Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 320 ökumenn í fyrrakvöld og -nótt í sérstöku umferðareftirliti. Einn ökumaður reyndist ölvaður við stýrið og annar var undir áhrifum fíkniefna en báðir eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.
Meira
Laugardaginn 3. desember verður mikið um að vera á Sólheimum. Dagurinn byrjar klukkan 11.00 með jólastund Kirkjuskólans í Sólheimakirkju, jólasveinar koma í heimsókn og heilsa upp á börn og fullorðna. Klukkan 14.
Meira
Aðventuhátíð Bergmáls verður haldin í Háteigskirkju sunnudaginn 4. des. kl. 16.00. Þarna munu gestir eiga notalega samverustund, sungnir verða jólasálmar, hugvekja flutt og Ágúst Ólafsson baritón syngur nokkur lög.
Meira
Fréttaskýring Egill Ólafsson egol@mbl.is Ef stjórnvöld ætla að bæta framleiðendum kjúklinga- og svínakjöts tekjutap vegna niðurfellingar á tollvernd þarf að styrkja þessar tvær greinar um tvo milljarða króna. Greinarnar njóta engra styrkja í dag.
Meira
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þremur fyrrverandi starfsmönnum Glitnis sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrr í vikunni að beiðni embættis sérstaks saksóknara. Yfirheyrslur stóðu yfir fram á kvöld í gær.
Meira
fréttaskýring Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Orkustofnun leggur áherslu á að ljúka útboði á Drekasvæðinu, en hefur jafnframt stutt rannsóknir á Gammssvæðinu úti fyrir Skjálfanda og Eyjafirði.
Meira
Reykjavíkurborg opnaði í gær tvær skíðalyftur innan borgarmarkanna; í Grafarvogi og Árbæjarbrekkunni, þar sem myndin var tekin síðdegis. Stefnt er að því að opna Breiðholtslyftuna á mánudag.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Evrópusambandið er að taka þeirri eðlisbreytingu að ríkin sem taka þátt í samstarfinu um evruna munu bindast nánari böndum í efnahagsmálum.
Meira
Í tilefni af 150 ára fæðingarafmæli Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands, sunnudaginn 4. desember, verður Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu opinn almenningi. Jafnframt verður dagskrá í Þjóðmenningarhúsinu tileinkuð minningu Hannesar.
Meira
Þórunn Ásta Ólafsdóttir hefur varið doktorsritgerð sína „Ónæmissvör nýbura við bólusetningu – Nýir ónæmisglæðar og ónæmisvakar til verndar gegn pneumókokka- og inflúensusjúkdómum“ við læknadeild HÍ.
Meira
Ásdís Helgadóttir varði nýlega doktorsritgerð sína við vélaverkfræðideild University of California í Santa Barbara í Kaliforníu. Í doktorsritgerðinni hannaði Ásdís tölulegar aðferðir fyrir þrjár hlutafleiðujöfnur sem lýsa eðlisfræðilegum fyrirbærum.
Meira
Þórhallur Örn Guðlaugsson varði nýlega doktorsritgerð sína „Þjónustustjórnun: markaðs- og þjónustuáhersla í opinbera geiranum“ við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Meira
Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Vestfirðingar hafa áhyggjur af því að skortur á framkvæmdum í vetur geti leitt til aukins atvinnuleysis.
Meira
Á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar í vikunni var samþykkt ályktun þar sem tillögum um ráðstöfun veiðileyfagjalds frá starfshópi sjávarútvegsráðherra er fagnað.
Meira
Akureyringar og nærsveitamenn fundu greinilega fyrir þremur jarðskjálftum á áttunda tímanum í gærkvöldi. Áttu skjálftarnir upptök sín um 14 kílómetrum austan Akureyrar, nánar tiltekið í Ljósavatnsfjalli. Sá stærsti var 3,2 stig kl. 19.
Meira
Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Það sem að mínu mati stendur upp úr í þessu svari er að þarna sést svart á hvítu að veiðigjaldið er fyrst og fremst landsbyggðarskattur,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Meira
Handverkssala Ljóssins verður haldin laugardaginn 3. desember kl. 13-17 í dag, laugardag, í Þróttarheimilinu við Engjateig í Laugardal. Hún er orðin árlegur viðburður fyrir jólin þar sem hægt er að kaupa fallegar vörur á góðu verði, segir í tilkynningu.
Meira
Laugardaginn 3. desember kl. 11-16 verður hinn árlegi jólabasar haldinn í Kattholti, Stangarhyl 2, Reykjavík. Á boðstólum verður ýmislegt tengt jólahaldi s.s. jólakort, merkimiðar og jólaskraut. Einnig kisuleikföng, kisuólar, ýmis smávarningur s.s.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gangi áætlanir laxeldisfyrirtækjanna Fjarðalax og Arnarlax um stórfellt laxeldi í fjörðunum á sunnanverðum Vestfjörðum eftir skapast hundruð starfa við fiskeldi, vinnslu og þjónustu.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hundruð nýrra starfa verða til á sunnanverðum Vestfjörðum, ef áætlanir um stórfellt laxeldi og vinnslu á vegum tveggja fyrirtækja ganga eftir.
Meira
Hinn árlegi jólabasar Kristniboðsfélags kvenna verður haldinn laugardaginn 3. desember frá kl. 14 í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58-60. Á boðstólum verða kökur, ýmsir munir, jólakort, skyndihappdrætti o.fl.
Meira
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfsemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir sala jólakorta veigamiklu hlutverki.
Meira
Kínversk lyfjafyrirtæki hyggja á útrás með framleiðslu og sölu á bóluefnum, þar með talið til fátækra ríkja þar sem lyfjakostnaður er oftar en ekki þungur baggi.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er ákveðinn léttir að vera búinn með þetta mikla verk. Seinni bókin varð stærri en upphaflega var áætlunin.
Meira
Í fannhvítri borg Töluverður snjór er á götum og gangstéttum Reykjavíkur og því eiga bæði bréf- og blaðberar höfuðborgarinnar talsvert erfiðara með að komast leiðar...
Meira
Af samtölum við raftækjaverslanir má ráða að markaður sé að glæðast á ný með margskonar munaðarvörur eins og snjallsíma, spjaldtölvur og stóra flatskjái. Talsmenn símafyrirtækjanna segja dýra síma seljast mjög vel.
Meira
Fréttaskýring Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Á sama tíma og þúsundir Íslendinga þurfa enn ein jólin að leita til hjálparsamtaka til að geta haldið jól flykkjast aðrar þúsundir Íslendinga í verslunarleiðangra til Bandaríkjanna fyrir jólin.
Meira
Andri Karl andri@mbl.is Útkall lögreglu höfuðborgarsvæðisins vegna manns sem ógnaði starfsfólki á Sorpu í Kópavogi á fimmtudag vatt heldur betur upp á sig.
Meira
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ríkisstjórnin vill að byggt verði 56 rýma fangelsi á Hólmsheiði en nokkrir stjórnarþingmenn hafa efasemdir um framkvæmdina.
Meira
Pétur Blöndal pebl@mbl.is Hugmyndir eru á borðinu um að leggja niður efnahags- og viðskiptaráðuneytið og færa valdsviðið undir fjármálaráðherra. Það yrði liður í ráðherrakapli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J.
Meira
Snemma á síðasta áratug bauðst finnskum almenningi að fjárfesta í WinCapita, fjárfestingarfyrirtæki sem lofaði gulli og grænum skógum í gegnum gjaldeyrisviðskipti.
Meira
baksvið Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fimmtán stjórnarfrumvörp komu fram síðasta daginn, sem þingmenn, þingnefndir og ráðherrar höfðu til að leggja fram ný þingmál svo þau komist á dagskrá fyrir jólahlé 16. desember nk.
Meira
Karl á þrítugsaldri hefur á grundvelli rannsóknarhagsmuna verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 8. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í austurborginni föstudaginn 18. nóvember sl.
Meira
Í aðdraganda hins árlega bréfamaraþons vekur Íslandsdeild Amnesty International athygli á áhrifamætti bréfa og póstkorta til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi.
Meira
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Gylfi Magnússon, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, hækkaði þóknun til stjórnarmanna í Fjármálaeftirlitinu um 77% 1. september 2010, á síðasta degi sínum í embætti.
Meira
Af hálfu iðnaðarráðuneytisins er ráðgert að óska eftir 15-17 milljóna króna fjárveitingu á fjárlögum ársins 2013 vegna rannsókna á Gammssvæðinu, olíuleitarsvæði úti fyrir Norðurlandi, samkvæmt upplýsingum frá Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra.
Meira
Jónas Jónasson útvarpsmaður var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í gær. Organisti við útförina var Jón Stefánsson og Hlín Stefánsdóttir Behrens flutti lag sem Jónas samdi þegar hann var 12 ára.
Meira
ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Sauðárkrókur Eftir gott haust hefur nú brugðið til verri tíðar og kom norðlensk stórhríð í vikubyrjun en á miðvikudag birti með kulda og stillu.
Meira
Sala á búnaði sem gerir kleift að fylgjast með smáskilaboðum og tölvupóstum milljóna manna veltir orðið sem svarar hundruðum milljarða króna á ári.
Meira
Þráinn Bertelsson tók í gær til máls á Alþingi undir liðnum störf þingsins og gagnrýndi þingmenn harðlega fyrir það hvernig þeir ræddu málin undir þeim lið og í fyrirspurnatímum. Taldi Þráinn að þjóðinni væri ofboðið að fylgjast með orðbragði þingmanna.
Meira
„Við erum alltaf að spegla hvert annað og stöðugt í hlutverkaleik þar sem við búum til ímyndir,“ segir Anna Sigríður Sigurjónsdóttir myndhöggvari um innsetningu sína í Galleríi 002 sem hún nefnir Speglun og sýnd verður í dag og á morgun...
Meira
Bók Árna Þórarinssonar, Dauði trúðsins , kom út í Þýskalandi fyrir stuttu og hefur fengið góða dóma þar í landi, Bókin, sem heitir Ein Herz so Kalt í þýðingu Tinu Flecken, fær þannig fjórar stjörnur hjá lesendum bókmenntasíðunnar Lovelybooks , í...
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Eftir að ég hætti forystu fyrir Kammersveit Reykjavíkur í ársbyrjun 2010 fannst mér eins og margir héldu að ég hefði hætt að spila og jafnvel sest í helgan stein.
Meira
Mér fannst ég strax hverfa aftur um nokkra áratugi við að hlusta á Olof Sings, ábreiðuplötu Ólafar Arnalds. Platan hafði þau notalegu hughrif á mig að mér fannst ég sitja í grænni brekku með blóm í hárinu.
Meira
Fyrsta teiknimyndablaðið um Ofurmennið, Superman, var selt á uppboði í vikunni fyrir 1,4 milljónir sterlingspunda, um 261 milljón króna. Eigandi blaðsins var leikarinn og Hollywoodstjarnan Nicolas Cage.
Meira
Flass 104,5 fagnaði sex ára afmæli í gær. Nýr eigandi hefur nú tekið við stöðinni og hefur hún gengið í gegnum nokkrar breytingar, ný heimasíða hefur m.a. verið opnuð sem inniheldur m.a. Flass TV.
Meira
Starfsmenn 15 fyrirtækja hafa tekið áskorun um að velja eða semja jólalag og gera myndband því til stuðnings og verða lögin framlag þeirra í jólalagakeppnina Geðveik Jól 2011 og tengist átaksverkefninu Geðveik jól.
Meira
Aðalsmaður vikunnar er dansarinn Sigríður Soffía Níelsdóttir sem dansar og syngur í Red Waters, Teach us to outgrow our madness og We saw monsters auk þess að hafa framið dansgjörninginn Hreyfingar flugdreka í Hafnarhúsi, í gær.
Meira
RÚV sýndi síðastliðið sunnudagskvöld afar góða heimildarmynd um söngvarann okkar góða Kristin Sigmundsson. Þetta var í alla staði vel gerð mynd og alltaf óskar maður Kristni alls hins besta. Hann er mikill listamaður og flott manneskja.
Meira
Guðrún Kristjánsdóttir mun fjalla um vegglistaverk sitt í Peking, Múrinn, í Gallerí Ágúst í dag kl. 16. Verkið vann hún úr íslenskri eldfjallaösku og kínverskum...
Meira
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Bassaleikarinn Jakob Smári Magnússon sendi frá sér plötuna Bassajól árið 2003. Þar lék hann tólf þekkt jólalög á bassa eingöngu.
Meira
Tilnefningar til bandarísku Grammy-tónlistarverðlaunanna voru kynntar í vikunni en verðlaunin verða veitt 12. febrúar næstkomandi. Tónlistarmaðurinn Kanye West hlýtur sjö tilnefningar og þá m.a.
Meira
Kór Neskirkju, Stúlknakór Neskirkju, Bach-sveitin í Skálholti og einsöngvarar flytja Magnificat BWV 243 eftir Johann Sebastian Bach og Magnificat eftir Steingrím Þórhallsson á tónleikum í Neskirkju á þriðjudag kl. 20.
Meira
Óperukórinn í Reykjavík mun ásamt sinfóníuhljómsveit og einsöngvurum flytja Requiem eftir Mozart kl. 00.30 á morgun, á dánarstundu tónskáldsins sem lést árið 1791. Tónleikarnir eru helgaðir minningu Mozarts og tónlistarmanna sem létust á árinu 2011.
Meira
Í dag kl. 14-16 verður kynning á sænska ljóðskáldinu Tomas Tranströmer í bókasafninu í Hveragerði í tilefni af því að Tranströmer hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels í ár.
Meira
Ævintýrabækur fyrir fullorðna, sem sumir vilja kalla fantasíur til aðgreiningar frá Grimmsævintýrum og safni Jóns Árnasonar, eiga sér fjölmarga vini hér á landi, en hingað til hafa menn helst þurft að sækja sér lesefni til útlanda.
Meira
Frá Guðvarði Jónssyni: "Það kom vel í ljós þegar Ögmundur Jónasson neitaði Kínverjanum um heimild til að kaupa Grímsstaði á Fjöllum hversu öflugt andíslenskt hugarfar ríkir á alþingi. Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar fordæmdu þau vinnubrögð Ögmundar að hafna kaupunum."
Meira
Eftir Guðmund Karl Jónsson: "Að loknum frosthörkum alla vetrarmánuðina eykst hættan á miklu grjóthruni í þessari slysagildru á vorin sem forstöðumaður Vegagerðarinnar á Ísafirði getur alltaf þrætt fyrir."
Meira
Eftir Gunnar Kristin Þórðarson: "Á næsta ári munu fyrirtæki og ríkissjóðir standa frammi fyrir risavöxnum gjalddögum sem ekki verður hægt að mæta öðruvísi en með peningaprentun."
Meira
Frá Árdísi Jónmundsdóttur: "Ég hef í fjölda mörg ár átt við þunglyndi og kvíða að stríða. Í vor fór að falla undan fæti án þess að ég áttaði mig á því. Ég fór að mæta alltof snemma í vinnuna, sleppa neysluhléum, missa nætursvefn og þar fram eftir götunum."
Meira
Eftir Björgvin Guðmundsson: "Tilgangur endurskoðunar (almannatrygginga) á að vera að bæta kjör aldraðra og öryrkja en ekki tilfærslur innan kerfisins."
Meira
Frá Karli Jónatanssyni: "Sameinuðu þjóðirnar búa sig undir að krefja Ísraelsmenn um þau landflæmi af Palestínu sem gyðingarnir hafa stolið undanfarin 40 ár. En það hugnast gyðingunum ekki, heldur skal berjast. Nú hamast þeir við að finna ástæðu til að ráðast á Íran, þ.e."
Meira
Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur: "Náms- og starfsráðgjöf getur gagnast innflytjendum að minnsta kosti á þrjá vegu; menntunarlega, starfslega og í persónulegum málefnum."
Meira
Eftir Bjarna Jónsson: "Undirritaður er þeirrar skoðunar að með núverandi frumvarpi verði mikilvægt skref tekið í átt til jafnræðis lífsskoðana hér á landi og veraldlegum skoðunum gert jafn hátt undir höfði (eða því sem næst) og þeim trúarlegu."
Meira
Það fer ekki fram hjá neinum þegar jólin fara að nálgast. Ætli margir upplifi þá ekki valkvíðann sem fylgir öllum ákvörðununum sem við stöndum frammi fyrir í desember... gjafirnar, fötin, maturinn, þetta er nóg til að æra óstöðugan.
Meira
Elskaðu viðskiptavininn Ég skrifa þessa grein vegna þess að ég lenti nýlega í því að fá hræðilega þjónustu í rafvörubúð í Ármúla, Glóey. Ég bað um ráðleggingar við ljósabúnað í lampa sem ég var að smíða, en ég er í hönnunarnámi.
Meira
Eftir Gísla Jónasson: "Staðreyndin er sú að skil ríkisins á innheimtum sóknargjöldum hafa verið skorin þannig niður að ríkið stendur trúfélögunum aðeins skil á tæplega tveimur þriðju þeirra sóknargjalda sem innheimt eru. Afgangurinn er látinn renna í ríkissjóð."
Meira
Anna Soffía Sigurðardóttir fæddist í Hvítárholti, Hrunamannahreppi, 31. ágúst 1944. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 24. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurmundsson, f. 29.7. 1915, d. 5.3.
MeiraKaupa minningabók
Friðjón Jónsson fæddist á Blómsturvöllum, Hellissandi, 12. febrúar 1931. Hann lést á Dvalarheimilinu Jaðri 27. nóvember 2011. Foreldrar Friðjóns voru Svanfríður Kristjánsdóttir, fædd á Hellissandi 25.1. 1910, d. 14.11. 1995, og Jón Guðmundsson, f. 15.2.
MeiraKaupa minningabók
3. desember 2011
| Minningargrein á mbl.is
| 1363 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Guðmundur Þórðarson fæddist á Haukafelli á Mýrum 24. nóvember1928. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Mörkinni í Reykjavík 20. nóvember 2011.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Þórðarson fæddist á Haukafelli á Mýrum 24. nóvember1928. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Mörkinni í Reykjavík 20. nóvember 2011. Foreldrar hans voru Þórður Jónsson búfræðingur frá Rauðabergi á Mýrum, f. 3.10. 1900, d. 6.3.
MeiraKaupa minningabók
Hafsteinn Sigurjónsson fæddist á Seyðisfirði 1. apríl 1935. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað 24. nóvember 2011. Foreldrar hans voru Sigurjón Pálsson, f. 15. ágúst 1901 á Hofi í Öræfum, d. 24.
MeiraKaupa minningabók
Halldóra Guðmundsdóttir fæddist á Hamraendum í Miðdölum 28. mars 1931. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 26. nóvember síðastliðinn. Foreldrar Halldóru voru Gróa María Sigvaldadóttir, f. 19. júlí 1912, d. 8. febrúar 1985, og Guðmundur Baldvinsson, f. 18.
MeiraKaupa minningabók
Á morgun, 4. desember, verða 150 ár frá fæðingu Hannesar Hafstein. Hans er minnst sem eins af bestu ljóðskáldum tungunnar og eins af farsælustu stjórnmálamönnum þjóðarinnar. Í sjálfstæðisbaráttunni vann hann sigra.
MeiraKaupa minningabók
Kristjana Þórhallsdóttir fæddist 14. janúar 1925 í Hofsgerði á Höfðaströnd. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 24. nóvember sl. Foreldrar hennar voru Helga Friðbjarnardóttir, f. í Brekkukoti ytra í Blönduhlíð í Skagafirði 7.12. 1892, d. 20.4.
MeiraKaupa minningabók
Oddur Björnsson fæddist í Ásum í Skaftártungu 25. október 1932. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 21. nóvember 2011. Útför Odds fór fram frá Dómkirkjunni 30. nóvember 2011.
MeiraKaupa minningabók
Pálmi Sigurðsson fæddist í Skjaldbreið í Vestmannaeyjum 21. júlí 1920. Hann lést í Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 25. nóvember 2011. Foreldrar hans voru Sigurður Ingimundarson og Hólmfríður Jónsdóttir. Systkini Pálma voru Júlíus skipstjóri, Friðjón, fyrrv.
MeiraKaupa minningabók
Þorsteinn Einarsson fæddist á Ytri-Sólheimum í Mýrdal 17. nóvember 1927. Hann lést á Landspítalanum aðfaranótt fimmtudagsins 24. nóvember 2011. Þorsteinn var fjórða barn foreldra sinna, Einars Einarssonar bónda, f. 12. september 1889, d. 9.
MeiraKaupa minningabók
Þórhalla Þorsteinsdóttir fæddist í Litluvík 15. september 1924. Hún lést á legudeild Sundabúðar 24. nóv. síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Magnúsdóttir og Þorsteinn Magnússon. Þórhalla giftist Björgólfi Jónssyni, f. 24.9. 1923, d. 8.2.
MeiraKaupa minningabók
Þórunn Ástrós Sigurðardóttir fæddist í Reykjavík 3. desember 1951. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík 25. nóvember 2011. Foreldrar hennar voru Aðalheiður Kristín Helgadóttir, f. 12. október 1926, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Actavis hefur eignast allt hlutafé í PharmaPack International B.V. Kaupverðið er ekki gefið upp. Í tilkynningu frá Actavis kemur fram að PharmaPack hafi aðsetur í Zoetermeer í Hollandi og sérhæfi sig í pökkun á hefðbundnum lyfjum og líftæknilyfjum.
Meira
Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 117.000 . Til samanburðar voru þær 105.000 í október í fyrra og fjölgaði því um 11% milli ára. Erlendir gestir gistu langflestar nætur, 74% af öllum gistinóttum, og fjölgaði um 13% frá október í fyrra.
Meira
Kauphöll Íslands hefur samþykkt umsókn stjórnar Haga hf. um töku hlutabréfa félagsins til viðskipa á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.
Meira
Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 11,7 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi samanborið við 32,1 ma.kr. óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 33,5 ma.kr. og 27,3 ma.kr. á þjónustuviðskiptum.
Meira
Hefð er fyrir því að senda jólakort til vina og ættingja fyrir jólin. Voru slíkar sendingar mikilvægar fyrir þá tæknibyltingu í samskiptum sem við þekkjum í dag.
Meira
Víða um land eru haldir skemmtilegir markaðir nú á aðventunni þar sem hægt er að upplifa jólastemningu og kaupa jólagjafir. Einn af þeim er Jólamarkaðurinn á Fitjum í Reykjanesbæ. En Fitjar eru verslunarkjarni í bænum.
Meira
Vefsíðan emma.is er vefur sem gerir sjálfstæðum höfundum, útgefendum og handhöfum útgáfuréttar kleift að koma ritverkum á framfæri hvort sem þeir vilja bjóða þau til sölu eða gefa verkin. Þannig er Emma rafbókamiðlari fyrir íslenskar rafbækur.
Meira
Hún opnar glerverkstæðið sitt fyrir gestum núna um helgina og ætlar að leyfa þeim að sjá glerblástur, hlusta á munnhörpuspil og gítarleik og bjóða upp á kaffi og piparkökur.
Meira
Fimmtán borð í Gullsmára Spilað var á 15 borðum í Gullsmára mánudaginn 28. nóvember. Úrslit í N/S Gunnar Sigurbjss. – Sigurður Gunnlss. 303 Þórður Jörundss. – Þorleifur Þórarinss.
Meira
„Ég er mikið afmælisbarn og finnst þetta óskaplega gaman. Mér finnst öll afmæli vera stórafmæli og held alltaf upp á það,“ segir Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er 45 ára í dag. Af undanförnum 44.
Meira
Karlinn á Laugaveginum var borginmannlegur og tímaritið „Foreign Policy“ stóð upp úr úlpuvasanum: „Þeir segja að Jóhanna Sigurðardóttir sé í hópi hundrað mestu hugsuða heims, númer 87 í röðinni, nákvæmt skal það vera,“ sagði hann...
Meira
Örn Arnarson orti: „Oft er viss í sinni sök, sá er ekkert skilur.“ Ef til vill er þetta ofmælt, en hitt hefur ósjaldan gerst, að þeir, sem vissastir eru í sinni sök, hafi reynst jafnskeikulir og við hin.
Meira
Víkverji dagsins hvetur fólk til að gleyma ekki smáfuglunum nú þegar veturinn er genginn í garð. Þörfin er mikil um þessar mundir, snjór yfir öllu, og lítið handa fuglunum að hafa ef mannfólkið leggur ekkert af mörkum.
Meira
3. desember 1981 Menntamálaráðuneytið staðfesti ákvörðun Náttúruverndarráðs um að friðlýsa Þjórsárver við Hofsjökul. 3. desember 1992 Georgíumaðurinn Grigol Matsjavariani kom til landsins í boði ríkisstjórnarinnar, en hann var sjálfmenntaður í íslensku.
Meira
Handbolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Valsarinn Anton Rúnarsson er leikmaður 10. umferðar í N1-deild karla í handknattleik að mati Morgunblaðsins.
Meira
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í erfiðri stöðu að loknum fyrsta keppnisdegi á 2. stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina. Birgir lék fyrsta hringinn í gær á 77 höggum sem er fimm höggum yfir pari vallarins.
Meira
Það var spenna í loftinu í Kiev í Úkraínu í gærkvöldi þegar dregið var í riðla fyrir úrslitakeppni Evrópumóts karlalandsliða í knattspyrnu sem fram fer í Póllandi og Úkraínu næsta sumar.
Meira
Eyjamenn hafa samið við enska knattspyrnumanninn Aaron Spear um að leika áfram með þeim næstu tvö árin, eða til loka keppnistímabilsins 2013. Spear er 18 ára gamall sóknarmaður og kom til ÍBV í lok júlí frá Newcastle United.
Meira
HANDBOLTI Ívar Benediktsson sport@mbl.is Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna mætir Svartfellingum í upphafsleik sínum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í dag. Leikið verður í íþróttahöllinni í Santos í São Paulo-ríki.
Meira
Strákarnir hans Bjarka Sigurðssonar í liði ÍR náðu í gærkvöldi tveggja stiga forskoti á toppi 1. deildar karla í handknattleik eftir sigur á Víkingi, 31:30, í miklum spennuleik.
Meira
Sarah Bateman sló í fyrrinótt Íslandsmet Ragnheiðar Ragnarsdóttur í 50 metra skriðsundi þegar hún synti vegalengdina á 25,52 sekúndum á bandaríska meistaramótinu í Atlanta.
Meira
Það verður Suðurnesjaslagur í úrslitum Lengjubikarsins í körfuknattleik karla en Grindavík og Keflavík höfðu betur gegn mótherjum sínum í undanúrslitunum í gærkvöldi.
Meira
Þýskaland Leverkusen – Hoffenheim 2:0 • Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 80 mínúturnar fyrir Hoffenheim. Belgía Beerschot – Genk 2:0 • Jón Guðni Fjóluson sat á bekknum hjá Beerschot allan tímann.
Meira
Frá jarðarför í Andesfjöllum liggur leiðin í sólbakað ríki dauðans í perúskri eyðimörk. Þá til norðurpólsins, á öskudagshátíð í Færeyjum, og eftir siglingu niður Yangtze-fljót í Kína, á hátíðarhöld Vestur-Íslendinga í Kanada. Einar Falur Ingólfsson kemur víða við í ferðasögum sínum.
Meira
Einar Stefán Björnsson, Inga Þórsdóttir og Karl Kristinsson fengu styrki Vísindasjóðs Landspítala 2011 Hver styrkur er þrjár millj. kr. Hvatningarstyrkir sjóðsins voru veittir í fyrsta skipti í fyrra.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.