Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Orðið hafa 1.374 banaslys í umferðinni frá upphafi bílaaldar, eða í tæp 100 ár, og í þeim hafa látist 1.502 einstaklingar. Þetta má lesa úr banaslysaskrá sem Óli H.
Meira
Um 160 umsókn-ir bárust Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um störf slökkviliðs- og sjúkraflutn-ingamanna sem auglýst voru ný-lega. Tæplega þrjátíu konur sóttu um en ráðið verður í sextán störf. Tæplega 100 umsækjendur stóðust menntunarkröfur, þ.e.
Meira
Loðnuskipin voru í gær dreifð allt frá mynni Eyjafjarðar og austur á Héraðsflóadýpi, nótaskipin vestar, trollskipin austar. Spáð var brælu á miðunum og síðdegis í gær var farið að hvessa og rífa upp sjó.
Meira
Tæplega 800 fleiri íslenskir ríkisborgarar fluttu frá landinu í fyrra en fluttu þá til landsins. Það eru mikil umskipti frá árinu 2013 þegar brottfluttir umfram aðflutta voru aðeins 36.
Meira
Sviðsljós Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Talsverður munur er á því hvernig stelpur og strákar í efstu bekkjum grunnskóla meta líðan sína.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fimm dómar féllu fyrir EFTA-dómstólnum í Lúxemborg í gær þar sem íslenska ríkið er dæmt til að greiða málskostnað vegna þess að gerðir voru ekki innleiddar á Íslandi í samræmi við EES-samninginn.
Meira
Salahverfið í Kópavogi og næstu svæði eru eins og lítil þorp úti á landi. Þetta segir íbúi sem hefur átt heima þar frá upphafi byggðar-innar og lætur vel af umhverfi og þjónustu. Um tólf þúsund manns búa nú í nýju hverfunum í bænum ofan...
Meira
Allir sem hafa farið inn á Facebook eftir 1. janúar s.l. hafa veitt fyrirtækinu leyfi til að safna upplýsingum af öllum tækjum sem notuð eru til að fara inn á samskiptamiðilinn.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Starfið hjá okkur miðar að því að börnin nái sem fyrst tökum á íslenskunni, sem verður þeirra annað tungumál.
Meira
Ástvaldur Einar Jónsson frisbígolfspilari æfði íþróttina á Klambratúni í gær. Þar eru níu brautir og leikurinn gengur líkt og hefðbundið golf. Í staðinn fyrir holur eru körfur og frisbídiskar í stað golfbolta.
Meira
Flensan er komin af stað og breiðist út í samfélaginu. Þeim fjölgar hratt sem greinast með inflúensulík einkenni milli vikna, samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis. Þessar upplýsingar eru byggðar á tilkynningum frá heilsugæslustöðvum landsins.
Meira
Stjórnvöld í Jórdaníu buðu í gær að þau myndu láta liðsmann Ríkis íslams úr haldi í skiptum fyrir jórdanskan flugmann sem nú er í haldi hryðjuverkasamtakanna.
Meira
Menningarhúsin í Kópavogi standa flest á sama bletti við Hamraborg. Er stundum talað um svæðið sem menningartorfuna. Þarna eru Gerðarsafn, Salurinn, Bókasafn Kópavogs, Náttúrufræðistofan og Tónlistarsafn Íslands.
Meira
Skortur á mannafla í íslenska stjórnkerfinu er ástæða þess að gerðir hafa ekki verið innleiddar á Íslandi í samræmi við EES-samninginn, að mati Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mikill kraftur var í kríuvarpinu við Tjörnina í fyrra, þriðja árið í röð. Í fyrsta skipti um árabil sáust ársgamlar kríur með varpfuglunum sem bendir til þess að kríuvarpið sé að hjarna við. Kríuungar komust á legg og 25.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ráðherrar frá Svíþjóð, Finnlandi og Noregi sammæltust um það á norðurslóðaráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsö í síðustu viku að samræma regluverk á ýmsum sviðum.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fjöldi norskra loðnuskipa hefur síðustu daga landað á Fáskrúðsfirði og Eskifirði og fyrr á vertíðinni komu nokkur þeirra til Neskaupstaðar.
Meira
Ruben Benitez, yfirmaður öryggisgæslu Albertos Nismans, saksóknarans í Argentínu sem fannst látinn nokkrum klukkustundum áður en hann ætlaði að ásaka forseta landsins um að hylma yfir með írönskum leyniþjónustumönnum, hefur verið leystur frá störfum.
Meira
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Mér finnst líklegra að við leggjum það til að fara blandaða leið sem inniheldur þá bæði krónutölu- og prósentuhækkanir,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR.
Meira
Sigurður Haraldsson, yfirmatreiðslumeistari á Grillinu, varð í 8. sæti í matreiðslukeppninni Bocuse d'Or sem lauk í Lyon í Frakklandi í gær. Lokakeppnin hófst í fyrradag. Bocuse d'Or er talin vera virtasta matreiðslukeppni heimsins.
Meira
Krunkað utan í Esjunni Þegar snjóar og kólnar eiga fuglarnir erfiðara með að finna æti. Hrafnarnir í grennd við Esjuna í gær voru ekki sáttir með gang mála og létu vel í sér...
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Lögmannafélag Íslands (LMFÍ) sér tormerki á því að Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. (ÚK) geti boðið viðskiptavinum sínum upp á lögfræðiþjónustu líkt og ÚK hefur í hyggju.
Meira
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra er með það til skoðunar í iðnaðarráðuneytinu að láta semja lagafrumvarp, sem muni m.a. að vissu marki grynnka á skuldum Helguvíkurhafnar, með ákveðinni aðkomu hins opinbera að uppbyggingunni í Helguvík.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna ritaði sveitarstjórnum, bæjarstjórnum og borgarstjórn Reykjavíkur á svæðinu frá Borgarbyggð til Reykjanesbæjar bréf eftir fund stjórnar Faxaflóahafnar 9. janúar sl.
Meira
Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslands í skák, var sæmdur heiðursborgaratitli Reykjavíkurborgar í Höfða í gær og afhenti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri honum skjal þess efnis fyrir hönd borgarinnar.
Meira
Í Kópavogi búa rúmlega 32 þúsund manns. Bærinn, sem er næstfjölmennasta sveitarfélag landsins, liggur sunnan við Reykjavík og norðan við Garðabæ og á jafnframt landsvæði á Sandskeiðum og Húsafellsbruna.
Meira
Mortdecai Listaverkasalinn Charles Mortdecai leitar að stolnu málverki sem tengist týndum bankareikningi sem á að vera stútfullur af gulli frá nasistum. IMDB 5,6/10 Laugarásbíó 20.00, 22.15 Smárabíó 20.00, 22.25, 22.25 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.
Meira
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Mikill meirihluti þeirra útlendinga, sem búsettir eru á Akureyri, er ánægður með að búa þar. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var við Háskólann á Akureyri.
Meira
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Við viljum setja fram nýja hugsun í dýralæknaþjónustu og höfum sótt um styrk fyrir þróunarverkefni til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins til að hrinda því í framkvæmd. Í því felast m.a.
Meira
Villa í upphafi greinar Fyrsta setningin í minningargrein Droplaugar um Guðnýju Kristíönu Valdimarsdóttur, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, misfórst í meðförum Morgunblaðsins.
Meira
Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Bandaríski fjárfestingabankinn Morgan Stanley hefur lagt fram tilboð í kröfur á þrotabú Sparisjóðabankans (SPB), áður Icebank, að nafnvirði um 55 milljarðar króna.
Meira
Einn af öflugustu fulltrúum á núverandi þingi, Vigdís Hauksdóttir, sagði þetta á þeim vettvangi í gær: Einkavæðing háttvirts þingmanns Steingríms J.
Meira
Andlit Breiðholts nefnist sýning sem opnuð verður í Gallerí Tukt í Hinu húsinu í kvöld kl. 20. Þar sýna þær Hrefna Lind og Þorbjörg Ósk, en þær eru báðar úr Breiðholti.
Meira
Ensku sakamálaþættirnir Broadchurch eru einhverjir þeir bestu sem ljósvakarýnir hefur séð í háa herrans tíð og þeir sem kunna að meta vandaða, breska glæpaþætti ættu ekki að láta þá framhjá sér fara.
Meira
Bandaríski grínistinn Gabriel Iglesias verður með uppistand í Hörpu 27. maí nk. Iglesias er vinsæll uppistandari í heimalandi sínu og voru fyrstu tvær sýningar hans gefnar út á mynddiskum sem hafa selst í yfir tveimur milljónum eintaka.
Meira
Verðlaun sænsku kvikmyndaakademíunnar, Guldbaggen, voru afhent 26. janúar sl. og hlaut íslenski leikarinn Sverrir Guðnason verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í kvikmyndinni Flugparken .
Meira
Boðið verður upp á leiðsögn um sýningu á ljósmyndaverkum Hrafnkels Sigurðssonar í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19 í dag kl. 17.15. „Gunnar J.
Meira
Nútímatónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Þrennir tónleikar eru á dagskrá Myrkra músíkdaga í dag. • Kl. 17 í Hörpuhorni.
Meira
Leikstjóri: Morten Tyldum. Handrit: Graham Moore. Aðalhlutverk: Benedict Cumberbatch, Keira Knightley, Matthew Goode, Mark Strong, Charles Dance, Allen Leech, Matthew Beard, Rory Kinnear. Bandaríkin 2014, 114 mínútur.
Meira
Myndlistarsýningin Transland verður opnuð í Artóteki Borgar-bókasafnsins við Tryggvagötu í dag kl. 17. Á henni sýnir Hulda Vilhjálmsdóttir olíumálverk, teikningar og myndband.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Listamenn af minni kynslóð, bæði tónlistarmenn og gamanleikarar, eru búnir að halda upp á afmæli sín að undanförnu með tónleikum og leiksýningum.
Meira
Eftir Friðþór Eydal: "Samráðshópnum tókst ekki að komast að niðurstöðu um áhættu af breytingunni þar sem hagsmunaaðilar vefengdu nú þau ýtarlegu gögn sem lögð höfðu verið fram."
Meira
Eftir Jón Hjaltason: "Skopmyndateikningar sem hafa þann eina tilgang að gera grín að, hía á og leggja í einelti hafa ekkert með tjáningarfrelsi að gera."
Meira
Verðmæti innflutts grænmetis og berja sem hægt væri að framleiða á Íslandi með tiltölulega einföldum hætti er metið á 2,1 til 2,4 milljarða króna árin 2012 og 2013. Þetta segir Bjarni Jónsson, fv. framkvæmdastjóri Samtaka garðyrkjubænda.
Meira
Þegar vel tekst til geymir skáldskapur í sér meiri og dýpri sannleika um mannlegt líf en nokkurt annað fyrirbæri sem á sér einhverja stoð í raunveruleikanum.
Meira
Eftir Þórarin Hjartarson: "Um nýjar aðferðir í vestrænni hernaðarstefnu síðustu árin og friðarhreyfinguna sem horfir lömuð á nýju stríðin, m.a. SHA á Íslandi"
Meira
Eftir Stefán E. Matthíasson: "Það þykir sem sagt ekki tiltökumál að þeir sem þurfa á þessari þjónustu að halda búi við óviðunandi bráðabirgðalausn í allt að áratug til viðbótar."
Meira
Davíð Stefánsson fæddist á Brunngili í Bitru 24. desember 1933. Hann lést 20. janúar 2015. Hann var sonur hjónanna Guðnýjar Gísladóttur, f. 1906, d. 1993, og Stefáns Ólafs Davíðssonar, f. 1902, d.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Ingibjörg Kristófersdóttir fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 11. september 1921. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík 21. janúar 2015.
MeiraKaupa minningabók
Gunnhallur Sigfreð Antonsson fæddist á Ólafsfirði 23. júlí 1938. Hann lést á heimili sínu í Oxie í úthverfi Malmö 9. janúar 2015. Foreldrar hans voru Arngrímur Anton Benjamínsson, f. 25. júní 1909, d. 21. apríl 1972 og Jónína Dagbjört Sæmundsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Ingvar Jónasson fæddist á Ísafirði 13. október 1927 og ólst þar upp. Hann lést 25. desember 2014. Ústför Ingvars fór fram frá Neskirkju 7. janúar 2015.
MeiraKaupa minningabók
Pétur Guðbjörn Sæmundsson fæddist á Árskógsströnd 14. desember 1939. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, HSS, í Keflavík 20. janúar 2015. Hann var sonur hjónanna Sæmundar Benediktssonar, f. 15.6. 1912, d. 14.12.
MeiraKaupa minningabók
Soffía Jónsdóttir fæddist 6. apríl 1921 að Hvammi við Dýrafjörð. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 22. janúar 2015. Foreldrar Soffíu voru JÓN Friðrik Arason skipstjóri og Ingibjörg Kristjánsdóttir húsmóðir.
MeiraKaupa minningabók
Sæmundur Hörður Björnsson flugumsjónarmaður fæddist á Skálum á Langanesi 30. október 1926. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 19. janúar 2015. Foreldrar hans voru Sigurveig Guðrún Sveinsdóttir frá Vestmannaeyjum, f. 10 janúar 1887, d.
MeiraKaupa minningabók
Þóra Ása Guðjohnsen fæddist á Húsavík 17.3. 1930. Hún lést á Landspítalanum 17.1. 2015. Foreldrar Þóru Ásu voru Sveinbjörn Þórðarson Guðjohnsen, sparisjóðsstjóri á Húsavík, f. 14.3. 1873, d. 14.7. 1939 og Guðrún Hallgerður Eyjólfsdóttir Guðjohnsen, f.
MeiraKaupa minningabók
Kaffihúsið Stofan sem er til húsa við Vesturgötu 3 í Reykjavík, þar sem áður var til langs tíma forngripaverslunin Fríða frænka, ætlar að bjóða gestum sínum upp á lifandi tónlist í kvöld kl 21.30.
Meira
Fjarðarkaup Gildir 29. - 31. jan verð nú áður mælie. verð Svínalundir úr kjötborði 1.598 2.398 1.598 kr. kg Svínakótelettur úr kjötborði 1.298 1.598 1.298 kr. kg Lambafille m/fitu 3.998 4.574 3.998 kr. kg KF lambalæri sérverkað frosið 1.279 1.498 1.
Meira
Eigum við okkar eigið líf og megum við gera hvað sem er við það? Hvenær og hver ákveður hvort lífið sé þess virði að lifa því eða ekki? Erum við hluti af sköpunarverki almættisins og er það í þess höndum að ráða för um dauða okkar?
Meira
Ferðafélag Íslands stendur fyrir þremur dagsferðum á gönguskíðum í vetur. Þetta eru miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 – 7 klst, oft í hæðóttu landi og bakpoki þarf ekki að vera þungur.
Meira
Árið 2000, þegar uppbygging í hverfunum ofan Reykjanesbrautar var nýhafin, voru Kópavogsbúar 22.693. Nú, fjórtán árum síðar, eru bæjarbúar skv. nýjustu tölum Hagstofu Íslands 32.308. Þar af búa á áðurnefndu svæði 12.000 manns.
Meira
Þann 31. janúar verður Ásgerður Halldórsdóttir 80 ára. Af því tilefni halda börn hennar afmælisveislu í Oddfellowsalnum í Hafnarfirði, Staðarbergi 2-4 á afmælisdaginn á milli kl. 14 og...
Meira
Akranesi Guðrún Bjarney fæddist 29. janúar 2014 kl. 19.20. Hún vó 3.740 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Hulda Ósk Guðbjörnsdóttir og Gunnar Örn Ólafsson...
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Aldrei hefur komið til álita að fara úr hverfinu, segir Hildur Óskarsdóttir íbúi í Salahverfi í Kópavogi. Hún getur sannarlega ekki mælt fyrir fjöldann allan, en kannski gefur viðhorf hennar vísbendingu.
Meira
Stefán Atli Thoroddsen hefur ásamt félaga sínum, Búa Bjarmari Aðalsteinssyni, verið að undirbúa framleiðslu á orkustykkjum úr skordýrum, nánar tiltekið krybbuhveiti (e. cricket flour).
Meira
60 ára brúðkaupsafmæli eiga í dag, 29. janúar, þau Þórunn Ingibjörg Árnadóttir og Sverrir Hallgrímsson , búsett í Garðabæ. Þau halda upp á daginn með fjölskyldu...
Meira
Guðný Stefánsdóttir Richter fæddist í Reykjavík 29 1. 1907. Foreldrar hennar voru hjónin Vigdís Sæmundsdóttir, frá Brekkubæ í Garði, og Stefán Guðnason, skósmiður og lengi verkstjóri hjá Gatnamálastjóra Reykjavíkur.
Meira
Bæði hefur Íslendingum fjölgað og margt er til skemmtunar, svo að stundum myndast örtröð . Orðið þýðir m.a. bitið og troðið land, flag o.s.frv., en líka þröng , troðningur eða átroðningur . „Örtröð var á staðnum“: hann var troðfullur .
Meira
30 ára Ólöf ólst upp í Baldursheimi í Mývatnssveit, hefur verið þar búsett lengst af, lauk kennaraprófi frá HA og kennir við Reykjahlíðarskóla. Bræður: Pétur Þórir, f. 1988, Bjarni Þór, f. 1992, og Bárður Jón, f. 2005.
Meira
Reykjavík Elena Rut Einisdóttir fæddist 29. janúar 2014 kl. 16.48. Hún vó 4.015 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Einir Einisson og Thelma Rut Grímsdóttir...
Meira
30 ára Rut ólst upp á Akureyri, býr Keflavík, lauk íþróttafræðiprófi frá HR og er frístunda- og forvarnarfulltrúi í Sandgerði. Maki: Helgi Rafn Guðmundsson, f. 1986, íþróttafræðingur og þjálfari í bardagalistum. Börn: Heiða Dís Helgadóttir, f.
Meira
30 ára Siggeir ólst upp í Grindavík, býr þar, lauk BA-prófi í sagnfræði frá HÍ og er upplýsinga- og skjalafulltrúi Grindavíkurbæjar. Maki: Soffía Snædís Sveinsdóttir, f. 1984, viðskiptafræðingur. Dætur: Emilía Snærós, f. 2007, og Þórgunnar Júlía, f.
Meira
Borgarstjórinn í Reykjavík vakti nýlega máls á því, að færa dagskrá vegna þjóðhátíðardagsins 17. júní í ár yfir á 19. júní, svona til þess að minnast þess að hundrað ár verða liðin í ár frá því að allar konur yfir fertugu fengu kosningarétt til...
Meira
29. janúar 1928 Slysavarnafélag Íslands, SVFÍ, var stofnað. Fyrsti forseti þess var Guðmundur Björnsson landlæknir. Haustið 1999 var félagið sameinað Landsbjörg undir nafninu Slysavarnafélagið Landsbjörg. 29.
Meira
Leikmenn og þjálfari Katars hafa aflað sér gríðarhárra tekna með því að komast í undanúrslit á HM, sem er langbesti árangur í sögu handboltaliðs þjóðarinnar.
Meira
C ristiano Ronaldo leikmaður Evrópumeistara Real Madrid slapp með skrekkinn en hann var í gær úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd spænska knattspyrnusambandsins.
Meira
Dönsk félög hafa áhuga á að fá Aron Jóhannsson til liðs við sig en Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður leikmannsins, segir ekki raunhæft að bandaríski lansdsliðsmaðurinn fari frá hollenska liðinu AZ Alkmaar í janúarglugganum.
Meira
Fótbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Elín Metta Jensen, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Vals, mun að öllum líkindum halda út til Bandaríkjanna í háskólanám í byrjun ágúst.
Meira
England Deildabikarinn, undanúrslit, seinni leikur: Sheffield United – Tottenham 2:2 *Totteham vann 3:2 samanlagt og mætir Chelsea í úrslitaleik á Wembley 1. mars.
Meira
Hvar eru stóru strákarnir? Þá á ég við hávaxna leikmenn í karlalandsliðum Íslands í boltagreinunum. Hvað varð um hávaxna leikmenn? Við áttum þá í löngum röðum fyrir aldamót.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Okkar markmið var að allir leikmenn liðsins væru heilir og ómeiddir á þessu móti þannig að mögulegt væri að ná toppárangri og komast í forkeppni Ólympíuleikanna.
Meira
• Dagur Sigurðsson skoraði 9 mörk fyrir íslenska landsliðið í handknattleik þegar það sigraði Pólverja, 33:29, á heimsmeistaramótinu í Portúgal 29. janúar 2003. • Dagur er fæddur árið 1973.
Meira
J ürgen Klopp, þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Borussia Dortmund, er bjartsýnn á að lið hans nái að forðast fall úr deildinni en þegar keppni hefst að nýju eftir vetrarhlé um næstu helgi er Dortmund í næstneðsta sæti deildarinnar.
Meira
Í Keflavík Skúli B. Sigurðsson skulibsig@mbl.is Í gærkvöldi var háður toppslagur úrvalsdeildar kvenna þegar Keflavík tók á móti toppliði Snæfells. 10 stig skildu liðin í hálfleik, 48:38.
Meira
Hamar nýtti sér leikbann Lele Hardy hjá Haukum í gærkvöldi þegar Hafnfirðingar heimsóttu Hvergerðinga í Dominos-deild kvenna en heil umferð var leikin í gærkvöldi. Hamar hafði betur 65:61 og fór liðið upp fyrir KR og upp í 6.
Meira
Ívar Benediktsson ivar@mbl.is Joan Canellas tryggði Spánverjum sæti í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Dönum tveimur sekúndum fyrir leikslok, 25:24, í íþróttahöllinni í Lusail í Katar í gærkvöldi.
Meira
Ólympíu- og Evrópumeistarar Frakka í handknattleik karla eru komnir í gang á heimsmeistaramótinu í Katar og burstuðu í gær Slóvena 32:23 í átta liða úrslitum.
Meira
Skíðaganga Kristján Jónsson kris@mbl.is Brynjar Leó Kristinsson og Sævar Birgisson, landsliðsmenn í skíðagöngu, stefna báðir að keppni á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum sem fram fer í Svíþjóð seinni partinn í febrúar.
Meira
Fulltrúar bankamanna telja ráðlegt að stytta vinnuvikuna um tvær og hálfa klukkustund. Slíkar breytingar þyrftu að hafa annað tveggja í för með sér, að auka framleiðni hvers starfsmanns eða fjölga starfsfólki í bankakerfinu.
Meira
Forritið Tæknivætt fólk er í vaxandi mæli að vakna upp við vondan draum, því gögn þess reynast vera dreifð hingað og þangað. Kannski geymir Facebook ómetanlegar ljósmyndir, til viðbótar við myndasafnið á Instagram-reikningnum.
Meira
Hótelrekstur Bændasamtök Íslands hafa ákveðið að ganga ekki til viðræðna um sölu á Hótel Sögu á grundvelli fyrirliggjandi tilboða sem komu fram í söluferli sem fyrirtækjaráðgjöf MP banka annaðist.
Meira
Eftir Gideon Rachman Það geta falist í því miklar hættur fyrir ráðamenn í Evrópu að sýna undanlátssemi gagnvart nýjum valdhöfum í Grikklandi sem lofað hafa því að semja um frekari niðurfellingu á skuldum landsins.
Meira
Dagurinn sem þú tryggir þér viðskiptavini er sami dagurinn og þú ferð að missa viðskiptavini – svo mælti Don Draper, markaðssnillingurinn í sjónvarpsþáttunum Mad Men.
Meira
Samtök atvinnulífsins og LEX lögmannsstofa efndu til morgunverðarfundar þar sem rætt var um samkeppnismál, áhrif samkeppnislaga á efnahagslífið, réttarstöðu fyrirtækja og heimildir eftirlitsaðila.
Meira
Menntun: Stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1982. Cand. oecon frá Háskóla Íslands 1987, löggiltur endurskoðandi 1990 og MBA frá Háskólanum í Reykjavík 2007.
Meira
Í mörg horn er að líta hjá Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur enda ekki lítið verk að stýra einu stærsta tryggingafélagi landsins. Hún segir kjaraviðræður framundan geta skapað óvissu. Hverjar eru stærstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin?
Meira
Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Morgan Stanley hefur lagt fram tilboð í kröfur á þrotabú Sparisjóðabankans að nafnvirði um 55 milljarða króna í skiptum fyrir kröfur á Kaupþing.
Meira
Bókin Það má segja ýmislegt um Jay Sarno, en hann verður seint sakaður um að hafa ekki verið nógu stórhuga. Sarno var bandarískur viðskiptafrumkvöðull og er að margra mati sá maður sem mótaði gleðiborgina Las Vegas í þá mynd sem hún skartar í dag.
Meira
Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Viðbrögð stærstu kröfuhafa Glitnis við beiðni Heiðars Más Guðjónssonar um gjaldþrotaskipti á hendur slitabúinu voru dæmigerð. Þeir brugðust ókvæða við og hafa krafist þess að málinu verði vísað frá dómi.
Meira
Eftir Jack Farchy í Moskvu Enn eitt áfallið reið yfir Rússland í vikunni þegar matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn landsins niður í spákaupmennskuflokk. Hér er nokkrum spurningum svarað um orsök og afleiðingar þess.
Meira
Orkuveita Reykjavíkur vinnur mikið með jarðgufu og þegar hún kemur til yfirborðs losna úr henni ýmsar lofttegundir. Flestar eru í mjög litlu magni og valda ekki vandræðum.
Meira
Samkeppnismál Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, segir að fyrirtækið hafi fylgt skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið (SE) setti vegna samruna þess og Tals í einu og öllu.
Meira
Viðfangsefni markaðsstjóra íslenskra fyrirtækja á ekki að snúast um hvernig þeir nái til markaðarins, heldur hverju þeir ætli að koma á framfæri.
Meira
Þegar skoðaður er útflutningur á söltuðum og léttsöltuðum þorskflökum fyrstu 11 mánuði síðasta árs kemur í ljós að fluttar voru út tæplega 4.900 smálestir af söltuðum þorskflökum. Megnið var flutt út til Spánar eða um 82%.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lífeyrisjóðurinn Stapi telur sig eiga um 200 milljóna króna kröfu á Íslensk verðbréf vegna heimildarlausra viðskipta fyrir hrun. Krafan hefur þó aldrei verið lögð fram né staðfest.
Meira
Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Það styttist í að nefnd, sem er ætlað að kortleggja skuggabankakerfið hér á landi, skili fjármálaráðherra skýrslu sinni.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Gera sósur og sultur úr útlitsgallaða hluta uppskerunnar og hafa byggt upp glæslega móttöku fyrir ferðamenn í miðju gróðurhúsinu.
Meira
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Eigi að halda því góða orðspori sem íslenskur fiskur hefur á Spáni þarf að fara að huga að frekari markaðssetningu, segir Magnús B. Jónsson hjá Iceland Seafood.
Meira
Lars Christensen, hagfræðingur hjá Danske Bank, flutti framsögu um það sem tekur við á Íslandi eftir afléttingu gjaldeyrishafta, svo sem varðandi stjórnun peningamála, gjaldeyrismál og fjárfestingar, á fundi VÍB í Norðurljósasal Hörpu í gær.
Meira
Þarfaþing Þeir komast lengst í lífinu sem muna kjörorð Grænjaxlanna: „Ávallt viðbúinn“. Þetta er fólkið sem geymir í buddunni eða hanskahólfinu fjölnotatól eða svissneskan vasahníf og getur hert skrúfur eða losað um rær þegar neyðin kallar.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.