Fiskistofa hefur lokið álagningu gjalds vegna umframafla strandveiðibáta í ár. Alls nemur upphæðin um 26,5 milljónum sem greiðast í Verkefnasjóð sjávarútvegsins.
Meira
Afmælistónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis fara fram í Hofi á Akureyri í kvöld í tilefni af 90 ára sögu kórsins. Karlakórinn Geysir var stofnaður 1922 og Karlakór Akureyrar 1929. Kórarnir voru síðan sameinaðir í október 1990.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þegar ASÍ gerði úttekt á skuldum heimilanna árið 2009 kom í ljós að ungt fólk skuldaði mest sem hlutfall af ráðstöfunartekjum.
Meira
Fjör er í byggingaframkvæmdum í Kópavogi þessa dagana og ástandið gjörbreytt frá tímabili kyrrstöðu eftir efnahagskollsteypuna haustið 2008. Víða er verið að slá upp, steypa og gera lóðir tilbúnar í bænum. Það sem af er þessu ári, þ.e. til 15.
Meira
ÚR BÆJARLÍFINU Djúpivogur Andrés Skúlason Um nokkra ára skeið hefur verið haldin sérstök hátíð til heiðurs myrkrinu á Austurlandi. Hefur viðburður þessi, sem stendur yfir í heila viku í nóvember, gengið undir heitinu Dagar myrkurs.
Meira
sviðsljós Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Nú styttist í að þingsályktunartillaga um áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða, rammaáætlunin títtefnda, komi til síðari umræðu á Alþingi, eftir að hafa í dágóðan tíma verið til umfjöllunar í þingnefndum.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hvorki var gengið frá samkomulagi um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum né kolmunna á ársfundi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í höfuðstöðvum nefndarinnar í London í vikunni.
Meira
Á hádegisverðarfundi Churchill-klúbbsins sem verður haldinn á Nauthól í dag, mun Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor fjalla um Churchill sem stjórnmálaskörung.
Meira
Samtökin Íslenskt þjóðráð – IceWise – efna til málþings á veitingastaðnum Rúbín í Öskjuhlíð við hliðina á Keiluhöllinni mánudaginn 19. nóvember kl. 17:15.
Meira
Starfsmaður dýraverndarsamtaka gefur úf að éta eftir að fuglinum var bjargað nálægt indversku borginni Amritsar. Fuglinn hafði flækst í streng flugdreka.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fjör er í byggingaframkvæmdum í Kópavogi þessa dagana og ástandið gjörbreytt frá tímabili kyrrstöðu eftir efnahagskollsteypuna haustið 2008. Víða er verið að slá upp, steypa og gera lóðir tilbúnar í bænum.
Meira
Sviðsljós Skúli Hansen skulih@mbl.is Talsverður fjöldi fólks var viðstaddur málfund í Háskólanum í Reykjavík um niðurstöður sérfræðingahóps sem fór yfir tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá.
Meira
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Í febrúar næstkomandi mun nefnd, skipuð af dóms- og kirkjumálaráðherra árið 2008, skila af sér lagafrumvarpi um innleiðingu alþjóðasáttmála sem taka á stríðsglæpum í íslenskan rétt.
Meira
Guðrún Anna Kristinsdóttir píanóleikari lést á Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð 10. nóvember, tæplega 82 ára gömul. Hún fæddist á Akureyri 23. nóvember 1930, dóttir Kristins Þorsteinssonar, deildarstjóra hjá KEA, og Lovísu Pálsdóttur húsfreyju.
Meira
Vísur sem Halldór Laxness skrifaði 12 ára gamall í póesíbók eða minningabók Þórdísar Dagbjartar Davíðsdóttur, skólasystur sinnar, haustið 1914 og taldar eru eftir hann eru það ekki.
Meira
Halldór Laxness var sex ára þegar meðfylgjandi heilræðavísur birtust fyrst í blaðinu Frækornum og ljóst að þær eru ekki eftir hann eins og sagt var í umfjöllun í Morgunblaðinu 21. september 2008.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Líkt og hjá fyrirtækjum leiðir of mikil skuldsetning heimila til þess að geta þeirra til að takast á við áföll minnkar.
Meira
Íslenskuverðlaun unga fólksins voru afhent í gær á degi íslenskrar tungu. 63 grunnskólanemar voru verðlaunaðir í Hörpu þar sem mikið var um dýrðir.
Meira
Eldri bæjarbúar á Seltjarnarnesi halda flóamarkað og jólabasar í dag klukkan 13-17 í félagsheimili sínu við Skólabraut 3-5. Á jólabasarnum verður til sölu handverk, fatnaður og ýmislegt fleira. Einnig er boðið upp á...
Meira
Waldorfleikskólinn Ylur og Waldorfskólinn í Lækjarbotnum halda sinn árlega jólabasar í dag frá kl. 12-17 í Lækjarbotnum fyrir ofan Lögbergsbrekkuna. Í tilkynningu segir, að boðið verði m.a.
Meira
Jólahefti Rauða krossins á Íslandi eru borin í hús til allra heimila í landinu þessa dagana. Býður Rauði krossinn landsmönnum að styrkja innanlandsverkefni félagsins með því að kaupa heftið.
Meira
Opnunarhátíð jólasveinanna í Dimmuborgum verður í dag klukkan 13-15. Munu jólasveinarnir taka á móti gestum, spjalla, syngja og segja sögur. Ferðaþjónustan í Mývatnssveit kemur sameiginlega að jólasveinaverkefninu.
Meira
Kirkjuþing frestaði á fimmtudag frekari umræðum um fjármál kirkjunnar en framundan eru viðræður við ríkisvaldið um þau mál. Fjárhagsvandinn vegna niðurskurðar er víða mikill í sóknunum.
Meira
Flokksval Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna alþingiskosninganna fer fram í dag. Kjörstaður verður í Laugardalshöll frá kl. 10. Netkosning hófst í gær og fer hún fram á heimasíðu Samfylkingarinnar. Kosningu lýkur kl. 18.
Meira
Zagreb. AFP. | Tveimur króatískum hershöfðingjum var í gær fagnað sem þjóðhetjum í heimaborg sinni, Zagreb, eftir að stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag sýknaði þá af ákærum um stríðsglæpi gegn Serbum í Króatíu eftir að Júgóslavía leystist...
Meira
„Kveikjan að því að ég fór að hugsa um einkunnabólgu var sú að ég lærði í Bandaríkjunum, í Dartmouth College. Skólinn sendir reglulega fréttabréf og annað slíkt. Þar birtist fyrir tíu árum síðan grein sem fjallaði um einkunnabólgu.
Meira
Disneyklúbburinn heldur um helgina kökukeppni í Smáralind í samvinnu við Morgunblaðið. Kökurnar verða til sýnis fyrir framan verslun Hagkaups bæði laugardag og sunnudag. Þemað í kökukeppninni eru teiknimyndir Disney sem allir þekkja.
Meira
Fréttaskýring Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Arabíska vorið varð til þess að staða Hamas-samtakanna á Gaza-svæðinu styrktist mjög og einangrun þeirra rofnaði.
Meira
Sviðsljós Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Það getur verið hætt við því að kennslukannanir fari út í vinsældakannanir,“ segir Hreinn Pálsson, prófstjóri við Háskóla Íslands.
Meira
Boðað er til minningarathafnar við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi klukkan 11 á sunnudaginn þar sem minnst verður fórnarlamba umferðarslysa og jafnframt heiðraðar þær starfsstéttir sem koma að björgun og aðhlynningu.
Meira
Forsvarsmenn IKEA sögðust í gær harma það að pólitískir fangar hefðu verið í nauðungarvinnu fyrir nokkra af birgjum fyrirtækisins í Austur-Þýskalandi á tímum kommúnistastjórnarinnar. Fjallað er um málið á vef breska ríkisútvarpsins, BBC .
Meira
Pólfoss, frystiskip Eimskipafélagsins, strandaði við eyjuna Altra í N-Noregi í gærmorgun. Skipið er óskemmt en það strandaði í malar- og sandfjöru.
Meira
Reynir Sveinsson Sandgerði Um þessar mundir fara fram viðamiklar athuganir í Sandgerði á áhrifum olíumengunar á sjávarlífverur. Það eru Norðmenn sem annast þessar rannsóknir.
Meira
Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Stjórn Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu (SHS) telur að ekki verði annað séð eftir fund með velferðarráðherra á fimmtudag en að allt stefni í að sjúkraflutningar verði færðir frá slökkviliðinu.
Meira
Jóla- og tækifæriskort Skógræktarfélags Íslands árið 2012 er komið út. Á kortinu er vatnslitamynd eftir Sigurþór Jakobsson og prýðir sú mynd einnig forsíðu 2. heftis Skógræktarritsins 2012.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skuldir heimila sem hlutfall af ráðstöfunartekjum hafa tólffaldast síðan árið 1980 og eru nú ríflega 240% af tekjunum. Skuldahlutfallið hefur aukist nær samfellt ár frá ári nema hvað það lækkaði töluvert í fyrra.
Meira
Sviðsljós Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Fjármál þjóðkirkjunnar voru meðal þess sem var efst á baugi á 49. kirkjuþingi þjóðkirkjunnar en hlé var gert á störfum þess á fimmtudagskvöld.
Meira
Veturinn er svo sannarlega genginn í garð, einkum fyrir norðan. Þessi mynd er tekin í Grímsey um tíuleytið á fimmtudagskvöld. Vestanbrimið skall á hafnargarðinum og vindhraðinn var líklega 25-30 metrar á sekúndu.
Meira
Sviðsljós Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ingólfur Arnarson og Hallveig Fróðadóttir eru meðal leikara í merkri sögu. Einnig afkomendur þeirra Þorsteinn Ingólfsson, Þorkell Máni og Þormóður goði. Nöfnin leiða marga að landnámi Íslands og miklum sögum.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vindrafstöðvarnar tvær sem Landsvirkjun hyggst koma upp í nágrenni Búrfellsvirkjunar byrja væntanlega að framleiða orku í byrjun nýs árs.
Meira
„Það er alveg klárt að þetta verður kært,“ segir Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson, lögmaður Þorsteins Hjaltested, eiganda Vatnsendajarðarinnar, og systkina hans.
Meira
Atli Gíslason spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra að því hvaða áhrif hugsanleg innganga í Evrópusambandið hefði á dóms- og löggjafarvald hér á landi.
Meira
Bókin Dagur í lífi Ívans Denisovich þar sem Alexander Solsjenitsín lýsir hryllingi fangabúða Stalíns olli straumhvörfum. Á morgun, 18. nóvember, verða 50 ár liðin frá því að sovésk stjórnvöld leyfðu birtingu bókarinnar í mánaðarritinu Noví Mír.
Meira
Viðamikil og fjölbreytt bókmenntadagskrá verður í ráðhúsi Reykjavíkur um helgina sem Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO standa að.
Meira
„Þetta var spennandi og skemmtilegt verkefni að semja þetta og kann ég því Jóni bestu þakkir fyrir að panta verkið hjá mér,“ segir Sigurður Flosason saxófónleikari, en Kór og Gradualekór Langholtskirkju frumflytja á tónleikum sínum í...
Meira
Síðsvartmálmshljómsveitin Dynfari, skipuð þeim Jóhanni Erni Sigurjónssyni og Jóni Emil Björnssyni, heldur útgáfutónleika í kvöld á Gamla Gauknum og hefjast þeir kl. 21. Hljómsveitin mun á þeim fagna annarri breiðskífu sinni, Sem Skugginn.
Meira
Fimm spaugarar eru komnir í úrslit keppninnar Fyndnasti maður Íslands, þau Sigurður Anton Friðþjófsson, Gunnar Hrafn Jónsson, Ævar Már Ágústsson, Gunnjón Gestsson og Elva Dögg Gunnarsdóttir.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hannes Pétursson skáld tók í gær við verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar sem afhent eru árlega á degi íslenskrar tungu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í sal Álftanesskóla.
Meira
Á sunnudögum sýnir RÚV kvikmyndir frá hinum ýmsu heimshornum, vissulega misáhugaverðar. Fyrir skömmu var sýnd einkar skemmtileg bresk kvikmynd, The Young Visiters.
Meira
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, afhenti í gær sextíu og þremur grunnskólanemum Íslenskuverðlaun unga fólksins í Bókmenntaborginni Reykjavík. Afhendingin fór fram í Norðurljósasal Hörpu.
Meira
Þjóðminjasafn Íslands býður ókeypis leiðsögn á morgun kl.14 um sýninguna Teikning – þvert á tíma og tækni í Bogasal safnsins. Leiðsögnin er í höndum Þóru Sigurðardóttur sýningarhöfundar.
Meira
Kvikmyndin Órói hlaut verðlaun fyrir besta handrit á kvikmyndahátíðinni Les gai cinema í Madrid á Spáni í vikunni. Handritið skrifuðu leikstjóri myndarinnar, Baldvin Z, og Ingibjörg Reynisdóttir og var það byggt á tveimur unglingabókum...
Meira
Leikstjórar: Tom Tykwer, Andy Wachowski og Lana Wachowski. Leikarar: Halle Berry, Tom Hanks, Hugh Grant, Doona Bae, Jim Broadbent, Susan Sarandon, Ben Whishaw og fleiri
Meira
Á Kjarvalsstöðum í dag, laugardag klukkan 14, verður opnuð fyrsta yfirlitssýningin á verkum Ragnheiðar Jónsdóttur myndlistarkonu. Yfirskrift sýningarinnar er Hugleikir og fingraflakk – Stiklur úr starfsævi Ragnheiðar Jónsdóttur.
Meira
Fjöldi listamanna kemur fram á sérstökum samstöðu- og styrktartónleikum í Hofi á morgun kl. 16. Allur ágóði tónleikanna rennur í styrktarsöfnun fyrir þá bændur sem urðu fyrir áföllum í óveðrinu er gekk yfir Norðurland í september sl.
Meira
Sýning til minningar um Sigríði Gyðu Sigurðardóttur myndlistarkonu, sem lést árið 2002, verður opnuð í Bókasafni Seltjarnarness á mánudaginn, 19. nóvember, kl. 17. Sigríður Gyða var mörgum Seltirningum að góðu kunn.
Meira
Eftir Stefán Pétursson: "Ástæða er til að vara sérstaklega við hugmyndum um að Íslendingar taki „forystu“ í því að aðskilja fjárfestingabanka- og viðskiptabankastarfsemi."
Meira
Fyrir nokkru skrifaði ég hér um hin fleygu orð Jóns Þorlákssonar forsætisráðherra, að bylting væri lögleg, ef hún lukkaðist, og reyndi að rekja uppruna þeirra.
Meira
Eftir Sigurð Sigurðarson: "Við viljum berjast gegn atvinnuleysinu, óréttinum vegna skuldastöðu heimilana, ólöglegu gengistryggingunni, vondu verðtryggingunni og fátæktinni."
Meira
Frá Svanhildi Sigurðardóttur, Magnúsi Ragnarssyni, Óttari Guðjónssyni, Davíð Þorlákssyni og Írisi Ólafsdóttur.: "Í Reykjavík eiga sjálfstæðismenn þess brátt kost að velja frambjóðendur á lista flokksins í kjördæminu."
Meira
Eftir Þór Whitehead: "Fáir menn eru jafnvel undir það búnir að bjóða sig fram til þings og Jakob F. Ásgeirsson vegna mannkosta hans, starfa og menntunar."
Meira
Eftir Helga Laxdal: "Værum við ekki betur sett í dag með kaupskipin okkar undir íslenskum fána og farmenn sem nytu sömu réttinda hjá tryggingastofnun og aðrir landsmenn?"
Meira
Eftir Ingu Sigrúnu Atladóttur: "Við erum fámenn þjóð og höfum ekki efni á öðru en að leggjast öll á eitt – jafnvel þótt það þjóni ekki okkar ýtrustu sérhagsmunum."
Meira
Eftir Jónas Bjarnason: "Sviss er fallegt og traust land, en hefur laðað til sín óþarfa milliliði, sem hagnast gífurlega. Bankaleynd og ofurhagnaður gætu orðið skammlíf."
Meira
Eftir Geir Waage: "Með niðurlagningu fornra staða og prestakalla er verið að rjúfa hefð; rjúfa aldalanga samfylgd fólksins og kristindómsins í landinu."
Meira
Hoppandi reið Ég er þvílíkt hoppandi reið. Hver fann upp orðin heldri borgari = eldri borgari? Ekki neinn sem skilur orðtakið oflof er háð. Ég held að það væri nær að kalla okkur eldri borgarana aumingja með sultardropa á nefinu. Gott myndefni það.
Meira
Eftir Lúðvík Elíasson: "Skuldsetning jókst við óraunhæfar væntingar á þensluskeiði en ekki vegna verðtryggingar. Tal um forsendubresti og flóknar afleiður er útúrsnúningur."
Meira
Frá Ernu Lúðvíksdóttur: "Margir sjá þörfina fyrir hvar neyðin er og fylgja henni eftir, þeir eru okkur hinum hvatning til góðra verka. Kannski er í næstu íbúð mikil sorg, áhyggjur, veikindi eða einmana sál sem þarfnast þess að fá bros eða smáumhyggju."
Meira
Auður Sveinsdóttir Laxness fæddist á Eyrarbakka 30. júlí 1918. Hún lést á Dvalarheimilinu Grund 28. október 2012. Jarðarför Auðar var gerð frá Dómkirkjunni 7. nóvember 2012.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Sigurður Sigurðsson fæddist í Tungugerði á Tjörnesi 22. nóvember 1926. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 9. nóvember 2012. Foreldrar hans voru Sigurður Árnason bóndi og síðar verkamaður, f. 15. ágúst 1897, d. 1990, og k.h.
MeiraKaupa minningabók
Halldóra Jóhanna Þorvaldsdóttir fæddist á Járngerðarstöðum í Grindavík 15. júlí 1921. Hún lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarbyggð 9. nóvember 2012. Foreldrar hennar voru hjónin Stefanía Margrét Tómasdóttir, f. 9. september 1892, d.
MeiraKaupa minningabók
Halldór fæddist í Reykjavík 17. janúar 1944. Hann lést í Sacramento í Bandaríkjunum 4. september 2012. Hann var sonur hjónanna Lárusar Jóhannssonar vélstjóra, f. í Hlíð í Mjóafirði eystra 1. október 1909, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Harpa Sif Sigurjónsdóttir fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 4. apríl 1983. Hún lést á heimili sínu að Björtusölum 23 í Kópavogi 20. október 2012. Útför Hörpu fór fram í kyrrþey í Reynivallakirkju í Kjós 3. nóvember 2012.
MeiraKaupa minningabók
Kári Valgarðsson fæddist á Sauðárkróki 13. júlí 1942. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 7. nóvember 2012. Foreldrar hans eru Jakobína Ragnhildur Valgarðsdóttir, f. 2.ágúst 1921 og Valgarð Einar Björnsson, bifreiðarstjóri, f. 30. nóvember 1918,...
MeiraKaupa minningabók
Kristný Pálmadóttir fæddist í Bolungarvík 2. september 1943. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 11. nóvember 2012. Foreldrar Kristnýjar voru Pálmi Árni Karvelsson, f. 17.2. 1897, d. 21.2. 1958, og Jónína E. Jóelsdóttir, f. 18.11. 1903, d....
MeiraKaupa minningabók
Sigurgeir Ragnarsson fæddist á Grund í Nesjahreppi 5. október 1929. Hann lést 7. nóvember 2012. Foreldrar hans voru Ragnar Gíslason, bóndi á Grund í Nesjahreppi, f. 9. janúar 1902, d. 8. mars 1947, og Rannveig Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 13.
MeiraKaupa minningabók
Vigdís Sigurbjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 23. júní 1966. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 14. október 2012. Útför Vigdísar fór fram frá Digraneskirkju 25. október 2012.
MeiraKaupa minningabók
Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Eimskip er stærsta félagið sem fer á markað í Nasdaq OMX kauphöllinni á Norðurlöndunum það sem af er ári, að sögn Páls Harðarsonar, forstjóra Kauphallarinnar. Fyrirtækið var skráð á markað í gær.
Meira
Evrópski seðlabankinn hefur lýst því yfir að Lettland megi ekki stafsetja nafn evrunnar sem „eiro“ á lettnesku í stað „euro“, þegar landið tekur gjaldmiðilinn formlega upp. Fram kemur á fréttavefnum Euobserver.
Meira
Hagnaður Landsbankans á þriðja ársfjórðungi var 1,7 milljarðar króna. Fyrstu níu mánuði ársins var hagnaður bankans eftir skatta rúmir 13,5 milljarðar, en á sama tímabili í fyrra var hann tæpir 27 milljarðar króna.
Meira
Sala á nýjum bifreiðum dróst saman um 4,8% í ríkjum Evrópusambandsins í október og er þetta þrettándi mánuðurinn í röð sem bílasala dregst saman innan ESB. Fyrstu tíu mánuði ársins nemur samdrátturinn 7,3% á milli ára.
Meira
Hér til hliðar má sjá mynd af franska ostframleiðandanum Hervé Mons. Hann er enginn venjulegur ostagerðarmaður því hann ákvað að breyta gömlum járnbrautarlestargöngum í ostageymslu.
Meira
Fyrrverandi kórfélagar Skólakórs Garðabæjar ætla að hittast og gera sér glaðan dag, horfa og hlusta á gamlar upptökur og rifja upp góðar stundir á sunnudaginn næstkomandi.
Meira
Í jólasöngleik Borgarbarna dúkka ýmsar þekktar ævintýrapersónur upp úr töfrum gæddri jólaglerkúlu. Leikarahópurinn er frá 10-18 ára og er þetta sjöunda sýningin sem Borgarbörn setja upp.
Meira
Nú fer að styttast í aðventuna og margir vilja hafa tímann fyrir sér og dúlla sér og dútla við köku- og konfektgerð áður en aðventan skellur á. Enda er oft nóg við að vera í desembermánuði og því gott að vera búinn að undirbúa sig svolítið fyrirfram.
Meira
Jón Karlsson er einn af fáum kaupmönnum á horninu sem eftir eru í vesturbænum. Jón fagnar 40 ára afmæli verslunar sinnar Úlfarsfells um helgina. Jón hefur staðið vaktina á bak við búðarborðið í 22 ár og segir mannlega þáttinn skemmtilegastan við...
Meira
Fádæma yfirburðir bræðranna í Butlernum Bræðurnir Oddur og Árni Hannessynir sigruðu með miklum yfirburðum í þriggja kvölda Butler sem lauk sl. miðvikudagskvöld hjá bridsfélögunum á Suðurnesjum. Skoruðu þeir 150 impa eða 50 á kvöldi að meðaltali.
Meira
Konan varð fimmtug fyrr á árinu og segja má að við sláum þessu saman með smá veislu fyrir vini og ættingja,“ segir Kári Þorleifsson, vallarstjóri í Vestmannaeyjum, sem fagnar 50 ára afmæli í dag, 17. nóvember.
Meira
Arnþór Páll Hafsteinsson , Jóhann Egill Jóhannsson , Patrekur Pétursson og Ægir Ranjan Hreinsson gengu í hús á Seltjarnarnesi og söfnuðu dóti. Þeir héldu svo hlutaveltu á Eiðistorgi og gáfu Barnaspítala Hringsins ágóðann 20.325...
Meira
Kristján Thorlacius fæddist á Búlandsnesi þann 17.11. 1917. Foreldrar hans voru Ólafur Thorlacius, læknir í Búlandsnesi, og Ragnhildur Pétursdóttir húsfreyja.
Meira
Ólafur Pétur fæddist á Blönduósi og ólst upp í Blöndudal í Austur-Húnavatnssýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1982, prófi í vélaverkfræði frá HÍ 1987, meistarapófi í verkfræði frá Danska tækniháskólanum í Lyngby (DTU) 1989 og hlaut Ph.d.
Meira
Orðasambandið að „skipta um hendur“ er ólánleg innflutningsvara um það er eigendaskipti verða að e-u. Ef tveimur starfsmönnum væru falin huglæg verkefni og þeir skiptu, yrði þá sagt að verkefnin hefðu „skipt um...
Meira
Reykjavík Svandís Sif fæddist 9. desember kl. 20.59. Hún vó 4.520 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Elsa Petra Björnsdóttir og Ragnar Sverrisson...
Meira
Laugardagur 90 ára Lýður Björnsson 85 ára Kjartan G. Magnússon 80 ára Bjarni Guðbrandsson Elías Valdimar Ágústsson Hjalti Jóhannesson Martin Winkler Regína Hanna Gísladóttir Steinunn K. Theódórsdóttir Unnur Óskarsdóttir 75 ára Aðalheiður S.
Meira
Hvers vegna eru mörg íslensk nútímaheimili með frasa á ensku upp um alla veggi? Frasa á borð við: keep calm and carry on, relax, home og annað í þessum dúr? Ekki svo að skilja að Víkverji sé andsnúinn ensku og enskuslettum.
Meira
Karlinn á Laugaveginum stóð á horninu við Vegamótastíginn þegar ég hitti hann. Hann var pólitískur að venju og leist ekki á blikuna: Gulnuð loforð, orð án efnda upp á banka. Ráðstjórnar með rauða þanka ríkisstjórnin lætur danka.
Meira
17. nóvember 1913 Fréttamyndir, hinar fyrstu íslensku, birtust í Morgunblaðinu. Þetta voru dúk ristur sem voru gerðar til skýringar á frétt um morð í Dúkskoti í Reykjavík. 17.
Meira
Fram er eitt á toppi N1-deildar kvenna í handknattleik en eins og við var búist unnu Framkonur öruggan sigur á Selfyssingum þegar liðin áttust við í Safamýrinni í gærkvöld. Þegar upp var staðið munaði 19 mörkum á liðunum en úrslitin urðu 33:14.
Meira
Óvíst er hvort Guðjón Baldvinsson, markahæsti leikmaður sænska knattspyrnuliðsins Halmstad, getur spilað þýðingarmesta leik liðsins á tímabilinu sem er í dag.
Meira
Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skrifaði í gær undir nýjan samning við sænska úrvalsdeildarliðið Piteå. Hallbera, sem er 26 ára gömul, kom til Piteå frá Val síðasta vetur og átti fast sæti í liðinu sem hafnaði í 8.
Meira
ÍBV hafði betur í Suðurlandsslagnum en Eyjamenn sóttu Selfyssinga heim í 1. deild karla í handknattleik í gærkvöld. ÍBV fagnaði sigri, 32:26, og höfðu liðin þar með sætaskipti. Sigur ÍBV var öruggur en liðið hafði undirtökin allt frá byrjun.
Meira
Íris Ósk Hilmarsdóttir, ÍRB, tvíbætti telpnametið í 200 metra baksundi á Íslandsmótinu í sundi í Ásvallalaug í gær. Hún bætti það fyrst í undanrásun og síðan í úrslitasundinu þegar hún synti á tímanum 2.15,95 mín.
Meira
sund Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Eitt Íslandsmet féll á fyrsta keppnisdegi á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem hófst í Ásvallalaug í Hafnarfirði í gær.
Meira
Í Breiðholti Kristinn Friðriksson sport@mbl.is Slagurinn um borgina var háður í gær, allavega um 101 og 109, þegar KR heimsótti Hellinn í Breiðholti.
Meira
Íslendingaliðið Paris Handball trónir á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik en liðið bar í gærkvöld sigurorð af Créteil, 30:28. Róbert Gunnarsson skoraði 4 af mörk af línunni fyrir Parísarliðið og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði eitt.
Meira
Handbolti Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is „Maður bjóst alveg við að það yrðu svona tveir eða þrír frá Haukum í úrvalsliðinu fyrst við höfum spilað svona vel.
Meira
Benjamin Curtis Smith fór á kostum með liði Þórs í Þorlákshöfn þegar liðin áttust við í Dominos-deild karla í körfuknattleik í Þorlákshöfn í gærkvöld. Þór fagnaði sigri, 92:83, og skoraði Smith hvorki fleiri né færri en 46 stig og tók 10 fráköst.
Meira
Badminton Kristján Jónsson kris@mbl.is Daninn Peter Gade hefur ákveðið að leggja badmintonspaðann á hilluna eftir magnaðan feril. Gade er 35 ára gamall og var um tíma í efsta sæti heimslistans í badminton.
Meira
Þrír íslensku leikmannanna hjá Avaldsnes voru í hópi ellefu bestu útlendinganna í norska kvennafótboltanum á þessu ári, samkvæmt úttekt netmiðilsins Kvinnefotballmagasin.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.