Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Auðlegðarskattur og viðbótarauðlegðarskattur voru lagðir á 1.194 einstaklinga og 2.920 hjón við álagningu sl. sumar.
Meira
Hæstiréttur Ítalíu hefur nú loksins bundið enda á 39 ára gamla lagaþrætu milli kvikmyndastjörnunnar Sophiu Loren og ítalskra skattayfirvalda, gömlu konunni til mikillar gleði.
Meira
Alls hafa verið skráðir 3.346 þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu það sem af er árinu 2013, 690 innbrot, 1.005 eignaspjöll og 554 ofbeldisbrot. Fjöldi umferðarslysa er 303.
Meira
Tíu manns höfðu skilað inn tilkynningu í gær um framboð til prófkjörs Sjálfstæðisflokks fyrir borgarstjórnarkosningar árið 2014. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er búist við því að framboðin verði nær tuttugu þegar fresturinn rennur út klukkan 16.
Meira
Hæstiréttur sakfelldi í gær karlmann fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára barni og fyrir tilraun til kynferðisbrots. Var dómur Héraðsdóms Vesturlands því staðfestur.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dregið verður úr eftirliti á vegum hins opinbera nái tillögur hagræðingarhóps fram að ganga. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins á þannig að skera niður framlög til Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar.
Meira
Leikgleði Krakkarnir í Austurbæjarskóla nýttu góðviðrið, sem ríkt hefur undanfarið á höfuðborgarsvæðinu, til hins ýtrasta og sprikluðu í fjörugum leik sem þau kölluðu...
Meira
Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af nokkrum mönnum á Keflavíkurflugvelli í gær sem eru grunaðir um að vera félagar í vélhjólasamtökunum Devils Choice. Samkvæmt mbl.is voru tveir þeirra færðir á lögreglustöð þar sem skýrslur voru teknar af þeim.
Meira
Tuttugu Íslendingar með nýrnabilun á lokastigi bíða nú eftir gjafalíffæri. Þörf fyrir ígræðslu nýra hefur farið vaxandi á undanförnum árum vegna aukinnar tíðni nýrnabilunar sem m.a. má rekja til afleiðinga svokallaðra „lífsstílssjúkdóma“.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir um tveimur vikum var 20 feta gámur, fullur af fötum og búsáhöldum, sendur úr landi áleiðis til Gana í Afríku en gert er ráð fyrir að hann verði á áfangastað um miðjan nóvember.
Meira
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í tveimur málum íslenska ríkisins, annars vegar á hendur Keri hf., Olíuverslun Íslands hf. og Skeljungi hf., og hins vegar á hendur Olíuverslun Íslands hf. og Skeljungi hf.
Meira
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð 24. október 2003 og halda nú upp á 10 ára afmælið. Veisluhöld verða laugardaginn 26. október á Túngötu 14, frá kl. 14-17. Boðið er upp á léttar veitingar og líflega dagskrá með ræðum og skemmtun.
Meira
Málbjörg, félag um stam, heldur uppskeruhátíð í tilefni af alþjóðlegum stamdegi í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3-5, laugardaginn 26. október kl. 13:00-16:00. Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður heldur fyrirlestur kl. 14:15.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Aflagögnin sem við höfum verið að vinna með undanfarna áratugi hafa að öllum líkindum verið kolröng og ef þú ert með röng gögn færðu ranga niðurstöðu,“ segir Guðmundur J.
Meira
Friðrik, krónprins Dana, og eiginkona hans, María, eru nú í fimm daga opinberri heimsókn í Ástralíu í tilefni af 40 ára afmæli óperuhússins í Sydney. María fæddist í Hobart í Tasmaníu 5.
Meira
Áætlað er að Kötlutangi á Mýrdalssandi hafi minnkað um 100 metra á áratug. Það er áréttað vegna villu í fyrirsögn í frétt á bls. 6 í blaðinu í gær og tilvísunarfrétt á forsíðu, um leið og beðist er velvirðingar á...
Meira
Þrjú atvik áttu sér stað í mars þar sem skip annaðhvort rakst á annað eða litlu mátti muna að til árekstrar kæmi. Þar á meðal var atvik þar sem aðeins munaði um hálfum metra að flutningaskip rækist á línuveiðibát við Reykjanes.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Lagt er til að lágmarksdýpt á mynstri hjólbarða allra ökutækja verði 1,6 millimetrar á sumrin en þrír millimetrar á veturna.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Framlög til Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar verða skorin niður ef tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar ná fram að ganga.
Meira
Snæviþaktar hlíðar Esjunnar skörtuðu sínu fegursta í logagylltum geislum sólarlagsins. Þegar borgarbúar vöknuðu í gær var snjóföl í fjöllum. Veðrið hefur leikið við landsmenn undanfarið; fallegar hauststillur hafa nýst einstaklega vel til...
Meira
Margrét Leifsdóttir, varaformaður húsafriðunarnefndar, skýrði á síðasta fundi frá ákvörðun sinni um að víkja úr húsafriðunarnefnd vegna anna við önnur verkefni.
Meira
Einar Marteinsson, fyrrverandi forseti Vítisengla á Íslandi, segir það ekki rétt sem kom fram í Morgunblaðinu í gær að hann hefði aftur tekið við forystuhlutverki í Vítisenglum.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Við álagningu auðlegðarskatts og viðbótarauðlegðarskatts sl. sumar voru um 15% skattsins lögð á 72 fjölskyldur, sem hver um sig þurfti að greiða allt aflafé og gott betur í skatt af eignum sínum.
Meira
Timothy „Timur“ Zolotuskiy, prestur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi, segist skilja vel áhyggjur íbúa í Vesturbænum af kirkjubyggingunni sem til stendur að reisa milli Nýlendugötu og Mýrargötu.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við erum að skoða kosti og galla þess að stofna leiðréttingasjóð í tengslum við þetta verkefni. Það var ráðgert að fjármögnun verkefnisins til lengri tíma kæmi úr svigrúmi sem óhjákvæmilega myndast við afnám hafta.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Landsþing Grænlands kom saman í gærkvöldi til að greiða atkvæði um hvort afnema ætti 25 ára gamalt bann við vinnslu á úrani, geislavirku frumefni sem er aðallega notað í kjarnaofna og kjarnavopn.
Meira
Hæstiréttur hefur sýknað karlmann sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn unglingspilti, en í mars sl. dæmdi Héraðsdómur Reykjaness manninn í þriggja ára fangelsi.
Meira
Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hildur fer fram gegn Júlíusi Vífli Ingvarssyni, Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og Halldóri Halldórssyni.
Meira
Már Guðmundsson seðlabankastjóri afhenti í gær Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, tíu þúsund króna seðil númer eitt til varðveislu í safnakosti landsmanna.
Meira
Útför Magnúsar Thoroddsen, lögfræðings og fyrrverandi forseta Hæstaréttar, var gerð frá Hallgrímskirkju í gær en hann lést 14. október sl. Sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur jarðsöng og félagar úr Fóstbræðrum sungu. Líkmenn voru f.v.
Meira
Yfirskattanefnd hefur fellt úr gildi álagningu útvarpsgjalds á látinn einstakling. Gjaldið var lagt á dánarbú mannsins á árinu 2011 en maðurinn lést á árinu 2010.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umhverfisstofnun hefur gert tillögu að viðbragðsáætlun vegna Kolgrafafjarðar. Sem kunnugt er drápust rúmlega 50 þúsund tonn af síld í firðinum í desember 2012 og í janúar 2013.
Meira
Sviðsljós Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Timothy Zolotuskiy, prestur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi, segist skilja áhyggjur íbúa í Vesturbænum af kirkjubyggingunni sem stendur til að reisa þar.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þýskir stjórnmálamenn og fjölmiðlar hafa brugðist ókvæða við fréttum um að Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) kunni að hafa hlerað farsíma Angelu Merkel, kanslara Þýskalands.
Meira
Sinn er siður í hverju landi. Evrópuvaktin segir frá því að hafnar séu stjórnarmyndunarviðræður í Þýskalandi: Fulltrúar kristilegra demókrata og jafnaðarmanna í Þýskalandi komu saman til 88 mínútna stjórnarmyndunarfundar í Berlín miðvikudaginn 23.
Meira
Bókaforlagið Ugla gefur út barnabók eftir leikarann Guðjón Davíð Karlsson, Jólaandann, nú fyrir jól en myndskreytingar bókarinnar gerði faðir hans, Karl Sigurbjörnsson biskup.
Meira
Ég hef haft gaman af því að fylgjast með fjölmiðlum eftir að framkvæmdir hófust í Gálgahrauni. Reyndar skilst mér að framkvæmdirnar séu ekkert í Gálgahrauni – heldur í Garðahrauni en það er önnur saga. Sumir fjölmiðlar segja Gálga aðrir Garða.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Jólaandinn nefnist bók eftir feðgana Guðjón Davíð Karlsson og Karl Sigurbjörnsson biskup sem væntanleg er frá bókaútgáfunni Uglu fyrir jólin.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Rússneskir kvikmyndadagar hefjast í Bíó Paradís á morgun, laugardag, og standa til fimmtudagsins 31. október. Á þeim tíma verða sýndar fimm nýjar og nýlegar myndir á rússnesku með enskum texta.
Meira
Bad Grandpa Johnny Knoxville fer með hlutverk öldungs sem tekur að sér að koma átta ára sonarsyni sínum til föður síns sem býr í öðru fylki. Sá gamli reynist heldur slæm fyrirmynd sonarsyninum. Leikstjóri er Jeff Tremaine.
Meira
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Kaldalónssal Hörpu í kvöld kl. 21. Tónleikarnir eru þeir fyrstu af þremur í tónleikaröðinni „Ammæli“ sem Félag tónskálda og textahöfunda stendur fyrir í tilefni af 30 ára afmæli þess.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýrlendingurinn Omar Souleyman heldur tónleika á Iceland Airwaves á föstudaginn í næstu viku, í salnum Silfurbergi í Hörpu.
Meira
Í tilefni tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves 2013 verður greinasafni Arnars Eggerts Thoroddsen tónlistarspekings, Tónlist... er tónlist: Greinar 1999-2012 , hleypt aftur af stokkunum.
Meira
Miðasala á jólatónleika Björgvins Halldórssonar, Jólagesti Björgvins, 14. desember nk. hófst kl. 10 í gærmorgun og voru allir miðar seldir um tíu mínútum síðar. Tónleikarnir fara fram í Laugardalshöll sem tekur um þrjú þúsund manns í sæti.
Meira
Eftir Sturlu Kristjánsson: "Ef fyrirkomulag og aðstæður við kennsluna skipta litlu eða engu, þá er eðlilegt að setja spurningarmerki við kennsluaðferðina."
Meira
Frá Guðmundi Geirdal: "Í Morgunblaðinu 19. október sl. var nokkuð ítarlegt viðtal við Sigurjón Arason, nýskipaðan prófessor í matvælaverkfræði, þar sem hann greinir ítarlega frá störfum sínum sem verkfræðingur hjá Matís."
Meira
Eftir Hannes Hólmstein Gissurarson: "„Við þokumst ekki nær sannleikanum um sögulega viðburði eins og bankahrunið með því að reyna að stjórna umræðum, heldur með því að skoða gögnin.“"
Meira
Eftir Sigurjón Arnórsson: "Þótt stór og dýr verkefni séu spennandi og veki meiri athygli, þá er það oft litlu hlutirnir sem hafa mest áhrif á lífsgæði almennings."
Meira
Eftir Gunnar H. Gunnarsson og Örn Sigurðsson: "Þess vegna þarf borgin nú að fara í mjög öfluga upplýsingaherferð til þess að leiðrétta þá skökku mynd sem borgarbúar gera sér af skipulagsmálum sínum."
Meira
Óhætt er að segja að staðan í makríldeilunni hafi tekið grundvallarbreytingum þegar Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) birti ráðgjöf sína vegna næsta árs og lagði til stórauknar makrílveiðar miðað við ráðgjöf ráðsins undanfarin ár.
Meira
Hafnarfjarðarhraun Halló halló, er ekki kominn tími til að vakna, yfir okkur dembast fréttir um mengun í hrauninu en þarna búa í sjálfu iðnaðarhverfinu fjölskyldur með lítil börn og maður veit ekki neitt!
Meira
Arthúr Guðmannsson fæddist í Reykjavík 13. september 1932. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 16. október 2013. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Eggertsdóttir, f. 26.8. 1895, d. 18.11. 1949, og Guðmann Grímsson, f. 1.9. 1902, d 7.2. 1987.
MeiraKaupa minningabók
Björgheiður Eiríksdóttir fæddist í Egilsseli í Fellum, N-Múlasýslu, 13. mars 1928. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 20. október 2013. Foreldrar hennar voru Eiríkur Pétursson, f. 13.6. 1883, d. 28.8. 1953, og Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 2.3. 1888,...
MeiraKaupa minningabók
Guðjón Sveinbjörnsson fæddist í Uppsölum, Hraungerðishreppi 11. október 1921. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 11. október 2013. Foreldrar hans voru hjónin Friðbjörg Jónsdóttir, f. 30. júlí 1883, d. 27.
MeiraKaupa minningabók
Inga Sigríður Kristmundsdóttir fæddist í Reykjavík 27. júní 1931. Hún lést á hjartadeild Landspítalans 5. október 2013. Útför Ingu Sigríðar fór fram frá Kópavogskirkju 22. október 2013.
MeiraKaupa minningabók
Ingimar Elíasson fæddist á Drangsnesi við Steingrímsfjörð 12. mars 1928. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. október 2013. Foreldrar Ingimars voru Elías Bjarnason, f. 1899, d. 1987 og Jakobína Halldórsdóttir, f. 1900, d. 1995.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 9. desember 1927. Hún lést 13. október 2013. Foreldrar hennar voru Ólafur Eyvindsson fæddur í Reykjavík 30. janúar 1878, d. 15. janúar 1947 og Elín Jónsdóttir fædd í Hörgsholti í Miklaholtshr., Snæfellsnesi 6.
MeiraKaupa minningabók
Svavar Jóhannesson fæddist á Akureyri 21. janúar 1933. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans 16. október 2013. Foreldrar hans voru Jóhannes Guðjónsson frá Bolungavík, f. 3.10. 1907, d. 7.2. 1978 og Snjólaug Jóhanna Jóhannsdóttir frá Árskógsströnd, f.
MeiraKaupa minningabók
Þórunn Sigurborg Kristjánsdóttir, oft kölluð Gútta, fæddist á Akureyri 31. maí 1928. Hún lést á Landspítalanum 16. október 2013. Foreldrar hennar voru Kristján Jónsson, bakarameistari á Akureyri, f. á Kraunastöðum í Reykjadal, Suður-Þingeyjarsýslu, 7.
MeiraKaupa minningabók
Baksvið Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Miðlæg staðsetning hefur ekki áhrif á fasteignaverð á Akureyri. Fasteignir í miðbænum eru ekki dýrari en annars staðar í bænum, ef leiðrétt er fyrir öðrum gæðaþáttum.
Meira
Búið er að ljúka fjármögnun á hátæknisetri sem Alvogen áformar að byggja í Vatnsmýrinni, en enn á eftir að skrifa undir lokasamninga við Vísindagarða . Stefnt er að því að uppbyggingin hefjist fyrir áramót.
Meira
Ekki er að sjá að minni íbúðir hafi hækkað í verði umfram aðrar á undanförnum misserum. Þetta segir í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans . Umræða um mikla eftirspurn eftir minni íbúðum virðist því ekki hafa haft sérstök áhrif til hækkunar þeirra.
Meira
Uppgjör Marels á þriðja ársfjórðungi kom á óvart, segir í nótu frá Arion banka. Heilt yfir var afkoma fjórðungsins betri en bankinn spáði þar sem kostnaðarverð seldra vara var talsvert lægra en reiknað var með.
Meira
Hagnaður smásölurisans Haga, sem meðal annars á og rekur verslanirnar Bónus og Hagkaup, nam tæplega tveimur milljörðum króna á öðrum hluta fjárhagsársins.
Meira
Þrotabú Landsbanka Íslands er varið fyrir lögsóknum fjárfesta í Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í dómi Evrópudómstólsins í Lúxemborg frá því í gærmorgun, en þar segir að lög á Íslandi komi í veg fyrir slík málaferli frá kröfuhöfum utan Íslands.
Meira
Hljómsveitin Drangar spilar í Frystiklefanum á Egilsstöðum annað kvöld, laugardag kl 20. Saga Dranga hófst í nóvember á síðasta ári þegar þeir Jónas Sig og Ómar Guðjóns voru á tónleikaferð um landið.
Meira
Bravó á Laugavegi 22 boðar til svokallaðs ofurhetjutjútts annað kvöld, laugardagskvöld, 26. okt. klukkan 20. Viðburðurinn ber hið frábæra nafn Stelpurúst, og er hann hugsaður fyrir allar konur sem eru ofursvalar og langar að klæðast ofurhetjubúningum.
Meira
BORG – raftónleikaröð í Breiðholti verður haldin á morgun, laugardag 26. október, og laugardaginn 23. nóvember kl. 14-16 í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Meira
Sænska skáldkonan Kim M. Kimselius skrifar sögulegar skáldsögur fyrir börn og unglinga, en á sér þó trygga lesendur á öllum aldri. Bækurnar hafa verið notaðar við kennslu í Svíþjóð og hún segir þessa aðferð auka áhuga ungs fólks á sögunni.
Meira
Hörður nokkur Jónsson heldur úti Fésbókarsíðu þar sem hann býður upp á hljóðfæraviðgerðir. Hann hefur undanfarin rúm tvö ár verið að fara yfir gítara og bassa fyrir fólk og heldur nú úti verkstæði heima hjá sér.
Meira
Akureyri Óskar Sæmundur fæddist 2. janúar kl. 11.58. Hann vó 4.012 g og var 55 cm langur. Foreldrar hans eru Sand ra Karen Ragnarsdóttir og Sigfús Örn Sigurðsson...
Meira
Þóra fæddist á Landspítalanum 25.10. 1953. Hún ólst upp í Sandgerði til níu ára aldurs en flutti þá með fjölskyldu sinni til Seattle í Bandaríkjunum og átti þar heima í þrjú ár. Hún var einmitt búsett í Bandaríkjunum þegar John F.
Meira
Grindavík Matthildur Yrsa fæddist 19. október kl. 12.17. Hún vó 3.710 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Valgerður Jennýjardóttir og Sigurður Magnús Árnason...
Meira
30 ára Hafþór ólst upp í Hveragerði og í Vestmannaeyjum, nú búsettur í Reykjavík og starfar hjá Víking björgunarbúnaði. Maki: Anna Karen K. Sigvaldadóttir, f. 1983, nemi. Börn: Sigvaldi Rafn, f. 2005, og Rannveig Unnur, f. 2009. Foreldrar: Kristófer Þ.
Meira
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Þetta byrjaði eiginlega alveg óvart árið 1973,“ segir Eva Björk Harðardóttir, ferðaþjónustubóndi í Efri-Vík.
Meira
Fjörurnar í Vestur-Skaftafellssýslu eru skipakirkjugarður Íslands. Ófá erlend skip sem sigldu um heimshöfin rak upp í fjörurnar þar í gegnum aldirnar og mikill fjöldi sjómanna fórst.
Meira
Jón Guðlaugur Kristinn Eiríksson, kaupfélagsstjóri og fiskverkandi, fæddist í Garðhúsum í Gerðahreppi, 25.10. 1902. Hann var sonur Eiríks Guðlaugssonar, útvegsbónda í Garðhúsum og síðar á Meiðastöðum, og Guðrúnar Bjarnadóttur húsfreyju.
Meira
30 ára Jón Ingi ólst upp í Þurranesi, lauk sveinsprófi í rafvirkjun og er í búfræðinámi við LBHÍ. Maki: Guðrún Elín Herbertsdóttir, f. 1978, viðskiptafræðingur við Seðlabankann. Sonur: Ólafur Vignir, f. 2006. Foreldrar: Ólafur Skagfjörð Gunnarsson, f.
Meira
Kjartan Jóhannsson Íslandsmeistari í einmenningi Kjartan Jóhannsson úr Bf. Rangæinga, Suðurlandi, kom sá og sigraði í Íslandsmótinu í einmenningi sem fram fór um helgina en 56 spilarar tóku þátt í mótinu. Kjartan var með með 86,6 % skor. Í 2.
Meira
Ég kom á Hellu fyrir viku og hitti þar Grétar Haraldsson, sem sagði mér skemmtilega sögu úr sveitinni. Vorið 2003 fann hann lóuhreiður undir spýtnabraki við sumarbústað sinn á Grund, sem stendur á landskika af jörðinni Miðey, þar sem hann áður bjó.
Meira
Enn er villst á orðunum eftirmál og eftirmáli . Eftirmál eru afleiðingar , t.d. málsókn eða hefndir: Ef þú hættir þessu munu ekki verða nein eftirmál . Eftirmáli er lokaorð í bók þar sem höf. þakkar veitta aðstoð en lýsir villum á hendur sjálfum...
Meira
Dverghamrar, sem eru skammt austan við Foss á Síðu, voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1987. Hamrarnir eru úr stuðlabergi og ofan á þeim er kubbaberg. Landslagið er talið hafa fengið á sig þessa mynd við lok ísaldar.
Meira
Víkverji hefur samviskusamlega fleygt öllum pappír og pappa í bláa tunnu, en nú er komið babb í bátinn. Samkvæmt tilskipun frá Reykjavíkurborg er ekki lengur hirt sorp úr gráum og grænum tunnum borgarinnar finnist í þeim pappír eða pappi.
Meira
30 ára Þorbjörn ólst upp á Ísafirði, er nú búsettur í Reykjavík, lauk vélstjóraprófi frá VMA og verkfræðiprófi frá HR og er hönnuður hjá Marel. Kærasta: Kristrún Jóhannsdóttir, f. 1980. Sonur: Snæbjörn Ingi, f. 2007.
Meira
Evrópudeildin A-riðill: Swansea – Krasnodar 1:1 • Kristinn Jakobsson dæmdi leikinn og honum til aðstoðar voru þeir Sigurður Óli Þórleifsson, Áskell Gíslason, Gunnar Sverrir Gunnarsson, Þóroddur Hjaltalín og Gunnar Jarl Jónsson.
Meira
í digranesi Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ef Valsmenn ná að blómstra undir stjórn Ólafs Stefánssonar í vetur fer varla á milli mála að akureyrsku frændurnir Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason verða þar í lykilhlutverkum.
Meira
í seljaskóla Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Haukar líta ekki amalega út í Dominos-deild karla í körfubolta. Þeir pökkuðu ÍR saman, 113:87, í leik liðanna í 3.
Meira
Niko Kovac, sem er nýtekinn við starfi landsliðsþjálfara Króatíu sem mætir Íslendingum í umspili um sæti á HM, hefur ráðið bróður sinn, Robert Kovac, sem aðstoðarmann sinn en líkt og Niko lék Robert Kovac í fjölda ára með króatíska landsliðinu.
Meira
Olís-deild karla ÍR – FH 24:23 Akureyri – Haukar 22:30 HK – Valur 23:28 Staðan: Haukar 6402154:1338 ÍR 6402158:1528 FH 6312147:1337 Fram 5302109:1246 ÍBV 5302143:1266 Valur 6303150:1436 Akureyri 6204140:1574 HK 6015140:1731 Undankeppni...
Meira
Kanalausir KR-ingar áttu ekki í teljandi vandræðum með að leggja Snæfell að velli, 99:84, í Stykkishólmi á hinum annars ógnvænlega heimavelli Hólmara.
Meira
Fótbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég verð áfram hér. Ég er ekki þekkt fyrir að stökkva frá borði þegar illa gengur,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins Kristianstad.
Meira
í Ásgarði Kristinn Friðriksson kiddigeirf@gmail.com Eftir að hafa verið vélarvana í fyrstu leikjum tímabilsins fengu Stjörnumenn tækifæri til að sýna hluta af sínu rétta andliti í gær þegar Skallagrímur kom í heimsókn.
Meira
Landsliðskonurnar Þóra Björg Helgadóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir, sem á dögunum hömpuðu sænska meistaratitlinum með liði Malmö, eru báðar tilnefndar í vali á leikmönnum ársins í sænsku úrvalsdeildinni.
Meira
Jólaball nefnist hátíðarmatseðillinn á Gallery Restaurant þar sem gestir gæða sér ekki aðeins á ljúffengum réttum heldur býðst þeim einnig að upplifa einstaka stemningu í vínkjallaranum.
Meira
Tvær vikur tekur að klæða Restaurant Reykjavík í jólaskrúðann. Meðal rétta á hlaðborðinu má nefna sykursaltað langtímaeldað heilsteikt svínalæri.
Meira
Óvenjulegar samsetningar einkenna jólaskreytingarnar í versluninni Upplifun, bækur og blóm í Hörpu, þar sem ímyndunaraflinu er gefinn laus taumurinn og markmiðið er að skapa nýjan heim upplifunar fyrir sem flest skynfæri.
Meira
Jólahátíðin nálgast óðfluga og hjá fjölmörgum landsmönnum er tónninn gefinn með því að skunda í bæinn og gera vel við sig og sína í mat og drykk á jólahlaðborði í aðdraganda hátíðar ljóss og friðar.
Meira
Veitingastaðurinn Kopar er nýr af nálinni en þar er þó virðing borin fyrir því sem komið er til ára sinna. Matseðillinn leggur áherslu á íslenskt hráefni og boðið verður upp á siglingu þegar jólahlaðborðin hefjast.
Meira
Oft er hentugur kostur að panta jólahlaðborðið frá veisluþjónustu. Maturinn kemur á hárréttum tima á fallegum bökkum og m.a.s. diskarnir innifaldir.
Meira
Á Snaps Bistro er jólahlaðborðið með öðru sniði en venja er þar sem matargestir halda kyrru fyrir í sætum sínum á meðan kræsingar eru bornar á borð.
Meira
Ýmissa grasa kennir á veisluborðinu í Perlunni um jólin og spannar úrvalið allt frá tandoori-kjúklingi yfir í klassískt hangikjöt. Þegar takmarkanir voru settar á rjúpnaveiði þurfti að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að finna súpu sem gæti komið í staðinn fyrir rjúpusúpuna vinsælu.
Meira
Eftir umfangsmiklar endurbætur á hótelinu er umgjörðin utan um jólahlaðborðið á Grand hóteli Reykjavík glæsilegri en nokkru sinni. Úrvalið af réttum heldur tryggð við hefðina en ætti líka að henta þeim sem vilja reyna nýja hluti eða huga að hollustunni.
Meira
Á jólahlaðborði Slippbarsins er ekki að finna hefðbundinn reyktan eða saltan mat, heldur léttan og ferskan sem viðskiptavinirnir virðast kunna vel að meta.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.