jóhann Sveinsson , Íslandsmethafi í sundi úr Sundfélaginu Ægi, hefur æft með norska landsliðinu í sundi síðustu vikuna en það er í æfingabúðum í Sierra Nevada á Suður-Spáni. Hann verður með hópnum þar í tvær vikur til víðbótar.
Meira
Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Það hefur verið um fátt annað talað í Manchester-borg síðustu dagana en viðureign Manchester United og Manchester City sem mætast í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Old Trafford í hádeginu á morgun.
Meira
Í Vesturbænum Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is KR náði aftur á beinu brautina í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik eftir sigur á Njarðvík í nokkuð spennandi leik í gær 85:74.
Meira
Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er búinn að jafna sig eftir tvær aðgerðir á hné í sumar en hann reif liðþófa í landsleik Íslands og Danmerkur í byrjun júní.
Meira
Á Ásvöllum Kristinn Friðriksson sport@mbl.is Bláklæddir Stjörnumenn sóttu Haukamenn heim að Ásvöllum í gærkveldi og leituðu að þriðja sigri sínum í deildinni á meðan heimamenn vildu koma auga á sinn fyrsta.
Meira
Svíþjóð Sundsvall – Solna 98:80 • Hlynur Bæringsson skoraði 16 stig fyrir Sundsvall, tók 8 fráköst og átti 5 stoðsendingar, Pavel Ermolinskij skoraði 15 og tók 10 fráköst og Jakob Örn Sigurðarson skoraði 13.
Meira
Undankeppni EM U19 karla Riðill á Kýpur: Lettland – Ísland 2:0 Kýpur – Noregur 3:3 *Ísland leikur við Kýpur á morgun og við Noreg á miðvikudaginn.
Meira
Viðhorf Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Er ekki hægt að hafa meiri reisn yfir uppskeruhátíð knattspyrnufólks en boðið var upp á í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Íslands í fyrradag?
Meira
Atvinnuleysi í september var 6,6% skv. mælingum Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysið er enn hátt í sögulegum samanburði en þó heldur á undanhaldi samfara hægum bata efnahagslífsins. Þetta segir í Vegvísi Landsbanka Íslands sem kom út í vikunni.
Meira
Um 2.500 manns hafa nýtt sér þjónustu starfsendurhæfingarsjóðsins Virk frá því hann var settur á laggirnar. Þetta kom fram í erindi sem Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri sjóðsins, hélt á þingi Starfsgreinasambands Íslands á dögunum.
Meira
Bryddað hefur verið upp á ýmsum áhugaverðum hlutum á Vinaviku sem nú stendur yfir hjá Æskulýðsfélagi Hofsprestakalls í Vopnafirði. Vinavikan 2011 byrjaði með bíói sl. sunnudag þar sem kvikmyndin Rango var sýnd fyrir fullu húsi.
Meira
Jóhann Ólafsson & co., umboðsfyrirtæki Osram á Íslandi, samdi á dögunum við fyrirtæki innan Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, um sölu á um 50 þúsund ljósaperum árlega næstu þrjú árin.
Meira
Íslandsbanki, FKA, Félag kvenna í atvinnurekstri og Opni háskólinn í Reykjavík standa á næstunni fyrir frumkvöðlanámskeiði og -samkeppni fyrir konur. Námskeið í gerð viðskiptaáætlana hefst 1.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.