Alþjóðlegt teymi vísindamanna hefur fundið ótrúlega vel varðveittan, steingerðan skóg undir öskulagi í norðanverðu Kína, nánar tiltekið í grennd við Wuda í Innri Mongólíu, að sögn J yllandsposten .
Meira
Fiskistofu bárust alls 402 laxasýni á síðustu tveimur árum frá flotvörpuskipum. Þetta samsvaraði 5,5 löxum á hverjar 1.000 lestir af makríl og síld sem skipin veiddu, að því er fram kemur í greinargerð um rannsókn á vegum stofnunarinnar.
Meira
Félagar í Bandalagi íslenskra skáta afhjúpuðu í gær minningarskjöld við Skátamiðstöðina í Hraunbæ og markaði viðburðurinn upphaf afmælisfagnaðar í tilefni af því að í ár eru hundrað ár liðin frá því að skátastarf hófst á Íslandi með stofnun Skátafélags...
Meira
Landsbankinn hefur ákveðið að veita í fyrsta sinn afreksstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans ætluðum afreksfólki sem stundar einstaklings- eða paraíþrótt. Einnig fyrirhugar bankinn að styrkja efnilegt ungt íþróttafólk. Umsóknarfrestur er til og með 2.
Meira
Olga Björt Þórðardóttir olgabjort@gmail.com Ný hefð hefur skapast á öskudag sem er keimlík amerísku hrekkjavökunni, að ganga á milli húsa og syngja og biðja um sælgæti.
Meira
Biogen-minningartónleikar verða haldnir í Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda í kvöld. Biogen var listamannsnafn Sigurbjörns Þorgrímssonar, mikils raftónlistarfrumkvöðuls, sem lést 8. febrúar á síðasta...
Meira
Í niðurstöðum viðhorfskönnunar á meðal starfsmanna Reykjavíkurborgar kemur fram að starfsmenn eru ekki jafnsáttir í starfi árið 2011 og þeir voru 2009. Það ár höfðu flestar einkunnir fyrir þætti sem mældir eru hækkað frá árinu á undan.
Meira
Baksvið Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr.
Meira
Sigrún Rósa Björnsdóttir Hjörtur Guðmundsson Meirihluti viðstaddra þingmanna á Alþingi samþykkti í gær með 30 atkvæðum gegn 15 þingsályktunartillögu um að stjórnlagaráð verði kallað saman á ný til fundar í mars til þess að ræða það hvort gera þurfi...
Meira
Spenna er meðal veiðimanna, en á laugardag kl. 14 verður dregið um það í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands hverjir hreppa leyfi til hreindýraveiða í ár. Hægt verður að fylgjast með útdrættinum í beinni útsendingu á vef Umhverfisstofnunar.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Talsmenn samtaka sjómanna, útvegsmanna og fiskverkafólks segjast ekki hafa átt beina aðkomu að vinnu við gerð nýs stjórnarfrumvarps um fiskveiðistjórnun sem er í undirbúningi. Steingrímur J.
Meira
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að fresta greiðslu styrks upp á 495 milljónir evra, um 81 milljarð króna, sem átti að renna til Ungverja í byrjun næsta árs.
Meira
„Það er bara mjög mikið að gera. Vetrarfríin eru farin að sanna sig fyrir ferðaþjónustuna. Fólk er farið að nota þau sem frí hér innanlands,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, hótelstjóri Icelandair-hótelsins á Akureyri.
Meira
Davíð Logi Sigurðsson fjallar í dag um sambandið milli Sýrlands og Líbanons, stöðuna eins og hún er nú og veltir fyrir sér þróun mála á næstunni. Fundurinn fer fram í stofu 101 í Odda frá klukkan 12 til 13.
Meira
Fréttaskýring Kristján Jónsson kjon@mbl.is Skilaboðin sem berast frá ráðamönnum í Íran um deiluna vegna kjarnorkutilraunanna eru oft misvísandi, stundum vegna þess að nokkrir hópar togast á um völdin í Teheran.
Meira
Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is „Okkur finnst þetta vera mikið óréttlæti,“ segir Sonja Lind Eyglóardóttir um að hætt sé að niðurgreiða fyrstu meðferð við tæknifrjóvgun hjá barnlausum pörum og einhleypum barnlausum konum.
Meira
Fálkinn Gústi er nú í Húsdýragarðinum eftir að hafa lent í grút fyrir utan Grundarfjörð. Feðgarnir Gústav Ívarsson og Gústav Alex Gústavsson í Grundafirði tóku eftir fálkanum á leið heim frá vinnu og sáu að hann gat ekki hafið sig til flugs.
Meira
Pétur Blöndal pebl@mbl.is Hou Yifan, heimsmeistari kvenna í skák, verður á meðal keppenda á öflugu Reykjavíkurskákmóti sem stendur frá 6. til 13. mars og fer fram í Hörpu.
Meira
Danska stjórnin hefur lagt á hilluna áform um sérstakan skatt á akstur í Kaupmannahöfn til að minnka álagið á gatnakerfið og fá aðkomufólk til að leggja á stæðum utan við miðborgina.
Meira
Jón Baldvin Hannibalsson hefur farið fram á að fá afhent gögn sem byggt er á í umfjöllun Nýs lífs, sem kemur út í dag, um bréfasendingar hans til unglingsstúlku þegar hann var sendiherra. Þá krefst hann þess að fá að svara fyrir sig í sama tölublaði.
Meira
Minnst átta Afganar féllu og tugir manna særðust í átökum milli lögreglumanna og fólks sem mótmælti því í gær, annan daginn í röð, að bandarískir hermenn í Bagram-stöðinni skyldu vanvirða íslam með því að brenna Kóraninn og fleiri helgirit múslíma.
Meira
Einn selanna í Húsdýragarðinum í Reykjavík er hér í baksundi. Þrír selanna í garðinum, tvær urtur og brimill, eru einu dýrin sem hafa verið þar frá því að Húsdýragarðurinn var opnaður 19. maí...
Meira
Leitin að hæfileikaríkasta Íslendingnum hefst á mánudag, hinn 27. febrúar. Þá verður opnað fyrir umsóknir keppenda inni á mbl.is í Hæfileikakeppni Íslands sem er samstarfsverkefni vefjarins og sjónvarpsstöðvarinnar Skjás eins.
Meira
Baksvið Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Áform eru um að reisa nýja 16-18.000 fermetra verslunar- og þjónustumiðstöð við hringveginn rétt vestan við Selfoss.
Meira
Kristján Jónsson kjon@mbl.is Eþíópískir og sómalskir hermenn tóku í gær Baidoa, helstu bækistöð íslamistahreyfingarinnar al-Shabab, sem hefur ráðið yfir stórum hluta Sómalíu síðustu árin.
Meira
Uppsveitabrosið, árleg viðurkenning sem veitt er fyrir framlag til ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu, var afhent í vikunni á fundi á Hótel Heklu á Skeiðum.
Meira
Sviðsljós Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Starfsmenn Reykjavíkurborgar eru ósáttari í starfi sínu nú en árið 2009, samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar á meðal starfsmanna sem kynntar voru á fundi borgarráðs í síðustu viku.
Meira
Þrír karlmenn sem ákærðir eru fyrir tilraun til manndráps neituðu sök fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Einn þeirra er ákærður fyrir að hleypa tvívegis af haglabyssu að bifreið sem í sátu tveir menn í Bryggjuhverfinu í Reykjavík 18.
Meira
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir karlmanni sem grunaður er um tilraun til manndráps. Ástæðan var sú að farið var fram á varðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna en ekki almannahagsmuna.
Meira
Áform eru um að reisa nýja 16-18.000 fermetra verslunar- og þjónustumiðstöð við hringveginn rétt vestan við Selfoss. Undirbúningur er kominn langt á veg og er stefnt á að hefja framkvæmdir eins fljótt og auðið er.
Meira
La Blogotheque frumsýndi um helgina svokallað „take away show“ með Retro Stefson, sem var tekið upp á liðinni Airwaves-hátíð. Um er að ræða hálfórafmagnaða útgáfu af laginu „Qween“.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Stjórnandi hjá Dróma, sem ósáttur viðskiptavinur réðst á inni á heimili stjórnandans í vesturbæ Reykjavíkur síðdegis á þriðjudag, lagði í gær fram kæru á hendur árásarmanninum.
Meira
Kevin Rudd, utanríkisráðherra Ástralíu, sagði af sér í gær og bar því við að forsætisráðherrann, Julia Gillard, treysti honum ekki. Rudd er sagður vilja velta Gillard úr sessi en hún sagði ákvörðunina valda vonbrigðum.
Meira
Tugir manna féllu í árásum sýrlenskra stjórnarhermanna í gær og fyrradag, hér sést brunninn skriðdreki við aðalstöðvar andófsins í borginni Homs.
Meira
Öldungar Þessir Akureyringar, sem Morgunblaðið hitti í miðbænum í gærmorgun, kváðust hátt í 300 ára gamlir samanlagt. Þegar betur var að gáð kom í ljós að öskudagslið var á...
Meira
Hreiðar Már Sigurðsson, fv. forstjóri Kaupþings, er m.a. ákærður fyrir umboðssvik með því að hafa misnotað aðstöðu sína sem forstjóri bankans þegar hann fór út fyrir heimildir sínar til lánveitinga.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vélar voru í gær að störfum á lóð stöðvarhúss væntanlegrar jarðhitavirkjunar í Bjarnarflagi á jarðhitasvæðinu við Námafjall.
Meira
Liðsmenn í kúbverskum dansflokki æfa sig í gær fyrir frumsýningu á sýningunni Ballet Revolucion í Berlín. Um er að ræða blöndu af söng, klassískum ballett, suður-amerískum dönsum og hip...
Meira
Pawel Bartoszek hyggst ekki taka þátt í boðuðum fundi stjórnlagaráðs í mars. Hann er fyrrverandi formaður nefndar á vegum stjórnlagaráðs sem fór með endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Meira
Endurgreiðsluverð vegna áburðarkaupa í verkefninu Bændur græða landið árið 2012 hefur verið ákveðið 64.600 krónur á hvert tonn, en var kr. 63.300 pr. tonn árið 2011. Árið 2007 var endurgreiðsluverðið kr. 22.500 pr.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ísvindar er heiti nýs rannsóknarverkefnis um vindorku á Íslandi sem lýkur 2015. Það er systurverkefni norræns verkefnis sem heitir Icewind og fjallar um vindorku á köldum svæðum.
Meira
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Lögum samkvæmt getur ákærandi afturkallað ákæru allt þar til dómur fellur. Það er dálítið sérkennileg staða og talsvert virðingarleysi við vinnu allra ef það yrði gert alveg á hinsta degi.
Meira
Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjavík og á Reykjanesi er nú komin með fullkomna þjófavörn en Securitas hefur sett upp þjófavarnakerfi á báðar starfsstöðvar samtakanna þeim að kostnaðarlausu.
Meira
Baksvið Andri Karl andri@mbl.is Fyrsta mál sérstaks saksóknara vegna hins fallna banka Kaupþings verður að öllum líkindum þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur 7. mars næstkomandi.
Meira
Stjórn Fjármálaeftirlitsins ætlaði sér að gefa forstjóra þess einn virkan dag til að svara ásökunum um áratugagömul atvik, sem hugsanlega gætu leitt til brottrekstrar hans nú. Hún sá að sér og framlengdi frestinn um fáeina daga.
Meira
Adele hélt sigurgöngu sinni áfram á bresku tónlistarverðlaunahátíðinni Brit Awards í London. Hún vann til tvennra verðlauna og flutti lagið Rolling in the...
Meira
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Þýska sópransöngkonan Simone Kermes syngur aríur úr óperum eftir Händel og Vivaldi á barokktónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í kvöld, en einnig verða fluttir barokkkonsertar.
Meira
Dagskrá verður í Hlégarði í Mosfellsbæ í kvöld, fimmtudag, klukkan 20, um bæjarlistamann Mosfellsbæjar Bergstein Björgúlfsson kvikmyndaleikstjóra og framleiðanda.
Meira
Lambchop er merkileg sveit sem kemur frá tónlistarborginni miklu Nashville. Á rúmum tuttugu árum hefur hún gefið út ellefu plötur sem hafa komið úr ýmsum áttum tónlistarlega.
Meira
Glerlistamaðurinn Leifur Breiðfjörð vinnur nú að listaverki sem sett verður upp í Southwark dómkirkju í Lundúnum í tilefni af sextíu ára valdaafmæli Elísabetar II. Bretadrottningar.
Meira
Tilkynnt hefur verið að ein af fjórum útgáfum sem norski listmálarinn Edvard Munch málaði af Ópinu, eins og verkið er kallað, verði boðin upp hjá Sotheby's í New York 2. maí næstkomandi.
Meira
Dagskrá Rásar 1 er stundum vettvangur skemmtilegrar sagnfræði. Ljósvakafólk er leikið í sínu og frábærlega fundvíst á efni. Ég nefni þar til dæmis Lönu Kolbrúnu Eddudóttur sem hefur umsjón með þættinum Litla flugan.
Meira
Tindersticks stimplaði sig inn sem ein helsta sveit Bretlandseyja um miðbik tíunda áratugarins með tveimur fyrstu hljóðversskífum sínum. Sérstaklega hefur önnur platan, jafnan kölluð „Bláa platan“ (1995) reynst mikið meistaraverk.
Meira
Tíunda mars næstkomandi verður haldin í annað sinn á Íslandi Fluguveiði kvikmyndahátíð undir merkjum RISE. Hátíðin verður í Bíó Paradís, þar sem hún var haldin í fyrsta sinn í fyrravetur og seldist þá upp á sýninguna.
Meira
Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur djasspíanista kemur fram á tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld, fimmtudag, og hefjast þeir kl. 20.30. Auk Sunnu skipa tríóið Scott McLemore trommuleikari og Þorgrímur Jónsson bassaleikari.
Meira
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Synthadelia Records er ný nálgun Vilmars Pedersen, tónlistarmanns, á plötufyrirtæki og tónlistarmarkaðinn.
Meira
Frá Halldóri Úlfarssyni: "Það er febrúar 2012 og það er verið að setja saman ráðherranefnd fjögurra ráðherra vegna málefna heimilanna. Hvar er þetta fólk eiginlega búið að vera síðustu 3 árin? Er þetta algerlega stjórnlaust lið?"
Meira
Frá Kristni Péturssyni: "Þeir sem aðhyllast umhverfisvernd verða að gæta sín að fara ekki yfir strikið. Bláa lónið er nú „eitt mesta undur veraldar“ að mati bandaríska tímaritsins National Geographic. Bláa lónið er aukaafurð raforkuvirkjunar í Svartsengi."
Meira
Eftir Ólaf Inga Tómasson: "Að öllum líkindum þarf dómstóla til að fá úr því skorið hvort líf flugvallarslökkviliðsmanna sé minna virði en líf annarra slökkviliðsmanna á Íslandi."
Meira
Eftir Jónínu Benediktsdóttur: "Alls ekki eigur „snillinganna“ sem Ólafur Ragnar Grímsson mærði sem alþjóðleg undrabörn, þeir hafa nú þegar tekið út sinn sjóð."
Meira
Eftir Halldór I. Elíasson: "Tilvalið er að leggja Íbúðalánasjóð niður við núverandi aðstæður og getu lífeyrissjóðanna, eða breyta honum í leigufélag."
Meira
Eftir Einar Benediktsson: "Ef marka má yfirlýsingar er ætlun Kínverja að sækja í auðlindir norðurskautsins en þar er fjórðungur af öllum ónýttum olíuforða heims auk mikils jarðgass."
Meira
Eftir Rögnu I. Halldórsdóttur: "Sorpa hefur séð um umhverfislegt uppeldi síðustu 15 árin, með virku fræðslustarfi fyrir leik-, grunn-, framhalds- og háskóla."
Meira
Eftir Pálma Stefánsson: "Ísland ætti að geta keppt við sólarlöndin um þá orlofsþega sem setja heilsuna í fyrsta sæti eða eru þjakaðir af ofnæmi og astma."
Meira
Eftir Unni Brá Konráðsdóttur: "Rétt er að stefna að því að uppfylla Maastricht-skilyrðin. Ekki til að taka upp evru heldur vegna þess að þau eru í raun lýsing á heilbrigðu hagkerfi."
Meira
Ó. Grímsson siðprúður? Nei, svona „haltu mér-slepptu mér“-tal eins og Ólafur Grímsson viðhefur flokkast varla undir ærlegheit eða góða siði. En það er nokkuð sem Ólafur hefur ekki haft mjög í heiðri.
Meira
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Í ljósi Guðs ert þú eins og óendanlega fögur, dýrmæt perla, einstakur gimsteinn, fylltur lífi og leyndardómsfullum tilgangi í eilífri áætlun Guðs."
Meira
Baldur Skarphéðinsson rafvirkjameistari fæddist í Öxarfirði 9. október 1915. Hann lést á Landspítalanum 12. febrúar 2012. Foreldrar hans voru Skarphéðinn Sigvaldason bóndi, f. í Öxarfirði 1876, d. 1970 og Gerður Jónsdóttir húsfreyja, f.
MeiraKaupa minningabók
Berglind Ósk Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 1. september 1980. Hún lést 20. desember 2011. Útför Berglindar var gerð frá Fossvogskapellu 3. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Bertha Sigurðardóttir fæddist í Reykjavík 31. maí 1931. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 13. febrúar 2012. Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson verkstjóri, f. 4.9. 1890 á Fossi á Skaga, d. 30.8. 1965, og Sigríður Jóhannesdóttir húsfreyja, f....
MeiraKaupa minningabók
Bjarni Þórðarson fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1936. Hann lést 2. febrúar 2012. Útför Bjarna fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 9. febrúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Einar Gísli Gunnarsson fæddist á Stekkjabakka í Tálknafirði 5. janúar 1944. Hann fórst með Hallgrími SI-77 25. janúar 2012. Minningarathöfn um Einar var í Grafarvogskirkju 10. febrúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Geirlaug Jónsdóttir fæddist á Suðurgötu 24 á Siglufirði 19. september 1930. Hún lést á Hrafnistu, Boðaþingi, Kópavogi 31. janúar 2012. Útför Geirlaugar fór fram frá Digraneskirkju 8. febrúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Hulda Jóhannesdóttir fæddist á Karlsstöðum í Vöðlavík í Helgustaðahreppi 25. nóvember 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands 2. febrúar 2012. Foreldrar hennar voru Jóhannes Sigfússon, f. 1889, d. 1933, og Valgerður Arnoddsdóttir, f. 1889, d.
MeiraKaupa minningabók
23. febrúar 2012
| Minningargrein á mbl.is
| 2142 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Jónas Halldór Haralz fæddist 6. október 1919 í Vinaminni í Grjótaþorpinu í Reykjavík. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 13. febrúar 2012 á 93. aldursári. Jónas var sonur séra Haralds Níelssonar og Aðalbjargar Sigurðardóttur.
MeiraKaupa minningabók
Jón Þórarinsson fæddist í Gilsárteigi í Eiðaþinghá, S-Múlasýslu 13. september 1917. Hann lést á Droplaugarstöðum 12. febrúar 2012. Foreldrar hans voru Þórarinn Benediktsson, hreppstjóri og alþingismaður, f. í Keldhólum á Völlum, f. 3.3. 1871, d. 12.11.
MeiraKaupa minningabók
Reynir Aðalsteinsson tamningameistari og yfirreiðkennari við LbhÍ fæddist í Reykjavík 16. nóvember 1944. Hann andaðist á Sjúkrahúsinu á Akranesi 25. janúar 2012. Útför Reynis fór fram frá Hallgrímskirkju 10. febrúar 2012. Jarðsett var á Hvanneyri.
MeiraKaupa minningabók
Sigurborg Guðmundsdóttir fæddist í Flatey á Breiðafirði 27. september 1915. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 13. febrúar 2012. Foreldrar hennar voru Guðmundur Bergsteinsson kaupmaður og útgerðarmaður þar, f. 1. febrúar 1878, d. 30.
MeiraKaupa minningabók
Sigursteinn Davíð Gíslason fæddist á Akranesi 25. júní 1968. Hann lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans 16. janúar 2012. Útför Sigursteins fór fram frá Hallgrímskirkju 26. janúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Sveinn Finnur Sveinsson fæddist í Reykjavík 29. júlí 1957. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 6. febrúar 2012. Útför Sveins Finns fór fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 14. febrúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Sverrir Bergmann Bergsson fæddist í Flatey á Skjálfanda 20. janúar 1936. Hann lést á heimili sínu 26. janúar 2012. Útför Sverris fór fram frá Hallgrímskirkju 13. febrúar 2012.
MeiraKaupa minningabók
Vilfríður Guðnadóttir fæddist í Raftholti í Holtum 11. júní 1920. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 16. febrúar 2012. Foreldrar hennar voru Guðni Halldórsson frá Hreiðri í Holtahreppi í Rangárvallasýslu, f. 11.10. 1894 d. 21.12.
MeiraKaupa minningabók
Bónus Gildir 23. - 26. febrúar verð nú áður mælie. verð KF kryddað heiðarlambalæri 1.395 1.598 1.395 kr. kg KS frosið lambasúpukjöt 1 fl 698 759 698 kr. kg Skólaostur í sneiðum tilb.merk. 1.298 1.598 1.298 kr. kg KF frosið nautahakk, 620 g 798 898 1.
Meira
Ljósmyndasýning þýska ljósmyndarans Claus Sterneck með myndum frá Íslandi verður opnuð í Kirsuberjatrénu í dag. Claus er mikill Íslandsaðdáandi og hefur búið og starfað hér á landi í nokkurn tíma.
Meira
Hann hjólar á hverjum degi til og frá vinnu, samtals tæplega þrjátíu kílómetra, og sparar með því peninga. Hann er orðinn háður þessum lífsstíl sem færir honum heilsubætandi hreyfingu og nú stefnir hann á að hjóla Laugaveginn í sumar.
Meira
Landssamtök hjólreiðamanna standa fyrir málþingi nú á föstudaginn, 24. febrúar. Á málþinginu verður fjallað um tækifærin sem fólgin eru í hjólaferðamennsku, hver staðan er á Íslandi núna og hvað við þurfum að gera til að geta nýtt þessi tækifæri.
Meira
Ekki veitir af að skerpa á heilastarfseminni við og við og er vefsíðan sporcle.com tilvalin til þess. En þar er að finna ýmiss konar sniðugar þrautir og krefjandi verkefni sem sjá til þess að heilinn fái engan frið.
Meira
Styrktarfélagið Göngum saman, sem stofnað var árið 2007, stendur fram að páskum fyrir reglulegum fræðslufundum. Fundirnir eru ætlaðir almenningi og þar kynnt gildi rannsókna sem beinast að því að skilja eðli og uppruna brjóstakrabbameins.
Meira
Þórarinn Hávarðsson frá Neskaupstað, nú búsettur í Reykjavík, er fimmtugur í dag, 23 febrúar. Eiginkona hans er Lára Thorarensen, þau eiga tvo syni og fjögur barnabörn. Þórarni til heiðurs var haldin óvænt veisla 18....
Meira
Sigurlaug A. Stefánsdóttir verður níræð 26. febrúar næstkomandi. Í tilefni þess verður opið hús milli kl. 15 og 18 í félagsmiðstöðinni Boðanum, Boðaþingi 9 í Kópavogi. Sigurlaugu þætti gaman að sjá sem flesta vini og vandamenn.
Meira
Kallaðu mig bara Hnullung,“ sagði frómur maður sem hafði samband við Vísnahornið eftir birtingu á skopstælingu á kvæði Davíðs Stefánssonar í síðustu viku og benti á að hana væri að finna í Speglinum.
Meira
Leynimótinu lokið Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni er lokið með sigri Karls Sigurhjartarsonar. Í sveitinni spiluðu Karl Sigurhjartarson, Sævar Þorbjörnsson, Sigurbjörn Haraldsson og Anton Haraldsson Lokastaðan: Karl Sigurhjartarson 212 stig Málning hf.
Meira
Ernst Kettler kvikmyndatökumaður er sjötugur í dag, 23. febrúar. Hann er fæddur í Austurríki árið 1942. Hátíðarhöld í tilefni afmælisins hófust á sprengidaginn þegar kona hans, Ágústa Óskarsdóttir, bauð fjölskyldunni í saltkjöt og baunasúpu.
Meira
Víkverji tilheyrir þeim hluta mannkyns, sem einhverra hluta vegna hefur fengið úthlutað bókstafnum bé út af svefnvenjum. Víkverji glaðvaknar sem sé yfirleitt um það leyti, sem fólkið með bókstafinn a lognast út af.
Meira
23. febrúar 1987 Konur voru aðalfulltrúar á Búnaðarþingi, í fyrsta sinn í sögu Búnaðarfélags Íslands frá stofnun þess árið 1899. Þetta voru Ágústa Þorkelsdóttir og Anna Bella Harðardóttir. 23.
Meira
Marta, brasilíska knattspyrnukonan sem hefur verið talin sú besta í heiminum um árabil, er komin til Svíþjóðar á ný en hún var kynnt til sögunnar í gær sem leikmaður úrvalsdeildarliðsins Tyresö.
Meira
Viðar Guðjónsson sport@mbl.is Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, fyrrverandi leikmaður FH er við það að ganga frá samningi við úrvalsdeildarlið Fram í knattspyrnu.
Meira
Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Ævintýri svissneska liðsins Basel heldur áfram í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Liðið vann Bayern í gær, 1:0, en sigurmarkið kom þegar aðeins fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Meira
Kvennalið Vals í knattspyrnu kvenna hefur misst átta leikmenn úr bikarmeistaraliði sínu fyrir næsta sumar: Hólmfríði Magnúsdóttur, Hallberu Guðnýju Gísladóttur, Málfríði Ernu Sigurðardóttur, Kristínu Ýri Bjarnadóttur, Emblu Grétarsdóttur og Björk...
Meira
Manchester City átti ekki í neinum vandræðum með að ryðja ríkjandi meisturum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu úr vegi í 32-liða úrslitum keppninnar í gær. City var með góða stöðu eftir fyrri leikinn í Porto eða 2:1.
Meira
Skíðakonan María Guðmundsson vann með yfirburðum svigmót í Voss í Noregi í gær en um FIS-mót var að ræða. María var með bestan tíma í fyrri og seinni ferð og lauk keppni um 3 sekúndum á undan næstu stúlku. Erla Ásgeirsdóttir hafnaði í 7.
Meira
Eyjólfur Sverrisson , þjálfari U21 árs landsliðsins í knattspyrnu, hefur þurft að gera eina breytingu á leikmannahópnum fyrir leikinn gegn Aserbaídsjan í undankeppni EM sem fram fer í Bakú í næstu viku.
Meira
Fótbolti Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson mun skrifa undir samning við Atyrau frá Kasakstan á morgun að undangenginni læknisskoðun.
Meira
Kiel heldur sigurgöngu sinni áfram í þýsku 1. deildinni í handknattleik og er nú ósigrað eftir 21 leik. Guðmundur Þ. Guðmundsson mætti með lærisveina sína í Rhein-Neckar Löwen til Kielar aðeins til að fara tómhentur heim.
Meira
Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit, fyrri leikir: Marseille – Inter Mílanó 1:0 Andre Ayew 90. Basel – Bayern München 1:0 Valentin Stocker 85. Evrópudeild UEFA 32-liða úrslit, síðari leikur: Manchester City - FC Porto 4:0 Sergio Agüero 1.
Meira
Fótbolti Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Margrét Lára Viðarsdóttir spilaði í gær sinn fyrsta leik með þýska efstu deildar félaginu Turbine Potsdam en það sótti þá Hamburger SV heim.
Meira
Í Grafarvoginum Kristján Jónsson kris@mbl.is Mikil spenna ríkir í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik en heil umferð fór fram í gærkvöldi.
Meira
Gríðarlegur áhugi eru fyrir uppgjöri toppliðanna í D-riðli Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla á sunnudaginn en þá leiða „Íslendingaliðin“ AG Köbehavn og Kiel saman hesta sína í Brøndby-höllinni í Kaupmannahöfn.
Meira
Handbolti Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Einar Rafn Eiðsson, hornamaðurinn knái í liði Fram, verður í óvenjulegri stöðu þegar Fram mætir Haukum í úrslitaleik bikarkeppninnar í Laugardalshöllinni á laugardaginn.
Meira
Þýskaland A-deild karla: Kiel – Rhein-Neckar Löwen 33:25 • Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Kiel. Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins. • Róbert Gunnarsson komst ekki á blað hjá RN Löwen. Guðmundur Þ.
Meira
Sala á stærri bílum og jeppum hefur verið jafnt og þétt að aukast síðustu mánuðina. Við höfum skynjað mikinn áhuga á jeppunum og góð aðsókn á sýninguna um sl. helgi helst í hendur við þann veruleika.
Meira
Norður í Húnavatnssýslum spilar fólk lomber eins og það eigi lífið sjálft að leysa. Austur á Laugarvatni er leikskólastarf að hluta komið í skógarlundinn ofan við þorpið.
Meira
Átta ára fékk ég það verkefni að setja kynningarefni í umslög fyrir ráðstefnudeild Ferðaskrifstofu Íslands þar sem mamma starfaði. Mér fannst það æðislega spennandi. Seinna tók unglingavinnan við.
Meira
Þetta var fyrsti útkallsbíll slökkviliðsins í nærri hálfa öld og var smíðaður sérstaklega fyrir slökkviliðið,“ segir Óskar Pétursson, bifvélavirki á Akureyri, landsþekktur söngvari og einn söngvinna Álftagerðisbræðra.
Meira
Clint gamli Eastwood er ekki lamb að leika sér við. 78 ára gamall tekst hann á við glæpagengi af slíkri hörku að sem fyrr verða andstæðingar hans að spyrja sig hvort dagurinn í dag sé happadagurinn þeirra.
Meira
Hans J. Wegner var að sögn undir sterkum áhrifum frá málverkum Pablo Picasso þegar hann hannaði hinn þekkta hægindastól Uxann árið 1960. Stóllinn er fáanlegur bæði með leður- og...
Meira
Enda þarf að minnsta kosti eitt húsið að vera í hinum KR-litnum. Túristarúturnar hafa alltaf farið eftir Ægisíðunni í skoðunarferðum um borgina og eftir að Björk fluttist í götuna varð hún enn mikilvægari fyrir þennan rúnt.
Meira
Breska leikkonan Helena Bonham-Carter var í gær sæmd CBE-heiðursmerkinu við hátíðlega athöfn í Buckinghamhöll. Orðan, Commander of the British Empire, er eitt æðsta heiðursmerki sem almennum borgurum getur hlotnast og var leikkonan að vonum ánægð.
Meira
Fyrir vikið hafa tryggingafélög sumstaðar erlendis veitt vænan afslátt á tryggingum XC60-bíla enda verða æði mörg umferðaróhöpp einmitt við framangreindar aðstæður. Annar öryggisbúnaður bílsins er eins og hann gerist bestur, enda Volvo alveg í sérflokki hvað það varðar
Meira
Honda Jazz eru þeir bílar sem mestrar hylli njóta í Noregi skv. nýlegri skoðanakönnun þar í landi. Þetta er sagt skv. spám. Bílarnir séu sparneytnir, fari vel með farþega og eigendur séu...
Meira
Það er eflaust margt ömurlegra en að búa í Hollywood-hæðunum í Kaliforníu enda kjósa margar Hollywood-stjörnur að búa á þessum slóðum. Í hæðunum er útsýni yfir Los Angeles eins og hún leggur sig.
Meira
Kjötkveðjuhátíðin í Ríó er einn litríkasti hátíðisdagur sem um getur í víðri veröld enda skarta búningarnir slíkri litadýrð að vart þekkjast dæmi um annað eins.
Meira
Á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði kynnir Kia nýjan og gerbreyttan Kia Cee´d, en hann hefur selst mjög vel hér á landi sem annars staðar. Hin nýja kynslóð bílsins er lengri, breiðari og lægri en áður en jafnlangt verður þó á milli hjólanna.
Meira
Lexus tekur áhættu með nýjustu auglýsingunni sinni en þar er búin til braut eftir útlínum sundfatamódelsins Tori Praver. Í myndbandi sem er partur af auglýsingaherferð sést hvar brautin hefur verið búin til og tveir karlar eru látnir keppa á henni.
Meira
„Áætlunin var sú að fjölskyldan færi saman í leikhúsið á afmælisdeginum sem alltaf er tilhlökkunarefni. Svo höfum við sjálfsagt eitthvað betra með kaffinu, til dæmis köku ársins,“ segir Jónatan Grétarsson ljósmyndari sem er 33 ára nk.
Meira
Jón Haukur Baldvinsson hugsar um fátt annað en mat þess dagana enda stýrir hann markaðs- og kynningarmálum fyrir matarhátíðina Food & Fun sem hefst í Reykjavík í næstu viku, í 11. skiptið. Jón Haukur gefur hér upp Óskalistann sinn.
Meira
Dægradvölin Í Hönnunarsafninu við Garðatorg stendur yfir stórskemmtileg sýning sem nefnist Sjálfsagðir hlutir. Augnlinsur, tannstönglar, klósett og bréfaklemmur og fleira sem við tökum sem sjálfsagt hversdags.
Meira
En lögmál ostagerðar eru alltaf þau sömu; það er að mjólkin er gerilsneydd, bætt í hana gerlum, mysan sigtuð frá, gerjandi hráefnið hitað upp og pressað til og loks skorið í þær stærðir sem vera ber.
Meira
Porsche var nýverið valinn besti evrópski framleiðandinn af J.D. Power and Associates, sem er ein virtasta markaðsrannsóknarstofnun Bandaríkjanna.
Meira
Það sem ég sýni ykkur í dag er alveg ótrúlega skemmtilegt að útfæra og valmöguleikarnir endalausir. Þetta eru niðurklipptir hólkar af eldhús- eða klósettrúllum. Í dag sýni ég hvernig er hægt að nota þetta á 3 vegu.
Meira
Nemendur byggingadeildar Iðnskólans í Hafnarfirði vinna um þessar mundir hörðum höndum að byggingu nýrrar Krýsuvíkurkirkju. Verkinu miðar vel og er stefnt að því að kirkjan verði komin á sinn stað að ári.
Meira
Aðeins tveimur árum eftir björgunaraðgerðir bandaríska ríkisins, sem komu í veg fyrir gjaldþrot General Motors, skilaði fyrirtækið í fyrra mesta hagnaði í sögu sinni.
Meira
Íslenskir karlmenn höfðu lengi vel megnan ímugust á heimsóknum erlendra herramanna til landsins enda þótti kvenpeningurinn verða helst til uppveðraður ef útlendinga var von.
Meira
Toyota Land Cruiser er kominn ljósárum frá upprunalega bílnum sem byrjað var að selja fyrir sextíu árum í Japan. Sá var mjög hrár og ætlaður til utanvegaaksturs en það er sá nýi ekki.
Meira
Stærsta lágfargjaldaflugfélag Suðaustur-Asíu, AirAsia, hagnaðist um186 milljónir Bandaríkjadala, 23 milljarða króna á síðasta ári. Það er verulegur samdráttur frá árinu 2010 er hagnaðurinn nam 350 milljónum dala.
Meira
Baksvið Karl Blöndal kbl@mbl.is Þýskir fjölmiðlar kalla Portúgal „fyrirmyndarnemanda sparnaðarstjóranna í Brussel“. Portúgölsk stjórnvöld hafa gert allt, sem fyrir þau hefur verið lagt, og jafnvel gott betur.
Meira
Málaflokkurinn öryggi er oft eins og óskilgetin afurð fyrirtækis; fáir vilja kannast við hann og enn færri vilja vera sá starfsmaður sem sinnir honum.
Meira
Matsfyrirtækið Fitch lækkaði í dag lánshæfiseinkunn gríska ríkisins um tvö þrep, úr CCC í C. Í tilkynningu frá Fitch kemur fram að fyrirtækið telji miklar líkur á greiðslufalli gríska ríkisins í náinni framtíð.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Eftir harkalegan skell árið 2008 og 2009 virðist sala á ferðum til útlanda vera að taka vel við sér á ný. „Strax árið 2008 fór að gæta samdráttar með veikari krónu.
Meira
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur valið Nýherja til að sjá um upplýsingakerfi sitt. Alrekstrarþjónusta Nýherja felur í sér rekstur á upplýsingakerfum, notendabúnaði og miðlægum búnaði félagsins eins og kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Meira
Laun voru óbreytt í janúar frá fyrri mánuði samkvæmt launavísitölu sem Hagstofa Íslands birti í gær. Morgunkorn Íslandsbanka telur að búast megi við hækkun á kaupmætti í febrúar frá fyrri mánuði vegna samningsbundinna hækkana.
Meira
„Bolludagurinn er mikil vertíð fyrir okkur, en auk þess að þurfa að sjá mörgum af bakaríum landsins fyrir ýmsu hráefni til bollugerðar selst heilmikið af vatnsdeigsbollumixi, kakói, jurtarjóma, flórsykri og tilbúnum glassúr,“ segir Björn...
Meira
Sértryggð skuldabréf Arion banka, Arion CBI 34, voru í gær tekin til viðskipta á skuldabréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland. Stærð flokksins er nú ISK 2.500.000.000. Flokkurinn ásamt sértryggða skuldabréfaprógramminu (e.
Meira
• Stýrivextir hafa áður í tvígang verið helsta tæki Seðlabankans við stjórn peningamála • Fyrra tímabilið á árunum 1997-1999 endaði með gengishruni • Þá tók við flotgengisstefna og formlegt verðbólgumarkmið fram að hausti 2008 • Sú tilraun endaði einnig með gengishruni
Meira
Fyrr í vikunni rataði beinustu leið í fréttir sú tillaga Lilju Mósesdóttur að prenta 200 milljarða króna og nota til að greiða niður skuldir heimilanna, gert eftir ákveðnum leiðum sem hún segir ekki munu valda verðbólgu.
Meira
Kínaklúbbur Unnar Guðjónsdóttur verður 20 ára í maí. Þegar allt er talið hefur Unnur farið með heljarinnar skara af Íslendingum út í heim, ekki bara til Kína, heldur á alls kyns framandi og spennandi slóðir hér og þar á jarðkringlunni.
Meira
Árið 1980 var TBWA tiltölulega lítil auglýsingastofa. Reksturinn gekk sæmilega en stofan var ekki í hópi stóru nafnanna í bransanum. Svo kom Absolut-vodka til sögunnar.
Meira
Hvaða auglýsingaherferð var árangursríkust? Samanburður er raunhæfur. Margir þættir eru undir, segir Einar Einarsson hjá Capacent. Innsendingarnar eru ólíkar og spanna breitt svið.
Meira
Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Landsvirkjunar, verður ráðstefnustjóri á Íslenska markaðsdeginum. Hún gleðst þegar hún sér mikið af auglýsingum því þá veit hún að lífsmark er með atvinnulífinu í landinu.
Meira
Vöruísetningar (e. product placement) eru sérstök aðferð í auglýsingum. Þá er vöru eða vörumerki stungið í tiltekið samhengi eða sýnt í notkun, ýmist í kvikmyndum eða leiknu sjónvarpsefni.
Meira
Capacent Gallup framkvæmir á hverju ári könnun meðal markaðsstjóra 400 stærstu auglýsenda landsins í samstarfi við ÍMARK og SÍA (Samband íslenskra auglýsingastofa). Markmiðið með könnuninni er að fá vísbendingar um mat og væntingar markaðsstjóra til auglýsingamarkaðarins á Íslandi.
Meira
Ef aðstæður leyfa er betra að nota samdráttartíma til að efla markaðsstarfið enda hægt að fá meira. Auglýsingamarkaðurinn breytist hratt og einkennist í dag af millibilsástandi á fjölmiðlamarkaði
Meira
José Miguel Sokoloff er stjórnarformaður og hönnunarstjóri auglýsingastofunnar Lowe-SSP3, en stofan er næst stærsta auglýsingastofan í Kólumbíu og þykir aukinheldur vera ein sú frjóasta á markaðnum.
Meira
Tískuhönnuðurinn Clavin Klein hefur alltaf haft býsna gott nef fyrir markaðssetningu. Einkum átti hann óslitið blómaskeið á tíunda áratug síðustu aldar þegar hver herferðin á fætur annarri varð að hálfgerðu normi í poppkúltur unga fólksins.
Meira
Markmið dómnefndar AAÁ er að verðlauna þær auglýsingar sem skara fram úr og meta auglýsingar út frá tveimur forsendum; annars vegar hversu frumleg, skapandi og snjöll hugmyndin er, og hinsvegar hversu vel hugmyndin er útfærð.
Meira
Markmið dómnefndar ÁRA er að verðlauna þær auglýsingaherferðir sem skilað hafa framúrskarandi árangri með sannanlegum hætti. Hennar bíður ærinn starfi enda margir um hituna.
Meira
Flestir þekkja hinar sígildu auglýsingar Coca Cola frá því á fyrri hluta 20. aldar, enda myndheimur hinna fornu veggspjalda og tímaritaauglýsinga ákaflega sjarmerandi á sinn gamaldags máta.
Meira
Menning og markaður eru ekki olía og vatn, segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins. Þangað hafa aldrei fleiri sótt en einmitt síðustu árin. Sterkir litir í leikritavali. Starfsfólkið var tilbúið í breytingar, segir Magnús sem hefur fengið viðurkenningar fyrir árangur.
Meira
Hófsamur stíll er ráðandi í auglýsingum í dag. Heimili og öryggi eru áberandi gildi. Þjóðarstoltið var áberandi eftir hrunið, segir Selma Rut Þorsteinsdóttir hjá Pipar/TBWA
Meira
Diana Derval er meðal erlendra fyrirlesara á ÍMARK í ár. Að hennar mati skiptir það fyrirtæki miklu máli að gera sér grein fyrir hegðunarmynstri neytenda og hvernig þeir skynja mismunandi vörur. Í því sambandi hefur fyrirtæki hennar teygt rannsóknir sínar langt inn á svið lífeðlisfræðinnar.
Meira
ÍMARK-dagurinn er uppskeruhátíð auglýsinga- og markaðsfólks. Vísindin sem bransinn hverfist um eru alltaf jafn spennandi og fáir jafn fróðir í þeim efnum og Guðmundur Oddur – eða bara Goddur.
Meira
Auglýsingar eru spegilmynd markaðarins og mikið er lagt undir við gerð sumra auglýsinga þótt aðrar séu einfaldari að gerð. Það sem mestu skiptir þó er að skilaboð fyrirtækis til neytanda komist á framfæri. Veki fólk til vitundar og umhugsunar.
Meira
• Þeir sem hafa áhuga á að læra markaðsfræði hafa úr mörgum kostum að velja hér á landi. • Hver háskóli hefur þó sínar áherslur og námsmöguleika, og þurfa nemendur að vanda valið.
Meira
Árið 1951 stóð Ellerton Jette, skyrtugerðarmaður frá Maine, frammi fyrir klassísku vandamáli: hann þurfti kúvendingu hvað reksturinn varðaði en hafði afar takmarkaða fjármuni til þess, sem er jú verra jafnvel þótt þú hafir úrvalsvöru í höndunum.
Meira
Aðferðir við mælingar markaðsstarfs verða stöðugt betri og hagkvæmari, segir Rúna Dögg Cortez hjá Auglýsingamiðlun. Margir mættu sinna þessum lið starfseminnar betur.
Meira
Íslensk auglýsingagerð í allra fremstu röð. Nýta fjármuni vel. Samfélagsmiðlar skapa nýjan veruleika í faginu. Ímyndin byggð með orðum, athöfnum og innistæðu. Vöxtur í greininni, segir Hjalti Jónsson, framkvæmdastjóri Íslensku auglýsingastofunnar og formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa.
Meira
Fjölgun miðla og dreifileiða er mikil áskorun fyrir markaðsfólk. Hugmyndir þurfa áhugaverða útfærslu. Skilaboðin hafa breyst, segir Friðrik R. Larsen formaður dómnefndar um áhugaverðustu auglýsinguna. Dómnefndin þarf að skoða hvorki fleiri né færri en 375 auglýsingar.
Meira
Tímarnir breytast og mennirnir með, skoðanir þeirra og viðhorf. Þar af leiðir að viðmiðin um hvað telst í lagi og hvað ekki þegar auglýsingar eru annars vegar breytast sjálf hið sama.
Meira
Markvissara markaðsstarf eftir hrun. Fyrirtækin stokka spilin. Samfélagsmiðlar skipa miklu máli. Faglegt starf, segir Gísli Brynjólfsson hjá Hvíta húsinu.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.