Aukin umferð var um Laugaveginn í gær enda stutt í jólin og á morgun gengur aðventan með sinn hátíðleik í garð. Miðað við fyrri reynslu má ætla að jólaverslunin taki kipp um helgina enda margir sem hyggjast klára jólagjafainnkaup fyrir mestu ösina.
Meira
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Alþjóðlegi alnæmisdagurinn, dagur Rauða borðans, er í dag, 1. desember. Viðburðir í tilefni hans verða víða um heim til að vekja athygli á baráttunni gegn HIV og alnæmi.
Meira
„Þetta lítur ágætlega út en enn er ekkert fast í hendi,“ segir Gunnar Ármannsson lögfræðingur sem undirbúið hefur byggingu sjúkrahúss og sjúkrahótels PrimaCare í Mosfellsbæ til að gera liðskiptaaðgerðir á erlendum sjúklingum.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Flugið liggur miklu betur fyrir mér. Ég nýt mín vel í því,“ segir Sigurður Aðalsteinsson, yfirflugstjóri Flugfélags Íslands, sem í gær flaug sína síðustu ferð fyrir félagið.
Meira
„Ég tek undir gagnrýni Bjargar Thorarensen, prófessors í stjórnskipunarrétti, á hinn skamma frest sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur gefið til að veita umsagnir um frumvarp til stjórnskipunarlaga, og lýsi þungum áhyggjum af...
Meira
Reykjavíkurborg hefur hug á því að koma fyrir um 30 fermetra flotbryggju í tengslum við kaffihúsið á jarðhæð Ráðhússins og er málið sem stendur hjá skipulagsráði, sem tekur það fyrir á fundi sínum 5. desember næstkomandi.
Meira
Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Um 100 aukaleikarar taka þátt í að setja á svið sveitaball í Þjórsárveri um helgina. Um er að ræða upptökur á myndinni Málmhaus eftir Ragnar Bragason. Auglýst var eftir aukaleikurum, m.a.
Meira
Sá óvenjulegi atburður átti sér stað í New York á mánudag að lögreglu barst ekki ein einasta tilkynning um skotárás, hnífstungu né ofbeldisglæpi í heilan sólarhring. Slíkt hefur ekki gerst svo lengi sem elstu menn muna að sögn lögreglunnar.
Meira
Fölmenningarleg danssýning og danssmiðja verða í Viðey í dag. Sýningin hefst klukkan 14 þegar sýningarflokkur frá Listdansskóla Hafnarfjarðar mun kynna þrjá ólíka dansstíla; ballett, diskó og nútímadans.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Þúsundir stjórnarandstæðinga mótmæltu á götum Kaíró í gær í kjölfar þess að sérstakt stjórnlagaþing samþykkti drög að nýrri stjórnarskrá Egyptalands. Drögin voru samþykkt án þátttöku fulltrúa frjálslyndra og kristinna.
Meira
Sviðsljós Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Mikil fagnaðarlæti brutust út á Vesturbakkanum í Palestínu á fimmtudag þegar yfirgnæfandi meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti að Palestína fengi stöðu áheyrnarríkis.
Meira
„Georg er að miklu leyti samansettur úr pabba mínum. Í Næturvaktinni eru atriði sem eru orð fyrir orð rétt – úr samskiptum mínum við pabba,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri í viðtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta er 12-14 milljóna króna verk – miðað við útseldan taxta tveggja sérfræðinga sem unnu hjá sérstökum saksóknara, samkvæmt fréttum í fyrrahaust,“ sagði Árni B.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Skúlptúrar og skálar, lampar, skermar o.fl. úr tré gleður augu gesta á sýningunni „Skáldað í tré“ sem lýkur í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun. Þar sýna 24 félagsmenn í Félagi trérennismiða á Íslandi yfir 80 verk.
Meira
Tvöfalt kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldið í íþróttahúsinu í Reykjahlíð í dag og hefst klukkan 11. Þar verður valið á framboðslista flokksins í kjördæminu.
Meira
Viðgerð á gólfi Ólafsfjarðarleggs Héðinsfjarðarganga er að ljúka. Verktaki er að malbika veginn á sjö stöðum sem brotnir voru upp á síðasta ári til að veita vatninu frá. Mikill vatnsagi kom í ljós þegar göngin voru gerð.
Meira
Bráðnun heimskautaíssins hefur hækkað yfirborð sjávar um ellefu millimetra á undanförnum tveimur áratugum. Þetta er niðurstaða rannsóknar fjölda vísindamanna á ís við Grænland og Suðurskautslandinu sem birt hefur verið í vísindatímaritinu Science .
Meira
Innanríkisráðherra hefur lagt fram frumvarp um að heimilt verði að skipa varadómara við Hæstarétt sem og að setja dómara til skamms tíma við réttinn þó svo að viðkomandi hafi náð 70 ára aldri.
Meira
Árlegur jólabasar Fríkirkjunnar Kefas verður í dag frá kl. 13-17. Til sölu verða heimabakaðar kökur, smákökur, handverk, bækur, gjafavörur og ýmislegt annað á mjög góðu verði að því er kemur fram í tilkynningu.
Meira
Jóladagatal Norræna hússins hefst kl. 12:34 í dag. Er þetta gjöf Norræna hússins til gesta sinna og er aðgangur ókeypis. Í tilkynningu segir, að hugmyndin á bak við dagatalið sé að bjóða upp á öðruvísi dagskrá á aðventunni.
Meira
Jóladagskrá Þjóðminjasafnsins hefst í dag, 1. desember, og er þá ókeypis aðgangur að safninu. Jólasýningar verða opnaðar og í boði er jólaratleikur.
Meira
Íbúarnir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í Reykjavík eru komnir í jólaskap og jólakötturinn, gæludýr Grýlu, er fluttur í Hafrafell við refagirðinguna. Þeir sem þora eru hvattir til að heimsækja hann þar.
Meira
Jólasýning Árbæjarsafns í Reykjavík verður opnuð sunnudaginn 2. desember. Þar geta ungir sem aldnir rölt milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga.
Meira
Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opið um helgina. Þar verður ýmislegt á boðstólum í sölubásum og einnig skemmtiatriði en Grýla mun stjórna því að allir hagi sér vel.
Meira
Basar KFUK verður haldinn í dag, 1. desember, kl. 14 –17 í húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28 í Reykjavík. Á boðstólum verður handverk og jólaskraut, kökur og tertur, sultur, marmelaði og paté.
Meira
Viðtal Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Lífeyrismál út frá kynjasjónarmiði var viðfangsefni Steinunnar Rögnvaldsdóttur í mastersverkefni í kynjafræði við Háskóla Íslands.
Meira
Konur eru líklegri til þess en karlar að vera við fátæktarmörk á efri árum. Ástæðan er sú að konur vinna sér inn minni lífeyri hjá lífeyrissjóðum og fá því lægri greiðslur á eftirlaunaaldri.
Meira
Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð, stendur fyrir stórri handverkssölu sunnudaginn 2. desember. í Þróttarheimilinu, Engjavegi 7, í Reykjavík klukkan 13-17.
Meira
Ljósin verður tendruð á Óslóartrénu svonefnda á Austurvelli í Reykjavík á morgun, sunnudag. Dagskráin hefst klukkan 15.30 en ljósin á trénu verða kveikt um klukkan 16.
Meira
Ljós verða tendruð á jólatré á Ráðhústorginu á Akureyri í dag en tréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku. Dagskráin hefst klukkan 14.45 og þar verður ýmislegt til skemmtunar, meðal annars koma jólasveinar á torgið.
Meira
Tíðarfar í nýliðnum nóvember var lengst af óhagstætt, segir í bráðabirgðayfirliti Trausta Jónssonar veðurfræðings. Engu að síður var hiti nærri meðallagi, aðeins ofan við það á Suðurlandi en lítillega undir um landið norðvestan- og norðanvert.
Meira
Morgunblaðinu var í gær veitt mannúðarviðurkenning frá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir árið 2012. Á myndinni má sjá Pétur Blöndal, blaðamann Morgunblaðsins, taka við verðlaununum úr höndum Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.
Meira
Rússneskur dómstóll hefur lagt bann við birtingu myndbands pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot á þeim forsendum að það sé „öfgafullt“. Því eigi að fjarlægja það af vefsíðum sem hýsa það.
Meira
Nemendur og starfsfólk Árskóla á Sauðárkróki fóru í friðargöngu í gærmorgun og segir á feykir.is að nemendur hafi látið ljósker ganga sín á milli þar sem kveðjan „friður sé með þér“ fylgir með. Þetta er í 13.
Meira
Ósómi Þegar grannt er skoðað er ekki mjög fagurt um að litast við blómabeðin sem sett voru upp við Austurvöll til að gleðja augu vegfarenda. Stubbahrúgan er ljótur blettur á...
Meira
Fréttaskýring Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Íbúar geta kosið rafrænt í íbúakosningum ef frumvarp, sem lagt hefur verið fram, verður samþykkt á alþingi. „Hugsunin er sú að allar kosningar í framtíðinni verði rafrænar.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Hvolsvelli, hefur boðað til fundar 6. desember næstkomandi til að ræða öryggismál í Landeyjahöfn.
Meira
Yfirgnæfandi meirihluti þýskra þingmanna samþykkti í gær neyðarlán upp á 44 milljarða evra til Grikkja. Alls kusu 473 þingmenn á sambandsþinginu með frumvarpinu en hundrað kusu gegn því.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það hefur legið ljóst fyrir í samskiptum mínum við starfsmenn Fjármálaeftirlitsins síðan þessi athugun hófst að þetta hafi verið unnið með hangandi hendi hjá þeim og nánast ólund.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Staðan er hvorki betri né verri en hún hefur verið,“ sagði Guðlaugur Ólafsson, einn þriggja skipstjóra Herjólfs, um siglingar í Landeyjahöfn. Hann er einnig í þarfagreiningahópi um nýsmíði Herjólfs.
Meira
Síma- og netsambandslaust var í stærstum hluta Sýrlands í gær, annan daginn í röð að sögn mannréttindasamtaka. Bandarísk stjórnvöld hafa sakað stjórn Bashar al-Assads um að skera á sambandið.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Veitingahúsið Hreðavatnsskáli í Borgarfirði er til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni. Veitingaskálinn var í áratugi fjölsóttur áningarstaður ferðafólks á leiðinni á milli Vesturlands og Norðurlands.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Kröfurnar um að honum yrði refsað voru áberandi og háværar. Þær byggðu hins vegar hvorki á þekkingu á sakarefninu né greiningu á því.
Meira
Listi sem embætti ríkissaksóknara í Mexíkó hefur tekið saman sýnir að um 25.000 manns hafa horfið í landinu í fíkniefnastríðinu sem þar hefur geisað á undanförnum sex árum.
Meira
Fréttaskýring Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Eindagi fyrstu greiðslu vegna veiðigjalda sem frestað var fyrr í haust er næstkomandi mánudag.
Meira
Bílvelta varð við Þingvelli í gærdag. Ökumaður og farþegi sem voru í bílnum voru flutt á sjúkrahúsið á Selfossi til skoðunar. Bíllinn er óökufær en töluverð ísing var á veginum.
Meira
Veiðigjöld verða um tveimur milljörðum lægri vegna lækkunar sem skuldsettar útgerðir fá, að sögn Eyþórs Björnssonar fiskistofustjóra. Sérstök veiðigjöld að fjárhæð 1.300 milljónir eru á eindaga á mánudag.
Meira
4G-farsímakerfi mun kosta Vodafone 3 milljarða króna. Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, telur heillavænlegast að byggja kerfið upp í samstarfi við aðra aðila á markaði. Uppbygging gæti tekið fáein ár og myndi fjárhæðin dreifast yfir það tímabil.
Meira
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir kvaddi sér hljóðs á þingi í gær og lýsti áhyggjum sínum vegna þess skamma tíma sem þingmönnum og öðrum er ætlaður til að fara yfir frumvarp til stjórnskipunarlaga.
Meira
Tilkynnt var í gær í Hörpu hverjir hljóta tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir verk framleidd á þessu ári. Verðlaunin verða afhent í 19. sinn í febrúar á næsta ári í Silfurbergi í Hörpu.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Jólaóratóría , nýtt tónverk Sigurðar Sævarssonar, verður frumflutt í Hallgrímskirkju á morgun, sunnudag klukkan 17. Verkið er einkum byggt á Lúkasarguðspjallinu og er textinn sunginn á latínu.
Meira
Hljómsveitin Ghostigital heldur útgáfutónleika á skemmtistaðnum Faktorý í kvöld og hefjast þeir kl. 23.20. Tilefnið er útgáfa þriðju hljóðversplötu sveitarinnar, Division of Culture and Tourism , sem kom út á árinu.
Meira
Rithöfundarnir Hallgrímur Helgason og Guðmundur Andri Thorsson eru þeir íslensku höfundar sem tilnefndir eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2013, Hallgrímur fyrir bókina Konan við 1000° og Guðmundur fyrir Valeyrarvalsinn .
Meira
Systkinin Krummi og Svala Björgvins munu leiða hljómsveitir sínar, Legend og Steed Lord, á tónleikum í kvöld á Gamla Gauknum. Hljómsveitirnar hafa aldrei komið fram saman áður á tónleikum og því um merkisviðburð að ræða.
Meira
Sýning Halldórs Ásgeirssonar, Ferðalagið, verður opnuð í dag kl. 16 í Slunkaríki í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Í tilkynningu segir að Halldór hafi frá sinni fyrstu tíð sem myndlistarmaður haft áhuga á ferðalögum.
Meira
Útgáfutónleikar tónlistarævintýrisins Englajóla verða haldnir í Salnum í Kópavogi á morgun kl. 13. Verkið er eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og var frumflutt 2010 og hefur nú verið gefið út á geisladiski með myndum eftir Elide Gramegna og Önnu Fríðu...
Meira
Skilningsleysið er slíkt að menn nota gamalt „trix“, líta á Walker sem hálfgerðan geðsjúkling og það skýri þennan magnaða stað þar sem list hans dvelur á um þessar mundir.
Meira
Þórhallur Gunnarsson, dagskrárgerðarmaður á RÚV, hefur verið ráðinn yfirmaður dagskrárdeildar hjá Sagafilm. Þórhallur hefur m.a. gegnt störfum ritstjóra Kastljóss og dagskrárstjóra...
Meira
Eftir Kate Hoey: "Bretar vilja endurheimta lýðræði. Við viljum ráða málum okkar, slíta tengsl við útþanið búrókratískt bákn sem kallar sig Evrópusambandið. Fyrri grein."
Meira
Fyrir skömmu sat ég kvöldverð með nokkrum gömlum vinum, óljúgfróðum og langminnugum. Einn þeirra hafði haft nokkur kynni af Tómasi skáldi Guðmundssyni, sagði margar sögur af honum og hafði eftir honum viturleg ummæli.
Meira
Eftir Einar Þór Jónsson: "Það gerir tilveru hiv-jákvæðra svo sannarlega léttbærari, að vera á lyfjum sem ná að halda veirunni svo vel í skefjum að þeir eru ekki lengur smitandi"
Meira
Eftir Hjörleif Guttormsson: "Þetta varðar ekki aðeins vistkerfi þurrlendis heldur hefur áhrif á sjávarstrauma og fiskistofna og þar er Ísland í einkar viðkvæmri stöðu."
Meira
Frá Stefaníu Jónasdóttur: "Íslensk stjórnvöld, þið ræðið aldrei stríðshættu innan ESB. Trúið þið að svo geti ekki farið. Hvað er langt síðan borist var þar á banaspjót. Víst er að með meiri fátækt og erfiðleikum hætta dýrin í skóginum að vera vinir. Evrópa er óstöðug."
Meira
Vantar spariföt Ég las frétt á mbl.is um að starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar auglýsti nú eftir sparifötum á börn og unglinga. Þörfin fyrir fatagjafir hefur aukist mikið.
Meira
Björn Breiðfjörð Finnbogason fæddist á Eyri við Mjóafjörð N-Ísafjarðarsýslu 24. maí 1937. Hann lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði 23. nóvember 2012. Foreldrar Björns eru Salvör Kristjánsdóttir og Finnbogi Björnsson frá Kirkjubæ og eru þau bæði látin.
MeiraKaupa minningabók
Bolli A. Ólafsson fæddist í Valhöll á Patreksfirði 12. september 1926. Hann lést í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili í Kópavogi, 20. nóvember 2012. Útför Bolla fór fram frá Kópavogskirkju 29. nóvember 2012.
MeiraKaupa minningabók
1. desember 2012
| Minningargrein á mbl.is
| 1266 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Egill Sigurjón Benediktsson fæddist á Kópareykjum í Borgarfirði, 14. júlí 1953. Hann lést 16. nóvember 2012. Foreldrar hans voru Sigríður Sigurjónsdóttir frá Kópareykjum, f. 29. september 1925, d. 26. febrúar 1960, og Benedikt Egilsson, f. 12.
MeiraKaupa minningabók
Jón Ásbjörnsson fæddist í Reykjavík 30. nóvember 1938. Hann lést 2. október 2012. Útför Jóns fór fram frá Hallgrímskirkju 11. október 2012.
MeiraKaupa minningabók
Jónbjörg Sesselja Eyjólfsdóttir fæddist á Bjargi, Borgarfirði eystra, 14. ágúst 1931. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 16. nóvember sl. Hún var fimmta í röð sex barna Eyjólfs Hannessonar og Önnu G. Helgadóttur.
MeiraKaupa minningabók
Valborg Sigurðardóttir fæddist 1. febrúar 1922 í Ráðagerði á Seltjarnarnesi en ólst upp á Ásvallagötu 28 í Reykjavík. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 25. nóvember 2012. Útför Valborgar fór fram frá Neskirkju 30. nóvember 2012.
MeiraKaupa minningabók
Helgi Vífill Júlíuson helgivifill@mbl.is Það kostar Vodafone um þrjá milljarða króna að ráðast í uppbyggingu á 4G farsímakerfi. Fjárhæðin myndi dreifast yfir þann tíma sem uppbyggingin tekur, en það gætu verið fáein ár.
Meira
Hagnaður Eimskips eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins nam 13,724 milljónum evra, 2.249 milljónum króna, en 12,53 milljónum evra, 2.053 milljónum króna, á sama tímabili í fyrra.
Meira
Norðurorka hefur undirritað samning um kaup á gashreinsistöð frá fyrirtækinu Greenlane – Flotech í Svíþjóð. Stöðin hreinsar metan úr svonefndu hauggasi sem vinna á úr gömlu sorphaugunum á Glerárdal.
Meira
Slitastjórn Kaupþings hefur ásamt ráðgjöfum sínum og í nánu samráði við kröfuhafaráð unnið að undirbúningi að frumvarpi að nauðasamningi. Þetta kemur fram á tilkynningu frá slitastjórnar Kaupþings.
Meira
Útflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi 2012 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 124,1 milljarður en innflutningur á þjónustu 89,3 milljarðar króna.
Meira
Árlega heldur hópur af eldri félögum Hjálparsveitar skáta í Kópavogi í Þórsmörk helgina fyrir aðventu. Með í för eru börn og barnabörn þeirra sem fagna komu aðventunnar með veglegu jólahlaðborði.
Meira
Teiknimyndin Snjókarlinn verður sýnd á einstaklega lifandi hátt í Hofi á Akureyri í dag. En Sinfóníuhljómsveit Norðurlands mun leika undir og nýtur liðsinnis einsöngvarans Gissurar Páls Gissurarsonar og barna- og stúlknakórs Akureyrarkirkju.
Meira
Handverkssala Ljóssins verður haldin á morgun, sunnudag 2. desember. Þar munu notendur Ljóssins, sem kalla sig Ljósbera, og velunnarar selja fallegt handverk sem þeir hafa búið til.
Meira
Mikið sem það er gott að gleðja bragðlaukana með góðu narti og heiti vefsíðunnar nibble.com vísar einmitt til þess. Þar má finna ýmsa girnilega mola, bæði matar- og vínkyns og er síða þessi einstaklega hentug fyrir áhugafólk um guðafæði ýmiskonar.
Meira
Ásta Bryndís Þorsteinsdóttir alþingismaður fæddist í Reykjavík 1. desember 1945. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Þorsteinsson, sjómaður og fisksali og Ásdís Eyjólfsdóttir, skattendurskoðandi. Systkini Ástu eru Víglundur og Hafdís Björg.
Meira
Haustsveitakeppni Bridsfélags Reykjavíkur Haustsveitakeppninni er nú skipt í deildir. Sex kvöldum af átta er lokið. Staðan í fyrstu deild er þannig. 1. deild: Lögfræðistofa Íslands 330 Chile 316 Grant Thornton 214 2.
Meira
Hús eitt í Róm nefnist Cappella Sistina á máli heimamanna en Sistine Chapel á ensku og hér oftast nær „Sixtínska kapellan“. Það er kennt við Sixtus páfa fjórða og ætti að heita Sixtusarkapella .
Meira
Norðlendingurinn Helga Kvam er 40 ára í dag, fædd á fullveldisdaginn árið 1972. Hún býr á Svalbarðsströnd þar sem hún er fædd og uppalin. Helga ætlar að halda upp á daginn enda heppilegt að slíkt stórafmæli lendi á laugardegi.
Meira
Hafnarfjörður Alexandra Tinna fæddist 15. febrúar kl. 17.04. Hún vó 2.665 g og var 46,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Hrefna Nilsen Tómasdóttir og Ómar Þór Nilsen...
Meira
Karlinn á Laugaveginum skaust fyrir hornið á Pósthússtræti, þegar ég sá hann, hafði verið á þingpöllunum og fylgst með fjárlagaumræðunni. Ég spurði hann um forsætisráðherra.
Meira
Armar Víkverja fengu að njóta sín til fullnustu nýverið. Hann hefur löngum verið rómaður fyrir gríðarstórt fang sitt með löngum upplimum. Sumir hafa bent á að Víkverji brúi bilið milli manns og apa.
Meira
1. desember 1878 Reykjanesviti, fyrsti vitinn hér á landi, var tekinn í notkun. Hann var byggður á Valahnjúk, 43 metra yfir sjó. 1. desember 1918 Ísland varð fullvalda ríki.
Meira
EM Í SERBÍU Ívar Benediktsson iben@mbl.is Evrópumóti kvenna í handknattleik, sem hefst í Serbíu á þriðjudaginn, verður það tíunda sem haldið er eftir að Handknattleikssamband Evrópu var stofnað fyrir liðlega 20 árum.
Meira
Eyjólfur Héðinsson skoraði eitt marka SönderjyskE og lagði annað upp þegar liðið vann góðan útisigur á Horsens, 3:1, í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.
Meira
Fanndís Friðriksdóttir landsliðskona í knattspyrnu úr Breiðabliki er með tilboð í höndunum frá nokkrum liðum í Svíþjóð og Noregi. Eitt þeirra er Piteå, sænska úrvalsdeildarliðið sem Hallbera Guðný Gísladóttir leikur með.
Meira
Körfubolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Körfuknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að senda A-landslið karla í körfuknattleik í undankeppnina fyrir EM 2015 þrátt fyrir að miklar skuldir hafi fylgt þátttökunni á liðnu sumri.
Meira
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur með 23 stig þegar Sundsvall Dragons sótti Stockholm Eagles heim í höfuðstaðinn og vann þar, 71:66. Hlynur Bæringsson tók flest fráköst, 9 talsins, og skoraði 11 stig.
Meira
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik leikur þrjá og jafnvel fjóra æfingaleiki áður en það heldur á heimsmeistaramótið á Spáni í janúar. Túnisbúar koma til Íslands og mæta íslenska liðinu í tveimur leikjum 28. og 29.
Meira
handbolti Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Ingimundur Ingimundarson, landsliðsmaðurinn öflugi, átti stóran þátt í góðum sigri ÍR-inga gegn Akureyringum þegar liðin áttust við í N1-deildinni í vikunni.
Meira
Rúmenska landsliðið, sem verður einn þriggja andstæðinga íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í handknattleik, hefur gengið í gegnum sannkallaða rússíbanareið síðustu tvö ári.
Meira
Kvennalandsliðið í handknattleik tapaði í gærkvöldi fyrir Tékklandi 25:23 í æfingaleik í Tékklandi en þjóðirnar undirbúa sig fyrir lokakeppni EM sem hefst í Serbíu á þriðjudaginn. Tékkland var yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:10.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.