Baksvið Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fátt er eftir af minjum í höfuðborginni, sem minna á upphaflega hitaveitustokkinn úr Mosfellssveit til Reykjavíkur.
Meira
viðtal Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við höfum verið að fara yfir okkar verkferla og viðbragðsáætlanir en ekki náð að ljúka því. Það hefur hvert tekið við af öðru, fyrst þetta veður, síðan jarðskjálftar og óveðrið í síðustu viku.
Meira
Köku- og nytjabasar verður haldinn sunnudaginn 11. nóvember kl. 12 í safnaðarheimili Áskirkju við Vesturbrún. Á markaðnum verður ýmislegt á boðstólum, svo sem heimabakstur, notaður og nýr varningur. Jafnframt verður kaffisala. Allir eru...
Meira
Batteríið arkitektar í samstarfi við arkitektastofuna Link Arkitektur í Bergen í Noregi sigruðu í arkitektasamkeppni þriggja arkitektafyrirtækja um framtíðarsýn fyrir bæjarhlutann Fyllingsdalen í Bergen.
Meira
Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, hefur fyrirskipað bensínskömmtun en eldsneyti hefur verið af skornum skammti í borginni eftir að fellibylurinn Sandy gekk þar yfir fyrir skömmu.
Meira
Norðmaðurinn Anders Behring Breivik, sem fyrr á þessu ári var dæmdur til að minnsta kosti 21 árs fangelsisvistar fyrir að myrða 77 manns í Ósló og Útey á síðasta ári, segist búa við ómannúðlegar aðstæður í fangelsinu þar sem hann afplánar dóm sinn.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Veðurstofan gaf út stormviðvörun í gær og varaði við stormi, meðalvindhraða meiri en 20 m/s á vestan- og norðanverðu landinu í gær og um mestallt land síðustu nótt og fram eftir degi í dag. Óveður var víða í gær.
Meira
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur borist beiðni frá yfirmanni hjá heilbrigðis- og neytendavernd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) um að rannsakað verði hvort innflutningshömlur Íslands á kjöti og kjötafurðum frá ESB gangi lengra en 13. gr.
Meira
Viðtal Karl Blöndal kbl@mbl.is Mazen Maarouf rithöfundur er palestínskur flóttamaður, sem mestan hluta ævi sinnar hefur búið í Líbanon. Fjölskylda hans hrökklaðist frá heimkynnum sínum við stofnun Ísraelsríkis 1948. Nú er Mazen flóttamaður í Reykjavík.
Meira
Fílar á verndarsvæði í Udawalawe-þjóðgarðinum á Srí Lanka. Rannsókn, sem birt var nýlega, bendir til þess að rúmlega 7.300 fílar séu í landinu. Rannsókn, sem gerð var ári áður, benti til þess að þeir væru færri en 6.
Meira
Embættismenn Sameinuðu þjóðanna telja að rúmar fjórar milljónir Sýrlendinga þurfi á neyðaraðstoð að halda í byrjun næsta árs vegna stríðsins í Sýrlandi.
Meira
„Ég er náttúrlega fyrst og fremst landsbyggðar- og landbúnaðarmaður og hef ágæta þekkingu á þeim málaflokki og mun geta flutt hana með mér inn á þennan vettvang,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, spurður hvaða mál...
Meira
Átta lið úr framhaldsskólum landsins keppa til úrslita í Boxinu - framkvæmdakeppni framhaldsskólanna í dag, laugardag, í Háskólanum í Reykjavík. Keppninni var frestað um viku vegna óveðurs. Keppnin stendur yfir frá kl. 10.00-16.30.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Skiptar skoðanir eru um ágæti strandsiglinga og hvort ríkið eigi að niðurgreiða þær. Innanríkisráðherra boðaði nýlega á Alþingi að útboð færi fram fljótlega og að strandsiglingar gætu hafist næsta vor.
Meira
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fer fram í dag, laugardag. Kjörfundur hefst kl. 9.00 og honum lýkur kl. 18.00. Kosið er á sex stöðum í kjördæminu. Atkvæði í prófkjörinu verða talin í Lindaskóla í Kópavogi.
Meira
Mæðradagurinn hefur verið haldinn hátíðlega á Íslandi frá árinu 1934 en feðradagurinn er tiltölulega nýkominn fram á sjónarsviðið og var haldinn hátíðlegur fyrst á Íslandi árið 2006.
Meira
Kristniboðsdagur þjóðkirkjunnar er á morgun, sunnudaginn 11. nóvember. Biskup hvetur presta og starfsfólk safnaðanna til að minnast kristniboðsins í guðsþjónustum dagsins og taka samskot til þess.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sjálfseignarstofnun um Reykjanes jarðvang verður stofnuð í næstu viku og stefnt að umsókn um aðild að Evrópusamtökum jarðvanga í þessum mánuði.
Meira
Líklegt er að Kína fari fram úr Bandaríkjunum og verði stærsta hagkerfi heims eftir fjögur ár, að mati OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar.
Meira
Skúli Hansen skulih@mbl.is Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur borist beiðni þess efnis að stofnunin rannsaki hvort innflutningshömlur íslenskra stjórnvalda á kjöti, kjötafurðum og öðrum dýratengdum vörum frá ríkjum Evrópusambandsins gangi lengra en 13.
Meira
Dagskrá á vegum Listvinafélags Hveragerðis, sem frestað var vegna veðurs síðasta laugardag, verður haldin í dag, laugardaginn 10. nóvember, í Listasafni Árnesinga við Austurmörk. Dagskráin hefst kl. 13:00 og stendur í klukkustund.
Meira
Ráðstefnan Lýðræði á 21. öld verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, laugardaginn 10. nóvember, kl. 10-15. Þar verður fjallað um eflingu lýðræðis á Íslandi, þátttöku íbúa í fjárhagsáætlanagerð, íbúalýðræði í Reykjavík og barnalýðræði.
Meira
Lögreglumenn í Indónesíu, sem burðast með of mörg aukakíló, hafa verið skikkaðir til að fara í sérstakt líkamsræktarátak til að auka líkur á að þeir geti hlaupið uppi glæpamenn.
Meira
Viðtal Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það er klárt mál að allar afskriftir umfram það sem við erum þegar búnir að færa til bókar, þ.e. öll ný vanskil, munu væntanlega leiða til meiri útlánatapa.
Meira
Sunnudaginn 11. nóvember verður haldinn skemmtilegur handverksmarkaður í Víkinni Sjóminjasafni við Grandagarð milli kl. 11 og 17. Til sölu verður íslenskt handverk sem er tilvalið í jólapakkana. Margt verður gert til skemmtunar þennan dag.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Slitastjórn Glitnis hefur tilkynnt kröfuhöfum að frumvarp að nauðasamningi verði ekki lagt fram í desember nk. eins og stefnt var að.
Meira
Guðný Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörður segir það miður að ekkert sé eftir af upprunalega hitaveitustokknum í borgarlandinu. Sérstaklega sé eftirsjá að síðustu 30 metrunum, sem átti að varðveita í Öskjuhlíð en hurfu í lok 20. aldar.
Meira
Formleg opnun framhaldsdeildar á Hvammstanga fer fram mánudaginn 12. nóvember kl. 16.00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Þann dag verður einnig opið hús í húsakynnum deildarinnar, á neðri hæð félagsheimilisins kl. 16.00-18.00.
Meira
Mats Persson, forstöðumaður hugveitunnar Open Europe í Lundúnum, flytur fyrirlestur í boði Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt og Evrópuvaktarinnar, í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, mánudaginn 12. nóvember kl.
Meira
Öldrunarheimili Akureyrar brydda upp á þeirri nýjung að halda námskeið um kynlíf á öldrunarheimilum. Námskeið verður haldið mánudaginn 12. nóvember kl. 13-15 í samkomusalnum í Hlíð.
Meira
Baksvið Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Tólf einstaklingar létust í tólf umferðarslysum á Íslandi á síðasta ári samkvæmt nýútkominni ársskýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa. M.a.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hallgrímsdeild Prestafélags Íslands (PÍ) mótmælir harðlega breytingatillögu sem liggur fyrir kirkjuþingi, sem hefst í dag.
Meira
Slitnað hefur upp úr viðræðum milli ríkisstjórna Evrópusambandsríkjanna og Evrópuþingsins um fjárlög Evrópusambandisns fyrir næsta ár. Alain Lamassoure, formaður fjárlaganefndar Evrópuþingsins, skýrði frá þessu í gær.
Meira
Snjóflóð sem féll í Skagafirði, úr svonefndri Úlfskál í mynni Kolbeinsdals og Hjaltadals, bar með sér um 60 tonna stein sem stóð í um 160 metra hæð. Frá þessu er greint á fréttavefnum Feyki. Haft er eftir Þorvaldi G.
Meira
ÚR BÆJARLÍFINU Sigurður Ægisson Siglufjörður Á miðju sumri hófu þeir feðgar Hjalti Hafþórsson og Hafþór Rósmundsson að endursmíða svokallaðan Vatnsdalsbát frá 10. öld í gamla slippnum á Siglufirði. Verkið tók um 500 klukkustundir. Laugardaginn 13.
Meira
Magna Björk Ólafsdóttir sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi er á leið til Keníu þar sem hún mun næsta árið starfa við að stýra læknisþjónustu og samhæfa aðgerðir á hamfarasvæðum í Afríku. Hún heldur til Naíróbí í dag, laugardag.
Meira
Karlmaður fannst í gær látinn inni í embættisbústað Fredriks Reinfeldts, forsætisráðherra Svíþjóðar, í miðborg Stokkhólms. Að sögn lögreglu var maðurinn öryggisvörður, sem virðist hafa svipt sig lífi.
Meira
Yfirdýralæknir reiknar með að leggja til við ráðherra að nautgripir sem greinst hafa með smitandi barkabólgu verði felldir. Atvinnuvegaráðuneytið mun taka endanlega ákvörðun um aðgerðir.
Meira
Ósk Vilhjálmsdóttir tekur þátt í forvali Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmum fyrir alþingiskosningar 2013 og sækist eftir 6. sæti. Ósk er myndlistarmaður, leiðsögumaður og rekur fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Meira
Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kynnti í gær stærsta þróunarsamvinnuverkefni sem Íslendingar hafa tekið þátt í.
Meira
Kínverji hvílir lúin bein á Tiananmen-torgi í kínversku höfuðborginni Peking. Mikill öryggisviðbúnaður er í miðborg Peking vegna vikulangs flokksþings kommúnista sem hófst í Höll alþýðunnar í fyrradag.
Meira
Tvær íslenskar stúlkur, 18 ára gamlar, voru handteknar í Prag fyrr í vikunni fyrir að vera með fíkniefni í fórum sínum. Þetta staðfesti starfsmaður utanríkisráðuneytisins í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Tékkneski fréttavefurinn Idnes.
Meira
Sykursjúkur slóvenskur ferðamaður, sem kom til Íslands í atvinnuleit, hafði með í för insúlín sem dugði honum til 5-6 mánaða. Íslenska tollgæslan tók hins vegar af manninum allt insúlín sem var umfram það magn sem svarar til 100 daga notkunar.
Meira
Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað styrkti nýverið Nesskóla til kaupa á 11 bekkjarsettum af skjávörpum, hátölurum og öðrum búnaði sem þarf til uppsetningar. Félagið greiddi ennfremur fyrir alla uppsetningu.
Meira
Maður er eiginlega hættur að gera ráð fyrir að stjórnmálamenn viti hvað þeir eru að segja. Samt þætti manni betra að þeir væru ekki að skamma fólk úti í bæ að óþörfu og fullyrða að það sé ekki að vinna vinnuna sína.
Meira
Grafík og bókverk nefnist sýning á verkum Rögnu Hermannsdóttur sem Listasafnið á Akureyri opnar í Sjónlistamiðstöðinni í dag laugardaginn kl. 15.
Meira
Fjarlægð , einkasýning á verkum myndlistarmannsins Sigurðar Guðjónssonar, verður opnuð í dag kl. 17 í Kling & Bang galleríi, Hverfisgötu 42. Fjarlægð er önnur einkasýning Sigurðar hér á landi á árinu en sú fyrri var í haldin í Sverrissal Hafnarborgar.
Meira
Stuttmyndahátíðin Couch Fest verður haldin í fimmta sinn í dag í fjölda borga víða um heim og er Reykjavík ein þeirra. Af öðrum borgum má nefna Seattle í Bandaríkjunum, Melbourne í Ástralíu, Novi Sad í Serbíu og Katmandu í Nepal.
Meira
Sýning á verkum Þóru Bríetar Pétursdóttur stendur nú yfir í kaffihúsinu Energia í Smáralind og ber hún yfirskriftina Í móðu . Þóra er lærður textílhönnuður, sérhæfði sig í námi í fatasaum og útsaum.
Meira
Lifandi vatn er yfirskrift tónleika Kvennakórs Háskóla Íslands sem fram fara í Háteigskirkju á morgun kl. 16. Stjórnandi kórsins er Margrét Bóasdóttir, en kórinn stofnaði hún árið 2005. Á tónleikunum verður m.a.
Meira
Dimmbjartir staðir nefnist sýning á ljóðum Ísaks Harðarsonar, málverkum Jóns Stefánssonar og hljóðverki Sigrúnar Jónsdóttur sem sýnd er í Listasafni ASÍ um þessar mundir. Sýningarstjórar eru Steinunn G. Helgadóttir og Kristín G. Guðnadóttir.
Meira
Garðar Thór Cortes tenór heldur tónleika í Grafarvogskirkju 30. des. og í Hofi 5. jan. Sérstakir gestir verða faðir Garðars, Garðar Cortes, Valgerður Guðnadóttir og söngflokkurinn Mr. Norrington.
Meira
Hlynur Helgason opnar sýninguna Patagónía í Mjólkurbúðinni Listagili á Akureyri kl. 15. Sýningin samanstendur af gvassakvarellum, ljósmyndum, ljósmyndaskyggnum og myndbandsverki.
Meira
Hljómsveitin Gus Gus vinnur að nýrri plötu þessa dagana. En það er ekki það eina sem President Bongo eða Stephan Stephensen fæst við, því hann rekur eigin plötuútgáfu til hliðar, Radio Bongo. Hún hefur vefslóðina radiobongo.
Meira
Fítónblaðið er komið út, framúrstefnulegt tímarit sem auglýsingastofan Fítón gefur út árlega. Svo framúrstefnulegt er blaðið, að þar eru auglýsingaplaköt fyrir forsetakosningarnar 2016.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Titillinn Hylur fangar vel það streymi og kyrrð sem í tónlistinni er. Í ám er hylurinn staður þar sem dýpið er meira, straumurinn minnkar og tíminn stendur nánast í stað.
Meira
Birgir Gunnarsson, betur þekktur sem Biggi Gunn, heldur útgáfutónleika með hljómsveit Villa Guðjóns á Café Rosenberg í kvöld kl. 22 og er aðgangur ókeypis. Biggi Gunn sendi nýverið frá sér þriðju hljómplötu sína sem nefnist Eldur sem aldrei dvín .
Meira
Frá Ingva Rúnari Einarssyni: "Innstæða launþega í lífeyrissjóðum er innlögn þeirra til ávöxtunar og lífeyrir til efri áranna. Ávöxtun innstæðunnar á starfsævinni er mikil, er jafnvel talin vera 40-60%."
Meira
Eftir Vilhjálm Bjarnason: "Mín grundvallarskoðun er sú að hver einstaklingur eigi að búa við frelsi til orðs og athafna. Frelsið takmarkast alltaf við það að skaða ekki aðra."
Meira
Eftir Bjarna Randver Sigurvinsson og Pétur Pétursson: "Það sem þarf að koma fram í stjórnarskrá er gildi þjóðkirkju fyrir samfélagið og skylda ríkisvalds til að standa vörð um það gildi"
Meira
Heimsbyggðin veit að vinnan göfgar, og þarf svo sem ekki að fara mikið nánar út í þá sálma. Vinnan nær meira að segja stundum út yfir gröf og dauða. Eða svona næstum því. Þannig var að ég þurfti að kveðja gamlan vin minn á dögunum.
Meira
Eftir Ámunda Loftsson: "Það sem þó þarf skýringa við er sá mikli munur á texta stjórnarskrárinnar og þeim kenningum sem uppi eru um innihald hennar meðal fræðimanna."
Meira
Ég hef áður gert það að umtalsefni í þessum þáttum um tungutakið hve náið og eldheitt ástarsamband hefur tekist á milli rithöfunda margra og nafnorðanna, ekki síst höfunda fræðigreina og -bóka.
Meira
Tuttugasta öldin var öld sósíalismans í þremur ólíkum afbrigðum, þjóðernissósíalisma Hitlers og Mússólínis, byltingarsósíalisma Leníns, Stalíns og Maós og lýðræðissósíalisma ýmissa vestrænna jafnaðarmanna, til dæmis enska stjórnmálafræðingsins Harolds...
Meira
Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur: "Þegar sá listi liggur fyrir munum við standa sem ein órofa heild á bak við það fólk sem til forystu var valið."
Meira
Hvað kosta bókaauglýsingarnar í Kastljósi? Hvað ætli þeir borgi RÚV, útgefendur bókanna sem teknar eru til langrar umfjöllunar í Kastljósinu? Ef miðað er við það sem sekúndan í auglýsingatímunum kostar þá hljóta þær upphæðir að vera stjarnfræðilegar.
Meira
Eftir Kjartan Örn Sigurðsson: "Stjórnvöldum á að vera meira umhugað um störf og tekjuskatta sem þeim fylgja en skattlagningu á fjármagnstekjur og fyrirtæki."
Meira
Eftir Hafþór Sævarsson, Einar Örn Arnarson, Rögnu Björg Hafliðadóttur, Ívar Atlason, Höllu Margréti Viðarsdóttur, Eyþór Jónsson, Sigurbjörgu Stefánsdóttur, Kjartan Björnsson og Ingunni Helgadóttur: "Þetta vill segja á íslensku, að eigið féð er tapað, 4 milljónirnar; afborganirnar, 4,5 milljónir, voru til einskis, þetta eru samtals 8,5 milljónir."
Meira
Minningargreinar
10. nóvember 2012
| Minningargrein á mbl.is
| 880 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Einar Kr. Jónsson fæddist í Neðri-Hrepp í Skorradal 3. ágúst 1932. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 29. október 2012. Foreldrar hans voru Steinunn Ágústa Steindórsdóttir og Jón E. Jónsson, sem bæði eru látin.
MeiraKaupa minningabók
Hallfríður Margrét Magnúsdóttir fæddist í Hringverskoti í Ólafsfirði 21. ágúst 1922. Hún lést á heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar, Siglufirði, 27.október 2012. Foreldrar hennar voru hjónin Magnús Sigurður Sigurðsson, f .25. ágúst 1891, d. 26.
MeiraKaupa minningabók
Helga Pálsdóttir fæddist í Hnífsdal 19. september 1917. Hún andaðist á sjúkrahúsinu á Ísafirði 29. október 2012. Foreldrar hennar voru Páll Pálsson útvegsbóndi, f. 10. júlí 1883, d. 26. mars 1975, og Guðrún Guðríður Guðleifsdóttir húsmóðir, f. 4.
MeiraKaupa minningabók
10. nóvember 2012
| Minningargrein á mbl.is
| 1120 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Óskar Þórarinsson fæddist í Vestmannaeyjum 24. maí 1940. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 2. nóvember 2012. Foreldrar hans voru Elísabet Guðbjörnsdóttir, f. 14. október 1914, d. 2. júlí 1990 og Þórarinn Jóhann Anton Guðmundsson frá Háeyri,...
MeiraKaupa minningabók
Baksvið Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Skattayfirvöld í Bretlandi rannsaka stærsta banka landsins, HSBC, fyrir að hafa stofnað reikninga í skattaskjólinu Jersey fyrir glæpamenn.
Meira
Viðskipti með íbúðarhúsnæði eru ennþá að mestu milli einstaklinga og sveiflur í kaupum og sölum fyrirtækja á íbúðarhúsnæði hafa ekki verið miklar síðustu 6 árin.
Meira
Hagnaður þýska tryggingafyrirtækisins Allianz var sjöfalt meiri á þriðja fjórðungi þessa árs en árið á undan. Í fyrra þurfti Allianz að bókfæra mikið tap vegna afskrifta á grískum skuldabréfum.
Meira
Tekjur TM Software, sem leggur áherslu á þróun vef- og hugbúnaðarlausna, jukust um 28% á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra. TM Software er dótturfyrirtæki Nýherja.
Meira
Baksvið Hörður Ægisson hordur@mbl.is Skattahækkanir stjórnvalda frá árinu 2008 hafa numið tæplega 87 milljörðum króna eða sem samsvarar meira en einni milljón króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu.
Meira
Kaup Kvosar á Plastprenti af Framtakssjóði Íslands hafa verið samþykkt af Samkeppniseftirlitinu. Kaupin voru samþykkt með nokkrum skilyrðum sem lúta að rekstri fyrirtækjanna á umbúðamarkaði.
Meira
Mun færri þinglýstir leigusamningar voru gerðir í haust en í fyrrahaust. Miðað við síðustu 12 mánuði hefur húsaleigusamningum fækkað um 10% í samanburði við 12 mánuðina þar á undan. Þjóðskrá heldur utan um fjölda leigusamninga.
Meira
Ragna Sara Jónsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samfélagsábyrgðar hjá Landsvirkjun. Innleiðing stefnu fyrirtækisins á því sviði verður sérstakt forgangsverkefni hjá fyrirtækinu á næsta ári.
Meira
Það er ágætt að geta æft sig dálítið í Norðurlandamálunum og lesið áhugaverðar greinar um leið. Vefræna útgáfu af norska blaðinu Tara má finna á vefsíðunni tara.no og þar má nálgast greinar og fréttir úr ýmsum efnisflokkum.
Meira
Dans kallar fram gleði og auðveldar fólki að létta af ákveðnum hömlum. Í dansbók sinni, Dansgleði, sem væntanleg er á markaðinn skýrir Guðbjörg Arnardóttir danskennari frá ólíkum dansstílum en tengt bókinni er vefsíða þar sem horfa má á danskennslu.
Meira
Crossfit þjálfunarkerfið er orðið talsvert vinsælt á Íslandi en í dag verður opnuð ný æfingastöð sem leggur áherslu á slíka þjálfun. Stöðin kallast CrossFit XY og er í Garðabæ.
Meira
Í dag kl. 15 verður opnuð ljósmyndasýning Davids Barreiro í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Ljósmyndarinn David Barreiro er ungur spænskur ljósmyndari, fæddur árið 1982 og kemur hann frá Santiago de Compostela.
Meira
Sýning á olíumálverkum Margrétar Zóphóníasdóttur verður opnuð í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi undir yfirskriftinni Vængjablak í dag, laugardaginn 10. nóvember. Verkin á sýningunni Vængjablak tengjast öll minningum.
Meira
Elsa Kristín Auðunsdóttir er 26 ára í dag. Hún starfar á leikskóla og á sjö ára gamla dóttur sem heitir Laufey Líf Borgarsdóttir. Elsa er Hafnfirðingur í húð og hár og styður íþróttafélag Hauka.
Meira
Jöfn sveitakeppni í Kópavogi Eftir fjórar umferðir af ellefu í aðalsveitakeppni Bridsfélags Kópavogs hefur sveit Björns Halldórssonar tekið góða forystu og hefur 14 stigum meira en næsta sveit.
Meira
Þegar ég gekk upp Skólavörðustíginn sá ég karlinn á Laugaveginum við hornið á Klapparstígnum. Hann hallaði sér upp að gamla Þjóðviljahúsinu og benti yfir götuna.
Meira
Matthías Jochumsson fæddist þann 11.11. 1835 að Skógum í Þorskafirði, sonur Jochums Magnússonar og Þóru Einarsdóttur. Þóra var systir Guðmundar, pr.
Meira
Reykjanesbær Adrían Máni fæddist 23. febrúar kl. 12.13. Hann vó 3.780 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Bjarndís Ýr Albertsdóttir og Pétur Karl Pétursson...
Meira
Laugardagur 103 ára Jensína Andrésdóttir 90 ára Karl Karlsson Þorsteinn Kristjánsson 85 ára Anna Sveinsdóttir Þorbjörg Sveinsdóttir 80 ára Aðalheiður Jónsdóttir Einar Frímannsson Gréta Bentsdóttir Gunnar Valgeir Sigurðsson Gunnlaugur Indriðason Hreinn...
Meira
Tími endurskoðunar er genginn í garð. Víkverji stendur í stórræðum þessa dagana: flutningar eru yfirvofandi. Því er tækifærið nýtt og farið í gegnum ýmsa leppa svo ekki sé talað um dót og annað drasl.
Meira
10. nóvember 1943 Pétur Hoffmann Salómonsson fisksali barðist einn við bandaríska hermenn í Selsvör í Reykjavík og hafði betur, að eigin sögn. 10.
Meira
Kraftlyftingar Kristján Jónsson kris@mbl.is Auðunn Jónsson, heimsmeistari í réttstöðulyftu úr Breiðabliki, er kominn heim með gullið frá Púertó Ríkó þar sem heimsmeistaramótið fór fram á dögunum.
Meira
fótbolti Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hitti fréttamenn á því sem verður að öllum líkindum síðasti blaðamannafundur ársins í höfuðstöðvum KSÍ í gær.
Meira
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson þarf að leika mjög vel í dag, á lokadegi úrtökumóts Evrópumótaraðarinnar á Spáni, til að komast áfram á þriðja stigið.
Meira
Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eggert Gunnþór Jónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er laus frá Úlfunum, allavega í bili, en þeir lánuðu hann í gær til Lundúnaliðsins Charlton, sem einnig leikur í ensku B-deildinni.
Meira
Hafnarfjörður Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Stærsti leikur tímabilsins í N1-deild karla í handknattleik til þessa verður háður í Kaplakrika í dag þegar Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar leiða saman hesta sína.
Meira
Kári Gunnarsson er eini Íslendingurinn sem er kominn í átta manna úrslit í einliðaleik á Iceland International, alþjóðlega badmintonmótinu, sem hófst í sextánda skipti í TBR-húsunum í gærmorgun.
Meira
Á Hlíðarenda Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslands- og bikarmeistarar Vals í handknattleik kvenna eru í góðri stöðu til að slá út Zalau frá Rúmeníu í 3. umferð EHF-keppninnar en um er að ræða silfurlið keppninnar frá síðasta keppnistímabili.
Meira
1 Vel. Við fengum í fangið gríðarlegt verkefni sem enginn bað um og höfum leyst það vel. En mikil verkefni bíða úrlausnar. Þorri fólks upplifir á eigin skinni minni tekjur og meiri útgjöld.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.