Átján tillögur bárust í samkeppni um hönnun fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík en frestur til að skila tillögum rann út 16. apríl. Dómnefnd sem skipuð var vegna samkeppninnar kom saman í gær til að hefja mat á tillögunum.
Meira
Gengið var í gær frá kaupum bandaríska lyfjafyrirtækisins Watson á Actavis. Kaupverðið er samtals 4,25 milljarðar evra eða um 700 milljarðar króna.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir það mjög miður að verslunarfyrirtæki hafi í auknum mæli opið 1. maí, svo fjöldi starfsmanna fær ekki frí á þessum baráttudegi verkafólks.
Meira
Sjö félagar úr Félagi íslenskra stórmeistara fara á morgun til Portoroz í Slóveníu undir forystu Friðriks Ólafssonar, sem árið 1958 tefldi þar á millisvæðamóti og lagði að velli Bobby Fischer, en þeir höfnuðu í 5. til 6. sæti á mótinu.
Meira
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Vesturlands yfir karlmanni sem dæmdur var í fjögurra ára fangelsi fyrir að níðast kynferðislega á 11 ára gamalli dóttur sinni. Einn dómari skilaði séráliti og vildi sleppa manninum úr haldi.
Meira
Viðtal Guðni Einarsson gudni@mbl.is Séra Agnes M. Sigurðardóttir prófastur hefur verið kjörin biskup Íslands, fyrst kvenna. Fráfarandi biskup, Karl Sigurbjörnsson, mun vígja Agnesi í embætti 24. júní nk. Hún tekur formlega við sem biskup hinn 1. júlí.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á næstu vikum hyggjast stjórnarliðar freista þess að afgreiða mörg flókin og viðamikil mál sem heyra undir lykilmál í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Meira
Milli miðnættis og klukkan sex í gærmorgun mældust yfir 100 jarðskjálftar um tvo kílómetra NNV við Hellisheiðarvirkjun. Þetta kemur fram á vefsvæði Veðurstofu Íslands og að stærstu skjálftarnir voru um 2 að stærð.
Meira
Ómar Garðarsson omar@eyjafrettir.is Sigmund Jóhannsson, uppfinningamaður og teiknari, segist í fjögur ár hafa unnið að hönnun slökkvibúnaðar sem gæti nýst við erfiðar aðstæður eins og til dæmis í veggöngum.
Meira
Matarkarfan reyndist ódýrust í Bónus en næst ódýrust í Fjarðarkaupum í verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands síðastliðinn mánudag. Karfan kostaði 20.404 krónur í Bónus en 22.058 krónur í Fjarðarkaupum. Dýrust var karfan í Nóatúni, þar sem hún kostaði...
Meira
Mælst er til þess í umsögn Hafrannsóknastofnunar um frumvarp til laga um veiðigjöld að komið verði á jöfnun á milli ára þannig að fjármögnun haf- og fiskirannsókna verði óháð breytilegri afkomu í atvinnugreininni.
Meira
Kristján Jónsson kjon@mbl.is Leveson-rannsóknin svonefnda á vinnubrögðum og siðferði í breskum fjölmiðlum og samskiptum þeirra við stjórnmálamenn veldur nú miklu írafári, ekki einvörðungu í Bretlandi heldur einnig í Bandaríkjunum.
Meira
Baksvið Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Sala á kartöfluútsæði er háð ströngum framleiðsluskilyrðum hér á landi. Íslendingar hafa lengi haft reglur um framleiðslu útsæðis og er framleiðslan skilyrt í reglugerð nr. 455/2006.
Meira
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Gamla varðskipið Þór III endar brátt ævidaga sína. Skipið var dregið af dráttarbátnum Auðuni frá bryggjunni í Gufunesi og í Njarðvíkurhöfn í gær þar sem það verður rifið niður í brotajárn næstu daga.
Meira
Kristján Jónsson kjon@mbl.is Newt Gingrich, frambjóðandi í forkosningum bandarískra repúblikana, hefur ákveðið að draga sig í hlé. Hann ætlar að lýsa yfir stuðningi við að Mitt Romney sem forsetaefni repúblikana í nóvember.
Meira
Landhelgisgæslan hefur sent atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða. Meðal annars er gerð athugasemd við að hlutur Gæslunnar sé fyrir borð borinn í annarri grein frumvarpsins, sem fjallar um stjórnvöld.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Strandveiðar mega hefjast á miðvikudag í næstu viku, 2. maí, og er þetta fjórða árið sem þessi veiðiskapur er leyfður.
Meira
Tveir 500 þúsund króna styrkir voru veittir úr Styrktar- og verðlaunasjóði Bent Scheving Thorsteinsson á aðalfundi Landspítala í vikunni. Styrkina hlutu Hrönn Harðardóttir sérfræðilæknir og Páll Torfi Önundarson yfirlæknir og samstarfsaðilar þeirra.
Meira
Karlakór Sjómannaskólans, sem kenndur er við Tækniskólann, mætti færandi hendi í húsnæði Mæðrastyrksnefndar í gær. Tilgangurinn var að afhenda nefndinni bretti af gosi sem þessir vösku piltar unnu í Söngkeppni framhaldsskólanna um nýliðna helgi.
Meira
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Velferðarnefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp til breytinga á lögum í þeim tilgangi að skýra heimildir landlæknis til þess að afla persónugreinanlegra upplýsinga við eftirlit með gæðum heilbrigðisþjónustu.
Meira
Fjölbreytt dagskrá var í Mýrdalshreppi í gær á Degi umhverfisins, 25. apríl, sem er fæðingardagur Sveins Pálssonar, fyrsta náttúrufræðings Íslendinga. Í ár voru 250 ár liðin frá fæðingu Sveins, sem heimamenn nefna einn af merkustu sonum Víkur.
Meira
Tónlistarveislan Bræðslan á Borgarfirði eystra fer fram í áttunda skiptið í sumar, helgina 26.-29. júlí. Þeir listamenn sem fram koma í ár eru Mugison, Valgeir Guðjónsson, Contalgen Funeral frá Sauðárkróki og...
Meira
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, veitti vefsíðunni Náttúrunni.is í gær Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum.
Meira
Náttúruverndarhreyfingin á Íslandi efnir til Náttúruverndarþings í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 28. apríl kl. 10-16:30. Á þinginu verður fjallað um stöðu rammaáætlunar og næstu skref í baráttunni fyrir verndun mikilvægra náttúruverndarsvæða.
Meira
Magnús Stefánsson garðyrkjumaður var að sinna spínatuppskerunni í Lambhaga þegar ljósmyndara bar þar að garði í gær en spínat hefur verið ræktað hjá garðyrkjustöðinni í um eitt ár.
Meira
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur veitti forstjóra fyrirtækisins umboð í gær til viðræðna við fulltrúa íslenskra lífeyrissjóða um verkefnisfjármögnun Hverahlíðarvirkjunar. Í samþykkt stjórnar OR segir að viðræðurnar snúist m.a.
Meira
Séra Agnes M. Sigurðardóttir hefur verið kjörin biskup Íslands, fyrst kvenna. Atkvæði í síðari umferð biskupskosninga voru talin í gær. Á kjörskrá voru 502 en 477 greiddu atkvæði.
Meira
Sigmund Jóhannsson, uppfinningamaður og teiknari í Vestmannaeyjum, hefur undanfarin fjögur ár unnið að hönnun slökkvibúnaðar til notkunar við erfiðar aðstæður eins og í jarðgöngum, skipum og stórum verksmiðjum og telur að framleiðsla geti hafist eftir...
Meira
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Eftir því sem dagarnir lengjast fækkar óðum þeim skíðasvæðum sem enn eru opin á landinu og fer hver að verða síðastur að skella sér í brekkurnar.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þetta er allt saman í mikilli óvissu. Starfsáætlun þingsins segir að því eigi að ljúka um mánaðamótin maí/júní. Það er auðvitað aðeins áætlun sem getur breyst. Engu að síður er tíminn knappur.
Meira
26. apríl 2012
| Innlendar fréttir
| 1216 orð
| 6 myndir
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vorþingi lýkur samkvæmt starfsáætlun 31. maí og eru því 18 þingdagar eftir áður en þingið fer í frí, að eldhúsdegi meðtöldum.
Meira
Landhelgisgæslan tók í gær þátt í björgunaræfingu í samstarfi við Norðmenn þar sem settar voru á svið þær aðstæður að eldgos hefði átt sér stað í eldfjallinu Beerenberg á Jan Mayen og flytja þyrfti á brott þá einstaklinga sem þar hafa búsetu, en fjallað...
Meira
Mennta- og menningarmálaráðherra skipaði í byrjun árs 2010 nefnd til þriggja ára til að fylgja eftir stefnu um notendaviðmót á íslensku í skólum og hins vegar til að gera áætlun um aðrar aðgerðir sem tilgreindar eru í málstefnunni um íslensku í...
Meira
Eiginfjárhlutfall Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem er í meirihlutaeigu ríkisins, nam 13,9% í árslok 2011 og er því komið undir það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið hefur sett sjóðnum.
Meira
Sævar Ingþórsson, líffræðingur og doktorsnemi, var útnefndur „Ungur vísindamaður ársins 2012 á Landspítala“. Þetta var tilkynnt á uppskeruhátíð vísindastarfs á spítalanum, Vísindum á vordögum, sem hófust í gær.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Útlit er fyrir góða grassprettu í sumar, en þurrkar gætu þó valdið talsverðum skaða, að sögn Páls Bergþórssonar, veðurfræðings og fyrrverandi veðurstofustjóra.
Meira
Í mars 2012 voru gefin út 4.024 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 3.133 vegabréf í mars 2011. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 28,4% milli ára. Fyrstu þrjá mánuði ársins hafa verið gefin út 10.164 íslensk vegabréf samanborið við 7.
Meira
Starfsmenn stálsmiðju ArcelorMittal í Frakklandi á útifundi við aðalstöðvarnar í Saint-Denis gær þar sem þess var krafist að framleiðsla hæfist á ný en henni var hætt vegna lítillar eftirspurnar.
Meira
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Tíðin hefur verið töluvert önnur í vor en fyrir ári. Myndir segja meira en mörg orð; þær sem hér fylgja, teknar af íþróttasvæði KA um miðjan apríl í fyrra og á sama tíma ári síðar, taka af allan vafa.
Meira
Björgvin G. Sigurðsson þingmaður væntir þess að hreinar línur verði komnar í aðlögun að ESB fyrir næstu kosningar. Þetta er eðlilegt mat hjá Björgvini, enda hefur enginn nennt að segja honum að þetta standi ekki til.
Meira
Sjónvarpsdagskráin hefur verið svo slöpp hjá RÚV að ég horfi nánast eingöngu á Höllina (Borgen). Að öðrum sjónvarpsstöðum hef ég nánast ekki aðgang nema þeim erlendu. En það er virkilega gaman að framhaldsþáttunum um pólitísku rétttrúnaðarkonuna.
Meira
Pavane eftir G. Fauré fyrir víólu og píanó verður meðal verka sem flutt verða á hádegistónleikum í Háteigskirkju á morgun milli kl. 12:30 og 13:00. Að sögn skipuleggjenda mun angurværð og dulúð einkenna dagskrána í þetta sinn en ásamt Pavane verða m.a.
Meira
Beyoncé hefur verið valin fegursta kona heims af tímaritinu People. Þetta er í níunda sinn sem söngkonan ratar á lista blaðsins yfir fallegasta fólkið en hún hefur aldrei áður verið sú útvalda. Árið 2011 var Jennifer Lopez sú heppna.
Meira
Aðrir tónleikar Kvartetts Kammersveitar Reykjavíkur í röðinni Meistaraverk Jóns Leifs verða haldnir í Kaldalóni í Hörpu sunnudaginn 29. apríl kl. 12:15. Á efnisskránni eru tvö verk: Kvartett nr. 3 eftir Leif Þórarinsson og Quartetto III op.
Meira
Miðasala á þungarokkshátíðina Eistnaflug, sem haldin er á Neskaupstað, byrjar 1. maí á midi.is. Miðinn kostar 8500 kr. Hátíðin byrjar fimmtudaginn 12.júlí og stendur fram yfir miðnætti laugardagsins 14. júlí.
Meira
Tvær sýningar verða opnaðar í Þjóðminjasafni Íslands í dag, annars vegar Nál og hnífur og hins vegar Átta heimar . Báðar eru sýningarnar hluti af hátíðinni List án landamæra.
Meira
Stuttskífan Half Dream með Sin Fang kemur út á 12 tomma vínyl á vegum Morr Music í lok maí. Stór plata, Flowers, kemur svo út í byrjun árs 2013. Sin Fang heldur í þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu í lok maí ásamt Sóleyju.
Meira
Árið 1997 lagðist Óháð listahátíð af, en hún er grasrótarhátíð fyrir unga sem reyndari listamenn. Hátíðin verður endurvakin í ár og haldin á Selfossi, 29. júní til 8. júlí. Jóhann Sigmarsson kvikmyndagerðarmaður er umsjónarmaður hátíðarinnar.
Meira
Í heimildarmyndinni Óskinni eftir Árna Sveinsson, sem fylgir þessari nýjustu plötu Bubba Morthens og fjallar um vinnslu hennar, ræða þeir Benzínbræður, Börkur og Daði, um tilurð plötunnar. Þar kemur fram að þetta sé líkast til 36.
Meira
Baritónsöngvarinn Ágúst Ólafsson og píanóleikarinn Antonía Hevesi freista þess að tæla áheyrendur sína á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Hörpu í dag kl. 12.15, en þá flytja þau serenöður og mansöngva eftir W.A.
Meira
Yfir 75 stutt- og heimildamyndir verða sýndar í Bíó Paradís á kvikmyndahátíðinni Reykjavík Shorts & Docs sem hefst 6. maí og lýkur þremur dögum síðar. Myndunum verður skipt í fjóra flokka.
Meira
Eftir Berg Sigfússon: "Stór virkjun með svona mikil áhrif hefði líklega mjög neikvæð áhrif á ferðamennsku, en ferðamennskan skapar mun fleiri langtímastörf heldur en virkjunin."
Meira
Eftir Önnu Margréti Sigurðardóttur: "Mikil mildi var að allir sluppu lifandi úr lífsháskanum. Augnabliki áður átti önnur rúta leið um með ungar stúlkur að koma af knattspyrnuæfingu."
Meira
Eftir Sigurbjörn Sveinsson: "Málatilbúnaður stjórnar Læknafélags Íslands var í bígerð dögum áður en Kári Stefánsson hóf að láta lögfræðinga sína jagast í læknafélaginu"
Meira
Eftir Baldur Ágústsson: "Þjóðkirkjan hefur í það heila notið trausts umfram ýmsar stofnanir ríkisins og verið ómissandi þáttur í lífi þjóðarinnar."
Meira
Þeir sem ákváðu að leiða Geir Haarde fyrir Landsdóm hljóta að hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með niðurstöðuna. Maður vonar að einhver vottur af samviskubiti geri vart við sig hjá þessu fólki, en á svosem ekkert sérstaklega von á því.
Meira
Eftir Pétur Pétursson: "Samstarf ólíkra kristinna safnaða og trúarbragða á Íslandi réttlætir stuðning og vernd ríkisvaldsins við jafnt þjóðkirkju sem önnur trúfélög."
Meira
Eftir Þorvarð Hrafn Ásgeirsson: "Þessi ríkisstjórn hefur klúðrað hverju málinu á fætur öðru og það nýjasta er peningaeyðslan sem var það eina sem kom út úr landsdómsmálinu."
Meira
Eftir Magnús Oddsson: "Gæti opið umboð allra innlendra og erlendra aðila til afnota auðlindarinnar í atvinnuskyni með vísan til almannaréttar skapað vandamál í framtíðinni?"
Meira
Þekkir einhver fólkið? Þessi mynd er úr safni Gróu Stefaníu Guðjónsdóttur frá Raufarfelli undir Eyjafjöllum, f. 1907. Hún var tekin í fóstur af Þorbjörgu Guðmundsdóttur og Jóni Benónýssyni.
Meira
Agnar (skírður Bjarnar) Tryggvason fæddist í Laufási, Reykjavík, 10. febrúar 1919. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 11. apríl 2012. Útför Agnars var gerð frá Dómkirkjunni 20. apríl 2012.
MeiraKaupa minningabók
Anna Björg Ósk Jónsdóttir fæddist í Hafnarnesi, Fáskrúðsfirði, 3. desember 1928. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 27. mars 2012. Útför Önnu fór fram frá Bústaðakirkju 12. apríl 2012.
MeiraKaupa minningabók
Camilla Sigmundsdóttir fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 5. ágúst 1917. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar 14. apríl 2012. Útför Camillu fór fram frá Þingeyrarkirkju sunnudaginn 22. apríl 2012.
MeiraKaupa minningabók
Edda Guðmundsdóttir fæddist á Bryggju í Grundarfirði 21. febrúar 1923. Hún lést 17. apríl 2012. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, heildsali frá Stykkishólmi, f. 8. október 1891, d. 10 janúar 1963, og Magnþóra Þórisdóttir, hárgreiðslukona, f.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Jakobsson, fæddur 16. janúar 1953, varð bráðkvaddur 17. apríl 2012. Foreldrar: Ingibjörg Ingimundardóttir húsmóðir og Jakob Indriðason kaupmaður, þau eru bæði látin.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Halldórsdóttir fæddist á Akureyri 3. júlí 1920. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 16. apríl 2012. Foreldrar hennar voru Halldór Þorgrímsson, sjómaður, f. 17. maí 1882, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Runólfsdóttir fæddist í Reykjavík 19. maí 1918. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 5. apríl 2012. Útför Unnar fór fram frá Bústaðakirkju 17. apríl 2012.
MeiraKaupa minningabók
Viktor Sigurbjörnsson fæddist að Kvistum í Ölfusi 23. nóvember 1956. Hann varð bráðkvaddur á Spáni 1. apríl 2012. Útför Viktors fór fram frá Hveragerðiskirkju 14. apríl 2012.
MeiraKaupa minningabók
Matvælastofnun heldur fræðslufund um eftirlit með lyfjanotkun og lyfjaleifum í dýrum í dag, fimmtudaginn 26. apríl kl. 15:00-16:00. Á fundinum verða kynntar nýjar reglur um rafræna skráningu dýralækna á dýralyfjum.
Meira
Þau ákváðu að gera ferðir á framandi slóðir að lífsstíl, í stað þess að vera alltaf að safna fyrir nýrri ferð. Þau stofnuðu Afríka ævintýraferðir og hafa átt annað heimili í Kenýa síðan. Á sumrin reka þau gistiþjónustu í Hrífunesi í Skaftártungu.
Meira
Franski hönnuðurinn Anna Michalak, sem kallar sig Önnu Chocola, er frönsk að uppruna en býr nú í bresku borginni Brighton. Anna er listamaður og lausapenni en hún hannar dálítið gamaldags og fallega hatta í frönskum stíl.
Meira
Fjarðarkaup Gildir 26. - 28. apr. verð nú áður mælie. verð Svínakótelettur úr kjötborði 1.198 1.598 1.198 kr. kg Nautagúllas úr kjötborði 1.798 2.198 1.798 kr. kg Lambainnralæri úr kjötborði 2.998 3.398 2.998 kr.
Meira
Vortónleikar Kórs Kvennaskólans í Reykjavík verða haldnir í dag, fimmtudaginn 26. apríl kl. 20:00 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Á tónleikunum verða flutt bæði klassísk íslensk lög og poppuð lög sem margir ættu að kannast við.
Meira
Brim 2012, sýning nemenda á listnámsbraut við Borgarholtsskóla, verður opnuð í dag, fimmtudag 26. apríl, klukkan 17. Þeir 25 nemendur sem eiga verk á sýningunni hafa sérhæft sig í margmiðlun, nánar tiltekið prent- og skjámiðlun.
Meira
Andinn kom yfir Pétur Stefánsson þegar bróðurdóttir eiginkonu hans fermdist og hann skellti þessari vísu í fermingarkortið með matarskattinum: Drottinn veiti þér vegferð bjarta, verndi og styðji þig hvar sem er.
Meira
30 ára Danni fæddist í Reykjavík, ólst upp á Djúpavogi, er að ljúka BS-prófi í landfræði frá HÍ og hefur starfað hjá Tandri. Kona Ástríður Jónsdóttir, f. 1979, stjórnmálafræðingur í utanríkisráðuneytinu. Dóttir Ástríðar er Eyrún Ólöf, f. 2006.
Meira
30 ára Halldór ólst upp í Hafnarfirði, er húsasmiður og rekur Hafið – fiskverslun í Kópavogi. Kona Agnes Barkardóttir, f. 1982, viðskiptastjóri. Börn Halldórs: Kristófer Örn, f. 2001; Guðrún Ágústa, f. 2003, og Kristín Erla, f. 2003.
Meira
Ríkharður fæddist í Reykjavík en ólst upp í Mosfellsbænum frá 1976. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1992 og BA-prófi í hagfræði frá Columbia University í New York 1996.
Meira
Menn geta gengið eða verið samstiga , þ.e. samferða, í takt, samhliða, en ekki samstíga með í-i: Bankamenn eru samstiga. Getum við ekki verið það líka? spurði formaður Félags stigamanna í bænarrómi á róstusömum...
Meira
Danmörk Emma Lísa fæddist 28. febrúar kl. 15.47. Hún vó 3.605 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir og Hlynur Svan Rúnarsson...
Meira
Vestmannaeyjar Bjartur fæddist 29. september 2011 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja kl. 02.00. Hann vó 4.050 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Guðný Sigurmundsdóttir og Tryggvi...
Meira
Regína Þórðardóttir leikkona fæddist í Reykjavík 26. apríl 1906, dóttir Þórðar Bjarnasonar, stórkaupmanns og bæjarfulltrúa, og Hansínu Linnet húsmóður. Bróðir Regínu var Sigurður tónskáld, faðir Þórðar sem var forstöðumaður Reiknistofnunar bankanna.
Meira
30 ára Sunneva fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk prófum sem lyfjatæknir frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla og er bóndakona á Fossum í Landbroti. Eiginmaður Davíð Andri Agnarsson, f. 1982, bóndi. Börn þeirra Júlía Rut, f. 2005; Iðunn Kara, f.
Meira
Snjallir afbrotamenn eru algengir í bíómyndum, en minna fer fyrir þeim í raunveruleikanum. Víkverji rakst á nokkrar frásagnir af misheppnuðum afbrotamönnum á vefsíðu Der Spiegel og gat ekki stillt sig um að láta nokkrar þeirra ganga.
Meira
26. apríl 1839 Kvæðið Íslands minni (Þið þekkið fold ...) eftir Jónas Hallgrímsson var frumflutt í samsæti til heiðurs Þorgeiri Guðmundssyni í Kaupmannahöfn. 26.
Meira
Alexander Magnússon, leikmaður knattspyrnuliðs Grindavíkur, fór í speglun á hné í gær og því tvísýnt um hvort hann getur beitt sér þegar Pepsi-deildin hefst hinn 6. maí. „Ég veit ekki hversu lengi ég verð frá og það á eftir að koma í ljós.
Meira
Ólafur Stefánsson, leikmaður danska meistaraliðsins AG Köbenhavn, meiddist í fyrri leik liðsins á móti Evrópumeisturum Barcelona um síðustu helgi þar sem AG vann sex marka sigur í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Meira
Eyjólfur Héðinsson skoraði eitt mark og lagði annað upp fyrir SönderjyskE sem sigraði meistarana í FC Köbenhavn, 4:3, í seinni leik liðanna í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær.
Meira
Björn Bergmann Sigurðarson , framherji Lilleström og 21 árs landsliðsins í knattspyrnu, var í gær orðaður við þrjú ensk úrvalsdeildarlið, Everton, Sunderland og Reading.
Meira
Helena Sverrisdóttir varð í gærkvöld slóvakískur meistari í körfuknattleik með liði sínu Good Angels Kosice þegar það vann MBK Ruzomberok, 72:41, í þriðja úrslitaleik liðanna.
Meira
Hrannar Hólm varð í gærkvöld danskur meistari í körfuknattleik kvenna þegar lið SISU, undir hans stjórn, vann Horsholm í oddaleik um meistaratitilinn. SISU vann mjög afgerandi sigur, 69:45, á heimavelli og hafði þar með betur í einvíginu, 3:2.
Meira
Konráð Olavsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, hefur tímabundið tekið við þjálfun meistaraflokks karla í handknattleik hjá Stjörnunni af Roland Val Eradze.
Meira
Íshokkí Kristján Jónsson kris@mbl.is Líklega má halda því fram með nokkurri vissu að Björn Róbert Sigurðarson, úr Skautafélagi Reykjavíkur, sé í hópi efnilegustu íshokkímanna sem fram hafa komið hérlendis.
Meira
NBA-deildin Atlanta – LA Clippers 109:102 Boston – Miami 78:66 Oklahoma – Sacramento 118:110 Utah – Phoenix 100:88 Golden State – New Orleans 81:83 *Utah tryggði sér áttunda og síðasta sætið í úrslitum Vesturdeildar.
Meira
Á Akureyri Andri Yrkill Valsson sport@mbl.is Það voru niðurdregnir leikmenn Akureyrar sem gengu af velli og áleiðis í sumarfrí eftir að hafa tapað fjórða leiknum í viðureigninni við FH, og einvíginu samtals 3:1.
Meira
Íþróttasíður spænsku blaðanna í gær voru að vonum uppfullar af falli Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona út úr Meistaradeildinni en Börsungar fóru illa að ráði sínu gegn 10 leikmönnum Chelsea á Nývangi í fyrrakvöld.
Meira
Fótbolti Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Bayern München er á leiðinni í sinn níunda úrslitaleik um Evrópumeistaratitilinn í knattspyrnu eftir dramatískan sigur á Real Madrid í vítaspyrnukeppni á Santiago Bernabéu í Madríd í gærkvöld.
Meira
Samskip hafa fest kaup á gámaflutningaskipunum Arnarfelli og Helgafelli, sem raunar hafa verið í siglingum fyrir félagið milli Íslands og Evrópuhafna frá ársbyrjun 2005.
Meira
Skemmtileg verkefni eru framundan hjá Bernharði Wilkinson hljómsveitarstjóra. Á laugardag stýrir hann barnastund hjá Sinfó, Úti i nátturunni, þar sem leikin verða verk eftir tónskáld á borð við Vivaldi og Beethoven.
Meira
Margir Íslendingar, ekki síst iðnaðarmenn, eyða flestum þeim stundum sem þeir eru undir stýri á sendibílum. Einna algengastir slíkra bíla eru smærri gerðir þeirra og þeirra vinsælastir hér á landi líklega Volkswagen Caddy og Renault Kangoo.
Meira
Um leið og hlýna fer í veðri á vorin eykst áhugi fólks á því að fara út að vinna í garðinum. Þegar aðeins er farið að grænka og hitastigið nálgast tíu stigin lifnar yfir öllu.
Meira
Fimmtudagur Seven Pounds með Will Smith er lunkin mynd sem kemur á óvart um mann sem ákveður að breyta lífi sjö ókunnugra einstaklinga til hins betra. Sýnd á Stöð 2...
Meira
Þáttaserían Höllin hefur verið til sýninga á RÚV í vetur. Almennt hefur pistlahöfundur ekki oft tíma til að fylgjast með þáttum sem þessum, en Höllin hefur alveg fangað athyglina svo Hallarkvöldin eru algjörlega frátekin.
Meira
Ný kynslóð af söluhæsta bíl suðurkóreska framleiðandans, Kia Cee'd var afhjúpuð á Spáni í sl. viku og kynntu fulltrúar Öskju og blaðamenn sér bílinn við það tækifæri og reynsluóku. Von er á fyrstu eintökum af bílnum til Íslands snemmsumars.
Meira
Fyrsta starfið var í Skólagörðum Reykjavíkur í Laugardal. Í minningunni er alltaf sól og gróska. Þetta sumar var ég um tvítugt og var kölluð „konan“ þegar eitthvert barnið spurði. Það var mikil upphefð. Sigurborg Matthíasdóttir, rektor...
Meira
Öfugt við það sem áður var er þorskurinn nú vinsæll á borðum landsmanna enda bragðmeiri, þéttari í sér og skemmtilegri til matreiðslu en ýmsar aðrar fisktegundir. Þorskhnakkar eru mesta sælgæti og frábærir á grillið; þessi réttur svíkur aldrei.
Meira
Mikill fjöldi fólks var samankominn um síðustu helgi í húsakynnum Brimborgar. Þar fór fram árleg sýning á Ford Mustang-bílum landsins og mátti vafalaust telja hestöfl þeirra bíla sem þar voru saman komnir í tugþúsundum.
Meira
Office At-arkitektastofan hannaði afbragðsfallegt einbýli í Bangkok í Taílandi. Viður er áberandi í húsinu ásamt risastórum gluggum og stílhreinum innréttingum.
Meira
Tónlistarhátíðin Coachella hefur vaxið með hverju árinu síðan hún var fyrst haldin árið 1999 og frá og með árinu í ár nær hún yfir tvær helgar. Hátíðin beinir sjónum sínum einkum að jaðartónlist (e. alternative) og sneiðir hjá listapoppi og dægurflugum.
Meira
Þau eru ekki slorleg launin sem forstjórar stærstu bílafyrirtækjanna þiggja á ári hverju. Laun forstjóra Ford, Alan Mulally, hækkuðu um 11% á síðasta ári, fóru úr 26,5 í 29,5 milljónir dollara, eða 3,75 milljarða íslenskra króna.
Meira
Einn þekktasti vefur um bíla í heiminum, autoblog.com, greindi í á dögunum frá leiðangri á Suðurskautslandið þar sem notast var eingöngu við Toyota Hilux-bíla breytta af íslenska fyrirtækinu Arctic Trucks.
Meira
Gunnar Hansson fer með eitt aðalhlutverkanna í leikgerð metsölubókarinnar Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson en leikritið verður frumsýnt annað kvöld í Borgarleikhúsinu.
Meira
Vesturgata er lengsta gata Akranesbæjar og líkast til ein fárra á landinu þar sem sjór er fyrir báðum endum. Í suðri eru svonefndar Víkur, og Kalmansvík er við götuna norðanverða.
Meira
Bílaframleiðendur hafa átt erfitt með að framleiða bíla sem höfða til ungs fólk, sérstaklega 17-24 ára. Fólk á þeim aldrei virðist neita að láta flokka sig og enginn bíll virðist sérstaklega höfða til þess, skv. rannsóknum.
Meira
Þýski stjörnuleikarinn Daniel Brühl er aðdáandi Ferraribíla og búsettur í stælhverfinu Kreuzberg í Berlín. Hann segist þó alltof hræddur við bílabrennuvarga til að kaupa sér einn rauðan.
Meira
Volkswagen Caddy þykir kostabíll, enda rúmgóður og þægilegur. Iðnaðarmenn eru ánægðir. Hentar vel í bæjarsnatti. Sterkur og þolir álag vinnandi manna, segir í...
Meira
Meðal áhugamanna um kvikmyndir er til hugtak sem nefnist „sleeper“. Er þar átt við kvikmynd sem læðist hálfpartinn aftan að áhorfendum, spyrst vel út í kjölfar frumsýningar og fyrr en varir er myndin á hvers manns vörum. The Hangover er ekta dæmi um slíka mynd.
Meira
Með stærri fréttum vikunnar er án vafa salan á Actavis, en talið er að bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Watson Pharmaceuticals muni tilkynna um kaupin ef marka má fréttir fjölmargra fjölmiðla í gær ef ekki er þegar búið að því þegar þetta birtist.
Meira
Það er stundum erfitt að koma auga á hvar bankinn byrjar og ríkið endar þegar litið er til skuldakreppunnar á evrusvæðinu. Óvissa um raunverulega stöðu evrópska bankakerfisins hangir sem myllusteinn um háls skuldsettra ríkja myntbandalagsins.
Meira
Egill Ólafsson Börkur Gunnarsson Meginástæða þess að fjárfestingar sjávarútvegsins hafa minnkað úr 20 milljörðum í 4 milljarða á ári er óvissan sem greinin býr við, sagði Bjarni Benediktsson á fundi um opinberar fjárfestingar sem haldinn var af Samtökum...
Meira
Apple er að sprengja alla mælikvarða og hagnaður fyritækisins á fyrsta ársfjórðungi var mun meiri en búist hafði verið við og voru menn þó mjög bjartsýnir. Fyrirtækið tilkynnti um 11,6 milljarða dollara hagnað á fyrsta ársfjórðungnum.
Meira
• Kaaber-húsið hefur verið lagt undir mörg markaðsfyrirtæki • Framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Fíton sem er stjórnarmaður í þeim öllum er oft kallaður pabbinn • Með veltu upp á 2 milljarða á síðasta ári telur framkvæmdastjórinn að markaðurinn sé að taka við sér
Meira
Fyrsta skrefið verður að senda sjónauka út í geim til að skoða hvaða smástirni gætu verið heppileg til að grafa eftir sjaldgæfum málmum, segir Peter Diamandis einn stofnanda fyrirtækisins sem stefnir að því að hefja ferðalög út í geiminn til að grafa...
Meira
Sædís Íva Elíasdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Arion banka á Selfossi, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Arion banka. Sædís Íva mun jafnframt gegna stöðu svæðisstjóra Arion banka á Suðurlandi.
Meira
Hvað skyldi ráða mestu um það hvort við náum árangri í rekstri? Ætli það sé það sama og fær mesta athygli stjórnenda? Líklega ekki, ef marka má niðurstöður rannsókna um árangur fyrirtækja. Þær sýna að 10-30% fyrirtækja ná þeim árangri sem þau stefna að.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Allt er nú að komast á fleygiferð hjá Murr á Súðavik. Eftir áralanga þróunarvinnu og undirbúning er fyrsta stóra sendingin á Bandaríkja- og Kanadamarkað alveg að bresta á.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Neðst á Skólavörðustíg er að finna ísbúð með bráðskemmtilegt og óvenjulegt viðskiptamódel. Eldur og ís heitir ísbúðin sem er um leið kaffihús og upplýsingareitur fyrir ferðamenn.
Meira
Það var öldungis rétt hjá Vilmundi Jósefssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins að benda á það á aðalfundi fyrir skemmstu hvernig stjórnvöld haga sér, gagnvart okkur, eigendum lífeyrissjóða þessa lands, þegar þau reyna að seilast í sjóðina.
Meira
• Suður-Kóreumenn standa á öndinni út af fjölskyldustríði sem slær við sápuóperum • Ásakanir um græðgi og barnaskap ganga á báða bóga • Snýst um ítök í einu helsta fyrirtæki Suður-Kóreu • Samsung-fjölskyldunni líkt við Kim-fjölskylduna sem ræður ríkjum í Norður-Kóreu
Meira
Tap kanadíska álfyrirtækisins Century Aluminum, sem á meðal annars Norðurál, nam 3,9 milljónum dollara, 495 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi. Á fyrsta ársfjórðungi í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins 23 milljónum dala.
Meira
Hörður Ægisson hordur@mbl.is Eiginfjárhlutfall Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem er 55,25% í eigu ríkisins, er komið undir þau lágmörk sem Fjármálaeftirlitið hefur sett sjóðnum.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.