Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Reynir Traustason, ritstjóri DV, þurfti að lúta í lægra haldi á aðalfundi DV ehf. sem fram fór í annað sinn á Hótel Natura í gær eftir að fundinum hafði verið frestað um viku vegna ágreinings um ársreikninga.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Umræðan um Breiðholtið hefur lengi verið frekar neikvæð og því er þetta það besta sem gat gerst með hagsmuni hverfisins í huga og það heldur flaggi þess hátt á lofti.
Meira
Nú er kominn réttarhugur í fólk í sveitum landsins, enda haustið sá tími sem farið er á fjall og fénu safnað í réttir. Þá er gjarnan mikil gleði, söngur og heilmikill hamagangur sem fylgir því að draga fé í dilka.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Enn eru töluverðar líkur á því að gossprungan í Holuhrauni teygi sig alla leið undir Dyngjujökul. Það ætti þó ekki að valda hamfarahlaupi eins og málin standa nú, að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar jarðeðlisfræðings.
Meira
Anna Marsibil Clausen annamarsy@mbl.is Kynbundinn launamunur hefur minnkað um þrjú prósentustig milli ára að því er fram kemur í kjarakönnun Bandalags háskólamanna fyrir árið 2013.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Verðið hefur mjakast upp á við og það er sjaldgæft að fá svo ferskan túnfisk úr Norður-Atlantshafinu inn á markaðinn á svona skömmum tíma,“ segir Eyþór Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Icelandic Asia.
Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um 350 grömm af marijúana, tæplega 100 e-töflur og lítilræði af amfetamíni við húsleit í þremur fjölbýlishúsum og einni bifreið í Hafnarfirði í fyrradag.
Meira
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir líkur á að fjármálafyrirtæki fari á ný að ráða til sín starfsfólk Fjármálaeftirlitsins samtímis uppgangi í efnahagslífinu. Því sé m.a.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ekki þarf mikið til að gos hefjist undir Dyngjujökli. Verði það af sambærilegum krafti og gosið í Holuhrauni myndi það hins vegar ekki kalla á hamfarahlaup í Jökulsá á Fjöllum.
Meira
Norðurheimskautsbaugshlaup TVG Zimsen verður haldið í Grímsey í dag. Er þetta í þriðja skipti sem hlaupið er haldið þar. Fram kemur í tilkynningu að þetta sé nyrsta almenningshlaup á Íslandi, þar sem m.a. sé hlaupið yfir norðurheimskautsbauginn.
Meira
Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal í Reykjavík í dag, 6. september, milli kl 14 og 16. Býflugnabændur kynna þar býflugnarækt og koma með sýnishorn af uppskeru sumarsins.
Meira
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segist hafa á tilfinningunni að andinn á spítalanum sé á uppleið, þó að mörg verkefni séu óleyst. Þetta kemur fram í forstjórapistli á vefsíðu Landspítalans í gær.
Meira
Við skriðjökul á Grænlandi Nokkrir hraustir félagar skelltu sér út í einnar gráðu heitan sjóinn daglega í vikuferð með Norðursiglingu kringum Milne-eyju við Scoresbysundsfjörð, en hann er lengsti fjörður í heimi.
Meira
Um tuttugu björgunarsveitarmenn úr björgunarsveitum í Árnessýslu tóku þátt í björgunaraðgerð síðdegis í gær þegar erlend kona slasaðist á fæti í Klambragili, sem er ofarlega í Reykjadal.
Meira
Rúmlega helmingur svarenda kjarakönnunar BHM telur greiðslur af námslánum vera íþyngjandi eða verulega íþyngjandi. Af þeim 87% svarenda sem höfðu tekið námslán eru 57% enn að greiða af lánunum.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ákvörðun dagskrárstjóra Rásar 1 hjá ríksútvarpinu þess efnis að færa síðasta lag fyrir hádegisfréttir fram fyrir auglýsingar hefur víða fallið í grýttan jarðveg.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í gærmorgun að fjármálaráðherra beiti sér fyrir því að Hafrannsóknastofnun fái aukið fjármagn svo hægt verði að fara í loðnurannsóknir í haust.
Meira
Stangveiði Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þegar veðurguðirnir hrærðu upp í ánni þá fóru hlutirnir í gang,“ segir Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár í Húnaþingi.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Frá og með næstu viku munu þeir gestir Alþingis sem vilja fylgjast með þingfundum þurfa að ganga í gegnum málmleitarhlið áþekkt þeim sem fyrirfinnast á flugstöðvum.
Meira
Sunna Sæmundsdóttir sunnas@mbl.is Hagnaður Samherja nam 22 milljörðum króna árið 2013 og er um bestu afkomu í sögu samstæðunnar að ræða. Umtalsverður söluhagnaður bætir afkomuna og nemur hann 8,1 milljarði króna.
Meira
Baksvið Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Minkurinn er duglegt dýr og hefur mikla aðlögunarhæfni. Hann étur allt sem að kjafti kemur, fisk,fugl, lítil spendýr og hryggleysingja.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Bandaríkjastjórn hvatti í gær NATO-ríki til að taka höndum saman í baráttunni gegn samtökum íslamista, Ríki íslams, sem hafa náð stórum svæðum í Írak og Sýrlandi á sitt vald.
Meira
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Fjöldi einstaklinga hefur fengið póst, sem skráður er á nafni Símans, þess efnis að von sé á endurgreiðslu vegna ofgreiddra reikninga.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leiðtogar ríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu í gær að koma á fót hraðliði sem hægt væri að beita ef ráðist verður á aðildarríki bandalagsins í austanverðri Evrópu eða ef hætta er talin á árás.
Meira
Líklegt er að Vladimír Pútín Rússlandsforseti veltist um af hlátri yfir niðurstöðu leiðtogafundar NATO í Wales og áformum bandalagsins um að koma á fót 4.
Meira
Steypuframkvæmdir hefjast í vikunni við nýtt 1650 fermetra fiskverkunarhús í Sandgerði. Verslunarfélagið Ábót stendur að framkvæmdunum í samstarfi við fyrirtækið Whitelink Seafood í Skotlandi.
Meira
Ýmsir lausamunir ríkisstofnana verða hér eftir seldir í gegnum söluvefinn bland.is. Ríkiskaup hafa gert samkomulag við vefinn um að hann taki að sér sölu slíkra muna fyrir ríkið í tilraunaskyni.
Meira
Íslensk stjórnvöld ætla að auka framlög sín og þátttöku í Atlantshafsbandalaginu (NATO). Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra lýsti þessu yfir á fundi aðildarríkja hernaðarbandalagsins í Wales í gær.
Meira
Capacent Gallup gerði könnun fyrir samtök sem kalla sig Já Ísland en ættu með réttu að heita Já ESB eða jafnvel Nei Ísland. Í könnuninni kom fram, eins og fyrr, að meirihluti Íslendinga, 55%, mundi hafna aðild að ESB yrði hann spurður.
Meira
Gamanleikkonan Joan Rivers var sannarlega einstök með sinn eitursnjalla húmor sem fór svo innilega í taugarnar á fólki sem aðhyllist pólitískan rétttrúnað.
Meira
Gagnvirkur veggur nefnist sýning listamannanna Mojoko og Shang Liang sem opnuð verður í Hafnarhúsinu í dag kl. 16. Á sýningunni má sjá gagnvirkt listaverk sem samsett er úr 200 myndum frá popplist og dægurmenningu Asíu og Vesturlanda.
Meira
KK, Pétur Ben, Ragnheiður Gröndal og Júníus Meyvant koma fram á tónleikum um helgina í Rokksafni Íslands í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ og eru tónleikarnir liður í bæjarhátíðinni Ljósanótt. Júníus hefur leik í dag kl. 16 og Pétur Ben kl. 17. Á morgun...
Meira
Söngkonan og lagasmiðurinn Jónína Aradóttir heldur tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20. Jónína er sveitastelpa, uppalin á Hofi í Öræfasveit og sækir oft þangað innblástur fyrir tónlist sína, segir í tilkynningu.
Meira
Leikstjórn: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson. Handrit: Huldar Breiðfjörð. Aðalhlutverk: Björn Thors, Helgi Björnsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Sigurður Skúlason, Jón Páll Eyjólfsson og Haki Lorenzen. 98 mínútur. Ísland, 2014.
Meira
Rúmlega tuttugu þúsund gestir hafa lagt leið sína í Ljósmyndasafn Reykjavíkur, á 6. hæð Grófarhússins, til að skoða yfirlitssýningu á verkum ljósmyndarans Ragnars Axelssonar, Rax, sem nefnist „Spegill lífsins“.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Gríðarstór veggmynd Errós á endavegg fjölbýlishúss við Álftahóla í Breiðholti verður afhjúpuð formlega í dag, laugardag klukkan 14.
Meira
Eftir Ragnar Stefánsson: "Frá því farið var að sinna jarðskjálftafræði sem vísindagrein í upphafi síðustu aldar, hefur það verið draumur vísindamanna að geta spáð fyrir um hættulega jarðskjálfta."
Meira
Yfirskrift þessa pistils er samhljóða greinaflokki sem Morgunblaðið hefur fallist á að birta eftir mig. Þetta verða 12 greinar sem væntanlega birtast á hverjum laugardegi á næstunni.
Meira
Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson: "...unnið í umsóknum hjá Ríkisskattstjóra og gert er ráð fyrir að fyrstu niðurstöður um heildarumfang Leiðréttingarinnar verði ljósar í október. Áætlað er að hægt sé að vinna auðveldlega úr stórum hluta þeirra umsókna sem borist hafa."
Meira
Eru eldgos og erlendar stríðsfréttir það eina sem fólk vill sjá? Því ekki að gefa fólki jákvæðar fréttir af því sem konur eru að gera á landsbyggðinni. Inga Þyri...
Meira
Mér er spurn: Á að neyða upp á okkur, dygga hlustendur Rásar 1, þessum óþolandi, hundleiðinlegu, amerískættuðu, leiknu auglýsingum af Rás 2 með hverjum fréttatíma, eins og gerðist á fimmtudaginn?
Meira
Hinn 26. ágúst síðastliðinn efndi Norræna ráðherranefndin til hátíðarráðstefnu í Hörpu í tilefni 40 ára samstarfsafmælis Norðurlandanna á sviði jafnréttismála.
Meira
Einn samkennari minn, dr. Baldur Þórhallsson prófessor, sem er sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum, hefur í röð ritgerða í virtum, erlendum tímaritum sett fram þá kenningu, að smáríki eins og Ísland þurfi skjól.
Meira
Ef ég yrði spurð hvaða orð íslenskrar tungu væri mér hugstæðast myndi ég hiklaust nefna orðið kímnigáfa. Þá sjaldan að það orð ber fyrir eyru kemst ég ævinlega í gott skap.
Meira
Í óveðrinu síðastliðinn sunnudag hefur fínasta dúnúlpa fokið frá eiganda sínum. Hún fannst við Salon Veh í Kringlunni 7, Húsi verslunarinnar, og bíður þar eiganda síns....
Meira
Guðfinnur Steinar Eyjólfsson fæddist á Selfossi 14. mars 1961. Hann lést 27. ágúst 2014 á Landspítalanum. Guðfinnur var sonur hjónanna Eyjólfs Óskars Eyjólfssonar, varðstjóra á Litla-Hrauni, f. 1.7. 1928, d. 4.3.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Pétur Jónsson fæddist í Reykjavík 19. mars 1963. Hann lést á Selfossi 28. ágúst 2014. Guðmundur Pétur var sonur hjónanna Sigríðar J. Guðmundsdóttur, f. 19.10. 1942 á Hofsósi, og Jóns Péturssonar rafeindavirkja, f. 4.11. 1936 í Reykjavík.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Björk Bjarnadóttir fæddist á Húsavík 2. september 1933. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Bjarni Steingrímsson, f. 24. desember 1902, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Jóna Sveinsdóttir fæddist í Vík í Mýrdal 9. apríl 1926. Hún lést hin 27. ágúst 2014. Foreldrar hennar voru Sveinn Jónsson frá Reynishólum, f. 4. mars 1892, d. 6. mars 1941, og kona hans Sólveig S. Magnúsdóttir frá Fagradal, f. 4. mars 1900, d.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Blöndal fæddist 3. nóvember 1924 í Mjóanesi á Völlum. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 26. ágúst 2014. Sigurður var sonur Sigrúnar P. Blöndal, skólastýru Húsmæðraskólans á Hallormsstað, og Benedikts G. Blöndal, kennara og bónda.
MeiraKaupa minningabók
Theodór Guðmundsson, Teddi, fæddist 2.9. 1933. Hann lést 30.8. 2014. Foreldrar Pálína Jónsdóttir frá Úlfarsfelli, f. 14.1. 1900, d. 25.3. 1944, og Guðmundur Magnús Jónsson frá Purkey, f. 10.7. 1893, d. 24.3. 1975.
MeiraKaupa minningabók
Viðtal Hörður Ægisson hordur@mbl.is Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við því að samhliða uppgangi í íslensku efnahagslífi séu auknar líkur á því að fjármálafyrirtæki fari á ný að falast eftir kröftum starfsfólks Fjármálaeftirlitsins (FME).
Meira
Ekkert gjaldeyrisútboð hefur enn verið boðað hjá Seðlabanka Íslands og er það í fyrsta skipti frá því að útboðin hófust í júnímánuði 2011. Stefán Jóhann Stefánsson, upplýsingafulltrúi Seðlabankans, sagði í samtali við mbl.
Meira
Í gær hófst húðflúrhátíðin Icelandic Tattoo Expo og stendur hún til sunnudags. Hátíðin er haldin á Hótel Sögu eins og síðustu ár. Alls taka 56 flúrlistamenn þátt og koma þeir víðsvegar að úr heiminum.
Meira
Á morgun, sunnudaginn 7. september, klukkan 14 verður fyrsta barnaleiðsögn haustins í Þjóðminjasafninu. Fyrsta sunnudag hvers mánaðar yfir vetrartímann er boðið upp á slíka leiðsögn sem sérstaklega er ætluð börnum.
Meira
Það telst óvenjulegt að fólk muni eftir fyrstu árum ævi sinnar. Lilja Sólveig Kristjánsdóttir er 91 árs og er með einstaklega gott minni og man allt að 89 ár aftur í tímann.
Meira
Samstarfsverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og Samtaka kvenna af erlendum uppruna kallast Söguhringur kvenna. Á morgun, sunnudag klukkan 13.30, hefst starfsemi hans á ný eftir sumarfrí og er óhætt að segja að dagskráin sé fjölbreytt.
Meira
Sigurður Kjartan fæddist í Keflavík 6.9. 1964 og ólst þar upp. Hann bjó í Garðinum 1989-2002 en þá flutti hann ásamt fjölskyldu sinni aftur til Keflavíkur og hefur átt þar heima síðan.
Meira
Sérfræðingar ýmsir reyna nú að finna sambærileg dæmi við það sem gerst hefur á „ofurmótinu“ í Saint Louis í Bandaríkjunum þar sem Ítalinn Fabiano Caruana, sigurvegari Reykjavíkurskákmótsins 2012, hefur unnið allar skákir sínar í sjö fyrstu...
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Glysgjarn hrafninn er þyrnir í augum starfsmanna Vegagerðarinnar í Búðardal. Á undanförnum árum hefur verið talsvert um að krunkandi krummar setjist á stikur í vegköntum og kroppi af þeim endurskinsmerkin.
Meira
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Þetta hlýtur að vera með lengri nöfnum á íþróttafélagi, enda er heiti Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga gjarnan stytt í UDN.
Meira
Garður Emma Karen Ómarsdóttir fæddist 27. október kl. 1.45. Hún vó 3.065 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðrún Freyja Agnarsdóttir og Ómar Kári Eyjólfsson...
Meira
„Við fundum húsið í fjöru, féllum fyrir því og ákváðum að gera upp,“ segir Steingerður Jóhannsdóttir, sem ásamt Árna Emanúelssyni, eiginmanni sínum, gerði upp gamalt íshús í Krossavík á Snæfellsnesi, rétt við Þjóðgarðinn Snæfellsnes.
Meira
Síðasta vísnagáta var eftir karlinn á Laugaveginum: Landnáms- bjó til -lag úr ösku. Laus í kjölfar þess er eldur. Vel það geymist glers í flösku. Græna sápan oft því veldur. Helgi R.
Meira
Magnús fæddist á Torfmýri í Akrahreppi 7.9. 1919. Foreldrar hans voru Jón Eyþór Jónasson, bóndi þar og á Mel í Staðarhreppi, og k.h., Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja. Bróðir Jóns var Einar, hreppstjóri og oddviti að Laugalandi á Þelamörk.
Meira
Nafnorðið rak getur þýtt heydreifar, kertiskveikur og vökvi. En röksemd getur það ekki þýtt. Til þess höfum við rök , orð sem aðeins tíðkast í fleirtölu. „Eitt af meginrökum málsins er o.s.frv.“ á að vera: Ein af meginrökum málsins eru o.s.
Meira
Ægir sjávarfang í Grindavík, áður Ice-West, hefur vaxið hratt frá því að hjónin Ingvar Vilhjálmsson og Helga María Garðarsdóttir keyptu fyirtækið fyrir tæpum þremur árum.
Meira
Viðtal Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Mörg sóknarfæri eru í samvinnu á milli sveitarfélaga og atvinnulífs á Snæfellsnesi til þess að gera svæðið að vænlegri kosti fyrir ungt fólk og bæta lífsgæði íbúa þess.
Meira
90 ára Ingibjörg Jóhannsdóttir 85 ára Ásdís Helgadóttir 80 ára Elín Lúðvíksdóttir Jóhanna Jónsdóttir Karl Adolf Ágústsson 75 ára Anna Þorkelsdóttir Dóra Hervarsdóttir Guðni Þórðarson Jóhannes Sigurjónsson Magnús Pálsson Sigríður Skaftadóttir 70 ára Elín...
Meira
Nú er Víkverji dottinn í tísku. Hvern hefði grunað það? Ekki er þessi skyndilega upphafning í tískuheiminum vegna einstakra hæfileika til að velja sér föt og klæðast þeim á smekklegan hátt. Neibb. Heldur er ástæðan genalegs eðlis.
Meira
6. september 1944 Annar burðarstrengur Ölfusárbrúar slitnaði. Tveir bílar féllu í ána en bílstjórarnir björguðust, annar eftir að hafa borist tólf hundruð metra með straumþunganum. 6. september 1952 Iðnsýning var opnuð í Reykjavík.
Meira
Þrjár duglegar stelpur úr Háaleitishverfi bjuggu til teygjuarmbönd og seldu. Ágóðinn af sölunni rann til Rauða krossins, alls kr. 4.680. Stelpurnar heita Ísbjörg Elín Níelsen , Freyja Rán Káradóttir og Elisabeth Emma Jónsdóttir...
Meira
Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson átti skínandi leik fyrir þýska meistaraliðið Kiel þegar liðið fagnaði útisigri gegn Wetzlar, 32:29, í fyrsta leik 5. umferðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld.
Meira
6. september 1960 Vilhjálmur Einarsson hafnar í 5. sæti í þrístökkskeppninni á Ólympíuleikunum í Róm eftir að hafa verið í baráttu um að komast á verðlaunapall á öðrum leikunum í röð.
Meira
Undankeppni EM Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu á fyrir höndum gríðarlega erfiðan leik þegar undankeppni EM hefst næsta þriðjudagskvöld með heimsókn Tyrkja í Laugardalinn.
Meira
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson endaði í áttunda sæti á Willis Masters-mótinu í Danmörku í gær en það er hluti af Nordea-atvinnumótaröðinni.
Meira
Handbolti Þorkell Gunnar Sigurbjörnss. thorkell@mbl.is Handboltavertíðin fer smám saman á fulla ferð. Blásið verður til leiks í úrvalsdeild Íslandsmóts karla 18. september, en leiktíðin hjá bikarmeisturum Hauka er þegar komin á fullt.
Meira
Frjálsar Þorkell Gunnar Sigurbjörnss. thorkell@mbl.is Það kemur í ljós á morgun hver verður næsti formaður Frjálsíþróttasambands Íslands, en þing FRÍ verður sett á Akureyri í dag, og stjórn verður kosin á morgun klukkan 14.00.
Meira
Fréttaskýring Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Knattspyrnuáhugamenn fá á næstu dögum forsmekkinn að því hvernig hin nýja „fótboltavika“ UEFA mun verða í haust og næstu misserin.
Meira
Mikkel Hansen stórskytta danska landsliðsins í handknattleik vill hampa heimsmeistaratitlinum í Katar í janúar en Guðmundur Þórður Guðmundsson mun þá stýra danska landsliðinu í fyrsta skipti á stórmóti.
Meira
Ragnarsmót karla Afturelding – Grótta 26:29 Selfoss – HK 27:33 Subway-mót kvenna Grótta – HK 23:20 Fram – FH 27:9 Opna norðlenska karla Fram – ÍR 23:34 Danmörk A-deild karla: Lemvig – Midtjylland 27:32 • Vignir...
Meira
S igurður Egill Lárusson úr Val hefur verið kallaður inn í U21 árs landsliðshópinn í knattspyrnu sem mætir Frökkum í lokaleik sínum í undankeppni EM í Frakklandi á mánudaginn.
Meira
Bandaríski spretthlauparinn Justin Gatlin gerði það heldur betur gott á Demantamótinu í frjálsum íþróttum í Brüssel í Belgíu í gærkvöld. Gatlin fagnaði fyrst sigri í 100 metra hlaupi þegar hann kom í mark á besta tíma ársins, 9,77 sekúndum.
Meira
Það var gaman að vera viðstaddur þegar Leiknismenn tryggðu sér sæti í efstu deild karla í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögu félagsins á Leiknisvellinum eða Ghetto ground í fyrrakvöld.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.