Kýrnar Sæbjörg og Brák sem búa í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum hafa bætt við íbúafjölda garðsins en þær báru á sama sólarhringnum í vikunni. Sæbjörg, ljósrauðskjöldótt, bar rauðskjöldóttum kálfi. Brák, rauðbröndótt, bar rauðri, stórri kvígu.
Meira
Hin árvissa Grýlugleði Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri verður haldin á morgun, sunnudaginn 27. nóvember, á fyrsta sunnudegi í aðventu, kl. 14.00.
Meira
Basar KFUK verður í dag kl. 14-17 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Á boðstólum verður úrval af heimabökuðum kökum, tertum og smákökum, auk annars matarkyns. Basar félagsins er þekktur fyrir fallegt handverk af ýmsu tagi sem konur hafa unnið.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er „smartara“ að vera dauður en að vera með endurskinsmerki,“ hafa unglingar sagt við Herdísi Storgaard, verkefnastjóra í slysavörnum barna.
Meira
Fréttaskýring Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Eftirspurn eftir blóði og blóðhlutum á eftir að vaxa á komandi árum eftir því sem íslenskt samfélag verður eldra.
Meira
Þrúður Gunnarsdóttir varði nýverið doktorsritgerð við læknadeild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, „Fjölskyldumiðuð atferlismeðferð fyrir of feit börn. Raunprófun meðferðar í klínískum aðstæðum.
Meira
Solveig Sigurðardóttir hefur varið doktorsritgerð við læknadeild Tækni- og náttúruvísindaháskólans í Þrándheimi. Meginmarkmiðið var að kanna tíðni meðfæddrar CP-hreyfihömlunar meðal íslenskra barna. Búast má við að u.þ.b.
Meira
Erla Hulda Halldórsdóttir hefur varið doktorsritgerð „Nútímans konur. Menntun kvenna og mótun kyngervis á Íslandi 1850–1903“ við Háskóla Íslands.
Meira
Fjöldi fólks sem tapaði stofnfé sínu við fall sparisjóðanna gerir sér nú vonir um að skuldirnar verði felldar niður, eftir að dómur Hæstaréttar féll í máli stofnfjáreigenda Byrs sparisjóðs.
Meira
Vatnavinir hafa kynnt fyrir borgaryfirvöldum og fleirum margbreytilega möguleika á að efla bað- og sundmenningu Íslendinga. Þetta væri hægt að gera í smáum skrefum, sums staðar þyrfti að ráðast í töluverða uppbyggingu en annars staðar ekki.
Meira
Ekki hafa borist merki í rúma viku frá hnúfubaknum sem merktur var í Eyjafirði í byrjun mánaðarins. Síðasta merkið heyrðist frá hvalnum að morgni 17. nóvember.
Meira
Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, hefur hafnað beiðni Huang Nubo um að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum. Þann 31.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fólk sem tapaði stofnfé sínu að verulegu eða öllu leyti við fall sparisjóðanna grandskoðar nú dóm Hæstaréttar í máli stofnfjárhafa Byrs sparisjóðs.
Meira
Fyrsta helgin í aðventu er gengin í garð og má búast við því að í kvöld og næstu vikur sæki fjöldi manns jólahlaðborð með tilheyrandi glöggi til að hita sig upp fyrir hátíðarnar.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Tugir þúsunda manna söfnuðust saman á Tahrir-torgi í Kaíró í gær og kröfðust þess að leiðtogar hersins í Egyptalandi létu þegar í stað af völdum.
Meira
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að aldrei hafi staðið til í bandorminum að tvískatta fyrirtæki sem borga kolefnisskatta, tryggt verði að Ísland verði að öllu samanlögðu vel samkeppnishæft.
Meira
Jólamarkaðurinn í Álafosskvos hefst um helgina og verður opið báða dagana milli kl. 12 og 17. Það er kaffihúsið á Álafossi sem hefur veg og vanda af þessum markaði. Ýmislegt verður á boðstólum, t.d.
Meira
Jólamarkaðurinn Elliðavatni í Heiðmörk á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur verður opnaður í dag. Opið verður fjórar helgar fyrir jólin frá kl. 11-17.
Meira
Jón Aðalsteinn Jónasson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, lést á Hrafnistu í Reykjavík í gær, 85 ára gamall. Hann fæddist 18. nóvember 1926 í Hafnarfirði, sonur hjónanna Jónasar Sveinssonar framkvæmdastjóra og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar telur tímabært að skoða á ný hugmyndir um raflest á milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykjavíkur.
Meira
„Það þarf bara að bíða þar til þetta klekst út. Þangað til þarf að einangra trjábolinn. Þetta tekur tímann sinn, liggur kannski fyrir næsta sumar,“ segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Meira
Alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundu ofbeldi var haldinn í gær og í tilefni hans var farið í ljósagöngu í gærkvöldi frá Þjóðmenningarhúsinu á Hverfisgötu að Sólfarinu á Sæbraut.
Meira
Ljósin á jólatré Mosfellsbæjar verða tendruð í dag, laugardaginn 26. nóvember kl. 16:00 á Miðbæjartorginu. Barnakór Varmárskóla syngur, jólasveinar koma í heimsókn og Skólahljómsveit Mosfellsbæjar spilar jólalög.
Meira
„Samkvæmt öllum gögnum málsins er ljóst að bygging nýs spítala skilar verulegu hagræði í rekstri spítalans,“ segir í fréttatilkynningu frá Félagi atvinnurekenda.
Meira
Gunnlaugur Árnason Stykkishólmur Nýja kirkjan í Stykkishólmi, sem reyndar er orðin yfir 20 ára gömul, setur mikinn svip á bæinn. Kirkjan hefur góðan hljómburð. Hún er mikið notuð til tónleikahalds og er tónlistarhús okkar Hólmara.
Meira
Dimittering Þessar hressu stelpur máluðu bæinn rauðan í gær, klæddar sem fígúrur úr leiknum vinsæla Angry Birds, en þær hyggja á útskrift úr Flensborg fyrir...
Meira
„Ég myndi ætla að umræðan gæti verið uppbyggilegri og gagnlegri ef menn tala út frá staðreyndum, en einhverra hluta vegna hefur það verið stefna þessarar ríkisstjórnar að hafa leyndarhyggju yfir öllum hlutum, þar á meðal þessum,“ segir...
Meira
Kristján Jónsson kjon@mbl.s Samfylkingarmenn eru sumir afar ósáttir við þá ákvörðun innanríkisráðherra að hafna beiðni um undanþágu vegna kaupa kínverska auðmannsins Huangs Nubos á Grímsstöðum á Fjöllum.
Meira
Námsflokkar Reykjavíkur hafa gert samning við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Fjölbrautaskólann í Ármúla um námsframboð fyrir framhaldsskólanemendur sem horfið hafa frá námi.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Markmiðið með kaupunum er að efla rækjuveiðar og treysta undirstöður rækjuverksmiðju Kampa hér á Ísafirði,“ segir Jón Guðbjartsson.
Meira
Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Litlu munaði að Þjóðleikhúsið tapaði fimm milljónum króna sem greiða átti fyrir risaflatskjá frá kínverskum framleiðanda, í hendurnar á glæpamönnum.
Meira
Allur ágóði af sölu jólamerkis Thorvaldsensfélagsins í ár rennur til rannsókna og forvarna gegn offitu barna á leikskólaaldri. Ágóðinn af sölu jólamerkisins hefur alla tíð runnið óskertur til líknarmála, s.s.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Ég á minn snaga úti en verð að koma á mínum vanalega tíma, snemma á morgnana, til þess að eiga hann,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, einn fastagesta Vesturbæjarsundlaugar í hálfa öld.
Meira
Dagur íslenskar tónlistar verður haldinn þann 1. des. næstkomandi. Útvarpsstöðvar landsins munu þá spila þrjú íslensk lög samtímis kl. 11.15. Hagsmunasamtök íslenskrar tónlistar hvetja landsmenn til að fara að viðtækjunum af...
Meira
Sæmundur Sæmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þjónustu- og rekstrarsviðs hjá Sjóvá Almennum tryggingum hf. Undir hann heyra þjónusta og ráðgjöf, gæðamál, mannauðsmál, rekstrarmál og upplýsingatækni. Sl.
Meira
Björn Jóhann Björnsson Kristján Jónsson Atvinnuveganefnd Alþingis fundaði aftur í gær um kolefnisgjaldið umdeilda, sem á að hækka um áramótin og leggja einnig á stóriðjufyrirtæki frá ársbyrjun 2013.
Meira
Dómstólaráð hefur samþykkt beiðni Sigríðar J. Friðjónsdóttur ríkissaksóknara um að fá send jafnóðum afrit af dómsúrskurðum vegna hlerana, skráningar t.d. á ferðum bifreiða og sambærilegra úrræða við rannsókn meintra sakamála.
Meira
viðtal Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Má bjóða þér í bryggjubað í miðborginni eða sjóbað á Seltjarnarnesi? Nú eða sánu við Mosfell með viðkomu í Hafravatni?
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Mikið tjón varð í ofsaveðri sem gekk yfir Færeyjar í fyrrakvöld og fyrrinótt. Þök rifnuðu af húsum, skip og bátar losnuðu frá bryggju og bílskúrar og hjallar fuku.
Meira
Kristján Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, telur að um misskilning eða mistök hafi verið að ræða varðandi boðaðan kolefnisskatt og segist ekki átta sig á hvernig hann sé kominn inn í frumvarp fjármálaráðherra.
Meira
Fátt virðist tilbreytingarlausara en lestur veðurfrétta á RÚV. Þetta er upptalning sem maður getur á engan hátt lifað sig inn í og þess vegna slekkur maður umsvifalaust um leið og þessi fremur þreytandi lestur hefst. Hann stendur víst í korter.
Meira
Það er nóg að gera hjá Matthíasi Matthíassyni, söngvara Papanna, um þessar mundir. Sú eðla sveit gaf nýverið út safnplötuna Jameson og þá syngur Matthías af krafti á Freddie Mercruy-tónleikunum nú um stundir. Matthías er aðalsmaður vikunnar.
Meira
Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna Breytingar í Mjólkurbúðinni í Listagili á Akureyri í dag kl. 14. Á sýningunni eru veggskúlptúrar úr silki og ull, unnir með japanskri sibori-tækni.
Meira
Strangir fletir nefnist samsýning Sigurðar Þóris og Sigurðar Örlygssonar sem opnuð er í sýningarsölum Norræna hússins í dag kl. 16. „Ég byrjaði að mála geometrískar myndir fyrir fjörutíu árum.
Meira
Fyrsta sinfónía Mozarts, sem hann samdi aðeins átta ára gamall, verður flutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna í Seltjarnarneskirkju á sunnudag. Einnig verða fluttar aríur og einleiksstykki eftir Mozart, Sperger, Rossini, Hoffmeister og...
Meira
Hátíðartónleikar verða haldnir í Hafnarfjarðarkirkju á morgun og hefjast kl. 14. Fram koma Barbörukórinn í Hafnarfirði undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar og félagar úr Bachsveitinni í Skálholti, leiðari er Sigurður Halldórsson sellóleikari.
Meira
Jón Svavar Jósefsson og djasskvartettinn Ferlíki leika djassperlur og dægurlög úr ýmsum áttum á Café Rosenberg á sunnudag og hefjast tónleikarnir kl. 21.
Meira
Titli teiknimyndarinnar Puss in Boots hefur verið breytt í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í Cat in Boots, að ákvörðun kvikmyndaeftirlits þar í landi.
Meira
Tónlistarhátíðin Við Djúpið stendur nú í fjórða sinn fyrir viðamikilli leit að nýjum tónskáldum. Að þessu sinni er verkefnið í samstarfi við Rás 1, The Declassified frá Carnegie Hall og sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Rúmenska söngkonan Elena Mosuc kemur fram á jólatónleikum Kristjáns Jóhannssonar sem haldnir verða í Hallgrímskirkju 18. desember.
Meira
Kvikmyndin Órói í leikstjórn Baldvins Z, framleidd af Ingvari Þórðarsyni og Júlíusi Kemp, var valin besta mynd ársins á Alþjóðlegu unglinga kvikmyndahátíðinni í Wiesbaden í Þýskalandi núna í vikunni. Leikstjórinn fékk 2.500 evrur í verðlaunafé.
Meira
Rapparinn Emmsjé Gauti hefur sent frá sér myndband við lagið „Ég er alltof“ sem smíðað er af Basic-B og finna má á plötu Emmsjé Gauta, Bara Ég. Á plötunni leggja ýmsir listamenn Gauta lið, m.a. Berndsen, Blazroca og Frikki Dór.
Meira
Strengjakvartettar eftir Martinu, Janacek og Tsjækovskíj. Sigrún Eðvaldsdóttir & Zbigniew Dubik fiðla; Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla og Bryndís Halla Gylfadóttir selló. Sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.
Meira
Árlegir minningartónleikar Óperukórsins þar sem minnst verður látinna tónlistarmanna verða haldnir í Langholtskirkju aðfaranótt 5. desember næstkomandi.
Meira
Tökur hófust í gær á annarri þáttaröð sjónvarpsþátta bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar HBO, Game of Thrones og fara þær fram við Svínafellsjökul. Þá verða einnig tekin upp atriði við Vatnajökul og á Höfðabrekkuheiði.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Inn í ítalska stofu er yfirskrift tónleika kammerhópsins Nordic Affect sem fram fara annað kvöld kl. 20 í Þjóðmenningarhúsinu.
Meira
Eftir Sveinbjörn Jónsson: "Bankabækur hafsins hafa það eðli að þær gefa aðeins góða ávöxtun að tekið sé út af þeim. Ef það er ekki gert breytast þær í orkusóandi vígvöll."
Meira
Eftir Þuríði Rúrí Jónsdóttur: "Minnið er ekki líffæri eins og hjarta og heili, og minningar eru síbreytilegar, en það á einkum við um persónulegar minningar."
Meira
Frá Ásgeiri Sverrissyni: "Nú þegar hinu formlega golftímabili er lokið er vel við hæfi að líta til baka og skoða liðið sumar. Golfklúbburinn GKJ í Mosfellsbæ var stofnaður 1980 og 1986 var 9 holu golfvöllur opnaður. Nú 15 árum seinna er búið að opna 18 holu golfvöll."
Meira
Eftir Aðalstein Valdimarsson: "Eftir að hafa flett í gegnum fréttir frá þessum tíma er ekki hægt að komast hjá því að sjá hvað þetta er: einelti af stærstu gráðu."
Meira
Varúð: Fyrir þá sem nenna ekki jólunum er ekki ástæða til að lesa lengra. Hvað um það. Klisjur geta verið dásamlegar og stundum svo réttar. Til dæmis þessi um afstæði tímans.
Meira
Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins.
Meira
Eftir Njörð Helgason: "Sífelld stækkun jökullónsins á Breiðamerkursandi kallar strax á að gerðar verði mikilvægar breytingar á útfalli Jökulsár."
Meira
Eftir Kristínu Elísabetu Gunnarsdóttur: "Ástandið hríðversnar svo þegar skólinn hefst á haustin þar sem ökumönnum fjölgar gríðarlega en það eru um þúsund nemendur sem stunda þar nám."
Meira
Eftir Jóhann L. Helgason: "Það er ekki von að Ögmundur muni t.d. eftir Sigtúns-hópnum eða hverju hann stóð fyrir upp úr 1980, þó að hann hafi staðið þar sjálfur ásamt meðreiðarsveini sínum Steingrími J."
Meira
Til athugunar Menn tala um að aka eða hjóla hringinn í kringum landið. Betra væri að segja: Ég ætla að ganga eða aka hringinn um landið. Síðan er annað.
Meira
Eðvaldína Magney Kristjánsdóttir fæddist á Hríshóli í Barðastrandarsýslu 8. ágúst 1913. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 15. nóvember 2011. Foreldrar hennar voru Kristján Jens Einarsson, f. 15. apríl 1861, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Guðbjörg Sigrún Guðmundsdóttir fæddist í Keflavík 25. febrúar 1945. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 9. nóvember 2011. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jóhannesson bakari, f. 4.4. 1912, d. 1.4. 1993, og kona hans Magndís Guðjónsdóttir, f. 16.4.
MeiraKaupa minningabók
Gyðríður Þorsteinsdóttir fæddist á Þjótanda í Árnessýslu 6. október 1916. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 5. nóvember 2011. Útför Gyðríðar fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 14. nóvember 2011.
MeiraKaupa minningabók
Kristjana Guðný Samúelsdóttir fæddist í Meiri-Hattardal í Álftafirði 12. maí 1918. Hún lést á öldrunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði 13. nóvember 2011. Útför Kristjönu fór fram frá Ísafjarðarkirkju 19. nóvember 2011.
MeiraKaupa minningabók
Svana Sigríður Jónsdóttir fæddist á Kvíabekk í Ólafsfirði 1. september 1921. Hún lést á dvalarheimilinu Hornbrekku 15. nóvember 2011. Foreldrar hennar voru Anna Rögnvaldsdóttir húsfreyja í Ólafsfirði f. 26. sept 1893, d. 26.
MeiraKaupa minningabók
Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt horfum á lánshæfismati Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugar. Landsvirkjun telur að þessi breyting hafi takmörkuð áhrif á útistandandi skuldabréf fyrirtækisins.
Meira
Auknar áhyggjur af skuldastöðu ítalska ríkisins settu svip sinn á fjármálamarkaði Evrópu í gær. Verð hlutabréfa lækkaði í gærmorgun og evran einnig.
Meira
Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,5% í gær í 10,5 milljarða króna viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,4% í 2,9 milljarða viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,8% í 7,6 milljarða króna viðskiptum.
Meira
Fram kemur í fréttabréfi Viðskiptaráðs Íslands frá í gær, að stærsta greiðslutryggingarfélag heims, Euler Hermes, hafi staðfest að það sé tilbúið til að tryggja greiðslur fyrirtækisins Innnes á sama hátt og gildir með fyrirtæki í öðrum löndum.
Meira
Michael Woodford, fyrrverandi forstjóri japanska myndavélaframleiðandans Olympus, sem var rekinn í október, mætti á stjórnarfund fyrirtækisins í Tókýó í gær.
Meira
Eignir verðbréfasjóða námu 252,9 milljörðum króna í lok október og hækkuðu um 7,3 milljarða króna milli mánaða. Eignir fjárfestingarsjóða námu 46,5 milljörðum króna í lok október og hækkuðu um 2,3 milljarða milli mánaða.
Meira
Félag atvinnurekenda segir að nýr Landspítali sé forgangsverkefni. Í tilkynningu frá félaginu segir að ljóst sé að bygging nýs spítala skili verulegu hagræði í rekstri spítalans.
Meira
Vísitala neysluverðs hélst óbreytt á milli mánaða og dró úr verðbólgu, samkvæmt tölum Hagstofunnar frá í gær. Verðbólga fór úr 5,3% í október í 5,2%.
Meira
Hin langa og viðburðaríka ferð Ódysseifs varð málaranum Daða Guðbjörnssyni innblástur í sýningu sem hann opnaði á Kjarvalsstöðum síðastliðinn laugardag.
Meira
Í dag hefst aðventuævintýri á Akureyri þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi. Tréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku, og sér Helgi Jóhannesson, konsúll Dana á Norðurlandi, um afhendingu þess.
Meira
Oft segja myndir meira en orð og sú hugmynd er líklegast á bak við vefsíðuna dearphotograph.com. Þar getur fólk sett inn ljósmyndir ýmist nafnlaust eða undir nafni. Þarna má t.d.
Meira
Sigurður Jóhann Stefánsson, fyrrverandi bóndi á Stærri-Árskógi, Árskógsströnd, nú til heimilis að Víðilundi 24 Akureyri, verður áttatíu og fimm ára á morgun, 27....
Meira
Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Nú er lokið tveim kvöldum í fjögurra kvölda tvímenningskeppni. Staða efstu para er þessi: Björn Arnarss. – Jörundur Þórðarson 579 Oddur Hanness. – Árni Hannesson 542 Magnús Sverriss.
Meira
*Margrét Kristjánsdóttir og Rannveig Sigrún Stefánsdóttir héldu hlutaveltu í anddyri Skagfirðingabúðar á Sauðárkróki og söfnuðu 22.952 kr. sem þær gáfu til Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki.
Meira
Þróttarinn Guðmundur Vignir Óskarsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, hefur haft nóg að gera í gegnum tíðina og er hlaðinn verkefnum, en gefur sér samt tíma til þess að halda upp á 60 ára afmælið með fjölskyldu og vinum í dag.
Meira
Karlinn á Laugaveginum var svartur í framan þegar ég hitti hann, hafði áhyggjur af tvísköttun og sagði að Steingrímur væri með álbarn í maganum, – „það er verra en að vera með steinbarn í maganum,“ sagði hann.
Meira
Víkverja finnst jólasnjórinn sem kom loksins í lok nóvember vera góð tíðindi. Það er svo miklu þægilegra að keyra í umferðinni þegar allir keyra á 20 kílómetra hraða og enginn er að taka fram úr manni og maður þorir ekki að taka fram úr öðrum.
Meira
26. nóvember 1981 Útgáfa DV hófst. Þá sameinuðust Dagblaðið og Vísir. „Hið sameinaða dagblað hefur að meginmarkmiði að starfa óháð flokkum og flokksbrotum,“ sögðu ritstjórarnir Jónas Kristjánsson og Ellert B. Schram í forystugrein. 26.
Meira
Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is FH mætir franska liðinu Saint Raphael í þriðju umferð EHF- Evrópubikarkeppni karla í handknattleik á morgun kl. 17.
Meira
Handbolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Morgunblaðið valdi Gylfa Gylfason, hægri hornamann Hauka, leikmann 9. umferðar í N1-deild karla í handknattleik.
Meira
Logi Gunnarsson skoraði 25 stig í gærkvöld og var stigahæstur hjá Solna þegar lið hans vann útisigur á LF Basket, 101:100, í æsispennandi leik. Solna lyfti sér þar með uppí 6.
Meira
Holland AZ Alkmaar – Utrecht 2:0 • Jóhann Berg Guðmundsson kom inná hjá AZ á 77. mínútu og skoraði seinna mark liðsins á 89. mínútu. Staða efstu liða: AZ Alkmaar 13111130:834 PSV Eindh.
Meira
Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik kvenna var sérstaklega ánægður með varnarleik liðsins eftir sigur á Tékkum 31:24 í æfingaleik þjóðanna.
Meira
Á Hlíðarenda Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Ísland vann Tékkland í gær með sjö mörkum 31:24 þegar liðin áttust við í vináttulandsleik en íslenska liðið býr sig undir heimsmeistaramótið í handknattleik kvenna sem fram fer í Brasilíu í desember.
Meira
Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, tryggði AZ Alkmaar sigur á Utrecht, 2:0, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld.
Meira
Viðhorf Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Landsliðsmarkverði kvenna í handbolta var sagt upp störfum eftir að hafa ákveðið að taka heimsmeistaramótið í Brasilíu fram yfir stöðuhækkun hjá Nýherja.
Meira
Bandaríkjamaðurinn Charles Parker skoraði öðru sinni sigurkörfu fyrir Keflvíkinga á síðustu stundu þegar þeir lögðu Snæfell að velli, 115:113, í framlengdum leik í Stykkishólmi. Þar með náðu Keflvíkingar Stjörnunni í öðru til þriðja sæti deildarinnar.
Meira
Það er fallegur siður að skreyta heimilið með fjögurra kerta kransi fyrir jólin. Kransarnir eiga það sameiginlegt að kertin heita spádómskerti, Betlehemskerti, hirðakerti og englakerti, en að öðru leyti eru þeir einstaklega fjölbreyttir að gerð.
Meira
Sjúkur í góðar sörur. Jóhann Friðgeir Valdimarsson óperusöngvari er mikið jólabarn. Bakar fyrir jólin eftir uppskrift móður sinnar. Syngur á mörgum tónleikum fyrir þessi jólin.
Meira
Hjónin Ásta Ragnarsdóttir og Valgeir Guðjónsson bjóða stássstofur til leigu undir ýmsa mannfagnaði og jólaveislur. Sögulegur fróðleikur og söngur geta fylgt með. Stássstofurnar hafa nú verið jólaskreyttar og bíða prúðbúinna gesta.
Meira
26. nóvember Seltjarnarneskirkja Selkórinn heldur tvenna tónleika, laugardaginn 26. nóvember kl. 14 og 17 í Seltjarnarneskirkju. Leikur verður hafinn með íslenskum perlum.
Meira
Lögmaðurinn Helga Vala Helgadóttir les skáldverk og lögfræðirit. Henni þykja margar spennandi bækur koma út í ár og dvelur löngum stundum í bókabúðunum
Meira
Það er óþarfi að kynna Begga og Pacas. Þeir urðu landsfrægir í sjónvarpsþætti fyrir nokkrum árum. Lífsgleðin er þeirra lífsmottó og hún skín frá þeim. Þeir hafa haldið námskeið í hópefli og á þeim er mikið hlegið. Beggi og Pacas hafa verið eftirsóttir um allt land, enda kunna þeir að njóta lífsins.
Meira
Dömunum er flestum illa við jólaköttinn, ef marka má þann almenna ásetning að fá sér nýja flík fyrir jólin. Jólablaðið leit inn í verslunina Evu til að fá hugmyndir að jólafötum í ár.
Meira
Ragnheiður Gröndal söngkona var að gefa út plötuna Astrocat Lullaby sem vakið hefur mikla athygli. Ragnheiður kemur fram á jólatónleikum með Frostrósum í desember auk þess sem hún verður með eigin tónleika í Iðnó. Það er því nóg að gera hjá söngkonunni þessa dagana.
Meira
Það er algengur siður í Serbíu að fela pening í sérstöku jólabrauði. Fiskigúllas og rauðvín gegna mikilvægu hlutverki. Ættingjar og vinir hittast og skiptast á gjöfum á gamlárskvöld
Meira
Arfur þjóðmenningar á jólakortunum. Frímerki með íslenskum saumamynstrum. Hugmyndin sótt í íslenskan þjóðbúning kvenna. Listakona á Akureyri hannaði frímerki og jólaóróa.
Meira
Á þeim heimilum þar sem finna má makindalegan kött eða vinalegan hund er von á að voffi eða kisi fái eitthvað sérlega gott að borða á jólunum, rétt eins og aðrir í fjölskyldunni.
Meira
Í vikunni var skrifað undir kjarasamning milli Félags leikskólakennara og Sigöldu ehf., sem rekur leikskólann Aðalþing í Kópavog. Við undirritun kjarasamningsins lét Haraldur F.
Meira
Laufabrauðsvertíð hjá Kristjánsbakaríi á Akureyri. Framleiða 600 þúsund kökur á ári. Stórfjölskyldan sker saman á aðventunni. Kökur með rúgmjöli fara austur á land.
Meira
Jólin eru að koma, eins og glöggt má hvarvetna sjá. Heimili jafnt sem verslanir eru komin í hátíðarbúning og börn jafnt sem fullorðnir hlakka til. Sinn er siður á hverju heimili þótt jólin séu um margt keimlík frá einni fjölskyldu til annarrar.
Meira
Margrét Þórðardóttir er líklega ein verðlaunaðasta kona landsins þegar kemur að uppskriftum. Hún hefur 27 sinnum unnið til verðlauna í slíkum samkeppnum. Margrét býr til konfekt fyrir flest jól og svo er einnig nú. Allar hennar uppskriftir eru heimagerðar.
Meira
Mörgum finnst erfitt að finna réttu jólagjöfina, sérstaklega fyrir eldra fólk sem hefur minnkað við sig húsnæði og hefur ekki áhuga á veraldlegum hlutum. Heimagerðar jólagjafir eru vel þegnar hjá þessum hópi.
Meira
Útvarpsmaðurinn Siggi Hlö er jólabarn og hóar til sín stórum hópi gesta daginn fyrir heilaga hátíð. Fær úthlutað verkefnum frá eiginkonunni við undirbúning jólanna. Rækjukokteill og hamborgarhryggur í jólamat.
Meira
Veislan á föstunni er andstæða. Hófið er best. Samkomur hafi inntak og boðskapurinn rími við veruleika dagsins, segir sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju.
Meira
Margir huga að hollustu um jól sem aðra daga. Kalkúnn er fitusnauður og bragðast vel með góðu grænmeti. Hér er uppskrift að grænmetismús sem er ákaflega holl og góð.
Meira
Jólagjafir eiga sinn þátt í eftirvæntingunni fyrir jólin og ekki síst er það smáfólkið sem á stundum erfitt með að bíða eftir að mega sjá hvað í pökkunum býr. En það er líka hátíðlegt að pakka gjöfunum inn og falleg jólagjöf er augnayndi.
Meira
Sígildir Jólasöngvar í 34. sinn. Skemmtilegur tími í Langholtskirkju. Einsöngur og Ó, helga nótt. Söngur með táknmáli og látbragði er bæði fallegur og sérstakur, segir Jón Stefánsson kórstjóri.
Meira
Matarbloggarinn Ragnar Freyr Ingvarsson læknir heldur jól í Svíþjóð með sinni fjölskyldu. Hann kom heim nýverið og gekk til rjúpna. Fer í skötuveislu eins og á Íslandi væri. Líka sænk rólegheit.
Meira
Það er kunnara en frá þurfi að segja að íslensk hönnun hefur blómstrað síðustu misseri. Margur hefur gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn og hvers konar frumleg og falleg gjafavara hefur litið dagsins ljós í kjölfarið.
Meira
Hefur safnað jóladagadölum allt frá árinu 1970 og á þau öll enn í dag. Una Margrét er mikið jólabarn. Dágott safn. Kaupir sér enn dagatöl og þykir ómissandi.
Meira
Í skammdegi og vetrarkulda er fátt eins notalegt og að smeygja tásunum í mjúka og notalega sokka. Nýlega kom út bókin Sokkaprjón eftir Guðrúnu S. Magnúsdóttur, en þar er að finna 52 mismunandi sokkauppskriftir fyrir bæði kynin og allan aldur.
Meira
Jólasveinar í þrjátíu ár. Magnús Ólafsson og Þorgeir Ástvaldsson eru þrautreyndir í bransanum. Sleppa fram af sér beislinu á jólaböllum með börnunum. Stungið í lögreglubíl og slagsmál í Kópavogi.
Meira
Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir var að senda frá sér matreiðslubók þar sem hún fjallar um jólamat. Í bókinni eru matseðlar fyrir sautján ólíkar jólamáltíðir jafnt hefðbundnar sem nýstárlegar. Nanna er ekki óvön útgáfu matreiðslubóka en þetta er tólfta bókin hennar.
Meira
Flestir vilja eiga afgang af kalkúna á jólunum. Hægt er að borða hann kaldan daginn eftir með heitri sósu. Þriðja daginn er hann kannski orðinn leiðigjarn og sósan búin. Þá er upplagt að útbúa kalkúnasamlokur. Þær eru ótrúlega góðar og saðsamar. Hér koma nokkrar hugmyndir.
Meira
Það eru ekki alltaf jólin, segir máltækið. Jakob Kárason á Akureyri var mörg jólin á hafi úti og á góðar minningar sem því tengjast. Aflabrögðin voru oftast góð og stemningin fín. Og eitt sinn gerðist vélstjórinn íhlaupakokkur á aðfangadagskvöld.
Meira
Alltaf með rjúpu í jólamatinn. Fékk íslenskar rjúpur sendar með DHL til Frakklands. Eldamennskan tekur tíma. Einiber og lárviðarlauf í sósuna. Veitt á vitlausum tíma, segir Þorsteinn Víglundsson.
Meira
Á næsta ári verður verslunin Pipar og salt á Klapparstíg 25 ára. Lögð er áhersla á jólasultur, mauk, kökur og sósur frá Bretlandi fyrir jólin og það hafa Íslendingar kunnað vel að meta. Hjónin Sigríður Þorvarðardóttir og Paul Newton hafa verið eigendur frá upphafi.
Meira
Dágóð hækkun varð á launum nú í október sl., segir greining Íslandsbanka og vísar þar til mánaðarlegrar launavísitölu sem Hagstofa Íslands tekur saman og birti nú á miðvikudag.
Meira
Íslensk tunga er blæbrigðarík og margslungin og því endalaus uppspretta að hvers konar dægradvöl. Hvernig væri að leyfa tungunni að leika lausum hala um hátíðarnar og spila spil í góðra vina hópi þar sem tungumálið ástkæra og ylhýra er í aðalhlutverki?
Meira
Party & Co - Disney er sannarlega fjölskylduspil sem allir ættu að hafa gaman af. Lestrarkunnátta er ekki nauðsynleg og því geta yngstu meðlimir fjölskyldunnar spilað sjálfir.
Meira
Tólfta matreiðslubók Nönnu Rögnvaldardóttur fjallar um jólamat. Hamborgarhryggur er ekki flókinn. Er alin upp við lambahrygg á aðfangadagskvöld og gæti vel hugsað sér hann sem jólamat. Sumir hafa svið. Kjúklingur í stað kalkúna.
Meira
Þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir og mótmæli verkalýðshreyfingarinnar ætlar ríkisstjórnin að halda til streitu svokölluðu þriggja mánaða sveltitímabili langtímaatvinnulausra.
Meira
Þegar úti er skammdegi, kuldi og jafnvel óveður er lag að gera híbýlin sem allra notalegust. Á aðventunni er úrvalið slíkt af allra handa inniljósum að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Meira
Það er alltaf notalegt að gæða sér á bolla af úrvalskaffi, en þó sjaldan sem í skammdeginu þegar bragðið gælir ekki einvörðungu við bragðlaukana heldur fæst vel þeginn ylur í kroppinn. Jólablaðið kannaði jólakaffið á nokkrum stöðum í borginni.
Meira
Áslaug Óttarsdóttir, kennari og bókasafnsfræðingur, tók upp á því árið 2008 að prjóna lopapeysur á alla fjölskylduna, eiginmann, börn, tengdabörn og barnabörn til að gefa í jólagjöf. Eftir því sem fjölskyldan stækkar fjölgar peysunum og ein er um það bil að verða tilbúin.
Meira
Jólin nálgast með hverjum deginum sem líður. Fyrir þá sem vilja bókstaflega sjá jólin taka á sig mynd fyrir augum sér er hér komin kjörin leið, nefnilega eitt þúsund bita púsl með öllum íslensku jólasveinunum á góðri stund.
Meira
Matreiðslumeistarinn Sigurður Hall, eða Siggi Hall eins og hann er venjulega kallaður, á heiðurinn af rommkúluís sem hefur verið á jólaborði Íslendinga frá árinu 1992. Uppskriftin hefur gengið frá einni kynslóð til þeirrar næstu og er alltaf jafnvinsæl þótt hún sé að verða tuttugu ára.
Meira
Kærleikskúla og órói eru fallegir listmunir Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Sígild gjafavara. Um framlagið munar, segir Berglind Sigurgeirsdóttir.
Meira
Of vont veður úti fyrir fótbolta? Gildir einu, því nú geta íþróttafríkin í fjölskyldunni tekið á honum stóra sínum við spilaborðið. Völlurinn er klár og ekkert því til fyrirstöðu að leikar geti hafist.
Meira
Hin seinni ár hefur það færst í vöxt að herrarnir bregði sér á snyrtistofur til að fríska upp á útlitið og hressa sig við, og á það ekki síst við fyrir jólin. Gallerí Útlit í Hafnarfirði býður herrana velkomna.
Meira
Starfið er fjölbreytt, segir skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Nemendur leika jólalögin víða í bænum. Klúbbar og félagasamtök leita mikið til skólans varðandi tónlistarflutning á jólafundum.
Meira
Það tilheyrir jólunum að skreyta hús og lífga upp á nærumhverfið með jólaskreytingum af ýmsu tagi. Hér má sjá nokkrar fallegar en þó ólíkar hugmyndir að skreytingum, bæði fyrir jólatréð og veisluborðið. Vörurnar eru frá Zeus ehf, SIA-umboðinu á...
Meira
Öllum ber saman um að jólin eru hátíð ljóss, friðar og heilagleika. Allflestar kvikmyndir sem gerðar hafa verið um jólin eru því með hugljúfasta móti.
Meira
Ný íslensk spil eins og Ævintýralandið og Íslandopoly verða örugglega vinsæl í jólaboðunum í ár. Gott borðspil er ódýr fjárfesting sem getur enst lengi
Meira
Franski snyrtivöruframleiðandinn L'Occitane en Provence sendir frá sér seiðandi jólavörur sem aðeins eru fáanlegar í takmarkaðan tíma. Um er að ræða tvær nýjar ilmlínur.
Meira
Erna Svala Ragnarsdóttir, sem býr á Ítalíu, bakar fyrir jólin. Núna eru það súkkulaðibitakökur, kókostoppar, piparkökur og ostastangir með jólasúpunni. Og stöku sinnum fylgja smákökur með.
Meira
Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir, prestur í Hafnarfjarðarkirkju og formaður Prestafélags Íslands, hefur í nógu að snúast í jólamánuðinum en það er annatími presta. Hún gaf sér þó tíma til að svara nokkrum léttum jólaspurningum.
Meira
Sigurður Haraldsson hjá Pylsumeistaranum býr til sælkerapylsur að erlendri fyrirmynd. Hjá honum er geysigott úrval af pylsum og fer sífellt vaxandi.
Meira
Anna Sigríður Garðarsdóttir hefur föndrað eigin jólakort í 25 ár og þau eru aldrei eins frá einum jólum til annarra. Anna Sigríður er þar fyrir utan mikið jólabarn og skreytir hús sitt hátt og lágt, bæði innan- og utandyra. Hún nostrar við smáa hluti sem þá stærri og skapar skemmtilega heildarmynd.
Meira
Lífeyrisþegar sem njóta greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins geta nú á sinni síðu á vefsetri stofnunarinnar skoðað og lagað tillögu að tekjuáætlun 2012. Hægt er að breyta áætluninni vegna janúargreiðslu nóvember til 12. desember. Í janúar nk.
Meira
Egg eru matvara sem nota má á nánast óteljandi vegu í allra handa matargerð, um leið og neytendur verða sífellt meðvitaðri um vistvænar matvörur. Það er því ekki að furða að neysla á brúnum vistvænum eggjum hefur aukist mikið á síðastliðnum árum.
Meira
Í Holsbybrunn, litlum bæ í suðurhluta Svíþjóðar er Ljungströms-jólasveinaverksmiðjan. Þessi litla verksmiðja hefur verið starfandi frá árinu 1940 og jólasveinarnir sem þar eru framleiddir eru þekktir um allan heim.
Meira
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir er lærður matreiðslumaður og bakari en hefur einbeitt sér að hollusturéttum. Hún heldur námskeið í gerð heilsurétta og nýlega kom út bókin Heilsudrykkir þar sem hún gefur fjölda uppskrifta að einföldum og hollum drykkjum.
Meira
Jólakötturinn er nýjasta spilið frá Spilaborg ehf. og er sérlega krakka- og fjölskylduvænt. Spilið spilast eins og svartipétur en markmið spilsins er að lenda ekki í Jólakettinum.
Meira
Póstmagið tvöfaldast fyrir jólin. Allir starfsmenn Íslandspósts eru kallaðir til. Nýjungar í þjónustunni í boði. Síðasti skiladagur pósts innanlands er 19. desember.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.