Rannsókn lagadeilda Stanford-háskóla og New York-háskóla bendir til þess að 474 til 880 óbreyttir borgarar hafi beðið bana í árásum mannlausra og fjarstýrðra flugvéla sem Bandaríkjaher hefur notað til að fella meinta hryðjuverkamenn í Pakistan frá júní...
Meira
Til átaka kom milli lögreglumanna og ungmenna í miðborg Aþenu í gær þegar efnt var til sólarhrings allsherjarverkfalls í Grikklandi til að mótmæla frekari sparnaðaraðgerðum stjórnarinnar til að uppfylla skilmála neyðarlána frá Evrópusambandinu og...
Meira
Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar og mun sækjast eftir þriðja sæti á listanum.
Meira
Auðkýfingur í Hong Kong, Cecil Chao, hefur lofað hverjum þeim karlmanni, sem vinnur ástir lesbískrar dóttur hans, verðlaun að andvirði rúmra átta milljarða króna.
Meira
„Þarna sé ég tvær á lífi,“ sagði Birgir Hauksson, bóndi á Hellu í Mývatnssveit, þegar mbl.is ræddi við hann í gær, en Birgir var þá ásamt konu sinni að leita að fé við Gæsafjöll, sunnan við Þeistareyki í S-Þingeyjarsýslu.
Meira
Fögur náttúra landsins heillar göngugarpa á haustin, hvort sem þeir vilja upp á hæstu tinda eða aðra viðráðanlegri. Esjan er sívinsæl til gönguferða enda falleg og mátulega aflíðandi, a.m.k. til að byrja...
Meira
Hörður Ægisson Helgi Vífill Júlíusson Félag undir stjórn Bakkavararbræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssonar, BV Finance, kom með 463 milljónir króna til landsins í júlí eftir að hafa farið í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans sem gefur fjárfestum kost á...
Meira
Opinn fundur verður á vegum Alþjóðamálastofnunar HÍ og franska sendiráðsins föstudaginn 28. september frá kl. 12 til 13 í stofu 201 í Odda. Dr. Joseph Maïla, yfirmaður stefnumótunar í franska utanríkisráðuneytinu, heldur erindi um átökin í Sýrlandi.
Meira
Fréttaskýring Kristján Jónsson kjon@mbl.is Hugmyndir um að færa miðstöð innanlandsflugs frá Reykjavík til Keflavíkur fá slæma útreið í nýrri skýrslu sem endurskoðunarfyrirtækið KPMG gerði fyrir nokkur sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins.
Meira
Í kjölfar dóms Hæstaréttar í gær þarf slitastjórn Glitnis að endurmeta kröfur í þrotabú Glitnis. Dómurinn snýst um skuldabréf Latabæjar en gæti haft áhrif á fleiri mál, að sögn Ragnheiðar M. Ólafsdóttur hrl., lögmanns mannsins.
Meira
Fræðst Flugminja- og búningasýning Icelandair Group, Flogið um öxl, var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Þar má m.a. sjá áhafnarbúninga frá því reglulegt áætlunarflug hófst á...
Meira
Tvö lægstu tilboðin í uppsteypu hjúkrunarheimilis á Nesvöllum í Reykjanesbæ og frágang utanhúss voru um 120 milljónum undir kostnaðaráætlun ráðgjafa. Tilboð ÍAV var 338 milljónir og Hjalti Guðmundsson bauð 345 milljónir.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Útgerðarmenn og sjómenn hittast á fundi hjá ríkissáttasemjara í næstu viku, en LÍÚ og Samtök atvinnulífsins vísuðu kjaradeilunni þangað í maímánuði.
Meira
Hús Sjávarklasans að Grandagarði 16 í Reykjavík var formlega opnað síðdegis í gær með því að Hafrún Dögg Hilmarsdóttir, nemi í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri, og Einar Pétur Eiríksson, nemi í Skipstjórnarskólanum, hringdu skipsbjöllu...
Meira
Íslandsmótið í kotru (backgammon) fer fram dagana 27.-30. september. Það hefst á undankeppni fimmtudaginn 27. sem fer fram í Hörpu og byrjar spilamennskan klukkan 18:30.
Meira
Kynningarvefur um þjóðaratkvæðagreiðsluna 20. október nk., um tillögur stjórnlagaráðs og tengt efni, hefur verið opnaður. Slóðin er www.thjodaratkvaedi.is.
Meira
„Það eru náttúrlega fyrst og fremst launin,“ sagði Edda Jörundsdóttir hjúkrunarfræðingur, aðspurð hvers vegna hún hefur sótt um hjúkrunarleyfi og störf í Noregi.
Meira
Líf styrktarfélag stendur fyrir dótasöfnun helgina 28.-30. september nk. Tilgangur söfnunarinnar er að efla starf félagsins svo því megi vera betur kleift að styðja við konur og börn á kvennadeild Landspítalans.
Meira
Íslenskir langhlauparar flykkjast til Berlínar því á sunnudag verður keppt þar í hinu árlega Berlínarmaraþoni. Tæplega 130 Íslendingar ætla að renna 42,2 km langt skeiðið. Felix Sigurðsson, hlaupaþálfari hjá ÍR, er einn þeirra sem munu hlaupa um...
Meira
David Miliband, fyrrv. utanríkisráðherra Bretlands, segir í samtali við Morgunblaðið að mörg ríki Evrópu hafi brennt sig á því að skera of mikið niður hjá hinu opinbera vegna evrukreppunnar samhliða umbótum í hagkerfinu.
Meira
Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Eiríkur Leifsson, framkvæmdastjóri knattspyrnuliðs Grindavíkur, lenti heldur betur í lukkupottinum í fyrradag þegar hann vann 60 milljónir króna í Happdrætti Háskóla Íslands.
Meira
Íslenskir hjúkrunarfræðingar eru eftirsóttir til starfa í Noregi og áhuginn er gagnkvæmur. Það leyndi sér ekki á kynningarfundi sem haldinn var í gær um möguleika á störfum þar ytra. Um 150 hjúkrunarfræðingar sóttu fundinn.
Meira
Hrannar Már S. Hafberg var í gær skipaður formaður rannsóknarnefndar um sparisjóði í stað Sigríðar Ingvarsdóttur héraðsdómara sem óskað hafði lausnar frá starfi, en hann hefur starfað fyrir rannsóknarnefndina undanfarið.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Nýr Álftanesvegur í gegnum Gálgahraun er fyrsta skrefið í að leggja allt hraunið undir malbik og byggð. Þetta segir Gunnsteinn Ólafsson, ármaður í samtökunum Hraunavinum sem berjast fyrir verndun hraunsins.
Meira
Kornslætti er að ljúka. Uppskera er almennt góð í uppsveitum Árnessýslu og kornið er sérstaklega vel þroskað. „Uppskeran er fín að meðaltali, ekki er hægt að kvarta undan henni. Akrarnir eru þó misjafnir.
Meira
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í gær að Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir yrði ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Inga Hrefna hefur frá árinu 2007 unnið á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll. Hún starfaði m.a.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Fátt bendir til þess að spennan í samskiptum Kínverja og Japana minnki á næstunni og fréttaskýrendur telja að stjórnvöld í Peking séu í gíslingu kínverskra þjóðernissinna í deilunni um átta óbyggðar eyjar í Austur-Kínahafi.
Meira
Alls sömdu 430 fyrirtæki og einstaklingar í atvinnurekstri við embætti tollstjóra um að skattskuldum þeirra yrði breytt í skuldabréf á grundvelli laga um tímabundið greiðsluuppgjör vegna vanskila á seinasta ári.
Meira
Útgerðarmenn hafa farið fram á breytingar á hlutaskiptum sjómanna vegna hækkunar á kostnaði, þar sem veiðigjöld vega þyngst. Sjómenn hafna þessum breytingum og segja himin og haf á milli deiluaðila.
Meira
Málverkið Bláufjöll eftir Júlíönu Sveinsdóttur var boðið upp hjá uppboðshaldaranum Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn í gær. Verkið seldist á 18 þúsund danskar krónur eða tæpar 390 þúsund íslenskar krónur. Bláufjöll er olíuverk málað á striga árið 1946.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Forseti Katalóníu, Artur Mas, sagði í gær að efna þyrfti til þjóðaratkvæðagreiðslu í sjálfstjórnarhéraðinu um hvort það ætti að lýsa yfir sjálfstæði, jafnvel þótt spænska stjórnin myndi ekki heimila atkvæðagreiðsluna.
Meira
Skúli Hansen skulih@mbl.is Vinstrihreyfingin - grænt framboð skilaði í gær ársreikningi sínum fyrir árið 2011. Samkvæmt reikningnum var hagnaður flokksskrifstofu VG fyrir árið 2011 rétt rúmar 25 milljónir íslenskra króna, fjórum milljónum meiri en 2010.
Meira
Líklegt þykir að örninn sem fannst særður og illa haldinn við sunnanvert Þingvallavatn á laugardag, hafi flækt gogginn í einhverju og hlotið áverka við að rífa sig lausan.
Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók eftir ökumanni sem ekki var með á nótunum þar sem hann var að lesa dagblað undir stýri. Á Facebook-síðu lögreglunnar í Reykjavík kemur fram að ökumaðurinn var nærri búinn að aka aftan á bifreið við lesturinn.
Meira
Um síðustu helgi voru handrit eftir Reyni Lyngdal, Friðrik Erlingsson, Börk Gunnarsson, Ásgrím Sverrisson og Martein Þórsson ásamt fleirum valin í handritasmiðju Kvikmyndamiðstöðvarinnar (KMÍ) og Sambands íslenskra kvikmyndaleikstjóra (SÍK).
Meira
Árni Samúelsson, forstjóri Sambíóanna, fékk 21. september sl. afhenta styttu af Walt Disney og Mikka Mús, í þakklætisskyni fyrir langt og gott samstarf við Disney-fyrirtækið.
Meira
Leikritið Á sama tíma að ári eftir Bernard Slade í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar og Bjarna Hauks Þórssonar verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins annað kvöld kl. 20.
Meira
Dýrð í dauðaþögn er fyrsta sólóbreiðskífa Ásgeirs Trausta Einarssonar. Ásgeir semur öll lögin á plötunni en um textagerð sjá þeir Einar Georg Einarsson, faðir Ásgeirs, og vinur Ásgeirs, Júlíus Aðalsteinn Róbertsson. Upptökustjóri er Guðmundur Kristinn Jónsson. Útgefandi, Sena 2012.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hljómsveitin Bodies, með þá bræður Micheal og Danny Pollock í fararbroddi, hefur gefið út nýja plötu sem ber heitið 30th Anniversary 1982-2012.
Meira
Heima í Basel og bar nefnist sýning á verkum Björns og Odds Roth sem opnuð verður í Kling & Bang-galleríi á Hverfisgötu 42 á laugardaginn, 29. september, kl. 17. „Á St.
Meira
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Opnunarmyndin á RIFF (Reykjavík International Film Festival) verður mynd hins hálfíslenska leikstjóra Sólveigar Anspach, Drottningin af Montreuil .
Meira
Fátt er betra en að vakna við ljúfa, lágstemmda og ráma rödd sem segir föðurlega: „Góðan daginn og velkomin í Morgunstund með KK.“ Þessi orð fullvissa mig um að góður dagur er í vændum sem ég verð ekki svikin af.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta er mjög tilfinningahlaðin plata. Hún er að mestu leyti instrúmental, en aðeins er sungið í einu lagi. Annars er röddin notuð meira sem áferð.
Meira
Íslenska kvikmyndafélagið, með Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp í fararbroddi, hefur keypt kvikmyndaréttinn að fyrstu skáldsögu Sólveigar Pálsdóttur, Leikaranum, sem er glæpasaga og kom út sl....
Meira
Ljósmyndum af Viðey var varpað á hús, veggi og ljósaskilti á Times Square í New York, á alþjóðlega friðardaginn sem haldinn var laugardaginn sl., 22. september.
Meira
Samband íslenskra myndlistarmanna, SÍM, býður til opnunarathafnar á veggverkinu „Ræktaðu garðinn“ eftir myndlistarmennina Söru Riel og Davíð Örn Halldórsson, í dag kl. 17.
Meira
Eftir Jörund Kristinsson: "Starfsskilyrði, kjör og aðstæður allar hér hafa breyst mjög til hins verra hin seinni ár og starf erlendis verður sífellt meira aðlaðandi kostur."
Meira
Eftir Adolf Árnason, Heiðar B. Hannesson, Hermund Guðsteinsson, Ívar Bjarka Hannesson og Magnús Ragnarsson: "Síðustu ár hefur fjársvelti og misskipting fjármagns til lögreglu komið illa niður á embættum lögreglustjóranna á Selfossi og Hvolsvelli..."
Meira
Reykfyllt bakherbergi hafa lengi haft illt orð á sér, en geta verið góð til síns brúks og sennilega nauðsynleg þeim sem ætla sér stóra hluti í pólitík.
Meira
Eftir Gísla Pál Pálsson: "Enn heiðarlegra og betra væri ef hann kæmi því á framfæri á alþjóðavettvangi að þessi leið var valin af Geir Haarde en ekki Vinstri-grænum."
Meira
Elísabet Einarsdóttir fæddist á Kárastöðum í Þingvallasveit 8. júní 1922. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk 17. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Halldórsson, bóndi og hreppstjóri á Kárastöðum, f. 18. nóv. 1883, d. 19. des.
MeiraKaupa minningabók
Fanney Elín Ásgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 23. nóvember 1967. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalands 17. september 2012. Faðir hennar er Ásgeir Hreindal Sigurðsson, f. 12.6. 1946, giftur Kristjönu Guðbjörgu Hávarðardóttur.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Ólafsdóttir fæddist á Útskálum í Garði 25. apríl árið 1924, næstelst fimm systkina. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 22. september 2012.
MeiraKaupa minningabók
Nanna Sigfúsdóttir fæddist í Hvammi í Þistilfirði 22. nóvember 1940. Hún lést á heimili sínu Höfðabraut 5, Akranesi 18. september 2012. Foreldrar hennar voru Margrét Jensína Magnúsdóttir, f. 8. september 1904, d. 17.
MeiraKaupa minningabók
Sigtryggur Helgason fæddist í Vestmannaeyjum 5. október 1930. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 14. september síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Helga Benediktssonar, kaupmanns og útvegsbónda í Vestmannaeyjum, f. 3.12. 1899, d. 8.4.
MeiraKaupa minningabók
Fjarðarkaup Gildir 27.-29. september verð nú áður mælie. verð Svínakótelettur úr kjötborði 1.198 1.598 1.198 kr. kg Lambahjörtu úr kjötborði 298 335 298 kr. kg Lambalifur úr kjötborði 298 320 298 kr. kg Fjallal. af nýslátr. lambalæri, frosið 1.198 1.
Meira
Á vefsíðunni www.klfoodblog.com/er að finna margar góðar uppskriftir, t.d. að dálítið haustlegum súpum sem hægt er að eiga í ísskápnum í nokkra daga. Slíkt er bæði hagkvæmt og þægilegt enda gott að geta sleppt eldamennskunni stundum.
Meira
Nú stendur vínuppskeran sem hæst víða í Evrópu og í hinni rómantísku París vinna sjálfboðaliðar hörðum höndum að því að tína vínber á Montmartre- vínekrunni. En hún er rétt við hliðina á Sacre Coeur-kirkjunni.
Meira
Bjarni Harðarson hefur undanfarna þrjá áratugi spurst fyrir um kotbóndann Mensalder Raben Mensaldersson sem fæddist í Ásahreppi undir lok nítjándu aldar. Nú hefur hann sent frá sér söguna af Mensa sem er ástarsaga en líka saga hins fátæka Íslendings.
Meira
Nú er í sýningu í myndasal Þjóðminjasafnsins heimildamyndin Björgunarafrekið við Látrabjarg. Í desember 1947 strandaði breski togarinn Dhoon í aftakaveðri við Látrabjarg.
Meira
Ljósmyndarinn Mats Wibe Lund er landsmönnum að góðu kunnur fyrir loftljósmyndir sínar af landslagi og átthögum. Á sýningunni Mats 1956-1978 er sjónum beint að fyrri hluta ferils hans.
Meira
Séra Hjálmar Jónsson slær á létta strengi á fésbókarsíðu sinni: Haustið blæs um hlíð og nes, hrím er á sálarglugga og fósturlandsins freyja les 50 gráa skugga.
Meira
Minningarmót í Gullsmára hálfnað 23. september var spilaður tvímenningur á 16 borðum. Þá unnu Sigurður Njálsson og Pétur Jónsson það óvenjulega afrek að ná rúmlega 74%.
Meira
Fyrrverandi markvörður KR og íslenska landsliðsins, Sigríður Fanney Pálsdóttir, fagnar fertugsafmæli sínu í dag. „Ég mun eyða fyrri hluta afmælisdagsins heima með stelpunum mínum þremur.
Meira
30 ára Margrét lauk MS-prófi í lögfræði og er lögfræðingur hjá Teikn. Maki: Reynir Albert Þórólfsson, f. 1981, kynningarstjóri hjá Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri. Börn: Sunna Mekkín, f. 2003; Helgi Hrafn, f. 2009, og Baltasar Bassi, f. 2010.
Meira
Ávallt þýðir „alltaf“ en ávalt (kk. ávalur) þýðir „kúpt“: Hvað sem stöðlum Evrópusambandsins, beinum banönum og teningslaga tómötum líður krefjumst vér þess að hænuegg verði ávallt ávalt í báða...
Meira
Akureyri Egill Máni fæddist 6. desember kl. 5.13. Hann vó 4.100 g og var 53,5 cm langur. Foreldrar hans eru Hafdís Bára Óskarsdóttir og Björgvin Helgi...
Meira
30 ára Sigrún ólst upp á Hríshóli , lauk stúdentsprófi frá Borgarholtsskóla og er þjónstufulltrúi hjá bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar. Börn: Aþena Rán, f. 2007, og Adríel Rafn, f. 2010. Foreldrar: Elsa Guðlaug Geirsdóttir, f.
Meira
95 ára Sólveig Sæmundsdóttir 85 ára Ásta Stefánsdóttir Bragi Sigurðsson Erla Magnúsdóttir 80 ára Gylfi Guðmundsson Katrín Árnadóttir Magnús Sveinsson Nína Jenný Kristjánsdóttir Þuríður Gísladóttir 75 ára Dóra M.
Meira
30 ára Tómas ólst upp á Rútsstöðum, lauk prófum í húsasmíði við VMA og er húsasmiður á Akureyri. Maki: Guðrún Linda Guðmundsdóttir, f. 1983, iðjuþjálfi. Synir: Steindór Ingi, f. 2007, og Kristdór Helgi, f. 2010. Foreldrar: Birgit Margrét Hjaltason, f.
Meira
Víkverji á það til að veðja á rangan hest og þarf fyrir vikið að þola langar eyðimerkurgöngur. Þetta hefur hann iðulega gert í vali á íþróttaliðum til að styðja. Leeds United er gott dæmi um það.
Meira
27. september 1906 Á fundi í Stúdentafélagi Reykjavíkur sýndi Matthías Þórðarson, síðar þjóðminjavörður, fánahugmynd sína, hvítan kross á bláum feldi með rauðum krossi innan í hvíta krossinum. Áttu litirnir að tákna fjallablámann, ísinn og eldinn.
Meira
Þorsteinn Erlingsson skáld fæddist á Stórumörk undir Eyjafjöllum 27.9. 1858 en ólst upp í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð eins og segir í kvæðinu sem svo oft er sungið á mannamótum.
Meira
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék ekki eins vel á öðrum hringnum, á 1. stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi, í gær eins og hann gerði á fyrsta hringnum. Birgir lék á tveimur höggum yfir pari og er þá samtals á höggi yfir pari.
Meira
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eitt mark og lagði upp annað þegar Tottenham hafði betur gegn C-deildarliðinu Carlisle, 3:0 á útivelli í 32-liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í gær.
Meira
í mýrinni Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Eyjakonur sýndu það í Mýrinni í gær, með 26:21 sigri, að þó að leikmannahópur þeirra sé ekki breiður þá er liðið gott og fáeinum skrefum á undan Stjörnunni nú í upphafi leiktíðar N1-deildarinnar í...
Meira
Indriði Áki Þorláksson, knattspyrnumaðurinn ungi og stórefnilegi hjá Val, er farinn að vekja áhuga marga erlendra liða enda hefur pilturinn slegið í gegn með Valsmönnum síðustu vikurnar.
Meira
Meistaradeild Evrópu 32-liða úrslit, fyrri leikur: Stjarnan – Zorkij 0:0 England Deildabikarinn, 2. umferð: Carlisle – Tottenham 0:3 Jan Vertonghen 37., Andros Townsend 53., Gylfi Þór 88. • Gylfi Þór Sigurðsson lék allan tímann.
Meira
Íslenska kvennalandsliðið í golfi hóf í morgun keppni á heimsmeistaramóti áhugamanna en mótið fer fram í Antalya í Tyrklandi. Mótið er liðakeppni þar sem hver þjóð sendir þrjá kylfinga til keppni.
Meira
Þrátt fyrir að Orkuveitu Reykjavíkur hafi tekist að færa til hluta þeirra afborgana af lánum sem falla til á næsta ári þarf fyrirtækið að greiða 25 milljarða í afborganir langtímalána á næsta ári.
Meira
Hvort sem fólki líkar það betur eða verr, eru auðmenn afskaplega heppilegir til að standa í fjárfestingum. Þeir eiga nefnilega peninga – og peningar leika lykilhlutverk í fjárfestingum. Og fjárfestingar eru mikilvægar til að efla land og þjóð.
Meira
• Vitundarvakning að eiga sér stað í íslensku atvinnulífi um mikilvægi vandaðrar gagnavörslu • Fyrirtæki eru að reka sig í auknum mæli á að starfsmenn geta ekki haft uppi á þeim gögnum sem þá vantar • Fyrirtækin ættu að einbeita sér að sínu og fá sérfræðinga til að sjá um gögnin
Meira
Fréttaskýring Kristján Torfi Einarsson kristjantorfi@gmail.com Ýmis teikn eru uppi um að þrýstingur til lækkunar á heimsmarkaðsverði á þorski muni aukast á næstu misserum, að mati greiningardeildar ráðgjafarfyrirtækisins Markó Partners.
Meira
Evrópuþingið vill að séð verði til þess að konur verði á meðal fulltrúa ríkja Evrópusambandsins í bankaráði Evrópska seðlabankans. Þetta kemur fram í frétt Reuters.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Veturinn hefur farið ágætlega af stað hjá Bóksölu Stúdenta. Reinharð Reinharðsson bóksali segir söluna í ágúst og september svipaða og á síðasta ári.
Meira
Leitarvélarrisinn bandaríski náði nýjum áfanga í vikunni með því að verða fimmta verðmætasta fyrirtækið á bandríska hlutabréfamarkaðinum. Wall Street Journal segir hlutabréf í Google hafa dafnað mjög vel frá því um mitt sumar þegar fyrirtækið var í 10.
Meira
Hagar högnuðust um 1,5 milljarða króna frá mars fram til ágúst, sem er betri afkoma en á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Ástæða betri afkomu er lægra kostnaðarhlutfall, betri framlegð og lægri afskriftir.
Meira
Lausnin skal byggð á sameiginlegum hagsmunum þar sem kröfuhafar koma einnig að borðinu og slaki á sínum kröfum. Gerist það ekki er nauðsynlegt að sýna fyllstu hörku.
Meira
• Þekktir fjárfestar, sem eiga að baki stór gjaldþrot, hafa komið með umtalsvert fé til landsins í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans • Geta keypt krónur fyrir gjaldeyri með 20% afslætti • Samtals hafa um 55 milljarðar komið í gegnum...
Meira
Icelandair hefur tilkynnt stofnun fjárfestingasjóðs sem mun fjárfesta í spennandi verkefnum í ferðaþjónustu sem auka upplifun ferðamannsins. Þetta kom fram í máli Björgólfs Jóhannssonar, forstjóra félagsins, á afmælisráðstefnu Icelandair í fyrradag.
Meira
Á fundi forsætisnefndar Alþingis í dag greindi forseti Alþingis frá því að hann hefði skipað Hrannar Má S. Hafberg lögfræðing sem formann rannsóknarnefndar um sparisjóðina.
Meira
• Svissneskir bankamenn segja erlent fé streyma af svissneskum bankareikningum • Þáttur banka í svissneska hagkerfinu iðulega ofmetinn • Viðskiptafræðiprófessor segir velmegunina góðu fyrirkomulagi stjórnmála og litlum og meðalstórum fyrirtækjum að þakka
Meira
Það er allt lagt undir þegar lið Bandaríkjanna og Evrópu eigast við og keppa um Ryder-bikarinn og vissara að bera tilhlýðilega virðingu fyrir sportinu og mótleikurum.
Meira
Stærsta breytingin sem gerð hefur verið á keppninni um Ryder-bikarinn var gerð árið 1979. Þá sendi Evrópa í fyrsta skipti lið til leiks til að keppa á móti Bandaríkjamönnum og við það varð keppnin mun jafnari.
Meira
Núverandi liðsstjóri Ryder-liðs Evrópu, Jose Maria Olazabal, kom við sögu í frægu atviki sem átti sér stað þegar keppnin var haldin árið 1999 á Brookline-vellinum í Massachusetts í Bandaríkjunum.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.