Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Sérstakur saksóknari hefur ákært Sigurjón Þ. Árnason og Elínu Sigfúsdóttur, fyrrverandi stjórnendur Landsbankans, fyrir umboðssvik. Embættið hefur ekki birt ákæruna en mbl.is ræddi við Sigurjón um málið í gær.
Meira
Verði heimilt að ráðstafa séreignarsparnaði til að greiða niður höfuðstól fasteignalána, líkt og ríkisstjórnin áformar, mun það bæði rýra útsvarstekjur, sem eru helsti tekjustofn Reykjavíkurborgar eins og annarra sveitarfélaga, og auka útgjöldin.
Meira
Karlmaður sem hafði brotið rúður í fjölbýlishúsi í austurhluta Reykjavíkur skömmu fyrir hádegi í gær, var handtekinn skömmu síðar við heilsugæslustöðina í hverfinu þar sem honum hafði einnig tekist að valda eignaspjöllum.
Meira
New York. AFP. | Hvað eiga Prúðuleikararnir, grísk jógúrt, Scarlett Johansson og Arnold Swarzenegger sameiginlegt? Þau verða öll í aðalhlutverkum í dýrasta auglýsingatíma í sögu Bandaríkjanna.
Meira
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ef fram fer sem horfir verður skortur á líffærum til líffæraígræðslu hér á landi áður en langt um líður. Biðtíminn eftir nýrum og lifur er þegar farinn að lengjast.
Meira
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um að styrkja hjúkrunarheimilið Eir um 22 milljónir og verða þar með við áskorun sjálfseignarstofnunarinnar, sem rekur heimilið, um neyðaraðstoð.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verð á eldsneyti er tekið að lækka eftir að hafa farið í sögulegar hæðir í kjölfar efnahags- og gengishrunsins.
Meira
Sviðsljós Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Íslenskir vísindamenn hafa fundið breytileika á genum sem tengjast sykursýki tvö, með aðstoð danskra og íranskra vísindamanna.
Meira
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni sem var dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni og eignaspjöll. Maðurinn er fangi á Litla-Hrauni. Hann var dæmdur fyrir að hafa þriðjudaginn 12.
Meira
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Það verður veisla, ball og Páll Óskar kemur að skemmta. Ég hlakka til og nú er ég að bíða eftir kvöldinu,“ sagði Gerður Jónsdóttir í gær.
Meira
Jóhann Ísberg býður sig fram í 2.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þann 8. febrúar nk. Áherslumál hans eru skipulagsmál og öflug uppbygging Kópavogs á komandi árum, segir í tilkynningu.
Meira
Anný Berglind Thorstensen gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi þann 8. febrúar n.k. Anný Berglind starfar sem sérfræðingur á þróunar- og markaðssviði Arion banka.
Meira
BAKSVIÐ Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Framsóknarflokkurinn eykur fylgi sitt í Fjarðabyggð og vinnur mann af Sjálfstæðisflokknum samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið.
Meira
Framsóknarflokkurinn vinnur mann af Sjálfstæðisflokknum í sveitarstjórnarkosningunum í Fjarðabyggð samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið. Flokkarnir tveir eru nú í samstarfi í níu manna bæjarstjórn.
Meira
Vegna niðurskurðar á framlögum ríkisins til Umhverfisstofnunar verða svonefndar landvarðavikur aðeins 125 á þessu ári en þær voru 232 í fyrra. Landvarðafélag Íslands hefur gagnrýnt niðurskurðinn og segir m.a.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sveitarfélagið Garður lagði í gær fram lögbannsbeiðni hjá sýslumanninum í Keflavík á lokun hjúkrunarheimilisins Garðvangs í Garði og flutning heimilisfólks í nýtt hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ.
Meira
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Forsvarsmenn bílaumboðanna segja bílasölu hafa farið vel af stað í janúar og þakka það fyrst og fremst styrkingu krónunnar, nýjum fjármögnunarleiðum og mikilli endurnýjunarþörf.
Meira
Sviðsljós Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Mánaðarlega fara starfsmenn hjá lásaþjónustum á höfuðborgarsvæðinu í á fjórða hundrað útkalla til að opna fyrir fólki húsnæði og bíla eftir að það hefur læst sig úti.
Meira
Samtök meðlagsgreiðenda hvetja einstæða umgengnisforeldra til borgaralegrar óhlýðni við útfyllingu skattframtals með því að auðkenna sig sem einstæða foreldra.
Meira
Baksvið Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Vísindamenn frá bandarísku geimvísindastofnuninni NASA, en þeir eru staddir hér á landi, hefja í dag rannsóknir með ratsjármælingum á Hofsjökli og Langjökli og munu þær standa í fjóra daga.
Meira
Ungir menningarsendiherrar frá Peking í kínverskum skrautbúningum í Kínahverfinu í London í tilefni af kínverska nýárinu sem gengur í garð í dag.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hvorki Síminn né Tal skilgreina gagnaflutninga sem fara í gegnum vefþjóna sem staðsettir eru á Íslandi sem spegla valið efni á borð við Youtube sem erlent niðurhal líkt og Vodafone hóf að gera seint á síðasta ári.
Meira
Sviðsljós Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Vegna niðurskurðar á framlögum ríkisins til Umhverfisstofnunar hefur stofnunin ákveðið að draga úr landvörslu á hálendi Íslands í sumar.
Meira
Ekki gleyma smáfuglunum Í gær snjóaði á höfuðborgarsvæðinu og smáfuglarnir reyndu sitt ýtrasta til að ná síðustu brauðmolunum í Austurstræti en vonandi eiga þeir enn von um...
Meira
Stjórnmálaflokkarnir munu á næstunni velja frambjóðendur á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Morgunblaðið mun birta fréttir af þeim sem gefa kost á...
Meira
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Við strákarnir eigum það sameiginlegt að hafa áhuga á tísku og fatnaði. Hugmyndin kviknaði þegar við vorum að spjalla um íslenskan fatamarkað og framtíð hans.
Meira
Sviðsljós Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Skaginn hf. á Akranesi og Kælismiðjan Frost ehf. á Akureyri hafa gert stóran samning við félagið P/f Pelagos í Færeyjum um kaup á nýju uppsjávarvinnslukerfi til uppsetningar í Fuglafirði.
Meira
Engan sakaði þegar eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði við Dugguvog 1 á hádegi í gær en önnur hæð hússins er gjörónýt. Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað til og nærliggjandi götum lokað. Þá var húsnæði í kring rýmt, m.a.
Meira
„Ég hef ekki enn séð viðaukatillöguna og get því ekkert tjáð mig um hana,“ segir Gunnar I. Birgsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Kópavogi. Á síðasta bæjarstjórnarfundi, þriðjudaginn sl.
Meira
Þessir hraustu menn létu ofankomuna ekki á sig fá þegar þeir athöfnuðu sig við búslóðarflutninga á Langholtsvegi í gær. Rúmgóð dýnan veitti skjól eina ferð, á meðan snjónum kyngdi niður yfir launhálan klakann í höfuðborginni.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Damerkur, hófst í gær handa við að stokka upp í minnihlutastjórn sinni eftir að Sósíalíski þjóðarflokkurinn, einn stjórnarflokkanna þriggja, gekk úr henni.
Meira
Aðalsteinn Jónsson íþróttakennari og bæjarfulltrúi býður sig fram í 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. „Ég ætla áfram að hlúa að málefnum barna og eldri borgara í bænum. Ég vil líka beita mér fyrir því að bæta kjör fólks,...
Meira
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ 8. febrúar n.k. Kolbrún hefur verið varabæjarfulltrúi frá 2010 og aðalbæjarfulltrúi frá janúar s.l.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fastlega er reiknað með að samningaviðræður verkalýðsfélaga sem felldu nýgerða kjarasamninga og Samtaka atvinnulífsins hefjist upp úr næstu helgi.
Meira
Vantar fjármagn til markaðssetningar Í blaðinu í gær var ranglega haft eftir Þórði H. Hilmarssyni hjá Íslandsstofu að vinna væri þegar hafin við að markaðssetja fjárfestingatækifæri hér á landi í tengslum við fríverslunarsamning Íslands og Kína.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Framkvæmdir við breikkun vegarins yfir Hellisheiði, það er úr Svínahrauni að veginum sem liggur að Hellisheiðarvirkjun og svo áfram yfir heiðina um Kamba niður að Hveragerði, eru að komast á skrið.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Bílalest kom í gær með matvæli til flóttamannabúða Palestínumanna í Yarmuk í Sýrlandi þar sem tugir manna hafa dáið vegna skorts á matvælum og lyfjum.
Meira
Viktor Janúkóvítsj, forseti Úkraínu, gagnrýndi stjórnarandstöðuna harkalega í gær, sakaði hana um að kynda undir ólgu í samfélaginu og stofna einingu landsins í hættu í eiginhagsmunaskyni.
Meira
Verðlækkanir á eldsneyti munu líklega auka eftirspurn eftir dísilolíu og bensíni. Má jafnframt leiða að því líkur að verðlækkanirnar geti örvað einkaneyslu heimila.
Meira
„Það var samkomulag milli dýraeftirlitsmannsins og stofnunarinnar að hann myndi víkja tímabundið á meðan málið verður skoðað,“ segir Stefán Guðmundsson forstöðumaður reksturs- og mannauðssviðs Matvælastofnunar.
Meira
Fulltrúar Besta flokksins, Samfylkingar og Vinstri grænna í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar samþykktu á miðvikudag neikvæða umsögn skipulagsfulltrúa um umsókn um leyfi til að starfrækja veitingastað í kjallara og gistiheimili á efri hæðum...
Meira
Makrílviðræður Íslands, Færeyja, Evrópusambandsins og Noregs halda áfram í Björgvin í Noregi í dag. Samningafundurinn átti að hefjast klukkan níu að norskum tíma.
Meira
Öllum símtölum til ríkisskattstjóra er nú svarað norðan heiða, ýmist á Siglufirði eða á Akureyri, eftir að nýtt þjónustuver ríkisskattstjóra var tekið í notkun á Akureyri. Verið var formlega vígt í gær með kaffiboði.
Meira
Þetta birtist mér sem valdagræðgi,“ sagði Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar og þingmaður þess flokks, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra Samfylkingarinnar og fyrrverandi liðsmaður...
Meira
Leikfélag Kópavogs (LK) frumsýnir í kvöld kl. 19.30 uppfærslu sína á sígildu verki Antons Tsjekhovs, Þrjár systur , í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar, í húsnæði leikhússins að Funalind 2.
Meira
Í dag, föstudag milli kl. 12 og 12.30, verða tónleikar í röðinni „Á ljúfum nótum“ í Háteigskirkju. Flutt verða lög úr „Neun deutsche Arien“ eftir Händel, ásamt fleiri verkum.
Meira
Þrátt fyrir velgengni beinna útsendinga í háskerpu frá sviði Metropolitan-óperunnar í New York, sem sýndar eru í kvikmyndahúsum um allar jarðir, og þar á meðal hér á landi, dróst aðsókn að óperuhúsinu vinsæla engu að síður saman á síðasta...
Meira
Dallas Buyers Club Kvikmynd sem hlaut tvenn Golden Globe verðlaun á dögunum og er tilnefnd til sex Óskarsverðlauna. Í henni segir af rafvirkjanum Ron Woodroof sem fær þær fréttir að hann sé með alnæmi og sé við dauðans dyr.
Meira
Kvikmyndin Málmhaus fékk flestar tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár, sextán talsins, en fast á hæla myndinni kom Hross í oss með fjórtán. Tilnefningarnar voru kunngjörðar í Bíó Paradís í gær.
Meira
Plötur hljómsveitanna múm og Hjaltalín, Smilewound og Enter 4, eru meðal tíu annarra sem tilnefndar eru til Norrænu tónlistarverðlaunanna í ár. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir bestu plötuna frá Norðurlöndum.
Meira
Breski leikstjórinn Guy Ritchie á nú í viðræðum við kvikmyndafyrirtækið Warner Bros. um að leikstýra sex kvikmyndum um Artúr konung, ef marka má frétt á vef tímaritsins NME. Warner Bros.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Sjón, Guðbjörg Kristjánsdóttir og Andri Snær Magnason hlutu í gær Íslensku bókmenntaverðlaunin en þau voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Meira
Margir spennandi viðburðir eru á dagskrá tónlistarhátíðarinnar Myrkra músíkdaga í dag og Reykjavík Visual Music – Punto y Raya Festival, hátíðar sem helguð er sjónrænni tónlist.
Meira
Eftir Jónas Þór Guðmundsson og Skúla Magnússon: "Dómstólarnir eru einn af grundvallarþáttum stjórnskipunar ríkisins. Fjárveitingar til þeirra hljóta að taka mið af því."
Meira
Eftir Júlíu G. Hreinsdóttur: "Börnin og foreldrar þeirra eiga rétt á að fá að tengjast málsamfélagi íslenska táknmálsins og fá stuðning sérfræðinga vegna máltöku barns, í námi og til félagslegra samskipta."
Meira
Eftir Hannes H. Gissurarson: "Ég vonast til þess, að dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir svari þessum spurningum undanbragðalaust á þeim vettvangi, sem Siðfræðistofnun Háskóla Íslands hefur veitt henni á föstudaginn."
Meira
Frá Hreini Jónassyni, Brynhildi Gunnarsdóttur, Guðjóni Gísla Guðmundssyni, Júlíusi Hafstein og Aðalsteini Jónssyni: "Vegna umfjöllunar í DV þriðjudaginn 28."
Meira
Stefnuleysi Í umferðarlögum stendur: „Ökumaður, sem ætlar að aka frá brún vegar, beygja, snúa eða skipta um akrein, skal gefa merki öðrum til leiðbeiningar.
Meira
Bandaríkjamenn eiga líklega eftir að bjóða Fríverzlunarsamtökum Evrópu (EFTA) svipaðan fríverzlunarsamning og þeir eru að semja um við Evrópusambandið.
Meira
Anton Baldvin Finnsson fæddist að Ytri-Á í Ólafsfirði þann 14. júní 1920. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri 22. janúar 2014. Foreldrar hans voru Sigurbjörn Finnur Björnsson, f. 16.9. 1895, d. 29.5. 1986 og Mundína Freydís Þorláksdóttir, f. 8.4.
MeiraKaupa minningabók
Ásgrímur Stefánsson fæddist á Siglufirði 4. október 1923. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 17. janúar 2014. Foreldrar hans voru Stefán Grímur Ásgrímsson, f. 26. september 1899, d. 1. desember 1968, og kona hans Jensey Jörgina Jóhannesdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Elías Halldór Elíasson fæddist í Reykjavík 24. mars 1951. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. janúar 2014. Foreldrar hans voru Anna Pálsdóttir, fædd 29. júlí 1919, dáin 1. júní 2000 og Einar B. Þórarinsson, fæddur 21.
MeiraKaupa minningabók
Eric James Steinsson, fyrrverandi lögregluvarðstjóri, fæddist í Aberdeen Skotlandi 4. apríl 1927. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Boðanum í Kópavogi 24. janúar 2014. Foreldrar Erics voru Þorkell Steinsson, lögregluvarðstjóri, f. 27.11. 1897, d. 21.8.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Kristinn Gíslason fæddist 10. apríl 1922. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 19. janúar 2014. Foreldrar Gísla voru hjónin Gísli Stefán Gíslason, f. 5.12. 1897, d. 26.3. 1981, og Kristín Helga Sigurðardóttir, f. 6.6. 1897, d. 10.9. 1986.
MeiraKaupa minningabók
31. janúar 2014
| Minningargrein á mbl.is
| 986 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Gísli Kristján Traustason fæddist í Skógarnesi 24. nóvember 1955. Hann lést 24. janúar 2014 á Líknardeildinni í Kópavogi. Foreldrar Gísla eru Trausti Skúlason, f. 23. mars 1933 og Guðríður Kristjánsdóttir, f. 16. október 1933, bændur í Skógarnesi.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Kristján Traustason fæddist í Skógarnesi 24. nóvember 1955. Hann lést 24. janúar 2014 á Líknardeildinni í Kópavogi. Foreldrar Gísla eru Trausti Skúlason, f. 23. mars 1933 og Guðríður Kristjánsdóttir, f. 16. október 1933, bændur í Skógarnesi.
MeiraKaupa minningabók
Málfríður Hulda Gunnarsdóttir fæddist að Gerðabakka í Garði 18. mars 1917. Hún lést á dvalarheimilinu Grund 22. janúar 2014. Hún var dóttir Guðrúnar Jónsdóttur, húsfreyju, f. 7.11. 1895, d. 197, og Gunnars Jónssonar, sjómanns, f. 12.8. 1886, d. 1975.
MeiraKaupa minningabók
Inga Rósa Arnardóttir fæddist í Keflavík 17. janúar 1966. Hún lést miðvikudaginn 22. janúar 2014. Móðir hennar er Margrét Hólmfríður Júlíusdóttir, í Vestmannaeyjum, sambýlismaður hennar er Alfreð Óskar Alfreðsson.
MeiraKaupa minningabók
Jóhanna Júlía Sigurðardóttir fæddist í Skuld, Vestmannaeyjum, þann 4. mars 1923. Hún lést þriðjudaginn 21. janúar 2014 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Foreldrar hennar voru Sigurður Oddsson og Ingunn Jónasdóttir.
MeiraKaupa minningabók
Jón Guðmundsson dæddist 12. mars 1945. Hann lést 3. janúar 2014. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson, fæddur 8.10. 1900 í Reykjavík, verkstjóri hjá Reykjavíkurborg, dáinn 28.3.
MeiraKaupa minningabók
Ragney Eggertsdóttir, Eyja í Dal, fæddist í Borgarnesi 13. júní árið 1911. Hún lést í Borgarnesi 16. janúar 2014. Útför Ragneyjar fór fram frá Borgarneskirkju 25. janúar 2014.
MeiraKaupa minningabók
Rósa Guðríður Óskarsdóttir fæddist að Oddastöðum í Kolbeinsstaðahreppi 31. október 1933. Hún lést á Dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi 22. janúar 2014. Rósa var dóttir hjónanna Óskars Eggertssonar, f. 5. nóvember 1908, d. 14.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Lárus Jónsson fæddist í Hafnarfirði 9. apríl 1943. Hann lést á Landspítalanum 23. janúar2014. Foreldrar Sigurðar voru Jón Sigurðsson, f. 21.9. 1910, d. 31.12. 1993, og Fanney Eyjólfsdóttir, f. 9.7. 1914, d. 3.7. 1989.
MeiraKaupa minningabók
Sigurlína Vilhjálmsdóttir fæddist á Sauðárkróki 10. febrúar 1953. Hún lést á Líknardeild Landspítala í Kópavogi 19. janúar 2014. Foreldrar Sigurlínu voru Vilhjálmur Óskarsson, Reiðholti, Lýtingsstaðarhreppi, Skagafirði, f. 18.10. 1910, d. 8.1.
MeiraKaupa minningabók
Fréttaskýring Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Fyrirsjáanleg endurnýjun á hluta íslenska fiskiskipaflotans, sem er kominn til ára sinna, mun skapa mikla veltu og fjölmörg störf hjá íslenskum tæknifyrirtækjum.
Meira
Facebook hefur tilkynnt að hagnaður fyrirtækisins hafi numið 523 milljónum dollara á fjórða ársfjórðungi síðasta árs, eða sem nemur liðlega 60 milljörðum íslenskra króna.
Meira
Verðbólga, mæld á tólf mánaða tímabili er 3,1% í janúar og lækkar hressilega frá desember er hún var 4,2%. Er þetta minni verðbólga en greiningardeildir höfðu spáð. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar lækkaði um 0,72% frá fyrra mánuði.
Meira
Fréttaskýring Hörður Ægisson hordur@mbl.is Skylda á fjármálafyrirtæki til að hafa jafnvægi á milli verðtryggðra eigna og skulda. Viðvarandi skekkja á verðtryggingarjöfnuði, líkt og má einkum finna á bókum Landsbankans, verði óheimil.
Meira
Sýningin Stutt hringrás verður opnuð klukkan 17 í dag í Listasal Mosfellsbæjar en þar getur að líta listaverk eftir þá Svartval (Þórð Grímsson) og Viktor Weisshappel.
Meira
Um 150 grunnskólanemar, flestir utan af landi munu leggja leið sína í Háskólabíó á laugardaginn því þar fer fram keppnin First Lego League. Þetta er áttunda árið í röð sem keppnin, sem er tækni- og hönnunarkeppni, er haldin hér á landi.
Meira
Mótið Grímutölt Sörla verður haldið að Sörlastöðum í Hafnarfirði á morgun, laugardag, klukkan 13. Iðulega mæta þátttakendur í búningum af ýmsum gerðum.
Meira
„Öll í einn hring“ nefnist átak sem hópur meistaranema við Háskóla Íslands hóf í þeim tilgangi að safna fjármunum til styrktar Barnaspítala Hringsins. Öllum fjármunum sem hópnum tekst að safna verður varið til tækjakaupa fyrir...
Meira
Í gær birtist þessi vísnagáta eftir Kristján Eiríksson: Víst Lofthænu sá áður átti, með öxi nautin rammur hjó hann, í eldinn hníga maður mátti, á Möðruvöllum seinna bjó hann. Davíð Hjálmar Haraldsson svaraði: Lofthænu átti loðin- Grímur –kinni.
Meira
Gönguferðir norður í Fljótum, söngur með Valskórnum og rímnakveðskapur eru meðal áhugamála Guðrúnar Sesselju Grímsdóttur sem er fimmtug í dag. Foreldrar hennar, þau Grímur H.
Meira
Gísli fæddist á Sturlu-Reykjum í Reykholtsdal í Borgarfirði 31.1. 1954 og ólst þar upp og síðan á nýbýli frá Sturlu-Reykjum, á Laugavöllum, frá sex ára aldri.
Meira
30 ára Helga fæddist á Akureyri, býr á Sauðárkróki, hefur stundað verslunarstörf og unnið á leikskóla en stundar nú nám í félagsfræði við HA. Maki: Guðjón Magnússon, f. 1972, verktaki. Sonur: Magnús Ingi, f. 2007. Foreldrar: Hulda Jóhannesdóttir, f.
Meira
30 ára Karl Jóhann ólst upp í Hrunamannahrepp, lauk prófum sem matreiðslumeistari, matreiðslumeistari í Kaupmannahöfn og nemi við HÍ. Maki: Steinlaug Högnadóttir, f. 1989, lögfræðinemi f. 1989 Foreldrar: Unnar Gíslason, f. 1962, húsasmiður og Hjördís H.
Meira
30 ára Lára ólst upp á Akranesi, er þar búsett og starfar á dvalarheimilinu Höfða. Bræður: Guðjón Finnbogason, f. 1969, og Þórarinn Finnbogason, f. 1975. Foreldrar: Vilborg Guðjónsdóttir, f. 1950, d. 2013.
Meira
Lífið heldur áfram eftir Bridshátíð Fjórða lota í keppni um Súgfirðingaskálina var spiluð á mildum mánudegi í byrjun þorra. Ellefu pör mættu til leiks. Úrslit kvöldsins urðu eftirfarandi en meðalskor er 88 stig. Gróa Guðnad. – Alda Sigríður...
Meira
Sögnin að stimpast merkir að takast stirðlega á eða að fljúgast á í gamni . Nafnorðið stimping þýðir ýmist áflog eða annars konar átök : „Á aðalfundinum urðu nokkrar stimpingar um formannskjörið.“ Má líka vera með ypsiloni...
Meira
Reykjavík Caritas Mía fæddist 3. maí kl. 4.14. Hún vó 4010 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Anna María Ásgeirsdóttir og Guðjón Þór Valsson...
Meira
Þegar Víkverji heimsótti Suður-Kóreu fyrir margt löngu reyndu heimamenn að koma í veg fyrir að hann sæi hunda á fæti eða hundakjöt til sölu. Það gekk auðvitað ekki eftir því þessi viðskipti voru nánast á hverju horni.
Meira
31. janúar 1881 Kirkjan á Núpi í Dýrafirði fauk út á sjó í ofsaveðri. Þetta var ný og vönduð timburkirkja. „Klukkurnar fundust á miðri leið til sjávar en messuklæðin í fjörunni,“ sagði í Annál nítjándu aldar. 31.
Meira
Örn Snorrason, kennari og rithöfundur, fæddist á Dalvík 31.1. 1912. Foreldrar hans voru Snorri Sigfússon, skólastjóri á Flateyri, og síðar námsstjóri Norðurlands með búsetu á Akureyri og k.h., Guðrún Jóhannesdóttir húsfreyja.
Meira
Handbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Þetta er búið að vera algjörlega skelfilegt. Reyndar er dagamunur á mér, og suma daga er þetta alveg bærilegt, en aðra daga er þetta alveg óbærilegt.
Meira
31. janúar 1986 Ísland sigrar Frakkland örugglega, 34:25, í fyrsta leiknum á Flugleiðamótinu, alþjóðlegu handknattleiksmóti í Laugardalshöll. Kristján Arason skorar 10 mörk fyrir Ísland og Atli Hilmarsson 7.
Meira
Bergvin Þór Gíslason lék í gærkvöld sinn fyrsta leik með Akureyri í úrvalsdeild karla í handknattleik á þessu tímabili, en það gæti líka hafa verið síðasti leikurinn.
Meira
Í Safamýri Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmeistarar Fram byrjuðu nýja árið vel í Olís-deild karla í handknattleik og sigruðu FH 25:23 í Safamýri í gærkvöldi.
Meira
Í Austurbergi Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Það er á vissan hátt styrkleikamerki hjá Haukum hversu arfaslakir þeir gátu leyft sér að vera í fyrri hálfleik gegn ÍR-ingum í gær og komist upp með það með mun betri seinni hálfleik.
Meira
Norður-Írinn Rory McIlroy sýndi það og sannaði að hann er kominn í sitt rétta form en hann lék fyrsta hringinn á Dubai Classic-mótinu í golfi í gær á 63 höggum eða 9 höggum undir pari vallarins.
Meira
Í Garðabæ Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Kjaftstopp er rétta orðið til þess að lýsa lokasekúndunum í Ásgarði í Garðabæ í gærkvöldi, en Stjarnan fékk þá KR-inga í heimsókn í Dominos-deild karla í körfuknattleik.
Meira
Á Akureyri Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Akureyringar og Valsmenn riðu á vaðið þegar N1-deildin í handbolta karla hófst á ný í gærkvöldi. Greinilegt var að liðin voru ekki alveg upp á sitt besta og má sérstaklega sjá það á sóknarleiknum.
Meira
Í Njarðvík Skúli B. Sigurðsson skulibsig@mbl.is Njarðvíkingar tryggðu sér öruggan sigur gegn Þór frá Þorlákshöfn í gærkvöldi þegar liðin mættust í úrvalsdeild karla í körfubolta í Ljónagryfju þeirra Njarðvíkinga.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.