17 eru látnir eftir gríðarmikil flóð á eynni Sardiníu í gær. Brýr féllu og bílar sópuðust í burtu í vatnsflaumnum. Forsætisráðherra Ítalíu hefur lýst yfir neyðarástandi á eynni og heitir tæpum 3,3 milljörðum króna í neyðaraðstoð.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Í tvígang voru uppi áform og tilraun gerð til að víkja forseta Alþingis til hliðar veturinn 2011-2012 að því er lesa má í minningabókum þeirra Steingríms J.
Meira
Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði á mánudagskvöld var einróma samþykkt tillaga kjörnefndar um að efna til prófkjörs til að velja frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.
Meira
Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Þjóðverjar tóku árið 2001 upp þá stefnu að gera vændiskaup refsilaus. Stefnan gengur þvert á „sænsku leiðina,“ þar sem kaupendum vændis er refsað fyrir athæfið.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Leikurinn fer 1-1,“ mátti heyra á mörgum stuðningsmönnum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem lögðu leið sína á sportbarinn Ölver.
Meira
Um 600.000 Filippseyingar sem urðu fyrir tjóni af völdum fellibylsins Haiyan hafa ekki fengið neina aðstoð, ellefu dögum eftir að hamfarirnar riðu yfir, samkvæmt upplýsingum frá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP).
Meira
Fyrrverandi fjármálaráðherra Breta segir að framferði ríkisstjórnar Bretlands að setja hryðjuverkalög á Íslendinga hafi verið til skammar og bað Íslendinga afsökunar.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Atvinnulaus kona sem er í búsett í Reykjavík hefur misst rétt til atvinnuleysisbóta og á heldur ekki rétt á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga þar sem sambýlismaðurinn hefur tekjur umfram lágmarksframfærslu.
Meira
Hluti farþega úr rútu sem fór á hliðina á Þingvallavegi í gær vildi ljúka ferðinni að Gullfossi og Geysi. Veður og aðstæður voru hins vegar þannig að það þótti ekki ráðlegt og fóru flestir heim á hótel í Reykjavík.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Frystitogarinn Kleifaberg RE hafði þegar landað rúmum tíu þúsund tonnum af afla undir lok október. Ritstjóri aflafretta.
Meira
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Út er komin Landbúnaðarsaga Íslands í fjórum bindum, gefin út af Skruddu. Sagan er skrifuð af Jónasi Jónssyni, fyrrverandi búnaðarmálastjóra, og Árna Daníel Júlíussyni, doktor í sagnfræði.
Meira
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði á fjárveitingum ríkisins til Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði.
Meira
Aðgerðasinnar á vegum samtakanna Campact báru grímur þar sem gert var gys að Angelu Merkel Þýskalandskanslara og Sigmar Gabriel, leiðtoga Sósíaldemókrata.
Meira
Sviðsljós Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Útlendingunum finnst þetta ævintýri. Sumir hafa þó á orði að norðurljósadansinn sé kannski ekki jafn stórbrotinn og þeir bjuggust við sem auðvitað á sínar skýringar.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Það eru ekki allir svona vitlausir að sitja svona lengi,“ segir Davíð Pétursson, bóndi á Grund í Skorradal og oddviti Skorradalshrepps.
Meira
Hugsanlega verður ákveðið að loka Elliðaárvirkjun frekar en að gera við aðfallspípuna sem bilaði nýlega. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, segir að ekki sé búið að ákveða hvort gert verði við aðfallspípuna.
Meira
Borgarstjórn Toronto ákvað í gær að svipta Rob Ford, borgarstjóra Toronto, miklu af því valdi sem hann hafði í embætti. Borgarstjórinn er afar ósáttur við þessar aðgerðir borgarstjórnar.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ársæll Guðmundsson, formaður Skólameistarafélags Íslands, segir að framlög til framhaldsskóla hafi verið skorin kerfisbundið niður og búið sé að taka 12 milljarða út úr framhaldsskólakerfinu frá 2008.
Meira
Samkvæmt árshlutauppgjöri brennisteinsvetnismælinga á vegum Orkuveitu Reykjavíkur hefur styrkur vetnisins í andrúmslofti verið undir reglugerðarmörkum fyrstu níu mánuði ársins 2013.
Meira
Sjálfstæðir ráðgjafar vöruðu ríkisstjórn Obama við því í mars að hönnun og uppsetning vefsíðu vegna sjúkratrygginga (Obamacare) þar í landi væri varasöm og líkleg til að mistakast.
Meira
Kornræktin hér á landi mun byggjast upp á svæðum þar sem saman fer mikið af hentugu ræktunarlandi og hagstætt veðurfar til kornræktar. Helstu vaxtarsvæði kornræktarinnar verða samkvæmt því á Suður- og Vesturlandi auk Skagafjarðar.
Meira
Baldur Arnarson, Viðar Guðjónsson, Sigurður Bogi Sævarsson Veltan af rekstri gististaða og veitingahúsa á fyrstu átta mánuðum ársins var um 63,6 milljarðar. Það fer nærri veltunni allt árið 2011 þegar hún var 68,6 milljarðar.
Meira
Sögulegri baráttu íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu um sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins í Brasilíu lauk í gærkvöld með ósigri, 2:0, gegn Króötum í seinni viðureign þjóðanna á Maksimir-leikvanginum í Zagreb.
Meira
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki taka sæti á lista sjálfstæðismanna í borgarstjórnarkosningunum í vor. Hún stefndi á oddvitasætið í prófkjöri flokksins um síðustu helgi en hafnaði í fjórða sæti.
Meira
Samkvæmt reglum um félagslega heimaþjónustu í Reykjavík fer fram endurmat á þörfum fyrir heimaþjónustu ef breyting verður á umsömdu þjónustutímabili.
Meira
Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, tók til máls í fyrirspurnartíma á Alþingi í fyrradag og kvartaði undan „dauflegum hagvaxtarhorfum“ í nýrri þjóðhagsspá.
Meira
Indverski myndlistarmaðurinn Baniprosonno og eiginkona hans Putul dvelja núna í Gullkistunni á Laugarvatni, dvalarstað fyrir skapandi fólk, og vinna að verkum sem sýnd verða í Reykjavík Art Gallerý á sýningu sem verður opnuð 30. nóvember.
Meira
Söngvaskáldið Bob Dylan er maður eigi einhamur. Hann er kominn á áttræðisaldur en heldur áfram að semja tónlist, er farinn að halda reglulega sýningar á málverkum og nú hefur hann opnað sýningu í Halcyon-galleríinu í Lundúnum – á hliðum.
Meira
Sigurður Flosason alt- og tenórsaxófón og flautu, Andrés Þór Gunnlaugsson gítar, Þórdís Gerður Jónsdóttir selló, Gunnar Hrafnsson bassa og Einar Scheving trommur. Sérlegur gestur: Guðmundur Steingrímsson bongótrommur.
Meira
Evrópska kvikmyndahátíðin Streams stendur nú yfir á netinu og er nú í fyrsta sinn hægt að sækja hana á íslenskum vef, Icelandic Cinema Online, á vefslóðinni cinema.is. Hátíðin stendur til 15. desember og í henni taka þátt níu VoD-vefir, þ.e.
Meira
Bræðralög er yfirskrift samræðu um fagurfræði íslenskrar stjórnmálabaráttu sem Sögufélagið og Hannesarholt standa fyrir í kvöld kl. 20 í Hannesarholti.
Meira
Árleg herrafatasýning Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar fer fram í kvöld kl. 21 í Þjóðleikhúskjallaranum en húsið verður opnað klukkustund fyrr.
Meira
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is „Þetta er rökrétt framhald af tveimur fyrri bókunum, sagan gerist í sama heimi en á öðrum slóðum,“ segir Elí Freysson, ungur rithöfundur á Akureyri, sem sendir nú frá sér bókina Kallið.
Meira
Spennan í dönsk/sænsku sjónvarpsþáttaröðinni Brúnni er orðin alveg hreint óbærileg, enda aðeins einn þáttur eftir. Enn á eftir að góma ónafngreindan samverkamann Olivers Nordgren, sem upp um komst undir lok þarseinasta þáttar.
Meira
Eftir Katrínu Jakobsdóttur: "Mörg ákvæði fjölmiðlalaganna eru beinlínis sett í þeim tilgangi að tryggja virkt tjáningarfrelsi og þar með opna umræðu og skoðanaskipti."
Meira
Sem áhugamaður um ketti og áhrif þeirra á mannfólkið þótti mér mjög merkilegt þegar ég komst að því fyrir mörgum árum að þeir bera gjarnan með sér sníkjudýr, frumdýr, sem heitir Toxoplasma gondii og tekur sér gjarnan búfestu í þeim sem umgengst köttinn,...
Meira
Eftir Jón Ögmund Þormóðsson: "Sama vandvirknin er til staðar í þessari bók sem vel fer á að hið virðingarverða útgáfufyrirtæki Hið íslenska bókmenntafélag gefi út."
Meira
Eftir Atla Björn Bragason: "Á tímabilinu 1962 til 2012 kveður hins vegar við nýjan tón. Þá verður stökkbreyting varðandi útflutning iðnaðarvara, fyrst og fremst með tilkomu stóriðnaðar, áls og járnblendis."
Meira
Eftir Óla Björn Kárason: "Kynjaskipting á framboðslista er ekki helsta áhyggjuefni sjálfstæðismanna í Reykjavík (og raunar um allt land) heldur slök þátttaka í prófkjörinu."
Meira
Þurfum sparnað Nú hefur hagræðingarhópur skilað niðurstöðum sínum. Þar kemur á daginn, eins og raunar lá alltaf ljóst fyrir, að víða má hagræða og spara í ríkisrekstrinum enda höfum við ekki efni á neinu bruðli.
Meira
Anna Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 23. júlí 1927. Hún lést á Landspítalanum í Reykjavík 5. nóvember 2013. Foreldrar hennar voru séra Bjarni Jónsson vígslubiskup og kona hans Áslaug Ágústsdóttir. Systkini Önnu voru Ágúst skrifstofustjóri, f. 30.
MeiraKaupa minningabók
Bryndís Friðriksdóttir fæddist á Raufarhöfn 2. október 1941. Hún lést á heimili sínu 4. nóvember 2013. Foreldrar hennar voru Guðrún Hansdóttir, f. 1903, d. 1988, og Friðrik Hans Guðmundsson, f. 1887, d. 1957.
MeiraKaupa minningabók
20. nóvember 2013
| Minningargrein á mbl.is
| 1127 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Gísli Eyjólfsson fæddist á Bessastöðum í Vestmannaeyjum 24. september 1929. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 7. nóvember 2013. Foreldrar Gísla voru Eyjólfur Gíslason, skipstjóri í Vestmannaeyjum, f. 22.5. 1897, d. 7.6.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn fæddist í Reykjavík 29. júní 1958. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 8. nóvember 2013. Foreldrar hans voru Gústav Reynholdt Leifsson, f. 3.8. 1931, d. 25.12. 1990, og Karólína Borg Kristinsdóttir, f. 24.10. 1936, d. 12.7.
MeiraKaupa minningabók
Kristjón P. Kolbeins, viðskiptafræðingur og fyrrverandi sérfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1942. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 28. október 2013. Útför Kristjóns Kolbeins fór fram frá Digraneskirkju í Kópavogi 8. nóvember 2013.
MeiraKaupa minningabók
Páll Þór Skúli Þórhallsson fæddist í Reykjavík 15. júní 1935. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 6. nóvember 2013. Foreldrar hans voru Þórhallur Pálsson útvarpsvirki, f. 27. apríl 1913, d. 8. maí 1994, og Sigrún Hjördís Stefánsdóttir húsmóðir, f. 1.
MeiraKaupa minningabók
Rögnvaldur Bergsson fæddist í Sæborg í Glerárþorpi 9. desember 1923. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð 3. nóvember 2013. Jarðarför Rögnvaldar fór fram frá Akureyrarkirkju 8. nóvember 2013.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Þór Jörgensson fæddist í Reykjavík 13. maí 1931. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 31. október 2013. Útför Sigurðar fór fram frá Bústaðakirkju 12. nóvember 2013.
MeiraKaupa minningabók
Rannsóknasetur verslunarinnar áætlar að jólaverslunin aukist um 4% frá síðasta ári. Leiðrétt fyrir verðhækkunum má ætla að hækkunin nemi um 0,5% að raunvirði.
Meira
Baksvið Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Framkvæmdastjóri greiðslukerfa hjá Seðlabankanum og forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans eru sammála um að í náinni framtíð verði Ísland ekki án reiðufjár.
Meira
Stærsti banki Danmerkur, Danske Bank, hefur sagt upp 250 starfsmönnum til að mæta 1,1 milljarðs danskra króna niðurskurðarkröfu næsta árs. Talsmaður bankans segir að með uppsögnunum náist að mestu þau kostnaðarmarkmið sem tilkynnt voru í síðasta mánuði.
Meira
Hluthafar í finnska tæknifyrirtækinu Nokia hafa samþykkt að selja Microsoft farsímadeild fyrirtækisins. Tilboð Microsoft hljóðaði upp á 5,44 milljarða evra eða um 895 milljarða króna.
Meira
Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) spáir því að hér verði hagvöxtur 2,8% árið 2015, 2,7% árið 2014 og 1,8% í ár. Verðbólgan verði áfram mikil, en OECD spáir því að hún verði 4% í ár, 3,8% á næsta ári og 3,1% árið 2015.
Meira
Það er sannarlega ekki á allra færi að útskýra flókin vísindi á einfaldan hátt í hnitmiðaðri bók. Í Bretlandi eru sérstök verðlaun veitt þeim sem þykir miðla vísindum á framúrskarandi hátt til ungra lesenda.
Meira
Dagurinn í dag er tileinkaður minningu transfólks víðsvegar um heiminn. Sérstök minningardagskrá verður í kvöld þar sem þeirra er minnst sem hafa verið myrtir, hafa tekið eigið líf eða orðið fyrir ofbeldi vegna kynvitundar sinnar.
Meira
Í sumar voru settir upp póstkassar á nokkrum stöðum á landinu og þeir merktir íslenska jólasveininum. Einn kassi var settur upp í miðbæ Akureyrar, annar í Reykjavík og sá þriðji í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Meira
Undirbúningur er hafinn að stofnun félagsskapar aðstandenda og áhugafólks um málefni utangarðsfólks, heimilislausra og fíkla. Félagsskapurinn hefur það að markmiði að vera bakland og þrýstihópur um aðgerðir og þjónustu í þágu utangarðsfólks.
Meira
Í kvöld verður kafað djúpt inn í sjálfið í heimspekikaffi í Gerðubergi. Þau Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur, og Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, doktorsnemi í mannfræði, ætla að rýna í mannlegt eðli og varpa ljósi á ýmsa skugga.
Meira
30 ára Aron ólst upp á Rifi, lauk 3. stigs farmannsprófi, prófi í útvegsrekstrarfr., er að ljúka viðskiptafræðinámi og er sölustjóri hjá Skeljungi. Maki: Karitas Hrafns Elvarsdóttir, f. 1988, MA-nemi í marksðs- og alþjóðaviðskiptum við HÍ.
Meira
Ég held upp á afmælið með því að fara í veiðiferð til BNA,“ sagði Ásgeir Heiðar, sem er 62 ára í dag. Hann er ötull veiðimaður, er leiðsögumaður laxveiðimanna og einnig skotveiðimaður. Ásgeir hefur veitt víða um heim og hefur m.a.
Meira
Félag eldri borgara Reykjavík Mánudaginn 4. nóvember var spilaður tvímenningur hjá bridsdeild Félags eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykjavík. Keppt var á 12 borðum. Meðalskor 216. Efstu pör í N/S: Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 260 Jón Þ. Karlss.
Meira
30 ára Filippía ólst upp í Reykjavík, Stykkishólmi og Vestmannaeyjum, stundaði trúboðsþjálfun á Englandi og er að hefja nám í heimspeki. Maki: Páll Lúthersson, f. 1979, tækni- og tölvufræðingur. Dætur: Kristbjörg Klara, f. 2004, og Aðalbjörg Diljá, f.
Meira
Eitt af ævintýrunum í íslenskum fótbolta átti sér stað í Garðinum á níunda áratug síðustu aldar. Lið Víðis, sem ávallt hafði verið í neðstu deild, geystist uppí þá efstu á skömmum tíma. Þar léku þeir fyrst árið 1985.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mig hefur aldrei skort hugmyndir. Saga Garðs og Suðurnesja er merkileg og vert að safna sem mestu af fróðleik frá liðnum tímum.
Meira
30 ára Gestur ólst upp á Akureyri, er þar búsettur og er verslunarstjóri Símans á Akureyri. Maki: Erla Bryndís Jóhannsdóttir, f. 1985, verslunarmaður. Börn: Emílía Mist, f. 2006; Viktor Ari, f. 2009, og Kristófer Örn, f. 2011.
Meira
Hafnarfjörður Jón Logi fæddist 26. mars. Hann vó 3.060 g og var 49 cm langur. Dagný Lilja fæddist 16. apríl 2012. Hún vó 3.525 g og var 50,5 cm löng. Foreldrar þeirra eru Kolbrún Dröfn Jónsdóttir og Kristján Alexander Írisarson...
Meira
Framkvæmdir við byggingu álvers Norðuráls í Helguvík, sem er innan bæjarmarka í Garði, eru í biðstöðu. Reistir hafa verið um 26 þúsund m 2 , en það var í október 2008 sem grunnur álversins var steyptur.
Meira
Skeið er m.a. tveggja spora gangur hesta (og eini gangur úlfalda!). En líka hlaup , sléttlendi , vegalengd : Sandskeið, Skúlaskeið. Allt þetta skeið er hvorugkyns . Sveitin Skeið (fleirtala) líka, enda flatlend. Matskeið og teskeið eru annað...
Meira
Orð dagsins: En Jesús sagði við þá: „Gjaldið keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.“ Og þá furðaði stórlega á honum. (Mark. 12, 17.
Meira
Stefán Valgeirsson alþm. fæddist í Auðbrekku í Hörgárdal 20.11. 1918 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Anna Marí Einarsdóttir frá Borgarfirði eystri og Valgeir Sigurjón Árnason í Auðbrekku.
Meira
„Garðurinn er mín heimabyggð og á tímamótum á starfsferlinum fannst mér við hæfi að gera eitthvað sem tengdist staðnum,“ segir Hilmar Bragi Bárðarson blaðamaður.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Úti á landi gegnir kirkjan ef til vill veigameira hlutverki í daglegu lífi fólksins en á Reykjavíkursvæðinu. Hér er kirkjan sýnilegri og þátttaka í starfinu oft góð.
Meira
Völsurum tókst loks að vinna sinn fyrsta sigur á þessu leiktímabili í úrvalsdeildinni í körfubolta í liðinni viku. Valsmenn eru nýliðar í deildinni og sigurinn langþráður. Í leiknum fór erlendi leikmaðurinn í liðinu, Chris Woods, á kostum.
Meira
Danmörk Arhus – Bjerringbro-Silkeborg 27:22 • Kári Kristján Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Bjerringbro-Silkeborg. Svíþjóð Sävehof – Heid 32:21 • Birna Berg Haraldsdóttir náði ekki að skora fyrir...
Meira
Í Zagreb Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Úti er ævintýri. Íslenska landsliðið verður ekki á meðal þátttökuþjóða á HM í Brasilíu næsta sumar. Það varð ljóst á Maksimir-vellinum í Zagreb í gær þar sem Króatar hrósuðu 2:0 sigri.
Meira
Í Zagreb Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is Hátt í eitt þúsund Íslendingar settu heldur betur svip sinn á króatísku höfuðborgina Zagreb í gærdag og gærkvöld. Sjaldan hafa jafnmargir íslenskir áhorfendur mætt á leik svo fjarri heimalandinu.
Meira
Þjálfararnir komu ekkert á óvart með liðsvali sínu. Eiður Smári Guðjohnsen og Birkir Már Sævarsson komu inn í liðið fyrir Kolbein Sigþórsson sem meiddist í fyrri leiknum og Ólaf Inga Skúlason sem tók út leikbann.
Meira
Í Zagreb Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Króatarnir voru miklu betri en við. Segja má að við höfum ekki séð til sólar fyrr en eftir að þeir misstu leikmann af velli með rautt spjald á 38. mínútu.
Meira
NBA-deildin Brooklyn – Portland 98:108 Chicago – Charlotte 86:81 Oklahoma City – Denver 115:113 Dallas – Philadelphia 97:94 Utah – Golden State 87:98 LA Clippers – Memphis...
Meira
Portúgal tryggði sér í gærkvöldi farseðilinn til Brasilíu á næsta ári, þökk sé besta manni liðsins, Cristiano Ronaldo. Portúgal vann Svíþjóð, 3:2, á Vinavöllum í Stokkhólmi en fyrri leikinn í umspili liðanna unnu Portúgalir, 1:0, á heimavelli.
Meira
Rúnar Kárason, landsliðsmaður í handknattleik, er hættur hjá þýska félaginu Rhein-Neckar Löwen sem Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, stýrir og er genginn til liðs við Hannover-Burgdorf sem líka leikur í þýsku 1. deildinni.
Meira
Hannes Þór Halldórsson, markvörður fótboltalandsliðsins, og miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson voru einu tveir mennirnir sem spiluðu alla tíu leiki Íslands (8 í riðlum og 2 í umspili) frá upphafi til enda.
Meira
Í Zagreb Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Ég er auðvitað vonsvikinn eins og leikmennirnir allir. Við vorum svo nálægt því að komast í lokakeppni HM en það eru líklega tvær ástæður fyrir því hvers vegna við spiluðum ekki vel hér í kvöld.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.