baksvið Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Verð á eldsneyti er í hæstu hæðum hér á landi og farið að koma verulega við pyngju landsmanna. Einhverju sinni voru mjólkur- og bensínlítrinn á svipuðu verði en það er löngu liðin tíð.
Meira
Barnabókasetur – rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna við Háskólann á Akureyri – verður stofnað laugardaginn 4. febrúar. Auk háskólans standa Amtsbókasafnið og Minjasafnið á Akureyri að setrinu.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Á vinnumarkaði fara áhyggjur vaxandi af að verðhækkanir þessa dagana kyndi undir verðbólgu sem getur ef hún blæs út á skömmum tíma étið upp kaupmáttarávinning kjarasamninganna.
Meira
Eftir metróður í fyrradag þar sem 24 tonn fengust í 3½ trossu voru net Bárðar SH 81 enn bunkuð út af Ólafsvík í gær. Eftir að hafa dregið eina trossu skutust Pétur Pétursson skipstjóri og hans menn í land og lönduðu tólf tonnum.
Meira
Kristján Jónsson kjon@mbl.is Ragna Rósantsdóttir hefur unnið sjálfboðaliðastarf í tvo áratugi, síðustu árin hjá Fjölskylduhjálp Íslands en þar áður hjá Mæðrastyrksnefnd.
Meira
Draumasmiðjan hefur hlotið undirbúningsstyrk frá Norræna menningarsjóðnum til að skipuleggja leiksýningu ungra „döff“ (heyrnarlausra) á Norður-Atlantshafssvæðinu.
Meira
Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra leggur fram á næstu dögum frumvarp um heimild ríkisins til að ganga til samninga við félagið Vaðlaheiðargöng hf. um lánveitingu á byggingartíma ganganna.
Meira
Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Engar formlegar samningaviðræður hafa átt sér stað vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng, en lægsta tilboðið í verkið rennur út 14. febrúar. Tilboð voru opnuð 11. október sl. og áttu ÍAV/Marti Contractors Lts.
Meira
Reykjavíkurborg hækkaði fasteignaskatt á hesthúsum í þéttbýli nú um áramótin. Skatturinn áttfaldast, fer úr 0,225 í 1,65%. Hesthús eru nú flokkuð með iðnaðarhúsnæði í stað íbúðar- og frístundahúsa.
Meira
Irma Ertman, sendiherra Finnlands á Íslandi, fjallar um finnsku forsetakosningarnar á opnum fundi Félags stjórnmálafræðinga og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands í hádeginu í dag, kl. 12 til 13, í stofu 101 í Lögbergi.
Meira
Vísindamönnum við Berkeley-háskóla í Kaliforníu hefur tekist að nota heilabylgjur til að „lesa“ orð og þar með hugsanir sjúklings sem ekki getur tjáð sig með tali, að sögn BBC . Sagt er frá tilrauninni í vefritinu PLoS Biology .
Meira
Kristján Jónsson kjon@mbl.is Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, hefur árlega sent frá sér hafísspá frá 1969 en þá var mikill hafís við landið og hefur aldrei orðið eins mikill síðan.
Meira
Nú um mánaðamótin þurfa heimilin í landinu að greiða kortareikninga sem stofnað var til fyrir jólin. Mikið var verslað í jólamánuðinum því samkvæmt yfirliti frá Seðlabankanum voru útgjöld heimilanna um 9 milljörðum meiri í desember en í nóvember.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er vissulega komið að sársaukamörkum,“ segir Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra um hátt eldsneytisverð í dag en það hafi hins vegar ekki komið til tals að ríkið lækki álögur á eldsneyti.
Meira
Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar vanmat alvöru tilkynningar um sprengingu í miðborginni á þriðjudagsmorgun, að sögn Jóns Bjartmarz, yfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra.
Meira
Utanríkisráðherra Pakistans, Hina Rabbani Khar, neitaði í gær ásökunum, sem fram koma í leynilegri skýrslu Atlantshafsbandalagsins, um að pakistanskar öryggisstofnanir hafi aðstoðað talibana í Afganistan.
Meira
Bakú. AFP. | Ráðgert er að Söngvakeppni Evrópu, Evróvisjón, verði haldin í glæsilegri tónlistarhöll, Kristalshöllinni, sem verið er að reisa í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjans.
Meira
Baksvið Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Fiskgengd hefur verið stigvaxandi undanfarin ár, en ég held að þetta sé að verða það allra besta sem ég man eftir,“ segir Pétur Pétursson, skipstjóri og útgerðarmaður á Bárði SH 81.
Meira
Fréttaskýring Skúli Hansen skulih@mbl.is Varðskipið Þór hefur verið bundið við bryggju í Reykjavíkurhöfn í rúman mánuð, eða frá því í desember í fyrra, vegna vélarbilunar.
Meira
Lífshlaupið Börn í Smáraskóla í Kópavogi hófu nýtt lífshlaupsár í gær með þátttöku í þraut í anda Skólahreysti en markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til að hreyfa sig...
Meira
Líklegt er að lítill hafís verði við Ísland á árinu, að sögn Páls Bergþórssonar, fyrrverandi veðurstofustjóra. Hann segir að mikið samhengi sé að jafnaði milli hita á Jan Mayen að hausti og ísmyndunar árið eftir.
Meira
Rangt föðurnafn Í frétt í blaðinu í gær um fund í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis var farið rangt með nafn formanns nefndarinnar. Hún heitir Valgerður Bjarnadóttir. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Meira
Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Kosningu til Stúdentaráðs og Háskólaráðs Háskóla Íslands lýkur í dag en einnig var kosið í gær. Kosið er rafrænt, þriðja árið í röð, í gegnum Uglu, innri vef HÍ, og stendur kosningin í dag frá kl. 9-18.
Meira
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Hugmyndir eru uppi um að breyta Sjallanum í hótel. Fjárfestar í höfuðborginni hafa gert kauptilboð í húsið og stefna að því að opna hótel fyrir sumarið 2013.
Meira
Fréttaskýring Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Eigendur hesthúsa í Reykjavík eiga von á „glaðningi“ frá borginni. Á álagningarseðli fasteignagjalda verður meira en áttfalt hærri fasteignaskattur.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það skilur mann eftir hálftóman að fá svona fréttir,“ sagði Stefán Ólason, bóndi í Merki á Jökuldal. Riða greindist í heilasýni úr fullorðinni kind frá bænum sem slátrað var í haust.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nýliðinn janúarmánuður telst hafa verið úrkomu- og illviðrasamur um meginhluta landsins. Svo segir Trausti Jónsson veðurfræðingur í yfirliti sínu og er óhætt að segja að sú umsögn komi landsmönnum ekki á óvart.
Meira
Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, standa annað kvöld fyrir fræðslukvöldi um ungt fólk og sorg. Í tilkynningu segir að unglingum og ungu fólki reynist oft erfitt að takast á við áföll eins og ótímabær dauðsföll í sínu nánasta umhverfi.
Meira
Dagur kvenfélagskonunnar, sem er jafnframt stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, var haldinn hátíðlegur í gær. Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var með opið hús í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum í tilefni dagsins.
Meira
Hljómsveitin Lights on the Highway ætlar að taka sér ótímabundið hlé og af því tilefni verða lokatónleikar sveitarinnar, í bili a.m.k., á Gauki á Stöng í kvöld kl. 22.
Meira
„Það er hringt í mig á föstudagskvöldi frá Valitor og ég spurður hvort ég sé staddur í Bandaríkjunum, sem ég var ekki. Þá kemur í ljós að það er einhver að versla út á kreditkortið mitt úti í Bandaríkjunum og þeir stoppa það,“ segir Stefán...
Meira
Tveir Danir skiptu með sér hæsta vinningnum í Víkingalottóinu í gærkvöldi. Var fyrsti vinningur tvöfaldur að þessu sinni og hlaut hvor um sig tæpar 130 milljónir í vinning. Einn hlaut hinn alíslenska bónusvinning og fær hann rúmar 5 milljónir króna.
Meira
Embætti umboðsmanns skuldara opnar útibú á Akureyri á morgun. Útibúið er á Glerárgötu 26, 1. hæð. Tveir ráðgjafar munu starfa á Akureyri, Harpa Halldórsdóttir viðskiptafræðingur og Heiðrún Ósk Ólafsdóttir lögfræðingur.
Meira
Keflavíkursveitin Valdimar hefur Vetrartónleikaröðina í Hvíta húsinu annað kvöld eftir stutt jólafrí. Mikilli stemningu er lofað en Valdimar er þessa dagana að vinna í nýju efni og er stefnan sett á að gefa út nýja plötu á þessu ári.
Meira
Umframkostnaður Vegagerðarinnar við snjómokstur og -ruðning er á milli 600 og 700 milljónir í ár. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að þessi mikli kostnaður bitni á öðrum framkvæmdum.
Meira
„Við mátum það svo að það væru ekki pólitískar forsendur fyrir því að halda þessum viðræðum áfram. En þetta er fullreynt í bili,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi.
Meira
Víkingur AK kom til Vopnafjarðar í gærkvöldi með fullfermi, um 1.400 tonn, af fallegri loðnu. „Hún var þarna í Grímseyjarsundinu,“ sagði Gunnar Gunnarsson skipstjóri. Nokkur loðnuskip leituðu loðnu á sundinu í gær.
Meira
Bandaríska vopnaverksmiðjan Sandia, sem er undirverktaki Lockheed, er nú að þróa byssukúlu með örlitlum uggum, hægt verður að fjarstýra henni með leysigeisla og getur kúlan skipt um stefnu allt að 30 sinnum á sekúndu, að sögn BBC .
Meira
Leiguþyrla Landhelgisgæslunnar er væntanleg til landsins í dag eða á morgun. Með henni mun aftur aukast björgunargeta þyrlusveitarinnar sem haft hefur eina björgunarþyrlu frá því Líf fór í stóra skoðun í Noregi fyrir miðjan janúar.
Meira
Styrmir Gunnarsson segir: „Það er óáran og vont andrúmsloft á vettvangi stjórnmálanna. Þingmenn sem eiga langa þingsetu að baki muna ekki annað eins. Illindi og heift einkenna samskipti fólks á þeim vettvangi.
Meira
Annað kvöld, föstudag klukkan 21.30, mun hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans leika tónlist frá Balkanlöndunum á Café Haítí, Geirsgötu 7b. Hljómsveitin hefur haldið þar mánaðarlega tónleika síðan í ágúst 2011 við góðar undirtektir.
Meira
Bandaríski þáttastjórnandinn Stephen Colbert hélt varla vatni þegar Björk Guðmundsdóttir var gestur í þætti hans, The Colbet Report, á þriðjudagskvöldið.
Meira
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Finnski hljómsveitarstjórinn Osmo Vänskä er Íslendingum að góðu kunnur, enda var hann aðalstjórnandi Sinfóníunnar á árunum 1993 til 1996. Hann hefur og oft stýrt sveitinni upp frá því, síðast í mars síðastliðnum.
Meira
Dr. Margaret Cormack hefur fært Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum dýrmæta gjöf, bókina Super li brum Sapientia , sem inniheldur útleggingar á Speki Salómons eftir Robert Holkot (d. 1349).
Meira
Næstkomandi sunnudag halda Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari tónleika í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð. Tónleikarnir hefjast kl. 15.00.
Meira
Stuttmyndahátíðin Ljósvakaljóð fór fram sl. laugardag í Bíó Paradís og var gríðarlega vel sótt, að sögn aðstandenda. Veitt voru verðlaun fyrir besta frumsamda og óframleidda stuttmyndahandritið og það leiklesið fyrir áhorfendur.
Meira
Lokasýning á verkinu Uppnám, sem hefur verið sýnt í haust í Þjóðleikhúskjallaranum, verður á morgun, föstudag. Uppnámið hefst á framlagi Pörupilta, þeirra Dóra Maack, Nonna Bö og Hermanns Gunnarssonar.
Meira
Giacinto Scelsi: Hymnos (1963). Atli Ingólfsson: Mani (2011). Hugi Guðmundsson: Orkestur (2011, frumflutningur). Iannis Xenakis: Metastasis (1954). Hans Abrahamsen: Ten Sinfonias fyrir hljómsveit (2010). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Ilan Volkov. Fimmtudaginn 26. janúar kl.19:30.
Meira
Þórarinn Stefánsson leikur píanóverk eftir Snorra Sigfús Birgisson og Kolbein Bjarnason á hádegistónleikum sem Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir í Ketilhúsinu á morgun kl. 12.00. „Þetta eru ólík verk í stíl, en kallast vel á.
Meira
Toronto-búinn Abel Tesfaye, sem gefur út undir nafninu The Weeknd, sendi frá sér býsna skemmtilega skífu á síðasta ári, þá sem hér um ræðir, House of Balloons.
Meira
Scarlett Johansson er komin með nýjan upp á arminn. Sá heppni heitir Nate og er forstjóri auglýsingafyrirtækis en eftirnafnið er enn á huldu, að því er fram kemur á Radar Online.
Meira
Guðmundur Thoroddsen myndlistarmaður er þessa dagana með sína fyrstu einkasýningu í New York, í Asya Geisberh Gallery í Chelsea-hverfinu. Hefur sýningin hlotið góða dóma, ekki síst í Time Out-tímaritinu þar sem hún fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
Meira
Myndin Chasing Ice vann verðlaun fyrir framúrskarandi kvikmyndatöku á Sundance-kvikmyndahátíðinni í Utah í Bandaríkjunum en henni lauk um sl. helgi.
Meira
Það var freistandi eftir þriðjudagskvöldið, eftir að hafa horft á nýja norska spennuþáttaröð í Sjónvarpinu, að skrifa langan pistil um að Norðmenn gætu ekki gert spennumynd án þess að hafa Svía innanborðs.
Meira
Eftir Þorkel Sigurlaugsson: "Gífurlegar framfarir og hugarfarsbreyting hafa orðið á undanförnum árum til málefna fatlaðra. Ég fagna þessum áfanga – nýrri byggingarreglugerð."
Meira
Frá Halldóri Úlfarssyni: "Stærsta vandamál þjóðarinnar í dag er ekki hrunið sjálft, heldur „norræna velferðarstjórnin“ eftir hrun. Þegar maður á svona vini þarf maður ekki óvini, segir einhvers staðar."
Meira
Nú er svo illa komið að ræðuflutningur formanns Samfylkingarinnar fælir jafnaðarmenn frá fylgi við flokkinn. Hver semur þann hroða sem ræður Jóhönnu Sigurðardóttur eru?
Meira
Steingrímur og ESB Ég heyrði Steingrím J. Sigfússon agnúast út í Vigdísi Hauksdóttur á Alþingi í gær. Hún drægi ESB inn í alla umræðu og ekki mætti ræða mengunarmál eða neitt svo hún færi ekki að skammast út í blessað Evrópusambandið.
Meira
Bergþóra Eide Eyjólfsdóttir fæddist á Fáskrúðsfirði 26. september 1929. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi 13. janúar 2012. Útför Bergþóru var gerð frá Keflavíkurkirkju 20. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Bjarni Guðmann Ágústsson fæddist í Grindavík 9. desember 1931. Hann lést á heimili sínu 14. janúar 2012. Útför Bjarna fór fram frá Grindavíkurkirkju 24. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Björn H. Tryggvason var fæddur á Hólmavík 3. ágúst 1949. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 18. janúar 2012. Útför Björns fór fram frá Akraneskirkju 27. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Brynjar Gunnarsson fæddist á Ísafirði 22. desember 1935. Hann lést á Salsburger-sjúkrahúsinu í Salsburg í Austurríki 6. desember 2011. Foreldrar Brynjars voru Gunnar Bjarnason innheimtufulltrúi hjá Hafnarfjarðarbæ, f. 10. október 1913, d. 30.
MeiraKaupa minningabók
Einar Helgi Sigurðsson fæddist á Akureyri 8. nóvember 1947. Hann lést 15. janúar 2012. Einar Helgi var jarðsunginn frá Grafarvogskirkju 26. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Erlingur Friðrik Aðalsteinsson fæddist á Akureyri 21. apríl 1946. Hann lést á Akureyri 23. janúar 2012. Útför Erlings fór fram frá Akureyrarkirkju 30. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Jósefsdóttir fæddist á Böggvisstöðum í Svarfaðardal 27. desember 1935. Hún lést á heimili sínu, Hjarðarhóli 8 á Húsavík, 20. janúar 2012. Útför Guðrúnar fór fram frá Húsavíkurkirkju 28. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Ingimundur Eyjólfsson fæddist í Reykjavík 28. júní 1951. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 22. janúar 2012. Útför Ingimundar var gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Jóhannes Guðmann Kolbeinsson fæddist í Eyvík í Grímsnesi 3. júlí 1917. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. janúar 2012. Útför Jóhannesar var gerð frá Langholtskirkju 31. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Loftur Gunnarsson fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 11. september 1979. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 20. janúar 2012. Loftur var jarðsunginn frá Garðakirkju 31. janúar 2012, kl. 13.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Unnur Þórðardóttir fæddist í Reykjavík 4. febrúar 1929. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfirði 19. janúar 2012. Foreldrar Unnar voru Þórður Gíslason og Guðríður Árnadóttir.
MeiraKaupa minningabók
Óskar Páll Daníelsson fæddist í Hafnarfirði 18. október 1979. Hann lést af slysförum 12. janúar 2012. Útför Óskars Páls fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 23. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Petra Sveinsdóttir, steinasafnari á Stöðvarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði 10. janúar 2012. Hún hét fullu nafni Ljósbjörg Petra María og var fædd á aðfangadag jóla árið 1922 á Bæjarstöðum við norðanverðan Stöðvarfjörð.
MeiraKaupa minningabók
Rannveig Matthíasdóttir fæddist í Fremri Arnardal 24. febrúar 1941. Hún lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi 24. janúar 2012. Foreldrar hennar voru hjónin Halldóra Friðgerður Katarínusdóttir, fædd í Fremri-húsum í Arnardal 16.
MeiraKaupa minningabók
Sesselja Sigríður Jóhannsdóttir (Sísí) frá Valbjarnarvöllum fæddist í Fornahvammi 27. júlí 1929. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 8. janúar 2012. Útför Sesselju Sigríðar (Sísíar) fór fram frá Fossvogskirkju 23. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Hjaltberg Vilhjálmsdóttir fæddist að Gunnfríðarstöðum í Langadal, A-Húnavatnssýslu, 14. nóvember 1921. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 21. janúar 2012. Foreldrar hennar voru þau Vilhjálmur Benediktsson, f. 7.4. 1894, d. 2.10.
MeiraKaupa minningabók
Steinþór Haukur Oddsson fæddist í Steinholti í Fáskrúðsfirði 5.6. 1941. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 26. janúar 2012. Foreldrar hans voru Oddur Stefánsson, sjómaður og bóndi frá Skálavík í Fáskrúðsfirði, f. 7.8. 1911, d. 17.11.
MeiraKaupa minningabók
Sæmundur Haraldsson fæddist í Neskaupstað 20. september 1944. Hann lést á heilbrigðisstofnun Suðurnesja 25. janúar 2012. Hann var sonur hjónanna Haraldar Harðar Hjálmarssonar frá Haga í Mjóafirði, f. 18. febrúar 1919, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Vefsíðan designsponge.com er full af skemmtilegum hlutum fyrir heimilið. Þar má meðal annars finna leiðbeiningar um það hvernig búa má til fallega körfu úr endurunnum papír. Þetta er t.d.
Meira
Fjarðarkaup Gildir 2. - 4. febrúar verð nú áður mælie. verð Svínalundir úr kjötborði 1.598 2.198 1.598 kr. kg Nautagúllas úr kjötborði 1.798 2.198 1.798 kr. kg Svínahnakki úr kjötborði 1.198 1.498 1.198 kr. kg Ísfugl frosinn kjúklingur 669 785 669 kr.
Meira
Góðvinur Vísnahornsins Ármann Þorgrímsson komst nýverið á níræðisaldur. Hann gerði að gamni sínu á afmælisdaginn og orti: Áður las ég lofnarblóm í lundum ungra svanna. Núna heyri aðeins óm endurminninganna.
Meira
„Það eru náttúrulega einstök forréttindi að áhugamálið og atvinnan skuli fara saman, en hestamennska er hvort tveggja í mínu lífi,“ segir Sigurbjörn Bárðarson, hestamaður með meiru.
Meira
2. febrúar 1983 Alþingi samþykkti með 29 atkvæðum gegn 28 að mótmæla ekki hvalveiðibanni Alþjóða hvalveiðiráðsins sem átti að taka gildi að þremur árum liðnum. 2.
Meira
Japan sem verður mótherji íslenska karlalandsliðsins í handknattleik í forkeppni Ólympíuleikanna tryggði sér sæti í undanúrslitum á Asíumótinu í gær.
Meira
Körfubolti Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Snæfell vann sinn fyrsta sigur í sex tilraunum þegar topplið Keflavíkur í Iceland Express-deild kvenna kom í heimsókn í gær. Snæfell náði strax undirtökunum og komst meðal annars í 6:0.
Meira
Frjálsar Kristján Jónsson kris@mbl.is FH-ingurinn Bergur Ingi Pétursson, Íslandsmethafi í sleggjukasti, leggur nú drög að því að flytjast tímabundið til Svíþjóðar.
Meira
England A-DEILD: Aston Villa – QPR 2:2 Darren Bent 45., Charles N-Zogbia 79. – Djibril Cissé 12., Stephen Warnock 29. (sjálfsm.). • Heiðar Helguson lék ekki með QPR vegna meiðsla. Blackburn – Newcastle 0:2 Scott Dann 12. (sjálfsm.
Meira
Þegar fótboltamaður skorar fjögur mörk í leik mætti ætla að þau myndu duga til sigurs. Diego Milito, argentínski framherjinn hjá Inter Mílanó, upplifði það í gærkvöld að skora fernu en fara bara með eitt stig af velli.
Meira
Handbolti Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Færeyska handknattleiksliðið Neistin í Færeyjum skartar nú íslenskum bræðrum í liði sínu. Finnur Hansson hefur leikið með því síðustu árin en í vikunni gekk bróðir hans, Daníel, í raðir félagsins.
Meira
Valsmenn fengu í gær til liðs við sig Kristin Frey Sigurðsson , knattspyrnumann úr Fjölni, og sömdu við hann til fjögurra ára. Kristinn er 22 ára gamall og hefur leikið á miðjunni hjá Fjölni undanfarin ár en hann er uppalinn hjá Grafarvogsfélaginu.
Meira
Ekki er hægt að taka ákvörðun um hvenær spila eigi leiki í undanúrslitum kvenna í Powerade-bikarnum, bikarkeppni Körfuknattleikssambands Íslands.
Meira
Diego Alves, markvörður Valencia, var hetja liðsins í gærkvöld þegar hann varði vítaspyrnu frá Lionel Messi. Það gerði hann í fyrri undanúrslitaleiknum gegn Barcleona í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu og þar með urðu lokatölur í Valencia, 1:1.
Meira
Newcastle renndi sér upp fyrir Liverpool og Arsenal og í fimmta sætið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld með góðum útisigri á Blackburn. Arsenal seig hinsvegar niður í 7. sætið eftir markalaust jafntefli í Bolton.
Meira
Óvissunni um hugsanlega endurkomu Kanadamannsins Sidney Crosby á ísinn hefur ekki ennþá verið eytt en kappinn þjáist vegna höfuðáverka og hefur lítið sem ekkert leikið í rúmt ár með liði Pittsburgh Penquins í NHL-deildinni amerísku í íshokkí.
Meira
Pistlahöfundur dagsins liggur löngum stundum í sófanum, krumpaður eins og kartafla, og hlustar á útvarpið. Stillir jafnan á Rás 1 sem hefur alla yfirburði að því leyti að efnið hefur vitsmunalega þyngd og er annað og meira en froða.
Meira
Fyrr í vikunni var undirritaður samningur milli samtaka sveitarfélaga á Norður- og Vesturlandi um áframhaldandi akstur á leiðum frá Reykjavík og upp í Borgarnes, á Snæfellsnes, vestur í Dali, á Sauðárkók, til Siglurfjarðar og norður á Akureyri.
Meira
Laugardaginn 4. febrúar nk. verður stofnað Barnabókasetur – rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna við Háskólann á Akureyri. Stofnfundurinn fer fram á Amtsbókasafninu á Akureyri kl. 12:00. Að setrinu standa auk háskólans Amtsbókasafnið og Minjasafnið á Akureyri, segir í tilkynningu.
Meira
Sértu vinur Porsche á Facebook eru allar líkur á að mynd af þér sé að finna á einstakri útgáfu af Cayman S-bílnum. Á yfirbygginguna hafa nefnilega verið límdar myndir tveggja milljóna vina þýska sportbílasmiðsins.
Meira
Svo oft hef ég sýnt ykkur hvernig má nota hluti undir annað en þeirra upprunalega hlutverk var. Að þessu sinni gerði ég alveg stóreinfaldan hlut, ætlaði að vera löngu búin að þessu.
Meira
Fimmtudagur Fyrir þá sem hafa aðgang að TCM rásinni er ráð að kíkja á hinn klassíska spennutrylli Point Blank með sjálfan Lee Marvin. Hann er í hefndarhug og rúmlega...
Meira
Innflytjendur og seljendur nýrra bíla í Danmörku hafa ástæðu til að gleðjast. Aldrei hafa fleiri nýir bílar verið seldir þar í landi á einu ári en á því nýliðna. Alls voru nýskráningar 169.
Meira
Dekk bíla eru í ólagi, segir Sjóvá. Starfsmenn þar skoðuðu dekk á 57 tjónabílum í janúar og reyndist fjórðungur á slitnum dekkjum. 32% voru nagladekkjum sem oft voru svo léleg að öryggi var...
Meira
Auðvitað er leitt að geta ekki tekið í áhöfnina þessa stráka sem vilja komast á sjó. Nú er hins vegar mun þrengra um alla vinnu og menn sleppa ekki því sem þeir hafa. Hjá okkur hefur verið sami kjarninn í áhöfn sl.
Meira
Þegar olíuverð í Bandaríkjunum hækkaði á áttunda áratug liðinnar aldar áttu stærstu bílaframleiðendurnir engin svör við því. Ráðin sem þeir gripu til voru að minnka bílana og vélarnar, með misgóðum árangri.
Meira
Járnsmiðurinn Jens Kristján Arngrímsson reisti hús fyrir smiðju sína á Eyrinni á Ísafirði á því herrans ári 1853. Á þeim tíma var að myndast þéttbýli á Skutulsfjarðareyri og í fyllingu tímans fjölgaði húsum og fólki.
Meira
Fyrsta starfið Ferilinn byrjaði ég ellefu ára sem blaðasali í Austurstræti í Reykjavík. Gerði það ágætt en enginn átti þó roð í Óla blaðasala. Seinna var ég svo í sveit; vestur á fjörðum, norður í landi og austur á Skeiðum.
Meira
GE-byggingin, sem áður kallaðist RCA-byggingin, er skýjakljúfur í art deco-stíl í New York. Hann hefur heimilisfangið 30 Rockefeller Plaza og er því oft kallaður 30...
Meira
Ofurnjósnarinn Austin Powers sló rækilega í gegn þegar fyrsta myndin um hann var frumsýnd árið 1997. Yfir henni sveif ómótstæðilegur andi Lundúnaborgar á árunum eftir 1960 og Mike Myers festi sig í sessi sem einn fremsti gamanleikari samtímans.
Meira
Það er eitthvað við iðnaðarhúsnæði sem er svo sjarmerandi, það er að segja ef það er meðhöndlað rétt. Poteet-arkitekastofan sannar hér að nóg af hvítu skipalakki getur gert kraftaverk.
Meira
Elín Hirst, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, situr ekki auðum höndum. Hún heldur vinsæl námskeið fyrir konur sem vilja þjálfa færni sína í að koma fram í viðtölum í sjónvarpi. Einnig er Elín að vinna að gerð heimildarmyndar um stofnfrumur.
Meira
Annie Mist Þórisdóttir minnti landann á að Ísland er sannarlega best í heimi þegar hún varð heimsmeistari í CrossFit þann 31. júlí á síðasta ári.
Meira
„Þetta er nú ekki stórafmæli en venju samkvæmt kemur nánasta fjölskylda og vinir í kaffi til okkar, 30-35 manna hópur og alltaf gaman að hitta fólkið sitt á þessum degi,“ segir Óli H. Þórðarson, fyrrv.
Meira
Það þykja ávallt fréttir þegar Audi kynnir nýja kynslóð af A6-bíl sínum. Ekki er langt síðan hann kom til sölu hér á landi og er hann af fjórðu kynslóð. Sú fyrsta var kynnt til sögunnar árið 1994 og leysti þá af Audi 100-bílinn.
Meira
Menningin Sýningin Kjólar og korselett í Þjóðminjasafninu er tízkusýning með stóru T-i. Straumum og stefnum 20. aldar í kvenfatnaði eru gerð einstök skil og sýningarstjóri er sjálf Steinunn Sigurðardóttir.
Meira
Síðasti fjórðungur liðins árs var gjöfull suðurkóreska framleiðandanum Hyundai, en hagnaður fyrirtækisins jókst um 35% vegna aukinnar sölu á lykilmörkuðum. Þeir markaðir eru Kína og Bandaríkin, en einnig gekk vel á heimamarkaði sem og í Evrópu.
Meira
Meðal mikilvægustu mála á yfirstandandi vertíð kvikmyndaverðlauna hverskonar eru kjólarnir sem helstu leikkonur Hollywood klæðast á rauða dreglinum. Er nú svo komið að fregnir af viðburðunum snúast frekar um fallegustu kjólana en handhafa verðlaunanna.
Meira
Í októberbyrjun 1984 gripu opinberir starfsmenn til verkfallsvopnsins í kjarabaráttu sinni svo eftir var tekið. Skólastarf lá niðri því Kennarasambandið var þá innan BSRB.
Meira
Sannkallað úrvalslið íslenskra tónlistarmanna kemur saman í Salnum í Kópavogi á föstudag, en þar mun Rúnar Þór Pétursson fá til sín gamla félaga og fagna 25 ára útgáfuafmæli gestgjafans.
Meira
Meðal mærðustu kvikmynda sem frumsýndar voru á síðasta ári er tvímælalaust hin þögla mynd The Artist. Hún hefur rakað að sér verðlaunum og vegtyllum og fékk nú síðast hin svokölluðu „Made In Hollywood“-verðlaun.
Meira
Ekkert verður af því að litli hugmyndabíllinn Rocketman verði að einum af framleiðslubílum Mini. Bíllinn var frumsýndur á Genfarsýningunni í fyrra en nú hefur BMW ákveðið að hætta verkefninu.
Meira
Hæstur á stalli GT bíla sem ættir eiga að rekja til venjulegra fólksbíla er líklega Golf GTI. Sá bíll var ekki ýkja stór í upphafi en hefur stækkað með hverri kynslóðinni. Þá varð til Volkswagen Polo og í kjölfar hans Polo GTI.
Meira
Þau mörg þúsund störf sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur ítrekað lofað undanfarin ár að yrðu til á Íslandi láta hvergi á sér kræla.
Meira
Baksvið Karl Blöndal kbl@mbl.is Ákvörðun Elísabetar II. Bretlandsdrottningar um að svipta Fred Goodwin, fyrrverandi forstjóra Royal Bank of Scotland, RBS, riddaratign hefur mælst misjafnlega fyrir.
Meira
• Segir skiljanlegt en um leið varhugavert að heimilin minnki við sig tryggingar þegar illa árar • Hörð verðsamkeppni á tryggingamarkaði og rík áhersla á fræðslu og forvarnir • Íslendingar eru ekki nógu vel tryggðir á sumum sviðum miðað við nágrannaþjóðir okkar
Meira
FME hefur frá því snemma í desember haft til skoðunar með hvaða hætti Arion banki stóð að útboði á hlut í Högum, en einungis degi eftir að útboðinu lauk, birti bankinn aukaútboðslýsingu, þar sem greint var frá því að við endurskoðun hefði liðlega hálfur...
Meira
Hagnaður Marels á síðasta ári nam 34,5 milljónum evra, 5,6 milljörðum króna á síðasta ári samanborið við 13,6 milljónir evra árið á undan. Er þetta 152,9% aukning á milli ára.
Meira
Guðmundur Hafsteinsson tryggingaráðgjafi segir tryggingamálum margra fyrirtækja hér á landi ábótavant. Guðmundur er framkvæmdastjóri Consello-tryggingaráðgjafar. „Tryggingarnar eru liður í rekstri fyrirtækja, sem of oft er látinn sitja á hakanum.
Meira
Fjárfestirinn Kyle Bass er vinsæll viðmælandi fjölmiðla vestanhafs. Hann er frá Texas og varð moldríkur af því að spá hruninu og fjárfesta í samræmi við það.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Það er of algengt að Íslendingar nýti ekki bótarétt sinn og telji sig ranglega ekki eiga rétt á bótum eftir slys eða eignatjón. Oft halda t.d.
Meira
Útherji hefur fylgst með umfjöllun um fyrirtækið ORF í gegnum tíðina og séð krossfara fátæktar og örbirgðar skrifa gegn því árum saman. Hann getur ekki annað en dáðst að fyrirtækinu og forsvarsmönnum þess.
Meira
Fréttaskýring Hörður Ægisson hordur@mbl.is Hagvöxtur síðasta árs stafar fyrst og fremst af aukningu í útflutningsverðmæti – ekki síst í útflutningi sjávarafurða.
Meira
Fréttaskýring Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Árið 2001 stofnuðu þrír vísindamenn líftæknifyrirtæki sem í dag er með árstekjur upp á tæplega 400 milljónir króna, 40 manns í vinnu og er það stærsta í heiminum á sínu sviði.
Meira
Verslunarmenn gerast varla elskulegri en Erla Wigelund. Viðskiptavinir Verðlistans við Laugalæk geta vitnað um það, en þar hefur Erla staðið vaktina í bráðum 47 ár.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.