Í júlí var sætanýting flugfélagsins WOW air 92% og er það söluhæsti mánuður félagsins frá upphafi. Fluttir voru 72.573 farþegar í júlí og hefur félagið flutt rúmlega 300 þúsund farþega það sem af er árinu.
Meira
Knapinn Aníta Margrét Aradóttir er í 12.–17. sæti eftir þriðja keppnisdag í gær í reiðkeppninni Mongol Derby í Mongólíu. Aníta komst í búðir 10 í gærkvöldi ásamt fimm öðrum keppendum, en ellefu knapar eru komnir í búðir 11.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 337 orð
| 1 mynd
Stangveiði Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Áhugamenn um laxveiði rýna þessa dagana í veiðitölur sem aldrei fyrr, en segja má að enn skilji sundur með norðlensku ánum og þeim á Vesturlandi.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 150 orð
| 1 mynd
„Það er frábært að fá að taka þátt í Handverkshátíðinni. Móttökurnar eru alveg hreint út sagt stórkostlegar,“ sagði Erling Markús Andersen módelsmiður.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 431 orð
| 2 myndir
Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Mikil óvissa ríkir um hvaða áhrif viðskiptabann Rússa muni hafa á íslenskan efnahag. Ísland seldi til Rússlands sjávarafurðir að andvirði 18 milljarðar króna í fyrra.
Meira
Allir fjallvegir Vegagerðarinnar á hálendinu hafa nú verið opnaðir. Vegna vatnavaxta er Öskjuleið ófær nema fyrir breytta jeppa en þeim sem vilja komast inn í Öskju er bent á að fara veg 910 (Austurleið), segir á veg Vegagerðarinnar.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 137 orð
| 1 mynd
Lögreglumenn ákveða sjálfir upphæð sekta sem skrifaðar eru út vegna utanvegaaksturs út frá skemmdum á náttúru og fleiri þáttum. Yfirleitt er gengið frá sektum á staðnum.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 546 orð
| 3 myndir
Sviðsljós Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Einelti á vinnustöðum getum verið dýrkeypt á ýmsan hátt. Auk vanlíðunar þeirra sem fyrir því verða getur fjárhagslegur kostnaður fyrirtækja í slíkum málum verið umtalsverður.
Meira
Eldur kom upp í fiskvinnsluhúsnæði í Grófinni 18 í Reykjanesbæ á sjöunda tímanum í gærmorgun. Enginn var þá mættur til vinnu en aftur á móti voru nokkrir í herbergjum sem leigð eru út í viðbyggingu. Allir komust út og urðu ekki slys á fólki.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 193 orð
| 1 mynd
Landsnet áformar að leggja raflínuna á milli Hellu og Hvolsvallar, Hellulínu 2, í jarðstreng. Kostnaður er svipaður og við loftlínu, að sögn Guðmundar Inga Ásmundssonar, aðstoðarforstjóra Landsnets.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Hvert vilja Íslendingar stefna? Það þarf að vera einhver stefna til staðar þannig að ferðaþjónustan fái ekki að vaxa algjörlega stjórnlaust.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 92 orð
| 3 myndir
Ríkisstjórnin hefur tekið ákvörðun um móttöku 13 sýrlenskra flóttamanna í neyð og að undirbúningur vegna móttöku þeirra hefjist þegar í stað. Þetta var tilkynnt í gær.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 112 orð
| 1 mynd
Heildarfjöldi frjókorna í júlímánuði reyndist 2.567 frjó á hvern rúmmetra, sem er vel yfir meðaltali áranna 1998 – 2013 (764 frjó/m3). Mest var um grasfrjó í lofti á Akureyri í júlí eða 2.389 frjó/m3 sem er langt yfir meðaltali.
Meira
Drengirnir í BORG ætla að standa fyrir veglegri upphitun fyrir Gay Pride-partí kvöldsins með því að þeyta skífum á Vitatorgi í miðbæ Reykjavíkur á milli klukkan 17 og 20.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 150 orð
| 1 mynd
Hætt hefur verið við framleiðslu og sýningu á þættinum Sönn íslensk sakamál, en til stóð að hann yrði á dagskrá SkjásEins í vetur eins og tvö undanfarin ár.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 831 orð
| 2 myndir
Viðtal Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Hvar er mitt Ísland?“ skrifar dr. Ulrike Friedrich, verkefnastjóri hjá þýsku geimvísindastofnuninni, í bréf til vinar síns á Íslandi, Ólafs B.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 134 orð
| 1 mynd
Radisson Blu-hótelin á Íslandi hlutu þrenn verðlaun á World Travel Awards sem haldin voru í Aþenu hinn 2. ágúst síðastliðinn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Radisson Blu á Íslandi.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 537 orð
| 2 myndir
Gunnar Björnsson Tromsö Sex umferðum af ellefu er nú lokið á Ólympíuskákmótinu í Tromsö. Þokkalega hefur gengið hjá íslensku liðunum. Liðið í opnum flokki hefur 7 stig af 12 mögulegum en kvennaliðið hefur 6 stig.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ísraelsher hóf loftárásir á Gaza-svæðið að nýju í gær eftir að liðsmenn Hamas-samtakanna hófu flugskeytaárásir á Ísrael. Að minnsta kosti fimm Palestínumenn lágu í valnum og tveir Ísraelar særðust.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 726 orð
| 3 myndir
Viðtal Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson, prestur í Seljaprestakalli, fékk strax á fermingaraldri áhuga á því að leggja fyrir sig guðfræðinám og lauk hann guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 2006.
Meira
Tónlistarmennirnir KK og Magnús Eiríksson leika lög úr lagasafni hvors um sig auk sameiginlegra lagasmíða á tónleikum á Café Rosenberg í kvöld kl....
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 131 orð
| 1 mynd
Samfélagsstyrkir Landsbankans voru veittir á fimmtudag og fengu alls 26 verkefni styrk. Styrkþegarnir skiptu á milli sín tíu milljónum króna sem Samfélagssjóðurinn veitti.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 539 orð
| 3 myndir
Baksvið Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) lýsti í gær yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins í Vestur-Afríkulöndum og hvatti til alþjóðlegs átaks til að hjálpa þeim að stöðva útbreiðslu sjúkdómsins.
Meira
Gleðiganga Hinsegin daga og hátíðarhöld henni tengd fara fram í dag. Gangan leggur af stað frá Vatnsmýrarvegi, nálægt BSÍ, kl. 14 og að henni lokinni hefst hátíðardagskrá við Arnarhól sem stendur til kl. 17.30.
Meira
Guðrún Jónsdóttir fagnar 108 ára afmæli sínu í dag. Hún er næstelsta konan á Íslandi í dag en Guðríður Guðbrandsdóttir er elsti núlifandi Íslendingurinn, varð 108 ára 23. maí síðastliðinn.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 129 orð
| 1 mynd
Staðfest hefur verið að drunur sem landverðir heyrðu í Herðubreiðarlindum á miðvikudag hafi verið vegna snjóflóðs norðaustanmegin í fjallinu. Snjófleki fór af stað með miklum látum sem vörðu í um hálfa mínútu.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 348 orð
| 1 mynd
Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Magni Kristjánsson, eigandi Hótel Capitano í Neskaupstað, gerði nýverið upp gömlu Olísstöðina í Neskaupstað og opnaði þar átta herbergja gistiheimili.
Meira
9. ágúst 2014
| Erlendar fréttir
| 663 orð
| 3 myndir
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Bandaríkjaher hóf loftárásir á vígasveitir Ríkis íslams, samtaka íslamista, í Norður-Írak í gær til að koma í veg fyrir að þær fremdu fjöldamorð á flóttafólki og réðust inn á sjálfstjórnarsvæði Kúrda.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 398 orð
| 1 mynd
Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is „Við erum með posa í bílunum sem við notum einnig þegar fólk keyrir of hratt,“ segir Atli Árdal Ólafsson, varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli, spurður hvernig lögreglan sekti ferðafólk sem keyri utan vega.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 253 orð
| 1 mynd
Peter Oundjian, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Toronto, segist spenntur fyrir því að koma fram með hljómsveitinni í Hörpu 24. ágúst. Hann stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands sem gestastjórnandi 2012 og segir að hljómburðurinn sé frábær.
Meira
HRingurinn, árlegt LAN-mót á vegum Tvíundar, félags tölvunarfræði-, stærðfræði- og hugbúnaðarverkfræðinema við Háskólann í Reykjavík, hófst í gær. Mótið stendur yfir fram á sunnudag, og spila keppendur stanslaust þangað til.
Meira
Þriggja ára stúlku var í gærdag bjargað frá drukknun í sundlauginni í Vestmannaeyjum eftir að hún hafði tekið af sér armkútana í lauginni. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum voru sundlaugargestir fljótir til og var stúlkunni komið til bjargar.
Meira
Búrhvalur er stærstur allra tannhvala og raunar eina stórhvelið í þeim flokki hvala. Tarfurinn er mun stærri en kýrin, 8-20 metrar á lengd, og vegur 20-50 tonn. Tarfurinn sem rak á land í Trékyllisvík er um 15 metrar á lengd.
Meira
Pæjumótið, knattspyrnumót fyrir stúlkur í 6. og 7. flokki, fer fram á Siglufirði í 24. sinn um helgina. Alls eru 14 félög skráð til leiks á mótinu og eru keppendur tæplega 500, að sögn Óskars Þórðarsonar mótsstjóra.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 305 orð
| 1 mynd
„Þetta gengur frekar hægt og bítandi,“ segir Gunnlaugur F. Gunnlaugsson, stöðvarstjóri í hvalstöðinni í Hvalfirði, spurður hvernig hvalveiðarnar gangi. Veiðst hafa 70 dýr það sem af er sumri.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 319 orð
| 2 myndir
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Daun leggur af búrhvalshræinu sem rak upp í fjöru í Skarðsvík í Trékyllisvík á Ströndum sl. þriðjudag. Verið er að athuga möguleika á að draga hræið á haf út og sökkva því.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 385 orð
| 2 myndir
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Smábátar hafa flykkst til Hólmavíkur síðustu daga til makrílveiða í Steingrímsfirði. Var þeim sumum hverjum ekið landleiðina á vörubílum, aðallega frá Ólafsvík.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 186 orð
| 1 mynd
„Mesta vinnan er að finna réttar tengingar við ættirnar á Íslandi,“ segir Oddur Helgason, æviskrárritari hjá ORG-ættfræðiþjónustunni, um skráningu upplýsinga um kanadíska hermenn af íslenskum ættum.
Meira
9. ágúst 2014
| Innlendar fréttir
| 101 orð
| 1 mynd
Sigurður Norðfjörð, betur þekktur sem Siggi Nobb, var þjóðsagnapersóna í lifanda lífi á Norðfirði eftir miðja síðustu öld. Sigurður var ættaður frá Kolableikseyri við Mjóafjörð og vann þar í hvalstöðvum Norðmanna.
Meira
Gústaf Adolf Skúlason segir frá því á blog.is að ný skoðanakönnun í Austurríki sýni í fyrsta sinn að fleiri vilji að Austurríki gangi úr ESB en haldi áfram aðild. „46% aðspurðra vildu fara úr ESB en 44% vera áfram.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Í tilefni dagsins ákváðum við að leita í smiðju samkynhneigðra tónskálda,“ segir Kristjana Stefánsdóttir og vísar þar til þess að Hinsegin dagar standa nú sem hæst og sjálf Gleðigangan verður farin í...
Meira
Hercules Til að sanna mannlegan styrk sinn og guðlegan mátt þarf Herkúles að leysa hinar tólf þrautir sem við fyrstu sýn virðast ekki á færi nokkurs að leysa. Metacritic 47/100 IMDB 6.
Meira
Lucy er ung kona sem gengur í gildru glæpamanna og er byrlað sterkt svefnlyf. Þegar hún rankar við sér hafa glæpamennirnir komið fyrir í iðrum hennar eiturlyfjum og neyða hana til að smygla þeim fyrir sig á milli landa. Metacritc 61/100 IMDB 6.
Meira
Lilja Guðmundsdóttir sópran, Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Ingileif Bryndís Þórsdóttir píanóleikari halda tónleika í tónleikaröðinni Perlur íslenskra sönglaga í Kaldalóni í Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 17.
Meira
Laugardaginn 9. ágúst verður hátíðin Pönk á Patró haldin í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði í sjötta sinn. Tvær hljómsveitir mæta á svæðið í ár en það er hin rómaða Steinunn Eldflaug Harðardóttir, betur þekkt sem dj.
Meira
Íslenska raftónlistarveitan Möller Records mun, í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð og Menningar- og listafélag Hafnarfjarðar, efna til raftónleika í kvöld kl. 21 í Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Meira
Í tilefni Hinsegin daga ætlar Hljómsveitin Lame Dudes að flytja blús í öllum regnbogans litum í Hressógarðinum í dag kl. 17. Aðgangur ókeypis, en gestir eru beðnir að mæta í litríkum...
Meira
Framhaldsmyndaþátturinn Paradís sem sýndur er á RÚV á sunnudagskvöldum stendur sannarlega fyrir sínu. Þetta er önnur þáttaröðin og jafnframt sú síðasta og að ýmsu leyti ólík þeirri fyrstu.
Meira
Vonandi mun Lotta halda áfram að gleðja unga jafnt sem aldna um ókomin ár, enda sem betur fer enn nóg af ævintýrum og þjóðsögum sem hópurinn getur leikið sér með á sinn skapandi og frumlega hátt.
Meira
Eftir Sigurjón Benediktsson: "Fuglar sem leita hjá okkur skjóls, ...vinir sem við verndum og verjum, enda á matseðlum veitingahúsa mestu matgæðinga Evrópu."
Meira
Ég flyt þrjá fyrirlestra á ráðstefnu norrænna stjórnmálafræðinga í Gautaborg 12.-15. ágúst. Einn fyrirlesturinn er um hvort íslenska velferðarríkið sé í eðli sínu engilsaxneskt eða norrænt.
Meira
Eftir Ian Buruma: "Þegar fólk stendur frammi fyrir ógn upp á líf og dauða þyrpist það í kringum þá einu leiðtoga sem geta eitthvað gert til að verja það, jafnvel þótt það hafi ímugust á þessum sömu leiðtogum."
Meira
Mesti vandinn í samskiptum tölvu og tungumáls er að tölvan skilur orðin bókstaflega. Óhægt er að koma henni í skilning um að orðin merki ekki bara það sem þau merkja í orðabókinni, heldur ráðist merkingin líka af samhengi.
Meira
Hólmfríður Gísladóttir: "Ég veit ekki hvort hann er athyglisverður, málatilbúnaður þeirra sem finna femínismanum allt til foráttu, en hann er í það minnsta sorglegur vitnisburður um stöðu þeirrar baráttu sem viðkomandi vilja ólmir kenna við jafnrétti fremur en hitt."
Meira
Minningargreinar
9. ágúst 2014
| Minningargreinar
| 1742 orð
| 1 mynd
Gestheiður Guðrún Stefánsdóttir fæddist í Ólafsvík 21. desember 1926. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri í Ólafsvík aðfaranótt 1. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Svanborg María Jónsdóttir, f. 14. júní 1891, d. 4.
MeiraKaupa minningabók
9. ágúst 2014
| Minningargreinar
| 2045 orð
| 1 mynd
Guðrún M. Kjerúlf fæddist á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal í Norður-Múlasýslu 22. janúar 1923. Hún lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 3. ágúst 2014. Foreldrar Guðrúnar voru þau Metúsalem J. Kjerúlf bóndi, f. á Melum í Fljótsdal 14.1. 1882, d. 12.12.
MeiraKaupa minningabók
9. ágúst 2014
| Minningargreinar
| 2163 orð
| 1 mynd
Helgi Friðþjófsson fæddist í Seljalandsseli, V-Eyjafjöllum, 9. janúar 1946. Hann lést á krabbameinsdeild 11E á Landspítalanum Hringbraut 30. júlí 2014. Foreldrar hans voru Guðbjörg Jónína Helgadóttir, f. 10. október 1928, d. 18.
MeiraKaupa minningabók
9. ágúst 2014
| Minningargreinar
| 4333 orð
| 1 mynd
Runólfur Ingólfsson fæddist í Reykjavík 20. júní 1947. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar 31. júlí 2014. Foreldrar hans voru Ingólfur Hannesson, f. 8. janúar 1924, d. 24. júlí 1990, og Sigríður Sólveig Runólfsdóttir, f. 23.
MeiraKaupa minningabók
9. ágúst 2014
| Minningargreinar
| 1691 orð
| 1 mynd
Tryggvi Jónsson fæddist 11. mars 1925 í húsinu Ekru í Vestmannaeyjum. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 28. júlí 2014. Foreldrar Tryggva voru Jón Tómasson, f. 3.12. 1896, d. 28.9. 1953, og Steinunn Árnadóttir, f. 5.7. 1892, d. 6.9. 1971.
MeiraKaupa minningabók
Hagnaður Allianz, stærsta tryggingafélags í Evrópu, nam 1,76 milljörðum evra á öðrum ársfjórðungi, jafngildi 273 milljarða króna. Hagnaðurinn jókst um 10,5% á milli ára sem er mun meira en greinendur höfðu spáð.
Meira
Hagnaður sjóðstýringarfélagsins Stefnis, sem er í eigu Arion banka, jókst um 42% milli ára. Hagnaðurinn nam alls 1.046 milljónum króna í fyrra samanborið við 736 milljóna króna hagnað árið 2012.
Meira
Júlímánuður var stærsti mánuður í sögu flugfélagsins Primera Air , en félagið flutti 155 þúsund farþega og flaug 1.006 flugferðir í mánuðinum. Sætanýting var 91% í mánuðinum og er um að ræða 14% aukningu frá fyrra ári, að því er segir í tilkynningu.
Meira
9. ágúst 2014
| Viðskiptafréttir
| 414 orð
| 2 myndir
Fréttaskýring Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Sérfræðingahópur Landssamtaka lífeyrissjóða (LL) leggst eindregið gegn því að heimild lífeyrissjóða til að veita bein fasteignaveðlán verði afnumin.
Meira
Undirbúningur fyrir gleðigönguna sem fram fer í dag hefst á vormánuðum og krefst samstarfs fjölda aðila. Gangan er fyrir löngu orðin fastur og fjölsóttur liður í menningarlífi borgarinnar og hefur enn stóru hlutverki að gegna.
Meira
„Við munum horfa yfir Laugardalinn frá holtinu við Áskirkju og þá sjáum við hvað dalurinn hefur þróast mikið og hvað gróskan hefur aukist á undanförnum árum,“ segir Hildur Arna Gunnarsdóttir, verkefnastjóri í Grasagarði Reykjavíkur, um...
Meira
Langar þig að prófa að upplifa hinsegin daga í útlöndum? Þá er vefsíðan www.gaypridecalendar.com eitthvað fyrir þig. Á síðunni er að finna yfirlit yfir Gay Pride-hátíðir víðs vegar um heiminn og ýmsa aðra hinsegin viðburði.
Meira
Dagana 15.-24. ágúst verður bæjar- og menningarhátíðin Ormsteiti haldin í Fljótsdalshéraði. Hátíðin verður einkar glæsileg í ár þar sem sérstaklega verður haldið upp á 40 ára afmæli íþróttafélagsins Hattar með fjölskylduviðburði á Vilhjálmsvelli 16.
Meira
Harpa á Hjarðarfelli sendi mér þessar vísnagátur: Fylgispakur félaginn. Forhertur og ósvífinn. Stundum líka birtu ber. Börn við spilin dunda sér. Húsdýrið fær lof og last, lifir annað trjánum í. Beitir nöglum býsna fast. Byrðin hangir neðan í. Helgi R.
Meira
Það er ekki oft sem fimm ættliðir koma saman. Það tilefni gafst við skírn Karítasar Guðmundsdóttur , f. 16. mars 2014. Nokkur aldursmunur er á yngsta ættliðnum og þeim elsta eða um 94 ár. Á myndinni eru (efri röð) Berglind Brynjarsdóttir , f.
Meira
Íslensku liðin sem tefla á ólympíumótinu í Tromsö í Noregi hafa bæði hlotið sex stig, karlasveitin er með 14 vinninga sem er 70% vinningshlutfall; í sjálfu sér ágætt en þó ber að hafa í huga íslenska sveitin hefur mætt tveim frekar slökum sveitum.
Meira
Sé e-ð við lýði tíðkast það, viðgengst. Hefðin hefur lýði með ý -i þótt lítið vit sé talið í því. Um orðtakið að halda e-u við lýði : halda e-u óbreyttu, segir í Merg málsins að það sé líklega rangþýðing úr dönsku: holde (ngt.) ved lige (viðhalda...
Meira
Mireya fæddist í Reykjavík 9.8. 1964 en ólst upp í Kópavogi: „Við áttum heima í sveitabænum Lundi í Kópavogi þar til ég var sjö ára en þá fluttum við vestarlega á Kársnesið, Kópavogsmegin.
Meira
Eggert Theodór Þórðarson Jónassen fæddist í Reykjavík 9.8. 1838. Foreldrar hans voru Þórður Jónasson, amtmaður, háyfirdómari og alþingismaður, og k.h., Dorothea Sophia Rasmusdóttir, f. Lynge húsfreyja.
Meira
Laugardagur 108 ára Guðrún Jónsdóttir 95 ára Guðrún Magnúsdóttir 90 ára Jón Kristjánsson 85 ára Búi Snæbjörnsson Guðmunda Ágústsdóttir Hörður R. Hjartarson Sigríður Eygló Gísladóttir 80 ára Einar Reynir Finnbogason Jóhanna Þorbjörnsdóttir Sigmar H.
Meira
Ógleymanleg verslunarmannahelgi Tvær starfsstúlkur við þjónustumiðstöð aldraðra að Dalbraut 27 í Reykjavík, þær Olga Helgadóttir og Hulda Bjarnadóttir, sem báðar eru að læra ljósmyndun, gengu á milli íbúða þar vikuna fyrir verslunarmannahelgina og fengu...
Meira
Víkverja þykir alltaf jafn gaman að ganga upp á Esjuna. Hann hefur farið nokkrar ferðir þangað upp á síðkastið í sumarblíðunni. Slíkt þykir ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að meirihluti garpanna sem þar príla eru erlendir ferðamenn.
Meira
9. ágúst 1851 Þegar fulltrúi konungs sleit Þjóðfundinum, sem staðið hafði í Reykjavík í rúman mánuð, reis Jón Sigurðsson upp og mótmælti því „í nafni konungsins og þjóðarinnar“.
Meira
Enski boltinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnss. thorkell@mbl.is Enski boltinn hefst formlega á morgun með viðureign Englandsmeistara Manchester City og bikarmeistara Arsenal um Samfélagsskjöldinn. En hvað þýðir það að keppt sé um einhvern samfélagsskjöld?
Meira
9. ágúst 1984 Bjarni Friðriksson vinnur til bronsverðlauna í 95 kílóa flokki á Ólympíuleikunum í Los Angeles í Bandaríkjunum. Bjarni var hársbreidd frá því að komast í gullglímuna. Hann vann svo Ítalann Yuri Fazi í bronsglímunni.
Meira
Stjörnumenn bíða nú á milli vonar og ótta eftir því að vita hvers eðlis hnémeiðslin eru sem fyrirliði þeirra, Michael Præst, varð fyrir í leiknum við Lech Poznan í forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í fyrrakvöld.
Meira
Tólftu umferð Pepsi-deildar kvenna lauk í gærkvöld með stórsigri Breiðabliks á FH, 6:1, í Kaplakrika. Aldís Kara Lúðvíksdóttir fór á kostum í liði Blika og skoraði þrennu.
Meira
Handbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Hverju er maður stoltastur af sem Íslendingur? Jú, ætli það sé ekki helst náttúran okkar, kannski Laxness og Sigur Rós, en ekki hvað síst handknattleiksþjálfararnir okkar.
Meira
Körfubolti Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Íslenska landsliðið í körfuknattleik leikur sinn fyrsta leik á morgun í undankeppni Evrópumótsins þegar liðið tekur á móti Bretum kl. 19.00 í Laugardalshöll.
Meira
Stjarnan og íslenskir knattspyrnuáhugamenn lentu svo sannarlega í lukkupottinum í gær þegar Stjarnan dróst gegn ítalska stórliðinu Inter Mílanó í lokaumferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu.
Meira
Jón Margeir Sverrisson úr Fjölni varð í gær Evrópumeistari í 200 metra skriðsundi í S14, fötlunarflokki þroskahamlaðra, þegar hann synti á nýju Evrópumeti og um leið Íslandsmeti, 1:58,60 mín.
Meira
Það er fátt sem stöðvar Norður-Írann Rory McIlroy á golfvellinum þessa dagana, en þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi hafði hann tveggja högga forystu á PGA-meistaramótinu sem haldið er á Valhalla-vellinum í Kentucky í Bandaríkjunum.
Meira
Stjarnan og íslenskir knattspyrnuáhugamenn duttu í lukkupottinn í gær þegar Garðabæjarliðið dróst gegn Inter Mílanó í 4. umferð Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu.
Meira
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, kynnti í gær sérstaka mótsmiða sem verða til sölu fyrir heimaleiki Íslands í undankeppni Evrópumóts karlalandsliða í knattspyrnu 2016. Hægt verður að velja um að kaupa miða í 3 mismunandi svæði og kostar 10.000 kr., 15.
Meira
Inter Mílanó Þorkell Gunnar Sigurbjörnss. thorkell@mbl.is Ítalska knattspyrnufélagið Internazionale frá Mílanó á Ítalíu sem verður andstæðingur Stjörnunnar úr Garðabæ í 4.
Meira
Í Laugardal Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is ÍR hefur forystu að loknum fyrri keppnisdegi bikarkeppninnar í frjálsíþróttum sem hófst á Laugardalsvelli í gær. Fimm lið keppa í 37 greinum og var keppt í 19 greinum í gærkvöld.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.