Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Gerð var viðhorfskönnun innan Félags vélstjóra og málmtæknimanna um hvort segja ætti gildandi kjarasamningum upp við endurskoðun þeirra sem nú stendur yfir.
Meira
Alþjóðlegur snjódagur verður haldin hátíðlegur víða um heim á sunnudag, þar á meðal á Ísafirði. Ókeypis verður á skíðasvæði Ísfirðinga og 25% afsláttur af skíðaleigu.
Meira
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins mótmæltu því harðlega í umræðum á Alþingi í gær að verið væri að keyra umsagnarferli um frumvarp að nýrri stjórnarskrá á allt of miklum hraða í gegnum nefndir þingsins og án þess að eðlileg umræða gæti farið fram í þeim um...
Meira
Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi samþykkti einróma framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum á kjördæmisþingi sem fram fór í húsi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Meira
Óli Björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Ágúst Ólafur Ágústsson, efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, hafa undanfarna daga deilt í blaðagreinum um skuldamál.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Á árum áður var líf á hverju horni í gömlu Reykjavík, bakari, málari, skóari eða kaupmaðurinn á horninu, en nú er þetta að mestu liðin tíð og til dæmis bara einn bólstrari eftir í miðbænum.
Meira
Eldgos hófst á ítölsku eyjunni Stromboli á mánudaginn var en yfirvöld sögðu að íbúar hennar væru ekki í hættu. Stromboli er norðan við Sikiley og íbúar eyjunnar eru um 500. „Við erum hrædd,“ hafði fréttastofan ANSA eftir einum íbúanna.
Meira
Baráttan um brauðmolana getur verið hörð á milli fuglanna og mikilvægt að vera snarpur og einbeittur standi vonir til að ná í bestu bitana. Þá hika fuglarnir ekki við að stela molum sem ætlaðir eru öðrum.
Meira
Fréttaskýring Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Leikskóli Seltjarnarness hlaut á dögunum Grænfánann í fimmta sinn en fáninn er viðurkenning fyrir störf og stefnumótun í þágu umhverfis- og náttúruverndar.
Meira
Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Miklar umræður spunnust á Alþingi í gær um umsóknina um inngöngu í Evrópusambandið. Bæði í óundirbúnum fyrirspurnum og í umræðum um störf þingsins sem fram fóru í kjölfarið.
Meira
Ástrali, sem hefur stundað gullleit í tómstundum, varð fyrir óvæntu happi í fyrradag þegar hann fann um fimm kílógramma þungan gullmola í Viktoríuríki í Ástralíu.
Meira
Alsírski herinn hóf í gær árásir á gasvinnslustöð þar sem hryðjuverkamenn höfðu tekið marga starfsmenn í gíslingu. Um 30 gíslar eru taldir hafa látið lífið í árásinni en samkvæmt heimildum fréttaveitunnar Reuters létu a.m.k. sjö erlendir gíslar lífið,...
Meira
„Í fyrsta skipti frá hruninu árið 2008 flytjast nú umtalsvert fleiri til landsins en frá því. Um er að ræða verulegan viðsnúning á síðasta ársfjórðungi eins og fram kemur í gögnum sem Hagstofa Íslands birti í dag.
Meira
Kosning til formanns Samfylkingarinnar hefst í dag og stendur kjörið yfir til mánudagsins 28. janúar, þegar frestur til að skila inn atkvæðum rennur út kl. 18.00. Kosningarnar eru rafrænar og eru í gegnum vefsetur Samfylkingar, xs.is.
Meira
Umbúðamiðlun ehf. hafði í gær betur í gengislánamáli sem Íslandsbanki höfðaði gegn fyrirtækinu, en málið varðaði lán upp á 120 milljónir í íslenskum krónum sem tekið var árið 2006. Íslandsbanki segir að dómurinn hafi áhrif á tæplega 1.
Meira
Landspítali fékk nýlega gjöf frá Ólöfu Októsdóttur til kaupa á berkjuómspeglunartæki. Ólöf greindist með útbreiddan sarklíkissjúkdóm árið 2007 og hefur náð góðum bata með meðferð, að því er kemur fram í tilkynningu frá Landspítala.
Meira
Hjón í Kópavogi voru dæmd í Hæstarétti í gær til að fella tvö grenitré við lóðarmörk. Trén voru gróðursett stuttu eftir að húsið var reist árið 1961. Trén eru núna um 18 metrar á hæð.
Meira
Þingmenn á Evrópuþinginu gagnrýna það að flugfélög fái að krefja flugfarþega um greiðslu fyrir handfarangur. Telja þeir að Evrópusambandið eigi að hlutast til um að samræma reglur sem gilda um hvað flugfarþegar eiga að greiða fyrir.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Sveitarfélögin gera brunavarnaáætlanir þar sem er lýst helstu hættum og viðbrögðum við þessum venjulegu verkefnum.
Meira
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég treysti því ekki að það verði gert eitthvað fyrir okkur og er tilbúin að labba út [...] maður er búinn að beygja sig í svo mörg ár að manni blöskrar.
Meira
Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær 14 ára fangelsisdóm yfir Guðgeiri Guðmundssyni, en hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að stinga Skúla Eggert Sigurz, framkvæmdastjóra lögmannsstofunnar Lagastoðar, í mars í fyrra.
Meira
Áhorfendur fylgjast með hanaslag í Saint-Amand-les-Eaux í norðanverðu Frakklandi. Hanaat hefur verið stundað í um 6.000 ár og elstu heimildir um það eru frá Persíu. Hanaat er enn stundað víða um heim þótt dýraverndarsamtök hafi barist gegn því.
Meira
Hæstiréttur sýknaði í gær Landsbankann, Fjármálaeftirlitið og íslenska ríkið af kröfum spænska bankans Aresbank. Í málinu var tekist á um túlkun á hugtakinu innlán. Þetta er sama niðurstaða og varð í héraðsdómi.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tvær gerðir tjalda eru nefndar í frumvarpi til nýrra laga um náttúruvernd sem umhverfisráðherra mælti fyrir í vikunni, almenn viðlegutjöld og göngutjöld.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Til er eintak af 2. tölublaði skoptímaritsins Spegilsins frá árinu 1983 í hirslum Landsbókasafns - háskólasafns í Þjóðarbókhlöðunni. Aðgangur að því er hins vegar lokaður, jafnvel fyrir fræðimenn.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í leiðangri sem er nýlokið mældust aðeins um 320 þúsund tonn af kynþroska loðnu sem er langt undir því sem búist var við miðað við mælingar sem gerðar voru við góðar aðstæður í október síðastliðnum.
Meira
Stofnuð hefur verið ný OA-deild fyrir unglinga en fundir deildarinnar eru sérstaklega fyrir ungmenni sem glíma við stjórnlausar matarvenjur. Fundirnir eru á miðvikudögum kl. 16.30-17.30 í Skógarhlíð 8 í húsi...
Meira
Rigning Regnhlífar komu höfuðborgarbúum að góðum notum í gær en utan stöku hverfandi snjóskafla er ósköp fátt í þessari hlýindatíð sem minnir á...
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Búast má við tíðari stórum gróðureldum á Íslandi í framtíðinni vegna loftslagsbreytinga, breyttra búnaðarhátta og gróðurfars en slökkvilið á landinu eru hins vegar ekki nógu vel búin undir þá.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Her Alsírs hóf í gær árásir á gasvinnslustöð þar sem vopnaðir íslamistar höfðu tekið marga starfsmenn í gíslingu. Haft var eftir mannræningjunum að 34 gíslar og fimmtán íslamistanna hefðu beðið bana í árásunum.
Meira
„Síldinni finnst gott að vera þarna [í Kolgrafafirði] en liði eflaust betur ef það væri ekki svona mikið af hval. Það er mikið af háhyrningi á svæðinu.
Meira
Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær sextán ára fangelsisdóm yfir Hlífari Vatnari Stefánssyni en hann var ákærður fyrir að hafa banað unnustu sinni, Þóru Eyjalín, í febrúar í fyrra.
Meira
Útför Stefáns Péturs Eggertssonar verkfræðings var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Birgir Ásgeirsson, prestur í Hallgrímskirkju, jarðsöng og kammerkórinn Schola cantorum söng við athöfnina. Organisti var Hörður Áskelsson. Líkmenn voru f.v.
Meira
Landsbankinn hefur samið við Pálmar Harðarson um kaup á Hljómalindarreit, Brynjureit og Vatnsstígsreit, að því er heimildir Morgunblaðsins herma. Ekki er búið að ganga frá kaupunum heldur vinnur Pálmar nú að því að ganga frá fjármögnun til kaupanna.
Meira
Vilborg Arna Gissurardóttir lauk í gærkvöldi ferð sinni á suðurpólinn. Hún gekk 1140 km á skíðum, en það tók hana 60 daga að komast á pólinn. Vilborg er fyrsti Íslendingurinn í sögunni til að ganga á Suðurpólinn ein síns liðs.
Meira
Vinnumarkaðsátakið Liðsstyrkur er að fara af stað um þessar mundir. Sveitarfélög og atvinnurekendur hafa þegar skapað um 200 störf og hafa fyrstu atvinnuleitendur verið ráðnir á þeim grundvelli sem átakið byggist á. Með átakinu á að skapa 2.
Meira
Fréttaskýring Heimir S. Guðmundsson heimirs@mbl.is Um þessar mundir er verið að hrinda af stað átaksverkefninu Liðsstyrkur. Verkefninu er beint að einstaklingum sem hafa þegar fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta eða munu fullnýta hann á árinu 2013.
Meira
Því er reglulega haldið fram að aðildarferlið gangi vel og er þá átt við að góður gangur sé í aðlögun Íslands að Evrópusambandinu. Þetta heyrist frá forystumönnum ríkisstjórnarinnar og öðrum sölumönnum aðildar.
Meira
Tökulið bandarískrar kvikmyndar um uppljóstrunarvefinn WikiLeaks og stofnanda hans Julian Assange er statt hér á landi og verður í dag tekið upp atriði á Austurvelli þar sem mótmæli í upphafi árs 2009 koma við sögu og þingkonan Birgitta Jónsdóttir.
Meira
Leikritið Breaker eftir Sölku Guðmundsdóttur verður sýnt á áströlsku sviðslistahátíðinni Adelaide Fringe í febrúar og mars en um ein og hálf milljón gesta sækir hátíðina á ári hverju.
Meira
Kíkt var á þýskt sjónvarp á dögunum og litið á helstu stöðvar eða að minnsta kosti allar sem voru í boði. Það er alltaf forvitnilegt að kanna nýja sjónvarpsheima þegar land er lagt undir fót.
Meira
Miðasala á uppsetningu Borgarleikhússins á Músum og mönnum hefur gengið vonum framar og er uppselt á allar sýningar í febrúar. Verkið verður tekið aftur til sýningar í vor þegar leikarinn Ólafur Darri Ólafsson snýr aftur frá Hollywood.
Meira
Tónlistarmaðurinn Jón Þór, sem gerði garðinn frægan sem söngvari og gítarleikari Lödu Sport og Dynamo Fog á árum áður, heldur upp á útgáfu fyrstu sólóplötu sinnar, Sérðu mig í lit? , á Faktorý í kvöld og hefjast tónleikarnir kl. 23.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is The Bootleg Beatles var stofnuð árið 1980 og hefur allar götur síðan flutt tónlist Bítlanna við góðar undirtektir aðdáenda og áheyrenda.
Meira
Útför Marianne Kowalew, sem kölluð var Mamúska, fer fram í dag. Einungis voru 10 dagar í að hún yrði 100 ára. Halldór Guðmundsson rithöfundur skrifaði ævisögu þessarar litríku konu, „Mamutschkas Lebensrezepte“, sem kom út árið 2010.
Meira
Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, tilkynnti í gær styrkveitingar borgarinnar til menningarmála í ár sem nema alls tæpum 95 milljónum króna.
Meira
Hljómsveitin Sykur heldur tónleika á Bar 11 í miðbæ Reykjavíkur í kvöld og verður húsið opnað kl. 21. Aðgangur er ókeypis. Tónleikarnir verða haldnir í kjallaranum og má því búast við hita, svita og sykursætu stuði.
Meira
Í viðtali við hljómsveitina Ylju í blaðinu sl. miðvikudag var m.a. rætt við Smára Tarf Jósepsson. Þau leiðu mistök urðu að Tarfur var skrifað með litlu t-i en það á að skrifast með stórum staf, þar sem um eiginnafn er að ræða en ekki viðurnefni.
Meira
Í dag, föstudag, og á morgun munu nemendur tónsmíðadeildar Listaháskóla Íslands flytja tónleikahald sitt í tónlistarhúsið Hörpu, þar sem flutt verða erindi og boðið upp á röð ókeypis tónleika sem allir áhugasamir tónlistarunnendur eru velkomnir á.
Meira
XL Kvikmynd eftir Martein Þórsson sem segir af þingmanninum Leifi sem er áfengissjúklingur. Hann er skikkaður í meðferð af forsætisráðherra og ákveður að halda eitt gott og villt partí áður en hún hefst, býður í það vinum og velgerðarmönnum.
Meira
Eftir Loft Altice Þorsteinsson: "Þeir sem aðhyllast ríkisrekstur á öllum sviðum telja eðlilegt að almenningur beri ábyrgð á öllum mistökum sem ríkisvaldið gerist sekt um."
Meira
Vonir standa nú til þess að fríverslunarsamningur á milli Íslands og Kína kunni að verða að veruleika á þessu ári en viðræður um hann hafa staðið yfir frá árinu 2007.
Meira
Eftir Örnu A. Antonsdóttur: "Landspítalinn er láglaunasvæði innan ríkisstofnana. Yfirmenn annarra ríkisstofnana sáu sér fært að hækka laun sinna starfsmanna. Engin sátt um það."
Meira
Nei ESB Ég held að það hljóti að vera einhver lög sem banna þessa óáran að framselja allt vald til Brussel með þá fullri aðild að ESB.Við Íslendingar eigum að sjálfsögðu að láta okkur nægja EES-samninginn.
Meira
Eftir Atla Gíslason: "Það verður ekki lengra gengið í aðlögun íslenskra laga að regluverki ESB án þess að breyta stjórnarskrá lýðveldisins Íslands."
Meira
Aðalheiður Ingólfsdóttir fæddist í Krossgerði í Berufirði 31. maí 1941. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 9. janúar 2013. Foreldrar hennar voru Hrefna Sigurðardóttir, fædd 27. mars 1915, dáin 4. nóvember 2000 og Ingólfur Árnason, fæddur 19.
MeiraKaupa minningabók
Ágúst Guðjónsson fæddist í Rifshalakoti, Ásahreppi, Rangárvallasýslu hinn 1. ágúst 1929. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hinn 8. janúar 2013. Foreldrar Ágústs voru hjónin Margrét Guðmundsdóttir, f. 27.9. 1888, d. 25.1.
MeiraKaupa minningabók
Bjarni Dagbjartsson fæddist í Reykjavík 15. maí 1937, hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. janúar 2013. Foreldrar hans voru Aðalheiður Tryggvadóttir, f. 10.11. 1912, d. 22.9. 1994, og Dagbjartur Bjarnason, f. 24.10. 1907, d. 20.5. 1974.
MeiraKaupa minningabók
Björn Hróar Agnarsson fæddist á Akureyri 18. nóvember 1952. Hann lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 7. janúar 2013. Foreldrar Björns Hróars eru Sigurlaug Th. Óskarsdóttir, f. 16. mars 1926, og Agnar Tómasson, f. 22. mars 1923.
MeiraKaupa minningabók
Eva Lind Jónsdóttir fæddist á fæðingarheimilinu í Reykjavík að kvöldi dags 2.9. 1981. Hún lést á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn 8. janúar 2013 eftir stranga en skammvinna baráttu við sjaldgæfan blóðsjúkdóm aðeins 31 árs gömul.
MeiraKaupa minningabók
Eyjólfur Einar Jónsson fæddist á Reykhólum í Reykhólahreppi hinn 10. júní 1925. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 11. janúar 2013. Foreldrar hans voru Jón Hákonarson frá á Stað í Reykhólahreppi, f. 9.5. 1899, d. 1.9.
MeiraKaupa minningabók
Hafsteinn Guðmundsson rafvirki fæddist 9. júlí 1938 á Brennistöðum í Borgarfirði. Hann lést á Landspítalanum að kvöldi 11. janúar á deild 11G. Foreldrar hans voru Guðmundur Breiðfjörð Jóhannsson, sjómaður frá Stykkishólmi, f. 4. júlí 1907, d. 4.
MeiraKaupa minningabók
Helga Þórðardóttir var fædd 2. nóvember 1920 á Bjarnastöðum í Ölfusi. Hún lést 7. janúar 2013 á Kumbaravogi. Foreldrar hennar voru Ásta María Einarsdóttir, f. 11. júlí 1900 á Grímslæk í Ölfusi, d. 28. maí 1981, og Þórður Jóhann Símonarson, f. 6.
MeiraKaupa minningabók
Ingveldur Ásmundsdóttir fæddist á Akranesi 19. júlí 1919. Hún lést á Dvalarheimilinu Höfða Akranesi 12. janúar sl. á 94. aldursári. Foreldrar hennar voru Ásmundur Jónsson, sjómaður og síðar rafvirkjameistari á Akranesi, f. 28. maí 1892, d. 11.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Haukur Guðlaugsson fæddist á Guðrúnargötu 2 í Reykjavík hinn 20. desember 1943. Foreldrar hans voru María Hermannsdóttir húsmóðir, frá Ketilseyri við Dýrafjörð, f. 4. september 1905, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Haukur Guðlaugsson fæddist á Guðrúnargötu 2 í Reykjavík hinn 20. desember 1943. Foreldrar hans voru María Hermannsdóttir húsmóðir, frá Ketilseyri við Dýrafjörð, f. 4. september 1905, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
Óttar Símon Einarsson fæddist 11. október 1943 á Akranesi. Hann lést á heimili sínu, Landakoti, föstudaginn 4. janúar sl. Útför Óttars fór fram frá Akraneskirkju 14. janúar 2013.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Jónsson fæddist í Neskaupstað 31.12. 1938. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík 11.1 .2013. Foreldrar hans voru Jón Svan Sigurðsson, f. 1913, d. 1986, og Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, f. 1913, d. 1992.
MeiraKaupa minningabók
Svanlaug fæddist á heimili sínu, Þórsgötu 4, í Reykjavík, 20. júní 1923. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut á aðfangadag jóla. Útför Svanlaugar fór fram frá Háteigskirkju 9. janúar 2013.
MeiraKaupa minningabók
Árabilið sem birtist með grafi í opnuviðtali í Viðskiptablaðinu í gær sem sýnir hve margir vinna í sjávarklasanum auk framtíðarspár er rangt. Tímabilið átti að vera 2000-2023 en ekki 2000-2013.
Meira
Flugmálayfirvöld og flugfélög víða um heim kyrrsettu í gær flestar Boeing 787 Dreamliner-vélar heimsins þangað til búið er að koma í veg fyrir hættuna á eldsupptökum vegna bilunar í rafgeymum vélanna.
Meira
Félag í eigu Árna Péturs Jónssonar hefur keypt 51% hlut í fyrirtækinu Ísland-Verslun hf. sem á og rekur matvöruverslanirnar Iceland hér á landi. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Meira
Baksvið Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Landsbankinn hefur samið við Pálmar Harðarson um kaup á Hljómalindarreit, Brynjureit og Vatnsstígsreit, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Meira
Samtök fjármálafyrirtækja – SFF – fjölluðu í gær á vefsíðu sinni um frétt Viðskiptablaðs Morgunblaðsins í gær, undir fyrirsögninni Styttist í erlenda lánsfjármögnun íslensku bankanna.
Meira
Ný hraðþjónusta sem kallast eBOX hefur verið tekin í notkun hjá Eimskip og er ætlunin að bjóða þar með upp á hraðari og einfaldari lausnir til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands.
Meira
Vilhjálmur Eg ilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er mjög gagnrýninn á stjórnvöld og það að ekkert sé gert til þess að tryggja afnám gjaldeyrishafta.
Meira
Þýska fjarskiptafyrirtækið Deutsche Telekom ætlar að fækka stjórnendum um 1.200 í Þýskalandi fyrir lok júní, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu, sem AFP greindi frá í gær.
Meira
Í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur eru sunnudagar barnadagar og hefst dagskráin klukkan 15. Næstkomandi sunnudag 20. janúar klukkan 15 verður haldið námskeið í origami.
Meira
Þeir sem eru að læra á hljóðfæri eða bara að prófa sig áfram á eigin vegum sækja sér eflaust margir ýmsilegt á netið. Ein er sú vefsíða sem hentar vel fyrir fólk með áhuga á hljóðfæraleik, en það er síðan ultimate-guitar.com.
Meira
Þeim finnst gaman að koma fram og hafa sungið í brúðkaupi, fermingarveislum og ýmsum öðrum viðburðum. Stelpurnar í stelpubandinu Að eilífu Einar fara létt með að radda sjálfar lögin sem þær syngja og þær hafa líka samið sjálfar eitt lag.
Meira
Lilli klifurmús og hin dýrin í Hálsaskógi, eftir Thorbjørn Egner, kemur nú út á íslensku í þriðja sinn. Hún kom fyrst út í íslenskri þýðingu Huldu Valtýsdóttur og Kristjáns frá Djúpalæk árið 1978.
Meira
Bergur Torfason, Felli í Dýrafirði, sendir lausn í bundnu máli við vísnagátu Sigrúnar Haraldsdóttur sem birtist í Vísnahorninu 13. janúar: Með epli tældi Eva forðum. Af epli Mjallhvít höfði laut. Epli í graut er oft á borðum.
Meira
Ég hef starfað við bókaútgáfu síðan á unglingsárunum. Þetta er skapandi grein sem stendur á þröskuldi mikilla breytinga. Rafrænni útgáfu vex stöðugt ásmegin og það á ekki síst við um námsbækur,“ segir Heiðar Ingi Svansson, sem er 45 ára í dag.
Meira
30 ára Heiðrún lauk prófum frá háskólabrú Keilis og stundar nú kennaranám við HA. Systkini: Sólrún P. Garðarsdóttir, f. 1981; Björgvin A. Garðarsson, f. 1991, og Kristófer D. Garðarsson, f. 1997. Foreldrar: Garðar Jónsson, f.
Meira
30 ára Helgi fæddist í Grindavík og er lyfjafræðingur við Lyfju í Keflavík. Maki: Íris Thordersen, f. 1982, nemi í næringarfræði. Sonur: Heimir Gamalíel, f. 2007. Stjúpdóttir: Elísa, f. 2009. Foreldrar: Helgi Gamalíelsson, f. 1947, starfsm.
Meira
Jóhannes fæddist að Vallakoti í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu 18.1. 1874. Jóhannes var einn merkasti athafnamaður og framfarasinni síðustu aldar. Hann stundaði trésmíðanám á Akureyri og síðan þriggja ára framhaldsnám í Kaupmannahöfn.
Meira
„Mörg umhverfisspjöll eru óafturkræf og það mun verða lýðum ljóst þegar kemur að þeim óafturkræfustu: heimsendi.“ Afturkræfur hefur þýtt „sem krefja (taka) má aftur“ og verið notað um gjafir, styrki, lán o.þ.u.l. Tjón , t.d.
Meira
Akureyri Sesar Amír Geirdal fæddist 20. mars kl. 6.17. Hann vó 2.330 g og var 46,5 cm langur. Foreldrar hans eru Katrín Ósk Steingrímsdóttir og Óskar Björn Guðmundsson...
Meira
30 ára Teitur ólst upp á Akureyri, hefur stundað sjómennsku um árabil og er nú bílstjóri hjá Landflutningum á Akureyri. Dóttir: Aníta Líf Teitsdóttir, f. 2006. Systur: Tinna Ösp, f. 1991, og Berglind Ösp, f. 1994. Foreldrar: Kamilla Hansen, f.
Meira
90 ára Dóra Magnúsdóttir Kristín Eyvindsdóttir Sigríður Þórðardóttir 85 ára Einar Þ. Hjaltalín Árnason Tryggvi Árnason 80 ára Sigrún Jónsdóttir 75 ára Guðrún Ágústa Sigurðardóttir Sigrún Sigurðardóttir 70 ára Alma V. Sverrisdóttir Edda M.
Meira
Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Evrópumeistara Dana, vill leggja Íslendingum lið með því að tryggja þeim hagstæðari mótherja í 16 liða úrslitunum á HM.
Meira
Friðrik Stefánsson , miðherji Njarðvíkur, var í gær úrskurðaður í tveggja leikja keppnisbann af aganefnd KKÍ vegna brottvísunar sem hann fékk í grannaslagnum á móti Keflavík á dögunum.
Meira
Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Lið Katars er í þeirri stöðu að með sigri gegn Íslendingum í lokaumferð riðlakeppninnar á HM á Spáni í kvöld komast Katarmenn í 16-liða úrslitin og senda íslenska liðið heim.
Meira
Helga Dagný Bjarnadóttir hefur gengið til liðs við kvennalið Aftureldingar í knattspyrnu úr ÍR. Helga er miðjumaður og hefur spilað 92 leiki með meistaraflokki frá því hún var 15 ára – en hún verður 21 árs í næsta mánuði.
Meira
Króatar unnu Egypta, 24:20, í lokaleik dagsins í D-riðli heimsmeistaramótsins í handknattleik karla og komust þar með á ný upp að hlið Spánverja í efsta sæti riðilsins með átta stig að loknum fjórum leikjum.
Meira
Þýska meistaraliðið Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar og Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson leika með, er á höttunum eftir franska handknattleiksmanninum Nikola Karabatic.
Meira
Í Keflavík Skúli B. Sigurðsson sport@mbl.is Stjörnumenn sóttu Keflvíkinga heim í Toyotahöllinni í gærkvöldi og fyrir leik var búist við hörkuviðureign þar sem bæði liðin eru að berjast á svipuðum slóðum í deildinni.
Meira
Fréttaskýring Kristján Jónsson kris@mbl.is Dómur féll í nokkuð óvenjulegu máli hjá Knattspyrnusambandi Íslands á miðvikudaginn þegar knattspyrnumanninum Hlyni Atla Magnússyni var heimilað að rifta samningi sínum við úrvalsdeildarlið Fram.
Meira
Hornamaðurinn Robert Orzechowski tryggði Pólverjum sigur á Serbum, 25:24, í C-riðli heimsmeistaramótsins í handknattleik í hnífjöfnum og spennandi leik.
Meira
Fótbolti Skúli B. Sigurðsson sport@mbl.is Guðmundur Steinarsson, knattspyrnumaðurinn reyndi, hefur tekið þá ákvörðun að segja skilið við Keflvíkinga og færa sig um set en þó ekki langt. Guðmundur mun á næstu leiktíð leika með Njarðvíkingum í 2.
Meira
Spánn Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, fyrri leikur: Atlético Madrid – Real Betis 2:0 Reykjavíkurmót karla Fram – Víkingur R. 1:1 Fylkir – Leiknir R.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.