Fjögur ungmenni um tvítugt sluppu með minni háttar áverka eftir bílveltu á Skeiðavegi um klukkan 4.30 í fyrrinótt. Talið er að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri. Atvikið átti sér stað skammt frá Gunnbjarnarholti.
Meira
Anne Thorseth og Þóra Sigurðardóttir sýna í sal Íslenskrar grafíkur við Tryggvagötu 2.-14. apríl. Verkin eru unnin á pappír og eru teikningar, stafræn prent og þurrnál. Verkefni þeirra hafa sótt kveikju m.a.
Meira
Meira en 100 skemmtiferðaskip komu til Svalbarða á liðnu sumri og um borð í mörgum þeirra voru 3-4 þúsund manns. Norðmenn hafa áhyggjur af óhöppum á þessum slóðum. Alþjóðasiglingamálastofnunin undirbýr nú reglur um siglingar á pólsvæðum.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 116 orð
| 1 mynd
Flokkur heimilanna kynnti í gær framboð sitt við næstu alþingiskosningar undir bókstafnum I. Átta stjórnmálasamtök og áhugamannahópar ákváðu að sameinast undir merkjum Flokks heimilanna. Boðið verður fram í öllum kjördæmum.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 461 orð
| 1 mynd
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta er eins og í ævintýrunum,“ sagði Jakob H. Magnússon veitingamaður og brosti breitt þar sem hann hafði landað enn einum sjóbirtingnum í í Tungulæk í Landbroti í gær.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 311 orð
| 2 myndir
Stangveiði Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta hefur verið snilldin ein,“ sagði Gunnar J. Óskarsson, formaður Stangaveiðifélags Keflavíkur, þegar opnunarhollið var að ljúka veiðum í Geirlandsá í gærkvöld.
Meira
Um páskana viðraði sérdeilis vel til útivistar og til ferðalaga og voru mörg þúsund manns á faraldsfæti. Þessi hjólagarpar, sem voru á leið frá Gullfossi að Geysi á páskadag, sameinuðu þetta tvennt: hreyfðu vöðvana duglega og ferðuðust um leið.
Meira
Umhverfisverndarsamtökin Greenpeace stóðu fyrir uppákomu á Moskvuá við Kremlarmúra í gær þar sem einn aðgerðarsinna stóð á manngerðum ísfleka íklæddur ísbjarnarbúningi.
Meira
Einkareknir fjölmiðlar í Myanmar (Búrma) gáfu á mánudag út dagblöð í fyrsta sinn í áratugi, í kjölfar þess að strangar reglur um ritskoðun voru afnumdar í ágúst síðastliðnum.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 676 orð
| 2 myndir
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Útlitið er slæmt. Fólki finnst stjórnvöld veita takmarkaðar upplýsingar og því er óvissan mikil. Þá þrengir stöðu almennings að heimildir til úttektar úr bönkum hafa verið þrengdar.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 241 orð
| 1 mynd
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég hef áhyggjur af því að frárennsli frá sumarhúsum hringinn í kringum Þingvallavatn eigi þátt í breytingum á vatninu,“ sagði Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 289 orð
| 1 mynd
Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona, lést á páskadag, 89 ára að aldri. Hún var fædd 15. október 1923 í Hafnarfirði. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Tómas Bjarnason og María Víðis Jónsdóttir og hún var ein sex systkina.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 302 orð
| 1 mynd
Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Ferðaskrifstofur sem skipuleggja hvata- og ráðstefnuferðir til Íslands hafa þurft að vísa hópum frá vegna þess að ekki er hægt að útvega gistingu fyrir fólkið hér á landi.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 135 orð
| 1 mynd
Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Veitingastaðurinn við höfnina opnaði um síðustu helgi undir nýju nafni og hjá nýjum eiganda en húsfyllir var þá frá opnun, allt fram á rauða nótt.
Meira
Inga Karlsdóttir, sem hefur verið búsett í höfuðborg Kýpur, Nicosiu, í 30 ár, segir að stjórnvöld veiti takmarkaðar upplýsingar um stöðu efnahagsmála og óvissan sé mikil. Hún rekur veitingahús en segir tekjur af því duga skammt.
Meira
Maður heldur á dreng í frauðplastkassa við Manilaflóa á Filippseyjum, þar sem fjöldi fólks úr fátækrahverfum höfuðborgarinnar kældi sig um helgina.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 249 orð
| 1 mynd
Sífellt fleiri erlendir ríkisborgarar sitja í gæsluvarðhaldi hér á landi. Þann 26. mars sl. sátu 26 einstaklingar í gæsluvarðhaldi og þar af voru tólf erlendir ríkisborgarar frá Afganistan, Litháen, Nígeríu, Póllandi, Spáni og Þýskalandi.
Meira
Saksóknarar í Colorado í Bandaríkjunum munu krefjast þess að James Eagan Holmes, sem skaut tólf til bana í kvikmyndahúsi í Aurora 20. júlí síðastliðinn, verði dæmdur til dauða.
Meira
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Park Geun Hye, forseti Suður-Kóreu, sagðist í gær taka herskáar hótanir stjórnvalda í Norður-Kóreu afar alvarlega og hét tafarlausum hernaðaraðgerðum ef þjóðinni væri ógnað.
Meira
Benigno Aquino, forseti Filippseyja, synjaði á mánudag lögum staðfestingar sem hefðu fellt úr gildi hæðartakmarkanir fyrir lögregluþjóna, slökkviliðsmenn og fangaverði.
Meira
Gleði Opið var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í Reykjavík alla páskahelgina. Margir nýttu sér það og gestir skemmtu sér sem best þeir...
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 274 orð
| 1 mynd
Baksvið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hegðun Heklu þessa dagana er alveg eðlileg, þó ekki sé heldur ólíklegt heldur að hún fari að hreyfa sig,“ segir Guðrún Sverrisdóttir jarðfræðingur.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 175 orð
| 1 mynd
Þjónustusamningur um þjónustu við hælisleitendur milli innanríkisráðuneytisins og Reykjanesbæjar sem renna átti út í gær hefur verið framlengdur til 1. júní.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 596 orð
| 3 myndir
Heilbrigðisyfirvöld í Sjanghæ, fjölmennustu borg Kína, hafa fyrirskipað heilbrigðisstofnunum að herða eftirlit með öndunarfærasjúkdómum eftir að tilkynnt var um helgina að tveir menn, 87 ára og 27 ára, hefðu látist úr nýju afbrigði fuglaflensu, H7N9,...
Meira
Töluvert hefur verið um sinubruna á skraufþurru Suður- og Vesturlandi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Alvarlegasti bruninn var í Skorradal á laugardagskvöld en einnig logaði nálægt sumarbústöðum við Galtalæk.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 194 orð
| 1 mynd
Ásbjörn Óttarsson alþingismaður er sá ræðumaður sem talaði lengst á 141. löggjafarþinginu þegar lagður er saman ræðutími þingmanna og sá tími sem þeir vörðu til að gera athugasemdir úr ræðustóli Alþingis.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 579 orð
| 3 myndir
Baksvið Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hafði aldrei verið eins bólginn og í upphafi árs þegar hann hafði 575,6 milljónir til umráða, samkvæmt fjárlögum.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 117 orð
| 1 mynd
Nýliðinn marsmánuður virðist hafa verið lítið eitt, tæpu hálfu stigi, yfir meðallagi áranna 1961-1990 en tæplega einu stigi undir meðallagi áranna 1931-1960. Þetta kemur fram á bloggi Sigurðar Þórs Guðjónssonar veðursagnfræðings (nimbus.blog.is).
Meira
Vélsleðamaður sem slasaðist á Bíldárskarði á Vaðlaheiði á sunnudag hefur nú verið útskrifaður af gjörgæsludeild. Maðurinn sem var í vélsleðaferð ásamt félögum sínum hlaut fjölda beinbrota og skemmdir á ósæð.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 319 orð
| 2 myndir
Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi nú fyrir helgi að óska eftir viðræðum við mennta- og menningarmálaráðuneytið um byggingu nýs framhaldsskóla í bænum.
Meira
Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík í Garðabæ verða í sal Tónlistarskóla Garðabæjar í kvöld og hefjast kl. 20. Hjónin Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari og Ármann Helgason klarínettuleikari spila þá fjölbreytt...
Meira
Þriggja ára stúlka lést seinnipartinn á sunnudag þegar fjórhjól sem hún var farþegi á valt. Slysið varð við bæinn Skjöldólfsstaði í Breiðdal, að því er lögreglan á Eskifirði greindi frá.
Meira
Ný framfærsluviðmið hafa tekið gildi fyrir útlendinga sem sækja um dvalarleyfi en þeir þurfa að sýna fram á að framfærsla þeirra sé trygg þann tíma sem þeir sækja um að dvelja hér á landi.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 426 orð
| 2 myndir
Baksvið Guðni Einarsson gudni@mbl.is Teikn eru á lofti um að tærleiki Þingvallavatns sé í hættu, að mati Hilmars J. Malmquists, forstöðumanns og líffræðings á Náttúrufræðistofu Kópavogs. Hann hefur rannsakað vatnssýni úr Þingvallavatni um árabil.
Meira
2. apríl 2013
| Innlendar fréttir
| 287 orð
| 1 mynd
Gunnlaugur Árnason Stykkishólmi Í dag, þriðjudaginn 2. apríl, fagnar Gunnar Jónsson í Stykkishólmi 100 ára afmæli sínu. Hann býr ásamt konu sinni, Dallilju Jónsdóttur, á Dvalarheimilinu í Stykkishólmi. Þau voru gefin saman í hjónaband 27.
Meira
Eftir Ögmund Jónasson: "En fyrst þarf að ná samkomulagi um uppbyggingu á Reykjavíkurflugvelli til næstu ára. Ég mun leggja mig fram um það nú sem fyrr að slíkt megi nást."
Meira
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti þjóðinni fallegan páskaboðskap í Morgunblaðinu á skírdag. Inntak greinar hans var samhljóða boðskap kristinnar trúar, það er að í krafti kærleikans sé alltaf von.
Meira
Eftir Þóri N. Kjartansson: "Og hvað á að selja Kínverjum á móti? Kannski íslenska ull svo þeir geti prjónað ódýrar „íslenskar lopapeysur“ til að selja erlendum ferðamönnum?"
Meira
Eftir Jón Gerald Sullenberger: "Eftirlitsmenn fylgjast grannt með því að reglum ESB sé fylgt og kostnaðinn við eftirlitið greiða skattborgarar þessa lands."
Meira
Frá Ásgeiri Péturssyni: "Fyrir mig sem hef fylgst með afa mínum og ömmu og foreldrum byggja upp landið, fólki sem tók þátt í stofnun lýðveldisins 1944 og var stolt af því að vera sjálfstæðir Íslendingar, hefur það verið sorglegt að fylgjast með ungu fólki þessa lands með..."
Meira
Eftir Gunnar H. Guðjónsson: "Flugvöllur á núverandi stað er þess vegna ótvírætt eini kosturinn sem höfuðborgarflugvöllur þegar tekið er tillit til allra þátta sem áhrif hafa á flug."
Meira
Eftir Helgu Þórðardóttur: "Stefna Dögunar snýst um réttlæti. Réttlæti fyrir heimilin og réttláta grunnframfærslu. Réttlæti á líka að stjórna fiskveiðikerfinu."
Meira
Eftir Þórð Björn Sigurðsson: "Getur verið að lögin sem heimila verðtryggingu fjárskuldbindinga standist ekki eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar..."
Meira
Eins manns flokkur Samfylkingin var á sínum tíma mynduð úr Alþýðubandalagi sem horfði einkum í austurveg í átt til Sovétríkjanna og Alþýðuflokknum.
Meira
Anton Þór Baldvinsson var fæddur á Litla-Árskógssandi 22. febrúar 1936. Hann lést á sjúkrahúsi Siglufjarðar 22. mars 2013. Foreldrar hans voru hjónin Jóhanna Freydís Þorvaldsdóttir, f. 6. ágúst 1914, d. 4. desember 1985 og Baldvin Jóhannesson, f. 6.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Tómas Magnússon, „Tumi“, fæddist í Hrafnsstaðakoti í Svarfaðardal 13. febrúar 1935. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 12. mars 2013. Útför Guðmundar Tómasar fór fram frá Fossvogskirkju 21. mars 2013.
MeiraKaupa minningabók
Magnea Halldórsdóttir fæddist 22. ágúst 1931 á Vindheimum í Ölfusi. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 23. mars 2013. Útför Magneu var gerð frá Hallgrímskirkju 27. mars 2013.
MeiraKaupa minningabók
2. apríl 2013
| Minningargreinar
| 1953 orð
| 1 mynd
Manlio Candi lést á Líknardeild LHS í Kópavogi þann 22. mars. Hann fæddist í Iesi í Anconahéraði á Ítalíu 5.9.1933. Foreldrar hans voru Attilio Candi, skósmiður, f. 13.3. 1908, d. 8.3. 1992 og Rosa Cenci Candi, húsmóðir, f. 21.11. 1910, d. 18.8. 1986.
MeiraKaupa minningabók
2. apríl 2013
| Minningargreinar
| 1299 orð
| 1 mynd
Ólafur Bergmann Stefánsson fæddist í Reykjavík 12. september 1926. Hann andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 21. mars 2013. Foreldrar hans voru Kristín Þórkatla Ásgeirsdóttir frá Fróða á Snæfellsnesi, f. 26. febrúar 1900, d. 26.
MeiraKaupa minningabók
Ragnar Svafarsson fæddist í Reykjavík 7. febrúar 1947. Hann varð bráðkvaddur 19. mars 2013. Foreldrar Ragnars voru Svafar Steindórsson, f. 8.2. 1915, d. 15.8. 1991 og Guðrún Aradóttir, f. 27.4. 1909, d. 2.1. 1984.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Árnadóttir fæddist í Bræðratungu á Stokkseyri 22. apríl 1923. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 16. mars 2013. Sigríður var jarðsungin frá Laugarneskirkju 27. mars 2013.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Sveinn Pétursson fæddist á Akranesi 27. janúar 1969. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Noregi þann 6. febrúar 2013. Útför Sigurðar fór fram frá Lörenskog-kirkju, 15. febrúar 2013, þar sem hann er jarðsettur. Minningarathöfn um Sigurð fór fram í Akraneskirkju 26. mars 2013.
MeiraKaupa minningabók
Þorvarður G. Haraldsson fæddist í Reykjavík 24. mars 1943. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 15. mars 2013. Útför Þorvarðar fór fram frá Vídalínskirkju 27. mars 2013.
MeiraKaupa minningabók
Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, birti á mánudag skriflega afsökunarbeiðni á Kína-vef fyrirtækisins. Þar baðst hann afsökunar á ýmsum hnökrum sem komið hafa upp í þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins.
Meira
2. apríl 2013
| Viðskiptafréttir
| 524 orð
| 4 myndir
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í dag sitja þau á gríðarlegum auðæfum og hafa mikil áhrif á allt frá dægurmenningu og tísku yfir í stjórnmál og gang efnahagslífsins.
Meira
Japönsk hlutabréf lækkuðu töluvert í viðskiptum á mánudag en við lokun markaða hafði Nikkei vísitalan lækkað um 262,89 stig eða 2,1%. Topix-vísitalan sem mælir stórfyrirtæki á japanska markaðinum lækkaði um 3,3% með allar undir-vísitölur neikvæðar.
Meira
Dómstóll í New York hefur vísað frá kröfum skuldabréfaeigenda á hendur Bank of America, Barclays og JPMorgan Chase. Dómari tók þessa ákvörðun á föstudag og nær til u.þ.b. tveggja tuga tengdra mála sem voru fyrir dóminum.
Meira
Námskeið í ballett fitness hefst 8. apríl hjá Hreyfingu og hentar það bæði þeim sem dönsuðu á tánum í barnæsku og líka þeim sem aðeins létu sig dreyma um að geta gert það.
Meira
Það er ekki á færi allra að hlaupa maraþon, hvað þá í fimbulkulda á einum afskekktasta stað jarðarinnar á ísilögðu undirlagi. Eftir viku, þriðjudaginn 9.
Meira
„Capoeira er afró-brasilísk bardagalist með fimleikaívafi,“ segir Þórdís Björk Georgsdóttir þegar hún er beðin um að lýsa íþróttagrein sinni í stuttu máli.
Meira
40 ára Haraldur ólst upp í Kópavogi, lauk prófi í ljósmyndun frá New York Institute of Photography og er ljósmyndari hjá Viðskiptablaðinu. Maki: Sigríður Jónsdóttir, f. 1973, markþjálfi. Stjúpbörn: Sunna Guðrún, f. 1993, og Jón Flosi, f. 1997.
Meira
Ingi fæddist í Reykjavík 2.4. 1921 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Magnús Guðmundsson, skipasmiður og eigandi Skipasmíðastöðvar Reykjavíkur, og k.h,, Kristín Benediktsdóttir húsfreyja.
Meira
40 ára Íris ólst upp í Garðabæ, lauk MSc-prófi í atferlisgreiningu frá University of North Texas og hefur verið ráðgjafi. Maki: Hreinn Eggertsson, f. 1972, viðskiptafr. Börn: Elín, f. 2003; Jóhann, f. 2009, og Hlynur Tumi, f. 2012.
Meira
Hóf er á hverju best. „Spurður“ og „aðspurður“ í upphafi málsgreinar er orðið sérstakt blaðamál. Ætlunin er að ljóst sé hver fitjaði upp á því sem um ræðir: Aðspurður sagði ráðherra að Ísland væri...
Meira
Vorverkin eru að hefjast og jafnhliða öðru fer dagurinn í undirbúning þeirra. Nokkrar ær eru þegar bornar en í maí fer þetta í fullan gang með öllu stússi og svefnlitlum nóttum sem sauðburði fylgja.
Meira
Garðabær Brimir Rúnar fæddist 7. september kl. 11.46. Hann vó 3.675 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Linda Ösp Grétarsdóttir og Sveinbjörn Rúnar Magnússon...
Meira
Hofsós Elísabet Rán fæddist 17. nóvember kl. 14.22. Hún vó 3.728 g og var 48,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Gréta Dröfn Jónsdóttir og Jóhann Oddgeir Jóhannsson...
Meira
40 ára Sigrún ólst upp á Akureyri og Seyðisfirði, lauk BA-prófi í sálfræði og prófi í kennsluréttindum fyrir framhaldsskóla. Maki: Sverrir Jakob Stefánsson, f. 1973, bifvélavirki. Synir: Stefán Marel, f. 1994, og Alexander Leví, f. 2002.
Meira
100 ára Gunnar Jónsson 85 ára Leifur Eiríksson Sigurlaug Ingólfsdóttir 80 ára Hanna Fríða Kragh 75 ára Gerður Birna Guðmundsdóttir Hilmar Guðmundsson Ingi Ársælsson 70 ára Dagný Þórhallsdóttir Hugrún Marinósdóttir Jón Aðalsteinsson Sigurður H.
Meira
2. apríl 1725 Eldgos hófst í nágrenni Heklu og fylgdu því „skelfilegir jarðskjálftar,“ eins og sagði í Hítardalsannál. 2. apríl 1928 Jóhanna Magnúsdóttir fékk lyfsöluleyfi, fyrst íslenskra kvenna.
Meira
Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí hóf í gær keppni í B-riðli 2. deildar heimsmeistarakeppninnar en riðillinn er spilaður á Spáni. Ísland fór mjög vel af stað og vann Suður-Afríku örugglega 5:1.
Meira
Undanúrslitin á Íslandsmóti karla í körfuknattleik halda áfram í kvöld þegar Snæfell tekur á móti Stjörnunni í Stykkishólmi klukkan 19.15. Verður þetta fyrsti leikur liðanna en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitarimmuna um titilinn.
Meira
Ajax – NEC Nijmegen 4:1 • Kolbeinn Sigþórsson var í byrjunarliði Ajax og lék í 72 mínútur. • Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn fyrir NEC.
Meira
„Ég finn mikinn mun á mér og hef verið að hugsa hlutina upp á nýtt. Ég finn núna að ég var of þreyttur í fyrra. Margir segja að ég hafi lent í ofþjálfun en ég ætla ekki að fullyrða neitt um það enda er erfitt að átta sig á því.
Meira
„Ég hef verið að taka víti allt mitt líf. Það var frábært að ná sigri hérna,“ sagði Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem fagnaði 31 árs afmæli sínu með því að tryggja Norrköping 2:1 sigur á Mjällby í gær með marki úr vítaspyrnu í 1.
Meira
Fótbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Það kom fyrirgjöf frá hægri, framherjinn okkar tók boltann á kassann og lagði hann út til mín þar sem ég hitti boltann vel og hann endaði inni.
Meira
Belgía Meistarakeppnin: Club Brugge – Standard 0:2 • Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 55. mínútu hjá Club. Zulte-Waregem – Lokeren 1:1 • Ólafur Ingi Skúlason var ónotaður varamaður liði Zulte-Waregem.
Meira
Ítalinn Paolo Di Canio sem gerði garðinn frægan á árum áður sem leikmaður Sheffield Wednesday og West Ham er mættur aftur í ensku úrvalsdeildina en hann var á páskadag ráðinn stjóri Sunderland.
Meira
England Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Chelsea – Manch. Utd 1:0 * Chelsea mætir Manchester City. A-DEILD: Swansea – Tottenham 1:2 • Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham en var tekinn af velli á 76. mínútu.
Meira
England Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Ekkert lið hefur unnið ensku bikarkeppnina oftar en Manchester United. Því hefur þó gengið bölvanlega að vinna bikarinn undanfarin ár en níu ár eru síðan liðið fagnaði síðast sigri í keppninni.
Meira
Kiel undir stjórn Alfreðs Gíslasonar vann risaslaginn gegn Hamburg, 30:27, í þýsku 1. deildinni í handbolta á laugardaginn og náði með því fjögurra stiga forystu á toppnum í bili.
Meira
Hörður Axel Vilhjálmsson var stigahæstur hjá Mitteldeutscher á laugardagskvöldið þegar lið hans tapaði á heimavelli fyrir Bonn, 71:77, í efstu deildinni í þýska körfuboltanum.
Meira
Í Grindavík Skúli B. Sigurðsson sport@mbl.is Grindvíkingar tóku forystu í einvígi sínu gegn KR í gærkvöldi þegar liðin mættust í Röstinni í fyrsta leik liðana í undanúrslitum Dominos deildarinnar.
Meira
Handbolti Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Eins og kom fram í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag ætlar Afturelding, sem féll úr N1-deildinni í handbolta í síðustu viku, að mæta með B-lið til leiks næsta vetur.
Meira
Guðmundur Þórarinsson er farinn að láta til sín taka með nýliðum Sarpsborg 08 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en hann lagði upp fyrra mark liðsins í góðum 2:1-sigri á Viking í 2. umferð deildarinnar í gær.
Meira
Sund Kristján Jónsson kris@mbl.is Lítið fór fyrir Jakobi Jóhanni Sveinssyni, sundmanni úr Ægi, á mótum í vetur. Jakob tjáði Morgunblaðinu að hann yrði tæplega áberandi á mótum í sumar en ekki væri þó þar með sagt að hann væri hættur sem keppnismaður.
Meira
„Fækkun liða er stórkostlegt vandamál að mínu persónulega mati,“ segir Konráð Olavsson sem útskrifaðist með meistaraþjálfaragráðu frá EHF á síðasta ári í samtali við Morgunblaðið.
Meira
ÍBV varð í gær fyrsta liðið til að bera sigurorð af Víkingi Ólafsvík í leik á vegum KSÍ síðan Víkingar töpuðu fyrir Þrótti R. þann 16. ágúst í fyrra.
Meira
Nasser Al-Khelaifi, forseti franska stórliðsins Paris Saint-Germain, vill að enski knattspyrnumaðurinn David Beckham framlengi samning sinn við liðið en Beckham gerði aðeins hálfs árs samning sem rennur út eftir leiktíðina.
Meira
Bandaríkjamaðurinn D.A. Points bar sigur úr býtum á opna Shell Houston-mótinu í golfi sem kláraðist í Texas á sunnudaginn en mótið er hluti af PGA-mótaröðinni.
Meira
Rayo Vallecano – Málaga 1:3 Celta Vigo – Barcelona 2:2 Real Zaragoza – Real Madrid 1:1 Levante – Sevilla 1:0 Real Valladolid – Osasuna 1:3 Mallorca – Deportivo 2:3 Espanyol – Real Sociedad 2:2 Atlético Madrid...
Meira
Spánn Joventut – Zaragoza 59:71 • Jón Arnór Stefánsson skoraði 2 stig, tók 2 fráköst og gaf 1 stoðsendingu. Estudiantes – Manresa 90:75 • Haukur Helgi Pálsson skoraði ekki fyrir Manresa en gaf eina stoðsendingu.
Meira
Björn Bergmann Sigurðarson og félagar í Úlfunum lögðu Birmingham á útivelli í gær, 3:2, í ensku B-deildinni í fótbolta. Páskarnir voru Úlfunum góðir því á laugardaginn skoraði Björn Bergmann í 3:2-sigri á Middlesbrough.
Meira
Einn allra efnilegasti frjálsíþróttamaður Breta, kringlukastarinn Lawrence Okoye, hefur ákveðið að snúa sér að amerískum fótbolta og hefur þegar átt í samningaviðræðum við nokkur félög úr bandarísku NFL-deildinni.
Meira
Kristín Ingadóttir (t.v) og Thelma María Guðmundsdóttir (t.h.) eru komnar á blað yfir skemmtilega tölfræði í íslenskri íþróttasögu eftir leik Íslands og Suður-Afríku í 2. deild á HM í íshokkí á Spáni í gær.
Meira
Fulltrúar bílaframleiðandans Chrysler hafa nú kynnt nýja útgáfu af hinum tilkomumikla Viper. Byrjað var að framleiða Viperinn seint á síðasta ári og eru því ekki mörg eintök komin á göturnar, nýja útgáfan verður seld sem árgerð 2014.
Meira
Honda hefur kynnt til sögunnar nýtt app sem mun hjálpa umferð að flæða betur með því að láta ökumenn vita af því þegar farartæki á undan fara að hægja á sér.
Meira
Nýjasta viðbótin við fjölbreytilega flóru Ford bíla er Ford B-Max fjölnotabíllinn. Bíllinn kom fyrst fyrir almenningssjónir á bílasýningunni í Genf fyrir réttu ári en hafði reyndar sést sem tilraunabíll á sömu sýningu árið 2011.
Meira
Við sækjumst eftir bílum með sögu, sérstaklega ef hún tengist Borgarfirði á einhvern hátt. Borgarnes hefur alltaf verið bílabær, því héðan liggja leiðir til allra átta.
Meira
Nanótæknin byggist á því að það eru í efninu nanóagnir, sem eru allt að því 500 sinnum minni í þvermál en mannshár, sem þekja og fylla betur í yfirborðið þegar Nano-4-Life er borið á,“ útskýrir Kristvin Guðmundsson hjá Nanólausnum sem flytur efnið...
Meira
Þrátt fyrir slæmt efnahagsástand í heiminum þá var síðasta ár það besta í 66 ára sögu Ferrari. Í fyrra voru 7.318 Ferrari-bifreiðar seldar og var það aukning um 4,5% prósent frá fyrra ári. Á sama tíma jukust sölutekjur um 8%.
Meira
Bílasýningunni í Genf er nýlokið og þar kenndi margra grasa eins og venjulega. Á þessari sýningu sem er ein sú stærsta í Evrópu keppast framleiðendur við að kynna nýjustu gerðir bíla sinna.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.