Það verður til þess að krafan um að ríkisvæða stjórnmálaflokka fer ört vaxandi og er sá þáttur kominn langt út fyrir öll heilbrigð mörk. Ríkisreknir stjórnmálaflokkar eins og þeir íslensku eru að þróast í að rísa ekki endilega undir því mikið lengur að teljast lýðræðislegt fyrirbæri.
Meira
Öll dreymir okkur um að synda með höfrungum. Eða hvað? Það er alltént eitt af vinsælustu atriðunum á svokölluðum bucket-listum sem fólk keppist við að setja saman víðsvegar um heim.
Meira
Gifsafsteypur af Íslendingum í geymslum í París og Las Palmas og lífsýni tugþúsunda Íslendinga í geymslum Háskóla Íslands eru efniviður sýningar Ólafar Nordal í Listasafni Íslands. Karl Blöndal kbl@mbl.is
Meira
Herði Ágústssyni eiganda Macland finnst hann nakinn þegar iPhoninn er ekki með í för. Þrátt fyrir að hann sé hlutdrægur deila eflaust margir tilfinningunni. Apple Maps telur hann hrikaleg mistök Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is
Meira
Þetta nýja bjöllulaga ljós frá hinu þekkta danska hönnunarfyrirtæki Normann Copenhagen hefur fengið góðar viðtökur og er sem stendur uppselt á heimasíðu fyrirtækisins.
Meira
Rúmlega 2,5 milljónir króna söfnuðust í átaksverkefninu Út að borða fyrir börnin sem fór fram fyrr á árinu á þrettán veitingastöðum. Verkefnið var til styrktar Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.
Meira
Þegar siglt er inn til Þórshafnar í Færeyjum er staðurinn ekki ólíkur Hafnarfirði að sjá. Bærinn er í eins konar skel og milli kletta, þar sem elstu húsin eru niðri við fjöru. Þaðan teygir byggðin sig upp brekkurnar.
Meira
Á nýliðinni tískuviku í Mílanó mátti sjá stóra skartgripi sem eru ekki fyrir neinar veggjatítlur. Þessir skartgripir eru mjög áberandi og til viðbótar voru þeir oftar en ekki notaðir við litríkan klæðnað.
Meira
Þar sem ég sat alveg sultuslök á biðstofu um daginn og blaðaði í bók um konur frá ýmsum tímabilum mannkynssögunnar sem hafa verið öðrum konum fyrirmyndir á margvíslegum sviðum, þá heillaðist ég svo upp úr skónum að ég heyrði ekki þegar nafnið mitt var...
Meira
Allt er opið upp á gátt í formannsslagnum innan Samfylkingarinnar eftir að Jóhanna Sigurðardóttir tilkynnti að hún gæfi ekki kost á sér. Útlit er fyrir að tónninn verði gefinn í prófkjörum í nóvember. Þar eru margir kallaðir.
Meira
Nokkur dæmi eru um að koffíninnihald hafi aukist mikið í orkudrykkjum, einkum síðan takmörkunum var aflétt 2008. Dæmi eru um orkudrykki sem innihalda um 80 mg af koffíni í hverri 250 ml dós. Börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæm fyrir koffíni Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is
Meira
„Fyrst og fremst geri ég ekki leiðinlegar myndir,“ segir danski leikstjórinn Susanne Bier um myndir sínar. Hægt er að mæla með þeim en Hárlausi hárskerinn verður sýndur 29. september í Háskólabíó klukkan 20.00 og 1. október klukkan 22.45.
Meira
Dadi Janki er 96 ára gömul og ein þekktasta kona heims á sviði andlegra mála. Aldurinn stöðvar hana ekki í því ferðast um heiminn til að deila andlegri reynslu sinni með öðrum. Hún var nýlega hér á landi. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Meira
Hvers vegna takast enskir miðvellingar, eins og Jonjo Shelvey, gjarnan á loft áður en þeir fara í tæklingar? Eru tilþrif af því tagi e.t.v. tímaskekkja?
Meira
Flótti af Facebook Líklega bar það helst til tíðinda á Facebook í vikunni að skyndilega fóru notendur að hverfa og loka aðgangi sínum. Ástæðan var sá orðrómur að einkaskilaboð væru tekin að birtast fyrir allra augum á tímalínum.
Meira
Ég hóf ferilinn ellefu ára í niðursuðu HB á Akranesi. Var fljótt rekinn af verksmiðjustjóra sem tók reglur um vinnutíma barna helst til alvarlega. Enda hringdi hann í mig fáeinum dögum síðar og sagði mér að mæta hið snarasta.
Meira
Pallíettur hér og pallíettur þar. Bíddu, er kominn desember? Silfurlitaðar buxur, Chanel-jakkar með silfurþræði og risavaxnir glitrandi skyrtukragar setja svip sinn á hausttískuna.
Meira
Hanna María Kristjánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Þekkingarseturs Suðurnesja í Sandgerði. Meginhlutverk setursins, sem var stofnað í apríl sl.
Meira
Homeland fór heim með feitustu bitana af Emmy-hátíðinni. Þeir sem ekki hafa séð fyrstu þáttaröðina hafa viku til að vinna það upp áður en önnur þáttaröð hefst á Stöð 2
Meira
Það er engin lognmolla í kringum Unni Eir Arnardóttur, flugfreyju og fallhlífarstökkvara. Hún segir tilfinninguna við að láta sig falla úr 10 þúsund feta hæð engri líka. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Meira
Að grípa með sér óholla skyndibita og gosdrykki í amstri dagsins er algengt í lífi vinnualkans. Auðvelt er að kenna löngum vinnudegi um en eftirfarandi ráð gætu reynst vel: Athugaðu á mánudagsmorgni hvað þú getur haft með þér hollt í vinnuna.
Meira
Ekki er minni áhugi á iPhone 5 hér á landi en erlendis eins og kom í ljós þegar Nova flutti inn slatta af símum og mokaði þeim út. Það kemur ekki á óvart í ljósi þess hann er langbesti sími sem Apple hefur sent frá sér.
Meira
Í nóvember 1975 sigldi Skúlaskeið, ferjubátur Hafsteins Sveinssonar, í kröppum sjó úr Reykjavíkurhöfn og út á sundin. Um borð var líkkista Gunnars Gunarssonar rithöfundar og nú var stefnt í lokahöfn.
Meira
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir matreiðslumaður sérhæfði sig á sínum tíma í bakstri og kökuskreytingum en býr í dag til dýrindis hollusturétti og kennir öðrum.
Meira
Skóhönnuðurinn Tanya Heath vill sanna að konur geti verið í skóm með hælum án þess að skemma í sér fæturna og svar hennar við ofurháum hælum eru skór sem hægt er að skipta um hæl á.
Meira
Júlíus G. Ingason hefur tekið við sem ritstjóri vikublaðsins Frétta í Vestmannaeyjum. Ómar Garðarsson, sem hefur ritstýrt blaðinu í um 20 ár og starfað þar enn lengur, átti frumkvæðið að breytingunum.
Meira
Ýmsar hugmyndir kvikna í fæðingarorlofi. Guðrúnu Stefánsdóttur fannst vanta barnamat úr íslensku grænmeti í hillur verslana og hefur nú bætt úr því í samstarfi við Þórdísi Jóhannsdóttur og Sölufélag garðyrkjumanna Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir krossgátu vikunnar. Senda skal þátttökuseðilinn í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 29. september rennur út á hádegi 5. október.
Meira
Fjölbreytt heimaræktun, landnámshænur og metanbíll; allt stuðlar þetta að hagkvæmni í heimilishaldinu hjá Svövu og Kristmundi. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Meira
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, hagfræðingur og fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, er flutt heim til Íslands ásamt manni sínum Helga Má Magnússyni eftir búsetu í Svíþjóð.
Meira
Ólafur Darri Ólafsson leikari hefur gert samning við bandaríska umboðsskrifstofu. Deadline.com, ein aðalfréttasíða kvikmyndasíða vestanhafs, greinir frá þessu í gær. Umboðsskrifstofan er APA, Agency for performing arts.
Meira
Eftir því sem olíuverð helst hátt hefur þeim fjölgað sem hafa látið breyta bílum sínum svo að þeir gangi einnig fyrir metangasi. Er gasið bæði ódýrara per einingu en olía og orkan umhverfisvæn. Þá greiða eigendur metanbíla lægri bifreiðagjöld.
Meira
RÚV kl. 20.40 Michael Douglas fer fyrir liði fótafimra leikara í hinni sígildu dansmynd A Chorus Line frá árinu 1985 í leikstjórn Richards Attenboroughs. STÖÐ 2 kl. 19.
Meira
Thelma Björk Friðriksdóttir innanhússarkitekt uppfærði hús á Álftanesi í takt við nýja tíma og breyttar þarfir fjölskyldunnar. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Meira
Kolfinna Kristófersdóttir hefur unnið sigra í tískuheiminum sem fyrirsætur leyfa sér að dreyma um. Kolfinna er Vestmanneyingur sem þekkti hvorki haus né sporð á tískuheiminum þegar hún var uppgötvuð, þá krúnurökuð í vinnunni. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Meira
Á sunnudaginn, 30. september, mun Marjane Satrapi, rithöfundur og leikstjóri, hafa umræðufund um list sína á Sólon klukkan 16.30 og mun hann standa til klukkan 18.00.
Meira
Hvað? Pláneturnar eftir Holst. Hvar? Harpa. Hvenær? 30. september kl. 14. Nánar Ungsveit Sinfóníunnar. Leikföng fyrir nýja félaga Hvað? Dótabasar Hvar? Suðurlandsbraut 24. Hvenær? kl. 11-18. Nánar Notuð leikföng til sölu til styrktar Líf styrktarfélagi.
Meira
Rás 1 Sunnudagur kl. 10.15 Lesið er úr ljóðum Walts Whitmans í þýðingum Hallbergs Hallmundssonar. Umsjón með þættinum er í höndum Árna Blandon og lesari er Sigurður...
Meira
Arkitektarnir Árný Þórarinsdóttir og Helga G. Vilmundardóttir hafa unnið saman frá því í október 2008 undir nafninu Stáss og fengist við sérlega fjölbreytt verkefni. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Meira
Hver hefði trúað því að hægt væri að gera litla og sæta heimildarmynd um sjötugar vændiskonur sem hafa verið í bransanum í fimmtíu ár. Rob Schröder og Gabriëlle Provaas virðist hafa tekist það með Meet the Fokkens ef marka má gagnrýni um hana á netinu. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Meira
Kunngjört var fyrir helgi að Des Moines-sveitin goðsagnakennda Slipknot verði aðalnúmerið á stærstu málmhátíð heims, Download-hátíðinni við Doningotn-kastala í Englandi, föstudaginn 14. júní á næsta ári.
Meira
Hún lætur finna til sín, svona eins og kóngafólk gerir, fjöldinn er ef til vill ekki mikilll eða um 800 þúsund manns, en hún er smart og stemmningin fín. Unnur H. Jóhannsdóttir
Meira
Í gær, föstudag, var opnuð ný 1.100 fermetra verslun Húsasmiðjunnar og Blómavals í Vestmannaeyjum. Verslunin er í nýju húsi, sem byggt hefur verið sérstaklega fyrir Húsasmiðjuna, á Græðisbraut 1.
Meira
Stöð 2 Laugardagur kl. 12 Fyrir þá sem ekki hafa tíma til að horfa á daglegu sápuóperuna Glæstar vonir (Bold and the Beautiful) á virkum dögum er hægt að leggjast í sófann á hádegi á laugardag og fá vikuskammt af...
Meira
Brauðgerðin í Grímsbæ hóf starfsemi fyrir 40 árum og hafa bakarasynirnir Sigfús og Guðmundur verið viðloðandi starfsemina frá upphafi. Þeir auglýsa sig ekki en afspurn og notkun súrdeigs við brauðgerð laðar að viðskiptavini sem halda tryggð við bakaríið. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is
Meira
Helmut Kohl er bundinn við hjólastól og má vart mæla. Seinni eiginkona hans liggur undir ámæli fyrir að einangra mann sinn. Kanslarinn fyrrverandi segir hins vegar að án hennar væri hann ekki á lífi.
Meira
Helgi Þór Ingason, verkfræðingur og píanisti, heldur í kvöld, sunnudagskvöld, tónleika með frumsömdu efni. Minnst af því hefur heyrst opinberlega áður. Textarnir eru að mestu eftir hann líka. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
TRYGGINGAR Kannaðu hjá tryggingafélaginu þínu a.m.k. árlega hvort þér bjóðist ekki betri kjör. Getur það margborgað sig, hafirðu verið skilvís greiðandi.
Meira
„Fólk vill fræðast og hverju samfélagi er mikilvægt að hafa aðgang að fjölbreyttum og skemmtilegum námskeiðum,“ segir Ásta Sölvadóttir í Garðabæ.
Meira
Margir huga þessa dagana að vetrarklæðum enda kólnar snarpt nú um stundir. Karlpeningur þessa lands er þar ekki undanskilinn. Tveir smekklegir menn segja frá stöðunni á fataskápnum þetta haustið. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Meira
Tvö fyrirtæki á Ísafirði fengu viðurkenningu Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi sem hélt umdæmisþing sitt vestra um sl. helgi. Slíkt þing eru haldin árlega og innan íslenska rótarýklúbbsins eru rúmlega 1.200 félagar í 31 klúbbi sem eru víðsvegar um landið.
Meira
Hjónin Þóra Sigurðardóttir og Völundur Snær Völundarson, sem framleiða matreiðsluþættina Delicious Iceland ásamt Gunnari Konráðssyni, íhuga nú að gera framhald af þáttunum sem sýndir hafa verið í meira en fjörutíu löndum en fjölmargar erlendar...
Meira
Breska blaðið The Guardian fullyrðir að Peter O'Toole, sem orðinn er áttræður, íhugi nú að taka að sér hlutverk í væntanlegri kvikmynd um Maríu guðsmóður í leikstjórn Ástralans Alisters Griersons.
Meira
Sunnudagblað morgunblaðsins fékk um fimmtíu álitsgjafa til að nefna til sögunnar þá matarrétti sem eru „þjóðarréttir“ í þeirra huga en yfirgnæfandi meirihluti þeirra var sammála um hver rétturinn gæti verið. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Meira
Stephan Schesch, framleiðandi og leikstjóri, og leikstjórinn Ulrike Ottinger halda fyrirlestra og málþing á Sóloni 2. október frá 16:00 til 17:30.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.