Að jafnaði urðu meira en 14 vinnuslys á degi hverjum árið 2012 samkvæmt tölfræði Slysaskrár Íslands eða 5.287 slys. Þetta kemur fram í nýju rafrænu fréttabréfi sem VÍS hleypti af stokkunum í gær.
Meira
Kínverski auðkýfingurinn Zhang Yue, sem hefur reist píramíta að hætti egypskra konunga og eftirlíkingu af Versalahöll, ætlar núna að reisa sér Skýjaborg, hæstu byggingu í heimi – sama hvað hver segir.
Meira
Leikstjórinn Baltasar Kormákur er afar ósáttur við þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að hætta beinum stuðningi við Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík (RIFF).
Meira
„Það er ekkert til sem heitir könnunarviðræður, ekkert til sem heitir að kíkja í pakkann. Ef menn sækja um aðild að Evrópusambandinu þá vilja menn ganga í Evrópusambandið á forsendum þess og þessi ríkisstjórn vill ekki ganga í Evrópusambandið.
Meira
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, boðar nýjar áherslur í samtali við Morgunblaðið. Flokkurinn muni setja fram áherslur á skýrari hátt og greina sig frá öðrum flokkum í borginni.
Meira
Tæpar 10 milljónir evra, eða um 1,5 milljarðar íslenskra króna, söfnuðust í Mjúkdýraleiðangri IKEA á heimsvísu fyrir UNICEF og Barnaheill – Save the Children. Þar af söfnuðust 13.322 evrur, eða um 2.105.000 krónur, á Íslandi.
Meira
Spænski ökuþórinn Carlos Sainz tekur hér þátt í Dakar-rallinu sem hófst 5. janúar og lýkur á morgun. Keyrt er um Argentínu, Bólivíu og Síle. Dakar-rallið hét áður París-Dakar-rallið.
Meira
L.A. frumsýnir Gullna hliðið í kvöld. Hilmir Jensson fer með fimm hlutverk í uppfærslunni en hið ógnvænlegasta er Óvinarins sjálfs, eða djöfulsins.
Meira
Myndir og fyrirliggjandi upplýsingar benda til þess að einn minnsti og nafntogaðasti jökull landsins, Ok, sé að hverfa. Þetta segir Oddur Sigurðsson jöklafræðingur í samtali við Morgunblaðið, sem birt er aftar í blaðinu.
Meira
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var tvívegis kallað út í gærkvöldi. Fyrst vegna elds sem kom upp í íbúð í Tunguseli í Breiðholti. Allar stöðvar sendu bíla á vettvang en betur fór en á horfðist og fljótlega gekk að slökkva eldinn.
Meira
Andri Steinn Hilmarsson gefur kost á sér í 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Andri Steinn fæddist árið 1993 og er á fyrsta ári í fjármálaverkfræði við Háskólann í Reykjavík.
Meira
Hjördís Ýr Johnson gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi 8. febrúar nk. Hjördís er kynningarstjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, og hefur starfað sem þjálfari hjá Dale Carnegie á Íslandi frá árinu 2006.
Meira
Eva Magnúsdóttir gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ 8. febrúar næstkomandi. Eva er formaður fræðslunefndar Mosfellsbæjar og hefur setið í nefndinni undanfarin fimm ár.
Meira
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í vor var samþykktur einróma á fundi Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna síðdegis í gær.
Meira
Guðmundur Magnússon Anna Lilja Þórisdóttir Ekki hefur verið haft samband við Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og hann beðinn að víkja sem formaður framkvæmdaráðs bæjarfélagsins.
Meira
Hæstiréttur þyngdi í gær dóm vegna kynferðisbrots úr 18 mánaða fangelsi í tveggja ára fangelsi. Hins vegar þótti rétt að fresta fullnustu 21 mánaðar af refsingunni skilorðsbundið vegna þess mikla dráttar sem varð á rannsókn málsins.
Meira
Síðasta danska verslanakeðjan sem selt hefur foie gras hefur nú ákveðið að hætta að bjóða upp á þetta franska ljúfmeti vegna illrar meðferðar á gæsum og öndum við framleiðsluna.
Meira
Viðtal Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stjórnendur Eimskips hafa hug á að efla starfsemi félagsins enn frekar á Norður-Atlantshafinu sem er skilgreint sem heimamarkaður fyrirtækisins.
Meira
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögur þverpólitískrar nefndar um skiptingu 500 milljóna fjárveitingar til eflingar löggæslunni, en í þeim felst m.a. að lögreglumönnum verður fjölgað um 44 á þessu ári.
Meira
Miklar sveiflur einkenna stangveiði á bleikju á síðustu tveimur áratugum. Á flestum landsvæðum hefur veiðin dregist saman, samkvæmt yfirliti sem Veiðimálastofnun hefur tekið saman um stangveiði á bleikju og urriða í ám árin 1990-2012.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum að útlit sé fyrir orkuskerðingu frá miðjum febrúar til aprílloka vegna lélegs vatnsbúskapar.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Víkingbátar eru að smíða plastbát fyrir Nónu á Höfn í Hornafirði og verður hann afhentur kaupendum á Höfn í lok september. Báturinn verður 15 metra langur og 30 tonn brt.
Meira
Ævintýraheimur Logagyllt skýin á himni fyrir ofan Reykjavíkurflugvöll voru ævintýraleg á að líta í ljósaskiptunum. Engu er líkara en flaggið og lendingarljósið myndi kirkju í...
Meira
Andri Karl andri@mbl.is Aðalmeðferð í máli Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara, gegn Þorvaldi Gylfasyni, hagfræðiprófessor, fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun.
Meira
Myndlistarmanninum Ragnari Kjartanssyni var í gær úthlutað Íslensku bjartsýnisverðlaununum sem áður voru kennd við Danann Peter Bröste. Í tilkynningu segir m.a. að verk Kjartans séu oftar en ekki upplífgandi og veki gleði með áhorfandanum.
Meira
Dagana 17. og 18. janúar munu fræðimenn frá 35 Evrópulöndum auk gesta frá Ástralíu, Brasilíu og Rússlandi funda í Reykjavík til að ræða þróun og stöðu rannsókna á fjölmiðlanotkun ungs fólks.
Meira
Baksvið Guðmundur Magnússon guðmundur@mbl.is Í dag er Eimskipafélag Íslands 100 ára. Er það með elstu starfandi fyrirtækjum hér á landi. Það hefur að auki mikla sérstöðu meðal atvinnufyrirtækja vegna þess hve saga þess hefur verið samofin þjóðarsögunni.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Embættismenn Páfagarðs komu fyrir nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna í Genf í gær og svöruðu spurningum nefndarmanna sem yfirheyrðu þá í þaula, m.a.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Eigendur Geysissvæðisins í Haukadal segja þá afstöðu ríkisins, sem á þriðjungshlut í Geysissvæðinu á móti eigendum Landeigendafélags Geysis ehf.
Meira
Í Listasafni Reykjavíkur er unnið að uppsetningu viðamikils verks Katrínar Sigurðardóttur, Foundation, sem sýnt var á Feneyjatvíæringnum í fyrra. Sýningin verður opnuð eftir viku. Katrín kemur víða við og opnar senn sýningar í Boston og...
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í framkvæmdum við byggingu nýrrar stöðvar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins við Skarhólabraut í Mosfellsbraut er beðið með að reisa álmu fyrir sjúkrabíla.
Meira
SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Skiptar skoðanir eru um frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannanöfn, en þar er meðal annars lagt til að mannanafnanefnd verði lögð niður.
Meira
Til athugunar er hjá Eimskip að sigla nýju gámaskipunum sem eru í smíðum fyrir félagið í Kína heim um norðurheimskautið. Það yrði til reynslu, auk þess sparnaðar sem felst í að losna við að fara suður um Súes-skurðinn.
Meira
Sóley Tómasdóttir, borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna, hefur óskað eftir minnisblaði frá skrifstofustjóra borgarstjórnar um málsmeðferð og góða stjórnsýsluhætti og hvað almennt teljist eðilegt að upplýsingaöflun kjörinna fulltrúa Reykvíkinga taki langan...
Meira
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik lék líklega sinn besta leik í Evrópukeppninni í Danmörku í gær en mátti játa sig sigrað að lokum gegn heimsmeisturunum frá Spáni, 28:33.
Meira
Fulltrúar Reykjavíkurborgar og verkalýðshreyfingarinnar hafa byrjað vinnu við að stuðla að stofnun nýrra húsnæðissamvinnufélaga. Í starfshópi um málið sitja fulltrúar Reykjavíkurborgar, ASÍ, BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands.
Meira
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is. „Við getum spjallað saman á íslensku um hina vitleysingana sem eru með okkur í sýningunni. Það er góð tilbreyting,“ segir Fjölnir Ólafsson glaðlega.
Meira
Sögufræg flugvél Björns Pálssonar var í gær flutt frá Mosfellsbæ á Flugsafnið á Akureyri. Vélin ber nafn Björns sem sinnti fyrsta sjúkraflugi á Íslandi þegar hún kom hingað til lands árið 1956.
Meira
Nemendur óperudeildar Söngskóla Sigurðar Demetz flytja ásamt hljómsveit óperuna Orfeo eftir Claudio Monteverdi í Iðnó á föstudagskvöld og laugardag. Óperan var samin árið 1607 og telst eitt fyrsta verk óperusögunnar.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stuðningsmenn umdeildrar tillögu um aðgerðir í húsnæðismálum innan bæjarstjórnar Kópavogs þurfa að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun eigi skuldbinding um fjölgun leiguíbúða í bænum að standast lög.
Meira
Dýraverndunarsinnar á Spáni hvöttu í gær til þess að bann yrði sett við því að nota hunda við veiðar. Þeir segja að notkun dýranna leiði til þess að 50.000 mjóhundar séu yfirgefnir á hverju ári þegar þeir koma ekki lengur að gagni við veiðarnar.
Meira
Þing Katalóníu samþykkti í gær tillögu um að krefjast þess að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort sjálfstjórnarhéraðið eigi að fá sjálfstæði frá Spáni. Tillagan var samþykkt með 87 atkvæðum, 43 þingmenn voru á móti henni og þrír sátu hjá.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Öld er liðin frá því að haförninn var alfriðaður hér á landi, fyrstur fugla. Ísland varð um leið fyrsta landið í heiminum sem friðaði þessa tegund sem kölluð hefur verið konungur íslenskra fugla.
Meira
Í Pisa-könnuninni kom fram að íslenski menntaturninn er skakkur. Öðru máli gegndi um hinn kínverska. Á Pisa-kvarðanum trónir hann þráðbeinn á toppinum – að minnsta kosti í Sjanghæ.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á fimmtudagskvöldið í næstu viku mun Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari leika 1. píanókonsert Johannes Brahms (1833-1897) á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Meira
Í Bandaríkjunum er nýbúið að frumsýna heimildakvikmynd í fullri lengd, Divorce Corp ., þar sem fjallað er um skuggahliðar hjónaskilnaða þar í landi, til að mynda hvernig lögfræðingar maka krókinn í því ferli.
Meira
Tríóið Aftanblik kemur fram á tónleikum tónleikaraðarinnar Á ljúfum nótum í Háteigskirkju í dag milli kl. 12.00 og 12.30. Tríó Aftanblik er skipað þeim Gerði Bolladóttur sópran, Victoriu Tarevskaia sellóleikara og Katalin Lorincz píanóleikara.
Meira
María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Alþjóðleg listaveisla hefst í Garði um helgina og verður þar mikið um dýrðir. Listamenn, bæði erlendir og íslenskir, taka þátt í listahátíðinni Ferskir vindar sem haldin er nú í þriðja sinn.
Meira
Degi eftir að rúmlega árslöngu verkbanni hljóðfæraleikara sinfóníuhljómsveitar Minneapolis lauk náðu hljóðfæraleikarar sveitarinnar í Detroit samningum við stjórnendur, átta mánuðum áður en samningar áttu að renna út.
Meira
12 Years a Slave Leikstjórinn Steve McQueen virðist hitta í mark með nýjustu stórmynd sinni 12 Years a Slave. Kvikmyndin fjallar um frjálsan þeldökkan mann sem er numinn á brott í New York og seldur í þrældóm í New Orleans.
Meira
Arnljótur Sigurðsson tónlistarmaður heldur útgáfutónleika í hinu nýja menningarhúsi Mengi, Óðinsgötu 2, í kvöld, föstudagskvöld. Ný plata Arnljóts nefnist Línur og var tekin upp í Stúdíó Verkó í Reykjavík.
Meira
Á sýningunni „Ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn“ sem verður opnuð í Ásmundarsafni á morgun, laugardag, klukkan 16 mætast ný verk níu samtímalistamanna abstraktverkum Ásmundar Sveinssonar (1893-1982). Listamennirnir eru þau Áslaug Í. K.
Meira
Eftir Gústaf Adolf Skúlason: "Engin trygging er fyrir því að sagan muni ekki endurtaka sig með nýju stórveldi sem krefst olnbogarýmis á kostnað annarra."
Meira
Frá Jóhanni Boga Guðmundssyni: "Veiðar smábáta, hverjum er ekki sama? Fyrir aldamótin 1900 fóru að koma togarar sem gengu fyrir gufuvélaafli, fáir fyrst en fjölgaði fljótlega upp í 150 og allt að 220, þeir eltust við kola en fleygðu þoski og ýsu sem ómeti."
Meira
Hringur fannst á Santorini Í september árið 2001 var ég staddur á Santorini, Grikklandi, og fann þar gullhring. Ég fór með hann heim en svo gleymdist hann. Þegar ég skipti um eldhúsinnréttingu hjá mér mörgum árum seinna fann ég hann aftur.
Meira
Eftir Kristbjörn Hjalta Tómasson: "Að sætta sig við að hér séu hópar fólks sem ekki eru matvinnungar þrátt fyrir að skila fullri vinnu er fráleitt."
Meira
Væntanlega styttist í að skýrsla sem unnið er að fyrir stjórnvöld um umsóknina um inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þróun mála innan sambandsins liggi fyrir. Endanleg ákvörðun um umsóknina verður síðan tekin í framhaldi af því.
Meira
Auður Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 23. nóvember 1924. Hún lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík 4. janúar 2014. Auður var dóttir hjónanna Sesselju Friðriksdóttur, f. 3.6. 1900, d. 11.3. 1981, húsfreyju, og Guðmundar Kristjáns Runólfssonar, f. 30.12.
MeiraKaupa minningabók
Erla Gísladóttir fæddist í Hafnarfirði 17. október 1930. Hún lést á Landspítalanum Hringbraut 29. október 2013. Útför Erlu fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 7. nóvember 2013.
MeiraKaupa minningabók
Guðríður Jónsdóttir fæddist 4. maí 1931 í Hnefilsdal. Hún lést á Landspítalanum 28. desember 2013. Útför Guðríðar fór fram frá Áskirkju í Reykjavík 6. janúar 2014.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Gunnarsdóttir fæddist í Syðri-Vík í Vopnafirði 5. júlí 1938. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. janúar 2014. Foreldrar hennar voru Jörgen Gunnar Steindórsson, f. 1915, d. 1988, bóndi og síðar tollvörður, og Gunnlaug Jónsdóttir, f. 1915, d.
MeiraKaupa minningabók
Hafsteinn Þorsteinsson fæddist í Reykjavík 29.12. 1927. Hann lést á Landspítalunum Hringbraut 5.1. 2014. Foreldrar hans voru hjónin Þorsteinn Jónsson bátsmaður, f. 29.1. 1882, d. 5.9. 1958, og Guðmundína Margrét Sigurðardóttir, f. 18.6. 1900, d. 17.7.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Guðjónsson fæddist 27. ágúst 1913 á Austurgötu 17 í Hafnarfirði. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 5. janúar 2014. Kristinn var sonur Ingibjargar Magneu Snorradóttur, f. 25.9. 1891, d. 13.4.
MeiraKaupa minningabók
Lúðvík Vignir Ingvarsson fæddist í Reykjavík 3. nóvember 1939. Hann lést 22. nóvember 2013. Lúðvík var sonur hjónana Halldóru Halldórsdóttur frá Gaddstöðum, f. 6. júlí 1910, d. 4. desember 2012, og Ingvars Guðmundssonar frá Þjóðólfshaga, f. 23.
MeiraKaupa minningabók
Marta Þórðardóttir fæddist 15. nóvember 1948 í Fagrahvammi í Garði. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 8. janúar 2014. Foreldrar hennar voru Þórður Sigursteinn Jörgensson, f. 1. september 1909, d. 17.
MeiraKaupa minningabók
Pétur Pétursson fæddist í Hest í Færeyjum 24.12. 1930. Hann lést á Heilsugæslu Suðurnesja 7.1. 2014. Pétur var sonur hjónanna Mikkjals Petersen, f. 1896, d. 1977, og Signýjar Hildar Jóhannsdóttur, f. 1909, d. 2002. Systkini hans eru Thorir, f. 1932, d.
MeiraKaupa minningabók
Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari fæddist í Reykjavík 16. nóvember 1954. Hún lést á heimili sínu föstudaginn 10. janúar 2014. Hún var dóttir hjónanna Erlendar Sveinssonar, síðast yfirþingvarðar Alþingis, og Guðfríðar Stefánsdóttur, sem nú er látin.
MeiraKaupa minningabók
Kauphöll Íslands afgreiddi samtals 63 mál sem voru rannsökuð á nýliðnu ári og þar af var 18 málum vísað til Fjármálaeftirlitsins (FME) til frekari skoðunar. Þetta kemur fram í tilkynningu Kauphallarinnar.
Meira
Hörður Ægisson hordur@mbl.is Vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Kópavogs í vikunni um kaup á 30-40 íbúðum og byggingu tveggja fjölbýlishúsa hefur lánshæfismatsfyrirtækið Reitun breytt horfum lánshæfismats Kópavogs úr stöðugum í neikvæðar.
Meira
Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) tók við um 550 fasteignum sem voru í eigu Dróma þegar samningar náðust á milli ESÍ, Dróma og Arion banka um yfirtöku ESÍ á ákveðnum eignum og skuldum Dróma og uppgjöri á kröfu Arion banka á Dróma, segir Haukur C.
Meira
Baksvið Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Til þess að efla útflutningsgreinar á Íslandi þarf að fjárfesta í þeim. En hér á landi eru gjaldeyrishöft, sem draga úr áhuga erlendra fjárfesta.
Meira
Hagnaður bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs á fjórða ársfjórðungi 2013 nam 2,33 milljörðum Bandaríkjadala. Afkoma bankans dróst saman um 19% frá sama tíma fyrir ári. Var samdráttur á öllum sviðum bankans nema á fjárfestingabankasviði.
Meira
Landsbankinn reyndist sá banki í alþjóðlegri könnun Reuters-fréttaveitunnar sem spáði réttast fyrir um gengisþróun gjaldmiðla í desember á nýliðnu ári. Á öllu árinu var bankinn í 17. sæti. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Landsbankans.
Meira
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Startup Energy Reykjavik, nýja viðskiptasmiðju fyrir fyrirtæki í orkutengdum iðnaði og þjónustu. Verkefnið gefur fyrirtækjum, einstaklingum og hópum einstakt tækifæri á að koma nýsköpunarverkefnum á framfæri.
Meira
Gettu betur lið MH heldur úti áhugaverður matargagnrýnisbloggi undir nafninu Éttu betur, á fésbókinni. Þar segir að Éttu betur sé skapað til að fræða almenning um matsölustaði og gildi þeirra.
Meira
Á hverju ári í rúm fimmtíu ár hefur Lionsklúbburinn Njörður haldið svokallað Herrakvöld þar sem fjármunum er safnað til að styrkja gott málefni. Einn af föstu liðunum á Herrakvöldinu er listaverkauppboð sem að sögn aðstandanda er alltaf mjög vinsælt.
Meira
Hópur úr svonefndum dróttskátasveitum landsins og unglingadeildum Landsbjargar fór í 10 km göngu á Hellisheiði um liðna helgi og gisti þar í tjaldi. Ferð hópanna er hluti af verkefninu Vetraráskorun sem skátarnir og Landsbjörg standa að.
Meira
Ævar vísindamaður segir að við fæðumst öll forvitin og sem betur fer eldist það seint af okkur. Hann segir að alls staðar séu vísindi, hvort sem það er í setningafræði, bílaviðgerðum eða brauðbakstri.
Meira
Kvikmyndagerðarmennirnir Peeter Vihma og Artur Talvik bjóða gestum á ókeypis sýningu á heimildarmynd sinni Occupy your wall, í Bíó Paradís klukkan 18 í dag.
Meira
„Erfiðleikarnir í skólakerfinu eru vissulega margir, en það er margt gott að gerast,“ segir Margrét Pála Ólafsdóttir, fræðslustjóri og stofnandi Hjallastefnunnar.
Meira
Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, sem eru landssamtök foreldra, segir að aukin þátttaka foreldra í grunnskólastarfi og aukið samstarf heimila og skóla styrki skólastarfið og að það þyrfti að vera meira um það en nú er.
Meira
30 ára Einar ólst upp í Reykjavík, lauk sveinsprófi í matreiðslu frá MK árið 2011 og hefur starfað í Perlunni. Systkini: Ómar Þór Ómarsson, f. 1987; Elín Sigríður Ómarsdóttir, f. 1999, og Kristín Helga Ómarsdóttir, f. 2001.
Meira
Viðhorf samfélagsins til skólastarfs þyrftu að einkennast af meiri metnaði gagnvart námi barna og grunnskólanemendur þurfa að vera virkari þátttakendur í eigin námi. Margir möguleikar felast í íslenska grunnskólakerfinu og smæð þess er kostur.
Meira
Hraðsveitakeppni hjá Oddfellow Spilaárið hjá Oddfellow hófst á hraðsveitakeppni. Glæsileg þátttaka, 12 sveitir mættu til leiks og var dregið í sveitir og þeim gefin nöfn. Spilarar Þrumunnar komu sterkir til leiks, rétt eins og þruma úr heiðskíru loft.
Meira
30 ára Ingibjörg ólst upp á Akranesi og er nú búsett á Hrafnabjörgum í Hvalfirði. Maki: Arnfinnur Matthíasson, f. 1974, starfsmaður í Norðuráli. Börn: Guðmundur Eyþór, f. 2007; Margrét Lára, f. 2010, og Þóra Kristín, f. 2012.
Meira
Keflavík Aron Sölvi fæddist 13. september kl. 20.41. Hann vó 3.925 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Sara Rut Agnarsdóttir og Haukur Einarsson...
Meira
Best fer á því að nota mikið af e-u um það sem kalla má kássu eða aragrúa : mikið af hveiti, hrísgrjónum eða hvítum blóðkornum. En megi með góðu móti telja það er betra að tala um margt . Mikið af lýsi en margar lýsistöflur...
Meira
„Neikvæð umræða um grunnskólakerfið, eins og heyrðist t.d. víða í samfélaginu bæði í ræðu og riti í kjölfar niðurstaðna síðustu PISA-könnunar, veikir skólastarfið,“ segir Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við Menntavísindasvið HÍ.
Meira
Reykjavík Alexander Úlfur fæddist 30. september kl. 13.48. Hann vó 3.585 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Sara Barðdal Þórisdóttir og Hákon Víðir Haraldsson...
Meira
Ég ætla að fagna 40 ára afmælinu með fjölskyldu og vinum á morgun,“ segir Ólafur Andri Briem sem er 40 ára í dag. Ólafur Andri hefur mikinn áhuga á gömlum amerískum bílum, helst frá 8. og 9. áratug síðustu aldar, og á einn slíkan.
Meira
30 ára Sigga ólst upp á Selfossi, lauk kennaraprófi frá HÍ og einkaþjálfaraprófi frá Keili og kennari og heilsuráðgjafi. Maki: Ívar Rafn Jónsson, f. 1974, framhaldsskólakennari. Dóttir: Sif, f. 2011. Foreldrar: Guðbjörg Ingimundardóttir, f.
Meira
Sigurjón fæddist í Reykjavík 17.1. 1954, ólst upp í Hafnarfirði til tíu ára aldurs, í Vesturbænum í Reykjavík og í Vogunum. Hann var í Lækjarskóla, Flataskóla, Melaskóla, Hagaskóla og Vogaskóla.
Meira
Staðan kom upp á sterku atskákmóti sem lauk fyrir nokkru á frönsku eyjunni Bastiu. Fyrrverandi Evrópumeistarinn í skák, króatíski stórmeistarinn Zdenko Kozul (2.597) , hafði hvítt gegn frönskum kollega sínum Vladislav Tkachiev (2.637) . 62. Rc3!
Meira
Sveinn Víkingur Grímsson, sóknarprestur og rithöfundur, fæddist í Garði í Kelduhverfi 17.1. 1896. Hann var sonur Gríms, bónda í Garði Þórarinssonar, og Kristjönu Guðbjargar Kristjánsdóttur húsfreyju.
Meira
95 ára Anna Bergsveinsdóttir 85 ára Sigurður Haraldsson 80 ára Björgvin Salómonsson Brynjólfur Sveinbergsson Höskuldur Jónsson Jóhanna Þorbjarnardóttir Sigurður Þ.
Meira
Fyrirsögn Vísnahorns í dag er heiti bókar Starra, sem út kom árið 1992. Í gær birtist hér fleyg vísa eftir hann, sem hann orti um Pétur í Reynihlíð, þegar hann gekk á fund páfa.
Meira
Reykjavíkurborg hefur oft verið gagnrýnd fyrir að ryðja ekki götur og gangstíga þegar snjóar heldur fylgja boðskap borgarstjórans, sem vill bíða eftir rigningunni í þessum tilvikum.
Meira
17. janúar 1914 Eimskipafélag Íslands hf. var stofnað í Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík. Fundarmenn voru á fimmta hundrað. Fánar voru dregnir að hún um allan bæinn, frí var gefið í skólum og verslanir og skrifstofur lokaðar.
Meira
17. janúar 1916 Samtök bandarískra atvinnukylfinga, PGA of America, eru stofnuð í New York. Stofnandinn er Rodman Wanamaker. Samskonar samtök höfðu verið stofnað á Bretlandseyjum fimmtán árum áður. 17.
Meira
Ívar Benediktsson í Álaborg iben@mbl.is „Við vorum hungraðir í að vinna leikinn og ætluðum svo sannarlega að nýta þetta tækifæri til þess að vinna Spánverjana og fara með fleiri stig áfram í milliriðilinn.
Meira
Geir Sveinsson bætist í hóp íslenskra þjálfara í bestu handboltadeild heims á komandi keppnistímabili. Hann skrifaði í gær undir tveggja ára samning við þýska liðið Magdeburg og tekur við þjálfun þess næsta sumar.
Meira
Hún var mögnuð stundin þegar nokkur hundruð Íslendingar sungu þjóðsönginn fyrir leik Íslands og Ungverjalands í Gigantium á þriðjudag, enn sérstakari en þegar leikurinn var endurtekinn í gær.
Meira
Í Álaborg Ívar Benediktsson iben@mbl.is Íslenska landsliðið hafði burði til þess að leggja heimsmeistara Spánar að velli á Evrópumeistaramótinu í handkanttleik karla í gær.
Meira
Í Ásgarði Kristinn Friðriksson kiddigeirf@gmail.com Stærsti leikur 13. umferðar fór fram í Garðabæ í gærkveldi þegar Þórsarar komu í heimsókn. Stjörnumenn þurftu að sigra til þess að missa ekki liðin sem dvelja ofar í töflunni of langt fram úr sér.
Meira
EM 2014 Ívar Benediktsson Álaborg „Svekkjandi úrslit en ég er afar ánægður með margt í leik okkar,“ sagði fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson í samtali við Morgunblaðið eftir tapleikinn á móti Spáni, 33:28, í lokaumferð B-riðils...
Meira
„Við tökum stöðuna á Arnóri Atlasyni á morgun, hann er tognaður í kálfanum en ekki virðist um alvarlegan áverka að ræða,“ segir Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari, en heldur fjölgaði á sjúkralista landsliðsins í leiknum við Spán í gær.
Meira
Að halda afmælisveislu fyrir börnin í Smáratívolíi sparar foreldrunum mikið ómak. Vinir og bekkjarfélagar halda oft sameiginlega afmælisveislu til að deila kostnaðinum.
Meira
Þegar kemur að því að snara fram litríkum og líflegum veitingum í barnaafmælið standa ýmsir kostir til boða. Með afmælisveislubókinni frá Disney margfaldast möguleikarnir enda af nægu að taka.
Meira
Mælir með að gestirnir fái líka góðan fyrirvara. Þannig geta foreldrar hliðrað til í annasömu lífi barnanna svo allir komist örugglega í afmælisveisluna.
Meira
Skipt getur miklu fyrir hæfni og framtíðargetu barns hvernig leikföng það fær í æsku. Of algengt er að vinsælustu leikföngin í dag örvi ekki ímyndun og uppgötvun.
Meira
Þegar afmælisdagurinn rennur upp kemur sér vel að eiga föt sem eru í senn falleg og þægileg. Framleiðendur barnafatanna frá Name It leggja áherslu á að þetta fari saman, ásamt því að hafa verðið viðráðanlegt, segir Sólveig Einarsdóttir verslunarstjóri.
Meira
Í Ævintýragarðinum við Skútuvog er að finna margvíslega afþreyingu fyrir orkumikil afmælisbörn. Foreldrarnir eiga þá líka sitt afdrep til að kasta mæðinni, eins og Bjarni Sigurðsson framkvæmdastjóri segir frá.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.