Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Efnahagsleg áhrif háskólanna í Borgarbyggð, Háskólans á Bifröst og Landbúnaðarháskóla Íslands, eru að minnsta kosti um 965 milljónir króna á ári eða um 14% af öllum atvinnutekjum á svæðinu.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þrátt fyrir minnkandi atvinnuleysi eru bótasvik enn algeng í atvinnuleysisbótakerfinu. Í fyrra rannsakaði eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar (VMST) tæplega 700 mál þar sem grunur var um misnotkun.
Meira
Aðalmeðferð í máli Ríkissaksóknara gegn lögreglumanninum sem er sakaður um að hafa handtekið konu á Laugaveginum 7. júlí s.l. eftir að hún hrækti á hann fór fram í gær. Konan var dæmd fyrir árásina fyrir rúmum mánuði.
Meira
Baldur Arnarson Guðmundur Sv. Hermannsson „Þetta er í skáksögulegu samhengi á við uppgang til dæmis Mikhaíls Tals fyrir 1960 og uppkomu Garrís Kasparovs og Anatólís Karpovs. Að sumu leyti minnir þetta jafnvel á uppgang Bobby Fischers.
Meira
Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Bráðabirgðaviðgerð á Goðafossi, flutningaskipi Eimskips, er lokið og er skipið komið aftur á sína hefðbundnu leið, segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, í samtali við Morgunblaðið.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Dagbók Jóhannesar úr Kötlum, úr vináttuheimsókn hans og fleiri Íslendinga til Kína árið 1952, hefur nú verið gefin út á íslensku og kínversku.
Meira
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Kvenfataverslunin Bernharð Laxdal á Laugavegi á 75 ára starfsafmæli í ár. Hún er elsta starfandi kvenfataverslun landsins, stofnuð árið 1938 á Akureyri af Bernharð Laxdal klæðskera.
Meira
Gufumökkur stígur frá gíg nýrrar eyju sem risið hefur úr hafinu um hálfan kílómetra suðaustur af Nishinoshima-eyju, um 1.000 km suður af Tókýó. Nýja eyjan er um 200 metrar í þvermál og er gígurinn tengdur eldfjalli í nágrenni Nishinoshima-eyju.
Meira
Fréttaskýring Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Misnotkun í atvinnuleysisbótakerfinu er enn útbreidd þó að nokkuð virðist hafa dregið úr bótasvikum samhliða minnkandi atvinnuleysi.
Meira
Í tilefni af væntanlegri ferð skákfélagsins Hróksins til Upernavik á Grænlandi í næstu viku verður haldinn Grænlandsdagur í Kringlunni á sunnudag milli klukkan 14 og 16.
Meira
Ísfisktogarinn Helga María AK er á heimleið eftir umfangsmiklar breytingar og endurbætur sem gerðar voru á skipinu í Alkor skipasmíðastöðinni í Gdansk í Póllandi.
Meira
Töluvert hefur verið kvartað undan ógætilegum akstri ökumanna í Ánanaustum í Vesturbæ Reykjavíkur undanfarin misseri og ár. Lögreglan hefur oft verið kölluð þarna til vegna þessa og haft afskipti af ökumönnum sem erfitt eiga með að virða lög og reglur.
Meira
Kristniboðsfélag kvenna heldur sinn árlega jólabasar í dag frá kl. 14 í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58-60 í Reykjavík. Fram kemur í tilkynningu að á boðstólum verði kökur, handunnir munir, jólakort, skyndihappdrætti o.fl.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Jóladagatölin eru komin í hillur verslana enda stutt í að aðventan gangi í garð. Mörg börn fá jóladagatal og opna glugga á hverjum degi í desember til aðfangadags. Innan við gluggann er ýmist mynd, súkkulaðibiti eða...
Meira
Jólahefti Rauða krossins á Íslandi eru þessa dagana að berast til allra heimila í landinu. Býður Rauði krossinn landsmönnum að styrkja innanlandsverkefni félagsins með því að kaupa heftið. Það inniheldur að venju merkimiða á pakka og jólamerki.
Meira
Guðmundur Hallgrímsson mun á sunnudag koma í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal til þess að snyrta klaufir nautgripa og rýja sauðfé. Með honum í för verður föruneyti Ullarselskvenna frá Hvanneyri sem vinna munu band úr ullinni jafnóðum.
Meira
Mývatnssveit | Jólasveinar eru komnir í Dimmuborgir og verða þar með dagskrá alla daga til jóla og síðan um jólin fram á nýársdag. Þeir halda sig mest á Hallarflöt en sjást víðar. Meðal annars bjóða þeir nú upp á fjölskylduvænan ratleik alla daga.
Meira
Jean Kennedy Smith, systir John F. Kennedy, drúpir höfði eftir að hafa lagt blómsveig við leiði bróður síns í kirkjugarðinum í Arlington í Virginíu. Við hlið hennar standa nánustu ættingjar hennar. Hafði Eric H.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er markmið kínverskra stjórnvalda að veltan af viðskiptum ESB-ríkjanna og Kína verði komin í þúsund milljarða bandaríkjadala 2020.
Meira
Faðmlag Þessar kynjaverur úr Fjölbrautaskóla Ármúla „dimitteruðu“ í miðbænum í gær. Þær vildu ólmar lyfta vegfaranda. Edda Sigrún Ólafsdóttir lögmaður var til í...
Meira
Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hratt hefur dregið úr atvinnuleysi á Suðurnesjum að undanförnu. Gróska er í sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Margs konar frumkvöðla- og nýsköpunarstarf er að skjóta rótum.
Meira
Guðmundur Magnússon. gudmundur@mbl.is Hratt hefur dregið úr atvinnuleysi á Suðurnesjum að undanförnu. Gróska er í sjávarútvegi og ferðaþjónustu á svæðinu. Margs konar frumkvöðla- og nýsköpunarstarf hefur skotið rótum.
Meira
Baksvið Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Listi fólksins á Akureyri, L-listi, myndi bíða afhroð ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga nú, samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið.
Meira
Baksvið Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Undir fyrirsögninni Ábyrgar veiðar fjallaði sjávarútvegsráðherra í lok ágústmánaðar um kvótasetningu nokkurra fisktegunda.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið myndi L-listinn á Akureyri bíða afhroð ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga nú.
Meira
Forystumenn nemendafélaga innan Menntaskólans í Reykjavík hafa sent opið bréf til fjárlaga- og menntamálanefnda Alþingis vegna framlags til MR í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.
Meira
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra lýsir nú eftir þremur mönnum, sem allir eru erlendir ríkisborgarar, frá Albaníu, Nígeríu og Afganistan. Ekki kemur fram vegna hvaða mála þeir eru eftirlýstir heldur aðeins að lögregla þurfi að ná tali af þeim.
Meira
Hlutfall nagladekkja í Reykjavík reyndist 28% á móti 72% naglalausum í talningu sem gerð var 14. nóvember sl. Í fyrra var hlutfallið svipað eða 26% á móti 74%, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg.
Meira
Norðmaðurinn Magnus Carlsen varð í gær heimsmeistari í skák. Carlsen tryggði sér titilinn með því að gera jafntefli við Indverjann Viswanathan Anand í 10. skák þeirra um titilinn.
Meira
Arnór Breki Ásþórsson og Róbert Orri Laxdal úr félagsmiðstöðinni Bólinu sigruðu í Rímnaflæði, rappkeppni á vegum Samfés, Samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi. Keppnin fór fram í Miðbergi í Breiðholti í gærkvöldi.
Meira
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar var opnað almenningi í gær. Um þrjátíu manns biðu við stólalyftuna Fjarkann þegar hleypt var í hana kl. 16.
Meira
Áhugi er á uppbyggingu á Skógum undir Eyjafjöllum. Við endurskoðun á aðalskipulagi Rangárþings eystra er byggðin þar í fyrsta skipti skilgreind sem þéttbýli. Það auðveldar úthlutun lóða á staðnum.
Meira
ÚR BÆJARLÍFINU Atli Vigfússon Þingeyjarsýsla Æfingar á söngleiknum Benedikt búálfi eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson hafa staðið yfir að undanförnu í Hafralækjarskóla og á meðan hefur hefðbundin stundaskrá verið lögð til hliðar.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Áframhaldandi starfsemi hefur verið tryggð á meðferðarheimilinu á Háholti í Skagafirði en öllum starfsmönnum hafði verið sagt upp þar sem þjónustusamningur við Barnaverndarstofu átti að renna út um næstu áramót.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs-, landbúnaðar og umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ákveðið að gefa síldveiðar frjálsar innan brúar í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Brim hf. hefur keypt hlut í grænlensku sjávarútvegsfyrirtæki. „Okkur finnst spennandi að fara að vinna með Grænlendingum.
Meira
Nokkur af öflugustu íþróttafélögum landsins eru í Kópavogi og leggja þau mikla áherslu á barna- og unglingastarf. Fjölbreytt íþróttaaðstaða hefur verið byggð þar upp, enn er þó skortur á húsnæði og allt að 3-4 ára bið er eftir að komast að hjá Gerplu.
Meira
Vestmannaeyjabær sagði frá því í gær að í nýsamþykktri fjárhagsáætlun næsta árs væri gert ráð fyrir að lækka útsvarshlutfallið úr hámarkinu, 14,48%, í 13,98%.
Meira
Áskell Másson: Frón. Khatsjatúrjan: Fiðlukonsert. Zhou Long: The Rhyme of Taigu. Florent Schmitt: Harmleikur Salóme – svíta. Li Chuan-Yun fiðla og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Lan Shui. Fimmtudaginn 21.11. kl. 19:30.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Rúnar Kristinn Rúnarsson flytur söngleikjatónlist á tónleikum í Kaldalóni í Hörpu á sunnudag og hefjast þeir klukkan 16. Steinunn Birna Ragnarsdóttir leikur með honum á píanó.
Meira
Áhugaljósmyndarinn Jóhann Smári Karlsson opnar ljósmyndasýninguna Iceland my way í Róm, 28. nóvember nk. Sýningin er haldin í boði borgaryfirvalda. Myndirnar tók Jóhann í búsáhaldabyltingunni...
Meira
Lanegan hefur verið giska iðinn við kolann að undanförnu og reyndar hefur hann verið hamhleypa til verka alla tíð og á að baki lygilega fjölskrúðugan feril.
Meira
Kvikmyndagerðarmennirnir Friðrik Grétarsson og Ómar Sverrisson vinna að heimildarmynd um tónlistarmanninn Herbert Guðmundsson sem þeir hafa fylgst með í rúm þrjú ár.
Meira
Það er nokkuð dimmt yfir Downton Abbey nú þegar hin góða og heilsteypta þjónustustúlka Anna er að jafna sig eftir hrottalegt ofbeldi sem hún var beitt.
Meira
Jólaljós nefnast styrktartónleikar Kirkjukórs Lágafellssóknar sem fram fara á morgun kl. 16 í Guðríðarkirkju. Í ár styrkir Jólaljós hjónin Eyþór Má Bjarnason og Katrínu Björk Baldvinsdóttur, sem glímt hafa við erfið veikindi og slys.
Meira
Ólafur Gíslason listfræðingur og Klara Stephensen hjá Arion banka verða með gestaspjall um sýninguna Mynd af heild II: Kjarval bankanna á Kjarvalsstöðum í dag kl. 15.
Meira
Þann 20. nóvember sl. voru liðin 24 ár frá því Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur og verður haldið upp það í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, á morgun kl. 15 með menningarmóti.
Meira
Forsvarsmenn tónleikaraðarinnar Á ljúfum nótum standa fyrir styrktartónleikum vegna söfnunar þjóðkirkjunnar til kaupa á línuhraðli fyrir Landspítalann í Háteigskirkju í dag milli kl. 12-13.
Meira
Caritas Ísland, hjálparstofnun kaþólsku kirkjunnar, heldur árlega aðventutónleika sína í Kristskirkju við Landakot á morgun kl. 16. Tónleikarnir eru haldnir til styrktar þeim sem eiga við geðræn vandamál að stríða.
Meira
Yfir 30 íslenskir myndlistarmenn hafa gefið verk eftir sig á uppboð sem haldið verður til styrktar samtökunum Sól í Tógó. Söfnunarféð mun renna til byggingar húss í Glidji í Tógó fyrir 58 börn og 6 umönnunaraðila og verður húsið m.a. nýtt til...
Meira
Frá Stefaníu Jónasdóttur: "Ég hlustaði á umræður á Alþingi um hælisleitendur 12. nóv. sl., þar sem Birgitta Jónsdóttir fór mikinn um mannréttindi þessa fólks, sem kemur hingað og krefur okkur um sín réttindi. Hvað með réttindi Íslendinga, sem brotið er á daglega?"
Meira
Eftir Tryggva Helgason: "Ég sá forsetann hlaupa létt upp stigann og veifa síðan til sinna manna. En þetta reyndist vera hans síðasta kveðja til þjóðar sinnar í þessu lífi."
Meira
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Þess vegna er svo gott að mega halda inn í veturinn og njóta hans með vorið vistað í sálinni og sól og eilíft sumar í hjarta."
Meira
Í gær voru 50 ár liðin frá því að John F. Kennedy var myrtur en líkt og rakið var í Morgunblaðinu af því tilefni eru menn ekki á eitt sáttir um hvort öll kurl séu komin til grafar hvað varðar dauða hans.
Meira
Í tungumálinu felst menningarheimur okkar. Orðaforðinn segir margt um lífið og tilveruna. Íslenska er rík af orðum yfir veðurfar. Eins eiga Grænlendingar fjölmörg orð yfir snjó. Orðalag gefur einnig vísbendingar um hvernig við hugsum og tökum á málum.
Meira
Frá Bjarna Theódór Bjarnasyni: "Undanfarin ár hafa forkólfar SA (Samtök atvinnulífsins) og ASÍ (Alþýðusamband Íslands), hér eftir nefnd samnefninu SAASÍ, verið höll undir aðild Íslands að ESB án þess að félagsmenn þeirra hafi gefið þeim lýðræðislegt umboð til þess."
Meira
Morgunblaðið minntist aldarafmælis síns á dögunum, og óskuðu allir því til hamingju með daginn nema Egill Helgason, bókmenntagagnrýnandi Ríkisútvarpsins, sem hneykslaðist á því, að Pósturinn gæfi út frímerki af þessu tilefni.
Meira
Læknaskortur Ég vil vekja athygli á viðvarandi læknaskorti á heilsugæslunni í Mjódd. Stöðugildin eru 7 en það vantar 3½ lækni og hefur það verið viðvarandi ástand í marga mánuði. Í gær, föstudag, var þar einn læknir á vakt. Eftirlaunaþegi.
Meira
Eftir Sigmund Sigurgeirsson: "Hlutverk gluggans er að vekja áhuga fólks á því sem fyrir innan er, kryddið sem kemur mögulegum viðskiptavini á bragðið."
Meira
Anna Ólafía Bjarnadóttir Hrabec (Lilla) fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1927. Hún lést í Bandaríkjunum 4. nóvember 2013. Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason, f. 1901, d. 1972, og Magna Ólafsdóttir, f. 1898, d. 1987. Systkini Önnu eru Bjarni, f.
MeiraKaupa minningabók
Ásta Sveinbjarnardóttir fæddist á Ysta-Skála undir Eyjafjöllum 5. ágúst 1923. Hún lést á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli 11. nóvember 2013. Foreldrar Ástu voru Sigríður Anna Einarsdóttir frá Varmahlíð V-Eyjafjöllum, f. 29.6. 1885, d. 20.11.
MeiraKaupa minningabók
Gauti Gunnarsson, bóndi á Læk í Flóa, fæddist 1. desember 1969. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 15. nóvember 2013. Foreldrar hans voru Gunnar Halldórsson frá Skeggjastöðum, f. 16. janúar 1925, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Ingibjörg Eiríksdóttir fæddist á Grófargili í Skagafirði 28. apríl 1930. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 13. nóvember 2013. Guðrún var dóttir hjónanna Kristjáns Eiríks Sigmundssonar, f. 10. júní 1897, d. 10.
MeiraKaupa minningabók
Gunnhildur Friðriksdóttir, Heiðarholti, Svalbarðsströnd fæddist á Siglufirði 19. desember 1927. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 14. nóvember 2013. Gunnhildur er dóttir hjónanna Friðriks Sveinssonar og Guðrúnar Jónsdóttur á Siglufirði.
MeiraKaupa minningabók
Jóhanna Jóhannsdóttir fæddist á Hamarsheiði 13. nóvember 1914. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 18. nóvember 2013. Hún var dóttir hjónanna á Hamarsheiði Jóhanns Kolbeinssonar bónda og Þorbjargar Erlendsdóttur ljósmóður.
MeiraKaupa minningabók
Lilja Margeirsdóttir fæddist í Færeyjum 5. maí 1936. Hún lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík 13. nóvember 2013. Foreldrar Lilju voru Margeir Sigurjónsson, forstjóri í Reykjavík, f. 1907, d.
MeiraKaupa minningabók
Trú á viðskiptalífið í Þýskalandi er að aukast á ný, samkvæmt ítarlegri könnun sem gerð var meðal sjö þúsund þýskra fyrirtækja nú í nóvember, sem gefur til kynna að aukin bjartsýni ríki í landinu hvað varðar efnahagshorfur.
Meira
Hagnaður TM nam tæplega 714 milljónum á þriðja ársfjórðungi, en það er um 28% lækkun frá því á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn var 994 milljónir.
Meira
Flestar hlutabréfavísitölur í Asíu hækkuðu í gærmorgun eftir að Dow Jones-hlutabréfavístalan á Wall Street rauf 16 þúsund stiga múrinn við lokun markaða í fyrradag.
Meira
Launavísitalan hefur hækkað um 6% á síðustu tólf mánuðum en kaupmáttur launa hefur aukist um 2,3% , samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Vísitala kaupmáttar launa í október 2013 er 114,4 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði.
Meira
Hagnaður Eimskips nam 9,6 milljónum evra (tæpum 1,6 milljörðum króna) á fyrstu níu mánuðum ársins sem er 29,7% minni hagnaður heldur en á sama tímabili í fyrra er hagnaðurinn nam 13,7 milljónum evra, eða sem nemur 2,25 milljörðum króna.
Meira
Það er vel þess virði að leiða hugann að því hvernig við nýtum orkuna allt í kringum okkur, til dæmis heita vatnið. Er hægt að nýta það betur? Eða eru flestir að sóa orku í formi heits vatns út í sjó?
Meira
Sú hefð að skera út í laufabrauð er að sumra mati ómissandi þáttur í jólahaldi fjölskyldna. Færnin við skurðinn kemur sannarlega með æfingunni en réttu handtökin verða kennd í Viðey á sunnudaginn þar sem haldinn verður sérstakur laufabrauðsdagur.
Meira
Möguleikhúsið sýnir barnaleikritið Prumpuhóllinn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi klukkan 14 á morgun, sunnudag. Prumpuhóllinn fjallar um tröllastrákinn Seina og venjulega stelpu sem heitir Hulda.
Meira
Svindlandi mölur nefnist stórskemmtilegt og tiltölulega einfalt spil fyrir alla fjölskylduna. Sagt er að spilið sé fyrir sjö ára og eldri en þó er ljóst að yngri krakkar sem fljótir eru að læra geta vel spilað þetta spil.
Meira
Sjórinn og sæfarendur eru skáldum og vísnasmiðum óþrjótandi yrkisefni. Ingólfur Ómar Ármannsson kveður: Dansa boðar, drynur sær dembir froðutárum, dátt í voðum vindur hlær veltist gnoð á bárum.
Meira
Erlendur dýralæknir og járningamaður kom í vikunni með notuð járningaáhöld, svuntu og vinnuskó til landsins. Búnaðinn notaði hann við sjúkrajárningar á Suðurlandi.
Meira
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Árið 2004 kom hópur fólks á besta aldri, sem á það sameiginlegt að vera áhugasamt um heilbrigða lífshætti, saman í Kópavogi og stofnaði Íþróttafélagið Glóð undir kjörorðunum Hreyfing – fæðuval –...
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Rapparinn og tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson ólst upp á Vestfjörðum, Danmörku og víða um Reykjavík en hann tengir hins vegar alltaf mest við Kópavoginn.
Meira
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru íbúar Kópavogs 6.213 talsins árið 1960, 11.165 árið 1970, 13.819 árið 1980 og 16.186 árið 1990. Um aldamótin hafði Kópavogsbúum enn fjölgað og voru orðnir 22.693 talsins, þar af 11.486 konur og 11.207 karlar.
Meira
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Félagar í Hjálparsveit skáta í Kópavogi eru ávallt reiðubúnir í hvaða aðstæðum sem er að leggja allt til hliðar til að koma öðrum til bjargar eða hjálpar.
Meira
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Á menningartorfunni í Kópavogi er m.a. að finna Gerðarsafn, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Bókasafn Kópavogs, Tónlistarskóla Kópavogs og Salinn, tónlistarhús Kópavogs.
Meira
Hann svaraði: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig.
Meira
Álfhólsvegur í Kópavogi er kenndur við Álfhól, jökulsorfinn klapparhól sem nýtur verndar sem bústaður álfa. Seint á 4. áratugnum hófust vegaframkvæmdir á þessum slóðum, vegurinn átti að liggja um Álfhólinn og fyrirhugað var að sprengja hann.
Meira
Jöfn og góð þátttaka í Gullsmáranum Spilað var á 17 borðum í Gullsmára fimmtudaginn 14. nóvember. Úrslit í N/S: Jónína Pálsd. Þorleifur Þórarinss. 335 Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 324 Örn Einarsson - Óskar Ólason 324 Jón Stefánsson Viðar Valdimarss.
Meira
Hlín fæddist á Landspítalnum í Reykjavík og ólst upp við Bragagötu og Brávallagötu. Þá var hún tvö sumur í sveit hjá úrvalsfólki á Felli í Tálknafirði.
Meira
Markús Bjarnason, skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavik, fæddist á Baulhúsum við Arnarfjörð 23.11. 1849. Hann var sonur Bjarna, útvegsb. á Baulhúsum Símonarsonar, skipstjóra á Dynjanda í Arnarfirði Sigurðssonar.
Meira
Kannski þykja fleirtölumyndirnar þúsund og hundruð dálítið snubbóttar og svipaðar eintölunni. Svo vel vill þá til að líka tíðkast þúsundir . En óðara verður fjandinn laus og upp sprettur fleirtalan „hundruðir“. Hún er bara ekki...
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Fólkið okkar fer út um allan heim og hefur náð árangri bæði þar og heima,“ segir Baldur Sæmundsson, áfangastjóri verknámsgreina í Hótel- og matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi.
Meira
Í Safnahúsi Kópavogs er meðal annars að finna Náttúrufræðistofu Kópavogs en hlutverk hennar er að safna, varðveita og sýna náttúrugripi, standa að fræðslu og rannsóknum í náttúrufræðum og stuðla að náttúru- og umhverfisvernd.
Meira
Reyðarfjörður Þuríður Björk fæddist 13. mars kl. 5.07. Hún vó 3.866 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Helga Sturludóttir og Jón Kristinn Auðbergsson...
Meira
Reykjavík Óskar Máni fæddist 30. mars kl. 10.47. Hann vó 3.795 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Ágústa Þórunn Jóelsdóttir og Birgir Agnar Sigurðsson...
Meira
Í Gerðarsafni í Kópavogi er lögð megináhersla á nútíma- og samtímalist. Nafn safnsins er til heiðurs Gerði Helgadóttur myndhöggvara. Erfingjar Gerðar færðu Kópavogsbæ að gjöf um 1.400 verk hennar með því skilyrði að opnað yrði safn sem bæri hennar nafn.
Meira
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Linda Pétursdóttir stofnaði Baðhúsið 1994, þá aðeins 24 ára gömul. Fyrstu þrjú árin var Baðhúsið til húsa í Ármúla, þaðan sem það flutti í Brautarholt en eftir áramót opnar Linda á glænýjum stað í Kópavogi.
Meira
Laugardagur 95 ára Elín Jónsdóttir 90 ára Kristján Hjörtur Gíslason Sveinbjörn Kristjánsson 85 ára Aldís Albertsdóttir Kristín Ólafsdóttir 80 ára Hreiðar Jónsson Sveinn Klemens Andrésson 75 ára Andrés Grímólfsson Auður H.
Meira
Betra er að hafa meltinguna um jólin í lagi. Örvæntið ekki því töfralyf er komið á markað sem hjálpar til við að melta öll herlegheitin sem rata ofan í maga þeirra sem kunna sér ekki hóf.
Meira
23. nóvember 1838 Kirkjugarðurinn við Suðurgötu í Reykjavík, Hólavallagarður, var vígður og fyrsta greftrunin fór fram. 23. nóvember 1916 Karlakór KFUM var stofnaður. Tuttugu árum síðar var nafninu breytt í Karlakórinn Fóstbræður. 23.
Meira
Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Jóhann Fannar Kristjánsson er 18 ára afreksíþróttamaður í fimleikum. Morgunblaðið leit inn á æfingu hjá Gerplu, þar sem hann æfir tvisvar í viku. Jóhann er elstur þriggja systkina, en hann er með Downs-heilkenni.
Meira
Alfreð Örn Finnsson, þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Storhamar, sendir landa sínum, Þórir Hergeirssyni, óhikað tóninn vegna vals hins síðarnefnda á norska landsliðinu sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu sem haldið verður í Serbíu í næsta mánuði.
Meira
Arnór Gauti Brynjólfsson, ungur knattspyrnumaður úr Fylki, hefur fengið boð frá belgíska félaginu Club Brugge um að koma þangað öðru sinni til æfinga og fara í keppnisferðalag með unglingaliði félagsins.
Meira
Englandsmeistarar Manchester United tilkynntu í gær að miðjumaðurinn Michael Carrick hefði framlengt samning sinn við félagið og er hann nú bundinn því fram til júní 2015 með möguleika á að bæta einu ári við samninginn.
Meira
Framarar hafa fengið til sín ellefu nýja leikmenn, sem sagt heilt byrjunarlið, frá því að leiktíðinni í Pepsi-deild karla í knattspyrnu lauk í haust.
Meira
Viðbúið er að Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins og danska úrvalsdeildarliðsins Bjerringbro/Silkeborg, fá aukna samkeppni á næsta keppnistímabili. Danski landsliðsmaðurinn Michael V.
Meira
Fótbolti Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Þráðurinn verður tekinn upp að nýju í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag sem ætti að kæta fjölmarga aðdáendur ensku knattspyrnunnar hér á landi.
Meira
Í Njarðvík Skúli Sigurðsson sport@mbl.is Flestir áttu von á nokkuð jöfnum og jafnvel skemmtilegum leik Njarðvíkinga og Hauka í Ljónagryfjunni í gærkvöldi, þegar liðin mættust í Dominos-deild karla því þau voru jöfn að stigum.
Meira
Þónokkuð margir keppendur gera tilkall til sætis í landsliðinu sem Ísland teflir fram á Evrópumeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fer í Herning í Danmörku 12.-15. desember.
Meira
Meðan ég var á Maksimir-leikvangi á þriðjudagskvöldið og fylgdist með landsliðsmönnum Króata og Íslendinga berjast um farseðilinn á HM í knattspyrnu karla á næsta ári varð mér hugsað til leyfiskerfis KSÍ.
Meira
Íslandsmeistarar Fram hafa unnið þrjá leiki í röð í Olís-deild kvenna í handknattleik en liðið vann afar kærkominn sigur á „Spútnikliði“ Gróttu í gærkvöld, 23:22. Grótta er áfram í 3.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Keppni í Olís-deild karla í handknattleik er farin að styttast í annan endann á þessu ári. Aðeins eru tvær umferðir eftir í deildinni og ein umferð í Coca Cola-bikarnum áður en gert verð hlé fram til 30.
Meira
Stavanger Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Knattspyrnuliðið Viking, frá norska olíubænum Stavanger, er orðið að mesta „Íslendingaliðinu“ í fótboltanum eftir að Kópavogsbúinn Steinþór Freyr Þorsteinsson gekk til liðs við félagið í gær.
Meira
Þýskaland Stuttgart – Mönchengladbach 0:2 B-deild: Bielefeld – Bochum 0:2 • Hólmar Örn Eyjólfsson kom inná á 79. mínútu hjá Bochum sem er í 6. sæti B-deildar.
Meira
Fallegt par af prjónuðum vettlingum er fínasta jólagjöf og prjónabókin Kaldir dagar er full af slíkum uppskriftum, eins og Ólöf Engilberts segir frá.
Meira
„Um leið og ég kem inn um dyrnar heima hjá Guðnýju mætir hún mér með svuntu í hendi og segir að nú eigi ég að búa til súpuna,“ segir Helga um hvernig hún kynntist óvenjulegri jólamatarhefð.
Meira
Þeir sem leggja leið sína í safnið í desember geta fengið að fylgjast með kerta- og laufabrauðsgerð, lært að föndra kramarhús og tekið snúning með jólasveinunum kringum fallega skreytt jólatré.
Meira
Jólatónlist er býsna breiður flokkur tónlistar og jólaplöturnar – að ekki sé minnst á jólalögin – jafnmargvíslegar og þær eru margar. Bassajólaplötur Jakobs Smára Magnússonar eru þó nokkuð sér á parti.
Meira
Blysför um Öskjuhlíð með jólasveinunum og þriggja daga ferð í Landmannalaugar meðal þess sem er á dagskrá hjá Ferðafélaginu kringum jól og áramót.
Meira
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir sendi nýverið frá sér matreiðslubókina Matargleði Evu og stýrir auk þess matreiðsluþáttunum Í eldhúsinu hennar Evu á Stöð 3 ásamt því að halda úti sívinsælu matarbloggi sínu á síðunni evalaufeykjaran.com.
Meira
Æ fleiri temja sér að heimsækja snyrtistofu reglulega til að fegra kroppinn og losa um vöðvahnútana. Gjafakort í spa-meðferð eða nudd hentar jafnt þeim sem vanhagar ekki um neitt og hinum sem er stöðugt á þeytingi.
Meira
Þótt ríflegt sé til af íslenskri jólamúsík er úrvalið í hinum stóra heimi svo stórbrotið að yfirþyrmandi er. Þess vegna skal úrvalið hér takmarkað við músík frá vöggu afþreyingariðnaðarins, Bandaríkjunum.
Meira
Það er árviss viðburður í nóvember að heyra fólk barma sér undan ótímabærum jólaskreytingum og auglýsingum. Það sé bara alveg ómögulegt að spilla svona jólagleðinni með því að þynna stemninguna og teygja svona í annan endann.
Meira
Ragnar Kjartansson hannaði Kærleikskúluna og Vilborg Dagbjartsdóttir og Siggi Eggertsson eru höfundar óróans Gluggagægis. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra stendur að baki útgáfunni en markmiðið með sölu jólaskrautsins er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna.
Meira
Það á að gefa dömum föt að spóka sig í á jólunum. Ef enginn tekur af skarið er ekki um annað að ræða en að gefa sjálfri sér jólakjól eða annað fínirí.
Meira
Franskt laufabrauð 1 kg hveiti 200 g bókhveiti 1 tsk. sykur 1 tsk. salt 50 g smjör 1,5-1,75 l mjólk Blandið saman hveiti og bókhveiti, salti og sykri. Bræðið smjörið í mjólkinni, sjóðið og látið kólna niður í stofuhita.
Meira
Textasmiðurinn, uppistandarinn og gleðigjafinn Ari Eldjárn er sannkallað jólabarn. Hann kann meira að segja skothelda leið til að fá alltaf jólagjöfina sem hann dreymir um hver jól.
Meira
Berglind Guðmundsdóttir hefur á skömmum tíma getið sér gott orð fyrir matarblogg sitt, Gulur Rauður Grænn og Salt þar sem áherslan er á hollan, næringarríkan og bragðgóðan mat.
Meira
Íslendingar hafa farið að líkjast Dönum meira í jólahaldinu, hafa dregið úr asanum, leyft sér að slaka meira á og njóta samveru með vinum og ættingjum. Marentza segir algengt að Danir geri jólamatinn frá grunni, baki lifrarkæfu og leggi síld í maríneringu.
Meira
Norðlenska hangikjötið þykir vera í sérflokki. Buðu upp á bæði tvíreykt og léttsaltað síðustu jól við góðar viðtökur. Til að ná fram besta bragðinu þarf að sjóða hangikjötið rólega.
Meira
Það eru engin jól án bóka, stendur þar, og undir það tekur Gerður Kristný Guðjónsdóttir, rithöfundur og skáld, enda skipa bækur stóran sess í lífi hennar, ekki síst í jólamánuðinum.
Meira
Það getur verið gott að eiga eitthvað til þegar einhver kemur allt í einu í heimsókn án þess að gera boð á undan sér. Eitthvað fljótlegt en samt gómsætt.
Meira
Guðrún Kristjánsdóttir, heilsukokkur og verslunarkona, styðst oft við gamlar uppskriftir á jólum en skiptir óhollustunni út fyrir hollari valkost og notar mikið af góðu kryddi og lækningajurtum.
Meira
Margir bíða spenntir eftir sérframleiddum krembrauðum Kaffitárs og Fróns kexverksmiðju. Í teúrvalinu þessi jólin má m.a. finna spennandi og ljúffengt rauðrunnate frá Suður-Afríku.
Meira
Kraftur – stuðningsfélag ungs fólks með krabbamein efnir til fjáröflunar þessi jólin. Selja sérmerkta kassa með gómsætu Nóa-konfekti sem er kjörið sem gjöf handa vinum, ættingjum eða starfsmannahópi heils fyrirtækis.
Meira
Jólastemningin er notaleg í Blómavali og blómaskreytingar til jóla bera hlýlegum straumum og stefnum vitni, eins og Díana Allansdóttir segir frá og sýnir okkur.
Meira
Jóhann Malmquist, nemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands, ólst upp við piparkökuhúsagerð á æskuheimilinu á Akureyri og gerir nú sína eigin útgáfu fyrir sunnan.
Meira
Að mati Svanhildar hjá Spilavinum ættu að vera nokkur ólík spil til á hverju heimili. Spilin verða að henta bæði ungum og öldnum og bjóða upp á bæði hraða og langa spilun. Það má heldur ekki taka of langan tíma að setja sig inn í reglurnar.
Meira
Jólaglöggshefðin barst sennilega til landsins með Íslendingum sem fóru til Svíþjóðar til náms um miðja síðustu öld. Drykkurinn getur verið varasamur því kröftugt bragðið felur áfengisstyrkinn. Íslendingar drekka glöggina í stórum glösum en Svíarnir í litlum bollum.
Meira
Íslenski jólamaturinn fellur ekki að hefðbundnum reglum um pörun á kjöti og víni. Sætt hvítvín fer best með hangikjöti og hamborgarhrygg en ákavíti best með jólasíldinni.
Meira
Gunnar Karl Gíslason, matreiðslumeistari á DILL Restaurant, stendur vörð um íslenskar matarhefðir, bæði þegar hann stendur vaktina á veitingastaðnum og eins þegar hann undirbýr jólamatinn. Hann gefur lesendum hér nokkrar vel valdar uppskriftir.
Meira
Gæta þarf að því að umgangast jólatréð á réttan hátt svo það haldist fallega grænt og haldi nálunum fram yfir þrettándann. Skógarverðir og starfsmenn þeirra standa í stórræðum um þessar mundir við að fella jólatré.
Meira
4 Jólabarnið Ari Eldjárn 10 Allt um jólatréð þitt 14 Kramarhús til hátíðabrigða 16 Gerður Kristný og bókajólin 24 Tæknileg jólafrímerki 2013 28 Dekur í jólagjöf 30 Marentza gefur uppskriftir 32 Jakob Smári og bassajólin 34 Jólakræsingar á franska vísu...
Meira
Vegur jólabjóranna vex með hverju árinu og seljast margar tegundirnar upp löngu fyrir jól. Úrvalið vex að sama skapi ár frá ári og aldrei hafa jafn margar mismunandi úrfærslur verið á boðstólum og fyrir þessi jól.
Meira
Það ríkir alltaf ákveðin eftirvænting fyrir jólafrímerkjum hvers árs. Jólafrímerkin 2013 brjóta hinsvegar blað í rúmlega 30 ára útgáfusögu íslenskra jólafrímerkja og kemur þar ýmislegt til, eins og hönnuðurinn, Örn Smári Gíslason, útskýrir.
Meira
Laganemanum Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur er margt til lista lagt. Eitt af því sem leikur í höndum hennar er bollakökugerð og þar á meðal eru jólatrésbollakökur sem eru jafnljúffengar og þær eru fallegar.
Meira
Á hverju ári kemur út skartgripur fyrir jólin í línunni Flóra Íslands. Skartið er samstarfsverkefni skartgripahönnuðarins Sifjar Jakobs og listmálarans Eggerts Péturssonar. Með hverjum nýjum grip er nýju góðgerðarmálefni veittur stuðningur, eins og Sif segir hér frá.
Meira
Verslunin Suomi PRKL! eða „finnska búðin“ eins og margir kalla hana, býður upp á margs konar nytjahluti og hönnunarvöru frá Finnlandi. Jólaskrautið er þar vitaskuld ekki undanskilið.
Meira
Bolli Pétur þarf að vera á þeytingi allan desember á mili fjöldamargra sóknarkirkna og bænhúsa í prestakallinu. Hefð í sveitinni er að börn og ungmenni flytji helgileik á aðventu og haldinn er starfsdagur á gamla prestssetrinu þar sem gömlu aðferðirnar við jólaundirbúninginn eru sýndar.
Meira
Í flestum fjölskyldum eru sérstakir siðir sem einkenna jólahaldið. Í fjölskyldunni sem kennir sig stundum við Zeuthenshús á Eskifirði er sá siður í heiðri hafður hvert einasta ár að baka kramarhús og fylla þau með rjóma og setja svo sultudropa ofan á.
Meira
Laufabrauð er fyrir mörgum ómissandi atriði úr jólaundirbúningnum. Gjarnan safnast þá fjölskyldan saman og situr daglangt við að fletja út deig, skera í það falleg mynstur og steikja það svo. Hugrún Ívarsdóttir býr að slíkri hefð frá fyrstu tíð.
Meira
Jólaskreytingar eiga sín tískutímabil eins og annað, þó ýmislegt sé áþekkt á milli ára. Í Garðheimum er úrvalið veglegt eins og vant er og verslunarstjórinn Kristín Helga Gísladóttir segir frá helstu straumum og stefnum í jólaskreytingunum þetta árið.
Meira
Edwin Kaaber gerði sér lítið fyrir og hóaði saman gömlum félögum úr tónlistinni til að galdra fram plötu með jólalögum í hljóðfæraútsetningu. Honum þótti vanta hljóðfæraplötu í íslensku jólaplötuflóruna.
Meira
Margir bíða með eftirvæntingu þess er nýjar jólavörur frá HekluÍslandi koma í búðir. Vörurnar fyrir jólin 2013 eru komnar og enn bætist í vörulínuna, segir Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir.
Meira
Anna Ólafsdóttir eyðir drjúgum tíma á degi hverjum á vinnustofu sinni þar sem hún býr til jólakort, skrautlega gjafapoka og hlýleg kerti af listfengi.
Meira
Rómantískar jólaskreytingar með könglum, greni og rauðum lit eru ráðandi í ár og æ fleiri kjósa að bæta við lifandi blómum, að sögn Maríu Másdóttur, eiganda Blómahönnunar í Listhúsinu í Laugardal.
Meira
Guðlaugur A. Magnússon hannaði sína fyrstu jólaskeið úr silfri árið 1946. Síðar tók sonur hans Magnús Guðlaugsson við keflinu og nú er það barnabarnið, Hanna Sigríður Magnúsdóttir, sem hannar jólaskeiðina 2013.
Meira
Saltfiskur og fjör á aðfangadagskvöldi í Portúgal í bland við bakkelsi og djúpsteikt deig. Jólafríið er stutt og lítill tími fyrir makindi og leti.
Meira
Margeir Steinar Ingólfsson, landanum að góðu kunnur sem DJ Margeir, er alla jafna upptekinn maður í desember. Í ár ætlar hann meðal annars að leggja góðu málefni lið með því að setja saman lagalista með jólalögum.
Meira
Í skammdeginu sem ríkir í jólamánuðinum er öll birta þakklát. Aðventukransar með kertum gefa frá sér fallega og hlýlega birtu og fást aukinheldur í nánast endalausum útfærslum.
Meira
Það er oðinn árviss viðburður að Nordic Games gefi út myndarlegt jólapúsluspil fyrir jólin. Á því er engin breyting fyrir þessi jól og nú eru jólasveinarnir komnir á fleygiferð niður brekkuna, líkast til á leiðinni til mannabyggða.
Meira
Það er víða siður að dreypa á snafs með hátíðarkrásum á aðventunni. Ölgerðin setur á markaðinn sinn árlega jólasnafs fyrir jólin og það er hátíðarbragur á snafsinum í ár, eins og Óli Rúnar Jónsson hjá Ölgerðinni segir frá.
Meira
Í lífsstílsversluninni Aff Concept er að finna skandinavíska heimilis- og gjafavöru þar sem margt er endurunnið og gamlar hirslur og húsgögn hafa fengið nýtt hlutverk.
Meira
Verslunin Kraum í Aðalstræti hefur að geyma vandaða og fallega gjafavöru eftir um tvö hundruð íslenska hönnuði. Í þessu elsta húsi Reykjavíkur er margt sem gleður augað; húsgögn og textíll, kerti og ljós, skartgripir og föt, snyrtivörur og tónlist, konfekt og krydd.
Meira
Margra áratuga hefð er fyrir því að jólasveinarnir heimsæki börn í Þjóðminjasafninu í desember. Jólaratleikur er haldinn á safninu og hægt að skoða muni í litlu jólahúsi í anddyri safnsins.
Meira
Guðrún Ína Einarsdóttir, lyfjatæknir og matgæðingur, hefur unun af því að baka og útbúa konfekt. Á jólum er það glæsileg pýramídakaka sem nýtur mestra vinsælda á heimilinu og þannig hefur það verið síðastliðin 36 ár.
Meira
Góð bók er jólagjöf sem hittir í mark. Vinsælt er að gefa erlendum viðskiptavinum myndabók, Íslendingasögur eða teiknaða bók eftir Brian Pilkington.
Meira
Eins og foreldrar þekkja mætavel getur það komið fyrir prúðustu börn að fara nánast á límingunum í jólamánuðinum því ekki vantar tilhlökkunina, tilstandið og taugatrekkingar yfirleitt.
Meira
Það vantar ekki framboðið þegar innlend jólatónlist er annars vegar. Sumt öðlast almennar vinsældir á meðan annað fellur ef til vill ekki alveg jafn vel í kramið.
Meira
Rjúpur eiga sérstakan sess hjá ýmsum Íslendingum. En ekki eru það þó allir sem fara til fjalla til að skjóta jólarjúpurnar. Ævar Ágústsson kerfisfræðingur og Hrafnhildur, dóttir hans, hafa undanfarin ár farið saman á rjúpnaveiðar og hjálpast svo að við að undirbúa rjúpnarétt fyrir jólahaldið.
Meira
Hönnunarhúsið Raven Design í Njarðvík býr til fallegar jólavörur ásamt þjóðlegri heimilisvöru og skarti. Ef eitthvað verður sjúskað eða brotnar þá er því skipt í nýtt, án endurgjalds, eins og Hulda Sveinsdóttir segir frá.
Meira
Bókaútgáfan Óðinsauga gefur m.a. út barnabækur sem fjalla um ævintýri og uppátæki íslensku jólasveinanna. Barnabókmenntirnar leika mikilvægt hlutverk í að temja börnunum að lesa sér til skemmtunar.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.