Viðtal Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Margeir Pétursson, fjárfestir og stórmeistari í skák, hefur undanfarin ár búið í Lviv í Úkraínu og haft umsjón með fjárfestingum á vegum íslenskra aðila.
Meira
Á Facebook er fjöldi lokaðra hópa þar sem Íslendingar bjóða fíkniefni til sölu eða óska eftir þeim til kaups. Efnunum er lýst, af þeim eru gjarnan birtar myndir og nafn og símanúmer hjá seljandanum fylgir.
Meira
Kjartan Kjartansson Hjörtur J. Guðmundsson Ísland verður fyrsta ríkið til þess að draga til baka umsókn um aðild að Evrópusambandinu eftir að aðildarviðræður eru hafnar verði þingsályktunartillaga utanríkisráðherra þess efnis samþykkt á Alþingi.
Meira
Tökur á nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest, ganga mjög vel, þrátt fyrir gríðarlegt fannfergi í ítölsku Ölpunum og ofsóknir apakatta í Nepal. „Þeir eru ótrúlegir. Mjög hrekkjóttir og árásargjarnir.
Meira
Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag tillögu þar sem dönsk varðskip eru boðin velkomin til Reykjavíkur. Tillagan var samþykkt með sex atkvæðum gegn einu.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Miðborgin hefur líklega sjaldan notið meiri vinsælda en nú. Eignir þar eru hátt verðlagðar en seljast fljótt,“ segir Sverrir Kristinsson, framkvæmdastjóri Eignamiðlunar.
Meira
„Það hefur verið mjög erfitt hér í mörg ár og flestir vestrænir fjárfestar hrökklast burt,“ sagði Margeir Pétursson, fjárfestir, sem búsettur er í Lviv í Úkraínu, þegar Morgunblaðið náði tali af honum síðdegis í gær, þar sem hann var staddur...
Meira
Ekki eru til dæmi um að ríki sem hefur hafið aðildarviðræður við Evrópusambandið dragi umsókn sína til baka eins og þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna hafa samþykkt að gera.
Meira
„Við reiknum með að þegar niðurstaða kosninga um þennan viðauka liggur fyrir hjá félögunum sem felldu, þá verði í beinu framhaldi gengið frá sambærilegum samningum við þau félög sem samþykktu,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri...
Meira
Forritunarkeppni framhaldsskólanna verður haldin í Háskólanum í Reykjavíkí dag, laugardaginn 22. mars. Keppnin sjálf hefst kl. 09:00 og stendur fram á kvöld. Keppnin er opin öllum nemendum í framhaldsskólum sem hafa áhuga á hönnun, forritun og tölvum.
Meira
FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Þegar rétt um hundrað dagar eru til sveitarstjórnarkosninganna eru línur farnar að skýrast um framboðslista í stærstu sveitarfélögunum.
Meira
Fréttaskýring Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gert er ráð fyrir að fyrirtæki sem eru með fiskeldi í sjókvíum greiði árgjald miðað við umfang leyfa í nýjan Umhverfissjóð sjókvíaeldis, samkvæmt frumvarpi til breytinga á lögum um fiskeldi.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég eignaðist Héðin-Skúla í hestakaupum við foreldra mína. Pabbi [Sigurbjörn Bárðarson] talar enn um að ég hafi svindlað á sér.
Meira
Harmonikutónleikar í tilefni 90 ára afmælis Karls Jónatanssonar verða haldnir í Salnum í Kópavogi laugardaginn 22. febrúar kl. 16:00. Margir af bestu harmonikuleikurum landsins ásamt öðrum hljóðfæraleikurum munu leika útsetningar af lögum Karls.
Meira
Alls munu 455 kandídatar taka á móti prófskírteinum sínum í grunn- og framhaldsnámi á brautskráningarhátíð Háskóla Íslands sem fram fer í Háskólabíói í dag, laugardaginn 22. febrúar kl. 13.
Meira
Hverfisgatan var opnuð á ný fyrir bílaumferð í gær, en áfram verður unnið við lokafrágang götunnar alla næstu viku. Verður verklokum fagnað á laugardag eftir viku. Framkvæmdunum átti að ljúka í nóvember s.l. en þær hafa tafist af ýmsum ástæðum.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Iðandi líf glaðra krakka og foreldra einkenndi starfsemi frístundamiðstöðva Reykjavíkur í gær á síðari degi vertrarfrís í grunnskólum. Boðið var upp á ýmsa afþreyingu fyrir börn og unglinga á sex frístundamiðstöðvum.
Meira
Innsláttarvilla í grein Í aðsendri grein í gær, Flóttinn á Drekasvæðið – skilar hann gróða? eftir Geir R. Andersen var innsláttarvilla varðandi samþykkt tillögu þingmanna um rannsóknir setlaga úti fyrir Norðausturlandi.
Meira
Karl Eiríksson, flugstjóri og fyrrverandi forstjóri Bræðranna Ormsson, er látinn 87 ára að aldri. Karl fæddist í Reykjavík 31. desember 1925. Hann lést á Landspítalanum 20. febrúar síðastliðinn.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Forseti Úkraínu og þrír af leiðtogum stjórnarandstöðunnar undirrituðu í gær samkomulag með það að markmiði að binda enda á átök sem hafa kostað tugi manna lífið í miðborg Kænugarðs síðustu þrjá daga.
Meira
Vetrarsól Ökumenn verða að huga að því að vera með sólgleraugu við aksturinn þar sem vetrarsólin, sem er oftar en ekki lágt á lofti, getur blindað ökumenn við...
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Lýsing hefur ákveðið að falla frá áfrýjun sinni í dómsmáli sem fyrirtækið höfðaði á hendur Írísi Fanneyju Friðriksdóttur vegna endurútreiknings í gengislánamáli bílasamnings.
Meira
Sjávarútvegsráðuneytið hafnaði í gær beiðni Norðmanna um að fá að veiða loðnu áfram í íslenskri lögsögu. Áður hafði ráðherra veitt þeim leyfi til að veiða við landið í átta daga umfram samninga og lýkur þeim tíma á miðnætti í kvöld.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Landeigendur Reykjahlíðar ehf. ætla að hefja innheimtu náttúruverndargjalds á þremur vinsælum ferðamannastöðum í landi sínu þann 1. júní næstkomandi. Gert er ráð fyrir gjaldtöku a.m.k. til 1. september. Ólafur H.
Meira
Borgarráð hefur staðfest breytingu deiliskipulags fyrir lóðina við Tryggvagötu 13 en þar stendur til að reisa sex hæða byggingu. Umrædd lóð er milli húss Borgarbókasafnsins, Grófarhúss, og Hafnarhvols.
Meira
Guðmundur Sv. Hermannsson Kjartan Kjartansson Skipaður verður starfshópur til að leggja mat á æskilegar breytingar á starfsemi Seðlabanka Íslands og þeirri lagalegu umgjörð sem um starfsemina gildir.
Meira
„Úlfarsárdalurinn er áhugaverður byggingastaður sem smám saman öðlast skemmtilegan svip, eða eftir því sem óbyggðum svæðum fækkar og fólkinu fjölgar.
Meira
Stórmeistaramót Vildarbarna fer fram á Hilton Reykjavik Nordica sunnudaginn 23. febrúar, hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 17. Tíu stórmeistarar munu leiða saman hesta sína í lokuðum flokki.
Meira
Viðtal Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Hún glímdi við þunglyndi frá því hún var barn. Áður en hún fékk aðstoð hjá geðlækni hafði hún aldrei talað í síma eða lagt í að biðja um bland í poka úti í sjoppu. Félagsfælnin kom í veg fyrir það.
Meira
Kjartan Kjartansson Kristinn Ingi Jónsson Þingmenn bæði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samþykktu þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um að umsókn Íslands að Evrópusambandinu yrði dregin til baka á þingflokksfundum flokkanna í gær.
Meira
Vegvísir á vefsjá Í umfjöllun um skóglendisvefsjá í blaðinu á fimmtudag láðist að vísa á slóðina á vefsjána. Best er að fara inn á vef Skógræktarinnar, skogur.is. Efst í hægra horni er hnappur sem leiðir gesti áfram á vefsjána.
Meira
Unnið er að því að meta hvernig standa megi að því að varðveita eikarbátinn Aðalbjörgu RE 5, sem smíðaður var í Reykjavík fyrir 80 árum. Skipasmiðirnir Þorkell Ólafsson og Bjargmundur Grímsson annast það verkefni.
Meira
Horfið verður frá sértækri neyslustýringu með vörugjöldum og virðisaukaskattskerfið einfaldað með minni mun á milli þrepa, færri undanþágum og auknu jafnræði milli skyldra atvinnugreina í kjölfar endurskoðunar á vörugjalda- og virðisaukaskattskerfunum.
Meira
Björn Bjarnason gerir fréttaflutning Ríkisútvarpsins um Evrópumál að umfjöllunarefni á Evrópuvaktinni. Björn segir frá viðtölum Ríkisútvarpsins við tvo háskólamenn um mögulegar varanlegar undanþágur umsóknarríkis frá reglum ESB.
Meira
Katrín Eyjólfsdóttir opnaði í gær einkasýninguna Aftur aftur aftur í Kaffistofunni, nemendagalleríi myndlistardeildar Listaháskóla Íslands sem er á Hverfisgötu 42.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Blásarakvintett Reykjavíkur leikur á tónleikum á vegum Kammermúsíkklúbbsins á morgun kl. 19.30 í Norðurljósasal Hörpu, ásamt píanóleikaranum Peter Máté og tónskáldinu og tónlistarmanninum Högna Egilssyni.
Meira
Fáir listamenn, fyrir utan mögulega Bítlana á sínum tíma, hafa komist upp með jafn mikla sýru og furðulegheit innan hins hefðbundna tónlistarheims...
Meira
María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Djassinn verður í hávegum hafður í Hörpu á morgun. Þá mun söngkonan Ingibjörg Fríða Helgadóttir koma fram og flytja djasslög úr ýmsum áttum, bæði íslensk og erlend.
Meira
Leikhúsverk Ragnars Kjartanssonar við tónlist Kjartans Sveinssonar, sem frumsýnt var í leikhúsinu Volksbühne í Berlín á miðvikudagskvöld fær dræmar viðtökur þýskra gagnrýnenda og verður þeim tíðrætt um að engir leikarar skuli vera í sýningunni.
Meira
Guðrún Gunnarsdóttir söngkona hélt upp á 30 ára söngafmæli sitt í fyrra og kom af því tilefni út platan Bezt sem hefur að geyma hennar bestu lög og er hluti af hljómplöturöð útgáfunnar Dimmu.
Meira
Staðfest hefur verið að íslensk tónlist verður í brennidepli á tónlistarráðstefnunni og -hátíðinni Eurosonic í Hollandi á næsta ári en hún er ein sú stærsta sinnar tegundar í Vestur-Evrópu. Í ár sóttu 38.
Meira
Hjónin Pétur Arason og Ragna Róbertsdóttir eru með atkvæða-mestu söfnurum samtímamyndlistar hér á landi. Þau áttu um hríð sýningarsalinn Safn á Laugavegi og hafa nýverið opnað hann á nýjum stað, við Bergstaðastræti 52, og er opið þar um helgar.
Meira
Undanfarnar vikur hafa auglýsingar um lífeyrissparnað verið fyrirferðarmiklar. Þetta kemur kannski ekki á óvart í ljósi þess að helmingurinn af hinni svokölluðu Leiðréttingu verður gegnum séreignarlífeyrissparnað.
Meira
Þegar ég vann að rannsóknum á ævi Halldórs Kiljans Laxness, rakst ég í Þjóðarbókhlöðunni á rit, sem gefið hafði verið út um rithöfundamót í Góðviðru (Buenos Aires) 1936, en Laxness var einn gesturinn og skrifaði síðar margt um mótið.
Meira
Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson: "Við fengum mjög afdráttarlaus skilaboð í alþingiskosningunum. Við vorum kosin til að gera breytingar. Það erum við að gera og munum gera áfram."
Meira
Einar Erlendsson fæddist í Reykjavík 6. desember 1946. Hann lést 8. febrúar 2014. Foreldrar hans voru Erlendur Guðjónsson, f. 31.10. 1911, d. 16.6. 1966, og Sigurfljóð Olgeirsdóttir, f. 14.12. 1905, d. 6.6. 1990.
MeiraKaupa minningabók
Eyrún Guðmundsdóttir fæddist að Króki í Ásahreppi 1. september 1921. Hún lést á Ljósheimum á Selfossi 8. febrúar 2014. Foreldrar hennar voru Guðrún Gísladóttir frá Árbæjarhelli í Holtum f. 13. desember 1889, d. 6.
MeiraKaupa minningabók
Jónína Björg Helgadóttir, eða Ninna eins og hún var alltaf kölluð, fæddist í Sigluvík á Svalbarðsströnd 20. maí 1925. Hún lést 14. febrúar 2014. Foreldrar hennar voru Helgi Valdimarsson og Aðalheiður Baldvinsdóttir. Jónína átti sjö systkini; Sigríði, f.
MeiraKaupa minningabók
Katrín Sigurjónsdóttir húsfrú fæddist í Reykjavík 3. júní 1927. Hún lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi 11. febrúar 2014. Foreldrar hennar voru Sigurjón Sigurðsson, skrifstofustjóri hjá Álafossi, f. 20.6. 1891, d. 20.6.
MeiraKaupa minningabók
Lilja Hallgrímsdóttir, húsfreyja Klaufabrekknakoti, fæddist á Þorsteinsstöðum í Svarfaðardal 5. ágúst 1916. Hún lést á Dalbæ, dvalarheimili aldaðra á Dalvík, 11. febrúar 2014. Foreldrar Lilju voru Hallgrímur Einarsson, f. 6. júlí 1888, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
Steingrímur Árnason vélstjóri og pípulagningameistari fæddist á Húsavík 25. nóvember 1930. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 12. febrúar 2014. Foreldrar hans voru Árni Jónsson, f. 14.10. 1901, d. 14.11.
MeiraKaupa minningabók
Afkoma Actavis plc, móðurfélag Actavis á Íslandi, á árinu 2013 var hin besta í sögu félagsins. Á undanförnum tólf mánuðum hafa bréf félagsins hækkað um 163%. Tekjurnar jukust um 47% á milli ára og námu 8,7 milljarða dala.
Meira
Hagnaður HS veitna á síðasta ári nam 666 milljónum og jókst um 224 milljónir frá fyrra ári. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 18.535 milljónum og jukust um 744 milljónir milli ára.
Meira
Fréttaskýring Hörður Ægisson hordur@mbl.is Þrátt fyrir rúma eiginfjárstöðu allra íslensku viðskiptabankanna þá má að óbreyttu reikna með takmörkuðum arðgreiðslum til hluthafa Arion banka og Íslandsbanka.
Meira
Kjörin var ný stjórn á aðalfundi Samorku sem fram fór í gær á Grand Hótel í Reykjavík en stjórnin er óbreytt frá fyrri stjórn. Hún er kosin til tveggja ára.
Meira
Tap Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls á Grundartanga, nam 9,7 milljónum Bandaríkjadala, eða um 1,1 milljarði króna, á fjórða fjórðungi ársins 2013.
Meira
UNICEF á Íslandi frumsýndi í gær auglýsingu sem Íslenska auglýsingastofan og True North gáfu samtökunum og sýnir börn hér á landi halda til í flóttamannabúðum.
Meira
Ekki abbast upp á rauðhærðar konur, syngja þeir í Baggalút, og víst er að rauðhærðir hafa fengið að heyra margt misjafnt í tengslum við háralit sinn. T.d að rauðhærðir séu skaphundar, dugnaðarforkar og ástríðufullir.
Meira
Vissir þú að móðir Teresa var albönsk? Mirela Protopapa og Vatra, félag Albana á Ísland, mun gefa innsýn í albanska tungu og menningu í Café Lingua í dag kl 14 í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Meira
Á morgun, sunnudag, kl 15 verður fjölskyldudagur í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Björg Erlingsdóttir, einn þriggja sýningarstjóra sýningarinnar Samstíga-abstraktlist, ræðir við gesti og brugðið verður á leik.
Meira
Þórdís Erla Zoëga opnaði nýverið salon-sýningu í hönnunarbúðinni Insulu á Skólavörðustíg 21 sem standa mun út marsmánuð. Um er að ræða teikningar/klippimyndir af órökréttu rými sem heilinn leitast við að rökrétta.
Meira
Í dag laugardag kl. 14, opnar Helga Sigríður Valdemarsdóttir sýningu með nýjum verkum í Flóru á Akureyri. Sýningin nefnist Þræðir, en Helga Sigríður er fædd á Akureyri árið 1975.
Meira
Ingibjörg Kristinsdóttir er sextug í dag, 22. febrúar. Ingibjörg er úr Gufudalssveit en hefur búið í Mosfellsbæ sl. 35 ár. Hún gegnir starfi skrifstofustjóra Nýju bílasmiðjunnar og er gift Ágústi Þór Ormssyni bílasmið.
Meira
Bjarni Snæbjörn er fæddur árið 1956. Hann lauk námi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1979 og MBA námi frá University of Michigan árið 1984. Hann er kvæntur Björgu Kristínu Kristjánsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Meira
Norðurlandamóti barna og unglinga, sem fram fer ár hvert, er skipt upp í fimm aldursflokka og þjóðirnar eiga tvo keppendur í hverjum flokki þar sem tefldar eru sex umferðir eftir svissneska kerfinu.
Meira
Hvítbláinn , fáni UMFÍ og hugarfóstur Einars Ben., sést beygður á eina þrjá vegu: eins og blár ( inn ) – -bláinn, -blánum, -blásins; eins og Þráinn – -bláin, -bláni, -bláins; og eins og Huginn (og Muninn): -bláin, -bláin, bláins.
Meira
Fyrir viku birtist hér gáta eftir Svein Víking: Fúlir jafnan hýsa hann. Á hendi talinn lítils nýtur. Veiki slæmri valda kann. Vinur tryggur, en stundum bítur. Hjörtur Hjálmarsson, skólastjóri á Flateyri, átti tvær lausnir.
Meira
Reykjanesbær Jóhanna Kristín fæddist 20. júní. Hún vó 4.636 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Ólafía Kristín Norðfjörð og Þröstur Leó Jóhannsson...
Meira
Sauðárkrókur Rakel Eva fæddist 4. júní kl. 21.54. Hún vó 3.470 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Vilhjálmur Viðarsson og Kolbrún Eva Pálsdóttir...
Meira
Laugardagur 95 ára Ágústína Sveinsdóttir 90 ára Þorsteina G. Sigurðardóttir 85 ára Guðrún Guðmundsdóttir Steinunn Guðbjörg Jónasdóttir 80 ára Bryndís Víglundsdóttir Helgi Magnússon Kristjana Á.
Meira
S vavar Örn fæddist í Reykjavík 22.2. 1974. Hann ólst þar upp til 10 aldurs en fór þá norður í Svínadal í Austur-Húnavatnssýslu og kláraði skólaskylduna í Húnavallaskóla. „Ég fór norður af því að pabbi veiktist.
Meira
Það er gott að temja sér þolinmæði og umburðarlyndi í lífinu,“ sagði Jóhanna Gunnlaugsdóttir, húsfreyja, sem er níræð í dag. Hún er frá Bakka í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu. Þegar hún var orðin 18 ára fór hún að heiman til að vinna.
Meira
Fótbolti Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Hvað heldurðu að gámurinn verði stór í vor?“ Þessa spurningu fékk ég á dögunum þegar ég fylgdist með einum vetrarleikjanna í fótboltanum. „Gámurinn?“ spurði ég á móti, ekki alveg með á...
Meira
22. febrúar 1973 Engu munar að Ísland vinni Danmörku í fyrsta sinn á útivelli í karlalandsleik í handbolta þegar liðin skilja jöfn í Randers, 18:18. Danir jafna á síðustu sekúndum leiksins.
Meira
ÓL Sotsjí Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is „Það eru allir úti á ísnum nema rétt svo börn og gamalmenni,“ sagði hollenski blaðamaðurinn John Volkers. Tilefnið?
Meira
Á Ásvöllum Kristinn Friðriksson kiddigeirf@gmail.com Haukar fengu Njarðvíkinga í heimsókn í gærkveldi. Haukarnir gátu rænt 5. sætinu af Þór með sigri, en Njarðvíkingar ætluðu sér klárlega að styrkja stöðu sína í hinu mikilvæga fjórða sæti.
Meira
Úkraína vann til sinna fyrstu gullverðlauna á vetrarólympíuleikunum í Sotsjí þegar sveit landsins bar sigur úr býtum í boðgönguskíðaskotfimi í gær.
Meira
Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Á morgun ræðst hverjir mótherjar Íslands verða í undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu sem hefst í september á þessu ári. Þar er leikið um 23 sæti í lokakeppninni sem fram fer í Frakklandi sumarið 2016.
Meira
Lengjubikar karla A-DEILD, riðill 2: Fylkir – FH 1:3 Hákon Ingi Jónsson 86. – Emil Pálsson 46., Sam Tillen 62., Ingimundur Níels Óskarsson 78. Rautt spjald: Sam Hewson (FH) 66. Fjölnir – Þróttur R 1:0 Viðar Ari Jónsson 25.
Meira
Það verður stórleikur í úrslitum íshokkíkeppni karla í Sotsjí í ár þegar ríkjandi ólympíumeistarar Kanada mæta ríkjandi heimsmeisturum Svía. Svíþjóð er eitt liða með fullkomið sigurhlutfall á leikunum og lagði Finna í undanúrslitum í gær, 2:1.
Meira
FH er með sex stig eftir fyrstu tvo leiki sína í Lengjubikar karla í fótbolta en Hafnarfjarðarliðið vann Fylki, 3:1, í Egilshöllinni í gærkvöld. Staðan var 0:0 í hálfleik en Emil Pálsson kom FH yfir á fyrstu mínútu síðari hálfleiks.
Meira
Enskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Wayne Rooney framherji Englandsmeistara Manchester United hefði samþykkt að gera nýjan samning við félagið.
Meira
Hlynur Bæringsson var hetja Sundsvall Dragons í gærkvöld þegar hann tryggði liðinu eins stigs sigur á Solna Vikings, 89:88, í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Meira
Það hafa verið forréttindi að hafa íþróttir í sjónvarpinu frá morgni til kvölds. Vetrarólympíuleikarnir í Sotsjí hafa sannarlega glatt augað og áhugi hefur kviknað á mörgum greinum sem ekki hafa náð að festa rætur hér heima.
Meira
Grand Restaurant er nýr veitingastaður á Grand hóteli við Sigtún. Evrópsk matargerð er í hávegum höfð og áhersla á að vinna allt frá grunni, segir Vignir Hlöðversson yfirmatreiðslumaður.
Meira
Skiptir miklu fyrir ferðamenn að eiga ánægjulega matarupplifun. Viðburðir eins og Food and Fun geta gert útslagið og styrkja viðburðaflóruna að vetri til.
Meira
Hafnarsvæðið laðar að sér fjölda manns á hverjum degi og veitingastaðurinn Höfnin þar á meðal. Sígilt hráefni er þar fært til nútímans, að sögn Brynjars Eymundssonar yfirmatreiðslumanns.
Meira
Veitingastaðurinn KOL við Skólavörðustíg er ein nýjasta viðbótin við flóru borgarinnar. Kári Þorsteinsson og Einar Hjaltason segja frá staðnum og Food & Fun.
Meira
Eldhúsið á Kopar leggur áherslu á íslenskr hráefni og þar er grjótkrabbinn þegar búinn að skapa sér sérstakt nafn, segir Ylfa Helgadóttir, yfirmatreiðslumeistari.
Meira
Íslenskt hráefni er ætíð í öndvegi á Food & Fun og það sama verður svo sannarlega uppi á teningnum á matarmarkaði sem haldinn verður í Hörpu um leið og hátíðin fer fram. Eirný Sigurðardóttir, jafnan kennd við ljúfmetisverslunina Búrið, segir frá rammíslensku hnossgæti sem þar verður á boðstólum.
Meira
Matvæla- og veitingageirinn skapar bæði störf og verðmæti og skiptir miklu fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar. Íslensk matvæli ómissandi þegar við gerum okkur glaðan dag.
Meira
Bæði matvælaframleiðsla og veitingastaðirnir hér eru í miklum blóma um þessar mundir. Í íslenskum matvælum fer saman gott hráefni og mikill metnaður.
Meira
Enski sjónvarpskokkurinn Ainsley Harriott verður á Íslandi á meðan Food & Fun-matarhátíðin stendur yfir og verður heiðursdómari á lokakeppni hátíðarinnar.
Meira
Gaman er að sjá þá jákvæðu breytingu sem orðið hefur á lífi borgarbúa með sterkari veitingastaðamenningu. Að fara reglulega út að borða er hjá mörgum orðið sjálfsagður hlutur af almennum lífsgæðum.
Meira
Veitingastaðurinn Tjörnin hefur verið opnaður í Ráðhúsinu og þangað er von á spennandi og margverðlaunuðum gestakokki, segir Laufar Sigurður Ómarsson veitingamaður.
Meira
Norrænt eldhús er rauði þráðurinn í matseldinni á VOX og árstíðabundið hráefni er í aðahlutverki hverju sinni, segir Fannar Vernharðsson yfirmatreiðslumeistari.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.