Alþingi samþykkti á laugardag að veita 24 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt en umsóknir voru alls 42. Meðal þeirra sem fengu ríkisborgararétt er Mehdi Kavyanpoor, 53 ára Írani, sem kom hingað til lands frá Íran árið 2005.
Meira
fréttaskýring Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Áætlaður kostnaður við dýpkun Landeyjahafnar frá því að höfnin var tekin í notkun á miðju síðasta ári er 345 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum Siglingastofnunar.
Meira
Vax Dorrit Moussaieff valdi jólatré sem Tinna Ottesen skreytti, sem best skreytta jólatréð í samkeppni sem Skógræktarfélag Íslands stóð fyrir. Tinna notaði m.a. heitt vax til að skreyta...
Meira
Baldur Sigurðsson, dósent í íslensku við Háskóla Íslands, hefur mikið álit á Havel sem leikskáldi. „Havel var geysilega merkilegur heimspekingur og listamaður og án efa í fremstu röð evrópskra leikskálda.
Meira
„Heyrðu, er þetta ekki Árni Sæberg?“ spurði Hurðaskellir ljósmyndara Morgunblaðsins, sem eðlilega var brugðið við spurninguna og greinilegt að jólasveinarnir fylgjast vel með börnunum langt fram á fullorðinsár.
Meira
Heildarkostnaður við dýpkun í Landeyjahöfn verður að ári kominn í um 560 milljónir króna, gangi áætlanir Siglingastofnunar eftir. Frá því að höfnin var tekin í notkun í júlí 2010 hefur kostnaður við dýpkun hafnarinnar verið um 345 milljónir króna.
Meira
Eyjólfur Martinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugardaginn 17. desember, 74 ára að aldri. Eyjólfur fæddist í Vestmannaeyjum 23.
Meira
Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Undanfarin ár hafa gestir Kringlunnar og Smáralindar verið hvattir til að gefa eina gjöf í viðbót og setja hana undir jólatré verslanamiðstöðvanna.
Meira
baksvið Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Þegar þeir 523 einstaklingar, sem hafa verið þrjú ár eða lengur án vinnu, eru skoðaðir nánar eftir fyrri störfum, menntun og atvinnugrein þá kemur í ljós að flestir störfuðu áður í verslun, eða 107.
Meira
Minnst 650 eru látnir og 900 er enn saknað eftir að hitabeltisstormurinn Washi olli gífurlegri eyðileggingu á Mindanao, annar stærstu eyju Filippseyja, að því er Rauði kross landsins áætlar.
Meira
58 ára bresk kona sem er eldheitur aðdáandi Manchester United í knattspyrnu getur nú sótt heimalæki Rauðu djöflanna, eins og þeir rauðklæddu eru kallaðir, eftir að hafa lokið meðferð vegna of mikillar spennu á leikjum.
Meira
Valdimar Guðmundsson söngvari, Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari og Kristján Tryggvi Martinsson píanóleikari verða með tónleika í Gerðubergi í kvöld og annað kvöld kl. 20.
Meira
Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Lárusi Welding, sem var forstjóri Glitnis frá árinu 2006 og þar til ríkið tók yfir bankann, og einum öðrum manni sem tengist bankanum en ekki er vitað hver það er að svo stöddu.
Meira
„Að óbreyttu er búið að samþykkja hér lög sem munu leiða til þess að réttindi okkar félagsmanna munu skerðast og það erum við mjög ósátt við,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um fyrirhugaða skattlagningu lífeyrissjóða vegna...
Meira
„Í ár og næsta ár eru einn og hálfur milljarður inni á samgönguáætlun til að byrja á Norðfjarðargöngum og ég vil að við það sé staðið,“ segir Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi samgönguráðherra, en hann segist ekki geta...
Meira
Miðasala á tónleika James Taylor og hljómsveitar sem haldnir verða í Hörpu 18. maí nk. hefst í dag kl. 12 á Harpa.is. Mikil eftirvænting er á meðal aðdáenda hans fyrir tónleikunum og fjöldi fyrirspurna eftir miðum hefur komið erlendis frá.
Meira
Ný móttaka Veðurstofu Íslands hefur verið opnuð á Bústaðavegi 7. Er Veðurstofan einnig til húsa í eldra húsnæði á Bústaðavegi 9. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tók nýju bygginguna formlega í notkun sl. föstudag.
Meira
Matthías Johannessen sendir nú frá sér ljóðabókina Söknuð. Þar glímir hann við sáran missi, en konu sína missti hann fyrir tveimur árum. Bókina segir hann hafa sprottið upp af góðum minningum.
Meira
Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Lögfræðiálit, sem forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, lét vinna vegna þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um afturköllun ákæru á hendur Geir H.
Meira
Um tíma í gær var Suðurlandsvegur illfær frá Breiðholtsbraut og austur að Sandskeiði en nokkur úrkoma varð þegar tók að hlýna eftir langvarandi frostakafla. Stórhríð var á Sandskeiði og lentu sumir ökumenn í vandræðum.
Meira
Stórmeistarinn Henrik Danielsen fór með sigur af hólmi á Friðriksmóti Landsbankans, Íslandsmóti í hraðskák, sem fram fór í gær. Var Henrik með 9,5 vinninga í 11 skákum en Björn Þorfinnsson varð annar með 9 vinninga.
Meira
Baksvið Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Óhætt er að segja að mikill titringur hafi verið á Alþingi þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram þingsályktunartillögu um niðurfellingu ákæru á hendur Geir H.
Meira
„Við höfum langt mikla áherslu á að það verði skýrt fyrir jól hvernig fyrirsvar verði háttað í Icesave-málinu því við teljum að Árni Páll, efnahags- og viðskiptaráðherra, hafi haldið vel á því frá síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Gunnar...
Meira
Tveir ungir menn voru handteknir í fyrrinótt vegna innbrots í iðnaðarhúsnæði við Lyngháls í Reykjavík. Öryggisverðir tilkynntu innbrotið rétt eftir klukkan hálfeitt eftir að viðvörunarkerfi fór í gang.
Meira
Ráðgjafaskóli Íslands og Forvarnaskólinn útskrifuðu nýverið 26 nemendur við hátíðlega athöfn sem fram fór í húsnæði Háskóla Íslands. Af 26 nemendum skólanna sem stunduðu þar nám í vetur voru 18 þeirra í ráðgjafanámi og átta í forvarnanámi.
Meira
Um 600 fjölskyldur fengu aðstoð í fyrstu jólaaðstoðinni hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Eskihlíð. Fjölskylduhjálpin biðlar til fyrirtækja um að fá fleiri jólagjafir og sælgæti til að úthluta fyrir jól.
Meira
Þór, nýtt varðskip Landhelgisgæslu Íslands, liggur nú bundinn við bryggju í Reykjavíkurhöfn sökum bilunar í eldsneytisbúnaði tengdum aðalvélum skipsins. Þetta staðfestir Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Meira
Þórir Hergeirsson varð í gær fyrsti Íslendingurinn til þess að verða heimsmeistari í handknattleik þegar hann stýrði norska kvennalandsliðinu til sigurs á HM í Brasilíu. Noregur vann Frakka, 32:24, í úrslitum og er handhafi stóru titlanna þriggja, þ.e.
Meira
Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, boðar breytingar í rússneskum stjórnmálum. Núverandi fyrirkomulag hafi gengið sér til húðar. „Við horfum fram á nýtt stig í þróun stjórnmálakerfis okkar og við getum ekki lokað augunum fyrir því.
Meira
Jón Magnússon, fv. þingmaður, skrifar: „Talsmaður Arion banka var spurður um það hvort bankinn hefði verðlagt hlutabréf í Högum of lágt við útboð hluta í félaginu.
Meira
Það sem var kannski einna erfiðast var hversu Hanna fór snöggt. Hún greindist með sjúkdóm sinn í sömu vikunni og hún dó. Það var högg sem tók langan tíma að komast yfir og auðvitað hef ég ekki jafnað mig enn í dag en mér líður allt öðruvísi.
Meira
Mikið er nú gott að vita af því að jólin nálgast. Það hjálpar manni á þessum raunastundum þegar Icesave-málið er allt í einu komið aftur í fjölmiðla. Mál sem viðkvæmt sálarlíf manns þolir vart að sé nefnt.
Meira
Ed O'Brien, hinn geðþekki gítarleikari Uxavaðssveitarinnar Radiohead segir að sveitin æfi nú fjögur til fimm ný lög sem á víst að frumflytja á viðamiklu tónleikaferðalagi, en það fer í gang nú á næsta ári.
Meira
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Decapitated eru búnir að vera mikið á fóninum undanfarið auk þess sem ég var að rifja upp gamla tíma og hlusta á Deeds of Flesh – Reduced to Ashes ásamt Emperor safndisk sem er í bílnum.
Meira
• Skipulag alheimsins eftir Stephen Hawking og Leonard Mlodinow er komin út á íslensku • Eins konar framhald Sögu tímans, metsölubókar Hawkings • Fjallar um sjálfsprottna alheima
Meira
Eftir Eyjólf Eysteinsson: "Merkur áfangi og baráttumál okkar eldri borgara er komið í höfn og vonum við að framkvæmdir við Hjúkrunarheimilið við Nesvelli gangi fljótt og vel."
Meira
Eftir Rúnar Sigurðsson: "Ljóst er að töluverð uppbygging þarf að eiga sér stað á þeim stöðum sem landsmót er haldið hverju sinni og hefur sú uppbygging átt sér stað í Reykjavík sem undirbúningur fyrir landsmót 2012."
Meira
Eftir Ragnar Önundarson: "Samkvæmt 23. gr. tilskipunar framkvæmdastjórnar ESB nr. 77/91 má fyrirtæki ekki aðstoða við (lána til eða ábyrgjast) yfirtöku á sjálfu sér."
Meira
Eftir Elías Kristjánsson: "Það versta við núverandi fjármálakreppu, er að menn eru tregir til að skilja hvernig allt fór aflaga í fjármálum banka og þjóðríkja."
Meira
Kæra amma og kæri afi Mig langar til að benda á barnabók sem heitir „Úti í myrkrinu" eftir Margréti Þ. Jóelsdóttur og Stephen Fairbairn. Þessi bók er skrifuð á fallegri íslensku og myndirnar í bókinni eru frábærlega vel gerðar.
Meira
Alfreð Sigurlaugur Konráðsson fæddist á Brattavöllum á Árskógsströnd 14. júlí 1930. Hann lést 4. desember 2011. Foreldrar hans voru Soffía Júnía Sigurðardóttir og Konráð Sigurðsson. Eftirlifandi eiginkona Alfreðs er Valdís Þorsteinsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Ágústa R. Júlíusdóttir fæddist á Eyrarbakka 1.september 1922. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 6. desember 2011. Foreldrar hennar voru Júlíus Ingvarsson, trésmiður, f. 31. okt. 1891, d. 22. des.
MeiraKaupa minningabók
Fjölnir Stefánsson fæddist í Reykjavík 9. október 1930. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 24. nóvember 2011. Útför Fjölnis fór fram frá Fossvogskirkju 9. desember 2011.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Valdimarsson frá Teigi í Vopnafirði fæddist á Hróaldsstöðum í Vopnafirði 25. maí 1924. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 10. desember 2011.
MeiraKaupa minningabók
Hallur Bergsson fæddist á Reyðarfirði 20. júní 1947. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 7. desember 2011. Foreldrar hans voru Þórey Björnsdóttir, húsmóðir frá Ármótaseli í Jökuldalsheiði, f. 30.12. 1910, d. 22.10.
MeiraKaupa minningabók
Jón Freyr Finnsson fæddist í Stykkishólmi 14. júní 1976. Hann lést á deild B-2 á Landspítalanum í Fossvogi þann 13. desember 2011. Foreldrar hans voru hjónin Jónína Ragnarsdóttir og Finnur Jónsson. Systkini Jóns Freys voru Grétar Elías og Freyja.
MeiraKaupa minningabók
Jónína Ásmundsdóttir fæddist í Kópavogi 12. desember 1965. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 6. desember 2011. Foreldrar hennar eru Kristín Ögmundsdóttir frá Heiðartúni í Garði, f. 6.3. 1945, gift Sigurjóni Kristinssyni frá Lónshúsum í Garði, f.
MeiraKaupa minningabók
Karl fæddist á Blálandi í Hallárdal 10. maí 1933. Hann lést á sjúkrahúsinu á Blönduósi 11. desmber 2011. Karl var sonur Guðmundar Júlíussonar, f. 19. júlí 1885, d. 1. janúar 1961 og Elísabetar Kristjánsdóttur, f. 8. nóvember 1912, d. 6. mars 1991.
MeiraKaupa minningabók
Lilja Margét Oddgeirsdóttir, kölluð Lillý af sínum nánustu, fæddist í Reykjavík 6. júní 1928. Hún lést á heimili sínu Hólmgarði 33 4. desember 2011. Foreldrar hennar voru hjónin Alma Helene Kummer Hjartarson hárgreiðslumeistari, f. 28. apríl 1901, d....
MeiraKaupa minningabók
Signý Thoroddsen fæddist í Reykjavík 13. ágúst 1940. Hún lést á Landakotsspítala 11. desember 2011. Foreldrar hennar voru Sigurður Thoroddsen verkfræðingur, f. 24. júlí 1902, d. 29. júlí 1983, og Jakobína Margrét (Bína) Tulinius kennari, f. 20.
MeiraKaupa minningabók
Soffía Guðmundsdóttir tónlistarkennari fæddist í Reykjavík 25. janúar 1927. Hún lést 8. desember 2011. Foreldrar Soffíu voru Lára Jóhannesdóttir, f. 25.5. 1899, d. 18.8. 1968, og Guðmundur Siggeir Guðmundsson, f. 10.11. 1895, d. 20.5. 1942.
MeiraKaupa minningabók
Vera Siemsen fæddist í Reykjavík 28. maí 1956. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. desember 2011. Útför Veru fór fram frá Fossvogskirkju 14. desember 2011.
MeiraKaupa minningabók
Þorlákur Sigurðsson fæddist í Grímsey 5. janúar 1932 og bjó þar alla sína ævi. Hann lést á lungnadeild Borgarspítalans 11. desember 2011. Þorlákur var sonur hjónanna Sigurðar Kristinssonar og Kristjönu Þorkelsdóttur í Hátúni í Grímsey.
MeiraKaupa minningabók
19. desember 2011
| Minningargrein á mbl.is
| 1067 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Þórður Þórðarson vélstjóri fæddist í Reykjavík 31. ágúst 1947. Hann lést á heimili sínu 11. desember 2011. Þórður var sonur hjónanna Þórðar Þórgrímssonar, f. 19. okt. 1910, d. 14. feb. 1989, og Jónínu Eyju Gunnarsdóttur, f. 7. sept. 1920, d. 3. mars 1959.
MeiraKaupa minningabók
Þórður Þórðarson vélstjóri fæddist í Reykjavík 31. ágúst 1947. Hann lést á heimili sínu 11. desember 2011. Þórður var sonur hjónanna Þórðar Þórgrímssonar, f. 19. okt. 1910, d. 14. feb. 1989, og Jónínu Eyju Gunnarsdóttur, f. 7. sept. 1920, d. 3.
MeiraKaupa minningabók
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þóri Kjartansson skortir ekki trú á framtíðarmöguleikum íslenskrar ferðaþjónustu. Þórir er framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingar ehf. (www.ip.is) sem í mars á þessu ári opnaði nýtt hótel á Hverfisgötu 45.
Meira
Bandarískir jólatrésræktendur eiga ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, en töluverður samdráttur hefur orðið í sölu lifandi jólatrjáa síðustu tvo áratugina.
Meira
Í snjó og kulda líkt og nú er auðvelt að láta sig dreyma um hlýja og sólríkari staði. Á bloggsíðunni spennandi.is má fylgjst með hópi íslenskra ungmenna sem ákváðu að láta drauminn rætast og skella sér í heimsreisu. Bloggið ber titilinn Heimshornaflakk!
Meira
Á Þorláksmessu, nú á föstudaginn, verður friðarganga í 32. sinn niður Laugaveginn. En það eru Íslenskir friðarsinnar sem hafa efnt til friðargöngu niður Laugaveginn á þessum degi í rúmlega þrjá áratugi.
Meira
Mikið álag er á eldhúsum landsmanna við jólaundirbúning í desember og yfir hátíðirnar. Góðir hollustuhættir í eldhúsinu eru því afar mikilvægir svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilsfólk fái matarsjúkdóma með tilheyrandi óþægindum.
Meira
Annað kvöld er komið að 12. tónleikunum í tónleikaröðinni Kaffi, kökur & rokk & ról í Edrúhöllinni, Efstaleiti. Það verður sannarlega ljúf og notaleg stemning í þetta sinn en á tónleikunum koma fram Hjaltalín og Lay Low.
Meira
Fríða Rögnvaldsdóttir myndlistarkona er fyrsti íslenski listamaðurinn til að fá athygli góðgerðarsamtakanna Sovereign Art Foundation en samtökin nota sölufé listaverka sem tilnefnd eru, til að hjálpa börnum sem minna mega sín.
Meira
Systurnar Jóhanna og Kristbjörg Steingrímsdætur frá Nesi í Aðaldal hafa getið sér gott orð fyrir bragsnilld sína á vettvangi vísnafélagsins Kveðanda.
Meira
„Ég held að það verði akkúrat engin breyting. Mér líst bara vel á þetta,“ sagði Guðmundur Árnason, söðlasmíðameistari á Selfossi, aðspurður hvernig honum þætti það að verða fertugur. Hann á 40 ára afmæli í dag.
Meira
Víkverji bíður þess nú í ofvæni að detta í jólagírinn. Jólahreingerningin verður líklega eitthvað minni en planlagningar í júní gerðu ráð fyrir og ef frá er talin ein lítil sería er eiginlega ekki hægt að tala um jólaskraut á heimilinu.
Meira
19. desember 1901 Tólf hús brunnu á Akureyri og meira en fimmtíu manns urðu heimilislausir. „Mestur eldur sem kviknað hefir á Íslandi,“ sagði blaðið Norðurland. 19.
Meira
Á HLÍÐARENDA Ívar Benediktsson iben@mbl.is Akureyringar luku keppni í N1-deildinni með reisn í gær þegar þeir lögðu Valsmenn, 30:23,í Vodafone-höllinni í lokaleik 12. umferðar.
Meira
„Ég hef aldrei æft með öðru liði en Val áður þannig að þetta var mjög skemmtilegt og ný og góð reynsla,“ sagði Kristín Ýr Bjarnadóttir, sóknarmaður úr Val, sem var til reynslu hjá sænska knattspyrnuliðinu Djurgården í nýliðinni viku.
Meira
„Ég er í sjöunda himni, hrikalega ánægður og stoltur af liðinu mínu á þessari stundu,“ sagði Þórir Gergeirsson, landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik kvenna, í samtali við TV2 í Noregi eftir að liðið varð heimsmeistari undir hans stjórn í...
Meira
„Þetta var mjög gott come back hjá kallinum því við höfðum aðeins fengið eitt stig í síðustu fimm leikjum meðan ég var meiddur,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson, leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Mors-Thy.
Meira
Fótbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Svo gæti farið að Eskfirðingurinn Eggert Gunnþór Jónsson, miðjumaður hjá skoska úrvalsdeildarfélaginu Hearts, verði þriðji Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í janúar.
Meira
Línumaðurinn Heidi Löke var eini fulltrúi heimsmeistara Noregs í úrvalsliði HM kvenna í handknattleik sem tilkynnt var eftir úrslitaleikinn í Brasilíu í gær.
Meira
England A-DEILD: Man City – Arsenal 1:0 David Silva 53. Tottenham – Sunderland 1:0 Roman Pavlyuchenko 61. Aston Villa – Liverpool 0:2 Craig Bellamy 11., Martin Skrtel 15. QPR – Man United 0:2 – Wayne Rooney 1.
Meira
HANDBOLTI Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Það má eiginlega segja að þetta hafi verið nokkuð öruggt hjá okkur,“ sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari ÍR í 1.
Meira
HM kvenna Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Fyrir keppnina vorum við viss um að vera með lið sem gæti farið í undanúrslitin, en lengra leiddum við ekki hugann að.
Meira
Rúnar Kárason skoraði sigurmark Bergischer þegar liðið vann Hüttenberg, 33:32, í þýsku 1. deildinni í handknattleik á laugardagskvöldið. Rúnar skoraði sigurmarkið þegar 20 sekúndur voru eftir og kom liði sínu þá í tveggja marka forskot.
Meira
Aron Einar Gunnarsson skoraði sitt fjórða mark fyrir Cardiff City á tímabilinu en það dugði skammt því liðið tapaði á heimavelli fyrir Middlesbrough, 3:2, í ensku B-deildinni.
Meira
Breiðablik samdi í gær við tvo unga leikmenn sem munu leika með félaginu næstu árin. Annar þeirra er Gísli Páll Helgason , tvítugur varnarmaður sem kemur frá Þór á Akureyri og hefur leikið með U-21 árs landsliðinu.
Meira
Spænska kvennalandsliðið í handknattleik gerði sér lítið fyrir og sigraði Danmörku með sex marka mun í leiknum um bronsverðlaunin á HM í Brasilíu í gær, 24:18.
Meira
Guðmundur E. Stephensen, sem er margfaldur Íslandsmeistari í borðtennis, gerði það gott með liði sínu Zoetermeer í úrslitaleiknum um hollenska deildabikarinn sem fór fram í Amsterdam nú um helgina.
Meira
Handknattleikur U16 ára lið karla, vináttulandsleikur: Kaplakriki: Ísland – Frakkland 17:15 Úrvalsdeild karla, N1-deildin: Kaplakriki: FH – Haukar 19.
Meira
Víkingar unnu Húna, 6:4, á Íslandsmóti karla í íshokkíi á laugardagskvöldið. Húnar fóru betur af stað í leiknum og skoruðu þrjú fyrstu mörkin og fátt sem benti til að Víkingar færu með sigur af hólmi.
Meira
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlin halda öðru sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Þeir unnu Balingen örugglega, 28:20, á heimavelli í gær að viðstöddum tæplega 8.600 áhorfendum í Max Schmeling-íþróttahöllinni í Berlín.
Meira
Skíðakonan María Guðmundsdóttir frá Akureyri stóð sig vel á skíðamótum í Noregi og Svíþjóð nú um helgina. Hún varð í tíunda sæti í stórsvigi í Svíþjóð og í gær endaði hún í þriðja sæti í svigi í Noregi en þar hafði hún næstbesta tíma eftir fyrri...
Meira
Brasilía náði sínum besta árangri frá upphafi þegar liðið hafnaði í 5. sæti á heimavelli á HM kvenna í handknattleik með því að kjöldraga heimsmeistarana frá 2009, Rússa, með sextán marka mun, 36:20.
Meira
• Barcelona valtaði yfir Santos í úrslitaleiknum á HM félagsliða • Evrópa komin með tveggja titla forskot • Lionel Messi fyrstur til að fá gullboltann tvívegis • Kominn með 29 mörk og ekki enn komin jól • „Krónprinsinn“ viðurkenndi yfirburðina
Meira
KÖRFUBOLTI Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Keflavík er í efsta sæti Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik þegar stúlkurnar halda í jólafrí.
Meira
England Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Fyrir ári komst Manchester United á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 1:0 sigri á Arsenal á heimavelli. Í gær léku grannar United í Manchester City nákvæmlega sama leik.
Meira
Hinn litskrúðugi enski kylfingur Ian Poulter sigraði á JBWere-meistaramótinu í golfi sem fram fór í Ástralíu. Poulter lék samtals á 269 höggum eða 15 höggum undir pari eða þremur höggum á undan Marcus Fraser frá Ástralíu.
Meira
KÖRFUBOLTI Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Það gekk svo sannarlega mikið á í síðustu umferð Icelanad Express-deildar karla í körfu í gærkvöldi.
Meira
Enski kylfingurinn Lee Westwood sigraði á Meistaramóti Taílands um helgina, lék á 22 höggum undir pari, sjö höggum betur en Charl Sxhwartzel frá Suður-Afríku. Þriðji varð síðan Michael Thompson frá Bandaríkjunum á 14 höggum undir pari.
Meira
Í ÁSGARÐI Kristinn G. Friðriksson sport@mbl.is Stórleikur síðustu umferðar fyrir jól fór fram í gærkveldi þegar Keflvíkingar heimsóttu Stjörnumenn í Ásgarð. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn og annað sæti deildarinnar undir.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.