Ríki og sveitarfélög hafi á síðustu árum aukið álögur á heimilin með ítrekuðum hækkunum á gjaldskrám og neyslusköttum. Þessar hækkanir hafi skilað sér beint út í verðlag og valdið aukinni verðbólgu. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin var á vegum ASÍ.
Meira
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna kröfu um gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa lokkað tvær sjö ára stúlkur upp í bíl sinn í Árbæ. Rétturinn segir athæfið alvarlegt en meira þurfi að koma til.
Meira
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir manni sem er sterklega grunaður um kynferðisbrot gegn barnabarni sínu og annarri stúlku. Málið kom upp 13. janúar sl. þegar lögreglu barst tilkynning um meint kynferðisbrot mannsins gegn barnabarni sínu.
Meira
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að hún væri enn bjartsýn á að Íslendingar gætu náð fram sérlausnum í ýmsum málum í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Meira
Sviðsljós Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Vegagerðin telur sig vera töluvert nær því að átta sig á ástæðu tjörublæðinga á þjóðvegunum norðanlands og vestan sem ollu nokkru tjóni á ökutækjum. Líkt og fram hefur komið í Morgunblaðinu og á mbl.
Meira
Hæstiréttur hefur dæmt Karl Steingrímsson, gjarnan kenndan við Pelsinn, og þrotabú eignarhaldsfélagsins Vindasúlna ehf. til að greiða 24.526.512 krónur ásamt dráttarvöxtum til Arion banka.
Meira
Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa-Fjarðaáls, tekur við heillaóskabréfi frá Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, úr hendi Luis Arreagas, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, og Gylfa Sigfússonar, varaformanns Amerísk-íslenska...
Meira
„Íslenskar konur virðast aldrei hafa elskað eiginmennina jafnheitt og nú, slík er blómasalan,“ segir Soffía Rósa Gestsdóttir hjá Grænum markaði. Þorrinn gengur í garð í dag, með bóndadegi, og þá er hefð fyrir að konur færi mönnum sínum blóm.
Meira
Bridgehátíð Reykjavíkur hófst í gær á Reykjavík Natura-hótelinu en mótið stendur yfir nú um helgina. Mótið hefur verið haldið allt frá árinu 1982 en fjöldi erlendra spilara hefur tekið þátt í því í gegnum tíðina, síðustu ár á bilinu 50-60 spilarar.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Frumvarpið er viðamikið og er þar m.a. kveðið á um mikilvægar réttarbætur fyrir útlendinga utan EES sem vilja setjast að hér á landi.
Meira
Hestamannafélögin á Vesturlandi hafa boðið hestamönnum í Norðvesturkjördæmi að taka þátt í Fjórðungsmóti á Kaldármelum í sumar. Mótið verður haldið dagana 3.-7. júlí.
Meira
Frönsk kona, Florence Cassez, sem setið hefur í fangelsi í Mexíkó í sjö ár fyrir aðild að mannráni, kom heim til Frakklands í gær. Á miðvikudag úrskurðaði dómstóll í Mexíkó að Cassez skyldi látin laus.
Meira
Heilbrigðissvið Icepharma hóf nýtt ár með því að koma færandi hendi á Barnaspítala Hringsins og gefa þangað fjögur hjálpartæki ætluð fötluðum eða veikum börnum.
Meira
Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Það verður væntanlega núna mjög fljótlega. Það verður allavega ekki eftir neinu að bíða eftir helgina,“ segir Steingrímur J.
Meira
Svalir Kvenmenn á göngu í miðbænum í Reykjavík fara framhjá auglýsingu glaðra útvarpsmanna, Svala og Svavars, sem lífga upp á tilveruna og ylja fólki á svölum...
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mikilvægt er að gæta að öryggi persónuupplýsinga og annarra gagna á netinu, ekki síst í tengslum við vinsælar samskiptasíður, að sögn dr. Reys LeClercs Sveinssonar, starfsmanns Deloitte.
Meira
Viðtal Hjörtur J. Guðmundsson hjorturj@mbl.is „Við höfum skilning á því að það séu þingkosningar framundan og við þekkjum það af eigin raun að það getur haft áhrif á slík mál. En ég tel hins vegar enga ástæðu til þess að hafa áhyggjur.
Meira
Gísli Örn Garðarsson og félagar í Hamskiptunum fá fjórar og hálfa stjörnu hjá gagnrýnanda Fulham & Hammersmith Chronicle og fjórar stjörnur í The Guardian.
Meira
Fréttaskýring Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Næstkomandi sunnudag hefst sala á lottóleiknum EuroJackpot á Íslandi en um er að ræða eitt stærsta lottó veraldar og getur 1.
Meira
Íslensk getspá hefur lagt um 80 milljónir króna í nýjan lottóleik sem fer í sölu á Íslandi á sunnudaginn. Leikurinn heitir EuroJackpot, er einn sá stærsti í heimi og fjárfesting til framtíðar, segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar...
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Jón Ebbi Björnsson var loftskeytamaður og símritari til sjós og lands í um hálfa öld, byrjaði á sjónum 1963 og var bæði á flutningaskipum og togurum.
Meira
Brottnám á legi og leghálsi í gegnum kviðsjá var framkvæmt í fyrsta skipti á Landspítalanum hinn 21. janúar síðastliðinn, auk eitlatöku frá grindarholsæðum. Fram til þessa hefur þetta verið gert með opnum skurðaðgerðum.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Miklu fleiri svartbakar og hvítmáfar skiluðu sér í vetrarfuglatalningar Náttúrufræðistofnunar 2012 en í talningum á undanförnum áratug. Í gær höfðu borist niðurstöður úr talningu á 156 svæðum og var von á fleirum.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Réttur flóttamanna á Íslandi til að sameinast fjölskyldum sínum verður aukinn verði frumvarp um ný innflytjendalög samþykkt. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir réttindin munu ná til allra útlendinga.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Tollgæslan lagði hald á umtalsvert meira magn af vopnum í fyrra en síðustu tvö ár á undan. Alls lagði hún hald á 140 vopn á síðasta ári, flest á Keflavíkurflugvelli eða um hundrað talsins.
Meira
Stjórnvöld í Norður-Kóreu tilkynntu í gær að þau hygðust sprengja kjarnorkusprengju í tilraunaskyni. Að auki yrði fleiri langdrægum eldflaugum skotið á loft í tilraunaskyni. Þetta kom fram í tilkynningu frá þjóðvarnaráði Norður-Kóreu.
Meira
Íslamski hryðjuverkahópurinn, sem gerði árás á gasvinnslu í Alsír og tók fjölda gísla, naut aðstoðar innan úr gasvinnslunni. Þetta sagði norski utanríkisráðherrann Espen Barth Eide við norska blaðið VG í gær.
Meira
SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Guðjón Birgisson, skurðlæknir á Landspítalanum, segir brýnt að koma upp hermikennslumiðstöð í læknisfræði hérlendis sem fyrst og mikilvægt sé að allir, sem hlut eiga að máli, komi að borðinu.
Meira
Sjálfstæðisflokkurinn efnir til prófkjörs í tveimur kjördæmum á morgun, laugardag, vegna alþingiskosninganna í apríl n.k., í Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi. Í Suðurkjördæmi er búist við fyrstu tölum um kl. 22 á laugardagskvöld.
Meira
Eitt stærsta og útbreiddasta dagblað Spánar, El Pais, baðst í gær afsökunar eftir að hafa birt forsíðumynd sem átti að vera af Hugo Chávez, forseta Venesúela. Á myndinni var mjög veiklulegur maður í sjúkrarúmi, tengdur við allskyns slöngur.
Meira
Andri Karl andri@mbl.is Karlmaður um þrítugt, Logi Már Hermannsson, var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi í Hæstarétti fyrir fíkniefnainnflutning.
Meira
Retro Stefson hyggur á tónleikahald í níu löndum á næstu þremur mánuðum. Bókaðir hafa verið 25 tónleikar, m.a. í Hörpu 15. febrúar, Kennedy Center í Washington DC 24. febrúar og Lexington í London 25. mars.
Meira
Sameinuðu þjóðirnar segja að þeim Sýrlendingum, sem koma í flóttamannabúðir í Jórdaníu, hafi fjölgað mjög að undanförnu. Í samtali við breskra ríkisútvarpið BBC sagði fulltrúi SÞ að allt að 3.
Meira
Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Skiptar skoðanir virðast vera um ræðu Davids Camerons, forsætisráðherra Bretlands, meðal kaupsýslumanna þar í landi.
Meira
Tveir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar eftir umferðarslys á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á áttunda tímanum í gærkvöldi. Lögregla, sjúkralið og slökkvilið voru kölluð á vettvang en meiðsli mannanna voru sögð minniháttar.
Meira
„Þeir sækja þarna í melfræin. Ég hef séð það áður en yfirleitt aldrei fyrr en það er orðinn mikill snjór og melstöngin stendur upp úr snjónum.“ Svo komst Þórir N.
Meira
Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Ég er nú ekkert viss um að þetta breyti eins miklu í reynd og það lítur út fyrir að gera á yfirborðinu af ástæðum sem menn væntanlega þekkja,“ segir Steingrímur J.
Meira
Viðtal Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tveir litlir útgerðarstaðir voru í landi jarðarinnar Bæjar á Höfðaströnd á 19. og 20. öld, Bæjarklettar og Kotin, og þar bjuggu tugir manna á nokkrum býlum.
Meira
Tiltekin ummæli Björns Bjarnasonar, fv. ráðherra, um Jón Ásgeir Jóhannesson í bók um Baugsmálið voru ómerkt af Hæstarétti í gær. Björn þarf hins vegar ekki að greiða Jóni Ásgeiri miskabætur eða kostnað vegna birtingar dómsins.
Meira
Raddir fólksins boða til útifundar um stjórnarskrármálið á Austurvelli á morgun, laugardaginn 26. janúar, klukkan 15:00. Ræðumenn verða Halldóra K. Thoroddsen, rithöfundur og Örn Bárður Jónsson, prestur.
Meira
Varðskipið Þór er nú í þurrkví hjá Slippnum á Akureyri. Skipið var tekið upp í kvína þann 15. janúar og síðan hafa að jafnaði um 30 manns unnið við hin ýmsu viðgerðar- og viðhaldsverkefni.
Meira
Þeir Ottó Markússon og Jóhann Snorri Jóhannesson í Nóatúni bera fram trog af þorramat en þorrinn, að gamla norræna tímatalinu, hefst í dag, bóndadag. Hefst hann alltaf föstudag í þrettándu viku vetrar.
Meira
Kona var flutt á slysadeild Landspítala eftir árekstur fjögurra bíla efst í Kömbunum á Hellisheiði rétt fyrir klukkan 19 í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er konan þunguð en meiðsli hennar eru minniháttar. Að öðru leyti urðu ekki slys á...
Meira
Sjávarútvegur hefur ekki mikla þýðingu í ESB. Hann er því niðurgreiðanlegur þar og stendur sem slíkur í samkeppni við Ísland. Í Noregi vegur hann þyngra, en er þó léttur í hinu efnahagslega dæmi þar, einkum ef miðað er við íslenskan veruleika.
Meira
Fyrsta kvikmynd Dave Grohl, forsprakka Foo Fighters og fyrrum trymbils hinnar goðsagnakenndu „gruggsveitar“ Nirvana, var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í Utah í vikunni.
Meira
Árni Heiðar Karlsson djasspíanóleikari leikur nýja frumsamda tónlist á hádegistónleikum í Víðistaðakirkju í dag, föstudag kl. 12.00 til 12.30. Meðleikarar hans eru Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.
Meira
Þær Anna Jónsdóttir sópransöngkona og Sophie Schoonjans hörpuleikari koma fram á hádegistónleikum í Háteigskirkju í dag, föstudaginn 25. janúar. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.
Meira
Heimildarmynd Gríms Hákonarsonar sem nefnist Hvellur var vel tekið á frumsýningu í Bíó Paradís nú í vikunni. Myndin fjallar um mótmæli bænda í Suður-Þingeyjarsýslu, en að kvöldi 25.
Meira
ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna Litbrigði í safnaðarheimili Akureyrarkirkju á morgun kl. 14. „Nafn hópsins stendur fyrir Áhugaljósmyndarafélag fyrir konur og er félagsskapur kvenna á Akureyri og í Eyjafirði sem eiga ljósmyndun að áhugamáli.
Meira
Birta Guðjónsdóttir, myndlistarmaður og sjálfstætt starfandi sýningarstjóri, fjallar um verkefni sín og vinnuaðferðir á opnum fyrirlestri í myndlistardeild Listaháskólans, Laugarnesvegi, í dag kl. 12.30. Birta býr og starfar í Berlín og Reykjavík.
Meira
Les Misérables Söngleikurinn Vesalingarnir eftir Alain Boublil og Claude-Michel Schönberg byggist á samnefndri sögu Victors Hugo. Þar segir frá Jean Valjean (Hugh Jackman) sem flýr úr haldi lögreglu eftir nærri 20 ára fangelsisvist fyir brauðstuld.
Meira
Í sumum tilvikum eykst áhugi á mat og matargerð þegar aldurinn færist yfir og fólk þroskast á þann veg að það hættir að borða til að lifa en lifir þess í stað til að borða. Eða því sem næst.
Meira
Eftir Leif Sveinsson: "Fólk var beðið að senda blaðinu alla einseyringa og tveggjeyringa, sem það ætti. Fé þetta ætti að renna til Þorvaldar til Sovétferðar."
Meira
Eftir Ingrid Kuhlman: "Vilborg Arna er okkur öllum hvatning um að ekkert er ómögulegt. Hún er frábær fyrirmynd fyrir okkur öll um að við getum látið drauma okkar rætast."
Meira
Eftir Vigdísi Hauksdóttur: "Vinstrimenn hafa sjaldnast kunnað að forgangsraða í ríkisrekstri, skorið er niður þar sem síst skyldi og fjármagninu beint í gæluverkefni."
Meira
Eftir Ólaf Ásgeir Steinþórsson: "Til að öðlast trúverðugleika verður flokksforystan, flokksráð og þingflokkurinn að standa í lappirnar og fara að samþykktum landsfunda undanbragðalaust..."
Meira
K venfyrirlitning á netinu og í ýmsum fjölmiðlum veldur því að margar konur veigra sér við að viðra skoðanir sínar á opinberum vettvangi eða koma fram í fjölmiðlum.
Meira
Eftir Ásgeir Jónsson: "Skráning Landsvirkjunar á hlutabréfamarkað og útboð á 30% hlutafjár fyrirtækisins gæti skilað fimmföldum ávinningi að íhugun þess sem hér ritar."
Meira
Hérna – nú, en sko – ég meina Það færist nú í vöxt til mikils baga, að fólk sem rætt er við í ljósvakamiðlunum, jafnvel skynugt og langmenntað, sé sífellt tafsandi og skjóti endalaust inn í mál sitt óþarfa orðum á borð við...
Meira
Eftir Erlu Sigríði Ragnarsdóttur: "Við þurfum öfluga ríkisstjórn sem heldur styrkri hendi um hagstjórnina, sem blæs til sóknar og skapar ný og fjölbreytt tækifæri í íslensku samfélagi."
Meira
Aðalheiður Ingólfsdóttir fæddist í Krossgerði í Berufirði 31. maí 1941. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 9. janúar 2013. Útför Aðalheiðar fór fram frá Grundarkirkju í Eyjafirði 18. janúar 2013.
MeiraKaupa minningabók
Alfreð R. Jónsson fæddist í Reykjavík 24. ágúst 1933. Hann lést á Hrafnistu 29. desember 2012. Útför Alfreðs fór fram frá Skálholtskirkju 12. janúar 2013.
MeiraKaupa minningabók
Björn Gunnarson nuddari, fæddist á Siglufirði 6. júlí 1942. Hann lést á Landspítalanum hinn 19. janúar 2013. Björn var sonur hjónanna Birnu Kristbjargar Björnsdóttur, f. 1918, d. 2003, og Gunnars Björnssonar sjómanns á Ólafsfirði, f. 1919, d. 2004.
MeiraKaupa minningabók
Ebenezer Jensson fæddist í Tungu í Valþjófsdal, Önundarfirði, 26. ágúst 1947. Hann lést á heimili sínu aðfaranótt 14. janúar 2013. Foreldrar hans voru Jens Guðmundsson, f. 24.10. 1914, d. 29.9. 1998, og Jóhanna Ebenesersdóttir, f. 4.9. 1919, d. 5.1.
MeiraKaupa minningabók
Egill Guðlaugsson fæddist í Grindavík 25. maí 1924 og andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir 9. janúar 2013. Hann var jarðsunginn í kyrrþey að eigin ósk frá Aðventkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. janúar 2013.
MeiraKaupa minningabók
Guðný Hulda Steingrímsdóttir fæddist í Reykjavík 14. ágúst 1924. Hún lést á heimili sínu að Kaplaskjólsvegi 64 sunnudaginn 13. janúar 2013. Útför Guðnýjar fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
MeiraKaupa minningabók
Guðný Sigurbjörg Thordersen fæddist í Keflavík 9. júní 1935. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að morgni dags 15. janúar 2013. Foreldrar hennar voru hjónin Rebekka Friðbjarnardóttir húsfreyja, f. 17. júní 1911, d. 3.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Árnadóttir (Únna) fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1931. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 20. janúar sl. Hún var dóttir hjónanna Árna Magnússonar, f. 1897, d. 1942, og Valdísar Þorvaldsdóttur, f. 1902, d. 1952.
MeiraKaupa minningabók
Halldór S. Magnússon fæddist í Reykjavík 27. maí, 1930. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni við Sóltún í Reykjavík 13. janúar 2013. Foreldrar hans voru Magnús Halldórsson sem fæddist í Dalasýslu 7. júní, 1904 og lést í Reykjavík 24.
MeiraKaupa minningabók
Hallgrímur Sigurðsson var fæddur í Reykjavík hinn 19. desember 1963 og lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi hinn 18. janúar 2013. Foreldrar Hallgríms voru Ingibjörg Elín Aðalsteinsdóttir, f. 19.4. 1927, d. 10.9. 2009, og Sigurður Hallgrímsson, f. 18.3.
MeiraKaupa minningabók
Helga Valborg Pétursdóttir fæddist í Reykjahlíð í Mývatnssveit 26. júní 1936. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 8. maí 2012. Útför Helgu Valborgar fór fram frá Akureyrarkirkju 18. maí 2012. Arnþór Björnsson fæddist í Vopnafirði 16. júlí 1931.
MeiraKaupa minningabók
Henrik Vilhelm Aunio Árnason fæddist 7. október 1926 í Turku, Finnlandi. Hann lést mánudaginn 14. janúar 2013 á lungnadeild Landspítala í Fossvogi. Foreldar hans voru Hyvä Lempi Aunio, f. 1906, húsmóðir og Vilho Johannes Aunio, f. 1896, trésmiður.
MeiraKaupa minningabók
Stefnir hf., dótturfélag Arion banka, hefur lokið fjármögnun á 7,5 milljarða framtakssjóði, Stefni – íslenska athafnasjóðnum II (SÍA II), samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Stefni.
Meira
Annar stærsti banki Þýskalands, Commerzbank, ætlar að fækka störfum um 4-6 þúsund á næstu þremur árum. Það þýðir að einn af hverjum tíu starfsmönnum bankans muni missa vinnuna.
Meira
Hörður Ægisson hordur@mbl.is Þrátt fyrir skattahækkanir á umliðnum árum voru skatttekjur ríkissjóðs á laun og hagnað á hvern starfandi mann á liðnu ári nánast jafn miklar að raunvirði og á árinu 2004.
Meira
Gerðar hafa verið skipulagsbreytingar hjá fyrirtækinu SagaMedica ehf. Þráinn Þorvaldsson hefur látið af störfum framkvæmdastjóra og við tók Perla Björk Egilsdóttir sem var áður markaðsstjóri fyrirtækisins.
Meira
Þetta vilja börnin! sjá heitir sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum sem gefnar eru út á árinu 2012. Sýningin verður opnuð á sunnudaginn, 27. janúar 2013, kl.
Meira
Óli gerði sér lítið fyrir og hætti alfarið að borða nammi í heilt ár. Með því sparaði hann foreldrum sínum 20.000 krónur. Þegar þau færðu honum afraksturinn sem verðlaun fyrir að standa sig vel, þá ákvað hann að gefa allan peninginn til UNICEF.
Meira
Ein er sú síða sem nýtist vel til að fá leiðbeiningar um hvernig skal gera nánast hvað sem er. Þetta er vefsíðan www.wikihow.com. Yfirskriftin á forsíðunni er: The world's how to manual, svo fólk ætti ekki að koma að tómum kofunum.
Meira
Dansíþróttasamband Íslands stendur fyrir glæsilegu alþjóðlegu dansíþróttamóti í Laugardalshöll laugardaginn 27. janúar 2013 í samvinnu við RIG – Reykjavik International Games.
Meira
Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður nú um helgina 25.-28. jan. Þátttakendur þurfa að fylgjast með garði í klukkutíma, föstudag, laugardag, sunnudag eða mánudag. Skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og mesta fjölda af hverri tegund.
Meira
Blæðingar á þjóðvegum hafa mjög verið til tals undanfarna daga að gefnu tilefni. Jón Karl Einarsson slær á létta strengi: Mögnuð smíð er móðir Jörð, mjög í kvenmannslíki gjörð. Þó tók steininn þyngsta úr er Þjóðvegurinn fór á túr.
Meira
Lilja M. Jónsdóttir kennslufræðingur hefur varið doktorsritgerð sína „Hitching One's Wagon to a Star. Narrative Inquiry into the First Five Years of Teaching in Iceland“ (Að eiga sér leiðarstjörnu.
Meira
Að e-ð renni út eins og heitar lummur – maður hugsar sér t.d. afmælisveislu þar sem varla hefst undan að baka – þýðir oftast að það seljist mjög vel . Að e-ð „seljist eins og heitar lummur“ spillir...
Meira
Reykjavík Alexandra Bergmann fæddist 17. apríl kl. 13.21. Hún vó 4.045 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Ester Bergmann Halldórsdóttir og Alexander Jensen Hjálmarsson...
Meira
40 ára Sigríður lauk stúdentsprófi frá ME og er sölukona hjá Pennanum. Maki: Einar Þór Einarsson, f. 1973, forritari. Börn: Alex Skúli Einarsson, f. 1992; Alexander Björnsson, f. 1993, og Guðlaug Nóa Einarsdóttir, f. 2008.
Meira
95 ára Ásta J. Guðmundsdóttir 90 ára Margrethe Kristinsson 85 ára Guðbjörg Agnarsdóttir Gunda Cecelie Jóhannsdóttir Ragna G. Pálsdóttir 80 ára Ásta E. Kolbeins Sigríður Guðjónsdóttir 75 ára Lára Angantýsdóttir Sesselja M.
Meira
40 ára Valbjörg útskrifaðist sem leikskólakennari frá HÍ 2001 og vinnur á leikskólanum Ársölum. Maki: Birgir Örn Hreinsson f. 25.10. 1961, ökukennari á Sauðárkróki. Börn: María Ósk Sigurðardóttir f. 7.11. 1995, og Berglind Björg Sigurðardóttir f. 19.11.
Meira
Víkverji hefur ekki heyrt af hundsbiti þessa vikuna. Rifjaði þetta upp í hádeginu í fyrradag þegar hann sá bíl aka niður að Rauðavatni og á eftir hljóp laus hundur.
Meira
30 ára Ýr lauk BS-prófi í ferðamálafræði frá HÍ 2006, stundar nám í kjólasaumi við Tækniskólann, starfar hjá Iceland Travel og rekur fyrirtækið Reykjavík Trading Co, ásamt fleirum. Maki: Anthony Bacigalupo, f. 1984, listamaður.
Meira
25. janúar 1938 Rauð norðurljós sáust bæði hér á landi og annars staðar í Evrópu. Þau „voru mörgum nýstárleg loftsýn og hafa vakið mikið umtal og jafnvel geig hjá sumum,“ sagði Jón Eyþórsson veðurfræðingur í þættinum Um daginn og veginn. 25.
Meira
Hinni 19 ára gömlu Sloane Stephens tókst ekki að komast alla leið í úrslit ástralska meistaramótsins í tennis sem fram fer þessa dagana í Melbourne en það er fyrsta af fjórum risamótum ársins.
Meira
Fótbolti Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Brasilíumenn eru langvinsælasta varan á fótboltamarkaðinum fjórða árið í röð en 515 Brassar leika með þeim 478 liðum sem skipa 31 af stærstu deildum Evrópu.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Keppnisfyrirkomulagi bikarkeppni HSÍ, Símabikarsins, verður breytt á þessu ári. Nú fara undanúrslitaleikir karla og kvenna fram sömu helgina og úrslitaleikirnir.
Meira
Evrópudeild kvenna: B-riðill: Famila Schio – Good Angels Kosice 67:78 *Helena Sverrisdóttir skoraði 11 stig og tók sjö fráköst hjá Good Angels Kosice.
Meira
Orri Freyr Gíslason leikur með Val í N1-deild karla í handknattleik þegar keppni hefst á nýjan leik í deildinni í byrjun næsta mánaðar að loknum hléi vegna heimsmeistaramótsins á Spáni.
Meira
Helena Sverrisdóttir átti flottan leik þegar lið hennar Good Angels Kosice frá Slóvakíu sigraði Famila Schio á útivelli 78:67 í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik í gærkvöli.
Meira
Þegar Frakkar unnu heimsmeistaramótið í handbolta annað skiptið í röð í Svíþjóð fyrir tveimur árum hafði það ekki verið gert síðan Rúmenar unnu í Tékkóslóvakíu 1964 en þeir unnu einnig keppnina á undan því í Vestur-Þýskalandi 1961.
Meira
Vel kemur til greina að keppnisfyrirkomulagi heimsmeistaramóts karla og kvenna í handknattleik verði breytt til fyrra horfs frá og með næsta móti.
Meira
Ekki er útlit fyrir annað en að sundkappinn Jón Margeir Sverrisson verði í eldlínunni á heimsmeistaramótinu í sundi fatlaðra í ágúst. Mótið fer fram í Montreal í Kanada dagana 11.-17.
Meira
Slóvakía, sem tvisvar hefur sótt um að halda vetrarólympíuleikana, 2002 og 2006, en hreppt hnossið í hvorugt skiptið, íhugar nú sameiginlegt tilboð með Póllandi.
Meira
Enska knattspyrnusambandið mun styðjast við sjónvarpsupptökur og skýrslu dómara til að meta hve langt bann Belginn Eden Hazard fær fyrir að sparka í boltastrák í leik Chelsea og Swansea á Liberty Stadium í fyrrakvöld þar sem Chelsea féll úr leik í...
Meira
Reykjavíkurmót karla A-riðill: Þróttur R. – KR 0:3 Þorsteinn Már Ragnarsson 23., 88., Jónas Guðni Sævarsson 90. Fjölnir – ÍR 2:0 Guðmundur Karl Guðmundsson 20., 41. Staðan: KR 22005:16 Fjölnir 22005:06 Valur 21015:33 Þróttur R.
Meira
Þorrinn er vertíð hjá Norðlenska. Grísasulta, lundabaggar og pungar. Tugir manna vinna nú við að raða á bakkana. Rengi og hreifar horfnir af borðinu.
Meira
Í dag er bóndadagur sem markar upphaf þorramánaðar samkvæmt hinu forna tímatali okkar. Þorri var í þá daga ekki aðeins mánaðarnafn heldur eins konar persónugerving á árstíðinni – frumgerðin af vetri konungi, að því er segir hér á síðum blaðsins.
Meira
Hin seinni ár hefur talsvert færst í vöxt að brugghúsin hér á landi bruggi árstíðabundinn bjór. Þorrinn er þar ekki undanskilinn og stendur sælkerum margvíslegt úrval til boða þegar kemur að bjór til að dreypa á með þorrakrásum.
Meira
Þorramatur tengir okkur við upprunann. Siður frá 19. öld. Aftur hafið til vegs um miðja 20. öld. Nýr kjóll og pússaðir dansskór tengjast minningunum.
Meira
Nýlega var opnaður vefur með uppskriftum að óáfengum drykkjum sem sóma sér vel í þorrablóti. Þeir sem að vefsetrinu oafengt.is standa hafa kynnt nýja hátíðardrykki fyrir hver áramót frá 2005 – og standa þeir einnig fyrir sínu á þorranum.
Meira
Sagt er að tímarnir breytist og mennirnir með. Það má til sanns vegar færa en hitt má telja næsta öruggt að þorrahefðin blífur frá einum tíma til annars enda læra nýjar kynslóðir jafnharðan að meta þorrakrásirnar.
Meira
Mikið er lagt undir hjá SS við framleiðslu á þorramat. Ferlið er langt og rétt bragð er mikilvægt. Verksmiðjustjórinn fer sjálfur á þrjú þorrablót.
Meira
Þó að margvíslegar krásir rati á borð landsmanna á þorranum þá hefur ostur ekki verið þar á meðal hingað til. Sælkerar sem sakna ostsins á þeim vettvangi geta nú glaðst yfir nýjum þorragráðaosti frá MS.
Meira
Það er fleira en súrmeti í boði þegar kemur að leiðum til að færa þorrann heim í hús. Íslensk hönnun með þjóðlegu ívafi gerist sífellt fjölþættari og hönnuðir sækja í síauknum mæli í hinn þjóðlega arf, sem er vel.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.